LÖGREGLAN í Tbilisi, höfuðborg Georgíu, skaut í gær reyksprengjum að þúsundum manna, sem reyndu að brjóta sér leið að skrifstofum Eduards Shevardnadzes, forseta landsins.
Meira
AÐ minnsta kosti 18 manns týndu lífi og meira en 50 særðust í tveimur sjálfsmorðsárásum á lögreglustöðvar í Írak í gær. Þá neyddist borgaraleg flutningaflugvél til að nauðlenda eftir að hafa orðið fyrir flugskeyti.
Meira
INNAN Fjármálaeftirlitsins (FME) eru nú í undirbúningi "leiðbeinandi tilmæli" byggð á lögum um fjármálastofnanir frá 2001 um skilyrði fyrir þátttöku viðskiptabanka, sparisjóða og lánafyrirtækja í atvinnurekstri. Í drögum að tilmælunum er m.a.
Meira
NÝ rannsókn sem gerð var í háskólanum í Boston bendir til þess að hátt hlutfall af omega 3-fitusýrum í blóði geti dregið úr líkum á því að eldra fólk fái Alzheimer-sjúkdóminn um allt að 50%. Þetta er í samræmi við niðurstöður rannsóknar sem birt var sl.
Meira
Jólin nálgast en segja má, að í Berlín hefjist aðdragandi þessarar mestu hátíðar kristinna manna formlega þegar kveikt hefur verið á ljósunum á frægasta breiðstræti borgarinnar, Unter den Linden. Var það gert á föstudag.
Meira
"VIÐ vissum að þetta yrði erfiður leikur en í ljósi þess að strákarnir okkar eru fæstir að spila og þeir sem komu frá Íslandi hafa ekki spilað síðan í september má segja að þeir hafi komið hingað, séð og sigrað.
Meira
Davíð Oddsson forsætis-ráðherra sagði í umræðum á Alþingi í vikunni að bankarnir væru komnir út á mjög hála braut með afskiptum sínum af íslensku atvinnulífi.
Meira
BETUR fór en á horfðist þegar jepplingur valt kl. 7.30 í gærmorgun með fimm manns í. Óhappið varð við Tungudalsafleggjara í Skutulsfirði nálægt gangamunna Vestfjarðaganganna.
Meira
GEORGE W. Bush , Bandaríkjaforseti, hefur verið í heimsókn í Bretlandi undanfarna daga og sat hátíðarkvöldverð með gestgjafa sínum, Elísabetu II Bretadrottningu, í Buckingham-höll á miðvikudagskvöld.
Meira
TVEIR menn voru handteknir, grunaðir um að hafa kveikt í bifreið við Lindargötu í Reykjavík um klukkan 5 í gærmorgun. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út til að slökkva eldinn.
Meira
MICHAEL Jackson hefur verið sakaður um að beita barn kynferðislegu ofbeldi. Jackson er einn vinsælasti popp-tónlistarmaður sögunnar. Michael Jackson gaf sig fram við lögreglu í Kaliforníu á fimmtudagskvöld. Þá hafði verið lýst eftir honum.
Meira
ÞAÐ fer ekki milli mála að fólk er vel meðvitað um ástæðu þess að Íslandsbanki hefur öll sín útibú opin í dag," sagði Arnfinnur Daníelsson, einn margra þjónustufulltrúa Íslandsbanka sem stóðu aukavakt frá kl. 11 til 16 í gær.
Meira
Hallgrímskirkja blasir við öllum á Skólavörðuholtinu í Reykjavík og þar hefur veðrið leikið við Leif heppna sem og aðra landsmenn og gesti að undanförnu.
Meira
VOPNAÐ rán var framið í versluninni 10-11 við Staðarberg í Hafnarfirði um klukkan 5 í gærmorgun. Lögreglunni barst tilkynning um málið skömmu síðar og leitar nú ræningjans.
Meira
Í októbermánuði síðastliðnum voru skráðir 93.408 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.059 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur dæmt fimm Kínverja í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og einn Singapúrbúa í 45 daga fangelsi fyrir að koma til landsins í nóvember á fölsuðum vegabréfum.
Meira
Idol á sjónvarpsskjánum. Þrír karlmenn sitja makindalega í stofunni. Einn fær sér í nefið og lætur dolluna ganga. Annar dæluna. - Doddi, hvern ætlarðu að kjósa? - Næstsíðasta strákinn; þennan sem söng Honesty.
Meira
JÓN Geir Jóhannsson, verslunarstjóri Dressmann í Kringlunni, segir verslun hafa verið að aukast síðan um miðjan október. "Fólk er farið að skima eftir jólagjöfum og leita að góðum fötum. Þeir allra fyrstu eru að byrja upp úr enda ágúst.
Meira
Árni Magnússon félagsmálaráðherra, sem jafnframt gegnir embætti jafnréttisráðherra, segist ekki myndu greiða vændisfrumvarpinu atkvæði að því óbreyttu en að flutningsmenn séu búnir að boða ákveðnar breytingar.
Meira
SVERRIR Hermannsson, fyrrverandi alþingismaður, bankastjóri og ráðherra, segir frá því í nýútkominni bók sinni, Skuldaskil, sem Pálmi Jónasson hefur skráð, að við stjórnarmyndun Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vorið 1983 hafi hann verið búinn að...
Meira
Bókarkafli Goðafoss var eitt glæsilegasta skip Íslendinga og var að koma heim í skipalest eftir tveggja mánaða ferð til New York og aðeins um tveggja stunda sigling eftir til Reykjavíkur er tundurskeyti úr þýskum kafbáti skall á hlið skipsins. Um borð voru 43 Íslendingar og 19 Bretar sem bjargað hafði verið af logandi olíuflutningaskipi. Óttar Sveinsson segir frá árásinni á Goðafoss.
Meira
Úr því þeir ætla að fara í nýjar samningaviðræður held ég að þeir verði að hafa þessa vísu um iðrun Júdasar í huga: Undirrót allra lasta ágrindin kölluð er.
Meira
Eftirtaldir starfsmenn hófu störf hjá LOGOS lögmannsþjónustu sumarið 2003: Árni Sigurjónsson var ráðinn fulltrúi. Áður starfaði Árni m.a. sem dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu frá 2001-2003. Árni lauk lagaprófi frá HÍ árið 2003.
Meira
Í SMÁRALINDINNI koma saman margar ólíkar manneskjur í mörgum ólíkum erindagjörðum. Þó er víst að allir eiga sér draumastarf. En hugmyndirnar voru jafnólíkar og fólkið sjálft.
Meira
Bókarkafli Steinólfur Lárusson, bóndi í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd, er þekktur fyrir tungutak sitt og frumlega hugsun. Finnbogi Hermannsson útvarpsmaður hefur skráð einræður Steinólfs og er hér gripið niður í frásögn hans.
Meira
Árni Gunnarsson hefur kvatt Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði eftir tólf ára starf. Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir ræddi við hann um uppbyggingu og rekstur stofnunarinnar og framtíð íslenska heilbrigðiskerfisins.
Meira
AFHENT hafa verið landgræðsluverðlaunin fyrir árið 2003 og fór athöfn fram í höfuðstöðvum Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti í fyrradag. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra afhentu verðlaunin.
Meira
Fyrirlestur á vegum IEEE á Íslandi verður haldinn á morgun, mánudag, kl. 17 í húsakynnum verkfræðideildar Háskóla Íslands, VR-2 stofu 158. Kristján Halldórsson heldur fyrirlesturinn: Samspil opnunar orkumarkaðarins og sala endurnýjanlegrar orku.
Meira
ÍSLENDINGAR sem lokið hafa háskólagráðu eru líklegastir til að finna sér vinnu af öllum þjóðum innan OECD. Þetta kemur fram í nýlegri kóreskri rannsókn.
Meira
LÝTALÆKNAR í Bandaríkjunum hafa að sögn fréttavefjar BBC hannað eins konar plastfatla sem græddur er undir húðina á hálsi þeirra sem eru farnir að reskjast og líkar illa að vera með áberandi hrukkur, svonefndan kalkúnaháls.
Meira
INGVAR Ásmundsson hefur unnið fimm fyrstu skákirnar á Heimsmeistaramóti öldunga sem fram fer í Bad Zwischenahn í Þýskalandi og er í efsta sæti mótsins ásamt tveimur öðrum keppendum. Í fyrradag lagði Ingvar, sem er 22.
Meira
LÖG um vændi eins og þau eru í dag, þannig að eingöngu sá sem selur vændi er sekur, eru gjörsamlega úr takti við samfélagið sem við lifum í að mati Jónínu Bjartmarz, þingmanns Framsóknarflokks og eins flutningsmanna frumvarpsins.
Meira
Ingibjörg E. Guðmundsdóttir er fædd í Reykjavík 16. ágúst 1951. BA í sálfræði frá HÍ 1978, kennsluréttindi frá HÍ 1983, M.Ed. frá Harvard graduate school of education 1985 og nám í fullorðinsfræðslu á vegum Nordens Folkliga Akademi 1997. Skólastjóri Tómstundaskólans 1985-88, verkefna- og framkvæmdastjóri hjá MFA 1989-2002. Framkvæmdastóri Mímis-símenntunar fyrri hluta 2003 og framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins frá 16. júní sl. Börn eru Guðrún Lára Pétursdóttir og Elís Pétursson.
Meira
Framboð á viðskiptatengdu námi hefur aukist umtalsvert undanfarin ár. Mikill fjöldi ungs fólks hefur lagt leið sína í slíkt nám enda er sú hugmynd útbreidd að þar liggi leiðin að velsæld og betra lífi.
Meira
Flestir yfirlæknar Landspítala - háskólasjúkrahúss hafa fallist á ákvörðun stjórnarnefndar LSH varðandi störf yfirmanna utan sjúkrahússins og ákvörðun Sigurðar Björnssonar um að standa ekki við gerða samninga kom stjórnendum á óvart.
Meira
"KJARNI málsins er að yfirmaður á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, hvort sem um er að ræða yfirlækni, sviðsstjóra eða lækningaforstjóra, á ekki að vera með sjálfstæða atvinnustarfsemi, þar sem hætta er á hagsmunaárekstri," segir Magnús...
Meira
STARFSMENN norska fyrirtækisins Moelven Industrier AS framleiddu á dögunum húseiningu nr. 60.000 sem send er til Íslands til að verða hluti af vinnubúðum Landsvirkjunar á Kárahnjúkasvæðinu. Frá þessu segir á heimasíðu Kárahnjúkavirkjunar.
Meira
Bókarkafli Nafn Konráðs Gíslasonar (1808-1891) hefur lengi verið sveipað frægðarljóma í vitund Íslendinga, en Konráð átti m.a. þátt í stofnun tímaritsins Fjölnis. Hann telst upphafsmaður íslenskrar málræktar og segja má að hugmyndir hans hafi, er fram liðu stundir, valdið straumhvörfum varðandi viðhorf íslensku þjóðarinnar til eigin tungu og þjóðmenningar. Hér er gripið niður á nokkrum stöðum í frásögn Aðalgeirs Kristjánssonar af ævi Konráðs.
Meira
RÍKI heims hafa farið mjög ólíkar leiðir þegar kemur að því að setja fjármálamarkaðnum ramma. Reglur taka breytingum eftir því sem aðstæður breytast, stundum eru þær hertar, stundum er slakað á.
Meira
EINAR Karl Birgisson, verslunarstjóri verslunarinnar Zara í Smáralind segist hafa orðið var við fyrstu jólabylgjuna fyrir tveimur vikum. "Törnin byrjar fyrir alvöru eftir mánaðamótin, við erum að smáauka við mannskapinn hérna vinnuna.
Meira
HELGA Jónsdóttir, varaformaður Sambands íslenskra bankamanna, segist hafa merkt ákveðið upphlaup meðal bankamanna vegna atburðanna í tengslum við kaupréttarsamning æðstu stjórnenda Kaupþings Búnaðarbanka.
Meira
Skiptar skoðanir eru um hvernig lagasetningu varðandi vændi skuli háttað en þrjú sjónarmið virðast eiga mestu fylgi að fagna. Í fyrsta lagi að kaup á vændi verði ólögleg, í öðru lagi að vændi verði með öllu löglegt og í þriðja lagi að kaup og sala séu ólögleg. Halla Gunnarsdóttir kynnti sér málið og forvitnaðist um ólíka afstöðu fólks.
Meira
Í mörgum meðalstórum og stærri fyrirtækjum eru deildir sem halda utan um markaðs- og kynningarmál. Starfsmenn þessara deilda hafa oft afar vítt verksvið og þurfa því að hafa fjölbreytta kunnáttu og hæfileika auk þess að búa yfir þolinmæði og lipurð í samskiptum.
Meira
SKIPULAGS- og byggingarnefnd í Galway-sýslu á vesturströnd Írlands hefur sett óvenjuleg skilyrði fyrir heimild til byggingar á tólf nýjum íbúðarhúsum í þorpinu Carraroe á Connemara-skaganum.
Meira
Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands, leitar nú nýrra liðsmanna. Stórir aðilar yfirgáfu samtökin í kjölfar Kárahnjúkaumræðunnar og eins misstu þau mikilvægan tekjustofn. Guðni Einarsson ræddi við Tryggva Felixson framkvæmdastjóra um Landvernd og það sem helst ógnar íslensku umhverfi og náttúru.
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra hefur ritað utanríkisráðherrum Bretlands og Tyrklands vegna hryðjuverkaárásanna í Istanbúl á miðvikudag og vottað aðstandendum látinna og særðum samúð fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands. Utanríkisráðherra segir m.a.
Meira
Bann við vændi er til þess fallið að skapa meiri vanda en það leysir að mati Gunnlaugs Jónssonar í Frjálshyggjufélaginu. "Við höldum að það sé auðveldara að koma í veg fyrir mansal ef vændi er löglegt. Við leggjum m.a.
Meira
www.ljosmyndari.is stendur fyrir tveimur helgarnámskeiðum í ljósmyndun fyrir jólin. Helgina 29.-30. nóvember verður námskeið þar sem kennt verður á filmuvélar og farið í grunnatriði ljósmyndatækninnar o.fl. Helgina 6.-7.
Meira
Fangelsi í löndunum allt frá Haítí til Bólivíu eru orðin yfirfull vegna seinagangs í dómskerfinu, takmarkaðra fjárveitinga og skorts á pólitískum vilja
Meira
Ég er ósammála forsætisráðherra um að það þurfi sérstök lög um eignarhald á fjölmiðlum og að sumir megi eiga og aðrir ekki," segir Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, í pistli á heimur.is.
Meira
23. nóvember 1993: "Kjósendur í flestum sveitarfélögum landsins höfnuðu fyrirliggjandi sameiningartillögum svæðanefnda. Niðurstaðan er áfall fyrir sameiningu sveitarfélaga, sem sterk rök hníga að, og kann að seinka æskilegri þróun í þeim efnum.
Meira
Hörð gagnrýni á kauprétt tveggja af þremur æðstu stjórnenda Kaupþings Búnaðarbanka á hlutabréfum í bankanum hefur leitt umræður um stöðu og hlutverk bankanna og stórra viðskiptasamsteypna, sem hér hafa orðið til, inn á nýjar og að mörgu leyti jákvæðar...
Meira
Í Morgunblaðinu á miðvikudag var greint frá skýrslu, sem unnin hefur verið fyrir umboðsmann barna, þar sem lagðar eru til ýmsar lagabreytingar í því skyni að styrkja réttindi barna, þar á meðal til sjálfsákvörðunarréttar og friðhelgi einkalífs.
Meira
Endurgerð á hinni sígildu hryllingsmynd Keðjusagarmorðin í Texas hefur fengið feikigóð viðbrögð, en endurgerðargeirinn er viðkvæmur eins og mýmörg dæmi úr fortíðinni hafa sannað.
Meira
KVIKMYNDIN Sólmyrkvi í Kandahar er á dagskrá Sjónvarpsins í kvöld en um er að ræða íransk/franska mynd frá árinu 2001. Þar segir frá blaðakonunni Nafas, sem fæddist í Afganistan en flýði ung til Kanada með fjölskyldu sinni.
Meira
Verndarsjóður villtra laxastofna eða NASF (North Atlantic Salmon Fund) stóð á miðvikudagskvöldið fyrir miklum hátíðarkvöldverði í Vísindasafninu í Lundúnum. Orri Vigfússon er stjórnarformaður samtakana og sagði hann að um 500 gestir hefðu verið á...
Meira
Svartþungarokkið. Kallað "black metal" á ensku. Hæglega forvitnilegasti geiri þungarokks, undanfarin tíu ár. Innan hans hefur bæði verið orka, ferskleiki og nýsköpun; eitthvað sem vantað hefur á öðrum vígstöðvum.
Meira
Ómar Guðjónsson - Varma land inniheldur 13 lög eftir Ómar Guðjónsson þar sem lagagrunnurinn er léttur djass sem tekur á sig ýmsar myndir. "Skilar sú vinnsla sér í heilsteypta plötu sem svíkur engan sannan tónlistarunnanda," segir í kynningu.
Meira
Ragnheiður Gröndal nefnist nýr geisladiskur þar sem Ragnheiður flytur 13 þekktar djassperlur gamalla meistara eins og Duke Ellington, Thelonious Monk og Cole Porter.
Meira
KÓR Áskirkju flytur tvö verk á tónleikum í Áskirkju í dag kl. 17. Tónleikarnir eru hluti af tvöfaldri æfmælisdagskrá Áskirkju og eru hápunktur tónlistardagskrárinnar. Hinn 11.
Meira
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, er næsta heimsfræga persónan sem hlotnast mun sá heiður að verða á vegi Hómers nokkurs Simpsons. Fundur þeirra á sér stað þegar Hómer og fjölskylda hans leggja leið sína til Bretlands.
Meira
Daniel Ramos trompet, Juan Carlos Marín básúnu, Emilio Morales píanó, César Hechevarría Mustelier tresgítar, Jorge Louis Reyes, Adrián Ángel Gómez og Manuel Alejandro Mayor slagverk. Hljómsveitarstjóri, höfundur tónlistar og bassaleikari: Tómas R. Einarsson. Tekið upp í Havana á Kúbu í ágústbyrjun 2003. Blánótt 001.
Meira
Hvað varstu að horfa á? Jesús minn, hvað var ég eiginlega að hugsa á sínum tíma, var mikill aðdáandi Dallas- þáttanna og missti bara ekki af einum einasta þætti. Í dag skil ég ekki hvað ég var að hugsa því þessir þættir voru algjörar sápur.
Meira
Des hefur að geyma þekkt sígild jólalög með útsetningum og leik Gunnars Gunnarssonar organista. Platan er þriðja í röðinni í svonefndum skálm-stíl, hinir tveir eru Skálm og Á plötunni eru m.a.
Meira
SALURINN Uppselt var á útgáfutónleika Óskars Péturssonar vegna útkomu plötunnar Aldrei einn á ferð í Salnum í Kópavogi um síðustu helgi og verða tónleikarnir því endurfluttir í kvöld sunnudagskvöld kl. 20.
Meira
KAMMERKÓR Nýja tónlistarskólans og Kammerkór Reykjavíkur ásamt einsöngvurum halda tónleika í Selfosskirkju kl. 15.30 í dag, sunnudag. Tónleikarnir verða endurfluttir í Skálholtskirkju kl. 20.30 þá um kvöldið.
Meira
Það er alltaf gaman þegar menn hræra saman ólíkum tónlistarstefnum og búa til nýtt úr gömlu. Breska hljómsveitin Mountaineers er einmitt að reyna að gera eitthvað nýtt úr gömlu.
Meira
AUÐUNN Blöndal eða Auddi hefur unnið hug og hjörtu grínáhugamanna á Íslandi að undanförnu ásamt vini sínum Sveppa. Ástæðan er 70 mínútur , þáttur á PoppTíví, þar sem þeir félagar fara á kostum hvern virkan dag með sprelli og vel ígrunduðum fíflagangi.
Meira
ÆFINGAR eru hafnar á leikriti Hallgríms Helgasonar, Þetta er allt að koma, sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í febrúar. Á fyrstu æfingu afhenti Edda útgáfa aðstandendum sýningarinnar samnefnda skáldsögu.
Meira
ÞAÐ er skemmtilegt, að Morgunblaðið skuli verða vettvangur fyrir umræður á milli lögfræðinga um valdheimildir dómstóla og réttarheimildir, en með því hugtaki er átt við þann efnivið sem dómstólar mega nota við að komast að niðurstöðum í dómsmálum.
Meira
Þetta er inntakið í auglýsingum Atlantsskipa nokkra undanfarna daga í fjölmiðlum landsins. Sjómannafélag Reykjavíkur styður þessa hvatningu Atlantsskipa.
Meira
ÁLYKTUN landsfundar Samfylkingarinnar nýverið um að afnema beri tekjutengingu barnabóta virðist hafa komið Morgunblaðinu í nokkurt uppnám eftir leiðara blaðsins 4. nóvember sl. að dæma.
Meira
Réttlátir vinnuveitendur Gunnar Smári Egilsson barði sér á brjóst í fréttatíma Sjónvarpsins í umræðu um blaðburðarbörn. Taldi sitt fyrirtæki, Frétt ehf., gera vel við þau.
Meira
EF LITIÐ er á stærðfræðina í heild og þá sérstaklega framkvæmd stærðfræðilegrar vinnu má segja að hún skiptist í tvö aðalatriði, beinan reikning og síðan stærðfræðilega hugsun sem í skólastarfi er reynt að leggja áherslu á en því miður ekki með þeim...
Meira
Anna Brynjólfsdóttir fæddist á Hvanneyri 26. september 1906. Hún lést 24. september síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Reykholtskirkju 4. október.
MeiraKaupa minningabók
Ágústa Olga Þorkelsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 26. ágúst 1909. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi 14. nóvember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 21. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Gorm Erik Hjort fæddist í Stövring í Danmörku 11. september 1917. Hann lést í Árósum 16. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Arne Hjort læknir og kona hans Erna Claudía María Hjort. Gorm Erik giftist 24.
MeiraKaupa minningabók
75 ÁRA afmæli. Mánudaginn 24. nóvember verður sjötíu og fimm ára Guðný Sigurrós Sigurðardóttir, Miðtúni 86, Reykjavík. Guðný tekur á móti vinum og vandamönnum í dag, sunnudaginn 23. nóvember, milli kl 15 og 17 í sal Kiwanishússins við Engjateigi...
Meira
90 ÁRA afmæli . Í dag, sunnudaginn 23. nóvember, er níræður Bjarni Bentsson, fyrrv. yfirverkstjóri trésmiða við nýsmíðar og viðgerðir á eignum Flugmálastjórnar Íslands. Eiginkona hans er Unnur Jakobsdóttir. Þau eru að heiman í...
Meira
Fjórða síðasta spilið í úrslitaleik Ítala og Bandaríkjamanna féll í þremur hjörtum, sem unnust með yfirslag. Spilið var á hættunni og bæði pör grétu glatað geim. Þegar spil 126 kom á borðið var staðan: Ítalía 290, Bandaríkin 282. Spil 126.
Meira
Það er lýsing á Gapa greyi, gæti hún orðið skapfelleg: þá honum er riðið, hjálpar eigi hann að stilla, nær góðan veg fyrirliggjandi fær að sjá; frýsar, reigist og hoppar þá.
Meira
Grensáskirkja. Unglingastarf 9. og 10. bekkjar í kvöld kl. 19.30. Háteigskirkja. Eldri borgarar. Félagsvist á morgun í Setrinu kl. 13. Skráning í síma 5115405. Neskirkja. Foreldramorgunn miðvikudag kl. 10-12. Seltjarnarneskirkja. Æskulýðsfélagið kl.
Meira
Í dag er sunnudagur 23. nóvember, 327. dagur ársins 2003, Klemensmessa. Orð dagsins: "Því að þeim, sem hefur, mun gefið verða, og frá þeim, sem eigi hefur, mun tekið verða, jafnvel það sem hann hefur."
Meira
Tvennir kyrrðar- dagar á aðventunni Nú á aðventunni gefst gott tækifæri til þess í Skálholti að undirbúa sig andlega fyrir jólahátíðina, með því að draga sig í hlé frá þeirri streitu og því erfiða áreiti sem skapast hefur í þjóðfélaginu á jólaföstunni,...
Meira
Kirkjuárið gamla er brátt liðið; nýtt hefst á sunnudaginn kemur, 30. nóvember, þegar aðventan heilsar. Sigurður Ægisson veltir í dag fyrir sér ótímabæru jólaumstangi kristinna þjóða, sem kaupmenn af ýmsum toga eiga stærstan þátt í að koma á.
Meira
Guð lokaði sig af í einkavinnustofu sinni heima í Svítunni og ætlaði að skapa nýjan mann til að setja á Jörðina. Hann kom sér vel fyrir í djúpum hægindastól og smellti fingrum vinstri handar.
Meira
Við þekkjum öll ævintýrið góða sem endaði með því að fallega prinsessan fékk draumaprinsinn sinn og áttu þau börn og buru og lifðu hamingjusöm það sem eftir var.
Meira
Þ AÐ kemur eiginlega mest á óvart hvað hann er afalegur. Þessi mikli byssubófi og harðjaxl hvíta tjaldsins sem ógnaði harðsvíruðustu bandítum með því að reka ískalt stálhlaupið framan í þá spyrjandi hvort þeim fyndust þeir heppnir.
Meira
S agt er að ekki sé hægt að kaupa hamingjuna. Stundum er líka sagt að ekki sé hægt að kaupa status. Þannig að þrátt fyrir þau völd, áhrif og þægindi sem peningar geti fært fólki nú til dags eru viss eftirsóknarverð gæði í nútímanum ekki föl fyrir fé.
Meira
Þ að getur verið gaman að skoða hús, ganga um áhugaverða staði og velta umhverfinu fyrir sér. Margir gera það á ferðalagi um önnur lönd en síður hér heima.
Meira
Handa 2 2x225 g þorskflak, roðflett og beinin fjarlægð ólífuolía sjávarsalt og nýmalaður, svartur pipar 2 hnefar af rauðum og gulum dvergtómötum, skornum í helminga 1 hnefi af nýrri basilíku, bara blöðin 1 ný mozzarella úr vísundamjólk, skorin í þunnar...
Meira
Einar Þorsteinsson er 25 ára viðskiptafræðingur. Hann ólst upp í Breiðholti og flutti tólf ára í Kópavog. Hann býr nú í Smárahverfinu með Björgu Jónsdóttur kennara.
Meira
Í SUMAR héldu Magnús Valur Pálsson, Jóna Guðrún Jónsdóttir og börnin þeirra, Una María og Jón Páll, á vit ævintýranna í heim Astrid Lindgren í Smálöndum í Svíþjóð.
Meira
Enrico's Enrico's, bistro og vínbar. Laugavegi 3. Sími: 5520077. Andrúmsloft: Meðvitað sambland stíla og tímabila. Ágætlega hlýlegt. Mælt með: Nautamedalíurnar eru ágætar og það er spennandi þraut að snæða þær. Vínlisti: Mætti taka meira mið af matnum.
Meira
F yrir skömmu opnaði veitingastaðurinn Enrico's á Laugavegi í húsnæði þar sem skemmtistaðurinn Kaupfélagið var áður til húsa. Þrátt fyrir nafnið er Enrico's ekki ítalskur veitingastaður, raunar er mjög erfitt að staðsetja hann yfirhöfuð.
Meira
S igrún Úlfarsdóttir hannar töskur og skart úr fiskroði undir merkinu SIGRÚN. Hún steig fyrstu sporin í tískuheiminum undir handleiðslu Karl Lagerfeld, Swarovski og Hervé Léger.
Meira
Bill Cody The Fighting Gringo (1939), Stagecoach (1939), Outlaws of the Range (1936) Blazing Justice (1936) The Texas Rambler (1935) The Reckless Buckaroo (1935) Six Gun Justice (1935) Frontier Days (1934) Law of the North (1932) Ghost City (1932)...
Meira
Á hundasýningum líður sumum hundaeigendum eins og á aðfangadagskvöldi; það er hátíðarbragur yfir deginum. Þeir kyssast og óska hver öðrum gleðilegs sýningardags. Þeir forföllnustu sleppa jafnvel skírnum og jarðarförum.
Meira
Eins og aðrar þjóðir eigum við og höfum átt glæsilega fulltrúa í stóriðjuveri draumanna Hollywood. Frægastur núlifandi er að sjálfsögðu Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi, sem hefur búið í Los Angeles í áratugi við framleiðslu á kvikmyndum.
Meira
Já. Allar persónur bókarinnar eru framliðnar, fyrir utan Guð náttúrlega, sem sumir vilja þó telja til þess hóps. Ég virðist vera í einhverskonar eftirlífsfasa þessi árin; hef bara skrifað um látið fólk að undanförnu.
Meira
Sver það, leið svona eins og Starkaði í einræðunum eftir Einar Ben. eftir næstsíðustu helgi sem auðvitað endaði í miklu djammi á Hótel Íslandi, þar sem við félagarnir dönsuðum villt fram á rauðanótt. Rákumst ekki einu sinni á vini okkar, Norðmennina.
Meira
Almenningur sá þig síðast sem stigavörð í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Er ekki stórt stökk frá stigaverði í varaformann stjórnmálaflokks? Nei, nei.
Meira
LONDON Curzon Restaurant and Bar er nafnið á nýjum ítölskum veitingastað sem var opnaður í Mayfair-hverfinu í London fyrir skömmu. Hann er á tveimur hæðum.
Meira
Hótel í Barcelona Í sumar var hótelið Neri opnað í gotneska hverfinu nálægt Römblunni í Barcelona. Hótelið er í ævafornu húsi sem hefur allt verið tekið í gegn. Alls eru 22 gistiherbergi í húsinu og hvert þeirra hefur sitt þema.
Meira
Nú þegar áhrifa sjöunda áratugarins gætir svo mikið í tískunni er við hæfi að líta til fortíðar og rifja upp sögu breska hönnuðarins og búðareigandans Mary Quant.
Meira
Fólk spyr af hverju ég búi ein, af hverju ég sé ekki með manni. Ég spyr hins vegar á móti: Þarf maður það? Ég hef þá aldrei hitt þann mann. Ég er fullkomlega ánægð með lífið eins og það er.
Meira
Það er svolítið piparsveinalegt um að litast á heimili Hafsteins Hilmarssonar, 46 ára tæknifræðings, sem ætti ekki að koma á óvart þar sem hann hefur verið einhleypur alla tíð.
Meira
"Þeir sem lifa óvenjulegu lífi skrifa venjulegar bækur og þeir sem lifa venjulegu lífi skrifa óvenjulegar bækur," segir Hallgrímur Helgason rithöfundur í samtali við Þorstein J. í Tímariti Morgunblaðsins.
Meira
V ið mig hafði samband kona sem á barn sem þolir illa áreiti. "Dóttir mín er mjög viðkvæm á taugum," sagði konan. "Stúlkan lyndir ekki mjög vel við jafnaldra sína og þeir eru ekki sérstaklega góðir við hana.
Meira
S kjálftasumarið 2000 datt botninn endanlega úr hinni sívinsælu réttlætingu Rúv fyrir tilvist sinni að stofnunin væri eina Almannavarnaflauta þjóðarinnar. Og þá var ekki margt eftir til að hreykja sér af, enda stofnunin Rúv sér gengin.
Meira
Pilsin eru stutt í vetur og þá eru þau annaðhvort í anda sjöunda áratugarins, bein og með grafískum munstrum, eða leitað er í brunn þess níunda með skólastelpulegum stíl.
Meira
Ég er sá eini kristni í fjölskyldunni," segir Toshiki Toma, prestur innflytjenda. Toshiki er fæddur í Tókýó í Japan og var skírður til kristinnar trúar um tvítugt.
Meira
VÍN Vestur-Ástralía hefur fallið í skuggann af öðrum framleiðslusvæðum landsins. Sem er synd því vín þaðan eru yfirleitt jafnari að gæðum en vín frá t.d. Suður-Ástralíu.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.