TRÚARLÖGREGLAN í Sádi-Arabíu hefur hafið herferð gegn Barbídúkkum, lýst því yfir að þær séu ógnun við siðgæði stúlkna og ósiðleg klæði brúðanna séu móðgun við íslam. Trúarlögreglan hefur birt myndir af dúkkunum á Netinu til að vara við þeim.
Meira
"ÞETTA er hræðilegur atburður," segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra um árásina á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sem var stungin með hnífi í gær, þegar hún var stödd í verslun í miðborg Stokkhólms.
Meira
BAUGUR Group hefur ákveðið að selja eða hætta rekstri allra verslana dótturfyrirtækis síns í Bandaríkjunum. Ætlun Baugs hafði verið að Bonus Stores ræki áfram 97 verslanir, en að 214 verslanir yrðu seldar eða þeim lokað.
Meira
ANNA Lindh varð utanríkisráðherra Svíþjóðar árið 1998 og margir hafa spáð því að hún verði næsti forsætisráðherra landsins á eftir Göran Persson. Hún hefur verið náinn samstarfsmaður Perssons og var áður umhverfisráðherra.
Meira
KOSNINGABARÁTTUNNI í Svíþjóð um hvort taka eigi upp evruna, hina sameiginlegu mynt Evrópusambandsins, var frestað tímabundið í gær eftir ráðist var á Önnu Lindh utanríkisráðherra með hnífi í Stokkhólmi.
Meira
GEOFF Hoon, varnarmálaráðherra Bretlands, er sakaður um að hafa gefið þingnefnd, sem kannað hefur aðdraganda Íraksstríðsins, rangar upplýsingar. Að sögn blaðsins The Evening Standard kemur þetta fram í skýrslu nefndarinnar, sem birt verður í dag.
Meira
VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnaðarráðherra áformar að leggja fram frumvarp á komandi þingi til breytinga á nýjum orkulögum þannig að orkufyrirtæki greiði fasteignaskatta líkt og til stóð upphaflega.
Meira
MATVÖRUVERSLUNIN Dúddabúð var opnuð á Þingeyri síðastliðinn sunnudag, en þá hafði ekki verið verslun af því tagi í bænum í eitt ár. Eignarhaldsfélag er Verslun Dúdda Sigmunds.
Meira
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráðherra, sem felldi úrskurð um Norðlingaölduveitu sem settur umhverfisráðherra síðasta vetur, sagði aðspurður við Morgunblaðið í gær að útfærsla Landsvirkjunar um 568 metra lónhæð veitunnar bryti ekki úrskurðinn.
Meira
KAUPÞING-Búnaðarbanki lækkar í dag vexti óverðtryggðra útlána um 0,15 til 0,25 prósentustig og vextir verðtryggðra útlána lækka um 0,20 prósentustig.
Meira
JÓN B.G. Jónsson, yfirlæknir Heilbrigðisstofnunarinnar á Patreksfirði, hefur verið ráðinn yfirlæknir heilsugæslu við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Jón kemur til starfa í janúar.
Meira
SENDIHERRA Bretlands í Reykjavík afhenti íslenskum stjórnvöldum í gær yfirlýsingu fyrir hönd 23 ríkja sem fordæma þá ákvörðun Íslendinga að hefja hvalveiðar í vísindaskyni. Í yfirlýsingunni eru veiðarnar sagðar vera óþarfar og óréttmætar.
Meira
VERKEFNIÐ Dagblöð í skólum, sem starfrækt hefur verið í grunnskólum Reykjavíkur síðustu ár fyrir nemendur í 3. og 7. bekk, er að hefja göngu sína á nýjan leik.
Meira
ATVINNUMÁLANEFND Akureyrarbæjar hélt sinn síðasta fund í vikunni og hætti þar með formlega störfum. Um leið var verkefnum sem nefndin hafði unnið að flestum vísað til nýstofnaðrar Kynningar- og markaðsstofu Akureyrarbæjar (KOMA) sem mun fylgja þeim...
Meira
VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnaðarráðherra hefur heitið Norðuráli fullum stuðningi þannig að stækkun álversins nái fram að ganga á tilætluðum tíma. Forráðamenn fyrirtækisins áttu fund með ráðherra á þriðjudag þar sem niðurstaðan varð m.a.
Meira
Þegar ekið er um Helgustaðahrepp í Fjarðabyggð má við bæinn Helgustaði sjá stuttermaboli blakta tugum saman á girðingu. Ekki mun útstillingin vera af listrænum toga sérstaklega, heldur er verið að selja bolina...
Meira
MIKLAR skemmdir voru unnar í innbroti í Grunnskólanum á Ísafirði í fyrrinótt. Þegar starfsfólk kom til vinnu var búið að valda skemmdum á hurðum á skrifstofum og millihurðum í byggingunni. Ekki er vitað hvort einhverju var stolið.
Meira
FIMM daga ráðstefna ríkja Heimsviðskiptastofnunarinnar, WTO, um aukið frelsi í milliríkjaverslun var sett í strandbænum Cancun í Mexíkó í gær og er helsta verkefnið að reyna að leysa illvígar deilur um lækkun tolla auk niðurgreiðslna og...
Meira
EKKI nema lítill hluti örorku- og ellilífeyrisþega fær greiddar óskertar hámarksbætur frá Tryggingastofnun ríkisins vegna ýmissa ákvæða sem verða til þess að skerða bæturnar.
Meira
GUNNARI Erni Örlygssyni alþingismanni var ekki gerð sérstök refsing fyrir umferðarlagabrot sem ríkissaksóknari krafðist í fyrradag að hann yrði dæmdur í eins mánaðar fangelsi fyrir. Ákærði játaði að hafa hinn 4.
Meira
NÚ er tími fjárflutninga sem aldrei fyrr. Sigurður Jónsson á Mælivöllum á Hnefilsdal var léttur í lund að taka olíu í Reykjahlíð þótt olían hafi hækkað. Hann hefur farið 12 ferðir af Austurlandi með sláturfé til Húsavíkur fram til þessa.
Meira
ALÞJÓÐASAMTÖK hvalaskoðunarfyrirtækja hafa sent frá sér ályktun þar sem þau fordæma íslensk stjórnvöld fyrir að stefna í voða hvalaskoðunariðnaði á Íslandi með því að hefja að nýju hvalveiðar. Í fréttatilkynningu frá samtökunum, sem m.a.
Meira
FRAMHALDSSKÓLINN í Vestmannaeyjum hefur frá því hann var stækkaður fengið mikið viðhald á eldri hluta byggingarinnar. Lokaverkefnið er að klæða húsið að utan, einangra og setja nýtt kvarts á húsið eins og gert var upphaflega við bygginguna.
Meira
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum hafa tilkynnt að til greina komi að þau fresti um eitt ár gildistöku nýrra reglna sem gera ráð fyrir að ferðamenn framvísi vegabréfi sem hægt er að lesa upplýsingar úr með rafrænum hætti; eða hafi að öðrum kosti tryggt sér...
Meira
SIGURÐUR Kári Kristjánsson alþingismaður segist borinn röngum sökum í frétt í tímaritinu Séð og heyrt sem er nýkomið út. Í fréttinni er sagt að lögregla hafi stöðvað þingmanninn í Ölfusumdæmi fyrir hraðakstur og án ökuréttinda hinn 5. júlí síðastliðinn.
Meira
Fræðslufundur um íslenskt samfélag í Alþjóðahúsinu Í kvöld, fimmtudaginn 11. september, kl. 20 fer fram fundur í Alþjóðahúsi, Hverfisgötu 18, þar sem fjallað verður um atvinnu- og dvalarleyfi.
Meira
SLYSAVARNAFÉLAGIÐ Landsbjörg hefur ákveðið að nýta 686 þúsund króna styrk söfnunarsjóðs flugslyssins í Skerjafirði til að bjóða 14 til 18 ára unglingum upp á fyrstuhjálparnámskeið og verða þau í umsjá Björgunarskóla Landsbjargar.
Meira
FJÁRMÁLARÁÐHERRA og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra ætla að leggja til við Alþingi að í haust verði veittar 930 milljónir á fjáraukalögum til að styrkja rekstur Landspítalans á þessu ári. Þetta kom fram á fundi stjórnarnefndar spítalans í gær.
Meira
GUNNAR Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, segir erlend ríki leita til utanríkisráðuneytisins og óska eftir að eiga samskipti og viðræður við opinbera aðila hér á landi.
Meira
Í APRÍL sl. voru 30 ár frá því að starfsemi á endurhæfingardeild á Grensási hófst og af því tilefni afhentu konur úr kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands Grensásdeild að gjöf 10 sjúkrarúm af fullkomnustu gerð ásamt náttborðum.
Meira
VERKALÝÐS- og sjómannafélagið Grettir á Reykhólum tekur þátt í sameiningu verkalýðsfélaga á Vestfjörðum. Tillaga um sameiningu við Verkalýðsfélag Vestfirðinga var samþykkt í allsherjaratkvæðagreiðslu. Grettir er 11.
Meira
LÖGREGLAN í Keflavík hefur í samvinnu við Tollpóststofuna í Reykjavík upplýst innflutning á 30 e-töflum sem bárust með bréfasendingu frá Póllandi.
Meira
SUMUM til ánægju en öðrum til hrellingar er sumri lokið og haustið komið. Þó er varla hægt að kvarta yfir veðrinu sem hefur leikið við íbúa höfuðborgarsvæðisins að undanförnu en í gær var allt að 15 stiga hiti úti.
Meira
ÞEIR sem leggja mjög mikla áherslu á að koma vel fyrir og vera snyrtilegir eru að meðaltali með lægri laun en þeir sem leggja ekki eins mikla áherslu á útlitið, skv. niðurstöðu launakönnunar Verzlunarmannafélags Reykjavíkur.
Meira
VIÐRÆÐUR eru hafnar um nýtt meirihlutasamstarf í heimastjórn Grænlands, eftir að hægriflokkurinn Atassut og jafnaðarmannaflokkurinn Siumut slitu meirihlutasamstarfi sínu í fyrradag.
Meira
SÍLDVEIÐISKIPIN eru nú óðum að útbúa sig fyrir síldarvertíðina. Í gær voru Örn KE, Birtingur NK og Sunnutindur SU að taka síldarnæturnar um borð í skipin í Neskaupstað og gera sig klár til að halda á miðin.
Meira
ÚTGÁFUFÉLÖGIN Edda útgáfa og Guðrún útgáfufélag hafa stofnað fyrirtækið EDDA UK í Bretlandi. Markmið nýja félagsins er að tryggja aðgang íslenskrar bókaútgáfu að enskumælandi markaði og víkka og auka vaxtarmöguleika þeirra sem að félaginu standa.
Meira
ÍSRAELSKAR herþotur jöfnuðu hús Hamas-leiðtogans Mahmouds Zahars við jörðu með því að varpa á það hálfs tonns þungri sprengju. Zahar lifði árásina af, særður, en elzti sonur hans og lífvörður létu lífið.
Meira
Yuriko Shibayama er fædd 1983 í japönsku borginni Tókýó. Hún er nú á öðru ári í hinum virta Waseda-háskóla í Tókýó þar sem hún nemur norræn fræði við félagsvísindadeild háskólans. Námið er nýtt af nálinni og hefur einungis verið í boði síðustu þrjú ár.
Meira
LAUNAVIÐTÖL starfsmanna og yfirmanna skila þeim félagsmönnum Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, sem hafa nýtt sér slík viðtöl, um 11% launahækkun að meðaltali, samkvæmt nýrri launakönnun VR sem kynnt var í gær.
Meira
"Ef maður tilheyrir þessum heimi og býr yfir hæfileika til að skrifa eða tjá sig með öðrum hætti þá held ég að maður hafi rétt á að þegja ekki," segir portúgalski nóbelsverðlaunahöfundurinn José Saramago í samtali við Þröst Helgason en Saramago er gestur á bókmenntahátíð í Reykjavík. Hann mun verða í opnu viðtali í Norræna húsinu í hádeginu í dag og lesa úr verkum sínum í Iðnó í kvöld kl. 20.
Meira
DAGMAMMA í Hafnarfirði hefur unnið mál sem hún höfðaði gegn Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, en þar var umsókn hennar um leyfi til að starfrækja daggæslu fyrir 6-10 börn á þriðju hæð í fjölbýlishúsi hafnað, m.a.
Meira
Mennta- og menningarsamtök Íslands og Japans standa fyrir pallborðsumræðum í Hátíðarsal Háskóla Íslands á morgun, föstudaginn 12. september, kl. 15. Umræðuefnið er orkumál Íslands og Japans.
Meira
ARABÍSKA sjónvarpið Al-Jazeera sýndi í gær myndir af Osama bin Laden, leiðtoga hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda, og helsta samstarfsmanni hans, Ayman al-Zawahri.
Meira
NORSKIR ráðamenn hafa nú nokkrar áhyggjur af því að norskir borgarar muni í stórauknum mæli flytja áfengi með sér frá Danmörku, eftir að dönsk stjórnvöld ákváðu að stórlækka gjöld á áfengi til að reyna að stemma stigu við miklum innkaupum Dana á áfengi...
Meira
NÝR rekstraraðili, Bær hf., hefur tekið við rekstri Hótels Kirkjubæjarklausturs, en Kaupfélag Árnesinga (KÁ) hefur rekið hótelið um árabil. KÁ er nú í greiðslustöðvun vegna rekstrarörðugleika. Bær hf.
Meira
UM 50 hektara svæði í landi Breiðabólsstaðar, neðan þjóðvegar í Reykholti í Borgarfirði, hefur verið keypt undir heilsársbyggð, sem þar er fyrirhuguð. Félagið Breiðabólsstaðir ehf.
Meira
EDWARD Teller, vísindamaðurinn sem átti stóran þátt í þróun vetnissprengjunnar, er látinn á 96. aldursári. Teller tók þátt í mótun varnarmála Bandaríkjanna á síðustu öld, en hann stýrði þróun á kjarna- og vetnissprengjum fyrir bandaríska herinn.
Meira
ÞÓTT landsliðsleikmennirnir okkar í fótbolta séu þeir sem fyrst og fremst eru í eldlínunni þegar stórir leikir eru spilaðir, eru þó fleiri sem mikið mæðir á fyrir og meðan á leikjum stendur.
Meira
FORRÁÐAMENN Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja funduðu í gær með fulltrúum Norðuráls um mögulega orkuöflun til stækkunar álversins. Að fundi loknum voru menn bjartsýnir á að fyrirtækin gætu útvegað þá orku sem til þyrfti, eða um 150 MW.
Meira
RÁÐINN hefur verið nýr yfirlæknir heilsugæslu við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Er það Jón B.G. Jónsson, yfirlæknir Heilbrigðisstofnunarinnar á Patreksfirði. Jón kemur til starfa í janúar.
Meira
Ráðstefna um málefni þróunarlanda og þróunaraðstoð Íslands verður haldin 15. september kl. 13-17 í hátíðarsal Háskóla Íslands. Þróunarsamvinnustofnun Íslands, utanríkisráðuneytið og Háskóli Íslands boða til ráðstefnunnar.
Meira
RÍKISSAKSÓKNARI hefur svarað Ragnari Aðalsteinssyni hrl. vegna kæru á hendur Luo Gan, einum æðsta yfirmanni öryggis- og dómsmála í Kína, sem var í heimsókn á Íslandi.
Meira
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hefur átt viðræður við forystumenn Sambands íslenskra sveitafélaga um möguleika á því að flytja verkefni á sviði heilbrigðismála frá ríki til sveitarfélaga, einkum á svið öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Meira
BYLGJAN, Kringlan og Danssmiðjan standa fyrir söfnun á morgun, föstudaginn 12. september, til styrktar Krafti, baráttufélagi ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.
Meira
LANDSVIRKJUN hefur undirritað samninga við Fosskraft JV (E. Phil & Søn, Hochtief Construction AG, Íslenska aðalverktaka og Ístak hf.) um gerð stöðvarhússhvelfingar Kárahnjúkavirkjunar.
Meira
ÁLYKTANIR hafa verið samþykktar í vikunni bæði innan Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og verkalýðsfélaga á svæðinu þar sem skorað er á stjórnvöld að tryggja raforku til stækkunar Norðuráls á Grundartanga.
Meira
"MÉR finnst spennandi að taka þátt í því uppbyggingarstarfi sem þarna á að fara fram. Það á að efla sjúkrahúsið og heilsugæsluna og er vonandi að fjármagnið fylgi," segir Jón B.G.
Meira
FÉLAG myndistarmanna í Reykjanesbæ hefur stofnað Myndlistarskóla Reykjaness til þess að halda utan um námskeiðahald félagsins. Innritun stendur yfir á námskeið haustannar.
Meira
Ráðist var á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, í gær og hún stungin margsinnis með hnífi. Svíar eru slegnir og er talið að tilræðið muni hafa mikil áhrif á sænskt samfélag. Steingrímur Sigurgeirsson er í Stokkhólmi og rekur gang mála.
Meira
SÖGULEGUR viðburður átti sér stað í Belgrað í gær en þá áttu þeir fund saman þeir Stipe Mesic, forseti Króatíu (til hægri á myndinni), og Svetozar Marovic, forseti Serbíu og Svartfjallalands.
Meira
FRIÐRIK Pálsson og Friðrik Jóhannsson sögðu af sér í stjórn SÍF á stjórnarfundi í félaginu í gær. Friðrik Pálsson lætur því af formennsku stjórnarinnar og hverfur jafnframt úr stjórnum þeirra dótturfyrirtækja SÍF sem hann hefur setið í.
Meira
FIMMTÁN umsóknir bárust um starf jafnréttisráðgjafa Akureyrarbæjar sem auglýst var laust til umsóknar í síðasta mánuði. Af þessum fimmtán umsóknum voru 7 frá körlum.
Meira
GARÐAR Sverrisson, formaður Öryrkjabandalagsins, segir að þegar haft sé í huga hverjir það séu sem fyrstir missi vinnuna þegar þrengist um á vinnumarkaði, veki það athygli að öryrkum skuli ekki hafa fjölgað meira en raun beri vitni á síðustu 10 árum.
Meira
"HÉR í Cancun er fyrst og fremst verið að tala um landbúnað og við styðjum aukna opnun gagnvart þróunarríkjunum," segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra um fund Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, í Cancun í Mexíkó.
Meira
UNGMENNAFÉLAG Akureyrar, UFA, og Ungmennasamband Eyjafjarðar, UMSE, stefna að því að sækja sameiginlega um að halda Landsmót UMFÍ á Akureyri 2007 eða 2009.
Meira
Banatilræðið við Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, er sænsku þjóðinni mikið áfall og meðal annarra Norðurlandaþjóða eru margir slegnir yfir tíðindunum.
Meira
Í viðleitni sinni til að gera dagskrá Ríkissjónvarpsins enn líkari því, sem gerist á einkareknu sjónvarpsstöðvunum, hafa stjórnendur RÚV ákveðið að ganga til samstarfs við Skjá tvo um að bjóða í einkaréttinn til að sjónvarpa frá leikjum í ensku...
Meira
* ALÞJÓÐAHÚSIÐ: Jón Sigurður Eyjólfsson ásamt hljómsveit með útgáfutónleika fimmtudag kl. 21. * ARI Í ÖGRI: Dúettinn Acoustics föstudag og laugardag. * ÁRNES: Papar á réttarballi föstudag kl. 00 til 03. * ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Dansleikur sunnudag kl.
Meira
ÞEIR ná háflugi, bandarísku velmegunarrokkararnir í The Eagles, á safnplötunni The Very Best of . Þar eru saman komin öll vinsælustu lög sveitarinar, 17 talsins, allt lög sem hljómað hafa á öldum ljósvakans í áraraðir.
Meira
ÞÁTTURINN Atvinnumaðurinn með Þorsteini Guðmundssyni hefur göngu sína á SkjáEinum í kvöld. "Þetta er blanda af raunveruleika- og gamanþætti. Ég fer í starfskynningar á vinnustöðum og kynni mér eitt starf í hverjum þætti.
Meira
KÍNVERSKI fiðluleikarinn Chuanyun Li leikur á opnunartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói í kvöld kl. 19.30. Hljómsveitarstjóri er Rumon Gamba.
Meira
RAPPARINN ungi Dizzee Rascal hlaut Mercury-verðlaunin í Bretlandi, sem eru ígildi Grammy-verðlaunanna bandarísku. Plata Rascal, sem er frumraun hans, heitir Boy in Da Corner .
Meira
LAND og synir hljóta að vera farnir að kikna í hnjáliðunum undan öllum þeim gullhömrum sem þeim og nýju plötunni, Óðali feðranna, hafa verið slegnir.
Meira
Ingvar Ambjörnsen, höfundur sögunnar um Elling, segir engan hafa órað fyrir velgengninni sem hún nýtur. Leikrit hans, Erling, verður frumsýnt í Freyvangi í Eyjafirði í kvöld.
Meira
EINS þjóðleg og lögin góðu á Þjóðsögu virðast nú þá verður ekki horft hjá því að uppruni laganna er írskur. Ljóðin sem Jónas Árnason samdi við þau eru hins vegar alíslensk, reyndar með grænu ívafi.
Meira
SÖNGLEIKURINN Chicago, eftir John Kander og Fred Ebb, verður jólasýningin í Borgarleikhúsinu í ár. Leikstjóri verður Þórhildur Þorleifsdóttir, en höfundur dansa er Jochen Ulrich.
Meira
FINNSKI plötusnúðurinn Jori Hulkkonen heimsækir landið um helgina og spilar á Metz á föstudagskvöldið og Kapital (áður Spotlight, Thomsen) á laugardagskvöldið. DJ Bjössi hitar upp bæði kvöldin.
Meira
PAUL Simon og Art Garfunkel hafa tilkynnt að þeir ætli saman í tónleikaferð um Bandaríkin og Kanada í haust en þeir hafa ekki leikið saman í tvo áratugi, ef undan er skilið að þeir komu fram á Grammyverðlaunahátíðinni í febrúar sl.
Meira
ÞAÐ hlýtur að fara að koma að því, Sinfónían hlýtur að þurfa að gefa því gaum fyrr en síðar að flytja eitt nýsígildasta verk tónlistarsögunnar, Dark Side Of The Moon .
Meira
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í Toronto stendur sem hæst um þessar mundir. Þar eiga Íslendingar m.a. myndirnar Nóa albínóa og Stormy Weather , sem er eftir Sólveigu Anspach.
Meira
Í hernaði áttavilt heimsmenning er og hryðjuverk gerast það dagurinn sver. Sterk aðför að lífi er hvers-dags-frétt hér því hraði til björgunar vökumenn sér. Ei hatur og illvilja-hugfesta má, Þar hefndin er mögnuð og rót sína á.
Meira
ÞÁ er hinn árvissi bændagrátur skollinn á með fullum þunga. Og það í öllum gerðum af fjölmiðlum. Þeir gráta "hvíta bankakjötið", hvernig það hefur leikið offramleiðsluna þeirra, "rauða ríkiskjötið". Uhuuuuuuuuuuuuuu.
Meira
MORGUNBLAÐIÐ skýrir frá því á baksíðu 5. september 2003 að Íslendingar taki nú þátt í alþjóðlegum snjóflóðarannsóknum og að í því skyni verði sett upp tvö möstur fyrir sjálfvirk radartæki ofan á snjóflóðagarðana á Flateyri.
Meira
"Engu landi skal leyfast að ganga marxisma á hönd bara af því að þjóðin er ábyrgðarlaus." (Henry Kissinger.) Í DAG eru þrjátíu ár liðin frá einhverri viðbjóðslegustu stjórnarbyltingu síðustu aldar. Hinn 11.
Meira
Guðjón Teitur Magnússon fæddist á Selhellu í Mjóafirði eystra 1. september 1916. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 24. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Ingibjörg Filippusdóttir, f. 18. september 1884, d. 16. júlí 1958, og Magnús Árnason, f.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Elín Kristjánsdóttir fæddist í Sæbergi á Hofsósi 27. september 1928. Hún lést í Reykjavík 20. ágúst síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hofsóskirkju 6. september.
MeiraKaupa minningabók
María Anna Pétursdóttir fæddist á Ísafirði 26. desember 1919. Hún andaðist á Droplaugarstöðum í Reykjavík að morgni fimmtudagsins 4. september síðastliðins. Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Elín Torfadóttir, f. á Flateyri við Önundarfjörð 8.2.
MeiraKaupa minningabók
Salóme Jóna Jónsdóttir fæddist á Flateyri 24. nóvember 1940. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 3. september síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Jarþrúður Sigurrós Guðmundsdóttir, f. 24.8. 1913, d. 16.7. 1990, og Jón Salómon Jónsson, f. 24.2. 1913.
MeiraKaupa minningabók
Sigvaldi Búi Bessason fæddist á Akureyri 19. júní 1921. Hann lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi Landakoti sunnudaginn 7. september sl. Sigvaldi Búi var sonur Bessa Einarssonar frá Hraunum í Fljótum og Ástríðar Þórðardóttur frá Stokkseyri.
MeiraKaupa minningabók
BÓNUS Gildir 11.-14. sept. nú kr. áður kr. mælie.verð KF reykt og saltað folaldakjöt 419 539 419 kr. kg Myllu möndlukaka, 360 g 129 185 358 kr. kg Óðals ferskt kjötfars, 420 g 99 179 235 kr. kg Frosinn stjörnukjúklingur 289 Nýtt 289 kr.
Meira
KOMINN er út bæklingur um brjóstagjöf frá Ýmusi ehf. Bæklingurinn er skrifaður af brjóstagjafarráðgjafa og hefur verið þýddur á fjölmörg tungumál. Mun hann liggja frammi ókeypis í Móðurást, Þumalínu og lyfjaverslunum um land allt.
Meira
SVEITAMARKAÐURINN á Mosskógum í Mosfellsdal verður haldinn í síðasta sinn nú á laugardaginn. Fyrsti markaðurinn var haldinn um miðjan júlí og hefur opnunartíminn verið færður fram til klukkan ellefu.
Meira
HAGKAUP standa fyrir svokölluðum fríhafnardögum um helgina, þar sem verð á snyrtivörum verður lækkað sem nemur virðisaukaskattsprósentu. Fríhafnardagar standa yfir 11.-14.
Meira
Áskirkja. Opið hús fyrir unga sem aldna er á fimmtudögum milli kl. 14 og 17 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Organisti Áskirkju leiðir söng. Allir hjartanlega velkomnir. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, íhugun.
Meira
Heimsmeistaramót ungmenna (25 ára og yngri) fór fram í níunda sinn í París í síðasta mánuði. Fimmtán þjóðir hófu keppni og var fyrst spiluð einföld umferð leikja (allir við alla), en fjórar efstu sveitirnar spiluðu síðan til úrslita.
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 14. júní sl. í Háteigskirkju af séra Halldóri Reynissyni þau Ragnhildur Elín Lárusdóttir og Stefán Ari Guðmundsson. Heimili þeirra er í...
Meira
Í dag er fimmtudagur 11. september, 254. dagur ársins 2003, réttir byrja. Orð dagsins: Því ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins, fyrr en Guðs ríki kemur.
Meira
Þjóðminningardaginn 1897 Þar fornar súlur flutu á land við fjarðarsund og eyjaband, þeir reistu Reykjavík. Hún óx um tíu alda bil, naut alls, sem þjóðin hafði til, varð landsins högum lík.
Meira
Ef ísskápurinn segir heimilistölvunni að panta meiri mjólk á Netinu handa einbúanum, þá er stutt í endalokin. Þetta er skýrt tákn um hrun lýðræðisins.
Meira
Tiger Balm MEÐ Morgunblaðinu 7. september sl. fylgdi sérstakt blað frá Heilsuhúsinu. Er þar getið um Tiger Balm (Tigris-smyrsl). Kínverski jurtalæknirinn Aw Chu Kin setti á stofn lyfjaframleislu í Rangoon (Burma) um 1870.
Meira
NÚ er vetrarstarfið fyrir fullorðna að hefjast í Fella- og Hólabrekkusóknum. Á mánudögum verður "Opið hús" í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 13:00-15:30 í umsjón Lilju G. Hallgrímsdóttur djákna.
Meira
VÍKVERJI er sleginn yfir eldsvoðum í vikunni, sem höfðu þær afleiðingar að tvær fjölskyldur misstu heimili sín, fyrst í Reykjavík og svo á Hellissandi. Sem betur fer var enginn heima þegar kviknaði í, en áfallið hlýtur samt að vera mikið.
Meira
Þetta var í einu orði sagt frábært," sagði Jónas Grani Garðarsson, sem skoraði fyrstu tvö mörk FH í gærkvöldi þegar hann gernýtti færin sín á 26. og 39. mínútu, sem dugði til að jafna leikinn.
Meira
* EGILL Már Markússon kom Allan Borgvardt, leikmanni FH, í opna skjöldu eftir að Borgvardt hafði verið dæmdur rangstæður en skaut samt áður að marki KR-inga .
Meira
FRAKKAR, Svíar, Tékkar og Búlgarar tryggðu sér í gærkvöld fyrstu sætin í lokakeppni Evrópumóts landsliða í knattspyrnu en þessar fjórar þjóðir hafa unnið í sínum riðlum í undankeppninni þótt einni umferð sé ólokið. Frakkar innsigluðu yfirburði sína í 1.
Meira
FORRÁÐAMENN ítalska knattspyrnusambandsins hafa ákveðið að liðum í efstu deild, A-deild, þar í landi verði fjölgað úr 18 í 20 frá og með keppnistímabilinu 2004-2005.
Meira
LÆRISVEINAR Alfreðs Gíslasonar í Magdeburg hófu baráttuna um þýska meistaratitilinn eins og best varð á kosið í gærkvöld. Þeir sóttu heim lið HSV Hamburg, sem hafði farið vel af stað og unnið tvo fyrstu leiki sína í deildinni.
Meira
FH-ingar höfðu ríka ástæðu til þess að fagna gríðarlega í Laugardalnum í gærkvöld eftir 3:2 sigur á KR í undanúrslitum VISA-bikarkeppni karla þar sem liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik keppninnar í þriðja sinn í sögu félagsins.
Meira
MARTIN Laursen, varnarmaðurinn frá AC Milan, kom Dönum til bjargar í gærkvöld. Hann jafnaði, 2:2, gegn Rúmenum á síðustu stundu þegar þjóðirnar mættust í lykilleik í 2. riðli undankeppni EM í knattspyrnu í Kaupmannahöfn.
Meira
Leiðrétting Í myndartexta sem fylgdi mynd og umfjöllun um val á íslenska landsliðinu í knattspyrnu kvenna var sagt að þar ætti Margrét Lára Viðarsdóttir í hlut.
Meira
ENGLENDINGAR gerðu það sem þeir þurftu í gærkvöld þegar þeir sigruðu Liechtenstein, 2:0, í 7. riðli undankeppni EM, frammi fyrir 67 þúsund áhorfendum á Old Trafford í Manchester.
Meira
"ÞETTA var mjög sanngjarn sigur hjá Þjóðverjum, þeir voru mun beittari og hraðari en í leiknum hér heima og Skotar nýttu nánast eina marktækifæri sitt í leiknum," sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, en hann og Logi...
Meira
RÚSSAR hleyptu gífurlegri spennu í baráttuna um toppsætin í 10. riðli undankeppni EM í gærkvöld þegar þeir unnu stórsigur á efsta liðinu, Svisslendingum, 4:1.
Meira
KNATTSPYRNUSAMBAND Evrópu, UEFA, hefur boðað fosvarsmenn enska og tyrkneska knattspyrnusambandsins til fundar í höfuðstöðvum UEFA í Sviss á næstu dögum þar sem á að lægja þær öldur sem risið hafa á milli sambandanna vegna væntanlegs leiks Tyrkja og Englendinga í undankeppni EM í knattspyrnu sem fram skal fara í Istanbúl 11. október næstkomandi.
Meira
"ÉG get lítið um þennan leik sagt, við ætluðum að ná góðum leik eins og undanfarið, pressa á þá og skora en vorum þess í stað alveg á hælunum allan leikinn," sagði Kristján Örn Sigurðsson, varnarjaxl í KR, eftir leikinn.
Meira
EFTIR sjö ára fjarveru frá ítölsku deildinni í knattspyrnu lék Gianfranco Zola á ný þar í landi um sl. helgi með liði sínu Cagliari sem er í næstefstu deild.
Meira
GJÖGUR hf. bætti nýverið skipi í sinn flota, Gjafari VE sem áður var í eigu Sæhamars ehf. í Vestmannaeyjum. Gjafar VE mun leysa af hólmi eldra skip í eigu félagsins, Oddgeir ÞH. Í kjölfarið verður Oddgeiri lagt eða hann seldur.
Meira
SÍLDVEIÐISKIPIN eru nú óðum að útbúa sig fyrir síldarvertíðina. Í gær voru Örn KE, Birtingur NK og Sunnutindur SU að taka síldarnæturnar um borð í skipin í Neskaupstað og gera sig klár til að halda á miðin.
Meira
KANADAMENN hyggjast veiða nærri milljón vöðuseli á næstu þremur árum en selveiðar þeirra hafa aukist verulega á undanförnum árum. Nú er talið að Norðvestur-Atlantshafsvöðuselsstofninn sé vel yfir 5 milljónir dýra. Vöðuselsstofninum hnignaði mjög á 7.
Meira
ÞORBJÖRN-Fiskanes hefur fest kaup á nóta- og togveiðifrystiskipinu Hardhaus frá Noregi, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Skipið kemur í stað Grindvíkings GK sem verður lagt og jafnframt auglýst til sölu.
Meira
ÍTALSKA lögreglan reynir nú að hafa hendur í hári óprúttinna beitusala sem selt hafa lifandi kettlinga í beitu. Kettlingunum er egnt fyrir svokallaðan fengrana, sem er stórfiskur sem veiðist í vötnum nálægt borginni Mílanó.
Meira
BRUNNBÁTURINN Snæfugl SU sótti á dögunum um 30 tonn af lifandi laxi hjá laxeldisstöðinni Víkurlaxi í Ystuvík í Eyjafirði. Siglt var síðan með laxinn til Neskaupstaðar, þar sem honum var slátrað og hann unninn hjá Síldarvinnslunni hf.
Meira
SELVEIÐAR við Ísland hafa dregizt töluvert saman undanfarin ár. Mest var veitt af sel árið 1964, ríflega 7.000 dýr. Á síðustu tíu árum hefur hægt og rólega dregið úr veiðunum. Árið 1992 voru veiddir tæplega 3.200 selir en aðeins 725 í fyrra.
Meira
ÍSLENDINGAR seldu Bretum mest af fiski á fyrstu fimm mánuðum þessa árs mælt í verðmætum. Alls seldum við Bretum fisk til manneldis, ferskan, frystan og tilbúna rétti fyrir 81 milljón punda eða 10,4 milljarða króna.
Meira
Þeir hafa mokfiskað, snurvoðarbátarnir í Faxaflóa, frá því að þeir hófu þar veiðar í upphafi fiskveiðiársins. Helgi Mar Árnason fylgdist með skipverjum á Rúnu RE frá Reykjavík innbyrða ósköpin öll af kola og Jim Smart ljósmyndaði atganginn í hvítalogni í Flóanum.
Meira
ARÐUR eftir skatt af innlendri hlutabréfaeign á Íslandi nemur 73,8% af upprunalegum hagnaði sem er hæsta hlutfall á Norðurlöndum. Í Svíþjóð er hlutfallið 50,4%, Noregi 72%, Finnlandi 71% og Danmörku 50,4%. Þetta kemur fram í Vefriti...
Meira
BANDARÍSK stórfyrirtæki sýna nú aukinn áhuga á að auglýsa vörur sínar á Netinu, en verulega dró úr netauglýsingum eftir að netbólan svokallaða sprakk. Frá þessu segir í bandaríska dagblaðinu Wall Street Journal, WSJ.
Meira
BORGARAPÓTEK hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta, en því var lokað í sumar vegna rekstrarerfiðleika. Borgarapótek er einkahlutafélag í eigu 10 hluthafa. Sigurmar K. Albertsson hrl.
Meira
Karl E. Loftsson mun láta af starfi útibússtjóra Mosfellsútibús Búnaðarbankans hinn 1. október næstkomandi vegna aldurs. Karl hóf störf í bankanum 1973 sem gjaldkeri í útibúinu í Hólmavík.
Meira
Kostum fólks í bílamálum hefur fjölgað með tilkomu einkaleigu. Þetta fyrirkomulag getur hentað þeim sem á annað borð hafa möguleika á og eru reiðubúnir til að verja þeim fjármunum sem þarf til leigu á nýjum eða nýlegum bíl. Grétar Júníus Guðmundsson skoðaði þau tækifæri sem í boði eru fyrir þá sem vilja ferðast um á eigin vegum.
Meira
ÞAÐ hefur líklega ekki farið framhjá þeim sem fylgjast með viðskiptum í Kauphöll Íslands að síðasta hálfa mánuðinn hafa innherjar í Sjóvá-Almennum verið iðnir við að selja hluti sína í félaginu.
Meira
Kaffiskattur er nokkuð sem íbúar Seattle í Bandaríkjunum kunna að þurfa að búa við næstu árin nái tillaga borgaryfirvalda fram að ganga. Tillagan að skattinum er sett fram í því skyni að standa straum af kostnaði við að mennta yngstu börnin í borginni.
Meira
KAUPÞING-Búnaðarbanki lækkar í dag vexti óverðtryggðra og verðtryggðra inn- og útlána. Lækkunin kemur til vegna vaxtaþróunar og sterkrar lausafjárstöðu Kaupþings-Búnaðarbanka.
Meira
VERSLUNINNI Mango í Smáralind hefur verið lokað. Um er að ræða tímabundna lokun þar sem reksturinn gekk ekki sem skyldi. Fyrirtækið Háess hefur séð um rekstur Mango á Íslandi fram að þessu en Mango er ein af stærri fataverslanakeðjum Spánar.
Meira
MARKAÐS- og ráðgjafarfyrirtækið Netspor ehf. hefur tekið að sér dreifingu á Yfirsýn sem er hugbúnaður sem auðveldar fyrirtækjum og þjónustustofnunum að gera markaðskannanir á eigin viðskiptavinum.
Meira
Guðrún Johnsen útskrifaðist með BA-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 1999. Hún lauk MA-gráðu í hagnýtri hagfræði frá University of Michigan árið 2002 og MA-gráðu í tölfræði frá sama skóla árið 2003. Á árunum 1999 til 2001 starfaði Guðrún sem verðbréfamiðlari hjá Fjárfestingabanka atvinnulífsins og á árunum 1998 til 1999 starfaði hún hjá Norræna fjárfestingarbankanum í Helsinki við fjármálagreiningu og árangursmælingar. Guðrún er fædd árið 1973 og er ógift og barnlaus.
Meira
ÍSLAND er eina landið af Norðurlöndunum þar sem ekki er starfrækt sérstök stofnun sem sér um að koma á samskiptum á milli viðskiptalífsins og menningargeirans.
Meira
Undanfarna mánuði hafa hnútur flogið milli manna vestan hafs vegna milljarðamálaferla SCO gegn IBM. Árni Matthíasson veltir fyrir sér málabúnaði SCO.
Meira
HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ Tölvubankinn hf. hefur sent frá sér þriðju útgáfuna af Tel-Info, sem er upplýsingakerfi á símstöðvar fyrirtækja, en hugbúnaðurinn er búinn að vera í þróun hjá fyrirtækinu frá 1996.
Meira
UNIVERSAL, helsti útgefandi tónlisardiska í heiminum, ætlar að lækka heildsöluverð geisladiska um 30% til að hleypa lífi í sölu tónlistar á geisladiskum.
Meira
VERÐBÓLGA án húsnæðis mælist í september 0,7% samkvæmt frétt frá Hagstofu Íslands en vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur hækkað um 0,7% síðustu 12 mánuði.
Meira
FRIÐRIK Skúlason ehf. og Þekking hf. hafa gert með sér samning um endursölu á F-Prot AVES-póstsíunarþjónustu Friðriks Skúlasonar ehf. til viðskiptavina Þekkingar hf.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.