FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Evrópusambandsríkjanna komu saman til fundar í Liege í Belgíu í gær til að ræða ástandið í flugmálum. Eins og nú horfir kann allt flug að stöðvast vegna mikilla hækkana á tryggingum í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum.
Meira
HLJÓÐRITI bandarísku farþegaflugvélarinnar, sem hrapaði til jarðar í Pennsylvaníu 11. september, leiðir í ljós, að til "ofsalegra átaka" kom um borð. Kom þetta fram í New York Times í gær.
Meira
Farþegi á Staten Island-ferjunni horfir yfir til Manhattan-eyju í New York þar sem reykjarmökkurinn frá rústum World Trade Center-byggingarinnar grúfir enn yfir, tæplega hálfum mánuði eftir árás hryðjuverkamannanna 11. september.
Meira
BANDARÍKJASTJÓRN herti enn í gær á undirbúningi sínum undir aðgerðir í Afganistan er hún sendi 50 sprengju- og njósnaflugvélar til liðs við þann herafla, sem kominn er til Austurlanda.
Meira
Aðeins seldust um 5% hlutabréfa Landssímans FYRSTA áfanga í einkavæðingu Landssímans lauk á föstudag þegar sölu lauk á 16% heildarhlutafjár fyrirtækisins til starfsmanna þess og almennings og opnuð voru tilboð frá fagfjárfestum í 8% hlutafjársins.
Meira
"BESTA leiðin til að selja Ísland er að þekkja það," segir Guðmundur Kjartansson, formaður framkvæmdastjórnar Íslandsferða Holding, sem er dótturfyrirtæki Flugleiða og eignarhaldsfélag fyrir ferðaskrifstofur Flugleiða erlendis.
Meira
STJÓRN Samfylkingarinnar á Akureyri telur að afstaða Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs um að bjóða fram í eigin nafni við næstu sveitarstjórnarkosningar á Akureyri sé áfall fyrir það fólk sem vill veg félagshyggjuaflanna sem mestan.
Meira
* Áætlað er að tap Flugleiða vegna röskunar á flugi eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum nemi um 100 milljónum króna. Félagið þurfti að aflýsa 26 ferðum dagana 11.-14. september og varð röskun á sjö ferðum til viðbótar.
Meira
Stjórnendur lífeyrissjóða og Búnaðarbankans vísa ummælum samgönguráðherra um útboð Landssímans á bug, en ráðherra sagði að Búnaðarbankanum hefði að nokkru leyti mistekist og að lífeyrissjóðirnir hefðu sammælst um að sniðganga útboðið.
Meira
BÍLLAUSI dagurinn var haldinn víða í borgum og bæjum Evrópu í gær. Var fólk hvatt til að skilja einkabílinn eftir heima og í hans stað nota strætisvagna eða fara fótgangandi. Ísland er eitt fárra landa í Evrópu sem ekki tóku þátt í þessum degi nú í ár.
Meira
ÖKUMAÐUR missti stjórn á bifreið sinni í gærmorgun með þeim afleiðingum að hún hafnaði inni í garði sem er við Borgarholtsbraut til móts við Urðarbraut í Kópavogi.
Meira
BETUR fór en á horfðist þegar mastur brotnaði á tveimur skútum á lokamóti Siglingasambands Íslands undan Akurey á Faxaflóa rétt eftir hádegi í gær.
Meira
MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 24. sept. flytur Ketill Sigurjónsson lögfræðingur erindi í Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri undir yfirskriftinni: "Land möguleikanna? - Hvernig verður landnýtingu á Héraði háttað til framtíðar?
Meira
KANNA á hvort æskilegt sé að flytja rannsóknastofnunina á Keldum á starfssvæði Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni og verður skipaður starfshópur hlutaðeigandi aðila til að fara yfir þá kosti sem fyrir hendi eru í þeim efnum.
Meira
Í TILEFNI tíu ára afmælis Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra býður stofnunin upp á röð fyrirlestra vikuna 24.- 29. september. Efni fyrirlestranna snertir starfsvið stofnunarinnar á ýmsa vegu. Þeir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis.
Meira
FYRIRLESTUR verður haldinn í Foreldrahúsinu í Vonarstræti 4b mánudaginn 24. september kl. 20:30. Fjallað verður um athyglisbrest með ofvirkni en það er hegðunarröskun sem kemur fram hjá börnum fyrir 7 ára aldur.
Meira
ALÞJÓÐASAMBAND Rauða krossins og Rauða hálfmánans sendi út hjálparbeiðni á föstudagskvöld til 176 aðildarfélaga um heim allan til að bregðast við yfirvofandi flóttamannavanda í nágrannalöndum Afganistan.
Meira
SVO mikil ýsa hefur veiðst við Grímsey og víðar úti fyrir Norðurlandi síðustu vikurnar að sumir sjómenn hafa neyðst til að stöðva veiðar vegna skorts á ýsukvóta. Óli H.
Meira
KRISTINN Jakobsson, milliríkjadómari í knattspyrnu, er einn af átta dómurum sem valdir hafa verið til að dæma lokaleikina á heimsmeistaramóti drengja, 17 ára og yngri, sem nú stendur yfir í Trínidad og Tóbagó.
Meira
Eldneytiskerfi ekki bensínmótor Í frétt sem birtist á viðskiptasíðu Morgunblaðsins í fyrradag var rangt farið með í fyrirsögn að um nýja tegund af bensínmótor væri að ræða. Hið rétta er að um nýtt eldsneytiskerfi er að ræða.
Meira
FULLTRÚARÁÐSÞING Félags leikskólakennara var haldið dagana 14. og 15. september sl. Aðalefni þingsins var innganga félagsins í Kennarasamband Íslands, en aðild þess að sambandinu miðast við 15. september 2001.
Meira
Mánudaginn 24. september kl. 12.10-13 fer fram fyrsta málstofa námsbrautar í félagsráðgjöf á haustmisseri í fundarherbergi félagsvísindadeildar í Odda. Þema þessa kennsluárs er öldrun og málefni aldraðra.
Meira
Emil B. Karlsson fæddist í Reykjavík 24. mars 1953. Hann lauk fil. cand. próf 1983 frá Háskólanum í Lundi í kynningartækni. Hann hefur starfað lengst af hjá Iðntæknistofnun, fyrst sem kynningarstjóri stofnunarinnar og síðan sem forstöðumaður Evrópumiðstöðvar. Nú er hann verkefnisstjóri hjá Samtökum verslunar og þjónustu. Emil er kvæntur Hallveigu Thordarson jarðfræðingi og eiga þau samtals fimm börn.
Meira
STJÓRN Verkalýðsfélags Húsavíkur hefur samþykkt eftirfarandi ályktun varðandi niðurskurð á rekstrarframlagi til svæðisútvarps Norðurlands: "Verkalýðsfélag Húsavíkur átelur stjórnendur Ríkisútvarpsins fyrir að draga þarf verulega úr útsendingartíma...
Meira
Á FUNDI sambandsstjórnar Farmanna- og fiskimannasambands Íslands nýverið komu fram hörð mótmæli vegna ákvörðunar stjórnvalda um að fjölga fisktegundum í aflamarki, sem tók gildi 1. september síðastliðinn. Um er að ræða löngu, keilu og skötusel.
Meira
NÁMSKEIÐ í hugljómun verður haldið í skíðskálanum í Bláfjöllum dagana 27.-30. september nk. Leiðbeinadi er Guðfinna S. Svavarsdóttir, en hún hefur haldið slík námskeið árlega um nokkurra ára skeið.
Meira
NORRÆN ráðstefna, Sprogpolitisk strategikonference, um aðgerðir og samræmingu til verndar norrænum tungumálum á pólitískum grundvelli hófst í fyrradag á Hótel Borgarnesi.
Meira
ÖKUMAÐUR sendiferðabíls, sem fór út af veginum við vegamót Þrengslavegar í Svínahrauni á þriðjudagskvöld, er alvarlega slasaður. Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss er líðan hans óbreytt.
Meira
ÞRIÐJUDAGINN 25. september 2001 heldur Sverrir Jakobsson sagnfræðingur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem hann nefnir: Sjálfsmyndir miðalda og uppruni Íslendinga. Fundurinn fer fram í stóra sal Norræna hússins, hann hefst kl....
Meira
BROTIST var inn í Sjónvarpsmiðstöðina í Síðumúla um tíuleytið í fyrrakvöld og stolið þaðan tíu myndbandsupptökuvélum, en verðmæti hverrar vélar er á bilinu 100-300 þúsund krónur.
Meira
HEIMSVIÐSKIPTASTOFNUNIN (WTO) dregur í efa forsendur Íslands fyrir útreikningi á innanlandsstuðningi við landbúnaðinn. Stofnunin hefur t.d. gagnrýnt að íslensk stjórnvöld skuli skilgreina beingreiðslur til sauðfjárbænda sem "grænar" greiðslur.
Meira
ÚTIGANGSFÓLK er yngra og í harðari neyslu en venjan var fyrir nokkrum árum og hlutfall þeirra sem eiga við geðræn vandamál að stríða innan hópsins fer vaxandi.
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra segir óljóst hvernig ríkisstjórnin komi til með að bregðast við vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í tryggingamálum flugvéla. Málið sé bæði stórt og flókið.
Meira
Öllum vopnum verður beitt GEORGE W. Bush, forseti Banda ríkjanna, ávarpaði þjóð sína í ræðu, sem hann flutti fyrir báðum deildum Bandaríkjaþings sl. fimmtudagskvöld.
Meira
ÞEGAR kalda stríðinu lauk varð fleygt þegar Francis Fukuyama talaði um endalok sögunnar. Eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september hefur verið haft á orði að sagan sé hafin á ný.
Meira
Niðurstaðan í fyrstu umferð hlutafjárútboðs í Landssíma Íslands er áfall fyrir einkavæðingarnefnd, sem hefur undirbúið útboðið og tekið lykilákvarðanir um það, Búnaðarbankann, sem sá um framkvæmd þess og fyrirtækið sjálft.
Meira
Myndasaga vikunnar er The Swamp Thing: A murder of crowes. Höfundur er Alan Moore og teiknarar eru Stephen Bissette, John Todleben, Stan Woch, Rick Weitch, Ron Randall og Alfredo Alcala. Útgefið af DC Comics, 2001.
Meira
Á ÖÐRUM tónleikunum í tónleikaröðinni Sunnudags-matinée í tónlistarhúsinu Ými í dag kl. 16 koma fram Elín Ósk Óskarsdóttir sópransöngkona og Gerrit Schuil píanóleikari og flytja aríur m.a.
Meira
EINN STÆRSTI ljósvakarisi Bandaríkjanna Clear Channel Communications, sem rekur á annað þúsund útvarpsstöðva vestanhafs, hefur sent til stjórnenda þeirra lista með 150 lögum sem mælst er til að ekki verði leikin að svo stöddu.
Meira
ÞAÐ HEFUR ekki staðið á meðlimum dægur- og afþreyingariðnaðarins í Bandaríkjunum að rétta þjáðum meðbræðrum hjálparhönd í kjölfar voðaverkanna í New York.
Meira
Á Englandi er tónlistarblaðamönnum gjarnt að taka stórt upp í sig. Árni Matthíasson segir frá bandarísku rokksveitinni The Strokes sem breskir segja hafa framtíð rokksins í höndum sér.
Meira
KONSTANTIN Kavafis (1863-1933) er eitt af höfuðskáldum Grikkja. Eftir því sem árin líða er hann æ meir metinn. Í einni af stærstu bókabúðum Madrídborgar um daginn var ég að kynna mér nýjar bækur og fletta þeim.
Meira
Ocean Sea eftir Alessandro Baricco. 241 síðna kilja, gefin út af Vintage International árið 2000. Fæst í bókabúð Máls og menningar og kostar 1.595 krónur.
Meira
Komin er út bók með 25 íslenskum smásögum sem þýddar hafa verið á finnsku. Sigrún Klara Hannesdóttir brá sér í íslenska sendiráðið í Helsinki til að ræða við þýðendur þessarar nýju bókar, Seiju Holopainen og Päivi Kumpulainen, og til að inna þær eftir Íslandsáhuga þeirra og tilurð þessarar bókar.
Meira
Í KATUAQ, Menningarhúsinu í Nuuk á Grænlandi, stendur nú yfir myndlistarsýning tíu íslenskra listakvenna, en þær eru allar félagar í Íslenskri grafík. Þær eru Anna G.
Meira
NÍUNDA starfsár Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands hefst með tónleikum í Glerárkirkju í dag kl. 16. Stjórnandi á tónleikunum er Guðmundur Óli Gunnarsson og einsöngvari er Hulda Björk Garðarsdóttir sópran.
Meira
Nýlistasafnið Nú stendur yfir í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b, sýningin Sjálfbær þróun. Listamennirnir munu leiða gesti um sýninguna í dag, sunnudag, kl....
Meira
Í NORRÆNA húsinu verður ljóðaupplestur og þjóðlagatónlist frá Lettlandi í dag, sunnudag, kl. 16. Hjalti Rögnvaldsson leikari mun flytja ljóð Knuts Skujenieks í þýðingu Hrafns Harðarsonar. Knuts (f.
Meira
ÁRLEGIR minningartónleikar um tónmenningarhjónin Sigríði og Ragnar H. Ragnar verða í dag kl. 16 en þeir teljast meðal helstu viðburða tónlistarlífsins á Ísafirði. Tónleikarnir eru ætíð haldnir sem næst fæðingardegi Ragnars, en hann var fæddur 28.
Meira
LINDA Oddsdóttir opnar sína fyrstu einkasýningu á Café Presto, Hlíðarsmára 15, í dag, sunnudag. Á sýningunni eru eingöngu olíumálverk, unnin á þessu ári. Myndefnið er aðalega sótt í náttúru landsins.
Meira
* ÚR stundaglasinu eru minningaþættir Ármanns Halldórssonar frá Snotrunesi á Borgarfirði eystra, sem lengi var kennari við Alþýðuskólann á Eiðum, síðar forstöðumaður Héraðsskjalasafns Austfirðinga.
Meira
* FERJUÞULUR - rím við bláa strönd er hljóðbók og hefur að geyma lestur höfundarins, Valgarðs Egilssonar , á verkum sínum. Auk Ferjuþulu les höfundurinn, sem er læknir og rithöfundur, smásögu sína Söguna af Hakanum hegg.
Meira
HELGA Kristmundsdóttir hefur opnað sýningu á olíumálverkum í baksalnum í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16. Sýninguna nefnir listakonan Heimkomu.
Meira
STOFNUN Sigurðar Nordals fagnaði 15 ára afmæli sínu á dögunum með málþingi um stöðu íslenskra fræða við aldamót. Frummælendur voru Ástráður Eysteinsson bókmenntafræðingur, Höskuldur Þráinsson málfræðingur og Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur.
Meira
* MANNLÍF og saga fyrir vestan, 9. hefti er komið út. Í heftinu er fjallað um vestfirskt mannlíf að fornu og nýju á svæðinu frá Bjargtöngum að Djúpi. Meðal efnis í þessu hefti er "Þetta er bara bóla", umfjöllun um Fiskiðju Dýrafjarðar hf.
Meira
Sinfóníuhljómsveit Íslands leggur land undir fót og heldur sjö tónleika á Austurland í vikunni, tvenna skólatónleika og fimm almenna tónleika. Þeir fyrstu verða á Vopnafirði á mánudag kl. 16 og kl. 20. Á Egilsstöðum á þriðjudag kl. 14 og kl. 20.
Meira
VÆNTANLEG er hjá Vöku-Helgafelli fyrsta skáldsagan eftir Matthías Johannessen. Heiti bókarinnar er Hann nærist á góðum minningum og mun þetta vera minningaskáldsaga er segir frá eldri manni í nútímanum og hvernig hann minnist uppvaxtarára sinna.
Meira
BRAGI Ólafsson og Þorvaldur Þorsteinsson munu senda frá sér skáldsögur á þessu hausti. Það er bókaútgáfan Bjartur sem gefur út og þaðan berast þær fréttir að Bragi sé um þessar mundir að leggja lokahönd á sína aðra skáldsögu.
Meira
MÁL og menning gefur á þessu hausti út skáldsögur eftir Gyrði Elíasson, Sveinbjörn I. Baldvinsson og Sjón. Frá Gyrði Elíassyni kemur sjálfstætt framhald skáldsögunnar Gangandi íkorni sem út kom fyrir nokkrum árum.
Meira
Suðurlandssveitin Á móti sól er komin með nýja plötu, metnaðarfulla poppskífu sem er augljóslega þeirra besta verk til þessa. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við Heimi Eyvindarson vegna þessa.
Meira
NÚ stendur yfir myndlistarsýning Birnu Smith á veitingastaðnum Við fjöruborðið á Stokkseyri. Verkin eru ölll unnin í olíu, bæði gömul og ný. Ennfremur stendur yfir sýning á verkum Birnu í Smíðar og skart á Skólavörðustíg...
Meira
NÚ STENDUR yfir sýning í Þjóðskjalasafni Íslands í tilefni af útgáfu afmælisrits Einars Laxness, sem er sjötugur um þessar mundir. Sýnd eru skjöl sem snerta nokkrar af ritgerðum hans og tengist sýningin fjórum ritgerðum.
Meira
* ÓPERUBLAÐIÐ er komið út, 2. tölublað 14. árgangs. Meginþema að þessu sinni er Töfraflautan, sem nú er sýnd í Íslensku óperunni. Í blaðinu er m.a.
Meira
Leikstjóri: John Stockwell. Handrit: Phil Hay og Matt Manfredi. Aðalhlutverk: Kirsten Dunst, Jay Hernandez, Bruce Davidson, Herman Osorio, Miguel Castro. Bandarísk. 2001. 95 mín.
Meira
múm remixed, endurhljóðblöndunardiskur, unninn upp úr breiðskífu múm, Yesterday Was Dramatic, Today Is OK. Þeir sem umvéla eru Bix, Ruxpin, ILO, Traktor, m -Ziq, Biogen og El hombre trajedo. Lög eftir múm. 53,54 mínútur.
Meira
Please Smile My Noise Bleed, hljómdiskur múm og fleiri. Múm á hér tvö ný lög en svo eru hér umvélanir eftir erlendu listamennina Styrofoam, ISAN, Phonem, Christian Kleine, Arovane og B. Fleischmann. 45,51 mínútur.
Meira
LEIKÁRIÐ er farið á fullt hjá leikhúsi þjóðarinnar við Hverfisgötu. Í síðustu viku var riðið á vaðið þegar Vilji Emmu var frumsýndur á Smíðaverkstæðinu og á fimmtudaginn varð önnur frumsýningin, Hver er hræddur við Virginíu Woolf?
Meira
LEIKFERÐ Möguleikhússins með Völuspá, eftir Þórarin Eldjárn, í mennta- og grunnskóla um norðausturhluta landsins hefst á morgun, mánudag, og verða fyrstu sýningar í Nesskóla í Neskaupstað kl. 11.20 og á Reyðarfirði í Félagslundi kl. 19.
Meira
JPV-ÚTGÁFA gefur í haust út bókina, Björg - ævisaga Bjargar C. Þorláksson, eftir Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur prófessor. Björg C. Þorláksson fæddist árið 1874 norður í Húnaþingi.
Meira
50 ÁRA afmæli. Í dag, sunnudaginn 23. september, er fimmtug Guðbjörg Eygló Þorgeirsdóttir, snyrti-, nudd- og fótaaðgerðarfræðingur, Rauðalæk 31, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Sveinbjörn Reynir Pálmason. Þau verða að heiman í...
Meira
70 ÁRA afmæli . Á morgun, mánudaginn 24. september, verður sjötugur Jón Ólafsson, Lágengi 12, Selfossi . Eiginkona hans er Gunnþórunn Hallgrímsdóttir . Þau hjón verða að heiman á...
Meira
70 ÁRA afmæli . Nk. þriðjudag 25. september verður sjötugur Karl Finnbogason, matreiðslumeistari og fyrrverandi bryti hjá Eimskipafélagi Íslands. Hann tekur á móti ættingjum og vinum í sal Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar, Flatahrauni 29, Hafnarfirði, kl.
Meira
Ísland ögrum skorið, eg vil nefna þig, sem á brjóstum borið og blessað hefur mig fyrir skikkun skaparans; vertu blessað, blessi þig blessað nafnið...
Meira
Í dag er sunnudagur 23. september, 266. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Ég er ljós í heiminn komið, svo að enginn, sem á mig trúir, sé áfram í myrkri.
Meira
EITT AF hinum ljúfu lögum Sigfúsar Halldórssonar er Sommerens sidste blomster, gert við lítið ljóð sem Kristmann Guðmundsson orti á Noregsárum sínum.
Meira
UNDANFARIN ár hafa frammámenn eldri borgara haft orð á því, að nú þyrfti að semja við stjórnvöld um leiðréttingu á skattlagningu eftirlauna og ellilífeyris eldri borgara. Ekkert hefur samt gerst í þessum málum að því er virðist.
Meira
UM MÁNAÐAMÓTIN janúar-febrúar árið 2000 brann íbúðarhúsið að Skálabrekku í Þingvallasveit til grunna. Regína og Hörður voru þá búandi þar, en þau voru ekki heima þegar eldurinn kom upp.
Meira
Fyrir þjóðarbúið væri efalaust til lengdar affarasælast, að strandveiðiflotanum yrði gefinn alger forgangur, segir Jón Sigurðsson, til veiða á grunnslóð með línu og handfærum og þá allt eins án aflatakmarkana.
Meira
NÚ standa yfir samningaviðræður um kjaramál milli ríkisins og sjúkraliða starfandi á Landsspítala - háskólasjúkrahúsi. Lítt hefur miðað í viðræðunum og er svo komið að sjúkraliðar stefna að verkfallsaðgerðum með vinnustöðvunum á næstu vikum.
Meira
VÍKVERJI heyrði áþreifanlegt dæmi um samdrátt í innanlandsflugi í Bandaríkjunum eftir hryðjuverkin. Íslendingur, búsettur í Texas, var staddur hér heima þegar ósköpin dundu yfir en komst að nokkrum dögum liðnum vestur um haf.
Meira
ÞAÐ er mjög athyglisvert að aldraðir ætli að bjóða fram til sveitarstjórnakosninga og ef til vill líka til Alþingis. Þá munu þeir eiga fulltrúa sem getur flutt mál þeirra.
Meira
Amelía Magnúsdóttir fæddist í Reykjavík 16. nóvember 1931. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 12. september síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 19. september.
MeiraKaupa minningabók
Eva María Sigurðardóttir fæddist 23. september 1976. Hún lést af slysförum 19. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hjallakirkju í Kópavogi 28. ágúst.
MeiraKaupa minningabók
Jóhann Friðfinnsson fæddist í Vestmannaeyjum 3. nóvember 1928. Hann lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi 13. september og fór útför hans fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum 21. september.
MeiraKaupa minningabók
Kjartan Sigurðsson, fyrrv. lögregluvarðstjóri, fæddist 23. október 1926. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 19. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyrarkirkju 30. ágúst.
MeiraKaupa minningabók
Kristján Ólafur Sigurðsson, fyrrv. múrarameistari, fæddist á Akurhóli í Grindavík 7. maí 1919. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 18. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Grindavíkurkirkju 25. ágúst.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Guðmundsson fæddist 14. febrúar 1907 í Kjólsvík í Borgarfjarðarhreppi í Norður-Múlasýslu. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eir 12. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 21. september.
MeiraKaupa minningabók
Ólöf Björgólfsdóttir fæddist í Eyjaseli í Jökulsárhlíð 21. júlí 1919. Hún lést í Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað 13. september síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Selma Jóhannsdóttir fæddist 4. júlí 1973 í Reykjavík og sonur hennar, Gabríel Elí Brynjarsson, fæddist 3. október 1998 í Reykjavík. Þau létust af slysförum, hann 8. september og hún 10. september síðastliðinn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi og fór útför þeirra fram frá Hallgrímskirkju 14. september.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Lovísa Haraldsdóttir fæddist á Ísafirði 15.09. 1916. Hún lést 12. september síðastliðinn á heimili sínu, Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Sigríður var dóttir hjónanna Haraldar Loftssonar beykis og Kristjönu Bjarneyjar Jónsdóttur.
MeiraKaupa minningabók
Sverrir Hólmarsson fæddist á Sauðárkróki 6.3. 1942. Hann lést á heimili sínu í Freerslev 6. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Freerslev Kirke í Freerslev á S-Sjálandi 15. september.
MeiraKaupa minningabók
Þórarinn Heiðar Þorvaldsson, fæddist á Akureyri 11. febrúar 1928. Hann andaðist á Landspítalanum íFossvogi 16. september síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Þorvaldur Guðjónsson, brúarsmiður, f. 12.03. 1907, d. 4.6.
MeiraKaupa minningabók
HRAÐAMÆLAR eru ekki eins nákvæmir og margir ætla. Í mörgum bílum sýna hraðamælar allt að 11% frávik frá réttum hraða. Þetta þýðir í raun að þegar ekið er á 89 km hraða á klst sýnir hraðamælirinn 100 km á klst.
Meira
DÍSILBÍLAR hafa ekki átt upp á pallborðið á Íslandi hjá öðrum en leigubílstjórum og helgast þetta af umdeildri skattlagningu á þessa gerð bíla umfram bíla sem knúnir eru bensíni.
Meira
EINN af sérstæðari hugmyndabílum í Frankfurt var sex sæta Citroën C-Crosser. Talsmenn Citroën segja að C-Crosser sé dæmi um hvernig bílar sem tengjast tómstundum og útivist gætu litið út í framtíðinni. Allt í hönnun bílsins gengur út á mikið innanrými.
Meira
GLÆPATÍÐNI á Kanaríeyjum fer minnkandi, segir ennfremur í nýjustu útgáfu Scandinavian Boarding. Kanaríeyjar eru vinsæll viðkomustaður norrænna ferðalanga yfir vetrartímann og segir í blaðinu að nýjustu tölur sýni að afbrotum fari fækkandi.
Meira
Lággjaldaflugfélagið Go flýgur fjórum sinnum í viku milli Keflavíkur og Lundúna fram til 28. október. Flogið er á mánudögum, fimmtudögum og föstudögum og er síðasta ferð Go til Íslands farin 27. október, að því er fram kemur í...
Meira
Meðal helstu kennileita Kuala Lumpur eru háhýsin. Guðrún Hálfdánardóttir lét sér ekki nægja að fá hálsríg við að horfa upp eftir þeim heldur skellti sér upp í tvö þeirra þrátt fyrir lofthræðslu. Og útsýnið var stórkostlegt.
Meira
NÝ gerð Hyundai Coupé, önnur kynslóðin, var frumsýnd á bílasýningunni í Frankfurt. Hér er greinilega um nýjan bíl að ræða sem er stærri, breiðari og hærri en forverinn.
Meira
LAND Rover-eigendur hafa fyrir sið að hittast einu sinni á ári í skemmtiferð um hálendið í góðum félagsskap. Að skipulagningunni stendur B&L, sem lagt hefur metnað sinn í að krydda ferðirnar hæfilegum skammti af torfærum leiðum.
Meira
ÞRÁTT fyrir mikinn samdrátt í sölu á jeppum og jepplingum fyrstu átta mánuði ársins er samdrátturinn þó minni en gengið hefur yfir allan fólksbílamarkaðinn.
Meira
ÞAÐ var mikið líf á sýningarsvæði Nissan í Frankfurt þar sem afhjúpaðir voru tveir nýstárlegir hugmyndabílar auk þess sem splunkuný Primera var frumkynnt.
Meira
GENERAL Motors ætla að stofna sameiginlegt fyrirtæki með hinu gjaldþrota Daewoo í Suður-Kóreu. Viljayfirlýsing um þetta var undirrituð á föstudag og er niðurstaða af samningaviðræðum sem staðið hafa yfir milli aðilanna í eitt ár.
Meira
KIA sýndi athyglisverðan hugmyndabíl í Frankfurt sem kallast K-ACV (Kia Advanced Concept Van). Kia segir að bíllinn sé dæmi um hvernig næsta kynslóð fjölnotabíla geti litið út. Bíllinn er byggður á sama undirvagni og Carens, litli fjölnotabíllinn frá...
Meira
SENUÞJÓFURINN á sýningarsvæði Seat var Tango kúpubakurinn. Þetta er lítill tveggja sæta bíll og er honum ekki síst ætlað að aðgreina Seat á Spáni frá móðurfyrirtækinu Volkswagen. Bíllinn er hannaður af Walter da Silva, þeim sama og hannaði Alfa Romeo...
Meira
TOYOTA lagði að sjálfsögðu mesta áherslu á kynningu á nýrri Corolla á bílasýningunni í Frankfurt en á sýningarsvæðinu mátti einnig greina þá áherslu sem fyrirtækið leggur á umhverfismál og nýja tækni í aflrásum og smíði bíla. Þarna var t.a.m.
Meira
CHRYSLER, sem er hluti af DaimlerChrysler, hefur verið einn af þremur stærstu bílaframleiðendum vestanhafs síðustu áratugi. Í síðasta mánuði munaði hins vegar mjög litlu að Toyota færi framúr Chrysler. Chrysler seldi aðeins 5.
Meira
PEUGEOT sýndi tvo nýja langbaka í Frankfurt, 307 SW og 206 SW, og fara þeir í framleiðslu á næsta ári í örlítið breyttri mynd. Báðir eru bílarnir byggðir á lengdri gerð undirvagna 307 og 206.
Meira
Bandaríkjastjórn hefur staðfest að óeinkennisklæddir en vopnaðir lögreglumenn verði hafðir um borð í innanlands- og millilandaflugi í framtíðinni í kjölfar árása hryðjuverkamanna í Washington og New York.
Meira
Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði Glæsibæ fimmtud. 13. sept. 2001. 22 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Ólafur Ingvarsson - Jóhann Lúthersson 265 Sigurður Pálsson - Ásta Erlingsd. 258 Júlíus Guðmundss.
Meira
Samstarfshópurinn "Betri borg" heldur málþing sem ber yfirskriftina "Dagur virðingar" þriðjudaginn 25. september kl. 13:00-16:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Meira
Skoðanir okkar eru byggðar á reynslu, þekkingu, dómgreind og samvizku. Stefán Friðbjarnarson staldrar við þessar eigindir - sem og skoðana- og tjáningarfrelsi.
Meira
Hinn síungi öldungur, Viktor Kortsnoj (2614), teflir enn af fítónskrafti. Hann nartaði í hæla gamla erkióvinar síns, Anatoly Karpovs, á minningarmóti Najdorfs er lauk fyrir skömmu í Buenos Aires.
Meira
Spilakvöld landsliðsnefndar kvenna Næsta spilakvöldi nefndarinnar verður miðvikdaginn 26.9. í Hreyfilshúsinu við Grensásveg kl. 19.30. Dagskrá kvöldsins verður lík öðrum spilakvöldum nefndarinnar. Guðmundur Sv.
Meira
Nöfn þeirra sem fórust *Einar Kristjánsson skipstjóri, f. 23. des. 1895 *Kristján Bjarnason, 1. stýrimaður, f. 3. jan. 1902 *Jón H. Kristjánsson, 2. stýrimaður, f. 13. sept. 1911 *Jón Erlingsson, 2. vélstjóri, f. 25.
Meira
Mörgum er spurn hvort kveikjan að hermdarverkunum í Bandaríkjunum nýverið hafi verið heilög vandlæting eða hatur. Guðni Einarsson kynnti sér trúarlega þræði málsins.
Meira
Sextíu ár eru nú liðin frá því að þýskur kafbátur sökkti kaupskipinu Heklu suður af Grænlandi. 13 manns fórust með skipinu og þeir sjö sem komust af höfðust við á björgunarfleka í tíu daga áður en björg barst. Rúnar Sigurður Birgisson rifjar hér upp síðustu siglingu Heklunnar.
Meira
HNÚÐLAX veiddist í Húseyjarkvísl í síðustu viku og eftir því sem næst verður komist mun þetta vera fyrsti fiskur sinnar tegundar sem veiðst hefur í ánni, að sögn Ingólfs Davíðs Sigurðssonar, sem veiddi fiskinn.
Meira
MILLJÓNIR manna líða skort í Afganistan. Talið er að um það bil fjórðungur 25 milljóna íbúa landsins hafi flosnað upp hin síðari ár, vegna þurrka og styrjaldarástands, margir komust úr landi en líklegt er að um ein milljón sé nú á vergangi innanlands.
Meira
Íslam eru yngst höfuðtrúarbragða mannkyns og stofnuð af Múhameð spámanni á árunum 610-632. Orðið íslam merkir undirgefni við Allah. Fylgismenn trúarinnar nefnast múslímar.
Meira
LOUIS Jadot er með traustari nöfnunum í Búrgund, héraði þar sem auðvelt er að misstíga sig í vínkaupum. Vínin frá Jadot hafa verið að færa sig upp á skaftið hérlendis um nokkurt skeið og nú eru tvö afbragðs vín í reynslusölu.
Meira
Lífshlaup fólks er æði misjafnt og oft ráða tilviljanir stórum ákvörðunum. Hjónin Marín Gísladóttir og Helmut Neumann eru þekkt meðal Íslendinga sem stundað hafa nám síðustu áratugi í Vínarborg. Guðrún Guðlaugsdóttir hitti þau að máli og fékk að heyra tildrög að kynnum þeirra og sitt hvað sem á daga þeirra hefur drifið.
Meira
ÍTALIR monta sig gjarnan af ólífuolíu sinni, sem er ein mikilvægasta fæðutegund þeirra. Hún er enda mjög bragðgóð, heilsusamleg og algerlega náttúruleg. Ólífuolían hefur góðan orðstír og er elsta, hollasta og eitt mest heillandi kryddið.
Meira
Hryðjuverk hafa þekkst frá örófi alda, þótt aldrei hafi afleiðingar þeirra verið jafn skelfilegar og í árásinni á Bandaríkin 11. september. Ragnhildur Sverrisdóttir stiklaði á stóru í hryðjuverkasögu heimsins og kannaði spár um framtíðarþróun hryðjuverka.
Meira
GUÐMUNDUR Jónsson, forstöðumaður Byrgisins, lýsti veruleika útigangsfólks í viðtali við Morgunblaðið fyrir skömmu. Þar segir hann: "Að vera á götunni er geysimikil einangrun og þú tilheyrir öðrum heimi.
Meira
Minningarathöfn um hina látnu skipverja fór fram 14. október 1941 í Dómkirkjunni. Af því tilefni skrifar sr. Jón Thorarensen minningargrein að beiðni Mbl. Þar kemst hann m.a.
Meira
Andy Hargreaves, prófessor við háskólann í Toronto í Kanada, var meðal fyrirlesara á Skólamálaþingi Kennarasambands Íslands og Félags íslenskra leikskólakennara. Kristín Gunnarsdóttir ræddi við hann en hann er kunnur fræðimaður á sviði skólamála og hefur unnið að ráðgjöf, rannsóknum og þróunarstarfi. Auk þess er hann höfundur og ritstjóri fjölda bóka um skólastarf og kennslu.
Meira
Sönn hetja er tilbúin að fórna eigin lífi fyrir eitthvað sem hún telur mikilvægara, segir Sveinbjörn I. Baldvinsson. Sá sem tekur sér vald til að fórna lífi hundraða eða þúsunda saklausra karla, kvenna og barna, er ekki hetja. Hann er í senn raggeit og fjöldamorðingi og gerir einmitt þeim sem hann telur ef til vill að hann sé að berjast fyrir mest og afdrifaríkast ógagn.
Meira
Mikil umræða hefur átt sér stað um heimilislausa að undanförnu. Þeir þykja meira áberandi en áður og eru vangaveltur um hvort þeim hafi fjölgað verulega eða hvort þeir séu bara orðnir sýnilegri.
Meira
Mikil umræða hefur átt sér stað um heimilislausa að undanförnu. Þeir þykja meira áberandi en áður og eru vangaveltur um hvort þeim hafi fjölgað verulega eða hvort þeir séu bara orðnir sýnilegri.
Meira
ÓNEITANLEGA er fortíð Helmuts Neumanns ævintýralegri en konu hans Marínar - alltént til að sjá. Hann fæddist í Vínarborg 1938, eldri sonur trygginga- og viðskiptafræðingsins Leo Neumanns.
Meira
BORGARRÁÐ samþykkti nýlega að teknar yrðu upp viðræður við heilbrigðisráðuneytið og félagasamtök varðandi úrræði fyrir heimilislausa í Reykjavík.
Meira
ÞEGAR ég var unglingur í sveit fann ég eitt sinn eldgamalt Úrval í blaðadóti í pappakassa undir súð sem einhver hafði komið með á bæinn eftir tiltekt heima hjá sér fyrir margt löngu.
Meira
Það er árið 50 f. Kr. Öll Gallía hefur verið hernumin af Rómverjum... nema eitt lítið þorp á ströndinni, Gaulverjabær, veitir enn kröftuga mótspyrnu.
Meira
Ertu á leiðinni til Frakklands, eða kannski bara í bíó? Það getur alla vega alltaf verið gott að kunna nokkur orð í frönsku. Þessar setningar má heyra í myndinni um Skriðdýrin, eða á götuhorni hvar sem er í Frakklandi.
Meira
ÞÓTT Frakkarnir borði sitt langa franskbrauð með næstum öllu sem þeir láta ofan í sig, þá eru þeir einnig frægir fyrir pönnukökurnar sínar sem heita crêpes (framburður: krepp).
Meira
Halló! Ég heiti Snædís og óska eftir netvinum á aldrinum 12-13 ára. Áhugamál mín eru fimleikar, kajaksiglingar, dýr, stangaveiði og bækur. Snædís Guðmundsdóttir snaeda_g@visir.
Meira
Byrjaðu á tölunni 1 og dragðu strik að tölunni 2 og þannig koll af kolli þar til þú ert kominn upp í 61 og kemst að því hvaða dularfulla vera er ein á ísjaka.
Meira
Flest vitum við að Kvasímódó var hringjarinn í Frúarkirkjunni, Notre Dame, í París sem byggð var á árunum 1160-1345. Sagan um Kvasímódó, sem hefst árið 1487, er eftir mjög frægan rithöfund, Victor Hugo.
Meira
LITLI prinsinn býr nú ekki beint í Frakklandi, heldur á smástirninu B 612, ef þið kannist við það. Hann er þó líklega frægasta franska barnabókapersónan sem til er. Höfundur bókarinnar um Litla prinsinn hét Antoine de Saint-Exupéry og var flugmaður.
Meira
Hæ! Ég heiti Jóhanna og er tólf ára. Mig langar til að eignast pennavini á aldrinum 12-13 ára. Áhugamálin mín eru: Hundar, Liverpool, fimleikar, börn og límmiðar.
Meira
Nafn: Stefán Snorri Ólafsson. Fæddur: 23. febrúar 1993. Skóli: Melaskóli. "Lögin eru skemmtileg og skemmtilegast er lagið "Who Let The Dogs Out".
Meira
SKRIÐDÝRIN eru hvorki há í loftinu né aldin að árum en þau taka sér ótrúlega margt fyrir hendur, jafnvel þótt sum þeirra séu enn með bleiu. En þau eru öll miklir vinir og prakkarar fram í fingurgóma.
Meira
New York er breytt borg. Einar Falur Ingólfsson fór aftur til borgarinnar þar sem hann bjó um nokkurra ára skeið og skráði breyttan hversdag borgarbúa í máli og myndum.
Meira
Frumsýningardagur bandarísku gamanmyndarinnar American Pie 2 hefur verið færður fram og verður hún nú frumsýnd hinn 5. október. Með helstu hlutverk fara Jason Biggs, Eugene Levy og Seann William Scott en leikstjóri er J. B. Rodgers .
Meira
Ástralska leikkonan Cate Blanchett hefur dvalið í Dublin upp á síðkastið og á þar viðræður við leikstjórann Joel Schumacher um aðalhlutverkið í nýrri mynd hans, sem fjallar um morðið á írsku blaðakonunni Veronica Guerin .
Meira
Breski leikstjórinn John Boorman hefur lagt gjörva hönd á bíómyndir sem hitt hafa í mark en aðrar hafa geigað. Á ríflega 35 ára ferli hefur hann sýnt vandað, listrænt handbragð og á köflum dirfsku í efni og stíl.
Meira
Bandaríska bíómyndin Captain Corelli's Mandolin verður frumsýnd hinn 12. október næstkomandi í Sambíóunum og Háskólabíói . Með helstu hlutverk fara Nicolas Cage , Penelope Cruz og John Hurt en leikstjóri er John Madden ( Shakespeare in Love ) .
Meira
Smárabíó og Regnboginn frumsýna hinn 7. desember spennumyndina From Hell með Johnny Depp og Heather Graham . Leikstjórar eru bræðurnir Albert og Allen Hughes en með önnur hlutverk fara Ian Holm og Paul Rhys .
Meira
Þegar Steven Spielberg fékk að gjöf verkefnið A.I., Artificial Intelligence eða Gervigreind, úr hendi annars meistara, Stanleys heitins Kubricks, vissi hann að það reyndi á greind sína en ekki síður áhorfenda, skrifar Árni Þórarinsson. Myndin fékk misjöfn viðbrögð þegar hún var frumsýnd vestra. Nú reynir á greind íslenskra áhorfenda.
Meira
Hinn 2. nóvember frumsýnir Smárabíó og Regnboginn spennumyndina Joy Ride en hún er nýjasta mynd Johns Dahls . Með aðalhlutverkin fara Steve Zahn, Paul Walker og Leelee Sobieski .
Meira
er af mörgum talinn efnilegasti ungi leikarinn sem er að störfum Í Hollywood. Orðstírinn á hann ekki síst að þakka meistaralega túlkuðu hlutverki skyggna drengsins Cole Sear, í Sjötta skilningarvitinu .
Meira
Félag kvikmyndahandritshöfunda í Bandaríkjunum er eitt af mörgum stéttarfélögum vestra sem veitt hefur fé til neyðaraðstoðar í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar á Bandaríkin. Það hefur gefið 50.
Meira
BRETAR eru frægir fyrir góðar heimildamyndir, enda hafa bresku sjónvarpsstöðvarnar ræktað greinina. Í kvikmyndahúsunum eru heimildamyndir þó sjaldséðar, en þessa dagana dregur bandarísk heimildamynd Englendinga að tjaldinu.
Meira
F JÖLDI hamfaramynda hefur verið gerður í Hollywood á undanförnum misserum og tengjast árþúsundaskiptunum frekar en nokkuð annað og náttúrulega þeim sannindum að hamfarir í bíó selja.
Meira
E NGINN sem sá hrollvekjuna Sjötta skilningarvitið -The Sixth Sense ('99), getur gleymt hinum unga og hjálparvana Haley Joel Osment , sem fór með firnaerfitt hlutverk drengs með óvenju mikla skyggnigáfu og líður fyrir það.
Meira
Bandaríski kvikmyndaleikarinn Kevin Spacey keypti nýlega Óskarsstyttu í Los Angeles með það í huga að gefa hana aftur bandarísku kvikmyndaakademíunni.
Meira
Julie Andrews, Barbara Hershey, Anthony Lapaglia og Mira Sorvino eru á meðal þeirra kvikmyndaleikara sem hafa tilkynnt að munu ekki taka þátt í alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í San Sebastian á Spáni, sem stendur fyrir dyrum.
Meira
Á gangstéttinni við litla slökkvistöð í Litlu Ítalíu er mikið af blómum, logandi kerti, skrifuð skilaboð frá fólki og myndir af slökkviliðsmönnum. Ekki fer á milli mála að þeir hafa farist.
Meira
Upp um alla Manhattan eru andlit á blöðum, límd upp hér og þar; á símaklefum, ljósastaurum, húshliðum. Og þau eru hundruðum saman á minningarstöðum sem hafa sprottið upp í görðum, götuhornum og neðanjarðarlestastöðvum.
Meira
Breski leikstjórinn John Boorman hefur lagt gjörva hönd á bíómyndir sem hitt hafa í mark en aðrar hafa geigað. Á ríflega 35 ára ferli hefur hann sýnt vandað, listrænt handbragð og á köflum dirfsku í efni og stíl.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.