ELDRA fólki sem neytir oft fisks og sjávarfangs er mun síður en öðrum hætt við vitglöpum, þ.ám. alzheimer-sjúkdómnum, samkvæmt niðurstöðum franskrar rannsóknar er birtar verða í dag í British Medical Journal .
Meira
FLUTNINGABÍLSTJÓRI, sem eftir fáeina mánuði fer á eftirlaun, vildi í gær sem minnst gera úr því afreki sínu að hafa komið lögreglunni á spor mannanna tveggja sem handteknir hafa verið fyrir raðmorðin á Washington-svæðinu undanfarnar þrjár vikur.
Meira
TSJETSJNESKIR skæruliðar, sem halda um 700 manns í gíslingu í leikhúsi í Moskvu, hótuðu í gær að byrja að myrða gíslana, einn af öðrum, klukkan sex í morgun að staðartíma, eða klukkan tvö í nótt að íslenskum tíma, nema því aðeins að rússnesk stjórnvöld...
Meira
YFIRVÖLD í Alabama-ríki í Bandaríkjunum tilkynntu í gær að þau myndu krefjast dauðarefsingar yfir leyniskyttunni sem myrti tíu manns og særði þrjá á Washington-svæðinu.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hefur dæmt 38 ára karlmann í 15 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot með því að hafa átt rúm 200 grömm af amfetamíni og 1,47 grömm af hassi. Dómurinn taldi að amfetamínið væri ætlað til sölu og leit til þess við ákvörðun refsingar.
Meira
MIKE Muhl, liðsstjóri Alþjóðlegu rústabjörgunarsveitarinnar í Ohio í Bandaríkjunum, er gestur Björgunar 2002 og fjallaði í erindi sínu í gær, um björgunarstarf í rústunum við World Trade Center eftir örlagadaginn mikla 11. september í fyrra.
Meira
ÞRIÐJA breiðskífa hljómsveitarinnar Sigur Rósar kemur út á mánudag, mánudag, og er plötunnar, sem heitir ( ), beðið með eftirvæntingu víða um heim. Fyrirframpantanir af plötunni eru um 250.000 eintök, en hér á landi hafa 2.000 eintök selst fyrirfram.
Meira
AÐ MATI Flugmálastjórnar hefur eftirgrennslan stofnunarinnar, sem hófst vegna skýrslu breskra sérfræðinga um rannsókn flugslyssins í Skerjafirði, leitt í ljós að fullyrðingar um að gagnaplata hreyfils TF-GTI sé ólögleg og jafnvel fölsuð eru úr lausu...
Meira
KONUR á Akureyri eru í meiri áhættu að fá hjarta- og æðasjúkdóma en kynsystur þeirra í Hafnarfirði, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem kynnt verður á vísindaþingi Félags íslenskra heimilislækna í Borgarnesi í dag.
Meira
STJÓRN Norður-Kóreu bauðst í gær til að hefja viðræður um griðasáttmála við Bandaríkin en hafnaði kröfu Bandaríkjastjórnar um að hætta að þróa kjarnavopn áður en samningaviðræður hæfust.
Meira
JEPPI valt á Vatnaleið á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Í bílnum voru kona og tvö börn sem farið var með á heilsugæslustöðina í Stykkishólmi. Þau voru ekki talin alvarlega meidd.
Meira
Í ÁR er persónuafsláttur einstaklinga 26.002 krónur á mánuði, staðgreiðsluhlutfall 38,54% og skattleysismörkin 67.467 krónur. Í nýlegri úttekt Morgunblaðsins á skattbyrði landsmanna síðustu ár kom fram að árið 1997 hafi persónuafslátturinn verið 24.
Meira
FINNLAND er á sínum stað en þó er ekki hægt að verjast þeirri hugsun, eftir nokkrar heimsóknir til Helsinki undanfarin 15 ár, að hún sé sífellt að þokast nær miðju Evrópu.
Meira
BRÚÐARKJÓLALEIGA Dóru er flutt í verslunarhúsnæði að Suðurlandsbraut 50 í Reykjavík (bláu húsin við Faxafen). Brúðarkjólaleiga Dóru er með brúðarkjóla til leigu og sölu og fylgihluti s.s.
Meira
STEFNT er að því að taka í notkun á næsta ári, a.m.k. að hluta, kennsluefni í sjö germönskum tungumálum á Netinu sem fólk getur nýtt sér að kostnaðarlausu.
Meira
Höfuðborg Danmerkur skipaði sér á bekk með Moskvu, París og London þegar Kaupmannahafnarbúar tóku í notkun nýtt neðanjarðarlestakerfi um liðna helgi. Rúnar Pálmason fylgdist með og fór nokkrar ferðir með Metro.
Meira
SIGURÐUR Páll Pálsson, formaður Geðlæknafélags Íslands, segir geðlækna almennt ekkert hafa við það að athuga að notkun geðlyfja hafi aukist hér á landi svo fremi sem fólk fái rétta meðferð við réttri greiningu.
Meira
ANDERS Lindman, sem starfað hefur sem heimilislæknir í Svíþjóð í meira en þrjátíu ár, segir að heilsufarsvandamál séu fleiri í þeim löndum þar sem eru margir sérfræðilæknar en fáir heimilislæknar.
Meira
Rannveig Traustadóttir er fædd í Reykjavík 1950. Hún lauk BA-prófi frá Háskóla Íslands í félagsfræði og heimspeki árið 1985 og doktorsprófi í fötlunarfræðum og kvennafræðum frá Syracuse-háskóla í Bandaríkjunum árið 1992. Hún er dósent við félagsvísindadeild Háskóla Íslands og hefur starfað sem kennari við deildina síðan árið 1993. Rannveig hefur um árabil unnið að rannsóknum um margbreytileika og minnihlutahópa í íslensku samfélagi. Hún á eina uppkomna dóttur og tvær ömmustelpur.
Meira
Frjálslyndi flokkurinn opnar flokksskrifstofu og félagsheimili í eigin húsnæði að Aðalstræti 9 sem hann hefur fest kaup á. Er það í sama húsnæði og kosningaskrifstofa F-listans var sl. vor. Verður húsnæðið tekið í notkun í dag, laugardaginn 26.
Meira
MARKAÐS- og atvinnumálaskrifstofa Reykjanesbæjar verður lögð niður og verkefni hennar færð til annarra sviða bæjarins, samkvæmt tillögum Árna Sigfússonar að breyttu stjórnskipulagi sem nú eru til umræðu í bæjarráði.
Meira
MÁLVERK af Ragnhildi Helgadóttur, fyrrverandi forseta neðri deildar Alþingis, var afhjúpað í Alþingishúsinu í gær. Málverkið, sem er eftir Þorbjörgu Höskuldsdóttur listmálara prýðir einn veggja gamla efrideildarsalarins.
Meira
Gísli Ólafsson Þau leiðu mistök urðu í formála minningargreina um Gísla Ólafsson í blaðinu í gær, föstudaginn 25. október, að hann er í tvígang nefndur Ólafur. Ættingjar og aðrir ástvinir Gísla eru beðnir velvirðingar á þessum...
Meira
STJÓRN Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) stefnir að því að öldrunardeildin á 2. hæð D-álmu sjúkra hússins í Keflavík verði komin í fullan rekstur fyrir lok ársins.
Meira
RÚMLEGA fimmtugur karlmaður var dæmdur í hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða í gær fyrir líkamsárás gegn hjónum á heimili þeirra á Suðureyri eftir þorrablót í febrúar sl.
Meira
"ÉG byrjaði í maí 1950 í byggingabransanum og er enn að," segir Sigfús Kristinsson byggingameistari sem rekur byggingafyrirtækið Árborg ehf. á Selfossi með 15 manns í vinnu.
Meira
FRIÐRIK Gylfi Traustason bóndi á Gásum í Hörgárbyggð sagði að ef 22 þúsund manna samfélag þyrfti á landi að halda, undir sorpurðun, álver eða eitthvað annað, væri hann hvorki nógu þrjóskur né fordómafullur til að neita því.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur þyngt refsingu yfir 25 ára manni sem dæmdur hafði verið í 14 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur hinn 24. apríl sl. fyrir þjófnaði, nytjastuld og umferðarlagabrot. Var ákærði dæmdur í 18 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti í tvö...
Meira
Jakob Frímann opnar heimasíðu Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður og varaþingmaður mun í dag, laugardag, kl. 15 opna formlega heimasíðu sína í tilefni af framboði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, sem fram fer 9. nóvember.
Meira
EINN þingmanna stjórnarandstöðunnar í Japan var stunginn til bana fyrir framan heimili sitt í Tókýó í gær. Hefur morðið vakið reiði meðal Japana en ofbeldi gegn stjórnmálamönnum er fátítt í landinu.
Meira
BLINDRAFÉLAGIÐ hefur um árabil gefið út jólakort til styrktar starfinu. Í ár er kortið með myndinni ,,Jólaengill" eftir myndlistakonuna Línu Rut Wilberg. Blindrafélagið kann henni bestu þakkir fyrir verkið.
Meira
SAMVINNUFÉLAGIÐ KEA boðaði nýlega sveitarstjórnir í Suður-Þingeyjarsýslu til fundar að Breiðumýri þar sem Benedikt Sigurðarson stjórnarformaður, ásamt þeim Rúnari Sigursteinssyni og Þórhalli Hermannssyni stjórnarmanni, kynnti stefnumörkun og hlutverk...
Meira
DANIEL arap Moi, forseti Kenýa, leysti í gær upp þing landsins. Flokkur hans, KANU, hefur útnefnt Uhuru Kenyatta, son Jomo Kenyatta, fyrsta forseta landsins, sem næsta forsetaefni sitt.
Meira
KIWANISKLÚBBURINN Helgafell í Vestmannaeyjum minntist 35 ára afmælis klúbbsins með því að afhenda nokkrum stofnunum og félagasamtökum í Vestmannaeyjum auk aðila á Höfn í Hornafirði og í Þorlákshöfn gjafir og styrki til að minnast þessara tímamóta í sögu...
Meira
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að auglýsa tillögu að skipulagi Hlíðarenda, þar sem knattspyrnufélagið Valur hefur meðal annars aðsetur. Þá nær skipulagið yfir um 5 hektara lands við Landspítala - háskólasjúkrahús.
Meira
KOSIÐ verður í sex efstu sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar á tvöföldu kjördæmisþingi í Hlégarði, Kjós, í dag, laugardaginn 26. október nk. Tíu hafa gefið kost á sér, en framboðsfrestur rann út sl.
Meira
Í EINU rótgrónasta vígi reykvískra ungmeyja, Kvennaskólanum í Reykjavík, hafa nokkrir skólapiltar tekið sig saman og stofnað karlakór sem hefur hlotið það virðulega en mótsagnakennda nafn Karlakór Kvennaskólans í Reykjavík.
Meira
SALA Landsbankans, lánshæfismat Íslands, og deilur um Orkuveitu Reykjavíkur (OR) - hvað er sameiginlegt með þessu? Jú, í öllum tilvikum er um grundvallaratriði að ræða, sem staðfesta þróun eða umskipti. Margt í fréttum eru dægurflugur.
Meira
LEIÐBEINENDUR eru fleiri en kennarar við Holtaskóla. Í öðrum grunnskólum Reykjanesbæjar eru kennarar með full réttindi í meirihluta þeirra sem starfa við kennslu. 150 starfa alls við kennslu í fjórum grunnskólum Reykjanesbæjar.
Meira
ÞAÐ hefur verið líf og fjör alla daga vikunnar hjá leikskólabörnum í Aðaldal en þau hafa verið á dansnámskeiði og kunnað vel að meta þessa tilbreytingu í skólastarfinu.
Meira
NÆRMYND af konu í hópi gíslatökumannanna með sprengju bundna við mittið. Er hún sögð tengd með vír við hnapp, sem konan heldur á í vinstri hendi og kemur sprengingunni af...
Meira
OPNAÐ hefur verið gallerí og vinnustofur að Óseyrarbraut 28 a í Þorlákshöfn. Þrjár konur standa að galleríinu; þær heita Dagný Magnúsdóttir, Anna Guðrún Gísladóttir og Hafdís Hallgrímsdóttir.
Meira
ÞEGAR ort er um haustlauf er oftar en ekki minnst á feigðina og hversu lífið er hverfult; laufin sem lifna á vorin eru dæmd til að fölna og deyja á haustin.
Meira
SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmálaráðherra hyggst leggja fram á yfirstandandi þingi frumvarp til laga um björgunarsveitir og björgunarsveitamenn, sem tekur m.a. til réttinda og skyldna björgunarsveita og félagsmanna þeirra.
Meira
MARGRÉT S. Björnsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála sem er ný stofnun á vegum Háskóla Íslands. Margrét lauk meistaraprófi í opinberri stjórnsýslu MPA. frá J.F. Kennedy-skólanum við Harvard-háskóla, síðasta...
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Birni Bjarnasyni, oddvita Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur: "Málflutningur Alfreðs Þorsteinssonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur (OR), í Morgunblaðinu sýnir í hnotskurn...
Meira
RANNSÓKNADEILD lögreglunnar í Kópavogi hefur tekið til formlegrar rannsóknar þjófnaðarmálið í Nóatúni, þar sem kærur á hendur þremur ungmennum, sem unnu í verslun Nóatúns í Smáralind, liggja til grundvallar.
Meira
MIKIÐ var um að vera í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti á miðvikudag þegar efnt var til dags tileinkuðum forvörnum að sögn Steinunnar Ýrar Einarsdóttur nema í FB.
Meira
AÐSÓKN að leiksýningum Leikfélags Akureyrar á liðnu leikári var misjöfn eftir leikverkum, með miklum ágætum á sumar þeirra en aðrar hlutu dræma aðsókn.
Meira
ÞAÐ var 1. maí árið 1991 að Vigfús Þormar Guðmundsson hóf rekstur matvöruverslunarinnar Hverakaupa hér í Hveragerði. Ætlunin var að reka búðina í þrjá mánuði en hér er hann enn rúmum ellefu árum síðar með níu manns á launaskrá.
Meira
Nám í Trigger-punktum Verklegt Trigger-punktanámskeið verður haldið dagana 16. og 17. nóvember nk. TP er mjög viðkvæmur staður í vöðva eða nærliggjandi vöðvasamsetningu.
Meira
Námskeiðið Hálendi Íslands verður haldið á vegum Símenntunar Háskólans á Akureyri í næstu viku, dagana 28. október til 1. nóvember. Kennari er Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur og höfundur verðlaunabókarinnar Hálendið í náttúru Íslands.
Meira
FULLTRÚAR álviðræðunefndar stjórnvalda og Fjárfestingarstofunnar - orkusviðs eru nýkomnir heim að lokinni ferð til Bandaríkjanna og Kanada þar sem viðræður fóru fram við talsmenn Alcoa.
Meira
NÝTT fréttavefsetur, local.is hefur verið opnað á Netinu en markaðssvæði þess er Norður- og Austurland. Vefurinn verður uppfærður daglega og er markmiðið að hvern virkan dag verði settar inn 25 til 35 nýjar fréttir.
Meira
FIMM ár eru nú liðin frá því sjónvarpsstöðin Aksjón hóf útsendingar á Akureyri. "Okkur var strax vel tekið, eiginlega ótrúlega vel og áhorfið aukist jafnt og þétt," sagði Gísli Gunnlaugsson framkvæmdastjóri og einn eigenda Aksjón.
Meira
"ÞETTA er bara búið að takast æðislega vel. Svo hjálpuðust allir að við að skreyta og það er bara geðveikt góður mórall," segir Alba Solís, formaður nemendaráðs Austurbæjarskóla, en félagsmiðstöðin 100og1 var formlega opnuð hinn 17. október sl.
Meira
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rússlands, hefur verið gagnrýndur harðlega í rússneskum fjölmiðlum fyrir það slælega öryggiseftirlit, sem gerði tsjetsjneskum skæruliðum kleift að taka mörg hundruð manns í gíslingu án mikillar fyrirhafnar.
Meira
Rannsóknastofa í kvennafræðum heldur námskeið með heitinu "Á valdi ímynda. Markaðssetning kynímynda," á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands og Rannsóknastofu í kvennafræðum dagana 6., 8. og 12.
Meira
Safnaramarkaður Safnaramarkaður verður haldinn í Félagsheimili Félags frímerkjasafnara í Síðumúla 17, 2. hæð, sunnudaginn 27. október kl. 13-17. Þar verða til sölu og til skipta frímerki, umslög og ýmislegt annað sem tengist frímerkjasöfnun.
Meira
GARÐAR Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), segir helstu skýringa á vaxandi skattheimtu gagnvart lífeyrisþegum að leita í verulegri raunlækkun skattleysismarka, þ.e. að persónuafslátturinn hafi ekki haldið í við þróun verðlags.
Meira
STARFIÐ sem unnið er í minni skólum landsins er öflugt framlag til nýsköpunar í skólastarfi sem oft hefur endurbætt starf í stærri skólum landsins.
Meira
"ÞAÐ er alveg greinilegt að þarna er um skipulögð skemmdarverk að ræða," segir Júlíus Sigurðsson, verkstjóri hjá AFA-JCDecaux, sem á og hefur umsjón með strætóbiðskýlum á höfuðborgarsvæðinu.
Meira
MOVSAR Barajev, sem er sagður vera forsprakki tsjetsjnesku gíslatökumannanna í Moskvu, situr hér yst til hægri á myndinni. Næstur honum er karlmaður en síðan kona með sprengiefni bundið við sig.
Meira
FJÁRMÁLAMARKAÐIR Brasilíu virðast nú loks hafa sætt sig við að næsti forseti landsins, ellefta stærsta þjóðhagkerfis heims, verði vinstrimaðurinn Luiz Inacio Lula da Silva.
Meira
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Gnýr stóð fyrir maraþon-boccia laugardaginn 19. október sl. Þá spiluðu félagar í íþróttafélaginu boccia í heilan sólarhring til að safna áheitum vegna keppnisferðar á Íslandsmót fatlaðra sem nú stendur yfir Akranesi.
Meira
TOLLGÆSLAN á Keflavíkurflugvelli lagði í fyrrakvöld hald á 1½ kíló af kókaíni sem er mesta magn kókaíns sem náðst hefur í einu lagi hér á landi. Fíkniefnin fundust á 58 ára gömlum þýskum karlmanni sem kom frá Kaupmannahöfn.
Meira
UM eitt hundrað manna hópur fólks upphóf í gærmorgun hávær mótmæli gegn hernaði Rússa í Tsjetsjníu fyrir utan leikhúsið þar sem tsjetsjneskir skæruliðar halda um 700 manns í gíslingu og annar hópur á Rauða torginu í Moskvu.
Meira
Tíska í Smáralind Tískusýningar verða haldnar í Vetrargarðinum í Smáralind í dag, laugardaginn 26. október og á morgun, sunnudaginn 27. október, kl. 14-17.30 báða dagana. Sýndur verður fatnaður og fylgihlutir frá verslunum í Smáralind.
Meira
Á ÞESSU hausti eru liðin 15 ár frá stofnun Tónlistarskóla Bessastaðahrepps. Haldnir verða afmælistónleikar í dag, 26. október, þar sem nemendur skólans leika.
Meira
AÐ minnsta kosti 20 börn eru enn á meðal gíslanna í leikhúsinu í Moskvu, að sögn embættismanns í rússnesku öryggislögreglunni í gær. Gíslatökumennirnir slepptu í gær átta börnum, þeirra á meðal svissneskri stúlku.
Meira
MÆGÐURNAR Þórdís Anna Pétursdóttir, Elín Ísabella og Mirra Blær Kristinsdætur voru jarðsungnar frá Bústaðakirkju í gær að viðstöddu fjölmenni. Þær létust eftir bílslys í Skutulsfirði fyrr í mánuðinum. Séra Jón Þorsteinsson...
Meira
ÁKVEÐIÐ hefur verið að varasjóður húsnæðismála verði staðsettur á Sauðárkróki. Samkvæmt tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu hefur sjóðurinn verið í ráðuneytinu í Reykjavík en miðað er við að starfsemin flytjist norður 1. nóvember nk.
Meira
VERÐLAG vöru hefur svo til staðið í stað á árinu. Þrír meginflokkar skera sig þó nokkuð úr með verðhækkanir, þ.e. bensín, húsnæði og þjónusta einkaaðila. Þetta kemur fram í Hagvísum Seðlabanka Ísland.
Meira
SJÓÐSFÉLAGAR sem tekið hafa skuldabréfalán hjá lífeyrissjóði geta þurft að sæta því að vextir af lánunum hækki ef lántakinn hættir að greiða iðgjald til lífeyrissjóðsins sem veitti lánið.
Meira
VÍKURFRÉTTIR ehf. eru að hefja útgáfu á nýju frétta- og auglýsingablaði í Hafnarfirði og nágrenni. Blaðið mun heita VF sem stendur fyrir Vikulega í Firðinum.
Meira
VIÐTALSTÍMUM bæjarfulltrúa á Akureyri hefur nú á haustdögum verið breytt. Þeir verða framvegis síðdegis annan hvern mánudag, frá kl. 17 til 19, en voru áður að kvöldlagi. Fyrsti viðtalstíminn með breyttri tímasetningu verður næsta mánudag, 28.
Meira
EFLING miðbæjarins, þétting lágreistrar byggðar og fjölbreyttara atvinnulíf var meðal þess sem brann á íbúum Garðabæjar á íbúaþingi um síðastliðna helgi. Niðurstöður þingsins verða síðan nýttar við endurskoðun aðalskipulags bæjarins sem er nýhafin.
Meira
Rodolfo Gutierrez, sendiherra Costa Rica í Lundúnum, var hér á landi í vikunni til að kynna sér nýjungar í orkumálum. Auðunn Arnórsson tók hann tali.
Meira
VINNINGSHÖFUM í happdrætti Nýherja á Agora voru nýlega afhentar stafrænar myndavélar í húsakynnum Nýherja. Haraldur Guðni Eiðsson hjá Teymi og Hjörtur Pálsson hjá Arkþing hlutu Canon Powershot A40 að verðmæti 59.900 kr.
Meira
MIÐVIKUDAGINN 24. október var ekið á bifreiðina AP-219 þar sem hún stóð á bifreiðastæði við Guðbrandsgötu í Reykjavík, norðan við Hótel Sögu. Sá er tjóninu olli fór á brott af vettvangi án þess að láta vita. Atvikið gerðist milli kl. 9.30 og 12.
Meira
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur sent frá sér tilkynningu vegna gagnrýni forsvarsmanna Starfsmannasjóðs Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis í fjölmiðlun. "Vegna umfjöllunar um ákvörðun Fjármálaeftirlitsins er varðar umsókn Starfsmannasjóðs SPRON ehf.
Meira
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist frá Vátryggingafélagi Íslands, VÍS: "Vegna fréttaflutnings af dómi Hæstaréttar vegna greiðslu dánarbóta vill VÍS árétta eftirfarandi: Rétt er að árétta að VÍS véfengdi ekki að félaginu bæri að greiða tjónabætur...
Meira
ÖRLYGUR Sigurðsson listmálari lést á Droplaugarstöðum að kvöldi 24. október eftir langa sjúkdómslegu. Örlygur fæddist í Reykjavík 13. febrúar 1920 en ólst upp á Akureyri.
Meira
YFIRVOFANDI árás á Írak og umsókn Íslands um sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna kallar hvort tveggja á umræðu um öryggisstefnu Íslands. Við getum ekki leyft okkur okkur þann munað kaldastríðsáranna að fylgja "góða liðinu" í blindni.
Meira
Hinn 25. október næstkomandi eru 150 ár frá því að barnaskólinn á Eyrarbakka tók til starfa, en þau tímamót eru óneitanlega merkileg í sögu menntunar á Íslandi.
Meira
Deila Tryggingastofnunar og Barnalæknaþjónustunnar er illskiljanleg fyrir venjulegt fólk en vegna þessarar deilu hefur nú verið dregið verulega úr þjónustu á barnalæknavaktinni í Domus Medica.
Meira
Höfundur: Valgeir Skagfjörð, byggt á samnefndri bók eftir Thollý Rósmundsdóttur og Ísak Harðarson. Leikmynd og búningar: Hópurinn. Val á tónlist: Valgeir Skagfjörð og Brynja Valdís Gísladóttir. Hljóðvinnsla: Hjörtur Howser. Leikarar: Brynja Valdís Gísladóttir og Eggert Kaaber. Fimmtudagur 10. október.
Meira
ÞAÐ ER allt að ske hjá drengjunum hugmyndaríku í Ske (þið kallið þetta yfir ykkur með svona nafngiftum!). Life, death, happiness and stuff er fyrsta plata sveitarinnar og hefur hlotið rífandi góða dóma enda fantafínn gripur og fjölbreyttur með afbrigðum.
Meira
FYRSTU áskriftartónleikar Tónlistarfélags Ísafjarðar á starfsárinu verða í dag kl. 17 í Hömrum. Það eru þær Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari sem flytja sónötu fyrir píanó og selló op. 102 nr.
Meira
ÞAÐ gerist ekki á hverjum degi að ný sálmalög bætist í menningarsjóð þjóðarinnar en nú gerist það og ekki bara eitt heldur fjögur í einu. Á Tónlistardögum Dómkirkjunnar sem hefjast með tónleikum í Dómkirkjunni kl.
Meira
LEIKBRÚÐULAND frumsýnir nýtt leikverk í Gerðubergi kl. 14 í dag, sem nefnist Fjöðrin sem varð að fimm hænum og Ævintýrið um Stein Bollason. Örn Árnson leikstýrir sýningunni, en hann semur handrit að verkunum í samvinnu við Leikbrúðuland.
Meira
REINERT Mithassel heldur fyrirlestur í LHÍ, Laugarnesi, á mánudag kl. 12.30. Reinert er norskur leikstjóri sem nýtir sér gagnvirkni og vídeótækni við uppsetningu danssýninga og innsetningar.
Meira
STÆRSTI viðburðurinn á Fairwavestónlistarhátíðinni verður efalaust í kvöld í gamla Austurbæjarbíói þegar rokksveitirnar Clickhaze og Krít stíga á svið ásamt óvæntum gestum.
Meira
HÓPUR fjórtán myndlistarmanna opnar sýningu í Listasafni Reykjanesbæjar, Duushúsum, Keflavík í dag kl. 16, en þetta er önnur sýningin í hinu nýja safni. Hópurinn sýnir undir hatti Gullpensilsins, en svo nefnist félagsskapur listamannanna.
Meira
ÞAÐ sem þú raunverulega sást/ What you actually saw er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í Galleríi Hlemmi í dag kl. 17. Þar sýnir verk sín Erla S. Haraldsdóttir en þetta er í annað sinn sem hún sýnir í þessu galleríi.
Meira
UNGLIST, listahátíð ungs fólks, lýkur í kvöld með kraftmiklum hipp hopp-tónleikum í Tjarnarbíói. Fram koma MC Steinbítur, Afkvæmi guðanna, Bæjarins bestu, MC Messías og Pax. Gestahljómsveit er Króm frá Eskifirði.
Meira
TENGI (All about ties) er heiti á samsýningu sjö myndlistarmanna sem opnuð verður í Galleríi Skugga á Hverfisgötu 39 í dag kl. 17. Þrír íslenskir listamenn og fjórir japanskir eiga verk á sýningunni. Listamennirnir tengjast allir á einn eða annan hátt.
Meira
Japis, Laugavegi 13 Hafdís Bjarnadóttir og félagar leika lög af nýútkomnum geisladiskinum Nú kl. 15.Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð í verslunini þar sem boðið verður upp á lifandi tónlist alla föstudaga eða laugardaga fram í desember.
Meira
Einn þekktasti portrettljósmyndari 20. aldarinnar er Þjóðverjinn August Sander. Nú er að hefjast sýning á myndum hans í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Hlédís Sigurðardóttir ræddi við Hönnu Guðlaugu Guðmundsdóttur, listfræðing og sýningastjóra í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, um sýninguna og Sander.
Meira
NÝR spurningaþáttur um orð, íslensku og íslenska menningu, Orð skulu standa , hefur göngu sína á Rás 1 í dag. Umsjónarmaður, spurningahöfundur, dómari og stigavörður er Karl Th. Birgisson en hann segir þáttinn frjálslegan og óformlegan.
Meira
LOKSINS er komin út þriðja plata einnar fremstu rokksveitar landsins Ensími. Þrjú ár eru liðin síðan BMX kom út, platan vakti jafnvel enn meiri athygli en fyrsta plata sveitarinnar Kafbátamúsík sem kom út árið áður, eða 1998.
Meira
SJÖ íslenskir fiðlunemendur tóku þátt í tónlistarhátíð Suzukinemenda, Young Nordic Tone, í Vesterås í Svíþjóð fyrir skömmu. Meðal verka sem krakkarnir léku voru íslensk rímnalög í útsetningu Bjarna Frímanns Bjarnasonar, 13 ára pilts í hópnum.
Meira
ÁTTA listamenn opna myndlistarsýninguna Hringsjá í Menningarmiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði í kvöld, laugardagskvöld, kl. 20. Listamennirnir útskrifuðust allir frá Listaháskóla Íslands vorið 2001 og verða þeir við opnunina.
Meira
Leikstjóri: Sam Mendes. Handrit: David Self, byggt á myndasögu e. Max Allan Collins og Richard Piers Rayner. Kvikmyndatökustjóri: Conrad L. Hall. Tónlist: Thomas Newman og John M. Williams. Útlitshönnun: Dennis Gassner. Aðalleikendur: Tom Hanks, Paul Newman, Jude Law, Jennifer Jason Leigh, Stanley Tucci, Daniel Craig, Tyler Hoechlin, Liam Aiken, Ciarán Hinds, Dylan Baker. Sýningartími 116 mín. 20th Century Fox/DreamWorks. Bandaríkin 2002.
Meira
ARI Svavarsson, listmálari og grafískur hönnuður, opnar sýningu á verkum sínum í Galleríi Sævars Karls í dag, laugardag, kl. 14. Þetta er önnur sýning Ara og eru verkin að þessu sinni máluð með rými gallerísins í huga.
Meira
Benedikt búálfur hefur að geyma lög úr samnendum barnasöngleik eftir Ólaf Gunnar Gunnlaugsson sem Draumasmiðjan sýnir um þessar mundir í Loftkastalanum. Tónlist er eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson . en söngtextar eftir Andreu Gylfadóttur .
Meira
ÞRIÐJU tónleikar 15:15-syrpunnar á nýja sviði Borgarleikhússins verða í dag, laugardag, kl. 15:15. Að þessu sinni bregður Ferðalagaþáttur 15:15 sér til Bæheims og Týrol og flytur áheyrendum nokkur sýnishorn af tónlist eftir Martinu, Dvorák og Beethoven.
Meira
DANSÞÁTTURINN Party Zone fagnar 12 ára afmæli sínu í Kaupfélaginu í kvöld. Umsjónarmennirnir, þeir Helgi og Kristján, hafa í gegnum tíðina fengið góða og gegna gesti í afmælin, m.a. Masters At Work, Basement Jaxx, Joe Clausell og sjálfan Timo Maas.
Meira
FRUMSÝNING Draumasmiðjunnar í Borgarleikhúsinu á tveimur einþáttungum hefur verið frestað til föstudagsins 1. nóvember. Einþáttungarnir bera heitið Herpingur, eftir Auði Haralds, og Hinn fullkomni maður, eftir Mikael Torfason.
Meira
GABRÍELA Friðriksdóttir myndlistarmaður heldur einkasýningu á neðri hæð Gerðarsafns sem nefnist Operazione dramatica og verður opnuð í dag kl. 15. Á sýningunni er fjöldi verka en þar má sjá dæmi um þá ólíku miðla sem Gabríela hefur unnið með, þ.e.
Meira
Í HENDUR mér barst bæklingur sem heitir "Vímuefni og meðganga". Þar ber að líta þær óyggjandi sannanir að áfengisdrykkja og vímuefnanotkun sé óæskileg meðan á meðgöngu stendur.
Meira
"Notendum er því ráðlagt að taka ekki lyf og náttúruefni samtímis en láta eina til eina og hálfa klukkustund líða milli lyfjatöku og neyslu náttúruefna."
Meira
Frábær þáttur ÉG vil koma því á framfæri að þátturinn Ísland í bítið sé frábær þáttur. Ég horfði á þáttinn þar sem talað var við Jóhannes í Bónus og fannst þátturinn allt í lagi. Eins vil ég þakka umfjöllun um undirheima Reykjavíkur.
Meira
NÝLEGA las ég á forsíðu dagsblaðs að fjórðungur þjóðarinnar væri mótfallinn komu litaðs fólks hingað til lands. Nú er það svo að ég hef aldrei séð litað fólk.
Meira
ÞAÐ er lykilatriði í framtíðarþróun Reykjavíkur að borgin verði í Evrópusambandinu. Ný störf í nýjum atvinnugreinum, eiga besta möguleika á að verða til í borginni ef hún verður raunverulega á Evrópumarkaðinum.
Meira
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu í Hveragerði og söfnuðu 5.628 kr. til styrktar Rauðakross-söfnuninni "Göngum til góðs". Þær eru Ásdís Erla Þorsteinsdóttir, Brynja Benediktsdóttir, Bylgja Jónsdóttir og Jenný...
Meira
Benadikt Þór Helgason fæddist á Landspítalanum við Hringbraut 12. maí 2000. Hann lést á barnadeild Landspítalans 3. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hafnarfjarðarkirkju 10. október.
MeiraKaupa minningabók
Elías Tómasson fæddist á Uppsölum í Hvolhreppi 14. mars 1922. Hann lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 16. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Tómas Tómasson og Guðrún Jónsdóttir er lengi bjuggu að Uppsölum og eignuðust þrjá syni, Jón Ólaf, f. 24.
MeiraKaupa minningabók
Erlendur Guðmundsson fæddist á Tjörn í Biskupstungum 25. nóvember 1928. Hann lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 18. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðbjörg Þórðardóttir, Halldórssonar bónda á Stóra-Fljóti í Biskupstungum, f. 31. des. 1896, d. 27.
MeiraKaupa minningabók
Guðni Þorleifsson fæddist í Naustahvammi í Norðfirði 4. okt. 1914. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað 10. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Norðfjarðarkirkju 19. október.
MeiraKaupa minningabók
Hafsteinn Hansson fæddist í Hafnarfirði 24. marz 1925. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 15. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmunda R. Guðmundsdóttir, ættuð úr Borgarfirði og Hans Jónsson, frá Bjarnarey í Breiðafirði.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Jóhanna Magnúsdóttir fæddist á Surtsstöðum í Jökulsárhlíð 1. mars 1917. Hún lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar 16. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Helga Jóhannesdóttir, f. 10.12. 1896, d. 11.6. 1951, og Magnús Arngrímsson, f. 21.2.
MeiraKaupa minningabók
Kristinn Gestsson fæddist á Dalvík 21. maí 1934. Hann varð bráðkvaddur í Kópavogi 14. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Kópavogskirkju 25. október.
MeiraKaupa minningabók
Kristján Albertsson fæddist í Súðavík 28. apríl 1944. Hann lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 4. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hafnarfjarðarkirkju 11. október.
MeiraKaupa minningabók
Pálmi Karlsson fæddist í Keflavík 24. maí 1959. Hann lést á Landspítalanum 11. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Grafarvogskirkju 21. október.
MeiraKaupa minningabók
VIÐBRÖGÐ breskra fjölmiðla við kaupum Baugs á 15% hlut í verslunarkeðjunni The Big Food Group (BFG) eru ekki á einn veg. Sumir fréttaskýrendur telja fjárfestinguna geta verið vafasama, en aðrir hafa trú á Baugsmönnum.
Meira
HAGNAÐUR Bakkavör Group á fyrstu 9 mánuðum ársins nam 1.354 milljónum króna fyrir skatta, en 975 milljónum að teknu tilliti til skatta. Er þetta langbesta afkoma í sögu félagsins.
Meira
KAUPÞING hefur í samvinnu við Handelsbanken Securities í Svíþjóð gefið út útboðs- og skráningarlýsingu í tengslum við yfirtökutilboð Kaupþings á sænska bankanum JP Nordiska og fyrirhugaða skráningu Kaupþings í kauphöllinni í Stokkhólmi.
Meira
HAGNAÐUR VÍS eftir skatta fyrstu níu mánuði ársins nam 429 m.kr. Fyrir skatta nam hagnaður af vátryggingarekstri 316 m.kr. og hagnaður af fjármálarekstri 252 m.kr. Heildareignir félagsins 30. september 2002 námu 23.
Meira
LAGT hefur verið fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um nýja heildarlöggjöf um fjármálafyrirtæki þar sem meðal annars er brugðist við nýlegum tilraunum til yfirtöku á Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis.
Meira
ÍMARK útnefndi Þórólf Árnason markaðsmann ársins 2002 í gær og tók hann við verðlaunum úr hendi forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar. Tilkynnt var um valið á hádegisfundi markaðsfólks í Súlnasal en á annað hundrað manns sat fundinn.
Meira
Kjötvinnslufyrirtækið Kjötbankinn átti tvítugsafmæli í september sl. og hefur tekið geysilegum breytingum frá því Guðgeir Einarsson stofnaði fyrirtæki sitt í litlu húsnæði í Kópavoginum árið 1982 ásamt Kristni Jóhannessyni.
Meira
24 pör í Gullsmára Tuttugu og fjögur pör tóku þátt í tvímenningi hjá Bridsdeild FEBK Gullsmára fimmtudaginn 24. október sl. Miðlungur 220. Beztum árangri náðu: NS Heiður Gestsd. og Þórdís Sólmundard. 301 Filip Höskuldss. og Páll Guðmundss.
Meira
Eina leiðin til að koma í veg fyrir kjarnorkustríð var sú að Kennedy og Khrushchev næðu samningum um að taka niður úreltar eldflaugar í Tyrklandi en samkomulagið var háð því að heimurinn frétti ekki af því.
Meira
60 ÁRA afmæli . 24. október sl. varð sextugur Garðar Steinþórsson, sölumaður, Kothúsvegi 10, Garði . Eiginkona Garðars er Ólafía Helga Stígsdóttir. Garðar og Helga taka á móti ættingjum og vinum í dag, laugardaginn 26.
Meira
Ég fékk þig svo ungur á fjarlægri strönd og fyrr en ég kynni að lifa; og á þér var hvarvetna annarra hönd - því óvitar kunna ekki að skrifa. En oft hef ég hugsað um ógæfu þína og alla, sem skrifuðu í bókina mína.
Meira
Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Þegar lokið er 16 umferðum í Haustbarómeter 2002 er röð efstu para þessi: Jón G. Jónsson - Friðjón Margeirss. 112 Stefanía Sigurbjd. - Jóhann Stefánss. 92 Halla Bergþórsd. - Kristjana Steingrd.
Meira
Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 14. okt. var spilað síðasta kvöldið í þriggja kvölda barómeter. Úrslit kvöldsins voru eftirfarandi: Sigurjón Harðarson - Haukur Árnason 76 Hafþór Kristjánsson - Hulda Hjálmarsd.
Meira
Bridgefélag Reykjavíkur Þriðjudaginn 24. október lauk þriggja kvölda Board A Match-sveitakeppni félagsins. 19 sveitir tóku þátt í henni og var spilað í tveimur 10 sveita riðlum hvert kvöld.
Meira
Í ÞRAUT dagsins blasir við að sagnhafi á nægan efnivið til að standa við gerðan samning, en skortir greiðan aðgang að blindum til að nýta hráefnið til fulls.
Meira
BRÚÐKAUP . Gefin voru saman 20. júlí sl. í Fríkirkjunni í Hafnarfirði af sr. Sigríði Kristínu Helgadóttur þau Anna Sigríður Árnadóttir og Jón Þ. Björgvinsson. Heimili þeirra er í Þrastarási...
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 20. júlí sl. í Grafarvogskirkju af sr. Önnu Sigríði Pálsdóttur þau Guðríður Emmý Bang og Sigurður Már Ágústsson . Heimili þeirra er í Grenibyggð 38,...
Meira
Lesendur Morgunblaðsins geta komið spurningum varðandi sálfræði-, félagsleg og vinnutengd málefni til sérfræðinga á vegum persona.is. Senda skal tölvupóst á persona@persona.is og verður svarið jafnframt birt á persona.is.
Meira
Í dag er laugardagur 26. október, 299. dagur ársins 2002. Fyrsti vetrardagur. Orð dagsins: Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Verið glaðir.
Meira
Alltaf man ég það síðan ég missti séneverbrúsann niður af svölunum forðum, að veldur hver á heldur . Það þýðir að sumir klúðra hlutunum, aðrir ekki, og best er að láta þá síðarnefndu sjá um sem flest. Svona verður sönn þekking til.
Meira
KIRKJUDAGUR Fríkirkjunnar í Hafnarfirði er á morgun, sunnudaginn 27. október. Dagskrá sunnudagsins hefst að venju með sunnudagaskóla kl. 11 en þar hefur verið nær full kirkja frá því starfið hófst í byrjun október. Guðsþjónusta verður síðan kl.
Meira
SVOKÖLLUÐ einkanúmer hafa æ meira verið að ryðja sér til rúms í umferðinni síðustu ár og hefur Víkverji haft gaman af að sjá hugmyndaauðgi fólks við val á slíkum númerum.
Meira
Íþróttafólk og fólk í megrun notar oft próteinrík fæðubótarefni í von um að auka vöðvamassa eða til að viðhalda honum. Þessi duft, stykki og drykkir koma oft í stað venjulegra máltíða, en þau eru dýr og virkni þeirra umfram prótein úr mat má draga í efa.
Meira
"ÞESSI leikur hefur verið frábær auglýsing fyrir handboltann," sagði vallarþulur í Haukahúsinu í gærkvöldi að loknum leik Hauka og HK í 1. deild karla. Og þetta voru orð að sönnu. Leikur liðanna bauð upp á allt það sem prýðir góðan handboltaleik, mátulega hörku, glæsileg mörk og leikfléttur, frábæran varnarleik, skemmtilegan sóknarleik og stórbrotna markvörslu. Það var við hæfi að liðin skildu jöfn, 24:24, þótt leikmenn beggja liða hefðu sjálfsagt viljað fá bæði stigin sem í boði voru.
Meira
EYJAMAÐURINN Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem kjörinn var efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins í knattspyrnu þessa árs - af leikmönnum efstu deildar, mun halda til Belgíu í næsta mánuði þar sem hann verður til reynslu hjá belgíska liðinu Moeskroen.
Meira
FRAMHERJI enska landsliðsins og Liverpool, Emile Heskey, hefur ákveðið að styrkja gamla liðið sitt Leicester City en eins og kunnugt er hafa forráðamenn 1. deildarliðsins farið fram á greiðslustöðvun. Heskey hefur alltaf haft sterkar taugar til Leicester, en lengi vel vildi hann ekki fara frá félögum sínum á Filbert Street.
Meira
Hvert ætlar þú, góði? Þorvaldur Þorvaldsson, KA-maður, reynir að stöðva Hörð Sigþórsson, línumann Þórs, í leik liðanna í gærkvöld. Hörður skoraði tvö mörk í leiknum og Þórsarar fögnuðu sigri í KA-heimilinu, 21:20. Sjá nánar um leiki kvöldsins á B2,...
Meira
GÓÐ barátta skilaði ÍR-ingum sigri á KR í Breiðholtinu í gærkvöldi í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, 89:81. Gestirnir voru fullrólegir í tíðinni og vöknuðu við vondan draum í lokin þegar Breiðhyltingarnir voru komnir með naumt en samt nægilegt forskot, sem þeir héldu af hörku. Önnur lið geta lært af þessu að það gengur ekki að spila með hálfum huga í Breiðholtinu.
Meira
* KEFLVÍKINGAR hafa fengið liðsstyrk í körfuknattleik kvenna. Sonia Ortega er komin til landsins á ný. Hún lék með Keflvíkingum í undanúrslitunum í fyrra og gerði þá 15 stig að meðaltali í leik, tók 6 fráköst, stal 3,5 boltum og gaf 7 stoðsendingar.
Meira
HAUKUR Ingi Guðnason, landsliðsmaður í knattspyrnu frá Keflavík, var í byrjun vikunnar til reynslu hjá austurríska úrvalsdeildarliðinu Kärnten og sagði Haukur í gær að áhugi væri hjá báðum aðilum á að setjast niður og ræða um undirritun samnings.
Meira
LANDSLIÐSMAÐUR kólumbíska landsliðsins í knattspyrnu, Hernan Gaviria, lést á æfingasvæði Deportivo Cali í heimalandi sínu á laugardag eftir að eldingu laust niður á æfingasvæðið og í Gaviria.
Meira
ÍSLENSKIR fimleikadrengir verða í eldlínunni í Íþróttamiðstöð Bjarkanna í Hafnarfirði um helgina er landslið Íslands skipað 13-16 ára drengjum tekur þátt í Norðurlandameistaramótinu.
Meira
HANDKNATTLEIKSSAMBAND Íslands, HSÍ, hefur ákveðið að afturkalla leikheimild Robertas Pauzuolis með Haukum. Ákvörðun þessi er tekin í framhaldi af niðurstöðu áfrýjunardómstóls HSÍ frá því á miðvikudaginn en hann ómerkti dóm dómstóls HSÍ frá 7. október um að HSÍ bæri að veita Pauzuolis leikheimild með Haukum.
Meira
* RANNVER Sigurjónsson skoraði mark 19 ára landsliðs pilta, sem mátti sætta sig við tap fyrir Skotum í gær í Evrópukeppninni í Slóveníu, 2:1. Rannver skoraði markið á fjórðu mín., Skotar jöfnuðu úr vítaspyrnu rétt fyrir leikhlé og tryggðu sér sigur á 87.
Meira
Forráðamönnum ítalska knattspyrnuliðsins Róma hefur verið settur stóllinn fyrir dyrnar af Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA, en nefnd á vegum FIFA hefur úrskurðað að ítalska liðið fái ekki að kaupa fleiri leikmenn á næstunni þar sem liðið á enn eftir...
Meira
Sigurganga Valsmanna hélt áfram í gærkvöldi þegar þeir lögðu Stjörnuna úr Garðabæ að velli að Hlíðarenda með tíu marka mun, 32:22. Leikurinn var nokkuð jafn framan af, liðin skiptust á að skora og allt stefndi í spennandi leik.
Meira
ÞÓRSARAR gáfu flestum langt nef í gærkvöldi er þeir lögðu KA-menn í hörkuspennandi nágrannaslag. Var þetta fyrsti sigur þeirra á KA í ellefu ár, 21:20, og skutust Þórsarar upp fyrir KA og er greinilegt að þeir ætla ekkert að gefa eftir í toppslagnum.
Meira
ÍSLENSKA karlalandsliðinu í golfi gekk ekki vel á heimsmeistaramóti áhugamanna í golfi í gær, en þá var leikinn annar af fjórum hringjum í mótinu. Íslenska sveitin lék á 11 höggum yfir pari í gær og er dottin niður í 35.-37. sæti af 63 þjóðum, en var í 18.-27. sæti í gær.
Meira
SKOÐANAKÖNNUN DV nú í vikunni varpaði ljósi á þá dapurlegu staðreynd að tæplega þriðjungur Íslendinga er andvígur varanlegri búsetu fólks af öðrum litarhætti á Íslandi.
Meira
Hvernig öðlast maður einkaleyfi á hugmyndum, er til fleirtala af bókstafnum A, hve mörg handrit af Eglu eru í gagnagrunni Sagnanets, hvaðan kemur munnvatnið, hver er uppruni og bygging pólsku og hvað er þungt vatn og til hvers er það notað? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum hefur verið svarað að undanförnu á Vísindavefnum.
Meira
HVER ráðstefnan rekur nú aðra þar sem alþjóðavæðingu ber á góma með ýmsum hætti. Fyrir um það bil hálfum mánuði var hér á ferð fræðikonan Rosi Braidotti sem heillaði troðfullan hátíðarsal Háskóla Íslands með fljúgandi mælsku sinni.
Meira
Myndlistarmaðurinn Magnús Pálsson á langan feril að baki í listum og er frumkvöðull á sviði þeirra þverfaglegu hugsunar sem nú á svo mjög upp á pallborðið á öllum sviðum þjóðlífsins. Hann hefur ekki viljað skipa listinni í ákveðinn bás og verk hans ganga í ber- högg við bæði listhefð og smekk. FRÍÐA BJÖRK INGVARSDÓTTIR náði tali af Magnúsi áður en hann hélt af landi brott eftir opnun sýningarinnar Flökt- Ambulatory-Wandelgang í Nýlistasafninu.
Meira
Sýningin Sjá - myndalýsing er önnur af tveimur myndlistarsýningum sem opnaðar verða í Listasafni Kópavogs - Gerðarsafni í dag. HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR leit inn og spjallaði við myndlistarmennina sem sýna ljósmyndir í ólíku samhengi.
Meira
Þú ert ekki ein eins og í skuggsjá utan hringsins að hurðabaki eða í svefnrofunum bregður henni fyrir hinni konunni sem er líka þú sem á líf sitt undir þér og þínum...
Meira
Bandaríska ljóðskáldið Amiri Baraka hefur fengið það óþvegið fyrir harkalegt ádeiluljóð um 11. september. ÁRNI MATTHÍASSON segir frá skáldinu og ljóðinu umdeilda sem er birt að hluta hér á síðunni.
Meira
Pólski félagsfræðingurinn Zygmunt Bauman var þátttakandi á ráðstefnu Háskóla Íslands um hnattvæðingu síðustu helgi. ÞRÖSTUR HELGASON ræddi við Bauman um hnattvæðingu, hinn ókunna í samfélagi samtímans, helförina sem tilraunastofu, hlutverk menntamanna og póstmódernisma. Einnig ræddi hann við Janínu, eiginkonu Baumans, sem ritað hefur bók um reynslu sína af helförinni.
Meira
I Undanfarið hefur rekið á fjörur okkar nokkra áhugaverða fræðimenn frá útlöndum. Við einn þeirra, Zygmunt Bauman, er rætt í Lesbók í dag en hann var einn af fyrirlesurum á hnattvæðingarráðstefnu Háskóla Íslands um síðustu helgi.
Meira
NÝJASTA bók suður-ameríska rithöfundarins Isabel Allende kemur út í enskri þýðingu um þessar mundir. Bókin heitir á frummálinu La Ciudad de las Bestias og ber enska titilinn City of the Beasts (Borg skepnanna).
Meira
MYNDLIST Galleri@hlemmur.is: Erla S. Haraldsdóttir. Til 10. nóv. Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Bjarni Sigurðsson. Marisa Navarro Arason. Til 3. nóv. Gallerí Skuggi: Tengi (All about ties), samsýning. Til 10. nóv. Gallerí Sævars Karls: Ari Svavarsson.
Meira
Þar sem fiskur er horfinn úr fjörðum heyri ég umferðarhljóð. Ég leita í sjóð hinna sífelldu stranda af hverju ætti ég svo sem að leita til annarra landa? Í hlíðinni heygður er kofinn hvar áar í árdaga gengu.
Meira
Kaupmannahöfn fékk viðurnefnið París norðursins á árum fyrri heimsstyrjaldarinnar, þá norrænir listamenn áttu þess ekki kost að halda lengra suður á bóginn. Spurningin er hvort borgin hafi ekki verðskuldað viðurnefnið allar götur síðan. Hvað sem öðru líður hafði BRAGI ÁSGEIRSSON það á tilfinningunni er hann heimsótti borgina á dögunum.
Meira
Í þessari grein er skyggnst á bak við veruleika raunveruleikasjónvarpsins og bent á að þar sé ekki allt sem sýnist. Þetta sjónvarpsefni snúist ekki um að sýna veruleikann eins og hann er í raun og veru frekar en annað sjónvarpsefni. Þetta er fyrsta grein af nokkrum sem birtast munu næstu mánuði og fjalla um ýmsa kima íslenskrar menningar sem ekki hefur verið fjallað mikið um.
Meira
*Sjá síðasta hluta Iceland's Difference (Sérkenna Íslands), Lesbók 19. október, 2002. Þetta er tuttugasti og annar hluti flokks sem í heild ber heitið Iceland's Difference (Sérkenni Íslands).
Meira
Þegar sólin hnígur - er mér sagt - Verð ég að skera úr mér slagæðina Klukkan er bara tólf á hádegi Ég á marga klukkutíma ólifaða Ætti ég að skrifa Lúkullusi? Mig langar ekki til þess lengur Fara á sviðið?
Meira
Ýmsum sveitir riddara, fylki' á fæti, flotar skipa sýnast á dökkri jörðu fegurst alls. En ég segi þetta: það er það sem hver elskar. Þessa hluti má gera lýðum ljósa léttilega.
Meira
SAMFYLKINGIN er eini flokkurinn þar sem líklegt er að ungt fólk fái brautargengi í komandi kosningum. Það ræðst af því hvernig við kjósum í prófkjörunum sem framundan eru. Björgvin G.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.