YASSER Arafat, forseti heimastjórnar Palestínumanna, hafnaði í gær skilyrðum Ísraela fyrir því að hætta umsátri um höfuðstöðvar Arafats í Ramallah. Höfðu Ísraelar farið fram á að Arafat gæfi upp nöfn þeirra, sem hafast við í höfuðstöðvunum með honum.
Meira
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að stöðva þyrfti Saddam Hussein, forseta Íraks, enda léki enginn vafi á því að hann væri nú í óðaönn að koma sér upp gereyðingarvopnum.
Meira
GERHARD Schröder, kanslari Þýskalands og leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins (SPD), kvaðst í gær fagna því mjög að fá tækifæri til að stýra landinu áfram en ríkisstjórn SPD og græningja hélt naumlega velli í þingkosningum sem haldnar voru á sunnudag.
Meira
SPÁNSKUR lögreglumaður stendur vörð yfir hópi ólöglegra innflytjenda frá Norður-Afríku en þeir voru stöðvaðir í hafnarborginni Tarifa á Suður-Spáni snemma í gær.
Meira
MIKIÐ verðfall varð á mörkuðum víða um heim í gær vegna vaxandi áhyggna af efnahagslífinu og ótta við stríðsátök í Írak. Á Wall Street lækkaði Dow Jones-hlutabréfavísitalan um 113,94 punkta eða 1,43%, og er nú 7872 punktar.
Meira
ÞRJÁTÍU og einn nemandi útskrifaðist á laugardag frá Háskólanum í Reykjavík með alþjóðlega MBA-gráðu frá viðskiptadeild skólans og var þetta í fyrsta skipti sem skólinn útskrifar MBA-nema.
Meira
ALLS voru 4.500 einstaklingar og fjölskyldur með rúmlega 21 milljarð króna í fjármagnstekjur að meðtöldum söluhagnaði af hlutabréfum, skv. skattframtölum ársins 2002.
Meira
AÐALFUNDUR Minningarsjóðs Jóns Júlíusar Þorsteinssonar kennara sem stofnaður var 28. september 1982 verður haldinn í dag, þriðjudaginn 24. september, í Furulundi 6-r á Akureyri og hefst hann kl. 15.30. Stofnfélagar eru boðnir velkomnir á...
Meira
SJÓMINJASAFNIÐ, sem var formlega opnað í nýbyggingu við Safnahúsið í vor, hefur fengið góðar viðtökur hjá þeim gestum sem þangað hafa komið í sumar að sögn Guðna Halldórssonar forstöðumanns Safnahúss Þingeyinga.
Meira
BJÖRGUNARMENN í Kákasus-lýðveldinu Norður-Ossetíu í Rússlandi fundu í gær einn mann á lífi en mikil aurskriða féll úr skriðjökli í afskekktu fjallahéraði þar á laugardag.
Meira
STEFNT er að því að fækka alvarlegum slysum og dauðaslysum í umferðinni í borginni um 50 prósent á 15 ára tímabili frá árinu 1992 til ársins 2007 samkvæmt drögum að umferðaröryggisáætlun Reykjavíkur 2002-2007.
Meira
GLERÁRKIRKJA býður upp á þá nýbreytni í starfi í vetur að efna til námskeiðsins "12 sporin - andlegt ferðalag". Kynning á 12 spora starfinu verður í kirkjunni í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 19.30.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Deloitte & Touche hf. "Í Morgunblaðinu 21. september sl. er birt bréf sem lögmaður Baugs Group hf.
Meira
Þótt margvíslegar kenningar hafi verið reifaðar og ræddar á málþingi foreldrafélaga grunnskólanna á Suðurnesjum telur Svanhildur Eiríksdóttir, sem sat þingið, að niðurstaða þess hafi verið sú að ábyrgðin á uppeldi barnanna sé alltaf hjá foreldrunum.
Meira
ÓSKAÐ verður eftir því að borgarlögmaður fari yfir þá stöðu sem komin er upp varðandi byggingu fjölbýlishúss í Suðurhlíð 38, en húsið er ofar í lóðinni og nokkuð hærra en íbúum hverfisins var kynnt.
Meira
STJÓRN herforingjanna í Burma, öðru nafni Myanmar, leysti í gær úr haldi 18 pólitíska fanga, þar á meðal tíu manns í Þjóðarfylkingunni fyrir lýðræði (NLD) sem er flokkur Aung San Suu Kyi, helsta leiðtoga stjórnarandstæðinga.
Meira
STJÓRNVÖLD í Norður-Kóreu hafa ákveðið að gera borgina Sinuiju, sem er rétt við kínversku landamærin í norðvesturhluta landsins, að sérstöku efnahags- og stjórnunarsvæði.
Meira
Fyrr á árinu ákvað stjórn Búrs ehf. að félagið tæki að sér innkaup og dreifingu á ávöxtum og grænmeti. Húsnæði á Bæjarflöt 2 í Grafarvogi var keypt og er verið að innrétta það með tilheyrandi tækjabúnaði með það fyrir augum að starfsemin fari í gang í byrjun október.
Meira
GÖMUL fjögurra hreyfla flugvél með þreföldu stéli, Lockheed Super Constellation, kom við á Keflavíkurflugvelli í gær á leið sinni frá Ameríku til Evrópu.
Meira
DANSHÖFUNDURINN Merce Cunningham, sem staddur er hér á landi og samnefndur dansflokkur flytur tvö verk eftir í Borgarleikhúsinu í kvöld, vonast til að íslenska hljómsveitin Sigur Rós muni semja tónlist við eitt verka sinna á næstunni.
Meira
Gríðarleg spenna ríkti í kosningunum í Þýskalandi á sunnudag og nú bíða stjórnar Gerhards Schröders kanslara erfiðir tímar með nauman meirihluta. Karl Blöndal skrifar frá Berlín um úrslit kosninganna og erfiðleikana, sem eru framundan fyrir sósíaldemókrata og græningja.
Meira
ENGAR áreiðanlegar vísbendingar eru um, að farsímanotkun hafi skaðleg áhrif á fólk. Hafa Geislavarnir sænska ríkisins komist að þeirri niðurstöðu eftir að hafa látið kanna og fara yfir margar rannsóknir á hugsanlegum áhrifum hennar.
Meira
NÚ nýlega opnaði hestavöruverslunin Equus - K. Jensen nýja og glæsilega verslun í Viðjulundi 1 á Akureyri. Í versluninni bjóðast mun fleiri möguleikar en í því húsnæði sem hún áður var í.
Meira
FINNUR Ingólfsson seðlabankastjóri verður næsti forstjóri VÍS samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, en tilkynnt verður um ráðninguna í dag. Boðað hefur verið til starfsmannafundar hjá VÍS í dag kl.
Meira
AÐ undanförnu hafa verið settar upp fjórar sjálfvirkar veðurstöðvar á og við Húsavík. Ein þeirra er á vegum Húsavíkurkaupstaðar og er við Búðará sem rennur í gegnum bæinn miðjan og er ætluð til frambúðar.
Meira
FJÖLMENNI stóð að smölun hrossa á Laxárdal í A-Húnavatnssýslu á laugardaginn í hreint út sagt frábæru veðri. Fegurð og friðsæld fjalla og dals virkjaði þá vitund að tíminn getur staðið kyrr og aldeilis ástæðulaust að flýta sér.
Meira
ÖKUMAÐUR slapp lítið meiddur þegar bíll hans fór út af veginum við Hólma í Reyðarfirði, skammt frá Illukeldu, upp úr hádegi í gær. Bíllinn fór niður bratta vegaröxl og staðnæmdist loks í mýri um 100 metrum frá veginum.
Meira
Aðeins hefur verið að rofa til á Iðu að undanförnu, þannig veiddust 14 laxar þar á einum degi um miðja síðustu viku. Síðan hefur verið þokkalega líflegt. Laxinn er þó að mestu smár, 5 til 6 punda, en 10 til 12 punda fiskar á stangli.
Meira
Í frásögn hér á síðunni síðastliðinn laugardag af köfun eftir stóru ankeri og fleiri munum úr ameríska kaupfarinu Jamestown sem fórst við Hafnir fyrir 120 árum misritaðist ein heimildin. Tilvitnuð grein Leós M.
Meira
HLAUPIÐ í Skaftá rýrnar nú dag frá degi og rennsli ánnar verður brátt með eðlilegum hætti. Þetta virðist vera minnsta hlaup sem komið hefur úr svonefndum eystri katli frá því mælingar hófust.
Meira
SVEINN Ingi Þórarinsson skipamiðlari segir að hægt sé að fá heppilega Vestmannaeyjaferju fyrir um milljarð króna og um sé að ræða skip sem hann kynnti á fjölmennum borgarafundi í Vestmannaeyjum fyrir helgi.
Meira
KAÞÓLSKIR stjórnmálamenn á Norður-Írlandi hafa fordæmt ályktun sem samþykkt var á miðstjórnarfundi stærsta flokks sambandssinna (UUP) um helgina en hún felur í sér að fulltrúar UUP hætti þátttöku í samstjórn kaþólskra og mótmælenda ef Írski...
Meira
BJÖRN Bjarnason, alþingismaður og fulltrúi sjálfstæðismanna í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, segir að Evrópusambandstilskipun sú sem frumvarp til nýrra raforkulaga, byggist m.a. á, sé sniðin að allt öðrum kringumstæðum en hér á landi.
Meira
GERHARD Schröder, sem var endurkjörinn kanslari Þýskalands á sunnudaginn, leiddi þjóðina í gegnum fjögurra ára stórfelldar breytingar; þingið var flutt aftur til Berlínar og Schröder varð fyrsti kanslarinn síðan í seinni heimsstyrjöld sem sendi þýska...
Meira
STANGVEIÐIFÉLAGIÐ Lax-á ehf., veiðifélag í eigu Árna Baldurssonar, hefur tekið Laxá á Ásum á leigu til þriggja ára. Meirihluti landeigenda í Veiðifélagi Laxár á Ásum samþykkti samkomulagið við Lax-á ehf. á fundi sl. sunnudag.
Meira
STJÓRN fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík leggur til við fulltrúaráð flokksins að við val á framboðslista fyrir kosningar til Alþingis næsta vor verði haldið sameiginlegt prófkjör í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur, Reykjavík norður og suður.
Meira
FJÓRIR hófsamir stjórnmálaflokkar í Slóvakíu ákváðu í gær að mynda nýja ríkisstjórn og hunsa um leið þjóðernissinnann Vladimir Meciar en flokkur hans hlaut mest fylgi, 19,5%, í þingkosningunum á föstudag og laugardag.
Meira
BETUR fór en á horfðist þegar loft lak úr uppblásinni rennibraut í Vetrargarðinum í verslunarmiðstöðinni Smáralind síðdegis á sunnudag. Um 10 börn voru í rennibrautinni þegar atburðurinn átti sér stað.
Meira
MIKILL áhugi er á nýrri íslenskri keppni sem kölluð er Hörkutól, en hún er í anda sjónvarpsþáttarins Fear Factor sem hefur verið sýndur á Stöð 2. Í gærkvöldi höfðu um 150 manns skráð sig í keppnina, en sex þátttakendur verða valdir úr hópnum.
Meira
HRÚTURINN þrjóski, sem sneri á leitarmenn á Gnúpverjaafrétti á dögunum og synti yfir Þjórsá, er nú allur en leitarmenn á Holtamannaafrétti náðu hrútnum á laugardag þegar þeir leituðu Búðarháls. Sagt var frá hrútnum í Morgunblaðinu í síðustu viku.
Meira
GUÐMUNDUR Páll Ólafsson náttúrufræðingur heldur námskeið hjá Símenntun Háskólans á Akureyri í lok októbermánaðar. Guðmundur helgar sig vísindastörfum í vetur og því hefur hann að eigin sögn neitað öllum öðrum um fyrirlestrahald.
Meira
Neyðarnótin Hjálp Kristján Magnússon, Kjarrvegi 13 í Reykjavík, hringdi vegna myndatexta með greininni Æfingar auka öryggi , sem birtist á bls. 20 í Morgunblaðinu sl. sunnudag.
Meira
UNNIÐ hefur verið að endurbótum á veginum upp að Skíðastöðum í Hlíðarfjalli nú í sumar. Vegurinn hefur verið lagaður að öllu leyti, breikkaður og lagður bundnu slitlagi.
Meira
FRAMKVÆMDASTJÓRN Samfylkingarinnar hefur samþykkt orðalag spurningar, sem lögð verður fyrir félaga í Samfylkingunni í póstkosningu um Evrópumál í lok október næstkomandi.
Meira
INNFLUTNINGUR á landbúnaðarafurðum dróst verulega saman á milli áranna 2000 og 2001. Þannig nam innflutningur á nautakjöti, kjúklingum, svínakjöti, ostum og jógúrt 666 tonnum í hitteðfyrra en aðeins 366 tonnum í fyrra.
Meira
KONA í Hafnarfirði vaknaði við það aðfaranótt sunnudags að ókunnugur maður, sem hafði brotist inn í húsið með því að spenna upp glugga, sat á rúmstokknum á hjónarúminu og strauk hendi eftir fótlegg hennar.
Meira
LANDSVIRKJUN á í viðræðum við eigendur jarðarinnar Laugavalla á Norður-Héraði, sem eiga land vestan megin Jökulsár á Brú ofan Kárahnjúka þar sem smíða þarf brú vegna framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun.
Meira
Dr. Dlamini Zuma, utanríkisráðherra SuðurAfríku, segir vestrænar þjóðir oft hafa tilhneigingu til að reyna að þröngva eigin lausnum upp á fátækar þjóðir, án tillits til aðstæðna. Kristján Jónsson ræddi við ráðherrann.
Meira
FORMLEG opnun fyrsta áfanga Lækjarskóla í Hafnarfirði var síðastliðinn föstudag. Óhætt er að segja að skólinn byggi á gömlum grunni því í ár er 125. starfsár hans.
Meira
NÆSTKOMANDI fimmtudag, 26. september, verður rabbfundur á vegum Rannsóknastofu í kvennafræðum. Herdís Friðriksdóttir skógræktarráðunautur flytur erindið "Staða kvenna innan skógræktarnefnda í Nepal". Rabbið fer fram í stofu 101 í Lögbergi kl.
Meira
ÞAÐ voru græningjar sem björguðu samsteypustjórn Gerhards Schröders í kosningunum á sunnudaginn, og þeir gerðu það með því að leggja alla áherslu á sinn stærsta kost - Joschka Fischer, vinsælasta stjórnmálamann í Þýskalandi.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók í fyrrinótt karlmann sem er grunaður um að hafa reynt að brjótast inn í skrifstofur Fangelsismálastofnunar við Borgartún. Hann hafði sig á brott þegar þjófavarnarkerfi fór í gang.
Meira
Neil Fazakerley er 28 ára Breti og starfar hjá Vísindasafninu, Science Museum, í London. Hann er frá Liverpool, en nam lífefnafræði við háskólann í Oxford.
Meira
ÍSLENSKU menntasamtökin, ÍMS, og Hafnarfjarðarbær hafa náð samkomulagi um rekstur Áslandsskóla. Bærinn mun taka við rekstri grunnskólans en samtökin reka áfram leikskólann í Áslandi.
Meira
JAFNAÐARMENN, undir forystu Gerhards Schröders kanslara, héldu velli í kosningunum í Þýskalandi á sunnudaginn, hinum tvísýnustu síðan á árum seinni heimsstyrjaldar, en kanslarinn stendur nú frammi fyrir harðari stjórnarandstöðu heima fyrir og á fyrir...
Meira
HVORUGUR mannanna um borð í Katrínu GK, sem ákaft var leitað á laugardaginn, hefur getað sýnt fram að þeir séu með skipstjórnarréttindi og þeir kunnu ekki á talstöðina í bátnum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum.
Meira
NÝLEGA var Týr SK 33 fluttur frá Sauðárkróki til Siglufjarðar með MS Mánafossi, en báturinn var gjöf Sauðárkróksbæjar til síldarminjasafnsins á Siglufirði. Eimskipafélagið gaf flutning bátsins.
Meira
LÖGREGLAN í Hafnarfirði handtók um helgina 17 ára pilt vegna innbrots í úra- og skartgripaverslun við Strandgötu í Hafnarfirði. Honum hafði verið veitt eftirför inn í Kópavog þar sem bifreið hans var stöðvuð.
Meira
ERLEND kona var flutt á slysadeild eftir slys um borð í skipinu Atlas í Reykjavíkurhöfn í fyrrinótt. Ekki var hún þó talin vera alvarlega slösuð. Í fyrstu var talið að ráðist hefði verið á hana um borð í skipinu og var karlmaður handtekinn vegna málsins.
Meira
FJÖLMENNI var að vanda í Þórkötlustaðaréttum sem fram fóru í fyrradag, og fleira fólk en fé. Gangnamenn smöluðu beitilöndin á laugardag en smalamennskunni seinkaði vegna þoku.
Meira
BORUN rannsóknarholu á háhitasvæðinu á Þeistareykjum er lokið. Þess er nú beðið að mögulegt verði að setja þar upp búnað svo hægt verði að opna fyrir holuna og fá þannig upplýsingar um endanlegt hitastig hennar og orkumagn.
Meira
STEFNT er að því að fjölga þverfaglegum námsleiðum innan Háskóla Íslands á næstu árum, fjölga nemendum í meistara- og doktorsnámi og námskeiðum og námsleiðum á ensku.
Meira
STJÓRN Dvalarheimila Suðurnesjum (DS) hefur samþykkt fyrir sitt leyti að Gerðahreppur fái að byggja tíu íbúðir fyrir aldraða á eignarlóð hjúkrunarheimilisins Garðvangs í Garði.
Meira
AÐ undanförnu hafa staðið yfir miklar lagfæringar á umhverfi kirkjunnar á Ingjaldshóli undir Jökli. Búið er að skipta um jarðveg á breiðu svæði umhverfis kirkjuna og á því svæði hefur verið gerð akstursrein og stæði fyrir bíla.
Meira
EINSTAKT náttúrufyrirbrigði blasti við Gísla Rafni Jónssyni við Drekagil á dögunum. Í óveðrinu sem geisaði á landinu fyrir um þremur vikum hafði allt að 40 cm þykkt vikurlag límst áveðurs á steina í landslaginu, á um 10 km breiðu svæði.
Meira
VATNAJÖKULL þynntist að meðaltali um 37 cm á því jökulári sem nú er að ljúka, eða frá síðasta hausti, sem er besta afkoma jökulsins frá árinu 1996. Jökullinn hefur verið að þynnast samfellt frá árinu 1995, á því tímabili hefur jökullinn alls rýrnað um...
Meira
BÆJARINS besta, sem gefið er út á Ísafirði, fjallar um afsögn Steingríms Ara Arasonar, fulltrúa fjármálaráðherra, úr einkavæðingarnefnd og hefur talsvert við hana að athuga.
Meira
Í frásögn af ársskýrslu umboðsmanns barna í sunnudagsblaði Morgunblaðsins kemur fram að enn sé algengt að ganga þurfi eftir svörum frá ráðuneytum og stofnunum við erindum embættisins.
Meira
Sjaldan hafa úrslit kosninga í Þýskalandi einkennst af jafnmikilli spennu og óvissu og nú. Dagana fyrir kosningar var ljóst að lítill sem enginn munur var á fylgi stóru flokkanna tveggja, Jafnaðarmannaflokksins (SPD) og Kristilegra demókrata (CDU/CSU).
Meira
Höfundar: George Stiles og Anthony Drewe. Íslensk þýðing: Gísli Rúnar Jónsson. Leikstjóri: María Sigurðardóttir. Leikarar: Edda Heiðrún Backman, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Felix Bergsson, Guðmundur Ólafsson, Jóhann G.
Meira
LEIKFÉLAGIÐ Á senunni og Vesturport æfa nú leikritið Kvetch eftir Steven Berkoff. Leikritið er gamanleikur með alvarlegum undirtóni og fjallar um fimm einmana manneskjur í firrtum heimi og stöðugan kvíðann sem nagar þau.
Meira
Í EDEN, Hveragerði, stendur nú yfir sýning á vatnslitamyndum eftir listakonuna Áslaugu Hallgríms. Verkin eru öll unnin á þessu ári. Áslaug stundaði nám í MHÍ 1962-'63 og aftur 1980-'83 og í Myndlistarskóla Reykjavíkur árið 2000.
Meira
Merce Cunningham-dansflokkurinn sýnir tvö verk í kvöld á stóra sviði Borgarleikhússins. Stofnandi og danshöfundur flokksins, Merce Cunningham, er með í för en hann er einn áhrifamesti núlifandi danshöfundur heims. Ragna Sara Jónsdóttir ræddi við hinn 83 ára Cunningham um ferilinn og fortíðina, tölvur og dans, og Sigur Rós og Bláa lónið.
Meira
Nemendum þessa lands er ýmislegt til lista lagt, eins og fram kom á dögunum þegar þeir sömdu blústexta sem fluttir voru af þekktum blústónlistarmönnum sem heimsóttu FÁ á dögunum.
Meira
FYRIR stuttu kom sjónvarpsmyndin The Gathering Storm út á myndbandi, en hún fjallar um Winston Churchill, einn litríkasta og vinsælasta stjórnmálamann Bretlands frá upphafi, sem líkast til er frægastur fyrir að hafa leitt þjóð sína áfram af dug og þori í...
Meira
SAMBÍÓIN og Háskólabíó stóðu fyrir skemmtilegri nýbreytni nú um helgina. Hægt var að sjá valdar fjölskyldumyndir eins og Fríða og Dýrið , Scooby Doo og Jimmy Neutron á litlar 200 kr.
Meira
Myndasaga vikunnar er Epileptic 1 eftir David B. L'Association gefur út 2002. Bókin fæst í myndasöguversluninni Nexus og einnig er hægt að nálgast hana á stærri bókasöfnum.
Meira
Yfirlýsing fimm manna dómnefndar sem fór yfir tillögur í samkeppni vegna listskreytingar fyrir Landsbókasafn Íslands hefur vakið athygli á síðustu dögum. Hafnaði nefndin einróma öllum 58 innsendum tillögum um staðbundið listaverk við byggingu Þjóðarbókhlöðunnar. Jón B.K. Ransu fjallar um málið.
Meira
Simon Steen-Andersen: Praesens. Lars Petter Hagen: Voices to Voices - Lip to Lip. Mattias Svensson: Things you see are yet to come. Knut Olaf Sunde: Verewigter Duft ist Paradox. Steingrímur Rohloff: Saxófónkonsert. Mattias Johansson túba, Rolf-Erik Nystrøm altsaxófónn og CAPUT-kammersveitin. Stjórnandi: Bernharður Wilkinson. Þriðjudaginn 3. september kl. 20:30.
Meira
MAÐURINN sem var eitt sinn kallaður "Guð", Eric Clapton, mun gefa út nýja plötu í nóvember. One More Car, One More Rider er tvöfaldur hljómleikadiskur, auk þess sem gefinn verður út samnefndur DVD-mynddiskur.
Meira
SÖNGLEIKURINN HONK! Ljóti andarunginn eftir George Stiles og Anthony Drewe í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar var frumsýndur í Borgarleikhúsinu á laugardaginn. Var þetta fyrsta frumsýning vetrarins.
Meira
EFTIR átta mögur verðlaunaár vann gamanþátturinn Friends loksins til helstu verðlauna á Emmy-hátíðinni þar sem frambærilegasta sjónvarpsefni hverju sinni er verðlaunað.
Meira
ÞRIÐJU tónleikar hinna árlegu Septembertónleika Selfosskirkju verða í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.30. Þá mun Jón Ólafur Sigurðsson organisti í Hjallakirkju leika verk eftir m.a. Buxtehude, Brahms, Jón Þórarinsson og Jón Ásgeirsson.
Meira
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 4. október mun Átthagafélag Vestmannaeyinga heiðra minningu tónskáldsins Oddgeirs Kristjánssonar með fjölþættri dagskrá undir heitinu Hún rís úr sumarsænum .
Meira
GUÐRÚN Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran hreppti á sunnudag þriðju verðlaun í opinni keppni fyrir unga söngvara á aldrinum 20-32 ára sem haldin er árlega í Lundúnum á vegum The Madeline Finden Memorial Trust.
Meira
HANN gerði sér skrítið erindi í Morgunblaðið síðastliðinn sunnudag sá mæti maður Einar Kárason rithöfundur. Þar sýndist mér hann halda því fram, að sú meginregla í mannheimi, að siðferðilega sé rangt að skrökva, eigi ekki við stjórnmálamenn.
Meira
UNDARLEGT er hvað ráðherrar virðast hafa litla þekkingu á því hvað það kostar að lifa í þjóðfélaginu. Fyrir stuttu birti félagsmálaráðherra lista yfir það hvað kosti að leigja íbúð.
Meira
Hið opinbera hefur með skattlagningu reynt eins og hægt er, segir Árni Tómas Ragnarsson, að stýra veiku fólki frá sérfræðingum til heilsugæslulækna.
Meira
VIÐ sjáum og heyrum oft orðið "fjölbreytni" um þessar mundir. Íslenskt þjóðfélag getur ekki forðast að mæta fjölbreyttum menningarstraumum hér á landi. Fjölbreytni skaðar ekki einstakleika.
Meira
Niðurstaða mín er að Falun Gong-hreyfingin sé heilnæm í besta lagi, segir Stan M. Goldin, og finn ég engin rök fyrir því að hún gæti talist trúarregla.
Meira
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu kr. 3.101 til styrktar Kristínu Ingu Brynjarsdóttur, sem slasaðist í bílslysi. Þær heita Telma Björk og Ásdís...
Meira
Annie Wintherhalter Schweitz Helgason fæddist í Kaupmannahöfn 13. janúar 1929. Hún andaðist á Landspítalanum 1. september síðastliðinn og fór útför hennar fram í kyrrþey að ósk hennar.
MeiraKaupa minningabók
Eufemia (Effa) Georgsdóttir fæddist í Reykjavík 8. júlí 1916. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 17. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Augusta Weiss Ólafsson, d. 1970, og Georg Ólafsson bankastjóri, d. 1941.
MeiraKaupa minningabók
Steingrímur Þórisson fæddist í Álftagerði í Mývatnssveit 15. júlí 1923. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð hinn 16. september síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þuríður Friðbjarnardóttir, f. á Grímsstöðum í Skútustaðahreppi 18.9. 1900, d. 11. 2.
MeiraKaupa minningabók
Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor fæddist á Sigríðarstöðum í Hálshreppi í Suður-Þingeyjarsýslu 19. apríl árið 1930. Hann lést á Landspítalanum - Borgarspítala 7. september síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hallgrímskirkju 23. september.
MeiraKaupa minningabók
Þórhildur Sigurbjörg Steingrímsdóttir fæddist á Végeirsstöðum í Fnjóskadal 31. mars 1908. Hún andaðist á Hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri hinn 12. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Steingrímur Þorsteinsson, f. 30.12. 1881, d. 27.11.
MeiraKaupa minningabók
SÉRFRÆÐINGAR á fjármálamarkaði telja erfitt að spá fyrir um hvort erlend fyrirtæki eða fjársterkir aðilar hafi áhuga á að gera yfirtökutilboð í hlutabréf deCODE, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, en gengi hlutabréfa félagsins hefur fallið mikið að...
Meira
UPPTAKA evrunnar stappar nærri því að vera fár á mörkuðum fyrir sjávarafurðir og hefur mjög sett mark sitt á starf dótturfélaga Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á meginlandi Evrópu.
Meira
TERRY Green, fyrrverandi forstjóri verslananna Bhs og Debenhams, er sagður hafa mikinn áhuga á að semja við kaupsýslumanninn Philip Green um kaup á hluta af vörumerkjum Arcadia samstæðunnar, en Philip Green festi nýlega kaup á Arcadia fyrir 850 milljónir...
Meira
JÓN Ásgeir Jóhannesson hefur sagt af sér sem bankaráðsmaður í Íslandsbanka hf. Áður höfðu Gunnar Jónsson og Þorsteinn Már Baldvinsson sagt sig úr bankaráðinu og sömuleiðis hefur Einar Örn Jónsson varamaður í ráðinu sagt sig úr því.
Meira
KAUPÞING banki hf. keypti 19. september sl. hlutabréf í Baugi Group hf. að nafnverði 14.370.000 kr. Eignarhlutur Kaupþings banka hf. í Baugi Group hf. er nú 10,6% eða 253.875.000 kr. að nafnvirði en var áður 9,9% eða að nafnvirði 239.375.000 kr.
Meira
EITT mikilvægasta verkefnið sem framundan er í sjávarútvegi Chile er að koma kvótakerfi á í fiskveiðum fyrir fullt og fast. Þetta segir Felipe Sandoval, sjávarútvegsráðherra Chile, en hann var staddur hér á landi fyrir skömmu í boði Árna M.
Meira
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN hf., TM, hefur stofnað Líftryggingamiðstöðina hf., líftryggingafélag sem er að 99,92% í eigu TM. TM átti 15% hlut í Sameinaða líftryggingafélaginu hf.
Meira
Í lok ársins munu farþegar strætisvagna Strætós bs. geta fengið nákvæmustu upplýsingar sem völ er á um ferðir vagnanna og hvaða leið heppilegast sé að fara til þess að ná á áfangastað á sem skemmstum tíma, að því er segir í fréttatilkynningu.
Meira
VIÐ endurskipulagningu á rekstri fyrirtækja er allt of oft litið framhjá því hvað virk stýring viðskiptakrafna getur skilað miklum árangri, að sögn Hans Lindqvist, sem situr í stjórn Intrum á Íslandi fyrir hönd Intrum Justitia AB í Svíþjóð.
Meira
ÞVÍ er spáð að mjólk úr klónuðum kúm og kjöt grísa og kálfa klónaðra foreldra verði að finna í hillum bandarískra matvöruverslana innan tíðar, samkvæmt netútgáfu Washington Post .
Meira
SÓLGLERAUGU eru til í miklu úrvali og afar mikilvægt að velja gleraugu sem fara vel. "Hins vegar eru aðrir þættir sem skipta jafnvel meira máli við val á sólgleraugum.
Meira
HOLLUSTUVERND ríkisins hefur borist viðvörun um Datu Puti sojasósu frá Filippseyjum í 750 ml flöskum. Í sósunni hefur greinst mikið af efninu 3-MCPD, sem talið er krabbameinsvaldandi.
Meira
90 ÁRA afmæli. Í dag, þriðjudaginn 24. september, er níræður Sigurfinnur Ólafsson húsgagnasmíðameistari . Af því tilefni tekur hann tekur á móti ættingjum og vinum á heimili sínu á Skjólbraut 1a í Kópavogi milli kl. 15 og...
Meira
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10-14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Byrjað á kaffisopa og kl. 10.30 er boðið upp á skemmtigöngu um Laugardalinn eða upplestur úr góðum bókum fyrir þá sem ekki treysta sér í gönguna.
Meira
Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Vetrarstarfið hófst með eins kvölds tvímenningi 16. sept. sl. Meðalskor 165 stig. Röð efstu para: Guðlaugur Sv. - Hermann Friðrikss. 211 Jón Stefánss. - Magnús Sverriss. 191 Stefanía Sigurbj.
Meira
Bridsfélag Kópavogs Fimmtudaginn 19. september var spilað annað kvöldið af þremur í 11-11-tvímenningnum þar sem verslanir 11-11 gefa vegleg verðlaun í formi vöruúttektar. Besta skori kvöldsins náðu N/S. Meðalskor 216: Vilhjálmur Sig. - Steingrímur...
Meira
Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði Glæsibæ mánud. 16. sept. 2002. 22 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S : Sæmundur Björnss. - Olíver Kristófss. 272 Björn E. Péturss.
Meira
BRIDSFÉLÖGIN eru nú óðum að taka til starfa eftir sumarhlé og hófst spilamennska hjá Bridsfélagi Reykjavíkur í síðustu viku með þriggja kvölda tvímenningi.
Meira
Framhaldsaðalfundi BR frestað Framhaldsaðalfundi Bridgefélags Reykjavíkur, sem áformað var að halda þriðjudaginn 24. september, hefur verið frestað um viku, til þriðjudagsins 1. október.
Meira
Gullsmárabrids Eldri borgarar spiluðu tvímenning á tíu borðum fimmtudaginn 19. september sl. Meðalskor 168. Beztum árangri náðu í N/S: NS Karl Gunnarss. - Kristinn Guðmundss. 210 Páll Guðmundsson - Filip Höskuldsson 195 Sigurður Björnss. - Auðunn Bergsv.
Meira
Hér sit ég einn, með sjálfstraustið mitt veika, á svörtum kletti, er aldan leikur við. Á milli skýja tifar tunglið bleika, og trillubátar róa fram á mið. Af synd og fleiru sál mín virðist brunnin.
Meira
Í dag er þriðjudagur 24. september, 267. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Enn sagði hann við þá: "Gætið að, hvað þér heyrið. Með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða og við yður bætt.
Meira
ÞAÐ leynir sér ekki að það er kosningavetur framundan. Aukin harka virðist vera að færast í hina pólitísku umræðu og flokkarnir undirbúa nú uppstillingar á lista og prófkjör.
Meira
Arnar Þór Viðarsson skoraði eitt af mörkum Lokeren sem vann mjög öruggan sigur á Westerlo, 4:0, í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu á laugardagskvöldið. Hann var jafnframt valinn í lið vikunnar af dagblaðinu Het Nieuwsblad.
Meira
ÞORMÓÐUR Egilsson, fyrirliði KR, hóf Íslandsbikarinn á loft í þriðja sinn á fjórum árum, en þessi eitilharði varnarmaður ákvað skömmu fyrir Íslandsmót að leika með liðinu í sumar og sér eflaust ekki eftir því.
Meira
ÞAÐ voru niðurlútir leikmenn Fylkis sem stóðu á knattspyrnuvellinum á Akranesi, þegar dómarinn Garðar Örn Hinriksson blés í flautu sína - þeir horfðu á leikmenn Skagamanna fagna sigri, en stuttu áður höfðu þeir heyrt í þyrlu og séð hana taka á loft og...
Meira
England - Ísland 1:0 St. Andrews í Birmingham, Englandi. Undankeppni HM kvenna, síðari undanúrslitaleikur um sæti í lokakeppninni, sunnudaginn 22. september 2002. Mark Englands: Amanda Barr 88.
Meira
England Úrvalsdeild: Arsenal - Bolton 2:1 Thierry Henry 26., Nwankwo Kanu 90. - Gareth Farrelly 47. Rautt spjald : Ivan Campo (Bolton) 80. - 37.974. Liverpool - WBA 2:0 Milan Baros 56, John Arne Riise 90. Rautt spjald : Russell Hoult (WBA) 35. - 43.830.
Meira
LEIKUR FH og ÍBV í lokaumferð efstu deildar karla í Hafnarfirði hafði ekki mikla þýðingu fyrir Eyjamenn, tölfræðilegar líkur á að þeir myndu falla voru hverfandi. En heimamenn voru í verri stöðu, þeir gætu fallið ef leikurinn tapaðist. Þeir lögðu því allt kapp á að vinna leikinn og það tókst nokkuð örugglega, því þeir komu miklu ákveðnari til leiks og uppskáru samkvæmt því.
Meira
FRAM hélt sæti sínu í efstu deild með því að sigra KA á Akureyri með þremur mörkum gegn engu. Þessi mörk voru dýrmæt því aðeins munaði tveimur mörkum á Fram og Keflavík í lokin, Keflvíkingum í óhag, og urðu þeir síðarnefndu að sætta sig við fall.
Meira
ÞAÐ ræðst í bikarúrslitaleik Fram og Fylkis um næstu helgi hvort Fram eða KA verður fjórði fulltrúi Íslands í Evrópumótum félagsliða næsta sumar. Nú liggur fyrir að KR fer í forkeppni meistaradeildar Evrópu og Fylkir í UEFA-bikarinn.
Meira
"ÞAÐ er gífurlega sárt að falla en við vissum að við vorum komnir í erfiða stöðu fyrir leikinn og þyrftum líklega að treysta á aðra. Við komum mjög vel stemmdir til leiks í dag og betur stemmdir en oft áður í sumar.
Meira
KEFLAVÍK leikur í 1. deild að ári. Það kom í ljós á laugardaginn þegar Keflvíkingar sigruðu Grindavík, 1:4 á útivelli. Fyrir lokaumferðina hefðu flestir veðjað á að svona stór sigur myndi duga Keflvíkingum en því miður fyrir þá dugði þetta ekki.
Meira
GSÍ stigamót unglinga Korpúlfsstaðir, par 71 Drengir 14-15 ára Ólafur B. Loftsson, NK 151 Þórður Rafn Gissurarson, GR 155 Sigurður Pétur Oddsson, GR 156 Piltar 16-18 ára Magnús Lárusson, GKj.
Meira
GUÐMUNDUR Steinarsson og Adolf Sveinsson, knattspyrnumennirnir, sem leikið hafa með Keflvíkingum, halda utan til Danmerkur á næstunni þar sem þeir ætla að búa í vetur.
Meira
Hanna Guðrún Stefánsson átti mjög góðan leik þegar Haukar lögðu Val að velli í 1. deildarkeppni kvenna í handknattleik á Hlíðar enda, 28:21. Hér skorar hún eitt af tíu mörkum sínum í leiknum. Úrslit helgarinnar og staðan í 1. deild kvenna er á...
Meira
BIKARMEISTARAR Hauka eru meistarar meistaranna í handknattleik karla. Hafnfirðingar léku gegn Íslandsmeisturum KA á laugardag og gjörsigruðu þá 37:27. Í leikslok fór bikar á loft en mikilvægari voru stigin tvö sem þeir fengu enda var leikurinn deildarleikur í ofánálag. Haukarnir voru mun sterkari allan leikinn og fóru þeir Aron Kristjánsson og Birkir Ívar Guðmundsson á kostum í liði þeirra. Átta mörk skildu í hálfleik en Haukar náðu mest þrettán marka forystu sem segir mikið um yfirburði þeirra.
Meira
HEIÐAR Helguson skoraði á laugardaginn sitt fyrsta mark fyrir Watford á leiktíðinni í 1. deild ensku knattspyrnunnar, og sitt fyrsta síðan á nýársdag.
Meira
* HENNING Jónasson úr KR og Helgi Jones úr Þór léku báðir sinn fyrsta leik í efstu deild þegar lið þeirra mættust á laugardaginn. Henning, 19 ára gamall Stokkseyringur, lék síðustu fjórar mín.
Meira
* HRAFNHILDUR Skúladóttir skoraði 7 mörk fyrir Tvis Holstebro sem tapaði fyrir Slagelse , 32:18, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Tvis Holstebro er án stiga eftir þrjár umferðir.
Meira
Kristján Finnbogason stóð í marki KR í síðustu tveimur leikjum liðsins og kom það mörgum á óvart. Hann hafði nefnilega meiðst um miðjan ágústmánuð og var þá talið að hann hefði leikið sinn síðasta leik á tímabilinu, en hinn ungi Valþór Halldórsson leysti hann af í þremur leikjum.
Meira
JÓN Arnar Magnússon úr Breiðabliki varð fjórði á tugþrautarmóti sem fram fór í Talence í Frakklandi um helgina. Jón Arnar fékk 8.128 stig sem er þriðji besti árangur hans á keppnistímabilinu. Bandaríkjamaðurinn Tom Pappas sigraði á mótinu með 8.525 stig.
Meira
ARSENAL er algjörlega óstöðvandi þessa dagana og eftir 2:1-sigur á Bolton eru Englandsmeistararnir á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og virðast ekki ætla að fara af honum í bráð. Arsenal gerði meira en að sigra því liðið jafnaði 72 ára gamalt met Chesterfield með því að skora í 46. deildarleiknum í röð.
Meira
KJARTAN Másson, þjálfari Keflvíkinga, kvaddi leikmenn sína eftir leikinn við Grindvíkinga og tilkynnti þeim að hann væri hættur þjálfun liðsins. "Það lá alveg ljóst fyrir að Kjartan myndi hætta með liðið hvernig sem þetta færi hjá okkur.
Meira
KR-INGAR eru Íslandsmeistarar í knattspyrnu árið 2002 eftir auðveldan sigur á föllnum Þórsurum, 5:0, á KR-vellinum á laugardaginn. Þetta er þriðji Íslandsmeistaratitill KR á fjórum árum og sá 23.
Meira
* KRISTINN Jakobsson knattspyrnudómari mun dæma leik pólska liðsins Wisla Kraká og Primorje frá Slóveníu í Kraká 3. október. Leikurinn er síðari leikur liðanna í annarri umferð UEFA -bikarsins. Með honum fara Gunnar Gylfason, Guðmundur H.
Meira
KRISTJÁN Guðmundsson verður næsti þjálfari ÍR-inga en Breiðhyltingar féllu sem kunnugt er í 2. deild ásamt Sindramönnum. Kristján er ekki alveg ókunnugur ÍR-liðinu.
Meira
"FYRST þegar leikurinn var flautaður af voru mikil vonbrigði, og eru enn, en þegar maður hugsar betur um það tel ég að við getum borið höfuðið hátt því við höfum komist vel frá þessum viðureignum og vitum að við vorum að spila við sterkt lið," sagði Olga Færseth eftir leikinn.
Meira
AÐ meðaltali mættu 996 áhorfendur á hvern leik í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í ár. Það er nokkur fækkun frá árinu 2001, en þó næstmesta aðsóknin frá upphafi þar sem leikirnir í fyrra slógu öll aðsóknarmet.
Meira
ÞEGAR Haraldur Sturlaugsson, fyrrverandi fyrirliði Skagamanna, var að yfirgefa knattspyrnuvöllinn á Jaðarsbökkum á Akranesi, eftir sigur Skagamanna á Fylki, sneru tveir vonsviknir og góðglaðir Fylkismenn sér að honum og lýstu yfir vonbrigðum sínum með...
Meira
BJÖRGVIN Sigurbergsson, atvinnukylfingur úr GK, komst ekki í gegnum fyrsta stigið af þremur á úrtökumóti fyrir evrópsku mótaröðina, en hann og Ólafur Már Sigurðsson einnig úr GK, léku báðir holurnar 72 á þremur undir pari Five-Lake vallarins á Englandi.
Meira
WILLUM Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistaraliðs KR, þekkir það vel að stýra skútum þeim, sem hann hefur tekið að sér, á leiðarenda. Sem þjálfari hefur Willum unnið sigra í öllum deildum íslenskrar knattspyrnu, sem þjálfari Hauka og Þróttar úr Reykjavík og nú síðast sem "kallinn í brúnni" hjá Íslandsmeistaraliði KR - á sínu fyrsta ári sem þjálfari Vesturbæjarliðsins.
Meira
JÓNAS Grani Garðarsson, leikmaður FH, var kampakátur að leik loknum og sagði að FH-ingar hefðu gert sér fulla grein fyrir mikilvægi leiksins. "Við ætluðum okkur auðvitað að vinna leikinn og klára þetta. Ekki treysta á aðra.
Meira
SIGURSTEINN Gíslason varð Íslandsmeistari í knattspyrnu í áttunda skipti á laugardaginn. Sigursteinn spilaði með Skagamönnum þegar þeir urðu meistarar fimm ár í röð, frá 1992 til 1996, og síðan með KR árin 1999, 2000 og 2002.
Meira
SIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson varð markahæstur KR-inga í sumar og skoraði 11 mörk í deildinni, þar af eitt á móti Þór. Hann varð þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Gunnari Heiðari Þorvaldssyni úr ÍBV en þar sem Sigurður spilaði einum leik færra hlýtur hann bronsskó Adidas. Sigurður hafði því ríka ástæðu til að gleðjast á laugardag.
Meira
"ÉG ER bæði stoltur og vonsvikinn," sagði Jörundur Áki Sveinsson landsliðsþjálfari eftir leikinn gegn Englandi í Birmingham á sunnudaginn. "Vonsvikinn eftir á að hyggja vegna þess að leikurinn heima skyldi ekki fara betur því það var vendipunktur, það er dýrt að fá á sig tvö mörk á heimavelli. Síðan er ég einstaklega ánægður með framgöngu liðsins í dag, sérstaklega síðari hálfleikinn."
Meira
ÓLAFUR Þórðarson þjálfari fráfarandi Íslandsmeistara Skagamanna gekk til Fylkismanna og hughreysti þá eftir ófarirnar á móti hans mönnum. Ólafur fann greinilega til með sínum gömlu lærisveinum sem hann þjálfaði í tvö ár, 1997 og 1998.
Meira
ÞÓRÐUR Guðjónsson og Eyjólfur Sverrisson voru báðir í byrjunarliði félaga sinna í þýsku Bundesligunni í knattspyrnu um helgina en hvorugur þeirra náði að spila annan hálfleikinn.
Meira
LEMGO er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Lemgo sigraði meistara Kiel á útivelli, 29:27, og hafa meistararnir enn ekki unnið leik. Liðið hefur gert tvö jafntefli og tapað tveimur og er í 13. sæti.
Meira
* TRYGGVI Guðmundsson og Marel Baldvinsson léku báðir allan leikinn fyrir Stabæk sem tapaði á heimavelli fyrir Odd Grenland , 2:0, í undanúrslitum norsku bikarkeppninnar í knattspyrnu.
Meira
AÐALSTEINN, þjálfari Fylkis, var í skrýtnu hlutverki á sínum gamla heimavelli á Akranesi. Hann tók út leikbann og varð að fylgjast með leik sinna manna úr grasbrekkunni - umkringdur fjölmennum stuðningsmönnum Árbæjarliðsins.
Meira
Tveir knattspyrnustjórar í ensku úrvalsdeildinni, Glenn Roeder hjá West Ham og David Moyes hjá Everton, gagnrýna mjög ummæli Berti Vogts landsliðsþjálfara Skota sem hann viðhafði eftir jafntefli Skota við Færeyinga í undankeppni EM á dögunum.
Meira
WILLUM Þór Þórsson hefur náð þeim einstæða árangri á skömmum þjálfaraferli að stýra liðum til sigurs í öllum fjórum deildum Íslandsmótsins í knattspyrnu. Fyrsti titill Willums kom árið 1997 þegar Þróttarar sigruðu í 1. deild undir hans stjórn.
Meira
"ÉG er ánægður með þennan leik. KA-menn eru erfiðir en við spiluðum taktískt vel að þessu sinni og sigurinn var góður. Við náðum að skora þau mörk sem við þurftum," sagði Kristinn R.
Meira
ÖRLÖG körfuknattleiksliðs Þórs frá Akureyri ráðast í dag þegar aðalstjórn félagsins tekur fyrir yfirlýsingu stjórnar körfuknattleiksdeildarinnar frá því í gærkvöldi.
Meira
NÝLEGA mættu menn til samkomu til að fagna ungum mönnum sem voru að taka við sveinsbréfum í pípulögnum, eftir að hafa þreytt sveinspróf með tilheyrandi kvíða, stressi og vel útilátnum svita.
Meira
Reykjavík - Fasteignamiðlunin Berg er nú með í sölu steinhús á Esjugrund 24 í Reykjavík. Húsið er 262 fermetrar og er það með aukaíbúð. Það var reist árið 1986. "Um er að ræða glæsilegt hús sem hentar vel fyrir stóra fjölskyldu.
Meira
Reyniviður er fallegt tré og ber þess og lauf eru falleg til skreytinga. Reyniviður er íslenskt tré og mörg örnefni hér á landi bera þess vott. Reyniviður á sér djúpar rætur í íslenskri þjóðtrú. Hann var helgaður Ása-Þór til forna.
Meira
ÞAÐ er nokkurt nýnæmi hér á landi að reka fasteignasölu inni í stórmarkaði, enda þótt það sé ef til vill ekki einsdæmi. Fasteignasalan Smárinn hefur aðsetur á 2.
Meira
Mosfellsbær - Hjá fasteignasölunni Gimli er nú í sölu fallegt og glæsilega hannað parhús á tveimur hæðum á góðum útsýnisstað í Mosfellsbæ. Húsið er 184 ferm. með innbyggðum 52 ferm. bílskúr með mikilli lofthæð. Ásett verð er 18,7 millj. kr.
Meira
Kópavogur - Húsakaup eru nú með í einkasölu einbýlishúsið Hlíðarhjalla 27 í Kópavogi. Þetta er steinhús, byggt 1987 og er það 212,8 fermetrar, þar af er innbyggður bílskúr 28,9 fermetrar.
Meira
Hljómskálinn er ein af einkennisbyggingum Reykjavíkur. Þar hefur löngum verið æfingastaður lúðrasveita og þótt þetta sé ekki stór bygging er hún borgarbúum hjartfólgin. Hljómskálinn var byggður 1923 og er hann 5,5 x 7,3 x 7,5 metrar að stærð.
Meira
UMMÆLI félagsmálaráðherra um húsaleigumál í Reykjavík hafa að undanförnu valdið hörðum viðbrögðum margra þeirra aðila sem með einum eða öðrum hætti tengjast húsaleigumarkaðnum í Reykjavík og er ráðherra talinn fara með allt of lágar tölur um leiguverð í...
Meira
Reykjavík - Hjá fasteignasölunni Valhöll er nú í einkasölu parhús í Laufrima 31 í Reykjavík. Þetta er svokallað kubbahús, hlaðið úr steyptum einangrunarkubbum. Það var reist árið 1996 og er samtals 160 ferm. á einni hæð, þar af er bílskúr 30 ferm.
Meira
Í grein um fjármögnunarmöguleika við íbúðarkaup, sem birtist í fasteignablaði Morgunblaðsins 3. september sl., var rangt farið með tvö atriði, sem þarf að leiðrétta.
Meira
Gera má ráð fyrir mikilli ásókn í norðursvæði Vatnsenda í Kópavogi, en fyrstu lóðirnar þar hafa nú verið auglýstar til umsóknar. Elliðavatn, Heiðmörk og fjallahringurinn blasa við. Magnús Sigurðsson kynnti sér svæðið.
Meira
Reykjavík - Eignamiðlunin er nú með í einkasölu tvær íbúðir í Mjölnisholti 4 í Reykjavík. Íbúðirnar eru 63,9 og 71,3 fermetrar að stærð. Þær eru í steinhúsi sem byggt var 1927.
Meira
"Ofurlitla barokkhöll" kallar Hörður Ágústsson húsið Þingholtsstræti 29B sem Einar Erlendsson teiknaði og vitnar þar í glæsilegan stiga sem allir þeir kannast við sem á árunum áður sóttu sér bækur í Borgarbókasafnið, en hús þetta var...
Meira
Hafnarfjörður - Fasteignasalan Ás er nú með í einkasölu húseignina Reykjavíkurvegur 3, sem er steinhús, byggt árið 1912. Það er 149,8 ferm. og því fylgir atvinnuhúsnæði sem er úr timbri og steini og er það 173,2 ferm. og líka byggt 1912.
Meira
Á vegum Sjómannadagsráðs standa yfir miklar byggingarframkvæmdir við Hrafnistu í Hafnarfirði. Byggð verða tvö fjölbýlishús með 64 íbúðum. Þær fyrstu eru þegar tilbúnar. Magnús Sigurðsson kynnti sér íbúðirnar og ræddi við Ásgeir Ingvason, framkvæmdastjóra ráðsins.
Meira
Í þessu húsi hefur verið tekið á þjóðarpúlsinum í ýmsum skilningi. Þetta er Skúlagata 4, hús Fiskifélags Íslands og þar var lengi til húsa Ríkisútvarpið, meðan það var eina útvarpsstöð landsmanna.
Meira
Sóleyjargata 1 hýsir nú skrifstofur forseta Íslands. Hús þetta reisti Björn Jónsson ritstjóri og ráðherra árið 1912. Björn stofnaði 1874 vikublaðið Ísafold í Reykjavík og varð ráðherra 1909. Björn var einn helsti baráttumaður fyrir vínbanni á Íslandi.
Meira
Garðabær - Hjá fasteignasölunni Smáranum er nú til sölu glæsilegt 156,6 ferm. einbýlishús ásamt 43,5 ferm. sambyggðum bílskúr á einni hæð á góðum stað við Súlunes 20 á Arnarnesi. Húsið stendur á um 1.500 ferm. eignarlóð. Ásett verð er 27,9 millj. kr.
Meira
Greiðslumatið sýnir hámarksfjármögnunarmöguleika með lánum Íbúðalánasjóðs miðað við eigið fé og greiðslugetu umsækjenda. Forritið gerir ráð fyrir að eignir að viðbættum nýjum lánum s.s.
Meira
Þessi vel hannaði kertastjaki er framleiddur hjá Söholm, en það er danskt fyrirtæki sem stofnað var á Borgundarhólmi 1835. Það hve gamalt fyrirtækið er setur svip á framleiðslu þess þótt í áranna rás hafi hún verið bæði bætt og fáguð.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.