BÆTUR til einstaklinga vegna innbrota í húsnæði þeirra voru 75% hærri árið 2002 en þau voru árið 2000. Á sama tíma hækkuðu útgreiddar bætur til fyrirtækja og stofnana vegna innbrota í húsnæði um 50%.
Meira
Vegfarandi í Bremen í Þýzkalandi gengur hjá glugga raftækjabúðar á meðan á beinni útsendingu frá fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna stóð í New York í gær.
Meira
ÆRIN Dolly, fyrsta spendýrið sem var einræktað út frá fullorðnu dýri, er dauð. Hún var aflífuð eftir að hún var greind með ólæknandi lungnasjúkdóm, eftir því sem skaparar hennar við Roslyn-stofnunina í Skotlandi greindu frá í gær.
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra sér engin vandkvæði á því að hægt verði að nota milljarðinn sem höfuðborgarsvæðinu var úthlutað til að flýta flutningi Hringbrautar.
Meira
ALLS 64% svarenda í skoðanakönnun Gallup fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð eru hlynnt þjóðaratkvæðagreiðslu um Kárahnjúkavirkjun. 30% svarenda eru andvíg þjóðaratkvæðagreiðslunni en 6% svarenda taka ekki afstöðu.
Meira
Aglow , kristileg alþjóðleg samtök kvenna, halda fund í félagsmiðstöðinni Víðilundi 22 á mánudagskvöld, 17. febrúar, kl. 20. Ræðu kvöldsins flytur Dögg Harðardóttir. Þá verður fjölbreyttur söngur og fyrirbænaþjónusta auk kaffihlaðborðs.
Meira
YASSER Arafat, leiðtogi Palestínumanna, kvaðst í gær hafa samþykkt að skipa forsætisráðherra eins og Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið hafa krafist í marga mánuði í von um að það geti greitt fyrir friðarviðræðum við Ísraela.
Meira
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda atvinnuvegasýningu í og við íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi dagana 23.-25. maí í vor. Það er Efling Stykkishólms og atvinnumálanefnd Stykkishólmsbæjar sem standa fyrir sýningunni.
Meira
STJÓRN stéttarfélagsins Bárunnar í Árnessýslu lýsti á fundi sínum 10. febrúar áhyggjum af vaxandi atvinnuleysi á Suðurlandi. Á félagssvæði Bárunnar voru skráðir atvinnulausir í lok janúar 123.
Meira
SAMTÖK foreldrafélaga leikskóla Reykjavíkur lögðu fram ítarlega fyrirspurn varðandi sumarlokanir leikskólanna fyrir fund leikskólaráðs borgarinnar í gær. Samtökin, sem eru nýstofnuð, eiga nú fulltrúa í leikskólaráði.
Meira
Hálendishópurinn heldur borgarafund um virkjanamál á Hótel Borg á morgun, sunnudaginn 16. febrúar, kl. 16. Efni fundarins er "hægri grænir", en í því felst í stuttu máli sú spurning hvort við getum verið rík þjóð eins og t.d.
Meira
Hörpudiskurinn í Breiðafirði - staða skelfiskveiða Vinstri-grænir á Snæfellsnesi efna til opins fundar um stöðu skelfiskveiða og ástand skelfisksstofnsins í Breiðafirði undir yfirskriftinni Hörpudiskurinn í Breiðafirði - staða skelfiskveiðanna, á Hótel...
Meira
SADDAM Hussein Íraksforseti gaf í gær út forsetatilskipun þar sem bannað er að framleiða efna-, sýkla- eða kjarnorkuvopn og einnig að flytja þau inn. Íraska þingið staðfesti þegar tilskipunina.
Meira
LIÐSMENN vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna hafa ekki fundið nein gereyðingarvopn í Írak en stjórn Saddams Husseins í Bagdad hefur hins vegar ekki gert grein fyrir miklum birgðum efna- og sýklavopna sem henni á sínum tíma var skipað að uppræta.
Meira
BRÚARFOSS, skip Eimskipafélagsins sem var að lesta við Binnakant í Vestmannaeyjum sl. fimmtudagskvöld, slitnaði frá bryggjunni vegna mikils sogs í höfninni og töluverð hætta var á ferðum um tíma. Það var kl. 18.
Meira
SUNNUDAGASKÓLINN var ekki í kirkjunni síðasta sunnudag heldur fóru krakkarnir ásamt séra Báru Friðriksdóttur og aðstoðarfólki hennar að Dvalarheimilinu Ási. Þar var heimilisfólkið komið saman og tók þátt í sunnudagaskólanum.
Meira
SAMKVÆMT nýrri skoðanakönnun Talnakönnunar fyrir vefsvæðið heimur.is eru Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin með svipað fylgi. Könnunin var gerð dagana 10. til 13. febrúar.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir fjórum pólskum karlmönnum til 21. mars nk. Mennirnir voru handteknir 1. desember vegna innbrots í þjónustumiðstöðina Vegamót á Snæfellsnesi.
Meira
ÞINGVIKAN sem nú er á enda hefur að mörgu leyti verið róleg eins og vikurnar á undan. Ég hef reyndar oft "kvartað" yfir rólegheitum á þingi síðustu vikurnar en nú er ég orðin hálfvonlítil um að nokkrar breytingar verði þar á.
Meira
Íslensk löggjöf er fátækleg hvað varðar starfsemi erlendra eignarhaldsfélaga sem eru í eigu íslenskra aðila. Hér hefur ekki verið sett svokölluð CFC-löggjöf, en hana er víða að finna erlendis.
Meira
Að undanförnu hefur mikið verið rætt um EES-samninginn og framtíð hans. Sumir hafa kveðið svo fast að orði að lýsa hann ónýtan á meðan aðrir telja að hann sé fullnægjandi umgjörð um viðskiptahagsmuni okkar gagnvart Evrópusambandinu um ókomna tíð.
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, tekur ekki afstöðu til boðaðra skattalækkana Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, fyrr en hann hefur séð nánari útfærslu á þeim. Guðjón A.
Meira
KLAPPAÐ var fyrir Dominique de Villepin, utanríkisráðherra Frakklands, í fundarsal öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna er hann lýsti því yfir á fundi ráðsins í gær að vopnaeftirlitið í Írak skilaði árangri og að ekkert réttlætti ennþá að ráðist yrði á landið.
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra segist ekki sjá nein vandamál fólgin í því að nota þann milljarð, sem höfuðborgarsvæðinu var úthlutað til framkvæmda, til flutnings Hringbrautar.
Meira
ÞESSI ljósmynd Georges Gobet fyrir frönsku fréttastofuna AFP telst fréttamynd ársins, en niðurstaðan í hinni virtu ljósmyndakeppni World Press Photo var kunngjörð í gær.
Meira
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar, segir að ef landslög leyfi að sýslað sé með fé á þann hátt sem fram kemur í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins um skattskil Jóns Ólafssonar, sé nauðsynlegt að breyta...
Meira
FIMLEIKADEILD Hamars hélt á dögunum pæjumót, sem ætlað er stúlkum sem eru að keppa á móti í fyrsta sinn. Að sögn Ólafar Sigríðar Einarsdóttur yfirþjálfara er keppnisfyrirkomulagið þannig að í hverju liði eru sex keppendur og fimm þeirra fá einkunn.
Meira
BRIDSHÁTÍÐ hófst í gærkvöldi með tvímenningskeppni með um 260 þátttakendum. Geir H. Haarde fjármálaráðherra setti hátíðina og sagði fyrstu sögnina, eitt hjarta, fyrir heiðurgestinn Zia Mahmood sem er pakistanskur bridssnillingur.
Meira
UNGMENNAFÉLAG Selfoss og Glímusamband Íslands hafa staðið að glímukynningu í skólum á Selfossi. Nemendur fá tækifæri til að finna fyrir hinni þjóðlegu íþrótt og reyna sig í glímu eftir kynningu á reglum.
Meira
GREIFINN eignarhaldsfélag var valið Fyrirtæki ársins 2002 á Akureyri, en það er atvinnumálanefnd Akureyrarbæjar sem stendur fyrir valinu. Viðurkenningin var veitt fyrir þróttmikið starf fyrirtækisins á liðnu ári.
Meira
Haraldur Jónsson myndlistarmaður heldur fyrirlestur í Deiglunni í dag, laugardag, kl. 15 á vegum Listasafnsins á Akureyri í samvinnu við Gilfélagið.
Meira
KRAKKARNIR á leikskólanum Glaðheimum hafa það sem fasta venju að fagna þorranum. Þetta gera þau með dagskrá þar sem fjallað er um ýmsar hefðir og sungið um krumma.
Meira
HREYFING heilsurækt stendur fyrir rannsókn á áhrifum þjálfunar á heilsufar kvenna á aldrinum 30-55. Um er að ræða athugun á líkamsástandi áður en þjálfun hefst og aðra athugun eftir að mánaðarþjálfunaráætlun hefur verið fylgt eftir.
Meira
ESB og EFTA-ríkin eru mjög óhress með málamiðlunartillögu formanns samninganefndar Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um landbúnaðarmál og fyrir liggur að Íslendingar munu mótmæla tillögunni á næsta fundi nefndarinnar.
Meira
STEFNT er að því að hefja á þessu ári framkvæmdir við nýja félags- og búningaaðstöðu HK á svæði félagsins í Fossvogsdal. Er áætlað að húsið verði tilbúið á næsta ári. Formaður HK segir nýju aðstöðuna byltingu fyrir félagsmenn.
Meira
MEIRIHLUTI Bandaríkjamanna er hlynntur því, að vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna fái meiri tíma til að sinna störfum sínum í Írak. Telur hann það nauðsynlegt til að tryggja stuðning öryggisráðs SÞ við hernaðaraðgerðir, verði þær taldar...
Meira
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráðherra opnaði formlega á fimmtudag við hátíðlega athöfn hreinsistöð fyrir fráveitu sem nýlega hefur verið byggð við ós Blöndu.
Meira
"ORUSTUÞOTUR, skriðdrekar, efnavopn eða kjarnorkusprengjur!!! Hver her hefur sína sérstöðu! Frábær nýr grafíkvél, frábær spilun... frábær leikur!" Svona hljómar auglýsing á nýjum tölvuleik sem BT-verslanirnar hafa auglýst til sölu.
Meira
INGÓLFUR Lars Kristjánsson, Ystafelli III í Köldukinn, S-Þingeyjarsýslu, er látinn, 81 árs að aldri. Hann fæddist í Reykjavík 27. september 1921. Ingólfur lætur eftir sig eiginkonu, Kristbjörgu Jónsdóttur frá Ystafelli og sjö uppkomin börn.
Meira
Blóðmælingar á Selfossi Félag hjartasjúklinga á Suðurlandi stendur fyrir mælingum á blóðsykri, blóðþrýstingi og kólesteróli í dag, laugardag, kl. 13-17 í Gestshúsum við Engjaveg á Selfossi. Mælingarnar eru fólki að kostnaðarlausu.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær rúmlega tvítugan karlmann í 15 mánaða fangelsi fyrir að nauðga 16 ára unglingsstúlku í tjaldi á Eldborgarhátíðinni sem haldin var um verslunarmannahelgina árið 2001.
Meira
SKÝRSLA um mat á umhverfisáhrifum Arnarnesvegar milli Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar og tengibrautar um Hörðuvelli hefur verið lögð fram til kynningar hjá Skipulagsstofnun. Skýrslan verður í kynningu frá og með gærdeginum til 28. mars næstkomandi.
Meira
KAREN Björk Björgvinsdóttir dansari og Einar Friðrik Hólmgeirsson handknattleiksmaður eru bæði útnefnd sem íþróttamaður ÍR 2002 og fór útnefningin fram við athöfn í ÍR-heimilinu mánudaginn 10. febrúar sl.
Meira
SÉST hefur til villtra háhyrninga við strendur Noregs og vonast starfsmenn Free Willy Foundation-samtakanna þar í landi til að háhyrningurinn Keiko komist bráðlega í samneyti við þá.
Meira
NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK Austurlands og Félag um verndun hálendis Austurlands skora á stjórnvöld að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um Kárahnjúkavirkjun og er hafin undirskriftasöfnun þess efnis. Undirskriftum verður safnað fram að alþingiskosningunum 10.
Meira
BJÖRGÓLFUR Guðmundsson var kjörinn formaður bankaráðs Landsbanka Íslands á aðalfundi í gær. Björgólfur segir að bankinn áformi enn frekari fjárfestingar erlendis og sé þá helst horft til Bretlands, þar sem bankinn hefur þegar haslað sér völl.
Meira
FJALLGÖNGULEIÐANGRI Haralds Arnar Ólafssonar á Carstensz, hæsta fjalls Eyjaálfu, sem hefjast átti í dag, laugardag, hefur verið frestað til 25. mars. Ekki þykir öruggt fyrir fjallgöngumenn að halda á tindinn vegna stjórnmálaólgu í Nýju-Gíneu.
Meira
Jöfnun atkvæða Í grein minni, sem birtist 2. febrúar sl., var listi þingmanna 1995. Tillaga mín í greininni var fullkomin jöfnun atkvæða landsmanna. Sextíu þingmenn í gömlu kjördæmunum, engir flakkarar eða uppbótarþingmenn.
Meira
HREPPSNEFND Hríseyjarhrepps samþykkti á síðasta fundi sínum að fela sveitarstjóra að kanna möguleika á samvinnu við nágrannasveitarfélög um þátttöku í verkefni Byggðastofnunar, "Rafrænt samfélag".
Meira
HAFRANNSÓKNASTOFNUN áformar að fara í loðnuleiðangur á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni um eða eftir helgi, eða um leið og færi gefst til mælinga.
Meira
VIÐUREIGN ræðuliða Borgarholtsskóla og Fjölbrautaskólans í Breiðholti í Morfís, ræðukeppni framhaldsskólanna, fór fram fyrir luktum dyrum í gærkvöld þar sem umræðuefnið, sem var sjálfsvíg, þótti óviðeigandi.
Meira
Á FUNDI bæjarráðs Árborgar 13. febrúar var auknu framlagi til vegaframkvæmda fagnað en áréttað að Menningarsalur Suðurlands stendur fokheldur, tilbúinn til átaks um uppbyggingu.
Meira
ÁÆTLAÐ er að skuldir Mosfellsbæjar lækki um 110 þúsund krónur á hvern íbúa eða um 22% á tímabilinu 2004-2006. Þetta kemur fram í þriggja ára fjárhagsáætlun bæjarins sem afgreidd var á fundi bæjarstjórnar síðastliðinn miðvikudag.
Meira
Frænku minni voru eitt sinn gefin þau góðu ráð að það væri ekkert mál að finna sér strák til að eyða kvöldinu með. Miklu meira mál væri að finna sér strák sem hún vildi vakna með.
Meira
Í SKÝRSLU skattrannsóknarstjóra um skattskil Jóns Ólafssonar & Co.sf. segir að háttsemi Jóns Ólafssonar og Símonar Á. Gunnarssonar, löggilts endurskoðanda, í tengslum við sölu á eignarhlut félagsins í Fjölmiðlun hf.
Meira
KIM Dae-Jung, fráfarandi forseti Suður-Kóreu, bað í gær landa sína afsökunar á því, að Norður-Kóreustjórn hefðu með leynilegum hætti verið greiddar 200 milljónir dollara, rúmlega 15 milljarðar íslenskra króna.
Meira
NÝTT félag hefur verið stofnað um dreifingu, sölu og þjónustu á Apple-tölvum á Íslandi. Ólafur William Hand, einn aðstandenda hins nýja félags, segir að skrifað hafi verið undir samning við Apple-fyrirtækið þar um í vikunni.
Meira
"ÉG óttast um fjölskyldu mína í Írak," segir Wesam A.A. Kathir, stjórnmálafræðingur frá Írak, sem býr hér á landi, vegna hugsanlegrar árásar Bandaríkjanna á Írak. Kathir segir að hann hafi upplifað stríðið 1991 og séð afleiðingar þess.
Meira
"ÞAÐ er mjög gott að vinna hjá Ameríkananum," segir Sigurður Ben Jóhannsson, framkvæmdastjóri gistiþjónustu varnarliðsins sem lengi hefur unnið á Keflavíkurflugvelli.
Meira
STÆRSTA hótel landsins er á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Gistiþjónusta varnarliðsins hefur yfir að ráða 1.180 herbergjum og íbúðum fyrir varnarliðsmenn sem koma til styttri dvalar og gesti.
Meira
RITSTJÓRI Al-Ahram , helsta málgagns ríkisstjórnar Egyptalands, sakaði í gær stjórn Saddams Husseins, forseta Íraks, um að draga arabaríkin inn í hvert neyðarástandið á fætur öðru og kallaði hana "óyfirstíganlega hindrun" í vegi friðar.
Meira
BORGARRÁÐ hefur samþykkt samning borgarinnar við Innréttingarnar ehf. um uppbyggingu hótels og landnámsskála við Aðalstræti. Undirritun samningsins fór fram í lok janúar en borgarráð frestaði samþykkt hans á fundi sínum í síðustu viku.
Meira
STOFNAÐUR verður samstarfshópur til að fara yfir sameiginleg málefni Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Tillaga þess efnis var samþykkt á fundi skipulags- og byggingaráðs Hafnarfjarðar og skipulagsnefndar Garðabæjar á dögunum.
Meira
FJÁRMÁLAEFTIRLITINU hafa borist allnokkrar ábendingar um að einstakir aðilar fari nokkuð glannalega í sölumennsku á viðbótarlífeyrissparnaði, að sögn Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Fjármálaeftirlitsins.
Meira
FJÖRUTÍU krónur af hverju símtali í símakosningu söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld renna til Barnaspítala Hringsins, til að auka og bæta tækjabúnað. Landsmenn geta kosið það lag sem þeir vilja að keppi fyrir hönd Íslands í Eurovision í maí nk.
Meira
VIÐUREIGN millli Borgarholtsskóla og Fjölbrautaskólans í Breiðholti í ræðukeppni framhaldsskólanna, Morfís, var haldin á leynilegum stað í gærkvöld og eingöngu takmörkuðum fjölda nemenda hleypt inn.
Meira
Sigrún Helgadóttir fæddist í Reykjavík 1949. Lauk kennaraprófi og stúdentsprófi frá Kennaraskólanum. Var kennari og skólastjóri á landsbyggðinni í þrjú ár.
Meira
SKÓLASTARFIÐ í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verður brotið upp í næstu viku, svokallaðri Opinni viku, og efnt til ýmiss konar annarrar tónlistarupplifunar en hefðbundinnar tónlistarkennslu. Fyrirkomulag kennslunnar verður tvenns konar.
Meira
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, heimsótti í vikunni verksmiðju SÍF í bænum Tusket í Nova Scotia fylki í Kanada. Jóhann Jónsson, framkvæmdastjóri SIF í Kanada, sýndi ráðherranum verksmiðjuna og greindi frá starfseminni.
Meira
HANNA Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks sem situr í skipulags- og byggingarnefnd borgarinnar, segir ekki nokkrar forsendur til þess að hægt verði að hefja framkvæmdir á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar á næstu átján...
Meira
STULDUR á tveimur nýlegum sportbílum af sömu tegundinni, með nokkurra daga millibili, vakti grunsemdir lögreglunnar í Reykjavík um að "góðkunningi" hennar sem á bíl af sömu tegund væri viðriðinn málið.
Meira
Frambjóðendur VG í Norðausturkjördæmi , þau Steingrímur J. Sigfússon, Hlynur Hallsson, Bjarkey Gunnarsdóttir og Ríkey Sigurbjörnsdóttir halda fund á Siglufirði sunnudaginn 16. febrúar kl. 16, í húsi leikfélagins, Suðurgötu 10.
Meira
"ÞETTA er listaakademía sem ber nafn mitt - og ég er forseti hennar," segir Kristján Jóhannsson óperusöngvari um alþjóðlegu tónlistarakademíuna sem verið er að setja á stofn í heimabæ hans, Desenzano við Garda-vatnið á Ítalíu.
Meira
TALIÐ er víst, að ofurheitt loft, um 1.100 gráður á celsíus, hafi streymt inn um sprungu í vinstri væng geimferjunnar Kólumbíu, hugsanlega í holrúmi fyrir hjólabúnaðinn, þegar hún kom inn í gufuhvolf jarðar.
Meira
NEMENDUR Hlíðaskóla í Reykjavík héldu árshátíð sína með pomp og prakt í skólanum í gær. Ákveðið var að hafa doppur sem þema árshátíðarinnar og var skólinn allur skreyttur doppum í tilefni dagsins.
Meira
"ÞÁ saggði ég si svona," er heiti tónleika sem Karlakór Akureyrar - Geysir efnir til í Glerárkirkju á morgun, laugardaginn 16. febrúar, en þeir hefjast kl. 16.
Meira
SAMEINUÐU þjóðirnar ætla að óska eftir fjárframlögum að andvirði að minnsta kosti 6,4 milljarða króna í viðbót til að undirbúa hjálparstarf í Írak komi þar til stríðs.
Meira
PAWEL Panasuik sellóleikari og Agnieszka Panasuik píanóleikari halda tónleika í Dalvíkurkirkju á morgun, sunnudaginn 16. febrúar, kl. 16 og í Laugarborg fimmtudaginn 20. febrúar kl. 20.
Meira
MANNRÉTTINDASAMTÖKIN Amnesty International hafa hafið undirskriftaherferð vegna yfirvofandi innrásar í Írak og afleiðinga slíkrar innrásar á almenning í landinu. Fólk getur tekið þátt í átaki samtakanna á heimasíðu Amnesty International http://www.
Meira
ÚTIFUNDUR gegn stríði verður haldinn á Ráðhústorgi á Akureyri í dag, laugardaginn 15. febrúar, kl. 14. Stutt ávarp flytja Guðmundur Ármann Sigurjónsson, myndlistarmaður og kennari, og Lára Stefánsdóttir framkvæmdastjóri.
Meira
FORELDRAR allra nemenda í grunnskólum Mosfellsbæjar hafa tekið höndum saman og rölta nú um bæinn um helgar og spjalla við unglinga á förnum vegi.
Meira
SKÚLI Eggert Þórðarson, skattrannsóknarstjóri ríkisins, vísar á bug ásökunum sem fram koma í andmælum við skýrslu embættisins um rannsókn á skattskilum Jóns Ólafssonar, um óeðlilega málsmeðferð og brot á lögum við rannsókn málsins.
Meira
ÞRÍR skákmenn eru efstir og jafnir á Skákþingi Akureyrar þegar mótið er rúmlega hálfnað. Þetta eru þeir Jón Björgvinsson, sem gerði jafntefli við Halldór Brynjar, Guðmundur Gíslason, sem lagði Stefán Bergsson, og Þór Valtýsson, sem vann Gylfa...
Meira
STARFSFÓLK matvöruverslunarinnar Nettó í Mjódd þurfti í gær að grípa til þess ráðs að skammta kjúklinga til viðskiptavina sinna þannig að hver fengi ekki fleiri en 10 stykki.
Meira
Sérstök deila er komin upp vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að verja milljörðum króna á næstu mánuðum til að flýta framkvæmdum og auka atvinnu.
Meira
Frásögn Morgunblaðsins í gær af rannsókn skattrannsóknarstjóra á skattskilum Jóns Ólafssonar og fyrirtækis hans, Jóns Ólafssonar & Co. sf., hefur vakið mikla athygli. Þetta er umfangsmesta mál sinnar tegundar sem komið hefur upp hér á landi.
Meira
Una Sveinbjarnardóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir fluttu tónverk eftir Atla Heimi Sveinsson, Prokofiev, J.S. Bach, Schönberg og Sarasate. Miðvikudaginn 12. febrúar.
Meira
NÚ má fara að hlakka til því hin bráðfyndna mynd Óskars Jónassonar Perlur og svín er á Skjá 1 í kvöld kl. 21, en um þessar mundir eru þar sýndar íslenskar bíómyndir hvert laugardagskvöld.
Meira
Þess hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu hvað Billy Corgan myndi gera eftir að hafa leyst upp Smashing Pumpkins. Zwan er svarið, nýr kvintett sem Skarphéðinn Guðmundsson kynnti sér til hlítar.
Meira
Finnsk bókmenntakynning verður í Norræna húsinu kl. 16-18. Sari Päivärinne, sendikennari í finnsku við Háskóla Íslands og Hannele Jyrkkä, upplýsingafulltrúi í FILI, kynna finnskar nýútkomnar bækur og nýja strauma í finnskum bókmenntum.
Meira
ÞAÐ var síðasta vor sem þeir félagar Freyr Eyjólfsson (tónlistar- og útvarpsmaður) og Örlygur Örlygsson (athafnamaður) ákváðu að stofna til nýrra tónleikaraða á Grandrokk.
Meira
HVAR er Marlowe? er lítt þekkt mynd og lætur ekki mikið yfir sér - en fyrir þá sem gaman hafa af lúmsku gríni og nettum skotum á bíóborgina er hún alveg gráupplagt stundargaman.
Meira
Myrkir músíkdagar. Páll Ísólfsson: Forleikur að Skálholtsljóði (1956). Ingi Garðar Erlendsson: Þá sefur venjulegt fólk (2003; frumfl.). Áki Ásgeirsson: Konsert fyrir slagverk og 58 hljóðfæri (2003; frumfl.). Tryggvi M. Baldvinsson: Konsert fyrir klarínett og blásarasveit (2002; frumfl. á Ísl.). Sveinhildur Torfadóttir klarínett; Blásarasveit Reykjavíkur u. stj. Kjartans Óskarssonar. Mánudaginn 10. febrúar kl. 20.
Meira
KVIKMYNDASAFN Íslands stendur á næstum vikum fyrir sýningum á nokkrum af helstu kvikmyndum breska spennumyndameistarans Alfreds Hitchcocks. Sýnd verður ein mynd á hálfs mánaðar fresti, á laugardögum.
Meira
STELKUR flýgur að austan og heldur tónleika á Myrkum músíkdögum í Borgarleikhúsinu í dag kl. 15. Stelkur er austfirskur kammerhópur, skipaður Charles Ross, Suncana Slamnig, Jóni Guðmundssyni, Maríu Gaskell, Páli Ivan Pálssyni og Sigurði Ingólfssyni.
Meira
Listasafn Reykjavíkur - Ásmundarsafn Síðasti sýningardagur á innsetningu Tuma Magnússonar verður á morgun, sunnudag. Tumi er fyrstur þriggja listamanna til að sýna verk sitt í sýningarröðinni Kúlan. Ásmundarsafn er opið daglega frá kl. 13-16.
Meira
MAÐUR að nafni Hrafnkell Jónsson hefur ritað grein í Morgunblaðið og lýst vandlætingu sinni á þeim sem gera fátæktina á Íslandi að umtalsefni. Hann kallar það aumingjagæsku. Fátæklingar eru sem sagt aumingjar, að hans mati.
Meira
BRESKI eðlisfræðingurinn Newton sagði: "Náttúran er einföld." Sama má segja um mannslíkamann, þótt hann sé sambýli milljóna þúsunda frumna, sem allar hafa tvennt sameiginlegt: boðskipti og þörf fyrir næringu.
Meira
Nota ekki eigið land HVERS vegna nota Bandaríkjamenn ekki sitt eigið land til virkjunar? Nógar ár hafa þeir og fossa og landrými. Sama er að segja um Noreg. Er það vegna eitursins sem spýst út í andrúmsloftið og eyðir öllu lífi eftir nokkur ár?
Meira
VEGNA leiðréttingar Ásmundar Jónssonar við grein mína "Fáum við nýja plötu á fóninn" vil ég taka eftirfarandi fram. Þau dæmi um staðsetningu útgáfuréttar sem til eru talin miðast við útgáfu nýs efnis. Þannig er Smekkleysa upphafsútgefandi t.d.
Meira
NÚ er að verða liðið ár frá því þú lýstir því yfir á opinberum fundi hér á Stöðvarfirði að ætlun þín væri að flytja eins og eitt starf í símsvörun fyrir Alþingi austur hingað.
Meira
Björn Jón Þorgrímsson fæddist 9. maí 1921 í Syðra-Tungukoti, sem nú heitir Brúarhlíð, í Blöndudal í A-Húnavatnssýslu. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni 4. febrúar síðastliðins.
MeiraKaupa minningabók
Ebeneser Þórarinsson fæddist í Fagrahvammi í Skutulsfirði 27. ágúst 1931. Hann lést á heimili sínu á Ísafirði 9. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Kristjana Ebenesersdóttir, f. á Látrum í Mjóafirði 2. desember 1910, d. 29.
MeiraKaupa minningabók
Guðbjörg Guðný Guðlaugsdóttir fæddist í Gerði í Hraununum 13. október 1915. Hún lést á dvalarheimilinu Víðihlíð miðvikudaginn 5. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðlaugur Guðjónsson, f. 17. september 1893, d. 22.
MeiraKaupa minningabók
Kristleifur Þorsteinsson, bóndi og hreppstjóri, fæddist á Húsafelli 11. ágúst 1923. Hann andaðist á Grensásdeild Landspítala 7. febrúar síðastliðinn. Kristleifur var sonur hjónanna á Húsafelli, Þorsteins Þorsteinssonar, f. 6. júlí 1889, d. 3.
MeiraKaupa minningabók
María Benediktsdóttir fæddist í Árbót í Aðaldal 1. apríl 1912. Hún andaðist á Sjúkrahúsi Siglufjarðar 5. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Benedikt Halldór Kristjánsson frá Knútsstöðum í Aðaldal, f. 4. september 1874, d. 25.
MeiraKaupa minningabók
Nikolai Gunnar Bjarnason fæddist 1. september 1916. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 25. janúar síðastliðinn. Foreldar hans voru Þorsteinn Thorsteinsson Bjarnason, f. 3.8. 1894, d. 19.6. 1976, og Steinunn Pétursdóttir, f. 12.10. 1887, d. 12.12.
MeiraKaupa minningabók
Rannveig Guðmundsdóttir fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 25. júlí 1909. Hún lést á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi 6. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmundur J. Sigurðsson vélsmíðameistari á Þingeyri, f. 13. sept. 1884, d. 19. des.
MeiraKaupa minningabók
Unnur Ásta Stefánsdóttir fæddist á Akureyri 11. september 1932. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 6. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ingibjörg María Jóhannesdóttir, f. 22. júní 1894, d. 31.
MeiraKaupa minningabók
Unnur Sigurðardóttir fæddist í Höfn á Dalvík 12. júlí 1908. Hún lést á Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík, 5. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurður Jóhannsson, f. á Sandá í Svarfaðardal 29. júlí 1877, d. 19.
MeiraKaupa minningabók
Þorgerður Ingibjörg Egilsdóttir var fædd á Sveinsstöðum í Lýtingsstaðahreppi 3. nóvember 1913. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu á Sauðárkróki hinn 9. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Egill Benediktsson, f. 1877, d.
MeiraKaupa minningabók
Nýtt bankaráð Landsbanka Íslands kom saman í gær eftir að tilkynnt hafði verið á aðalfundi að aðeins einn maður úr fyrra ráði héldi sæti sínu. Eyrún Magnúsdóttir sat aðalfund bankans og átti spjall við nýskipaðan formann bankaráðs.
Meira
REKSTUR Bakkavarar gekk mjög vel á síðasta ári og sagði Ágúst Guðmundsson, stjórnarformaður fyrirtækisins, á aðalfundi þess í gær, að enn væru tækifæri til enn meiri vaxtar.
Meira
Pétur Björnsson, stjórnarformaður Ísfells-Netasölunnar ehf., var kjörinn formaður Samtaka verslunarinnar á aðalfundi samtakanna í gær. Pétur stofnaði og var forstjóri Ísberg Limited í Hull frá 1986 til 1998.
Meira
STJÓRNIR SH hf. og SÍF hf. hafa fengið afhent gögn frá Landsbanka Íslands hf. og Íslandsbanka hf. um rekstrar- og eignarvirði SH hf. og SÍF hf., ásamt tillögum um skiptahlutföll.
Meira
Í tískuvöruverslunum eru útsöluvörurnar að víkja fyrir sumarfötum í skærum litum til mótvægis við grámann utandyra. Í nokkrum verslunum standa útsölur þó enn eða hægt að finna í þeim svæði þar sem vetrartískan er á enn lægra verði.
Meira
50 ÁRA afmæli . Á morgun, sunnudaginn 16. febrúar, verður fimmtug Guðleif Bender sjúkraliði, Rjúpnasölum 6, Kópavogi . Eiginmaður hennar er Guðmundur A....
Meira
90 ÁRA afmæli. Þriðjudaginn 18. febrúar nk. verður níræður Ólafur Þorláksson, bóndi, Hrauni, Ölfusi. Ólafur bóndi og kona hans, Helga S. Eysteinsdóttir , ætla að halda afmælisveislu á heimili Þórhildar og Hannesar á Hrauni sunnudaginn 16. febrúar, frá...
Meira
BARNAVERNDARSTARF er viðkvæmur málaflokkur. Óvíða eru opinberir aðilar að fjalla um eins viðkvæm mál og miklu skiptir að stuðningur og ákvarðanir sem barnaverndaryfirvöld taka skili sér til barnsins.
Meira
Sveit Frímanns Stefánssonar Akureyrarmeistari Þriðjudaginn 11. febrúar lauk aðalsveitakeppni Bridsfélags Akureyrar og er óhætt að segja að þá hafi spennan náð hámarki.
Meira
Dálkahöfundur hefur lengi fengist við að segja byrjendum til í brids. Línurnar eru lagðar strax í fyrstu kennslustund: "Það þarf 12 punkta til að opna." Reglan hljómar skynsamlega, en þó er vitað um tvo menn í bridsheiminum sem eru á öðru máli.
Meira
Spurning: Eru einhverjar þekktar afleiðingar eða aukaverkanir sem staðfest hefur verið að fylgi Atkins-megrunarkúrnum, sem tröllríður öllu um þessar mundir?
Meira
Í dag er laugardagur 15. febrúar, 46. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Þá tók Pétur til máls og sagði: "Sannlega skil ég nú, að Guð fer ekki í manngreinarálit. Hann tekur opnum örmum hverjum þeim, sem óttast hann og ástundar réttlæti, hverrar þjóðar sem er."
Meira
Mitt verk er, þá ég fell og fer, eitt fræ, mitt land, í duft þitt grafið, mín söngvabrot, sem býð ég þér, eitt blað í ljóðasveig þinn vafið. En innsta hræring hugar míns, hún hverfa skal til upphafs síns sem báran, - endurheimt í...
Meira
"Ef þú verður var við félagslega neyð, hringdu þá á steypubíl!" Þetta gamla góða spakmæli kom í hugann þegar fréttist af þeim áformum ríkisstjórnarinnar að leggja einn milljarð króna af skattfé til byggingar menningarhúsa á Akureyri og í Vestmannaeyjum.
Meira
Unglingar I standarddansar 1. Haukur Freyr Hafsteinsson - Hanna Rún Óladóttir, Hvönn 2. Karl Bernburg - Ása Karen Jónsdóttir, ÍR 3. Aðalsteinn Kjartansson - Edda Guðrún Gísladóttir, ÍR 4. Alexander Mateev - Erla Björg Kristjánsdóttir, ÍR 5.
Meira
Í BYRJUN febrúar kom á markað hér á landi sams konar lyf við ristruflunum og Viagra. Nýja lyfið nefnist Cialis og er framleitt af bandaríska lyfjafyrirtækinu Eli Lilly.
Meira
KVENNALANDSLIÐ Íslands í knattspyrnu kom til Charleston í Bandaríkjunum um fimmleytið í gærmorgun að íslenskum tíma - um tólf tímum eftir brottför frá Íslandi. Þar mætir það heimsmeistaraliði Bandaríkjanna á sunnudagskvöldið en sá leikur hefst kl.
Meira
JACQUES Santini, landsliðsþjálfari Frakka, mátti þola tap í fyrsta sinn síðan hann tók við landsliði Frakka sl. sumar þegar það mætti Tékkum á Stade de France, 2:0.
Meira
FERÐASKRIFSTOFUR í Austurríki hafa þegar sent út viðvörun um að erfitt verði að hýsa alla þá áhorfendur sem vilja fylgjast með Evrópukeppni landsliða sem fram fer í Austurríki og Sviss árið 2008.
Meira
LOKSINS var heppnin með Skallagrímsmönnum þegar þeir sigruðu KR, 86:85, í æsispennandi viðureign í úrvalsdeildinni í körfuknattleik sem fram fór í Borgarnesi í gærkvöld. KR hafði yfir 85:82 þegar 8 sekúndur voru til leiksloka en Hafþór Ingi Gunnarsson skoraði fjögur stig í blálokin og færði Skallagrími dýrmæt stig í fallbaráttunni. Borgnesingar komust upp fyrir Val og eru aðeins tveimur stigum á eftir Hamri sem er í tíunda sætinu.
Meira
HAUKAR halda sínu striki í baráttunni um fjórða sætið í deildinni og þar með heimaleikjaréttinum í úrslitakeppninni. Í gærkvöldi unnu Hafnfirðingar lið ÍR í Seljaskólanum með tuttugu stiga mun, 78:98, og eru tveimur stigum á undan Njarðvíkingum í fjórða sæti og tveimur stigum á eftir Keflvíkinum sem eru í þriðja sætinu.
Meira
ÞAÐ verður ljóst á morgun í Hagaskóla hverjir verða sigurvegarar í Íslandsmótinu í glímu, er þriðja og síðasta umferð á mótinu fer fram. Sjö Íslandsmeistarar í glímu verða krýndir í unglingaflokkum, karla- og kvennaflokkum.
Meira
APRIL Heinrichs, þjálfari bandaríska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, tilkynnir í dag hvaða 18 leikmenn verða í hópi hennar í vináttulandsleiknum gegn Íslandi annað kvöld.
Meira
NÝIR leikmenn Fylkis og Vals voru í sviðsljósinu í Egilshöllinni í gærkvöld. Fylkir hafði þá betur, 2:1, í viðureign liðanna í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu og skoruðu nýir leikmenn liðanna öll þrjú mörkin. Jóhann G.
Meira
LIÐ Grindavíkur og Keflavíkur buðu upp á mikla skemmtun þegar liðin mættust í úrvalsdeildinni í Röstinni í gærkveldi. Heimamenn voru sterkari í lokin og sigruðu 105:92 í leik þar sem bæði lið sýndu skemmtilegan körfubolta. Grindavík náði með sigrinum fjögurra stiga forystu í deildinni.
Meira
ÞAÐ verður mikið um dýrðir á Britannia-leikvanginum í Stoke á morgun. Heimamenn, Íslendingafélagið Stoke City, taka þá á móti Eiði Smára Guðjohnsen og félögum í Chelsea í sextán liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu og þar er mikið í húfi.
Meira
* RYAN Giggs tekur vart þátt í viðureign Manchester United og Arsenal í 16 liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í dag, en leikurinn fer fram á Old Trafford . Giggs meiddist á kálfa í leiknum við Manchester City um síðustu helgi.
Meira
TÍU síðustu sekúndurnar skildu á milli feigs og ófeigs að Hlíðarenda þegar Valur tók á móti Gróttu/KR í gærkvöldi en Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sigurmark Vals í 25:24 sigri. Valsmenn voru án Rolands Eradze markvarðar og Bjarka Sigurðssonar en létu það ekki á sig fá og halda enn efsta sæti deildarinnar og Grótta/KR áttunda.
Meira
VALSSTÚLKUR sýndu sparihliðarnar þegar þær fengu Gróttu/KR í heimsókn í 1. deild kvenna í handknattleik í gærkvöldi og unnu með tíu marka mun, 24:14. Eftir örlítið hik í byrjun sigldu þær framúr gestunum, sem áttu ekkert svar við yfirveguðum leik Vals.
Meira
ARSENE Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, og Alex Ferguson, kollegi hans hjá Manchester United, eru sjaldan á sama máli og verða það varla í dag þegar lið þeirra mætast í ensku bikarkeppninni.
Meira
"FRÁBÆR og hugmyndaríkur stílisti," segir gagnrýnandi Süddeutsche Zeitung um Hallgrím Helgason en skáldsaga hans, 101 Reykjavík, kom nýlega út í Þýskalandi og hafa dómar um bókina í þarlendum og svissneskum blöðum verið lofsamlegir.
Meira
Í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi stendur yfir sýning á myndlist úr íslenskum handritum. Rannsóknir á myndlist í handritum hófust árið 2000 og á sýningunni gefur að líta myndir úr fyrsta áfanga þeirrar vinnu sem ber heitið Lýsir. SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR skoðaði sýninguna og ræddi við verkefnisstjóra Lýsis.
Meira
JULIE Otsuka þykir draga upp ljóslifandi mynd af aðstæðum bandarískra Japana á árum síðari heimsstyrjaldarinnar í bókinni When the Emperor Was Divine , eða Þegar keisarinn var guð.
Meira
DAGANA 9.-17. nóvember sl. fór fram viðamikil kynning í Japan á Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur. Í tengslum við kynninguna styrktu íslensk stjórnvöld stofnunina með einnar milljónar króna framlagi.
Meira
I Miðvikudaginn 16. janúar 1991 liggur það í loftinu. Einu sinni enn liggur það í loftinu þennan kyrrláta vetrardag. Það logar á stefnuvitanum á Öskjuhlíð og við blasa ljósin í turni Borgarspítalans þegar ég lít út um gluggann.
Meira
Er klónun manna lögleg á Íslandi, þekkist fíkn hjá dýrum og hver fann upp handboltann? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum hefur verið svarað að undanförnu á Vísindavefnum.
Meira
Í BLÖÐUNUM um daginn var mynd af tólf manna stjórn sem hafði sett á stofn súkkulaðisjoppu til að bjarga þjóðarverðmætum. Stjórnin sat kotroskin við borð og bak við gluggatjöldin sást að bakhjarlarnir földu sig, sennilega af einskærri hógværð.
Meira
Í rökkurkyrri sumarnótt drýpur regnið til jarðar læðist af sofandi húsþökum dottandi laufblöðum á götuna þreytta af háværum erli gærdags seytlandi vatnið strýkur burt þreytuþungann gatan hvílist undir mjúkri voð þagnarinnar Það koma fleiri þungir...
Meira
I Ofar á þessari síðu er fjallað um eina umdeildustu heimildamynd síðari ára þar sem mannslíkið Michael Jackson er dregið sundur og saman í háði.
Meira
Hér hvílast þeir, sem þreyttir göngu luku í þagnar brag. Ég minnist tveggja handa, er hár mitt struku einn horfinn dag. Ó, guðir, þér, sem okkur örlög vefið svo undarleg. Það misstu allir allt, sem þeim var gefið, og einnig ég.
Meira
Margt er sér til gamans gert á myrkum vetrarkvöldum. Ég hugði gott til glóðarinnar, þegar ég komst á snoðir um leikhúsmálfund í Borgarleikhúsinu um daginn. Þetta var enginn sellufundur: samkoman var auglýst í blöðunum.
Meira
Kvennablöð eru eitt þeirra fyrirbæra í menningunni sem gera út á og lofsyngja kvenleika. Útbreiddasta kvennablað samtímans er Cosmopolitan en það veitir nútímakonum víðsvegar um heiminn leiðsögn um það hvernig á að vera góð í að vera kona.
Meira
Á opnum fundi sem menningarmálanefnd Reykjavíkur efndi til nýlega um sýningarstefnu listasafns borgarinnar voru bornar fram gamalkunnar kvartanir um að safnið sinnti ekki þjónustuskyldum sínum við tiltekinn hóp listamanna. Í lok fundarins lýstu nokkrir nefndarmanna vilja sínum til þess að taka mark á þessari gagnrýni og taka skipulagsmál og stjórnun safnsins til endurskoðunar með breytta sýningarstefnu í huga. Hér er fjallað um hlutverk listasafna í samtímanum.
Meira
SÝNING á verkum þeirra Matisse og Picassos var opnuð í Museum of Modern Art (MOMA) í New York nú í vikunni. Sýningin hefur þegar verið sett upp í bæði París og London og setti aðsóknarmet í báðum borgum.
Meira
SVO áberandi hefur poppgoðið Michael Jackson verið í fjölmiðlum undanfarna daga að það er ef til vill að bera í bakkafullan læk að fjasa meir um það.
Meira
"Ófriðarseggnum, Evrópusinnanum og Korsíkubúanum Napóleoni keisara var á sínum tíma mjög í mun að auka veldi sitt. Í því skyni þurfti hann að tryggja að unnt yrði að halda samgönguleiðum opnum þótt hafnarborgir væru herteknar og sjóleiðin lokuð. Á Bretaníuskaga brá hann á það ráð að hrinda í framkvæmd gamalli hugmynd heimamanna um að samtengja átta mislangar ár og veita þeim í einn skipaskurð, langan og mjóan."
Meira
MYNDLIST Galleri@hlemmur.is: Ósk Vilhjálmsdóttir. Til 2.3. Gallerí Skuggi: Ingimar Waage. Til 16.2. Gerðarsafn: Franskar og belgískar teiknimyndir. Til 23.2. Gerðuberg: Ljósmyndasýning frá Bauhaus. Til 23.2. Hafnarborg: Akvarell Ísland 2003. Til 17.2.
Meira
TÓNLISTARAKADEMÍA Kristjáns Jóhannssonar, Accademia Musicale Internazionale Kristján Jóhannsson, tekur til starfa nú í vor, í heimabæ Kristjáns, Desenzano við Garda-vatnið á Ítalíu.
Meira
Haukur Már Helgason er rithöfundur og heimspekinemi búsettur í Berlín. Hann var í haust valinn til að taka þátt í alþjóðlegu hópverkefni um ritun leikrits á Netinu sem BBC-útvarpið og Royal Court-leikhúsið í London standa sameiginlega að. HÁVAR SIGURJÓNSSON átti samtal við Hauk Má með hjálp tölvupósts og netsamskipta.
Meira
22. janúar var settur á stofn Styrktarsjóður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. AUÐUR HAUKSDÓTTIR fjallar af því tilefni um hlutverk stofnunarinnar og kynningarferð til Japans. Einnig er sagt frá störfum þriggja fræðimanna við stofnunina.
Meira
Anna Líndal hefur opnað sýningu í nýju sýningarrými í Listasafni Íslands sem hlotið hefur heitið Sjónarhorn. SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR ræddi við Önnu um inntak sýningarinnar og útfærslu.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.