JOHN Abizaid hershöfðingi og yfirmaður bandarísku herstjórnarinnar í Írak og Afganistan sagði í gær, að hugsanlegt væri, að borgarastyrjöld brytist út í Írak ef allt færi á versta veg. Hann kvaðst þó telja það ólíklegt.
Meira
GARRÍ Kasparov, sterkasti skákmaður heims og Anatolí Karpov, fyrrum heimsmeistari, munu tefla á firnasterku hraðskákmóti, Reykjavík rapid 2004, í mars n.k. að loknu Reykjavíkurskákmótinu. Aðalstyrktaraðili mótsins er Atlantsál.
Meira
NORSKAR leyniþjónustustofnanir eru farnar að fylgjast með þeim háskólanemum, sem ekki eru frá vestrænum ríkjum en stunda nám í kjarneðlisfræði, lífefnafræði og öðrum þeim greinum, sem geta auðveldað mönnum að setja saman gereyðingarvopn.
Meira
"ÉG hef þrisvar sinnum áður teflt á Íslandi og vann þá í öll skiptin og ég vona að það verði ekki breyting á því," sagði Garrí Kasparov í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld en hann er staddur í Moskvu.
Meira
GREG Dyke, yfirmaður BBC , breska ríkisútvarpsins, sagði af sér í gær vegna mikillar gagnrýni á stofnunina í Hutton-skýrslunni um dauða vísindamannsins Davids Kellys. Í fyrradag sagði Gavyn Davies, formaður útvarpsráðs BBC , af sér af sömu sökum.
Meira
HARÐUR þriggja bíla árekstur varð á Reykjanesbrautinni í Hvassahrauni um klukkan 19 í gærkvöld. Slysið varð á nýja vegarkaflanum þar sem verið er að breikka brautina. Flytja varð fjóra menn sem í bílunum voru undir læknishendur.
Meira
Í versta falli getur fólk misst tennurnar eða sýkingar orðið lífshættulegar er niðurstaða rannsóknar sem tannholdssérfræðingurinn Espen Færøvig í Skien í Noregi gerði á ungmennum sem létu gera göt í varir.
Meira
LEIÐBEINANDI reglur um umgengni sölumanna lyfjafyrirtækja á heilbrigðisstofnunum eru meðal þeirra aðgerða sem stýrihópur heilbrigðisráðherra setur fram í nýrri skýrslu sinni til að sporna við hækkun lyfjakostnaðar í landinu.
Meira
DAGRÓÐRABÁTAR sem róa með landbeitta línu geta fengið ívilnun á ýsu- og steinbítsafla sinn frá og með 1. febrúar nk. að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Meira
Könnun leiðir í ljós að háskólanemar ofmeta tungumálakunnáttu sína. Margrét Jónsdóttir kannaði sl. haust þekkingu og sjálfsmat nemenda við Háskólann í Reykjavík varðandi tungumálanám. Leitað var til 897 stúdenta í viðskiptadeild og 170 í lagadeild.
Meira
SAMKEPPNISSTOFNUN hefur veitt olíufélögunum þremur, Olíufélaginu, Olíuverzlun Íslands og Skeljungi, frest til 3. maí til að setja fram andmæli gegn frumskýrslu stofnunarinnar vegna meints verðsamráðs félaganna.
Meira
KÝRIN Áma frá Miðhjáleigu í Austur-Landeyjum var afurðahæsta kýr landsins árið 2003. Þau Bertha G. Kvaran og Jón Þ. Ólafsson eiga Ámu og eru afar ánægð með hana. Hún mjólkaði alls 11.842 kg á síðasta ári og fór mest í 45 kg í dagsnyt.
Meira
Hróður þeirra Völu Torfadóttur og Bjargar Ingadóttur, eigenda og hönnuða Spaksmannsspjara í Bankastræti, hefur borist til Asíu, en fötin þeirra voru sýnd á tískusýningu í Bangkok á liðnu hausti.
Meira
Næsta haust hefst í Háskólanum í Reykjavík tungumálatengt viðskiptanám sem dr. Margrét Jónsdóttir hefur umsjón með. Hún segir að menningarlæsi sé lykilatriði til að ná árangri í viðskiptum á alþjóðavettvangi.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær karlmann í 10 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveim stúlkum á árunum 2000 til 2002. Voru þær 6-8 ára er brotin voru framin. Skal ákærði greiða hvorri þeirra 300 þúsund krónur í miskabætur.
Meira
Fljót | Mikið var um að vera í Sjálfsbjargarhúsinu í Siglufirði miðvikudaginn 28. janúar en þá fagna bæjarbúar því að sólin fer að sjást í bænum á ný eftir að hafa verið í hvarfi frá því seint í nóvember.
Meira
TUTTUGU og átta starfsmönnum Íslenskra aðalverktaka hefur verið sagt upp störfum hjá fyrirtækinu úr ýmsum deildum á Keflavíkurflugvelli. Flestir starfsmannanna eru með þriggja mánaða uppsagnarfrest. Að sögn Árna I.
Meira
Garður | Þrír kennarar við Gerðaskóla eignuðust börn, allt drengi, á þremur dögum í lok síðasta mánaðar. Lágu kennararnir saman á fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í Keflavík.
Meira
Mun færri konur en karlar tóku þátt í umræðuþáttum í sjónvarpi og útvarpi fyrir seinustu þingkosningar. Ný rannsókn sýnir að hlutur kvenna í umræðuþáttum í sjónvarpi var 24%.
Meira
"UNDAFARIN fjögur til fimm ár höfum við fengið mjög góða aukningu á nyt og þetta er allt í rétta átt," segir Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda, en meðalafurðir hjá íslenskum kúm voru meiri á nýliðnu ári en nokkru sinni fyrr...
Meira
STJÓRN Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, lýsir yfir áhyggjum vegna ákvörðunar dómstólaráðs um að grípa til niðurskurðar hjá héraðsdómstólum þar sem ekki hafi fengist vilyrði fyrir því að leysa rekstrarvanda dómstólanna.
Meira
Garðabær | Svo til allir foreldrar barna í leikskólum Garðabæjar telja að barninu sínu líði vel eða mjög vel í leikskólanum. Í könnun sem lögð var fyrir foreldrana í febrúar og mars 2003 segja yfir níutíu og átta prósent foreldra að barninu líði vel.
Meira
ÁSMUNDUR Jóhannes Jóhannsson byggingatæknifræðingur andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir að kvöldi þriðjudagsins 27. janúar. Ásmundur Jóhannes var sonur hjónanna Hildar G.K.
Meira
Borun hætt | Hætt hefur verið við að bora vinnsluholu fyrir heitt vatn á Eskifirði Höfðu menn talið að hitta mætti á heitavatnsæð á um 1.050 metra dýpi, en á 1.300 metra dýpi var ákveðið að hætta þar sem ekkert vatn hafði þá fundist.
Meira
FRAMKVÆMDASTJÓRN Landspítala - háskólasjúkrahúss ákvað í gær að starfrækja bráðamóttöku við Hringbraut allan sólarhringinn sjö daga vikunnar, þrátt fyrir fyrri áform um að loka deildinni um helgar.
Meira
NORSKIR skólar hafa hvorki getu né vilja til að annast bráðgreinda nemendur, hefur Aftenposten eftir efnafræðiprófessornum Martin Ystnes. Í ljósi eigin reynslu ræður hann foreldrum mjög gáfaðra barna að senda þau í einkaskóla.
Meira
Breyting á nafni staðfest | Félagsmálaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun hreppsnefndar Gerðahrepps um breytingu á nafni sveitarfélagsins. Framvegis heitir það Sveitarfélagið Garður.
Meira
Breyting á nafni staðfest | Félagsmálaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun hreppsnefndar Gerðahrepps um breytingu á nafni sveitarfélagsins. Framvegis heitir það Sveitarfélagið Garður.
Meira
HOWARD Dean, fyrrverandi ríkisstjóri Vermont, hefur leyst kosningastjóra sinn, Joe Trippi, frá störfum eftir að hafa tapað fyrir öldungadeildarþingmanninum John Kerry í forkosningum demókrata í New Hampshire og Iowa.
Meira
NORSKU stjórnarflokkarnir eru klofnir í afstöðunni til þess hvort banna eigi vændiskaup með lögum. Kristilegi þjóðarflokkurinn er hlynntur slíku banni en hinir flokkarnir hafa efasemdir um það, að því er fram kemur á fréttavef Aftenposten .
Meira
"FJARVERA kvenna í pólitískum umræðuþáttum, bæði sem þátttakendur og stjórnendur, gerir það að verkum að þeir ná ekki að endurspegla á trúverðugan hátt þá þjóð sem í landinu býr, og jafnrétti í víðasta skilningi nær ekki að vera eðlilegur hluti af...
Meira
VEGNA frétta af fjárhagserfiðleikum Altech JHM, sem var einn af stofnendum og minnihlutaeigendi í Atlantsáli, taka stjórnendur Atlantsáls fram að Altech hafi hvorki fjárhagsleg né rekstrarleg tengsl við áform og áætlanir um byggingu álvers á Bakkahöfða...
Meira
BANDARÍSKUR dómari hefur fyrirskipað olíufyrirtækinu Exxon Mobil að greiða um 6,75 milljarða dollara, 465 milljarða króna, í skaðabætur og vexti vegna olíuskipsins Exxon Valdez sem strandaði við strönd Alaska árið 1989 og olli mestu olíumengun í sögu...
Meira
Fé af fjalli | Fimm kindur heimtust í vikunni af fjalli við Loðmundarfjörð. Höfðu bændur úr Borgarfirði eystra farið á vélsleðum yfir og rákust í ferð sinni á ær með stálpaða tvílembinga úr Hjaltastaðarþinghá og tvö lömb úr næstu sveit.
Meira
Félag áhugafólks um heimafæðingar heldur fund mánudaginn 2. febrúar kl. 20. í Kvennagarði á 4. hæð í Kjörgarðshúsinu við Laugaveg 59 (gengið inn úr porti við Hverfisgötu).
Meira
FUNDUR flokkstjórnar Samfylkingarinnar verður haldinn á morgun, laugardaginn 31. janúar, á Grand hótel við Sigtún í Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 13 og gert er ráð fyrir að honum ljúki um klukkan 17.
Meira
HEILMIKILL erill hefur verið á Amtsbókasafninu á Akureyri í vikunni og fólk í miklum ham að næla sér í bækur, myndbönd, geisladiska og annað efni sem í boði er á safninu.
Meira
Fyrsta stóra brunaæfingin var haldin í aðalbúðum Kárahnjúkavirkjunar nýverið. Fulltrúar frá Brunamálastofnun, þeir Guðmundur Bergsson og Bernhard Jóhannesson, ásamt slökkviliðsstjóra Brunavarna á Héraði, Baldri Pálsyni, stjórnuðu á vettvangi.
Meira
ÍSLANDSBANKI hefur opnað útibú í Grímsey sem mun jafnframt vera nyrsta bankaútibú á byggðu bóli á Íslandi og það fyrsta sem staðsett er við heimskautsbaug.
Meira
FERÐAMÁLARÁÐ Íslands, Ungmennafélag Íslands og Landmælingar Íslands undirrituðu á Grand hóteli í gær samstarfssamning um gerð og rekstur gagnagrunns um gönguleiðir á Íslandi. Stefnt er að því að opna gagnagrunninn 1.
Meira
LANDSSAMBÖND innan Alþýðusambands Íslands, sem aðild eiga að virkjunarsamningi lýsa því yfir í sameiginlegri tilkynningu að mál vegna starfsréttinda starfsfólks á Kárahnjúkasvæðinu hafi ítrekað komið upp og tími verktakans til að taka á málinu verið...
Meira
UNGIR sjálfstæðismenn í Reykjavík ætla að dæma öll frumvörp, sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja fram á Alþingi, með tilliti til þess hvort þau auki eða minnki frelsi Íslendinga.
Meira
Grindavík | Félagar í björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík hafa bjargað 232 sjómönnum úr sjávarháska frá því sveitin var stofnuð fyrir 74 árum.
Meira
Ingunn Gísladóttir fæddist á Blönduósi 15. maí 1950 en ólst upp á Hofi í Vatnsdal. Hún er kennari að mennt og hefur starfað á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur frá upphafi eða frá 1. ágúst 1996.
Meira
Hólmavík | Margir Hólmvíkingar höfðu ærna ástæðu til að fagna bóndadegi og var það vel við hæfi að þann dag voru tekin í notkun nýuppgerð hesthús í eigu sveitarfélagsins.
Meira
BRIAN Hutton lávarður sætti í gær harkalegri gagnrýni úr mörgum áttum fyrir að hafa "hvítþvegið" ríkisstjórn Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, en fundið alvarlega bresti í starfsaðferðum breska ríkisútvarpsins, BBC , þegar hann vann...
Meira
GUÐMUNDUR Guðlaugsson, bæjarstjóri Siglufjarðarkaupstaðar, hefur óskað eftir því að vera leystur frá störfum af persónulegum ástæðum. Samkomulag hefur verið gert um starfslok hans og mun Guðmundur láta af störfum hinn 1. febrúar.
Meira
Kaupa í Norðlenska | Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að kaupa hlutafé í Norðlenska matborðinu fyrir 30 milljónir króna. Á fundinum voru lögð fram drög að samningi um hlutafjárkaupin, að upphæð 30 milljónir króna.
Meira
NÚ fær kristið fólk loksins stað til að striplast á því fyrsta kristilega nektarnýlendan verður opnuð á Flórída í apríl. Í nýlendunni verða 500 heimili, hótel, vatnsrennibrautagarður og kirkja.
Meira
FRAMKVÆMDIR við lagningu Dalsbrautar frá Klettaborg að Þingvallastræti á Akureyri hófust í vikunni. Vegurinn verður lagður í gilinu vestan Hamragerðis. Um er að ræða um 700 metra langan vegarkafla með tengingum við Dalsgerði og Akurgerði. GV-gröfur ehf.
Meira
GUNNAR Páll Pálsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, telur nauðsynlegt að mörkuð sé stefna um hvað teljist eðlileg launakjör æðstu stjórnenda fyrirtækja.
Meira
Í NOKKUR ár hafa samtök Lionsklúbba á Norðurlöndunum unnið að því að endurbyggja endurhæfingarmiðstöð í Silas rétt utan við Vilnius, höfuðborg Litháens. Þar er sinnt einstaklingum sem hafa hlotið heilablæðingu eða lamast í slysum.
Meira
Íslensk erfðagreining er nú að rannsaka erfðafræðilegar orsakir fyrir svokölluðum athyglisbresti með ofvirkni, eða ADHD, og segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE), þennan sjúkdóm sennilega nátengdari erfðum en nokkurn annan...
Meira
FRANSKA ríkisstjórnin hefur lagt blessun sína yfir umdeilt lagafrumvarp sem kveður á um að mönnum verði bannað að bera tiltekin, áberandi trúartákn í skólum landsins. Fullvíst er talið að þing Frakklands samþykki lögin í byrjun febrúar.
Meira
PALESTÍNSKUR tilræðismaður varð sjálfum sér og tíu öðrum að bana með öflugri sprengju í strætisvagni skammt frá embættisbústað Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, í Jerúsalem í gærmorgun. 48 til viðbótar særðust, þar af þrettán alvarlega.
Meira
MIKIL gróska hefur verið í byggingariðnaðinum á Akureyri undanfarin ár og er allt útlit fyrir að svo verði áfram. Akueyrarbær auglýsti nýlega lóðir í Naustahverfi undir einbýlishús, raðhús, fjórbýlishús og fjölbýlishús.
Meira
HILMAR Gunnlaugsson, eigandi Fasteigna- og skipasölu Austurlands, telur óhætt að fullyrða að frá því að ákvörðun Alcoa um að byggja álver á Austurlandi var gerð kunn í byrjun árs 2003 hafi fasteignaverð hækkað um 20-150% á Mið-Austurlandi.
Meira
Miðbær | Í miðbæ Reykjavíkur má finna kynstrin öll af kynlegum köttum. Þeir eru margir sérkennilegir og bera þess merki að búa í suðupotti menningar og lista.
Meira
Hafnarfjörður | Rúm áttatíu og fjögur prósent Hafnfirðinga eru mjög eða frekar ánægð með að búa í bænum sínum og níutíu og sjö prósent bæjarbúa eru ánægð með þá möguleika sem í boði eru á útivist og tómstundum í bæjarfélaginu.
Meira
STJÓRNIR Sálfræðingafélags Íslands og Stéttarfélags sálfræðinga á Íslandi mótmæla eindregið skerðingu á sálfræðiþjónustu á Landspítala - háskólasjúkrahúsi: "Samkvæmt upplýsingum frá LSH mun vera um 12% niðurskurð á stöðum sálfræðinga að ræða eða sem...
Meira
Niðurskurður | Niðurskurður er fyrirsjáanlegur hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands og nemur hann yfir eitthundrað milljónum króna á næstu tveimur árum.
Meira
ALÞJÓÐLEGA Reykjavíkurskákmótið fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 7.-16. mars nk. Mótið er jafnframt afmælismót, hið 21. í röðinni, en fyrsta Reykjavíkurmótið var haldið í Lídó árið 1964.
Meira
Búi Örlygsson frá Landsbankanum á Akranesi kom færandi hendi í leikskólann Garðasel þar í bær þegar hann kom með 30 endurskinsvesti sem hann færði börnunum. Auk þess fengu leikskólarnir Teigasel og Vallarsel sams konar gjöf.
Meira
STÓRU olíufélögin, Essó, Olís og Skeljungur, hafa frest til 13. febrúar til að gefa Samkeppnisstofnun upplýsingar og gera athugasemdir vegna kæru Atlantsolíu.
Meira
EKKI er ljóst hvar 32 fjölfötluðum einstaklingum sem notið hafa endurhæfingarþjónustu á endurhæfingardeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Kópavogi verður veitt slík þjónusta í framtíðinni.
Meira
Læknar hafa hingað til ráðið mestu um hvaða lyfjum er ávísað á þeim stofnunum sem þeir starfa á og hafa sölumenn lyfja því beint sjónum sínum að þeim. Með tillögum sem miða að því að draga úr lyfjakostnaði heilbrigðisstofnana er val á lyfjum fært í hendur lyfjanefnda stofnana.
Meira
JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, segist ætla að fara nánar yfir framkvæmd endurgreiðslu vegna lækniskostnaðar, en í Morgunblaðinu í gær er sagt frá ungu fólki sem þurfti að greiða að fullu fyrir eyrnabólguaðgerð sem sjö ára sonur þess...
Meira
Ráðstefna um eyrnasuð Landlæknisembættið og Félagið Heyrnarhjálp gangast fyrir ráðstefnu um eyrnasuð í dag, föstudaginn 30. janúar, á Grand hóteli við Sigtún kl. 13-17.
Meira
ÍSRAELSK stjórnvöld létu yfir 400 fanga lausa í gær, í skiptum fyrir ísraelskan kaupsýslumann og lík þriggja ísraelska hermanna, samkvæmt samningi sem þau gerðu við líbönsku Hizbollah-skæruliðasamtökin.
Meira
RÚTUR á Íslandi eru að meðaltali árgerð 1987 og því orðnar 16 ára gamlar. Af 742 bifreiðum eru einungis 198 eða 27% af árgerð 1993 eða nýrri. 263 bílar eða 35% eru eldri en árgerð 1983 og 150 bílar eru árgerð 1978 eða eldri.
Meira
Ólafsfjörður | Egill Sigvaldason í Ólafsfirði hefur mikinn áhuga á jólasveinum, raunar svo mikinn að hann safnar þeim og á örugglega fleiri sveina en flestir aðrir.
Meira
SAMKOMUHÚSIÐ Grund í Svarfaðardal er ónýtt eftir að eldsvoða sem þar varð í gærmorgun. Alls tóku 15 menn úr Slökkviliði Dalvíkur þátt í slökkvistarfinu sem lauk skömmu eftir hádegi. Samkomuhúsið Grund er rétt hjá bænum Grund í Svarfaðardal.
Meira
ÖGMUNDUR Jónasson, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, kvaddi sér hljóðs í upphafi þingfundar á Alþingi í gær og sagði að efnahags- og viðskiptanefnd þingsins hefði verið óstarfhæf undanfarnar vikur vegna deilna um hæfi formanns...
Meira
SIGGEIR Björnsson, fyrrverandi bóndi og hreppstjóri, er látinn í Reykjavík, 85 ára að aldri. Siggeir fæddist í Holti á Síðu 15. janúar árið 1919 og bjó þar til sjötugs uns hann fluttist til Reykjavíkur en dvaldist að sumrum í Holti.
Meira
Laugardalur | Áform eru uppi um að veita sjó frá ströndinni við gatnamót Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar og þaðan inn í Laugardal um neðanjarðarlagnir.
Meira
Mosfellsbær | Árið 1953 keypti Umdæmisstúkan nr.1 býlið Skálatún í Mosfellssveit til að stofna þar vistheimili fyrir þroskaheft börn. Starfsemin byrjaði svo þann 30. janúar 1954. Á þeim 50 árum sem liðin eru frá stofnun heimilisins hefur margt breyst.
Meira
VILMUNDUR Gíslason, framkvæmdastjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra (SLF), segir ljóst að félagið geti ekki að óbreyttu tekið að sér að veita fjölfötluðum einstaklingum á endurhæfingardeild LSH í Kópavogi endurhæfingarþjónustu á Æfingastöð SLF á...
Meira
SKÚLI Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins (SGS), reiknar með að fljótlega eftir helgina verði staðan í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins farin að skýrast. Ágætlega hafi miðað í viðræðunum að undanförnu.
Meira
Stjórnarmeirihlutinn var gagnrýndur fyrir stefnuleysi í umræðum um heilbrigðismál á Alþingi í gær. Umræðurnar stóðu yfir í tvo tíma en þar fjallaði heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, aðallega um aðgerðirnar á LSH.
Meira
Traust eru handtökin hjá Strandamanninum Guðmundi Sigurðssyni sem með aðstoð véltækninnar meitlar niður grágrýti í skjólveggi sem verið er að hlaða á bílastæðinu við höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur á Bæjarhálsi.
Meira
"AFI minn segir að það eigi að gera svona," sagði Gunnsteinn Sæþórsson og fékk sér væna flís af kjammanum sem hann sagði að væri góður á bragðið, á þorrablóti leikskólans í Aðaldal, en mikið var um dýrðir hjá börnum og starfsfólki þegar slegið...
Meira
HÆSTIRÉTTUR hnekkti í gær dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli ekkju starfsmanns í álverinu í Straumsvík sem lést í vinnuslysi sumarið 2001. Héraðsdómur dæmdi henni 7 milljónir króna í bætur en Hæstiréttur sýknaði Kerfóðrun hf.
Meira
Söluverðmæti hlutabréfa Söluverðmæti hlutabréfa Mörthu Stewart í líftæknifyrirtækinu ImClone, sem sagt var frá í grein í blaðinu í gær, var rangt upp reiknað. Hið rétta verðmæti bréfanna sem Martha seldi er samkvæmt FT.com 250.
Meira
ÁÆTLAÐ er að ferjan Norræna muni hefja siglingar á ný 20. mars næstkomandi, en nú er unnið að viðgerðum á ferjunni eftir að hún rakst á hafnargarðinn í Þórshöfn fyrr í mánuðinum.
Meira
STJÓRN FKB, Fræðslusamtaka um kynlíf og barneignir, hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun: "Stjórn Fræðslusamtaka um kynlíf og barneignir, FKB, varar mjög eindregið við öllum breytingum á starfsemi Neyðarmóttöku vegna nauðgunarmála, sem ekki...
Meira
HJÁ Upplýsingaþjónustu Háskóla (UH) Íslands hefur verið þróuð ný tækni til að vinna vefgöng með margfalt meiri afköstum en áður. Alls hefur stofnunin þróað rúmlega 23.
Meira
STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands hefur sent Páli Skúlasyni rektor bréf þar sem farið er fram á fyrir hönd nokkurra stúdenta að Háskólinn endurgreiði próftökugjald í læknisfræði.
Meira
AUGLÝSING Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar í Fréttablaðinu á miðvikudag með textanum: "Ósvikinn bjór er bruggaður án sykurs" er atvinnurógur að mati Árna Stefánssonar hjá Vífilfelli, en í auglýsingunni er birt mynd af dós af Víking bjór frá...
Meira
Þegar birt var ljóð Ólínu Þorvarðardóttur vegna 70 ára afmælis Sunnukórsins, þá duttu niður línubil. Hér birtist ljóðið í réttri útgáfu: Sól, þér helgum sigurlag og syngjum lof af hjarta. Þú breytir hríðar dimmu í dag uns dægrin litum skarta.
Meira
"ÞAÐ er ljóst að Þjóðminjasafnið verður ekki opnað að nýju þann 22. apríl en það verður opnað með glæsibrag síðar á árinu," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.
Meira
Þorraganga hjá SJÁ Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd (SJÁ) efna til þorragöngu á morgun, laugardaginn 31. janúar. Lagt verður af stað kl. 11 frá strætisvagnaskýlinu í Mjódd og tekur gangan um 3-4 klst.
Meira
Baldur Arnarson, nemi í fjölmiðlafræðum í Ástralíu, skrifaði athyglisverða grein hér í Morgunblaðið í fyrradag um ástandið á fjölmiðlamarkaðnum í Ástralíu en greinin er skrifuð í ljósi umræðna hér um hvort takmarka eigi eignarhald á fjölmiðlum.
Meira
MALARASTÚLKAN fagra, lagaflokkur Schuberts við ljóð Wilhelms Müllers verður fluttur í Salnum í kvöld kl. 20. Það eru þeir Gunnar Guðbjörnsson tenór og píanóleikarinn Jónas Ingimundarson sem flytja verkið, en það hafa þeir gert áður.
Meira
ÍSLENSK tónskáld hafa mikið umleikis á næstunni. Myrkir músíkdagar hefjast um helgina, og úti í París hefst Préscence-tónlistarhátíðin með sérstakri áherslu á norræna tónlist.
Meira
FJÓRAR sýningar á leikritinu Erling verða á Nýja sviði Borgarleikhússins á næstu dögum, sú fyrsta annað kvöld. Leikritið, sem er eftir norska leikskáldið Axel Hallstenius, var frumsýnt í september og sýnt bæði í Loftkastalanum og á Akureyri.
Meira
ÞÁTTURINN Fjölskyldufaðirinn ( Family Guy ) hefur hlotið góðar viðtökur og ekki að ósekju. Þessi teikimyndaröð hóf göngu sína í Bandaríkjunum árið 1999 og segir frá Griffin-fjölskyldunni, sem er engin venjuleg fjölskylda.
Meira
Félagsstarf Gerðubergs kl. 16 Kristinn Reinholt Alexandersson opnar sína fyrstu opinberu myndlistarsýningu. Kristinn er fæddur í Reykjavík 18. janúar 1939.
Meira
STÖÐ 2 sýnir í kvöld sígilda unglingamynd frá árinu 1985, Morgunverðarklúbbinn ( The Breakfast Club ). John Hughes leikstýrir myndinni og skrifar jafnframt handritið en myndin hlaut hvarvetna góða dóma og þykir hafa elst vel.
Meira
Breski rithöfundurinn John le Carré er öskureiður yfir aðgerðum Breta og Bandaríkjamanna í Írak á síðasta ári. Þessi reiði skín í gegn í nýjustu bók hans, "Absolute friends".
Meira
STÆRSTA yfirlitssýning á flúxusverkum sem haldin hefur verið hérlendis verður opnuð í sölum Listasafns Íslands kl. 20 í kvöld. Sýningin er fengin hingað til lands frá IFA (Institut für Auslandsbeziehungen) í Stuttgart.
Meira
NEMENDUR Tónlistarskólans í Reykjavík flytja verk eftir Franz Schubert í Norræna húsinu á morgun, laugardag, kl. 14 en þá er fæðingardagur tónskáldsins. Þetta eru aðrir tónleikar í fernra tónleika röð á þessum vetri sem skólinn gengst...
Meira
ÞETTA er ekki einleikið með hann Robertino, barnastjörnuna sem hefur gengið í endurnýjun lífdaganna að undanförnu fyrir tilstuðlan Óttars Felix og félaga í Zonet.
Meira
DIE WÄLT der Zwischenfälle - eða Viröld fláa, er heiti nýrrar óperu eftir Hafliða Hallgrímsson sem frumsýnd verður í kvöld í óperunni í Lübeck í Þýskalandi.
Meira
SÚ goðsögn er lífseig að Papar, írskir munkar, hafi siglt til Íslands nokkru áður en norrænir menn námu hér land. Þegar grámóskulegir og rytjulegir víkingar komu og trufluðu friðinn hófu Paparnir sig á brott og létu ekki sjá sig meir.
Meira
"FYRSTI áratugur 20. aldarinnar minnir um margt á áratuginn sem nú er að líða," segir Þórhallur Sigurðsson, leikstjóri í Þjóðleikhúsinu, sem sett hefur saman dagskrána "Sólin gleymdi dagsins háttatíma".
Meira
HEIÐA og heiðingjarnir og Hraun! munu leggja land undir fót um helgina og leika á Vestfjörðum. Nánar tiltekið munu sveitirnar koma við á Krúsinni á Ísafirði á föstudagskvöldið og Vagninum á Flateyri á laugardagskvöldið.
Meira
FRANSKI rithöfundurinn Franck le Calvez hefur farið með mál fyrir franska dómstóla þar sem hann heldur því fram að Disney-kvik myndaverið og Pixar-kvikmyndir, hafi stolið fyrirmyndum að fiskapersónum í teiknimyndinni Leitin að Nemó , úr myndskreyttum...
Meira
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt.
Meira
ÖLLUM sem fjalla um eigin starfskjör er vandi á höndum. Forstjórar stórfyrirtækja hafa lent í miklum ógöngum í þessum efnum og alþingismenn líka. Það er vegna þess að flestum veitist létt að réttlæta forréttindi sjálfum sér til handa.
Meira
ÍSLAND komst ekki áfram í milliriðil á EM, ekkert er unnið fyrirfram. Ég var þó bjartsýn eins og þjóðin og sá glitta í verðlaunapening áður en keppnin hófst. Sumir segja ekki raunhæft, kannski rétt en ég trúi á strákana í boltanum.
Meira
Engir útreikningar liggja fyrir um að það sé hagstæðara að slátra í svokölluðum útflutningssláturhúsum en í minni sláturhúsum sem Guðni vill loka...
Meira
Sporvagninn öskur og ólæti Á sunnudagskvöldið fór ég í Borgarleikhúsið til að sjá Sporvagninn Girnd en mér til sárra vonbrigða kom brátt í ljós að ég hafði farið vagnavillt.
Meira
Anna Kristinsdóttir fæddist á Dalvík 7. okt. 1915. Hún lést á Dalbæ á Dalvík 25. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Snjólaug Jónsdóttir, f. 26.8. 1891, d. 10.10. 1928, og Kristinn Hallgrímsson, f. 6.10. 1889, d. 4.6. 1973.
MeiraKaupa minningabók
Ágústa Kristín Ágústsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 14. september 1908. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 20. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Kristín Ólafsdóttir húsmóðir, f. í Litla Koti í Vestmannaeyjum 8. september 1868, d.
MeiraKaupa minningabók
Bjarney Jóna Finnbogadóttir fæddist í húsi er nefndist Sjóbúð á Bíldudal í Arnarfirði 12.8. 1922. Hún andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi 26. janúar síðastliðinn. Bjarney var dóttir hjónanna Finnboga Helga Finnbogasonar f. 5.11. 1897, d. 10.7.
MeiraKaupa minningabók
Erna Guðrún Sigurjónsdóttir fæddist í Mosfellssveit 30. september 1949. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað miðvikudaginn 21. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurjón Sigurjónsson, aðalbókari á Reykjalundi, f. á Ísafirði 12.
MeiraKaupa minningabók
Friðgerður Friðriksdóttir fæddist 9. október 1917 að Látrum í Aðalvík. Hún lést 21. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Mikkalína Þorsteinsdóttir og Friðrik Geirmundsson. Mikkalína og Friðrik eignuðust tíu börn og eru þrjú þeirra enn á...
MeiraKaupa minningabók
Hjalmar Willy Juliussen fæddist á eyjunni Spjæröy í Hvaler-eyjaklasanum í Óslófirði 19. júlí 1921. Hann lést í Reykjavík 10. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Amanda Josefine Juliussen, f. 1893, d. 1979, og Johan Arnt Juliussen, f. 1885, d. 1947.
MeiraKaupa minningabók
Salvör Sigríður Ebenesersdóttir fæddist að Látrum í Mjóafirði í N-Ísafjarðarsýslu 30. janúar 1917. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 21. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ebeneser Kristjánsson, f. í Hálshúsi í Reykjafjarðarhreppi 24. maí 1878, d.
MeiraKaupa minningabók
Súsanna Pálmadóttir fæddist 7. september 1953. Hún lést á Háskólasjúkrahúsinu í Fossvogi 22. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Pálmi Sigurðsson og Hólmfríður Hjartardóttir sem bæði eru látin. Alsystkini Súsönnu eru Ingibjörg, f. 1937, Gunnar, f. 1944, og Sigurður, f. 1948. Súsanna fluttist á Skálatún 1967 og hefur búið þar síðan. Útför Súsönnu verður gerð frá Lágafellskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.
MeiraKaupa minningabók
Þórhildur Þórðardóttir fæddist á Ísafirði 3. júní 1917. Hún lést 5. janúar síðastliðinn. Þórhildur var dóttir hjónanna Þórðar Þórðarsonar, vélsmiðs á Ísafirði, f. 14. maí 1886, d. 5. nóvember 1936, og fyrri konu hans Kristínar Sæmundsdóttur, f. 27.
MeiraKaupa minningabók
VIÐURKENNINGU Félags kvenna í atvinnurekstri, FKA, í ár hlaut Aðalheiður Héðinsdóttir sem á og rekur Kaffitár. Hvatningarviðurkenningu FKA hlaut Freydís Jónsdóttir sem á og rekur Gallerí Freydís í Reykjavík.
Meira
LÍFEYRISSJÓÐURINN Framsýn hefur selt 3% hlut í Íslandsbanka og á eftir söluna 4,18% í bankanum. Verðmæti hlutarins sem seldur var er um 2,3 milljarðar króna, en ekki hefur verið gefið upp hver kaupandinn er.
Meira
GENGIÐ hefur verið frá því að KB banki mun eignast allt hlutafé í Skeljungi, en fyrir átti KB banki 50% í félaginu. Aðrir eigendur eru Sjóvá-Almennar tryggingar, með 25%, og Burðarás, með 25%, en bæði félögin hafa ákveðið að selja KB banka hluti sína.
Meira
Hagnaður Íslenskra verðbréfa á síðasta ári nam 120 milljónum króna samanborið við 45 milljónir árið 2002. Hagnaður fyrir skatt nam 146,5 milljónum króna en var 55 milljónir árið 2002. Arðsemi eigin fjár félagsins var 74% á árinu.
Meira
TVEIR norrænir háskólar og tvær norrænar rannsóknastofnanir standa á næstunni fyrir fjarnámskeiðum í smárásatækni sem íslenskum fyrirtækjum stendur til boða að nýta sér. Námskeiðin verða þrjú talsins og verða haldin tvisvar sinnum.
Meira
50 ÁRA afmæli. Í dag, föstudaginn 30. janúar, er fimmtugur Hannes G. Ingólfsson, húsasmíðameistari, Ísalind 4, Kópavogi. Af því tilefni býður hann og eiginkona hans, Gréta Björg Erlendsdóttir, ættmennum og vinum að fagna með sér kl.
Meira
Afmælismessa Kvenfélags Grensássóknar Á sunnudaginn kemur, 1. febr., verður þess minnst sérstaklega við messu í Grensáskirkju að kvenfélag safnaðarins á 40 ára afmæli um þessar mundir.
Meira
Hestamennskan er óðum að komast í fullan gang víða um land enda landsmótsár gengið í garð sem kunnugt er. Hross víðast komin á hús og þjálfun í margháttuðum tilgangi hafin.
Meira
SUÐUR spilar sex lauf og er í sjálfu sér borgunarmaður fyrir tólf slögum. En - rétt eins og í spili gærdagsins - þá er hluti af "peningunum" á bundnum reikningi í blindum. Það fé þarf að losa.
Meira
Sveitir Landsbankans sterkar fyrir austan Úrslit á úrtökumóti BSA fyrir Íslandsmót í sveitakeppni. Spilað var á Egilsstöðum 17. og 18. jan. og tóku 8 sveitir þátt í mótinu: Landsbankinn Egilsstöðum 145 Spilarar; Bjarni Sveinsson fyrirl.
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í Akureyrarkirkju 2. ágúst 2003 af sr. Hannesi Erni Blandon þau Karen Svanholt Reynisdóttir og Friðrik Már Þorsteinsson. Með á myndinni er dóttir þeirra Rakel Sól. Heimili ungu hjónanna er í...
Meira
Lunginn af betri járningamönnum landsins kom saman í reiðhöll Gusts á laugardag til að fræðast af norska járningameistaranum Magne Delebekk og auka með því faglega þekkingu sína og færni. Námskeið þetta var haldið af O.
Meira
Glöggt mátti greina vilja mótsstjórnar landsmóts á Gaddstaðaflötum 2004 á blaðamannafundi nýlega til að laga dagskrá mótsins að nýjum tímum og koma til móts við kröfur sem komu fram að loknu landsmóti á Vindheimamelum fyrir tveimur árum. Valdimar Kristinsson brá sér á fundinn.
Meira
Sú staðreynd að íslensk stjórnmál eru um flest fyrirsegjanleg og fyrirsjáanleg kemur sér vel fyrir þá sem kosið hafa að gangast ekki undir skilyrðislausa hollustu við liðin á leikvellinum.
Meira
Vornótt eina, er heiðblær hristi himindögg af bjarkarkvisti, og á fölva fjallatinda færðist bjarmi af morgunsól, langt í dalsins friði frammi fæddist hann - í grænum hvammi. Þar við upptök austurlinda átti hann sitt fyrsta ból.
Meira
Víkverji einsetti sér það fyrir mörgum árum að hætta að nota kreditkort og eiga fyrir útgjöldum sínum í stað þess að fá lán á háum vöxtum fyrir þeim.
Meira
DANSKA knattspyrnufélagið AaB frá Álaborg hefur sýnt áhuga á að fá íslenska landsliðsmanninn Brynjar Björn Gunnarsson frá Nottingham Forest í sínar raðir.
Meira
BENGT Johansson, landsliðsþjálfari Svía í handknattleik, lætur af störfum eftir 16 ára starf eftir tvo vináttuleiki við Dani í lok mars. Þetta varð ljóst eftir tap Svía gegn Dönum á Evrópumótinu í fyrrakvöld.
Meira
ÞAÐ verða annarsvegar Danir og Þjóðverjar og hins vegar Slóvenar og Króatar, sem leika til undanúrslita á Evrópumótinu í handknattleik, en keppni í milliriðlum lauk í gær.
Meira
EGGERT Stefánsson, varnarmaðurinn sterki í úrvalsdeildarliði Fram í knattspyrnu, er kominn til Danmerkur þar sem hann verður til reynslu hjá danska úrvalsdeildarliðinu OB í Óðinsvéum.
Meira
* ENSKA knattspyrnufélagið Bolton hefur fengið varnarmanninn Steve Howey í sínar raðir frá Leicester en hann fékk sig leystan undan samningi sínum þar.
Meira
STAFFAN "Faxi" Olsson leikur sinn síðasta landsleik fyrir Svía um helgina, Magnus Wislander hættir í sumar og markverðirnir Tomas Svensson og Peter Gentzel hugleiða að leggja landsliðsskóna á hilluna.
Meira
LUTZ Pfannenstiel, þýski markvörðurinn sem er til reynslu hjá knattspyrnuliði Keflavíkur, lék síðari hálfleikinn með Keflvíkingum þegar þeir unnu Víði, 5:0, í æfingaleik í Reykjaneshöll í fyrrakvöld.
Meira
* HARRY Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, tryggði sér pólska miðherjann Sebastian Olszar, 22 ára, sem mun leika með liðinu út keppnistímabilið.
Meira
Á SUNNUDAGINN kemur í ljós hverjir verða andstæðingar Íslendinga í undankeppni HM í handknattleik. Þá verður dregið hvaða þjóðir mætast í einvígisleikjum um sæti á HM í Túnis 2005.
Meira
Fæddur: 1. september 1983 í Utrera á Spáni. *1994: Gekk til liðs við Sevilla 10 ára og byrjaði að æfa og leika með unglingaliðum félagsins. *1998: Skrifaði undir sinn fyrsta samning við Sevilla, 15 ára.
Meira
KEFLVÍKINGAR standa í dag og á morgun fyrir afar áhugaverðu framtaki í samvinnu við flugfélagið Iceland Express - halda alþjóðlegt knattspyrnumót í Egilshöll og Reykjaneshöllinni með þátttöku Íslandsmeistara KR, bikarmeistara ÍA, Keflavíkur og sænska...
Meira
HAMARSMENN úr Hveragerði skelltu sér upp við hlið Hauka í úrvalsdeildinni í körfuknattleik karla, Intersportdeildinni, í gærkvöldi þegar þeir lögðu Breiðablik 85:82 í Hveragerði á sama tíma og ÍR-ingar lögðu Haukamenn 89:76 í Seljaskóla. Leik KR og KFÍ var frestað vegna ófærðar, en Ísfirðingar komust ekki suður.
Meira
ÞAÐ vakti óneitanlega mikla athygli þegar Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, sem þótti ekki líklegur til að kaupa nýjan leikmann þessa dagana, snaraði peningabuddunni á borðið á þriðjudaginn og ákvað að kaupa Spánverjann Jose Antonio Reyes, 20...
Meira
26 leikja sigurgöngu Bandaríkjamannsins Andre Agassi á opna ástralska meistaramótinu í tennis lauk í gær þegar Agassi varð að játa sig sigraðan gegn Rússanum unga, Marat Safin, í maraþonviðureign kappanna í undanúrslitunum í Melbourne.
Meira
GUÐRÚN Jóhannsdóttir og Þorbjörg Ágústsdóttir úr Skylmingafélagi Reykjavíkur komust báðar í átta manna úrslit á alþjóðlegu kvennamóti í skylmingum með höggsverði sem haldið var í Brentwood í Englandi um síðustu helgi.
Meira
NÝTT félag skipstjórnarmanna lýsir undrun sinni á yfirlýsingum fjármálaráðherra og ýmissa annarra stjórnmálamanna undanfarið varðandi afnám sjónannaafsláttar. Ályktun þess efnis var samþykkt á stofnfundi félagsins um helgina.
Meira
AFLAVERÐMÆTI íslenskra skipa af öllum miðum á fyrstu tíu mánuðum ársins 2003 nam 57,1 milljarði króna en á sama tímabili ársins 2002 var verðmætið 66,7 milljarðar króna og er þetta samdráttur um 9,5 milljarða króna eða 14,3%, að því er fram kemur í tölum...
Meira
... að komin væri ný kynslóð rafhlaðna, en þessar AA-rafhlöður geta knúið farartæki 1,2 kílómetra, á allt að 3,3 kílómetra hraða á klukkustund. Þær kosta þó 170 krónur stykkið og verða settar á markað í Japan í...
Meira
... að fyrirsæturnar væru farnar að ganga með grímur, en þessi sýndi föt fyrir ítalska hönnuðinn Silvio Betterelli á vor- og sumartískusýningu hans í Róm á...
Meira
... að handknattleiksmennirnir Nikisa Kaleb og Staffan Olsson væru svona góðir vinir. Eða fylgdu þessi glímubrögð bara leik Króata og Svía á Evrópumótinu í...
Meira
... að Brasilíumaðurinn Armando Vellez væri að framleiða Saddam Hussein-grímur, sem sýndu einræðisherrann fyrir og eftir ósigur gegn Bandaríkjamönnum. Nú nálgast kjötkveðjuhátíðin í Ríó de Janeiro, en hún verður haldin 20.-25....
Meira
... að Agustin Herrera myndi þurfa að kæla sig í gosbrunni í Buenos Aires, vegna hitabylgju sem riðið hefur yfir borgina. Hitinn hefur náð 38 gráðum á...
Meira
Að flytja í nýtt land er ekki ósvipað því og að vera reiðubúinn að búa á hóteli í lengri tíma. Eftir að fyrstu menningarsjokkin hafa komið og farið verður allt hálf óáþreifanlegt í dálítinn tíma.
Meira
Klukkan er 10 að morgni og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir , umsjónarmaður Ats , er í símanum. Hún er í förðun fyrir tökur á næsta þætti, en reyndar á að taka upp tvo þætti í dag, venjulegan þátt og eins konar "bak við tjöldin"-þátt.
Meira
Krús: Kíkti í nýjasta tölublað kvikmyndatímaritsins Empire . Þar er langt viðtal við Tom Cruise sem ég nennti ekki að lesa, en í ramma með greininni eru taldar upp myndir sem hann afþakkaði að leika í.
Meira
Blettur á samviskunni - The Human Stain segir af Silk (Anthony Hopkins), prófessor í klassískum bókmenntum á Nýja Englandi. Þegar upp kemst um framhjáhald hans og húsvarðar skólans (Nicole Kidman), upplýkst einnig hálfrar aldar gamalt leyndarmál prófessorsins, sem hann hefur falið fyrir konu og börnum. Frumsýnd í Háskólabíói og Sambíóunum. Leikstjóri Robert Benton.
Meira
From: "Jörgen Sörensen" <rodstewart_fanclub@hotmail.com> To: customerrelations@ldki.com Subject: Shampoo Dear Friends I sent you a letter some time ago but have not recived an answer, so I'm writing again. My name is Jorgen Sorensen.
Meira
Hann var hrikalega sáttur við sjálfan sig. Honum fannst hann meiri háttar heppinn í lífinu. Hann var myndarlegur. Hann fékk oft að heyra það. Honum gekk vel í vinnu, átti bara fína konu og tvö heilbrigð börn.
Meira
Ókunnugt fólk þyrpist í miðbæ Reykjavíkur. Það má greina vissa eftirvæntingu í svipbrigðunum. Þegar klukkan slær þrjú leggjast allir á torgið. Síðan stendur fólkið upp aftur og tvístrast. Lífið gengur aftur sinn vanagang.
Meira
Í lauslegri þýðingu: Kæru vinir Ég sendi ykkur bréf fyrir nokkru en hef enn ekki fengið svar og skrifa ykkur því aftur. Ég heiti Jörgen Sörensen. Ég er 46 ára. Ég er formaður Rod Stewart-aðdáendaklúbbsins hér á Íslandi.
Meira
Hvað er stúlkan að segja vinkonu sinni sem er svona skemmtilegt? Ef þér dettur eitthvað sniðugt í hug, sendu þá tölvupóst á folkid@mbl.is . Við birtum bestu tillöguna og verða veitt verðlaun fyrir...
Meira
Æðið hófst í New York í júní sl. Þá barst völdum netverjum tölvupóstur um að taka þátt í listaviðburði undir yfirskriftinni "The Mob Project" eða hópverkefnið. Í póstinum var fólki sagt að samstilla úrin og bíða kl. 19 á bar á Manhattan.
Meira
Ed Bloom (Albert Finney) liggur fyrir dauðanum og sonur hans, Will (Billy Crudup), reynir að púsla saman í eina öllum sögunum sem karlinn hefur sagt um dagana. Fæstar trúverðugar eða hvað? Tim Burton leikstýrir Big Fish sem er frumsýnd í Smárabíói, Regnboga og Borgarbíói, Akureyri.
Meira
Eini meðlimur dauðarokksveitarinnar Sororicide sem hefur atvinnu af tónlist enn þann dag í dag er Arnar Guðjónsson, söngvari og gítarleikari Leaves.
Meira
Hár sveiflast og skuggamyndir af líkömum sjást á litsterkum bakgrunni. Þannig má lýsa myndbandinu við lagið "Angel in Disguise" með Mínus, sem hefur vakið athygli og verið spilað á bæði erlendum og innlendum sjónvarpsstöðvum.
Meira
Tristian er erlent mannsnafn, eftir því sem blaðamaður kemst næst. Tristian er líka íslensk hljómsveit, sem var stofnuð árið 1996 og hefur starfað með hléum síðan. Sveitin spilar á Grandrokki í kvöld, ásamt Dikta.
Meira
Krakkar hafa gaman af því að fara í stórum hópum til útlanda, ekki síst á sólarströnd. Hvað þeir gera þar kemur í ljós í nýjum söngleik, sem Verzlunarskóli Íslands setur upp í Loftkastalanum. Segir þar frá ævintýrum hóps sólbrenndra ungmenna á Benidorm.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.