JESÚS og George W. Bush Bandaríkjaforseti voru langt á eftir fótboltastjörnunni David Beckham þegar ungt fólk í Bretlandi var spurt hver væri mesta hetjan þeirra í netkönnun sem birt var í gær.
Meira
HRINGURINN hefur gefið 50 milljónir til Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans og 15 milljónir til Barnaspítala Hringsins. Félagið er 100 ára í dag.
Meira
YFIRMAÐUR Kjarnorkustofnunar Sameinuðu þjóðanna sagði í viðtali sem birtist í gær að aldrei hefði verið meiri hætta en nú á að kjarnorkustríð brytist út. Mohamed El Baradei lét þessi ummæli falla í viðtali við þýska vikuritið Der Spiegel .
Meira
FRAMLAG Hringsins til Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans gerði útslagið með það að farið er af fullum krafti í byggingu göngudeildar við deildina," segir Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans.
Meira
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur ekki fengið viðvörunarbréf frá dómaranum sem rannsakar dauða vopnasérfræðingsins Davids Kellys, og þykir það til marks um að hann muni sleppa við alvarlegar aðfinnslur þegar niðurstaða rannsóknarinnar verður...
Meira
LÍFEYRISSJÓÐUR verzlunarmanna hefur gert upp árið 2003 og í ljós hefur komið að sjóðurinn skilaði þá bestu afkomu sinni frá upphafi, eða síðan hann tók til starfa árið 1956. Ávöxtun á árinu var 15,2% sem samsvarar 12,1% raunávöxtun.
Meira
Spurning: Hvað er stoðkerfi og hvað er átt við með verkjum sem tengjast því? Svar: Líkamanum er skipt í ýmis líffæri og líffærakerfi og byggist þessi skipting á byggingu líkamans en að hluta til á hefðum. Fræðigreinin nefnist líffærafræði.
Meira
ÆVI breskra karla er að lengjast, samkvæmt vef Lundúnablaðsins Evening Standard . Þar segir að lífslíkur karla eldri en 65 ára hafi aukist um 10%.
Meira
LÍKT og í Tate Modern í London síðastliðið haust og í Listasafni Reykjavíkur um síðustu helgi hefur fólk streymt á sýningu Ólafs Elíassonar í Astrup Fearnely-safninu í Ósló, sem var opnuð á laugardag.
Meira
MENNIRNIR tveir sem lentu í sjónum þegar bát þeirra, Sigurvini GK, hvolfdi í innsiglingunni í Grindavíkurhöfn á föstudag þökkuðu björgunarmönnum lífgjöfina á laugardag. "Þetta eru hetjur, þetta er ekkert annað.
Meira
Breytingar og ummyndun eru lykilorðin í hártískunni þetta árið að mati sérfræðinganna hjá I.C.O.N. sem segja klippinguna eiga að vera klæðskerasniðna að hverjum einstaklingi fyrir sig.
Meira
BANDARÍSKA könnunarfarið Opportunity lenti á Mars aðfaranótt sunnudagsins á svonefndri Meridiani-sléttu um 10.600 km frá þeim stað sem Marskanninn Spirit lenti 3. janúar.
Meira
Fræðslufundur um Alzheimer. Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra minnissjúkra heldur fræðslufund annað kvöld klukkan 20:00 í Skógarbæ, félagsmiðstöðinni Árskógum 4-6.
Meira
Þessir ungu drengir, Tómas 14 ára og Maciej 15 ára, voru að stíga sín fyrstu skref sem beitningarmenn og voru drengirnir að beita sitt fyrsta bjóð þegar þessi mynd var tekin af þeim, er þeir beittu línuna á Petri Jacob SH frá Ólafsvík.
Meira
Hver vill ekki vera ungur, sætur, smart, ríkur og sexý og búa í einbýli í Vesturbænum?" spurði Steinunn Valdís Óskarsdóttir nýlega í umræðum um skipulagsmál í borgarstjórn.
Meira
BROTIST var inn í grunnskólann í Þorlákshöfn aðfaranótt laugardags. Brotinn var upp gluggi inn í bókasafn skólans og átta fartölvum og einum skjávarpa stolið úr bókasafninu og aðliggjandi tölvustofu skólans.
Meira
KANNA ætti kosti þess að Ísland beiti Ísrael viðskiptaþvingunum vegna byggingar aðskilnaðarmúrs í Palestínu, að mati Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar.
Meira
EVRÓPUSAMBANDIÐ (ESB) hefur ákveðið að árið verði Evrópuár menntunar með iðkun íþrótta og tekur Ísland þátt í því verkefni, að því er fram kemur í tilkynningu menntamálaráðuneytisins.
Meira
SÆNSKA verðbréfafyrirtækið Spectra Fondkommission, sem rekur útibú hér á landi, hefur hlotið blessun sænska fjármálaeftirlitsins til áframhaldandi starfsemi.
Meira
NÍU íslensk fyrirtæki taka þátt í MIDEM-kaupstefnunni í Cannes í Frakklandi að þessu sinni en þau eru öll að kynna íslenska tónlist fyrir erlendum útgefendum. Alls taka um 3.000 fyrirtæki þátt í kaupstefnunni, sem haldin en í 38.
Meira
DEMÓKRATINN John Kerry gæti sigrað George W. Bush Bandaríkjaforseta ef forsetakosningarnar færu fram nú. Þessi er niðurstaða könnunar, sem Newsweek birti um helgina. Kerry, sem er öldungadeildarþingmaður frá Massachusetts, fengi 49% atkvæða en Bush 46%.
Meira
Jónína Þ. Stefánsdóttir fæddist í Árnessýslu 18. maí 1957. Stúdent frá MR. Lauk BS 1980 og BS honour 1986 í matvælafræði frá HÍ. Hefur starfað hjá SH, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Sælgætisgerðinni Freyju, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Hollustuvernd ríkisins og Umhverfisstofnun. Gift Halldóri Sigurðssyni og eiga þau þrjú börn; Berglindi, Hugrúnu og Bjarna.
Meira
STJÓRN Knattspyrnusambands Íslands ákvað á stjórnarfundi 20. janúar sl. að greiða tæpar 10 milljónir króna til aðildarfélaga KSÍ, sem gjaldfærist á starfsárið 2003. Þetta er þriðja árið í röð sem aðildarfélög njóta slíks framlags.
Meira
STJÓRNVÖLD á Kúbu hafa frestað áætlunum um að takmarka netnotkun landsmanna en samkvæmt nýjum lögum sem koma áttu til framkvæmda á laugardag var flestum Kúbverjum gert ókleift að nota Netið heima hjá sér.
Meira
BJÖRGUNARSVEITIR á Vestfjörðum voru kallaðar út á áttunda tímanum á laugardagskvöld til að leita að vélsleðamanni sem hafði ekki látið vita af ferðum sínum eins og hann ætlaði að gera, en hann var á ferð í nágrenni Drangjökuls.
Meira
ELDUR kom upp í íbúð í sambýli við Skútagil á Akureyri um kl. 14 á laugardag, og er íbúðin talin gjörónýt. Eldtungur stóðu út um svalahurð og lagði þykkan reyk upp af eldinum þegar slökkvilið kom að.
Meira
Námskeið fyrir framleiðendur og innflytjendur véla. Staðlaráð Íslands heldur námskeið um CE-merkingu véla 5. og 6. febrúar. Námskeiðið, CE-merking véla - Hvað þarf að gera og hvernig? er ætlað framleiðendum og innflytjendum véla.
Meira
Á VÆNTANLEGU námskeiði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands verður fjallað um stjórnsýslureglur um meðferð mála hjá sveitarfélögum, en auk Endurmenntunar HÍ standa Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Samband íslenskra sveitarfélaga að námskeiðinu.
Meira
MIHAIL Saakashvili sór í gær embættiseið forseta Georgíu í höfuðborginni Tbilisi og varð þar með yngsti þjóðarleiðtogi í Evrópu. Tveir mánuðir eru liðnir frá því að Edúard Shevardnadze sagði af sér forsetaembættinu.
Meira
NÝ ferðaskrifstofa, Langferðir ehf., tekur til starfa næstkomandi fimmtudag en hún mun sérhæfa sig í sölu á ferðum svissnesku ferðaskrifstofunnar Kuoni til fjarlægra staða. Aðaleigandi og framkvæmdastjóri er Tómas Þór Tómasson, sem hefur m.a.
Meira
Varla er til þróað ríki þar sem umbætur í heilbrigðismálum hafa ekki orðið að nokkurs konar þrálátum sjúkdómi sem herjar á læknisfræði nútímans: um leið og komið er á umbótum kemur fram krafa um enn eina lotu breytinga.
Meira
ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra efnir til almennra funda um sjávarútvegsmál á Akureyri og Siglufirði í kvöld og annað kvöld. Fundurinn á Akureyri verður í kvöld, mánudagskvöld, kl. 20 á Hótel KEA.
Meira
BROTIST var inn í skartgripaverslun í Bergstaðastræti um 9:30 í gærmorgun. Þjófurinn eða þjófarnir brutu sýningarglugga og gripu skartgripi sem voru í glugganum, að verðmæti um 200.000 krónur, að sögn lögreglu.
Meira
SÓLHEIMAJÖKULL er skriðjökull vestur úr Mýrdalsjökli. Hægt er að komast langleiðina upp að jöklinum á bíl en á undanförnum árum hefur hann minnkað mjög hratt.
Meira
BJÖRGUNARSVEITIR sóttu fótbrotinn vélsleðamann inn að Skjaldbreið á áttunda tímanum á laugardagskvöldið, en félagar mannsins höfðu þá komið honum í fjallaskála á svæðinu.
Meira
INGIBJÖRG Pálmadóttir, sem gegnt hefur starfi fulltrúa sjúklinga á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, óskar eftir að árétta að starf hennar hafi ekki verið lagt niður vegna sparnaðaraðgerða á spítalanum heldur hafi ráðningin aðeins verið tímabundin.
Meira
STEINN Eiríksson viðskiptafræðingur hefur keypt eignir og rekstur þrotabús Álfasteins á Borgarfirði eystra, en fimm tilboð bárust í þrotabúið. Að sögn Steins er reiknað með að fyrirtækið hefji starfsemi að nýju 18. mars næstkomandi.
Meira
MILLJÓNA króna tjón varð í stórbruna á bænum Stóruvöllum í Bárðardal í S-Þingeyjarsýslu seint á laugardagskvöld. Sambyggð skemma og gamalt fjós brunnu til grunna en þar hefur verið unnið að tólgarframleiðslu og kertagerð.
Meira
Umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi er víðfeðmt en þar starfa sex lögreglumenn. Guðrún Vala Elísdóttir fréttaritari ræddi við Theódór Kr. Þórðarson yfirlögregluþjón sem einnig á sér ýmis áhugamál.
Meira
SAMFYLKINGARDÖGUM í Háskóla Íslands lauk með opnum fundi á föstudag undir yfirskriftinni Menntasókn eða skólagjöld? Fundurinn markaði lok fjögurra daga yfirferðar samfylkingarfólks um HÍ þar sem fundað var með forsvarsmönnum deilda skólans. Björgvin G.
Meira
TVEIR menn sem reka innflutningsfyrirtæki og voru ákærðir fyrir brot á tollalögum og höfundaréttarlögum hafa verið sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Meira
BROTIST var inn í Laugalækjarskóla aðfaranótt laugardags, og var lögreglu tilkynnt innbrotið rétt eftir klukkan 2. Rúða í nýrri tengibyggingu var brotin og farið inn á skrifstofu og hafði þjófurinn eða þjófarnir á brott með sér eina tölvu.
Meira
Undanfarnar vikur hafa farið fram í fjölmiðlum talsverðar umræður um meint vanhæfi Péturs Blöndal til að sitja og/eða stýra fundi í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hinn 12.
Meira
STAÐSETNING virkjunar Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði og heitavatnsleiðsla sem frá henni liggur við og á vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins gefur tilefni til sérstakrar varkárni við framkvæmdina að mati Umhverfis- og heilbrigðisnefndar...
Meira
TOLLSTJÓRINN í Reykjavík lokaði leikskólunum Korpukoti og Fossakoti í Reykjavík á föstudaginn vegna vangoldinna opinberra gjalda. Nokkrum klukkustundum síðar voru þeir opnaðir aftur af nýjum eigendum með tímabundnu leyfi frá Leikskóla Reykjavíkur.
Meira
ÞEIR sem taka að sér vörslu séreignalífeyrissparnaðar munu ekki þurfa að eiga starfsstöð hér á landi í framtíðinni verði frumvarp fjármálaráðherra að lögum, sem samþykkt hefur verið í þingflokkum stjórnarflokkanna og lagt verður fram á Alþingi þegar þing...
Meira
Morgunblaðið hefur áður vakið máls á því, að opinberar umræður á Íslandi fari ekki fram með þeim málefnalega hætti, sem hægt er að krefjast af jafn vel menntaðri og upplýstri þjóð og við Íslendingar erum.
Meira
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra skrifar á vef sinn: "Vegna fyrri athugasemda minna um skrif nafnleysingja á spjallrásum hér á Netinu fagna ég því, að einn huldumannanna þar hefur tekið til við að skrifa þar undir nafni, Magnús Þór Hafsteinsson,...
Meira
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Arnardalur á Akranesi bar sigur úr býtum í söngkeppni Samfés á laugardagskvöld. Það var Skagamærin Rakel Pálsdóttir sem kom fram fyrir hönd Arnardals með lagið "That's the way it is" með Celine Dion.
Meira
SKJÁREINN býður landsmönnum upp á nýjustu viðbótina í flóru raunveruleikasjónvarpsþátta. Í þetta skiptið er keppt um stöðu næstu ofurfyrirsætu Bandaríkjanna, eða Ameríku, eins og þarlendir vilja gjarnan kalla landið.
Meira
Rás 2 útvarpar í kvöld tónleikum með færeysku söngkonunni Eivöru Pálsdóttur sem undanfarið hefur heillað landann með fjölbreytilegri og hljómmikilli rödd sinni og einlægri framkomu.
Meira
Gestir Astrup Fearnley-safnsins í Ósló rifjuðu upp "litaminni" sitt og tengsl við "aðra óformlega skugga" á sýningu Ólafs Elíassonar um helgina. FRÍÐA BJÖRK INGVARS- DÓTTIR brá sér á opnun og skoðaði afhjúpun listamannsins á eðli ljóssins ogþeim fáséðu fyrirbrigðum sem í því eru fólgin og tengjast sjónhverfingum minnisins.
Meira
ÞÝSKI ljósmyndarinn Helmut Newton er látinn, áttatíu og þriggja ára að aldri. Hann lést í bílslysi í Hollywood á föstudag. Newton varð bæði frægur og fyrirlitinn fyrir djarfar og ögrandi myndir af nöktum konum í keðjum og böndum í anda sadó-masókisma.
Meira
KVIKMYND Hilmars Oddssonar Kaldaljós var opnunarmynd Gautaborgarhátíðarinnar á föstudagskvöld. Að sögn viðstaddra var myndinni afar vel tekið og mikil stemning í salnum, enda er Kaldaljós tilfinningaþrungin mynd.
Meira
HÁTÆKNITRYLLIRINN "Primer" hlaut aðalverðlaunin á Sundance-kvikmyndahátíðinni á laugardagskvöld. Myndin "One point O" eftir Martein Þórsson og Jeff Renfroe keppti til úrslita í keppninni en náði ekki verðlaunum.
Meira
TVÖHUNDRUÐ-fertugasti og áttundi afmælisdagur Mozarts verður haldinn hátíðlegur hér á landi eins og undanfarin ár, þegar vinir Mozarts, með Laufeyju Sigurðardóttur fiðluleikara í fararbroddi, halda honum afmælistónleika.
Meira
ÖRYRKJABANDALAGIÐ hefur í annað sinn fengið lagfæringu á sínum lífeyri. En svefngengilsháttur í málefnum aldraðra entist út síðustu öld og virðist ætla að verða við lýði vel fram á þessa.
Meira
Guðmundur Gíslason fæddist að Klömbrum í Vesturhópi 25. mars 1907. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga 13. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Gísli Guðmundsson, f. 17.9. 1877, d. 4.1. 1946, og Halldóra Steinunn Pétursdóttir, f. 27.6.
MeiraKaupa minningabók
Sigrún Árnadóttir fæddist í Vestmannaeyjum 25. janúar 1932. Hún lést á Landspítalanum 15. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru þau hjónin Helga Sveinsdóttir, f. 10. ágúst 1900, d. 2. ágúst 1974, og Árni Magnússon, f. 17. febrúar 1902, d. 1.
MeiraKaupa minningabók
Þorsteinn Sveinsson fæddist á Sauðárkróki 25. júlí 1955. Hann lést í Reykjavík 14. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Helga Ingibjörg Jónsdóttir, f. á Sauðárkróki 27.6. 1919, d. 24.9.
MeiraKaupa minningabók
50 ÁRA afmæli . Í dag, mánudaginn 26. janúar, er fimmtugur Gísli Sveinn Loftsson, mannfræðingur. Gísli stundar nú framhaldsnám við University of Oxford í Bretlandi.
Meira
Hvað gerðist? Það hafð' ekki skapaður hlutur skeð. Þó skilst mér hversvegna ég fékk þér aldrei gleymt: Í fegurstu augum, sem ástfanginn mann hefur dreymt, þú áttir þér tærasta himin, sem ég hafði séð. En margoft síðan við minningu eina ég dvel.
Meira
BANDARÍSKI spilarinn David Berkowitz var með spil vesturs í vörn gegn þremur spöðum dobluðum. Hann lenti í erfiðri stöðu og fann ekki réttu lausnina. Getur lesandinn gert betur? Suður gefur; allir á hættu.
Meira
Bridgefélag Siglufjarðar Milli jóla og nýárs var haldið minningarmót um Benedikt Sigurjónsson. Mótið var nú haldið í annað sinn og spilað um veglegan farandgrip, auk kvöldverðlauna.
Meira
Á MORGUN, þriðjudaginn 27. janúar kl. 18, verður menningarvaka eldri borgara í Seljakirkju. Hún hefst á helgistund, auk þess verður boðið upp á forvitnilegan fyrirlestur og Signý Sæmundsdóttir syngur einsöng. Léttur málsverður á 500 kr. fyrir manninn.
Meira
* BRASIÍUMAÐURINN Rivaldo lék sinn fyrsta leik með Cruzeiro í brasilísku deildarkeppninni í gær en þessu fyrrum besti knattspyrnumaður heims gekk til liðs við félagið frá AC Milan fyrir skömmu. Ekki byrjaði vel hjá Rivaldo .
Meira
SKOSKA liðið Celtic er nánast með aðra höndina á skoska meistaratitlinum eftir að liðið lagði Aberdeen, 3:1, á laugardag. Lærisveinar Martin O'Neills eru nú ellefu stigum á undan erkifjendum sínum Rangers frá Glasgow.
Meira
UTANDEILDARLIÐIÐ Scarborough verður á allra vörum á Bretlandseyjum næstu daga þrátt fyrir 1:0-tap liðsins gegn enska úrvalsdeildarliðinu Chelsea í 32 liða úrslitum ensku bikarkeppninnar.
Meira
* DALIUS Rasikevicius, leikmaður Hauka , var markahæstur hjá Litháum með 6 mörk þegar þeir sigruðu Grikki, 27:26, í undankeppni HM í handknattleik í gær.
Meira
David Bentley hefur auga á knettinum, sem hann spyrnti glæsilega yfir tvo varnarmenn Middlesbrough og markvörð liðsins {ndash} myndin fyrir ofan, en á myndinni til hliðar fagnar þessi 19 ára leikmaður marki...
Meira
EINAR Hólmgeirsson, vinstrihandarskyttan stórefnilega í ÍR, hefur fengið boð frá þýska úrvalsdeildarliðinu Grosswallstadt um að koma út til reynslu. Einar hefur þegið boðið og heldur hann utan á föstudaginn og verður við æfingar hjá liðinu í nokkra daga.
Meira
HÆTTA þurfti leik Besiktas og Samsunspor í tyrknesku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Liðsmenn Besiktast þoldu ekki mótlætið í leiknum og létu þeir skapið hlaupa með sig í gönur.
Meira
FRÁBÆR endasprettur Dana færði þeim sætan sigur á Spánverjum, 24:20, í lokaumferð B-riðilsins í Ljubljana og þar með fara Danir áfram í milliriðilinn með 2 stig en Spánverjar ekkert.
Meira
GUNNAR Berg Viktorsson var í gær kallaður inn sem sextándi leikmaður í íslenska landsliðið á Evrópumeistaramótinu í handknattleik, en áður en mótið hófst hafði Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari, valið fimmtán leikmenn til að hefja það, en...
Meira
SLÓVENSKA landsliðið var eina liðið sem náði því að skora 100 mörk. Slóvenar voru í C-riðli eins og íslenska landsliðið og markatala þess í þremur leikjum var 100:90, tíu mörk í plús.
Meira
Heimsbikar í alpagreinum Brun karla, Kitzbühel Austurríki, laugardagur 24. janúar. Stephan Eberharter, Aust 1.55,48 Daron Rahlves, Ban 1.56,69 Ambrosi Hoffmann, Sviss 1.56,78 Hans Knauss, Aust 1.57,23 Stórsvig kvenna, Maribor í Slóveníu, laugardagur 24.
Meira
ÍSLAND hafnaði í 13. sæti Evrópukeppninnar í handknattleik í Slóveníu. Íslenska liðið var með bestan árangur þeirra fjögurra liða sem enduðu í neðstu sætum riðlanna. Portúgalar urðu í 14. sæti, Úkraínumenn í 15. sæti og Pólverjar urðu í 16.
Meira
Íslandsmótið Skautafélag Akureyrar og Björninn mættust í Íslandsmótinu í íshokkí á laugardag og höfðu Íslandsmeistararnir úr liði SA betur, 10:7.
Meira
ÍSLENSKI landsliðsmaðurinn í körfuknattleik, Jakob Sigurðarson, tryggði Birmingham Southern College sigur gegn Liberty, 67:63, á föstudaginn með því að hitta úr fjórum vítaskotum á síðustu 34 sekúndum leiksins.
Meira
* JÓHANNES Karl Guðjónsson kom inná á 66. mínútu í liði Wolves sem tapaði á heimavelli fyrir West Ham , 3:1, í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær. Úlfarnir geta því einbeitt sér alfarið að því að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni.
Meira
ÚRVALSDEILDARLIÐ ÍR í körfuknattleik karla hefur fengið til sín bandarískan miðherja, Maurice Ingram, en hann er 2.02 metrar á hæð og 29 ára gamall. Ingram mætti beint í leik ÍR-inga gegn Hamarsmönnum s.l.
Meira
ÁRNI Gautur Arason, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, lék ekki fyrsta leik sinn fyrir Manchester City í gær eins og til stóð þegar Manchester City tók á móti Tottenham í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar.
Meira
UNGVERSKA stórskyttan Lazslo Nagy, sem leikur með liði Barcelona á Spáni, mætti ferskur til leiks með Ungverjum í leiknum gegn Slóvenum í Celje í gærkvöldi.
Meira
TÓLF lið halda á morgun áfram keppninni um Evrópumeistaratitilinn í handknattleik í Slóveníu en fjögur hafa pakkað saman föggum sínum og eru á heimleið í dag. Auk Íslendinga eru það Portúgalir, Úkraínumenn og Pólverjar sem hafa lokið keppni.
Meira
ÍSLENSKA landsliðið, þjálfarar þess og aðrir þurfa að líta í eigin barm eftir að sú staðreynd varð ljós í gær að það komst ekki áfram í milliriðla EM. Eitt jafntefli, 30:30, við Tékka í síðasta leik nægði ekki til að liðið héldi stöðu sinni meðal fremstu handknattleiksþjóða heims. Íslenska landsliðið er eitt fjögurra liða sem halda heim frá Slóveníu, viku fyrr en það gerði ráð fyrir, og fyrir vikið með skottið á milli lappanna.
Meira
DAVID Bentley, 19 ára gamall miðju- og sóknarmaður, skoraði gull af marki þegar hann innsiglaði öruggan 4:1 sigur bikarmeistara Arsenal á Middlesbrough í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar á Highbury á laugardaginn.
Meira
ÓLAFUR Stefánsson skoraði í gær sitt 100. mark í úrslitakeppni Evrópumóts í handknattleik. Áfanganum náði hann þegar hann skoraði 6. mark sitt í leiknum úr vítakasti þegar 1,25 mínútur voru til leiksloka. Það var jafnframt 29. mark Íslendinga í leiknum.
Meira
ÓLAFUR Stefánsson varð í þriðja til fjórða sæti á listanum yfir markahæstu menn riðlakeppninnar á Evrópukeppni landsliðs í Slóveníu sem lauk í gærkvöld.
Meira
* PORTÚGALAR luku keppni á Evrópumótinu með því að gera jafntefli við heimsmeistara Króata í lokaumferð B-riðilsins. Þetta var eina stig Portúgala í riðlinum en Króatar urðu eftir með 5 stig.
Meira
"ÞETTA eru gríðarleg vonbrigði, ég er hundfúll, eins og allt liðið, með þessa niðurstöðu," sagði Ólafur Stefánsson eftir að flautað var til leiksloka í Celje og gær og ljóst að hann er leið frá Slóveníu í dag eftir 30:30 jafntefli við Tékka þar sem Tékkar komust áfram á því að hafa skorað einu marki fleira í keppninni en Íslendingar sem skoruðu 87 mörk í leikjunum þremur en þjóðirnar fengu eitt stig hvor úr þremur viðureignum.
Meira
"ÉG held að það sé engin einhlít skýring á þessari niðurstöðu og raun er kannski of snemmt að benda á eitthvað sérstakt sem veldur því að við leikum ekki betur en raun ber vitni um á þessu móti," sagði Einar Örn Jónsson, hornamaður íslenska landsliðsins eftir jafnteflið við Tékka í gær og þá staðreynd að íslenska landsliðið sem ætlaði sér að vinna riðilinn er nú á leið heim, það rak lestina í riðlakeppninni.
Meira
"BYRJUNIN var rosagóð hjá okkur, alveg eins og lagt var upp með, en síðan kom kafli undir lok fyrri hálfleiks þar sem hvert færið af öðru fór forgörðum og þá snerist leikurinn um leið Tékkum í vil," sagði Guðjón Valur Sigurðsson, hornamaður íslenska landsliðsins.
Meira
HIN kunna hollenska frjálsíþróttakona, Fanny Blankers-Koen, er fallin frá en hún var 85 ára gömul er hún lést á laugardag og hafði átt við erfið veikindi að stríða undanfarin ár.
Meira
"ÉG segi bara pass eins og allir aðrir handknattleiksunnendur," sagði Páll Ólafsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik, eftir að ljóst varð í gærkvöldi að íslenska landsliðið í handknattleik væri á heimleið eftir riðlakeppni EM. Páll hefur rætt um leiki liðsins við Morgunblaðið og sagði meðal annars fyrir mótið að hann væri ekkert allt of bjartsýnn.
Meira
LOKEREN er að komast á gott skrið í belgísku 1. deildinni og á laugardag lék liðið vel á heimavelli gegn Standard Liege sem er í öðru sæti deildarinnar. Leikurinn endaði með jafntefli, 1:1, og skoraði Rúnar Kristinsson mark Lokeren á 38. mínútu.
Meira
LOUIS Saha framherji Manchester United hefur beðið stuðningsmenn Fulham afsökunar á hegðun sinni undanfarnar vikur er hann stóð í stappi við forráðamenn Fulham vegna sölu hans til United, en hann var keyptur fyrir um 1,6 milljarða ísl. kr.
Meira
ÍSLENDINGALIÐIN Wolves og Nottingham Forest hafa sungið sitt síðasta í ensku bikarkeppninni en bæði töpuðu illa á heimavelli í gær í 4. umferð keppninnar. Manchester United, Sheffield United og West Ham verða í hattinum í dag þegar dregið verður til fimmtu umferðarinnar en Everton og Fulham verða að spila aftur og sömuleiðis Manchester City og Tottenham en viðureignum liðanna lyktaði með 1:1 jafntefli.
Meira
HEIMAMENN voru slakir þegar lið Snæfells kom í heimsókn í úrvalsdeild karla í gær og gestirnir fóru kampakátir með stigin tvö heim þegar þeir lögðu Grindvíkinga 89:83. Þetta var í fyrsta sinn í vetur sem Grindavík tapar á heimavelli í vetur í úrvalsdeildinni í körfuknattleik - liðið er samt sem áður í efsta sæti með 24 stig að loknum 14 umferðum en Snæfell er nú í öðru sæti með 22 stig og hefur komið gríðarlega á óvart það sem af er vetri.
Meira
JAFNTEFLI Slóvena og Ungverja, 29:29, í lokaleik C-riðilsins í Celje í gærkvöldi gerði það að verkum að Slóvenar urðu efstir í riðlinum. Báðar þjóðir kræktu í fimm stig en markatala Slóvenanna var hagstæðari sem nemur tveimur mörkum.
Meira
STJÓRNARFORMAÐUR enska 1. deildarliðsins Sunderland, Bob Murray, segir að hann hafi áhuga á að selja sinn hlut í félaginu en hann hefur verið í forsvari fyrir félagið undanfarin 17 ár. Eftir að liðið féll úr úrvalsdeild s.l.
Meira
SVISSLENDINGAR komu mörgum á óvart með því að leggja Úkraínumenn, 25:22, og tryggja sér þar með þátttökurétt í milliriðli á kostnað Úkraínumanna. Frábær varnarleikur og stórleikur leikstjórnandans Robbie Kostandinovich skópu sigur Svisslendinga.
Meira
* VENUS Williams frá Bandaríkjunum er úr leik á Opna ástralska meistaramótinu í tennis en þetta er fyrsta mótið sem hún tekur þátt í undanfarna sex mánuði.
Meira
"VIÐ höfum gaman af góðum handknattleik og þess vegna ákváðum við að skella okkur til Slóveníu og fylgjast með Evrópumótinu, styðja við bakið á íslenska landsliðinu," sagði Róbert Þórhallsson sem ásamt félaga sínum Valdimari Magnússyni en þeir eru í Celje að styðja við bakið á íslenska landsliðinu í handknattleik og fylgjast einnig með öðrum leikjum sem þar fara fram.
Meira
Forráðamenn knattspyrnusambands Wales íhuga að leggja inn kæru vegna leiks liðsins gegn Rússum í undankeppni Evrópumóts landsliða eftir að í ljós kom í gær að einn leikmanna rússneska liðsins hafði fallið á lyfjaprófi.
Meira
"ÞESSI niðurstaða er okkur að sjálfsögðu gríðarlegt áfall, en þegar upp er staðið þá eru of mörg atriði í ólagi hjá okkur til þess að við verðskulduðum að komast áfram í milliriðla á svo sterku móti sem EM er," sagði Guðmundur Þórður...
Meira
KÁRI Árnason, 22 ára gamall knattspyrnumaður sem leikur með Víkingi, fær góða dóma hjá þjálfara norska úrvalsdeildarliðsins Sogndal en Kári hefur verið til reynslu hjá liðinu undanfarna daga og lék æfingaleik með því um helgina.
Meira
Míra Indversk kommóða úr indverskum sesamviði á 40% afslætti. Til í takmörkuðu magni. Áður 44.900. Núna 26.940. 15-70% afsláttur er af flestu í Míru. Kertastjaki fyrir 5 kerti. Áður: 13.900. Núna 8.490 Leirvasi, u.þ.b. 60 sm hár, til í þrem litum. Áður...
Meira
Húsasmiðjan Blöndunartæki fyrir handlaug frá Kludi, Logo Mix, með lyftitakka. Áður 9.550. Nú 6.550 Spinner er hvítt loftljós sem nú er á tilboði í Húsasmiðjunni. Ummál 31 sm. Áður 1.499. Nú...
Meira
BYKO Vegg- og gólfflísar af gerðinni Emil eru á tilboði í BYKO. Stærð 11,5x11,5 sm, þykkt 8 mm. Áður 5.320. Nú 2.990 kr. Skrautflísarnar eru seldar þrjár saman í pakka og kosta 3.956. Nú er einnig 20% afsláttur af öllum flísum í...
Meira
NÚ er í gangi sérstakt átak til fjölgunar leiguíbúða og Íbúðalánasjóður hefur heimild til þess að lána árlega 1,5 milljarða kr. vegna þessa átaks á árunum 2002-2005. Samtals er því um að ræða 6 milljarða kr.
Meira
Hjón í Kópavogi fóru hagkvæma leið við endurnýjun á baðhergi sínu fyrir skömmu. Baðherbergið var flísalagt í hólf og gólf með brúnum, munstruðum flísum.
Meira
Við Þorláksgeisla 19-35 í Grafarholti er nú verið að byggja þriggja hæða fjölbýlishús, sem er óvenjulegt vegna lögunar sinnar en það er byggt í hálfhring og myndar þannig skjól um garð og leiksvæði inni í hringnum. Mótás hf.
Meira
BYKO er nýbúið að fá kínverskar barnakerrur á góðu verði. Kerran er mjög létt því grindin er úr harðplasti. Hún er með bremsum, kerrupoka og plastábreiðu. Auðvelt er að leggja hana saman og hægt að hækka og lækka bakið. Þá eru einnig lítil geymsluhóf, t.
Meira
Kaldraneshreppur - Hjá Fasteignamiðstöðinni er nú til sölu ferðaþjónustubýlið Bær III í Kaldraneshreppi í Strandasýslu. Íbúðarhúsið er 177,5 ferm., byggt úr timbri árið 1980.
Meira
Eignaskiptayfirlýsing er lögboðinn skriflegur gerningur eigenda fjöleignarhúss sem gerður er á grundvelli fyrirmæla laga um fjöleignarhús og geymir lýsingu á húsi og lóð, mælir fyrir um skiptingu þess í séreignir, sameign allra og sameign sumra og...
Meira
Akranes - Fasteignasalan Miðborg er nú með í sölu steinsteypt einbýli og útihús á Fögrubrekku við Akranes, sem er lögbýli á 9 hektara eignarlandi á skilgreindu landbúnaðarsvæði samkvæmt svæðisskipulagi. Íbúðarhúsið, sem byggt var 1955, er 213,2 ferm.
Meira
Austast í Grafarholti er að rísa þriggja hæða fjölbýlishús, sem sker sig verulega úr umhverfinu vegna lögunar sinnar. Magnús Sigurðsson kynnti sér nýjar íbúðir, sem byggingafyrirtækið Mótás hf. byggir við Þorláksgeisla 19-35.
Meira
Reykjavík - Fasteignasalan Garð ur er nú með í einkasölu einbýlishús við Holtasel 36. Húsið er hæð, ris og jarðhæð samtals 274,6 ferm., þar af er bílskúrinn 34,2 ferm., en hann er innbyggður á jarðhæðinni.
Meira
Það getur verið erfitt fyrir ungt fólk utan af landi að koma sér fyrir í Reykjavík. Guðlaug Sigurðardóttir heimsótti Björgvin Sigurðsson og Jónu Birnu Óskarsdóttur í nýjar íbúðir Byggingafélags námsmanna við Kristnibraut í Reykjavík.
Meira
Allt bendir til þess að innleiðing 90% lána á næstu misserum muni ekki verða til þess að skapa ójafnvægi í fasteignaviðskiptum þar sem allt bendir til þess að um þessar mundir sé framboð af íbúðarhúsnæði allnokkru meira en eftirspurnin.
Meira
Það hafa verið farnar margar og mismunandi leiðir með lagnir um hús og hýbýli frá því að menn hófu röraöldina, sem er svo merk að sögu hennar ætti svo sannarlega að rita og gleyma nú ekki að geta heimilda hvort sem þær koma frá Hammúrabí, Ágústusi mikla...
Meira
Eignarhaldsfélagið Fjölhæfni ehf. í Keflavík hefur ráðist í það verkefni að gera upp húsið við Laugaveg 86, næsta hús við Stjörnubíó, sem nú er búið að rífa, en borgin á lóðina sem húsið stendur á.
Meira
Frjálsi fjárfestingarbankinn býður nú viðskiptavinum sínum afborgunarlaus fasteignalán í íslenskum krónum. Greiðslubyrði þessara lána er lægri en greiðslubyrði hefðbundninna fasteignalána sem standa viðskiptavinum einnig til boða.
Meira
Þ essi nýja heilsársbyggð heitir Ásborgir og er á kjarri vöxnu hrauni á bökkum Sogsins í Ásgarðslandi um 30 m yfir sjávarmáli. Þetta er mjög fallegur staður í um það bil 90 km.
Meira
Í byrjun febrúar hefjast tvö námskeið á símenntunarsviði Tækniháskóla Íslands í matsfræðum. Námskeiðið, Mat fasteigna, var kennt á haustönn skólans og munu fyrstu nemendurnir útskrifast af því í lok þessa mánaðar.
Meira
Pipar og salt Nokkrar gerðir glasa í ýmsum litum með 50% afslætti. Þessi glös eru með mattri áferð og strípum og eru seld fjögur saman. Verð áður 1.995 kr. Verð nú 1.000...
Meira
Reykjavík - Eignamiðlunin er nú með í sölu vandað einbýlishús við Rafstöðvarveg 25 í Reykjavík. Þetta er steinhús, 277 ferm. að stærð auk bílskúrs og með afnot af um 1.800 ferm. lóð.
Meira
Það er ekki alltaf auðvelt að vera utan af landi og búa í stórborginni henni Reykjavík. Ég kem frá Húsavík sem er talsvert minni um sig en höfuðborgarsvæðið. Þar eru færri hús, færri götur og færra fólk.
Meira
Chicago í Illinoisfylki Bandaríkjunum Arkitekt: Bruce Graham Sears-turninn í Chicago var hæsta húsbygging heims allt frá því hann var byggður á fyrri hluta áttunda áratugar síðustu aldar og til 1997 er Petronas turntvennan reis í Kuala Lumpur í Malasíu...
Meira
Silfurhúðun er fyrirtæki sem stendur á gömlum merg, en fyrirtækið var stofnað árið 1969. Logi Magnússon, eigandi Silfurhúðunar, segir alltaf sé eitthvað um að fólk vilji láta hressa upp á silfurmuni, s.s. kaffikönnusett, bakka, lítil staup og borðbúnað.
Meira
Draugagangur og fljúgandi vínflöskur koma við sögu í frásögn Bryndísar Höllu Gylfadóttur og Þórðar Magnússonar af endurbyggingu húss þeirra í Hafnarfirði. Guðlaug Sigurðardóttir fékk að líta í heimsókn og skoða viðamiklar endurbætur sem brátt sér fyrir endann á.
Meira
Reykjavík - Fasteignasalan Heimili er nú með í sölu húseignina Bjarg við Suðurgötu 100 í Reykjavík. Þetta er fallegt einbýlishús ásamt bílskúr og stendur á góðum stað í Vesturbænum. Húsið er 159 ferm.
Meira
Ný fasteignasala, Domus, hefur verið opnuð á Egilsstöðum. Domus sinnir, auk fasteignasölu, skipa- og jarðasölu, miðlun leiguhúsnæðis og kaupendaþjónustu. Stofnendur Domus eru Bjarni G. Björgvinsson, Sigurður Bogason og Bjarni Þór Óskarsson lögmenn.
Meira
Ein bjalla á dag kemur skapinu í lag gæti verið mottó Sigríðar Eysteinsdóttur, eiganda Stúdíós Brauðs. Sigga er safnari. Hún safnar bjöllum. "Ég er með algjöra dellu fyrir bjöllum," segir Sigga hlæjandi.
Meira
Reykjavík - Fasteignasalan Híbýli er nú með í sölu húseignina Ægissíðu 94 í Reykjavík. Um er að ræða einbýli á 3 hæðum, byggt úr steinsteypu 1949 og er húsið alls 275,1 ferm. Húsinu fylgir 58 ferm. bílskúr sem byggður var 1982 og einnig 12 ferm.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.