ÍSLENDINGAR hafa síðustu árin lagt fram fjármagn og vinnu sérfræðinga í verkefnum á sviði sóttvarna í Eystrasaltslöndum og hluta Rússlands, alls kringum 30 milljónir.
Meira
ÍSRAELAR hafa ástæðu til að óttast alþjóðlegar refsiaðgerðir vegna aðskilnaðarmúrsins á Vesturbakkanum. Kom þetta fram í gær hjá háttsettum ráðherra í Ísraelsstjórn, sem skoraði á hana "að skoða betur" legu múrsins.
Meira
FRAM kemur í rannsókn, sem er líklega sú fyrsta sinnar tegundar, að lukkugripir alls konar hafa sín áhrif - en að vísu aðeins í höfði þeirra, sem bera þá.
Meira
GEIMFAR frá bandarísku geimferðastofnuninni NASA lenti heilu og höldnu á reikistjörnunni Mars um klukkan hálf fimm aðfaranótt sunnudags. Sendi það frá sér útvarpsmerki rétt eftir lendingu sem staðfesti að hún tókst vel.
Meira
LJÓST þótti í gærkvöld, að Mikhail Saakashvili hefði verið kjörinn forseti Georgíu í kosningunum, sem þar fóru fram í gær. Fékk hann mikinn meirihluta atkvæða að því er fram kom í útgönguspám.
Meira
FJÖLMARGIR Borgfirðingar og aðrir velunnarar Kaupfélags Borgfirðinga fögnuðu 100 ára afmæli kaupfélagsins við hátíðarhöld í tilefni afmælisins í gær.
Meira
Spurning: Er hægt að rekja alvarlegar heilsufarsbreytingar til nokkuð löngu liðins streitu- og kvíðatíma? Svar: Svarið við spurningunni er að þetta er stundum hægt. Andleg og líkamleg líðan eru nátengdar.
Meira
THEÓDÓR Júlíusson leikari lenti í slæmu óhappi við æfingar á söngleiknum Chicago á dögunum þegar hann rakst í málmbita sem stakkst inn í vöðva á fæti. Hann hyggst þó halda áfram æfingum og leika áfram þau hlutverk sem hann er í.
Meira
ORKUVEITA Reykjavíkur (OR) stefnir að því að reisa nýja vatnsveitu í Grábrókarhrauni við Hreðavatn í Borgarfirði til þess að anna vaxandi eftirspurn eftir góðu ferskvatni á svæðinu frá Bifröst að Borgarnesi þar sem eru m.a. miklar sumarhúsabyggðir.
Meira
SAMNINGANEFND heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins mun koma saman eftir hádegi í dag til þess að fara yfir stöðuna í deilunni við sérfræðilækna.
Meira
HÆKKANDI hiti sjávar í kringum landið virðist hafa þau áhrif að ýmsar sjaldséðar fiskategundir veiðast nú norðar en nokkurn tíma fyrr, og segir Gunnar Jónsson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun, að meira sé farið að bera á suðrænum fiskum á...
Meira
Haft var samband við alla fjóra sem fengu bréf frá krökkunum í Laugarnesskóla. Ævar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sælgætisgerðarinnar Freyju, segist ekki munu svara bréfi barnanna.
Meira
ÞEGAR Þórhallur Þorsteinsson, sem rekur verslunina Uppgrip á vegum Olís í Fellabæ kom til vinnu í gærmorgun, mætti honum heldur óskemmtileg sjón. Brotist hafði verið inn í verslunina og lágu hlutir af lager á víð og dreif um gólfið.
Meira
Fyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands. Fyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands, Hvað er (um)heimur?, hefst nú að nýju eftir jólahlé. Þriðjudaginn 6. janúar heldur Kristín Loftsdóttir mannfræðingur erindi sem nefnist Bláir menn og ljósar konur.
Meira
KHI 1978 - Skakkir stigar, skilvindur og skóslit. B.Ed. kandídatar frá Kennaraháskóla Íslands 1978 koma saman á 2. hæð í Kaffi Reykjavík föstudaginn 16. janúar n.k. í tilefni aldarfjórðungsútskriftarafmælis á árinu sem leið.
Meira
Ef R-listinn í Reykjavík væri ekki aðeins tímabundið valdabandalag, laust við raunverulegar hugsjónir og lýðræðislegrar leikreglur, hefði samstarfi þessara flokka að öllum líkindum lokið árið 2003.
Meira
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, kom í gærmorgun í óvænta heimsókn til Íraks. Hann hefur verið í leyfi í Sharm el-Sheik í Egyptalandi með fjölskyldu sinni og flaug þaðan til Basra í suðurhluta Íraks þar sem breskt herlið fer með stjórnina.
Meira
Samstarf nokkurra þjóða á vegum Eystrasaltsráðsins um sóttvarnir hefur nú staðið í nokkur ár. Jóhannes Tómasson kynnti sér framlag íslenskra sérfræðinga í verkefninu. Þáttur þeirra er ekki síst á sviði berklavarna.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík var kvödd að húsi á Kjalarnesi aðfaranótt sunnudags vegna grunsemda um að maður væri að meðhöndla skotvopn undir áhrifum áfengis.
Meira
KOMIÐ hafa fram efasemdir um, að nægilega vel hafi verið staðið að öryggismálum hjá Flash Airlines, egypskum eiganda farþegaþotunnar, sem hrapaði í Rauðahaf á laugardag. Með henni fórust allir um borð, 148 manns.
Meira
FRÁ OG með næsta hausti munu farþegar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) geta greitt fyrir langtímabílastæði inni í flugstöðinni og gengið síðan eftir um 100 metra löngum undirgöngum að bílum sínum og ekið burt með því að renna miða gegnum sjálfvirkan...
Meira
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var á laugardag fengin til að sækja alvarlega veika konu til Ólafsvíkur. Var hún flutt til Reykjavíkur og á Landspítala við Hringbraut.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Frjálshyggjufélaginu: "Frjálshyggjufélagið harmar áform um lagasetningu varðandi hringamyndun í viðskiptum.
Meira
Við áramót er til siðs að staldra við og líta yfir farinn veg. Tilfinningin um þessi áramót er samt nánast sú sama og síðustu áramót og þau síðustu. Og jafnvel þau þar á undan. Á árinu 2003 breyttist fátt.
Meira
FORSVARSMENN Landsbanka Íslands og Íslandsbanka sjá ekki ástæðu til að bregðast sérstaklega við ákvörðun KB banka um lækkun færslugjalda debetkorta og segjast þegar veita viðskiptavinum sínum umbun með ýmsum hætti.
Meira
STJÓRN Höfuðborgarsamtakanna hefur óskað eftir upplýsingum frá samgönguráðuneytinu um hvaða hlutverki stýrihópur sem samgönguráðherra hefur skipað til að gera tillögu að nýrri framtíðarskipan flugmála á Íslandi á að gegna.
Meira
VIÐRÆÐUR á almenna vinnumarkaðinum um endurnýjun kjarasamninga hefjast af fullum þunga nú strax upp úr helginni en fundahöld hafa legið niðri frá því fyrir jól. Reiknað er með stífum fundahöldum alla þessa viku.
Meira
BOEING 737-þota frá Íslandsflugi lenti í gærkvöld á Egilsstaðaflugvelli með um það bil 130 starfsmenn Impregilo sem vinna við Kárahnjúka en vélin kom beint frá Lissabon.
Meira
ELDUR kviknaði í sendibíl í Kollafirði á sjötta tímanum í gærkvöldi og var Vesturlandsvegi lokað um tíma vegna þess. Að sögn lögreglu urðu ekki slys á fólki.
Meira
JÓN Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra segir það mjög miður að ekki skuli hafa náðst samkomulag milli samninganefndar Læknafélags Reykjavíkur og samninganefndar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins um nýjan samning um...
Meira
MINNI streita er helsta forsendan fyrir auknum lífsgæðum og mikilvægari en aukin laun. Kemur það fram í könnun, sem gerð var fyrir dagblaðið Aftenposten í Noregi.
Meira
NÝ dansnámskeið eru að hefjast hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru. Verður sem fyrr boðið upp á námskeið í barnadönsum, samkvæmisdönsum, gömlu dönsunum og fleiru fyrir fólk á öllum aldri jafnt byrjendur sem lengra komna.
Meira
ALMENNAR viðtökur við hugmynd Árna B. Stefánssonar, augnlæknis og hellakönnuðar, um útsýnispall í stórri hvelfingu inni í Þríhnúkagíg eru mjög jákvæðar.
Meira
Jörundur Guðmundsson fæddist á Akureyri 1957. Ólst þó upp í Reykjavík. Hann er BA í heimspeki frá Háskóla Íslands 1982 og MA í heimspeki frá Queens University í Kingston í Kanada 1983. Nam og við sama skóla til 1986. Hefur unnið við bókaútgáfu meira og minna síðan, sem forstöðumaður Háskólaútgáfunnar frá 1994. Maki er Jakobína Þórðardóttir og börn þeirra eru Auður, Guðmundur og Þórður.
Meira
VOPNAÐIR menn réðust inn á heimili í miðborg Reykjavíkur um tvöleytið í fyrrinótt og ógnuðu húsráðanda og gestum og börðu með kylfum og skammbyssu.
Meira
ÓLAFUR T. Árnason, skíðamaður í Skíðafélagi Ísafjarðar, var kjörinn íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2004 um helgina. Ólafur er 22 ára og landsliðsmaður í skíðagöngu og hefur nú um nokkurra ára skeið verið besti skíðagöngumaður landsins.
Meira
AFBRÝÐISAMIR eiginmenn, tortryggnir vinnuveitendur og iðnaðarnjósnarar ráða nú yfir verkfæri, sem þá hefur lengi dreymt um. Það er hugbúnaður, sem laumað er inn í einkatölvur og gefur síðan skýrslu um allt, sem þar fer fram.
Meira
Shahr-Banu Mazandarani, kona á tíræðisaldri, sem fannst á laugardag á lífi í húsarústum í Bam í Íran, átta dögum eftir að jarðskjálfti reið þar yfir, er óðum að ná sér.
Meira
"AÐ því er best er vitað, hafa kosningarnar farið skikkanlega fram og þátttaka verið góð," sagði Egill Ólafsson blaðamaður um forsetakosningarnar í Georgíu, sem fram fóru í gær.
Meira
RÚTA með erlenda ferðamenn á leið að Gullfossi og Geysi rann út af vegi skammt frá þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum síðla laugardags. Vegurinn var glerháll og margir ökumenn áttu í vandræðum á þessum slóðum. Enginn slasaðist.
Meira
FJÖLMENNING ehf. hefur um árabil sérhæft sig í starfstengdri íslenskukennslu og haldið sérsniðin námskeið fyrir fjölda fyrirtækja um land allt. Fjölmenning hefur þannig staðið fyrir kennslu hjá Granda hf.
Meira
HIÐ árlega bridsmót, kennt við Davíð Stefánsson frá Saurhóli, var haldið í Tjarnarlundi í Saurbæ sl. laugardag. Þetta er í níunda skipti sem Davíð býður til þessa móts.
Meira
Þegar menn hugsa um utanríkisstefnu Bandaríkjanna nú um stundir verður flestum fyrst hugsað til atriða sem snerta stríðið gegn hryðjuverkum: Enduruppbygginguna í Írak og Afganistan, erfiðleikana í Mið-Austurlöndum og hryðjuverkahópana sem leynast í...
Meira
HINN 3. jan. sl., milli kl. 15:00 og 17:30, var ekið utan í bláa Daihatsu Applause fólksbifreið þar sem hún stóð í stæði á annarri hæð bifreiðastæða við Kringluna í Reykjavík. Stóð bifreiðin í stæði móts við verslun Hagkaups.
Meira
Í byrjun desember var frá því skýrt í Viðskiptablaði Morgunblaðsins, að bankar og sparisjóðir mundu sennilega hafa nálægt einum milljarði í tekjur af þjónustu- og færslugjöldum vegna debetkorta.
Meira
Húsbréfakerfið, sem Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi félagsmálaráðherra, beitti sér fyrir á sínum tíma hefur gefizt vel og er sennilega bezt heppnaða breyting á opinberu húsnæðislánakerfi, sem hér hefur verið gerð.
Meira
Í Deiglunni er fjallað um íslenska kvennaknattspyrnu. "Um og uppúr 1970 byrjuðu konur að keppa í knattspyrnu en það var raunverulega ekki fyrr en áratug síðar sem kvennaknattspyrna festist í sessi.
Meira
KVIKMYNDIN Blueprint, þar sem Hilmir Snær Guðnason fer með eitt aðalhlutverkanna, fær ekki góða dóma í þýska vikuritinu Spiegel . Myndin, sem fjallar um fyrstu einræktuðu mannveruna, er sögð vera afkáralegt melódrama.
Meira
Bandarískir fjölmiðlar segja að poppstjarnan Britney Spears hafi gifst æskuvini sínum Jason Allen Alexander í kapellu í Las Vegas síðastliðinn laugardag. Þau Spears og Alexander eru bæði 22 ára gömul og ólust upp í Kentwood í Louisiana.
Meira
...Gítarleikari kanadísku rokksveitarinnar Rush lenti í útistöðum við lögreglumenn, hrækti blóði á einn þeirra og var handtekinn á nýársnótt eftir að sonur hans neitaði að yfirgefa sviðið á hóteli í Flórída, að sögn yfirvalda.
Meira
Leikstjóri: Magnús Viðar Sigurðsson. Handrit og viðtöl: Margrét Jónasdóttir. Tónlist: Máni Svavars. Myndataka: Ingi R. Ingason ofl. Storm 2003. Stöð 2 í des. 2003.
Meira
ÁSTRALSKI krókódílaveiðimaðurinn Steve Irwin mun ekki verða sóttur til saka fyrir að hafa haldið kornungum syni sínum nálægt skolti krókódíls, að sögn yfirvalda í Queensland.
Meira
HANN er hvorki sjónhverfingamaður né sjáandi en samt engum líkur. Bretinn Derren Brown getur lesið hugsanir fólks en segist samt ekki gæddur neinum yfirnáttúrulegum hæfileikum.
Meira
KALDALJÓS, kvikmynd Hilmars Oddssonar, eftir sögu Vigdísar Grímsdóttur, hefur verið valin opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg. Kvikmyndahátíðin í Gautaborg er sú stærsta á Norðurlöndum og þar eru sýndar um 400 myndir.
Meira
Hugtakið "estetík" (aesthetics) sem við þýðum yfir á íslenska tungu sem fagurfræði, má rekja til gríska orðsins aesthesis sem upphaflega þýddi "skynjun" eða "skilningur".
Meira
NÆSTU fjögur mánudagskvöld verður sýndur í Ríkissjónvarpinu bandarískur heimildarmyndaflokkur um hina voldugu Medici-ætt í Flórens á öldum áður. Árið 1434 komst hin ríka kaupmannsætt Medici til valda í Flórens og upphófst þá mesta blómaskeiðið.
Meira
SAFNPLATAN Betri tímar kom út er leið að hausti, en hún var gefin út til að styrkja Mæðrastyrksnefnd. Umsjónarmaður plötunnar er André Bachmann og fékk hann marga færa söngvara og hljóðfæraleikara til liðs við sig. M.a.
Meira
NÚ UM stundir er verið að eyðileggja ein mestu menningarverðmæti íslenskrar atvinnusögu og atvinnuuppbyggingar, gömlu hafnarmannvirkin í miðborg Reykjavíkur. Þar er hjarta borgarinnar, þar er í dag smábátahöfn fiskimanna, togaraútgerð og fiskmarkaður.
Meira
Í MÖRG ár hefur Pétur Blöndal talað um fé án hirðis og skilgreint, sem fjársjóð sem enginn eigi. Munaðarlaust fjármagn og ávöxtunin eftir því. Í sambandi við fjármagn litu ýmsir á Pétur sem góða hirðinn.
Meira
Það ber að hafa það í huga að greiðsluþátttaka TR vegna sjúkrakostnaðar er ekki ölmusa, eins og sumir virðast telja, heldur endurgreiðsla vegna greiddra iðgjalda almennings til stofnunarinnar.
Meira
Toyota takk-ar EKKI minna en heilsíðu hér í Morgunblaðinu sunnudaginn 21. desember sl. (bls. 7) lætur starfsfólk Toyota sér nægja undir eitt orð, þ.e. dönskuslettuna takk. "Lítilla sæva og lítilla sanda" segir í Hávamálum.
Meira
Herborg Arndís Sölvadóttir fæddist á Sléttu í Sléttuhreppi í Norður-Ísafjarðarsýslu 29. nóvember 1914. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð aðfaranótt 30. desember síðastliðins.
MeiraKaupa minningabók
Elsku Ellý frænka. Ég kveð þig með miklum söknuði og þakka innilega hvað þú varst mér, bæði þegar ég var lítill peyjagutti og eins, og þá ekki síður, eftir að ég varð fullorðinn.
MeiraKaupa minningabók
Ellý Björg Þórðardóttir fæddist í Vestmannaeyjum 13. apríl 1936. Hún lést á heimili sínu á aðfangadag jóla. Foreldrar hennar voru hjónin Þórður Halldór Gíslason netagerðarmeistari, f. 20. júní 1898 í Sjávargötu á Eyrarbakka, d. 17.
MeiraKaupa minningabók
Erling Örn Pétursson fæddist á Sauðárkróki 11. október 1945. Hann andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 24. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Pétur Helgason, f. 4.2. 1905, d. 12.3. 1980, og Ingibjörg Jónsdóttir, f. 5.4. 1908, d. 11.8.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Jónsdóttir fæddist í Hvammi í Landsveit 5. jan. 1904. d, 9. sept. 1963. Foreldrar hennar voru Jón Gunnarsson og Ólöf Jónsdóttir. Hún giftist sr. Sigurði Z. Gíslasyni 1927. Haustið 1927 vígðist sr. Sigurður til Staðarhólsþinga í Saurbæ.
MeiraKaupa minningabók
Hjálmfríður Ólöf Þorsteinsdóttir fæddist í Neðri-Miðvík í Aðalvík í N-Ísafjarðarsýslu 15. janúar 1916. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík að kvöldi 20. desember síðastliðins. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Bjarnason, f. 16.7. 1892, bóndi í Neðri-Miðvík,...
MeiraKaupa minningabók
Kormákur Sigurðsson var fæddur í Reykjavík 6. september 1924. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi hinn 23. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Haralz, f. 13.4. 1901, d. 1985, og Jóhanna Einarsdóttir, f. 5.4. 1898, d. 1982.
MeiraKaupa minningabók
Lilja Sigurjónsdóttir fæddist á Krókvöllum í Garði 31. júlí 1926. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 10. desember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Langholtskirkju 19. desember.
MeiraKaupa minningabók
Margrét Guðmundsdóttir fæddist á Eskifirði 12. júlí 1913. Hún lést á Landspítalanum 21. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðlaug Ingibjörg Einarsdóttir og Guðmundur Jóhannesson, kaupmaður á Eskifirði.
MeiraKaupa minningabók
Margrét Theodóra J. Frederiksen fæddis á Blönduósi hinn 1. mars 1917. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ, hinn 17. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðný Hjartardóttir, f. 25. ágúst 1884, d. 15.
MeiraKaupa minningabók
Sigurlaug Jóhannsdóttir fæddist á Hóli í Þorgeirsfirði í Fjörðum í Grýtubakkahreppi í Þingeyjarsýslu 7. júní 1907. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík að morgni 28. desember síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Minningargreinar Morgunblaðsins eru oft á tíðum safn upplýsinga um liðnar kynslóðir og eru þær vonandi varðveittar á einhvern hátt. Ekki vil ég láta nafn föður míns, Yngva Finnbogasonar frá Sauðafelli, liggja utan garðs á þeim vettvangi.
MeiraKaupa minningabók
GREININGARDEILD Landsbankans telur þær kröfur sem stéttarfélög hafi sett fram um launahækkanir á almennum vinnumarkaði séu hærri en samrýmst geti verðstöðugleika á næstu árum.
Meira
Í dag er mánudagur 5. janúar, 5. dagur ársins 2004. Orð dagsins: En halt þú stöðuglega við það, sem þú hefur numið og hefur fest trú á, þar eð þú veist af hverjum þú hefur numið það.
Meira
Ríkismanns mig rak að setri, ráðin engin þekkti betri, af sulti kominn mjög í mát. Sá ég vera soðið slátur, sál mín rak upp skellihlátur, og gufuna með græðgi át. Einmitt var það allur greiði, eg sem hlaut af krásar seyði; dró ég mig á beizla bát.
Meira
VAR áramótaskaupið svona slæmt? Víkverji hefur vart hitt nokkurn mann sem er ánægður með skaupið. Víkverji hefur af því nokkrar áhyggjur hvað hann ætlar að reynast jákvæður á nýja árinu. Honum fannst áramótaskaupið nefnilega fínt.
Meira
FABIAN Barthez, landsliðsmarkvörður Frakka í knattspyrnu, byrjaði vel með Marseille á laugardaginn en hann er kominn þangað sem lánsmaður frá Manchester United.
Meira
Bikarmót Markús Árnason, Víkingi, og Kristín Ásta Hjálmarsdóttir, KR, urðu sigurvegarar í einliðaleik á bikarmóti sem fór fram í íþróttahúsi KR í gær, sunnudaginn 4. janúar. Markús vann Kristján Jónasson, Víkingi, í úrslitaleiknum, 4:0.
Meira
TELFORD United hélt merki utandeildaliðanna á lofti í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu á laugardaginn. Telford gerði sér lítið fyrir og sigraði 1.
Meira
BRYNJAR Björn Gunnarsson var á ný í byrjunarliði Nottingham Forest, eftir fimm leiki á varamannabekknum, og spilaði allan leikinn þegar lið hans lagði WBA að velli, 1:0, í ensku bikarkeppninni á laugardaginn.
Meira
CELTIC er komið með ellefu stiga forskot í skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir öruggan sigur á erkifjendunum í Rangers, 3:0, á laugardaginn.
Meira
HERMANN Hreiðarsson og félagar í Charlton geta einbeitt sér að úrvalsdeildinni það sem eftir er vetrar. Þeir féllu óvænt út á fyrstu hindrun í ensku bikarkeppninni á laugardaginn þegar þeir töpuðu fyrir nágrönnum sínum í 1. deildarliði Gillingham, 3:2. Þrátt fyrir góða frammistöðu í úrvalsdeildinni á undanförnum árum, þar sem liðið er nú í fjórða sæti, gengur Charlton jafnan illa í bikarleikjum gegn lægra skrifuðum liðum.
Meira
* DAVID Beckham meiddist á fæti á laugardag þegar Real Madrid sigraði Real Murcia , 1:0, í spænsku 1. deildinni. Sauma þurfti fjögur spor í ökkla Beckhams sem missir væntanlega af bikarleik liðsins í vikunni. Það var Raúl sem skoraði eina mark leiksins.
Meira
FANNAR Ólafsson, landsliðsmiðherji í körfuknattleik, spilar með Keflvíkingum það sem eftir er keppnistímabilsins og verður löglegur með þeim frá og með 12. janúar.
Meira
STJARNAN úr Garðabæ varð á laugardaginn bikarmeistari karla í blaki þegar liðið lagði ÍS 3:2 í miklum og spennandi úrslitaleik þar sem Stjarnan hafði betur, 15:12 í oddahrinu. Leikið var í íþróttahúsinu Austurbergi.
Meira
* FRANSKA íþróttadagblaðið L'Equipe skýrði frá því á laugardag að Liverpool hafi fest kaup á Djibril Cisse , sóknarmanni Auxerre og franska landsliðsins í knattspyrnu.
Meira
GRINDVÍKINGAR hafa fengið bandaríska stúlku til liðs við kvennalið sitt í körfuknattleik. Kesha Tardy lék sinn fyrsta leik með Grindvíkingum á laugardaginn, lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 16 og var mætt til leiks í Keflavík klukkan 17.15.
Meira
NJARÐVÍK varð í gærkvöldi fyrst liða til að leggja Grindvíkinga í úrvalsdeildinni í körfuknattleik karla. Þeir grænklæddu höfðu betur, sigruðu 104:95, en staða efstu liða breytist ekkert við þessi úrslit.
Meira
TUTTUGASTA nýársmót fatlaðra barna og unglinga í sundi fór fram með gusugangi og glæsilegum sundsprettum í Sundhöllinni í gær. Að komast alla leið var sumum auðvelt en fyrir aðra litlu minna afrek en erfið fjallganga. Fyrstu setningar þegar bakkanum var náð voru því af ýmsum toga; "í hvaða sæti var ég?" eða "ég er svo þreyttur" og aðrir gleymdu að koma alveg í mark - fannst meira til um öll fagnaðarlætin.
Meira
HEIÐAR Helguson og Eiður Smári Guðjohnsen voru í sviðsljósinu á laugardaginn þegar lið þeirra, Watford og Chelsea, skildu jöfn, 2:2, í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Sérstaklega Heiðar sem skoraði mark, reyndar afar umdeilt, strax á 5. mínútu, en hann gerði varnarmönnum Chelsea lífið leitt allan tímann. Eiður Smári skoraði fyrra jöfnunarmark Chelsea, úr vítaspyrnu.
Meira
JANICA Kostelic, skíðadrottningin frá Króatíu, verður ekkert með í heimsbikarnum í vetur. Hún veiktist í haust af skjaldkirtilssjúkdómi en hóf þó æfingar í desember. Þá var hún undanfari á heimsbikarmóti á Ítalíu, en við það ágerðust gömul hnémeiðsli.
Meira
MÖLTUBÚAR, sem eru meðal mótherja Íslendinga í undankeppni HM, ætla að koma vel undirbúnir til leiks þegar keppnin fer af stað í haust. Þeir hafa þegar tryggt sér fimm vináttulandsleiki fyrri hluta ársins og vonast til að þeir verði enn fleiri.
Meira
ÞORVALDUR Makan Sigbjörnsson, fyrirliði KA, skrifaði undir þriggja ára samning við Fram á laugardaginn, eins og sagt var frá í blaðinu í gær. Þorvaldur sagði við Morgunblaðið eftir að samningurinn var frágenginn að hann ætti von á að Fram myndi vegna betur næsta sumar en á undanförnum árum þar sem liðið hefur hvað eftir annað sloppið naumlega við fall úr úrvalsdeildinni.
Meira
TEITUR Þórðarson samdi um helgina við norska 2. deildarliðið Ull/Kisa um að þjálfa það á komandi keppnistímabili. Teitur er með mikla reynslu úr norsku úrvalsdeildinni, var síðast með Lyn en áður með Brann og Lilleström. Hann sagði við Morgunblaðið í gær að það væri mjög spennandi verkefni að taka að sér lið Ull/Kisa og áskorun fyrir sig að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem þar ætti sér stað.
Meira
ÁRNI Gautur Arason, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, var í gær orðaður við norsku úrvalsdeildarfélögin Vålerenga og Fredrikstad í norska blaðinu Adresseavisen. Árni Gautur er sem kunnugt er laus allra mála hjá Rosenborg í Noregi en ekkert varð af því að hann færi til Sturm Graz í Austurríki eins og til stóð.
Meira
CLAUDIO Ranieri, knattspyrnustjóri Chelsea, var að vonum ekki ánægður með þá ákvörðun dómara og aðstoðardómara að úrskurða að Heiðar Helguson hefði skorað mark fyrir Watford á 5. mínútu í bikarleik liðanna á laugardaginn.
Meira
VALERO Rivera, þjálfari handknattleiksliðs Barcelona, sem eru núverandi Spánarmeistararar, hefur ákveðið að hætta þjálfun liðsins í vor þegar leiktíðinni lýkur.
Meira
HAUKAR hafa fengið annan Bandaríkjamann til liðs við sig í úrvalsdeildinni í körfuknattleik karla. Sá er Whithey Robinson, lítill og snaggaralegur bakvörður sem er æskuvinur Michaels Manciels, leikmanns Hauka.
Meira
* SIMEN Muffentangen hefur líklega leikið sinn síðasta handboltaleik - alltént fyrir AaB í Danmörku . Hinn 32 ára gamli Norðmaður fótbrotnaði í leik með liðinu um helgina og var skorinn upp og verður að taka sér langt hlé.
Meira
MANCHESTER United og Arsenal, toppliðin í ensku knattspyrnunni, komust bæði í 4. umferð bikarkeppninnar í gær - bæði eftir að hafa lent undir á útivöllum gegn liðum úr úrvalsdeildinni. Manchester United bar sigurorð af Aston Villa, 2:1, og Arsenal lagði Leeds að velli, 4:1, þrátt fyrir að hafa fengið á sig skrautlegt mark á upphafsmínútum leiksins. Arsenal hefur unnið bikarinn undanfarin tvö ár og á möguleika á að verða fyrsta félagið í 118 ár til að sigra í keppninni þrjú ár í röð.
Meira
TÚNISBÚAR unnu óvæntan sigur á alþjóðlegu handknattleiksmóti sem fram fór á þeirra heimavelli í Túnis um helgina. Túnisbúar, sem halda heimsmeistarakeppnina á næsta ári, sigruðu Svía 30:28 og lögðu einnig Tékka að velli en biðu lægri hlut fyrir Frökkum.
Meira
RIVALDO, hinn kunni brasilíski knattspyrnumaður, hefur samið við Al Ittihad í Sádi-Arabíu til sex mánaða, ef marka má forráðamenn félagsins sem tilkynntu þetta á blaðamannafundi á laugardaginn.
Meira
ANDREA Gaines, þjálfari og leikmaður kvennaliðs Njarðvíkur í körfuknattleik, er ekki komin til landsins eftir jólafrí og óvíst er hvort og þá hvenær hún kemur. Samkvæmt upplýsingum Njarðvíkinga er hún í fangelsi í Maryland en þangað fór hún 18. desember.
Meira
ÞÓRSARAR úr Þorlákshöfn hafa fengið til sín tvo nýja bandaríska körfuknattleiksmenn í staðinn fyrir þá Billy Dreher, leikmann og þjálfara, og Ray Robins, sem hættu með félaginu fyrir jól.
Meira
Garðabær - Hjá Fasteignastofunni er nú til sölu mjög glæsilegt endaraðhús í Hæðunum í Garðabæ. Húsið stendur við Draumahæð 6 og er skráð alls 159,1 fm. Ásett verð er 27,5 millj. kr. Húsið skiptist þannig, að 1. hæð er 70 fm., bílskúr er 22,2 fm.
Meira
Á Ísafirði eru fjögur 18. aldar hús sem hafa verið endurgerð og hýsa tvö þeirra Byggðasafn Vestfjarða og þjóna sem móttökusvæði fyrir bæjarstjórn. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við Jón Sigurpálsson, forstöðumann Byggðasafns Vestfjarða, sem stjórnaði endurgerð húsanna en hönnuður endurgerðarinnar var Hjörleifur Stefánsson arkitekt.
Meira
ERIKAN er fjarskyld frænka beitilyngsins íslenska. Hún er raunar algengust hér í verslunum á haustin en hefur þann eiginleika að geymast vel þurrkuð, hún er til víða í húsum margra ára gömul og furðulega vel útlítandi.
Meira
Það er ágætt að geta snyrt hár heimilisfólks ef mikið liggur við og jafnvel séð um klippingar ef handlagni er fyrir hendi. Hér má sjá ágæt tæki til þess arna, nokkuð volduga rakvél, greiðu og góð klippingarskæri.
Meira
Þetta sérkennilega hornhús í miðbæ Þórshafnar í Færeyjum hýsir nú nýtt veitingahús. Þetta er steinhús og að innanverðu er veitingastaðurinn skreyttur listaverkum eftir hinn þekkta færeyska Trónd...
Meira
Stórt og þekkt atvinnuhúsnæði vekur ávallt mikla athygli, þegar það kemur í sölu, ekki sízt ef það er á hentugum stað. Hjá Fasteignamarkaðnum er nú til sölu húsnæði Hampiðjunnar við Bíldshöfða 9 í Reykjavík.
Meira
Fáar þjóðir búa við eins gott atlæti hvað varðar húsakost eins og við Íslendingar, við búum öll í vönduðum húsum með örugga og góða upphitun og næga raforku til lýsingar og til að knýja öll þau fjölbreyttu tæki sem verða, eftir kröfu tímans, að vera á...
Meira
Klippimyndir af fólki voru einu sinni mjög vinsælar, einkum á ofanverðri 19. öld. Nú kunna fæstir að búa til svona myndir enda þarf listamannshandbragð til.
Meira
Saga hússins er samofin sögu Laugavegar. Þar var veitingahúsið Fjallkonan og um árabil var húsið í eigu Náttúrulækningafélagsins. Freyja Jónsdóttir fjallar hér um sögufrægt hús við Laugaveg.
Meira
Listaverk þetta í suðurenda göngugötu Akureyrar (Hafnarstræti) er eftir Stefán Jónsson. Listaverkið heitir Kjarvali 2 (Fjallamjólk). Stefán er borinn og barnfæddur Akureyringur og starfandi listamaður þar í...
Meira
Litli-bær í Súðavíkurhreppi var reistur 1895 af tveimur vinafjölskyldum sem bjuggu upphaflega hvor í sínum hluta hússins. Í kringum húsið er tún með steinhleðslu í kring og er það um 3 hektarar.
Meira
Eftirspurn eftir lóðum í Hveragerði hefur verið það mikil, að vart hefur verið hægt að anna eftirspurninni. Mikill áhugi er því á nýjum lóðum, sem Hveragerðisbær auglýsir nú í svonefndu Hraunbæjarlandi, en þar er um tólf einbýlishúsalóðir að ræða.
Meira
Reykjavík - Hjá fasteignasölunni Foss er nú til sölu glæsilegt 148,6 ferm. endaraðhús með innbyggðum 29,7 ferm. bílskúr. Húsið er á einni hæð og stendur við Maríubaug 61.
Meira
Nýibær er dæmi um miðlungsstóran torfbæ af norðlenskri gerð. Sú gerð torfbæja kom fram á 19. öld og einkennist af því að burstir snúa fram á hlað en bakhús liggja hornrétt á bæjargöng.
Meira
Ásókn í lóðir í Hveragerði er meiri en reiknað hafði verið með. Magnús Sigurðsson kynnti sér lóðaframboð í bænum, en í boði eru lóðir undir einbýlishús, parhús og raðhús.
Meira
Rekaviðardrumbar eru stundum hirtir og notaðir til skrauts innanhúss sem utan. Stundum eru þeir líka sérkennilegir í laginu og þess vegna skemmtilegir í stofur.
Meira
Mosfellsbær - Góðar eignir í Mosfellsbæ vekja ávallt athygli þegar þær koma á markað. Hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar er nú til sölu húsið Tígulsteinn sem er rúmgott einbýlishús, 131,3 ferm., ásamt 49,6 ferm.
Meira
Veski og töskur af ýmsu tagi taka talsvert pláss í skápum og hillum, þess vegna er ágæt lausn að hengja þessa gripi upp á góða snaga þar sem ekki ber mikið á þeim en fljótlegt er að grípa til...
Meira
Greiðslumatið sýnir hámarksfjármögnunarmöguleika með lánum Íbúðalánasjóðs miðað við eigið fé og greiðslugetu umsækjenda. Forritið gerir ráð fyrir að eignir að viðbættum nýjum lánum s.s.
Meira
Kristinn Kristjánsson, sölumaður hjá fasteignasölunni Gimli, er búsettur í Hveragerði og selur eingöngu fasteignir þar. "Yfirleitt er mjög auðvelt að selja eignir hér," segir Kristinn.
Meira
HRAÐFRYSTIHÚSIÐ-Gunnvör gerir út ísfiskskipin Pál Pálsson og Stefni, ísrækjuskipin Framnes og Andey og frystitogarann Júlíus Geirmundsson. Auk þess gerir fyrirtækið út þrjá minni báta á innfjarðarrækju.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.