VEGAGERÐIN gerir ráð fyrir að spara allt að 120 milljónir króna í snjómokstri frá áramótum vegna óvenju góðs tíðarfars sem ríkt hefur á landinu í allan vetur. Í Reykjavík er kostnaðurinn sömuleiðis með allra minnsta móti.
Meira
ÞÆR Agnes Edda og Guðrún Stella horfa hugfangnar á páskaungann. Hann minnir þær sennilega á hátíðina sem í hönd fer og allt það góða og skemmtilega sem henni...
Meira
ÍRASKIR lögreglumenn í Bagdad hafa handtekið fyrrverandi fjármálaráðherra Íraks, Hikmat al-Azzawi, og afhent hann bandarískum hermönnum í borginni, að sögn bandarísku herstjórnarinnar í gær.
Meira
UTANRÍKISRÁÐHERRAR grannríkja Íraks sögðu í gær að hernámslið Bandaríkjanna og Bretlands þyrfti að fara frá Írak eins fljótt og auðið væri og að Sameinuðu þjóðirnar ættu að gegna lykilhlutverki í því að mynda nýja stjórn í landinu.
Meira
ANDRÉSAR Andar-leikunum á skíðum hefur verið aflýst vegna snjóleysis en keppni átti að hefjast í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar sumardaginn fyrsta. Gísli Kristinn Lórenzson, einn forsvarsmanna leikanna, sagði að ákvörðun um að aflýsa 28.
Meira
KÚRDAR í Írak hafa fundið fjöldagröf nærri borginni Kirkuk í norðurhluta landsins. Frumrannsóknir á gröfinni gefa til kynna að þar sé að finna jarðneskar leifar óbreyttra borgara. Talið er að í gröfinni sé að finna 2.000 til 2.500 lík.
Meira
FORSETAKOSNINGAR fóru fram í Nígeríu í gær, hinar fyrstu sem talist geta frjálsar í landinu í 20 ár. Margir óttast að brögð verði í tafli í kosningunum og að ofbeldisverk setji mark sitt á þær.
Meira
FÆKKAÐ hefur um 150 manns á atvinnuleysisskrá á höfuðborgarsvæðinu frá því um síðustu mánaðamót. Meiri hreyfing er á fólki út og inn af skrá en áður var. Starfsmenn vinnumiðlana segja aukinnar bjartsýni gæta hjá þeim sem til þeirra leita.
Meira
NÝ flugvél hefur bæst í flota flugfélagsins Geirfugls í Reykjavík. Er hún frönsk, af gerðinni Socata TB-10 Tobago, fimm sæta og kostaði 12,5 milljónir króna.
Meira
TVEIR menn voru handteknir á föstudagskvöld í Reykjanesbæ en í bíl þeirra fundust að því er talið er 30 g af amfetamíni og 15 g af hassi. Að sögn lögreglu í Keflavík var mönnunum sleppt eftir...
Meira
MOKFISKIRÍ af ýsu hefur verið hjá Eyjabátum að undanförnu og er togbáturinn Drangavík VE þar fremstur í flokki. "Það hefur hreinlega verið mokveiði af ýsu og ufsa undanfarnar vikur.
Meira
LÖGREGLAN í Kópavogi tók mann á 136 km hraða á Reykjanesbrautinni á föstudag. Má hann eiga von á því að verða sviptur ökuréttindum þar sem 70 km hámarkshraði er á kaflanum þar sem hann var...
Meira
YFIRVÖLD í Hong Kong skýrðu frá því í gær að tólf til viðbótar hefðu dáið af völdum lungnabólgufaraldursins HABL og fórnarlömbum sjúkdómsins hefði aldrei fjölgað þar eins mikið á einum degi frá því að faraldurinn braust út fyrir sex vikum.
Meira
TARJA Halonen, Finnlandsforseti, skipaði formlega nýja ríkisstjórn á fimmtudag. Jafnmargir karlar og konur skipa stjórnina en ráðherrarnir eru alls 18.
Meira
EINMUNA veðurblíða var víða um land á föstudag og fór hitinn á tveimur stöðum norðaustanlands upp í 21 gráðu. Hlýindin vöruðu þó ekki lengi því í gær hafði kólnað um allt land og var súld eða rigning sums staðar.
Meira
GUÐJÓN A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir að komi til þess að flokkurinn fari í ríkisstjórn eftir alþingiskosningarnar muni hann ekki gefa eftir fiskveiðistefnu sína.
Meira
ATLI Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, stefnir að því að hafa kjarnann úr landsliðinu saman á æfingum í þrjár til fjórar vikur fyrir Evrópuleikina mikilvægu gegn Færeyjum og Litháen í júní.
Meira
Á UNDANFÖRNUM árum hafa mörg sögufræg hús og mannvirki fengið nýtt og fallegt útlit eftir að hafa hlotið Málningarstyrk frá Hörpu Sjöfn. Fyrirtækið byrjaði fyrir fimm árum að úthluta árlega nokkrum málningarstyrkjum til veglegar verkefna.
Meira
TALIÐ er að um það bil 10.000 manns hafi tekið þátt í mótmælum í Bagdad, höfuðborg Íraks, á föstudag. Fólkið mótmælti hernámi Bandaríkjamanna og krafðist þess að liðsaflinn í landinu yrði kallaður á brott.
Meira
HJÓNIN Heimo Schmidt, austurrískur atvinnuljósmyndari og Kara Wetherby, bandarískur stílisti, eru væntanleg hingað til lands í sumar í þeim tilgangi að taka myndir af fatnaði Spakmannsspjara í íslenskri náttúru.
Meira
NÆSTA haust mun nýr einkarekinn framhaldsskóli, Menntaskólinn Hraðbraut, taka til starfa í Hafnarfirði. Þar verður boðið upp á tveggja ára nám til stúdentsprófs og munu nemendur skólans því útskrifast átján ára, að sögn Ólafs Hauks Johnson, skólastjóra.
Meira
EIRÍKUR S. Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kaldbaks, sagði að niðurstaða gerðardóms á heildarverðmæti Norðurmjólkur væri vonbrigði. "Við hefðum ekki áfrýjað þessu máli nema af því að við töldum að við ættum að fá meira fyrir okkar eignarhlut.
Meira
HELGI Hróbjartsson, sem starfað hefur um áratugaskeið við kristniboðs- og hjálparstörf í Eþíópíu, verður aðalskipuleggjandi neyðarhjálpar í héraðinu El Kere á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar í samvinnu við yfirvöld og lútersku kirkjuna þar í landi.
Meira
Opið hús hjá Jóa byssusmið Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður verður með kynningu á rifflum frá Sauer-verksmiðjunum og miðunarsjónaukum frá Schmidt & Bender og Pecar í Þýskalandi á annan í páskum kl. 10-17 í Dunhaga 18 í Reykjavík.
Meira
EINN þekktasti þingmaður frjálslyndra í Rússlandi, Sergej Júshenkov, var skotinn til bana í Moskvu á fimmtudag. Þingmaðurinn var skotinn nokkrum sinnum í brjóstið við heimili sitt í einu af úthverfum Moskvu.
Meira
SUMIR þeirra sem fóru ránshendi um fornminjasafn í Bagdad, höfuðborg Íraks, virðast hafa skipulagt sig vel og höfðu í sumum tilvikum lykla að peningaskápum safnsins og gátu því tekið verðmæta gripi þaðan.
Meira
MENN frá siglingaklúbbnum Brokey voru mættir til vinnu í Reykjavíkurhöfn eldsnemma í gærmorgun að setja upp flotbryggjur félagsins og gera klárt fyrir sumarið.
Meira
ÞEGAR Jóhannes Ásbjarnarson á Kársstöðum í Helgafellssveit var á leið í kaupstað og ók yfir Kársstaðaá sá hann hvar selur lá á grasbala við hyl í ánni.
Meira
Spila- og skemmtikvöld í Reykjanesbæ Samfylkingin býður öllum sem eru fæddir árið 1943 eða fyrr til spila- og skemmtikvölds á Víkinni, Hafnargötu 80, Reykjanesbæ, þriðjudaginn 22. apríl kl. 20. Verðlaun verða veitt.
Meira
EF KJÓSENDUR gefa núverandi stjórnarandstöðu meirihluta á þingi ber stjórnandstöðuflokkunum skylda til þess að reyna stjórnarmyndun. Ljóst er þó að stjórnarmeirihlutinn verður ekki felldur nema Frjálslyndi flokkurinn fái 5-8 þingmenn kjörna.
Meira
BRESKAR sérsveitir og lögregla voru í nánu sambandi við útlæg samtök mótmælenda á Norður-Írlandi sem m.a. eru ábyrg fyrir morði á kaþólskum lögmanni, Patrick Finucane, árið 1989. Þetta kemur m.a.
Meira
SJÓNVARPIÐ í Abu Dhabi sýndi á föstudag myndbandsupptöku sem sögð var tekin af Saddam Hussein, fyrrum Íraksforseta, 9. þessa mánaðar, daginn sem Bagdad féll.
Meira
Talið er að yfir 11 milljónir íbúa Eþíópíu þurfi hjálp á þessu ári. Þörf er fyrir rúmlega 1,4 milljónir tonna af matvælum, einkum korn. Á síðustu átta árum hafa íbúar í El Kere iðulega mátt búa við uppskerubrest og hungursneyð.
Meira
Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 1953. Hefur masterspróf í íslenskukennslu og kenndi íslensku við MS og Kvennaskólann í 12 ár. Er framkvæmdastjóri Hagþenkis og löggiltur skjalaþýðandi. Vinnur í Reykjavíkurakademíunni. Á tvær uppkomnar dætur.
Meira
ALCAN á Íslandi hefur fyrst fyrirtækja á Íslandi fengið staðfest að öryggis- og vinnuumhverfisstjórnun þess standist alþjóðlega staðalinn OHSAS 18001.
Meira
Þegar stuðningsmenn Bills Clintons Bandaríkjaforseta lögðu á ráðin um það hvaða aðferðum ætti að beita til að sigra George H.W. Bush í forsetakosningunum árið 1991 hafði James Carville meiri áhrif en flestir aðrir.
Meira
20. apríl 1993 : "Ríkissjóður er illa staddur um þessar mundir. Að loknum fyrsta ársfjórðungi yfirstandandi fjárlagaárs er ljóst, að fjárlagahallinn á þessu ári stefnir í a.m.k. 10 milljarða króna.
Meira
Ekki er skafið utan af hlutunum í Morgunpósti VG, sem birtist á kosningavef flokksins. Það fer t.d. ekki á milli mála að VG telur ríkisstjórn núverandi stjórnarandstöðuflokka æskilegustu stjórnina eftir kosningar.
Meira
BARNALEIKSÝNINGIN Baulaðu nú...! - Dagur í lífi Kristínar Jósefínu Páls - hefur nú hafið ferð um borgina og er fyrsti viðkomustaðurinn Listasafn Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum og verða sýningar á mánudag, 2. í páskum, kl. 16 og laugardaginn 26. apríl kl.
Meira
Ferðalok er eftir Jón Karl Helgason og kemur út í Svörtu línunni frá bókaforlaginu Bjarti. Meginefnið er saga beina Jónasar Hallgrímssonar og örlög þeirra í skáldskap og veruleika.
Meira
TILKYNNINGUM um væntanlega tónleika Bjarkar á næstu mánuðum fer fjölgandi. Staðfestir hafa verið tvennir stórtónleikar í London í endaðan maí. Þeir fyrri verða hinn 24. í Hammersmith Apollo en þeir síðari í Shepherd's Bush Empire hinn 26.
Meira
KÓRAMÓT íslenskra kóra erlendis var haldið í London fyrir skemmstu. Alls tóku sex kórar þátt í mótinu og sungu þeir saman á tónleikum og í messu í Holy Trinity Church. "Þetta kóramót hefur verið haldið annað hvert ár síðan árið 1997.
Meira
STÖÐ 2 ætlar á annan í páskum að sýna frá tónleikum Bubba Morthens á Hótel Borg. Þennan einstæða listamann er óþarfi að kynna en hins vegar er óhætt að staðhæfa að hann hefur sjaldan verið í betra formi.
Meira
Fyrirhugaðri endurgerð myndarinnar Casablanca með þeim Jennifer Lopez og Ben Affleck í aðalhlutverkum hefur verið aflýst í kjölfar þess að frumsýningu fyrstu myndar þeirra Tough Love var frestað í fimmta skipti.
Meira
GUÐ minn góður, en aumlegt land," umlaði eldri kona frá Ameríku sem sat við hliðina á spænska rithöfundinum Xavier Moret þegar hann lenti á Keflavíkurflugvelli í fyrsta sinn.
Meira
ALLAR götur frá því aðallinn missti þau sérréttindi sín að ganga í glæsilegum fatnaði hafa ráðandi samfélagsöfl reynt að finna á því flöt hvernig þau gætu endurheimt forréttindi sín sem leiðandi mótendur smekkvísi.
Meira
DANS- og söngvamyndin Rauða myllan ( Moulin Rouge ) er á dagskrá Stöðvar 2 að kvöldi páskadags. Þessi mynd ástralska leikstjórans Baz Luhrmanns frá árinu 2001 var tilnefnd til átta Óskarsverðlauna en hreppti tvenn.
Meira
Leikstjórn: Christian Charles. Fram koma: Jerry Seinfeld, Orny Adams, Bill Cosby, Jay Leno, Chris Rock, Ray Romano og George Shapiro. 82 mín. BNA. Miramax 2002.
Meira
OPNUÐ hefur verið vefsíðan www.heimsbokmenntir.tk og er ábyrgðarmaður hennar Ragnar Þór Pétursson kennari og heimspekingur. Þar getur almenningur skráð sig í hóp fólks sem stendur fyrir sérútgáfu helstu verka heimsbókmenntanna.
Meira
Edda eftir Snorra Sturluson (1179-1241) er komin út á ensku. Í bókinni er að finna helstu frásagnir Eddu ásamt úrvali evrópskrar myndlistar sem sprottin er af lestri Eddu á undanförnum öldum. Edda er eitt af grundvallarritum norrænnar menningar.
Meira
Spádómabókin er eftir Símon Jón Jóhannsson þjóðfræðing. Í bókinni er fjallað um það hvernig hægt er að skyggnast inn í framtíðina með hjálp margvíslegra spádómsaðferða frá ýmsum heimshornum.
Meira
MIKIÐ hefur verið látið með plötu Pink Floyd frá árinu 1973, Dark Side of the Moon . Hún er ein mest selda plata allra tíma auk þess að þykja hreinasta listaverk, hvort heldur sem er í sambandi við hljómpælingar eða lagasmíðar.
Meira
BOREAS galleríið í Brooklyn í New hyggst sýna verk Tuma Magnússonar á opnunarsýningu gallerísins sem hefst 25. apríl. Er sýningin sú fyrsta á verkum Tuma í Bandaríkjunum.
Meira
Færeysk, hjaltlenzk og skandínavísk "spilara"-tónlist. Færeysku hljómlistarmennirnir Kristian Blak píanó, Sharon Weiss blokkflauta og Angelika Nielsen fiðla. Laugardaginn 12. apríl kl. 16.
Meira
LEITIN að Rajeev er um margt merkileg heimildarmynd sem þau Birta Fróðadóttir og Rúnar Rúnarsson unnu. Myndin fékk afar jákvæða dóma er hún var frumsýnd en hún fjallar um leit Birtu að Rajeev, indverskum æskuvini sínum.
Meira
LÍTILL saklaus drengur átta ára gamall, limlestur og brenndur um allan líkamann. Í augum hans stirnir á tvö tár. Hann megnar ekki að gráta. Hver þerrar tárin hans? Hvern á hann að til að þerra tárin? Hver hughreystir hann?
Meira
"...einelti er félagslegt fyrirbæri, sem stjórnast af því að um vanlíðan er að ræða í hópnum. Það orsakast ekki af því að einstaklingarnir séu vondir, illa innrættir, illa uppaldir eða veikir."
Meira
"Árangur í þjóðarbúskap er ferðalag en ekki endastöð og íslensk þjóð á mikið undir því að Sjálfstæðisflokkurinn verði áfram í forystu á þeirri leið."
Meira
"Við aðild að Evrópusambandinu má því gera ráð fyrir að hver fjögurra manna fjölskylda á Íslandi muni spara um 250.000 krónur á ári í lægra matvælaverði."
Meira
"Talsmaður Framsóknarflokksins sagði að færa mætti rök fyrir því að íslenskum landbúnaði yrði betur borgið innan Evrópusambandsins eftir árið 2006 en utan þess."
Meira
"... í lagalegu tilliti hefur í tíð Davíðs Oddssonar í stóli forsætisráðherra orðið bylting á þeim lagagrundvelli sem mótar samskipti þegnanna og fyrirtækja við ríkisvaldið."
Meira
"Ég man ekki betur en Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, hafi mótmælt þessum skattalækkunum og sagt þær hættulegar hagstjórninni."
Meira
12. apríl sl. héldu Senjórítur Kvennakórs Reykjavíkur sína fyrstu sjálfstæðu tónleika. Á efnisskránni voru ýmis lög allt frá kirkjulegum verkum til dægurlaga.
Meira
Í KJÖLFAR greinaskrifa í Fréttablaðinu um baráttu þríburaforeldra í Hveragerði, sjáum við hjá félagi þríburaforeldra okkur knúin til að reyna að útskýra hvers vegna sérstök aðstoð getur verið nauðsynleg þegar um þríbura er að ræða.
Meira
Lárus Þórarinn Jósepsson Blöndal fæddist á Siglufirði 12. júlí 1912. Hann lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ 8. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Vídalínskirkju í Garðabæ 15. apríl.
MeiraKaupa minningabók
Margrét Eggertsdóttir söngkona fæddist í Reykjavík 26. júlí 1925. Hún lést á Landspítala í Landakoti 1. apríl síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Langholtskirkju 14. apríl.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Kristinsdóttir var fædd á Kerhóli í Sölvadal í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði 23. september 1908. Hún andaðist á Kristnesspítala 8. apríl síðastliðinn og var jarðsungin frá Akureyrarkirkju 15. apríl.
MeiraKaupa minningabók
Steinþór Guðmundur Halldórsson fæddist á Svarthamri í Álftafirði 20. febrúar 1931. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 4. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Áskirkju 15. apríl.
MeiraKaupa minningabók
Þorsteinn Magnússon fæddist á Arnbjargarlæk í Þverárhlíð í Mýrasýslu 6. apríl 1943. Hann lést á heimili sínu, Svartagili í Norðurárdal, 6. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Grafarvogskirkju 15. apríl.
MeiraKaupa minningabók
Þóra Böðvarsdóttir fæddist á Bíldudal 9. febrúar 1918. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 5. apríl síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Dómkirkjunni 15. apríl.
MeiraKaupa minningabók
60 ÁRA afmæli . Sextugur verður á morgun, mánudaginn 21. apríl, Arnór L. Pálsson, framkvæmdastjóri Útfararstofu Kirkjugarða Reykjavíkur, Kórsölum 1, Kópavogi . Eiginkona hans er Betsý Ívarsdóttir .
Meira
Eftir því sem háspilin eru "fyrirferðarmeiri" er auðveldara að finna þau á höndum andstæðinganna. Ásar og kóngar dyljast illa, en drottningar eiga betra með að fela sig, og gosa er nánast útilokað að reikna út - svona oftast nær.
Meira
Ísland ögrum skorið, eg vil nefna þig! sem á brjóstum borið og blessað hefir mig fyrir skikkun skaparans, vertu blessað, blessi þig blessað nafnið hans. Gleymt ég get þér aldrei, göfugt föðurland!
Meira
Í dag er sunnudagur 20. apríl, 110. dagur ársins 2003, páskadagur. Orð dagsins: Og hann segir við hann: Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð sjá himininn opinn og engla Guðs stíga upp og stíga niður yfir Mannssoninn."
Meira
Kvöldmessa í Grensáskirkju ANNAÐ kvöld, annan páskadag, kl. 20 verður kvöldmessa í Grensáskirkju. Messuform er mjög einfalt og líflegur söngur undir stjórn Árna Arinbjarnarsonar organista, bæna- og lofgjörðarstund, stutt hugvekja og altarisganga.
Meira
Margt páskaeggið verður brotið í dag. En þó líklega án nokkurra frekari pælinga, því fáir átta sig á því, að á bak við þann sið nútímans er ákveðin táknfræði, ævaforn. Sigurður Ægisson kannar þær hugmyndir, sem eiga rætur víða um lönd.
Meira
VÍKVERJI er kominn í sumarskap. Það er ekki annað hægt. Menn sjá fram á betri tíð með blóm í haga. Veðurblíðan að undanförnu hefur verið einstök - menn hafa unnið vorverkin fyrr en áður, mörgum vikum fyrr en til dæmis síðastliðið ár, sem var verðursælt.
Meira
Ég kemst nú eiginlega ekki frá núna," segir Harpa Þórsdóttir, sem er að baka sína fyrstu eplaköku á afmælisdaginn. "Svona er ég hæfileikarík, ég geri bæði eplakökur og stuttmyndir," bætir hún við kotroskin.
Meira
Mörgum þótti Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, bjartsýnn þegar hann á landsþingi flokksins sagðist stefna að því að tvöfalda fylgi flokksins í næstu kosningum, skrifar Arna Schram. Ef mark er takandi á skoðanakönnunum gæti því markmiði verið náð. Enn eru þó þrjár vikur til kosninga. Og allt getur gerst á þeim tíma.
Meira
Eitt sólríkt síðdegi í Bagdað, nokkrum dögum fyrir það sem fólk hélt kannski að yrði voðalegasta orrusta síðari tíma, varð fréttamaður nokkur var við að þarlendir stráklingar voru í stríðsleik.
Meira
Úrslitin í kosningabaráttunni eru að ráðast þessa dagana. Ekki í fjölmiðlum eða reykmettuðum bakherbergjum stjórnmálaflokka heldur í fermingarveislum sem stofnað er til út um allan bæ. Þar komast sögur á kreik á meðan aðrar fjara út.
Meira
Þeir Hlynur, Bjarni og Hafsteinn úr fjöllistahópnum Lorti eru sestir í sófann. Þeir eru úr kvikmyndaanga Lorts og voru ásamt félögum sínum valdir kvikmyndagerðarmenn ársins á Bedduverðlaununum í fyrra, sem veitt eru af Bíói Reykjavík.
Meira
Stjórnmálasamtökin Nýtt afl voru fyrst og fremst stofnuð til að gæta hagsmuna hins almenna borgara og berjast fyrir breyttum áherslum og forgangsröðun í samfélaginu. Ragna Sara Jónsdóttir ræddi við Guðmund G. Þórarinsson, formann samtakanna, sem bjóða í fyrsta sinn fram til alþingiskosninga.
Meira
Markaðurinn er erfiður fyrir stuttmyndir á Íslandi og mesta gróskan hjá ungum og upprennandi kvikmyndagerðarmönnum. Pétur Blöndal talaði við nokkra um verkefnin sem þeir hafa á prjónunum.
Meira
Kristján Pálsson, efsti maður á T-lista óháðs framboðs í Suðurkjördæmi, segir að það sé kostur við framboð af þessu tagi að geta einbeitt sér að málefnum eins kjördæmis. Kristján segir Helga Bjarnasyni að fólk taki ekki áhættu með því að kjósa T-listann en geti með því sýnt að það vilji breytingar.
Meira
Um síðustu helgi birtist í Morgunblaðinu auglýsing frá nokkrum forsvarsmönnum úr íslensku tónlistar- og menningarlífi, þar sem töfum á undirbúningi byggingar Tónlistarhúss var mótmælt og skorað var á frambjóðendur til alþingiskosninga að láta málið til sín taka. Á laugardag hlýddi Bergþóra Jónsdóttir á hringborðsumræður hóps tónlistarmanna um málefni tónlistarhússins.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.