Hann er ólánlega vaxinn, með pönnusteikt bítlahár og klæddur eins og villtasta útstillingargínan í Carnaby-stræti 7. áratugarins. Hann er eins langt frá svalri en banvænni séntilmennsku James Bond og komast má. Samt er Austin Powers kvenhollasti og vinsælasti njósnari kvikmyndanna, að Bond undanskildum. Höfundur hans, Mike Myers, er ekki síður ólíklegt kyntákn og stjarna, skrifar Árni Þórarinsson í tilefni frumsýningar þriðja kafla njósnaskopstælingarinnar, Austin Powers in Goldmember.
Meira