BORGARSTJÓRINN í Farum við Kaupmannahöfn, Venstre-maðurinn Peter Brixtofte, sætir nú þungum ásökunum um brot í starfi og er jafnvel rætt um að lögreglan muni sækja hann til saka, að sögn Berlingske Tidende .
Meira
Rússneskir sérfræðingar í Zvezda-verksmiðjunni, skammt frá Moskvu, aðstoða belgíska geimfarann Frank de Winne sem mun fara á næstunni með Sojus-geimfari til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar.
Meira
BENEDIKT Jónsson sendiherra afhenti þriðjudaginn 19. febrúar Eduard A. Shevardnadze, forseta Georgíu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Georgíu, með aðsetur í...
Meira
RÍKISENDURSKOÐUN gerir athugasemdir vegna greiðslna fyrir verkefni sem forstöðumenn Þjóðskjalasafns Íslands og Þjóðmenningarhúss, þeir Ólafur Ásgeirsson og Guðmundur Magnússon, unnu fyrir stofnanir sem hvor annar stjórnaði og greiðslur sem stofnanirnar...
Meira
NAFNI Áhaldahúss Reykjanesbæjar hefur verið breytt í Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar. Tók breytingin gildi um síðustu áramót. Að sögn Viðars Más Aðalsteinssonar, forstöðumanns umhverfis- og tæknisviðs, hefur hlutverk áhaldahússins breyst.
Meira
BJÖRNINN varð um mánaðamótin Íslandsmeistari í þriðja flokki pilta, en það eru 14-15 ára gamlir drengir. Piltarnir unnu alla leiki sína í mótinu nema einn þar sem þeir urðu að sætta sig við jafntefli.
Meira
BJÖRN Steenstrup fv. aðalræðismaður Íslands í Gautaborg lést 11. þ.m. Hann var fæddur í Noregi 15. maí 1920. Að loknu stúdentsprófi stundaði hann verslunarnám.
Meira
REYKJAVÍKURBORG hefur samið við hluthafa Áburðarverksmiðjunnar hf. um stöðvun efnaframleiðslu í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi og kaup borgarinnar á fasteignum og aðstöðu fyrirtækisins. Umsamið kaupverð er 1.
Meira
VEITINGAHÚSIÐ Vitinn í Sandgerði á tuttugu ára afmæli í þessum mánuði og minnist þess með margvíslegum hætti. Um helgina buðu eigendur Vitans eldri borgurum í afmæliskaffi.
Meira
MAÐUR, sem varð þremur mönnum að bana í Bæjaralandi í Þýskalandi í gærmorgun, framdi sjálfsmorð síðar um daginn með því að sprengja handsprengju inni í skóla þar sem hann faldi sig fyrir lögreglu.
Meira
*GUÐRÚN Heiður Baldvinsdóttir varði doktorsritgerð í viðskiptafræði við Handelshögskolan í Gautaborg hinn 14. desember sl. Ritgerðin ber heitið "Management Accounting and the Institutionalisation of Trust" og er á sviði innri endurskoðunar.
Meira
RÍKISSTJÓRNIN hefur ekki óskað formlega eftir viðræðum við Evrópusambandið um efnislegar breytingar á samningnum um evrópska efnahagssvæðið, að því er fram kom í máli Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra í umræðum utan dagskrár um þróun tengsla...
Meira
MANNDRÁPIÐ sem framið var á Víðimel aðfaranótt mánudags, er fyrsta manndrápið sem framið er hérlendis á þessu ári og jafnframt hið ellefta síðastliðin 5 ár.
Meira
MAÐURINN sem fannst látinn á Víðimel í Reykjavík á mánudagsmorgun hét Bragi Óskarsson, til heimilis á Grandavegi 37 í Reykjavík. Hann var fæddur 11. janúar 1951. Bragi starfaði sem bílstjóri.
Meira
ÍBÚASAMTÖK Kjalarness verða stofnuð í kvöld. Gert er ráð fyrir að Kjalarnes verði sérstakt hverfi í nýrri hverfaskiptingu borgarinnar en þótt um fámennasta hverfið verði að ræða er það stærst að flatarmáli.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík segist merkja nokkra fjölgun ofbeldisbrota í Vesturbænum, þ.e. á svæðinu vestan Lækjargötu, á árinu 2000, en fækkun slíkra brota í Austurbænum, austan Lækjargötu, og sömuleiðis fækkun í miðbæ Reykjavíkur.
Meira
FLOSI Eiríksson hefur sagt af sér sem stjórnarmaður í Landssíma Íslands og segist með því vilja mótmæla vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið varðandi fyrirtækið. Flosi segir trúnað brostinn milli sín og stjórnarformannsins.
Meira
BOB Nicholson, forseti Íshokkísambands Kanada, afhjúpar málverk af Fálkunum, vestur-íslenska íshokkíliðinu frá Winnipeg, við sérstaka athöfn á Vetrarólympíuleikunum í Salt Lake City á morgun.
Meira
RÍKISSTJÓRN Bandaríkjanna hefur lýst yfir stuðningi við, að upp verði teknir framseljanlegir kvótar en Magnuson-Stevens-fiskveiðistjórnarlögin verða tekin til endurskoðunar á þessu ári.
Meira
FRUMVARP til laga um líftækniiðnað var afgreitt úr ríkisstjórn á mánudag. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir að nokkrar breytingar hafi verið gerðar á frumvarpinu, sem hafi verið flutt í fyrravor, og snúi það nú að hreinum iðnaðarhagsmunum.
Meira
FYRIRLESTUR á vegum Rauða krossins um viðbrögð við áföllum í skóla verður haldinn í dag, miðvikudag kl. 9 og 12 á Grand hótel í Reykjavík. Hvernig útskýrir kennari andlát nemanda fyrir bekkjarfélögunum?
Meira
UNGT fólk á aldrinum 16-25 ára sem búsett er á Akranesi mun á næstu vikum geta notfært sér húsnæði gamla Iðnskólans, sem stendur við Skólabraut 9, fyrir hugðarefni sín.
Meira
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti lofaði í gær að auka samstarfið við Asíuríki í öryggismálum og sagði að Japan gegndi "ómissandi hlutverki" í heiminum.
Meira
FREYVANGSLEIKHÚSIÐ frumsýnir á laugardagskvöld, 23. febrúar, nýjan gleðileik með söngvum eftir Hjörleif Hjartarson frá Tjörn í Svarfaðardal. Verkið fjallar á gamansaman eða öllu heldur kaldhæðinn hátt um útihátíðina Halló Akureyri.
Meira
AÐALFUNDUR Félags kennara í málmiðngreinum harmar þá óvissu sem uppi er í menntunarmálum greinarinnar. Í ályktun segir að menntamálaráðuneytið virðist ekki hafa mótað hugmyndir um með hvaða hætti menntunarmálum málmiðngreina verði skipað.
Meira
MIKILL skafrenningur, hálka og hvassviðri var á Suður- og Suðausturlandi í gærdag. Töluverð snjókoma var í Vestmannaeyjum og þæfingur seinni partinn í Vík í Mýrdal.
Meira
SJÖ Garðbæingum úr hópi eldri borgara var nýlega veitt viðurkenning fyrir framlag til menningarmála bæjarins. Var viðurkenningin, skúlptúrinn Serenaða eftir listamanninn Helga Gíslason, veitt á lokahófi afmælisárs bæjarins.
Meira
Japanir hafa loks, síðastir iðnvæddra þjóða, viðurkennt að heimilisofbeldi fær auðveldlega þrifist í samfélagi þeirra. Ný lög hafa verið sett en fórnarlömbin eru sammála um að þau gangi of skammt.
Meira
HJÁLMAR Jónsson knattspyrnumaður var kjörinn íþróttamaður Keflavíkur 2001. Kjöri hans var lýst á aðalfundi Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, í fyrrakvöld.
Meira
SEX nemendur í tíunda bekk Heiðarskóla í Keflavík hafa í vetur stundað færni- og áhugamiðað nám, en það er þróunarverkefni sem unnið er í samvinnu við Vinnuskóla Reykjanesbæjar.
Meira
ÞRÍR íslamskir vígamenn, sem handteknir voru í Tyrklandi á föstudag, hugðust komast til Ísrael og fremja þar sprengjutilræði. Talsmaður tyrknesku lögreglunnar greindi frá þessu í gær.
Meira
JÓHANNA Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi harkalega við upphaf þingfundar í gær svör samgönguráðherra við skriflegri fyrirspurn hennar um starfslokasamninga hjá Landssímanum.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing Friðriks Pálssonar, stjórnarformanns Landssímans, vegna yfirlýsingar Flosa Eiríkssonar um úrsögn úr stjórn fyrirtækinsins: "Samstarf okkar Flosa hefur verið gott og trúnaðarbrest á milli okkar...
Meira
KRÖKKUNUM í leikskólanum Kærabæ á Fáskrúðsfirði þótti gott að fá að vera í gamla íþróttasalnum og slá köttinn úr tunnunni, en úti var rok og rigning á öskudaginn. Ekki vantaði tilþrifin þar eða búningana frekar en annars staðar á...
Meira
KRAKKARNIR á Selfossi létu ekki rigningu og rok aftra sér að fara um göturnar og heimsækja fyrirtæki í bænum með söng og gamanmálum. Þau fengu að vanda sætindi að launum.
Meira
MÁLSTOFA uppeldis- og menntunarfræðiskorar verður haldin fimmtudaginn 21. febrúar kl. 12 - 13 í stofu 201 í Odda og nefnist Ósýnilegar fjölskyldur: Seinfærar/þroskaheftar mæður og börn þeirra.
Meira
JARÐHITAFÉLAG Íslands heldur málþing í Norræna húsinu fimmtudaginn 21. febrúar með yfirskriftinni "Hvernig á að standa að rannsókn og virkjun jarðhitasvæðis?" Skráning og afhending gagna er frá 12.45 og dagskrá málþingsins hefst kl. 13.
Meira
Fjóla Þorvaldsdóttir er fædd á Akranesi 16. nóvember 1961. Útskrifaðist sem leikskólasérkennari 1995. Starfaði í leikskólum Kópavogs 1983-97 sem deildarstjóri, leikskólastjóri og leikskólasérkennari. 1997-2001 starfaði hún sem sérkennari hjá Fullorðinsfræðslu fatlaðra og frá ágúst 2001 aðstoðarskólastjóri og sérkennari í leikskólanum Fífusölum í Kópavogi. Er gift Svavari Jónssyni bifreiðastjóra og eiga þau þrjú börn, Hrafn, Sunnevu og Inga.
Meira
STJÓRN Sambands íslenskra samvinnufélaga, SÍS, kemur saman til fundar á Bifröst í Borgarfirði í dag í tilefni 100 ára afmælis sambandsins, sem stofnað var 20. febrúar 1902 að Ystafelli í Köldukinn.
Meira
GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins, Reykjum í Ölfusi stendur fyrir námskeiðinu; "Vatn í görðum" í húsakynnum skólans, föstudaginn 22. febrúar frá klukkan 9-15. Námskeiðið er fyrir fagfólk þar sem fjallað verður um viðfangsefnið frá mörgum hliðum.
Meira
FUNDUR verður næst á Alþingi eftir helgi, mánudaginn 25. febrúar nk. Næstu þrír dagar á þingi verða einvörðungu helgaðir nefndastörfum og ber þar væntanlega hæst umfjöllun um frumvarp til laga um...
Meira
1882 Fyrsta kaupfélagið innan samvinnuhreyfingarinnar, Kaupfélag Þingeyinga, stofnað að Þverá í Laxárdal 20. febrúar að frumkvæði Jakobs Hálfdánarsonar á Grímsstöðum og Benedikts Jónssonar á Auðnum.
Meira
UTANRÍKISRÁÐHERRA Finnlands hefur tilnefnt Einar Jónatansson, framkvæmdastjóra Gnár hf. í Bolungarvík sem kjörræðismann Finnlands í Bolungarvík frá og með 1. janúar 2002.
Meira
NÝSKRÁNINGAR einkahlutafélaga hafa nær tvöfaldast það sem af er þessu ári samanborið við sama tímabil í fyrra, en um áramótin lækkaði skatthlutfall fyrirtækja úr 30% í 18% vegna breytinga á skattalögum.
Meira
VEIÐIKONUR í SVFR verða með opið hús í sal félagsins, Háaleitisbraut 68, föstudaginn 22. febrúar kl. 20.30. Stelpurnar í veiðihópnum Legin/n verða með veiðisögur og myndasýningu. Veiðileiðsögn verður um svæði Alviðru í Soginu.
Meira
KÍNVERSK stjórnvöld sögðu í gær að það væri "aðeins orðrómur" að Li Peng, forsætisráðherra landsins, væri grunaður um að hafa látið koma fyrir hlerunartækjum í væntanlegri einkaþotu Jiang Zemins forseta landsins.
Meira
HARALDUR Örn Ólafsson sjötindafari stendur nú frammi fyrir erfiðustu fjallgöngunni í leiðangri sínum eftir að hafa komist á hæsta tind sex heimsálfa. Hæsti tindur heims, Everest 8.
Meira
Væntanlegur arftaki Jiangs Zemins Kínaforseta hefur verið í felum fyrir allra augum í áratug, en á Vesturlöndum virðist enginn vita neitt um manninn.
Meira
ÚTVARPSRÁÐ átti fund á Akureyri í gær þar sem fulltrúar þess skoðuðu m.a. nýtt húsnæði sem Ríkisútvarpið hefur tekið á leigu við Kaupvangsstræti 1 í miðbæ Akureyrar. Þangað verður öll starfsemi útvarpsins flutt þegar líður á árið.
Meira
23 ÁRA gamall Reykvíkingur, Þór Sigurðsson, hefur játað hjá lögreglu að hafa ráðist á karlmann á Víðimel aðfaranótt mánudags, með þeim afleiðingum að hann lést.
Meira
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Sambands íslenskra samvinnufélaga, segir m.a. í viðtali við Björn Jóhann Björnsson að kostir samvinnuhreyfingarinnar hafi í raun verið hinir sömu og gallarnir: Öflug félagsleg samstaða sem nýttist vel til uppbyggingar en gerði á sama hátt allt starf svifaseint þegar bregðast þurfti við breyttum aðstæðum.
Meira
FJALLAÐ verður um málefni útlendinga og sérstöðu þeirra sem minnihlutahóps á þverfaglegu námskeiði hjá Endurmenntun HÍ dagana 25. og 26. febrúar.
Meira
SIGURÐUR J. Sigurðsson stýrði síðasta fundi sínum sem forseti bæjarstjórar Akureyrar í gær. Sigurður tekur nú við nýju starfi deildarstjóra fjármálasviðs Norðurorku.
Meira
SKRÍN ehf. hefur tekið við netþjónustu Anza á Akureyri, þ.e. innhringiaðgang einstaklinga, lén, netföng tengd nett.is, aey.is og nest.is en breytingarnar taka gildi 1. mars næstkomandi.
Meira
Í NÝJASTA hefti breska tímaritsins The Ecologist sem á íslensku nefnist Vistfræðingurinn er vikið að starfsemi Sólheima í Grímsnesi í tengslum við umfjöllun um annars konar samfélög.
Meira
STEFÁN Jón Hafstein fékk afgerandi kosningu í fyrsta sætið og varð sigurvegari í prófkjöri Samfylkingarinnar vegna borgarstjórnarkosninganna í vor. Steinunn Valdís Óskarsdóttir varð í öðru sæti og Helgi Hjörvar í því þriðja.
Meira
GEIR Jón Þórisson yfirlögregluþjónn í Reykjavík segir að þrátt fyrir atburðinn á Víðimel á mánudag, sé ekki ekki unnt að draga þá ályktun að borgarar geti ekki lengur gengið óhultir um götur borgarinnar af ótta við ofbeldisbrot.
Meira
TÍU tilboð bárust í jarðvinnu fyrir göngubrú yfir Hafnarfjarðarveg en tilboð voru nýlega opnuð hjá Vegagerðinni. Lægsta tilboðið átti Ásberg ehf. í Mosfellsbæ og hljóðaði það upp á rúmar 22 milljónir króna sem eru 93 prósent af kostnaðaráætlun verksins.
Meira
KAMMERKÓR Nýja tónlistarskólans heldur tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju á morgun, fimmtudag, klukkan 20. Stjórnandi er Sigurður Bragason og undirleikari á píanó Richard Simm. Flutt verða verk eftir nokkur af virtustu tónskáldum Íslendinga.
Meira
ETA, aðskilnaðarhreyfing Baska á Spáni, var í gær gerð ábyrg fyrir sprengjutilræði í Baskalandi. Tveir menn særðust í sprengingunni, annar þeirra alvarlega en hann er félagi í ungliðahreyfingu Sósíalistaflokks Spánar, PSOE.
Meira
FRUMDRÖG að deiliskipulagi fyrir Hraun í Hafnarfirði verður kynnt fyrir íbúum svæðisins og öðrum hagsmunaaðilum en skipulags- og umferðarnefnd bæjarins samþykkti það á fundi sínum í síðustu viku.
Meira
OFVEIÐIN í Norður-Atlantshafi er svo gegndarlaus, að verði ekkert að gert kann svo að fara, að í framtíðinni verði farið að eltast við þörunga, marglyttur og annað slíkt sem hráefni í "fisklíki".
Meira
ÞESSA dagana er að rísa verslunarhús í Reykjahlíð. Það eru Olíufélagið hf., Eignarhaldsfélag KEA og Skútustaðahreppur sem eiga bygginguna. Þar verður verslað með dagvörur heimilanna, bensín og olíur og loks verður þar upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn.
Meira
ÁKVEÐIÐ hefur verið að bjóða út ófyrirséð viðhald og minni háttar viðhald, sem ekki verður boðið út í sérstökum útboðum á vegum Fasteigna Akureyrarbæjar.
Meira
Þessi stúlka lék sér innan um liljurnar í Nottingham-skíri á Englandi í gær en í Bretlandi hefur verið óvenju hlýtt í veðri að undanförnu. Meðalhitinn frá 13. janúar til 12.
Meira
Í TILEFNI af fréttaflutningi á undanförnum dögum um meint PAH-eiturefni í ólífuolíum óskar Innnes ehf., umboðsaðili Filippo Berio á Íslandi, eftir að koma eftirgreindu á framfæri: 1.
Meira
GUÐBRANDUR Sverrisson á Bassastöðum í Kaldrananeshreppi fór við fjórða mann að sækja kindur inn í svokallaðan Hvannadal sem gengur innúr Selárdal í Steingrímsfirði.
Meira
Hrottalegt morð í kyrrlátri íbúðargötu í Vesturbæ Reykjavíkur hefur vakið óhug um allt land. Athæfið framdi maður, sem hafði skömmu áður framið innbrot í dekkjaverkstæði við Ægissíðu.
Meira
MICHELLE Hartman, lektor við Hofstra-háskóla í New York í Bandaríkjunum, er hingað komin á vegum Hugvísindastofnunar HÍ til að flytja fyrirlestur er nefnist "Raddir kvenna í arabískum bókmenntum". Í fyrirlestrinum, sem hefst kl. 17.
Meira
ÞAÐ sem af er ári hefur verið óvenjumikið um tónleika á höfuðborgarsvæðinu. Eftir annasama aðventu hvað tónleikahald varðar voru jól og áramót varla að baki, þegar Myrkir músíkdagar hófust með fjölbreyttum tónleikum víðs vegar um borgina.
Meira
Norræna húsið Á háskólatónleikum kl. 12.30 leikur Ármann Helgason klarinettuleikari verk eftir Stravinski, Sutermeister, Penderecki og Rivier. Tónleikarnir taka u.þ.b. hálfa klst. Aðgangseyrir er 500 kr., en ókeypis er fyrir handhafa stúdentaskírteina.
Meira
ÞAÐ á ekki af þeim Gallagherbræðrum að ganga! Þeir eru að sem aldrei fyrr en þann 15. apríl verður fyrsta lagið af væntanlegri plötu Oasis gefið út og er það titlað "The Hindu Times".
Meira
TEIKNIMYNDIN Monsters Inc. , eða Skrímsli hf. , heldur toppsætinu á Íslenska bíólistanum. Þessi vandaða afurð Disney-risans hefur heldur betur fallið í kramið hjá ungum sem öldnum en rúmlega 7.000 manns sóttu myndina um síðustu helgi.
Meira
VERK Ólafs Jóhanns Ólafssonar, "Feast of Snails" (Sniglaveislan), sem frumsýnt var í West End-leikhúshverfinu í Lundúnum á mánudagskvöld, fékk umsögn yfir meðallagi hjá breska dagblaðinu The Times í gær.
Meira
VEGNA bréfs míns, "Smalamennskan á Keflavíkurveginum", 13. febrúar sl. og viðbragða við því finnst mér ástæða til að vekja athygli á að myndtexti sem fylgdi var ekki frá mér kominn heldur starfsmönnum Morgunblaðsins.
Meira
VARÐANDI forystugrein Jónasar Kristjánssonar sem birtist í Fréttablaðinu 11. febrúar s.l. vil ég gera athugasemdir, þar sem ég fékk hugboð um að nokkuð vantaði á skilning hans á efninu. T.d.
Meira
Þekkingar- og tækniþjóðfélag verður ekki rekið af nokkru viti, segir Ingólfur Sverrisson, nema menntun iðnaðarmanna taki mið af tæknikröfum hvers tíma.
Meira
TILGANGUR þessara skrifa okkar er að lýsa yfir ánægju með þau áform borgaryfirvalda að láta gamlan draum (og eina af meginforsendum árangurs) frjálsíþróttamanna á Íslandi rætast. Hér er átt við væntanlega byggingu frjálsíþróttahallar í Laugardal.
Meira
NOKKRIR valinkunnir ræktunarmenn hafa hvatt mig til að segja lítillega frá prýðisgóðum árangri mínum af því að nota slíkan úrgang til að græða upp mela og moldarflög.
Meira
Þakkir til Stöðvar 2 KÆRAR þakkir til Stöðvar 2 fyrir þáttinn um hollenska fiðluleikarann Andreo Rio, sem var á dagskránni hinn 11. febrúar sl. Hann er sá alskemmtilegasti sem sést hefur í sjónvarpinu.
Meira
ÉG VAR að lesa grein Dagbartar L. Kjartansdóttir í Morgunblaðinu 14. febrúar sem bar fyrirsögnina "Allir þurfa þak yfir höfuðið". Það er gott að fá innlegg frá félagsráðgjafa um stöðu fátækra hér á landi.
Meira
FYRIR um 20 árum beindi Alþjóðaheilbrigðisstofnunin þeim tilmælum til íslenskra stjórnvalda, að stefnt yrði að minnkun áfengisneyslu hér á landi um fjórðung fyrir aldamótin.
Meira
Ágústa Egilsdóttir fæddist á Eskifirði 3. október 1956. Hún lést í bílslysi föstudaginn 8. febrúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Eskifjarðarkirkju 16. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Edda Ingveldur Vikar fæddist í Reykjavík 29. desember 1927. Hún lést á heimili sínu 7. febrúar síðastliðinn. Faðir hennar var Guðmundur Bjarnason Vikar klæðskerameistari í Reykjavík, f. 11.4. 1888, d. 24.5. 1941.
MeiraKaupa minningabók
Jóhanna Blöndal Guðmundsdóttir fæddist á Bókhlöðustíg 6b í Reykjavík 29. október 1922. Hún lést á Landspítalanum 12. febrúar síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Rune Verner Sigurðsson vélstjóri fæddist í Virum í Danmörku 27. apríl 1961. Hann fórst með Ófeigi VE hinn 5. desember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Áskirkju 18. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Guðmunda Guðjónsdóttir fæddist á Ísafirði 20. janúar 1912. Hún lést á Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi mánudaginn 11. febrúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkjunni 19. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Þorlákur Þórðarson fæddist í Reykjavík 10. júní 1921. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 9. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 18. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
HEILDARAFLI fullvinnsluskipa og annarra skipa sem vinna afla um borð varð á fiskveiðiárinu 2000-2001 alls 157.819 tonn. Talið er að þar af hafi um 63.
Meira
STJÓRNVÖLD í Namibíu munu ekki gefa út ný veiðileyfi næstu 6 árin, nema til veiða á hrossamakríl. Sjávarútvegsráðherra Namibíu, Abraham Iyambo, segir að fiskistofnarnir séu dýrmæt en ekki ótakmörkuð auðlind.
Meira
GENGI krónunnar styrktist um 0,26% í tæplega tveggja milljarða króna viðskiptum á millibankamarkaði í gær, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Landsbankans. Lokagildi gengisvísitölunnar í gær var 136,80 stig, en var 137,15 stig við opnun í...
Meira
HAGNAÐUR af rekstri Verðbréfaþings Íslands hf. og dótturfélags þess, Upplýsingaþings ehf., nam 19,0 milljónum króna á árinu 2001. Árið áður var hagnaðurinn 19,4 milljónir.
Meira
STJÓRNIR Hávöxtunarfélagsins hf. og Verðbréfasjóðsins hf. hafa staðfest samruna verðbréfasjóðanna og hefur verið óskað eftir því að Verðbréfasjóðurinn hf. verði afskráður úr hlutafélagaskrá.
Meira
ÍSLAND er í öðru sæti á lista yfir 75 ríki sem raðað er eftir hæfni íbúa þeirra til að nýta möguleika upplýsingatækni ( Networked Readiness Index NRI ). Bandaríkin eru í efsta sæti.
Meira
RÚMLEGA 180 þúsund flöskur seldust af íslenska vodkanum Pölstar í Lundúnum á síðasta ári. Gert er ráð fyrir að salan á þessu ári verði að minnsta kosti 300 þúsund flöskur.
Meira
GÓÐ veiði var á loðnumiðunum í gær og voru skipin að fylla sig í fáum köstum. Frysting á Japansmarkað er víða hafin, þó að afkoman af frystingunni þyki með lakasta móti í ár.
Meira
HÓPVINNUKERFI ehf. standa í dag fyrir námskeiði um ISO 15489:2001, sem er nýr alþjóðlegur staðall um upplýsinga- og heimildagildi skjala og skjalastjórn, í tengslum við umhverfi íslenskra stofnana og fyrirtækja. Námskeiðið hefst kl.
Meira
DAUÐUR nílarkarfi flýtur nú í stórum stíl á yfirborði Viktoríuvatns í Afríku. Talið er súrefnisskortur valdi fiskdauðanum. Fiskimenn í vatninu segja að allt upp í 10% aflans á dag sé dauður fiskur.
Meira
Í ERINDI sem einn af forsvarsmönnum SAS-flugfélagsins, Lars Lindgren, hélt hér á landi í vikunni kom m.a. fram að öll hefðbundin flugfélög þyrftu að mæta væntingum almennings um lág flugfargjöld.
Meira
RÍKISKAUP hafa ákveðið að ganga til samstarfs við Anza um hýsingu og rekstur á nýju landskerfi bókasafna. Markmið Landskerfis bókasafna er að tryggja landsmönnum aðgang að bókfræðilegum upplýsingum sem nýtast bæði til náms, í starfi og í leik.
Meira
EINS og greint hefur verið frá lauk nýverið þriggja ára samningi OZ og Ericsson um þróun iPulse samskiptalausnarinnar, nánar tiltekið í janúar sl.
Meira
FRYSTISKIPIÐ Snorri Sturluson VE kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í fyrsta sinn fyrir skömmu en Ísfélag Vestmannaeyja festi kaup á skipinu í lok síðasta árs. Skipið var þá að koma úr 30 daga veiðiferð.
Meira
TAP af reglulegri starfsemi Tanga hf. á Vopnafirði nam 95,6 milljónum króna árið 2001 samanborið við 263,6 milljóna króna tap árið áður. Verulegur afkomubati var á rekstri félagsins síðari helming ársins og nam hagnaður tímabilsins 197 milljónum króna.
Meira
TAP hlutabréfasjóðsins Hlutabréfamarkaðurinn hf. (Hmark), sem Íslandsbanki sér um daglegan rekstur á, var 53 milljónir króna fyrir skatta á árinu 2001. Sjóðurinn greiðir ekki tekjuskatt vegna yfirfæranlegs taps.
Meira
TAP Íslenskra verðbréfa hf. á árinu 2001 nam 131 milljón króna eftir skatta. Árið áður var tap félagsins 51 milljón. Eignir Íslenskra verðbréfa í árslok 2001 voru 1.127 milljónir króna en 1.408 milljónir í árslok 2000.
Meira
80 ÁRA afmæli . Í dag, miðvikudaginn 20. febrúar, er áttræð Bára Sigurjónsdóttir, kaupkona, Hafnarfirði. Hún dvelst um þessar mundir á Carlton Hotel, CH-7500 St. Moritz, Sviss. Herbergi 120.
Meira
Bridsfélag Kópavogs Fimmtudaginn 14. febrúar var spilað þriðja kvöldið í aðalsveitakeppni félagsins og er staða efstu sveita þannig. 1. sv. Jón Stefánsson 104 2. sv. Vilhjálms Sigurðss jr. 96 3. sv. Birgir Ö. Steingr 94 4. sv. Hrafnhildur Skúlad.
Meira
ÞAÐ er sjaldgæft að eitt einstakt spil veki jafn mikla athygli og eftirfarandi þrjú grönd úr sjöttu umferð Flugleiðamótsins: Austur gefur; NS á hættu.
Meira
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða kl. 13:00. Handavinna, spil, föndur og gamanmál. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12:10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 520-9700. Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12.
Meira
Félag eldri borgara í Hafnarfirði Eldri borgarar í Hafnarfirði spila brids, tvímenning, í Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50 tvisvar í viku, á þriðjudögum og föstudögum. Mæting kl. 13.30. Spilað var 12. febrúar.
Meira
Félag eldri borgara í Kópavogi 21 par mætti í tvímenninginn þriðjudaginn 12. febrúar og voru spiluð 27 spil með Mitchell-fyrirkomulagi. Lokastaðan í N/S: Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 261 Hreinn Hjartarson - Ragnar Björnss. 254 Guðm.
Meira
Í KVÖLD kl. 20.00 mun séra Jón Bjarman leiða það sem hann nefnir Íhugun á föstu. Þetta er fyrsta íhugun af fjórum um síðustu för Jesú til Jerúsalem. Íhuguninni lýkur með helgistund í kirkjunni.
Meira
Í dag er miðvikudagur 20. febrúar, 51. dagur ársins 2002. Imbrudagar. Orð dagsins: Þá sagði Jesús við þá: "Skamma stund er ljósið enn á meðal yðar. Gangið, meðan þér hafið ljósið, svo að myrkrið hremmi yður ekki. Sá, sem gengur í myrkri, veit ekki, hvert hann fer."
Meira
KEPPNI í Meistaradeild í hestaíþróttum hefst í annað sinn í dag, miðvikudaginn 20. febrúar, þegar keppt verður í fjórgangi í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli.
Meira
Enn man ek böl þat, er brunnu bauga-Hlín ok mínir (skaði kennir mér minni minn) þrír synir inni; glaðr munat Göndlar röðla gnýskerðandi verða (brjótr lifir sjá við sútir sverðs) nema hefndir...
Meira
Fimm mót voru haldin um helgina víða um land. Greina má mikinn keppnishug í hestamönnum strax í upphafi keppnistímabilsins og víst að mikið verður lagt undir til að komast á landsmót í sumar. Valdimar Kristinsson tók saman úrslit mótanna og myndaði nokkra af verðlaunahöfum helgarinnar.
Meira
HELDUR finnst Víkverja hvimleitt í Flugstöð Leifs Eiríkssonar að búið er að byrgja gluggann milli komusalar stöðvarinnar og salarins þar sem menn bíða eftir þeim sem verið er að sækja úr flugi.
Meira
MAGDEBURG, þýsku meistararnir í handknattleik, urðu fyrir miklu áfalli í fyrrakvöld. Þeir Stefan Kretzschmar og Nenad Perunicic meiddust þá báðir í æfingaleik.
Meira
BANDARÍKJAMAÐURINN Derek Parra setti í gær heimsmet í 1.500 metra skautahlaupi á vetrarleikunum í Salt Lake City þar sem hann kom í mark á 1.43,95 mínútum og varð Parra í leiðinni ólympíumeistari .
Meira
Grindvíkingar sigruðu granna sína úr Keflavík í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöld, 73:61. Það var ekki nein sérstök skemmtun sem áhorfendur fengu í gærkvöldi.
Meira
EGGERT Stefánsson, knattspyrnumaður úr Fram, er hryggbrotinn og hefur verið í eitt ár. "Það kom bara í ljós á föstudaginn að ég er hryggbrotinn og er búinn að vera það líklega í eitt ár," sagði Eggert í samtali við Morgunblaðið í gær.
Meira
RON Harris, einn af bikarmeisturum enska knattspyrnufélagsins Chelsea árið 1970, segir að þeir Eiður Smári Guðjohnsen og Jimmy Floyd Hasselbaink séu besta framherjapar ensku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir.
Meira
FYRSTI heimaleikur KA í efstu deild karla á spegilárinu 2002 jafnaðist á við bestu flugeldasýningu um áramót. Reyndar var engu líkara en KA-heimilinu hefði verið breytt í fjölleikahús því listirnar sem leikmenn KA sýndu gestunum úr Stjörnunni voru hreint ótrúlegar. Í boði voru m.a. tvö sannkölluð sirkusmörk, glæfralegar línusendingar sem gengu upp og alls 13 mörk úr hraðaupphlaupum. Svo fór að KA sigraði í leiknum með 17 marka mun, 39:22.
Meira
FRANSKA parið Marina Anissina og Gwendal Peizerat sigruðu með minnsta mun í listdansi á skautum á vetrarólympíuleikunum í Salt Lake City en þau áttu í harðri baráttu við rússneskt par, Irina Lobacheva og Ilia Averbukh.
Meira
GRÓTTA/KR gaf FH-ingum engin grið þegar liðin mættust á Seltjarnarnesi í gærkvöldi - slökktu á sóknarleik þeirra og brunuðu síðan í hraðaupphlaup enda skoruðu þeir úr 14 slíkum í 31:20 sigri. Auk þess fengu tveir leikmenn FH rautt spjald fyrir gróf brot. Með sigrinum tók Grótta/KR 8. sætið af FH.
Meira
ELLERT Jón Björnsson, knattspyrnumaður frá Akranesi, skrifar að öllu óbreyttu undir þriggja ára samning við hollenska knattspyrnufélagið De Graafschap á næstu dögum en ekki er ljóst á þessari stundu hvort hann sé laus allra mála hjá ÍA. Gunnar Sigurðsson formaður rekstrarfélags meistaraflokks ÍA sagði í gær að samkvæmt þeirra skilningi væri Ellert samningsbundinn til loka ársins 2003.
Meira
KEPPNIN í D-riðli Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu er æsispennandi en eftir úrslit leikjanna tveggja í riðlinum í gærkvöldi hafa öll liðin fjögur stig. Leverkusen og Arsenal skildu jöfn, 1:1, í Þýskalandi þar sem Arsenal lék manni færri í 25 mínútur og á Ítalíu gerðu Juventus og Deportivo markalaust jafntefli þar sem heimamenn misnotuðu vítaspyrnu seint í leiknum.
Meira
ÍSLAND situr yfir á fyrsta leikdegi Evrópukeppni landsliða í haust en leikur tvo heimaleiki í október, gegn Skotlandi og Litháen. Hinir sex leikirnir í keppninni verða á árinu 2003. Tveir síðustu leikir Íslands verða gegn Þjóðverjum - fyrst í Reykjavík og síðan úti.
Meira
ÁSTRALINN Steven Bradbury sigraði mjög óvænt í 1.000 metra skautahlaupi um helgina í stuttri braut og varð þar með fyrstur Ástrala til að fá gull á vetrarólympíuleikum.
Meira
FORRÁÐAMENN úrvalsdeildarliðs Njarðvíkur í körfuknattleik hafa komist að samkomulagi við bandaríska leikmanninn Pete Philo og mun hann leika með Njarðvíkingum það sem eftir lifir keppnistímabilsins.
Meira
* STEFÁN Þ. Þórðarson, leikmaður Stoke City , meiddist í leik með varaliði félagsins í fyrrakvöld. Hann fór af velli í fyrri hálfleik og tvísýnt er hvort hann geti leikið með þegar Stoke mætir toppliðinu í ensku 2. deildinni, Reading , um næstu helgi.
Meira
SAMKVÆMT sænska netmiðlinum Sportal mun Gautaborg greiða Keflavík í kringum 20 milljónir íslenskra króna fyrir knattspyrnumanninn Hjálmar Jónsson. Hjálmar hefur sem kunnugt er samið við sænska félagið út tímabilið 2006.
Meira
SKRIFSTOFA KSÍ hefur staðfest að tveir leikmenn voru ólöglegir með liðum í deildabikarkeppninni í knattspyrnu sem hófst um síðustu helgi. Veigar Páll Gunnarsson var ekki löglegur með KR-ingum þegar hann lék með liðinu á móti Þór.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.