Þungbúinn augnsvipurinn fer létt með að lýsa, hvort heldur sem er, döprum huga eða ógnvekjandi nærveru, en skarpleitt og myndarlegt andlit írska leikarans
Gabriels Byrne hefur löngum fært honum annars konar og alvörugefnari hlutverk en hæfa innsta eðli hans, að því er hann segir sjálfur, þ.e. gamansemi og lífsgleði. Hann hefur sterka stöðu hvenær sem hann birtist á myndfletinum og gildir það sjálfsagt líka um hrollvekjuna Ghost Ship sem frumsýnd er hérlendis um helgina.
Meira