MEÐ kaupum Útgerðarfélags Akureyringa hf. á breska útgerðarfyrirtækinu Boyd Line Management Services Ltd. hafa íslensk útgerðarfyrirtæki eignast 60% af þorskveiðiheimildum Breta í Barentshafi, alls um 5.600 tonn.
Meira
BJÖRGUNARMENN grófu í gær síðustu líkin úr rústum barnaskóla sem hrundi í jarðskjálfta í bænum San Giuliano di Puglia á Suður-Ítalíu í fyrradag. Staðfest var að 29 manns fórust í skjálftanum, þeirra á meðal heill bekkur sex ára barna.
Meira
FYRIR um þremur árum átti Raufarhafnarhreppur um 220 milljónir en um nýliðin mánaðamót lá við að hreppurinn gæti ekki greitt laun. Í maí 1999 seldi Raufarhafnarhreppur hlut sinn í Jökli á Raufarhöfn og var söluverðið um 580 milljónir króna. Um 300 millj.
Meira
Alls var 35 manns bjargað úr rústunum. Á meðal þeirra var kennslukonan Clementina Simone, sem sagðist hafa verið að fræða bekkinn sinn um jarðskjálftana í grennd við Etnu á Sikiley fyrr í vikunni þegar skjálftinn reið yfir.
Meira
SJEIK, setla og senuþjófur eru dæmi um orð í nýrri Íslenskri orðabók í ritstjórn Marðar Árnasonar. 1.637 eintök höfðu selst í forsölu á útgáfudegi bókarinnar í gær.
Meira
FJÖRUTÍU og níu manns fórust og um 40 slösuðust þegar eldur kom upp í fangelsi í Marokkó í gær. Varð reykeitrun flestum að bana. Eldurinn kom upp í einni álmu yfirfulls fangelsis í borginni El Jadida og lagði reykinn frá honum strax um alla bygginguna.
Meira
ÞEIR sem sóttu trúnaðarmannaráðstefnu Rafiðnaðarsambands Íslands, RSÍ, í síðustu viku skora á ríkisstjórnina að efna sinn hluta samkomulags sem gert var við aðila vinnumarkaðarins um aðgerðir til að koma í veg fyrir að þensla í efnahagslífinu færi úr...
Meira
ÞAÐ var ekki augljóst hver var að passa hvern fyrir utan kaupfélagsbúðina á Egilsstöðum. Á meðan mamman var inni að versla skemmtu þau sér í góða veðrinu; fjögurra vetra hundurinn Boss, Heiðdís sex ára, Sara níu ára og Halla litla, sem er bara eins...
Meira
NÝLIÐIN þingvika var róleg eins og síðustu vikur, a.m.k. í þingsalnum. Þingmenn voru margir hverjir "fjarri góðu gamni", ef svo má segja, þar sem þeir tóku þátt í Norðurlandaráðsþingi í Helsinki í byrjun vikunnar.
Meira
BANGSADAGURINN var haldinn hátíðlegur á bókasafninu í Hveragerði mánudaginn 28. október sl. Á hátíðina komu krakkar bæjarins með bangsana sína í heimsókn.
Meira
TÉTSENSKI stríðsherrann Shamil Basajev lýsti sig í gær ábyrgan fyrir gíslatökunni í Moskvu í síðustu viku og sagði að Aslan Maskhadov, leiðtogi aðskilnaðarsinna í Tétsníu, hefði ekki átt aðild að aðgerðinni.
Meira
Basar Húsmæðrafélags Reykjavíkur Húsmæðrafélag Reykjavíkur heldur basar á Hallveigarstöðum við Túngötu sunnudaginn 3. nóvember kl. 14. Á boðstólum verður jólaföndur og handavinna, t.d. sokkar, vettlingar, heklaðir dúkar, prjónuð leikföng o.fl.
Meira
GEORGE W. Bush, forseti Bandaríkjanna, er um þessar mundir á ferðalagi um 16 ríki Bandaríkjanna til að styðja við bakið á frambjóðendum Repúblikanaflokksins í kosningunum á þriðjudag.
Meira
NORRÆN samvinna verður þema norrænu bókasafnsvikunnar sem haldin verður 4. til 10. nóvember næstkomandi. Er viðfangsefnið valið til að minnast 50 ára afmælis Norðurlandaráðs. Þá verða bókmenntaverðlaun ráðsins veitt í fertugasta sinn.
Meira
DELTA hf., dótturfélag Pharmaco hf., hefur gert samstarfssamning við lyfjafyrirtækið Purepac Pharmaceutical Co., dótturfélag Alpharma Inc. í Bandaríkjunum, um þróun samheitalyfja fyrir Bandaríkjamarkað.
Meira
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í kærumáli Þróunarfélags miðborgarinnar gegn Markaðstorgi ehf. þess efnis að bera kærða út með beinni aðfarargerð úr húsnæði á 1.
Meira
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa hf. gekk í gær frá kaupum á öllum hlutabréfum í breska útgerðarfyrirtækinu Boyd Line Management Services Ltd. Kaupverðið er 7 milljónir punda eða um 950 milljónir króna.
Meira
ÓLAFUR Halldórsson fiskifræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri norska þorskeldisfyrirtækisins Troms Marin Yngel. Hann heldur utan eftir helgi til að taka við starfinu.
Meira
FJÓRTÁN íbúar Eyrarbakka og Stokkseyrar nýttu sér tilboð Krónunnar síðastliðinn fimmtudag um rútuferð frá þorpunum við ströndina, á Selfoss til að versla í Krónunni.
Meira
Fleiri lögaðilar Borist hefur leiðrétting frá Skattstofu Reykjanesumdæmis vegna fjölda lögaðila í umdæminu. Þeir eru 4.315 en ekki 3.645 eins og fram kom í frétt blaðsins í...
Meira
STJÓRN Höfuðborgarsamtakanna hefur farið fram á það við Flugmálastjórn að hún geri opinberlega grein fyrir kostnaði við byggingu flugvallar í Vatnsmýri á árunum 1999 - 2002. Þá er óskað eftir skýringum á því hvers vegna byggingu NA-brautar var flýtt.
Meira
KIM Hong-Up, einn sona Kim Dae-Jungs, forseta Suður-Kóreu, var dæmdur í gær í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir spillingu. Var hann fundinn sekur um að hafa þegið stórfé í mútur og um skattsvik.
Meira
FÓLKSBÍLL fór út af Landvegi, á milli Hótels Hrauneyja og Hrauneyjavirkjunar, um miðjan dag í gær. Valt hann og lenti á toppnum. Ökumaðurinn náði að komast út úr bílnum af sjálfsdáðum og hringdi í Neyðarlínuna.
Meira
FRAMKVÆMDASTJÓRN flokksvals Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi hefur ákveðið að fram-lengja frest til að skila póstatkvæðum í kjöri félagsmanna í tvö efstu sætin á lista flokksins í kjördæminu fyrir alþingiskosningarnar næsta vor um tvo daga.
Meira
BANDARÍSKA listflugskonan Patty Wagstaff er stödd á Íslandi í boði Flugmálafélags Íslands og verður einn af þremur erlendum heiðursgestum á hátíðarfagnaði félagsins sem fram fer á Grand Hótel í kvöld.
Meira
FYLGI þriggja stærstu stjórnmálaflokkanna er nánast það sama nú og í síðustu Alþingiskosningum ef marka má niðurstöður símakönnunar Þjóðarpúls Gallups sem gerð var dagana 26. september til 29. október sl.
Meira
Álfheiður Steinþórsdóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði, stundaði sitt framhaldsnám og lauk sínu embættisprófi í Svíþjóð. Hún bætti við menntun sína í Bretlandi. Frá árinu 1975 vann hún um tíma við Landspítalann og fyrir Reykjavíkurborg, en árið 1983 stofnaði hún Sálfræðistöðina ásamt Guðfinnu Eydal og hefur verið þar æ síðan. Eiginmaður Álfheiðar er Vilhjálmur Rafnsson, prófessor í heilbrigðisfræði. Álfheiði fæddust tveir synir og er annar á lífi. Hún á einnig þrjú stjúpbörn.
Meira
MAGNÚS Þorsteinsson hefur ásamt hópi fjárfesta keypt um 50% hlut í Flugfélaginu Atlanta. Hefur hópurinn keypt hlut Búnaðarbanka Íslands, sem var 22,73%, auk þess sem hann leggur viðbótarhlutafé í fyrirtækið.
Meira
ÍSLENSKU stúlkurnar sigruðu lið Makedóníu, 2-1, í sjöundu umferð Ólympíumótsins í skák í Slóveníu í gær. Harpa Ingólfsdóttir og Guðfríður Lilja Grétardsóttir lögðu báðar stigahærri andstæðinga. Karlaliðið gerði hins vegar jafntefli, 2-2, við Portúgala.
Meira
GRÉTAR Þorsteinsson var endurkjörinn forseti Alþýðusambands Íslands á ársfundi sambandsins í gær. Kjörnefnd gerði tillögu um Grétar og þar sem engin mótframboð komu fram var Grétar sjálfkjörinn í embætti til næstu tveggja ára.
Meira
Hátíð í tilefni 50 ára afmælis Holtaskóla í Keflavík verður haldin í Íþróttahúsinu við Sunnubraut í dag klukkan 14. Að henni lokinni verður boðið upp á veitingar í sal skólans.
Meira
HRINA beinbrota fylgdi mikilli hálku sem myndaðist á götum og gangstéttum í höfuðborginni í gærmorgun. Á annan tug manna á öllum aldri leitaði til slysadeildar Landspítalans eftir að hafa dottið í hálkunni og beinbrotnað.
Meira
BORGARANEFND Norðurlandaráðs leggur til að innflytjendur verði gerðir sýnilegri í norrænum fjölmiðlum, þar sem barátta gegn kynþáttahatri og útlendingaandúð fari einnig fram á þeim vettvangi.
Meira
Starfsmenn Íbúðalánasjóðs hafa fundið a.m.k. 6-8 fasteignaveðbréf sem ekki eru framseld með réttum hætti, samkvæmt upplýsingum Rúnars Pálmasonar. Í öðrum tilvikum hélt fasteignasalinn eftir ávísunum og reiðufé sem viðskiptavinir, í sumum tilvikum eldra fólk, höfðu treyst honum fyrir.
Meira
Í ÞJÓÐTRÚNNI segir að ef tröll séu úti undir beru lofti þegar sól kemur upp að morgni verði þau að steini. Ekki er vitað hvað langt er síðan þessi tröllkarl á myndinni varð að steini eða hvað hann var að gera þegar það gerðist.
Meira
THORVALDSENSFÉLAGIÐ hefur á undanförnum árum gefið út jólakort til styrktar sjúkum börnum, en félagið hefur starfað að líknarmálum barna vel á aðra öld. Jólakortið í ár er teiknað af Sigríði Bragadóttur, grafískum hönnuði. Myndin heitir Jólaævintýri.
Meira
KAUPFÉLAG Eyfirðinga - samvinnufélag hefur ákveðið að styrkja starfsemi Háskólans á Akureyri, en í yfirlýsingu sem Benedikt Sigurðarson, formaður KEA, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, undirrituðu kemur fram að félagið muni kosta...
Meira
"BRANDARAR eiga ekki upp á pallborðið í samskiptum læknis og sjúklings," segir norski skurðlæknirinn Sten Tyrdal sem flutti erindi á námskeiðinu Húmor og heilsa hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands í gær.
Meira
Fyrir þremur árum var Raufarhafnarhreppur eitt af ríkari sveitarfélögum landsins. Í dag á hreppurinn í erfiðleikum með að greiða starfsmönnum sínum laun. Egill Ólafsson rekur hvað gerðist í fjármálum hreppsins.
Meira
Kosningaskrifstofa Guðlaugs Þórs opnuð Stuðningsmenn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar opna kosningaskrifstofu, sunnudaginn 3. nóvember kl. 16 í Vegmúla 2. Helgi Björnsson tónlistarmaður mun taka nokkur lög og hljómsveitin XD leikur fyrir gesti.
Meira
Kvenfélagið Baldursbrá heldur bingó í dag, laugardaginn 2. nóvember, í safnaðarsal Glerárkirkju og hefst það kl. 15. Margt góðra vinninga er í boði, s.s. rafmagnstæki, matvörur og margt fleira.
Meira
Morgunblaðið tekur stakkaskiptum í dag. Meðal annars verður forsíða blaðsins landamæralaus á ný; með bæði innlendum og erlendum fréttum. Freysteinn Jóhannsson fletti forsíðum Morgunblaðsins.
Meira
ÍKVEIKJAN á Laugaveginum sætir enn rannsókn lögreglunnar í Reykjavík og hefur ekki verið leitt í ljós hver var þar að verki. Þrjárverslanir og íbúðir eyðilögðust í eldinum en bjarga tókst nærliggjandi húsum, þar á meðal tveimur verslunum.
Meira
Lionshátíð á Eir Lionshátíð verður á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi laugardaginn 2. nóvember kl. 13.30. Þar munu Karlakórinn Fóstbræður og Krakkakór Grafarvogskirkju syngja.
Meira
BJÖRGUNARMENN héldu í gær áfram að grafa í rústum barnaskóla er hrundi í jarðskjálfta á Suður-Ítalíu, en haft var eftir þeim að þeir teldu enga von um að finna fleiri á lífi í rústunum í bænum San Giuliano di Puglia.
Meira
"SEM betur fer er búið að vera mjög rólegt í dag," sagði Sigrún Ólafsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri heilsugæslu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, um miðjan dag í gær.
Meira
OPNUÐ hefur verið í Minjasafninu á Akureyri sýning á ljósmyndum sænska ljósmyndarans Hans Malmberg sem hann tók um miðbik síðustu aldar. Á sýningunni eru myndir frá Íslandi, flestar af alþýðufólki við leik og dagleg störf í sveitum og bæjum landsins.
Meira
HÆTTA er á, að næstum helmingur allra plöntutegunda verði aldauða en hingað til hefur verið talið, að það ætti aðeins við um áttundu hverja tegund.
Meira
"NEI, ég átti nú ekki von á þessu, þetta kom mér verulega á óvart," sagði Manúela Ósk Harðardóttir, sem náði öðru sæti í keppninni um Ungfrú Norðurlönd, sem fram fór rétt fyrir utan Helsinki í Finnlandi í gær.
Meira
ÞESS var minnst í vikunni, að 50 ár eru liðin frá því að Norðurlandaráð var stofnað. Danir, Íslendingar, Norðmenn og Svíar stóðu að ráðinu í upphafi en árið 1955 bættust Finnar í hópinn.
Meira
BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur ákveðið að auglýsa til úthlutunar lóðir í seinni áfanga norðursvæðis Vatnsenda en mikil eftirspurn var eftir lóðum í fyrri áfanganum. Úthlutun þeirra lóða var ákveðin á fundi ráðsins á fimmtudag.
Meira
"ÞAÐ er gott að búa á Eyrarbakka og Stokkseyri og gott að alast upp á svona stað. Hér þekkja allir alla og þetta er gott samfélag," sagði Ása Magnea Sigfúsdóttir, nemandi í 10.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur staðfestir í öllum meginatriðum úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá því í fyrrasumar um ólögmætt samráð fyrirtækjanna Mötu, Banana og Sölufélags garðyrkjumanna en lækkar heildarsekt á fyrirtækin um tíu milljónir eða í 37...
Meira
BÆJARSTJÓRARNIR í Reykjanesbæ og Grindavík harma þá stöðu sem komin er upp á Suðurnesjum að íbúarnir njóti ekki lengur þjónustu heimilislækna á heilsugæslustöðvunum á svæðinu og taka undir að það geti skapað öryggisleysi.
Meira
SIGURBJÖRG Þrastardóttir hlýtur bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár, fyrir handrit að skáldsögunni Sólar sögu. Borgarstjóri afhenti Sigurbjörgu verðlaunin við athöfn í Höfða í gær.
Meira
FYRST prófaði hún "Linda" en hætti við vegna þess, að yfirmaður hennar heitir því nafni. Síðan velti hún fyrir sér "Vivienne" eins og Julia Roberts hét í "Pretty Woman" en gaf það líka upp á bátinn.
Meira
Þegar gengið er inn í Klébergsskóla í dag blasir við önnur sjón en í skólabyrjun þegar allt var á tjá og tundri vegna framkvæmda við skólann. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir kíkti í heimsókn og komst að því að skólabyggingin mun einnig þjóna íbúum Kjalarness sem eins konar félagsheimili.
Meira
REFAVEIÐAR breskra aðalsmanna og óðalseigenda hófust í gær og notuðu þeir þá tækifærið til að hóta stjórnvöldum miklum mótmælum og annarri borgaralegri óhlýðni ef þau reyndu að banna íþróttina.
Meira
ARNGRÍMUR Jóhannsson og Þóra Guðmundsdóttir stofnuðu Flugfélagið Atlanta árið 1986. Aðalstöðvar þess eru í Mosfellsbæ. Félagið rekur breiðþotur til farþega- og fraktflugs sem leigðar eru öðrum flugfélögum.
Meira
SALA á lambakjöti í septembermánuði var svipuð og í september í fyrra eða um 613 tonn. Þetta er mun betri sala en í ágúst en þá seldust einungis 385 tonn af lambakjöti.
Meira
GRÉTAR Þorsteinsson, forseti ASÍ og Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, undirrituðu í gær samstarfssamning um aðstoð við þróunarlöndin.
Meira
Falcon Scott, verkfræðingur og sonur hins þekkta Sir Peter Scott náttúrufræðings og listmálara, er kominn hingað til lands ásamt konu sinni, Jane. Þau eru í boði Áhugahóps um verndun Þjórsárvera og ætla að kynna sér áform um stíflugerð í nágrenni...
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur hafnað kröfum grænmetisfyrirtækjanna Ágætis, Mötu og Sölufélags garðyrkjumanna um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá því júní í fyrra um ólögmætt samráð fyrirtækjanna verði felldur úr gildi í heild sinni.
Meira
TILKYNNT hafa verið úrslit í fyrri hluta Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema 2002-2003, sem fram fór þriðjudaginn 15. október. Var um tuttugu efstu nemendum í hvorum aldursflokki boðið af því tilefni upp á kaffi og kökur í Skólabæ. Lárus H.
Meira
ÞAÐ KEMUR kannski ekki fram á jarðskjálftamælum, en mikið gengur á í Íþróttahúsi HK í Kópavogi um helgina, þar sem fram fer tölvuleikjakeppnin Skjálfti.
Meira
Skólaþróunarsvið kennaradeildar Háskólans á Akureyri stendur fyrir fræðslufundum og fyrirlestrum í vetur um ýmsa þætti er varða skólastarf. Fyrsti fundurinn verður á þriðjudag, 5. nóvember, í stofu 25 í Þingvallastræti og hefst kl. 16.15.
Meira
NÝTT kjúklingasláturhús hjá Reykjagarði á Hellu var opnað með viðhöfn í gær. Er öll vinnsla fyrirtækisins nú komin þangað. Landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, klippti á borða og gangsetti búnaðinn að viðstöddum gestum. Jónatan S.
Meira
LÖGREGLAN á Egilsstöðum stóð í gær tvo menn að ólöglegum rjúpnaveiðum á Jökuldalsheiði. Höfðu mennirnir notað vélsleða við veiðarnar auk þess sem hvorugur mannanna gat framvísað veiðikorti í gildi.
Meira
YFIR 100 laxar, margt boltafiskar, hafa í haust haft dvalarstað hjá Norðurlaxi en þeir eru notaðir í ræktunarstarfið og koma til með að gefa af sér mikinn fjölda seiða.
Meira
STÓR hópur fólks á Íslandi, heyrnarskertir og heyrnarlausir, nýtir sér ekki talað mál í sjónvarpinu eða íslenskum kvikmyndum og lætur nærri að rúmlega einn af hverjum tíu Íslendingum fylli þann hóp, að mati Málfríðar Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra...
Meira
TORKENNILEGUR kassi fannst á gólfi flugskýlis á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli um tvöleytið í gær. Samkvæmt varúðarreglum var svæðið rýmt og kallað á sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar auk lögreglu og slökkviliðs á Keflavíkurflugvelli.
Meira
ÁRSFUNDUR Alþýðusambands Íslands samþykkti í gær sérstaka yfirlýsingu um áherslur og helstu verkefni ASÍ í velferðarmálum þar sem m.a. eru lagðar til breytingar á heilbrigðiskerfinu.
Meira
Á ALÞINGI var samþykkt 10. mars 1999 þingsályktunartillaga þar sem umhverfisráðherra var falið að kanna stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum hinn 26.
Meira
Á FUNDI fulltrúa sveitarfélaga á norðursvæði Austurlands var ákveðið að vinna sameiginlega að ýmsum málum er snerta m.a. skóla- og félagaþjónustu. Markmiðið með því er að unnt verði að sameina öll þessi sveitarfélög í framtíðinni.
Meira
STARFSFÓLK á saumastofu Yves Saint Laurent, eins þekktasta hátískuhússins í Frakklandi, mætti til vinnu sinnar á Avenue Marceau númer 5 í París í síðasta sinn í fyrradag en þá var tískuhúsinu lokað eftir 40 ára starfsemi.
Meira
VEITINGAHÚSIÐ Vitinn og Sandgerðisbær bjóða eldri borgurum í Sandgerði að þiggja kaffiveitingar og njóta skemmtunar á milli klukkan 13.45 og 16 næstkomandi mánudag, 4. nóvember.
Meira
HAUSTVINDARNIR í íslenskum stjórnmálum blása ekki með aðild Íslands að ESB. Það gefur fátt tilefni til að ætla að kosið verði um aðild eða aðildarviðræður í vor.
Meira
HÓFSÖMUM íslömskum flokki, sem spáð er langmestu fylgi í þingkosningunum sem fram fara í Tyrklandi á morgun, var í gær veittur gálgafrestur er stjórnlagadómstóll landsins frestaði því fram yfir kosningarnar að úrskurða hvort fallast skyldi á kröfu...
Meira
12.000 tonna kvóti Með kaupum ÚA á brezku útgerðarfyrirtæki hafa íslenzk fyrirtæki eignazt um 60% þorskveiðiheimilda Breta í Barentshafi. Samtals ráða íslenzk fyrirtæki nú um 12.000 tonna kvóta í Barentshafi og er verðmæti aflans á þriðja milljarð króna.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Félagi íslenskra heimilslækna "vegna furðulegs fréttaflutnings heilbrigðisráðuneytisins í Útvarpinu": "Það vekur furðu Félags íslenskra heimilislækna (FÍH) að sama daginn og...
Meira
VALGERÐUR Sverrisdóttir viðskiptaráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um fjármálafyrirtæki. Verði frumvarpið að lögum koma þau í stað nokkurra eldri laga á þessu sviði. Samkvæmt frumvarpinu mun Fjármálaeftirlitið m.a.
Meira
Önnur umferð í fyrsta hluta spurningakeppni Kvenfélagsins Baldursbrár verður í safnaðarheimili Glerárkirkju annað kvöld, sunnudagskvöldið 3. nóvember, kl. 20.30.
Meira
HRAFNHILDUR Óskarsdóttir, sex ára fimleikastúlka, varð, ásamt nokkrum öðrum stúlkum, fyrir þeirri reynslu á fimleikaæfingu 8. október í Íþróttahúsinu á Selfossi að handboltamark féll ofan á hópinn. Stúlkurnar höfðu verið að klifra í neti marksins.
Meira
JÓHANNA Sigurðardóttir fjallar um aukin gjaldþrot fyrirtækja í þjóðfélaginu og á hvern hátt þurfti að koma í veg fyrir misnotkun ábyrgðarsjóðs launa.
Meira
Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenzkra útvegsmanna, nefndi athyglisverðar tölur um hagræðingu í útgerð í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna í fyrradag.
Meira
Lesendur Morgunblaðsins munu taka eftir nokkrum breytingum á blaðinu í dag, á 89. afmælisdegi þess. Veigamesta breytingin er á forsíðu blaðsins, sem héðan í frá verður blönduð fréttasíða með bæði innlendum og erlendum fréttum.
Meira
UMBOÐSMAÐUR JK Rowling, höfundar Harry Potter-bókanna, segir að höfundurinn hafi ekki hug á að því að skrifa áttundu bókina um galdrastrákinn Harry þrátt fyrir að bandaríska kvikmyndaverið Warner Bros hafi, einhverra hluta vegna, tryggt sér einkarétt á...
Meira
Flugvöllurinn í Minneapolis í Bandaríkjunum er ein helsta tenging gesta á leið til Íslendingabyggða í Vesturheimi. Jessica Ginger, stöðvarstjóri Flugleiða í Minneapolis, er allt í öllu hjá félaginu á flugvellinum og fékk Steinþór Guðbjartsson ýmislegt að heyra hjá henni á vellinum.
Meira
ÞRIÐJU vikuna í röð situr Bubbi Morthens á toppi Tónlistans með nýju plötuna sína, Sól að morgni . Þetta minnir meira en lítið á gamla tíma er Bubbi réð lögum og lofum í plötusölu á Íslandi og átti hverja metsöluplötuna á fætur annarri, jól eftir jól.
Meira
UNDIRBÚNINGUR fyrir Edduverðlaunahátíðina stendur nú sem hæst en verðlaunin verða afhent í fjórða sinn með viðhöfn í Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 10. nóvember. Þórey Vilhjálmsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Edduverðlaunanna í maí síðastliðnum.
Meira
AÐALFUNDUR Þjóðræknisfélags Íslendinga verður haldinn laugardaginn 9. nóvember næstkomandi og að honum loknum verður Þjóðræknisþing með fjölbreyttri dagskrá, en þingið er öllum opið.
Meira
UM 100 manns tóku þátt í árlegri athöfn við klettinn á Willow Point 21. október síðastliðinn til að minnast landnáms Íslendinga við Winnipegvatn í Kanada sama dag fyrir 127 árum.
Meira
Þriðja plata Lands og sona, Happy Endings, er loksins komin út. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við þá Hreim Heimisson og Birgi Nielsen um erfiða en um leið ánægjulega vinnu við þennan grip.
Meira
Höfundur Herpings: Auður Haralds. Leikstjóri: Gunnar Gunnsteinsson. Leikari: Margrét Pétursdóttir. Höfundur Hins fullkomna manns: Mikael Torfason. Leikstjóri: Hilmir Snær Guðnason. Leikari: Gunnar Gunnsteinsson. Söngur, hljóðfæraleikur og lagaval: Andrea Gylfadóttir. Leikmynd og búningar: María Ólafsdóttir. Ljósahönnun: Alfreð Sturla Böðvarsson. Aðstoðarleikstjóri og dramatúrg: Hrafnhildur Hafberg. Föstudagur 1. nóvember.
Meira
Góðgerðarfélagið Stoð og styrkur hefur gefið út ritsafnið Á lífsins leið frá 1998 og nú er komið út 5. bindi ritsafnsins og verður útgáfu þess fagnað í Kringlunni, á 1. hæð, kl. 13-16.
Meira
HAFNFIRSKU rokkararnir í Jet Black Joe lúra undir Bubba kóng með nýja tvöfalda safnplötu sem nefnist hinu sívinsæla safnplötunafni Greatest Hits .
Meira
1.637 eintök af nýrri Íslenskri orðabók í ritstjórn Marðar Árnasonar höfðu selst í forsölu á útgáfudegi bókarinnar í gær. Halldór Guðmundsson, forstjóri Eddu, segist ekki vita til að önnur íslensk bók hafi selst jafn vel í forsölu.
Meira
NÝ sýningaraðstaða fyrir listamenn verður opnuð í gömlu Álafossverksmiðjunni í Mosfellsbæ í dag, laugardag, kl. 14 og hefur galleríið fengið nafnið Undirheimar.
Meira
ONE by one er fjórða hljóðversskífa The Foo Fighters, rokksveitarinnar sem Dave Grohl, fyrrum trymbill Nirvana, stofnaði ári eftir að sveitin sú hætti störfum. Fyrsta platan kom út árið 1995 og innihélt m.a.
Meira
KEPPNIN um fyndnasta mann landsins var haldin í fimmta sinn í haust og fóru úrslitin fram á Sport Kaffi á fimmtudagskvöldið. Fullt var út úr dyrum og komust færri að en vildu.
Meira
ENN af tvöföldum safnplötum. Nú er tríó allra landsmanna, Ríó tríóið, búið að gefa út forláta safnplötu sem tekur yfir langan hljóma-, tóna-, gripa- og slagaraferil þeirra Óla Þórðar, Helga P. og Gústa A.
Meira
SIGURBJÖRG Þrastardóttir hlýtur bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár, fyrir handrit að skáldsögunni Sólar sögu. Borgarstjóri afhenti Sigurbjörgu verðlaunin við athöfn í Höfða í gær.
Meira
FJÓRÐU 15:15 tónleikarnir verða í dag kl. 15:15 á nýja sviði Borgarleikhússins. Á tónleikunum mun Eþos-kvartettinn flytja Adagio-Allegretto fyrir strengjakvartett eftir Dimitri Schostakowitsch, strengjakvartett nr.
Meira
FYRIR allmörgum árum var ég á ferð á Englandi til að vera viðstaddur opnun á sýningu um náttúru Mývatns. Sýningin var, og er enn, í einu af friðlöndum Wilfowl and Wetlands Trust, sem hinn heimsfrægi náttúrufræðingur og listamaður Sir Peter Scott...
Meira
ÞEGAR vetrarfrí skólanna eru og börnin í fríi eru alltaf einhver börn sem þurfa að vera í skólanum í lengri viðveru vegna þess að foreldrar þeirra geta einhverra hluta vegna ekki tekið sér frí frá vinnu, eða eiga ekki rétt á vetrarorlofi.
Meira
"Samstarf tæknimenntaðra manna og listamanna, sem nú er hafið á öllum sviðum listaheimsins, kallar einnig á þverfaglega umræðu um stöðu tækninnar gagnvart listinni."
Meira
Cesar Ólafsson vélstjóri fæddist á Kvígindisfelli í Tálknafirði 9. ágúst 1925. Hann lést 25. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru þau Sesselja Ólafsdóttir frá Hellnafelli á Snæfellsnesi, f. 13.6. 1897, d. 28.4.
MeiraKaupa minningabók
Grímur Stefán Bachmann fæddist í Reykjavík 1. desember 1921. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans-háskólasjúkrahúss 22. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru þau Geir Bachmann vélstjóri, f. 1. maí 1892 í Reykjavík, d. 19.
MeiraKaupa minningabók
Hugborg Þuríður Benediktsdóttir fæddist á Kambsnesi í Laxárdal í Dalasýslu 27. febrúar 1922. Hún lést á Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi 23. október 2002. Foreldrar hennar voru hjónin Herdís Guðmundsdóttir, f. í Fremsta Skógskoti í Miðdölum 2.
MeiraKaupa minningabók
Margrét Sigfúsdóttir fæddist á Skálafelli í Suðursveit 26. janúar 1911. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði laugardaginn 26. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Sigfús Sigurðsson bóndi og Ingibjörg Þorsteinsdóttir húsmóðir.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Loftur Tómasson fæddist að Bolafæti, nú Bjargi, í Hrunamannahreppi 16. september 1915. Hann lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 21. október síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Soffía Aðalheiður Sigurðardóttir fæddist í Vöglum í Vatnsdal í A-Hún 22. apríl 1908. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 24. október síðastliðinn, Foreldrar hennar voru Pálína Þorbjörg Jósafatsdóttir, f. 29. apríl 1877, d. 20.
MeiraKaupa minningabók
Örlygur Sigurðsson listmálari fæddist í Reykjavík 13. febrúar 1920. Hann lést á Droplaugarstöðum 24. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Langholtskirkju 1. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
AÐALFUNDUR LÍÚ samþykkti í gær að beina því til stjórnar samtakanna "að þau beiti sér fyrir því að sá sértæki auðlindaskattur sem áformað er að setja eingöngu á fiskveiðar verði felldur niður".
Meira
BÁÐIR hóparnir sem eru í samningaviðræðum við einkavæðingarnefnd um kaup á hlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands, S-hópurinn og Kaldbakur hf., sækjast eftir að kaupa allan þann hlut sem er til sölu, eða 45,8%.
Meira
ERLENDUR Hjaltason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Eimskipa ehf., í kjölfar skipulagsbreytinga sem kynntar voru starfsmönnum Eimskipafélagsins á fundi í fyrradag. Eimskipafélaginu verður skipt í þrjú félög um áramót; Eimskip ehf.
Meira
HAGNAÐUR útgerðarfélagsins Guðmundar Runólfssonar hf. á fyrstu níu mánuðum ársins nam 139 milljónum króna, en á sama tímabili í fyrra var 14 milljóna króna tap af rekstri félagsins og hefur afkoman því batnað um 153 milljónir króna.
Meira
SÍLDARVINNSLAN hf. í Neskaupstað var rekin með 1.107 milljóna króna hagnaði á fyrstu 9 mánuðum ársins. Fjármunatekjur félagsins umfram fjármagnsgjöld námu 875 milljónum króna. Þá var söluhagnaður vegna sölu hlutabréfa SH hf.
Meira
SAXHÓLL ehf. keypti í gær 50 milljónir að nafnverði hlutafjár í Fjárfestingarfélaginu Straumi hf. á verðinu kr. 3,15. Eignarhlutur Saxhóls ehf. eftir viðskiptin nemur rúmum 144 milljónum króna. Einar Örn Jónsson framkvæmdastjóri Saxhóls ehf.
Meira
HAGNAÐUR Nýherja hf. eftir skatta fyrstu níu mánuði ársins nam 78 milljónum króna, samanborið við 93,6 m.kr. tap árið áður. Rekstrartekjur tímabilsins námu 3.208,9 m.kr. og jukust um 13% á milli ára.
Meira
JÓHANN Sigurjónsson, fyrrum bæjarstjóri í Mosfellsbæ, hefur tekið við starfi fjármálastjóra hjá Granda hf. en Kristín Guðmundsdóttir gegndi stöðunni áður. Jóhann hefur verið bæjarstjóri í Mosfellsbæ sl. átta ár.
Meira
FINNUR Ingólfsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, tók við starfi forstjóra VÍS í gær af Axel Gíslasyni. Axel mun þó starfa að öðrum verkefnum fyrir félagið fram að...
Meira
FJÖRUTÍU ár skilja að lögmennina Sigríði Rut Júlíusdóttur og Ragnar Aðalsteinsson, en þrátt fyrir aldursmuninn hafa þau stofnað lögmannsstofu saman, þar sem ætlunin er að takast bæði á við hefðbundin og óhefðbundin verkefni.
Meira
SR-MJÖL og dótturfélög þess högnuðust um 535 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 31 milljónar króna hagnað á sama tímabili 2001. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og áhrif hlutdeildarfélaga (EBITDA), nam 849 m.kr.
Meira
KAUPÞING banki hf. skilaði 2,2 milljarða króna hagnaði á fyrstu níu mánuðum ársins, en á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn 83 milljónir króna.
Meira
Á MARKAÐI eru snuð úr náttúrulegu gúmmíi, latexi og plastefni og sílíkoni. Latex-snuðin eru gulleit og verða brúnleit með tímanum, en sílíkon-snuð eru gegnsæ og ljós. Sílíkon-snuð eru ekki eins teygjanleg og latex-snuðin, en þau fyrrnefndu endast betur.
Meira
BÓNUSVERSLUN verður opnuð á Egilsstöðum, væntanlega um miðjan nóvember. Verður verslunin í húsnæði 10-11, sem hefur verið rekin í miðbæ Egilsstaða til skamms tíma.
Meira
MAGNKAUP.NET hefur fengið andlitslyftingu og í tilefni af því býður fyrirtækið nú fartölvur frá Acer og Lexmark-prentara. Magnkaup reynir með áhrifamætti safnkaupa að bjóða lægra vöruverð á allskonar raftækjum og tölvuvörum, segir í fréttatilkynningu.
Meira
Í dag er laugardagur 2. nóvember, 306. dagur ársins 2002. Allra sálna messa. Orð dagsins: Þess vegna, mínir elskuðu bræður, verið staðfastir, óbifanlegir, síauðugir í verki Drottins. Þér vitið að erfiði yðar er ekki árangurslaust í Drottni.
Meira
50 ÁRA afmæli . Í dag, laugardaginn 2. nóvember, er fimmtugur Snæbjörn Gíslason, Spóahöfða 6, Mosfellsbæ. Eiginkona hans er Kristín Finnbogadóttir . Snæbjörn er staddur á Old Trafford í Manchester ásamt sonum...
Meira
60ÁRA afmæli . Á morgun, sunnudaginn 3. nóvember, er sextug Anna Sigmarsdóttir frá Löndum, Vestmannaeyjum. Í tilefni þessa býður hún vini og velunnara velkomna í afmælisfagnað í dag, laugardaginn 2. nóvember, eftir kl.
Meira
60 ÁRA afmæli Í dag, laugardaginn 2. nóvember, verður sextugur Tómas Helgason, flugstjóri hjá Landhelgisgæslu Íslands, Sóltúni 7, Reykjavík . Eiginkona Tómasar er Ólöf S. Eysteinsdóttir.
Meira
Fiskimiðin eru hvort sem er ekki í eigu nema fárra og æ færri útvaldra. Íslenskur almenningur hefur ekkert um þau að segja og hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja kemur honum lítið við.
Meira
Fella- og Hólakirkja . Starf fyrir 8-10 ára drengi á laugardögum kl. 11. Starf fyrir 11-12 ára drengi á laugardögum kl. 12.30. Akureyrarkirkja. Hádegistónleikar kl. 12. Björn Steinar Sólbergsson leikur verk eftir Pál Ísólfsson og Sigfried Karg-Elert.
Meira
FÁTÆKT fólk er líklegra til þess að vera flogaveikt, samkvæmt nýjum rannsóknum breskra vísindamanna. Þeir sem tilheyra hinum verst settu í samfélaginu eru tvisvar sinnum líklegri til þess að vera flogaveikir en þeir sem eru meðal hinna best settu.
Meira
Frjósemi íslenskra hrossa virðist í góðu lagi þegar á heildina er litið en sérfróðir menn telja sig þó sjá ýmsar blikur á lofti. Valdimar Kristinsson kynnti sér skoðanir nokkurra sérfræðinga.
Meira
Hreyfing og almenn líkamsrækt er líklega einfaldasta og ódýrasta leið til bættrar heilsu sem völ er á. Áhugi á hreyfingu er vaxandi og er það vel, enda veitir ekki af, m.a. í ljósi þess hve offita er vaxandi meðal landsmanna.
Meira
Spurning: Mig langar að fá útskýringar á því hvers vegna ég vakna milli sex og sjö á morgnana með dúndrandi hausverk og get varla opnað augun. Sef þó alltaf með galopinn glugga og með slökkt á ofnum þannig að þetta er ekki vegna loftleysis eða hita.
Meira
Í ÞESSUM dálkum hefur áður verið fundið að þeim enska talsmáta, sem nú virðist vera orðinn gegnumgangandi á fjölmiðlunum, að nefna helst aldrei karl og konu annað en föður og móður ef börnin þeirra koma jafnframt við sögu.
Meira
Út um græna grundu gakktu, hjörðin mín; yndi vorsins undu, eg skal gæta þín. Sól og vor ég syng um, snerti gleðistreng; leikið, lömb, í kringum lítinn...
Meira
FYRSTU dagarnir í nóvember hafa um aldir verið tileinkaðir öllum heilögum, píslarvottum trúarinnar, og öllum sálum, þeim sem látist hafa á liðnu ári. Á sunnudaginn, 3. nóvember, verða messur víða helgaðar þessu umfjöllunarefni.
Meira
Víkverji átti leið heim frá Bandaríkjunum í vikunni, flugleiðis með Flugleiðum, sem vart telst til stórtíðinda hjá þessari vorri ferðaglöðu þjóð.
Meira
KNATTSPYRNULIÐ frá eyríkinu Madagaskar er ekki vel þekkt á heimsvísu en nafn félagsliðsins Stade Olympique l'Emyrne er nú skráð á spjöld sögunnar eftir að leikmenn liðsins gerðu sér lítið fyrir og skoruðu 149 sjálfsmörk í einum og sama leiknum.
Meira
HÓPUR fjárfesta í Noregi bauð í gær eina norska krónu í öll hlutabréf knattspyrnuliðsins Brann, eða rúmlega 10 ísk. kr. Hluthafarnir fengu tilboð um að skuldir félagsins yrðu yfirteknar en þær nema rúmlega 700 millj. ísl. kr.
Meira
SÆNSKIR handknattleiksunnendur voru með böggum hildar í gær eftir að landslið þeirra tapaði fyrir Dönum, 33:25, á heimsbikarmótinu í eigin heimalandi að viðstöddum á fjórða þúsund stuðningsmönnum.
Meira
* EIÐUR Smári Guðjohnsen, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur leikinn líklega á bekknum þegar Chelsea og Tottenham eigast við í Lundúnaslag á White Hart Lane á morgun.
Meira
ALDREI hafa jafnmargir erlendir leikmenn verið á mála hjá NBA-liðunum 29 í bandarísku atvinnumannadeildinni í körfuknattleik en deildarkeppnin hófst í gær. Alls eru 67 erlendir leikmenn með samning og eru flestir hjá Dallas Mavericks, eða fimm alls.
Meira
GEIR Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, er bjartsýnn á að KSÍ sleppi við sektargreiðslu frá aganefnd evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA, en mótareglur voru brotnar á landsleik Íslendinga og Skota í undankeppni EM sem fram fór...
Meira
"AUÐVITAÐ hefðum við viljað ná betri úrslitum úr fyrstu tveimur leikjunum en engu að síður erum við ekki langt frá þeim markmiðum sem við settum okkur.
Meira
PATREKUR Jóhannesson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik, leikur stórt hlutverk með liðinu á heimsbikarmótinu í Svíþjóð. Hann er í fjórða sæti yfir markahæstu menn í heimsbikarkeppninni í handknattleik - hefur skoraði 21 mark, reyndar eins og Rússinn Alexei Rastvortsev, en skotnýting Rússans er betri og því er hann í þriðja sæti.
Meira
GRINDVÍKINGAR biðu sinn fyrsta ósigur á leiktíðinni í úrvalsdeild karla á útivelli gegn Skallagrími í Borgarnesi í gær, 76:73, en þetta var fyrsti sigur Skallagríms í vetur. Í Seljaskóla unnu Íslandsmeistararnir lið ÍR á útivelli, 56:67, en þar var Teitur Örlygsson að leika sinn fyrsta leik með Njarðvíkingum en hann hafði ekki hug á að leika með liðinu í vetur.
Meira
ÞÓTT Ólafur Stefánsson hafi ekki látið mikið að sér kveða við markaskorun á heimsbikarmótinu hefur hann átt þátt í mörgum mörkum íslenska liðsins á heimsbikarmótinu. Ólafur er í öðru sæti yfir þá leikmenn sem átt hafa flestar stoðsendingar.
Meira
TONY Pulis var í gær ráðinn knattspyrnustjóri Stoke City aðeins sólarhring eftir að George Burley hætti við á síðustu stundu að taka að sér starfið.
Meira
BOSTON Celtic, sem er sigursælasta lið NBA-deildarinnar, beið sinn stærsta ósigur frá upphafi í fyrrakvöld gegn Washington Wizards, þar sem liðið tapaði með 45 stiga mun,114:69.
Meira
Þessar glæsilegu stúlkur úr Björk í Hafnarfirði tryggðu sér í gær rétt til að keppa í 8-liða úrslitum í Evrópukeppni félagsliða í hópfimleikum, sem fara fram í Charlos í Frakklandi í dag.
Meira
ÞEGAR tölfræði frá leikjum heimsbikarmótsins í Svíþjóð er skoðuð kemur greinilega fram að íslensku leikmennirnir hafa verið einkar mistækir í leikjum liðsins. Af tuttugu mistækustu leikmönnum keppninnar til þessa eru fimm Íslendingar.
Meira
ÞAÐ hefur vakið athygli að ríkið virðist ætla að taka þátt í jólabókaflóðinu. Lesendur hafa því nú þegar borgað fyrir sumar jólabækurnar að einhverju leyti. Á föstudaginn kom út fyrsta bindi Sögu sjávarútvegs á Íslandi, en ritið verður í þremur bindum.
Meira
Helsti skotspónninn í amerískum gamanþáttum í íslensku sjónvarpi eru hvítir karlmenn um fertugt. Grínið er skefjalaust, grimmt og án miskunnar. Hvað er svona fyndið við þá og hvers vegna heldur enginn hlífiskildi yfir þeim? Má gera endalaust stólpagrín að þessum greyjum? Hér rýnir GUNNAR HERSVEINN, sem er hvítur fjörutíu og tveggja ára gamall karlmaður, í þennan kima "íslenskrar" menningar.
Meira
Hafið er stundum blátt og blítt bára leikur við fjöru stein. Oft lagar það mannanna mein að mega það líta og hugsa upp á nýtt Stundum það argar og mölvar í mél miskunn hvergi gæfan flúin bænir um hjálp, þá tapast trúin og týndir menn, gista í hel.
Meira
*According to Jim "Bandarísk þáttaröð með Jim Belushi og Courtney Thorne-Smith í aðalhlutverkum. Jim leikur jarðbundinn vertaka og blúsara sem veit að lykillinn að góðu hjónabandi er að kinka kolli þegar konan segir eitthvað.
Meira
Ég er jarðsaga Íslands. Ég fæddist eins og landið á mörkum íss og elds. Og óbreyttur í hlýindaskeiði þínu einfaldur formlaus með ávalar útlínur aðgengilegur. Svo kom frostið og jökullinn skaut rótum í hjarta mínu.
Meira
Fjölbreytileiki norðursins er í brennidepli á sýningunni Hraun-ís-skógur sem opnuð verður í Listasafninu á Akureyri í dag. SKAPTI HALLGRÍMSSON ræddi við nokkra þeirra sem koma nálægt verkefninu en Íslendingar, Finnar og Grænlendingar - bæði starfandi listamenn og listnemar - eiga verk á sýningunni.
Meira
Í þessari grein er fjallað um sagnalist Halldórs Laxness, frá hinum auðuga og þéttriðna söguþræði sem gerir sögur hans ómótstæðilegar, eða eins og höfundur segir: "Það er tilgangslaust að reyna að streitast á móti, texti eftir Laxness er kraftur sem fer beint, ákveðið, ég segi ykkur það satt, það er eitthvað ómótstæðilegt við hann!"
Meira
Langt inni í manninum: Lífið og maðurinn ekki höfundur þess. Enn standa kerúbarnir vörð við hliðið og lífið er hulið loga hins sveipanda sverðs sem rökkuraugu þola ekki að sjá.
Meira
I Og enn einu sinni er bókavertíðin hafin, þetta tæplega tveggja mánaða úthald sem einkennist af mikilli gleði yfir því að hérlendis skuli vera til mikið af hæfileikaríkum rithöfundum, og faglegir, vandvirkir og kjarkmiklir útgefendur, en einkennist líka...
Meira
Vesturfarasetrið á Hofsósi ætlar að reisa nýja Nöf; setja hús ofan á grunn gömlu Nafar, sem brann í nóvember 1941. FREYSTEINN JÓHANNSSON rifjar upp sögu Nafarinnar, þar sem honum rennur blóðið til skyldunnar.
Meira
"ÞAÐ er allra sálna messa í dag og þetta eru allt trúarleg verk. Við ætlum að syngja verk eftir meistarana Bach, Haydn, Mendelssohn, Schubert og líka eftir núlifandi tónskáld eins og Hjálmar H. Ragnarsson.
Meira
MYNDLIST Galleri@hlemmur.is: Erla S. Haraldsdóttir. Til 10. nóv. Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Bjarni Sigurðsson. Marisa Navarro Arason. Til 3. nóv. Gallerí Skuggi: Samsýningin Tengi. Til 10. nóv. Gallerí Sævars Karls: Ari Svavarsson. Til 14. nóv.
Meira
HRAKSPÁR og ótíðindi hafa löngum verið vinsæl lesning. Þar sem framboð á lesefni fylgir eftirspurn er enginn skortur á rituðum heimildum fyrir því að veröldin sé að fara til fjandans. Fyrr á öldum tilgreindu slíkar heimildir einkum trúarleg rök.
Meira
BÓKASTEFNUNNI í Gautaborg lauk fyrir skömmu, en um 107.000 manns, þar af um 1.250 blaðamenn víðs vegar að úr heiminum, sóttu hana frá fimmtudegi til sunnudags.
Meira
Menningarmálaráðherra Breta, Kim Howells, hefur fordæmt verkin sem að þessu sinni hafa verið tilnefnd til Turner-verðlaunanna sem "kalt, vélrænt konsept-rusl.
Meira
TÁKNMÁL trúarinnar, goðsagnir, þjóðsögur, ævintýri og formfastur raunveruleikinn - myndir Sigurðar Þóris sem sýndar eru í Hallgrímskirkju um þessar mundir bera anda alls þessa; pennateikningar, litríkar vatnslitamyndir og stór olíumálverk, allt byggt á...
Meira
"Flestir ganga í gegnum lífið án þess að hafna nokkurn tíma þeim veruleika sem þeir búa við," segir Mikael Torfason í samtali við ÞRÖST HELGASON um nýja skáldsögu sína, Samúel, sem fjallar um íslenskan mann sem hafnar veruleika sínum. Í samtalinu talar Mikael um viðhorf sín til veruleikans og skáldskaparins sem hann reynir að endurspegla hann í.
Meira
Á sjöunda áratugnum skapaði Jóhannes Geir áhrifamikil myndverk sem hafa verið kallað "endurminningamyndirnar". Um þessar mundir stendur yfir í Listasalnum Man við Skólavörðustíg sýning á meira en hundrað teikningum og olíukrítarmyndum frá þessum árum. Jóhannes Geir skoðaði sýninguna með EINARI FAL INGÓLFSSYNI og sagði frá þessum myndum, málverki í skugga veikinda og óbilandi vilja til sköpunar.
Meira
ÉG STYÐ Jóhönnu Sigurðardóttur í prófkjöri Samfylkingarinnar, við hlið formanns, til að leiða flokkinn til sigurs. Hana vel ég vegna sérstöðunnar sem hún hefur skapað sér á þingi. Áræði hennar, heiðarleiki og dugnaður á sér vart hliðstæðu.
Meira
HAFNFIRÐINGUM er í fersku minni þegar Guðmundur Árni Stefánsson settist í stól bæjarstjóra árið 1986. Eitthvert glæsilegasta kjörtímabil í sögu bæjarins fór í hönd undir stjórn hans og kosningasigurinn 1990 undirstrikaði það.
Meira
GUÐRÚN Ögmundsdóttir hefur frá upphafi þingsetu sinnar 1999 dregið fram í dagsljósið mál sem fram til þess tíma voru álitin feimnismál sem e.t.v. mætti minnast á í framhjáhlaupi, mál sem höfð voru í flimtingum en ekki fjallað um af alvöru.
Meira
JÓHANNA Sigurðardóttir hefur markað spor í íslenskri stjórnmálasögu. Hún er talsmaður þess besta sem jafnaðarstefnan hefur að geyma: Réttlætis, bættra kjara almennings og mannúðar.
Meira
ÉG vil endilega hvetja Samfylkingarfólk í Reykjavík til að kjósa Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur í 3. sæti í prófkjörinu í Reykjavík. Af atorku og hugrekki hefur Ásta Ragnheiður gerst málsvari þeirra sem oft á tíðum eiga sér fáa málsvara á Alþingi.
Meira
ÁSTA Ragnheiður er stjórnmálamaður sem kosið hefur að beita áhrifum sínum og krafti fyrir þá sem af ýmsum orsökum eiga á brattann að sækja í samfélaginu, fatlaða, þroskahefta, geðsjúka, foreldra barna með langvinna sjúkdóma, forræðislausa feður, aldraða...
Meira
ÞAÐ er brýnt að saman fari reynsla og kraftmikil endurnýjun á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Á fáum stöðum eigum við meiri möguleika á góðum árangri. Til að ná honum þarf öflugt fólk. Björgvin G.
Meira
SAMFYLKINGARFÉLAGAR í suðvesturkjördæmi hafa úr ellefu hæfum frambjóðendum að velja í flokksvali hinn 9. nóvember nk. Ég fagna því sérstaklega að Katrín Júlíusdóttir varaþingmaður skuli gefa kost á sér í flokksvalinu.
Meira
ÞAÐ er alkunna að ekki er mikill fjöldi ungs fólks á Alþingi um þessar mundir. Ýmislegt hefur stuðlað að þeirri þróun, t.a.m. áhersla stjórnmálaflokkanna á opin prófkjör undanfarin ár.
Meira
Í FLOKKSVALI Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, sem fer fram laugardaginn 9. nóvember nk., skora ég á félaga mína að tryggja áframhaldandi setu Sigríðar Jóhannesdóttur á Alþingi.
Meira
ÞAÐ er mikilvægt að ungt og kraftmikið fólk veljist í framvarðarsveit Samfylkingarinnar fyrir næstu kosningar. Til þess höfum við tækifæri í flokksvalinu í Suðurkjördæmi laugardaginn 9. nóvember. Björgvin G.
Meira
ÞAÐ er sjaldgæft að kraftmikið og frambærilegt ungt fólk gefi sig að pólitík. Æ fleiri kjósa að dansa í kringum gullkálfinn eða hasla sér völl á öðrum sviðum. Því er það fagnaðarefni og hvalreki þegar fram kemur ungt fólk sem er til í slaginn. Björgvin...
Meira
ÁGÚST Ólafur Ágústsson er verðugur fulltrúi ungu kynslóðarinnar í Samfylkingunni. Ágúst er formaður í félagi ungra jafnaðarmanna og hefur tekið þátt í stefnumótun Samfylkingar varðandi Evrópumál.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.