BRASILÍUMAÐURINN Sergio Vieira de Mello, aðalfulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Írak, var meðal þeirra sem fórust í höfuðstöðvum SÞ í Canal-hótelinu í Bagdad þegar sementsflutningabíl, hlöðnum sprengiefnum, var ekið að hótelinu um klukkan 4.
Meira
MJÖG mikil útbreiðsla var í gær á tölvuorminum W32/Sobig.F@mm sem sendir sjálfan sig úr sýktum tölvum. "Höfundur þessarar "fjölskyldu" hefur verið að gera tilraunir í ár.
Meira
LANDSBANKINN og Íslandsbanki eru enn að huga að sameiningu SH og SÍF, þrátt fyrir að viðræðum um sameiningu félaganna hafi verið slitið fyrr á þessu ári. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins ráða hagsmunir Íslandsbanka í Kanada miklu um afstöðu bankans.
Meira
HAGSTÆÐUSTU innlendu lánin til bílakaupa eru lífeyrissjóðslán en Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri Verðbréfastofunnar hf., segir að ekkert mæli á móti því að lífeyrissjóðslán séu tekin til bílakaupa þótt líftími lánanna sé töluvert lengri en bílsins.
Meira
SÚ NIÐURSTAÐA meirihluta hreppsnefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps í gær að hafna útfærslu Landsvirkjunar um gerð Norðlingaölduveitu eykur óvissu um orkusölu til stækkunar Norðuráls, að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar.
Meira
FLUGLEIÐIR stefna að því að lækka rekstrarkostnað um 1,5 milljarða króna á árinu, en í gær var birt uppgjör félagsins fyrir fyrri helming ársins.
Meira
BÖRN sem hafa í sumar verið að rækta grænmeti í Skólagörðum Kópavogs hafa að undanförnu verið fórnarlömb þjófa. Þjófarnir sækja nær eingöngu í hnúðkál, sem þykir afar gott í salöt og súpur ýmiss konar.
Meira
SAMÞYKKT var á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun að verja 170 milljónum króna til úreldingar sláturhúsa. Áður hafði sláturhúsanefnd lagt til að 220 milljónum yrði varið til úreldingar.
Meira
HÁTÍÐARHÖLDUM vegna afmælishátíðar Mosfellsbæjar hefur verið fundin ný dagsetning, en þeim var frestað vegna aftakaveðurs hinn 9. ágúst síðastliðinn. Stefnt er á hátíðarhöld laugardaginn 23.
Meira
20. ágúst 2003
| Akureyri og nágrenni
| 126 orð
| 1 mynd
SLÖKKVILIÐ Akureyrar fékk tilkynningu um ammoníumleka hjá Útgerðarfélagi Akureyrar snemma í gærmorgun. Jóhann Jónsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu, sagði við Morgunblaðið að starfsmaður hefði verið að losa undan ammoníaktanki.
Meira
MIKIÐ hefur verið um ráðstefnuhald í sumar og útlit er fyrir að svo verði áfram út ágústmánuð og í september, en óvenjumikið er um að vera í ár hjá þeim fyrirtækjum sem sérhæfa sig í skipulagningu ráðstefna hér á landi.
Meira
AUKINN áhugi er á Íslandsferðum meðal Ungverja í kjölfar markaðsstarfs ferðaskrifstofunnar Heimsferða í Búdapest, að sögn Andra Más Ingólfssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Meira
Ebba Þóra Hvannberg fæddist árið 1957 í Reykjavík. Hún lauk BS-prófi í tölvunarfræðum við Háskóla Íslands árið 1981 og doktorsprófi í tölvunarfræðum frá Rensselaer Polytechnic Institute í New York árið 1988. Ebba Þóra gegnir í dag stöðu dósents við Háskóla Íslands við tölvunarfræðiskor. Hún er gift Helga Þorbergssyni tölvunarfræðingi og eiga þau þrjú börn.
Meira
Áfangaskýrsla Prentvilla var í upphafi greinar Björgvins Guðmundssonar, Meint ólögmætt samráð olíufélaganna, í gær. Rétt er upphafið á þessa leið: "Áfangaskýrsla samkeppnisstofnunar um meint ólögmætt samráð olíufélaganna hefur vakið mikla athygli.
Meira
FÉLAG íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) ætlar að óska eftir viðræðum við stjórnvöld vegna fjölda erlendra flugmanna sem er heimilað að fljúga fyrir íslensk flugfélög ár hvert.
Meira
Sumarhátíð og skráningardagur skátafélagsins Vífils í Garðabæ verður á morgun, fimmtudaginn 21. ágúst, í skátaheimilinu í Hraunhólum 12. Í tilefni þess að skátastarf er að hefjast að nýju mun skátafélagið vera með grillveislu fyrir gesti og gangandi.
Meira
"NEI, ég hef enga bakþanka fengið og veit að ég mun ekki sjá eftir þessu. Ef ég hefði ekki látið reyna á þetta hefði ég hrunið niður," segir Gréta Jónsdóttir sem ásamt fjölskyldu sinni hefur tekið við rekstri veitingastofunnar Varar í...
Meira
Götubörn og munaðarlaus börn í Austur-Evrópu. Tatiana Balachova heldur fyrirlestur á vegum Barnaverndarstofu á Grand Hóteli föstudaginn 22. ágúst kl. 13, um götubörn og munaðarlaus börn í A-Evrópu.
Meira
EFNT verður til umhverfisátaks í Reykjanesbæ næstu daga. Markmiðið er að hreinsa jaðra bæjarins af öllum málmum og öðru rusli. Reykjanesbær stendur fyrir hreinsunarátakinu í samvinnu við Hringrás hf., Njarðtak hf.
Meira
SJÓMÆLINGABÁTURINN Baldur kom til hafnar á Húsavík á dögunum en hann hefur verið við mælingar/rannsóknir á Skjálfanda að undanförnu í framhaldi af rannsóknum Bjarna Sæmundssonar á gasi og olíu á þessum...
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra bauð nýkrýndum Evrópumeisturum í handknattleik til hádegisverðar í utanríkisráðuneytinu í gær en íslenski landsliðshópurinn kom heim frá frægðarför í Slóvakíu í fyrrinótt og var vel fagnað við komuna.
Meira
FARÞEGAR og áhöfn flugvélarinnar frá Air Canada sem nauðlenti á Keflavíkurflugvelli síðdegis í fyrradag, á leið sinni frá Frankfurt í Þýskalandi til Toronto í Kanada, héldu af landi brott um fjögurleytið í fyrrinótt.
Meira
NOKKUÐ skortir á að skýrt sé kveðið á um skoðun bílaleigubíla við skil þeirra, að mati Ólafar Emblu Einarsdóttur, lögfræðings Neytendasamtakanna.
Meira
BORGARLÖGMAÐUR segir í minnisblaði til borgarráðs að við framsetningu hugsanlegrar skaðabótakröfu borgarinnar á hendur olíufélögunum verði borgin að sýna fram á tjón sitt eða líklegt tjón.
Meira
ALASTAIR Campbell, upplýsingafulltrúi brezka forsætisráðherrans, Tonys Blairs, vísaði í gær á bug fullyrðingum um að hann hefði átt við orðalag skýrslu sem stjórnin birti í september um vopnaeign Íraka, í þeim tilgangi að ýkja ógnina sem af þáverandi...
Meira
TUTTUGU og eins manns hópur þingmanna á Jórdaníuþingi hyggst fara fram á það við bandarísk yfirvöld að Ahmad Chalabi, lykiltengiliður Bandaríkjamanna í framkvæmdaráðinu svonefnda, bráðabirgðaríkisstjórn Íraks sem starfar í skjóli hernámsyfirvalda, verði...
Meira
20. ágúst 2003
| Akureyri og nágrenni
| 226 orð
| 1 mynd
EIÐUR Guðnason, sendiherra í Kína, var á ferð á Akureyri í gær og kom meðal annars við í Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. Þangað átti hann ákveðið erindi.
Meira
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, bjargaði þremur mönnum í fyrrinótt sem voru hætt komnir í Efstadalsvatni í Laugardal í Ísafjarðardjúpi eftir að bát sem þeir voru á hvolfdi.
Meira
BORIST hefur eftirfarandi fréttatilkynning frá Orkuveitu Reykjavíkur: "Undanfarna daga hefur verið nokkur umræða um verðhækkun Orkuveitu Reykjavíkur sem tekur gildi 1. september næstkomandi.
Meira
ENGIN hrefna var skotin í gær, Sigurbjörg var á sjó fyrir sunnan land og Halldór Sigurðsson var fyrir norðan land en skilyrði til veiða voru slæm.
Meira
Á FJÓRÐA tug gesta var í gær viðstaddur opnun nýrrar steypuverksmiðju í eigu BM Vallár sem framleiða á sérstaka eldþolna sprautusteypu til útflutnings.
Meira
FERÐAMENNIRNIR fjórtán sem látnir voru lausir úr haldi mannræningja í fyrradag ferðuðust landleiðina frá Tessalit í Alsír yfir landamærin til borgarinnar Gao í Malí í gær.
Meira
MARGUR er knár þótt hann sé smár segir máltækið, og fátt undirstrikar merkingu þessa aldagamla sannleiks en sá kraftur sem börnin í Siglunesi búa yfir. Siglunes er siglingaklúbbur og hluti af tómstundastarfi ÍTR fyrir grunnskólabörn í sumar.
Meira
ÁÐUR en Svandís Bára Steingrímsdóttir varð sextug ákvað hún að óska eftir því við vini og vandamenn að þeir létu fremur fé af hendi rakna í læstan bauk heldur en að kaupa handa henni gjafir. Hún hélt upp á afmælið þann 16. ágúst sl.
Meira
Í SUMAR á alþjóðaári ferskvatnsins hefur Ungmennasamband Borgarfjarðar gengizt fyrir kvöldgöngum í samstarfi við Vesturlandsdeild Veiðimálastofnunar. Hefur verið gengið meðfram Andakílsá, Norðurá, Hítará, Flóku og Grímsá.
Meira
AFKOMENDUR Jónasar Márussonar frá Kársstöðum og eiginkvenna hans færðu gömlu kirkjunni í Stykkishólmi peningagjöf til minningar um þau og látna afkomendur. Um var að ræða tekjuafgang af ættarmóti sem haldið var að Heiðarskóla.
Meira
PLANTAN bjarnarkló þykir ekki heppileg til að gróðursetja í villilönd að sögn Þórólfs Jónssonar, deildarstjóra garðyrkjudeildar Reykjavíkurborgar.
Meira
KJARTAN Gunnarsson, fyrrverandi apótekari, lést síðastliðinn sunnudag, 17. ágúst. Kjartan fæddist á Ísafirði 19. apríl 1924 og var sonur hjónanna Gunnars Andrew Jóhannessonar og Guðlaugar Jósefsdóttur Kvaran.
Meira
ÚTLENDINGAR eru óvanir aðstæðum á íslenskum þjóðvegum og þeir sem eru farþegar nota síður bílbelti en Íslendingar. Algengasta tegund umferðarslysa sem þeir lenda í er útafakstur og slysin verða einkum á malarvegum.
Meira
PÁLL Marvin Jónsson, forstöðumaður rannsóknarseturs Vestmannaeyja, segir ýmsar ástæður liggja að baki því hversu lítið hefur verið af lundapysju í Vestmannaeyjum það sem af er sumri.
Meira
HELGINA 15. - 17. ágúst voru haldin hin árlegu Töðugjöld við Hellu en þau voru fyrst haldin þar 1994. Talið er að alls um 3 - 5.000 manns hafi mætt þrátt fyrir votviðri.
Meira
SÍÐASTLIÐINN mánuður var metmánuður í útgáfu húsbréfa og sér ekki fyrir endann á uppsveiflunni á fasteignamarkaði sem hófst árið 1999. Auk þess er umtalsvert yfirverð á húsbréfum um þessar mundir en fyrir ári voru mikil afföll af þeim.
Meira
"VIÐ höfum verið að fá ansi mikið af tölvupósti," segir Ólafur Sigurðsson, sendifulltrúi í íslenska sendiráðinu í Lundúnum, en í tölvupóstinum sem hann vísar til er verið að mótmæla hvalveiðum Íslendinga.
Meira
ÓLAFUR Börkur Þorvaldsson, dómstjóri Héraðsdóms Suðurlands, hefur verið skipaður dómari við Hæstarétt Íslands. Ólafur lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands árið 1987 og lauk á síðasta ári meistaraprófi í Evrópurétti frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð.
Meira
"FLEIRI konuforseta, takk!" var meðal þess sem unglingar á aldrinum 13 til 16 ára, úr vinnuskólunum á Seltjarnarnesi og Akranesi, rituðu er þeir voru spurðir um viðhorf sín til jafnréttis kynjanna.
Meira
FUNDUR samstarfsráðherra Norðurlanda fer fram í Östersund í Svíþjóð í dag. Fyrir Íslands hönd situr fundinn Siv Friðleifsdóttir, umhverfis- og samstarfsráðherra.
Meira
Hugsanleg sameining SH og SÍF er enn rædd, þótt horfið hafi verið frá áformum um sameiningu fyrr á árinu. Það eru Íslandsbanki og Landsbankinn sem mesta áherzlu leggja nú á sameininguna eins og áður. Hjörtur Gíslason kynnti sér málið og komst að því að hagsmunir Íslandsbanka í Kanada gætu ráðið miklu. En andstaða er við það að selja markaðskerfi íslenzkra sjávarafurða til Kanada.
Meira
20. ágúst 2003
| Akureyri og nágrenni
| 272 orð
| 1 mynd
FRAMKVÆMDUM við 1. áfanga viðbyggingar Brekkuskóla á Akureyri á að ljúka 1. september nk. Í þessum áfanga eru grunnur og plata steypt og síðan er verið að bjóða út 2. áfanga verksins um þessar mundir.
Meira
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir ríkisstjórn Alaska staðráðna í að beita sér fyrir því að ný viðhorf ríki í Washington gagnvart framtíðarþróun á norðurslóðum og að Alaska verði eins konar framvarðarsveit Bandaríkjanna og Washington í...
Meira
ATHYGLI vakti í síðasta holli í Norðurá í Borgarfirði, að þrír mjög vænir urriðar veiddust, sá stærsti 9 punda, staðbundinn urriði að sögn Bergs Steingrímssonar hjá SVFR og einnig tveir 5 punda og var annar birtingur og hinn staðbundinn.
Meira
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ og Samband íslenskra sveitarfélaga kynntu í gær nýtt átak í sameiningarmálum sveitarfélaga. Tvær nefndir verða skipaðar af félagsmálaráðherra í þessum tilgangi.
Meira
HJÓNIN Alan og Maija Lawrence, frá Guildford á Englandi, hafa verið á ferðalagi hér á landi í vikunni, sem er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema hvað faðir Alans, Clifton Lawrence, ferðaðist einnig um landið fyrir meira en 64 árum, eða í maí 1939.
Meira
FERÐAMÁLRÁÐ Íslands hefur látið gera og setja upp upplýsingaskilti við bílastæðið ofan göngustígsins um Nautastíg sem gengið er um að Djúpalónssandi í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli.
Meira
HREPPSNEFND Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafnaði á fundi sínum í gær, með fjórum atkvæðum gegn þremur, þeirri útfærslu Landsvirkjunar að reisa stíflu við Norðlingaölduveitu í 566 metra hæð yfir sjó og hækka hana um tvo metra með sérstökum gúmmíbelgjum.
Meira
KRISTINN Arnbjörnsson, vélamaður frá Kópaskeri, er einn þeirra vösku manna sem reyna eftir fremsta megni að halda malarvegakerfinu þokkalegu. Hann var nýlega að hefla veginn milli Grímsstaða á Fjöllum og Jökulsárbrúar í 20° hita og sólskini.
Meira
MEIRA en 160 kaþólskir prestar í Milwaukee í Bandaríkjunum hafa skrifað undir bréf þar sem farið er fram á að skírlífiskröfu til presta verði aflétt og þeir fái að kvænast.
Meira
Á AÐALFUNDI Gjafa, félags ungra sjálfstæðismanna í Grundarfirði, um síðustu helgi var samþykkt ályktun þar sem árangri Samkeppnisstofnunar að undanförnu var fagnað.
Meira
DREGIÐ hefur verið í strikamerkjaleik IKEA sem stóð dagana 24. júlí til 10. ágúst. Vinningar voru tíu vöruúttektir í IKEA hver að verðmæti 100.000 kr. samtals ein milljón króna og voru vinningar afhentir 15. ágúst sl.
Meira
VLADIMIR Mikluc&cech;{cech}ák, sem um áratuga skeið hafði mikil viðskiptasambönd við Ísland, lést í Zlín í Tékklandi, mánudaginn 18. ágúst. Vladimir fæddist 25.
Meira
Tóbaksnautnin hefur þótt dálítið misfín í gegnum aldirnar en nú virðast öll sund vera að lokast fyrir reykingafólki. Í Evrópu er verið að úthýsa því á einum staðnum af öðrum og kannski nálgast sá dagur, að tóbakið verði með öllu bannað.
Meira
Eyþór Arnalds telur líklegt að fjölmargir Reykvíkingar, bæði kjósendur R-listans og Sjálfstæðisflokks, myndu nú vilja að reglur um ríkisstjóra í Kaliforníu, þar sem leikarinn Arnold Schwarzenegger býður sig fram, giltu um borgarstjórann í Reykjavík.
Meira
Það virðist ríkja almenn ánægja með ástandið í miðborg Reykjavíkur að lokinni menningarnótt. Fulltrúar lögreglu sögðust vera himinlifandi yfir hvernig til tókst. Þótti ástandið til fyrirmyndar, að minnsta kosti samanborið við síðustu menningarnótt.
Meira
England 2002. Myndform. VHS (91 mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjóri: Guy Jenkin. Aðalleikendur: Hugh Dancey, Jessica Alba, Brenda Blethyn, Bob Hoskins.
Meira
NÚ stendur yfir í Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi, sýning á bútasaumsverkum Þórdísar Björnsdóttur. Hún hefur haldið einkasýningu og tekið þátt í nokkrum samsýningum. Listasetrið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 15-18. Sýningin stendur til 24.
Meira
GRÍNMYNDIN Brúsi almáttugur ( Bruce Almighty ) með Jim Carrey, Jennifer Aniston og Morgan Freeman í aðalhlutverkum var vinsælasta mynd helgarinnar í íslenskum kvikmyndahúsum, aðra helgina í röð.
Meira
Flytjandi: Arna Kristín Einarsdóttir þverflautuleikari. Efnisskrá: Syrinx eftir Debussy, Partita í a-moll eftir Johann Sebastian Bach, Kvennatónar úr Mínútuverki Atla Heimis Sveinssonar, Kon tai né eftir Ian Vine, skoska þjóðlagið The Bank of Hyr í útsetningu Janice Boland og Hugleiðing eftir Geir Rafnsson. Samhliða flautuleik var sjö ljóðum eftir Örnu Kristínu og einu eftir Ian Vine varpað upp á vegg. Föstudagur 15. ágúst kl. 12.
Meira
UNDIRBÚNINGUR fyrir vetrarstarf leikhúsanna er að komast í fullan gang og hillir undir fyrstu frumsýningar leikársins. Fyrsta frumsýningin verður væntanlega þann 11.
Meira
Gallerí Dvergur, Grundarstíg 21 Danski myndlistarmaðurinn Claus Hugo Nielsen sýnir verk sín til 31. ágúst. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga kl....
Meira
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, opnar sýninguna Meistarar formsins - Úr höggmyndasögu 20. aldar, þann 30. ágúst í Listasafni Sigurjóns. Sýningin, sem kemur frá Ríkislistasafninu í Berlín, hefur í sumar verið í Listasafninu á Akureyri.
Meira
BOBBY Brown, eiginmaður Whitney Houston, er týndur. Hann er alltént týndur löggæsluyfirvöldum en gefin hefur verið út handtökuskipun til höfuðs honum eftir að Bobby þverbraut skilmála skilorðsbundins dóms sem hann fékk fyrir að aka undir áhrifum áfengis.
Meira
Gaukur á Stöng. Í kvöld og á morgun munu þeir félagar í DP Tribute, Eiríkur Hauksson, Sigurgeir Sigmundsson, Jóhann Ásmundsson, Eric Qvick og Þórir Úlfarsson, halda tvenna tónleika til heiðurs Deep Purple.
Meira
Á menningarsíðum dagblaða Lundúnaborgar gat að lesa, að þetta væri sumar ljósmyndarinnar og má til sanns vegar færa. Aðalsýning Tate Modern Bankside reyndist þannig vera á ljósmyndum, nefnist Cruel and Tender/ Harka og viðkvæmni, stendur til 7.
Meira
MENNINGARNÓTTINNI lauk síðastliðinn sunnudagsmorgun eftir stanslausa dagskrá frá kl.14 deginum áður. Margt var í boði hjá myndlistarsöfnum og galleríum fram undir miðnætti. Aðal fjörið virtist þó hafa verið í Gallerí Fold.
Meira
LJÓSÁLFAR og félagar opnuðu ljósmyndasýningu í Galleríi Álfi í Bankastræti 5, á Menningarnótt og er þetta níunda samsýning Ljósálfa. Opið er frá kl. 14-18 daglega, nema fimmtudaga, þá er opið til kl. 22. Sýnendur eru Kristján E. Einarsson, Michelle E.
Meira
RAPPARINN Puff Daddy hefur verið valinn mesti mömmustrákurinn í Hollywood. Bandaríska tímaritið Touch sá um valið á þeirri stjörnu, sem þætti vænst um mömmu sína.
Meira
KVIKMYNDIN Náttúruöflin ( Forces of Nature ) með Söndru Bullock og Ben Affleck í aðalhlutverkum er á dagskrá Stöðvar 2 í dag og kvöld. Þetta er rómantísk gamanmynd um Ben Holmes (Affleck) sem er að fara að gifta sig.
Meira
ÞJÓÐHÁTTADAGUR verður á Minjasafni Austurlands á morgun, fimmtudag. Hadda (Guðrún H. Bjarnadóttir) prjónar íslenskt prjón með gestum safnsins frá kl. 13. Hver gestur þróar sitt prjónamynstur út frá munum safnsins.
Meira
NÝ ÚTVARPSSTÖÐ hefur útsendingar í dag, útvarpsstöðin Skonrokk sem senda mun út á tíðninni 90,9. Dagskrárstjóri stöðvarinnar er Sigurjón Kjartansson sem um nokkurt skeið hefur stjórnað í samstarfi við Dr.
Meira
HLJÓMSVEITIN The Rolling Stones, sem yfirleitt hefur verið hneigðari til málsókna en gjafmildi, hefur samþykkt að bjóða lög sín til sölu á Netinu.
Meira
TÓNLISTAR- og myndlistarmennirnir Egill Sæbjörnsson og Ragnar Kjartansson flytja tón- og myndgjörninginn "Fjögur tilbrigði við sorg" í fjölnotasal Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu annað kvöld.
Meira
SÖNGKONAN og sjónvarpskonan Cilla Black missti reiðufé og skartgripi að andvirði ríflega einnar milljónar punda, eða 127 milljóna króna, þegar brotist var inn á heimili hennar í Buckingham-skíri á Bretlandi, að því er segir í frétt Reuters.
Meira
HLJÓMSVEITIN Todmobile mun í nóvember ganga í endurnýjun lífdaga og það með glæsibrag. Hinn 14. nóvember mun hljómsveitin halda tónleika í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Meira
ÚTHLUTAÐ hefur verið úr Þýðingarsjóði. Alls sóttu 37 aðilar um styrki til 89 þýðingarverkefna. Að þessu sinni er úthlutað 9.980 þús. kr. til 58 verkefna: Almenna bókafélagið: Utsikt til Paradiset eftir Ingvar Ambjørnsen 200 þús. kr.
Meira
Í dag er miðvikudagur 20. ágúst, 232. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Breyttu ekki eftir því, sem illt er, minn elskaði, heldur eftir því, sem gott er. Sá sem gott gjörir heyrir Guði til, en sá sem illt gjörir hefur ekki séð Guð.
Meira
ÞAÐ þarf varla að hafa þann formála á þessum greinarstúf að Íslendingar hafa löngum stundað þá íþrótt að setja saman vísur. Oft er vísunum kastað fram, mæltar af munni fram og lifa í minni þjóðarinnar en höfundurinn gleymist.
Meira
NÚVERANDI ráðstjórn hefir tvívegis búið sér til bjarghringi úr ósannindum í alþingiskosningum til að fljóta á. Og í báðum reyndist nægilegt flotmagn.
Meira
NÝLEGA er lokið Norrænu geðlæknaþingi sem haldið var hér í Reykjavík þar sem fagfólki í geðheilbrigðisþjónustu gafst kostur á að bera saman bækur sínar og ræða það sem efst er á baugi í geðheilbrigðisþjónustu á Norðurlöndum.
Meira
STARFSMAÐUR póstdreifingar sendi inn fyrirspurn hér í Velvakanda sem var birt nýlega, þar sem hann spurðist fyrir um hvaða sjónvarpsbæklingi Íslandspóstur dreifði.
Meira
UNDANFARNAR vikur hafa fjölmiðlar keppst við að segja frá meintu samráði olíufélaganna um verð til neytenda. Svona samráð eru ekki ný af nálinni. Fyrir allmörgum árum fáruðust menn yfir þrefaldri olíudreifingu um landið.
Meira
UNDANFARNA daga hefur verið umræða um hvort banna eigi tóbaksreykingar á veitinga- og skemmtistöðum. Sitt sýnist hverjum og er umræðan oft heit eins og yfirleitt gerist þegar rætt er um reykingar. En um hvað snýst þetta mál?
Meira
ÞAÐ voru vissulega góð tíðindi að bandarísk stjórnvöld hafa brugðist jákvætt við þeirri ákveðnu ósk ríkisstjórnarinnar að herþoturnar yrðu ekki dregnar fyrirvaralaust frá Íslandi.
Meira
Auður Jónsdóttir (Vigmo) Colot fæddist í Stykkishólmi 18. apríl 1921. Hún lést í Alexandríuborg í Virginíufylki í Bandaríkjunum 26. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Sesselja Konráðsdóttir, kennari og skólastjóri frá Stykkishólmi, f. 31.
MeiraKaupa minningabók
Gunnlaugur Hannesson fæddist í Reykjavík 16. júní 1928. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 5. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Hannes Stígsson frá Brekkum í Mýrdal, f. 29. október 1876, d. 9.
MeiraKaupa minningabók
Hvenær sem kallið kemur kaupir sig enginn frí, þar læt ég nótt sem nemur, neitt skal ei kvíða því. (Hallgrímur Pétursson.) Sigurlaug...
MeiraKaupa minningabók
Inga Pálsdóttir Sólnes fæddist í Reykjavík 12. ágúst 1910. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 11. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Páll Árnason, lögregluþjónn í Reykjavík, f. 24. desember 1871 í Fellsmúla á Landi, d. 23.
MeiraKaupa minningabók
SAMSTÆÐA Flugleiða tapaði 903 milljónum króna eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við 50 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra.
Meira
HAGNAÐUR Íslenskra verðbréfa hf. á fyrri árshelmingi 2003 nam 51 milljón króna eftir skatta, borið saman við tæplega 4 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra.
Meira
HAGNAÐUR Austubakka hf. á fyrstu sex mánuðum ársins nam um 65 milljónum króna eftir skatta, en var um 59 millónir á sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður án afskrifta, þ.e.
Meira
HAGNAÐUR Eskju hf. nam 271 milljón króna fyrstu sex mánuði ársins. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaður félagsins 902 milljónum króna og hefur því dregist saman um 70% á milli ára. Rekstrartekjur félagsins á tímabilinu námu 1.
Meira
HAGNAÐUR Frjálsa fjárfestingarbankans á fyrri árshelmingi nam 221 milljón króna sem er tæpra 5% aukning frá sama tímabili 2002 þegar hagnaðurinn nam 211 milljónum króna. Að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum er afkoman í samræmi við áætlanir.
Meira
PRÓFMÁL um valdsvið prókúruhafa gæti verið á leiðinni fari svo að Kaupfélag Árnesinga, KÁ, verði látið standa við ábyrgðir sem fyrrverandi framkvæmdastjóri félagsins, Ólafur Rúnar Ástþórsson, kom því í án vitundar stjórnar.
Meira
FJÁRFESTINGASJÓÐURINN Scarlett Retail og fasteignafélagið Minerva hafa samkvæmt Financial Times átt í óformlegum viðræðum við Baug út af bresku verslanakeðjunni House of Fraser, en Baugur er stærsti hluthafi keðjunnar með 8,2% eignarhlut.
Meira
50 ÁRA afmæli. Í dag, miðvikudaginn 20. ágúst, er fimmtug Rós Ingadóttir, Hverafold 37, Reykjavík . Hún dvelur á Kúbu á afmælisdaginn ásamt eiginmanni sínum, Kjartani B. Guðmundssyni, og yngri dóttur þeirra, Rakel.
Meira
70 ára afmæli. Sjötug er í dag Sigríður Jónsdóttir, fv. kennari og námsstjóri, Einarsnesi 30, Reykjavík. Hún og eiginmaður hennar, Ásgeir Guðmundsson, fv. forstjóri, eru erlendis og biðja fyrir góðar kveðjur til fjölskyldu og...
Meira
Allir verða leiðir á því að hlusta á karp kennara, hjúkrunarfólks og nú smábátasjómanna á Vestfjörðum við stjórnmálamenn í fjölmiðlum. Með því að færa eignir ríkisins til einstaklinga gerum við lífið skemmtilegra.
Meira
Víst ertu, Jesú, kóngur klár, kóngur dýrðar um eilíf ár, kóngur englanna, kóngur vor, kóngur almættis tignarstór. Kóng minn, Jesú, ég kalla þig, kalla þú þræl þinn aftur mig. Herratign enga að heimsins sið held ég þar mega jafnast við.
Meira
Nú er gott að gera stans og gleðjast yfir krúsum, þar sem getur dunað dans og draugar riðið húsum. Þannig orti séra Hjálmar Jónsson á hagyrðingakvöldi á Skagaströnd árið 1989, en borist höfðu rammar fréttir af draugagangi frá Skagaströnd vikurnar á...
Meira
Þessar tvær rösku stúlkur, Bryndís Björk, 9 ára, og Eva, 12 ára, efndu til flóamarkaðar á Rifi nýlega og söfnuðu tæplega þrjú þúsund krónum. Afraksturinn rennur til Landssamtaka...
Meira
FÆREYINGAR tefla í kvöld fram breyttu liði frá því í leiknum gegn Íslendingum á Laugardalsvellinum þann 7. júní. Tveir leikmenn sem þá voru í leikbanni, varnarmennirnir Pól Thorsteinsson og Óli Johannessen, eru gjaldgengir en hinsvegar taka miðjumennirnir Jákup á Borg og Fróði Benjaminsen út leikbann í kvöld.
Meira
SEPP Blatter, forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, kemst ekki til Færeyja til að vera viðstaddur vígslu nýrrar skrifstofubyggingar sem hýsir höfuðstöðvar Knattspyrnusambands Færeyja, en vígslan fer fram í hádeginu í dag.
Meira
"VONANDI getum við gert betur en síðast þegar þjóðirnar mættust," segir Jens Martin Knudsen, varamarkvöður Færeyinga og fyrrverandi leikmaður og þjálfari Leifturs í Ólafsfirði, spurður um viðureign Færeyinga og Íslendinga á Tórsvelli í kvöld.
Meira
"LEIKURINN verður erfiður, það er ekkert gefið gegn Færeyingum á heimavelli. Ég skynja það að menn hafa alveg áttað sig á því, segir Hermann Hreiðarsson, leikmaður íslenska landsliðsins og enska úrvalsdeildarliðsins Charlton, sem væntanlega mun leika lykilhlutverk í íslensku vörninni gegn Færeyingum á Tórsvelli í kvöld.
Meira
"ÉG hef skánað með hverjum degi upp á síðkastið en hvort ég verð búinn að jafna mig fyllilega fyrir leikinn get ég ekki sagt um á þessari stundu, sagði Lárus Orri Sigurðsson, varnarmaður íslenska landsliðsins og sá eini af landsliðsmönnunum nítján...
Meira
* HERMANN Hreiðarsson leikur í kvöld sinn 50. landsleik þegar flautað verður til leiks í Þórshöfn . Árni Gautur Arason bætir sínum 30. landsleik í safnið og Eiður Smári Guðjohnsen spilar í 25.
Meira
SUNDERLAND er á góðri leið með að jafna 104 ára gamalt met í ensku knattspyrnunni. Liðið hefur nú tapað 17 deildaleikjum í röð, Sunderland beið lægri hlut í síðustu 15 leikjum sínum í úrvalsdeildinni í fyrra og hefur nú tapað báðum leikjum sínum í 1.
Meira
ÍSLANDSMEISTARAR KR í knattspyrnu kvenna eru mættir til Danmerkur og spila í dag fyrsta leik sinn í Evrópukeppni félagsliða. Andstæðingarnir eru ZKF Masinac frá Nis, meistaralið Serbíu-Svartfjallalands, og hefst leikurinn kl. 17 að íslenskum tíma.
Meira
HENRIK Larsen, landsliðsþjálfari Færeyinga, skrifaði í hádeginu í gær undir nýjan tveggja ára samning við Knattspyrnusamband Færeyja um að þjálfa landsliðið fram yfir riðlakeppni heimsmeistaramótsins, en henni lýkur haustið 2005.
Meira
"Hugarfarið skiptir alltaf verulegu máli, og þá gildir einu í hvers konar leik menn eru að fara, en menn verða að grafa dýpra eftir því þegar mótherjinn er fyrirfram talinn vera veikari eins og er í þessu tilfelli okkar nú," segir Logi Ólafsson, annar landsliðsþjálfara í knattspyrnu, um undirbúning hins andlega þáttar landsliðsmannanna fyrir landsleikinn við Færeyinga í Þórshöfn í kvöld.
Meira
ÓLAFUR Stefánsson hefur verið valinn í heimsliðið sem mætir Rússum í lok desember þegar handknattleikssambandið þar í landi verður 75 ára og síðari leikurinn verður í mars en þá verður leikið við Þjóðverja.
Meira
SVO virðist sem leikirnir í UEFA-bikarnum í knattspyrnu síðasta fimmtudag hafi farið illa í íslensku liðin sem þar léku, og ekki síður í hina erlendu mótherja þeirra. Grindvíkingar léku við Kärnten í Austurríki á fimmtudag og töpuðu naumlega, 2:1.
Meira
ÞRÁTT fyrir að stúlkurnar í íslenska landsliðinu í fimleikum næðu allar að bæta árangur sinn á HM í fimleikum í Bandaríkjunum, dugði það ekki til að þær kæmust áfram í fjölþrautinni. Stúlkurnar hlutu 123,11 stig.
Meira
"MÓTSPYRNA Færeyinga verður svipuð og í síðasta leik en það veltur mest á okkur hvernig leikurinn þróast," segir Jóhannes Karl Guðjónsson spurður um Evrópuleikinn við Færeyinga í Þórshöfn.
Meira
"ÉG ætla að leggja upp með sama leikskipulag og í síðustu tveimur leikjum, ég sé ekki neina ástæðu til að breyta því þar sem það hefur gefist vel, en að vísu þurfum við að gera tvær mannabreytingar í vörninni frá síðasta leik þar sem Guðni Bergsson...
Meira
ÁSGEIR Sigurvinsson og Logi Ólafsson ætla að tilkynna byrjunarliðið gegn Færeyingum um hádegisbilið í dag, en eftir því sem lesa mátti út úr síðustu æfingu liðsins er sennilegt að þrjár breytingar verði gerðar á byrjunarliðinu frá leiknum við Litháa í...
Meira
HAGSTÆÐASTU innlendu lánin til bílakaupa eru án efa lífeyrissjóðslán að því er fram kemur í samtali við Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóra Verðbréfastofunnar hf. Ef tekin eru erlend lán er jafnvel hægt að ná enn betri kjörum.
Meira
VOLVO kynnti alveg nýjan bíl á bílasýningunni í Brussel í janúar 1960. Þetta var sportbíllinn P1800. Þar var bíllinn í fyrsta sýndur áhugasömum sýningargestum. Volvo hafði sent út myndir af nýja bílnum ári áður.
Meira
BRÆÐURNIR Emil og Sigmar Sigurðssynir eiga einn sérstæðasta fornbíl landsins, Volvo P1800, Dýrlingsbílinn svonefnda. Kærasti dóttur Sigmars átti bílinn vestur í Kaliforníu í nokkur ár.
Meira
"NOTKUN á metani sem eldsneyti á bíla er löngu þekkt og mikil reynsla fyrirliggjandi. Til þess að það sé hægt verður að skilja metanið frá koldíoxíðinu í hauggasinu. Á Íslandi hefur metan verið nýtt sem ökutækjaeldsneyti frá árinu 2000.
Meira
Fjallasport hefur tekið að sér að breyta um 20 Nissan pallbílum fyrir verktakafyrirtækið Impregilo. Bílarnir eru af gerðinni Nissan Double Cab og eru fernra dyra pallbílar.
Meira
Um þessar mundir eru liðin 40 ár síðan fyrsti Porsche 911-bíllinn var sýndur opinberlega. Leó M. Jónsson véltæknifræðingur fjallar um sögu bílsins.
Meira
ASSAR Gabrielsson, yfirmaður Volvo, fékk þá hugmynd á sjötta áratugnum þegar hann dvaldist um skeið í Kaliforníu að Volvo þyrfti að framleiða sportbíl til þess að ýta undir sölu á öðrum bílum fyrirtækisins.
Meira
EINS og öllum ætti að vera kunnugt var óheimilt frá og með 1. nóvember á síðasta ári að tala í farsíma í bíl án handfrjáls búnaðar. Þeir sem staðnir eru að því að tala í farsíma án slíks búnaðar mega eiga von á allt að 5.000 kr. sekt.
Meira
Vél: 3.200 rúmsentimetr ar, 4 strokkar, 16 ventlar. Afl: 160 hestöfl við 3.800 snúninga á mínútu. Tog: 373 Nm við 2.000 snúninga á mínútu. Hámarkshraði: 170 km/ klst. Hröðun: 12 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km. Eyðsla: 9,4 lítrar í blönd uðum akstri.
Meira
FYRR á þessu ári var kynntur Mitsubishi Pajero með dálítilli andlitslyftingu. Þá prófuðum við bílinn með 3,5 lítra, V6-bensínvélinni, en nú er röðin komin að fjögurra strokka dísilvélinni og farkosturinn var GLS-gerðin sem er best búni bíllinn.
Meira
B&L frumsýnir nýju 5-línuna frá BMW í sýningarsal sínum að Grjóthálsi 1 um næstu helgi. Að sögn Karls Óskarssonar, sölustjóra BMW, ríkir talsverð eftirvænting, þar sem línan hefur hlotið mikið lof í erlendum bíladómum.
Meira
NORÐMENN velta því nú fyrir sér hvers vegna þeir hafi tapað mikilli markaðshlutdeild fyrir síld í Póllandi í hendur Íslendingum. Þetta er eitt aðalumræðuefnið á ráðstefnu um uppsjávarfisk, sem hófst í Álasundi í gær.
Meira
STOFNAÐ hefur verið sérstakt félag um fiskeldisþróun Brims og ber það nafnið Brim - fiskeldi ehf. Óttar Már Ingvason, framkvæmdastjóri félagsins, segir að tilgangur félagsins sé að stunda þróun á matfiskeldi í sjó hér á landi.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.