SVÍINN Hans Blix, yfirmaður vopnaeftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna í Írak, kynnti í gær á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna samkomulagið sem náðist við stjórn Saddams Husseins Íraksforseta í vikunni um framkvæmd eftirlitsins.
Meira
Brandenborgarhliðið í Berlín var afhjúpað í gær eftir tveggja ára viðgerð við hátíðlega athöfn að viðstöddum Gerhard Schröder kanslara, Klaus Wowereit borgarstjóra og Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta.
Meira
JOHN Walker Lindh, Bandaríkjamaður sem var liðsmaður talibana í Afganistan, segir að árásin á Bandaríkin hinn 11. september hafi átt að vera sú fyrsta af þremur sem al-Qaeda-samtökin hugðust gera í landinu á skömmum tíma.
Meira
FRAMHALDSSKÓLINN á Húsavík er 15 ára á þessu ári og á dögunum var haldin glæsileg afmælishátíð í Íþróttahöllinni á Húsavík. Þar fögnuðu nemendur, starfsfólk og aðrir velunnarar skólans áfanganum með ræðuhöldum, tónlistaratriðum, myndasýningu o.fl.
Meira
HERINN á Filippseyjum kenndi í gær múslímskum skæruliðum í Abu Sayyaf-hreyfingunni um sprengjuárás sem varð þremur mönnum að bana, þar á meðal bandarískum hermanni.
Meira
VINSTRIHREYFINGIN grænt framboð á Akureyri heldur aðalfund á morgun, laugardaginn 5. október, kl. 20 á Græna hattinum, Hafnarstræti 96. Að loknum aðalfundarstörfum um kl.
Meira
AGLOW-konur í Hafnarfirði og Garðabæ halda fund laugardaginn 5. október kl. 15 á Reykjavíkurvegi 68, 2 hæð. Alda Hauksdóttir meinatæknir flytur hugvekju. Aglow eru alþjóðleg samtök kristinna kvenna, sem hafa helgað líf sitt Jesú Kristi.
Meira
SLÉTTBAKUR EA, frystitogari Útgerðarfélags Akureyringa, kom til heimahafnar í vikunni með um 340 tonn af afurðum. Afli upp úr sjó var um 460 tonn, þar af 180 tonn af ufsa, 170 tonn af þorski og 60 tonn af grálúðu, og var aflaverðmætið 73 millj. kr.
Meira
STÓMASAMTÖK Íslands verða með opið hús laugardaginn 5. október í húsnæði Krabbameinsfélags Íslands að Skógarhlíð 8, í Reykjavík 4. hæð kl. 14-16 í tilefni alþjóðastómadagsins. Yfirskrift dagsins er: "Okkur eru allir vegir færir".
Meira
ÞAÐ eru fleiri en fullorðnir íbúar í Þórshafnar- og Svalbarðshreppi sem eru óhressir með slæmt ástand Öxarfjarðarheiðar því nemendur 10. bekkjar í Grunnskólanum á Þórshöfn fóru fyrir skömmu í áheitagöngu yfir heiðina.
Meira
BILLINN-Sportbar verður opnaður á morgun, laugardaginn 5. október kl. 14, en nokkur ár eru liðin frá því slík starfsemi var í boði á Akureyri. Staðurinn er við Strandgötu 49, í portinu bakvið veitingastaðinn Við Pollinn, þar sem Renniverkstæðið var áður.
Meira
FORRÁÐAMENN Fjölbrautaskóla Suðurnesja, FS, fengu Tómas Inga Olrich menntamálaráðherra í heimsókn í byrjun vikunnar þar sem farið var rækilega yfir húsnæðismál skólans.
Meira
Ellý K. Guðmundsdóttir, forstöðumaður Umhverfis- og heilbrigðisstofu, segir að Reykjavíkurborg muni nýta sér ýmislegt frá fundi SÞ um sjálfbæra þróun í Jóhannesarborg þegar kemur að endurskoðun á umhverfisáætlun borgarinnar.
Meira
ÁKVEÐIÐ hefur verið að takmarka lengd aðsendra greina vegna mikilla þrengsla í blaðinu og sívaxandi fjölda þeirra. Mun fleiri greinar berast daglega en unnt er að birta og því óhjákvæmilegt að bregðast við því.
Meira
FRAKKAR tilkynntu í gær að þeir hefðu frestað tilraunum með genameðferð sem ætlað er að hjálpa ungbörnum sem fæðst hafa með gallað ónæmiskerfi, í kjölfar þess að eitt barnanna hefur tekið veiki er líkist hvítblæði.
Meira
Eðalvín ehf. hefur tekið við umboði fyrir fyrirtækið Wolf Blass í Ástralíu af Austurbakka hf. Wolf Blass framleiðir m.a.: Wolf Blass vínin, Black Opal vínin, Jamieson Run, Robertson Well, Eagle Hawk og Greg Norman línurnar.
Meira
EINKAÞJÁLFARASKÓLINN FIA hefur senn 13. starfsár sitt. Skólinn hefst 12. október en kennt er um helgar samtals fjórar helgar. Um er að ræða verklegt sem og bóklegt nám.
Meira
EKIÐ var á ellefu ára stúlku á gatnamótum Bæjarbrautar og Hofsstaðabrautar í Garðabæ um sjöleytið í gærkvöldi. Stúlkan var flutt á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Reykjavík, en hún slasaðist í andliti, að sögn lögreglunnar í...
Meira
EVRÓPUSAMBANDIÐ hafnar því að viðbrögð þess við tollum Bandaríkjamanna á innflutt stál sé brot á EES-samningnum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum verslunar og þjónustu, SVÞ. Í tilkynningunni segir að SVÞ hafi í júlí sl.
Meira
Í TILEFNI af evrópska tungumáladeginum 26. september fengu nemendur á miðstigi í Grunnskólanum í Borgarnesi að reyna færni sína í erlendum tungumálum.
Meira
FERLI ehf. og dk-hugbúnaður hafa undirritað samning um þróun tengingar dk við þjóðskrárdreifingu Ferlis. Viðskiptavinir dk geta þá verið áskrifendur og tengst sjálfvirkri þjóðskráruppfærslu Ferlis, sem er mánaðar-, viku- eða daglega.
Meira
SÍMINN stóð fyrir ráðstefnu í Samkomuhúsinu á Akureyri í gær, undir yfirskriftinni Ferskir straumar í GSM-samskiptum fyrirtækja. Á ráðstefnunni var m.a.
Meira
FIMM bíla árekstur varð á Reykjanesbraut við Sprengisand í Reykjavík um hádegið í gær og varð að draga þrjá þeirra af vettvangi með kranabíl. Tildrög óhappsins voru ókunn í gær en þó urðu ekki teljandi slys á fólki.
Meira
FJALLAHJÓLREIÐAMENN í Kaliforníu standa frammi fyrir erfiðri samviskuspurningu en yfirvöld í ríkinu hafa nýverið lagt til að hömlur verði settar á ferðir þeirra um ósnert náttúrusvæði í ríkinu.
Meira
FORELDRUM barna í 10. bekk grunnskólanna í Reykjanesbæ stendur nú til boða án endurgjalds að sækja námskeiðið "Öflugt sjálfstraust", sem ætlað er að styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu.
Meira
FUGLAVERNDARFÉLAG Íslands heldur Evrópska fugladaga hátíðlega, í samstarfi við önnur aðildarfélög Alþjóða fuglaverndarsamtakanna, BirdLife International, í Evrópu helgina 5.-6. október. Af því tilefni verður fuglaskoðun í Grafarvogi sunnudaginn 6.
Meira
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10.30 í dag. Geir H. Haarde fjármálaráðherra mun mæla fyrir frumvarpi til fjárlaga 2003. Síðan taka við umræður um fjárlögin. Gert er ráð fyrir að þingfundur standi fram eftir...
Meira
VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN á Bifröst hefur hafið útgáfu á rannsóknaskýrslum kennara og fræðimanna skólans. Skýrslurnar verða gefnar út í ritröð og hefur hvert hefti sitt númer.
Meira
ÚTIVIST verður með göngu um Reykjaveginn laugardaginn 5. október og er hún er frá Dyrdal að Heiðarbæ. Gangan er u.þ.b 12-14 km og tekur um 5 klst. Brottför verður frá BSÍ kl. 10.30. Verð kr. 1.700 / 1.900. Fararstjóri er Steinar Frímannsson.
Meira
UNGMENNAFÉLAG Íslands stendur fyrir göngudegi fjölskyldunnar helgina 5.-6. október í samvinnu við Lauf, félag áhugafólks um flogaveiki. "Fjölskyldan er einn af hornsteinum samfélagsins.
Meira
DR. LEÓ Kristjánsson , jarðeðlisfræðingur við jarðeðlisfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskólans, var á sl. vori heiðraður af bandaríska jarðeðlisfræðisambandinu (American Geophysical Union, A.G.U.).
Meira
"FJÖLSKYLDAN saman gaman" er yfirskrift á samstarfsverkefni nema í fjarnámi í íþróttafræðum, heilsuþjálfun við Kennaraháskóla Íslands. Þrír þeirra eru á Akureyri, einn á Hornafirði og einn í Hafnarfirði. Markmiðið með verkefninu er m.a.
Meira
TÍU ár eru um þessar mundir liðin frá því Heimahlynning á Akureyri, sem er sérhæfð hjúkrunarþjónusta fyrir mikið veika einstaklinga, hóf starfsemi. Í tilefni af því verður efnt til hátíðardagskrár í gryfju Verkmenntaskólans á Akureyri á sunnudag, 6.
Meira
SAMKEPPNISSTOFNUN á að eigin frumkvæði að vinna skýrslu um það hvers vegna matvöruverð er ekki lægra en raun ber vitni enda hafi óheilbrigðir verslunarhættir fengið að dafna í skjóli stofnunarinnar auk þess sem hún hafi látið það líðast að til mikillar...
Meira
ÞEIR VORU greinilega ákaflega samstilltir í salíbununni þessir strákar sem steyptust í einni bendu úr rennibrautinni í Kópavogslaugina í gær. Sólin yljaði bæði kroppum og geði í laugunum í gær.
Meira
FYRRI hluti Íslandsmóts skákfélaga fer fram um helgina í sýningarsal bílaumboðsins B&L, Grjóthálsi 1, Reykjavík. Alls mæta 262 skákmenn úr 40 sveitum til leiks og hefur þátttaka í þessu árlega móti Skáksambands Íslands aldrei verið meiri.
Meira
FULLTRÚAR úr FÍT, Félagi íslenskra teiknara, voru nýlega valdir í dómnefnd alþjóðlegrar hönnunarkeppni sem hönnunar- og arkitektúrsafnið The Chicago Athenaeum stendur árlega fyrir.
Meira
Bandaríski áfengisráðgjafinn Terence Gorski telur að íslensk meðferðarúrræði gegn áfengis- og vímuefnafíkn séu með þeim bestu sem gerast í heiminum og vill að Íslendingar taki að sér alþjóðlegt leiðtogahlutverk á þessu sviði. Hann sagði í samtali við Jóhönnu Ingvarsdóttur að þjóðir heims mættu aldrei missa sjónar á því að hér væri við mikið heilbrigðisvandamál að etja, líkt og bandarísk stjórnvöld hefðu nú gert.
Meira
Ólafur H. Torfason er fæddur í Reykjavík 1947. Hefur stundað nám í kvikmyndafræðum, gert stuttmyndir, útvarps- og sjónvarpsefni og stundað kennslu, kynningar, myndlist og ritstörf. Hann hefur búið í Reykjavík, Kaupmannahöfn, Stykkishólmi og á Akureyri og starfar nú fyrir Listasafn Íslands og Kvikmyndasjóð Íslands. Maki er Þorgerður Sigurðardóttir myndlistarmaður og eiga þau þrjú börn, Melkorku Teklu, Torfa Frans og Guðrúnu Jóhönnu.
Meira
HEILDARKOSTNAÐUR vegna nýbyggingar við Fjölbrautaskólann í Garðabæ er áætlaður 768 milljónir króna en byggingunni verður senn lokið. Upphafleg áætlun hljóðaði upp á 600 milljónir króna.
Meira
ÞJÓÐMINJASAFN Íslands býður útlendingum, búsettum á Íslandi, til kynningardagskrár í Sjóminjasafni Íslands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði laugardaginn 5. október kl. 13. Barnauppeldi og skólakerfi á Íslandi. Sigurborg Hilmarsdóttir safnkennari...
Meira
LANDSPÍTALINN fær 1.200 milljónir króna í frumvarpi til fjáraukalaga sem lagt var fram á Alþingi í gær. Fjárveitingin er til að mæta uppsöfnuðum halla á rekstri spítalans, en um mitt þetta ár var áætlað að hann yrði 1.144 milljónir.
Meira
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson, borgarfulltrúi D-listans, sagði á fundi borgarstjórnar í gær að þar sem embættismenn hefðu verið fengnir til að fjalla um mál sem væru á verksviði leikskólaráðs Reykjavíkur og þannig farið á bak við kjörna fulltrúa í ráðinu, væri...
Meira
ÁRLEG ljóðaganga Gilfélagsins og Skógræktarfélags Eyfirðinga verður á morgun, laugardaginn 5. október. Að þessu sinni verður farið í Grundarskóg í Eyjafirði og þessi merki skógur kynntur, en hafist var handa við að planta í hann árið 1900.
Meira
ÝMSIR urðu án efa áhyggjufullir er fjölmiðlar úti um allan heim sögðu fréttir um síðustu helgi af því að á næstu tveimur öldum myndi arfgerð ljóshærðs fólks hverfa úr mannkyninu.
Meira
RANNSÓKNARNEFND flugslysa, RNF, kemst að þeirri niðurstöðu í greinargerð um skýrslu breskra sérfræðinga um flugslysið í Skerjafirði að mat Bretanna sé í "veigamiklum atriðum vafasamt og styðjist oft ekki við fyrirliggjandi gögn eða...
Meira
Þótt tæpt ár sé síðan íslensk heilbrigðisyfirvöld ákváðu að stefna að því að stofna alþjóðlegan gagnabanka um mænuskaða hefur nefnd sem átti að fjalla um málið aldrei komið saman. Ætlunin er að safna saman upplýsingum um hefðbundnar og óhefðbundnar aðferðir sem gætu stuðlað að því að lækning fyndist við mænuskaða. Í gær kom hingað til lands portúgalskur læknir sem hefur náð árangri með því að græða frumur úr nefi í skaddaða mænu.
Meira
Nafn misritaðist Kynnir á málþingi á Evrópskum tungamáladegi, sem sagt var frá á bls. 38 í gær, var Guðrún Guðsteinsdóttir, dósent í ensku við Háskóla Íslands. Nafn hennar misritaðist í myndatexta á menntasíðu og er beðist velvirðingar á...
Meira
PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra bar fram þá hugmynd á Alþingi í gær að stofnuð yrði rannsóknarnefnd til að rannsaka dauðsföll barna og unglinga. Páll sagði í samtali við Morgunblaðið að honum væri kunnugt um að slíkar nefndir störfuðu erlendis.
Meira
TIL stendur að lengja svokallaðan Norðurgarð í vesturhöfn Reykjavíkurhafnar, þar sem Grandi hefur aðstöðu sína, um nærfellt helming með landfyllingum auk þess sem hann verður breikkaður.
Meira
FJÖLMIÐLA- og afþreyingarfyrirtækið Norðurljós hefur valið LiSA-vefstjórnarkerfið til að halda utan um öll vefsvæði vörumerkja sinna, ásamt aðalvef fyrirtækisins.
Meira
SAMGÖNGURÁÐHERRA, Sturla Böðvarsson, hefur að tillögu Rannsóknarnefndar flugslysa, RNF, ákveðið að skipa sérstaka rannsóknarnefnd innlendra og erlendra sérfræðinga til að rannsaka orsakir flugslyssins er varð í Skerjafirði 7. ágúst árið 2000.
Meira
Í TILEFNI vígslu nýju bátabryggjunnar á Safnasvæðinu Görðum er öllum velunnurum safnanna boðið í opið hús laugardaginn 5. október frá klukkan 14 til 18.
Meira
RITSAFN Snorra Sturlusonar kom út hjá Máli og menningu í gær og var boðið til hátíðlegrar athafnar af því tilefni í nýjum skála Alþingis við Austurvöll.
Meira
GERÐASKÓLI í Garði er einn elsti samfellt starfandi skóli landsins. Næstkomandi mánudag, 7. október, verða liðin 130 ár frá því að skólinn tók til starfa og verður afmælisins minnst með viðeigandi hætti.
Meira
ÞAÐ er rólegt andrúmsloft í versluninni við Vesturgötu 17 í Reykjavík. Þangað kemur fólk ekki aðeins til að grúska í gömlum skræðum heldur nota margir tækifærið til að létta á hjarta sínu við eiganda búðarinnar og annarra starfsmanna.
Meira
RICHARD Reid, breskur ríkisborgari sem sakaður er um að hafa gert tilraun til að sprengja farþegaflugvél í loft upp yfir Atlantshafi með sprengiefni földu í skó sínum, mun játa sig sekan um öll atriði ákærunnar gegn honum, sagði verjandi hans, Owen...
Meira
Í HÖFUÐSTÖÐVUM Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) í Genf hafa menn tekið að gera áætlanir um hjálparstarf í Írak ef til þess kemur að þar brjótist út stríð.
Meira
ALLS hafa tæplega 800 einstaklingar skráð sig til þátttöku í Göngum til góðs, landssöfnun Rauða kross Íslands til stuðnings hjálparstarfi á hungursvæðum í sunnanverðri Afríku.
Meira
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær karlmann í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. Dómurinn er með þyngstu kynferðisbrotadómum sem fallið hafa hérlendis. Héraðsdómur Austurlands dæmdi ákærða í eins og hálfs árs fangelsi hinn 3.
Meira
TALSVERÐ skjálftavirkni hefur verið í Mýrdalsjökli undanfarið líkt og venja er á þessum árstíma. Skjálftarnir hafa farið upp í 2,5 á Richter, að sögn Steinunnar Jakobsdóttur jarðskjálftafræðings. Steinunn segir skjálftana vera um tuttugu á sólarhring.
Meira
BLEIKUR litur leikur nú um Perluna í Reykjavík eftir að skyggja tekur. Tilefnið er árveknisátak um brjóstakrabbamein og verða næstu daga seldir treflar til stuðnings verkefninu.
Meira
SUNDURLIÐUÐ lokatala er komin úr Soginu, en þar var veitt nokkrum dögum lengur fram á haustið heldur en gengur og gerist. Alls veiddust 266 laxar í ánni og 659 bleikjur. Þetta er nokkuð minni veiði en í fyrra, en að sögn Ólafs Kr.
Meira
VALGERÐUR Sverrisdóttir viðskiptaráðherra sagði á Alþingi í gær að umræða stjórnarandstöðunnar um nauðsyn dreifðrar eignaraðildar og andstaða við að sterk kjölfesta komi að stjórn og rekstri bankanna væri deila um keisarans skegg.
Meira
ÁTTA hús hrundu til grunna í borginni Aleppo í Sýrlandi í gær og þá um kvöldið var búið að finna lík 32 manna í rústunum. Óttast var, að um 40 manns væru grafnir undir þeim en tekist hafði að bjarga 22 mismikið slösuðum.
Meira
VINIR og aðstandendur fjölskyldunnar á Syðri-Kárastöðum í Húnaþingi vestra hafa stofnað styktarsjóð fyrir hana, en íbúðarhúsið á bænum brann 1. október sl. Sex manna fjölskylda átti þarna heimili sitt og missti hún allt.
Meira
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Akureyrar staðfesti á fundi sínum í vikunni bókun stjórnar Afreks- og styrktarsjóðs um styrk að upphæð ein milljón króna til kvennaliðs KA/Þórs í handbolta.
Meira
TEKJUR Seltjarnarneskaupstaðar aukast um 28 milljónir í ár samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun bæjarins sem bæjarstjórn hefur samþykkt. Þá hækka gjöld um ríflega 13 milljónir.
Meira
Í FRUMVARPI til fjáraukalaga sem fjármálaráðherra lagði fram í gær er gert ráð fyrir að Landspítalinn fái 1.200 milljónir króna til viðbótar til að mæta uppsöfnuðum rekstrarhalla sjúkrahússins.
Meira
MEÐ ÞVÍ að græða lyktarskynsfrumur úr nefslímhúðinni inn í mænuskaða virðist mega fá fram starfsemi í skaðaða mænu. Þetta kemur fram sem tilfinning og hreyfing í lamaða hluta líkamans.
Meira
NÝ Cessna Citation Excel-þota sem tekur 8 farþega fór á mánudag í nokkrar kynningarferðir milli Reykjavíkur og Akureyrar. Vélin er rekin í samvinnu eignarhaldsfélagsins Maris ehf. og Sundt Air AS í Noregi.
Meira
FYRRVERANDI fjármálastjóri Olíuverzlunar Íslands vann skýrslu fyrir Baug um olíuverslun á Íslandi meðan hann var enn á starfslokasamningi. Þessu er haldið fram í nýrri bók Halls Hallssonar um Olís, "Þeir létu dæluna ganga".
Meira
RICHARD Perle, háttsettur ráðgjafi Bandaríkjastjórnar í varnarmálum, hvatti á miðvikudag til þess að Gerhard Schröder, kanzlari Þýzkalands, segði af sér vegna andstöðu sinnar við stefnu Bandaríkjamanna gagnvart Írak.
Meira
LESTUR mbl.is hefur aukist til muna síðustu vikurnar. Samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernus voru síðuflettingar á vefjum Morgunblaðsins samtals 9.078.
Meira
36 ÁRA kona var í gær dæmd í þriggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fíkniefnabrot með því að hafa komið með tæplega eitt kg af hassi til landsins 26. september sl.
Meira
GENGIÐ hefur verið frá samstarfssamningi milli Þróunarfélags miðborgarinnar og Bílastæðasjóðs og tryggir hann Þróunarfélaginu 5% hlutdeild í tekjum Bílastæðasjóðs af stöðu- og miðamælum til ársloka 2005.
Meira
ÞJÓÐARGERSEMAR Íslendinga, Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða ásamt fleiri ómetanlegum handritum, verða fluttar úr Árnastofnun í Þjóðmenningarhús í dag, vegna stærstu handritasýningar sem sett hefur verið upp hérlendis.
Meira
Við fáum æ oftar að heyra það frá samstarfsfólki okkar á sviði þróunarsamvinnu, segir Einar Karl Haraldsson, stjórnarformaður Hjálparstarfs kirkjunnar, í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna, að málflutningur fyrir þeirra hönd sé þeim ekki síður mikilvægur en bein fjárhags- eða tækniaðstoð.
Meira
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur ákveðið að skipa nefnd til að fara yfir rannsóknina á flugslysinu í Skerjafirði fyrir tveimur árum eftir að tveir breskir sérfræðingar, Frank Taylor og Bernie Forward, gerðu alvarlegar athugasemdir við meðferð...
Meira
Umræður undanfarna daga um hlutskipti mikið geðfatlaðs fólks eru af hinu góða. Þessi hópur mætir víða fordómum og skilningsleysi á veikindum sínum og málefni hans hafa um of legið í þagnargildi.
Meira
Það er þakkarvert starf sem SÁÁ, Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, hafa unnið á þeim aldarfjórðungi sem liðinn er frá stofnun þeirra. Á þeim tíma voru vandamál tengd áfengis- og vímuefnum feimnismál sem helst ekki mátti ræða.
Meira
Eftirtektarverð og þó undirmigileg umræða hefur farið fram á fjölmiðlavettvangi undanfarið, skarar jafnt starfsvettvang listmálara, Listaháskóla Íslands og alþjóðlegan tvíæring í Reykjavík. Þar sem nafn Braga Ásgeirssonar hefur endurtekið dregist inn í umræðuna finnur hann sig knúinn til að leggja orð í belg til sóknar og varnar.
Meira
Franz Mixa: Útsetningar á íslenzkum þjóðlögum. Haydn: Sellókonsert í D. Tsjajkovskíj: Andante cantabile. Stravinskíj: Eldfuglinn. Thorleif Thedéen, selló; Sinfóníuhljómsveit Íslands u. stj. Davids Sterns. Fimmtudaginn 3. október kl. 19:30.
Meira
DAGANA 4. og 5. október stendur Rannsóknastofa í kvennafræðum fyrir ráðstefnu um kvenna- og kynjarannsóknir. Rætt verður um kvikmyndir og kyngervi, ofbeldi, kvenfrelsishugmyndir 19.
Meira
GLEÐISÝNINGIN "Le Sing" verður frumsýnd á litla sviðinu í Broadway á laugardagskvöldið. Sex manns taka þátt í sýningunni, sem er spuna- og söngvasýning, að sögn Þórunnar Clausen leikkonu.
Meira
GUÐRÚN Elín Ólafsdóttir (Gunnella) opnar málverkasýningu í Galleríi Landsbankans-Landsbréfa á vefnum í dag. Opnunin fer fram á annarri hæð á Kaffi Sólon við Bankastræti kl. 17.
Meira
Hafið Með Hafinu er komið fram verk sem ber þess vitni að íslenskt listafólk hafi náð fullkomnum tökum á hinu alþjóðlega tungumáli kvikmyndalistarinnar og nýtt það til að fjalla um sinn eigin veruleika, sögu og þjóðarsál. (H.J.) **** Háskólabíó,...
Meira
Sambíóin og Háskólabíó frumsýna Insomnia með Al Pacino, Robin Williams, Hilary Swank, Maura Tierney, Jonathan Jackson, Martin Donovan og Paul Dooley.
Meira
eftir Gabor Rassov í þýðingu Guðrúnar Vilmundardóttur. Leikarar: Sóley Elíasdóttir, Gunnar Hansson, Þór Tulinius, Halldór Gylfason, Harpa Arnardóttir. Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen. Tónlist: Hr. Ingi R. Lýsing: Kári Gíslason.
Meira
Dúódiskur með tónlist eftir Skúla Sverrisson bassaleikara og Óskar Guðjónsson saxófónleikara, inniheldur fjórtán lög. Upptökur fóru fram í New York 2001 og í Salnum í Kópavogi 2001.
Meira
SEPTETT Jóels Pálssonar saxófónleikara leikur á Kaffi Reykjavík í kvöld klukkan 23 og eru tónleikarnir liður í yfirstandandi djasshátíð í borginni. Jóel ætlar að frumflytja efni á tónleikunum af væntanlegri hljómplötu.
Meira
DONATELLA Versace var síðust í röð hönnuða á tískuvikunni í Mílanó til að sýna nýja hönnun Versace fyrir vorið og sumarið 2003. Sýning hennar var í meira lagi litrík og eggjandi.
Meira
BÍTLARNIR fyrrverandi, Sir Paul McCartney og Ringo Starr, munu koma fram á tónleikum sem haldnir verða 29. nóvember í Royal Albert Hall í Lundúnum á fyrstu ártíð félaga þeirra, Georges Harrisons, sem lést af völdum krabbameins fyrir tæpu ári.
Meira
Leikstjórn: Doug Liman. Handrit: Tony Gilroy og W. Blake Herron eftir skáldsögu Robert Ludlum. Kvikm.taka: Oliver Wood. Aðalhlutverk: Matt Damon, Franka Potente, Chris Cooper, Clive Owen, Adewale Akinnuoye-Agbaje og Brian Cox. 118 mín. USA/Tékkland. UIP 2202.
Meira
Á Nýja sviði Borgarleikhússins verður frumsýnt í kvöld Jón og Hólmfríður, frekar erótískt leikrit í þrem þáttum eftir franska leikskáldið Gabor Rassov. Hávar Sigurjónsson hitti Rassov ásamt leikstjóranum Halldóru Geirharðsdóttur sem þreytir nú frumraun sína í leikstjórastól.
Meira
Leikstjórn: Steven Brill. Handrit: Tim Herlihy, byggt á eldra handriti Robert Riskin. Aðalhlutverk: Adam Sandler, Winona Ryder, John Turturro, Steve Buscemi.
Meira
UM helgina verða tveir nýir söngvarar í hlutverki tónlistarkennarans Don Basilios í sýningu Íslensku óperunnar á Rakaranum í Sevilla eftir Rossini.
Meira
Smárabíó, Regnboginn og Borgarbíó á Akureyri frumsýna Windtalkers með Nicolas Cage, Adam Beach, Christian Slater, Peter Stormare, Noah Emmerich, Mark Ruffalo, Brian Van Holt og Martin Henderson.
Meira
Í GREIN þinni í Morgunblaðinu 14. sept. lýsir þú, Gunnar I. Birgisson formaður bæjarstjórnar Kópavogs, eftir "samstilltum hópi sem hrópaði á torgum" og mótmælir skipulagstillögum Kópavogsbæjar við Elliðavatn.
Meira
Mismunur á verði strætisvagnamiða KRISTÍN hafði samband við Velvakanda og var hún að velta því fyrir sér af hverju 20 miðar í strætó kosti 1.000 kr. fyrir öryrkja en fyrir ellilífeyrisþega kosti þeir 1.600 kr. Hún spyr hver sé skýringin á þessum mismun.
Meira
PILATES-líkamsræktarkerfið hefur notið vaxandi vinsælda erlendis undanfarin ár og þá ekki síst í Bandaríkjunum, þar sem leikarar, fyrirsætur og poppstjörnur auglýsa fagurmótaða og stælta líkama undir merkjum Pilates.
Meira
ÞAR SEM samasemmerki er milli vinstri stjórnar og verðbólgu er furðulegt að ekki einn aðili heldur stjórmálaflokkar, sem vilja sennilega láta taka sig alvarlega, skuli voga sér að boða stofnun vinstri stjórnar fái þeir til þess umboð kjósenda.
Meira
Þessi duglegu tvíburasystkin héldu nýlega hlutaveltu á Akureyri til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðust 1.180 krónum. Þau heita Fiona og Þorlákur...
Meira
Brynjólfur Jónsson fæddist 18. nóv. 1901 á Dagverðareyri við Eyjafjörð. Hann lést 28. september síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jón Hallgrímsson og Guðrún Jónsdóttir. Brynjólfur átti einn bróður, Aðalstein, vélstjóra á Akureyri, f. 20. ágúst 1899.
MeiraKaupa minningabók
Eiður Jóhannesson skipstjóri fæddist í Hafnarfirði 14. mars 1932. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi 20. september síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóhannes Eiðsson sjómaður í Hafnarfirði, f. 1911 á Klungurbrekku á Skógarströnd, d.
MeiraKaupa minningabók
Erna Bergsveinsdóttir fæddist í Reykjavík 18. júní 1932. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 25. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Valgerður Jónsdóttir, f. 11. jan. 1912, d. 8. okt.
MeiraKaupa minningabók
Gunnleif Þórunn Bárðardóttir fæddist á Skarði í Neshreppi utan Ennis 29. júní 1919. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu í Holtsbúð í Garðabæ mánudaginn 9. september síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Ingjaldshólskirkju 17. september.
MeiraKaupa minningabók
Hannes Einar Guðlaugsson fæddist í Reykjavík 6. desember 1955. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 23. september síðastliðinn og var útför hans gerð frá Langholtskirkju 30. september.
MeiraKaupa minningabók
Hildur Pétursdóttir fæddist á Halldórsstöðum í Laxárdal í S-Þingeyjarsýslu 22. febrúar 1926. Hún lést í Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík, 29. júlí síðastliðinn og var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 7. ágúst.
MeiraKaupa minningabók
Hulda Sigurjónsdóttir fæddist 3. júlí 1919 í Gesthúsum í Hafnarfirði (nú Vesturgata 16). Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 27. september síðastliðinn. Hún var elsta barn hjónanna Sigurjóns Einarssonar skipstjóra, f. 25.1. 1897, d. 3.1.
MeiraKaupa minningabók
Kristjana Alexandersdóttir fæddist í Neðri-Miðvík í Aðalvík 31. maí 1923. Hún lést á Landakotsspítala hinn 28. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Alexander Halldórsson, bóndi í Neðri-Miðvík, f. 5. janúar 1880, d. 13.
MeiraKaupa minningabók
Margrét Hróbjartsdóttir fæddist á Kúfhóli í Austur-Landeyjum 15. september 1910. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 30. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Guðmundsdóttir frá Voðmúlastöðum, f. 16. október 1864, d. 1.
MeiraKaupa minningabók
Sigrún Anna Molander fæddist í Reykjavík 23. febrúar 1959. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 19. september síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 27. september.
MeiraKaupa minningabók
Sigurberg Magnús Sigurðsson fæddist á Sauðárkróki 9. ágúst 1931. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi laugardaginn 21. september síðastliðinn og var útför hans gerð frá Kópavogskirkju 30. september.
MeiraKaupa minningabók
Í undirfyrirsögn á baksíðu Viðskiptablaðs Morgunblaðsins í gær var sagt að Grandi hf. ætti 28% í Haraldi Böðvarssyni hf., HB. Hið rétta er, eins og fram kom í millifyrirsögn og texta, að Grandi á 22,9% í HB.
Meira
ALCOA hefur aukið eignarhlut sinn í norska fyrirtækinu Elkem. Bæði fyrirtækin tengjast Íslandi, Alcoa vegna fyrirhugaðra álversframkvæmda í Reyðarfirði og Elkem sem stærsti hluthafi í Íslenska járnblendifélaginu.
Meira
David P. Norton, annar höfunda aðferðafræðinnar á bak við samhæft árangursmat, er væntanlegur til landsins í næsta mánuði. Norton kemur hingað til ráðstefnuhalds á vegum Teymis hf.
Meira
SAMKVÆMT úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur frá 3. september hefur bú Brims hf., áður Heimilistæki hf., verið tekið til gjaldþrotaskipta. Félagið átti og rak verslanirnar Euronics í Smáralind og Kringlunni og verslunina Takt í Ármúla. Sigurmar K.
Meira
UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur um sambankalán á milli Columbia Ventures Corporation, móðurfélags Norðuráls, annars vegar og Landsbanka og Íslandsbanka hins vegar.
Meira
MÖRG ár eða áratugir geta liðið uns seiðaeldi á þorski verður arðbært. Þó ber að hefja nú þegar kynbætur og þróun í seiðaeldinu til að missa ekki af þorskeldislestinni.
Meira
GREINING Íslandsbanka spáir því að hagvöxturinn í ár verði 0,1%. Á næsta ári er spáð 1,7% hagvexti, ef ekki verður af stóriðjuframkvæmdum, en 2,9% hagvexti ef af þeim verður.
Meira
Á ÍSLANDI er meira fjármagn en hægt er að beina í fjárfestingar á litlum heimamarkaði og fyrir vikið flæða peningar frá eldfjallaeyjunni eins og hraun.
Meira
70 ÁRA afmæli . Í dag, föstudaginn 4. október, er sjötugur Ólafur O. Sveinbjörnsson húsasmíðameistari, fyrrum móttökustjóri skrifstofu forstjóra hjá Orkuveitu Reykjavíkur, Álfhólsvegi 85, Kópavogi.
Meira
70 ÁRA afmæli . Í dag, föstudaginn 4. október, er sjötugur Hermann G. Hermannsson, verkstjóri í flugþjónustudeild slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli. Eiginkona hans er Erla M. Magnúsdóttir.
Meira
80 ÁRA afmæli. Á morgun, mánudaginn 7. október, er áttræð Unnur Ragna Benediktsdóttir, Sigtúni 45, Reykjavík. Eiginmaður hennar var Jón Valgeir Guðmundsson . Hún verður, ásamt fjölskyldu sinni, að heiman á...
Meira
Enn ég um Fellaflóann geng, finn eins og titring í gömlum streng, hugann grunar hjá grassins rót gamalt spor eftir lítinn fót. Hugrökk teygist á háum legg hvönnin fram yfir gljúfravegg, dumbrauðu höfði um dægrin ljós drjúpir hin vota engjarós.
Meira
Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Mánudaginn 30. sept. sl. var spilaður 1 kvölds tvímenningur, Mitchell. Meðalskor 216 stig. Röð efstu para. NS: Jón G. Jónsson - Friðjón Margeirsson 27 Dagmar Arnard. - Valgerður Kristjónsd.
Meira
Bridsfélag Dalvíkur og Ólafsfjarðar Félagið hóf starfsemi sína 23. sept. með látum. Spilaður var upphitunartvímenningur með þátttöku 10 para. Miðlungur var 108. Úrslit urðu þessi: Jón Jónss.-Eiríkur Helgas. 142 Guðm. Sigurbjörnss.-Rafn Gunnarss.
Meira
Bridsfélag Hreyfils Annað kvöldið í þriggja kvölda hausttvímenningi fór fram sl. mánudagskvöld og þá skoruðu eftirtalin pör mest í N/S: Daníel Halldórss. - Guðlaugur Sveinss. 262 Skafti Björnss. - Jón Sigtryggsson 254 Eiður Gunnlaugss. - Jón Ingþórss.
Meira
Félag eldri borgara í Kópavogi Það mættu 22 pör þriðjudaginn 24. sept. og spilaður var Michell-tvímenningur að venju. Lokastaða efstu para í N/S: Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jörundss. 264 Helgi Björnss. - Þórður Sigfússon 258 Helga Helgad.
Meira
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10 í umsjá Aðalbjargar Helgadóttur. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir börn. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkomur alla laugardaga kl. 11-12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og biblíufræðsla.
Meira
Sóknarnefnd Neskirkju hefur ráðið Steingrím Þórhallsson í starf organista við kirkjuna en hann tekur við af Reyni Jónassyni sem lætur af störfum vegna aldurs.
Meira
Næstu mót Mótaskrá Bridssambandsins er komin út og er með hefðbundnum hætti. Íslandsmótið í einmenningi er næsti stórviðburðurinn en það verður spilað 18.-19. október og í beinu framhaldi af því eða 20. okt. verður ársþing BSÍ.
Meira
VÍKVERJI hefur verið undrandi á þeim umræðum, sem fram hafa farið í fjölmiðlum eftir fjöldauppsagnirnar hjá Íslenzkri erfðagreiningu, um stéttarfélagsaðild starfsmanna.
Meira
* BJÖRGVIN Sigurbergsson , kylfingur úr Keili , lék í gær annan hringinn á Plyers-vellinum í Bretlandi á 74 höggum, 2 höggum yfir pari eins og í fyrradag, en mótið er hluti af Europro-mótaröðinni. Björgvin fékk 3 fugla, 10 pör og 5 skolla og varð í 67.
Meira
SIGURGANGA Eyjastúlkna var ekki stöðvuð í gærkvöldi þegar þær mættu til leiks við Val að Hlíðarenda. Eftir hökt í byrjun hrukku gestirnir úr Eyjum í gang og höfðu eftir það örugg tök á leiknum því Valsstúlkur áttu ekkert svar við erlendum stórskyttum gestanna og öflugri vörn, 26:16. ÍBV hefur því sigrað alla fimm leiki sína í vetur og er í efsta sæti deildarinnar en Valur er um miðja deild.
Meira
RÚNAR Arnarson formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann vonaðist til að botn fengist í þjálfaramál hjá félaginu strax eftir helgi en Keflvíkingar, sem féllu í 1.
Meira
BRANN er í alvarlegri fallhættu í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og Teitur Þórðarson þjálfari hefur setið undir sívaxandi gagnrýni. Nú síðast var það formaður hlutafélagsins Brann ASA, sem fjármagnar félagið, Ivar Hanestad, sem lét í sér heyra.
Meira
KRISTINN Ingi Lárusson, fyrrverandi fyrirliði knattspyrnuliðs Valsmanna, er kominn í raðir Hlíðarendafélagsins á nýjan leik eftir árs hvíld frá íþróttinni. Hann gekk frá tveggja ára samningi við Valsmenn í gær en sem kunnugt er unnu þeir 1.
Meira
HAUKUR Ingi Guðnason, landsliðsmaður í knattspyrnu úr Keflavík, fer væntanlega til Molde að loknum landsleiknum við Litháen þann 16. október en norska félagið hefur sýnt mikinn áhuga á að fá hann í sínar raðir.
Meira
STJÖRNURNAR í liði Chelsea koma til Lundúna í dag, væntanlega með skottið á milli lappanna, eftir að hafa verið slegnir út af norska liðinu Viking í UEFA-keppninni í knattspyrnu í gærkvöldi. Norsku Víkingarnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu enska úrvalsdeildarliðið, 4:2, á heimavelli sínum í Stavanger og samanlagt, 5:4.
Meira
DAVID Winnie, fyrrum leikmaður og þjálfari knattspyrnuliðs KR-inga, segir að Skotar þurfi að fara í leikinn mikilvæga við Íslendinga um aðra helgi með jákvæðu hugarfari. Íslenska liðið sé sterkt en ef Skotar hafi trú á sjálfum sér og nýti sér veikleika í íslenska liðinu eigi þeir möguleika á hagstæðum úrslitum.
Meira
ÍSLANDSMEISTARINN í golfi árið 2002, Sigurpáll Geir Sveinsson, GA, hefur dregið sig úr íslenska landsliðinu sem fer til Malasíu síðar í þessum mánuði á heimsmeistaramót áhugamanna.
Meira
*SÆNSKI landsliðsmaðurinn Frederik Ljungberg missti af Evrópuleik Arsenal gegn Auxerre á miðvikudaginn - á síðustu stundu. Hann fékk höfuðverk rétt fyrir leikinn, þannig að hann gat ekki leikið.
Meira
ÞRÁTT fyrir afleitt gengi norska liðsins Brann á knattspyrnuvellinum hefur Teitur Þórðarson fengið góðan stuðning frá hinum kröfuhörðu bæjarbúum í Bergen.
Meira
BANDARÍSKI kylfingurinn Tiger Woods sagði í gær að hann hefði ekki áhuga á að taka þátt í Ólympíuleikunum árið 2008 í Kína, en Alþjóða Ólympíunefndin, IOC, hefur hug á því að fá bestu kylfinga heims til leiks í Peking.
Meira
Tryggvi Guðmundsson, leikmaður Stabæk, á hér í höggi við Ivica Mornar, leikmann Anderlecht. Stabæk tapaði leiknum, 2:1, og er úr leik í UEFA-keppninni. Umfjöllun um keppnina er á...
Meira
FORMAÐUR bandaríska frjálsíþróttasambandsins, Craig Masback, vill að tekið verði upp svipað fyrirkomulag á heimsbikarmótum í framtíðinni til þess að auka áhuga almennings á keppninni.
Meira
Á liðnu ári voru 469 börn í fóstri á einkaheimilum eða meðferðarheimilum, þar af 113 í neyðarvistun. Hildur Einarsdóttir hlustaði á sögu tvíburasystra, sem teknar voru í fóstur á unga aldri vegna óreglu heima fyrir, og ræddi við Erik Larsen, sérfræðing í klínískri sálarfræði, um málefni fósturbarna.
Meira
4. október 2002
| Daglegt líf (blaðauki)
| 603 orð
| 2 myndir
Á FIMMTA áratug liðinnar aldar voru konur einungis 1,5% þeirra sem fengu einkaleyfi fyrir uppfinningar sínar í Bandaríkjunum, 2,2% árið 1977, 5,6% árið 1988 og 8% árið 1993.
Meira
DANSLEIKIR fyrir fatlaða eintaklinga verða haldnir í félagsmiðstöðinni Árseli við Rofabæ í vetur. Opnunarball vetrarins verður haldið á morgun, laugardagskvöldið 5. október. Aðgangseyrir er 400 krónur, veitingasalan verður opin. 16 ára og eldri...
Meira
4. október 2002
| Daglegt líf (blaðauki)
| 1540 orð
| 1 mynd
BÖRN fá stundum ekki þá umönnun eða aðbúnað sem þau þurfa í umhverfi sínu. Ástæður þessa geta verið margar og mismunandi. Foreldrar eru misvel búnir undir að takast á við erfiðleika barna sinna.
Meira
Fylkir úr Reykjavík vann Fram í úrslitaleik bikarkeppni karla í knattspyrnu á laugardaginn, og endaði leikurinn 3:1. Þetta er annað árið í röð sem Fylkir fagnar bikarmeistaratitlinum og var mikið fagnað í Árbænum.
Meira
ÖNNUR kvikmyndin um Harry Potter, verður frumsýnd hér 22. nóvember. Myndin heitir Harry Potter og leyniklefinn og verður frumsýnd í Bandaríkjunum og Bretlandi viku áður. Í Bretlandi hófst forsala aðgöngumiða að myndinni fyrir viku. Salan gekk vel.
Meira
4. október 2002
| Daglegt líf (blaðauki)
| 1840 orð
| 3 myndir
EKKI skil ég hvaðan börnin hafa þetta!" sagði Herdís Þorvaldsdóttir leikkona við Tinnu dóttur sína þegar þrjú barnabarna hennar hófu nám í Leiklistarskóla Íslands fyrir fjórum árum.
Meira
Íslandsmeistaramótið í Svarta Pétri fer fram í þrettánda sinn sunnudaginn 6. október í Sólheimum í Grímsnesi. Keppt verður um Íslandsmeistaratitilinn í Svarta Pétri 2002. Stjórnandi mótsins er Edda Björgvinsdóttir leikkona.
Meira
4. október 2002
| Daglegt líf (blaðauki)
| 928 orð
| 8 myndir
Hrosshár og alls konar steinar prýða gullið þeirra Maríu og Jóhannesar Langenbacher frá Sviss. Kristín Heiða Kristinsdóttir sá líka nokkrar perlur læðast milli steina í verslun, þar sem þau segja að skartið komi frá hjartanu.
Meira
Málum sem hafa komið til barnaverndarnefndar hefur fjölgað á umliðnum árum. Árið 1996 voru málin tæplega 1.900 en árið 2000 eru þau orðin 3.310. Aðeins hluti barnanna sem eru á bak við þessar tölur þurftu á vistun utan heimilis að halda.
Meira
ÍRAKAR og Sameinuðu þjóðirnar hafa gert samkomulag. Það snýst um að Írakar leyfi Sameinuðu þjóðunum að skoða vopn sem þeir eiga. Bandaríkjamenn segja að Írakar vilji koma sér upp mjög öflugum vopnum, svokölluðum gereyðingarvopnum.
Meira
4. október 2002
| Daglegt líf (blaðauki)
| 364 orð
| 3 myndir
VETURINN er ekki langt undan og því eru konur farnar að huga að einhverju hlýju til að sveipa um sig á köldum dögum. Á sjötta áratugnum voru prjónaðar eða heklaðar herðaslár, "ponsjó," mikið í tísku.
Meira
RAUÐI kross Íslands stendur fyrir landssöfnun á morgun til að styrkja hjálparstarf í sunnanverðri Afríku. Markmiðið með söfnunni er að safna að minnsta kosti 20 milljónum króna.
Meira
4. október 2002
| Daglegt líf (blaðauki)
| 1591 orð
| 3 myndir
Alkunna er að dætur og synir feta oft í fótspor feðra og mæðra við starfsval. Stundum virðist fólki vart sjálfrátt, það er haldið einhverri ólæknandi bakteríu. Ragnhildur Sverrisdóttir hitti konur í tveimur fjölskyldum, þar sem bakteríurnar hafa náð undirtökunum.
Meira
4. október 2002
| Daglegt líf (blaðauki)
| 2238 orð
| 1 mynd
VIÐ fæddumst í Svíþjóð árið 1982. Þar bjuggum við ásamt íslenskri móður okkar og föður sem er alsírskur innflytjandi í Svíþjóð. Á þriðja ári fluttum við til Íslands með móður okkar.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.