TUGIR söngvara stóðu saman á sviðinu í Háskólabíói í gær og hófu upp raust sína í tilefni af þrjátíu ára afmæli Söngskólans í Reykjavík. Efnt var til veglegrar afmælisveislu í gær og verður henni fram haldið í dag.
Meira
FORSÆTISRÁÐHERRAR Danmerkur og Íslands hafa ákveðið að láta kanna hvernig taka megi á málum varðandi íslenska forngripi sem eru í vörslu danskra safna. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að Íslendingar eigi enga kröfu á hendur Dönum vegna forngripanna.
Meira
KVIÐDÓMUR í New York úrskurðaði í gær að bandaríska kaupsýslukonan Martha Stewart væri sek um samsæri, um að hindra framgöngu réttvísinnar og um að hafa tvisvar logið að rannsóknarmönnum.
Meira
STÖRFUM fjölgaði aðeins um 21.000 í Bandaríkjunum í febrúar, samkvæmt hagtölum sem birtar voru í gær, og atvinnuleysið hélst óbreytt, eða 5,6%. Kom þetta sérfræðingum mjög á óvart þar sem þeir höfðu spáð því að störfunum myndi fjölga um 125.000.
Meira
UNDIRRITUN nýrrar og lýðræðislegrar bráðabirgðastjórnarskrár í Írak var frestað í gær um óákveðinn tíma vegna óvæntra krafna sjía-múslíma. Fimm af 13 fulltrúum þeirra í 25 manna ráðinu mættu ekki á staðinn þar sem undirritun átti að fara fram.
Meira
"FRÁ og með árinu í ár er mögulegt að gera öll framtalsskil, einstaklinga og lögaðila, hvort sem þeir eru með rekstur eða ekki, á rafrænan hátt," sagði Indriði H. Þorláksson ríkisskattstjóri á blaðamannafundi í gær.
Meira
ÁHUGI á alls kyns náttúrulegum afurðum fer stöðugt vaxandi meðal Íslendinga líkt og annarra vestrænna þjóða og á það ekki hvað síst við um þær náttúrulegu afurðir sem eignaðir eru heilsusamlegir eiginleikar.
Meira
Í ÖLLUM mæðraskoðunum, bókum eða samræðum er verið að brýna fyrir óléttum konum að passa sig á að þyngjast ekki of mikið. Hvernig á það að vera hægt? Fyrstu vikurnar í óléttunni var ég alltaf svöng.
Meira
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráðherra telur rétt að bíða með frumvarp um vernd Laxár og Mývatns, sem nýtt bráðbirgðaákvæði var sett inn í, sem segir að heimilt verði að hækka stíflu við inntak Laxárstöðvar eftir gerð mats á umhverfisáhrifum.
Meira
Í KÖNNUN sem norska flugfélagið Braathens gerði nýlega kemur fram að kvenkyns viðskiptavinum hefur fjölgað um 13% frá því fyrir tveimur árum, á meðal þeirra viðskiptavina flugfélagsins sem kaupa flugfarmiða á Internetinu.
Meira
Í hinum forna höfuðstað Danmerkur, Hróarskeldu, er að finna allsérstætt safn sem helgað er víkingatímanum þar sem skoða má leifar af sams konar skipum og norrænu landsnámsmennirnir sigldu á yfir hafið til Íslands.
Meira
KARLMAÐUR á þrítugsaldri beið bana í vélsleðaslysi í Karlsárdal, skammt norðan við Dalvík, síðdegis í gær. Hann var þar á ferð ásamt tveimur félögum sínum þegar slysið varð.
Meira
Vestmannaeyingurinn Lárus. G. Jónasson, sem hampar nýfengnum titli sem matreiðslumaður ársins, var að vonum hinn hressasti þegar blaðamaður hafði samband við meistarann.
Meira
JÓN Hjaltalín Magnússon, forstjóri og aðaleigandi Altech JHM hf., hefur fengið erlenda og innlenda samstarfsaðila til liðs við sig um stofnun nýs fyrirtækis til að hanna vélar og tæki fyrir áliðnaðinn.
Meira
Rússlandsferð FERÐASKRIFSTOFAN Bjarmaland skipuleggur ferð til tveggja stærstu borga Rússlands í byrjun júní í sumar. Flogið er gegnum Stokkhólm til Moskvu og höfuðborgin skoðuð hátt og lágt.
Meira
Göngu-, fjalla- og hjólaferðir eru vinsæl afþreying þegar gist er á Hótel Hochspessart. Jóhanna Ingvarsdóttir þáði gistingu og góðgjörðir hjá hótelhaldaranum Gerhard Samer í Heigenbrücken.
Meira
LÖGREGLAN á Blönduósi upplýsti þrjú fíkniefnamál í gær og í fyrradag og handtók sjö manns. Til viðbótar gaf einn sakborningur sig fram vegna eins málsins.
Meira
YFIR 460 nemendur stunda nám í framhaldsdeild Kennaraháskóla Íslands, 368 eru í Dipl. Ed.-námi, 91 í mastersnámi og 7 í doktorsnámi. Markmið skólans er að 15-20% nemenda skólans séu í framhaldsnámi.
Meira
FARÞEGUM um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 33% í febrúarmánuði miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 60 þúsund farþegum árið 2003 í um 80 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæplega 31% milli ára.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 655 orð
| 1 mynd
BÚIST er við að allt að 1.500 manns sæki ráðstefnu um upplýsingatækni í skólastarfi, UT 2004, sem haldin er á vegum menntamálaráðuneytisins og sett var í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í gær.
Meira
UTANRÍKISRÁÐHERRA Finnlands, Erkki Tuomioja, bar vitni í gær á lokadegi réttarhalda yfir fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Anneli Jäätteenmäki, sem er sökuð um að hafa aflað sér leynilegra skjala úr utanríkisráðuneytinu með ólöglegum hætti.
Meira
RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært fyrrverandi framkvæmdastjóra Íslenska dansflokksins fyrir 2,3 milljóna króna fjárdrátt í opinberu starfi á árunum 1999-2001.
Meira
Áminning | Heilbrigðisnefnd Suðurnesja ákvað á fundi sínum í vikunni að áminna Olíuverslun Íslands hf. vegna margvíslegra brota á reglugerð um varnir gegn olíumengun vegna stöðvar fyrirtækisins í Grindavík.
Meira
SÍMTÖLUM til þjónustuvers Símans hefur fjölgað umtalsvert síðustu mánuði og hefur biðtími eftir þjónustu af þeim sökum lengst og í sumum tilvikum meira en viðunandi er.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 161 orð
| 1 mynd
Blómálfurinn heldur blómaboð fyrir Steinar Björgvinsson Íslandsmeistara í blómaskreytingum 2004 laugardaginn 6. mars kl. 14-17. Blómaskreyting ársins 2004 verður til sýnis og boðið er upp á veitingar. Blómálfurinn er á Vesturgötu 4, 101 Reykjavík.
Meira
BORGARSTJÓRN samþykkti ályktun á fimmtudag þar sem nýtekin ákvörðun dómsmálaráðherra um fjölgun almennra lögreglumanna í Reykjavík um tíu var fagnað. Þurfti sérstakt samþykki borgarfulltrúa til að taka tillöguna til meðferðar.
Meira
Keflavíkurflugvöllur | Framkvæmdir eru hafnar við stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Jarðvinnuverktaki undirbýr stækkun á innritunarsal til vesturs.
Meira
6. mars 2004
| Erlendar fréttir
| 356 orð
| 2 myndir
GORDON Brown, fjármálaráðherra Bretlands, er sagður vera í hópi þeirra mann, sem líklegastir eru taldir til verða næsti yfirmaður IMF, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Var þessu haldið fram í breska blaðinu The Guardian í gær.
Meira
Söngleikurinn Hey þú! | Nemendur Fjölbrautaskóla Suðurlands keppast nú við að setja upp söngleikinn ,,Hey þú" sem byggður er á tónlist sem hljómsveitin Skítamórall hefur gert vinsæla.
Meira
6. mars 2004
| Erlendar fréttir
| 190 orð
| 1 mynd
CDU og CSU, kristilegu flokkarnir sem bera uppi stjórnarandstöðuna í Þýzkalandi, myndu fá hreinan meirihluta atkvæða á þýzka Sambandsþinginu ef kosið yrði nú um helgina.
Meira
Dagskrá Göngugarpa ÍT ferða í mars Á morgun, sunnudaginn 7. mars, verður farinn Heiðmerkurhringur 2 til 3ja tíma ganga. Mæting er kl. 11 við Vetnisstöðina við Vesturlandsveg. 14. mars: Fossvogsdalur að Nauthól. Mæting við Pizza Hut kl.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 363 orð
| 1 mynd
*JÓHANN Elí Guðjónsson læknir varði doktorsritgerð sína við læknadeild Háskóla Íslands 29. nóv. sl. Heiti ritgerðarinnar er Psoriasis: Erfðir, klínísk einkenni og meingerð. Andmælendur voru dr.
Meira
6. mars 2004
| Erlendar fréttir
| 265 orð
| 1 mynd
NÝGRÆÐINGUR á akri bókmenntanna hefur fengið óvenjumikla umfjöllum í fjölmiðlunum á Írlandi, tugi milljóna frá útgefendum víða um heim og vakið eftirtekt í Hollywood vegna nýrrar skáldsögu um ástarsorg, leynimakk og ástarbréf að handan.
Meira
Í ár eru liðin tíu frá gildistöku EES-samningsins. Það væri að bera í bakkafullan lækinn að fjölyrða um þau áhrif sem samningurinn hefur haft á íslenskt samfélag.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 719 orð
| 1 mynd
Brynhildur Björnsdóttir er fædd 5. maí 1975 á Akranesi. Hún er búsett í Reykjavík og gift Gustavo Ernesto Moncada. Sonur er Arnór Daníel Moncada, fæddur árið 2000. Brynhildur starfar í Alþjóðadeild Ríkislögreglustjórans. Hún mun útskrifast í haust frá Háskóla Íslands með BA-gráðu í spænsku og bókmenntafræði.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 204 orð
| 1 mynd
MAGNÚS Norðdahl, lögfræðingur Alþýðusambands Íslands, segir að niðurstaða Hæstaréttar, að dómar Félagsdóms séu lögum samkvæmt endanlegir og verði ekki áfrýjað, eigi ekki að koma neinum á óvart.
Meira
Eldur í heyrudda | Tvívegis var tilkynnt um eld í vikunni til Slökkviliðs Akureyrar. Í fyrra sinnið reyndist hafa kviknað í pappa á svölum fjölbýlishúss vegna sígarettustubbs en í hitt skiptið var um að ræð eld í heyrudda á opnu svæði í...
Meira
Reykjanesbær | Á fjórða tug táninga úr félagsmiðstöðinni Fjörheimum í Reykjanesbæ sem nú eru í langþráðu ferðalagi til Vestmannaeyja fengu ekki að taka farsímana með sér. Krakkar sem voru virkir í starfi félagsmiðstöðinni í vetur fengu að fara í...
Meira
LANDEIGENDAFÉLAG Laxár og Mývatns stækkaði um þriðjung á félagsfundi sem haldinn var á Narfastöðum í Reykjadal á fimmtudagskvöld, 68 nýir félagar sem óskað höfðu inngöngu í félagið voru samþykktir sem meðlimir þess, en fyrir voru í félaginu um 120 manns.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 254 orð
| 1 mynd
ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði í ræðu við opnun ráðstefnu um upplýsingatækni í skólastarfi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í gær að megináhersla í stefnumótunarvinnu ráðuneytisins á þessu sviði væri á þrjá þætti; að gert yrði átak...
Meira
GISTINÁTTAFJÖLDI í janúar á hótelum á höfuðborgarsvæðinu stóð nánast í stað milli ára. Þær voru 24.400 í janúar árið 2003 en voru 24.530 í janúar síðastliðnum (0,5%). Frá þessu er greint á vef Hagstofu Íslands.
Meira
FRÁ Algeirsborg til Suðurnesja er yfirskrift fyrirlestraraðar sem Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur heldur í Safnaðarheimilinu í Sandgerði fjögur næstu þriðjudagskvöld.
Meira
Frumjarðfræðiathugunum vegna jarðganga undir Hrafnseyrarheiði milli Dýrafjarðar og Arnarfjaðar verður væntanlega lokið í ár og eru þá komnar þær athuganir sem venja er að gera áður en framkvæmdir eru tímasettar, en eftir það er ráðist í dýrari athuganir...
Meira
6. mars 2004
| Höfuðborgarsvæðið
| 429 orð
| 1 mynd
Það voru strákar við Suðurgötu og í kringum miðbæinn sem stofnuðu félagið 1. maí 1908," segir Sveinn H. Ragnarsson lögfræðingur þegar hann rifjar upp fyrstu ár knattspyrnufélagsins Fram.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 1135 orð
| 1 mynd
Gagnkvæmar yfirlýsingar um nána vináttu og einstök tengsl, þrátt fyrir gamlar deilur, einkenndu ráðstefnu um samskipti Íslands og Danmerkur, sem haldin var í gær á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn. Ólafur Þ. Stephensen fylgdist með ráðstefnunni, sem haldin var í tilefni af 100 ára afmæli heimastjórnar á Íslandi.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 57 orð
| 1 mynd
Bolinn Grallari naut lífsins innan um sjö kvígur í fjósinu í Þórukoti í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu. Hann fékk sér vatnssopa eftir allt erfiðið og sleikti út um en ekki er vitað hvað augnaráðið sem hann sendi öðrum viðstöddum átti að þýða.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 58 orð
| 1 mynd
Kópasker | Þó að það sé mars á dagatalinu hefur mikil veðurblíða verið á Kópaskeri sem og annars staðar á landinu undanfarna daga. Börnin nýta sér aðstæður og eru komin út með hjólin sín. Og þá er betra að muna eftir hjálminum.
Meira
Ólafsfirska hljómsveitin Roðlaust og beinlaust, sem er að mestu skipuð sjómönnum á frystitogaranum Kleifabergi ÓF-2, hefur afhent Slysavarnaskóla sjómanna að gjöf rösklega hálfa milljón króna.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 316 orð
| 1 mynd
Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í erindi sínu á ráðstefnunni að hvergi ætti betur við að minnast aldarafmælis heimastjórnarinnar utan Íslands en í Kaupmannahöfn.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 461 orð
| 2 myndir
Í FRUMVARPI átta þingmanna Samfylkingarinnar, sem lagt hefur verið fram á Alþingi, er lagt til að 30% af upphæð námsláns frá Lánasjóði íslenskra námsmanna breytist í styrk ljúki námsmaður lokaprófum á tilskildum tíma, samkvæmt reglum viðkomandi skóla.
Meira
6. mars 2004
| Erlendar fréttir
| 211 orð
| 1 mynd
HUTTON lávarður, dómarinn sem gerði í janúar að beiðni breskra stjórnvalda rannsóknaskýrslu um aðdragandann að dauða vopnasérfræðingsins David Kellys í fyrra, er mjög ósáttur við hvernig skýrslunni var tekið.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 797 orð
| 1 mynd
ÍSLAND er í hópi sex landsvæða í heiminum sem geta í framtíðinni boðið orku til stóriðju á hagkvæmu verði. Þetta er meðal þess sem kom fram hjá erlendum sérfræðingum á alþjóðlegu ál- og orkuráðstefnunni, sem lauk í Reykjavík í gær.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 156 orð
| 1 mynd
UPPSETNING Þorleifs Arnar Arnarssonar á leikverkinu Kitchen eftir Vanessu Badham er meðal sýninga á Adelaide-jaðarleiklistarhátíðinni sem haldin er í Suður-Ástralíu um þessar mundir.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 436 orð
| 1 mynd
ÞAÐ er heilmargt að varast í umferðinni. Þess vegna getur verið alveg ómissandi að hafa einhvern til að fylgja sér, sérstaklega þegar maður er ekki hár í loftinu.
Meira
6. mars 2004
| Erlendar fréttir
| 455 orð
| 1 mynd
HLJÓÐUPPTÖKUR af samtölum við Díönu prinessu heitna, þar sem hún lýsir á opinskáan hátt fyrstu árum hamingjulauss lífs síns sem eiginkona Karls Bretaprins, voru sendar út á NBC -sjónvarpsstöðinni bandarísku á fimmtudagskvöld.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 118 orð
| 1 mynd
FORMENN heildarsamtaka starfsmanna í almannaþjónustu komu saman til fundar ásamt öðrum kjörnum fulltrúum og sérfræðingum í alþjóðamálum fimmtudaginn 4. mars í húsakynnum BSRB.
Meira
Leikreglur og umgjörð lýðræðisins hafa verið ofarlega á baugi í umræðunni síðustu vikurnar. Allt of sjaldan kemur upp raunveruleg umræða um lýðræðismálin en umgjörð þeirra er afar frumstæð á Íslandi, svo vægt sé til orða tekið.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 35 orð
| 1 mynd
SJÓMAÐURINN sem drukknaði þegar hann féll útbyrðis af netabátnum Fylki KE 102 á fimmtudagsmorgun hét Magnús Ölversson, fæddur 1937. Magnús var til heimilis á Hamarsbraut 9 í Hafnarfirði. Hann lætur eftir sig fjögur uppkomin...
Meira
6. mars 2004
| Akureyri og nágrenni
| 298 orð
| 2 myndir
VÖRÐUR vátryggingafélag hefur hafið starfsemi og afhenti í gær af því tilefni fyrstu vátryggingaskírteinin, en félagið hefur nú fengið leyfisbréf til alhliða tryggingastarfsemi.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 390 orð
| 2 myndir
Meðallestur á öllum dagblöðunum þremur eykst talsvert að því er fram kemur í könnun Gallup á lestri dagblaðanna sem fram fór fyrrihluta febrúarmánaðar.
Meira
TRAUST kjósenda á Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur aldrei verið minna en nú en hann er nú orðaður við enn eitt hneykslismálið. Samkvæmt könnun, sem birt var í gær, vill meirihlutinn, að hann segi af sér.
Meira
MIKIL umferðarteppa myndaðist í Daejeon í Suður-Kóreu í gær, en í fyrrinótt skall á mesta stórhríð sem komið hefur í marsmánuði á þessu svæði í heila öld. Mældist jafnfallinn snjór um hálfs metra djúpur. Var skólum lokað í gær og samgöngur lömuðust.
Meira
SUNN, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, hefur skilað Skipulagsstofnun umsögn sinni um skýrslu Kísiliðjunnar um námuvinnslu kísilgúrs á viðbótarsvæðum í Ytri-Flóa Mývatns.
Meira
Laxamýri | Prjónakonan Jónída Stefánsdóttir á Sigurðarstöðum í Bárðardal er níræð í dag, og þrátt fyrir háan aldur er hún andlega hress og grípur í prjónavélina sína.
Meira
FORMENN stéttarfélaga hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða lögðu fram nýjar tillögur í deilunni um aksturssamninga starfsmanna í heimahjúkrun á fundi með stjórnendum Heilsugæslunnar í Reykjavík í gærmorgun. Viðræður eru í gangi milli deiluaðila. Kristín Á.
Meira
"HVAÐ er á seyði?" gæti þessi prúði hvolpur verið að spyrja eiganda sinn en hann var einn af fjölmörgum hvolpum sem komu til að sýna sig og sjá aðra á árlegri haustsýningu Hundaræktarfélags Íslands í gær.
Meira
6. mars 2004
| Höfuðborgarsvæðið
| 138 orð
| 1 mynd
Hafnarfjörður | Vinna við niðurrif húsa á hinum svokallaða Rafha-reit við Lækinn í Hafnarfirði er nú í fullum gangi, en á reitnum munu rísa fjölbýlishús með alls 89 íbúðum.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 54 orð
| 1 mynd
VÖRUBÍLL með áfastan krana, á leið suður Hafnarfjarðarveg, rakst upp undir brúna, sem liggur þvert yfir veginn á Arnarneshæð um hádegisbil í gær. Höggið var mikið og skipti engum togum að grind vörubílsins brotnaði í sundur.
Meira
Ráðstefna um feminisma Í tilefni af útgáfu norræna greinasafnsins FEMKAMP - bang om nordisk feminism sem sænska forlagið Bang gaf nýverið út verða haldnar ráðstefnur um feminisma í Reykjavík, Osló, Helsinki og Kaupmannahöfn.
Meira
Fá mál hafa verið eins áberandi í þjóðfélagsumræðunni nú í haust og fyrri hluta vetrar og bann við veiðum á rjúpu. Veiðimenn hafa verið gríðarlega ósáttir við bannið, telja það með ólíkindum að farið skuli úr frjálsum veiðum í algjört bann.
Meira
6. mars 2004
| Árborgarsvæðið
| 486 orð
| 2 myndir
Þorlákshöfn | Lokið er vel heppnuðu íbúaþingi í Sveitarfélaginu Ölfusi, þingið var vel sótt og að sögn þeirra sem höfðu umsjón með þinghaldinu tókst það mjög vel í alla staði.
Meira
Safn, Laugavegi 37 Rangt var farið með heimilisfang Safns og opnunartíma þess um helgar í blaðinu í fyrradag. Safn er á Laugavegi 37 og er opið miðvikudaga til föstudaga frá kl. 14-18 og frá kl. 14 til 17 um helgar. Beðist er velvirðingar á þessu.
Meira
Samkaupsmótið | Liðlega 100 lið taka þátt í Samkaupsmótinu í körfubolta sem fram fer í Keflavík og Njarðvík um helgina. Þýðir það að yfir 700 krakkar munu taka þátt og er það nýtt met.
Meira
VIÐBYGGING við Amtsbókasafnið á Akureyri verður vígð í dag og í kvöld verður endurbætt Samkomuhús bæjarins tekið í notkun á ný eftir nokkurt hlé, með frumsýningu leikritsins Draumalandið eftir Ingibjörgu Hjartardóttur.
Meira
AÐALFUNDUR Félags járniðnaðarmanna gagnrýnir harðlega að Samtök atvinnulífsins hafa í engu sinnt efnislegum viðræðum um nýjan kjarasamning í samfellt 4 vikur og að ekki er komin niðurstaða í neinum málaflokki þegar mánuður er liðinn frá því að samningur...
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 450 orð
| 1 mynd
SAMKVÆMT rannsóknum hafa 12-14% karla í Danmörku keypt vændi einu sinni eða oftar en sambærilegar tölur fyrir hin Norðurlöndin eru 12,7% í Svíþjóð, 11,3% í Noregi og 9,9% í Finnlandi.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 362 orð
| 1 mynd
Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði í ræðu sinni á ráðstefnunni um samskipti Íslands og Danmerkur, að samband þjóðanna í dag væri einstakt, þótt barátta Íslendinga fyrir sjálfstæði frá Danmörku hefði tekið of langan tíma.
Meira
6. mars 2004
| Höfuðborgarsvæðið
| 166 orð
| 1 mynd
Breiðholt | Nemendur í sjötta bekk TR í Seljaskóla slepptu því að gefa hvert öðru jólagafir í ár og gáfu í staðinn fé til langveikra barna, en árið áður gáfu þau fé til Barnaspítala Hringsins.
Meira
Skapadægur í Galleríi+ | Aðalheiður S. Eysteinsdóttir og Jón L. Halldórsson opna skúlptúrsýninguna Skapadægur í Gallerí+ í Brekkugötu 35 á Akureyri í dag, laugardaginn 6. mars kl. 16.
Meira
SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI getur leitað atbeina lögreglu ef færa þarf mann til skýrslugjafar, sem ítrekað hefur hunsað kvaðningu þar um, verði frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt að lögum, sem rætt var á fundi...
Meira
Stefán Bragason á Egilsstöðum gerði vísu í tilefni afmælis starfssystur og jafnöldru: Fimmtugri þér fallast ekki hendur á framtíð okkar hefur mikla trú. Eins og vín, þó uppúr löngum stendur árgangurinn fimmtíu og þrjú.
Meira
6. mars 2004
| Höfuðborgarsvæðið
| 245 orð
| 1 mynd
Hafnarfjörður | Reist verða þrjú samtengd hús með íbúðum fyrir eldri borgara við Herjólfsgötu á Langeyrarmölum í Hafnarfirði ef fyrirliggjandi tillaga að breytingu á deiliskipulagi verður að veruleika, en skipulagið var kynnt á fundi með bæjarbúum á...
Meira
REIKNAÐ er með að það skýrist í samningalotu um helgina hvort flötur er á gerð nýrra kjarasamninga milli Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins.
Meira
Árneshreppur | Þegar Páll Pálsson frá Reykjarfirði var á ferð á snjósleða sunnudaginn 29. febrúar sl. ásamt öðrum fór hann niður að bænum Reykjarfirði, sínu gamla æskuheimili, og kíkti á glugga og sá þá að eldhúsið var allt svellað.
Meira
STYRKIR álfyrirtækisins Alcoa til samfélags- og góðgerðarmála í heiminum námu alls um 26,8 milljónum Bandaríkjadollara á síðasta ári, jafnvirði tæplega 1,9 milljarða íslenskra króna miðað við núverandi gengi.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness úrskurðaði karlmann og konu í gæsluvarðhald til 12. mars í gær að kröfu lögreglunnar í Hafnarfirði vegna gruns um aðild að fíkniefnamáli.
Meira
Hagræðing í mjólkurframleiðslu var mjög til umræðu á bændafundi sem haldinn var í síðustu viku að Breiðumýri en þar kynntu fulltrúar Landssambands kúabænda drög að nýjum mjólkursamningi. Þar kom m.a.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 76 orð
| 1 mynd
ÚRVALSVÍSITALA Aðallista í Kauphöll Íslands lækkaði um 2,5% í vikunni en vikuna áður hækkaði hún um 5,9%. Hækkun vísitölunnar frá áramótum nemur 21,2% en hún stendur nú í 2.562,25 stigum.
Meira
Keflavík | Útlínur litanna er heiti grafískrar myndlistarsýningar sem Stefan Swales opnar í dag í 88 húsinu í Reykjanesbæ. Stefan Swales er 27 ára og býr í Keflavík.
Meira
Umræða um öryggis- og varnarmál á Íslandi tekur stundum á sig sérkennilega mynd. Þannig hefur farið lítið fyrir fögnuði íslenskra stjórnvalda yfir því hversu friðvænlegt er nú í Norður-Atlantshafi.
Meira
ENDURGREIÐSLUR Tryggingastofnunar ríkisins (TR) vegna tannlækninga miðast við gjaldskrá sem heilbrigðisráðherra gefur út. Verðlagning tannlækna er hins vegar frjáls.
Meira
6. mars 2004
| Erlendar fréttir
| 122 orð
| 1 mynd
SUÐUR-Afrísk stjórnvöld tóku í fyrradag undir kröfur um að óháð, alþjóðleg rannsókn fari fram á kringumstæðum afsagnar Jeans Bertrands Aristides, fyrrverandi forseta á Haítí, og brotthvarfs hans frá landinu sl. sunnudag.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 157 orð
| 1 mynd
LAUSN handritamálsins var af mörgum ræðumönnum á ráðstefnunni nefnd sem hápunkturinn í vináttu Íslands og Danmerkur, einstæður í samskiptum gamals nýlenduveldis og fyrrverandi hjálendu þess.
Meira
ÞRETTÁN sóttu um stöðu sveitarstjóra Tálknafjarðarhrepps en umsóknarfrestur rann út um síðustu helgi, að því er fram kemur á vef Bæjarins besta. Umsækjendurnir eru Bolli Valgarðsson í Kópavogi, Einar Björn Bjarnason í Reykjavík, Finnbjörn B.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot, frelsissviptingu, eignaspjöll og þjófnað í maí í fyrra.
Meira
6. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 60 orð
| 2 myndir
Öll skattframtöl eru nú orðin rafræn og aðgengileg á Netinu. Stefnt er að því að draga enn frekar úr pappírsflóði hjá ríkisskattstjóra þannig að fólk fær nú varanlegan veflykil sem það notar í samskiptum við skattayfirvöld á komandi árum. Þá stendur til að draga úr póstsendingum álagningarseðla og annarra forskráðra upplýsinga.
Meira
Í fyrradag undirrituðu Halldór Ásgrímsson og Jean-Francois Rischard, varaforseti Alþjóðabankans í Evrópu, samning á milli Alþjóðabankans og Íslands vegna endurreisnar- og uppbyggingarstarfs í Írak.
Meira
Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir skammsýni í málefnum heimahjúkrunar í grein á vefriti ungra jafnaðarmanna, Pólitík.
Meira
Nýtt íslenskt verk, Draumalandið, eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, verður frumsýnt í nýuppgerðu Samkomuhúsi í kvöld. Margrét Þóra Þórsdóttir ræddi við leikstjórann, Þorstein Bachmann.
Meira
Amerískur ljómi (American Splendor) Paul Giamatti og Hope Davis fara á kostum í mynd um listina í lífinu og lífið í listinni. (H.J.) **** Háskólabíó. Hilmir snýr heim (The Return of the King) Kvikmyndun Hringadróttinssögu lýkur með glæsibrag.
Meira
LOKATÓNLEIKAR Gusgus af plötunni Attention verða haldnir á NASA í kvöld en hljómsveitin er búin að fylgja henni eftir bæði hér á landi og víða í Evrópu og Bandaríkjunum, síðan hún kom út seint á árinu 2002.
Meira
VERKFRÆÐINEMINN Will Hung og félagar hans verða í sviðsljósinu í kvöld á Stöð 2 þegar því verður beint sérstaklega að þeim sem verst hafa staðið sig í bandarísku stjörnuleitinni.
Meira
FRAM hefur komið að hin fornfræga og áhrifamikla rokksveit, Pixies, er komin saman á nýjan leik og ætlar að spila á fjölda tónleika á þessu ári. Tónleikafyrirtækið Hr.
Meira
Í Seltjarnarneskirkju stendur nú yfir sýning á málverkum eftir Gunillu Möller. Myndir á sýningunni eru 24 talsins og er efni þeirra mest frá fornum söguslóðum við Miðjarðarhaf þ.á m. Biblíunnar. Gunilla er fædd í Svíþjóð en giftist ung til Íslands.
Meira
STEMNINGIN verður áfram alveg rammjapönsk í Bæjarbíói því í dag mun Kvikmyndasafnið sýna þar myndina Seppuko eða öðru nafni Harakíri. Myndin er frá 1962 og var gerð af Masaki Kobayashi.
Meira
ERLING / Elling (2001) Engin tilviljun að þessi mynd skuli hafa farið sigurför um heiminn og meira að segja unnið hina þröngsýnu áhorfendur í hinu stóra vestri á sitt band.
Meira
Höfundaleikhús Dramasmiðjunnar frumsýnir einþáttunginn Korter eftir Kristínu Elfu Guðnadóttur í Iðnó í dag kl. 15. Silja Björk Huldudóttir tók höfundinn tali auk þess að ræða við Hlín Agnarsdóttur, umsjónarmann Höfundaleikhússins, um starfsemina.
Meira
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu kl. 15 Dr. Riichi Miyake heldur opinn fyrirlestur um japanskt borgarskipulag. Nú þegar Japan færist frá hröðu vaxtartímabili yfir í tímabil minnkandi fólksfjölda hefur hönnun japansks borgarskipulags breyst.
Meira
Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir kl. 15 Listamannsspjall. Anna Eyjólfsdóttir ræðir verk sín og skoðar sýninguna ásamt sýningargestum. Sýningin er samsýning Önnu, Ragnhildar Stefánsdóttur og Þórdísar Öldu...
Meira
Rappdrottningin Missy Elliott ætlar að taka þátt í raunveruleikaþætti þar sem hópur ungra rappara mun ferðast um Bandaríkin með söngkonunni og keppa sín á milli í útsláttarkeppni.
Meira
SPAUGSTOFUMENN, þeir Karl Ágúst Úlfsson, Pálmi Gestsson, Randver Þorláksson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason, velja uppáhaldslistamenn sína á sýningu í sýningaröðinni Þetta vil ég sjá! sem opnuð verður í Gerðubergi í dag kl. 15.
Meira
Í HÖFUÐSTÖÐVUM Orkuveitu Reykjavíkur á Bæjarhálsi 1 hafa verið sett upp þrjú listaverk eftir þrjá af fimm listamönnum hússins og verða þau afhjúpuð kl. 16 í dag.
Meira
EINS og greint var frá í fimmtudagsblaðinu er Hilmir Snær Guðnason nú staddur úti í Þýskalandi vegna frumsýningar nýrrar myndar sem hann leikur aðalhlutverkið í.
Meira
ÞEIR væru laglegir feðgar Raymond og Malcolm. En ef út í það er hugsað yrðu þeir ekki lengur vænlegt efni í gamanþátt því sá væri alltof venjulegur.
Meira
SKÓLAHLJÓMSVEIT Kópavogs heldur vortónleika í Háskólabíói á sunnudag kl. 14. Tónleikarnir eru haldnir á afmælisdegi Björns Guðjónssonar sem lést sl. sumar.
Meira
Í Búnaðarriti gefnu út árið 2003 fyrir árið 2002, er margt fróðlegt að finna. Í rekstraryfirliti fyrir árið 2002 sést að tekjur til félagslegrar starfsemi Bændasamtakanna, eru rúmar 197 milljónir króna. Þar af eru rúmar 90 milljónir króna búnaðargjald.
Meira
FLESTUM ber saman um að útvarp Bandaríkjahers sem tók til starfa árið 1952 hafi haft örlagarík áhrif á íslenskt þjóðlíf og skipt sköpum um áhrif engilsaxneskrar tungu á íslenskt mál.
Meira
Rússnesk rúlletta á þjóðvegum ÉG vil hvetja lesendur Morgunblaðsins til að lesa grein Pálma Stefánssonar sem birtist miðvikudaginn 25. febrúar um hættur í akstri á þjóðvegum landsins.
Meira
ÉG gekk inn á Mokka föstudaginn 28. febrúar að gæða mér á súkkulaði. Í þetta sinn tók á móti mér annar andi en nokkru sinni fyrr í líki sýningar, sem tók skynjun mína alla strax í dyragættinni.
Meira
Árni Eyvindsson fæddist á Grímsstöðum á Grímsstaðaholti 13. febrúar 1940. Hann lést á heimili sínu 12. febrúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fossvogskirkju 20. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
6. mars 2004
| Minningargreinar
| 509 orð
| 1 mynd
Finnbogi Bjarnason fæddist á Hóli í Ketildölum í Arnarfirði 27. júlí 1946. Hann lést á líknardeild Landspítalans 5. febrúar síðastliðinn og var útför hans gerð í kyrrþey að hans ósk hinn 13. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Við viljum með þessum orðum þakka þér fyrir gott samstarf og tryggð við okkur í gegnum árin. Þú sást um að strákunum á frystinum væri ekki kalt á höndunum, því vettlingarnir sem þú prjónaðir voru gulls ígildi.
MeiraKaupa minningabók
6. mars 2004
| Minningargreinar
| 1276 orð
| 1 mynd
Ingibjörg Pálsdóttir fæddist á Blönduósi 7. ágúst 1928. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 24. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Páll Bjarnason, f. 30. júlí 1884, d. 27. febrúar 1968, og Jóhanna Alvilda Ólafsdóttir, f. 1. ágúst 1904,...
MeiraKaupa minningabók
6. mars 2004
| Minningargreinar
| 1750 orð
| 1 mynd
Jóakim Guðlaugsson fæddist í Hvammi í Höfðahverfi 19. janúar 1915. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 22. febrúar síðastliðinn. Foreldrar Jóakims voru Guðlaugur Jóakimsson bóndi á Bárðartjörn, f. í Litlagerði í Dalsmynni 25. mars 1877, d. 8.
MeiraKaupa minningabók
6. mars 2004
| Minningargreinar
| 1052 orð
| 1 mynd
Jónasína Bjarnadóttir fæddist í Alviðru í Dýrafirði 11. september 1908. Hún lést á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi 26. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigríður Gunnjóna Vigfúsdóttir og Bjarni Sigurðsson, bændur í Dýrafirði.
MeiraKaupa minningabók
6. mars 2004
| Minningargreinar
| 980 orð
| 1 mynd
Leó Guðlaugsson, húsasmíðameistari í Kópavogi, fæddist á Kletti í Geiradal í Barðastrandarsýslu 27. mars 1909. Hann lést í Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 14. febrúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Digraneskirkju 26. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
6. mars 2004
| Minningargreinar
| 296 orð
| 1 mynd
Reynir Ólafsson, sem best er þekktur fyrir afskipti sín af handbolta, er sjötugur í dag, laugardaginn 6. mars. Hann fæddist á Bræðraborgarstíg 4 í Reykjavík, þar sem hann bjó með foreldrum sínum og fjölskyldu.
MeiraKaupa minningabók
6. mars 2004
| Minningargreinar
| 195 orð
| 1 mynd
Svanhvít Ágústa Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 4. ágúst 1912. Hún lést á dvalarheimilinu Lundi 29. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigríður Guðmundsdóttir, f. 29. apríl 1877, d. 20. október 1966, og Guðmundur S. Gunnarsson, f. 5.
MeiraKaupa minningabók
6. mars 2004
| Minningargreinar
| 1948 orð
| 1 mynd
Una Kristín Georgsdóttir fæddist í Hafnarsmiðjunni í Reykjavík 17. nóvember 1930. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 21. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Svanborg Þórarinsdóttir, f. á Blönduósi 30. júlí 1906, d. 7.
MeiraKaupa minningabók
Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.
MeiraKaupa minningabók
6. mars 2004
| Minningargreinar
| 1639 orð
| 1 mynd
Þorlákur Stefánsson fæddist á Arnardrangi í Skaftárhreppi 14. janúar árið 1924. Hann lést á líknardeild Landakotsspítala 27. febrúar síðastliðinn. Þorlákur var sonur hjónanna Margrétar Davíðsdóttur, f. 21. nóvember 1891, d. 26.
MeiraKaupa minningabók
Viðskipti
6. mars 2004
| Viðskiptafréttir
| 366 orð
| 1 mynd
HAGNAÐUR Pharmaco hf. á árinu 2003 nam 40,5 milljónum evra eftir skatta. Það svarar til um 3,5 milljarða íslenskra króna. Árið áður var hagnaður félagsins 32,3 milljónir evra, eða um 2,8 milljarðar króna.
Meira
6. mars 2004
| Viðskiptafréttir
| 359 orð
| 1 mynd
SAMHERJI hf. hagnaðist um 1.067 milljónir króna eftir skatta á árinu 2003 en um 1.879 milljónir árið áður. Hagnaðurinn var nokkuð yfir meðalspá bankanna, sem gerðu ráð fyrir að hagnaðurinn yrði tæplega 950 milljónir króna.
Meira
6. mars 2004
| Viðskiptafréttir
| 201 orð
| 1 mynd
FYRIRTÆKIN Annata og Microsoft á Íslandi halda ráðstefnu um hámarksárangur í sölustarfi föstudaginn 12. mars næstkomandi. Ráðstefnan er ætluð framkvæmdastjórum og öðrum stjórnendum sölu- og markaðsmála.
Meira
60 ÁRA afmæli . 9. mars næstkomandi verður sextugur Valdimar Tómasson viðskiptafræðingur . Af þessu tilefni mun hann taka á móti gestum í dag, laugardaginn 6. mars, frá kl. 17, í sal FÍH, Rauðagerði 27,...
Meira
70 ÁRA afmæli. Í dag, laugardaginn 6. mars, er sjötugur Reynir Ólafsson, Hagalandi 2, Mosfellsbæ , áður að Vesturbergi 173, kvæntur Margréti Hallgrímsdóttur . Reynir starfaði síðast hjá Vinnueftirliti ríkisins.
Meira
Magnus Eliason, stjórnmálamaður með meiru í Winnipeg í Kanada, er einn helsti sögumaðurinn í hópi Vestur-Íslendinga. Hann hefur marga fjöruna sopið á rúmlega níu áratugum og vakið athygli á mörgum sviðum. Steinþór Guðbjartsson hljóp með honum yfir farinn veg.
Meira
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 6. mars, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Elín Stefánsdóttir og Magnús Gunnlaugsson, Miðfelli 5 í Hrunamannahreppi. Þau halda upp á daginn með börnum, tengdabörnum, barnabörnum og systkinum...
Meira
Kirkjuvika í Akureyrarkirkju KIRKJUVIKAN er haldin annað hvert ár og er fastur liður í starfi Akureyrarkirkju. Tilgangurinn með henni er að vekja athygli á safnaðarstarfinu og ná til fólks með fjölbreyttri og áhugaverðri dagskrá.
Meira
Í dag er laugardagur 6. mars, 66. dagur ársins 2004. Orð dagsins: En Guð, sem veitir þolgæðið og huggunina, gefi yður að vera samhuga að vilja Krists Jesú, til þess að þér allir saman einum munni vegsamið Guð og föður Drottins vors Jesú Krists.
Meira
Af undarlegum ákvörðunum fjögurra ráðherra er sú ákvörðun dómsmálaráðherra að fjárfesta í fleiri víkingum sú eina sem er augljóslega meðvituð. Enginn ætti þó að velkjast í vafa um að aðgerðarleysi, hjáseta og þögn eru líka ákvarðanir, þótt betur dulbúnar séu.
Meira
Hér er fækkað hófaljóni, - heiminn kvaddi vakri Skjóni. Enginn honum frárri fannst. Bæði mér að gamni og gagni góðum ók ég beizlavagni, til á meðan tíminn vannst. Á undan var ég eins og fluga, - oft mér dettur það í huga, af öðrum nú þá eftir verð.
Meira
Víkverji las erlenda frétt í vikunni um að skyndibitakeðjan McDonalds væri að reyna að hætta að bjóða upp á "ofurstærðir" til sölu í Evrópu og það þrátt fyrir að eftirspurnin sé nokkur.
Meira
STURLA Ásgeirsson tryggði ÍR-ingum annað stigið gegn Íslandsmeisturum Hauka að Ásvöllum í gærkvöldi. Sturla jafnaði metin, 34:34, úr vítakasti 8 sekúndum fyrir leikslok en liðin, sem léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð, buðu upp á allt sem prýða þarf góðan handboltaleik, hraða, spennu, sveiflur og glæsileg tilþrif á báða bóga.
Meira
PORTSMOUTH og Arsenal, sem eigast við í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í kvöld á Fratton Park, hafa tvsivar áður glímt í bikarkeppninni. Arsenal hafði betur í bæði skiptin - fyrst 1932 og síðan 1971.
Meira
ÁSGEIR Sigurvinsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, og Karl Allgöwer eru líklegastir til að taka við starfi framkvæmdastjóra þýska félagsins Stuttgart að þessu keppnistímabili loknu, að mati dagblaðsins Stuttgarter Nachrichten. Felix Magath hefur verið bæði þjálfari og framkvæmdastjóri liðsins en vill einbeita sér að þjálfuninni og fá öflugan mann sér við hlið í starf framkvæmdastjóra.
Meira
VALSMENN kipptu bikarmeisturum KA niður á jörðina í gærkvöldi eftir sigurinn í bikarkeppninni um síðustu helgi. Leikmenn Vals báru enga virðingu fyrir andstæðingum sínum, tóku þá engum vettlingatölum og unnu stórsigur, 33:26, eftir að hafa náð mest níu marka forskoti skömmu fyrir leikslok og verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 14:11.
Meira
Framarar gerðu góða ferð í Garðabæinn í gærkvöldi þegar liðið mætti Stjörnunni í RE/MAX úrvalsdeild karla í handknattleik. Gestirnir fóru létt með vængbrotið lið Stjörnunnar og sigruðu með fimm mörkum, 31:26, eftir að heimamenn skoruðu síðustu fjögur mörkin. Eftir leikinn eru bæði lið með 10 stig í 5.-6. sæti.
Meira
EFTIRLITSNEFND Körfuknattleikssambands Íslands, KKÍ, hefur ákveðið að sekta úrvalsdeildarlið Hamars um kr. 50.000 þar sem félagið notaði Pétur Ingvarsson þjálfara liðsins í leik Hamars og KR sem fram fór 29. febrúar sl.
Meira
LENGI framan af höfðu HK-menn undirtökin gegn Gróttu/KR á Seltjarnarnesi í gærkvöldi en misstu þessi tök um miðjan síðari hálfleik. Það var ekki fyrr en þjálfari þeirra tók leikhlé að hann náði að rétta kúrsinn og menn hans hristu af sér slenið, skoruðu 6 mörk á móti tveimur og unnu síðan 29:26. Þrátt fyrir sigurinn er HK enn í neðsta sæti úrvalsdeildarinnar en það vantar ekki mikið uppá til að fara upp í miðja deild.
Meira
* ÍSLENSKA kvennalandsliðið í borðtennis vann í gær fyrsta sigur sinn í 4. deild á heimsmeistaramótinu í Katar , þegar liðið lagði lið Kenýju með 3 vinningum gegn tveimur. Halldóra S.
Meira
ENSKA knattspyrnusambandið hefur tilkynnt Knattspyrnusambandi Íslands að það hafi tekið frá allt að 4.200 miða fyrir stuðningsmenn íslenska landsliðsins þegar Ísland og England mætast í vináttulandsleik á City of Manchester-leikvanginum 5.
Meira
ENSKA knattspyrnusambandið ákvað í gær að undanúrslitaleikirnir í bikarkeppninni verða leiknir á Villa Park í Birmingham og Old Trafford í Manchester. Ef Manchester United nær að leggja Fulham að velli leikur liðið á Villa Park í undanúrslitum.
Meira
EF Íslandsmótið í knattspyrnu hæfist í næstu viku myndi ég ekki hika við að spá Skagamönnum Íslandsmeistaratitlinum og KR-ingum erfiðri fallbaráttu. Slíkur var munurinn á gömlu erkifjendunum þegar þeir áttust við í Meistarakeppni KSÍ í Egilshöllinni í gærkvöld. Skagamenn gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik, skoruðu þá þrjú mörk, og sigurinn var ekki í hættu eftir það. Lokatölur 3:0 og ÍA er meistari meistaranna í fimmta skipti.
Meira
* VEIGAR Páll Gunnarsson lék með KR gegn ÍA í Meistarakeppni KSÍ í gærkvöld þrátt fyrir deilurnar um samning hans og fyrirhugaða brottför hans til Stabæk í Noregi .
Meira
ÞÓREY Edda Elísdóttir er úr leik í stangarstökkskeppni heimsmeistaramótsins í frjálsíþróttum í Búdapest. Hún felldi 4,35 metra í þrígang og verður því ekki með í úrslitum í dag. Hún endaði í 15. sæti.
Meira
ÞAÐ hefur verið góð úthafsrækjuveiði úti fyrir Norðurlandi að undanförnu og hjá rækjuverksmiðju Íshafs hf. á Húsavík lönduðu þrjú skip um 100 tonnum á einum sólarhring.
Meira
TOGBÁTURINN Sigurbjörg ST frá Hólmavík hefur verið seldur til Englands. Kaupandinn er rannsóknarstofan Plymoth Marine Labratory og verður báturinn að öllum líkindum nýttur til hafrannsókna.
Meira
Það eru 365 dagar í venjulegu ári en á hlaupári bætist einn dagur við árið þannig að dagarnir verða 366. Þetta er gert vegna þess að jörðin er örlítið lengur en eitt ár að fara í kringum sólina eða 365 daga, 6 klukkustundir, 9 mínútur og 9 sekúndur.
Meira
Nafn: Elísa Óðinsdóttir Aldur: Fjórtán ára Heimabyggð: Kópavogur Er gaman að vera á snjóbretti? Já, það er alveg geðveikt gaman. Hvað ertu búin að vera lengi á bretti? Bara núna í vetur. Hvað ferðu oft? Ég fer oftast þegar það er opið um helgar.
Meira
Krakkarnir á myndinni eru að tala um höfuðborg á Norðurlöndum. Dularfullu táknin á myndinni standa öll fyrir ákveðinn bókstaf í nafni borgarinnar og þið eigið að komast að því hvaða borg það er með því að setja réttu stafina í reitina fyrir neðan táknin.
Meira
Eins og þið sjáið er nornin á myndinni í óvenju góðu skapi í dag enda er hún á leið í afmæli. Getið þið hjálpað henni að finna stystu leiðina í afmælið þannig að hún komi ekki allt of...
Meira
Eitthvað er hann nú skrýtinn sjóræninginn á þessari mynd. Getið þið fundið út úr því hver af myndaræmunum við hliðina á honum passar best inn í miðjuna á honum?
Meira
Voruð þið nokkuð boðin í afmæli síðasta sunnudag? Ef þið eruð svo heppin að þekkja einhvern sem átti afmæli á sunnudaginn vitið þið alveg örugglega hvað það er sérstakt að eiga afmæli 29. febrúar.
Meira
Ef þið eigið einhvern tíma erfitt með að ákveða hvað þið eigið að gera getið þið búið ykkur til skemmtilegan leik sem heitir einmitt "Hvað á ég að gera?
Meira
Hafið þið einhvern tíma tekið eftir því hvernig skuggarnir okkar breytast yfir daginn. Snemma morguns og seint að kvöldin eru skuggarnir mjög langir en um hádegisbil eru þeir mun styttri.
Meira
Tíminn er svolítið skrýtið fyrirbæri sem fólk upplifir á mjög misjafnan hátt. Þannig óska krakkar þess til dæmis oft að tíminn líði hraðar en hann gerir þannig að þau verði fljótari að stækka og verða fullorðin.
Meira
Á undanförnum árum hafa fleiri og fleiri íslenskir krakkar farið að renna sér á snjóbrettum. Snjóbrettaíþróttin er frekar ný miðað við flestar aðrar íþróttir en snjóbrettin komu fyrst fram í Bandaríkjunum fyrir fjörutíu árum.
Meira
Nú fer hver að verða síðastur að skila inn myndum í myndasamkeppnina Ólympíuleikar ímyndunaraflsins en skilafrestur keppninnar rennur út miðvikudaginn 10. mars.
Meira
Nafn: Halldór Helgason. Aldur: Þrettán ára. Heimabyggð: Akureyri. Er gaman að vera á snjóbretti? Já, mér finnst það gaman. Sérstaklega að stökkva. Ertu búinn að vera lengi á bretti? Þetta er fjórða árið mitt. Af hverju byrjaðirðu?
Meira
Lesbók
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 711 orð
| 1 mynd
1903: JÓN JÓNSSON OG NAFNARNIR "Bjarki skorar á alla íslenska foreldra sem vilja sonum sínum vel að forða þeim undan nafninu Jón Jónsson. Það getur oft komið þeim illa og bakað þeim ýmisleg óþægindi," sagði í austfirska blaðinu Bjarka 6.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 679 orð
| 2 myndir
Hvers vegna skelfur maður úr kulda, hvað getið þið sagt mér um rauða blettinn á Júpíter, hvers vegna fá menn snjóblindu, hver er starfslýsing umboðsmanns Alþingis og hvar hafa rúnasteinar helst fundist? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum hefur verið svarað að undanförnu á Vísindavefnum og hægt er að lesa svörin á slóðinni www.visindavefur.hi.is
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 1303 orð
| 8 myndir
Auglýsingakarlinn verður seint flókin breysk persóna, enda er hann iðulega dreginn fáum dráttum. Í tilefni af ráðstefnu um möguleika karlmennskunnar greindi GUNNAR HERSVEINN nokkrar ímyndir karla í nýjum íslenskum auglýsingum - eins og glaumgosann.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 790 orð
| 1 mynd
Þriðjudaginn 9. mars kl. 20.00 les Klaus Böldl valda kafla úr bók sinni Die fernen Inseln í Goethe-Zentrum. Fyrir bókina hlaut hann Hermann Hesse-bókmenntaverðlaunin 2003.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 818 orð
| 2 myndir
STRENGJALEIKHÚSIÐ frumsýnir í kvöld nýtt íslenskt verk, einleikinn Þrjár Maríur, eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur, á Litla sviði Borgarleikhússins.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 996 orð
| 2 myndir
Það leynir sér ekki að ég er lagstur í lestur á DV . Leturstærðin á fyrirsögninni er þó því miður minni en æskilegt hefði verið og hún mætti vera í RAUÐU!
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 1004 orð
| 1 mynd
Það er ekki á hverjum degi sem Íslendingi gefst kostur á að leikstýra í Ástralíu. Um þessar mundir er hins vegar verið að sýna uppfærslu Þorleifs Arnar Arnarssonar á leikverkinu Kitchen eftir Vanessu Badham á Adelaide-jaðarlistahátíðinni í Suður-Ástralíu.SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR sló á þráðinn til Þorleifs Arnar og fékk að heyra allt um ævintýrið.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 326 orð
| 3 myndir
BÓK rithöfundarins Andrew Sean Greer, sem lítið hefur borið á til þessa, hefur hlotið mikið hrós Pulitzer-verðlaunahafanna Michaels Cunningham og Michaels Chabon sem lagt hafa sig fram um að lofa höfundinn.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 897 orð
| 4 myndir
Laugardagur Nýja sviði Borgarleikhússins kl. 15.15 Caput flytur fimm verk í 15.15 tónleikasyrpunni, eftir Alfred Schnittke og frumflytur nýtt verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Kemur kvöld, við ljóð Guðmundar Böðvarssonar.
Meira
Að undanförnu hefur þess verið minnst að 100 ár eru liðin síðan Íslendingar fengu heimastjórn. Þá fluttist framkvæmdavaldið inn í landið, Reykjavík varð höfuðborg og mikið gekk á í þjóðlífinu.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 437 orð
| 1 mynd
Í SAFNI verður opnuð sýning á nýju verki eftir Finn Arnar Arnarson kl. 14 í dag, laugardag. Um er að ræða frumsýningu á myndbandsverkinu "Cod". Í fréttatilkynningu frá Safni segir m.a.
Meira
Myndlist Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Kjartan Guðjónsson. Björk Bjarkadóttir. Til 20. mars. Gallerí Kling og Bang: Eirún Sigurðardóttir. Til 28. mars. Gallerí Sævars Karls: Inga Elín og Ragnheiður Ingunn. Til 18. mars.
Meira
MÖGULEIKAR karlmennskunnar er heiti á ráðstefnu um karlmennskur í fortíð, nútíð og framtíð sem haldin er í Aðalbyggingu Háskóla Íslands í gær og í dag. Ráðstefnan er á vegum Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við HÍ. Í gær var m.a.
Meira
I Við upphefjum inntakið. Merkingin er merkileg. List er ekki list nema hún hafi inntak. Afstraktið var tæpast list vegna þess að það þótti merkingarlítið. Módernisminn var tæpast list vegna þess að hann þótti merkingarlítill.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 1097 orð
| 7 myndir
Þriggja ára sýningarverkefni hófst í Asíu í apríl árið 2000 er bar heitið "Í byggingu" og náði hámarki við opnun lokasýningarinnar í Tókýó í desember árið 2002. Þarna sýndu listamenn frá sjö Asíulöndum, Japan, Kína, Suður-Kóreu, Filippseyjum, Indónesíu, Taílandi og Indlandi.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 1462 orð
| 1 mynd
Menn urðu forviða yfir hugmynd Nietzsches um eilífa endurtekningu hins sama, en hvað má þá segja um hugmyndir síðari tíma manna um að það sé til annar heimur nákvæmlega eins og sá sem við lifum í.
Meira
MYNDLISTARSÝNING Eirúnar Sigurðardóttur Sundur/saman verður opnuð í Galleríi Kling og Bang, Laugavegi 23, kl. 16 í dag, laugardag. Af tilefninu hefur Eirún flutt til landsins ritarafugl.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 1608 orð
| 1 mynd
Í dag verður Samkomuhúsið á Akureyri aftur tekið í notkun eftir gagngerar endurbætur sem hófust síðasta vor. Í þessari grein er saga hússins og starfseminnar sem þar hefur farið fram rifjuð upp.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 344 orð
| 2 myndir
NEUE Nationalgalerie-safnið í Berlín hýsir um þessar mundir safn nútímalistaverka frá Museum of Modern Art, MOMA, í New York sem nú sætir umfangsmiklum endurbótum.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 319 orð
| 1 mynd
FIMM verk eftir Alfred Schnittke verða flutt af Caput í 15:15-tónleikasyrpunni á Nýja sviði Borgarleikhússins kl. 15.15 í dag. Ennfremur verður frumflutt nýtt verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Kemur kvöld.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 2799 orð
| 1 mynd
Áhugasamur veiðimaður og einlægur verndari málleysingja. Neytandi grófrar fæðu og grænmetisæta. Barnslega orþódox kristinn maður og froðufellandi andstæðingur kirkjunnar. Mikill listamaður og einstaklingur sem fyrirleit listir. Lostafullur lífsnautnamaður og meinlætamaður. Allt þetta og meira var rússneski rithöfundurinn Lév Tolstoj. Hér er saga hans rakin.
Meira
6. mars 2004
| Menningarblað/Lesbók
| 286 orð
| 1 mynd
Til Ballerup með Niels Lyngsø Það er varla tilviljun að hin rætna umfjöllun hins danska gagnrýnanda birtist aðeins fjórum dögum áður en dómnefndin til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár hittist til að velja verðlaunahafann.
Meira
Það er allt dimmt ekki einu sinni snjór til að lýsa heiminn en Leonard Cohen í útvarpinu hjá aðventuljósunum ég lyfti glasi skála við hann meðan ég bíð meðan ég hlusta á ljóðrænan sönginn fer um mig hrollur þegar mér hlýnar um hjartað við sönginn hans,...
Meira
Þjóta vorvindar vötn kætast flýgur fugl andar ástúð um auðn og dal leikur lífs Blása laufvindar yfir lyngheiði hægt og hljótt bera ilm blóma bera angan heys bera þrá Fara kulvindar um keldusef boða haust rugga blaðvana birkirenglum stynja strá Kemba...
Meira
eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur Leikstjórn: Catriona Macphie Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir Tónlist: Kjartan Ólafsson Lýsing: David Walters Leikari: Kristjana...
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.