TALSMENN Ísraelsstjórnar neituðu alfarið í gær ásökunum þess efnis að Ísrael hefði staðið fyrir morðinu á Elie Hobeika, stríðsherra í Líbanon á árum borgarastyrjaldarinnar þar 1975-1990. Sagði talsmaður utanríkisráðuneytisins þær "fáránlegar".
Meira
ALAN Greenspan, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagðist í gær sjá jákvæð merki um að bandarískur efnahagur væri að ná jafnvægi en varaði þó við því að batinn yrði sennilega ekki jafn hraður og aðilar á markaði myndu kjósa.
Meira
JOHN Walker-Lindh, Bandaríkjamaðurinn ungi sem sakaður er um að hafa barist með al-Qaeda-hryðjuverkasamtökunum í Afganistan, kom fyrir alríkisrétt í Virginíu í Bandaríkjunum í gær og hlýddi þar á ákæru á hendur sér.
Meira
SEX innbrot höfðu verið tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík seinnipartinn í gær, þar af fjögur í bíla við Sóltún, Jórufell, Nóatún og Kringluna. Brotist var inn í tvo söluturna en engu var stolið.
Meira
Í DESEMBER gengu alls 163 nemendur undir próf í almennri lögfræði við Háskóla Íslands og af þeim náðu 29, eða 17,8%, tilskilinni lágmarkseinkunn, sem er 7,0 en almennt er lágmarkseinkunn 5,0 í námskeiðum við HÍ.
Meira
EKKI voru teknar ákvarðanir í gær á stjórnarfundi Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, um hvort fallið verður frá hugmyndum um að halda forustuprófkjör á vegum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.
Meira
AFURÐIR íslenskra kúa júkust um rúmlega 5% á síðasta ári. Meðalkýrin mjólkaði 4.894 kíló, en árið á undan voru meðalafurðirnar 4.664 kíló. Afurðaaukningin hefur orðið mjög hröð á síðustu árum, en ekki eru nema fimm ár síðan meðalkýrin mjólkaði tæplega 4.
Meira
VERKALÝÐSFÉLÖG á Suðurnesjum hafa sent sveitarstjórnum á svæðinu bréf með áskorun um að afturkalla nú þegar allar hækkanir og leggja þannig sitt af mörkum til að verja stöðugleikann í landinu. Er þetta liður í verðaðhaldi verkalýðsfélaganna í landinu.
Meira
ALÞJÓÐADAGURINN var haldinn hátíðlegur í Aðalbyggingu Háskóla Íslands í gær. Alþjóðadagurinn er samvinnuverkefni Stúdentaráðs HÍ, Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, Rannsóknarþjónustu Háskólans, Atvinnumiðstöðvar stúdenta og Landsskrifstofu Leonardo.
Meira
ALÞJÓÐLEGUR gagnabanki um mænuskaða gæti orðið að veruleika hér á landi innan skamms, gangi eftir þau áform sem íslensk stjórnvöld hafa uppi í nánu samráði við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO), Evrópuráðið og jafnvel fleiri aðila, m.a.
Meira
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hefur að undanförnu bætt við sig um 60 flugmönnum og flugvélstjórum vegna pílagrímaflugsins sem nú stendur yfir. Alls starfa því nú um 180 flugmenn og flugvélstjórar á B747-þotum félagsins.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur lokið rannsókn sinni á flugslysinu í Skerjafirði hinn 7. ágúst árið 2000 þegar einshreyfils flugvélin TF-GTI hrapaði í sjóinn. Sex manns létust af völdum flugslyssins.
Meira
ÁLFTANESHREYFINGIN - mannlíf og umhverfi, hefur gert með sér samstarfssamning þar sem segir að markmið framboðsins sé að vinna sameiginlega að sveitarstjórnarmálum í Bessastaðahreppi í anda lýðræðis, jafnaðar, félagshyggju og kvenfrelsis með...
Meira
FYRIRTÆKI í Reykjavík hefur borist tölvupóstur frá erlendum manni sem fer fram á að fyrirtækið aðstoði sig við að koma undan peningasjóðum, sem sendandi bréfsins segir að Slobodan [Milosevich, fyrrverandi Júgóslavíuforseti] og bróðir sendandans hafi...
Meira
ÖKUMAÐUR bifreiðar var fluttur á slysadeild eftir að hafa blindast af sól við Bakkabraut í Kópavogi í gær með þeim afleiðingum að hann ók á stein og skall með höfuðið í framrúðu bifreiðarinnar þar sem hann var ekki í bílbelti.
Meira
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri fagnar þeirri skoðun heilbrigðisráðherra að ríkið eignaðist að fullu húsnæði Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur við Barónsstíg. Segist borgarstjóri mjög tilbúinn til viðræðna um slíkt.
Meira
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær mann í sjö mánaða fangelsi fyrir stórfelld brot á lögum um bókhald og fyrir ítrekaðan ölvunarakstur. Fjórir mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir.
Meira
Ástþór Jóhannsson er fæddur 1955 í Reykjavík, en er uppalinn í Vestmannaeyjum. Útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands í grafískri hönnun.
Meira
UM 60 dauðir svartfuglar urðu á vegi vegfaranda sem leið átti um Böggvisstaðasand á dögunum, en það er strandlengjan sunnan Dalvíkur. Þetta er vinsælt útivistarsvæði og margir ganga þar sér til heilsubótar.
Meira
BESSASTAÐAHREPPUR hefur ákveðið að falla frá tæplega 6,7% hækkun leikskólagjalda sem taka átti gildi frá og með 1. janúar síðastliðinn og verða þannig við áskorun ASÍ um að sveitarfélög endurskoði gjaldskrárhækkanir á leikskólum.
Meira
TVEIR þingmenn Samfylkingarinnar, þeir Mörður Árnason, varaþingmaður, og Karl V. Matthíasson, hafa lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um endurheimt Drekkingarhyls í Almannagjá á Þingvöllum.
Meira
ELLEFU manns munu taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akranesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, en frestur til að skila inn þátttökutilkynningum rann út um síðustu helgi.
Meira
DAVID Duncan, fyrrverandi endurskoðandi Enron, neitaði í gær að svara spurningum þingnefndar, sem rannsakar gjaldþrot fyrirtækisins, um förgun skjala frá fyrirtækinu, og vísaði Duncan til stjórnarskrárbundins réttar síns til að bera ekki sök á sjálfan...
Meira
"OKKUR þykir leitt að farþegar okkar hafi orðið fyrir óþægindum og er eðlilegt að þeir hafi orðið óttaslegnir," segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða, um það atvik þegar flugmenn vélar Flugleiða, Boeing 757, hættu skyndilega...
Meira
Í ROKINU um síðastliðna helgi notaði björgunarsveitin Strönd á Skagaströnd tækifærið og hélt fluglínuæfingu ofan við bæinn. Skotið var línu yfir malarnámu sem þar er og nokkrir björgunarsveitarmenn dregnir yfir námuna í björgunarstól sveitarinnar.
Meira
INDÓNESÍSKIR hermenn felldu herforingja frelsishers Aceh-héraðs í skotbardaga á miðvikudag þegar þeir gerðu áhlaup á bækistöðvar hans í frumskóginum.
Meira
FRAMLEIÐSLUGETA álversins í Straumsvík verður aukin í 460 þúsund tonn á ári í tveimur áföngum, samkvæmt nýjum hugmyndum Íslenska álfélagsins (ISAL). Í fyrri áformum félagsins var gert ráð fyrir að framleiðslan yrði 400 þúsund tonn á ári.
Meira
Jóhannes Páll II páfi á friðarfundi í Assisi á Ítalíu í gær með um 200 leiðtogum um þrjátíu trúarbragða um allan heim. Til samkomunnar mættu múslímir, gyðingar, hindúar, andatrúarmenn, kristnir, elddýrkendur, shintótrúaðir og margir fleiri.
Meira
HÆKKUN á geymslugjöldum hjá Skráningarstofunni var auglýst fyrir mistök, að sögn Ingva Hrafns Óskarssonar, aðstoðarmanns dómsmálaráðherra. Auglýst hækkun á verði númeraplatna stendur. Auglýst var að geymslugjaldið myndi hækka úr 600 kr. í 1500 kr.
Meira
FERÐASKRIFSTOFAN Heimsferðir mun í vor bjóða upp á beint leiguflug til Búdapest, höfuðborgar Ungverjalands. Ferðirnar verða kynntar um helgina og í dag ætti að vera hægt að lesa um þær á vefnum www.heimsferdir.is. Verð er frá 46.600 krónum.
Meira
YFIRBORÐ Kleifarvatns stóð nánast í stað fram eftir vetri, en vegna mikillar úrkomu á svæðinu í janúar hefur bæst heldur meira í vatnið en nemur rennslinu úr því, að sögn Kristjönu Eyþórsdóttur, jarðfræðings hjá Vatnamælingum Orkustofnunar.
Meira
VATNIÐ sem að öllu jöfnu drýpur niður í Flúðakrók austan við Vík í Mýrdal hefur breytt um ham og myndar nú stæðileg grýlukerti sem slúta yfir höfðum þeirra sem þangað leggja leið sína.
Meira
UNDIR Esjunni er yfirskrift opins íbúaþings um vistvæna byggð sem haldið verður í félagsheimilinu Fólkvangi á Kjalarnesi á morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem svokölluðu íbúalýðræði er beitt í skipulagsvinnu hérlendis. Að sögn Ingibjargar R.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úrskurðaði í fyrradag tvítugan mann í sex vikna gæsluvarðhald, að kröfu lögreglunnar í Reykjavík vegna ítrekaðra auðgunarbrota að undanförnu Hann var handtekinn ásamt öðrum manni á miðvikudagsmorgun eftir innbrot í verslunina...
Meira
Flokkarnir þrír sem standa að Reykjavíkurlistanum munu hver um sig velja mann í fjögur sæti á framboðslista til borgarstjórnarkosninga. Uppstillingarnefnd velur í tvö sæti og borgarstjóri skipar eitt sætið.
Meira
FORYSTUMENN ASÍ áttu fundi með bæjarstjórunum í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi í gær, m.a. vegna gjaldskrárhækkana í leikskólum og hækkunar fasteignagjalda.
Meira
GERA má ráð fyrir að flugfélag sem flýgur hingað til lands geti þurft að greiða a.m.k. um 2.000 kr. fyrir hvern farþega sem kemur hingað með flugvélum félagsins.
Meira
ÁRLEGUR kvöldverður Burns eða "Burn's Supper", verður haldinn laugardaginn 26. janúar kl. 20 - 1.00, á vegum Edinborgarfélagsins í sal karlakórsins Fóstbræðra að Langholtsvegi 109, Reykjavík.
Meira
STJÓRNVÖLDUM í Bandaríkjunum var kunnugt um pólitísk morð og mannréttindabrot stjórnvalda í Perú í um 20 ár. Þau kusu hins vegar að líta framhjá þeim sökum þeirrar baráttu sem yfirvöld í landinu háðu við flokka kommúnískra skæruliða.
Meira
5.000. hljóðbókin Í frétt um 5.000. bókartitil Blindrabókasafns Íslands í blaðinu á miðvikudag var fyrirsögnin villandi. Bókin var sögð á blindraletri en um er að ræða 5.000. hljóðbókina. Beðist er velvirðingar á...
Meira
KONA um sextugt var flutt á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í gærmorgun með áverka á fæti eftir að hafa lent undir afturhjóli strætisvagns á mótum Höfðabakka og Vesturhóla.
Meira
PÓLSKIR ráðamenn hvöttu til þess í gær að hafin yrði tafarlaust rannsókn vegna ásakana um að læknar hefðu myrt sjúklinga sína til að tryggja útfararstofum verkefni.
Meira
NIÐURSTÖÐUR tveggja nýrra rannsókna ættu að vera miðaldra karlmönnum gleðiefni, en þær benda annars vegar til þess að fjörugt kynlíf verndi þá fyrir hjartaáfalli og hins vegar að nokkrir áfengir drykkir á dag dragi úr líkunum á elliglöpum.
Meira
INNNES ehf. hefur lækkað heildsöluverð á Pascual-jógúrt um 5,3%. Magnús Óli Ólafsson hjá Innnes segir að lækkun þessi sé vegna hagstæðari innkaupa á vörunni. Frá því að Innnes ehf.
Meira
VINSTRIHREYFINGIN - grænt framboð á Akranesi gengst fyrir fundaröð um bæjarmálefni alla laugardagsmorgna á tímabilinu 26. janúar til 16. mars. Fyrsti fundurinn verður laugardaginn 26. janúar kl. 10-12 á Café 15.
Meira
"MÁLFUNDUR verður í dag, föstudaginn 25. janúar, kl. 17.30 í Pathfinder-bóksölunni, Skólavörðustíg 6b. Yfirskrift fundarins er: Eru umbætur í kapítalískum sjávarútvegi mögulegar?
Meira
KRISTJÁN Þór Júlíusson bæjarstjóri lagði til á fundi bæjarráðs Akureyrar í gær að Inga Þöll Þórgnýsdóttir yrði ráðin bæjarlögmaður á Akureyri. Listi yfir umsækjendur, sem voru 7 talsins, var lagður fram á fundinum.
Meira
ÞORRINN hefst í dag á bóndadegi samkvæmt forníslensku dagatali. Mörsugi lauk því í gær og hefur sá mánuður verið óvenju snjóléttur, einkum sunnanlands.
Meira
FLUGMÁLASTJÓRN mun í lok febrúar senda sex nýnema í flugumferðarstjórn til fimm mánaða náms í Prag í Tékklandi. Nemarnir voru valdir úr hópi 130 umsækjenda um nám í flugumferðarstjórn.
Meira
Hegningarlaganefnd norska þingsins íhugar nú að leggja til að leyfilegt verði að nota og eiga hvers konar fíkniefni en á hinn bóginn verði áfram refsivert að selja fíkniefni, að sögn norska dagblaðsins Aftenposten í gær.
Meira
"MÉR líður orðið nokkuð vel, en vil vera fullkomlega hraustur áður en ég legg af stað að nýju á tindinn," sagði Haraldur Örn Ólafsson sjötindafari í samtali við Morgunblaðið í gær, þar sem hann er á hóteli í Mendoza.
Meira
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fara af stað með nýja ljósmyndakeppni á Netinu. Í síðustu keppni bárust alls 110 myndir en henni lauk í byrjun janúar. Í 1. sæti varð mynd Birgis Freys Birgissonar, í öðru sæti Guðjón Sigurðsson og í þriðja sæti Árni Torfason.
Meira
Borgarráð hefur samþykkt að Ingibjörg Sigurþórsdóttir verði ráðin framkvæmdastjóri Miðgarðs samkvæmt tillögu hverfisnefndar Grafarvogs. Ingibjörg tekur við starfinu af Regínu Ásvaldsdóttur en 24 sóttu um...
Meira
OKTAVÍA Jóhannesdóttir bæjarfulltrúi fékk flest atkvæði í könnun sem gerð var meðal félaga í Samfylkingunni á Akureyri og Stólpa, félagi ungra jafnaðarmanna á Akureyri um skipan efstu sæta flokksins í sveitarstjórnarkosningum í vor.
Meira
ÓSKAR Jónsson, foringi í Hjálpræðishernum, lést á líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 23. janúar sl. Hann fæddist í Reykjavík 4. júní 1916 og varð því 85 ára gamall. Óskar gerðist ungur að árum foringi í Hjálpræðishernum.
Meira
NÝTT fyrirtæki, PG Frigg, hefur tekið til starfa á Akureyri en að því standa PG ræstingar á Akureyri og Frigg í Garðabæ. Fyrirtækið leggur áherslu á ræstingar og sölu og dreifingu á hreinsi- og ræstingavörum.
Meira
FRANSKI félagsfræðingurinn Pierre Bourdieu lést af krabbameini á sjúkrahúsi í París í gær, að því er samstarfsmenn hans greindu frá. Hann var 71 árs.
Meira
ÁRLEG plötusnúðakeppni Frostaskjóls verður haldin í dag, föstudaginn 25. janúar, í Frostaskjóli. Keppnin hefst kl. 20, en þetta er 16. árið í röð sem hún er haldin. Keppnin hefur í gegnum tíðina verið vettvangur upprennandi plötusnúða til að sanna sig.
Meira
ÍSLAND er eiginlega eins og tilraunastofa," segir Niels Johan Juhl-Nielsen sem er staddur hér á landi ásamt þrjátíu öðrum Dönum sem eru hér til að kynna sér hvernig Neyðarlína, lögregla, slökkvilið og aðrir viðbragðsaðilar á Íslandi hafa notfært sér...
Meira
BJÖRN Bjarnason (D) menntamálaráðherra segir að ekki sé enn loku skotið fyrir það að samningar náist um beinar útsendingar frá heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu hingað til lands næsta sumar.
Meira
RÁÐSTEFNA á vegum Kvenréttindafélags Íslands verður haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur um málefni erlendra kvenna á Íslandi undir fyrirsögninni: Erlendar konur og íslenskt jafnrétti. Ráðstefnan verður haldin laugardaginn 26. janúar og er öllum opin.
Meira
JÓN Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og Páll Pétursson félagsmálaráðherra undirrituðu í gær samkomulag um þjónustu við íbúa sem um árabil hafa verið vistaðir á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Kópavogi.
Meira
HLUTHAFAR í Hitaveitu Suðurnesja samþykktu í gær með yfirgnæfandi meirihluta sameiningu við Bæjarveitur Vestmannaeyja. Fulltrúar Sandgerðisbæjar og Vatnsleysustrandarhrepps sátu hjá.
Meira
UM síðastliðna helgi bar ærin Hetta tveimur lömbum. Sigríður Etna Marínósdóttir er eigandi ærinnar og var hún að vonum ánægð með þessa tvo óvæntu vorboða. Í fyrra bar Hetta 15. janúar og tveimur vikum síðar bar systir hennar líka.
Meira
STJÓRN Verkalýðsfélagsins Vöku ályktaði eftirfarandi á fundi sínum miðvikudaginn 23. janúar sl. "Stjórn Verkalýðsfélagsins Vöku mótmælir því að láglaunafólk skuli þurfa að taka að sér stjórn efnahagsmála í landinu.
Meira
SAMÞYKKT var á Alþingi í gær, með 34 samhljóða atkvæðum, að óska eftir skýrslu frá dómsmálaráðherra um stöðu og þróun löggæslu í landinu á undanförnum árum með hliðsjón af brotatíðni, almannaöryggi og réttaröryggi íbúa í samræmi við lögreglulög.
Meira
KARLAKÓR Keflavíkur heldur tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju í kvöld klukkan 20.30. Á efnisskrá tónleikanna eru Vínarlög, óperutónlist og einsöngslög og er slegið á létta strengi.
Meira
ÁHYGGJUR fara nú vaxandi um að afstaða stjórnar Silvio Berlusconis á Ítalíu til dómstóla geti haft þau áhrif að sjálfstæði réttarkerfis landsins lendi í háska.
Meira
GYLFI Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir að til viðbótar því að laun opinberra starfsmanna hafi hækkað meira en laun á almennum markaði, eins og greint var frá í blaðinu í gær, sé og ljóst að félagsmenn ASÍ sem vinni hjá ríkinu njóti ekki sömu...
Meira
LAGT er til að skipan 15 efstu sæta Reykjavíkurlistans verði sem hér segir: 1. Vinstrihreyfingin - grænt framboð 2. Framsóknarflokkurinn 3. Samfylkingin 4. Samfylkingin 5. Framsóknarflokkurinn 6. Vinstrihreyfingin - grænt framboð 7.
Meira
LÍKAMLEGT ofbeldi gegn börnum er vangreint vandamál hér á landi að því er fram kemur í samtali við Gest Pálsson og Jón R. Kristinsson barnalækna á Barnaspítala Hringsins. Samkvæmt upplýsingum frá Barnaverndarstofu bárust barnaverndarnefndum 2.
Meira
Sættir milli sjómannasamtakanna og útvegsmanna urðu sýnilegar í gær þegar kynntar voru sameiginlegar tillögur um breytingar á stjórn fiskveiða. Í frásögn Helga Marar Árnasonar kemur fram að tillögurnar miða fyrst og fremst að því að takmarka mjög heimildir til framsals aflamarks og fækka með því í fiskiskipaflota landsmanna.
Meira
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri mun skipa áttunda sæti Reykjavíkurlistans við komandi borgarstjórnarkosningar. Vinstrihreyfingin - grænt framboð fær fyrsta sætið, Framsóknarflokkurinn annað sæti og Samfylkingin það þriðja.
Meira
ÞAÐ setti nokkurn svip á umræður um HM í knattspyrnu og Ríkisútvarpið í gær að von er á yfirlýsingu Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra um hug sinn til framboðs fyrir Sjálfstæðisflokkinn til borgarstjórnarkosninga á morgun, laugardag.
Meira
STJÓRNENDUR fyrirtækja sem framleiða og flytja inn hreinlætisvörur telja verðhækkanir ekki hafa verið umfram það sem eðlilegt geti talist og hvað framtak Friggjar snertir segja þeir mikilvægt að skoða fyrri verðhækkanir hjá fyrirtækjum.
Meira
DRÍFA Hjartardóttir, fyrsti þingmaður Sunnlendinga, og Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, eiga í dag fund með Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra vegna óánægju Eyjamanna með að engin bílferja á að koma í stað Herjólfs í maí þegar skipið...
Meira
SJÁLFBOÐALIÐASAMTÖK um náttúruvernd efna til gönguferðar laugardaginn 26. janúar nk. í upphafi þorra. Lagt verður af stað kl. 11 frá strætisvagnaskýlinu í Mjódd. Gangan tekur 3-4 tíma. Allir...
Meira
L-LISTINN, listi fólksins, hefur ákveðið að bjóða fram lista við sveitastjórnarkosningar á Akureyri í vor undir forystu Odds Helga Halldórssonar bæjarfulltrúa.
Meira
Gagnlegar umræður fóru fram í málstofu lagadeildar Háskóla Íslands í fyrradag um stjórnskipulega stöðu forseta Íslands. Þær umræður beindust m.a. mjög að því hvað fælist í synjunarvaldi forseta skv. 26. gr. stjórnarskrárinnar.
Meira
12 TÓNAR: Einar Rafn Þórhallsson, Buzby og Steve Hubback kynna efni af plötunni Dreaming kl. 17. Diskurinn er gefinn út til að afla fjár til breska góðgerðarfélagsins TASCA sem styrkir verkefni í tengslum við ástralska frumbyggja.
Meira
Í kvöld verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins nýtt leikrit, Boðorðin níu, eftir Ólaf Hauk Símonarson. Hávar Sigurjónsson ræddi við hann um kristið siðferði í nútímasamfélaginu.
Meira
LEIKFÉLAG Akureyrar frumsýnir í kvöld leikritið Slavar! en það er eftir hinn margverðlaunaða bandaríska leikritahöfund Tony Kushner. Sigurður Hróarsson þýddi verkið, en leikstjóri er Halldór E. Laxness.
Meira
Lord of the Rings: The Fellowship of the Rings/Hringadróttinssaga Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Peter Jackson. Aðalleikendur: Elijah Wood, Ian McKellen, Christopher Lee, Cate Blanchett.
Meira
Í DAG kl. 17.00, í plötuversluninni 12 Tónum, munu þeir Einar Rafn Þórhallsson og Buzby; báðir Didgeridooleikarar og Steve Hubback slagverkslistamaður halda hljómleika. Væri svo sem ekki frásögur færandi ef ekki væri fyrir tilefnið sem er allsérstætt.
Meira
HUNDRAÐASTA sýningin á írska gamanleiknum Með fulla vasa af grjóti verður í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Leikritið var frumsýnt á Smíðaverkstæðinu 30. desember árið 2000.
Meira
Háskólabíó, Laugarásbíó og Sambíóin Reykjavík og Borgarbíó Akureyri frumsýna Vanilla Sky, með Tom Cruise, Penélope Cruz, Kurt Russell og Cameron Diaz.
Meira
Flutt voru verk eftir Penderecki, Schönberg og Shostakovitsj. Einsöngvari: Gleb Nikolskij. Sögumaður: Ólafur Kjartan Sigurðarson. Karla-kórinn Fóstbræður, kórstjóri Árni Harðarson. Hljómsveitarstjóri: Jerzy Maksymiuk. Fimmtudagurinn 24. janúar, 2002.
Meira
Vísindastefna/ Hlutur stjórnmálamanna verður stórefldur í stefnumótun í málefnum rannsókna og þróunar. RANNÍS verður að þjónustumiðstöð vísinda og rannsókna. Gunnar Hersveinn kynnti sér nýskipan í vísinda- og tæknimálum samkvæmt þremur frumvörpum þriggja ráðherra.
Meira
Sunnan við mærin vestur af sól er eftir japanska rithöfundinn Haruki Murakami . Hajime elst upp sem einbirni og honum virðist sem allir í kringum hann eigi bræður eða systur. Útgefandi er Bjartur og er þetta 13. bókin í neonbókaflokki forlagsins.
Meira
SÍÐASTA sýning á barnaóperunni Skuggaleikhús Ófelíu í Þjóðleikhúsinu verður á morgun, laugardag, kl. 15. Uppsetningin er samstarfsverkefni Íslensku óperunnar og Strengjaleikhússins og er sýningin aðallega ætluð börnum á aldrinum 3-9 ára.
Meira
ÁRLEG söngkeppni nemenda í Grunnskóla Borgarness fór fram í Óðali á dögunum að viðstöddu fjölmenni. Að venju var keppnin lífleg og margir efnilegir og frambærilegir þátttakendur.
Meira
GUK - Exhibition place Sýningu á verkum eftir dönsku listakonuna Evu Koch lýkur á sunnudaginn, en þá verður opið kl. 16-18 að staðartíma. Hægt er að sjá myndir frá sýningunni á http://www.simnet.
Meira
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Skjálftaskjól hélt söngvakeppni fyrir unglingana hér í Hveragerði. Þessi keppni er undankeppni fyrir keppnina sem haldin verður nk. laugardagskvöld, 26. janúar, í Laugardalshöllinni, Söngkeppni Samfés (Samtaka félagsmiðstöðva).
Meira
eftir Marinetti, Majakovskij, Marc, Tzara, Breton o.fl. Áki G. Karlsson, Árni Bergmann og Benedikt Hjartarson íslenskuðu. Hið íslenzka bókmenntafélag, Reykjavík 2001. 544 bls.
Meira
"Ég fagna því hugmyndum menntamálaráðherra um stefnumarkandi vísinda- og tækniráð (Science and Technology Policy Council) undir forsætisráðherra.
Meira
Málefni: Grein í Morgunblaðinu í dag undir yfirskriftinni "Áburðarverksmiðjan og starfsmannafélagið". Undirritaður vill f.h. stjórnar Áburðarverksmiðjunnar hf. koma eftirfarandi á framfæri.
Meira
Staðreyndin er sú, segir Kristín Blöndal, að á þessu ári sjáum við fram á að öll reykvísk börn fædd 2000 og fyrr, verði komin með pláss á leikskólum.
Meira
RÍKISÚTVARPINU er ætlað að vera vagga íslenskrar menningar. Það á að spegla menningarstig og metnað auðugs og fjölbreytilegs nútímasamfélags. Æðsti maður Ríkisútvarpsins er menntamálaráðherra.
Meira
Ógnvaldurinn ÞAÐ eru margir samverkandi þættir, sem bera ábyrgð á hnignandi siðferðisvitund þessarar vindbörðu íslenzku þjóðar, þ.e.a.s. íslenzks aðals, ef eitthvað er eftir af honum.
Meira
NÚ ER ljóst orðið að göng um Héðinsfjörð eiga að verða tvíbreið, ekki einkavegur fyrir Siglfirðinga, heldur gætu einnig orðið þjóðvegur og þá áfram um önnur göng út í Fljót.
Meira
ÉG LENTI í bílveltu í mars 1999 og skaddaðist talsvert. Helstu áverkar komu ekki almennilega í ljós fyrr en talsvert seinna, kanski vegna fyrri áverka eða áhugaleysis lækna. Sum af þeim vottorðum sem ég fékk voru í mótsögn við það sem læknarnir sögðu...
Meira
Ari Arnalds Þórðarson fæddist á Hallsteinsnesi í Gufudalssveit í Austur-Barðastrandarsýslu 23. mars 1916. Hann andaðist á Hjúkrunarheimilinu Grund 16. janúar síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Árný Guðlaug Sigurðardóttir frá Kúskerpi fæddist í Hvammi í Laxárdal í Austur-Húnavatnssýslu 15. október 1907. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Blönduóss 17. janúar síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Ása Gíslína Stefánsdóttir fæddist í Reykjavík 17. janúar 1937. Hún lést í Reykjavík 4. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Árbæjarkirkju 14. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Freylaug Eiðsdóttir fæddist í Holárkoti í Skíðadal 2. október 1916. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 18. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Eiður Sigurðsson bóndi, f. 24. nóv. 1890, d. 5.
MeiraKaupa minningabók
Helga Anna Kristinsdóttir fæddist 27. maí 1901 í Bæ á Rauðasandi í Strandasýslu. Hún lést á heimili sínu í Seljahlíð 17. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kristinn Benediktsson sjómaður frá Geststaðaseli í Strandasýslu, f. 21. apríl 1872, d. 10.
MeiraKaupa minningabók
Helga Jónsdóttir Rocksén fæddist 25. febrúar 1910 í Reykjavík. Hún lést á öldrunardeild Landspítalans við Hringbraut fimmtudaginn 3. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Langholtskirkju 14. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Helgi Guðmundsson, síðast til heimilis í Furugerði 1 hér í borg, fæddist í Reykjavík hinn 18. janúar 1926. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi að morgni 11. janúar og fór útför hans fram frá Kristskirkju í Landakoti 18. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Ólafur Gísli Björnsson fæddist í Bakkaseli í Bæjarhreppi í Strandasýslu 14. október 1934. Hann lést 15. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Valgerður Elín Andrésdóttir, f. 17.7. 1902, d. 20.9. 1981, og Björn Lýðsson bóndi, f. 28.7. 1905, d.
MeiraKaupa minningabók
Sigurborg Jónsdóttir fæddist í Keflavík 7. desember 1948. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 16. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Jón B. Hannesson, f. í Keflavík 3.4. 1920, og Fanney Hjartardóttir, f. á Vaðli á Barðaströnd 18.2. 1919.
MeiraKaupa minningabók
Á síðastliðnu ári fjölgaði frystiskipum í viðskiptum við SH um 12 skip og eru þau nú 44 talsins. Af þessum skipum eru 17 íslensk en 27 eru erlend. Fjölgunin er því um 38%. Hans Á.
Meira
STAÐFESTING á lögbanni í málefnum Lyfjaverslunar Íslands var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Frávísunarkröfur eru hafðar uppi í þessu máli og verða þær teknar fyrir fyrst áður en farið verður í efni meginmálsins, þ.e.
Meira
ÍSLENSKA álfélagið, ISAL, hefur komist að þeirri niðurstöðu að hagkæmara sé að auka framleiðslugetu álversins í Straumsvík meira en fyrirhugað hafði verið.
Meira
LANDSSÍMI Íslands mun afskrifa fjárfestingu sína í IP-fjarskiptum að fullu á árinu 2001. Afskriftin nemur 180 milljónum króna en árið 2000 voru 100 milljónir gjaldfærðar, alls er því um 280 milljóna króna tap að ræða.
Meira
FRAMKVÆMDASTJÓRN Samtaka atvinnulífsins hefur samþykkt að beina því til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis að hún beiti sér fyrir sjálfstæðri athugun og skoðun á því að hvaða leyti íslensku samkeppnislögin, nr. 8.
Meira
Sólin brennir nóttina, og nóttin slökkvir dag; þú ert athvarf mitt fyrir og eftir sólarlag. Þú ert yndi mitt áður og eftir að dagur rís, svölun í sumarsins eldi og sólbráð á vetrarins ís.
Meira
Bridshátíð Flugleiða, BSÍ og BR Bridshátíðin verður haldin á Hótel Loftleiðum 15.-18. febrúar nk. Tveimur sveitum er að þessu sinni boðið á hátíðina.
Meira
Suðurlandsmót í sveitakeppni Suðurlandsmót í sveitakeppni sem jafnframt var undankeppni fyrir Íslandsmótið fór fram um sl. helgi á Þingborg. Tíu sveitir tóku þátt í mótinu og 4 efstu sveitirnar komust í undanúrslit á Íslandsmóti.
Meira
BRÚÐKAUP . Gefin voru saman 14. júlí sl. í Kópavogskirkju af sr. Ægi Fr. Sigurgeirssyni Kristjana Lilja Hendriksdóttir og Sabri Einar Ómarsson...
Meira
Stærsti vandinn á Kúbu er ekki fangarnir við Guantanamo-flóa, heldur fangar Kastrós, ekki aðeins pólitískir fangar í fangelsum hans, heldur allur almenningur sem fær ekki um frjálst höfuð strokið.
Meira
Háteigskirkja. Samverustund eldri borgara kl. 13 í umsjón Þórdísar þjónustufulltrúa. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45-7.05 alla virka daga nema mánudaga. Mömmumorgunn kl. 10-12 í umsjá Hrundar Þórarinsdóttur djákna.
Meira
Í dag er föstudagur, 25. janúar, 25. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Og hann sagði við þá: "Hví sofið þér? Rísið upp og biðjið, að þér fallið ekki í freistni."
Meira
Í KVÖLD, föstudagskvöld 25. janúar, kl. 20:30, verður samkoma í Digraneskirkju. Tónlist annast hinn landskunni Þorvaldur Halldórsson. Undanfarið misseri hefur hann starfað á vegum Reykjavíkurprófastsdæmanna.
Meira
Hestar eru skrítnar skepnur. Sumir þeirra hræðast hlaupandi mann í skærum fötum og hvin frá reiðhjóli en ekki stóran vörubíl á fullri ferð. Nú er verið að blanda saman umferð ríðandi, hlaupandi og hjólandi fólks á fjölmennasta útreiðarsvæði landsins í Reykjavík. Af því tilefni kíkti Ásdís Haraldsdóttir áhyggjufull í tölur um hestaslys og ræddi við Jón Baldursson, yfirlækni á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Fossvogi.
Meira
Sögusetur íslenska hestsins verður kynnt á ráðstefnu á Hólum í Hjaltadal föstudaginn 8. febrúar næstkomandi. Ráðstefnan er haldin á vegum Sögusetursins í samvinnu við Hestamiðstöð Íslands í Skagafirði.
Meira
SAMKVÆMT nýju tóbaksvarnarlögunum má ekki selja börnum yngri en 18 ára tóbak og fólk yngra en 18 ára má heldur ekki selja tóbak í verzlunum. Kaupmenn hafa gagnrýnt það síðarnefnda og bent á að starfsmenn þeirra væru oft undir 18 ára aldri, t.d.
Meira
NÆR allir bestu handknattleiksmenn heims eru mættir til Svíþjóðar til að taka þátt í Evrópukeppni landsliða í handknattleik, sem hefst hér í Svíþjóð í dag. Alvaran tekur við hjá íslenska liðinu eftir annasaman undirbúning.
Meira
MARC Baumgartner, helsta skytta svissneska liðsins, virðist hafa náð sér að mestu eftir meiðsli á fæti fyrir tæpum þremur vikum. Hann hefur ekkert leikið með svissneska landsliðinu í síðustu leikjum þess fyrir EM.
Meira
ÞAÐ verða Jennifer Capriati og Martina Hingis sem leika til úrslita í einliðaleik kvenna í tennis á opna ástralska mótinu, rétt eins og í fyrra. Þá hafði Hingis titil að verja en nú er það Capriati.
Meira
ENGLENDINGAR eru óskamótherjar Atla Eðvaldssonar, landsliðsþjálfara í knattspyrnu, en um hádegisbilið í dag mun liggja ljóst fyrir hverjir verða mótherjar Íslendinga í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu. Dregið verður í undankeppnina í Porto í Portúgal í dag en úrslitakeppnin fer fram þar í landi 12. júní til 4. júlí 2004.
Meira
FYRIR 19 árum, föstudagskvöldið 25. febrúar 1983, áttust við Íslendingar og Spánverjar í Breda - í B-keppninni í Hollandi, þar sem Sviss lék einnig í riðlinum.
Meira
STAFFAN Olsson, einn reyndasti leikmaður sænska landsliðsins, segir í pistli sínum í gær í dagblaðinu Dagens Nyheter að íslenska liðið geti verið það lið sem komi mest á óvart í keppninni. Þar sé á ferðinni lið sem enginn megi vanmeta.
Meira
"ÍSLAND er okkar höfuðandstæðingur í riðlinum þótt að sjálfsögðu megi ekki vanmeta Slóvenana," sagði Iosu Olalla Iraeta, fyrirliði spænska landsliðsins í handknattleik, er Morgunblaðið hitti hann að máli eftir æfingu spænska liðsins í Skövde um hádegið í gær. "Við reiknum með mjög erfiðum leik þar sem íslenska liðið leikur góða vörn, burðarásar þess hafa mikla leikreynslu og spila flestir hverjir með þýskum félagsliðum."
Meira
ATLI Hilmarsson, þjálfari karlaliðs KA í handknattleik, hefur tilkynnt stjórn handknattleiksdeildar KA að hann muni hætta starfi sínu sem þjálfari liðsins eftir þetta tímabil.
Meira
"EF við náum góðum leik þá tel ég okkur eiga möguleika á að standa í Spánverjunum," sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, spurður um möguleika íslenska liðsins gegn Spánverjum í fyrsta leiknum á EM kl. 19 í kvöld.
Meira
KEFLVÍKINGAR og KR bítast enn um efsta sætið í úrvalsdeild karla í körfuknattleik en fimm leikir fóru fram í gærkvöldi. Keflavík lagði Tindastól á Sauðárkróki og KR á Akureyri.
Meira
Styrkleikaflokkarnir fyrir dráttinn í undankeppni EM eru þannig: Efsti styrkleikaflokkur: Frakkland, Svíþjóð, Spánn, Tékkland, Þýskaland, Írland, Rúmenía, Ítalía, Belgía og Tyrkland.
Meira
Daglegt líf (blaðauki)
25. janúar 2002
| Daglegt líf (blaðauki)
| 1746 orð
| 5 myndir
ILL MEÐFERÐ á börnum er ekki aðeins hluti af veruleika barna í útlöndum. Vanræksla/ofbeldi gagnvart börnum er hluti af íslenskum raunveruleika eins og glögglega kemur fram í skýrslu Barnaverndarstofu fyrir árið 2000.
Meira
TIL slagsmála kom þegar hnefaleikakapparnir Mike Tyson og heimsmeistarinn Lennox Lewis hittust á blaðamannafundi nú í vikunni, en þar átti að kynna væntanlegan bardaga þeirra um heimsmeistaratitilinn í hnefaleikum 6. apríl næstkomandi.
Meira
KOMIÐ hefur í ljós að einn af föngunum, sem Bandaríkjamenn hafa í haldi í herfangelsi á Kúbu , er danskur ríkisborgari. Hann er sagður heita Hassan Mai Mouni og mun eiga danska móður og föður frá Marokkó .
Meira
FJÖLDA dauðra fugla, aðallega svartfugla, hefur undanfarna daga rekið á land í fjörunni sunnan Hólmavíkur . Unnið hefur verið að því að fjarlægja hræin og hafa nokkur þeirra verið send til Náttúrufræðistofnunar til rannsóknar.
Meira
EF ÞIG grunar að barn sæti vanrækslu/ofbeldi í þínu nánasta umhverfi eru réttu viðbrögðin að hafa samband við barnaverndaryfirvöld í þínu sveitarfélagi.
Meira
25. janúar 2002
| Daglegt líf (blaðauki)
| 800 orð
| 4 myndir
Í ÆSKU var Ítalinn Angelo Siciliano ekki mikill fyrir mann að sjá. Þessi föli og horaði innflytjendadrengur í New York í byrjun tuttugustu aldar mátti sín lítils gegn stríðni og einelti skólafélaga sinna og hlaut oft háðulega útreið.
Meira
INGA Jóna Þórðardóttir , oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, tilkynnti nú í vikunni að hún hygðist draga framboð sitt í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins til baka.
Meira
Miðað við metsölulista hafa þúsundir Íslendinga lesið bók Dave Pelzer Hann var kallaður þetta um síðustu jól. Í upphafi er sagt frá lífi ósköp venjulegrar fjölskyldu í borginni Daly í Kaliforníu á áttunda áratug 20. aldarinnar.
Meira
HVERJAR eru líkurnar á því að 13 manna hópur fullorðinna eigi samtals 16 stráka og aðeins eina stelpu? Starfsmenn fyrirtækjasviðs Kaupþings hafa komist að því að líkurnar eru aðeins 0,013% eða einn á móti 7700.
Meira
LIVERPOOL sigraði Manchester United í leik liðanna á Old Trafford á þriðjudag og Arsenal komst í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sigri á Leicester á miðvikudag.
Meira
25. janúar 2002
| Daglegt líf (blaðauki)
| 1213 orð
| 12 myndir
EINN mesti áhrifavaldur tískunnar seinni hluta síðustu aldar, Yves Saint Laurent, kunngjörði starfslok sín á blaðamannafundi í höfuðstöðvum sínum í París 7. janúar síðastliðinn.
Meira
25. janúar 2002
| Daglegt líf (blaðauki)
| 876 orð
| 7 myndir
ÉG TÓK tvistinn, Grandi-Vogar, hann flutti mig úr hverfinu mínu, í bæinn og aftur heim. Ef ég missti af honum í Sólheimunum gat ég stokkið niður á Gnoðarvog á meðan hann fór hringinn í kringum Vogana.
Meira
RUSLAN Ponomariov , 18 ára Úkraínumaður, varð á miðvikudag heimsmeistari Alþjóðaskáksambandsins, FIDE . Hann er yngsti maður sem orðið hefur heimsmeistari karla í skák. Hinn ungi skáksnillingur varð alþjóðlegur meistari aðeins 14 ára gamall.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.