DÚNMJÚKUM snjó kyngdi niður á Akureyri í gærdag. Þar sem veðrið var stillt notuðu margir bæjarbúar tækifærið; fengu sér sunnudagsgöngu og nutu þess að vera úti í fersku loftinu.
Meira
STEFNT er að því að kanna möguleika á að Latibær fái inni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, hugsanlega í þeirri mynd að byggt verði lítið þorp sem minni á Latabæ.
Meira
ALVARLEG kreppa skapaðist í írönskum stjórnmálum í gær þegar valdamiklir íhaldssinnar bönnuðu um 80 þingmönnum, sem allir eru umbótasinnar, að bjóða sig fram í kosningunum sem fram fara í landinu í næsta mánuði.
Meira
Það þarf að leggja hart að sér til þess að ná árangri í íþróttum og Andy O'Brien, leikmaður Newcastle United, bar sig vel eftir að hann fékk bylmingshögg í andlitið í viðureign liðsins við Manchester United í gær.
Meira
FJÖLSKYLDU- og húsdýragarðurinn ráðgerir að sækja um leyfi til að reisa nýtt hús í garðinum. Auk þess er stefnt að því að fjölga tækjum og dýrategundum. Meðal þeirra dýra sem mikill áhugi er á að fá eru ísbirnir.
Meira
ÞRJÁR B757 þotur Icelandair eru nú í viðhaldsstöðinni á Keflavíkurflugvelli, ein vegna viðgerðar og tvær eru í svokallaðri C-skoðun sem fram fer eigi sjaldnar en á 18 mánaða fresti.
Meira
ÞESSARI litlu snót, Karitas Dís, lá heldur betur á að komast í heiminn og segja má að foreldrarnir, Sigurjón Þór Sigurjónsson og Karitas Þráinsdóttir úr Kópavogi, hafi síst vitað hvaðan á sig stóð veðrið þegar þau lögðu upp í ökuferð á föstudagskvöld sem...
Meira
LANGFLESTIR virðast telja að börn hafi ekki nein áhrif á möguleika karla á vinnumarkaði en liðlega sex af hverjum tíu telja að barneignir hafi almennt neikvæð áhrif á möguleika kvenna á vinnumarkaði.
Meira
Spurning: Nýlega greindist ég með sjúkdóminn torticollis, sem nefndur er hallinsvíri á íslensku og er sjúkdómur í hálsvöðvum. Hvað veldur þessum sjúkdómi, hvernig þróast hann, er hægt að halda honum niðri eða lækna hann, t.d. með lyfjameðferð?
Meira
ÞÓR Sigfússon, framkvæmdastjóri Verzlunarráðs Íslands, bendir á það í grein á miðopnu í blaðinu í dag að án sérstakrar umræðu eða almennrar athygli hafi sífellt fleiri stoðum verið rennt undir þá þróun að Ísland geti orðið að fjölmyntahagkerfi.
Meira
Vonandi kemur bráðum það mikill snjór upp til fjalla að hægt verði að bregða sér á skíði eða bretti. Þá er nauðsynlegt að vera með skíðagleraugu til að vernda augun og til að sjá betur.
Meira
DRENGUR sem vó rúmlega 25 merkur eða um sex og hálft kíló, fæddist á fæðingardeild Landspítalans annan í jólum og er annað af tveimur börnum sem vegið hafa meira en sex kíló við fæðingu á Íslandi sl. tíu ár. Meðalfæðingarþyngd íslenskra barna er um 3.
Meira
"Ég vildi ekki vera með neina sérstaka túlkun á Halldóri Laxness," segir Hannes H. Gissurarson. Gunnar Hersveinn sat fund ævisagnahöfunda í ReykjavíkurAkademíunni sem segjast ekki komast hjá því að endurskapa og túlka ævi og störf þeirra sem ritað er um.
Meira
*UNNUR Anna Valdimarsdóttir varði doktorsritgerð sína hinn 28. maí 2003 við Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Andmælandi við doktorsvörnina var dr. Colin Murray Parkes frá Bretlandi og prófdómari Timo Hursti, dósent við Uppsalaháskóla.
Meira
LÖGREGLAN handtók alls átta manns um helgina í tengslum við vopnað bankarán í SPRON í Hátúni á föstudag. Fyrst voru tveir menn handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald á laugardagskvöld en þeir hafa ekki játað á sig ránið.
Meira
Arnar Másson er fæddur í Reykjavík 15. ágúst 1971. Hann er stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1992 og BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1995. MA í sama fagi frá The London School of Economics árið 1997. Arnar er sérfræðingur í árangursstjórnun hjá fjármálaráðuneytinu. Eiginkona Arnars er Guðlaug Hauksdóttir viðskiptafræðingur og eiga þau einn son, Dag Tjörva, sem er fæddur árið 2000.
Meira
HARÐUR árekstur varð á Ólafsfjarðarvegi í Dalvíkurbyggð síðdegis í gær þegar fólksbifreið og sendibifreið sem kom úr gagnstæðri átt skullu saman.
Meira
Könnun í BA-ritgerð um barneignir og vinnumarkaðinn leiðir margt forvitnilegt í ljós, m.a. að konur eru mun oftar en karlar spurðar í atvinnuviðtölum um hagi barna sinna. Björn Jóhann Björnsson skoðaði ritgerðina og ræddi við höfund- inn, Henný Hinz hagfræðing.
Meira
Útlit er fyrir að bensín hjá Atlantsolíu muni klárast á næstu dögum vegna mikilla viðskipta, en Hugi Hreiðarsson hjá Atlantsolíu segir að viðtökurnar sem bensínsala fyrirtækisins hefur fengið séu ævintýri líkastar.
Meira
DANSKIR og íslenskir vopnasérfræðingar í Írak biðu í gær komu bandarískrar sérsveitar sem skorið getur úr um hvort sprengjukúlurnar sem fundust skammt frá borginni Basra á föstudag innihalda efnavopn, eins og frumniðurstöður benda til.
Meira
Á undanförnum vikum hefur mikið verið rætt um aukna samþjöppun og hringamyndun í íslensku atvinnulífi. Stjórnvöld hafa lýst því yfir að þau ætli að leyta leiða til þess að bregðast við þessari þróun.
Meira
Undanfarnar vikur hafa farið fram miklar umræður í fjölmiðlum og manna á meðal um eignarhald á fjölmiðlum hér á landi og vaxandi merki hringamyndunar á ýmsum sviðum viðskiptalífsins.
Meira
Án sérstakrar umræðu eða almennrar athygli hefur sífellt fleiri stoðum verið rennt undir þróun þess að Ísland geti orðið að fjölmyntahagkerfi. Hér er um að ræða þróun sem getur haft gífurleg áhrif á íslenskt samfélag. En hverjar eru þessar stoðir?
Meira
ERLENDUM hjúkrunarfræðingum sem hingað koma til starfa reiðir í mörgum tilfellum vel af í starfi, einkum eftir að hafa náð ákveðinni færni í tungumálinu, en nauðsynlegt er þó að veita þeim lengri og betri aðlögun.
Meira
STJÓRN Læknafélags Reykjavíkur (LR) segir Garðar Garðarsson, formann samninganefndar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og forseta kjaradóms, blekkja bæði almenning og stjórnmálamenn landsins með málflutningi sínum í fjölmiðlum.
Meira
HVAMMSGIL í Mýrdal er ein af þessum perlum á Íslandi sem fáir vita af. Gilið er töluvert djúpt en þó nánast gróið alveg upp á brúnir. Í gilinu má víða finna alls konar hella og göt í gegnum kletta. Krákugil er þvergil sem liggur út úr Hvammsgili.
Meira
NÆSTUM helmingur jarðarbúa telur að synir sínir og dætur muni búa í óöruggari heimi, samkvæmt nýrri rannsókn Heimsviðskiptastofnunarinnar sem lét kanna viðhorf fólks til öryggis- og efnahagsmála í 51 landi.
Meira
ÍTREKAÐ hefur verið brotist inn í skip hjá Ólafi Arnberg Þórðarsyni, skipstjóra á Eldhamri GK, og stolið deyfilyfjum úr lyfjakistu skipa hans, en slíkt hafði alvarlegar afleiðingar fyrir skemmstu þegar engin deyfilyf voru tiltæk þegar skipverji missti...
Meira
SIGURÐUR Gylfi Magnússson sagnfræðingur í ReykjavíkurAkademíunni, sem fylgdist með blaðamannafundinum á laugardaginn sagðist í samtali við blaðamann í gær, sunnudag, hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með greinargerð Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar sem...
Meira
ÚTIBÚ KB banka í Hveragerði og körfuknattleiksdeild Hamars í Hveragerði hafa gert með sér samkomulag um stuðning KB banka við körfuknattleiksdeildina.
Meira
RÖNG mynd birtist í Morgunblaðinu í gær vegna fréttar um andlát sænsku leikkonunnar Ingrid Thulin. Á myndinni sem birtist var leikkonan Gunnel Lindblom, sem er síður en svo látin og leikur enn í kvikmyndum.
Meira
VÉL frá British Airways nauðlenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli rétt eftir kl. 18 í gær en flugmaður vélarinnar sendi frá sér lægra stig neyðarkalls kl. 17.20 vegna brunalyktar og lítilsháttar reykjar í miðju farþegarými.
Meira
Friðargæsluliðar fyrir utan hús Radovans Karadzic í bænum Pale í Bosníu í gær. Karadzic, sem eftirlýstur er fyrir stríðsglæpi, var leitað í bænum um helgina eftir að ábending barst til friðargæslusveita Atlantshafsbandalagsins um að hann væri þar.
Meira
MAÐURINN sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi á móts við Gunnarshólma á laugardag, hét Óskar Andri Sigmundsson, til heimilis að Stórholti 15 á Ísafirði. Hann var fæddur 5. október 1979 og lætur eftir sig unnustu.
Meira
LÍÐAN mannsins sem liggur á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut eftir sundlaugarslys í Breiðholtslaug á miðvikudagsvöld, er óbreytt. Er honum haldið sofandi í öndunarvél.
Meira
Kristinn Kjærnested, framkvæmdastjóri Atlantsskipa, segir að það hafi óveruleg áhrif á rekstur félagsins að hafa ekki fengið íslenska hluta flutninganna fyrir varnarliðið í útboði til næstu fimm ára.
Meira
VIKUBLAÐIÐ Fréttir í Vestmannaeyjum hefur haft þann sið síðustu þrettán ár að veita viðurkenningar í byrjun árs þeim sem hafa skarað fram úr á einhverju sviði á nýliðnu ári.
Meira
Ég er auðvitað mjög ánægð með þessa viðurkenningu og árið 2003 er það besta til þessa hjá mér en markmiðið er að gera betur," sagði sundkonan Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir eftir að kjöri á íþróttamanni ársins á Akranesi var lýst á þriðjudaginn.
Meira
BANDARÍSKA kaffihúsakeðjan Starbucks mun nú í vikunni gera atlögu að hinni víðfrægu kaffimenningu Parísarborgar þegar fyrsta Starbucks-kaffihúsið verður opnað þar. En er ekki öllum sama um það - nema ef til vill hörðustu kaffisérfræðingum?
Meira
AHMED Qurei, forsætisráðherra Palestínumanna, sagði í gær að Palestínumenn hefðu ekki fallið frá þeirri hugmynd að deila þeirra við Ísraela yrði m.a. leyst með því að viðurkennd yrðu tvö sjálfstæð ríki, Ísrael og Palestína.
Meira
SKÍÐAFÓLK tók snjókomu helgarinnar fagnandi og streymdi í tuga tali á skíði víðs vegar um landið. Skíðasvæðið í Bláfjöllum var opið alla helgina og færið gott.
Meira
SÍMTÖL gjaldeyrismiðlara og verðbréfamiðlara eru hljóðrituð í Íslandsbanka, KB banka og Landsbanka Íslands. Að sögn forsvarsmanna bankanna þriggja eru upptökurnar til þess fallnar að sanna viðskiptin.
Meira
LESENDUR Morgunblaðsins fengu ekki allir sunnudagsblaðið með sömu forsíðu. Þegar fréttist af fundi íslenskra sprengjusérfræðinga á sprengjuvörpukúlum í Írak sem rannsóknir benda til að innihaldi m.a. sinnepsgas, var framleiðsla blaðsins stöðvuð.
Meira
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála hafi ekki farið að stjórnsýslulögum er konu var synjað um greiðslu til hennar í fæðingarorlofi.
Meira
VEL gekk að skipta um hreyfil í flugvél United Airlines, sem nauðlenti í Keflavík snemma í síðustu viku og var ráðgert að vélin færi frá Keflavíkurflugvelli í gærkveldi.
Meira
FJÖLMIÐLAR víðs vegar á Vesturlöndum greindu í gær frá því að danskir og íslenskir "hermenn" í Írak hefðu fundið sprengjur sem innihéldu torkennilegan vökva og léki grunur á að um efnavopn væri að ræða.
Meira
Búast má við að Hvanneyri breyti nokkuð um svip í sumar þegar þangað flykkjast krakkar frá öllum landshornum til að dvelja í Sumarbúðunum Ævintýralandi. Ásdís Haraldsdóttir talaði við Svanhildi Sif Haraldsdóttur sem segir gamlan draum um að komast í Borgarfjörðinn vera að rætast.
Meira
Í gærkvöldi sendi Stöð 2 út umræðuþátt, þar sem þeir Egill Helgason, stjórnandi þáttarins, og Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, ræddu þróun viðskiptalífsins og þær umræður sem fram hafa farið um hugsanlega löggjöf gegn hringamyndun og löggjöf um...
Meira
Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir skrifar pistil á frelsi.is undir fyrirsögninni Eftirlitsstofnun Manneldisráðs. Helga segir: "Algengt er að fólk fríi sig af ábyrgð á eigin lífsstíl. Ef maður fitnar er það aldrei manni sjálfum að kenna.
Meira
ÞRJÁR sýningar voru opnaðar í Listasafni ASÍ á laugardaginn. Í Ásmundarsal opnaði Rósa Gísladóttir sýninguna "Kyrralífsmyndir frá plastöld", í Gryfju var opnuð sýning Margrétar M.
Meira
Listaháskóli Íslands, Laugarnesi kl. 11 Cel Crabeels (1958) myndlistarmaður búsettur og starfandi í Antwerpen heldur fyrirlestur sem hann nefnir "In the Line of Work".
Meira
STÖÐ 2 sýnir í kvöld myndina Byttur (Drunks) sem fjallar um nokkra áfengissjúklinga sem hittast á AA fundi og segja sögu sína. Aðalhetja myndarinnar er alkóhólistinn Jim sem á sérstaklega erfiðan dag og segir sögu sína.
Meira
VESTUR í Bandaríkjunum (hvar annars staðar?) er að hefjast nýr veruleikaþáttur sem gerir út á það að vera óraunverulegur, í hið minnsta súrrealískur. Þátturinn ber nafnið Súrrealíska lífið eða The Surreal Life .
Meira
ÞAÐ var feikistuð á frumsýningu Leikfélags Akureyrar á leikritinu "Eldað með Elvis" í Loftkastalanum á föstudagskvöldið og spilaði matur þar vissulega stórt hlutverk. Leikritið sem er eftir Lee Hall, sem m.a.
Meira
HEIMIR Björgúlfsson er með afkastameiri tónlistarmönnum og það þó tónlistin hafi að miklu leyti vikið fyrir myndlistinni. Heimir býr í Hollandi en brá sér hingað til lands í hefðbundið jólafrí og tók þá með sér nýútkominn disk, eins og svo oft áður.
Meira
SPENNUTRYLLIRINN In the Cut eftir nýsjálensku leikstýruna Jane Campion, sem á að baki myndir á borð við An Angel At My Table og The Piano var frumsýndur við sérstaka viðhöfn á fimmtudag.
Meira
FORELDRAR fjögurra af þeim níu ungmennum sem dóu, þegar þau urðu undir í troðningi á Hróarskelduhátíðinni árið 2000, hafa ákveðið að fara í mál við aðstandendur hátíðarinnar.
Meira
Höfundur: Lee Hall. Þýðandi: Hallgrímur Helgason. Leikstjóri: Magnús Geir Þórðarson. Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson. Leikmynd og búningar: Þórarinn Blöndal. Hljóðmynd og tónlist: Hjörtur Howser. Aðstoð við hreyfingar: Ástrós Gunnarsdóttir. Leikendur: Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Friðrik Friðriksson, Halldóra Björnsdóttir, Steinn Ármann Magnússon. Frumsýning í Loftkastalanum 9. janúar 2004.
Meira
SJÓNVARPIÐ sýnir bandarískan heimildarmyndaflokk um Medici-ættina, sem var afar valdamikil á Ítalíu á fimmtándu til sautjándu öld. Medici-ættin var mjög umsvifamikil í viðskiptalífinu og þurfti því að halda uppi ímynd sinni.
Meira
Safn íslenskra og erlendra söngva. Stjórnandi: Vilberg Viggósson. Píanóleikur: Ágota Joó og Ester Ólafsdóttir. Harmonika: Ásgeir Gunnarsson. Bassi: Þórólfur Ingi Þórsson. Annar undirleikur á strokhljóðfæri ónafngreindur.
Meira
SKJÁREINN sýnir þættina Banzai, þar sem japanskir æringjar fara á kostum við ýmis furðuleg uppátæki. Gjarnan fá þeir fólk sem "einu sinni var frægt" til að gera furðulega og kostulega hluti.
Meira
LOKAKAFLI Hringadróttinssögu, Hilmir snýr heim, hlaut á dögunum fern verðlaun bandarískra kvikmyndagagnrýnenda, þar á meðal verðlaun fyrir bestu mynd. Hilmir snýr heim sló þar út níu aðrar myndir og var Peter Jackson útnefndur besti leikstjórinn.
Meira
EFTIR að hafa lesið eða farið í gegnum bréf Hafþórs Baldvinssonar, sem birtist í Morgunblaðinu, þá datt mér nú í hug að minnast svolítið á það sem ég er nú búin að vera að nöldra í þingmönnum ýmissa flokka og ráðherrum, um stöðu leiguliða á bújörðum.
Meira
Sunna Kristinsdóttir, tíu ára stúlka á Bakkafirði, safnaði peningum fyrir Rauða kross Íslands með óvenju hugmyndaríkum hætti. Hún bjó til blað með krossgátu, þrautum og gríni sem hún ljósritaði og seldi svo. Ágóðinn var rúmlega 3.
Meira
Til varnar Davíð DETTUR aldrei neinum Íslendingi til hugar að taka upp hanskann fyrir Davíð Oddsson? Við hvað eru menn hræddir? Vinstri elítuna? Er það ekki þaðan sem óttinn kemur?
Meira
Því miður bendir margt til að með þeirri samþjöppun, sem nú á sér stað í atvinnulífinu, sé verið að festa fákeppni á markaði í sessi og jafnvel búa í haginn fyrir einokun.
Meira
Fanney Gísladóttir fæddist í Lokinhömrum í Arnarfirði 4. júní 1911. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 6. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Gísli G. Kristjánsson, f. 7. des. 1874, d. 28. jan. 1955, og Guðný Guðmundsdóttir, f. 8. feb.
MeiraKaupa minningabók
Fríða Pétursdóttir fæddist á Bíldudal 4. mars 1918. Hún andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund 2. janúar síðastliðinn. Fríða var dóttir hjónanna Valgerðar Kristjánsdóttur sem ættuð var úr Önundarfirði og Péturs Bjarnasonar skipstjóra, f.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Jóhannes Guðbjörnsson fæddist á Ísafirði við Skutulsfjörð 29. október 1934. Hann lést á Kanaríeyjum á jóladag, 25. desember síðastliðinn. Gunnar var þriðja barn hjónanna Magnúsínu Guðmundsdóttur, f. 1. júlí 1904, d. 15.
MeiraKaupa minningabók
Ingi Hjörleifsson fæddist í Reykjavík 20. október 1940. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 4. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Hjörleifur Sigurðsson, múrarameistari, f. 22. desember 1906, d. 8. júní 2000, og kona hans Ástrós Vigfúsdóttir, f....
MeiraKaupa minningabók
Magnús Anton Hallgrímsson fæddist í Reykjavík 7. júlí 1943. Hann andaðist á líknardeild LSH 1. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Hallgrímur Magnússon múrarameistari, f. 28.9. 1915, d. 13.1. 1996, og Björný Hall Sveinsdóttir, f. 10.8.
MeiraKaupa minningabók
Nanna Tryggvadóttir fæddist á Selhamri í Breiðdal 31. mars 1931. Hún lést á heimili sínu 3. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðný Jónsdóttir, f. 17. júlí 1898, d. 30.
MeiraKaupa minningabók
Sigurmundi Óskarsson fæddist 10. desember 1935. Hann lést á heimili sínu á Spáni 29. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Klara Ingvarsdóttir, f. 28.10. 1918, d. 14.9. 1997, og Óskar Sigurmundason, f. 10.8. 1910, d. 12.12. 1952.
MeiraKaupa minningabók
Steingrímur Már Eggertsson fæddist á Akureyri 11. janúar 1978. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 5. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans eru Steinunn Rögnvaldsdóttir, f. 12.7. 1951, og Eggert H. Jónsson, f. 1.7. 1951. Þau slitu samvistum 1984.
MeiraKaupa minningabók
Þorbjörg Eiríksdóttir fæddist að Torfastöðum í Biskupstungum 20. september 1913. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi aðfaranótt 2. janúar síðastliðinn. Foreldrar Þorbjargar voru hjónin Sigurlaug Erlendsdóttir, f. 29. júlí 1878, d. 19. des.
MeiraKaupa minningabók
100 ÁRA afmæli. Í dag, mánudaginn 12. janúar, er 100 ára Sveinbjörg Pálína Vigfúsdóttir frá Flögu í Skaftártungu, Sóltúni 2, Reykjavík. Hún tekur á móti ættingjum og vinum í Sóltúni 2 í dag milli kl. 16 og...
Meira
Langþráð kynbótamat Bændasamtakanna er loksins komið fyrir sjónir manna og má vissulega segja að hrossaræktin standi á merkum tímamótum með birtingu þess að þessu sinni. Norðurlöndin eru komin inn í dæmið og er þar enn eitt skrefið stigið í alþjóðavæðingu ræktunar íslenska hestsins. Valdimar Kristinsson skoðaði stöðu efstu hrossa í kynbótamatinu.
Meira
Hundurinn Bassi í Þorlákskirkju ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 13. janúar nk. kl. 20 kemur fíkniefnaleitarhundurinn Bassi ásamt þjálfara sínum, tollverðinum Þorsteini Þorsteinssyni, í heimsókn í Þorlákskirkju.
Meira
Ísland, farsælda frón og hagsælda, hrímhvíta móðir, hvar er þín fornaldar-frægð, frelsið og manndáðin bezt? Allt er í heiminum hverfult, og stund þíns fegursta frama lýsir sem leiftur um nótt langt fram á horfinni öld.
Meira
Í dag er mánudagur 12. janúar 12. dagur ársins 2004. Orð dagsins: Hinir óguðlegu flýja, þótt enginn elti þá, en hinir réttlátu eru öruggir eins og ungt ljón.
Meira
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk kl. 20. Langholtskirkja. Ævintýraklúbbur kl. 16-17. Starf fyrir 7-9 ára börn í umsjón Þóru Guðbjargar og Ólafs nir. Laugarneskirkja. Góðar mömmur, kl. 12.
Meira
Víkverji er lagstur í jólabækurnar. Hann var að ljúka við að lesa "Öxin og jörðin" eftir Ólaf Gunnarsson sem er sagnfræðileg skáldsaga um Jón biskup Arason og syni hans. Víkverji telur þetta vel heppnaða bók.
Meira
EINAR Þorvarðarson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins í handknattleik, sagði við Morgunblaðið eftir þriðja og síðasta æfingaleikinn gegn Svisslendingum í gærkvöldi að aldrei áður hafi verið eins erfitt að velja endanlegan leikmannahóp fyrir verkefni landsliðsins enda hafi margir leikmenn minnt rækilega á sig í tveimur síðustu leikjunum sem Íslendingar unnu sannfærandi sigra.
Meira
ÞAÐ er afar sennilegt að Guðmundur Þ. Guðmundsson hafi átt andvökunótt eftir ófarirnar gegn Svisslendingum í fyrsta leik þjóðanna á föstudagskvöldið.
Meira
ÁRNI Gautur Arason, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, gerir hugsanlega sex mánaða samning við enska úrvalsdeildarliðið Manchester City. Árni Gautur hélt til Manchester í morgun og er ráðgert að hann verði til skoðunar hjá City í eina til tvær vikur og standi hann undir væntingum bíður hans hálfs árs samningur.
Meira
STJÓRN Körfuknattleiksdeildar Breiðabliks sem leikur í úrvalsdeild, hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort liðið fær til sín bandarískan leikmann í stað Cedrick Holmes sem fór frá liðinu á dögunum vegna meiðsla í hné.
Meira
DAVID Seaman, aðalmarkvörður Manchester City, brákaðist illa á viðbeini á upphafsmínútunum í leik City og Portsmouth á laugardaginn og er talið líklegt að Seaman verði frá æfingum og keppni næstu sex mánuðina.
Meira
LUIS Figo, landsliðsmaður Portúgala og leikmaður Real Madrid á Spáni segir í viðtali við sjónvarpsstöðina SIC í Portúgal að hann hafi hug á því að reyna fyrir sér á öðrum vígstöðvum en Spáni á næstu misserum.
Meira
SNORRI Steinn Guðjónsson og Guðjón Valur Sigurðsson blómstruðu í öðrum leiknum gegn Svisslendingum í Laugardalshöllinni á laugardaginn þar sem Íslendingar fögnuðu sigri, 26:22.
Meira
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska landsliðsins í handknattleik, og Einar Þorvarðarson, aðstoðarmaður hans, nutu þess að fylgjast með lærisveinum sínum í Laugardalshöll í gær gegn Sviss þar sem yfirburðir Íslendinga voru miklir.
Meira
LANDSLIÐSÞJÁLFARARNIR Guðmundur Þórður Guðmundsson og Einar Þorvarðarson velja í dag 18-manna landsliðshóp sem tekur þátt í æfingamótinu í Danmörku og Svíþjóð sem hefst á fimmtudag.
Meira
ÍSLENDINGAR eru með tvo fulltrúa á Heimsmeistaramóti þroskaheftra í sundi sem fram fer í Hong Kong en þau eru Gunnar Örn Ólafsson og Bára B. Erlingsdóttir. Á laugardaginn setti Gunnar Örn Íslandsmet í 50 m baksundi í undanrásum í sínum flokki, 31,93 sek.
Meira
FRAMARAR hafa fengið staðfestingu frá færeyska knattspyrnuliðinu B68 þess efnis að varnarmaðurinn Hans Fróði Hansen muni ganga í raðir Fram og leika með því næstu þrjú árin. Heimasíða Fram greindi frá þessu í gær.
Meira
* HEIÐAR Helguson gat ekki leikið fyrir Watford í leiknum gegn Coventry sem endaði með markalausu jafntefli. *ÍVAR Ingimarsson fékk ekkert að spreyta sig í liði Reading sem gerði 1:1 jafntefli við Ipswich í ensku 1. deildinni.
Meira
HEIMSBIKARMÓT Risasvig kvenna,11. janúar . Hilde Gerg, Þýs 1.21,34 Michaela Dorfmeister, Aus 1.21,58 Silvia Berger, Aus 1.22,10 Svig karla, 11. janúar: Giorgio Rocca, Íta 1.29,09 Pierrick Bourgeat, Fra 1.29,17 Bode Miller, Ban 1.
Meira
HELGI Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, mun að öllu óbreyttu ganga til liðs við danska úrvalsdeildarliðið AGF í Árósum. Helgi fékk um helgina samningstilboð frá liðinu.
Meira
ÍSLANDSMÓTIÐ Akureyri, 10. janúar 2004: SA - SR 7:4 (3:0, 0:2, 4:2). Mörk/stoðsendingar: Skautafélag Akureyrar: Clark McCormick 2/1, Jón Ingi Hallgrímsson 1/2, Rúnar Rúnarsson 1/2, Jan Kobezda 2/0, Sigurður Sigurðsson 1/1, Arnþór Bjarnason 0/1.
Meira
ENSKIR fjölmiðlar greindu frá því í gær að forráðamenn enska knattspyrnuliðsins Manchester United ætluðu sér að svara þeim ásökunum að liðið hafi greitt umboðsmönnum markvarðarins Tim Howard undir borðið til þess að tryggja sér leikmanninn. Enska knattspyrnusambandið hefur fengið málið til rannsóknar þar sem að sagt er að alls hafi um 300 millj. kr. farið á milli umboðsmanna eftir að samningurinn var í höfn.
Meira
FORRÁÐAMENN Körfuknattleiksfélags Ísafjarðar, KFÍ, sem leikur í úrvalsdeildinni eiga von á því að framherjinn Darko Ristic verði með liðinu á ný er KFÍ sækir Tindastól heim í Intersportdeildinni þann 15. janúar n.k.
Meira
"Það var fín stígandi í þessu hjá okkur," sagði Ólafur Stefánsson eftir leikinn. "Að vísu er Sviss gott lið að vissu marki og það þarf að prófa svoleiðis leiki líka en það kemur meira í ljós þegar eftir leikina við Dani, Svía og Egypta.
Meira
Á meðan gengur svona vel er í lagi að horfa á leikinn úr stúkunni," sagði Sigfús Sigurðsson línumaður, sem meiddist snemma í fyrsta leik á föstudaginn og varð því að gera sér að góðu að horfa á hina tvo.
Meira
ARSENAL og Chelsea söxuðu á forskot Manchester United á toppi ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Lundúnaliðin unnu bæði stórsigra á mótherjum sínum en Englandsmeistararnir urðu að sætta sig við markalaust jafntefli á móti Newcastle á Old Trafford í gær. United hefur eins stigs forskot á Arsenal og til marks um hve jöfn liðin eru hafa þau sömu markatölu.
Meira
* NORÐMENN unnu Færeyinga í öðru sinni í forkeppni undankeppni HM í handknattleik. Leikurinn fór fram í Þórshöfn og unnu Norðmenn stórsigur, 37:24, en þeir höfðu áður haft betur á heimavelli, 36:24. Næstu mótherjar Norðmanna í undankeppninni eru Rúmenar.
Meira
Kvennalið Grindavíkur í körfuknattleik sýndi hvað í þeim býr er liðið tók á móti grönnum sínum úr Njarðvík í leik liðanna í 1. deild. Þar hafði heimaliðið betur, 99:47. Staðan í hálfleik var 52:58.
Meira
ÍTALINN Giorgio Rocca sigraði í svigkeppni karla á heimsbikarmóti sem fram fór í Chamonix í Frakklandi í gær. Heimamaðurinn Pierrick Bourgeat varð annar.
Meira
RÚRIK Gíslason, 15 ára gamall knattspyrnumaður úr HK í Kópavogi, gekk um helgina frá samkomulagi um fjögurra ára samning við belgíska stórliðið Anderlecht. Samningurinn tekur gildi í næsta mánuði, þegar Rúrik verður 16 ára, og hann fer þá alfarinn til belgíska félagsins.
Meira
HIN fjölmenna stjórn enska úrvalsdeildarliðsins Manchester City, alls 14 manns, lenti í kröppum dansi á leið sinni frá Portsmouth er nauðlenda þurfti flugvél sem þeir voru í á leið sinni til Manchester.
Meira
* TOTTENHAM virðist eitthvað vera að rétta úr kútnum en sigurinn á Leeds var sá annar í röð hjá liðinu. Robbie Keane skoraði eina mark leiksins en hann vildi ekki fagna því enda fyrrverandi liðsmaður Leeds .
Meira
Hafnarfjörður - Fasteignasalan Hraunhamar er nú með í einkasölu einbýlishús á Austurgötu 23 í Hafnarfirði. Húsið er úr timbri og steini, byggt 1987 og er það 174,6 ferm.
Meira
Góður frágangur er eitt aðaleinkenni nýrra íbúða í fjölbýlishúsinu Lómasalir 2-4, sem nú er langt komið. Íbúðirnar eru til sölu hjá Húsakaupum, en þær verða afhentar í vor fullbúnar án gólfefna.
Meira
Séu húsfundir í fjöleignarhúsum ekki boðaðir með lögmætum hætti í samræmi við ákvæði laga um fjöleignarhús getur það haft afdrifaríkar afleiðingar.
Meira
Þegar stigahandrið fara að verða ljót er gott ráð að gylla eða bronsa pílárana. Margir eru með stigahandrið með plasti ofan á, það má taka burtu og bronsa, gylla eða mála það sem undir er og þá verður það til muna betur...
Meira
Fá byggðarlög úti á landsbyggðinni hafa yfir sér jafn líflegt yfirbragð og Egilsstaðir. Í sveitarfélaginu búa yfir 2.100 manns og í nágrannabyggðarlaginu Fellabæ á fimmta hundrað manns. Að sumarlagi fjölgar fólki á þessu svæði mjög.
Meira
Kópavogur - Fasteignasalan Miðborg er nú með í sölu parhús að Daltúni 24 í Kópavogi. Þetta er stein- og timburhús, byggt 1983 og er það 233,4 fermetrar.
Meira
Þessi glæsilegi spegill er með umgjörð úr svonefndu Feneyjagleri. Um er að ræða gler sem skorið er út í alls kyns munstur, gjarnan blómamunstur. Þessar skreyttu spegilglersumgjarðir eru bæði fallegar og talsvert í tísku um þessar mundir.
Meira
Reykjavík - Hjá fasteign.is er nú í sölu sérhæð að Freyjugötu 36, 101 Reykjavík. Hæðin er í steinhúsi sem byggt var 1932 og er hún 113,8 fermetrar að stærð.
Meira
Gamalt postulín fellur aldrei úr móð né heldur í verði. Þessir gripir eru einkar fallegir, austurlenskir að sjá og mætti það vera vandlát manneskja sem ekki gleddist yfir að fá skenkt kaffi eða kakó úr slíkum bollum á...
Meira
Þetta hús er gamla hegningarhúsið í Þórshöfn, innan úr því kváðu við hróp og kvalastunur þegar verið var að yfirheyra fanga þar á öldum áður, segir í gömlum sögnum sem m.a. Heinesen byggir frásagnir sínar af þessu húsi á.
Meira
Þetta er gamla prestssetrið í Þórshöfn. Það er verið að gera þetta hús upp og fornleifafræðingar eru að rannsaka það. Þetta hús er upprunalega frá 1630. Það er úr timbri og verið er að endurnýja það sem næst upprunalegri...
Meira
Glerskápar fyrir leirtau eru skemmtilegir. Þeir setja vinalegan svip á borðstofur eða eldhús og gestir geta skemmt sér við að skoða hvað til er á heimilinu meðan þeir bíða eftir kaffinu.
Meira
Það er alltaf ánægjulegt að drekka úr fallegum og dýrmætum glösum. Þessi glæsilegu glös eru frá Tallinn og eru úr handskornum kristal - einkar falleg á hátíðarborðið, enda bæði gömul og...
Meira
Horn af nautgripum hafa löngum verið til ýmissa hluta nýtileg í höndum hagra manna. Löngum gerðu menn úr þeim drykkjarhorn en hér má sjá horn af nautgrip og var hluti af húðinni látinn halda sér.
Meira
Rangárvallasýsla - Hótel Skógar, bæði hús og rekstur, eru nú til sölu hjá fasteignasölunni 101 Reykjavík. Óskað er eftir tilboðum. "Þetta er 471 ferm. hús, þar sem rekið er glæsilegt og vinsælt hótel," segir Helgi J. Jónsson hjá 101 Reykjavík.
Meira
Þetta myndarlega hús er merkt Hvítasunnusöfnuðinum í Keflavík. Húsið stendur rétt við sjóinn og er bæði traust að gerð og setur svip á umhverfi sitt.
Meira
Var hún góð eða var hún vond? Það má rífast endalaust um kvikmynd Hrafns, Opinberun Hannesar, en eitt er víst; það verður engin niðurstaða í því máli í bráð og lengd.
Meira
Á Keldum er torfbær af fornri gerð og er hann jafnframt eini stóri torfbærinn sem varðveist hefur á Suðurlandi. Hann hefur verið í vörslu Þjóðminjasafns Íslands frá 1947 og hefur safnið staðið fyrir nokkrum stórum viðgerðum á honum síðan.
Meira
Reykjavík - Hjá fasteignasölunni Hóli eru nú í einkasölu tvær íbúðir, báðar með sérinngangi, í tvíbýlishúsi við Kristnibraut 5 í Grafarholti. Húsið stendur á góðum útsýnisstað. Því verður skilað fullfrágengnu að utan með grófjafnaðri lóð.
Meira
Nú er hafin borun vinnsluholu nr. 2 á Eskifirði, en lokið var við að staðsetja hana í lok síðasta árs. Frá þessu greinir á vef Fjarðabyggðar. Borinn Sleipnir frá Jarðborunum kom til Eskifjarðar rétt fyrir jól og er borun hafin.
Meira
Ofnir dúkar eru fallegir bæði á borð og veggi. Þessi vefnaður er slavneskur og var á sínum tíma seldur á markaði í nágrenni Porto Rose - Höfn rósanna, meðan sá ágæti staður var enn fjölsóttur ferðamannastaður...
Meira
Könnur eru til margra hluta nýtilegar, ekki aðeins eru þær notaðar í augljósum tilgangi, til að hafa í vatn eða annan vökva, en þær má líka nota sem geymslustað fyrir sleifar og önnur eldhúsáhöld sem þarf að grípa til í fljótheitum, einkum er þetta...
Meira
Selfoss - Fasteignasala Íslands er nú með í sölu einbýlishús á Sléttuvegi 7 á Selfossi. Þetta er steinhús, byggt 1972 og er það 132,1 ferm. en bílskúr er 44,5 ferm. "Þetta er fallegt hús og vel staðsett miðsvæðis í bænum.
Meira
Hólmur í Landbroti er mjög sérstakur staður og sögufrægur sem töluvert hefur komið við sögu í raflýsinga- og trésmíðamálum á Íslandi. Þar var um árabil rekinn smíðaskóli.
Meira
Jóhanna Einarsdóttir, ekkja Stefáns Steinholts veitingamanns, lét byggja húsið árið 1907. Húsið var reisulegt á þeirra tíma mælikvarða enda byggt með það fyrir augum að í því yrði verslun, íbúð og veitinga- og gistihús.
Meira
Af mikilli hugsjón, þeirra sem vilja halda í gamlar hefðir, voru bærinn og útihúsin í Sænautaseli byggð upp. Freyja Jónsdóttir rifjar hér upp sögu staðarins.
Meira
Reykjavík - Hjá fasteignasölunni Kjöreign er nú til leigu glæsilegt þjónustu- og skrifstofuhúsnæði við Sætún 1 í Reykjavík. Húsnæðið er laust strax. Stærð er 325 ferm. og geymsla í kjallara er 60 ferm. Leigugjald er 1.400 kr.
Meira
Í Tungufelli í Hrunamannahreppi er timburkirkja af eldri gerð turnlausra kirkna sem einkennast af því að veggir eru lágir og gluggar nema við þakbrún.
Meira
Greiðslumatið sýnir hámarksfjármögnunarmöguleika með lánum Íbúðalánasjóðs miðað við eigið fé og greiðslugetu umsækjenda. Forritið gerir ráð fyrir að eignir að viðbættum nýjum lánum s.s.
Meira
Góð eftirspurn er eftir nýjum íbúðum, sem Húsvirki er með í byggingu við Lómasali 2-4. Magnús Sigurðsson kynnti sér íbúðirnar og ræddi við Sigrúnu Þorgrímsdóttur hjá Húsakaupum, sem er með íbúðirnar í sölu.
Meira
Dalvíkurbyggð - Jörðin Vellir, áður í Svarfaðardalshreppi en nú í Dalvíkurbyggð, er nú til sölu hjá Fasteignamiðstöðinni. Ræktað land er 37,1 ha. en byggingar eru m. a. íbúðarhús byggt 1902 og endurbyggt árið 2000, alls 209,9 ferm. á þremur hæðum.
Meira
Reykjavík - Fasteignasalan Valhöll er nú með í einkasölu einbýlishús að Vesturhúsum 5 í Reykjavík. Þetta er nýlegt steinhús, 249,2 fermetrar að stærð.
Meira
Vextir lána Íbúðalánasjóðs til leiguíbúða verða áfram lægri en vextir annarra peningalána sjóðsins. Stjórn Íbúðalánasjóðs ákvað fyrir áramót að lækka vexti viðbótarlána úr 5,6% í 5,3% og vexti almennra peningalána úr 5,7% í 5,3%.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.