ÍSRAELSKIR skriðdrekar umkringdu í gær aðalstöðvar Yassers Arafats, leiðtoga palestínsku heimastjórnarinnar, í Ramallah á Vesturbakkanum, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Palestínumaður hafði sprengt sjálfan sig í loft upp í yfirfullum strætisvagni...
Meira
Mikill fögnuður braust út í Managua, höfuðborg Nicaragua, í gær þegar meirihluti þjóðþingsins svipti Arnoldo Aleman, fyrrverandi forseta landsins, embætti þingforseta.
Meira
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti fór í gær fram á það við bandaríska þingið, að það veitti honum heimild til að beita "öllum þeim leiðum sem hann teldi við eiga, þ. á m. hervaldi", til að afvopna og steypa af stóli Saddam Hussein Íraksforseta.
Meira
MEIRIHLUTI er fyrir því á danska þjóðþinginu að reisa fyrir danskt fé 100 ný þorp í Afganistan til að unnt verði að senda afganskt flóttafólk í Danmörku aftur til síns heima. Hugsanlegt er, að sami háttur verði hafður á með aðra flóttamannahópa í...
Meira
MIKIÐ verðfall varð á mörkuðum víða um heim í gær vegna vaxandi áhyggna af efnahagslífinu og ótta við stríðsátök í Írak. Á Wall Street fór Dow Jones-vísitalan niður fyrir hina sálfræðilegu 8.
Meira
Suður-kóreskur hermaður með fjarstýrðan bryndreka, sem notaður er við að sprengja og eyða jarðsprengjum. Var byrjað á því í gær á landamærum kóresku ríkjanna til að unnt verði að koma á samgöngum milli þeirra.
Meira
TÍMAMÓT urðu í sögu kvenfélagsins Hringsins í gær þegar Barnaspítalasjóður Hringsins gaf 150 milljónir króna til byggingar barnaspítala við Hringbraut. Barnaspítalasjóðurinn var stofnaður 14.
Meira
ÁGÆT uppskera er hjá garðyrkjumönnum í Hrunamannahreppi en margvíslegar matjurtir eru ræktaðar á um 80 hekturum lands. Sumaraukinn nú í september kemur sér vel fyrir þá sem aðra eftir vætusaman ágústmánuð og rokhvelli 17. júní og í endaðan ágúst.
Meira
STJÓRN Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hefur ákveðið, vegna kæru Íslensks markaðar hf. til Samkeppnisstofnunar, að fresta úrvinnslu umsókna í auglýstu forvali fyrirtækja sem sækja um aðstöðu í flugstöðinni.
Meira
BANDARÍKIN hafa hert reglur um vegabréf sem verður til þess að þeir sem bera íslenskt vegabréf sem gefið var út fyrir 1. júní 1999 munu þurfa vegabréfsáritun til Bandaríkjanna frá og með haustinu 2003.
Meira
FÉLAG íslenskra heimilislækna samþykkti á fundi sínum í gær að skora á ríkisstjórn Íslands að bregðast þegar í stað við erfiðri stöðu sem upp væri komin í heilsugæslunni og afnema misrétti í starfsréttindum sem heimilislæknar hafi mátt búa við.
Meira
AÐALFUNDUR Framsóknarfélags Skagafjarðar, sem haldinn var nýlega, samþykkti eftirfarandi ályktun: "Aðalfundur Framsóknarfélags Skagafjarðar átelur harðlega þau vinnubrögð meirihluta sveitarstjórnar að hafna tækifæri til atvinnuuppbyggingar í...
Meira
SAMFYLKINGIN boðar til opinna umræðufunda á Norðurlandi um Evrópumál um næstu helgi. Verða þeir haldnir sem hér segir: Í Nýja bíói, Siglufirði, laugardaginn 21. september kl. 11, Í sal Verkakvennafélagsins Öldunnar, Sauðárkróki, laugardaginn 21.
Meira
GUÐBRANDUR Einarsson, Samfylkingunni, gagnrýndi á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar harðlega þá ákvörðun meirihluta Sjálfstæðisflokks að breyta innheimtu gjalds á forgangshópa í leikskólum bæjarins, sagði ákvörðunina m.a.
Meira
ÁHERSLUR í skriftarkennslu hafa að mati Margrétar Eiríksdóttur, grunnskólakennara í Vogaskóla, orðið til þess að færri eru vel skrifandi en áður.
Meira
SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmálaráðherra var við vígslu á nýju húsnæði Héraðsdóms Vestfjarða í gær auk þess sem hún heimsótti fyrirtæki og stofnanir í bænum.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt fertugan karlmann, Guðmund Helga Svavarsson, í sex ára til fangelsi fyrir skjalafals, fjársvik og þjófnað á tímabilinu janúar til apríl á þessu ári.
Meira
TVEIR skólastjórar mættu til vinnu í Áslandsskóla í gærmorgun eftir að bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á aukafundi í fyrradag að rifta samningi bæjarins við Íslensku menntasamtökin um rekstur skólans.
Meira
ÓVERULEGUR hagvöxtur eða jafnvel áframhaldandi samdráttur er líklegri niðurstaða varðandi efnahagshorfur á næsta ári en sá 2,4% hagvöxtur sem spáð var í síðustu spá Þjóðhagsstofnunar í júní, að mati Samtaka atvinnulífsins.
Meira
ELLEFU kærur vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar um Norðlingaölduveitu höfðu borist umhverfisráðuneytinu þegar skrifstofutíma lauk í gær. Frestur til að skila inn kærum rann formlega út á miðvikudag.
Meira
UMHVERFIS- og heilbrigðisstofa Reykjavíkur hefur veitt hundaræktinni Dalsmynni áminningu, þar sem fyrirtækið hefur hvorki sótt um starfsleyfi né óskað eftir því við byggingafulltrúa að fá samþykkta breytta notkun húsnæðisins, sem það starfar í.
Meira
BRETAR eru að þróa ómannaðar flugvélar. Frakkar áforma að smíða nýtt flugmóðurskip. Jafnvel Þýzkaland, þar sem efnahagsástandið heldur ríkisútgjöldum í járnum, ætlar að auka útlát til varnarmála um 3,3% á næsta ári.
Meira
ATVINNUÞRÓUNARFÉLAG Eyjafjarðar, AFE, vinnur nú að markaðssetningu fyrirtækja í Eyjafirði vegna fyrirhugaðra stóriðjuframkvæmda á Austurlandi. Í tengslum við það verkefni verður farin kynnisferð austur á land á vegum AFE, í dag, föstudag 20.
Meira
LÁRA Margrét Ragnarsdóttir, formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, var á dögunum skipuð skýrsluhöfundur Evrópuráðsþingsins í málefnum Kalíníngrad-héraðs, og var í vikunni í Kalíníngrad, Varsjá, Vilníus og Brüssel að kynna sér stöðu ágreiningsefna...
Meira
HÓPUR fólks á Akranesi fór á dögunum í gönguferð undir Ás- og Melabakka í Leirár- og Melahreppi en gönguferðin var farin á vegum tómstunda- og forvarnarnefndar Akraneskaupstaðar.
Meira
FUNDUR á vegum Samfylkingarinnar verður haldinn á Hótel Örk í Hveragerði nk. laugardag, 21. september, frá kl. 11 til 13. Að venju verður boðið upp á súpu, brauð og kaffi. Frummælendur eru þrír.
Meira
LAUGARDAGINN 21. september verður gengið í Ölkofradal, djúpa hraundæld skammt frá fornbýlinu Þórhallastöðum austan við Skógarkot. Fjallað verður um gróðurfar og nýtingu plantna og hugað að haustlitum. Auk þess verður saga svæðisins fléttuð inn í gönguna.
Meira
FJÖLSKYLDAN á fjallið er liður í gönguverkefni Ungmennafélags Íslands; Göngum um Ísland. Í byrjun sumars voru settir póstkassar með gestabókum á fjölmörg fjöll um land allt, sem tilnefnd höfðu verið í verkefnið af sambandsaðilum UMFÍ.
Meira
Arnfríður Kristín Arnardóttir fæddist í Hafnarfirði 1976 og er uppalin þar. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Hún hefur starfað síðan hjá Karli K. Karlssyni hf. sem viðskiptastjóri, þar sér hún m.a. um markaðsstjórn á vörum Newman's Own. Arnfríður er í sambúð með Jóhanni Óskari Heimissyni múrara og eiga þau soninn Ásgeir Örn sem er níu mánaða gamall.
Meira
LÖGREGLAN í Vestmannaeyjum lagði hald á 250 grömm af hassi og handtók þrjá menn á þrítugsaldri vegna rannsóknar málsins í fyrrinótt. Lögreglan telur að málið sé að mestu upplýst.
Meira
HAUSTHÁTÍÐ Breiðholtsskóla verður haldin á laugardag. Þetta er í sjötta sinn sem hátíðin er haldin en í ár mun 20 ára afmæli Foreldra- og kennarafélagsins setja svip sinn á samkomuna.
Meira
SKAFTÁRHLAUP náði hámarki í fyrrinótt og náði rennslið þá um 650 rúmmetrum á sekúndum. Gert var ráð fyrir að hámarksrennsli yrði talsvert meira en ekki er vitað hvers vegna sú spá brást.
Meira
UPP úr hádegi í gær herti aftur á jarðskjálftahrinunni fyrir norðan land eftir nokkurt hlé. Skjálfti af stærðinni 3 á Richter-kvarða varð rétt fyrir klukkan 16, annar heldur öflugri varð klukkan 19.
Meira
HLUTABRÉF í deCODE Genetics, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, lækkuðu um 10,63% í gær og var lokagengið það lægsta síðan bréfin voru skráð á Nasdaq- hlutabréfamarkaðinn í Bandaríkjunum árið 2000, á útboðsgenginu 18 dalir.
Meira
FULLTRÚAR íbúa Innri-Njarðvíkur hafa afhent Heilbrigðisnefnd Suðurnesja og bæjarstjóra Reykjanesbæjar mótmæli vegna ólyktar sem stafar af starfsemi hausaþurrkunar Laugafisks ehf. í nágrenni íbúðarbyggðarinnar. Bæjarstjórinn tekur undir mótmæli íbúanna.
Meira
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda þjóðaratkvæðagreiðslu á Írlandi 19. október um Nice-sáttmála Evrópusambandsins en hann er forsenda fyrir því að sambandið geti stækkað í austurátt.
Meira
ÝMIS tækifæri eru fyrir hendi til að auka viðskiptatengsl íslenskra og írskra fyrirtækja. Þá mætti gera Írum betur grein fyrir því hversu Ísland er gott heim að sækja.
Meira
SKARPHÉÐINN Gunnarsson, sem gegnt hefur starfi skólastjóra Áslandsskóla frá því í vor, mætti til vinnu á skrifstofu skólastjóra í skólanum í gærmorgun, þrátt fyrir að bæjarstjórn hafi samþykkt í fyrrakvöld að rifta rekstrarsamningi við Íslensku...
Meira
SLYSAVARNADEILD kvenna á Seltjarnarnesi stóð fyrir slysavarnadegi á Nesinu síðastliðinn laugardag. Tilefni dagsins var að vekja fólk til umhugsunar um slysavarnir í sínu nánasta umhverfi.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Mál og menningu hf. til að greiða Landmælingum Íslands rúmar 2,7 milljónir króna fyrir að brjóta höfundarrétt á Landmælingum með því að gefa í leyfisleysi út landakort sem byggð voru á stafrænum kortagrunni Landmælinga Íslands.
Meira
"LATÍNAN markaði djúp spor í menningu og tungumál hins vestræna heims en sífellt færri gera sér grein fyrir hversu margslungin áhrif hennar eru. Á óvenjulegu tungumálanámskeiði, Formáli að latínu, sem hefst hjá Endurmenntun HÍ 23.
Meira
LAUNAVÍSITALA hækkaði um 0,1% miðað við meðallaun í ágúst og stendur nú í 226,7 stigum. Hækkun launavísitölunnar síðustu tólf mánuði er 6,0% en hækkun vísitölu neysluverðs var 3,2% á sama tímabili.
Meira
STÚLKAN sem lögreglan í Reykjavík lýsti eftir á miðvikudag er enn ekki komin fram. Hún heitir Íris Dögg Héðinsdóttir, 15 ára, en ekkert er vitað um ferðir hennar síðan laust fyrir klukkan 16 sl. sunnudag.
Meira
"GEGN stríði á hendur Írak er yfirskrift málfundar sósíalíska verkalýðsblaðsins Militant, sem haldinn verður föstudaginn 20. september kl. 17:30. Fundurinn er haldinn í Pathfinder-bóksölunni, Skólavörðustíg 6b," segir í...
Meira
AFTUR í skóla er yfirskrift málþings sem haldið verður í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Keflavík laugardaginn 21. september, frá klukkan 14 til 17.
Meira
LAUGARDAGINN 21. september verður haldið málþing um fjölmenningarlegt samfélag og trúarbrögð þess í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju. Málþingið stendur frá kl. 8:30 til kl. 13.
Meira
HÆTT hefur verið við að leyfa fólki úr kínversku hugleiðsluhreyfingunni Falun Gong að taka þátt í menningarhátíðinni Asian Comments sem hefst í vikunni í Kaupmannahöfn, að sögn dagblaðsins Politiken .
Meira
BUSAVÍGSLA fór fram í Menntaskólanum í Reykjavík í gær þar sem nýnemar voru tolleraðir samkvæmt gamalli hefð í skólanum. Í MR er dagurinn jafnan nefndur "tolleringadagur" þegar 6.
Meira
RÉTTINDASTOFA Eddu - miðlunar og útgáfu hefur gengið frá samningi við Random House í Bretlandi um útgáfu á Mýrinni og Grafarþögn eftir Arnald Indriðason. Þetta verður í fyrsta sinn sem íslenskar glæpasögur verða gefnar út í hinum enskumælandi heimi.
Meira
STJÓRN Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, samþykkti á fundi sínum í gær að leggja til á almennum fulltrúaráðsfundi, að eitt prófkjör fari fram til að velja frambjóðendur á báða lista flokksins í Reykjavík í alþingiskosningunum vorið...
Meira
Arnoldo Aleman, fyrrverandi forseti Nicaragua, er sakaður um að hafa látið greipar sópa um opinbert fé, stolið sem svarar um 8,7 milljörðum íslenskra króna.
Meira
Samtök sveitarfélaga í flestum landshlutum hafa að undanförnu ályktað um orkumál þar sem m.a. hefur verið skorað á iðnaðarráðherra að hverfa frá fyrirhugaðri sameiningu RARIK, Norðurorku og Orkubús Vestfjarða. Björn Jóhann Björnsson skoðaði raforkumarkaðinn og einnig frumvarp til nýrra raforkulaga.
Meira
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setti í gær morgun Rannsóknarþing norðursins (Northern Research Forum) í Novgorod í Rússlandi. Þingið sækja um 200 fulltrúar, einkum frá Norðurlöndum, Rússlandi, Kanada og Bandaríkjunum.
Meira
IÐNAÐARRÁÐHERRA, Valgerður Sverrisdóttir, mun að nýju leggja fram á komandi Alþingi frumvarp til nýrra raforkulaga. Frumvarpið er einkum til komið vegna tilskipunar Evrópusambandsins um innri markað raforku í Evrópu, sem EES-ríkin gengust einnig undir.
Meira
JEMEN mun beita eigin herafla til þess að leita uppi meinta al-Qaeda-liða í landinu án hjálpar frá Bandaríkjamönnum eða öðrum, sagði jemenskur embættismaður í gær.
Meira
RÉTTAÐ verður í Þórkötlustaðarétt í Grindavík næstkomandi sunnudag. Féð kemur til réttar um klukkan 15. Gangnamenn leita Hraunsland, Hálsa og Þórkötlustaðaland á laugardag og reka safnið til Þórkötlustaðaréttar um klukkan 15 á sunnudag.
Meira
SERGEI Ívanov, varnarmálaráðherra Rússlands, segir Rússa vera reiðubúna að efna til fyrirbyggjandi árása gegn skæruliðum frá Kákasushéraðinu Tsjetsjníu er taldir eru hafa hreiðrað um sig í Pankisi-skarði í grannlandinu Georgíu.
Meira
SAMDRÁTTUR í efnahagslífinu fer ört minnkandi og helstu tekjuliðir ríkissjóðs eins og virðisaukaskattur, tekjuskattur einstaklinga og tryggingagjald hafa aukist að raungildi síðustu mánuði, að því er fram kemur í nýju vefriti fjármálaráðuneytisins.
Meira
LAUGARDAGINN 21. september verður farið í skógargöngu í Breiðholti í Reykjavík. Þetta er þriðja haustgangan í fræðslusamstarfi skógræktarfélaganna og Búnaðarbanka Íslands.
Meira
LAUGARDAGINN 21. september kl. 10 verður farið í skógargöngu í Hveragerði. Gengið verður frá bílastæði Grunnskólans. Við Breiðumörk og Hverahlíð verða skoðuð götutré og kíkt á hávaxin langlíf tré í einkagörðum. Gangan er ókeypis og öllum...
Meira
JARÐBORINN Sleipnir hefur verið fluttur frá Þeistareykjum austur á Eskifjörð þar sem þess verður freistað að finna vatn til að ylja íbúum í Fjarðabyggð.
Meira
STEFÁN Hörður Grímsson skáld lést að kvöldi 18. september, 83 ára að aldri. Hann var eitt þekktasta skáld sinnar kynslóðar og verk hans oftast kennd við módernisma. Stefán Hörður Grímsson fæddist 31.
Meira
STEFÁN Kristjánsson vann Tomas Oral í sjöttu og síðustu skák Hreyfilseinvígisins, sem tefld var í gær. Stefán vann Oral í 30 leikjum í mikilli sóknarskák. Var Oral með gjörtapað tafl þegar hann féll á tíma.
Meira
ERUM við öll á sama báti? er ein þeirra spurninga sem velt verður upp á málþingi um fjölmenningarsamfélagið og trúarbrögð þess og haldið verður á morgun í Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju.
Meira
MOISE Lida Kouassi, varnarmálaráðherra Fílabeinsstrandarinnar, sagði síðdegis í gær að herinn hefði "stjórn á ástandinu", í kjölfar blóðugrar uppreisnartilraunar innan hersins, sem opinberlega var kölluð tilraun til valdaráns. Fullyrt er að...
Meira
NÚ í september eru liðin 200 ár frá því að formlegu stjórnarráði var komið á fót í Rússlandi og stofnuð 8 ráðuneyti helstu málaflokka, þ.m.t. utanríkisráðuneyti. Af þessu tilefni verður sýning opnuð í félagsheimili MÍR, Vatnsstíg 10, laugardaginn 21.
Meira
UM 50.000 manns tóku þátt í afmælisleik á 15 ára afmælishátíð Kringlunnar nýverið. Aðalvinningur freistaði ekki síst margra, enda var þar um að ræða ferð fyrir tvo til Flórída að andvirði 220.000 kr.
Meira
ELLEFU ára nemendur og kennari þeirra gerðu stórmerkilega uppgötvun í Vífilsstaðavatni í vikunni þegar þeir fundu þar hornsíli sem eru alveg án kviðgadda.
Meira
STARFSEMI endurhæfingardeildar FSA á Kristnesi er nú komin í fullan gang að nýju eftir lokun síðla sumars. Um eitt hundrað manns eru á biðlista með meðferð á deildinni um þessar mundir.
Meira
EDWIN R. Rögnvaldsson golfvallahönnuður og Björn Jóhannsson landslagsarkitekt hafa unnið skipulagstillögu að 18 holna golfvelli og frístundabyggð á Minni-Borg í Grímsnesi.
Meira
BANDARÍSKAR njósnastofnanir voru varaðar við yfirvofandi hryðjuverkaárás samtaka Osama Bin Ladens allt að þremur árum fyrir 11. september í fyrra.
Meira
SÆMILEG veiði er í Soginu, en það er Bíldsfellssvæðið sem heldur veiðinni uppi að sögn Ólafs K. Ólafssonar formanns árnefndar SVFR fyrir Sogið. Hann sagði í gær að um eða yfir 90 laxar væru komnir úr Bíldsfelli, en önnur svæði væru nokkuð undir...
Meira
UNDANFARNA daga hefur verið unnið að því að setja þorskseiði úr seiðaeldisstöð Útgerðarfélags Akureyringa á Hauganesi út í sjókvíar við Þórsnes, en í það heila verða sett um þrjú þúsund seiði í kvíarnar í ár.
Meira
ÞÝSKIR dagar standa nú yfir í Reykjavík og lýkur þeim á sunnudag. Um 20 fyrirtæki taka þátt í þeim og minnast með því, að um þessar mundir eru liðin 50 ár frá því að Þýskaland og Ísland tóku upp stjórnmálasamband.
Meira
Fyrir sextíu árum ákváðu konur í félaginu Hringnum að hefja söfnun fyrir byggingu barnaspítala. Þrjár Hringskonur reiddu af hendi fyrstu framlögin í barnaspítalasjóðinn í júní 1942.
Meira
Sá hnútur, sem málefni Áslandsskóla í Hafnarfirði eru komin í, hlýtur að hafa afar slæm áhrif á skólastarfið og koma niður á bæði nemendum og foreldrum þeirra. Því miður hillir ekki undir að deilum um skólann sé lokið.
Meira
GÍSLI S. Einarsson alþingismaður hefur hafið að skrifa pistla á heimasíðu sína, sem bera yfirskriftina: "Með mínu nefi." Þar bendir hann á hluti, sem honum finnast aðfinnsluverðir.
Meira
ARI Í ÖGRI Liz Gammon leikur á píanó og syngur fyrir gesti. CAFÉ 22 Opnun ofanjarðar um helgina, Þriðja hæðin opnuð eftir miklar endurbætur föstudagskvöld. DJ Andrea Jónsdóttir . CAFÉ AMSTERDAM Hljómsveitin Vítamín. Ásamt þeim leikur hljómsveitin Panman.
Meira
QUARASHI kom, sá og sigraði landslýðinn á dúndurtónleikum sem hún hélt í Laugardalshöll um síðustu helgi. Yfir 3 þúsund æst ungmenni á öllum aldri urðu vitni að hnausþéttu tónleikabandi sem veit orðið upp á hár hvernir rífa á liðið með sér í stuðið.
Meira
"HARDER, faster, Scooter!!!" Svo kveða Þjóðverjarnir í tæknótríóinu Scooter í einu laga sinna, sem er m.a. að finna á tvöfalda smáskífusafninu Push the Beat for this Jam [The Second Chapter] .
Meira
Félagsstarf Gerðubergs Brynja Þórðardóttir opnar myndlistarsýningu kl. 16. Gerðubergskórinn undir stjórn Kára Friðrikssonar syngur við opnunina og Vinabandið leikur og syngur.
Meira
Hafið Með Hafinu er komið fram verk sem ber þess vitni að íslenskt listafólk hafi náð fullkomnum tökum á hinu alþjóðlega tungumáli kvikmyndalistarinnar og nýtt það til að fjalla um sinn eigin veruleika, sögu og þjóðarsál. (H.J.)**** Háskólabíó, Sambíóin.
Meira
FARANDSÝNING Handverks og hönnunar verður opnuð í Ljósheimum við Sauðárkrók í dag, föstudag, kl. 20. Sýningin byggist á fimm sýningum sem Handverk og hönnun héldu í sýningarsal sínum í Aðalstræti 12 á síðasta ári.
Meira
Á SKÁNI í Svíþjóð verður blásið til íslenskrar menningarhátíðar í dag og mun hún standa í u.þ.b. vikutíma. Hátíðin ber titilinn Aurora-ljuset í Norden - Íslandsvika á Skáni og er fyrst á dagskrá að opna hönnunarsýningu í Hönnunarsafninu í Málmey.
Meira
Háskólabíó, Sambíóin og Laugarásbíó frumsýna The Bourne Identity með Matt Damon, Franka Potente, Chris Cooper, Clive Owen, Brian Cox og Adewale Akinnuoye-Agbaje.
Meira
MEÐ Vífið í lúkunum er nú á fjölum Borgarleikhússins þriðja leikárið í röð. Það hafa orðið mannaskipti í nokkrum hlutverkum þar nú í byrjun nýs leikárs.
Meira
"FÍGARÓ er merkilegur fyrir margra hluta sakir. Hann er völundur bæjarins, eins og leikstjórinn okkar kallar það. Rakarar þessa tíma eiga sér merkilega sögu og vinna þeirra var merkileg.
Meira
Spænski rithöfundurinn Manuel Rivas er kominn hingað til lands til að vera við málþing um spænska kvikmyndagerð. Heiða Jóhannsdóttir ræddi við Rivas um bókmenntir og kvikmyndir en kvikmyndin Tunga fiðrildanna er byggð á smásögum eftir hann.
Meira
Leikstjórn: Llorenç Soler. Handrit: Pep Albanell og Llorenç Soler. Aðalhlutverk: Cristina Bondo og Miguel Martin Angelo. 93 mín. Spánn. Filmax 2000.
Meira
ENDUR fyrir löngu sáu nokkrir tónelskir meðlimir í Bifhjólasamtökum lýðveldisins sér þann kost vænstan að setja á stofn hljómsveit til að fá spilagleðinni farveg, sem síðan var rekin undir hatti samtakanna.
Meira
Sveitina Rúnk skipa Hildur Guðnadóttir, Benedikt Hermann Hermannsson, Björn Kristjánsson, Svavar Pétur Eysteinsson og Óli Björn Ólafsson. Hljóðritun var í höndum Rúnk og Gunnars Arnar Tynes en hljóðblöndun fór fram í Stúdíó Pólýrúnk undir stjórn sveitarinnar. Mastering: Jón Skuggi.
Meira
LISTMUNAUPPBOÐ Gallerís Foldar verður í Súlnasal Hótels Sögu á sunnudaginn kl. 19. Boðið verður upp 161 verk af ýmsum toga, þar á meðal fjöldi verka gömlu meistaranna.
Meira
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Sumarsýningunni Hin hreinu form lýkur á sunnudag. Á sýningunni eru 19 höggmyndir eftir Sigurjón Ólafsson frá 45 ára tímabili.
Meira
SVERRIR Páll Erlendsson opnar sýningu á 15 ljósmyndum í Gránu, bræðsluminjasafni Síldarminjasafnsins á Siglufirði, á morgun, laugardag, klukkan 14. Sýningin heitir Hádegisbil á bryggjunum og myndirnar voru teknar um hádegisbil dag einn í júlí í...
Meira
STREETS er listamannsnafn hins 22 ára gamla Birmingham-sonar Mike Skinner. Skinner þessi er snillingur. Hann er öllum breskum röppurum færari og ekki nóg með það heldur semur hann og flytur alla tónlist sína og tekur upp í herberginu heima hjá sér.
Meira
Á HEIMASÍÐU MTV-sjónvarpsstöðvarinnar í Bandaríkjunum (www.mtv.com) er boðið upp á nokkuð sem kallast "Viewer's Pick Video" þar sem áhorfendur geta valið myndband til sýninga í gegnum síðuna.
Meira
Jacques Loussier er heimskunnur fyrir túlkun sína á tónlist Bachs sem er sveipuð aðferðum djassins. Guðjón Guðmundsson ræddi við Loussier í tilefni af tónleikum hans í Háskólabíói í kvöld.
Meira
VEGNA ummæla, sem höfð voru eftir mér í blaðinu í gær, um úrskurði héraðsdómara um húsleit, vil ég taka eftirfarandi fram til þess að fyrirbyggja misskilning: Ég hef aldrei haldið því fram að dómarar hafi ekki kynnt sér þau gögn af sjálfsdáðum, sem fyrir...
Meira
SAMGÖNGUMÁL eru ofarlega í huga flestra Vestmannaeyinga þessa dagana. Við sem búum hér erum háðari samgöngum en flestir aðrir landsmenn enda getum við ekki sest upp í bíl og ekið af stað til annarra áfangastaða en þeirra sem eru innanbæjar.
Meira
Gulfættar hvítar kindur kannastu nokkuð við þær gróður í geira bindur ganga þær tvær og tvær. Fótsporin hvítra kinda klöppuðu í fjöllin slóð gangskör og grænum linda gekk hún með vorri þjóð. Þetta er brot úr fallegu ljóði um blessaða sauðkindina.
Meira
Þakklæti fyrir frábæra þjónustu ÉG fer stundum út að borða í hádegishlaðborð í Skrúð á Hótel Sögu. Þvílík dýrð og þvílík dásemd. Maturinn er fyrsta flokks, starfsfólkið er fyrsta flokks, allt 100%. Ég þakka innilega fyrir mig. Stella.
Meira
Ásmundur Jón Pálsson fæddist í Reykjavík 18. febrúar 1969. Hann lést á Hellu á Rangárvöllum sunnudaginn 8. september síðastliðinn. Foreldrar hans eru Páll G. Björnsson frá Garði í Fnjóskadal og Anna Bjarnarson úr Reykjavík. Þau skildu.
MeiraKaupa minningabók
Haraldur Kristjánsson fæddist í Vestmannaeyjum 22. febrúar 1924. Hann lést í Reykjavík 12. september síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Kristján Jónsson, f. 13.3. 1882, d. 1957, og Elín Oddsdóttir, f. 21.1. 1889, d. 1965.
MeiraKaupa minningabók
Ingólfur Arnarson fæddist í Vestmannaeyjum 31. ágúst 1921. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 12. september síðastliðinn. Móðir hans var Sólrún Eyjólfsdóttir frá Núpi undir Eyjafjöllum, f. 26. maí 1892, d. 10. maí 1973. Ingólfur kvæntist 31.
MeiraKaupa minningabók
Ólafía Gróa Eyþóra Jónsdóttir var fædd í Votmúla-Austurkoti í Sandvíkurhreppi í byrjun síðustu aldar, 7. júní 1904. Hún lést á hjúkrunarheimilinu við Sóltún sunndaginn 15. september síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Þórarinn Stefánsson, fyrrverandi smíða- og teiknikennari á Laugarvatni, fæddist á Víðilæk í Skriðdal í S-Múlasýslu 17. maí 1904 en ólst upp á Mýrum í sömu sveit. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eir 11. september síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
ÁÆTLUN um samruna Hlutabréfasjóðsins Auðlindar hf. og Kaupþings banka hf. hefur verið samþykkt af stjórnum beggja félaga. Hlutabréfasjóðurinn Auðlind hf. var skráður á markað árið 1992 en Kaupþing banki er rekstraraðili sjóðsins.
Meira
SAMKEPPNISSTAÐA Íslands er góð í mörgum atvinnugreinum og umhverfi fyrirtækja hérlendis er með því besta sem gerist, samkvæmt niðurstöðu alþjóðlegrar samanburðarrannsóknar KPMG á stofn- og rekstrarkostnaði fyrirtækja.
Meira
SJÓVÁ-Almennar tryggingar hf., keyptu þann 18. september sl. 100 milljónir að nafnverði hlutafjár í Íslandsbanka hf. á verðinu kr. 5,175. Söluverðmætið var því 517,5 milljónir króna. Eignarhlutur Sjóvár-Almennra trygginga eftir kaupin er kr. 479.386.
Meira
AXEL Gíslason, forstjóri Vátryggingafélags Íslands, segir í samtali við Morgunblaðið að ákvörðun hans um að óska eftir að láta af störfum tengist ekki beint nýorðnum breytingum á eignarhaldi VÍS.
Meira
60 ÁRA afmæli . Í dag, föstudaginn 20. september, er sextugur Sigurður Eggertsson, Smáratúni, Fljótshlíð. Í tilefni þessa taka hann og eiginkona hans, Guðný Geirsdóttir , á móti ættingjum og vinum á heimili sínu í...
Meira
Bridsfélag Akureyrar Sumarvertíð Bridsfélags Akureyrar er nú lokið og vetrarstarfið hófst þriðjudaginn 17. september. Að þessu sinni var spilaður eins kvölds einmenningur.
Meira
Bridsfélag Suðurnesja Fyrsta verðlaunamót félagsins er komið vel á veg. Tveimur umferðum af þremur er lokið. Úrslit: 1. umferð: Kristján Kristjánss.- Garðar Garðarss. 138 Gunnar Guðbjörnss.- Þorgeir Halldórss. 123 Kjartan Ólason- Óli Þór Kjartanss. 116...
Meira
GULLBRÚÐKAUP . Í dag, föstudaginn 20. september, eiga 50 ára brúðkaupsafmæli heiðurshjónin Geirþrúður K. Kristjánsdóttir og Ólafur Bjarnason. Þau verða í óvissuferð með fjölskyldu sinni í dag.
Meira
Gullsmárabrids Eldri borgarar spiluðu tvímenning á tíu borðum í Gullsmára 13 mánudaginn 16. október sl. Miðlungur var 220. Efst vóru: NS Dóra Friðleifsdóttir - Guðjón Ottósson 293 Halldór Jónss. - Kristinn Guðmundss. 243 Haukur Guðm. - Guðmundur Helgas.
Meira
Það eru 50 ár síðan, 29. júní 1952, að menningarfrömuðir hér í Vogahverfi stóðu með bréf í höndun frá yfirvöldum, svarbréf við bænakalli 13.000 manna byggðar íbúa Voga og Heima um stofnun nýs prestakalls. Hjól tóku að snúast og snérust hratt.
Meira
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10 í umsjá Aðalbjargar Helgadóttur. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir börn. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkomur alla laugardaga kl. 11-12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og biblíufræðsla.
Meira
Í dag er föstudagur 20. september, 263. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Kostið kapps um að komast inn um þröngu dyrnar, því margir, segi ég yður, munu reyna að komast inn og ekki geta.
Meira
"Hætt er við að ef forsætisráðherra hefði látið eitthvað í líkingu við þetta frá sér fara hefðu gagnrýnendur hans loksins talið sig hafa fengið eitthvað bitastætt."
Meira
NÆSTKOMANDI sunnudag býður Háteigskirkja eldri borgara sérstaklega velkomna í messu klukkan tvö. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og organisti Douglas Brotchie.
Meira
FLUGLEIÐIR gáfu í fyrradag út fréttatilkynningu, þar sem það var harmað að íslenzkar flugfreyjur í dökkbláum búningum voru sýndar í óviðurkvæmilegu ljósi í nýjum þætti af Sopranos, sem samkvæmt fréttum mun hafa slegið öll áhorfsmet í Bandaríkjunum um...
Meira
DENNIS Bergkamp, sóknarmaður Arsenal, er hræddur við að fljúga og því ákvað Arsene Wenger að nota hann ekki í útileikjum í Meistaradeild Evrópu. En Wenger gæti snúist hugur.
Meira
* HAFDÍS Hinriksdóttir skoraði 3 mörk fyrir GOG sem sigraði Kolding , 28:27, á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í fyrrakvöld. GOG hefur unnið tvo fyrstu leiki sína á mótinu.
Meira
JÓHANN Þórhallsson, aðalmarkaskorari Þórsara, verður ekki með norðanliðinu þegar það sækir KR-inga heim í lokaumferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu á morgun. Jóhann hélt til Danmerkur í fyrradag þar sem hann verður til reynslu hjá Bröndby.
Meira
LYFJADÓMSTÓLL Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur dæmt Lárus Huldarsson, knattspyrnumann í Þrótti, Reykjavík, í hálfs árs keppnis- og æfingabann vegna lyfjamisnotkunar.
Meira
ÞAÐ styttist nú óðfluga í að íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu leiki tvo þýðingarmikla leiki í undankeppni Evrópukeppni landsliða á Laugardalsvellinum - gegn Skotlandi laugardaginn 12. október og Litháen fjórum dögum síðar.
Meira
PÁLMI Rafn Pálmason, 18 ára unglingalandsliðsmaður úr Völsungi á Húsavík, er á förum til æfinga hjá ensku meisturunum Arsenal. Hann mun æfa þar með unglingaliði félagsins.
Meira
SPÁNVERJAR eru kátir þessa dagana yfir frábærri frammistöðu knattspyrnuliða landsins í Evrópukeppninni í vikunni. Öll fjögur spænsku liðin sigruðu og hefur það ekki gerst síðan keppninni var breytt í núverandi horf árið 1999. Spænska dagblaðið Marca segir í fyrirsögn: "Móðgandi yfirburðir spánskrar knattspyrnu í Evrópu" og heldur síðan áfram og segir að ekki sé hægt að finna lýsingarorð sem lýsi frammistöðu liða landsins í Meistaradeild Evrópu.
Meira
MIKIÐ var um að vera í UEFA-bikarkeppninni í gær er 42 leikir fóru fram víðsvegar um Evrópu. Íslendingarnir Tryggvi Guðmundsson og Marel Baldvinsson voru í byrjunarliði norska liðsins Stabæk sem lék á útivelli gegn hinu þekkta belgíska liði Anderlecht. Norðmennirnir komu mjög á óvart með því að skora eina mark leiksins strax á tíundu mínútu. Christian Michelsen skoraði markið með skalla.
Meira
SÁ möguleiki er uppi á borðinu að Fylkir og KR mætist í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í úrvalsdeild karla í knattspyrnu sem færi þá fram á Laugardalsvellinum.
Meira
KAREN Walker framherji enska kvennalandsliðsins í knattspyrnu og fyrirliði liðsins, sem skoraði bæði mörk Englendinga í 2:2 jafnteflinu á móti Íslendingum á Laugardalsvellinum á mánudaginn, tekur út leikbann þegar þjóðirnar eigast við öðru sinni á St.
Meira
ALDREI hafa verið fleiri áhorfendur á landsleik kvenna í knattspyrnu á Íslandi en í vikunni. 2.974 mættu á leik Íslands og Englands á Laugardalsvellinum, en fyrra metið var 2.240 áhorfendur á leik Íslands og Spánar í fyrra.
Meira
LÍKAMSRÆKT er ekki lengur það tískufyrirbrigði sem það var fyrir nokkrum árum. Nú er líkamsrækt orðin snar þáttur í daglegu lífi mörg þúsund Íslendinga sem nýta sér þessa iðju meðal annars til að fyrirbyggja ótímabundna hrörnun eða ístrusöfnun.
Meira
EKKI hafa margar bækur verið gefnar út á Íslandi sem fjalla um víngerð. 1960 kom þó út bókin Létt vín - ljúfar veigar útgefin af Útgáfunni Hildi og prentuð í Prentverki Akraness.
Meira
Margir eiga sér það áhugamál að brugga sitt eigið léttvín heima hjá sér. Þeir eru líklega færri sem gera vín úr berjum. Guðjón Guðmundsson hitti þó einn slíkan að máli, Tryggva Jónasson kírópraktor.
Meira
Á títtnefndri tölvuöld virðist rithönd skipta minna máli en áður var, enda sjaldan þörf á að gera slíkar fingraæfingar. Kristín Heiða Kristinsdóttir skoðaði fyrirbærið út frá ýmsum sjónarhornum.
Meira
Ekki er langt síðan blýantur og penni voru nánast einu verkfærin sem nemendur notuðust við í skólum þessa lands en stærri ritgerðir voru að vísu unnar á tæki sem nefnd voru ritvélar. Skapti Hallgrímsson ræddi við Sverri Pál Erlendsson, kennara við Menntaskólann á Akureyri, sem unnið hefur að þróunarverkefni þar sem farsímar eru notaðir við kennslu.
Meira
MARGRÉT Eiríksdóttir grunnskólakennari hefur áratuga reynslu í kennslu og hún segir að skriftartímum hafi ekki fækkað á stundatöflu en þó sé áherslumunur eftir skólum í skriftarkennslu.
Meira
SKRIFT er kerfi tákna til að skrá tungumál. Elstu skriftarkerfi sem þekkt eru voru myndletur þar sem hvert tákn var stílfærð mynd og svaraði til orðs eða hugtaks, t.d. fornegypska letrið híeróglýfur.
Meira
BANDARÍSKA tímaritið People hefur gefið út lista yfir best og verst klædda fræga fólkið. Efstar á listanum yfir best klæddu konurnar voru kvikmyndaleikkonurnar Julia Roberts og Halle Berry. Á lista yfir verst klæddu konurnar lentu t.d.
Meira
KRISTJÁN Jóhannsson óperusöngvari hélt fjölsóttan einsöngskonsert í Peking í Kína um liðna helgi og sló í gegn. Íslenski tenórinn söng úrval þekktra óperuaría við undirleik Kínversku þjóðarsinfóníuhljómsveitarinnar.
Meira
SKÓLASÓKN 17 og 18 ára ungmenna á Íslandi er minni hér en meðal jafnaldra þeirra á öðrum Norðurlöndum, samkvæmt samanburði OECD. Við 19 ára aldur snýst þetta við og hlutfallslega eru fleiri íslensk ungmenni við nám en á hinum Norðurlöndunum.
Meira
Veislur og fatnaður eru mikið atriði í brúðkaupum. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við Sigrúnu Kristjánsdóttur þjóðfræðing um brúðkaupsveislur og fleira þar að lútandi fyrr og nú.
Meira
NÚ er fáanlegt úrval tækja sem auðvelda einstaklingum að brugga vín. Einnig eru til efni sem gera heimavíngerð auðvelda. Öll tækin og búnaðurinn gera berjatínslumanninum auðveldara að gera heimagert vín úr uppskeru haustsins; þ.e.
Meira
Bláberjavín 500 g bláber 1.450 g sykur 1 tsk. pectolasi ½ tsk. næringarsalt 2 tsk. sítrónusýra ½ tsk. tannín vatn til að fylla upp kolbuna Fyrst er hellt tæpum lítra af sjóðandi vatni yfir bláberin.
Meira
KVÖLDFÖRÐUN Draumkennt og dularfullt augnaráð segir Kristín Stefánsdóttir, snyrti- og förðunarmeistari og eigandi Förðunarskólans No Name, vera áhrif svokallaðrar "smoky-förðunar", sem sé ráðandi í kvöldförðun vetrarins.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.