Bókmenntahátíð í Reykjavík var sett í gær í Norræna húsinu og stendur í viku. Nóbelsverðlaunahöfundurinn José Saramago frá Portúgal er einn fjölmargra höfunda sem sækja hátíðina og flutti hann ræðu við athöfnina.
Meira
ÞÖRFIN fyrir bandarískt herlið í Írak og á öðrum vígstöðvum í stríðinu gegn hryðjuverkum mun líklega hafa í för með sér að draga þurfi úr herafla Bandaríkjamanna annars staðar og gætu Bosnía, Kósovó, Sínaí-skagi og Ísland verið þar á meðal, að því er...
Meira
BURÐARÁS ehf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf. keyptu á laugardag samtals 12,5% hlut í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna fyrir einn milljarð króna í tengslum við sölu á eignarhlut sínum í SÍF.
Meira
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti bað þegna sína að búast við frekari fórnum í viðleitninni við að koma á stöðugleika í Írak er hann ávarpaði þjóðina frá Hvíta húsinu í gærkvöldi, eða skömmu eftir miðnætti í nótt að íslenskum tíma.
Meira
"ÉG HEF fengið margar hringingar frá fyrrverandi félögum í þýska boltanum og þessir fyrrverandi meðspilarar mínir hafa ekki aðeins óskað mér til hamingju heldur finnst þeim frammistaða okkar frábær og vona að við komumst áfram," segir Ásgeir...
Meira
YASSER Arafat Palestínuleiðtogi útnefndi í gær forseta palestínska þingsins, Ahmed Qurei, eftirmann Mahmouds Abbas, sem sagði af sér embætti forsætisráðherra í fyrradag, að því er palestínskir embættismenn greindu frá.
Meira
"ÉG tel það vera eðlilegast að skipuleggja þetta mannvirki sem einkaframkvæmd og ég sé að fjármálaráðherra er jafnframt þeirrar skoðunar," segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra um lagningu Sundabrautar.
Meira
FLOSA Arnórssyni stýrimanni, sem sætti gæsluvarðhaldi og farbanni í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fyrir ólöglegan vopnaburð 24. apríl, var sleppt úr haldi í gær.
Meira
FRÆUPPSKERA Landgræðslu ríkisins er nú hafin, en þó fræþroski sé fyrr á ferðinni en í meðalári er uppskeran með lakara móti, sérstaklega hjá lúpínu og beringspunti.
Meira
Margt var um manninn í Hraunsrétt í Aðaldal í gær og sumir höfðu við orð að fleira fólk væri en fé. Hraunsréttardagurinn er hátíðisdagur í augum margra og réttin er orðin 170 ára, svo þar liggja margra spor.
Meira
DRAUMUR Kjartans Jakobs Haukssonar um að róa í kringum landið varð að engu í bili í gærdag þegar bát hans hvolfdi yfir hann og rak upp í brimgarðinn með þeim afleiðingum að hann er gjörónýtur. Kjartan slapp frá óhappinu með skrámur og mar.
Meira
HAFIN er vinnsla á beitukóngi í Grundarfirði. Það er útgerðarmaðurinn Ásgeir Valdimarsson sem hefur í sumar verið að koma upp aðstöðu til vinnslu á beitukóngi. Vélarnar til vinnslu á beitukóngnum fékk Ásgeir frá Bretlandi þar sem þær höfðu verið í...
Meira
FJÖLDI þeirra sem stunda fjarnám hefur fimmfaldast á síðustu fjórum árum. Þetta kom fram í máli Tómasar Inga Olrich, menntamálaráðherra, sem setti viku símenntunar í gær. Þema viku símenntunar í ár er fjarnám. Nú stunda alls 4.
Meira
BÆJARRÁÐ Vestmannaeyjar hefur samþykkt tillögu þar sem skorað er á stjórnvöld að gæta fyllsta jafnræðis í úthlutun aflaheimilda þannig að hlutdeild svæða raskist sem minnst.
Meira
A-flokkur 1. Skugga Baldur frá Litladal og Sigurður Sigurðarson 2. Ýmir frá Holtsmúla og Sigurður Sæmundsson 3. Boði frá Flugumýri og Páll Bjarki Pálsson 4. Börkur frá Stóra Hofi og Logi Þór Laxdal 5. Prins frá Syðra Skörðugili og Sigurður V.
Meira
Nemendur, kennarar og starfsfólk Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri hófu skólastarfið 1. september síðastliðinn með því að hittast í matsal skólans, fá sér morgunkaffi og meðlæti og hlusta á ræðu Magnúsar B.
Meira
ARI Guðmundsson, fyrrverandi starfsmannastjóri Landsbankans, er látinn á 76. aldursári. Ari var fæddur 18. september 1927. Foreldrar hans voru Guðmundur Halldórsson prentari og Fríða I. Aradóttir söngkona og húsmóðir.
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra segir að endurskoða þurfi stuðningsaðgerðir í landbúnaði í ljósi þess sem er að gerast á alþjóðlegum vettvangi og eðlilegt sé að fara að huga að undirbúningi í því efni, en of snemmt sé að segja til um hvað gerist á...
Meira
AFSÖGN Mahmoud Abbas, forsætisráðherra Palestínumanna, kom illa við ráðamenn í Bandaríkjunum, sem leita nú nýrra leiða til að halda friðarumleitunum fyrir botni Miðjarðarhafs gangandi. Sagði talsmaður George W.
Meira
KAYAKKLÚBBURINN stóð á laugardaginn fyrir Kayakmaraþoni, þar sem rónir voru rúmir fjörutíu kílómetrar, frá Geldinganesi í Grafarvogi til Hvammsvíkur í Hvalfirði.
Meira
Þ EGAR kommúnisminn í Austur-Evrópu hrundi voru leiðtogar nýju lýðræðisríkjanna sammála um að skjót innganga í Evrópusambandið ætti að vera forgangsverkefni þeirra. "Aftur til Evrópu!
Meira
Á meðan samningamenn ræða ýmis ákvæði um niðurgreiðslur og því um líkt í samningaviðræðunum um viðskipti með landbúnaðarafurðir í Cancun nú í vikunni eiga um 800 milljónir manna út um allan heim erfitt með verða sér úti um næstu máltíð.
Meira
ELLEFU manns syntu Engeyjarsund í gær til minningar um Jón Otta Gíslason lögreglumann, sem féll frá snemma á þessu ári, en hann var einn af aðalhvatamönnunum á bak við Sjósundfélag lögreglunnar og byrjaði á nýárssundinu, sem nú er orðin hefð.
Meira
INNVIÐIR bandarísks þjóðfélags eru stórgallaðir og má víða finna sprungur, leka og göt, samkvæmt skýrslu verkfræðinga sem rannsakað hafa 12 mismunandi kerfi í landinu, m.a. samgöngukerfi, vatnsveitur og rafkerfi.
Meira
Hildur Jónsdóttir er fædd 2. desember 1955. Lauk prófi frá Blaðamannaháskólanum í Danmörku 1988 en hefur lengst af starfað að jafnréttismálum, bæði sem verkefnisstjóri Norræna jafnlaunaverkefnisins og sem jafnréttisráðgjafi Reykjavíkurborgar frá 1996. Sambýlismaður er Hjörtur O. Aðalsteinsson héraðsdómari. Samanlagt eiga þau þrjár uppkomnar dætur, tvo syni og fjögur barnabörn.
Meira
SAMKVÆMT sveitarstjórnarlögum er bæjar- og sveitarstjórnum heimilt að taka sér frí frá fundarstörfum í allt að tvo mánuði. Hér í Kópavogi hefur það löngum verið svo að bæjarstjórn hefur fækkað fundum en ekki fellt þá niður nema í júlí.
Meira
"ÞETTA er skemmtilegt, það blundar auðvitað smá hégómagirnd í okkur," sagði Rúnar Júlíusson þegar hann var spurður um Stjörnuspor Reykjanesbæjar.
Meira
Hátíðardagskrá eftir viku Í frétt í Morgunblaðinu sl. laugardag er sagt frá hátíðardagskrá í Hafnarborg sem Hafnarfjarðarbær og vinabæjarfélagið Cuxhaven-Hafnarfjörður ætla að efna til þann sama dag.
Meira
KAMAL Kharazi, utanríkisráðherra Írans, segir að Íranir myndu ef til vill innan skamms fallast á hert eftirlit með kjarnorkuvinnslustöðvum í landinu ef takast myndi að taka af öll tvímæli í viðræðum við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina (IAEA).
Meira
TVEIR nýir hluthafar eignuðust 33,8% hlut í SÍF hf. með hlutabréfakaupum á laugardag. Þetta eru Sund ehf. sem keypti 18,5% og Kaupþing-Búnaðarbanki hf. sem keypti 15,3%. Hugmyndir um sameiningu SÍF og SH hafa verið lagðar á hilluna.
Meira
STEFÁN Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, fékk greiddar tæpar 2,5 milljónir króna fyrir skýrslugerð við undirbúning kosninga um framtíð Reykjavíkurflugvallar árið 2001.
Meira
Landsskrifstofa Leonardó stendur fyrir námskeiði í dag mánudaginn 8. september í gerð umsókna í Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins, en eftir miklu fjármagni er að slægjast fyrir íslenska þátttakendur.
Meira
LEIÐTOGAR Hamas-samtakanna eru "markaðir til aftöku" og munu engra griða njóta, sagði Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, í gær, eftir að Ísraelum mistókst að fella á einu bretti forystusveit Hamas með 250 kílóa sprengju er varpað var úr...
Meira
BJÖRGUNARSVEITIN Hérað frá Egilsstöðum og Hjálparsveit skáta á Fjöllum úr Jökulsdal voru kallaðar út á laugardagskvöld eftir að tilkynning barst lögreglunni á Egilsstöðum um að tvö neyðarblys hefðu sést með stuttu millibili yfir Fljótdalsheiði.
Meira
Elínborg Guðmundsdóttir á Blönduósi er eitt hundrað ára í dag. Þennan dag fyrir hundrað árum leit hún dagsins ljós á Kringlu í Torfalækjarhreppi og bjó þar fyrstu 19 ár ævi sinnar.
Meira
Forystusveit Hamas-samtaka herskárra múslíma var öll saman komin í einu herbergi, segja Ísraelar, en 250 kg sprengja sem þeir vörpuðu á húsið dugði ekki til að granda henni.
Meira
HÓPUR 50 til 60 hundaáhugamanna kom saman við Hundaræktunina Dalsmynni á Kjalarnesi á laugardag, en þar fóru fram þögul mótmæli við meintri illri meðferð á hundum hjá hundaræktuninni. Talsverður styr hefur staðið um hundaræktina í Dalsmynni...
Meira
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA hefur skipað nefnd sem hefur það hlutverk að meta þann vanda er nú steðjar að sauðfjárbændum vegna verulegs tekjusamdráttar. Nefndinni er falið að gera tillögu til stjórnvalda hvernig við verði brugðist.
Meira
GREINANDI ritmálspróf sem gengur undir heitinu GRP 14h er nú boðið til kaups í grunnskólum og framhaldsskólum af höfundum þess, Rannveigu G. Lund og Ástu Lárusdóttur.
Meira
Veðrið lék við bændur í Laxárdal þegar þeir réttuðu í Ljárskógarétt á laugardaginn. Ekki kom jafn margt fé af fjalli og verið hefur í þessum sömu smalamennskum síðastliðin ár, og telja þeir að þessari góðu tíð sé um að kenna.
Meira
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarfulltrúi R-listans, sagði á borgarstjórnarfundi fyrir helgi að frumvarp þess efnis að ríkið tæki við rekstri Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefði verið í smíðum þegar Björn Bjarnason var menntamálaráðherra, en Björn...
Meira
Skyndihjálparnámskeið hjá RKÍ Rauði kross Íslands, Reykjavíkurdeild, heldur námskeið í almennri skyndihjálp. Kennt verður dagana 9., 10., 11. og 12. september í húsnæði deildarinnar Fákafeni 11, 2 hæð. Þátttaka er heimil öllum 15 ára og eldri.
Meira
TVEIR menn slösuðust þegar sviffluga lenti harkalega á flugvellinum á Sandskeiði um þrjúleytið í gær. Svifflugan var í flugtaki þegar hún losnaði frá dráttarvél sem notuð var til þess að koma henni á loft. Talið er að taugin á milli þeirra hafi slitnað.
Meira
VEGNA umfjöllunar um séreignalífeyrissparnað í laugardagsblaði Morgunblaðsins vill Már Wolfgang Mixa, sérfræðingur hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar taka fram að þær leiðir til viðbótarsparnaðar í hlutabréfum og skuldabréfum sem hérlendar fjármálastofnanir...
Meira
Vefjagigtarnámskeið - að lifa með vefjagigt Tvö vefjagigtarnámskeið verða hjá Gigtarfélagi Íslands í húsnæði félagsins að Ármúla 5, annarri hæð. Um er að ræða þriggja kvölda námskeið og byrja bæði miðvikudagskvöldið 17. september.
Meira
Mexíkóskir lögreglumenn stóðu í gær vörð við ráðstefnumiðstöðina í ferðamannabænum Cancún í Mexíkó, en þar hefst ráðherrafundur Heimsviðskiptastofnunarinnar (WTO) nú í vikunni.
Meira
VILHJÁLMUR Ketilsson, skólastjóri Myllubakkaskóla í Keflavík, lést síðastliðinn laugardag, 53 ára að aldri. Vilhjálmur var um tíma bæjarfulltrúi og bæjarstjóri í Keflavík. Vilhjálmur fæddist í Keflavík 13.
Meira
FÓLK lýsir yfir miklum áhyggjum af hvalveiða Íslendinga í vísindaskyni, segir Clive Stacey, framkvæmdastjóri breskrar ferðaskrifstofu, sem sérhæfir sig í Íslandsferðum.
Meira
Margareta Winberg, varaforsætis- og jafnréttisráðherra Svíþjóðar fjallaði m.a. um vændi og heimilisofbeldi í erindi sínu á Grand Hótel á laugardag. Hún var hér á landi í boði íslensku kvennahreyfingarinnar.
Meira
Viðskiptaháskólinn á Bifröst byrjar hvert misseri á þemaviku þar sem nemendur á 1. og 2. ári í háskóladeildunum vinna saman í þemaverkefnum, stjórnunaræfingum eða fjármálaleikjum.
Meira
ÍSLANDSDEILD Amnesty International efnir í dag til þögullar mótmælastöðu til stuðnings fórnarlömbum mannréttindabrota í Kína. Mótmælin eru í tilefni af heimsókn Luos Gans, eins æðsta ráðamanns í Kína, til Íslands.
Meira
Mikill fjöldi gesta var á Ljósanótt sem náði hámarki með tónleikum Hljóma, lýsingu Bergsins og flugeldasýningu. Helgi Bjarnason upplifði stemmninguna.
Meira
Samskipti Íslands og Kína eru mikilvæg. Þau hafa lengstum verið góð og hafa eflst upp á síðkastið. Ber þar ekki síst að líta til efnahagslegra tengsla, en einnig má nefna samskipti í menningarmálum og á sviði ferðaþjónustu, sem fara vaxandi.
Meira
Ásta R. Jóhannesdóttir fjallar á heimasíðu sinni um úrskurð um að ríkinu beri að inna af hendi greiðslur vegna frestunar framkvæmda við Héðinsfjarðargöng.
Meira
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hefur kynnt fyrir ríkisstjórninni stefnu Íslands á ráðherrafundi Heimsviðskiptastofnunarinnar (WTO) í Cancún í Mexíkó, sem hefst nú í vikunni.
Meira
ÁSGEIR Óskarsson, sem mörgum er betur kunnur sem trommari Stuðmanna, hélt útgáfutónleika á Gauki á stöng síðasta fimmtudag í tilefni af útkomu geisladisksins Áfram.
Meira
ALÞJÓÐLEGT leikhúsverkefni sem Ilmur Stefánsdóttir myndlistarkona og Valur Freyr Einarsson vinna nú að hlaut nýverið styrk úr Menningarsjóði Evrópu, Cultur 2000.
Meira
SÝN tekur nýstárlegan pól í hæðina með sýningu myndarinnar Flirt eftir leikstjórann Hal Hartley. Í myndinni er sama sagan sögð á þremur mismunandi stöðum heims, New York, Berlín og Tókýó. Sagan er af elskendum sem verða að velja hvaða leið skuli fara.
Meira
KVIKMYNDIN Nói albínói var sýnd fyrir troðfullu húsi á kvikmyndahátíðinni í Toronto á föstudaginn. Var þar að sögn viðstaddra mikið hlegið og glaðst yfir hinni sérstöku mynd og mikið spurt eftir sýninguna.
Meira
LEIKRIT eftir Agöthu Christie, glæpasagnahöfund og skapara belgíska einkaspæjarans Hercule Poirot, fannst á dögunum eftir að hafa legið týnt í meira en sjötíu ár. Þetta kemur fram á fréttavef BBC .
Meira
Smásagnasafnið Auga Óðins - sjö sögur úr norrænni goðafræði er komið út. Þar glíma sjö rithöfundar og jafnmargir myndskreytar við óþrjótandi sagnabrunn norrænnar goðafræði.
Meira
ÆRINGINN Marilyn Manson bíður nú úrskurðar kviðdóms í máli sem öryggisvörður höfðaði gegn honum. Öryggisvörðurinn kærir Manson fyrir að hafa hringsnúist í kringum sig og þreifað á sér á tónleikum árið 2000 þegar hann var við gæslu á sviðinu.
Meira
HLJÓMPLATAN 22 ferðalög með Magnúsi Eiríkssyni og Kristjáni Kristjánssyni hefur selst gríðarvel í sumar, alls um þrettán þúsund eintökum til þessa og er salan á við það sem best gerist í poppinu á Íslandi.
Meira
"Heimaleikfimi er holl og góð, hressir mann upp og gerir mann stífan, hvort sem að undir er gras eða grjót, gólfteppi, eldhúsborð, stóll eða dívan." Svona hljómar vísa sem víða er sungin í útilegum og mannfögnuðum.
Meira
NÝLOKIÐ er listasýningu í þinghúsi Manitoba í Winnipeg í Kanada þar sem Ríkey Ingimundardóttir myndlistarmaður sýndi tæplega 70 verk, en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur listamaður er með sýningu í þinghúsinu.
Meira
RÚSSNESKA kvikmyndin "Endurkoman" ("Vozvraschenie") var sigursæl á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á dögunum. Hlaut hún bæði Gullna ljónið, aðalverðlaun hátíðarinnar og verðlaun fyrir bestu kvikmynd í fullri lengd.
Meira
ÞAÐ ER svo sannarlega ekki tekið út með sældinni að sameina hlutverk fjölskylduföður og öflugs millistjórnanda í fyrirtæki. Nú er talað um Atlas-heilkennið, sem hrjáir þá menn sem láta hvorki deigan síga í lífsgæðakapphlaupinu né fjölskyldulífinu.
Meira
Oddaflug eftir Guðrúnu Helgadóttur er endurútgefin en hún kom fyrst út árið 2000. Um er að ræða fjölskyldusögu sem nær yfir alla 20. öld. Þetta er saga Katrínar Ketilsdóttur, manns hennar og fjögurra dætra - og sonarins sem þau misstu.
Meira
Gallabuxnaklúbburinn (Sisterhood of the Traveling Pants) er unglingaskáldsaga eftir Ann Brashares . Þýðandi er Anna Heiða Pálsdóttir. Þar segir frá fyrsta sumrinu sem æskuvinkonurnar Bridget, Lena, Carmen og Tibby eru aðskildar.
Meira
MIKIÐ vildi ég að það væri hægt að treysta mönnum, að ég gæti reitt mig á að þeir væru góðir og heiðarlegir, að þeir gætu ekki hugsað sér að svíkja, falsa eða stela.
Meira
ÉG vil senda þakkarkveðju til starfsfólks í Árnes apóteki á Selfossi. Ég keypti þar nýlega naglaherði en uppgötvaði þegar heim var komið að glasið var tómt. Þegar ég hringdi til að kvarta fékk ég annað sent strax til Reykjavíkur, þar sem ég bý.
Meira
SÍÐUSTU dagana í ágúst og fyrstu dagana í september komu góðir gestir hingað til Finnlands. Í fyrri heimsókninni voru það Karl Gústav Svíakonungur, Silvía drottning og Viktoría prinsessa.
Meira
ANDRÉS Pétursson, formaður Evrópusamtakanna, ritar grein í Morgunblaðið hinn 28. ágúst sl. og er tilefnið grein eftir Daniel Hannan, þingmann brezka Íhaldsflokksins á Evrópuþinginu, sem birzt hafði í blaðinu tæpri viku áður.
Meira
MÉR þótti allrar athygli vert viðtal í Morgunblaðinu hinn 2. sept. sl. við Jóhann K. Jóhannsson, verkefnisstjóra fyrir umferðarátak Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Umferðarstofu í sumar.
Meira
Þessar duglegu stúlkur, Guðrún Stella Sæberg Þórisdóttir og Hanna Birgitta Harðardóttir, söfnuðu 2.200 kr. til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra...
Meira
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðu 5.137 kr. Þær eru Karólína Vilborg Káradóttir, Elín Pálmadóttir og Halldóra Kristín...
Meira
Ingileif Káradóttir fæddist í Vestur-Holtum undir Eyjafjöllum 21. október 1906. Hún lést á Droplaugarstöðum 29. ágúst síðastliðinn og var útför henna gerð frá Dómkirkjunni 5. september.
MeiraKaupa minningabók
Kristján Sigurður Guðmundsson vélvirki og rennismiður, fyrrv. starfsmaður verkalýðsfélaganna á Suðurlandi, fæddist á Ísafirði 13. maí 1922. Hann lést á Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi aðfaranótt 31. ágúst síðastliðins.
MeiraKaupa minningabók
Páll Guðmundsson fæddist í Reykjavík 24. júní 1971. Hann lést 29. ágúst síðastliðinn og var útför hans gerð frá Keflavíkurkirkju 5. september.
MeiraKaupa minningabók
60 ÁRA afmæli . Í dag, mánudaginn 8. september, er sextugur Níls Nílsen, Hringbraut 45, Reykjavík. Eiginkona hans er Edda Hulda Waage . Þau munu eyða deginum með börnum, tengdabörnum og...
Meira
60 ÁRA afmæli. Í dag, mánudaginn 8. september, er sextug Hope Knútsson, iðjuþjálfi og aðgerðasinni, Æsufelli 4, Reykjavík . Eiginmaður hennar er Einar Knútsson, viðhalds- og eftirlitsstjóri hjá Flugleiðum. Búið er að halda upp á...
Meira
Í sveitakeppni er óhætt að reyna slemmu sem veltur á einni svíningu. Ágóðinn ef slemman stendur er jafn mikill og tapið ef hún fer niður. Slemma sem byggist á því að önnur af tveimur svíningum heppnist er því mjög góð: Norður gefur; AV á hættu.
Meira
Eldri borgara starf og mömmumorgnar í Hallgrímskirkju VETRARDAGSKRÁ eldriborgarastarfsins hefst þriðjudaginn 9. september. Leikfimi við allra hæfi,undir stjórn sjúkraþjálfara, alla þriðjudaga og föstudaga kl. 13:00.
Meira
Í morgunljómann er lagt af stað. Allt logar af dýrð, svo vítt sem er séð. Sléttan, hún opnast sem óskrifað blað, þar akur ei blettar, þar skyggir ei tréð. - Menn og hestar á hásumardegi í hóp á þráðbeinum, skínandi vegi með nesti við bogann og bikar með.
Meira
Í dag er mánudagur 8. september, 251. dagur ársins 2003, Maríumessa hin s. Orð dagsins: Því hungraður var ég, en þér gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var ég, en þér gáfuð mér ekki að drekka.
Meira
Laugarneskirkja. Opinn 12 spora fundur í safnaðarheimilinu kl. 18. Allt fólk velkomið. Vinir í bata. Kynningarfundur kl. 20. Tækifæri til að koma og huga að þátttöku í þessu einstaka starfi. Gengið inn um aðaldyr safnaðarheimilisins.
Meira
Sigurður Sigurðarson kvaddi keppnistímabil hestamanna með stæl á meistaramóti Andvara um helgina þegar hann reið tveimur kunnum gæðingum til sigurs í A- og B-flokki gæðinga á mótinu. Valdimar Kristinsson tínir hér til það helsta sem gerðist á þessu vel heppnaða kveðjumóti sem að venju var haldið með miklum glæsibrag.
Meira
VÍKVERJI veltir því stundum fyrir sér hvort þeir sem ekki hafa veruleg kynni af því að eiga íbúð í fjölbýlishúsi viti hvað það merki. Þar sem eigendurnir eru 20, 30 eða jafnvel enn fleiri reynir mikið á lipurð og viljann til málamiðlana.
Meira
1. deild karla HK - Afturelding 4:1 Ólafur V. Júlíusson 55. (víti), Hörður Már Magnússon 77., 84., og 90. - Albert Ásvaldsson 35 (víti). Leiftur/Dalvík - Haukar 1:3 Kolbeinn Arnbjörnsson 69. - Goran Lukic 28., Ómar Karl Sigurðsson 49.
Meira
EINS og áður hefur komið fram var Pétur Guðmundsson fyrsti Evrópubúinn sem lék í NBA-deildinni árið 1981 er hann gekk til liðs við Portland en aðeins þrír leikmenn frá Norðurlöndum hafa leikið fram að þessu í NBA.
Meira
BARNSLEY undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar heldur áfram að gera góða hluti í ensku 2. deildinni en á laugardag vann grannaliðið Chesterfield á útivelli, 2:0. Anthony Kay skoraði fyrra markið á 10. mínútu en Craig Ireland bætti við öðru marki á 67. mínútu.
Meira
ÞÓRÐUR Guðjónsson lék vel í stöðu hægri útherja í leiknum á laugardaginn. Hann telur úrslitin í leiknum meira afrek en jafnteflið við Frakka fyrir fimm árum siðan.
Meira
* DIEGO Forlan leikmaður Manchester United lék með landsliði Úrúgvæ í gær í undankeppni HM og skoraði Forlan fyrsta mark leiksins í 5:0 sigri Úrúgvæ gegn Bólívíu .
Meira
PÉTUR Hafliði Marteinsson þurfti að fara af leikvelli vegna meiðsla þegar rúmur stundarfjórðungur lifði leiks gegn Þjóðverjum á laugardag. Hann sagði aðeins væri um smá tognun í læri að ræða. Hann var mjög svekktur eftir leikinn.
Meira
RIÐLAKEPPNI í úrslitum Evrópumóts landsliða í körfuknattleik lauk í Svíþjóð í gær og eru fjögur lið örugg um að halda áfram keppni, sigurliðin úr riðlunum fjórum eru Frakkland, sem tapaði ekki leik í riðlakeppninni líkt og Spánverjar, Litháar og Grikkir.
Meira
EF einhver knattspyrnuspekingurinn hefði spáð því í lok mars, eftir síðari ósigurinn gegn Skotum, að Ísland yrði á toppi 5. riðils Evrópukeppninnar fyrir síðasta leik sinn, hefði hann vart verið talinn með öllum mjalla.
Meira
* FYRIR tveimur vikum braust innbrotsþjófur inn í hús í Holmenkollen hverfinu í Ósló og nam á brott alla verðlaunagripi norska skíðakappans Kjetil Andrés Aamodts , en það var faðir skíðamannsins Finn Aamodt sem hafði geymt ótrúlegt verðlaunasafn sonar...
Meira
TVEIR íslenskir keppendur fóru utan í gær til þess að taka þátt í heimsmeistaramótinu í júdó en mótið fer fram í Osaka í Japan. Keppendur eru Bjarni Skúlason en hann keppir í 90 kg flokki og Gígja Guðbrandsdóttir keppir í -70 kg. flokki.
Meira
Íslenska landsliðið er enn í efsta sæti 5. riðils undankeppni Evrópumótsins eftir jafntefli við Þjóðverja á laugardaginn. Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson eru í sjöunda himni og lái þeim hver sem vill. Ívar Benediktsson rabbaði við þá félaga hvorn í sínu lagi eftir leikinn á Laugardalsvelli.
Meira
HAUKASTÚLKUR sigruðu á Opna Reykjavíkurmótinu í handknattleik en því lauk í gær. Bikarmeistarar Hauka mættu Íslandsmeisturum ÍBV í úrslitaleik. Hafnfirðingar höfðu betur 35:34 í bráðabana eftir tvær framlengingar.
Meira
"ÞAÐ er furðuleg tilfinning að hafa náð 0:0 jafntefli við Þjóðverja og vera svekktur yfir þeim úrslitum. Venjulega værum við í skýjunum yfir því að gera jafntefli við Þýskaland," sagði Heiðar Helguson en hann gerði þýsku varnarmönnunum oft lífið leitt og barðist eins og ljón allan leikinn.
Meira
* HEIÐAR Helguson lék sinn 25. landsleik á laugardaginn þegar Ísland lék við Þjóðverja. Þar með er hann kominn í hóp þeirra knattspyrnumanna sem fengið hafa gullúr KSÍ , en þau eru veitt landsliðsmönnum þegar þeir ná þeim áfanga að leika 25 landsleiki.
Meira
HELENA Ólafsdóttir, þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu, hefur valið byrjunarlið Íslands gegn Frakklandi í undankeppni EM en leikurinn fer fram klukkan 17:30 í dag. Helena ætlar að láta íslenska liðið spila leikkerfið 4-5-1. Markvörður er Þóra B.
Meira
Justine Henin-Hardenne frá Belgíu stóð efst á palli að loknum úrslitaleiknum í einliðaleik kvenna á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis en þar átti hún í höggi við löndu sína Kim Clijsters og endaði rimma þeirra, 7:5 og 6:1.
Meira
LÁRUS Orri Sigurðsson spilaði frábærlega gegn Þjóðverjum og var einn af bestu mönnum vallarins. Hann var nálægt því að skora snemma í síðari hálfleik og það var ofarlega í hans huga þegar Morgunblaðið náði tali af honum eftir leikinn.
Meira
Það lyftist brúnin á stuðningsmönnum Kópavogsliðanna HK og Breiðabliks eftir 4:1 sigur þeirra fyrrnefndu á Aftureldingu úr Mosfellsbæ í gær en leikurinn fór fram á Kópavogsvelli. Nokkur spenna var fyrir leikinn því með sigri gat Afturelding haldið í vonina um að hanga uppi í 1. deild karla en jafntefli eða sigur HK þýddi að möguleikar þeirra væru úr sögunni og um leið myndu HK, Breiðablik og Njarðvík tryggja sæti sitt í deildinni þegar ein umferð er eftir.
Meira
"ÞEGAR maður finnur að maður á ekki eftir að skora í dag verður maður að spila upp á 0-0 og passa sig á því að gefa andstæðingnum ekki góð marktækifæri tíu mínútum fyrir leikslok," sagði Oliver Kahn, markmaður þýska landsliðsins að leik loknum,...
Meira
* KRISTINN Lárusson leikmaður Vals leikur ekki meira með liðinu í ár. Hann teygði liðbönd í hné og verður frá næstu tvo mánuðina. Ólafur Þór Gunnarsson markvörður Vals er meiddur í nára og ólíklegt að hann leiki meira með á Íslandsmótinu.
Meira
Mikill fallslagur fór fram á Dalvík þar sem Haukar voru í heimsókn. Fyrir leikinn höfðu Haukar fimm stiga forskot á Leiftur/Dalvík. Með sigri í leiknum áttu heimamenn því enn möguleika á að ná Haukum að stigum fyrir lokaumferðina sem leikin verður á laugardaginn. Svo fór ekki því Haukar unnu leikinn 3:1 og tryggðu sæti sitt endanlega en Leiftur/Dalvík féll niður í 2. deild ásamt liði Aftureldingar.
Meira
NOKKRIR leikmenn makedónska landsliðsins, sem mætti Englendingum í landsleik undankeppni EM í fyrradag, hræktu á David Beckham fyrirliða enska liðsins en England vann leikinn 2:1.
Meira
HLAUPADROTTNINGIN Maria Mutaola frá Mósambík varð fyrst allra til þess að hreppa ein gullpottinn sem í boði var á gullmótunum í frjálsíþróttum á þessu ári en Mutola var ósigrandi í 800 metra hlaupi. Mutola fékk um 82 millj. kr.
Meira
JAFNTEFLIÐ gegn Þjóðverjum á laugardag þýðir að met landsliðsins frá árinu 2000 stendur óhaggað. Þá vann Ísland fjóra landsleiki í röð, undir stjórn Atla Eðvaldssonar, gegn Finnum, Færeyingum, Möltubúum og Svíum.
Meira
ÁRNI Gautur Arason átti frekar náðugan dag í íslenska markinu og þurfti aðeins einu sinni að taka á honum stóra sínum. Það var þegar hann varði glæsilega skalla frá Michael Ballack á 19. mínútu. "Ég hafði ekki mikið að gera í markinu.
Meira
RÚNAR Kristinsson var hugsanlega að leika sinn kveðjuleik fyrir íslenska landsliðið á Laugardalsvelli á laugardaginn þ.e.a.s. ef Íslendingum tekst ekki að komast í umspil eða í sjálfa úrslitakeppni Evrópukeppninar.
Meira
Í gærdag var grannaslagur í Reykjanesbæ þegar Njarðvíkingar tóku á móti Keflvíkingum 1. deild karla. Fyrir leikinn mátti búast við baráttuleik eins og oft vill verða þegar nágrannalið eigast við.
Meira
"Við vorum heppnir að tapa ekki," sagði Rudi Völler, þjálfari Þýskalands, eftir leikinn við Ísland. Leikurinn komst hins vegar vart að hjá þjálfaranum því að hann hellti sér yfir gagnrýnendur liðsins með blóðugum skömmum. Karl Blöndal fylgdist grannt með ósköpunum.
Meira
ÞAÐ segir sitt þegar maður er svekktur yfir að vinna ekki Þjóðverja," sagði Hermann Hreiðarsson, sem stóð sig með sóma í vörninni og tókst vel að halda aftur af skæðum sóknarmönnum Þjóðverja.
Meira
ÞÝSKA landsliðið fær slæma útreið í þýskum fjölmiðlum eftir landsleikinn á laugardag. "Rudi, þetta var ekkert annað en hryllingur," stóð í dagblaðinu Bild.
Meira
GARÐBÆINGAR gerðu Þór frá Akureyri slæman grikk í gær þegar þeir lögðu Þórsmenn að velli í Garðabænum með sigurmarki á 83. mínútu í 2:1 sigri. Þórsarar verða því að bíða og vona að Víkingum fatist flugið í tveimur síðustu leikjum sínum en þessi tvö lið eiga möguleika á að fylgja Keflvíkingum upp í efstu deild. Stjarnan aftur á móti kemst ekki ofar í töflunni en heiðurinn er að veði og með tólfta leiknum í röð án taps halda þeir einhverju af honum.
Meira
"ÉG verð að viðurkenna það að ég er svekktur með þessi úrslit þar sem við lékum gríðarlega vel í vörn og áttum fín tækifæri til þess að skora mörk," sagði Eiður Smári Guðjohnsen fyrirliði íslenska landsliðsins eftir markalaust jafntefli gegn...
Meira
VÍKINGUR í Ólafsvík er Íslandsmeistari í 3. deild karla í knattspyrnu árið 2003. Liðið sigraði Leikni Reykjavík 3:0 í Borgarnesi í úrslitaleik þriðju deildar. Víkingur í Ólafsvík lék síðast í þriðju efstu deild fyrir 18 árum síðan.
Meira
WAYNE Rooney skráði nafn sitt í sögubækurnar á laugardaginn þegar hann skoraði í 1:2 sigri Englendinga á Makedóníu í undankeppni EM í knattspyrnu. Rooney jafnaði metin í 1:1 á 53.
Meira
Vinnan í garðinum getur verið vond fyrir hnén. Nú eru margir að planta haustlaukunum og þá kemur góð frauðmotta sér vel. Frauðmottan er líka þarfaþing þegar verið er að teppa- eða flísaleggja, fúaverja pallinn eða taka til í neðstu skápunum.
Meira
EFTIR fall Rómar leystist vesturhluti Rómaveldis upp í ný og sundurlaus ríki hálfvilltra, germanskra þjóðflokka þjóðflutningatímans og margra alda hnignunarskeið borga og borgarmenningar hófst á þessu svæði.
Meira
Það hefur verið óvenjuleg veðurblíða á landinu í sumar, ekki síst í Reykjavík. Það er yndislegt á góðviðrisdögum að geta setið úti og fengið sér kaffi og kökur á útikaffihúsi eins og hinu ágæta kaffihúsi í garðskála í Grasagarðinum í Laugardal.
Meira
Þar sem verið er að fella tré eða skera af þeim er upplagt að nota bútana sem til falla í arininn. Þeir sem eru hagleiksmenn á tré geta líka notað svona búta til að smíða...
Meira
Hver kannast ekki við það þegar verkefnin hlaðast upp en tíminn til að vinna þau er af skornum skammti? Sum verkefni eru óvinsælli en önnur og vilja því verða útundan þegar tími gefst loks til að sinna tiltekt eða viðhaldi.
Meira
Reykjavík - Fasteignamiðlun Sverris Kristjánssonar er nú með í sölu heila húseign að Eiríksgötu 15 í Reykjavík. Um er að ræða steinhús, byggt 1934 og eru íbúðirnar fjórar í húsinu.
Meira
Hafnarfjörður - Fasteignstofan er nú með í einkasölu endaraðhús að Furubergi 7 í Setbergslandi í Hafnarfirði. Þetta er steinhús, byggt 1984 og er það á einni hæð, 150,5 ferm. en bílskúr er 22,4 ferm. og stendur sér.
Meira
Það færist í vöxt að fólk haldi upp á gamla hluti og leggi jafnvel á sig töluverða vinnu við að koma þeim í sem upprunalegast horf. Hlutir, sem áður var hent umhugsunarlaust á haugana, þykja nú stofuprýði.
Meira
Það er mjög heppilegt að hafa góðar snúrur í garðinum sínum. Þessar snúrur snúast í vindi og eru þægilegar í notkun, en líka má koma sér upp tveimur haldgóðum snúrustaurum og strengja snúrurnar á milli þeirra.
Meira
Það er ótrúlegt hvað torfþökur eru góðar til að laga lóðir til. Áður en við er litið eru þökurnar farnar að gróa og grasið að breiða úr sér og hylja allar misfellur. Það er enn hægt að leggja torfþökur á lóðir þótt tekið sé að hausta.
Meira
Virtustu byggingarlistaverðlaun Evrópu, Rohe-verðlaunin og veiting þeirra eru umfjöllunarefni Halldóru Árnadóttur listfræðings í grein hennar um íranska arkitektinn Zaha Hadid sem nýlega fékk umrædd verðlaun.
Meira
JAFNVÆGI er í rekstri Íbúðalánasjóðs þrátt fyrir sífellt aukna útgáfu húsbréfa. Þetta endurspeglast í árshlutareikningi sjóðsins vegna fyrri hluta ársins 2003.
Meira
Starfsemi eins og Vinnufatabúðin, gúmmívinnustofa og matvöruverslunin Liverpool hafa verið á Laugavegi 76, en um það hús fjallar Freyja Jónsdóttir í þessum pistli um gömul hús.
Meira
Reykjavík - Fasteignasalan Foss er nú með í einkasölu húseignina Lokastígur 24 í Reykjavík. Þetta er steinhús, byggt 1922 en húsið var algerlega endurbyggt 1998. Húsið er á þremur hæðum og er 133 ferm.
Meira
Reykjavík - Gott atvinnuhúsnæði vekur ávallt athygli, þegar það kemur í sölu. Hjá Kjöreign er nú til sölu eða leigu atvinnuhúsnæði við Lyngháls 7, alls 2.519 ferm.
Meira
Góð motta við útidyrnar sparar mikla vinnu auk þess sem hún hlífir gólfefninu talsvert. Það er því alveg þess virði að splæsa í vandaða mottu, helst tvær, aðra fyrir utan dyrnar og hina inni í ganginum.
Meira
FYRIR skömmu kom hingað til lands Arne Stöbakk, framkvæmdastjóri NTF (Norges Taksman Forening), sem er eitt af félögum fasteignamatsmanna í Noregi.
Meira
Nú er verið að reisa tvö síðustu fjölbýlishúsin, sem eiga að rísa efst í Salahverfi. Magnús Sigurðsson kynnti sér þessi hús, sem standa hátt og hafa mikið útsýni í allar áttir.
Meira
SUMARIÐ er tími viðhalds og viðgerða á húsum og mannvirkjum, en þar sem sumarið hér er býsna stutt þarf að nýta það vel í þessu skyni. Ekki er óvarlegt að áætla, að það þurfi að verja 100.000-200.000 kr. í viðhald á meðalíbúð að jafnaði á ári.
Meira
Útsýnið er óneitanlega betra þegar gluggarúðurnar eru hreinar. Það er alls ekki eins erfitt að halda rúðum og öðru gleri hreinu og margir halda. Allt sem þarf eru réttu græjurnar.
Meira
Gamla gistihúsið á Ísafirði var byggt sem sjúkrahús og var síðan lengi elliheimili. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við Guðna Geir Jóhannesson sem ásamt konu sinni Margréti Jónsdóttur gerði þetta gamla hús alveg upp.
Meira
LÖNGUM hefur það verið svo að handverk pípulagningamanna hafa ekki verið augljós og áberandi. Varla var búið að leggja kerfin þegar vaskir múrarar komu á vettvang með pínda handlangara á eftir sér og kaffærðu allar pípur.
Meira
Kópavogur - Húsakaup eru nú með í einkasölu einbýlishús að Skjólbraut 6 í Kópavogi. Húsinu fylgir iðnaðarhúsnæði sem er 90 fermetrar að stærð, en sjálft húsið er 185 fermetrar og hefur verið skipt þannig að aukíbúð er á jarðhæð.
Meira
Það er ótrúlegt að sjá hve fallegur venjulegur steyptur veggur getur verið þegar hann er skorinn sundur með þeim fullkomnu aðferðum sem nú er víðast beitt. Í sárið er veggurinn næstum eins og marmari að...
Meira
Borgarbyggð - Fasteignasalan Lundur er nú með í sölu hluta jarðarinnar Stangarholt við Langá á Mýrum í Borgarfirði. Hús á jörðinni eru þriggja hæða íbúðarhús, 185 fermetrar, um 650 fermetra útihús og um 100 fermetra haughús.
Meira
Reykjavík - Eignaval er nú með í sölu einbýlishús að Stararima 53 í Reykjavík. Húsið er 162 ferm. auk 34 ferm. bílskúrs, samtals 196 ferm., en það var byggt 1994 og er steinsteypt og einnig úr timbri.
Meira
Það er gott að hafa alls konar hirslur, líka svona poka með vösum þar sem hægt er að geyma allt mögulegt smálegt. Bæði er hægt að kaupa svona poka og einnig að sauma hann sjálfur úr alls kyns efnum.
Meira
Hurðin sú arna snýr út á verönd á Grjótagötu 11. Til þess að geta setið í sólinni án þessa að fá of mikinn trekk inn í húsið ákvað Finnur Guðsteinsson að tvískipta hurðinni og það hefur heppnast mjög vel.
Meira
MIKLAR byggingaframkvæmdir standa nú yfir efst í Salahverfi í Kópavogi, en þar er verið að reisa tvö háhýsi með fjölda íbúða. Við Rjúpnasali 10 er JB byggingafélag í samvinnu við Ris ehf að byggja tíu hæða lyftuhús með 38 íbúðum.
Meira
SÉREIGNUM í fjöleignarhúsum tilheyrir ákveðin hlutdeild í sameign eftir ákveðinni hlutfallstölu, hafi hún verið ákveðin. Hafi hlutfallstala ekki verið ákveðin eru allir séreignarhlutar jafnréttháir og bera jafnar skyldur.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.