"Lengd kvikmyndar skal vera í beinum tengslum við þanþol þvagblöðrunnar," sagði
Alfred Hitchcock og fór eftir eigin vísdómsorðum. Hann kunni þá kúnst betur en flestir, ef ekki allir, kvikmyndaleikstjórar að segja sögu á hnitmiðaðan, markvissan hátt, skammta hana í svo réttum hlutföllum að enginn áhorfandi getur látið sér leiðast, hvað þá dottið í hug að fara að pissa meðan á sýningu stendur. Þetta getur fólk reynt eða rifjað upp í Bæjarbíói í Hafnarfirði á næstu vikum.
Meira