Hljómdiskur með úrvali laga sem flutt voru á Músíktilraunum 2003. Flytjendur efnis eru Dáðadrengir, Lokbrá, Heimskir synir, Fendrix, Drain, Betlehem, Enn ein sólin, Doctuz, Danni og Dixielanddvergarnir, Still Not Fallen, Delta 9, Amos og Brutal. Hljóðritun var gerð af Sigurði Guðmundssyni og Guðmundi Kristni Jónssyni. Um hljóðblöndun og tónjöfnun sá Guðmundur Kristinn Jónsson. Hljóðmaður í sal var Jón Skuggi. Hljóðmenn á sviði voru Ívar Ragnarsson og Ragnar Jónsson.
Meira