STEFNT er að því að afgreiða frumvarp um eftirlaun æðstu embættismanna ríkisins á mánudag. Önnur umræða um málið fer fram á Alþingi í dag og hefur mestöll stjórnarandstaðan horfið frá stuðningi við málið.
Meira
EINSTÆÐ þriggja barna móðir í Breiðholti missti íbúð sína í eldsvoða í gær og situr uppi húsnæðislaus með ótryggða og stórskemmda íbúð. Eldurinn átti upptök sín í sjónvarpstæki sem var í gangi og tókst konunni að bjarga sér og börnum sínum út úr íbúðinni áður en Slökkviliðið kom.
Meira
FORSETI Frakklands, Jacques Chirac, sagði í gær að Frakkar myndu ekki sætta sig við róttækar breytingar á drögum að nýjum stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins.
Meira
REYKSKYNJARI vakti íbúa í húsi við Granaskjól í Reykjavík í gærmorgun og voru fjórir fluttir á slysadeild LSH í Fossvogi vegna gruns um reykeitrun eftir að eldur kviknaði í húsinu út frá eldavél.
Meira
SIR Mick Jagger, söngvari Rolling Stones, var sleginn til riddara í gær fyrir framlag sitt til tónlistarinnar og sést hér ásamt föður sínum, hinum 93 ára gamla Joe Jagger, eftir að hafa kropið fyrir Karli prins og þegið titilinn.
Meira
SAMKVÆMT lauslegum útreikningum má ætla að markaðsverðmæti Brims, sjávarútvegsarms Hf. Eimskipafélags Íslands sé 16 milljarðar króna, en í gær sendi stjórn Eimskipafélags Íslands frá sér tilkynningu þar sem segir að kanna eigi möguleika á sölu Brims ehf.
Meira
STEIKTAR kartöflur sem við köllum í daglegu tali franskar, eru alls ekki franskar heldur belgískar. Og bestu belgísku í heimi fást í Brussel, samkvæmt óvísindalegum skoðanakönnunum, sem m.a. hefur verið að finna í matreiðslubókum og dagblöðum.
Meira
FYRSTA rafræna læknabréfið var sent út á afmælishátíð Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í gær. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra sendi bréfið til Péturs Péturssonar yfirlæknis á Heilsugæslustöðinni á Akureyri.
Meira
ÍSLENSKU handknattleiksdómararnir Gunnar Viðarsson og Stefán Arnaldsson hafa fengið það hlutverk að dæma úrslitaleikinn á heimsmeistaramóti kvennalandsliða sem fram fer í Króatíu.
Meira
Á gangi jarðhæðar Smáralindar situr þessa dagana útlenskur listmálari og málar andlitsmyndir af Íslendingum í gríð og erg. Hann heitir Emil Zahariev, 29 ára Búlgari, en hefur undanfarin sex ár búið og starfað í Bretlandi.
Meira
"Brúðkaupið var augljóslega fréttnæmt því sjónvarpsmenn tóku það upp," segir Kolbrún Ólafsdóttur en Kyrjurnar sungu í sumar við brúðkaup í Dómkirkjunni í Massa á Ítalíu.
Meira
Með hverjum fórstu? "Konunni minni Birnu Einarsdóttur, veirufræðingi á rannsóknarstofu Landspítala - háskólasjúkrahúss, þremur samstarfskonum hennar og mökum þeirra." Hvað voruð þið að gera í Lyon?
Meira
NÍU Norðmönnum sem tengjast vélhjólasamtökunum Vítisenglum þar í landi hefur verið vísað úr landi aftur eftir að þeir voru stöðvaðir við komuna til landsins í gær ásamt tveimur liðsmönnum vélhjólaklúbbsins Fáfnis í Grindavík. Jóhann R.
Meira
FIMM ára börn úr fjórum leikskólum í Seljahverfi í Reykjavík komu saman í Seljakirkju í gær og sungu af hjartans lyst jólalög fyrir foreldra sína, yngri skólasystkin og leikskólakennara.
Meira
GUÐNI Elísson, lektor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, segir í viðtali í Lesbók í dag að vinnumatskerfið í skólanum sé fjandsamlegt vinnu við þýðingar og raunar enn frekar vinnu við ritstjórn.
Meira
STARFSMENN Konunglegu bókhlöðunnar í Kaupmannahöfn vinna nú að því hörðum höndum að útbúa geisladisk með upplýsingum um þær 1.400 verðmætu bækur sem enn er saknað úr safninu. Í vikunni var upplýst að ekkja fyrrv.
Meira
Aðalfundur Amerísk-íslenska verslunarráðsins , sem starfar á Alþjóðasviði Verslunarráðs Íslands, verður haldinn í Þingholti, Hótel Holti, mánudaginn 15. desember kl. 12-14.
Meira
Aðventutónleikar | Aðventutón leikar söngdeildar Tónlistarskóla Eyjafjarðar verða haldnir í Laugarborg í dag, laugardaginn 13. desember kl. 14. Fram koma nemendur deildarinnar og efnisskráin að mestu tengd aðventu og jólum.
Meira
SVERRIR Haukur Gunnlaugsson, sendiherra, afhenti hinn 11. desember, Guido de Marco, forseta Möltu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands á Möltu með aðsetur í...
Meira
Kaupþing Búnaðarbanki gaf Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur 4.000.000 kr. sl. fimmtudag. Sólon R. Sigurðsson og Hreiðar Már Sigurðsson, forstjórar Kaupþings Búnaðarbanka, afhentu Hildi G. Eyþórsdóttur, formanni Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, gjöfina.
Meira
G-strengur er ákaflega skjóllítil flík að dómi Friðriks Steingrímssonar í Mývatnssveit. Eitthvað voru menn þar um slóðir að velta þessu nafni fyrir sér og fundu nýtt orð eftir að hafa flett upp í orðabók.
Meira
SAMTÖK eigenda sjávarjarða hafa sent Kristni. H. Gunnarssyni, formanni sjávarútvegsnefndar Alþingis bréf, þar sem bent er á að Alþingi hafi, með lögum um línuívilnun, enn á ný ráðstafað úr sameiginlegri auðlind án samráðs við löglega meðeigendur.
Meira
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hefur komist að þeirri niðurstöðu í samráði við lögfræðinga Umhverfisstofnunar að ekki þurfi að endurgreiða rjúpnaveiðimönnum veiðikort þrátt fyrir alfriðun rjúpunnar.
Meira
Áhugasamir um Eyjagos | Gott innlegg í Íslandssöguna var meðal annars það sem gagnrýnendur Morgunblaðsins sögðu um fyrstu bók Axels Gunnlaugssonar, Eldgos í garðinum.
Meira
Danssýning í Smáralind. Nemendur frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar verða með danssýningu í Vetrargarðinum Smáralind sunnudaginn 14. desember kl. 13-14. Sýndir verða m.a. barnadansar, samkvæmisdansar, freestyle, break, línudans og diskódans.
Meira
ÁRÉTTAÐ skal vegna fréttar blaðsins í gær um dóm Hæstaréttar í máli Tryggingastofnunar ríkisins (TR) gegn Íslenska bæklunarlæknafélaginu (ÍB), að þrír hæstaréttardómarar af fimm mynduðu meirihluta dómsins í niðurstöðu þess efnis að fallast á dómkröfur...
Meira
Selfoss | "Ég vil alltaf vera bjartsýn og vona það besta. Ég vil sjá vinnu fara af stað við sjúkrahúsið á Selfossi svo ekki verði hér meira atvinnuleysi en nú er á næstu árum.
Meira
É g vakna ekki við vekjaraklukkur. Eftir öll þau ár sem ég hef vaknað við sjokkerandi upphafssetningar dagsins geta klingjandi vekjaraklukkur ekki nálgast það sem þarf til að draga mig á fætur.
Meira
BLÚSSVEITIN Blúsexpress heldur tónleika í Silla og Valdahúsinu í Aðalstræti í kvöld og hefst spilamennskan kl. 23. Sveitina skipa Gunnar Eiríksson, söngur og munnharpa, Matthías Stefánsson, gítar, Ingvi Rafn Ingvason, trommur og Árni Björnsson, bassi.
Meira
BÓKAVARÐAN hefur opnað jólamarkað í fyrrverandi húsakynnum Íslandsbanka við Hlemmtorg í Reykjavík. Þar eru á boðstólum bækur frá ýmsum forlögum sem pakkaðar eru inn í plast til jólagjafa. Þar má m.a.
Meira
Hveragerði | Nemendur í 6. bekk Grunnskólans hafa það hlutverk fyrir jólin að ganga upp að Garðyrkjuskóla og sækja jólatré. Hefð er fyrir þessari gjöf frá Garðyrkjuskólanum og prýðir tréð anddyri Grunnskólans á aðventunni.
Meira
SAMKVÆMT útreikningum Alþýðusambands Íslands kostar breytt eftirlaunakerfi forsætisráðherra, sem felst í frumvarpi um eftirlaun æðstu embættismanna, ríkissjóð 240 milljónir króna til viðbótar.
Meira
STJÓRN Eimskipafélags Íslands hefur í kjölfar athugunar ákveðið að kanna möguleika á sölu dótturfyrirtækis síns, Brims ehf., sem á og rekur sjávarútvegsfyrirtækin Skagstrending, Útgerðarfélag Akureyringa og Harald Böðvarsson.
Meira
EIMSKIP styrkir Barna- og unglingageðdeild Landspítala - háskólasjúkrahúss (BUGL), í stað þess að senda út jólakort til viðskiptavina sinna og ýmissa samstarfsaðila.
Meira
Grundarfjörður | Frá því seinnipart sumars hefur fyrirtækið Dodds ehf. unnið að stækkun Setbergskirkjugarðs í Grundarfirði. Samfara stækkuninni var ráðist í endurbætur á eldri hlutum garðsins.
Meira
ÖLDUNGURINN Elmer Courchene hreinsar Paul Martin með arnarfjöðrum að hefðbundum frumbyggjasið í gær, er Martin hafði svarið embættiseið forsætisráðherra Kanada. Martin tók við af Jean Chrétien, sem setið hafði í tíu ár.
Meira
Hún er dapurleg byrjunin hjá stjórnarflokkunum á þriðja kjörtímabilinu í samstarfi Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins. Sá síðarnefndi orðinn nánast óþekkjanlegur frá því sem fyrrum var.
Meira
FÉLAGSSTARF eldri borgara í Mosfellsbæ, afhenti nýlega Hjálparstarfi kirkjunnar peningaupphæð, sem er afrakstur af seldum munum á basar. Peningarnir eru ætlaðir til hjálpar þrælabörnum á Indlandi.
Meira
MATFUGL færði matarbúri Hjálparstarfs kirkjunnar 1.000 frosna kjúklinga sl. fimmtudag en þar stendur yfir úthlutun til bágstaddra Íslendinga. Tæplega 400 manns hafa sótt um það sem af er desember.
Meira
Búðardalur | Lionsklúbburinn í Búðardal gaf Dvalarheimilinu Silfurtúni sjúkralyftu nýlega. Er þetta kærkomin gjöf þar sem ekki var slík lyfta til áður og full þörf talin fyrir hana á heimilinu.
Meira
NÝLEGA afhenti stjórn Sjúkrasjóðs Höfðakaupstaðar heilsugæslunni á Skagaströnd nýtt tæki að gjöf. Tækið er leysitæki; Thor DD Lazer Therapy Unit, sem nýtist vel við verkjameðferð, einkum fyrir gigtarsjúklinga.
Meira
Í FRUMVARPI um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismenn og hæstaréttardómara eru sett almenn ákvæði um eftirlaunarétt hæstaréttardómara. Breytingarnar sem frumvarpið kveður á um veita hæstaréttardómurum sem gegnt hafa störfum við réttinn í...
Meira
ROLANDAS Paksas, forseti Litháens, hét því í gær að hann myndi ekki víkja úr embætti; sagði hann í viðtali við AFP -fréttastofuna að hinir raunverulegu sökudólgar kæmu í ljós í því kæruferli til embættissviptingar sem hafið er gegn honum á Litháenþingi.
Meira
Lúsíutónleikar í Seltjarnarneskirkju. Árlegir Lúsíutóleikar á vegum Sænska félagsins á Íslandi verða haldnir í kvöld kl. 19.30 í Seltjarnarneskirkju. Miðaverð er 600 kr. en ókeypis fyrir börn 12 ára og yngri.
Meira
EIGENDUR ullarþvottastöðvarinnar Ístex í Hveragerði hafa undirritað viljayfirlýsingu um að flytja starfsemina til Blönduóss að því er kemur fram í Húnahorninu, huni.
Meira
ÍSLENSK og bandarísk stjórnvöld munu ræða breytingar á varnarsamstarfi landanna strax eftir áramót. Douglas Feith, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, ræddi umbreytingu bandaríska heraflans í Evrópu við Halldór Ásgrímsson í gærmorgun.
Meira
GENGIÐ var í gær frá bindandi kaupsamningi milli Kaupþings Búnaðarbanka og Staka ehf., aðaleiganda Skinnaiðnaðar á Akureyri, á sútunarverksmiðjunni Loðskinni á Sauðárkróki.
Meira
Jólasveinn í kafarabúningi fóðrar sæskjaldböku í Sædýrasafni Pekingborgar í gær. Jólin verða sífellt vinsælli í Kína eftir því sem fólk þar í landi tileinkar sér í auknum mæli vestræna...
Meira
MEIRIHLUTI allsherjarnefndar Alþingis leggur áherslu á að tekið verði til athugunar hvort gera skuli breytingar á lögum um Kjaradóm þannig að hann geti framvegis ákvarðað álag á þingfararkaup í stað þess að sú ákvörðun sé í höndum þingmanna sjálfra.
Meira
Löngu fyrir þingkosningarnar í Rússlandi 7. desember var hægt að sjá niðurstöðuna fyrir: sigur stuðningsmanna Vladímírs Pútíns forseta úr Edinstvo (Einingu) sem nú heitir Sameinað Rússland.
Meira
Kuldagallakuldi | Fimmtudagurinn var kaldur á Norðurlandi. Svo lýsir JS fimmtudagsmorgninum á Húsavík á þingeyska fréttavefnum skarpur.is: "Kaldasti morgunninn um langt skeið.... . En morgunninn er ægifagur (orðið dregið af Ægi Eika)...
Meira
Selfoss | Kvenfélag Selfoss hélt sitt árlega jólakaffi á fimmtudag. Þá býður félagið til sín fólki úr samfélaginu og færir félögum og stofnunum gjafir.
Meira
Landsmót á Krókinn | Stjórn Ungmennafélags Íslands ákvað á fundi sínum 6. desember sl. að fela Ungmennasambandi Skagafjarðar að halda 7. unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands árið 2004. Unglingalandsmótið verður því haldið dagana 30. júlí til 1.
Meira
Launamunur | Á fundi jafnréttis- og fjölskyldunefndar Akureyrar í vikunni bar Þorlákur Axel Jónsson fram tillögu um að jafnréttisráðgjafa yrði falið að hafa samband við samtök launþega og atvinnurekenda um það hvaða þættir í kröfugerð þeirra og tilboðum...
Meira
Seltjarnarnes | Listaverkið Skaut er listaverk mánaðarins á Seltjarnarnesi. Verkið, sem er eftir Tryggva Ólafsson, var keypt árið 1989 af Lista- og menningarsjóði Seltjarnarness situr á vegg í bæjarskrifstofum Seltjarnarnesbæjar.
Meira
Blönduós | Jólahvammur á Blönduósi verður opinn í dag kl. 11-20. Þar verða til sölu og sýnis handverk eftir Húnvetninga. Jólahvammurinn er í Brautarhvammi (við þjóðveginn) í elsta verslunarhúsi Kaupfélags Húnvetninga, sem byggt var árið 1898.
Meira
Ljósahús valið | Menningar-, íþrótta- og tómstundasvið Reykjanesbæjar stendur fyrir samkeppni um Ljósahús Reykjanesbæjar 2003. Samkeppnin er haldin í samvinnu við Hitaveitu Suðurnesja, eins og undanfarin ár. Fram kemur á vef bæjarins, www.rnb.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm Héraðsdóms Norðurlands vestra frá 18. nóvember þess efnis að bú Ferskra afurða ehf. á Hvammstanga skuli tekið til gjaldþrotaskipta.
Meira
TVEIR hafa verið myrtir og tveir aðrir skotnir í átökum sem talin eru tengjast auknu sígarettusmygli í New York-borg, að því er blaðið New York Post greinir frá. Aukningin kemur í kjölfar hækkunar á skattlagningu á tóbaki.
Meira
NEMENDUR við Íþróttakennaraháskólann á Laugarvatni hafa kvartað undan hárri leigu í íbúðum Byggingarfélags námsmanna, einkum vegna þess að annað og ódýrara húsnæði er í boði, og hefur komið til uppsagna námsmanna á íbúðum vegna þessa.
Meira
MINNIHLUTI sjávarútvegsnefndar Alþingis telur að frumvarp sjávarútvegsráðherra, Árna M. Mathiesen, um línuívilnun sé allt vanreifað og stórgallað.
Meira
FORMAÐUR Læknafélags Íslands, Sigurbjörn Sveinsson, telur að verði starfsemi Landspítala - háskólasjúkrahúss dregin saman á næsta ári til að mæta 1.150 til 1.
Meira
BÍLABÚÐ Benna frumsýnir um helgina nýjan pallbíl frá Ssang-Young. Bíllinn er hannaður út frá sama grunni og Musso-jepparnir og er þetta í fyrsta skipti sem jeppa er breytt í pallbíl en ekki öfugt.
Meira
RÚMLEGA fimmtugur Ástrali sem ákærður er fyrir skjalafals og brot á lögum útlendinga með því að hafa í hagnaðarskyni aðstoðað tvær kínverskar stúlkur frá Kína til Bandaríkjanna var leiddur fyrir rétt í gær þar sem hann neitaði sakargiftum öðrum en þeim...
Meira
Á fundi jafnréttis- og fjölskyldunefndar í vikunni var tekið fyrir erindi frá Ásu Elísu Einarsdóttur, barnalækni á FSA, þar sem hún greinir frá átaksverkefni gegn offitu barna á Akureyri og óskar eftir stuðningi frá Akureyrarbæ í formi greiðslu launa...
Meira
LYFJAFYRIRTÆKIÐ Pfizer á Íslandi mun færa 13 samtökum á Íslandi gjöf fyrir jólin. Hvern dag fram að jólum munu jólasveinn koma með gjöf sem sjúklingar á Íslandi og aðstandendur þeirra njóta, en þeir gefa samtals 260.000 krónur.
Meira
"Ef ég væri ekki í ágætis andlegu jafnvægi hefði ég ekki skrifað þetta. Hvað þá birt þetta á Netinu. Þess vegna tók ekki langan tíma að skrifa og það var ekki erfitt.
Meira
ÞETTA eru mikil vonbrigði," sagði Gunnsteinn Björnsson, sölustjóri Loðskinns, um söluna til Skinnaiðnaðar á Akureyri en hann gerði Kaupþingi Búnaðarbanka tilboð í fyrirtækið ásamt fleiri starfsmönnum og Skagafjarðarveitum.
Meira
Garðabær | Rekstrarniðurstaða fjárhagsáætlunar Garðabæjar fyrir árið 2004 er jákvæð um rúmar 122 milljónir króna, segir í frétt frá meirihluta bæjarstjórnar.
Meira
REKSTRARVÖRUR hafa samið við Ríkiskaup um einnota hanska sem standa til boða þeim 400 stofnunum og fyrirtækjum ríkis og sveitarfélaga sem eru aðilar að rammasamningakerfinu. Um 10% rammainnkaupa hjá RV eiga sér nú stað rafrænt.
Meira
Mosfellsbær | Sextíu ár eru liðin frá því að Reykjaveita tók til starfa í Mosfellsbæ, en rúmlega helmingur þess heita vatns, sem er notað til húshitunar á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur á höfuðborgarsvæðinu, kemur frá veitunni.
Meira
STÆRSTA beltagrafa, sem flutt hefur verið til Íslands, var afhent í Þorlákshöfn í vikunni. Um er að ræða nýja gerð beltagröfu af gerðinni Caterpillar 385B.
Meira
Almenningur á Íslandi á ekki að greiða formönnum stjórnmálaflokka sérstök laun fyrir að gegna því embætti. Það á að vera á ábyrgð þeirra sem kjósa viðkomandi einstakling til forystu í sínum flokki.
Meira
KAUPMENN á Akureyri og félög hafa sameinast um að setja upp jólatré við Akureyrarkirkju. Þar hefur um áratuga skeið, eða í um hálfa öld, verið ljósum prýtt jólatré sem Kaupfélag Eyfirðinga hefur gefið og nokkur síðustu ár hefur Kaldbakur gefið tréð.
Meira
LEIÐTOGAR Evrópusambandsins (ESB) samþykktu í gær áform um að koma upp sjálfstæðri herstjórnarmiðstöð þaðan sem ætlunin er að stýrt verði hernaðaraðgerðum sem kann að verða gripið til í framtíðinni í nafni sameiginlegrar varnarmálastefnu sambandsins.
Meira
ENDURSKOÐENDUR bandaríska varnarmálaráðuneytisins sögðu í fyrradag, að dótturfyrirtæki Halliburtons, orkufyrirtækisins, sem Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, stýrði áður, hefði fengið 4,5 milljörðum ísl. kr.
Meira
Grindavík | "Það er alltaf mikið fjör hérna. Þú hittir hins vegar illa á núna því allar konurnar skruppu til Reykjavíkur," sagði Linda Oddsdóttir, eigandi handverkshússins Sjólistar sem er í gamla bænum í Grindavík.
Meira
FÉLAG náms- og starfsráðgjafa (FNS) sendir frá sér eftirfarandi ályktun vegna skýrslu um styttingu námstíma til stúdentsprófs: "Skýrsla um styttingu námstíma til stúdentsprófs boðar umfangsmikla endurskipulagningu á almennri bóknámsleið til...
Meira
VÍS veitti D-vakt og yfirmönnum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins viðurkenningu í gær fyrir snör viðbrögð og vasklega framgöngu við að ráða niðurlögum elds í húsi Landsbankans við Hafnarstræti 1. desember sl.
Meira
GEORGINA Stefansson, sonardóttir Vilhjálms Stefánssonar, landkönnuðar, kom með Frank Thistle, eiginmanni sínum, til landsins í gær í tengslum við útkomu bókar Gísla Pálssonar, prófessors, um Vilhjálm.
Meira
AFMÆLISHÁTÍÐ var á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri í gær þegar þess var minnst að 130 ár eru liðin frá upphafi sjúkrahúsrekstrar í bænum og einnig eru 50 ár liðin frá því starfsemi sjúkrahússins hófst á Eyrarlandsholti.
Meira
Miðborg | Hann Stekkjarstaur staulaðist til byggða í fyrrinótt og mætti svo í Þjóðmenningarhúsið um morguninn. Þar biðu eftir honum 128 börn frá Lauganesskóla, Álftaborg, Ingunnarskóla og Grandaskóla.
Meira
GENGIÐ var formlega frá kaupsamningi vegna viðskipta eigenda Greifans eignarhaldsfélags hf. á Akureyri vegna kaupa á Hótel KEA og Hótel Hörpu, en seljendur eru Kaldbakur, KER, VÍS og Flutningar.
Meira
MEIRA en 200.000 tölvur leituðu í nokkur ár að stærstu, þekktu frumtölunni og fyrir skömmu skaut henni loks upp á einkatölvu Michaels Shafers, námsmanns við Michigan State-háskólann í Detroit í Bandaríkjunum. Í henni eru 6.320.
Meira
WEN Jiabao, forsætisráðherra Kína, sakaði í gær Chen Shui-bian, forseta Taívans, um blekkingar og svikabrögð, en sá síðarnefndi ítrekaði að hann myndi ekki láta neinar hótanir frá meginlandinu verða til að hann félli frá þjóðaratkvæðagreiðsluáformum...
Meira
ÍSLENSK stjórnvöld stefna að því að undirrita nýjan fríverslunarsamning við Færeyjar snemma á næsta ári og mun hann taka gildi fyrir sumarið 2004. Þetta kemur fram í Stiklum, vefriti viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Meira
Gunnlaugur Björnsson fæddist á Akranesi hinn 7. maí 1958. Stúdent frá MR 1978 og BSc í eðlisfræði frá HÍ 1982. Kenndi þá í tvö ár, en lauk síðan doktorsnámi í stjarneðlisfræði frá Illinois-háskóla 1990. Vann síðan í fjögur ár við rannsóknir hjá Nordita, norrænni rannsóknarmiðstöð í eðlisfræði í Kaupmannahöfn, en hefur síðan ýmist kennt eða stundað rannsóknir á vegum HÍ eða Raunvísindastofnunar HÍ. Maki er Ástríður Jóhannesdóttir og eiga þau tvær dætur.
Meira
EINN af vetnisvögnunum sem Stætó BS notar á leið 2, Grandi-Vogar bilaði þegar hann var á Vesturgötu á vesturleið í gærdag. Reykur barst um vagninn og var hann rýmdur strax.
Meira
Þessir bekkir heimsóttu Morgunblaðið í tengslum við verkefnið Dagblöð í skólum. Dagblöð í skólum er samstarfsverkefni á vegum Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur sem Morgunblaðið tekur þátt í á hverju ári.
Meira
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir aðspurður að eftirlaunafrumvarpið hafi verið lagt fram með stuðningi formanna stjórnmálaflokkanna fimm sem eiga fulltrúa á Alþingi.
Meira
Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala - háskólasjúkrahúss, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hvorki fjármálaráðherra né heilbrigðisráðherra væru til viðræðu um að auka fjárveitingar til spítalans.
Meira
ÞÓRÓLFUR Árnason borgarstjóri opnar sýninguna Ólíkt - en líkt í Borgarskjalasafni Reykjavíkur, Grófarhúsi, kl. 15 í dag. Við opnunina flytur sönghópurinn Sex í sveit frá Grundarfirði nokkur alþýðulög undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar.
Meira
Bana Billa - I. hluti (Kill Bill - Vol. I.) Aðdáendur Tarantinos geta varpað öndinni léttar, meistarinn hefur engu gleymt. (H.J.) **** Smárabíó, Regnboginn.
Meira
ALMENN forsala að lokamynd Hringadróttinsþríleiksins hófst í gær í Smárabíó. Myndin nefnist Hilmir snýr heim eða The Return of the King og verður þetta stærsta frumsýning allra tíma á Íslandi, en myndin verður sýnd í tíu sölum.
Meira
HIÐ sívinsæla söngtríó Borgardætur sem skipað er þeim Andreu Gylfasóttur, Ellen Kristjánsdóttur og Berglindi Björk Jónasdóttur heldur jólatónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld, laugardagskvöld.
Meira
AÐ geta sagt til um staðsetningu sína er einn þáttur í að auka öryggi ferðamanna. Slysavarnafélagið Landsbjörg vill fræða og auka öryggi allra landsmanna með það að leiðarljósi að fækka slysum.
Meira
David Beckham greiddi rúmar 25 milljónir króna til að losna undan samningi við umboðsskrifstofu sína SFX og er nú á mála hjá Simons Fullers , umboðsmanni eiginkonu sinnar Viktoríu, en sá var heilinn á bak við heimsyfirráð Spice Girls og...
Meira
GRAND ROKK Hljómsveitin Atómstöðin (áður Tvö dónaleg haust) heldur útgáfutónleika í kvöld kl. 23.00 vegna nýrrar plötu, New York, Bagdad, Reykjavík . METZ Kynntur verður til sögunnar glæsilegur jólahlaðbar. NASA Miðnæturtónleikar með...
Meira
Stuðmenn semja og leika. Hallgrímur Helgason á einn texta og Jóhann Hjörleifsson aðstoðaði við slagverksleik. Stuðmenn skipa Egill Ólafsson, Ragnhildur Gísladóttir, Ásgeir Óskarsson, Tómas Tómasson, Þórður Árnason, Eyþór Gunnarsson og Jakob F. Magnússon. Addi 800 hljóðritaði og -blandaði. Stuðmenn stýrðu upptökum og útsetningum í samstarfi við Adda 800. Forritun var í höndum Arnþórs Örlygssonar en um hljómjöfnun sá Bjarni Bragi Kjartansson.
Meira
Einar St. Jónsson, Snorri Sigurðarson, Kjartan Hákonarson og Örn Hafsteinsson trompetar og flygilhorn; Samúel Jón Samúelsson, Björn R. Einarsson og Sigurður Þorbergsson básúnur; David Bobroff bassabásúnu; Sigurður Flosason, Stefán S.
Meira
Hvað varstu að horfa á? Nýja mynd eftir Tinnu Gunnlaugsdóttur, sem við unnum í sumar útí Hrísey. Myndin er sjónvarpsmynd og heitir Mynd fyrir afa og verður sýnd í Ríkissjónvarpinu á á jóladag. Hvað ertu að horfa á?
Meira
JÓLASKEMMTUN leikfélagsins Hugleiks 2003 verður í Kaffileikhúsinu í kvöld og annað kvöld kl. 20. Efnið er að mestu leyti frumflutt, bæði tónlist og leikþættir. M.a.
Meira
SJÖ ÁRA KLÁÐINN/ The Seven Year Itch (1955) Merkilega ferskur kynlífsfarsi miðað við aldur, enda í leikstjórn Billy Wilders. Svo er þetta myndin þar sem kjóllinn hennar Marilyn Monroe fer á flug. Bíórásin kl.
Meira
DANSTÓNLISTIN mun duna á skemmtistaðnum Kapital í kvöld þar sem plötuútgáfan New Icon Recors mun halda heljarinnar danspartí. Meðal þeirra sem sjá um að halda uppi stuði eru DJ Tommi White, DJ Grétar, DJ Margeir og DJ Doddi.
Meira
LEIKARAPRUFUR, viðtöl og tónlistarmyndbönd eru á meðal aukaefnis sem finna má á nýútkomnum mynddiski með myndinni Maður eins og ég eftir Róbert Douglas. Hljóð og mynd eru á stafrænu formi og hægt er að horfa á myndina með enskum texta.
Meira
R. Kelly og Beyoncé fengu flest verðlaun, eða fern hvort, á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í Bandaríkjunum í vikunni. 50 Cent var hins vegar tilnefndur í flestum flokkum og hlaut þrenn verðlaun.
Meira
Öld er nú liðin frá því að liðsmenn danska herforingjaráðsins hófu áratugalangt sprang sitt um grundir og mela Íslands í þeim tilgangi að kortleggja landið sem allra nákvæmast.
Meira
EINN af heitustu hipp hopp plötusnúðum New York borgar, Mark Ronson er staddur hér á landi og ætlar hann að spila á skemmtistaðnum Pravda í kvöld, laugardagskvöld.
Meira
ÞAÐ hefur vart farið framhjá nokkrum aðdáanda Írafárs að sveitin er búin að gefa út nýja plötu sem heitir Nýtt upphaf . Eins og tilheyrir hélt sveitin útgáfutónleika á dögunum í Austurbæ þar sem hún tók lögin af nýju plötunni og fleiri til.
Meira
BANDARÍSKI leikarinn Jason Biggs sem flestir þekkja úr unglingamyndunum vinsælu American Pie hefur lýst yfir áhuga á að leika aðalhlutverkið í myndinni Guy X sem Íslenska kvikmyndasamsteypan er að gera ásamt breskum og kanadískum framleiðendum.
Meira
Ákveðin vatnaskil urðu haustið 2001 þegar samgönguráðherra ákvað að beita sér fyrir að Alþingi veitti stóraukna fjármuni til kynningarmála í kjölfar hryðjuverkanna 11. september það ár.
Meira
Skýrsla Ríkisendurskoðunar staðfestir þá skoðun Samtaka verslunarinnar að það er ekki lyfjakostnaður heldur fyrst og fremst stóraukinn launakostnaður sem hefur sett rekstur LSH úr skorðum.
Meira
UM leið og undirritaður þakkar Morgunblaðinu fyrir vandaðan fréttaflutning af máli Hjálmars Björnssonar óskar hann fyrir hönd fjölskyldu sinnar eftir að koma eftirtöldum athugasemdum á framfæri vegna fjölmiðlaumræðu síðustu vikna: Réttarkrufning á...
Meira
... er þó aðalatriðið það að einkennilegar starfsaðferðir og furðulegar yfirlýsingar og skýringar fyrrverandi formanns skaði ekki nefndina meira en orðið er.
Meira
ÞAÐ VAR dapur og þreyttur forsætisráðherra, sem kom fram fyrir þjóð sína eftir langa andvökunótt fyrir um það bil mánuði síðan, og lýsti vandlætingu sinni yfir græðgi tveggja bankastjóra, hann fór síðan í bankann og tók út peninganna sína, 400 þúsund...
Meira
Örlagarík verslunarferð ÉG heiti Jóna Rún og er þriggja ára og ég fór með mömmu minni fyrir stuttu að versla í IKEA. Ég er orðin frekar stór þannig að ég sit ekki lengur í sætinu á innkaupakerrum heldur fer ég ofan í þær.
Meira
Auður Kristín Sigurðardóttir, Syðri-Úlfsstöðum í Austur-Landeyjum, fæddist á Kúfhóli í sömu sveit 6. janúar 1935. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 20. nóvember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Krosskirkju í Austur-Landeyjum 29. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Baldvin Grani Baldursson fæddist á Ófeigsstöðum í Kinn 29. júlí 1923. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 6. desember síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Bára Jónsdóttir fæddist á Akureyri 19. desember 1908. Hún lést á Dvalarheimilinu Lundi á Hellu 6. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson og Herdís Kristjánsdóttir kona hans.
MeiraKaupa minningabók
Gísli Helgason fæddist á Holtastíg 10 í Bolungavík 23. júlí 1938. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsi Ísafjarðar laugardaginn 6. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Anna Svandís Gísladóttir húsmóðir, f. 31.7. 1908, d. 26.7.
MeiraKaupa minningabók
Helga Kristín Sigurðardóttir fæddist á Hjalteyri við Eyjafjörð 30. júní 1944. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 4. desember síðastliðinn. Foreldrar Helgu voru hjónin Sigurður Árnason, f. 27. maí 1912, d. 22.
MeiraKaupa minningabók
Jóhanna María Gestsdóttir fæddist í Bakkagerði í Svarfaðardal 14. janúar 1925. Hún lést 15. ágúst síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Seltjarnarneskirkju 26. ágúst.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Helgi Þórðarson fæddist á Stöðvarfirði 16. júlí 1917. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 2. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Solveig María Sigbjörnsdóttir, f. í Vík í Fáskrúðsfirði 12. janúar 1885, d. 20.
MeiraKaupa minningabók
María Jóhannsdóttir fæddist á Hólmum í Reyðarfirði 25. maí 1907. Hún lést á sjúkrahúsinu á Ísafirði föstudaginn 5. desember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 12. desember.
MeiraKaupa minningabók
María Þorgrímsdóttir fæddist á Húsavík í S-Þingeyjarsýslu 22. júlí 1944. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Fossvogi að kveldi laugardagsins 23. ágúst síðastliðins og var útför hennar gerð frá Víðistaðakirkju 29. ágúst.
MeiraKaupa minningabók
Oddný Ólafía Sigurðardóttir, eða Lóa eins og hún var ætíð kölluð, fæddist í Hlíðarhúsi í Vestmannaeyjum 15. ágúst 1916. Hún lést á Hraunbúðum, dvalarheimili aldraðra í Vestmannaeyjum, sunnudaginn 7. desember síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Rögnvaldur Jónsson fæddist í Réttarholti í Skagafirði 29. ágúst 1908. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 1. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Flugumýrarkirkju 11. október.
MeiraKaupa minningabók
Karin Forseke, forstjóri Carnegie-fjárfestingarbankans, segir að engin frumútboð hlutabréfa hafi átt sér stað í 18 mánuði í Svíþjóð. Þóroddur Bjarnason hlustaði á erindi Forseke í Sunnusal í gær og ræddi stuttlega við hana um leiðtoga og myndlist.
Meira
STJÓRN Flugleiða hefur samþykkt að veita 19 stjórnendum félagsins kauprétt á hlutabréfum í félaginu 1. desember árið 2005 á því meðalgengi sem var á bréfum í félaginu síðastliðna fimm viðskiptadaga.
Meira
TELENOR hefur keypt 46,5% hlut í danska símafyrirtækinu Sonofon sem er næst stærsta símafyrirtæki Danmerkur, að því er fram kemur í Hálffimm fréttum greiningardeildar Kaupþings Búnaðarbanka.
Meira
50 ÁRA afmæli. Í dag, laugardaginn 13. desember, er fimmtugur Valbjörn Steingrímsson, Flúðabakka 27, Blönduósi. Eiginkona hans er Álfhildur R. Halldórsdóttir . Þau eru að heiman í...
Meira
60 ÁRA afmæli . Elías Steinar Skúlason, prentari , er sextugur í dag, laugardaginn 13. desember. Hann og kona hans, Kittý María Jónsdóttir, munu taka á móti gestum í sal Félags bókagerðarmanna, Hverfisgötu 21, á afmælisdaginn frá klukkan...
Meira
60 ÁRA afmæli. Á morgun, sunnudaginn 14. desember, verður sextug Anna Karelsdóttir til heimilis að Kirkjustétt 7a. Eiginmaður hennar er Sigurður Már...
Meira
70 ÁRA afmæli. Í dag, laugardaginn 13. desember, er sjötug Sigríður Atladóttir, Laxamýri Suður-Þing. Hún og maður hennar, Vigfús B. Jónsson , verða að heiman á...
Meira
70 ÁRA afmæli. Þorsteinn Þorsteinsson, Skálpastöðum, Borgarfirði verður sjötugur þriðjudaginn 16. desember. Hann tekur á móti gestum í veiðihúsinu við Grímsá í dag laugardaginn 13. desember frá kl....
Meira
80 ÁRA afmæli. Áttræður er í dag, laugardaginn 13. desember, Loftur Jóhannsson, áður vélstjóri við Ljósafoss . Í tilefni dagsins býður hann vinum og ættingjum að þiggja veitingar á heimili sínu, Smáratúni 19, Selfossi, í...
Meira
80 ÁRA afmæli. Í dag, laugardaginn 13. desember, er áttræð Guðrún Halldórsdóttir, Vallarbraut 6, Reykjanesbæ. Hún býður vinum og vandamönnum að koma og gleðjast með sér á afmælisdaginn í Selinu, Vallarbraut 4, á milli kl. 16 og...
Meira
90 ára afmæli Fríkirkjunnar í Hafnarfirði Á MORGUN, sunnudaginn 14. desember, eru liðin 90 ár frá vígslu Fríkirkjunnar í Hafnarfirði og verður boðið upp á hátíðardagskrá af því tilefni. Barna- og fjölskylduhátíð verður í kirkjunni kl.
Meira
"Þegar stjórnmálamenn grípa til aðgerða til að leysa tiltekið sértækt vandamál - ímyndað eða raunverulegt - þá er það yfirleitt gert með því að auka á vanda annarra."
Meira
BÓKASAFNIÐ í Gimli og deildir Þjóðræknisfélagsins í Gimli, Lundar og Winnipeg í Manitoba í Kanada hafa gefið íslenska verkefninu Bækur og móðurmál ýmsar kennslubækur og yndislestrarbækur og hefur þeim verið komið fyrir á Bókasafninu í Reykjanesbæ.
Meira
Stórfiskaleikur Bridsfélags Reykjavíkur á sunnudag Stórfiskaleikur er árviss viðburður á vegum Bridsfélags Reykjavíkur. Í næsta stórfiskaleik, sunnudaginn 14.
Meira
Greinar sem birst hafa á árinu Nr. Dags Titill Höfundur 488 10.5. Í sumarbyrjun Sigríður Hjartar 489 20.5. Sitkalúsafaraldur Guðríður Helgadóttir 490 8.6. Vorertur Sigríður Hjartar 491 15.6. Spennandi garðplöntur Guðríður Helgadóttir 492 20.6.
Meira
Tíminn líður mishratt í huga mannanna. Í lífi kornabarns virðist tíminn ekki skipta máli, hann bara er. Barnið vex og dafnar, þroskast með hverjum deginum, vikunni, mánuðinum, árinu. Og allt í einu er tíminn farinn að skipta máli, leikskóli, skóli.
Meira
Í dag er laugardagur 13. desember, 347. dagur ársins 2003, Magnúsmessa hin. s. Orð dagsins: Því að ekkert er hulið, sem eigi verður opinbert, né leynt, að eigi verði það kunnugt og komi í ljós.
Meira
Málaðu, systir! menn og dýr milli blómstra vanda; missirin gefa mörg og skýr munstrin þér til handa. Bústu svo við bónda þinn, bezt um pent að keppa, drag upp sögur og dæmi svinn og dikti fræga...
Meira
KYNNT hefur verið tillaga að minningarreit Þingvallakirkju í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum en stefnt er að því að opna reitinn formlega árið 2005.
Meira
Víkverji var á tónleikunum með bresku rokksveitinni Muse í Laugardalshöll á miðvikudag. Fínustu tónleikar, þótt einhvern neista hafi vantað, einhvern fítonskraft sem rokkhundur eins og Víkverji sækist eftir á slíkum rokktónleikum.
Meira
*ANTON Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson, milliríkjadómarar í handknattleik, fara til Valencia á Spáni í byrjun janúar og dæma þar tvær viðureignir í Evrópukeppni bikarhafa kvenna.
Meira
ARNÓR Atlason, stórskyttan efnilega hjá KA, er á leiðinni til Alfreðs Gíslasonar og lærisveina hans hjá Magdeburg í Þýskalandi. Þar ætlar hann að skoða aðstæður og æfa með liðinu. "Já, ég fer út á fimmtudaginn til að skoða aðstæður hjá Magdeburg.
Meira
EIÐUR Smári Guðjohnsen verður að öllum líkindum ekki með liði Chelsea í jólatörninni, sem fram undan er, en fyrirliði íslenska landsliðsins er enn á sjúkralistanum eftir meiðsli sem hann hlaut þegar samherji hans, Mario Melchiot, braut illa á honum á...
Meira
* GRÉTAR Rafn Steinsson miðjumaðurinn efnilegi í bikarmeistaraliði Skagamanna hefur gert samkomulag við ÍA að hann muni leika með áfram með liðinu svo framalega sem spilar hér á landi á næstu leiktíð.
Meira
ÓHÆTT er að segja að flestir hafi reiknað með öruggum sigri heimamanna í Grindavík - efsta liðs úrvalsdeildar karla, Intersportdeildar - þegar þeir tóku á móti botnliði ÍR í gærkvöldi.
Meira
* HLYNUR Bæringsson, körfuknattleiksmaður úr Snæfelli, hefur verið úrskuraður í eins leiks bann af aganefnd KKÍ en hann fékk brottrekstrarvillu í leik Snæfells og Njarðvíkinga fyrr í mánuðinum.
Meira
Í DAG verður dregið í riðla í Evrópukeppni landsliða í körfuknattleik og þá kemur í ljós hverjir verða mótherjar Íslands en riðlakeppnin hefst í september á næsta ári.
Meira
KEFLVÍKINGAR eru öruggir um að lenda ekki neðar en í þriðja sæti vesturdeildar Bikarkeppni Evrópu í körfuknattleik eftir að liðið vann frækinn sigur á franska liðinu Toulon í Keflavík á miðvikudaginn.
Meira
* NORSKIR fjölmiðlar eru harðorðir í garð Marit Breivik , þjálfara norska kvennalandsliðsins í handknattleik en liðið leikur í dag um 5. sætið á Heimsmeistaramótinu sem fram í fer í Króatíu .
Meira
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka í handknattleik komu til Créteil í Frakklandi rétt eftir hádegisbilið í gær en á morgun mæta Haukarnir liði Créteil í fyrri viðureign félaganna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa. Leikurinn hefst klukkan 15 að íslenskum tíma en Créteil, sem er í úthverfi Parísarborgar, er í 2.-3. sæti í frönsku 1. deildinni og stigi á eftir Chambery.
Meira
REAL Madrid og Bayern München drógust saman í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu en dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í gær. Ensku liðin Arsenal, Manchester United og Chelsea geta nokkuð vel við unað með mótherja sína. Arsenal mætir Celta Vigo frá Spáni, United leikur við Porto frá Portúgal og Chelsea leikur gegn þýska liðinu Stuttgart.
Meira
SVO getur farið að Schmeichel standi í markinu hjá Manchester City gegn Manchester United á Old Trafford. Það er ekki Peter Schmeichel, fyrrverandi fyrirliði og markvörður United, heldur Kasper sonur hans, sem er aðeins 17 ára.
Meira
Fyrstudeildarlið Breiðabliks í knattspyrnu fékk góðan liðsstyrk í gær en þá gekk Sverrir Sverrisson í raðir Kópavogsliðsins og skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Sverrir hefur leikið með Fylkismönnum undanfarin fjögur ár og þar áður með ÍBV.
Meira
ÍSLANDSMEISTARAR ÍBV í handknattleik kvenna leika báða leiki sína í Áskorendakeppni Evrópu gegn Etar Veliko 64 Tarnovo frá Búlgaríu í Vestmannaeyjum. Leikirnir fara fram laugardaginn og sunnudaginn 17. og 18. janúar.
Meira
"ÉG met möguleikana til jafns um það hvort ég verði áfram í KR eða fari til Stabæk," sagði knattspyrnumaðurinn Veigar Páll Gunnarsson í samtali við Morgunblaðið í gær.
Meira
KA tók á móti Gróttu/KR í gær í efstu deild karla í handknattleik, n-riðli RE/MAX deildar og hafði KA talsverða yfirburði þótt aðeins hefði munað fimm mörkum í lokin, 28:23. Bæði liðin voru með 14 stig fyrir leikinn og voru að keppa um að taka fleiri stig með sér í úrvalsdeildina eftir áramót. Það var aldrei spurning hvorum megin sigurinn lenti því KA-menn voru komnir með 10 marka forskot fljótlega í seinni hálfleik en þeir slökuðu á undir lokin.
Meira
Stuttgart - Chelsea Porto - Manchester United Real Sociedad - Lyon Celta Vigo - Arsenal Bayern München - Real Madrid Sparta Prag - AC Milan Deportivo La Coruna - Juventus Lokomotiv Moskva - Mónakó *Fyrri leikir fara fram 24./25.
Meira
ÖRN Arnarson bætti Íslandsmet sitt í 50 m baksundi í úrslitasundi á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Dublin á Írlandi. Örn varð sjöundi í úrslitasundinu, synti á 24,47 sekúndum og er það Íslandsmet.
Meira
"FÓLKIÐ sér ekki rökin fyrir því að færa kvóta af aflamarksskipum sem við erum að gera út á línu yfir á smærri línubáta, báta sem eru óöruggir í rekstri og skapa stopula vinnu," segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar-Fiskaness hf.
Meira
"VIÐ höfnum alfarið þessu frumvarpi, enda er það í engu líkt því sem lagt var af stað með í upphafi," segir Arthur Bogason, formaður Lands-sambands smábátaeigenda. Hann segir enga óeiningu innan sambands vegna línuívilnunarinnar.
Meira
Hildur Karen Jóhannsdóttir, sem er átta ára, er að lesa bókina Hrói bjargar jólunum eftir Roddy Doyle og finnst hún mjög skemmtileg. Við báðum hana um að segja okkur aðeins frá bókinni. Hvernig finnst þér bókin? Hún er spennandi og skemmtileg.
Meira
Sigurður Örn Þorsteinsson, sem er átta ára, er búinn að lesa nýjustu bókina um Benedikt búálf en hún heitir Höfuðskepnur álfheima og er eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson. Við báðum hann um að segja okkur aðeins frá henni.
Meira
Hér er hugmynd að jólaengli sem þið getið búið til og jafnvel gefið einhverjum í jólagjöf. Byrjið á því að klippa út stóra engilinn á myndinni og vængina sem eru stakir. Límið þetta á pappa og klippið síðan myndina á pappanum út.
Meira
Við fengum alveg ótrúlega mikið af flottum myndum í jólamyndasamkeppnina okkar og því höfum við ákveðið að veita nokkur aukaverðlaun auk bókarinnar Gralli gormur og litadýrðin mikla eftir Bergljótu Arnalds.
Meira
Vitið þið hvað jólahlaðborð er? Það má eiginlega segja að orðið sé gagnsætt af því að jólahlaðborð er eiginlega veisluborð sem er hlaðið af alls konar jólamat og svo má maður borða eins mikið af honum og manni sýnist.
Meira
Þessa dagana er að koma út mikið af spennandi geisladiskum. Einn af þessum geisladiskum er svolítið sérstakur af því að á honum eru íslenskar þjóðsögur og þjóðlög.
Meira
NÚ ER leikritið Benedikt búálfur eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson komið út á myndbandi þannig að nú hafið þið sem misstuð af því í leikhúsinu eða viljið sjá það aftur og aftur tækifæri til að eignast það á spólu.
Meira
Þá eru jólasveinarnir loksins farnir að tínast til byggða. Vonandi hafið þið öll fengið eitthvað fallegt í skólinn en ekki lent í því sama og konan í leikritinu Hvar er Stekkjastaur? eftir Pétur Eggertz.
Meira
Frumatriðið er að tala máli stráanna og dropanna, steinanna og alls sem vex í mold og brennur á báli. Ég tala líka máli asksins, mýsins og dýranna, allra fuglanna sem fljúga upp í þéttum hópum og fræsins í...
Meira
ÓPERA Reykjavíkur í samvinnu við Tjarnarbakkann-restaurant frumsýndi í gærkvöldi Carmen gala-kvöld í Iðnó. Þetta er þriðja sýningin á vegum Óperu Reykjavíkur frá því að starfsemi hennar hófst sumarið 2002.
Meira
Hið íslenzka fornritafélag er 75 ára á þessu ári. Auk þess eru 70 ár liðin frá því fyrsta útgáfa þess leit dagsins ljós, en það var Egils saga. SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR ræddi við forsvarsmenn félagsins, Jóhannes Nordal og Jónas Kristjánsson, um tilurð félagsins, sögu og útgáfu.
Meira
Mitt í jólastressinu og kapphlaupinu við að vera komin í mark klukkan sex á aðfangadagskvöld fréttist af leikhópi frá Noregi á leið til Íslands sem ætlar að sýna á Nýja sviði Borgarleikhússins á sunnudagskvöldið kemur.
Meira
UNDUR og stórmerki, góðir hálsar, Hólmsteinninn fellur á Gljúfrasteininn! Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifar bók um Halldór Kiljan Laxness! HHG leggur áherslu á að HKL hafi verið vondur kommi sem hafi þagað yfir illvirkjum Sovétkommúnismans.
Meira
Það fer frekar lítið fyrir greiningu íslenskra fjölmiðla á stjórnmálum einstakra ríkja og alþjóðakerfinu að undanskildum úttektum Morgunblaðsins og einstaka fréttaskýringum ríkisútvarpsins.
Meira
Hvaðan kemur orðið ‘brussa' um klaufskan kvenmann, hvað er tíska og hvað er langt milli Vopnafjarðar og Eyrarbakka í míkrómetrum? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum hefur verið svarað að undanförnu á Vísindavefnum og hægt er að lesa svörin á slóðinni www.visindavefur.hi.is.
Meira
Ísinn hefur frá aldaöðli tengst fimbulfrosti og norðangjósti, upphafi og heimkynnum jötna í norrænni goðafræði, enda vísar rúnin hugsanlega á illköld ísfljót sem féllu úr norðri í átt til brennandi elds Múspells í suðurálfu.
Meira
KAMMERKÓRINN Vox academica heldur sína árlegu aðventutónleika í dag kl. 17.00 í Neskirkju við Hagatorg. Á efnisskránni verða þekktir jólasálmar og aðventu- og jólalög. Má þar nefna lög eftir Báru Grímsdóttur, Atla Heimi Sveinsson, Hans Nyberg og J.S.
Meira
Laugardagur Fríkirkjan í Hafnarfirði kl. 17 Jólatónleikar Skátakórsins. Magnea Tómasdóttir sópransöngkona syngur nokkur einsöngslög og slær á létta strengi með kór og hljómsveit. Stjórnandi er Kirstín Erna Blöndal. Hallgrímskirkja kl.
Meira
RITHÖFUNDURINN A.S. Byatt sendi nýlega frá sér smásagnasafnið Little Black Book of Stories , eða Litla svarta sögubókin eins og heiti hennar gæti útlagst á íslensku.
Meira
Jóla- og aðventutónleikar Skálholtskórs undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar, organista og kórstjóra, verða haldnir í Skálholtskirkju í dag kl. 14 og 17.
Meira
Carnegie Art Award-sýningin 2004 var opnuð í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni, á fimmtudaginn var. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR skoðaði sýninguna í fylgd Ulriku Levén sýningarstjóra.
Meira
Einn af áhugaverðari rithöfundum samtímans, New York-skáldið Paul Auster, sagði í viðtali: "Fjölmiðlar bjóða okkur fátt annað en fræga fólkið, kjaftasögur og hneykslismál, og í sjónvarpi og kvikmyndum erum við farin að lýsa sjálfum okkur á svo...
Meira
Magnús Magnússon og Doris Lessing voru í hópi fyrirlesara á norrænni bókmenntakynningu í London í vikunni. DAGUR GUNNARSSON var á staðnum og hermir af því sem fram kom.
Meira
hafði aldrei hugleitt minningagreinar morgunblaðsins þó hafi skrifað fáeinar fyrr en vaknaði einn morgun snemma til að skrifa minningargrein um mig sjálfan lá beinast við þar sem sjálfur þekkti ég mig best og minnst í dögunarskímunni sætti ég mig fús...
Meira
I Í dag heldur höfundurinn fyrirlestur um upptök skáldskaparins á bókasafninu. Hann segir skáldskap afurð túlkandi hugar. Mig langar til að kalla fram í og segja að ég sé ekki sammála en sit á mér innan um allar bækurnar.
Meira
Saga kvikmyndalistarinnar er eftir bandaríska kvikmyndafræðinginn David Parkinson (ritstjóri: Guðni Elísson, þýðandi: Vera Júlíusdóttir) en hún kom út árið 1995. Í henni er rakin þróun hreyfimynda frá fyrstu skuggasýningunum til kvikmynda samtímans.
Meira
SANTA Maria della Scala sjúkrahúsið í Sienna hefur sl. sjö ár tekið gagngerum breytingum sem þó sér ekki fyrir endann á. Sjúkrahúsið sem rekið hefur verið af kaþólskri góðgerðarstofnun frá því á 14.
Meira
Allegretto villereccio Þetta miðvikudagskvöld í síðustu viku nóvembermánaðar er fyrsta kvöld þessa vetrar sem með réttu er hægt að kalla vetrarkvöld.
Meira
Minn er sveinninn svinni með sléttan maga og þétta hönd og hvelfdar lendar, herðar breiðar gerðar. Mánabirtan brúna brosir hrein við drósum. Veit hann vörum heitum, votum hvar skal...
Meira
Í þessari grein er fjallað um barnagælur eftir frú Stefaníu Siggeirsdóttur í Hraungerði en að dómi höfundar eru þær of áhugavert efni til að falla í gleymsku.
Meira
"Þessi árátta þrjú hundruð þúsund manna þjóðar að íslenska alla hluti þykir sumum óskiljanleg," segir Guðni Elísson sem stendur að útkomu sjö bóka með þýðingum á erlendum fræðiskrifum á sviði hugvísinda um þessar mundir en hann telur að í þessu þýðingarstarfi geti búið fræðilegur og vísindalegur styrkur. ÞRÖSTUR HELGASON ræðir við Guðna um mikilvægi þýðinga en jafnframt skort á þeim og skilningi á því að slík vinna sé mikilvæg fyrir íslenska þekkingarsköpun.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.