TÖLVUNEFNDIN í Noregi hefur gefið lögreglunni sex mánaða frest til að dulkóða öll fjarskipti milli lögreglumanna, að sögn vefútgáfu Aftenposten. Árið 2001 voru sett lög sem gerðu leyfilegt að hlusta á fjarskiptin og er auðvelt að kaupa sér tæki til þess.
Meira
LEIKSKÓLAR á vegum Reykjavíkurborgar verða lokaðir í tvær samfelldar vikur í sumar, en ekki fjórar eins og var síðasta sumar. Gerð verður könnun meðal foreldra leikskólabarna við ákvörðun um það hvaða tvær vikur verður lokað í hverjum skóla.
Meira
ÞRÍR sænskir vísindamenn í Uppsölum hafa í samvinnu við kollega sína í Bandaríkjunum þróað tækni sem gerir kleift að taka myndir af framrás Alzheimer-sjúkdómsins í heilanum.
Meira
ÞRÍR menn, tveir Íslendingar og einn Lithái, gáfu sig fram við lögregluna í Reykjavík í gærmorgun eftir að lýst var eftir þeim í tengslum við líkfundinn í Neskaupstað.
Meira
ÆÐSTI embættismaður Bandaríkjamanna í Írak, L. Paul Bremer, mun ekki samþykkja að í bráðabirgðastjórnarskrá og lögum Íraka verði lög íslams, sharia, grundvöllurinn. "Afstaða okkar er ljós.
Meira
Líflegt litasumar er að öllum líkindum fram undan hjá tískuunnendum víðs vegar og er litríkið þegar farið að gera vart við sig í hillum tískuverslana.
Meira
AÐEINS einn prófessor kennir nú í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, í íslensku fyrir erlenda stúdenta. Síðan 1998 hafa þrír prófessorar í íslenskum bókmenntum látið af störfum við íslenskuskor skólans en aðeins einn lektor verið ráðinn í staðinn.
Meira
Fyrsti Burger King-veitingastaðurinn hér á landi verður opnaður í Smáralind gegnt Vetrargarðinum á morgun, miðvikudaginn 18. febrúar. Burger King-veitingakeðjan var stofnuð árið 1954 og eru nú starfræktir undir hatti keðjunnar um það bil 11.
Meira
BANDARÍSK stjórnvöld segja að það felist engin efnisleg breyting á varnarsamstarfinu við Ísland í því að ákvörðun hafi verið tekin um að flytja kafbáta- og skipaeftirlitsvélar á vegum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli af landi brott.
Meira
LOÐNUKVÓTI ársins verður aukinn enn frekar og verður væntanlega um 800 þúsund tonn. Þetta kom fram í máli Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra á Alþingi í gær.
Meira
Aldursbundin hrörnun í augnbotnum er algengasta orsök lögblindu hér á landi segir Guðleif Helgadóttir en einkenni gera sjaldan vart við sig fyrir sjötugt.
Meira
KRAKKARNIR á leikskólanum Sólhlíð héldu í gær listahátíð fyrir heimilisfólkið á Droplaugarstöðum. Léku þar börn úr Suzuki-skólanum á píanó, selló og fiðlu og síðan sungu krakkarnir af hjartans lyst.
Meira
SKATTSKYLDA starfsmanna við Kárahnjúka er ótvíræð og undanbrögð frá skattamálum þar verða ekki liðin, frekar en annars staðar á landinu, sagði Geir H. Haarde fjármálaráðherra á Alþingi í gær.
Meira
7. breiðgata Í grein um tónleikahúsið Carnegie Hall í blaðinu sl. sunnudag var rangt farið með staðsetningu þess í New York. Rétt er að Carnegie Hall stendur á mótum 57. strætis og 7. breiðgötu. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Meira
Næstu þrír mánuðir gætu skipt sköpum fyrir möguleika Johns Kerrys í forsetakosningunum í haust, að sögn Jakes Siewerts, fyrrverandi blaðafulltrúa Bills Clintons Bandaríkjaforseta. Davíð Logi Sigurðsson ræddi við Siewert sem í dag flytur erindi í Háskóla Íslands.
Meira
Mývatnssveit | Í Vogum 1 er rekið kúabú undir styrkri stjórn Ólafar Hallgrímsdóttur. Þetta kúabú er nokkuð sérstakt og sérlega afurðagott og þótt kýr séu ekki margar eru tvær þeirra á meðal sem mjólkuðu yfir níu þúsund lítra á síðasta ári.
Meira
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra sagði á Alþingi í gær að skattskylda erlendra starfsmanna við Kárahnjúkavirkjun væri ótvíræð. Undanbrögð í þeim efnum yrðu ekki liðin.
Meira
Vopnafjörður | Veðrið leikur við Vopnfirðinga þessa dagana. Kringum helgina var til dæmis logn og 10 gráða hiti sem þykir ekki slæmt um miðjan febrúar. Þær notuðu tækifærið og fóru á línuskauta þessar duglegu stelpur sem fréttaritari rakst á í bænum.
Meira
SKÓLASTJÓRNENDUR í Hagaskóla og umboðsmaður barna fengu á dögunum senda ábendingu frá foreldri barns í skólanum þar sem lýst var áhyggjum yfir sk. "ástarballi" eða stefnumótaballi sem auglýst var í skólanum á fimmtudagskvöld.
Meira
Þó að þorri sé enn ekki liðinn eru bakpokaferðalangar farnir að tínast til landsins. Vincent Marmillot og Hanna Martina, sem eru frá Frakklandi, voru á ferð í Grundarfirði fyrir skömmu.
Meira
Fyrst er limra eftir karl af Laugaveginum, sem leggur út af bankaumræðunni: "Sé hér einhver sem ekki vill þorsk," segir Auðbjörg og svarar sér sposk: "Ef hann sporðrennir banka ég brýt upp minn þanka: Nei, þá bið ég nú heldur um frosk.
Meira
EINN stærsti hluthafinn í rússneska olíurisanum Yukos segir að aðalhluthafar séu tilbúnir til að láta fyrirtækið í hendur ríkisins ef fyrrum framkvæmdastjóra þess, Míkhaíl Khodorkovskí, verði gefnar upp sakir og hann látinn laus úr fangelsi.
Meira
BORGARRÁÐ mun í dag ákveða hvort Reykjavíkurborg kaupi leikskólann Runnakot í Grafarholti, en leikskólaráð hefur gert bindandi kaupsamning, með fyrirvara um samþykki borgarráðs.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, sem vísaði frá máli konu á eftirlaunum sem fór fram á að ákvörðun skattstjóra um álagningu tekjuskatts og útsvars yrði felld úr gildi.
Meira
Seltjarnarnes | Unga fólkið í ungmennaráði Seltjarnarness heimsótti Jónmund Guðmarsson, bæjarstjóra Seltjarnarness, á dögunum, en hann hafði boðið þeim til fundar við sig.
Meira
*KJARTAN Gíslason varði hinn 26. júní sl. doktorsritgerð sína í hafna-/strandverkfræði við tækniháskólann í Lyngby, DTU. Ritgerðin heitir "Numerical Modelling of Flow and Scour in front of Coastal Structures".
Meira
MAÐUR um fertugt hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa slegið konu á fertugsaldri í andlitið svo nef hannar brotnaði. Maðurinn var dæmdur til tuttugu daga fangelsisvistar, skilorðsbundinnar í þrjú ár.
Meira
JÓHANNA Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um að dómsmálaráðherra verði falið að koma á opinberri lögfræðiaðstoð með það að markmiði að tryggja að efnalítið fólk geti leitað réttar síns.
Meira
Einn af hverjum sextán þeirra sem þjást af þunglyndi fær ekki rétta meðferð, að sögn geðlæknisins dr. Normans Sartorius. Hann sagði Nínu Björk Jónsdóttur að fordómar gegn sjúkdómnum væru meðal ástæðna þessa og að fræðsla væri mikilvæg til að breyta þessu. Þá væri þolinmæði mikilvæg, en það tæki mörg ár ef ekki áratugi að breyta viðhorfum fólks.
Meira
TVEIR bílar lentu utan vegar í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í gærmorgun þegar hálka myndaðist á veginum. Bíll fór út af veginum skammt frá Varmalandi, og annar á Hvalfjarðarvegi.
Meira
JOHN Kerry, sem er líklegastur til að verða útnefndur forsetaefni bandarískra demókrata, var á vefsíðunni Drudge Report í síðustu viku, sagður hafa átt í ástarsambandi við unga konu, Alexander Polier, árið 2001.
Meira
Elli sýnir | Myndlistarmaðurinn Elli, Erlingur Jón Valgarðsson, opnaði sýningu niðri á Café Karólínu síðastliðinn laugardag. Sýninguna kallar listamaðurinn Ný málverk og á henni má líta þrjú ný málverk sem unnin voru á síðasta ári.
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að eftir því sem best væri vitað hefði engin ákvörðun verið tekin um það hjá Bandaríkjamönnum hvort Orion-eftirlitsflugvélarnar færu frá Íslandi.
Meira
FRÁ bæjardyrum Evrópusambandsins (ESB) séð er engin knýjandi ástæða sjáanleg fyrir því að farið verði út í að uppfæra samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, jafnvel þótt hann sé að sumu leyti að úreldast, eftir því sem Evrópusambandið sjálft tekur meiri...
Meira
OPIÐ hús var í Háskólanum á Akureyri um helgina og lögðu fjölmargir leið sína á Sólborg þar sem stór hluti starfseminnar fer fram. Þar gafst gestum kostur á að kynna sér fjölbreytta og öfluga starfsemi háskólans.
Meira
YFIR 120 manns var bjargað úr ferju sem lenti í árekstri við flutningaskip undan suðvesturströnd Svíþjóðar, í gærmorgun. Ferjan, Stena Nautica, var á leið frá Danmörku til Svíþjóðar.
Meira
FRJÁLSHYGGJUFÉLAGIÐ vill koma á framfæri ánægju með umræðu sem nú virðist vera að hefjast um endurskoðun á verkaskiptingu ráðuneyta í íslenskri stjórnsýslu. "Sér í lagi er ánægjulegt að rætt sé um að leggja niður landbúnaðarráðuneytið.
Meira
LYFJAFRÆÐIDEILD Háskóla Íslands samþykkti á fundi ályktun þar sem lýst er furðu á þeirri ákvörðun yfirstjórnar Landspítala - háskólasjúkrahúss að segja upp tveimur lyfjafræðingum sem þar starfa.
Meira
Júlíus Þór Júlíusson er fæddur 18. október 1956. Hann hefur verið til sjós samfleytt í tuttugu ár, síðustu árin sem kokkur á Örfirisey hjá Granda. Hann er og formaður nýstofnaðra Samtaka áhugamanna um spilafíkn. Júlíus Þór er giftur og tveggja barna faðir.
Meira
Grettir | Í vikunni stendur til að frumsýna söngleikinn Gretti hjá Leikfélagi Menntaskólans á Egilsstöðum. Grettir er skrifaður af Ólafi Hauki Símonarsyni, Agli Ólafssyni og Þórarni Eldjárn. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson.
Meira
Háskóli Íslands og Alþjóðabankinn stóðu á dögunum fyrir ráðstefnu um þekkingarleit og þróunarmál. Svavar Knútur Kristinsson hlýddi á erindi fjölda fræðimanna um ýmis málefni sem tengjast þróun.
Meira
ENN hefur enginn verið handtekinn vegna hassfundar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar mánudaginn 9. febrúar. Þá fundust 3,5 kg af hassi, og beinist rannsókn lögreglu m.a. að því hvort starfsmaður í flugstöðinni hafi ætlað að smygla hassinu út.
Meira
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rússlands, hét því í gær að þeir sem ábyrgð báru á slysinu þegar 28 gestir í vatnagarði í Moskvu týndu lífi um liðna helgi yrðu dregnir til ábyrgðar. Fólkið fórst þegar glerþak yfir Transvaal-garðinum hrundi skyndilega.
Meira
SKÁKFÉLAGIÐ Hrókurinn og Ungmennafélagið Fjölnir í Grafarvogi undirrituðu nýverið viljayfirlýsingu um samstarf. Í því felst að Hrókurinn verði að deild innan Fjölnis og sjái þar með um allt skákstarf innan félagsins.
Meira
Stykkishólmi | Árleg hundahreinsun fór fram nýlega á stofunni hjá Rúnari Gíslasyni dýralækni í Stykkishólmi. Aðferðin við að hreinsa hundana hefur breyst mikið á seinni árum.
Meira
Miklir vatnavextir hafa verið í ám víða um land síðustu daga eftir að hlýnaði í veðri. Þessi mynd er tekin eftir að sjatna fór í Stóru-Laxá. Áin ruddi um hálfs metra þykkum jökum upp á bakka sína og sumstaðar mynduðust stíflur í henni.
Meira
HJÁLPARSTARFSFÓLK Rauða kross Íslands, hjúkrunarfræðingarnir Hólmfríður Garðarsdóttir og Maríanna Csillag og Elvar Arnar Birgisson geislafræðingur, komu til Írans fyrir seinustu helgi til að aðstoða sjúka og slasaða eftir jarðskjálftann.
Meira
MITRA Nowroozi, stuðningsmaður íranska þingframbjóðandans Mohammad Reza Abbasi Fard, dreifir upplýsingabæklingum til ökumanna í Teheran í gær. Kosningar fara fram í Íran á föstudag.
Meira
VIÐ áhorfendum kvikmyndarinnar Síðasta samúræjanum sem sýnd er í Háskólabíói og Sambíóunum, blasir við á tjaldinu áður en sýning myndarinnar hefst, tilkynning frá Samtökum útgefenda myndefnis á Íslandi (SMÁÍS) um að lögum samkvæmt sé refsivert athæfi að...
Meira
FRANCOIS Leotard, fyrrverandi varnarmálaráðherra Frakklands og embættismaður í stjórnarflokki Jacques Chirac forseta, var í gær fundinn sekur um ólögmæta fjáröflunarstarfsemi í þágu flokksins og peningaþvætti.
Meira
Aukin spenna hefur hlaupið í samskipti hinna ólíku þjóðar- og trúarbrota í Írak frá því að Saddam Hussein var hrakinn frá völdum í apríl í fyrra.
Meira
TVEIR menn frá Sri Lanka sem komu hingað til lands í lok nóvember og sóttu um pólitískt hæli verða sendir úr landi samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar. Þeir hafa kært úrskurðinn til dómsmálaráðuneytis. Georg Kr.
Meira
Keflavík | Liðlega tvö þúsund manns sóttu sýningu Árna Johnsen í Keflavík fyrstu tvo sýningardagana. Er þetta meiri aðsókn en áður hefur sést á listsýningu á Suðurnesjum.
Meira
NORÐURLJÓSIN eru alltaf jafnfalleg þegar þau sjást á himni. Hægt er að standa tímunum saman og horfa til lofts og sjá aldrei sömu myndina tvisvar því að breytingarnar eru svo hraðar.
Meira
FÉLAGSMENN Prestafélags Íslands og Félags foreldra og aðstandenda samkynhneigðra ræddu nýlega stöðu samkynhneigðra innan kirkjunnar á ráðstefnu í Grensáskirkju.
Meira
Morgunblaðinu hefur borist athugasemd frá Vassili Papastavrou hjá Alþjóðadýraverndunarsjóðunum (International Fund for Animal Welfare). "Gísli Víkingsson segir við Morgunblaðið í dag [gær] að hann skilji ekki gagnrýni dr.
Meira
EITT helsta stefnumál Íslendinga á formennskutímanum í Norrænu ráðherranefndinni 2004 er að greina hvað muni helst standa lýðræðinu fyrir þrifum á næstu árum og koma með tillögur um úrbætur.
Meira
Fljót | Nýlega urðu eigendaskipti að Alþýðuhúsinu í Siglufirði þegar hjónin Ólafía Guðmundsdóttir og Haraldur Björnsson keyptu húsið og rekstur þess af Guðmundi Davíðssyni sem átt hafði húsið síðan árið 1995.
Meira
Hvammstangi | Fyrir skömmu keypti ungt fólk hlutafélagið Gunnukaffi ehf. á Hvammstanga, sem rak gistihúsið á staðnum, og heitir húsið nú Þinghús-bar.
Meira
Óku of hratt | Um helgina voru ellefu ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur, tveir fyrir ölvun við akstur og sex fyrir að vera ekki með tilskilinn öryggisbúnað.
Meira
Ók ölvaður á mann | Tæplega fertugur maður hefur verið sektaður um 130.000 krónur og sviptur ökurétti í eitt ár fyrir ölvunarakstur á Akureyri í mars í fyrra en undir lok akstursins ók hann á mann á þrítugsaldri.
Meira
RÍKI og sveitarfélög eru ósammála um hvernig fjármagna skuli rekstur öldrunarheimila, og telur Ríkisendurskoðun mikilvægt að ljóst liggi fyrir hver eigi að bera fjárhagslega ábyrgð þegar halli verður á starfseminni.
Meira
FJALLGÖNGUMAÐURINN Cameron Smith leggur í dag af stað í fjórðu tilraun sína til að ganga þvert yfir Vatnajökul að vetrarlagi, en hann hefur gert þrjár tilraunir sem allar hafa mistekist, í tveimur heimsóknum til landsins.
Meira
RÁÐHERRA mun framvegis verða með í för þegar Karl Gústaf Svíakonungur fer í opinberar heimsóknir til annarra landa. Mun hann sjá um pólitísk samskipti á meðan kóngurinn heldur sig við formlegar athafnir.
Meira
Í tilefni af 70 ára afmæli Dýralæknafélags Íslands stendur félagið fyrir tveggja daga alþjóðlegri ráðstefnu um hrossasjúkdóma þar sem sérstaklega verður fjallað um íslenska hestinn. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Selfossi dagana 26.-28. júní nk.
Meira
FIMMTÁN starfsmönnum fyrirtækisins Húsgögn og innréttingar á Selfossi var sagt upp störfum um síðustu mánaðamót. Hafa nokkrir þeirra um 40 ára starfsreynslu.
Meira
Hætt er við því að þiggjendur þróunarhjálpar upplifi samband sitt við þá sem veita hjálpina sem flókið valdasamband sem feli í sér flokkanir eftir litarhætti.
Meira
Sjálfshjálparhópur | Settur hefur verið á fót á Suðurnesjum sjálfshjálparhópur fyrir fólk með geðraskanir. Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar og Geðhjálp hafa samvinnu um verkefnið.
Meira
MIKILL meirihluti sjómanna er hlynntur þeirri aðferð sem notuð er við ákvörðun lágmarksverðs á þorski, karfa og ýsu. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Gallup hefur unnið fyrir Verðlagsstofu skiptaverðs.
Meira
ALLS voru sjö aðilar handteknir í tveimur óskyldum fíkniefnamálum hjá Lögreglunni í Kópavogi fyrir síðustu helgi. Lagt var hald á samtals um 90 grömm af amfetamíni og lítilræði af öðrum fíkniefnum við húsleit hjá hinum handteknu.
Meira
Hlíðar | Börn og kennarar á leikskólanum Sólhlíð lögðu í gær leið sína á hjúkrunarheimilið Droplaugarstaði, þar sem börnin héldu listahátíð fyrir heimilisfólk.
Meira
TÆPLEGA hundrað manns mættu á opinn fund í Valhöll á Þingvöllum um helgina en þar voru aðalskipulagshönnuðir að kynna tillögur að landnýtingu og forsendur skipulagsins fyrir Þingvallasveit sem nú er unnið að í fyrsta sinn.
Meira
SVOKÖLLUÐ þjóðgarðsnefnd, sem ætlað er að koma með tillögur til umhverfisráðherra um þjóðgarð norðan Vatnajökuls, er langt komin í sinni vinnu og segir formaðurinn, Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu, að nefndin skili af sér...
Meira
SUMARBÚSTAÐUR við Helluvatn, skammt frá Elliðavatni, brann til kaldra kola í fyrrinótt. Bústaðurinn var mannlaus. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað á staðinn um kl.
Meira
Tálknafjörður | UMFT hélt sína árlegu uppskeruhátíð á Hópinu í Tálknafirði sl. laugardag. Bjarnveig Guðbrandsdóttir, formaður félagsins, fór yfir starfsemi þess síðastliðið ár og helstu afrek íþóttamanna.
Meira
MAÐUR hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa misnotað tvær 15 ára stúlkur kynferðislega, og að hafa tekið myndir af þeim nöktum. Hann var hins vegar sakfelldur fyrir að veita stúlkunum áfengi, og var dæmdur í 50.000 kr. sekt vegna þess.
Meira
NÝLEGA var kosið almennri kosningu innan Veiðifélags Fljótaár í Skagafirði um tvö hæstu tilboð sem bárust í leigu á ánni til tveggja ára, en alls bárust sex tilboð.
Meira
Lífið er óðum að færast í eðlilegt horf aftur eftir óveðurskaflann fyrrihluta mánaðarins og kafsnjórinn sem lá yfir öllu og jafnvel upp að þakbrúnum húsa hefur hjaðnað eins og mjólk í potti á spansuðuplötu frá Farestveit.
Meira
Grindavík | Fyrsta loðnufarminum sem fiskimjölsverksmiðja Samherja fær til vinnslu á þessari vertíð var landað í Grindavík í gær. Mörg ár eru liðin frá því fyrsti farmurinn kom svo seint á vertíðinni.
Meira
Vinnubúðir | Drög að deiliskipulagi fyrir fimmtán hundruð manna vinnubúðir austan við þéttbýlið á Reyðarfirði hafa verið lögð fram af umhverfisnefnd Fjarðabyggðar.
Meira
ÁKVEÐIÐ hefur verið að taka tilboði VST og Arkitektur.is í hönnun viðbyggingar við dvalarheimilið Hlíð á Akureyri. Ríkiskaup sáu um útboðið fyrir Framkvæmdasýslu ríkisins og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og bárust 12 tilboð.
Meira
GOTT fólk hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu sem undirrituð er af Gunnlaugi Þráinssyni framkvæmdastjóra: "Síminn hefur undanfarið birt auglýsingar sem vakið hafa mikla athygli meðal landsmanna.
Meira
YFIRMÖNNUM á Sléttbak EA, frystitogara Útgerðarfélags Akureyringa, hefur verið sagt upp störfum. Um er að ræða tvo skipstjóra og tvo stýrimenn, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Meira
ÞINGFUNDUR hefst kl. 13.30 í dag. Meðal annars verður umræða utan dagskrár um símenntunarmiðstöðvar. Málshefjandi er Anna Kristín Gunnarsdóttir, Samfylkingu, en Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra verður til...
Meira
Þorbergur Ingi Jónsson langhlaupari hefur verið valinn íþróttamaður Fjarðabyggðar 2003. Sextán einstaklingar í Fjarðabyggð voru tilnefndir og hlutu þeir viðurkenningar ásamt sextán einstaklingum sem áttu sæti í landsliðum í fyrra.
Meira
SÍMINN mun í febrúar bjóða aðgang að þráðlausu netsambandi á almennningsstöðum eins og hótelum, verslunarmiðstöðvum, kaffihúsum og ráðstefnustöðum. Netið færir notendum möguleika á að hafa aðgang að upplýsingum hvenær sem er, segir m.a.
Meira
ÞRETTÁN minniháttar fíkniefnamál komu upp um helgina þar sem lagt var m.a. hald á fíkniefni, áhöld til fíkniefnanotkunar, hafnaboltakylfur og golfkylfur. Það er hins vegar mat lögreglunnar að helgin hafi verið tiltölulega róleg.
Meira
SJÓMAÐUR klemmdist á fæti milli trolls og skips þar sem skip hans var á veiðum tæpar 30 sjómílur vestur af Garðskaga um kl. tvö aðfaranótt mánudags. Óskað var eftir aðstoð frá þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Meira
BJÖRGUNARSKIPUM í íslenskum höfunum mun fjölga úr níu í fjórtán fyrir árslok 2005. Skipin níu sem nú eru í notkun sinna hátt í 100 útköllum árlega að sögn Jóns Gunnarssonar, formanns Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Meira
Róbert McNamara var varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í forsetatíð Johns F. Kennedys og Lyndons B. Johnsons fyrir fjórum áratugum. Hann stýrði Pentagon á fyrstu árum Víetnamstríðsins.
Meira
Margrét Einarsdóttir færir rök fyrir því á vefritinu Deiglunni að samkeppnisráð skuli lagt niður. "Formlega séð er það samkeppnisráð en ekki Samkeppnisstofnun sem ákveður niðurstöðu mála.
Meira
Ýmis smáverk eftir Ibert, Sor, Coste, Hildigunni Rúnarsdóttur, de Falla, Áskel Másson o.fl. Peter Tompkins óbó, Pétur Jónasson gítar. Laugardaginn 14. febrúar kl. 17.
Meira
Lög og textar eftir Ómar Ragnarsson. Nema: Alan Lomax á eitt lag, Roger Miller eitt, Beadell eitt og Lerner eitt. Gísli á Uppsölum á einn texta og sömuleiðis Steingrímur Thorsteinsson.
Meira
Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Norræna húsinu á morgun kl. 12.30 flytja Einar Jóhannesson og Rúnar H. Vilbergsson verk fyrir klarínettu og fagott eftir Ludwig van Beethoven, Herbert H. Ágústsson og Francis Poulenc.
Meira
NÝ þáttaröð af Queer Eye for the Straight Guy hefur hafið göngu sína á Skjá einum og er annar þátturinn á dagskrá í kvöld. Óhætt er að segja að þeir karlmenn sem verði fyrir "barðinu" á fimmmenningunum sætu breytist mjög til hins betra.
Meira
JÓN Ársæll var eitthvað að úthúða spurningaleikjum hjá King Kong-félögum á laugardaginn. Veit ekki alveg hvort hann var að meina það. Allavega er Ljósvaki á því að fátt sé það sjónvarps- eða útvarpsefni sem er skemmtilegra, ef það er vel heppnað.
Meira
EINS og svo oft áður voru sýningar Donnu Karan og Ralphs Laurens fyrir fágaðar konur. Áherslan var á náttúruleg efni og kvenleika hjá þessum tveimur þekktu hönnuðum. Tískuvikunni í New York er nú lokið en þar sýndu hönnuðir haust- og vetrartískuna...
Meira
LISTA- og menningarþátturinn Mósaík er á dagskrá Sjónvarpsins í kvöld. Verður fjallað um Flúxus-sýninguna sem stendur nú yfir í Listasafni Íslands og margt fleira.
Meira
Höfundar leikrits, laga og texta: Ármann Guðmundsson, Þorgeir Tryggvason og Sævar Sigurgeirsson. Leikstjórn og leikmyndahönnun: Gunnar Björn Guðmundsson. Lýsing: Hilmar Karl Arnarson og Gunnar Björn Guðmundsson. Tónlistarstjóri og orgelleikari: Hilmar Örn Agnarsson. Gítarleikari: Steinunn Bjarnadóttir. Frumsýning í Aratungu, 13. febrúar 2004.
Meira
PAUL McCartney , er sagður hafa hringt í breska götublaðið The Sun og lýst megnri óánægju með umfjöllun blaðsins um konu sína, Heather , og dótturina Stellu , sem er þekktur tískuhönnuður.
Meira
eftir Ólöfu Ingólfsdóttur og Björgvin Friðriksson sem jafnframt voru dansarar í sýningunni. Lýsing Ögmundur Jóhannesson. Laugardagskvöld kl. 20.30.
Meira
Jón forseti, Aðalstræti 10, kl. 21 Á Skáldakvöldi les Margrét Lóa Jónsdóttir ljóð, Baldur Gunnarsson les úr skáldsögu, Rúna K. Tetzschner les ljóð við undirleik Leós G. Torfasonar og Óskar Árni Óskarsson les smásögur.
Meira
ÓSKARSHÁTÍÐ tileinkuð afrekum á sviði tæknivinnu fyrir kvikmyndir fór fram um helgina. Hátíð sú er vanalega haldin sér, tveimur vikum áður en aðalhátíð fer fram.
Meira
Ég segi bara eins og einn yngsti kórfélaginn, lítill snáði, sagði eftir tónleikana. Hann gekk upp að Jóni Nordal og sagði: "Heyrðu Jón, þetta var rosalega flott verk hjá þér!
Meira
ÚTGEFANDI Bítlaplatnanna, EMI, hefur krafist þess að sölu verði þegar í stað hætt á nýrri plötu þar sem hrært hefur verið saman í einn graut undirspilinu á plötu Bítlanna frá 1968 The Beatles og rappi Jay-Z á plötunni The Black Album frá 2003.
Meira
Stjórnarráð Íslands 1964-2004 , 1. og 2. bindi er komið út í tilefni af eitt hundrað ára afmæli Stjórnarráðs Íslands. Ákvörðun um samningu ritsins var tekin af stjórnvöldum árið 1999. Ritið er hugsað sem framhald á tveggja binda verki Agnars Kl.
Meira
SKYLDU ekki margir hafa tekið eftir því, hvaða munur er á að vinna hlutina á réttum tíma eða láta þá bíða von úr viti. Líklega er eindagi á reikningum settur nokkuð á eftir venjulegum gjalddaga með tilliti til þeirra,sem láta dragast að gera skil.
Meira
NÚ ÞEGAR ríkisstjórn landsins ræðst að undirstöðum velferðarkerfis okkar, vakna spurningar um heilindi stjórmálamanna eða getu til að sinna því sem þeim er trúað fyrir.
Meira
Hvaða skilaboð er verið að senda? ÉG vil lýsa hneykslan minni á því að maður sem er dæmdur fyrir að misnota sjö ára barn kynferðislega sleppi með skilorðsbundinn dóm.
Meira
Elín Þórdís Björnsdóttir, Elladís, fæddist í Keflavík 20. september 1945. Hún lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi 30. janúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hallgrímskirkju 5. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Elmar Víglundsson fæddist í Ólafsfirði 13. september 1931. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 8. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Víglundur Nikulásson, f. 3. 6. 1891, d. 27.8. 1979, og Sigurlaug Magnúsdóttir, f. 7.11. 1895, d. 21.8. 1969.
MeiraKaupa minningabók
Emilía Björnsdóttir fæddist á Siglufirði 11. maí 1945. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 7. febrúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 16. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Blómin falla, fölskva slær á flestan ljóma. - Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu vinur, mér sem vorið bjarta. Það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf, sem aldrei falla. Drottinn launi elskuna þína alla.
MeiraKaupa minningabók
Gerður Ebbadóttir, leikskólakennari og safnvörður, fæddist í Hólum í Hvammsveit í Dalasýslu 1. júlí 1950. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 5. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ebbi Jens Guðnason, bóndi og iðnverkamaður, f. 3. júní 1910, d.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Ó. Bjarnason fæddist í Keflavík 2. febrúar 1942. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 6. febrúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hveragerðiskirkju 14. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Helgi Brynjólfsson fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 6. október 1918. Hann andaðist á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykjavík 7. febrúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Digraneskirkju 16. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Hulda Jónsdóttir fæddist á Freyshólum í Vallahreppi 15. apríl 1931. Hún andaðist á Landspítalanum 6. febrúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Egilsstaðakirkju 14. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Marsibil Guðbjörg Guðbjartsdóttir fæddist í Reykjavík 29. júní 1911. Hún andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 5. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Halldóra Salome Sigmundardóttir frá Hrauni á Ingjaldssandi, f. 21.7. 1877, d. 13.7.
MeiraKaupa minningabók
Elsku frænka. Við þökkum þér fyrir allt og allt. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt.
MeiraKaupa minningabók
Ráðhildur Ellertsdóttir fæddist í Hafnarfirði 9. október 1961. Hún lést á Hjúkurunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði 9. febrúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hafnarfjarðarkirkju 16. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Sigmunda Kolbrún Guðmundsdóttir fæddist á Akranesi 11. október 1935. Hún lést 18. janúar síðastliðinn og var útför hennar gerð í kyrrþey.
MeiraKaupa minningabók
G. R. útgerð ehf. hefur eignast 43,66% hlut í Guðmundi Runólfssyni hf. í Grundarfirði. G. R. útgerð ehf. er alfarið í eigu Guðmundar Runólfssonar, stofnanda Guðmundar Runólfssonar hf. Runólfur Guðmundsson, framkvæmdastjóri G. R. útgerðar ehf.
Meira
RÆTT verður um hlutabréfaeign KEA í Kaldbaki á stjórnarfundi KEA í dag. Þetta segir Andri Teitsson, framkvæmdastjóri KEA. Hann vildi í gær ekki tjá sig frekar um fundinn.
Meira
SPRON kynnti í gær nýtt alþjóðlegt MasterCard-kreditkort sem gefið er út í samstarfi við Haga hf. (sem rekur m.a. Hagkaup og Bónus), Olíufélagið ESSO og fjölda annarra fyrirtækja.
Meira
SLÁTURFÉLAG Suðurlands og AGR hafa skrifað undir samning um innleiðingu á hugbúnaðinum AGR Innkaup. SS mun nota hugbúnaðinn við innkaup á endursöluvörum sínum.
Meira
70 ÁRA afmæli . Í dag, þriðjudaginn 17. febrúar, verður sjötugur Sigurður V. Garðarsson, Selsvöllum 1, Grindavík. Hann og kona hans, Brynhildur Vilhjálmsdóttir, verða með heitt á könnunni laugardaginn 21. febrúar eftir kl. 16 á Árnastíg...
Meira
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa milli kl. 10 og 14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12. Léttur hádegisverður að lokinni bænastund. Allir velkomnir. Tólf spora fundur kl. 19 í neðri safnaðarsal. Grensáskirkja.
Meira
ÍSLENSKA sveitin, sem tók þátt í NEC-mótinu í Japan í síðustu viku, fór vel af stað og virtist ætla að sigla örugglega inn í átta liða úrslit. En síðustu tveir leikir raðkeppninnar töpuðust og Ísland endaði 9. sæti af 52 sveitum.
Meira
Sveit Ingvalds best í Kópavogi Sveit Ingvalds Gústafssonar sigraði með sannfærandi hætti í aðalsveitakeppni félagsins eftir að helzti keppinauturinn átti dapurt kvöld og féll niður í þriðja sæti.
Meira
BRÚÐKAUP . Hinn 26. júlí sl. voru gefin saman í hjónaband í Hafnarfjarðarkirkju af sr. Pálma Matthíassyni þau Margrét Árnadóttir og Ívar Helgason. Brúðarmær er dóttir þeirra Erla Mist Magnúsdóttir. Þau eru búsett í...
Meira
Sálarskip mitt fer hallt á hlið og hrekur til skaðsemdanna, af því það gengur illa við andviðri freistinganna. Sérhverjum undan sjó ég slæ, svo að hann ekki fylli, en á hléborðið illa ræ, áttina tæpast grilli.
Meira
Sjónvarpsrásin Stöð 2 plús hefur slegið í gegn hjá Víkverja. Fyrir þá sem ekki vita er þar kvölddagskrá Stöðvar 2 sýnd klukkustund síðar. Víkverji starði að vísu opinmynntur á þegar rás þessi fór í loftið á sínum tíma, skildi ekki þörfina fyrir hana.
Meira
BIKARMEISTARAR síðustu tveggja ára, Arsenal, verða á útivelli í átta liða úrslitum bikarsins, en dregið var í þau í gær. Arsenal mætir annaðhvort Liverpool eða Portsmouth, en liðin þurfa að leika öðru sinni í næstu viku þar sem þau gerðu jafntefli um síðustu helgi.
Meira
JOACHIM Boldsen, leikmaður Flensburg og danska landsliðsins í handknattleik, er óhress með ummæli danska landsliðsþjálfarans Torbens Winthers í sinn garð.
Meira
SVEN-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, sagði í samtali við BBC um helgina að hann ætlaði sér að standa við samninginn við enska knattspyrnusambandið og stýra enska landsliðinu fram yfir heimsmeistaramótið í Þýskalandi 2006, en...
Meira
GARY Neville, varnarmaður Manchester United, segir í pistli sínum í The Times í gær að sér hafi orðið á mikil mistök þegar hann skallaði í höfuð Steves McManamans, leikmanns Manchester City, í augnabliksbræði í bikarleik liðanna sl. laugardag.
Meira
SHAQUILLE O'Neal var kosinn maður leiksins í 53. stjörnuleiknum í NBA-deildinni í körfuknattleik, sem fram fór í fyrrinótt. Það var vel við hæfi enda hefur kappinn leikið hlutverk gestgjafa hér í englaborg með afbrigðum vel. O'Neal skoraði flest stig Vesturliðsins, sem vann sinn þriðja leik í röð, 136:132. Kappinn var búinn að vera út um allan bæ þessa stjörnuleiksviku í allskonar samkvæmum og öðrum atburðum tengdum leiknum.
Meira
HANN var ekki burðugur leikurinn sem heimamenn í Grindavík buðu upp á í gærkveldi þegar Þór í Þorlákshöfn kom í heimsókn. Munurinn á þessum liðum er einfaldlega of mikill og heimamenn lönduðu þægilegum sigri, 88:81, í barningsleik þar sem gestirnir gáfust þó aldrei upp. Nýliðarnar unnu tvo leiki í röð í upphafi leiktíðar en hafa síðan tapað 15 af síðustu 16 leikjum sínum í deildinni en liðið lagði Tindastól á heimavelli í síðustu umferð.
Meira
SERBNESK handknattleikskona, Sanja Jovivic, var í lífshættu um tíma eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg í leik með danska liðinu Ikast-Bording í Meistaradeild Evrópu í fyrrakvöld.
Meira
* HRAFN Davíðsson, tvítugur markvörður úr Fylki , lék í marki ÍBV sem gerði jafntefli í æfingaleik gegn Völsungi , 1:1, í Reykjaneshöllinni á sunnudag.
Meira
ÉG hef aldrei áður unnið atvinnumannamót þar sem Tiger Woods hefur verið á meðal keppenda og þessi sigur skiptir mig miklu máli," sagði "sleggjan" John Daly frá Bandaríkjunum sem fagnaði sigri á Buick PGA-mótinu í golfi á sunnudag.
Meira
* KARLALIÐ norska handknattleiksliðsins Stavanger er á barmi gjaldþrots og hafa forsvarsmenn liðsins óskað eftir því að kröfuhafar gefi eftir um 22 millj. kr. til þess að bjarga liðinu frá gjaldþroti.
Meira
ÞÓTT KR-ingar hafi orðið Reykjavíkurmeistarar í knattspyrnu í fyrrakvöld með sigri á Fylki, 4:3, hefur vantað talsvert upp á að Íslandsmeistarar tveggja undanfarinna ára hafi getað stillt upp sínu sterkasta liði. Undanfarið hafa á bilinu10-12 úr leikmannahópi KR-inga verið fjarverandi vegna meiðsla og í fyrrakvöld voru 13 úr hópnum fjarverandi.
Meira
"VIÐ höfum ekki enn fengið svar frá enska knattspyrnusambandinu um hvað við fáum marga miða á leikinn," segir Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, spurður um hvort KSÍ hefði fengið svar frá enska...
Meira
TVEIR leikir fóru fram í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gær og lagði ÍS lið KR á heimavelli, 82:63, en bikarmeistaralið Keflavíkur vann stórsigur gegn ÍR á útivelli, 36:91.
Meira
MARK Viduka, ástralski knattspyrnumaðurinn hjá Leeds United, mætti ekki til Caracas í Venesúela á sunnudag en þar átti hann að spila vináttulandsleik með Áströlum á morgun.
Meira
EYJÓLFUR Sverrisson, fyrrv. fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, hafði í nógu að snúast um sl. helgi er hann hóf með formlegum hætti að stýra skútunni hjá knattspyrnulandsliði Íslands skipað leikmönnum 21 árs og yngri.
Meira
ÞJÓÐVERJAR hafa ákveðið að hver leikmaður í landsliði þeirra fái 100.000 evrur takist liðinu að verða Evrópumeistari í knattspyrnu í sumar. Þetta samsvarar tæpum tíu milljónum íslenskra króna.
Meira
SAMKVÆMT frétt á vef TV2 í Danmörku eru allar líkur á því að Vésteinn Hafsteinsson, landsliðsþjálfari Dana í kastgreinum frjálsíþrótta, fái undanþágu til þess að fara með kúluvarparanum Joachim B. Olsen á Ólympíuleikana í Aþenu í sumar.
Meira
VÖLSUNGAR frá Húsavík unnu stórsigur á KR, 8:2, í úrslitaleiknum á Íslandsmóti 2. flokks karla í innanhússknattspyrnu sem fram fór í Ásgarði í Garðabæ á sunnudaginn.
Meira
FISKAFLI landsmanna í janúarmánuði sl. var samtals 104.716 tonn, sem er meira en helmingi minni afli en í sama mánuði síðasta árs. Rúmlega 60% aflans var loðna, alls 64.142 tonn. Í janúar 2003 veiddust 219.
Meira
VIÐRÆÐUR um skiptingu afla úr norsk-íslenska síldarstofninum hófust í Kaupmannahöfn í gær. Boðað var til fundarins að ósk Norðmanna. Ekkert þokaðist þó í samkomulagsátt í viðræðunum í gær sem verður fram haldið í dag.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.