FRIÐRIK Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir aðspurður að engin örvænting hafi gripið um sig innan fyrirtækisins þó að einn verktaki til viðbótar, NCC International, hafi hætt við þátttöku í útboði vegna Kárahnjúkavirkjunar.
Meira
VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ NCC International AS, sem er í aðaleigu sænskra og norskra aðila, tilkynnti Landsvirkjun í gær að það myndi ekki taka þátt í útboði á gerð stíflu og aðrennslisganga við Kárahnjúkavirkjun, en tilboð verða opnuð á morgun.
Meira
LÝST var yfir neyðarástandi á Austur-Tímor í gær eftir að blóðug átök blossuðu upp í höfuðborginni, Dili. Kostuðu þau að minnsta kosti einn mann lífið og margar byggingar voru brenndar til grunna, þar á meðal heimili forsætisráðherrans.
Meira
ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, útlistaði í fyrsta sinn í gær hugmyndir sínar um sérstakt ríki Palestínumanna. Vill hann að til þess verði stofnað á 40% Vesturbakkans og 75% Gaza-svæðisins.
Meira
TÍÐNI húðæxla hérlendis hefur tvöfaldast síðasta áratug og er sú þróun ekki síst rakin til aukinna sólbaða og notkunar ljósabekkja. Á árunum 1997 til 2001 greindust að meðaltali 40 manns með húðæxli og er aukningin mest hjá konum á aldrinum 25-55 ára.
Meira
ÚTLIT er fyrir við upphaf þriðju og síðustu umræðu um fjárlagafrumvarp næsta árs á Alþingi í dag að fjárlög verði afgreidd með 11,5 milljarða tekjuafgangi. Áætlað er að tekjur ríkissjóðs á næsta ári verði 271,6 milljarðar kr. eða 7,6 milljörðum kr.
Meira
2.000, ekki 200 Leiðindavilla slæddist í viðtal við Kristínu Indriðadóttur, framkvæmdastjóra Menntasmiðju Kennaraháskóla Íslands, á blaðsíðu átta í Morgunblaðinu í gær. Stóð þar að nemendur við KHÍ væru 200, en þar vantaði eitt núll, talan átti að vera...
Meira
Í DAG verður lagt fram í borgarstjórn Reykjavíkur frumvarp að A-hluta fjárhagsáætlunar ársins 2003, þ.e. fyrir borgarsjóð og þær stofnanir borgarinnar sem eru fjármagnaðar með skatttekjum.
Meira
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hélt í gær fyrirlestur í boði Háskólans í Bonn, þar sem hann ræddi m.a. um samskipti Þýskalands og Norður-Evrópu og hlutverk hins "Nýja norðurs" í alþjóðlegu samhengi og samvinnu við önnur ríki.
Meira
GERT er ráð fyrir 550 milljóna tekjuafgangi fyrir fjármagnsliði í fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Hafnarfjarðar fyrir árið 2003. Áætlunin var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í gær.
Meira
LENGI hefur menn grunað að sannir skoskir karlar veldu að vera berrassaðir innan undir skotapilsunum, sem þeir svo gjarnan klæðast til hátíðabrigða.
Meira
LÖGREGLA í Indónesíu tilkynnti í gær að hún hefði handtekið meintan aðgerðastjóra Jamaah Islamiyah, hryðjuverkasamtaka sem talin eru tengjast al-Qaeda-samtökunum og hafa borið ábyrgð á mannskæðu sprengjutilræði á Balí í Indónesíu í október.
Meira
Auður Styrkársdóttir er fædd í Reykjavík og ólst þar upp og á Seltjarnarnesi. Hún er með BA-próf frá Háskóla Íslands 1977 og doktorspróf frá Umeå-háskóla í Svíþjóð í stjórnmálafræði árið 1999. Hún hefur starfað sem blaðamaður, kennari og verkefnisstjóri. Hún tók við starfi forstöðumanns Kvennasögusafns Íslands árið 2001. Hún er gift Svani Kristjánssyni prófessor og eiga þau þrjú börn, Kára, Halldór og Herdísi.
Meira
JÓLAFÖNDUR Foreldrafélags grunnskólans er er árviss viðburður í Grindavík og markar upphaf jólaundirbúningsins hjá mörgum. Þessi stund fangar hugi flestra yngri nemendanna en einnig þeir eldri mæta með foreldrum sínum og systkinum.
Meira
Aðalheiður Jóhannsdóttir lögfræðingur hefur gagnrýnt ýmislegt í íslenskri umhverfislöggjöf og bent á atriði sem betur mættu fara, m.a. atriði sem varða lög um mat á um- hverfisáhrifum.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun sameiginlegs félagsfundar Drífanda stéttarfélags, Sveinafélags járniðnaðarmanna, Sjómannafélagsins Jötuns og Verslunarmannafélags Vestmannaeyja sem haldinn var í Alþýðuhúsinu 2. desember sl.
Meira
HUGMYNDIR um uppbyggingu sjóminjasafns í Reykjavík voru kynntar í borgarráði í síðustu viku. Gera þær ráð fyrir tólf efnisflokkum sem safnið myndi gera skil. Þá var lögð fram tillaga um að stofnuð yrði sjálfseignarstofnun um safnið.
Meira
Benedikt S. Lafleur, myndlistarmaður og rithöfundur, heldur glermálunarnámskeið í kvöld og annaðkvöld, 5.-6. desember, í Gallerí gersemi, Bláu könnunni á Akureyri, og stendur það frá kl. 18 til 22. Hægt er að mæta aðeins annað kvöldið.
Meira
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landspítali - háskólasjúkrahús hafi brotið stjórnsýslulög og lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna er starfsmaður á öldrunarsviði var áminntur fyrir brot í starfi fyrr á þessu ári.
Meira
HANDBÆRT fé frá rekstri Reykjavíkurborgar á næsta ári verður 4,4 milljarðar miðað við fjárhagsáætlun og segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri þá tölu mikilvæga. "Þetta er það fé sem menn eiga eftir þegar búið er að greiða allan reksturinn.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur fengið tilkynningar um að 276 ökutækjum hafi verið stolið á þessu ári og stefnir í að slík mál verði yfir 300 fyrir árslok, fleiri en nokkru sinni áður.
Meira
Í DAG heldur áfram aðalmeðferð í umfangsmiklu fíkniefnamáli sem kennt er við svokallaðan sjópakka í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ákært er fyrir tilraun til að flytja 10 kíló af hassi til landsins.
Meira
RIÐA í sauðfé og geitum er einn svokallaðra príonsjúkdóma. Þeir leggjast á miðtaugakerfi manna og dýra og valda undantekningalaust hrörnun og dauða. Aðrir príonsjúkdómar í búfé eru til dæmis kúariða en í mönnum er Creutzfeldt-Jakobs-sjúkdómur þekktastur.
Meira
"ÍBÚAR taka mjög vel á móti okkur og eru þakklátir fyrir ráðleggingarnar," segir Baldur Baldursson verkefnisstjóri hjá forvarnadeild Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Meira
ABDULLAH Gul, forsætisráðherra Tyrklands, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem sagði að Tyrkir hefðu ekki formlega skuldbundið sig til að aðstoða Bandaríkjamenn í hernaði gegn Írak ef til hans kæmi.
Meira
Eyjólfur Kristjánsson tónlistarmaður og Viktor Arnar Ingólfsson rithöfundur kynna nýútkomin verk sín í Deiglunni, Kaupvangsstræti annað kvöld, föstudagskvöldið 6. desember, kl. 21.30.
Meira
UM 25 mínútum eftir að Snorri Jónsson lagði bíl sínum fyrir utan vinnustað sinn á Laugavegi 178 á miðvikudagsmorgni í síðustu viku var búið að stela honum. Bíllinn er af gerðinni Nissan Sunny, árgerð 1991.
Meira
GRIPIÐ verður til ráðstafana, sem meðal fela í sér að komið verður í veg fyrir óleyfilegan hringakstur á Geirsnefi, fáist fjárheimildir til verkefnisins.
Meira
SJÁLFSTÆÐISSINNAR á Grænlandi unnu sigur í þingkosningunum á þriðjudag og er gert ráð fyrir að nýr leiðtogi Siumut-flokks jafnaðarmanna, Hans Enoksen, hefji stjórnarmyndunarviðræður.
Meira
LÖGBOÐNAR ökutækjatryggingar eru sá vátryggingaflokkur sem skilar stóru tryggingafélögunum þremur mestum hagnaði, en tapið er mest af eignatryggingum.
Meira
TÆPLEGA þrítugur Bandaríkjamaður, sem var í farbanni vegna nauðgunarkæru, reyndi á mánudag að komast úr landi en var handtekinn eftir að hann var kominn um borð í flugvél á leið til Bandaríkjanna frá Keflavíkurflugvelli.
Meira
BRESKA flugfélagið British Airways greindi frá því í gær að verið væri að athuga hvers vegna hluti af hliðarstýrinu á Concorde-farþegaþotu datt af á flugi fyrir viku. 105 voru um borð, engan sakaði og vélin lenti heilu og höldnu.
Meira
SÍBREYTILEGT verð á jólabókum er sagt til marks um gríðarlega harða samkeppni á bókamarkaðnum þessa dagana. Talsmenn ýmissa bókaverslana og stórmarkaða segja að verði sé breytt daglega, tvisvar á dag eða jafnvel oftar.
Meira
Í dag S igmund 8 V iðhorf 34 E rlent 14/18 M inningar 40/43 H öfuðborgin 20 S kák 45 A kureyri 21/22 B réf 48 S uðurnes 22 K irkjustarf 49 L andið 23 D agbók 50/51 N eytendur 24 F ólk 54/57 L istir 25/28 B íó 54/57 M enntun 29 L jósvakamiðlar 58 F...
Meira
BÖRNIN í þriðja bekk Flúðaskóla, sextán talsins, fóru í fjósaskoðun að Dalbæ í Hreppum fyrir skömmu undir öruggri stjórn kennara síns, Hrannar Harðardóttur. Þó að þau séu sveitabörn eru ekki kýr heima hjá nema þriðjungi þeirra.
Meira
ÍSLENSKIR flugumferðarstjórar búa sig nú undir að taka við stjórn flugvallarins í Pristina í Kosovo en Ítalir hafa annast stjórn hans í umboði Atlantshafsbandalagsins.
Meira
PALESTÍNSKUR maður sýnir hluta úr eldflaug sem ísraelski herinn skaut að bækistöðvum heimastjórnar Palestínumanna í Gaza-borg í gær. Hluti byggingarinnar eyðilagðist í árásinni og einn maður fórst. Ísraelskar herþyrlur skutu a.m.k.
Meira
DEMÓKRATINN John Kerry, öldungadeildarþingmaður frá Massachusetts, segist vera að undirbúa framboð í forkosningum demókrata fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2004.
Meira
Jólafundur Félags nýrnasjúkra verður í kvöld, fimmtudaginn 5. desember, kl. 20 í Áskirkju v/Vesturbrún. Bragi Skúlason flytur hugvekju, Auður Haralds verður með gleðiávarp og söngnemendur Signýjar Sæmundsdóttur syngja nokkur lög.
Meira
JÓLAGETRAUN fyrir 1.-5. bekk grunnskóla hefur verið send öllum grunnskólanemendum á þeim aldri á landinu. Rúmlega 22 þúsund börn fengu hana senda og leysa hana með aðstoð foreldra eða kennara.
Meira
Jólaskemmtun Dansráðs Íslands verður á Broadway sunnudaginn 8. desember kl. 13, en húsið er opnað kl. 12. Að sýningu lokinni mun jólasveinninn koma, dansa í kringum jólatré og skemmta gestum.
Meira
DANSPARIÐ Karen Björk Björgvinsdóttir og Adam Reeve úr ÍR, sem keppa í flokki atvinnumanna fyrir Ísland, náðu þeim árangri að vinna til bronsverðlauna í Heimsmeistarakeppni atvinnumanna í 10 dönsum, þ.e. keppt er bæði í latin- og standard-dönsum.
Meira
KAÞÓLSKA erkibiskupsdæmið í Boston í Bandaríkjunum íhugar nú að fara fram á greiðslustöðvun eftir að um 450 manns hafa höfðað mál á hendur kirkjunni og sagst hafa orðið fórnarlömb barnaníðinga í prestastéttinni, að því er blaðið The Boston Globe greindi...
Meira
KIRKJUGARÐAR Reykjavíkurprófastsdæma í samstarfi við Arkitektafélag Íslands hafa ákveðið að efna til samkeppni um útlitshönnun landsvæðis í Leynimýri við Öskjuhlíð vegna kirkjugarðs fyrir duftker sem þar er á samþykktu aðalskipulagi Reykjavíkur.
Meira
MAÐURINN sem fannst látinn í Grindavíkurhöfn á þriðjudag var 35 ára færeyskur sjómaður. Hann var skipverji á skipinu Stapin sem liggur við höfn í Grindavík.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir vitnum að tveimur umferðaróhöppum miðvikudaginn 27. nóvember sl. Hið fyrra varð á bílastæði sunnan við Hólagarð í Lóuhólum, á tímabilinu 12-19.
Meira
BIRKIR Sveinsson, formaður Húðlæknafélags Íslands, segist hafa áhyggjur af markaðssetningu sólbaðsstofa, en eftir því sem ljósatímarnir eru teknir örar þeim mun ódýrari eru þeir. Minna sé hugsað um afleiðingarnar fyrir viðskiptavini.
Meira
BÆJARSTJÓRAR Reykjanesbæjar og Seltjarnarnesbæjar telja að með stofnun sértæks fasteignafélags, sem kaupi og leigi eignir sveitarfélaga og fjármálastofnana, megi hugsanlega ná fram aukinni hagkvæmni í rekstri.
Meira
"NÚ ERU að eiga sér stað miklar breytingar á sviði alþjóðamála, t.d. víða í Evrópu, innan Evrópusambandsins og hjá Atlantshafsbandalaginu, á sviði efnahags-, öryggis- og varnarmála og svo mætti lengi telja.
Meira
Mikið verður um að vera í Laufási á morgun, laugardaginn 7. desember, þegar starfsmenn gamla bæjarins og velunnarar hans í Laufáshópnum taka til hendi við jólaundirbúninginn inni í bænum og á stéttum úti. Barnastund verður í kirkjunni kl. 13.
Meira
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagðist á Alþingi í gær ætla að drífa í því að skipa nefnd sem hefði verndun Þingvallaurriðans að markmiði, en Alþingi samþykkti ályktun þessa efnis í mars 1998.
Meira
NÝR pitsustaður, Pizzusmiðjan, var nýlega opnaður að Brekkuhúsum 1 í Grafarvogi. Eigendur staðarins eru Ellert Jóhannsson og Ásgeir Blöndal Ásgeirsson. Boðið er upp á 45 áleggstegundir og 26 pitsur af matseðli. Pizzusmiðjan er opin kl....
Meira
IEVA Pukite og Kaspars Goba eru lettneskir blaðamenn sem dvöldu um mánaðarskeið á Íslandi í haust og kynntu sér land og þjóð með það fyrir augum að fjalla um landið í máli og myndum í lettneskum fjölmiðlum.
Meira
"SÁUÐ þið hvernig ég tók hann?" kallaði einn billjarðspilarinn úr hópi eldri borgara í Reykjanesbæ til þriggja félaga sinna sem sátu með kjuðana og horfðu á leik hans við margfaldan Íslandsmeistara.
Meira
RAFMAGNSSTAURAR eru sjaldan til augnayndis þó að þeir séu nauðsynlegir þar sem ekki er búið að setja rafmagnið í jörð.Vonandi heyra þeir brátt sögunni til.
Meira
Alþjóðlegur rannsóknahópur hefur fengið um 140 milljóna króna styrk til rannsókna á sauðfjárriðu. Um 17 milljónum af þeirri upphæð verður varið til rannsókna hérlendis. Jóhannes Tómasson ræddi við Sigurð Sigurðarson og Þorkel Jóhannesson um rannsóknirnar.
Meira
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að setja á laggirnar ráðgjafahóp vegna Elliðaánna. Hópnum er ætlað að vera Orkuveitu Reykjavíkur til ráðgjafar um málefni Elliðaánna og viðkomu laxastofnsins þar.
Meira
REIKNAÐ er með að útvarpsráð afgreiði á fundi á þriðjudag umsóknir um stöðu fréttastjóra Ríkissjónvarpsins. Sjö sækja um: Elín Hirst varafréttastjóri, G.
Meira
OPIN kerfi hf. styrktu Stefán Karl Stefánsson leikara í baráttu hans við einelti og til að stofna samtökin Regnbogabörn í stað þess að senda út jólakort í ár til viðskiptavina.
Meira
SKÓLAMEISTARAFÉLAG Íslands og Félag íslenskra framhaldsskóla samþykktu á fundi í gær áskorun á Alþingi að leiðrétta nú þegar frumvarp til fjáraukalaga 2002 og frumvarp til fjárlaga 2003 vegna fjárhagsvanda skólanna.
Meira
SÁDI-Arabar hafa hafið upplýsingaherferð í Bandaríkjunum til að verjast ásökunum um að þeir hafi ekki gert nægar ráðstafanir til að hindra að hryðjuverkasamtökum bærust peningar frá sádi-arabískum góðgerðarstofnunum.
Meira
LÖGREGLAN á Dalvík handtók sex manns sl. mánudagskvöld vegna gruns um fíkniefnamisferli. Við handtökurnar fundust á fólkinu um 25 g af hassi sem hald var lagt á.
Meira
SÍMINN hélt nýlega ráðstefnu á Egilsstöðum undir yfirskriftinni "Í snertingu við Austurland". Þar var kynnt þjónusta fyrirtækisins og nýjungar á sviði fjarskipta hvað varðar síma- og netlausnir.
Meira
Sjálfstæðisþingmennirnir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Guðmundur Hallvarðsson stinga saman nefjum á þingfundi í gær en á dagskrá voru fjölmörg mál auk þess sem lögð voru fram svör við...
Meira
ÖLLUM verzlunum sænsku IKEA-húsgagnaverzlanakeðjunnar í Hollandi, sem eru alls tíu, var lokað eftir að sprengjur fundust í tveimur þeirra í gærmorgun. Talsmenn IKEA sögðu sprengjufundinn þó ekki tengjast skipulagðri hryðjuverkastarfsemi.
Meira
ELDRI deild grunnskólans á Þórshöfn sýndi söngleikinn "Wake me up before you gogo" eftir Hallgrím Helgason á árshátíð sinni og var það hin besta skemmtun.
Meira
TEKJUR Íslenskra söfnunarkassa sf. og Happdrættis Háskóla Íslands af söfnunarkössum og happdrættisvélum voru samtals rúmir 2,5 milljarðar árið 2001 og rúmir 2,2 milljarðar árið 2000.
Meira
*Upphafið - Landnám *Sambúðin við hafið - fornir sjávarhættir *Höfnin - lífæð Reykjavíkur *Skútur og togarar *Sjómannsfjölskyldan *Kaupsiglingar - strandflutningar *Iðnaður og þjónusta í landi *Hafið gaf og hafið tók - sjóbjörgun *Löggæsla á höfunum...
Meira
40 ÍSLENDINGAR greindust að meðaltali með sortuæxli í húð á árunum 1997-2001, en síðasta áratug hefur tíðni húðæxla tvöfaldast. Segir á vef Krabbameinsfélagsins að sú þróun sé einkum rakin til aukinna sólbaða og notkunar ljósabekkja.
Meira
LAGT hefur verið fram á Alþingi stjórnarfrumvarp þess efnis að bifreiðar sem nota í tilraunaskyni annan orkugjafa en bensín, dísilolíu eða annað eldsneyti unnið úr olíu verði undanþegnar greiðslu þungaskatts í eitt ár, þ.e. frá 1. janúar 2003 til 31.
Meira
TRYGGINGASTOFNUN hefur sent um 39.000 lífeyrisþegum bréf þar sem óskað er eftir upplýsingum um tekjur þeirra og tekjur maka. Jafnframt óskar stofnunin eftir heimild lífeyrisþega til að afla upplýsinga tekjur þeirra hjá ríkisskattstjóra og lífeyrissjóðum.
Meira
MEIRIHLUTI menntamálanefndar Alþingis hefur lagt fram tillögu á Alþingi um hverjir hljóti heiðurslaun listamanna á næsta ári. Listamennirnir eru 22 talsins, en þeir voru 21 á þessu ári. Samkvæmt tillögunni hljóta þeir 1,6 milljónir króna hver.
Meira
TÍMARITIN Sumarhúsið og garðyrkjuritið Við ræktum hafa verið sameinuð undir heitinu Sumarhúsið og garðurinn. Útgefandi er Rit og rækt ehf. í Mosfellsbæ sem gaf út bæði ritin áður.
Meira
ÞAÐ voru hrikalegar þyngdir sem fóru upp hjá laganna vörðum í setustofunni á lögreglustöðinni á Hverfisgötu á árlegu bekkpressumóti Íþróttafélags lögreglunnar í gær. Spennan var gríðarleg í öllum flokkum, ekki síst í +100 kg flokki.
Meira
SKAMMDEGIÐ á Akureyri er með allra svartasta móti þessa dagana, enda ekki snjókorn að sjá í bænum. Ökumenn þurfa því fara mjög varlega, ekki síst gagnvart gangandi vegfarendum.
Meira
HEIMIR Gunnarsson, aðstoðarslökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar, fékk í hendur starfslokasamning sl. föstudag og var honum jafnframt tilkynnt að hann þyrfti ekki að mæta meira til vinnu á slökkvistöðinni.
Meira
ÁSKORUN til stjórnmálaflokka frá Kvenréttindafélagi Íslands: "Konur á Íslandi eru rúmlega helmingur landsmanna. Alþingi Íslendinga á að endurspegla þjóðfélagið og því er mikilvægt að þar sitji fulltrúar ólíkra hópa.
Meira
BRÚIN yfir Jöklu og Kárahnjúkavegur verða formlega tekin í notkun í dag með athöfn sem Landsvirkjun og iðnaðarráðuneytið standa sameiginlega að. Mannvirkin eru hluti af undirbúningsframkvæmdum vegna Kárahnjúkavirkjunar.
Meira
Of mikil áhætta Verktakafyrirtækið NCC International AS tilkynnti Landsvirkjun, að það tæki ekki þátt í útboði á gerð stíflu og aðrennslisganga við Kárahnjúkavirkjun vegna þess, að það teldi áhættu af framkvæmdinni of mikla.
Meira
AKHMED Zakajev, sendimaður forseta Tétsníu, sakaði dönsk stjórnvöld um að hafa haldið honum í pólitískri gíslingu eftir að danska dómsmálaráðuneytið ákvað að hafna beiðni rússneskra yfirvalda um að framselja hann til að hægt yrði að sækja hann til saka í...
Meira
Ákvörðun þeirra Árna Gíslasonar og Sophusar J. Nielsen á Ísafirði að vélvæða sexæringinn Stanley markar ein stærstu tímamótin í útgerð á Íslandi. Þetta segir í leiðara Bæjarins besta á Ísafirði.
Meira
Sérkennilegar umræður áttu sér stað á Alþingi í fyrradag í tilefni af skuldbindingu ríkisstjórnarinnar um að kosta loftflutninga á vegum Atlantshafsbandalagsins (NATO) fyrir allt að 300 milljónum króna, komi til aðgerða á vegum þess. M.a.
Meira
* 12 TÓNAR: Spaðar með kynningartónleika föstudag kl. 17:00 til 18:00, í tilefni af útgáfu nýju plötunnar Skipt um peru . * ARI Í ÖGRI: Valíum föstudags- og laugardagskvöld. * ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Harmonikuball laugardagskvöld kl. 22:00.
Meira
Myndlistarumræðan hefur tekið kipp undanfarið, nú síðast í kjölfar hins umdeilanlega ferlis að selja banka án merkjanlegrar úttektar á málverkaeign þeirra. Einkum í ljósi þess að þangað höfðu ratað ýmsar perlur, jafnvel þjóðargersemar. Jafnframt er titringur í kringum fölsunarmálið svonefnda þá niðurstaða þess er seint um síðir í sjónmáli. Hér víkur Bragi Ásgeirsson nokkrum orðum að samræðunni.
Meira
Afmælisrit til heiðurs Gunnari G. Schram sjötugum inniheldur þrjátíu og eina ritgerð eftir fræðimenn í lögfræði um málefni sem mörg hver eru í brennidepli þjóðmálaumræðunnar einmitt nú, svo sem mannréttindi, umhverfismál, fiskvernd og nýtingu landgæða.
Meira
Andreas Schmidt er meðal einsöngvara í Jólaóratoríunni og þekkir verkið frá öllum hliðum, eins og Bergþóra Jónsdóttir komst að, - æfði allar kórraddir fyrir eina tónleika, og ekki bara af því að Bach er honum kær.
Meira
BROT af því besta nefnist dagskrá í samvinnu Borgarleikhússins, Borgarbókasafnsins og Kringlunnar sem verður í anddyri Borgarleikhússins í kvöld kl. 20.
Meira
DOGMA-kvikmyndagerð Danans Lars Von Triers og félaga hans hefur vakið athygli um heim allan enda getið af sér sterkar myndir á borð við Veisluna, Myrkradansarann og Ítölsku fyrir byrjendur.
Meira
Agakerfi/Til að fræða barn og mennta þarf jafnframt að temja það og aga. Maðurinn hefur glímt við agann frá upphafi vega. Gunnar Hersveinn segir frá aðferðinni töfrar 1-2-3 á íslensku.
Meira
Geislaplatan Freistingar með hljómsveitinni Nýjum dönskum. Lög og textar eftir liðsmenn sveitarinnar, þá Björn Jörund Friðbjörnsson, Jón Ólafsson, Ólaf Hólm og Stefán Hjörleifsson.
Meira
SÍÐUSTU daga hafa staðið yfir íslenskir menningardagar í Bonn í Þýskalandi í tilefni af fimmtíu ára stjórnmálasambandi Íslands og Þýskalands og hundrað ára afmæli Halldórs Laxness.
Meira
Frönsk barokkverk eftir Marais, P. D. Philidor, Boismortier og Leclair. Camilla Söderberg blokkflautur, Martial Nardeau & Guðrún S. Birgisdóttir barokkflautur, Peter Tompkins barokkóbó, Ólöf S. Óskarsdóttir gamba, Snorri Örn Snorrason þjorba, Elín Guðmundsdóttir semball. Laugardaginn 30. nóvember kl. 16.
Meira
Oft líður fjölskyldunni allri verulega illa þegar verið er að takast á um heimalærdóminn á kvöldin. Ef tvö börn eru á heimilinu er algengast að annað barnið hangi við eldhúsborðið og stari út um gluggann með fýlusvip.
Meira
KARLAKÓRINN Heimir úr Skagafirði heimsækir höfuðborgina a.m.k. einu sinni á ári og syngur fyrir höfuðborgarbúa. Engin undantekin er á því nú og mun kórinn að þessu sinni halda aðventutónleika í Langholtskirkju á föstudagskvöld kl. 20.30.
Meira
Í GALLERÍI Halla rakara, Strandgötu 39, gegnt Hafnarborg, stendur nú yfir sýning á íslensku landslagi unnu í gler eftir Árnýju Birnu Hilmarsdóttur sem er starfandi í Danmörku.
Meira
ÓLAFUR Elíasson hefur frá unga aldri búið erlendis en íslensk náttúra er þó aldrei langt undan í list hans, hvort sem um er að ræða ljósmyndir eða rýmisverk.
Meira
Latibær er kominn með nýjan svip og hafa bæjarbúar fengið bandarísk nöfn og útlit. Inga Rún Sigurðardóttir ræddi við Ágúst Frey Ingason framkvæmdastjóra um útrásina.
Meira
SÝNING á málverkum Aðalheiðar Valgeirsdóttur stendur nú yfir í anddyri Hallgrímskirkju. Á sýningunni eru olíumálverk sem eru unnin á þessu ári sérstaklega fyrir þessa sýningu en hún er á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju.
Meira
GUNNARSSTOFNUN efndi til ljóðakeppni austfirskra barna í 1.-7. bekk grunnskóla og var þemað Grýla. Alls bárust um 260 ljóð en dómnefnd valdi fjögur til verðlauna á Grýlugleði sem haldin var á dögunum í Gunnarsstofnun.
Meira
Stúdentakjallarinn Eistneski tenór saxafónleikarinn Siim Aimla heldur tónleika kl. 22. Með Siim leika þeir Ólafur Stolzenwald á bassa og Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari. Á efnisskránni verða lög eftir John Coltrane, Thelonius Monk og John Scofield.
Meira
Kristinn Hallsson bassbaríton heitir tvöfaldur geisladiskur og er hér kominn þverskurður af ferli Kristins annars vegar og hins vegar samvinna þeirra Kristins og Árna Kristjánssonar í febrúar 1965.
Meira
Andvari 2002 er kominn út. Þetta er 127. árgangur ritsins, sá 44. í nýjum flokki. Aðalgreinin í ár er æviágrip Einars Olgeirssonar alþingismanns eftir Sigurð Ragnarsson sagnfræðing.
Meira
Lúsastríðið er eftir Brynhildi Þórarinsdóttur. Sagan spannar viku í lífi þriggja vina sem fá nýstárlega hugmynd: Um miðjan febrúar, þegar langt er til páska og jólin löngu liðin, gera ellefu ára krakkar næstum hvað sem er til að fá frí í skólanum.
Meira
"Ég minnist þess þegar Davíð Oddsson, þáverandi borgarstjóri, ákvað að byggja ráðhús í Tjörninni. Þá trylltist vinstri vængurinn og þar á meðal sumir vísindamenn."
Meira
Hvar eru krónurnar? NÚ get ég ekki haldið í mér lengur vegna þess óréttlætis sem okkar guðsvolaða ríkisstjórn beitir öryrkja og ellilífeyrisþega og vil birta hér eitt lítið dæmi um það. Ég efast ekki um að margir fleiri hafa samskonar sögu að segja.
Meira
HVERJU sætir þögn sú hin mikla er úr Háskóla Íslands berst þegar bergþursar ráðast á innstu taugar okkar þjóðernis? Eru andans menn svo utangáttaðir við að finna upp hjólið að eigi hafi þeir aðra gát? Sagan afturábak gangandi, landið æðilagt.
Meira
Á UNDANFÖRNUM misserum hefur þú oft og einatt gefið í skyn, ýjað að eða nánast sagt berum orðum að fjárhagsvandi öryrkja sé vegna óráðsíu í fjármálum og óreglu.
Meira
NÚ þegar hið hörmulega slys í Skerjafirði er aftur í fréttum rifjast upp önnur frétt, sem lítið fór fyrir og líklega er flestum gleymd. Frétt að Hæstiréttur hefði skikkað VÍS til að greiða ekkju réttmætar bætur eftir slysið.
Meira
Elísabet Ólafsdóttir fæddist í Kothvammi í Kirkjuhvammshreppi í V-Hún. 10. júlí 1930. Hún lést 13. október síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hvammstangakirkju 18. október.
MeiraKaupa minningabók
Guðjón Björnsson fæddist á Álftavatni í Staðarsveit 21. ágúst 1906. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Grund 26. nóvember síðastliðinn Foreldrar hans voru hjónin Rannveig Arndís Magnúsdóttir, f. 23. desember 1879, d. 8.ágúst 1963, og Björn Jónsson, f. 25.
MeiraKaupa minningabók
Hermann Kári Helgason fæddist á LSH við Hringbraut í Reykjavík 8. nóvember síðastliðinn. Hann andaðist á sama stað 12. nóvember og var útför hans gerð í kyrrþey 20. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Hólmfríður Magnúsdóttir fæddist á Hofi í Kirkjubólsdal við Dýrafjörð 30. október 1910. Hún lést á sjúkrahúsi Stykkishólms 12. nóvember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Stykkishólmskirkju 17. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Elsku besti afi minn. Takk fyrir samfylgdina í þessi 31 ár sem við náðum að eiga saman. Takk fyrir að hafa elskað mig. Takk fyrir að hafa leyft mér að elska þig. Takk fyrir að hafa hlustað á mig. Takk fyrir að hafa leyft mér að hlusta á þig.
MeiraKaupa minningabók
Ingvi Marteinn Þorgeirsson fæddist í Hafnarfirði 4. október 1924. Hann lést á sjúkrahúsinu í Keflavík 3. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þorgeir Magnússon sjómaður úr Garði og Anna Sigmundsdóttir húsmóðir frá Norðfirði.
MeiraKaupa minningabók
Steinar Friðjónsson fæddist í Reykjavík 2. nóvember 1932. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 26. nóvember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Grafarvogskirkju 4. desember.
MeiraKaupa minningabók
Þórdís Anna Pétursdóttir fæddist í Reykjavík 5. júlí 1965. Hún og dætur hennar, Elín Ísabella Kristinsdóttir, fædd í Svíþjóð 12. ágúst 1993, og Mirra Blær Kristinsdóttir, fædd í Svíþjóð 18. september 1994, létust dagana 9. og 10. október síðastliðinn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi og var útför þeirra mæðgna gerð frá Bústaðakirkju 25. október.
MeiraKaupa minningabók
Í TILEFNI þess að hundrað ár eru liðin frá fæðingu Guðlaugs A. Magnússonar, gullsmiðs og hljómlistarmanns, hefur Gull- og silfursmiðjan Erna ehf. hafið framleiðslu á ársskeið úr silfri. Skeiðin er hugsuð bæði sem nytjahlutur og sem safngripur.
Meira
MORGUNBLAÐIÐ hefur gert tvær verðkannanir á jólabókum undanfarna daga. Fyrri verðkönnunin var gerð fimmtudaginn 28. nóvember og hin síðari í gær, miðvikudaginn 4. desember.
Meira
BÓNUS Gildir 5.-8. des. nú kr. áður mælie.verð Ali hamborgarhryggur 30% afsl. 909 1.258 909 kr. kg Bónus steikt laufabrauð 15st. 599 Nýtt 40 kr. st. Hangiframpartur m/ beini 599 Nýtt 599 kr. kg Hangilæri m/ beini 999 Nýtt 999 kr.
Meira
ICELANDIC Beauty naglaskóli og heildsala kynnir nýjungar í naglaumhirðu frá Orly. "Orly býður uppá efni við hvaða naglavandamáli sem er, s.s þunnum nöglum, klofnum nöglum, nöguðum nöglum, gulum nöglum og mörgu fleira," segir í tilkynningu.
Meira
VERSLUNIN DUKA í Kringlunni hefur nú til sölu sjálfvirka kertaslökkvara sem henta m.a. fyrir aðventukransa og kertaskreytingar fyrir jólin. Í fréttatilkynningu frá Duka kemur fram að um sé að ræða glerhólka sem settir eru á hvert kerti.
Meira
90 ÁRA afmæli. Í dag, fimmtudaginn 5. desember, er níræð Laufey Stefánsdóttir frá Munkaþverá, Dvalarheimilinu Hlíð, Austurbyggð 17, Akureyri. Í tilefni af því býður hún ættingjum og vinum í kaffi í hátíðarsalnum á Hlíð laugardaginn 7. desember nk. frá...
Meira
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa á fimmtudögum milli kl. 14 og 17 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Fræðslusamvera í safnaðarheimilinu kl. 20. Fjallað í máli og myndum um þjóðir sem mótuðu sögu og menningu Ísraels til forna. Bústaðakirkja.
Meira
Flemming og Guðmund þraut örendið Þrátt fyrir góða stöðu fyrir síðasta kvöldið og enn betri stöðu þegar einungis þrjár umferðir voru eftir tókst Flemming og Guðmundi ekki að verja toppstöðu sína í aðaltvímenningi Bridsfélags Borgarfjarðar.
Meira
Í BRIDSSÖGUNNI er að finna margar atlögur að sterkum þrílita höndum, enda eru þess háttar spil erfið til frásagnar í flestum kerfum. Ítalir riðu á vaðið með því að taka tvær opnanir í Roman-kerfinu undir þrílita hendur, bæði tvö lauf og tvo tígla.
Meira
BRÚÐKAUP . Gefin voru saman 31. ágúst sl. í Lágafellskirkju af sr. Guðnýju Hallgrímsdóttur þau Hugrún Ósk Ólafsdóttir og Rúnar Gíslason , til heimilis að Klapparhlíð 24,...
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 17. ágúst í Akraneskirkju af sr. Eðvarði Ingólfssyni þau Kristín Sveinsdóttir og Einar Viðarsson , til heimilis að Háholti 32,...
Meira
Í dag er miðvikudagur 5. desember, 339. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Í kærleika sínum ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í Jesú Kristi. Sá var vilji hans og náð, sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.
Meira
Jólaveizla var á Hlöðum, var þar gesta margt, aðkomandi úr ýmsum stöðum; allt var glatt og bjart; utar stendur stafkarl ljótur, stór, með loðnar brýr, illar eru augna gjótur, yfir hverju sem hann býr.
Meira
JÓLASAMVERA eldri borgara í Grensáskirkju verður nk. miðvikudag, 11. desember, og verður samveran með sama sniði og undanfarin ár. Dagskráin hefst kl. 12:10 með helgistund í kirkjunni en að henni lokinni er reiddur fram jólamatur í safnaðarheimilinu.
Meira
Ástand hjartans er erfitt að höndla með orðum en mætti ef til vill orða svona: "Í dag er glatt í döprum hjörtum." Þrátt fyrir allt megi finna gleðina og kærleikann og vonina um betri tíð framundan.
Meira
Í LIÐINNI viku færðust Íslendingar nær því takmarki að hrifsa heimsmeistaratitil af Norðmönnum. Ekki í stórsvigi, handbolta, fjölþraut eða annarri íþróttagrein heldur í áfengisgjaldi á sterkt áfengi.
Meira
FORRÁÐAMENN enska úrvalsdeildarliðsins Aston Villa hafa beðið knattspyrnusamband landsins, FA, að fara yfir gögn er varða kaup fyrrverandi knattspyrnustjóra liðsins, Johns Gregorys, á þremur leikmönnum, Juan Pablo Angel, Bosko Balaban og Alpay, á sl.
Meira
Árni Stefánsson, þjálfari HK, hafði ástæðu til að fagna í gærkvöld. HK-ingar lögðu ÍR í mögnuðum bikarleik, 35:34, eftir tvær framlengingar og bráðabana og eru komnir í undanúrslit ásamt Aftureldingu, Val og Fram. Dregið verður í næstu viku.
Meira
ÚRVALSDEILDARLIÐ Grindavíkur hefur samið við miðherja frá Júgóslavíu, Bosko Boskovic að nafni, en hann er 22 ára gamall og 210 cm á hæð. Boskovic mun koma til landsins í dag og verður löglegur með Grindavík síðar í mánuðinum.
Meira
EIÐUR Smári Guðjohnsen og félagar í Chelsea fögnuðu glæsilegum sigri á Everton, 4:1, í 16 liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í gærkvöld. Þegar þeir komu af velli biðu þeirra fregnir um að þeir hefðu dregist gegn Manchester United og fer viðureign liðanna fram á Old Trafford í Manchester eftir tvær vikur. Önnur lið sem mætast í átta liða úrslitunum eru Aston Villa - Liverpool, Wigan - Blackburn og 1. deildarliðin Sheffield United og Crystal Palace eigast við.
Meira
GUÐJÓN Valur Sigurðsson, landsliðsmaður í handknattleik, átti mjög góðan leik í gærkvöld þegar lið hans, Essen, tók á móti toppliði 1. deildarinnar, Lemgo. Guðjón Valur skoraði 6 mörk í leiknum en hann og Patrik Cazal þóttu langbestu leikmenn Essen.
Meira
* HALLDÓR Ingólfsson leikur væntanlega ekki með Haukum þegar þeir mæta Ademar Leon í Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik á Spáni um helgina. Eiginkona Halldórs á von á barni.
Meira
AUÐUN Helgason, knattspyrnumaður, sem er laus allra mála hjá belgíska liðinu Lokeren, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann hefði fengið það staðfest frá umboðsmanni sínum að sænska úrvalsdeildarliðið Halmstad ætlaði að gera honum tilboð.
Meira
HAUKARNIR eru óstöðvandi þessa dagana og eftir léttan og sannfærandi sigur þeirra á grönnum sínum í FH, 27:19, eru þeir komnir á kunnuglegar slóðir á stigatöflunni í 1. deild karla. Sigurinn fleytti Haukum upp í annað sætið og greinilegt er á öllu að þeir hafa fundið taktinn eftir skrykjótt gengi framan af leiktíðinni.
Meira
KÖRFUKNATTLEIKSSAMBAND Íslands hefur ráðið Hjört Harðarson þjálfara kvennalandsliðsins í körfuknattleik í stað Sigurðar Ingimundarsonar, sem ekki gaf kost á sér áfram til starfans vegna anna, en samningur Sigurðar við körfuknattleikssambandið rann út...
Meira
"ÉG hafði komið auga á veikleika í liði Gróttu/KR, en það var undir okkur komið hvort hægt væri að nýta þennan veikleika og það tókst," sagði Bjarki Sigurðsson, þjálfari og leikmaður Aftureldingar, glaðbeittur eftir að honum og lærisveinum hafði tekist að tryggja sér sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar með því að leggja Gróttu/KR á Varmá í gærkvöldi, 25:21, í miklum baráttuleik.
Meira
* LEIFUR Harðarson , alþjóðlegur blakdómari, dæmir í riðlakeppni Evrópukeppni meistaraliða í Belgíu um helgina. Hann fór utan í morgun og dæmir í bænum Namur Yvoir en liðin sem leika þar eru frá Belgíu, Grikklandi, Austurríki og frá Kýpur eða Sviss .
Meira
ÍSLENDINGALIÐIÐ Lokeren fékk skell í gærkvöld þegar það mætti Club Brugge í sannkölluðum toppslag í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu. Club Brugge sigraði, 5:0, og náði með því sjö stiga forskoti í deildinni en Lokeren er áfram í öðru sæti.
Meira
"ÉG á enn eitt ár eftir af samningi mínum við ÍA, æfi með liðinu og undirbý mig fyrir næsta tímabil og sé ekki annað en að ég leiki með liðinu á næstu leiktíð," sagði Ólafur Þór Gunnarsson markvörður úrvalsdeildarliðs ÍA í knattspyrnu í gær er...
Meira
* PAOLO Di Canio, fyrirliði West Ham, verður líklega frá í tvo mánuði vegna meiðsla sem hann hlaut í leiknum á móti Southampton á mánudagskvöldið.
Meira
"AÐALFUNDUR EOC er stærsti fundur íþróttaforystumanna sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, ÍSÍ, hefur skipulagt. Slíkur fundur er risaverkefni fyrir ÍSI," sagði Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, á fundi með fjölmiðlum í gær. Von er á um 300 þátttakendum frá um 60 þjóðlöndum á aðalfund Evrópusambands ólympíunefnda sem hefst á Grand Hóteli í Reykjavík kl. 9 á föstudag og lýkur á laugardag.
Meira
REYKJAVÍKURMÓT karla í knattspyrnu hefst strax eftir áramótin, 10. janúar. Mótið hefur verið fært fram, með tilkomu Egilshallarinnar, en þar fara allir leikir mótsins fram. Mótinu lýkur með úrslitaleik 17. febrúar.
Meira
SAMÚEL Árnason var hetja HK í gærkvöldi þegar hann tryggði liði sínu sigur með marki úr hægra horninu í bráðabana gegn ÍR í hreint ótrúlegum leik. Lokatölur 35:34 fyrir HK sem er þar með komið áfram í undanúrslit bikarkeppninnar í handknattleik karla, en dregið verður í næstu viku.
Meira
UPPÁKOMA eftir leik FH-inga og Stjörnumanna á Íslandsmóti karla í handknattleik um síðustu helgi hefur dregið dilk á eftir sér því Einar Gunnar Sigurðsson, þjálfari FH-inga, og aðstoðarmaður hans, Bergsveinn Bergsveinsson, hafa verið úrskurðaðir í eins...
Meira
KAUPÞING banki hefur nú fengið samþykki 86% hluthafa sænska JP Nordiska bankans við kauptilboði fyrirtækisins. Frestur, sem hluthafar höfðu til að svara yfirtökutilboðinu, rann út á föstudaginn.
Meira
VIÐSKIPTANEFND tíu fyrirtækja í sjávarútvegi er nýkomin frá Chile, þar sem rædd voru viðskipti landanna og stjórnun fiskveiða. Útflutningsráð skipulagði ferðina í samstarfi við sjávarútvegsráðuneytið. Fyrir sendinefninni fór sjávarútvegsráðherra, Árni M.
Meira
SÍLDVEIÐAR hafa gengið afar treglega á vertíðinni, afli verið dræmur og síldin sem veiðist er smá. Hafrannsóknastofnunin hyggst leggja aukna áherslu á síldarrannsóknir og nota til þess fé úr sérstökum rannsóknarstjóði.
Meira
SAMTÖK eigenda sjávarjarða hafa sent Franz Fischler, yfirmanni landbúnaðar- og sjávarútvegsmála hjá Evrópusambandinu, bréf þar sem farið er fram á að haft verði samráð við samtökin hefji ESB viðræður við íslensk stjórnvöld um fiskveiðimál eða hugsanlega...
Meira
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins lagði í byrjun október fram tillögu um tilskipun um yfirtökutilboð. Tilskipunin miðar að því að auðvelda yfirtöku fyrirtækja og ryðja úr vegi landfræðilegum tálmum þar að lútandi.
Meira
NORSKA fjölmiðlasamsteypan Intrafish Media hefur keypt bandaríska vefsvæðið The Wave af fréttavefnum WorldCatch Inc . Kaupverðið var ekki gefið upp. Intrafish Media rekur stærstu sjávarútvegsfréttaþjónustu heims, rekur m.a. fréttavefina IntraFish.
Meira
ÍSAGA hefur samið við Teymi um innleiðingu aðferðafræði samhæfðs árangursmats og innleiðingu hugbúnaðarlausnar Oracle á því sviði, Oracle Balanced Scorecard.
Meira
FJÖLMÖRG loðnuskip voru í gær við loðnuleit norðaustur af landinu en þar varð vart við loðnu um síðustu helgi. Engin loðna hefur veiðst á yfirstandandi haustvertíð en skipstjórnarmenn eru engu að síður bjartsýnir á að úr rætist.
Meira
Menntamálaráðuneytið undirritar í dag þjónustusamning við Menntafélagið ehf. um rekstur og starfsemi Stýrimannaskólans í Reykjavík og Vélskóla Íslands. Þjónustusamningurinn tekur gildi 1.
Meira
STJÓRN Vélstjórafélags Ísafjarðar hefur ákveðið að leggja félagið niður. Samkvæmt samþykktum félagsins eiga þeir fjármunir sem eru í eigu félagsins þegar því er slitið að ganga til þess að styrkja vélstjóramenntun á Ísafirði.
Meira
Fiskmarkaðurinn Fishgate í Hull í Englandi er byggður til að uppfylla ströngustu gæða-, hreinlætis- og heilbrigðiskröfur sem gerðar eru um meðferð matvæla. Markaðurinn, sem er einn sá fullkomnasti í Evrópu, hefur nú verið starfræktur í eitt ár. Helgi Mar Árnason rak þar inn nefið til að forvitnast um hvernig til hefur tekist.
Meira
Helgi Þór Jóhannsson er nýr starfsmaður í heildsölu Opinna kerfa. Hann mun verða vörustjóri með ábyrgð á netlausnum. Helgi er útskrifaður rekstrarfræðingur frá Samvinnuháskólanum á Bifröst.
Meira
STOFNAÐ hefur verið nýtt félag á sviði endurskoðunar, Ernst & Young hf. Nýja félagið verður fulltrúi alþjóðlegu endurskoðunarkeðjunnar Ernst & Young á Íslandi, en keðjan er með starfsemi í 130 löndum og u.þ.b. 110.000 starfsmenn.
Meira
NÝTT merki og slagorð flutningafyrirtækisins Eimskips ehf. var kynnt á fundi með starfsmönnum fyrirtækisins í gær. Í tilkynningu frá félaginu segir að slagorðið, Greið leið, endurspegli loforð um skjóta og góða þjónustu í flutningum um allan heim.
Meira
Reikningsskilaaðferðir ráða miklu um það að afkoma tryggingafélaganna hefur versnað milli ára. Afkoma vátryggingarekstrar og fjármálarekstrar hefur meðal annars breyst vegna breyttra reiknivaxta. Haraldur Johannessen fjallar um afkomu tryggingafélaganna, aukin tjón, hærri iðgjöld og lækkandi gengi hlutabréfanna.
Meira
Jæja, þá er komið að saltfiskinum. Hann hefur lengi verið vinsæll á föstunni, í upphafi vegna þess að hann geymdist vel, en síðar vegna þess að hefð skapaðist fyrir neyzlu hans.
Meira
NÝTT togskip, Dýrindal KG 374, hefur verið afhent frá skipasmíðastöðinni Ósey hf. í Hafnarfirði. Um er að ræða 20 metra langt og 5 metra breitt skip og er eigandinn Páll Klettskarð frá Haraldssundi í Færeyjum.
Meira
AFLI af botnfiski við Færeyjar hefur aukizt undanfarin ár, svo og heildarafli þeirra sem nú er kominn yfir 500.000 tonn á ári. Útflutningsverðmæti afurðanna hefur aukizt að sama skapi og er nú komið yfir 40 milljarða íslenzkra króna á ári.
Meira
SÆNGUR úr íslenskum æðardúni eru eftirsótt munaðarvara, að því er kemur fram í Stiklum, vefriti viðskiptastofu utanríkisráðuneytisins. Hver sæng kostar um 14.200 dollara, eða um 1,2 milljónir íslenskra króna.
Meira
VERÐ á hlutabréfum er almennt nokkuð sanngjarnt. Það stendur almennt undir þeirri ávöxtunarkröfu og þeim rekstrarforsendum sem lagðar eru til grundvallar við mat Greiningar Íslandsbanka.
Meira
Kristján Aðalsteinsson er fæddur í Neskaupstað árið 1954. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni og Kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands.
Meira
Viðræðum Íslandssíma hf. og Línu.Nets ehf. um samruna félaganna hefur verið slitið án niðurstöðu . Frá þessu var greint í tilkynningu sem birt var í Kauphöll Íslands í gær.
Meira
Lánstraust hf. hugar nú að starfsemi í öðrum löndum og horfir helst til Evrópu. Reynir Grétarsson framkvæmdastjóri er nýkominn frá Möltu, þar sem hann kom upp fyrirtæki í eigu félagsins.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.