ÁSTRÍÐUR Thorarensen, eiginkona Davíðs Oddssonar, og Laura Bush, forsetafrú Bandaríjkanna, sátu hlið við hlið í hádegisverði í boði Dagmar Havlovu, eiginkonu Vaclav Havel forseta, í Lany-höll í Tékklandi á fimmtudag.
Meira
ÁTTA börn í New York, sem þjást af offitu, hafa höfðað mál á hendur skyndibitakeðjunni McDonald's og segja hana bera ábyrgð á því hvernig komið sé fyrir þeim þar sem keðjan hafi ekki veitt nægar upplýsingar um það heilsutjón sem geti hlotist af neyslu...
Meira
AÐILD Litháens að Atlantshafsbandalaginu (NATO) mun "endurnæra" bandalagið, sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti er hann kom í stutta heimsókn til Litháens í gærmorgun. Það var í fyrsta sinn sem Bandaríkjaforseti heimsækir landið.
Meira
ÓÞEKKT rýrnun í verslun á Íslandi er líklega eitthvað á fjórða milljarð króna á ári og er þá átt við verðmæti þess sem hverfur, vegna hnupls eða þjófnaðar eða af öðrum orsökum, frá því vara fer frá framleiðanda eða birgja þar til hún fer út úr verslun.
Meira
FJÓRIR ísraelskir sjóliðar særðust um borð í varðbáti í gærmorgun er palestínskir öfgamenn sprengdu fiskibát í loft upp og urðu sjálfum sér að bana um leið.
Meira
Svokallaðar "vinaafgreiðslur" eru dæmi um þjófnað í matvöruverslunum: Vinur starfsmanns á kassa kemur þangað með mikið magn vöru; t.d. að verðmæti 10 þúsunda króna, en greiðir aðeins eitt þúsund.
Meira
FJÖLDI FÓLKS beið eftir að raftækjaverslunin Expert við Skútuvog væri opnuð í gærmorgun og var löng biðröð meðfram húsinu öllu. En allur hópurinn komst þó inn í verslunina um síðir.
Meira
PÁLL Gunnar Pálsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, segir að það þurfi að leita aftur til áranna 1996 til 1997 til að finna jafnmikið atvinnuleysi meðal félagsmanna VR og nú.
Meira
HÁTT á fjórða þúsund bíla er endurunnið á ári hjá fyrirtækinu Hringrás í Klettagörðum í Reykjavík, þar sem þessi mynd er tekin. Öllum spilliefnum er þá dælt af bílunum og þeir pressaðir saman þannig að þeir verða á stærð við ferðatösku.
Meira
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Fylkir þarf sjálft að greiða 185.000 krónur í bætur til drengs sem slasaðist þegar hann var við leik við áramótabrennu félagsins á nýársdag 1997.
Meira
LEIKRITIÐ Englabörn eftir Hávar Sigurjónsson verður flutt í sviðsettum leiklestri á alþjóðlegri leiklistarhátíð sem eitt þekktasta leikhús Evrópu, Schaubühne í Berlín, stendur fyrir í janúar næstkomandi. Leikhúsið keypti nýverið sýningarrétt á verkinu.
Meira
JEAN Illsley Clarke, bandarískur fræðimaður á sviði uppeldismála, heldur opinn fyrirlestur í Smáraskóla í dag og hefst hann kl. 15. Fyrirlesturinn á erindi til allra sem láta sig uppeldismál og málefni barna varða, segir í fréttatilkynningu.
Meira
SVONEFND MFS-þjónusta á fæðingardeild Landspítala - háskólasjúkrahúss, sem er samfelld þjónusta ljósmóður við verðandi foreldra á meðgöngu, við fæðingu og á sængurlegu, annar langt því frá eftirspurn og liggur við að vísa þurfi jafnmörgum frá og komast...
Meira
Í dag S igmund 8 H ugvekja 47 H ugsað upphátt 27 M yndasögur 48 L istir 28/35 B réf 48/49 A f listum 28 D agbók 50/51 B irna Anna 28 K rossgáta 53 F orystugrein 32 L eikhús 54 R eykjavíkurbréf 32 F ólk 54/61 S koðun 36/37 B íó 58/61 M inningar 42/44 S...
Meira
Nýlega var lokað síðasta gatinu sem eftir var á Þriggja gljúfra stíflunni miklu í Kína. Í grein Niels Peters Arskogs, fréttaritara Morgunblaðsins í Kína, kemur fram að mannvirkinu hafi í upphafi einkum verið ætlað að koma í veg fyrir mannskæð flóð en nú séu ekki síður bundnar vonir við raforkuframleiðsluna.
Meira
JÓLAKORT Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, eru komin í verslanir. Kortin eru prýdd listaverkum frá yfir 200 þjóðlöndum. Að þessu sinni má meðal annars finna myndir eftir listakonuna Helgu.
Meira
PRÓFKJÖRI sjálfstæðismanna í Reykjavík lauk klukkan 18 í gær. Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, og Ástríður Thorarensen, eiginkona hans, kusu upp úr hádegi í gær á kjörstað á Hótel Sögu.
Meira
"ÉG VIL nú helst spara stóru orðin því það er ekki búið að semja endanlega um raforkuverð og eins verður endanleg ákvörðun af hálfu Alcoa ekki tekin fyrr en á sjórnarfundi í janúar.
Meira
Mannréttindaskrifstofa Íslands boðar til málstofu mánudaginn 25. nóvember kl. 16.30 í Litlu-Brekku við Bankastræti. Efni fundarins er: Mannréttindadómstóll í kreppu.
Meira
NÁKVÆMLEGA mánuður er nú til jóla og mátti sjá eftirvæntingu skína úr augum barnanna sem virtu jólalandið í Smáralind í Kópavogi fyrir sér á föstudag.
Meira
EFASEMDIR komu fram hjá meirihluta borgarstjórnar um að nauðsynlegt og tímabært væri að skipta Reykjavík upp í skólahverfi á fundi borgarstjórnar á fimmtudagskvöld.
Meira
ÍSLANDSMEISTARAR KR í karlaflokki mæta nýliðum Þróttar á Valbjarnarvelli í fyrstu umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu næsta sumar. Dregið var í töfluröð í gær og aðrir leikir í þeirri umferð eru Fylkir - Fram, Grindavík - Valur, ÍBV - KA og FH - ÍA.
Meira
Námskeið hefst hjá Endurmenntun Háskóla Íslands þriðjudaginn 26. nóvember þar sem fjallað verður um hvernig öðlast má aukinn sannfæringarkraft og ákveðni.
Meira
NÝ móttaka fyrir sjúkrabíla var tekin í notkun við slysa- og bráðadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Fossvogi á föstudag, en um er að ræða fyrsta áfanga í endurnýjun deildarinnar. Nýja byggingin kemur í stað annarrar eldri sem var orðin mjög léleg.
Meira
"ÉG tel það skipta miklu máli varðandi öll veikindi að hægt sé að ræða þau opinskátt og ég vona að það geti hjálpað öðrum," segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra í samtali við Morgunblaðið í dag.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Birni Bjarnasyni, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, vegna yfirlýsingar borgarstjóra í Morgunblaðinu 23.
Meira
BLÓÐBANKINN var opinn í gær og er þetta fyrsta sinn á þessu ári að opið er á laugardegi en að sögn Sigríðar Óskar Logadóttur, forstöðumanns hjá Blóðbankanum, er ástæðan sú að nú sárvantar blóð í O-blóðflokkum.
Meira
HILMAR Þórlindsson handknattleiksmaður býr í strandbænum Cangas í Galisíu á Norðvestur-Spáni, skammt norðan landamæranna að Portúgal, en á þær slóðir stefnir olíubrákin úr olíuskipinu Prestige, sem sökk um 150 sjómílur undan ströndinni fyrr í vikunni.
Meira
ÍSLENDINGUR fékk nýlega 100 þúsund króna sekt fyrir meint smygl á harðfiski til Færeyja. Maðurinn kom sjóleiðina til Færeyja og uppgötvuðu tollverðir í Þórshöfn að hann hafði 60 kg af harðfiski í fórum sínum.
Meira
SPÖLUR ehf., sem á og rekur Hvalfjarðargöng, skilaði 183 milljóna króna hagnaði á síðasta rekstrarári en árið þar á undan var tap upp á 221 milljón króna.
Meira
Una María Óskarsdóttir, formaður Þingeyingafélagsins, er fædd 19. september 1962 í Reykjavík en alin upp á Laugum í Reykjadal. Nám sitt hefur hún stundað við Barnaskóla Reykdæla, Héraðsskólann á Laugum, Menntaskólann við Hamrahlíð og er nú uppeldis- og menntunarfræðingur með BA-próf frá HÍ. Starfar í félagsmálaráðuneytinu sem verkefnisstjóri nefndar um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum. Gift Helga Birgissyni hrl. og eiga þau þrjú börn.
Meira
BRÆÐURNIR og verkfræðingarnir Sveinn og Ágúst Valfells afhentu á föstudag Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness stærsta stjörnusjónauka landsins. Sjónaukann gáfu þeir Valfells-bræður til minningar um systur sína, dr.
Meira
SVÖLURNAR, félag fyrrverandi og núverandi flugfreyja, afhentu nýlega Leikskólanum Múlaborg, sem er með deild fyrir fötluð börn, gjafir sem nota má í leik og starfi, m.a. tölvu með prentara, tölvuleiki, skólastóla, borð o.fl.
Meira
BJÖRN Bjarnason, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, segir að tölur um framsal lóða undir 284 íbúðir til Frjálsa fjárfestingarbankans frá skuldunautum, 10 verktökum í Grafarvogi, segi allt um fjárhagsstöðu byggingaraðila á svæðinu.
Meira
Ný bók frá Davíð Nýtt smásagnasafn Davíðs Oddssonar forsætisráðherra kom út í gær. Heitir bókin Stolið frá höfundi stafrófsins og hefur að geyma átta smásögur.
Meira
LEIÐTOGAFUNDUR Atlantshafsbandalagsins í Prag bar breyttum tímum vitni. Það er einnig að verða skýrara hvað breytt heimsmynd þýðir fyrir okkur Íslendinga á vettvangi bandalagsins. Á okkur hvílir þrýstingur um að leggja meira af mörkum.
Meira
24. nóvember 1945: "Fjármálaráðherra drap á það í fjárlagaræðu sinni á dögunum, að 80 þús. manns myndu hafa rjett til niðurgreiðslu. Meðan engar skýrslur liggja fyrir um þetta atriði, verður þetta vitanlega aðeins ágiskun.
Meira
Svo virðist sem samkomulag hafi orðið milli Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra og Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Prag um að viðræður hefjist um framtíð varnarstöðvarinnar í Keflavík fljótlega...
Meira
ÞAÐ er víðar en hér á landi sem þess er minnst með eftirminnilegum hætti að í ár eru 100 ár liðin frá fæðingu nóbelskálds okkar Íslendinga, Halldórs Laxness.
Meira
Elísabet Ólafsdóttir lítur ekki á sig sem rithöfund þrátt fyrir að vera búin að gefa út sína fyrstu skáldsögu. Arnar Eggert Thoroddsen kannaði málið.
Meira
Sólóplata Rúnars Júlíussonar Það þarf fólk eins og þig. Lög og textar eftir Rúnar, nema lagið við "Það þarf fólk eins og þig" sem er eftir Buck Owens.
Meira
MICHAEL Jackson tók við heiðursverðlaunum fyrir framlag sitt til tónlistar á Bambi-verðlaunahátíðinni í Þýskalandi. Í þakkarræðu sinni hvatti Jackson þýsk ungmenni til að "vinna að draumum sínum og hugsjónum".
Meira
Listaháskóli Íslands, Laugarnesi Giovanni Garcia Fenech málari heldur fyrirlestur kl. 12.30 á mánudag og fjallar um samtíma málaralist bæði í hlutbundinni og óhlutbundinni framsetningu. Þá heldur arkitektinn Malin Zimm fyrirlestur á miðvikudag kl. 12.
Meira
Listasafn Íslands Leiðsögn um sýninguna Íslensk myndlist 1980-2000 verður kl. 15-16. Fjórir listamenn fjalla um verk sín: Hannes Lárusson, Margrét Blöndal, Tumi Magnússon og Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson.
Meira
ÞAÐ er ekki oft að kammertónlist eftir Mahler heyrist á tónleikum hér, - enda var Mahler iðnari við bæði stærri og smærri form tónlistar. Á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Bústaðakirkju í kvöld kl.
Meira
UNDANFARIÐ hafa vakið talsverða athygli hiphoplög þar sem spunnið er um undirheima Reykjavíkur. Sá sem það gerir kallar sig Móra og sendi frá sér fyrstu breiðskífuna fyrir skemmstu.
Meira
HLJÓMEYKI og Kammerkór Austurlands flytja tvö ný tónverk í Eskifjarðarkirkju í dag, sunnudag, kl. 16 en þau voru frumflutt á Ísafirði með Kammerkórnum á Ísafirði í byrjun nóvember.
Meira
Langt er síðan breiðskífu með Bubba Morthens hefur verið eins vel tekið og Sól að morgni, sem kom út fyrir stuttu. Árni Matthíasson ræddi við Bubba um hinar fjölmörgu tilvísanir sem er að finna á skífunni.
Meira
BANDARÍSKI tónlistarmaðurinn Stevie Wonder hótaði að stöðva útgáfu á bók sem móðir hans skrifaði, en í bókinni átti að upplýsa að Wonder hefði misst sveindóminn hjá vændiskonu. Bókin heitir Faith: The Miraculous Journey of Lula Hardaway .
Meira
STYRKTARTÓNLEIKAR Caritas verða í Landakotskirkju kl. 16 í dag, sunnudag. Tónleikarnir eru að þessu sinni til styrktar foreldrafélagi misþroska barna.
Meira
HAMRAHLÍÐARKÓRINN flytur tónlist frá 16. og 17. öld í Reykholtskirkju í dag, sunnudag, kl. 15 og eru þeir til styrktar Reykholtskirkju. Stjórnandi er Þorgerður Ingólfsdóttir. Á efnisskránni verða madrigalar og söngvar frá endurreisnartímanum m.a.
Meira
Tímaritið People hefur valið leikarann Ben Affleck kynþokkafyllsta núlifandi manninn. Hann tekur við titlinum af Pierce Brosnan en áður hafa Tom Cruise , George Clooney og Brad Pitt hlotið þennan heiður. Þetta er í 16.
Meira
Í KVÖLD munu þrír bandarískir jaðartónlistarmenn leika á Grandrokk ásamt íslensku sveitinni Hudson Wayne. Fyrstan ber að nefna listamanninn Drekka (Michael Anderson), sem eins og nafnið gefur til kynna á í nokkuð skondnum tengslum við Ísland.
Meira
FÉLAG íslenskra hljómlistarmanna og Félag íslenskra tónlistarmanna gengust í fyrradag fyrir málþingi undir yfirskriftinni Tónlistarhúsið - framtíðarsýn tónlistarflytjenda.
Meira
Bætur almanna- trygginga MIÐVIKUDAGINN 20. nóvember var birt tafla í Morgunblaðinu yfir hækkun bóta almannatrygginga. Þar er ekki farið með réttar tölur. Ellilífeyrir er nú 19.990 en ekki 19.000 eins og sagt er. Geir H.
Meira
"Og það merkilega er að einmitt þessi fylgispekt Davíðs Oddssonar við stórútgerðina útskýrir hvers vegna hann nú hefur öðlast eins konar heildarsýn yfir vettvang íslenskra stjórnmála."
Meira
STUNDUM kemur það fyrir að Ríkissjónvarpið okkar sýnir kvikmyndir sem allur almenningur getur horft á og notið. Það gerðist til dæmis um daginn. Þá sýndi sjónvarpið á laugardagskvöldi mynd um stúlkuna Pollýönnu eftir sögu Eleanor H.
Meira
HINN 2. apríl árið 2000 gerðust Íslendingar aðilar að CITES-samningnum. CITES stendur fyrir milliríkjasáttmála um viðskipti með dýr og jurtir í útrýmingarhættu.
Meira
ÉG heiti Sunneva Jóhannsdóttir og ég á heyrnarlausa foreldra. Ég hef tekið eftir því að mamma mín og pabbi og flestir heyrnarlausir missa af miklu í sambandi við samfélagið vegna þess að fréttir og umræður ná ekki til þeirra.
Meira
GRÍMULAUS skoðanakúgun úgerðarmanna er staðreynd. Miðvikudaginn 13. nóvember sl. birtist þessi undarlega árátta útgerðarmanna með skrifum stjórnarmanns LÍÚ og forstjóra Síldarvinnslunar í Neskaupstað í Morgunblaðinu.
Meira
Árni Guðjónsson trésmíðameistari frá Oddsstöðum í Vestmannaeyjum fæddist 12. mars 1923. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 16. nóvember síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Árni Héðinn Tyrfingsson fæddist í Lækjartúni í Ásahreppi 16. október 1934. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítala við Hringbraut 15. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Kristín Margrét Jónsdóttir, f. 7. október 1901, d. 7.
MeiraKaupa minningabók
Héðinn Olgeir Jónsson fæddist í Reykjavík 17. janúar 1929. Hann lést á líknardeild Landspítala á Landakoti 17. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Jón Bach Jónasson frá Hrútsstöðum í Flóa, f. 23.10. 1874, d. 24.12.
MeiraKaupa minningabók
Við kynntumst Nínu haustið 1959 þegar við hófum nám við Húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði. Gott samband hefir haldist okkar í milli öll þessi ár og eigum við fjársjóð góðra minninga um samverustundir með góðri stúlku.
MeiraKaupa minningabók
Nína Heiðrún Jónsdóttir fæddist á Seyðisfirði 26. maí 1939. Hún lést á Landspítala líknardeild hinn 15. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Bergþóra Margrét Guðmundsdóttir, f. 7. apríl 1899 í Krossavík í Vopnafirði, d. 21.
MeiraKaupa minningabók
Olufine K. Thorsen fæddist í Dale í Sundfjord í Noregi 27. desember 1934. Hún lést á Palma Mallorca á Spáni 27. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Arndís Kristín húsmóðir og Konråd Thorsen, sjómaður og síðar verkamaður. Olufine giftist 2.10.
MeiraKaupa minningabók
Þorgeir Guðjón Jónsson fæddist á Seyðisfirði 26. júlí 1954. Hann lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar 19. nóvember síðastliðinn. Foreldrar Þorgeirs eru Jón Kr. Pálsson útgerðarmaður, f. 21. október 1930, og Helga Þorgeirsdóttir húsmóðir, f. 19. apríl 1935.
MeiraKaupa minningabók
Árleg aðventuferð í Þórsmörk Á vegum Útivistar verður farið í árlega aðventuferð í Þórsmörk 29. nóvember til 1. desember. Ekið er í Bása á Goðalandi á föstudagskvöldi.
Meira
Ferð til Kína í maí Kínaklúbbur Unnar stendur fyrir 24 daga ferð til Kína frá 8. maí til 31. maí. Flogið er til Stokkhólms og þaðan til Peking með flugfélaginu Air China. Ferðast verður um landið og m.a.
Meira
Stundum hef ég kvartað undan skriffinnsku í Sýrlandi, skrifar Jóhanna Kristjónsdóttir, en að þessu sinni hefur allt gengið með greiðum brag. Þegar upp var staðið hafði ég stimpil um dvalarleyfi til loka janúar en venjulega hefur verið veitt leyfi til fjögurra vikna.
Meira
Í BOTANICAL Garden í New York eða grasagarðinum þar í borg verður opnuð sérstök jólasýning hinn 29. nóvember og stendur hún fram til 5. janúar. Garðurinn verður ljósum prýddur og 29.
Meira
TIL stendur að ráðast í viðamiklar framkvæmdir við Geysi í Haukadal í vor en Guðmundur Jónsson arkitekt hefur hannað framtíðarskipulag fyrir svæðið.
Meira
Í SÍÐUSTU viku var Liseberg-skemmtigarðurinn í Gautaborg í Svíþjóð opnaður sem jólagarður. Þetta er í þriðja skipti sem jólaland er opnað í skemmtigarði Gautaborgarbúa.
Meira
KOMIÐ er út kort af ferðaleiðum sunnan Hofsjökuls. Landsvirkjun lét gera kortið en fjölmargir komu að gerð þess. Kortið er gefið út á íslensku og ensku og annast Hið íslenska bókmenntafélag dreifingu.
Meira
Í TILEFNI af útkomu nýs ferðabæklings Ferðaskrifstofunnar Emblu verður efnt til svokallaðrar ferðaveislu í Norræna húsinu næstkomandi mánudagskvöld, 25. nóvember, kl. 20. Kynntir verða í máli og myndum áfangastaðir Emblu.
Meira
60 ára afmælismót Bridsfélags Reykjavíkur Bridsfélag Reykjavíkur á 60 ára afmæli á þessu ári en félagið var stofnað árið 1942. Bridsfélag Reykjavíkur hefur um áratugaskeið verið langsterkasti bridsklúbbur landsins, jafnvel þótt víðar væri leitað.
Meira
BRÚÐKAUP . Gefin voru saman 13. júlí sl. í Våler kirke, Østfold í Noregi, þau Snorri Sveinsson og Trine Brustad Gregersen . Heimili þeirra er í Osló,...
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 31. ágúst sl. í Dómkirkjunni af sr. Jakobi Á. Hjálmarssyni þau Gunnhildur Harðardóttir og Mladen Hosi. Heimili þeirra er í...
Meira
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk mánudagskvöld kl. 20 í kórkjallara. Langholtskirkja . Mánudagur: Kl. 15-16.30 Ævintýraklúbburinn. Starf fyrir 7-9 ára krakka sem eru allir velkomnir. Laugarneskirkja .
Meira
Hraðsveitakeppni hjá Bridsfélagi Reykjavíkur Þriðjudaginn 19. nóvember hófst 4 kvölda hraðsveitakeppni félagsins. 24 sveitir mættu til leiks og spila í tveimur 12 sveita riðlum.
Meira
Í dag er sunnudagur 24. nóvember, 328. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Sá sem ætlar að finna líf sitt, týnir því, og sá sem týnir lífi sínu mín vegna, finnur það.
Meira
Miðvikudaginn 27. nóvember mun sr. Þorvaldur Víðisson halda fyrirlestur og stjórna umræðum um "unglingamenninguna" í safnaðarheimili Landakirkju í Vestmannaeyjum. Þekkjum við þá menningu sem unglingurinn hrærist í og þann boðskap sem hún...
Meira
Þá er kirkjuárinu að ljúka, á sunnudaginn kemur tekur nýtt við, þegar aðventan heilsar. Sigurður Ægisson lítur af því tilefni yfir farinn veg, og spyr hvernig kristið fólk hefur ávaxtað pund sitt í öðrum heimi á síðustu 12 mánuðum.
Meira
VÍKVERJI ætlaði varla að trúa augum sínum, og fyrst og fremst nefi, um daginn þegar hann steig upp í leigubíl sem hann hafði pantað hjá BSR. Víkverji var 3-4 mínútur á leiðinni út úr húsinu, þangað sem hann hafði pantað bílinn.
Meira
Halldór Ásgrímsson kastaði sér aftur út í hringiðu stjórnmálanna í vikunni eftir að hafa dregið sig í hlé vegna veikinda. Hann segir Pétri Blöndal frá aðgerð sem heppnaðist giftusamlega, góðum bata og flutningi í nýtt kjördæmi, auk þess að ræða ýmis þau mál sem verða ofarlega á baugi á kosningavetri.
Meira
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hélt utan til leiklistarnáms 17 ára gömul. Hún lék í Þjóðleikhúsinu í 10 ár samfleytt þar til hún söðlaði um og tók að sér stjórn skemmtiþáttarins Milli himins og jarðar í sjónvarpinu. Hún er nú komin af stað aftur í Þjóðleikhúsinu en hefur ýmis járn í eldinum eins og Hávar Sigurjónsson komst að er hann hitti hana á dögunum.
Meira
Enda þótt Þórir S. Guðbergsson hafi verið afkastamikill rithöfundur um áratuga skeið gefur hann í fyrsta skipti sjálfur út bók í haust. Anna G. Ólafsdóttir spjallaði við Þóri um Lífsorku - bók um lífsstíl, starfslok og góða heilsu.
Meira
* Ekki alls fyrir löngu sagði áttræður maður frá því þegar hann bauð 92 ára konu upp í dans. Konan spratt á fætur og sagði brosandi: "Ég er bæði hrukkótt, lítil, gráhærð og gömul að árum.
Meira
Fyrir hartnær 100 árum sigldi sexæringurinn Stanley frá Ísafirði knúinn vélarafli, fyrstur íslenskra fiskibáta. Helgi Mar Árnason rekur hér upphaf einnar mestu atvinnubyltingar sem orðið hefur á Íslandi.
Meira
Nýja vínið frá Beaujolais eða Beaujolais Nouveau var sett á markað líkt og hefð er fyrir þriðja fimmtudaginn í nóvember. Nokkuð hefur dregið úr vinsældum Beaujolais-vínanna hér á landi undanfarin ár en margir bíða þó spenntir eftir þeim.
Meira
Á DÖGUNUM átti ég erindi til Brussel. Á flugi frá Kaupmannahöfn naut góðs skyggnis og útsýnis yfir stóran hluta Norður-Evrópu. Mér varð hugsað til landafundasögu Guðmundar Kambans, Vítt sé ég land og fagurt.
Meira
ÍSLAND er ferskvatnsauðugasta land heims með alls 666.667 rúmmetra af vatni á mann á ári en þurrasta land heims, Djíbútí, er aðeins með 23 rúmmetra af vatni á mann á ári.
Meira
Ferðafélag Íslands hefur nú verið starfrækt í 75 ár, en hugmyndin var á sínum tíma sótt til hinna Norðurlandanna. Margt hefur breyst á þessum árum og stiklar Tómas Einarsson hér á stóru í sögu félagsins.
Meira
FRÆNDURNIR Páll Tryggvason og Björn Hermannsson ákváðu fyrir þremur árum að styrkja gott málefni á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar með því að fjármagna einn brunn í Mósambik.
Meira
Guðrún Jóhannsdóttir hafði samband og vildi benda á vefsíðu sem ungur Íslendingur, Magnús Þór Magnússon, sem býr í Noregi hefur sett saman. Hana er að finna á slóðinni http://tradisjoner.no.
Meira
Bókarkafli Héðinn Valdimarsson hugðist sameina vinstri öflin í íslenskum stjórnmálum en því lyktaði með því að hann var rekinn úr Alþýðuflokknum og sakaður um að hafa klofið hann. "Látum gleymskuna og þögnina geyma hann," sagði Brynjólfur Bjarnason þegar Héðinn var farinn. Í frásögn Halls Hallssonar um sögu Olíuverzlunar Íslands er að finna aðra sýn á þessa atburði.
Meira
Lesendur eru hvattir til að senda sælkerum hugmyndir, athugasemdir eða ábendingar. Um getur verið að ræða ábendingar um áhugavert efni, atburði eða uppákomur, stuttar sögur tengdar efninu eða þá óskir um að eitthvað sérstakt verði tekið fyrir.
Meira
VITIÐ þið hvað 29 milljónir Bandaríkjamanna gerðu síðastliðið fimmtudagskvöld? Þeir horfðu á lokaþátt annarrar þáttaraðarinnar af Piparsveininum .
Meira
Rýrnun í verslun er hvarvetna mikil og Ísland er þar engin undantekning. Skapti Hallgrímsson komst m.a. að því að talið er að vörum að verðmæti 300 milljóna króna sé stolið frá Baugi árlega.
Meira
Talið er að ekki verði langt þar til vatn tekur við af olíu sem mikilvægasta auðlind jarðar. Vatn er takmörkuð auðlind því aðeins 2,5% af öllu vatni á jörðinni eru ferskvatn og aðeins 0,27% neysluhæf. Jóhanna Ingvarsdóttir kynnti sér þjóðþrifaverk, sem Hjálparstarf kirkjunnar hefur unnið að í Mósambik. Það felur í sér að grafa brunna, sem leitt hafa til jákvæðra þjóðfélagsbreytinga og bætts heilsufars.
Meira
Það er ekki á hverjum degi sem að maður er dreginn inn í rúmenskt brúðkaup en rúmenskar brúðkaupsveislur reyndust nokkuð ólíkar hinni hefðbundnu íslensku brúðkaupsveislu.
Meira
Bókarkafli Jón Baldvin Hannibalsson hefur verið sagður síðasti sjarmörinn í íslenskri pólitík. Hann hefur víða komið við á löngum ferli og hefur Kolbrún Bergþórsdóttir tekið að sér að skrásetja sögu hans. Hér er gripið niður í frásögn af togaraferð til Nýfundnalands, kennsluárunum og stjórnmálaafskiptum Jóns Baldvins.
Meira
Bókarkafli Halldór Laxness kom víða við á löngum ferli. Á fyrri hluta æviskeiðsins var hann langdvölum erlendis, á Norðurlöndum, á meginlandi Evrópu og vestan hafs í Kanada og Bandaríkjunum.
Meira
Í sælkeraþættinum síðasta sunnudag urðu þau mistök að uppskrift af sósu með saltbökuðum laxi féll niður og er uppskriftin því birt hér. Hollandaise-sósa Útbúið u.þ.b.
Meira
Pasqua Cabernet- Merlot 2001 Pasqua er ítalskur framleiðandi frá Veneto á Norður-Ítalíu sem lengi hefur boðið vörur sínar á íslenska markaðnum, jafnt vínin frá Veneto sem afrakstur útrásar fyrirtækisins til Sikileyjar.
Meira
KK fæddist árið 1956 í Ameríku sem bandarískur ríkisborgari, sonur alíslenskra foreldra. Faðir hans, Kristján Einarsson, naut velgengni sem byggingaverkfræðingur í San Francisco og fjölskyldan bjó við góð kjör. En nokkrum árum síðar eru blikur á lofti.
Meira
Til forráðamanna barna! Lögð er áhersla á að fullorðnir ræði efni hverrar spurningar og setji í samhengi við aðstæður barnsins, jafnhliða því að spurningunni er svarað. 1) Reykskynjarar eru til á flestum heimilum.
Meira
Sumarið búið er, og fer. Nú er komið haust? Þá er hægt að týna ber, og laufin detta af trjánum endalaust. Gul, græn, appelsínugul og rauð? En þegar laufin eru farin, eru trén dauð.
Meira
VIÐ Íslendingar eru mikil jólabörn, en þar sem við búum svo norðarlega á hnettinum, er dimmara hjá okkur en langflestum öðrum í heiminum á þessum tíma árs, og þess vegna finnst okkur svo gaman að skreyta allt ljósum um jólin.
Meira
Fullt af krökkum sendi inn svör í Honk! spurningakeppninni, og allir voru með rétt svör. Tuttugu heppnir krakkar voru síðan dregnir út, og geta vitjað vinningsins í miðasölu Borgarleikhússins, alla daga frá 13-18, og fram að sýningu, sýningardaga.
Meira
Tíu krakkar geta unnið sér inn Stóru barnaplötuna 3 með því að svara nokkrum tónlistartengdum spurningum. Reyndu! 1) Úr hvaða bíómynd er lagið Hakuna Matata? 2) Hvaða leikritapersónur syngja lagið Svangir bræður?
Meira
Einu sinni fékk afi tvo barnahesta að láni og við þekktum þá ekki vel. Einn daginn þegar ég og bróðir minn vorum að fara í fyrsta reiðtúrinn okkar alein, þá skeði óhappið.
Meira
MARGIR þekkja spennusögur bandaríska rithöfundarins Roberts Crais . Ein þeirra verður nú að kvikmynd með Bruce Willis í aðalhlutverki og mun hann einnig verða einn af framleiðendunum.
Meira
HELSTA norræna menningarmiðstöðin í Bandaríkjunum, Scandinavia House á Park Avenue í New York, stendur nú fyrri hluta vetrar fyrir yfirlitssýningum á verkum "fimm áhrifamestu leikstjóra sem nú eru að störfum á Norðurlöndunum", eins og segir í...
Meira
Leikari : Daniel Radcliffe. Fæðingardagur : 31. júlí 1989, 13 ára. Þjóðerni : Enskur. Fjölskylda : Einkabarn. Foreldrar hans eru báðir umboðsmenn, faðir hans Alan fyrir rithöfunda en móðir hans Marcia fyrir leikara.
Meira
"Fyrsta karlstjarnan sem er yfirlýstur hommi," er einn frasinn sem notaður hefur verið til að stimpla með breska leikarann Rupert Everett . Annar er: "Illkvittnisleg, fáguð blanda af Cary Grant og Joan Crawford "!
Meira
GINNY WEASLEY Systir Rons og yngst hinna sjöWeasley-systkina til að ganga í Hogwart, þar sem hún er einu ári á eftir bróður sínum og Harry. Leikin af hinni 11 ára gömlu Bonnie Wright.
Meira
ÞAÐ eru átta ár síðan Scott Calvin ( Tim Allen ) varð óvart valdur að því að jólasveinninn dó og þurfti því sjálfur að taka við starfinu. Hann hefur verið jólasveinninn síðan og álfarnir hans segja að hann sé sá besti hingað til.
Meira
FINNINN Aki Kaurismäki og mynd hans Maður án fortíðar, sem hrepptu Norrænu kvikmyndaverðlaunin nýverið, ganga með góð spil á hendi til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem afhent verða 7. desember í Róm.
Meira
"Viðskiptafræðingar eru fólk sem vinnur með tölur en skortir persónuleika til að verða bókhaldarar," sagði gjaldkerinn. Auðvitað er þetta tóm lygi og áróður og eru viðskiptafræðingar beðnir velvirðingar á ómaklegum ummælum.
Meira
HVER er svo framtíð Harry Potter-myndanna að afloknum tveimur myndum? Warner hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á átta bókum um galdrastrákinn og það meira að segja þótt Rowling hafi lýst því yfir að hún sjálf muni alls ekki skrifa fleiri en sjö.
Meira
HVOLPAÁSTIN lá í loftinu við tökur á Leyniklefanum . Columbus leikstjóri hefur lýst því hvernig hann þurfti að taka í taumana þegar verið var að skjóta atriðin í hátíðarsal Hogwartsskóla.
Meira
hefur ekki aðeins metnað í leiklist og ritstörfum (hann skrifar stundum greinar fyrir tímaritið Vanity Fair m.a.) heldur einnig tónlist. Hann reyndi að verða poppstjarna fyrr á árum, sendi frá sér tvær plötur en uppskar ekki samkvæmt óskum.
Meira
Hann er snúinn aftur á hvíta tjaldið, í annað skiptið af þeim sjö sem fyrirhuguð eru, töfrastrákurinn Harry Potter sem vann hug og hjörtu bíóunnenda á öllum aldri fyrir ári í fyrstu myndinni, sem skráð er sú næsttekjuhæsta í sögu kvikmyndanna. Hugrakkur Skarphéðinn Guðmundsson hætti sér inn í leyniklefann og skoðaði hvern krók og kima á nýju myndinni.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.