PAKISTANSKUR lögreglumaður fylgir íslamska öfgatrúarmanninum sheikh Omar í dómsal í borginni Karachi í gær en sheikh Omar er sakaður um að hafa staðið á bak við ránið á bandaríska blaðamanninum Daniel Pearl, sem nú er staðfest að sé látinn.
Meira
LEIÐTOGI stjórnarandstöðunnar í Zimbabwe, Morgan Tsvangirai, verður ákærður fyrir landráð, að því er lögfræðingur hans greindi frá í gær. Verði hann fundinn sekur á hann dauðarefsingu yfir höfði sér.
Meira
MOSHE Katsav, forseti Ísraels, bauð í gær Abdullah bin Abdul Aziz, krónprinsi í Sádi-Arabíu, til viðræðna í Jerúsalem en krónprinsinn lagði nýverið fram hugmyndir sem hugsanlegt er talið að geti leitt til friðar í Miðausturlöndum.
Meira
RÆNINGJAGENGI í Þýskalandi komst í gær undan með meira en tíu milljónir evra, tæplega einn milljarð ísl. kr., en þetta er talið stærsta peningarán sem framið hefur verið í Þýskalandi. Leitar þýska lögreglan nú ræningjanna dyrum og dyngjum.
Meira
ÍSRAELSKA lögreglan réð í gær niðurlögum Palestínumanns eftir að hann hafði hafið skothríð á strætisvagnastöð í ísraelska hluta Jerúsalem með þeim afleiðingum að sex særðust.
Meira
PAAVO Lipponen, forsætisráðherra Finnlands, sagði í gær að stóru ríkin í Evrópusambandinu - Bretland, Frakkland, Þýskaland og Ítalía - hefðu of mikil völd innan þess.
Meira
NÆRRI sjö af hverjum tíu landsmönnum, eða 67%, eru fylgjandi sölu áfengs bjórs og léttvíns í matvöruverslunum, að því er fram kemur í könnun PricewaterhouseCoopers, PWC. Andvígir slíku fyrirkomulagi eru 28,3% og rúmlega 5% hlutlaus.
Meira
ÚKRAÍNSKI heimsmeistarinn í skák, Rúslan Ponomaríov, varð að lúta í lægra haldi fyrir Englendingnum Michael Adams á skákmótinu í Linares á Spáni á sunnudag. Adams var með hvítt og beitti Ruy Lopez-byrjun eða Spænska leiknum.
Meira
AÐALFUNDUR Foreldrafélags misþroska barna vegna reikningsársins 2001 verður haldinn miðvikudaginn 27. febrúar kl. 20 í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Meira
STÚLKURNAR í norsku hljómsveitinni Tanhatu Marimba náðu vel til barnanna í Grindavík en þær léku afríkutónlist í grunnskólanum á dögunum. Ein stúlkan er íslensk, ættuð úr Grindavík.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Guðmundi Ólafssyni lektor viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. "Morgunblaðið birti frétt föstudaginn 1. febrúar um kynningu á meistaraprófsritgerð nemanda í viðskipta- og hagfræðideild.
Meira
DÓMSTÓLL í Pakistan framlengdi í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir sheikh Omar og tveimur öðrum herskáum múslímum sem taldir eru hafa tekið þátt í ráninu og morðinu á bandaríska blaðamanninum Daniel Pearl.
Meira
FROSTHÖRKUR hafa verið í Ólafsvík síðustu daga og frostið farið niður í 12 gráður. Norðanvindur hefur einnig blásið og hafa bátar sem stunda róðra héðan verið mikið ísaðir.
Meira
KOSTNAÐUR við að útbúa hjólabrettasvæði við Stapagötu í Innri-Njarðvík kostar rúmar 800 þúsund kr. Ellert Skúlason hf. átti lægsta tilboðið í verkið, tæplega 802 þúsund kr. Er það liðlega 79% af kostnaðaráætlun bæjarins sem hljóðaði upp á rúma milljón.
Meira
PÁLMI Kristinsson, framkvæmdastjóri Smáralindar, hefur í kjölfar full harkalegra brunaboða í verslanamiðstöðinni á sunnudag, þar sem send voru út sjálfvirk boð um rýmingu húsnæðisins, gefið hönnuðum eldvarnakerfisins fyrirmæli um að breyta kerfinu á þann...
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík leitar tveggja manna um tvítugt sem grunaðir eru um rán í versluninni Sparkaup í Suðurveri á sunnudagskvöld. Í ráninu villtu þeir á sér heimildir og bundu afgreiðslustúlku fasta við stól og skildu hana þannig eftir.
Meira
VAXANDI kröfur eru um, að Stephen Byers, samgönguráðherra Bretlands, segi af sér en hann er sakaður um að ráða ekki við embættið. Er ástæðan aðallega uppákomur í kringum tvo ráðgjafa hans. Annar ráðgjafinn, Jo Moore, hneykslaði marga sl.
Meira
NÝ HEIMASÍÐA Garðabæjar var opnuð með formlegum hætti og voru það börn af leikskólanum Bæjarbóli sem aðstoðuðu Ásdísi Höllu Bragadóttur bæjarstjóra við opnunina.
Meira
FYRIR tíu mánuðum misstu Bandaríkin sæti sitt í mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna og er nú reynt að finna leiðir til að tryggja að atburðir af því tagi geti ekki endurtekið sig.
Meira
Jóna Pálsdóttir er fædd í Reykjavík 6. júní 1951. Er BA í íslensku, uppeldisfræði og norsku auk uppeldis- og kennslufræði frá HÍ og diploma í upplýsingatækni við KHÍ. Hún var kennari og áfangastjóri við MK um árabil og fjarkennari í íslensku og tjáningu við Verkmenntaskólann á Akureyri. Sá um námskeið fyrir kennara í upplýsingatækni á Íslenska menntanetinu. Er nú deildarstjóri þróunarsviðs menntamálaráðuneytisins. Maki er Garðar Gíslason félagsfræðingur og eiga þau sex börn og þrjú barnabörn.
Meira
MEIRIHLUTI íþrótta- og tómstundaráðs Akureyrar hefur samþykkt hækkun á gjaldskrám Sundlaugar Akureyrar og Sundlaugar Glerárskóla. Einnig hefur ráðið samþykkt hækkun á gjaldi fullorðinna á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli.
Meira
MAÐURINN sem lést eftir að Bjarmi VE-66 fórst undan Þrídröngum á laugardag hét Matthías Hannesson, stýrimaður á Bjarma. Hann var fertugur, fæddur 11. desember 1961. Hann lætur eftir sig sambýliskonu og tvær dætur.
Meira
Ríkislögreglustjóraembættið hefur hætt rannsókn á meintum innherjaviðskiptum stjórnenda Búnaðarbankans með hlutabréf í Pharmaco þar sem málið sé ekki líklegt til sakfellis. Rannsókn á hendur fyrrverandi starfsmönnum bankans verður hins vegar haldið áfram.
Meira
FLOSI Eiríksson bæjarfulltrúi varð efstur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópavogi sem fram fór um helgina vegna komandi sveitarstjórnarkosninga.
Meira
KÓLUMBÍSKUR forsetaframbjóðandi, sem á fundi nýverið ásakaði skæruliðaleiðtoga um eiturlyfjasmygl, er í haldi þeirra sömu skæruliða á átakasvæðunum í suðurhluta Kólumbíu.
Meira
FORSTÖÐUMANNI Þjóðmenningarhúss við Hverfisgötu, Guðmundi Magnússyni, var í gær veitt tímabundin lausn frá embætti. Davíð Oddsson forsætisráðherra upplýsti um þetta við umræður utan dagskrár um málefni Þjóðmenningarhúss og Þjóðskjalasafns á Alþingi í...
Meira
RANNSÓKNARNEFND flugslysa aðstoðar nú Rannsóknastofnun flugslysa í Noregi við öflun gagna vegna flugatviks sem varðar þotu Flugleiða við Gardermoen flugvöll norðan við Ósló 22. janúar sl.
Meira
GUÐMUNDUR G. Gunnarsson, oddviti hreppsnefndar Bessastaðahrepps, varð efstur í prófkjöri Sjálfstæðisfélags Bessastaðahrepps um helgina með 138 atkvæði.
Meira
GUNNAR Sigurðsson varð efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akranesi um helgina vegna komandi sveitastjórnarkosninga. Guðrún Elsa Gunnarsdóttir hafnaði í öðru sæti en hún er ný á lista.
Meira
GÆSLUVARÐHALD var framlengt um sex vikur yfir karlmanni og konu sem voru handtekin vegna gruns um aðild að smygli á hátt í fimm kílóum af amfetamíni til landsins og um 150 grömmum af kókaíni. Einn til viðbótar er í haldi.
Meira
AFTAKAVEÐUR var í austanverðum Skagafirðinum seinnipartinn í gær og varð að kalla út björgunarsveitina á Sauðárkróki til að aðstoða fólk sem átti í erfiðleikum á bíl utanvert í Blönduhlíðinni og komst ekki leiðar sinnar vegna veðursins.
Meira
GIORGIO Baruchello heimspekingur flytur fyrirlestur á vegum Félags áhugamanna um heimspeki undir heitinu Hnattvæðingin og meinvörp kapítalismans þriðjudaginn 26. febrúar kl. 20 á 3. hæð í Nýja-Garði. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.
Meira
PALESTÍNSKUR drengur með AK-47 hríðskotariffil á útifundi sem Fatah-hreyfing Yassers Arafats, leiðtoga Palestínu, efndi til í flóttamannabúðunum Rafah á Gazaströndinni í gær.
Meira
LÍKLEGT er að tímasetningar vegna innritunar í framhaldsskólana næsta sumar fari úr skorðum vegna þess að grunnskólar útskrifa nemendur í sumar síðar en verið hefur eða ekki fyrr en snemma í júnímánuði.
Meira
RÚMLEGA klukkustund leið frá því að varðskipið Týr heyrði stutt, ógreinilegt neyðarkall þar til varðskipsmenn fengu staðfestingu frá Tilkynningaskyldu um að Bjarmi VE hefði horfið úr sjálfvirkri tilkynningaskyldu um 10 sjómílur vestur af Þrídröngum kl.
Meira
Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakklands og forsetaefni sósíalista, heimsótti í gær landbúnaðarsýningu í París. Er ljóst að ráðherrann sinnir ekki einvörðungu þeim sem hafa kosningarétt.
Meira
JÓHANN Geirdal, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, hélt efsta sæti listans í prófkjöri sem haldið var síðastliðinn laugardag.
Meira
VATNSBÚSKAPUR breytist mikið ef hitastig breytist mikið og hér á landi eru jöklarnir viðkvæmastir, að sögn Árna Snorrasonar, forstöðumanns Vatnamælinga Orkustofnunar, en hann flytur erindið Veðurfar, vatn og orka í Norræna húsinu í kvöld.
Meira
ANNAR skipverjanna sem var bjargað eftir að Bjarmi fórst vestur af Þrídröngum var afar hætt kominn og ljóst þykir að ekki mátti skeika mínútum með björgun hans.
Meira
ÞAÐ er búið að vera kalt á landinu og ekkert útlit fyrir að það breytist á næstunni. Spáð er niður undir tíu stiga frosti úti við ströndina síðar í vikunni og frostið inn til landsins getur farið niður undir tuttugu stigin.
Meira
FREYVANGSLEIKHÚSIÐ frumsýndi um helgina leikritið Halló Akureyri, eftir Hjörleif Hjartarson, í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar fyrir fullu húsi. Freyvangsleikshúið á 40 ára afmæli í apríl nk.
Meira
STRÁKARNIR í skáksveit Lundarskóla á Akureyri gerðu góða ferð á Íslandsmótið í skólaskák sem fram fór í TR-húsinu í Reykjavík um helgina. Þeir tryggðu sér Íslandsmeistaratitil í flokki nemenda í 1.-7. bekk, eftir einvígi við sveit Hlíðaskóla í Reykjavík.
Meira
MARKMIÐ sem sett voru með samningi stjórnvalda og Bændasamtakanna um framleiðslu sauðfjárafurða á árunum 1995-2000 náðust að nokkru leyti en sauðfjárræktin stendur enn höllum fæti.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur nú til rannsóknar hjá embætti Ríkislögreglustjóra mál lögreglumanns sem grunaður er um umferðarlagabrot með því að hafa ekið um á einkabifreið sinni sem hann hafði lagt númerin inn af en með þeim ráðstöfunum bifreiðaeigenda...
Meira
MÁLSTOFA verður haldin í tengslum við kennslu í stjórnskipunarrétti í lagadeild Háskóla Íslands og í samstarfi við Orator, félag laganema, miðvikudaginn 27. febrúar kl. 12.15-13.30 í stofu L-101 í Lögbergi.
Meira
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ, Jafnréttisráð, Jafnréttisstofa og Vinnumálastofnun boða til málþings um launamun kynjanna fimmtudaginn 28. febrúar kl. 13-17 í Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni).
Meira
MINNI þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, er fljótari í förum og skemmri tíma tekur að gera hana reiðubúna til flugtak@s en stærri þyrluna. Því var hún valin til að leita að Bjarma VE-66.
Meira
BRESKA vikuritið The Economist birti eftirfarandi leiðara 12. janúar sl. Fjallar hann um stöðu og hlutskipti þeirra, sem segja frá misferli í rekstri fyrirtækja í óþökk stjórnenda þeirra. Fer hann hér á eftir nokkuð styttur.
Meira
BANDARÍSKI tölvuframleiðandinn IBM tilkynnti í gær að tekist hefði að framleiða nýja tegund hálfleiðararásar, sem er mikilvægasti hlutinn í örgjörvum, en þeir stýra vinnslu tölvu, ekki síst hraða vinnslunnar.
Meira
NÁMSKEIÐ um plöntuvernd verður haldið í húsakynnum skólans í Garðyrkjuskólanum Reykjum í Ölfusi, föstudaginn 1. mars kl. 9-16.15. Á námskeiðinu verður m.a.
Meira
NIÐURGREIÐSLUR vegna daggæslu barna í heimahúsum í Kópavogsbæ hækka frá og með næstu mánaðamótum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Félagsþjónustu Kópavogs á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is .
Meira
FÉLAG eldri borgara í Hafnarfirði fékk á laugardaginn afhent nýja félagsaðstöðu. Það var bæjarstjórinn Magnús Gunnarsson sem afhenti félaginu aðstöðuna fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar.
Meira
HEIMAHLYNNING verður með samverustund fyrir aðstandendur í dag, þriðjudaginn, 26. febrúar kl. 20-22 í húsi Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8. Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur á Landspítala við Hringbraut, fjallar um sorg karla.
Meira
SKÓGRÆKTARFÉLÖGIN á höfuðborgarsvæðinu halda opinn fræðslufund í sal Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6, í dag, þriðjudaginn 26. febrúar kl. 20. Fundurinn er í umsjón Skógræktarfélags Íslands.
Meira
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að fyrir neðan allar hellur væri að gera þjóðhetju úr þeim starfsmanni Landssímans sem í síðustu viku lét blaðamanni DV í té upplýsingar um samkomulag stjórnarformanns fyrirtækisins og Samgönguráðherra...
Meira
"VIÐ gátum ekki verið á reki mikið lengur," segir Albert Sveinsson, skipstjóri á Elliða GK, en Grétari Rögnvarssyni skipstjóra og áhöfn hans á Jóni Kjartanssyni SU tókst að koma taug í hitt nóta- og togveiðiskipið, þar sem það rak hratt að...
Meira
ÍTALSKIR rannsóknarfulltrúar eru nú að kanna hvort göt, sem fundust í veggjum neðanjarðarganga skammt frá bandaríska sendiráðinu í Róm, tengist eiturefnaárás sem talið er að hópur Marokkómanna hafi ætlað að gera í borginni, en komið var í veg fyrir.
Meira
RANNSÓKN lögreglunnar í Reykjavík vegna kæru Guðríðar Ingólfsdóttur á hendur fyrrverandi eiginmanni hennar fyrir frelsissviptingu dóttur þeirra í Egyptalandi sl. haust er á lokastigi en fjallað var ítarlega um mál þetta í Morgunblaðinu á sunnudag.
Meira
EFNAHAGSBROTADEILD Ríkislögreglustjóra hefur hætt rannsókn á meintum innherjaviðskiptum bankastjóra og stjórnenda Búnaðarbankans með hlutabréf í Pharmaco, þar sem málið sé ekki líklegt til sakfellis.
Meira
LANDSSÍMI Íslands og Föroya Tele munu ganga til samninga við PricewaterhouseCoopers í Reykjavík, Ósló og Lundúnum um að PwC annist fyrsta hluta athugunar á hagkvæmni lagningar sæstrengsins Farice frá Íslandi til Færeyja og þaðan til Skotlands.
Meira
Starfsmanni Landssímans, sem kom upplýsingum um greiðslur frá Símanum til fyrirtækis Friðriks Pálssonar, Góðráðs ehf., til DV, hefur verið sagt upp störfum. Starfsmaðurinn sakar Friðrik um að hafa komið nærri ákvörðun um uppsögn. Friðrik vísar því algerlega á bug.
Meira
ÞAÐ VAR fátt um fólkið á skíðasvæðinu í Bláfjöllum er ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði á sunnudag, enda hvasst og töluvert frost. Á laugardag höfðu þó um 1.
Meira
*Kindakjötsbirgðir hafa aukist um 63% síðan 1998 og birgðastaðan að verða svipuð og í upphafi samningstímans, eða 1995. *Afkoma sauðfjárbænda nægir ekki til að greiða laun þeirra í samræmi við vinnuframlag.
Meira
STJÓRN og stjórnendur Landssíma Íslands héldu fundi á síðasta ári á Hótel Rangá, en Friðrik Pálsson, stjórnarformaður Landssímans, á 4,16% hlut í hótelinu.
Meira
AÐ minnsta kosti 84 uppreisnarmenn hafa beðið bana í hörðum bardögum í Nepal síðustu daga og uppreisn maóista hefur kostað nær 400 manns lífið á síðustu tíu dögum, að sögn nepalskra embættismanna í gær.
Meira
TVÖ námskeið um vefjagigt eru að hefjast hjá Gigtarfélagi Íslands, í húsnæði félagsins að Ármúla 5, annarri hæð. Um er að ræða þriggja kvölda námskeið sem byrja bæði sama kvöld, miðvikudagskvöldið 6. mars.
Meira
FORSTÖÐUMANNI Þjóðmenningarhúss við Hverfisgötu, Guðmundi Magnússyni, var í gær veitt tímabundin lausn frá embætti. Davíð Oddsson forsætisráðherra upplýsti um þetta við umræður utan dagskrár um málefni Þjóðmenningarhúss og Þjóðskjalasafns á Alþingi í...
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra segir ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins vera gott dæmi um mikilvægi þess að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið verði sambærilegur því sem er í Evrópusambandslögunum sjálfum. Geir H.
Meira
HAMED Karzai (t.v.), forseti Afganistans, og Mohammad Khatami Íransforseti hlýða á þjóðsöngva landanna leikna við komu Karzais til Írans á sunnudaginn.
Meira
BÆJARINS besta, sem gefið er út á Ísafirði, fjallar um hina nýju byggðaáætlun iðnaðarráðherra og telur hana ekki hafa tekist og vera heldur dapurlega.
Meira
EFTA-dómstóllinn komst í liðinni viku að þeirri niðurstöðu að það samrýmdist ekki samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að EES-ríki settu í lög að bækur á tungumáli þess bæru lægri virðisaukaskatt en bækur á erlendum málum.
Meira
Robbie lætur gamlan draum rætast og spreytir sig á lögum gömlu raularanna, Sinatra og félaga. Tók upp í gamla hljóðverinu þeirra og nýtur aðstoðar stjarna á borð við Nicole Kidman og grínistans Jons Lovitz.
Meira
ÍSLANDSMEISTARAKEPPNIN í frjálsum dönsum fór fram á föstudaginn og laugardaginn í íþróttahúsi Fram. Það er félagsmiðstöðin Tónabær sem stendur fyrir keppninni og var þetta í 21. sinn sem keppnin fór fram. Á föstudaginn var keppt í flokki 13-17 ára.
Meira
Myrkir músíkdagar. Flautuleikararnir Guðrún Sigríður Birgisdóttir og Martial Nardeau og Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari frumfluttu verk eftir Eirík Árna Sigtryggsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Finn Torfa Stefánsson og Misti Þorkelsdóttur. Mánudag 18. febrúar kl. 20.00.
Meira
HRINGADRÓTTINSSAGA vann fimm verðlaun á BAFTA-verðlaunahátíðinni, sem fram fór í Lundúnum í gærkvöldi. Meðal annars var hún valin besta myndin og Peter Jackson fékk verðlaun fyrir leikstjórn.
Meira
TÓNLEIKAR í Tónleikaröð kennara Tónlistarskóla Kópavogs verða í Salnum í kvöld kl. 20 undir yfirskriftinni: Kontrabassi í bak og fyrir. Á efnisskrá eru verk eftir Giovanni Bottesini, Karólínu Eiríksdóttur, Johann Sebastian Bach og Franz Schubert.
Meira
Nýjasta mynd kanadíska leikstjórans Léa Pool, Lost and Delirious, er komin á myndband. Davíð Kristinsson tók Pool tali á Berlinale og ræddi m.a. við hana um ástríður unglingsáranna.
Meira
HULDA Guðrún Geirsdóttir sópran syngur við undirleik Douglas Brotchie á Háskólatónleikum í Norræna húsinu í hádeginu á morgun. Lögin eru tékknesk og slóvakísk. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og taka um það bil hálfa klst. Aðgangseyrir er 500 kr.
Meira
VÍDALÍN Hljómsveitin Santiago heldur tónleika í kvöld og hefjast þeir kl. 22. Flutt verður frumsamið efni í bland við annað. Sveitin lýsir tónlist sinni sem melódísku popp/rokki í snyrtilegri...
Meira
Þáttaröð sjö: Keppendurnir/Series 7: The Contenders ***½ Kjaftshögg á "dægurmenningu" samtímans. Fáránleiki raunveruleikasjónvarps undirstrikaður svo rækilega að ekki verður hægt að horfa það sömu augum aftur. Cecil B.
Meira
MINJAR og saga - vinafélag Þjóðminjasafn Íslands hefur fært Þjóðminjasafninu að gjöf mynd eftir Sigurð Guðmundsson málara (1833-1874) en hann var frumkvöðull að stofnun safnsins. Veitti Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður henni viðtöku í gær.
Meira
Það er auðvitað augljóst, segir Egill Jónsson, að þegar nýjar leiðir eru lagðar til sóknar fyrir málefni landsbyggðarinnar þarf að vanda vel til verka.
Meira
,,BÓKFELLIÐ velkist, og stafirnir fyrnast og fúna" kveður okkar djúpvitra skáld, Jón Helgason. Já, það fer víst ekkert á milli mála að allt er breytingum undirorpið.
Meira
Í SAMTALI sínu við Ragnhildi Sverrisdóttur í Morgunblaðinu þann 10. febrúar síðastliðinn, gerir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem fyrr lítið úr vandanum í dagvistarmálum og gefur loforð um að geta boðið öllum tveggja ára börnum leikskólavist á þessu ári.
Meira
Ég hef efast um, segir Ólafur Örn Arnarson, að nauðsynlegt fjármagn fáist nokkurn tíma til að fara út í þær miklu framkvæmdir sem nefndin leggur til.
Meira
GERA verður greinarmun á aðsendum greinum í Morgunblaðið og dálkum, sem menn úti í bæ skrifa þar gegn greiðslu og fyrir beiðni ritstjóra. Í dálki sínum sunnudaginn 24. febrúar 2002 fór Ellert B.
Meira
ELLERT B. Schram beitir gamalkunnu bragði vinstrimanna í Morgunblaðinu á sunnudaginn. Þar grípur hann til þess ráðs, eins og rökþrota menn gera gjarnan, að ráðast að persónu andstæðings síns, í stað þess að ræða málið efnislega.
Meira
VEGNA skrifa um geðheilbrigðismál vil ég leggja nokkur orð í belg. Árið 1954 komu fyrstu geðlyfin á markað. Á þeim tímapunkti gat fólk í hrönnum útskrifast af Kleppsspítalanum og jafnvel sótt vinnu. Þá var hætt að nota spennitreyjur og vatnsmeðferð.
Meira
Þakklæti fyrir góða grein ÉG vil koma á framfæri þakklæti mínu fyrir grein Páls Gíslasonar, læknis og fyrrv. borgarfulltrúa, sem birtist í Morgunblaðinu sl. föstudag: Ábyrgðir og gamalt fólk.
Meira
Bragi Ársælsson fæddist á Höfn í Hornafirði 1. desember 1950. Hann lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi sunnudaginn 17. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans eru Jónína Jónsdóttir Brunnan, f. 16. ágúst 1918, og Ársæll Guðjónsson, f. 15.
MeiraKaupa minningabók
Einhildur Þóra Jóhannesdóttir fæddist í Hamri í Hafnarfirði 20. september 1915 og ólst þar upp. Hún lést á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði 18. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jóhannes Þorsteinsson, f. í Reykjavík 9.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Helgi Haraldsson fæddist á Akureyri 3. nóvember 1926. Hann lést á Landspítalanum 16. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Haraldur Guðmundsson f. á Halllandi á Svalbarðsströnd f. 6. mars 1892, d. 10. júní 1958, og Jóhanna Jónsdóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Ólöf Kristín Sigurðardóttir frá Görðum við Skerjafjörð fæddist þar 20. júlí 1908. Hún andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 19. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Pétursdóttir frá Hrólfsskála á Seltjarnarnesi, f. 18.
MeiraKaupa minningabók
DÓTTURFYRIRTÆKI bandaríska bankans Wachovia Bank, Philadelphia International Equities, hefur selt 4,25% hlut sinn í Landsbankanum og reynir því ekki á sölutryggingu Landsbankans, en eins og fram kom í Morgunblaðinu á laugardag sölutryggði Landsbankinn...
Meira
FUNDUR um framtíðarsýn í þorskeldi á Vestfjörðum er í dag, þriðjudaginn 26. febrúar, í fyrirlestarsal Menntaskólans á Ísafirði, frá kl 10.30 til 16.00. Til fundarins hafði áður verið boðað 13. febrúar en þeim fundi var frestað vegna samgönguerfiðleika.
Meira
REKSTUR Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum skilaði 35 milljóna króna hagnaði miðað við allt árið 2001 en tæpra 60 milljóna króna tap varð af rekstrinum síðustu fjóra mánuði ársins.
Meira
Á föstudag var tilkynnt um innherjaviðskipti í tveimur félögum sem bæði munu birta afkomutölur í vikunni. Tilkynnt var um að Samherji hefði keypt 21,2 milljónir króna að nafnverði í Síldarvinnslunni á genginu 5,3.
Meira
SÝKNUDÓMUR í fyrsta innherjamálinu á Íslandi sem féll á síðasta ári hefði fallið á hinn veginn ef dæmt hefði verið samkvæmt danskri löggjöf. Þetta er mat dr. Jesper Lau.
Meira
TAP Hlutabréfasjóðs Íslands hf. eftir reiknaða skatta árið 2001 nam 73 milljónum króna. Hagnaður félagsins á árinu 2000 nam 61 milljón. Innra virði félagsins í árslok 2001 var 2,02 og lækkaði um 14% frá fyrra ári.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að tollstjórinn í Reykjavík hafi farið út fyrir valdmörk sín þegar hann lagði hald á 483 flöskur af Mirin Sweetened Sake sem voru geymdar á lager verslunarinnar Heilsu ehf., í nóvember 1999.
Meira
70 ÁRA afmæli . Sjötugur er í dag, 26. febrúar, Aðalsteinn Aðalsteinsson, bóndi frá Vaðbrekku, Ullartanga 3, Fellabæ. Eiginkona hans er Sigríður Sigurðardóttir. Aðalsteinn verður að heiman á...
Meira
70 ÁRA afmæli . Í dag, þriðjudaginn 26. febrúar, er sjötugur Kristján Steindórsson, Kirkjubóli í Langadal. Hann dvelur í góðu yfirlæti með fjölskyldu sinni á...
Meira
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10-14 í neðri safnaðarsal. Skemmtiganga um Laugardalinn eða upplestur kl. 10.30. Umsjón Þóranna Þórarinsdóttir. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12 í kirkjuni. Umsjón Guðrún K. Þórsdóttir.
Meira
JAPANSKIR spilarar hafa undanfarin sjö ár haldið alþjóðlega bridshátíð í upphafi febrúarmánaðar. Hápunktur hátíðarinnnar er sveitakeppni um NEC-bikarinn svokallaða, en NEC stórfyrirtækið er kostari mótsins.
Meira
Hafi maður brotið af sér - og mér sýnist að forstöðumaðurinn sé í öllu falli rúinn trausti almennings - er honum það ekkert í sjálfsvald sett hvort hann situr áfram.
Meira
Í dag er þriðjudagur 26. febrúar, 57. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Afbrot vor eru mörg frammi fyrir þér og syndir vorar vitna í gegn oss, því að afbrot vor eru oss kunn og misgjörðir vorar þekkjum vér. Meira
Á hverjum miðvikudegi kl. 12 er Opið hús í Hjallakirkju í Kópavogi. Stundin hefst á léttum hádegisverði en síðan er ýmislegt gert sér til skemmtunar. Næsta miðvikudag, 27.
Meira
Víkverji tekur iðulega strætó og hefur komist að því að á þeirri leið, sem hann þarf að fara til að komast í og úr vinnu, er hann lítið lengur að komast á milli en færi hann á einkabíl.
Meira
Man ég þig, ey, þar er unnir rísa, háar, hryggbreiðar, að hömrum frammi. Þar stóð ég ungur og ekki hugði út fyrir boða að breiðum sandi. Tíndi ég blóm á túni gróanda, möðru mjallhvíta og mjaðarjurt.
Meira
ARNAR Grétarsson tryggði Lokeren annað stigið á móti Standard í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu um helgina. Arnar jafnaði metin á 62. mínútu en bæði Arnar Viðarsson og Rúnar Kristinsson komu við sögu í aðdraganda marksins.
Meira
ARON Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik og leikstjórnandi Íslands- og bikarmeistara Hauka, er með tilboð upp á vasann frá spænska 1. deildarliðinu Valencia.
Meira
ÞÝSKU meistararnir í Magdeburg standa höllum fæti í viðureign sinni á móti slóvenska liðinu Celje Piovarna Lasko í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Liðin mættust í Berlín að viðstöddum 8.000 áhorfendum um helgina og fóru gestirnir með sigur af hólmi, 31:29. Leikið var í Berlín þar sem íþróttahöll Magdeburg var upptekin. Síðari leikurinn verður í Slóveníu um næstu helgi og verður þar á brattann að sækja fyrir lærisveina Alfreðs Gíslasonar.
Meira
ÁRMANNSSTÚLKUR sigruðu örugglega í liðakeppninni á laugardeginum. "Við vorum ekki alveg vissar um sigur því það var aldrei að vita en samt vissum við að ef allt gengi upp myndum við jafnvel vinna.
Meira
BJÖRGVIN Sigurbergsson, kylfingur úr Keili, hefur fengið boð um að leika á tveimur atvinnumannamótum sem fram fara í Afríku í lok mánaðarins og byjun þess næsta. Mótin eru hluti af áskorendamótaröðinni eða Challenge-Tour.
Meira
England Deildabikarinn, úrslitaleikur: Blackburn - Tottenham 2:1 Matt Jansen 25., Andy Cole 69. - Christian Ziege 33. - 72.500. Úrvalsdeildin: Sunderland - Newcastle 0:1 Nikos Dabizas 64. - 48.290. Arsenal - Fulham 4:1 Lauren 5., Patrick Vieira 15.
Meira
Björk Óðinsdóttir er ein efnilegasta fimleikakona landsins. Björk, sem er 13 ára, hefur sérstöðu meðal jafnaldra sinna í fimleikum að því leyti að hún er búsett á Akureyri og hefur þar mikla yfirburði yfir aðrar fimleikastúlkur.
Meira
ESSEN skaust upp í annað sæti í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik á sunnudag. Essen sótti heim Post Schwerin og vann fjögurra marka sigur, 25:21.
Meira
INGA Rós Gunnarsdóttir var að öðrum ólöstuðum skærasta stjarna laugardagsins á bikarmóti Íslands í fimleikum. Hún keppti fyrir Gerplu á fjórum áhöldum og sigraði á slá og tvíslá, lenti í öðru sæti í gólfæfingum og í þriðja sæti í stökki. Sannarlega glæsilegur árangur hjá þessari frábæru fimleikastúlku.
Meira
Lárus Orra Sigurðssyni tókst loks að skora fyrir WBA í ensku 1. deildinni í knattspyrnu en hann lék um helgina 75. leik sinn fyrir félagið. Lárus skoraði annað mark sinna manna sem burstuðu Portsmouth á heimavelli sínum, 5:0.
Meira
Guðmundur lagði Jenkins Guðmundur E. Stephensen lagði Walesbúann Ryan Jenkins í einvígi þeirra, sem var sett á - á milli meistara Reykjavíkur og Cardiff, 4:1 (11:8, 8:11, 11:7, 11:3, 11.7).
Meira
* HEIÐAR Helguson var í byrjunarliði Watford sem tapaði fyrir Birmingham , 3:2, í ensku 1. deildinni. Heiðari var skipt útaf á 57. mín. * ÍVAR Ingimarsson lék allan leikinn fyrir Brentford sem sigraði Notts County , 2:1, í ensku 2. deildinni.
Meira
ERYTHROPOIETIN, EPO, er hormón sem finnst í öllum manneskjum enda framleitt í líkamanum. Darbopetin eða NESP er endurbætt útgáfa af EPO sem gert er á rannsóknarstofum og er talið vera mun áhrifaríkara en EPO.
Meira
ENSKA sjónvarpsstöðin ITV mun á næstunni óska eftir að fá að semja á ný um sjónvarpsréttinn frá leikjum ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, en eigendur ITV telja að núgildandi samningur sé allt of dýru verði keyptur.
Meira
KR tryggði sér sigurinn, 86:88, þegar aðeins sekúnda var eftir af leik Hamars og KR á sunnudaginn. Jón Arnór Stefánsson tók skot úr nánast vonlausri stöðu, en viti menn spjaldið og ofaní og var hann þyngdar sinnar virði í gulli fyrir KR þetta kvöld. Má segja að heimamenn hafi kastað sigrinum frá sér.
Meira
Landsglíman Úrslit úr síðasta mótinu í Primo-Leppin mótaröðinni (Landsglíma), sem fram fór á sunnudag, 24. febrúar. Karlaflokkur 1. Lárus Kjartansson, HSK 3,5 vinn. 2. Ingibergur Sigurðsson, UV 3 vinn. 3. Ólafur Sigurðsson, HSK 2 vinn. 4.
Meira
ÞAÐ var söguleg stund hjá Blackburn þegar liðið fagnaði sigri í ensku deildabikarkeppninni í knattspyrnu með því að bera sigurorð af Tottenham, 2:1, í úrslitaleik sem leikinn var undir þaki þúsaldarvallarins glæsilega í Cardiff í Wales á sunnudag. Þetta var fyrsti sigur Blackburn í bikarkeppni í heil 74 ár en síðasti titillinn sem liðið vann var árið 1995 en þá hampaði Blackburn meistaratitlinum í ensku úrvalsdeildinni.
Meira
LÍF og fjör var í Laugardalshöllinni um helgina þegar fimleikafólk hélt bikarmót og Íslandsmót í þrepum. Rúmlega 170 keppendur frá tíu ára aldri úr átta félögum spreyttu sig á hinum ýmsu áhöldum, studdir af fjölmörgum áhorfendum og margir foreldrar tóku andköf þegar "þeirra" keppandi lék listir sínar. Gerplustrákar með Rúnar Alexandersson í broddi fylkingar urðu bikarmeistarar í frjálsum æfingum en stúlkur úr Ármanni sigruðu í kvennaflokki.
Meira
SPENNAN á toppi ensku úrvalsdeildarinnar heldur áfram en þremur af toppliðunum fjórum tókst öllum að vinna leiki sína um helgina. Manchester United, Arsenal og Newcastle fögnuðu dýrmætum þremur stigum en Liverpool þurfti að horfa á eftir tveimur stigum í uppgjöri Mersey-liðanna. United er efst með 57 stig, Newcastle er með 55 og Arsenal 54 en tvö síðarnefndu liðin eiga leik til góða á meistarana. Liverpool er svo í fjórða sætinu með 53 stig svo jafnari getur toppbaráttan varla verið.
Meira
KNATTSPYRNUSAMBAND Íslands á í miklum erfiðleikum með að ná saman leikmannahópi fyrir Brasilíuferðina en Ísland mætir sem kunnugt er Brasilíu í vináttulandsleik í borginni Cuiaba fimmtudaginn 7. mars.
Meira
STOKE, með nýju mennina Arnar Gunnlaugsson og Deon Burton í fremstu víglínu, varð að láta í minni pokann fyrir toppliði Reading, 1:0, í ensku 2. deildinni í knattspyrnu á laugardaginn. Við ósigurinn féll Íslendingaliðið niður í 5. sæti og framundan verður harður slagur hjá liðinu að komast í aukakeppnina um laust sæti í 1. deildinni í vor. Tvö efstu liðin tryggja sér sæti í 1. deild að ári en liðin í sætunum frá 3-6 fara í aukakeppni um þriðja lausa sætið í 1. deild.
Meira
ÓLYMPÍULEIKARNIR Í SALT LAKE CITY Krulla (Curling) karla, úrslit Noregur - Kanada 6:5 Sviss fékk bronsverðlaun. Norrænar greinar Skíðaganga karla, 7.5 km: Sampa Lajunen, Finnlandi 16.40,1 Ronny Ackermann, Þýskalandi 16.34,1 Felix Gottwald, Austurríki 16.
Meira
"ÉG var ekki alveg viss um að sigra en vonaði það innilega," sagði Gísli Ottósson úr Ármanni, sem var stigahæstur á Íslandsmótinu í þrepum, sem fram fór á sunnudeginum.
Meira
RAGNAR Óskarsson skoraði 9 mörk fyrir Dunkerque sem sigraði Paris SG, 27:25, á útvelli í frönsku 1. deildinni í handknattleik um helgina. Ragnar var mjög atkvæðamikill í sóknarleik sinna manna.
Meira
* RÓBERT Sighvatsson skoraði 5 mörk fyrir Düsseldorf og Gylfi Gylfason 4 þegar liðið gerði jafntefli, 27:27, á móti Gensungen í norðurriðli þýsku 2. deildarinnar í handknattleik um helgina. Düsseldorf er í fjórða sæti.
Meira
RÚNAR Kristinsson, knattspyrnumaður hjá Lokeren, var fluttur á sjúkrahús eftir leik Lokeren og Standard á laugardagskvöldið. Rúnar bað um skiptingu þegar 10 mínútur voru til leiksloka en hann var þá mjög kvalinn í kviðnum.
Meira
RÚNAR Alexandersson og Viktor Kristmannsson voru ásamt Jóni Trausta Sæmundssyni, Erlendi Kristjánssyni og Róbert bróður Viktors í sigurliði Gerplu á laugardaginn. Rúnar hefur æft í Svíþjóð í nokkur ár og Viktor, sem er 17 ára, flutti þangað á síðasta...
Meira
LÁRUS Orri Sigurðsson knattspyrnumaður, sem leikur með WBA, segir að að það líti ekkert allt of vel út í samningaviðræðum hans og félagsins en forráðamenn WBA hafa boðið Lárusi að endurnýja samninginn sem rennur út í sumar.
Meira
SILJA Úlfarsdóttir, frjálsíþróttakona úr FH, setti um helgina Íslandsmet í 200 metra hlaupi innanhúss, en hún keppti í Bandaríkjunum. Silja kom í mark á tímanum 24,32 sek. en gamla metið átti hún sjálf, en það var 24,38 sek.
Meira
FRAKKAR fögnuðu tvöföldum sigri í svigi karla á vetrarólympíuleikunum í Salt Lake City. Kristinn Björnsson hafnaði í 22. sæti og Jóhann Friðrik Haraldsson varð í 29. sæti en þeim Kristni Magnússyni og Björgvini Björgvinssyni tókst ekki að ljúka keppni.
Meira
FYRIR ári í heimsmeistarakeppni í Lahti í Finnlandi voru það finnskir skíðagöngumenn sem féllu í gildruna og voru staðnir að notkun blóðþynningarlyfsins EPO. Nú ári síðar var Alþjóðalyfjaeftirlitið, WADA, betur í stakk búið vegna EPO og að auki átti WADA tromp uppí erminni sem íþróttamenn og -konur vissu ekki af. Norskir fjölmiðlar segja í dag að ekki hafi komið upp stærra lyfjamál á ólympíuleikum síðan kanadíski spretthlauparinn Ben Johnson féll í Seoul árið 1988.
Meira
Þýskaland Wolfsburg - 1860 München 1:3 Marino Biliskov 53. - Roman Tyce 55., Martin Max 60., Markus Weissenberger 90. Rautt spjald : Maik Franz 77. (Wolfsburg). - 14.000 Hansa Rostock - Stuttgart 1:1 Rene Rydlewicz 31. (víti) - Fernando Meira 73.
Meira
Eins og mörg önnur hús sem reist voru fyrir aldamótin nítján hundruð hefur verið byggt við bæinn í nokkrum áföngum. Freyja Jónsdóttir fjallar hér um Bjargarstíg 17, sem er gamall steinbær, að hluta til byggður fyrir 1882.
Meira
Á VEGUM Norrænu ráðherranefndarinnar er komið út nýtt 284 síðna yfirlitsrit um húsnæðis- og byggingarmál á Norðurlöndum er nefnist "Boende och bostadspolitik i Norden". Ritið er einnig gefið út á ensku til alþjóðlegrar dreifingar.
Meira
STEINULLARVERKSMIÐJAN á Sauðárkróki, í samráði við Brunamálastofnun og Samband íslenskra tryggingafélaga, hefur gefið út nýjan bækling um brunavarnir í byggingum sem einkum er ætlaður hönnuðum og húsbyggjendum.
Meira
Íbúðalánasjóður hefur tekið höndum saman við Ríkisskattstjóra til að auðvelda viðskiptavinum sínum að telja fram lán Íbúðalánasjóðs og auka þannig þjónustu við viðskiptavini sína.
Meira
Kristín Geirsdóttir hefur gert þessa mynd, hún er máluð með olíu á striga og heitir Gegnsæ víðátta. Hún fæst í Meistara Jakob og kostar 95 þúsund...
Meira
BYKO hefur tekið í notkun nýjan vélakost í glugga- og hurðaframleiðslu, sem býður upp á meira úrval, styttri afhendingartíma og meiri nákvæmni. Magnús Sigurðsson ræddi við Hrafnkel Marinósson, sölustjóra hjá BYKO.
Meira
S AMTÖK iðnaðarins og fjöldi samstarfsaðila efna til málþings og ráðstefnu- og sýningahalds á Grand hóteli og í Laugardalshöll dagana 27. febrúar til 3. mars nk. undir yfirskriftinni Construct North - hönnun, tækni og mannvirkjagerð á norðurslóðum.
Meira
"Það er nauðsynlegt að Seðlabankinn lækki vexti hið bráðasta. Með því myndu afföll af húsbréfum minnka um leið og það myndi verka mjög jákvætt á fasteignamarkaðinn.
Meira
Reykjavík - Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar er nú með í sölu einbýlishús að Salthömrum 13 í Reykjavík. Þetta er steinhús, byggt 1991 og er það 219,6 ferm., en bílskúrinn er 46 ferm.
Meira
Reykjavík - Hjá fasteignasölunni Borgum er nú í sölu endaraðhús í Snekkjuvogi 17, Reykjavík. Þetta er steinhús, byggt 1949, og er það 257,1 ferm en bílskúrinn er 16,3 ferm.
Meira
Reykjavík - Hjá fasteignasölunni Miðborg er nú í sölu einbýlishús að Stigahlíð 67 í Reykjavík. Þetta er steinhús, byggt 1966 og er það 213,8 ferm. með innbyggðum bílskúr.
Meira
Hafnarfjörður - Hjá fasteignasölunni Hraunhamar er núna í sölu timburhús að Suðurgötu 25 í Hafnarfirði. Þetta hús var reist 1889 og er það 153 ferm. að stærð. Því fylgir steinsteyptur bílskúr sem byggður var árið 1931 og er hann 15,8 ferm.
Meira
SAGT er að lífið sé ein endalaus hringrás, allt sem gerist eigi eftir að koma aftur. Nokkuð kann að vera til í því, aldrei lærir mannskepnan af óförum sínum, styrjaldir eru háðar, þeim lýkur og allir eru sammála um að aldrei framar skuli bræður berjast.
Meira
Greiðslumatið sýnir hámarksfjármögnunarmöguleika með lánum Íbúðalánasjóðs miðað við eigið fé og greiðslugetu umsækjenda. Forritið gerir ráð fyrir að eignir að viðbættum nýjum lánum s.s.
Meira
Breiðholtið er fjölmennasta íbúðarhverfi landsins, íbúafjöldinn hinn 1. desember 2001 var 21.880, sem er álíka mannfjöldi og í öllum Kópavogi, næstfjölmennasta sveitarfélagi landsins.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.