ÓLYMPÍUELDURINN var tendraður við hátíðlega athöfn í hinni fornu borg Ólympíu í Grikklandi í gær. Ólympíuleikarnir, sem verða haldnir í Aþenu í Grikklandi 13.-29. ágúst nk.
Meira
STJÓRNVÖLD í Portúgal hafa beðið Atlantshafsbandalagið (NATO) um aðstoð vegna öryggismála á Evrópumótinu í knattspyrnu sem fram fer í landinu í sumar. Í kjölfarið á hryðjuverkunum í Madríd 11. mars sl.
Meira
LEIÐTOGAR Evrópusambandsríkjanna útnefndu Hollendinginn Gijs de Vries í nýtt embætti yfirmanns hryðjuverkavarna ESB á fundi sínum í Brussel í gær.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og dæmt liðlega fertugan karlmann í fimm og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni sem stóðu í tólf ár.
Meira
"ALLT kvikt á vatninu flaug upp og það ríkti ringulreið meðal fuglanna. Þá sá ég risavænghaf mynda skugga yfir okkur," segir Ingi R. Ingason, sem náði ljósmyndum af því í gærdag, þegar tignarlegur haförn sveimaði yfir Helluvatni og Rauðhólum.
Meira
HREINN sparnaður þjóðarbúsins var einungis 1,2% af landsframleiðslu í fyrra og hefur aðeins einu sinni áður verið jafnlítill frá árinu 1960, en það var á árinu 2000.
Meira
ÚRSKURÐUR samkeppnisyfirvalda Evrópusambandsins, ESB, varðandi viðskiptahætti bandaríska hugbúnaðarfyrirtækisins Microsoft, gildir á öllu evrópska efnahagssvæðinu og þar með einnig hér á landi.
Meira
VÍSITALA verðs á sjávarafurðum hefur lækkað um 3,5% í íslenzkum krónum talið frá því í desember til loka febrúar. Mælt í SDR er hins vegar um örlitla hækkun að ræða.
Meira
EFTIRLITSAÐILAR Landsvirkjunar sendu verktakafyrirtækinu Impregilo við Kárahnjúkavirkjun og undirverktökum þeirra skriflega athugasemd um hættu sem stafaði af grjóthruni viku áður en banaslys varð í gljúfrinu undir Fremri-Kárahnjúk.
Meira
Fréttir
26. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 171 orð
| 1 mynd
ÞAÐ var handagangur í öskjunni í Íþróttahöllinni á Akureyri í gærkvöld en þá hófst vinna að setja upp 310 fermetra svið fyrir sýningu á söngleiknum Grease á sunnudag. Sýningarnar á sunnudag verða tvær, kl.
Meira
75 þúsund í sekt | Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt 25 ára karlmann til greiðslu 75 þúsund króna sektar vegna brota á vopnalögum. Þá var loftskammbyssa í eigu hans gerð upptæk sem og hnífur með rúmlega 18 sentímetra löngu blaði.
Meira
Almannaskarð | Undirbúningsframkvæmdir eru hafnar við gerð jarðganga undir Almannaskarð. Nú á að fara að setja niður vinnubúðir og fyrsta grafan mætt til leiks til jarðvinnu, sem hefst fyrir alvöru í næstu viku.
Meira
Grundarfjörður | Lokahátíð stóru upplestrarkeppni 7. bekkinga í grunnskólunum fjórum á norðan- verðu Snæfellsnesi fór fram í Grundarfjarðarkirkju hinn 20. mars sl.
Meira
LÖGREGLAN í Hafnarfirði hefur tekið til rannsóknar tildrög þess að bóndi á bænum Pálshúsum í Garðabæ skaut boxer-heimilishund til bana með riffli, en hundinum var sleppt lausum inn á landareign bóndans í fyrradag. Pálshús er innan bæjarmarka Garðabæjar.
Meira
Kárahnjúkavirkjun | Viku áður en banaslys varð í Kárahnjúkavirkjun, í gljúfrinu undir Fremri-Kárahnjúk, höfðu eftirlitsaðilar Landsvirkjunar sent Impregilo og undirverktökum þeirra skriflega athugasemd um þá hættu sem stafaði af grjóthruni úr fjallinu.
Meira
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að stjórnvöld í Líbýu væru reiðubúin að ganga til liðs við Vesturlönd í baráttunni gegn hryðjuverkaógninni.
Meira
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær rúmlega fertugan karlmann í 5 og ½ árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. Með dómi sínum staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 28. október 2003.
Meira
"STARF mitt á Eiðum tengist því að ég hef búið erlendis í mörg ár," segir Sigurjón Sighvatsson um markmið sitt með því að bjóða listamönnum víðsvegar að úr heiminum að koma saman á Eiðum síðastliðið sumar.
Meira
NÝ LÖG um erfðafjárskatt sem taka gildi frá og næstu mánaðamótum taka þá einnig til búskipta þeirra sem sitja í óskiptu búi, fari skiptin fram eftir 1. apríl. Í frumvarpi fjármálaráðherra var hins ekki gert ráð fyrir að lögin tækju gildi fyrr en 1.
Meira
Egilsstaðir | Um helgina verður á Eiðum sýnt verkið Erling, í sviðsetningu Benedikts Erlingssonar. Freyvangsleikhúsið, Loftkastalinn og Borgarleikhúsið hafa sýnt verkið í vetur.
Meira
26. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 159 orð
| 1 mynd
KYNNISFERÐIR munu flytja í Umferðarmiðstöðina, BSÍ, og mun afgreiðsla þeirra þar verða opnuð hinn 1. apríl nk. Flugrútan mun því fara frá BSÍ frá og með þeim degi, í stað þess að fara frá Hótel Loftleiðum eins og hún gerir í dag.
Meira
SPÆNSKA innanríkisráðuneytið greindi frá því í gær, að yfirvöld hefðu handtekið fimm menn, þ. á m. þrjáNorður-Afríkubúa, til viðbótar í tengslum við hryðjuverkið í Madríd 11. mars.
Meira
STJÓRNENDUR fyrirtækja innan Samtaka atvinnulífsins (SA) hafa mikinn áhuga á því að koma á annarri skipan á fimmtudagsfrídögum á vorin. Hannes G.
Meira
TVÍTUGUR karlmaður var handtekinn af lögreglunni í Keflavík rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi en á honum fundust tvö grömm af marijúana. Við húsleit heima hjá manninum fundust 18 grömm af efninu til viðbótar.
Meira
26. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 146 orð
| 1 mynd
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA, Jón Kristjánsson, heimsótti Hugarafl í Heilsugæslunni við Drápuhlíð í gær og þáði þar kaffi og með því. Hugarafl er nýstofnað félag einstaklinga sem átt hafa við geðræn vandamál að stríða en eru nú á batavegi og berst félagið m.a.
Meira
HEIMDALLUR, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hefur sent frá sér ályktun þar sem segir að félagið telji rangt að mönnum sé meinað að stunda fjárhættuspil í atvinnuskyni.
Meira
HEKLA hf. hefur ásamt Volkswagen-verksmiðjunum fært bíliðnadeild Borgarholtsskóla að gjöf nýja bifreið af gerðinni VW T5 Multivan. Bifreiðin er sérstaklega ætluð til kennslu í bíliðnum.
Meira
Sjópróf vegna strands Baldvins Þorsteinssonar fóru fram á Akureyri í gær. Fram kom hjá skipstjóra að hliðarskrúfa missti afl í skamma stund áður en nótin fór í skrúfuna.
Meira
Hraðskák | Árlegt marsskákmót Skákfélags Akureyrar verður haldið á sunnudag, 28. mars, kl. 14. Að venju er teflt í Íþróttahöllinni og eru allir...
Meira
ÞEGAR vetrarveðrin hafa að mestu gengið yfir er nauðsynlegt að huga að því að þvo gluggana. Verslunarmenn í miðborg Reykjavíkur þurfa þó að þvo glugga í verslunum sínum oftar en flestir aðrir.
Meira
Jóhannesarpassían | Á morgun verður Jóhannesarpassían flutt í Egilsstaðakirkju kl. 17. Flytjendur eru kór Tónlistarskóla Austur-Héraðs og Kammerkór Austurlands, auk hljómsveitar og einsöngvara og taka um 70 manns þátt í flutningi verksins.
Meira
Upp á þennan myndarlega kaffibolla var boðið í Moskvu í gær en í hann fóru 30 l af vatni, 70 l af mjólk og sjö kíló af kaffi. Á það að heita nýtt...
Meira
Keppt í fegurð | Fegurðarsamkeppni Austurlands verður haldin í Hótel Egilsbúð í Neskaupstað á laugardagskvöld. Sjö stúlkur keppa um titilinn ungfrú Austurland.
Meira
Húsavík | Þrautameistarinn 2004 var haldinn í íþróttahöllinni á Húsavík á dögunum á vegum Töff Sport heilsuræktarinnar. Keppt var í þriggja manna liðum og einnig í ein-staklingskeppni.
Meira
Höfuðborgarsvæðið | Óskýrður munur á heildarlaunum karla og kvenna sem starfa hjá Reykjavíkurborg er 15%, en 19% þegar undan eru skildir grunnskólakennarar, að því er fram kemur í samanburðarkönnun á launum karla og kvenna hjá Kópavogsbæ.
Meira
KONA sem lögreglan í Árnessýslu handtók vegna rannsóknar, sölu og dreifingar fíkniefna í umdæminu og var úrskurðuð í gæsluvarðhald sl. sunnudag var látin laus í gær.
Meira
Garður | Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs telur að núverandi skipan sveitarstjórna á Suðurnesjum, með fimm öflugum sveitarfélögum, hafi reynst vel og styður óbreytta skipan mála.
Meira
Borgarnes | Nemendafélag Grunnskólans í Borgarnesi frumsýndi í gær uppfærslu á leikverkinu Gúmmi Tarzan. Hátt í 50 unglingar hafa undanfarnar sjö vikur verið að æfa verkið undir leiðsögn Margrétar E. Hjartardóttur.
Meira
Leikur í miðbæ | Ævintýraleikhúsið og hljóðfærasmiðjan í samvinnu við Frúna í Hamborg verða með uppákomu á Ráðhústorgi í dag, föstudaginn 26. mars kl. 17.
Meira
26. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 508 orð
| 16 myndir
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir vitnum að árekstri og afstungu á bílastæði við Kringluna, 3. hæð, laugardaginn 20. mars kl. 12:34. Ekið var utan í svartan VW Passat árg. 1999 og hann skemmdur töluvert.
Meira
Búið er að gera bráðabirgðaviðgerð á stíflumannvirkjum á Læk í Dýrafirði, sem brustu í leysingaveðri fyrir hálfum mánuði, og er rafmagn aftur komið á bæinn. Zófonías F.
Meira
26. mars 2004
| Akureyri og nágrenni
| 282 orð
| 1 mynd
ÞESSA dagana er verið að prófa þá nýjung að bjóða öllum nemendum í 5. bekk grunnskólanna á Akureyri upp á skíðakennslu í Hlíðarfjalli þeim að kostnaðarlausu. Kennslan byrjaði mánudaginn 22. mars og stendur til 31. mars.
Meira
Málþing um fiskveiðistjórnun og málefni fiskimanna á Íslandi verður haldið í Sjómannaskólanum í dag, föstudaginn 26. mars kl. 13, á vegum nemendafélaga skólanna. Einar Örn Einarsson formaður nemendafélags Stýrimannaskólans setur þingið og Böðvar Þ.
Meira
26. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 106 orð
| 1 mynd
BJÖRN Brynjúlfur Björnsson, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna, kveðst ánægður með þá ákvörðun Noðurlandaráðs að efna til norrænnar kvikmyndaverðlaunahátíðar í fyrsta sinn árið 2005. "Við sem þessu tengjumst erum auðvitað mjög ánægð með það.
Meira
HÁTT í þrjátíu lögreglumenn og löglærðir fulltrúar af Norðurlandi sóttu fund á Akureyri þar sem til umfjöllunar var gagnrýni rannsóknarnefndar umferðarslysa á rannsóknir lögreglunnar á alvarlegum umferðarslysum, en nefndin hefur sett frá slíka gagnrýni á...
Meira
26. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 353 orð
| 1 mynd
ÓLAFUR Ingi Jónsson, forvörður hjá Morkinskinnu, segir það hafið yfir allan vafa að mynd, sem eignuð var Jóhannesi Kjarval og til stóð að bjóða upp í næstu viku hjá Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn, sé fölsuð.
Meira
ERFIÐ deila er komin upp í Beethoven-sinfóníuhljómsveitinni í Bonn í Þýskalandi en 16 fiðluleikarar krefjast þess að fá kauphækkun. Ástæðan er sú, að þeir spila miklu meira en félagar þeirra með blásturshljóðfærin.
Meira
Keflavík | Plastbátasmiðjan Sólplast ehf. í Njarðvík sjósetti nýjan bát í smábátahöfninni í Grófinni í Keflavík í gær. Er þetta tíu tonna bátur, Grunnvíkingur HF 163, og er eigandi hans og skipstjóri Gunnar Hauksson. Báturinn er af gerðinni Nökkvi 1000.
Meira
RANNSÓKNARNEFND flugumferðaratvika í Bretlandi telur að flugstjóri breskrar herþotu hafi ekki gætt að hækkun þotu sinnar meðan hann íhugaði breytta flugleið suðaustur af Prestwick í Skotlandi 30.
Meira
Ofsaakstur | Bifreið sem stýrt var af sautján ára pilti mældist á 149 km hraða á Garðvegi í fyrradag þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km. Var hann því 59 km yfir leyfilegum hámarkshraða.
Meira
Opið hús hjá Hólaskóla Starfsfólk og nemendur Hólaskóla, Hólum í Hjaltadal, verða með opið hús á morgun, laugardaginn 27. mars kl. 13-17, til að kynna starfsemi skólans.
Meira
ENGIN formleg ákvörðun var tekin á stjórnarfundi Lögmannafélags Íslands sem fram fór í fyrradag um hvort félagið kæri ákvörðun samkeppnisráðs um að sekta LMFÍ um 3,5 milljónir króna fyrir að brjóta gegn bannákvæðum samkeppnislaga um ólögmætt samráð.
Meira
26. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 288 orð
| 1 mynd
HÖRÐUR Guðmundsson, lögfræðingur hjá KPMG Endurskoðun, segist ekki geta lesið annað úr lögunum en að ef erfingjar gangi frá skiptum á óskiptu búi fyrir 1. apríl þá hljóti eldri lögin um erfðafjárskatt að gilda.
Meira
"ÞAÐ er rætt og rætt en engar afstöður eða neitt ákveðið á borðinu enn sem komið er." Þannig lýsir Finnbogi Sigurðsson, formaður Félags grunnskólakennara, stöðu kjaraviðræðna félagsins og samninganefndar Launanefndar sveitarfélaga.
Meira
FORSETI Argentínu, Nestor Kirchner, ætlar að láta reisa safn til minningar um fórnarlömb "Skítuga stríðsins" svonefnda á árunum 1976-1983 en þá réð herforingjastjórn yfir landinu og ofsótti andstæðinga sína.
Meira
RICHARD Clarke, fyrrverandi yfirmaður baráttunnar gegn hryðjuverkum allt frá því í forsetatíð Ronalds Reagans til George W. Bush, núverandi Bandaríkjaforseta, sakar Bush um að hafa grafið undan hryðjuverkastríðinu með innrásinni í Írak.
Meira
26. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 266 orð
| 1 mynd
Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri Skeljungs, og Óskar Freyr Brynjarsson, formaður ÍBV íþróttafélags, undirrituðu nýverið nýjan þriggja ára samning um áframhaldandi samstarf Skeljungs og ÍBV íþróttafélags um Shellmót í Eyjum.
Meira
26. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 164 orð
| 1 mynd
UMSÓKNUM um lán úr Íbúðalánasjóði fjölgaði um 3% í febrúarmánuði í ár miðað við sama mánuð í fyrra, sem gerir það að verkum að þetta er stærsti febrúarmánuður í innkomnum umsóknum um húsnæðislán hjá Íbúðalánasjóði frá upphafi.
Meira
ÉG vil beita mér ákaft fyrir því að tryggja áfram sterk og rótgróin tengslin sem við höfum haft svo lengi við Íslendinga, líka á tímum sem geta orðið erfiðir.
Meira
RANNSÓKNIR Íslenskrar erfðagreiningar á Langanesveiki eða arfgengri sjón- og æðavisnun hafa leitt í ljós að stökkbreyting í erfðavísi á tilteknum litningi sem segir til um samsetningu sk. TEAD1 prótíns, orsakar sjúkdóminn.
Meira
SUHARTO, fyrrverandi forseti Indónesíu, er efstur á lista yfir spilltustu menn fyrr og síðar. Áætlað er, að hann hafi stolið frá sinni eigin þjóð allt að 2.500 milljörðum ísl. kr.
Meira
26. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 386 orð
| 1 mynd
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær hálffertugan karlmann, Ágúst Magnússon, í 5 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn sex drengjum og brot á barnaverndarlögum. Um er að ræða einn þyngsta dóm sem kveðinn hefur verið upp í kynferðisbrotamáli hérlendis.
Meira
Gamalt timburhús við Norðurnesveg á Álftanesi brann til kaldra kola kvöld eitt í vikunni. Það var mannlaust og engan sakaði. Að sögn slökkviliðsins í Reykjavík varð það fljótt alelda en engin hætta skapaðist þar sem langt var í næstu hús.
Meira
"ÞESSI sýning er byggð upp af minningabrotum, en spannar ekki sögu Hljóma frá upphafi til enda," sagði Þorsteinn Eggertsson, höfundur og leikstjóri, um sýninguna "Bláu augun þín" sem Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FS)...
Meira
Það sem af er marsmánuði hefur verið óvenju hlýtt í Mýrdalnum. Á Höfðabrekku eru tré að byrja að laufgast, krókusar sprungnir út og greinilega öll tré að lifna.
Meira
TÍSKUFATA- og fylgihlutaverslunin CULT var opnuð í Smáralind 12. mars sl. Þar er úrval af dömu- og herrafatnaði með "funky & gothic"-blæ, dömubelti, armbönd, skór og undirfatnaður o.fl.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hnekkti í gær dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 27. júní 2003 í meiðyrðamáli sem Bjarni F. Einarsson, umsækjandi um kennarastarf í fornleifafræði við Háskóla Íslands, höfðaði gegn þremur dómnefndarmönnum sem meta áttu hæfi hans.
Meira
26. mars 2004
| Akureyri og nágrenni
| 139 orð
| 1 mynd
LEIKFÉLAG Akureyrar býður leikhúsgestum uppá umræður eftir sýningu á Draumalandinu sem og skoðunarferð um Samkomuhúsið eftir sýningu á verkinu annað kvöld föstudagskvöldið 26. mars. Verkið var frumsýnt nú nýlega, en það er eftir Ingibjörgu Hjartardóttur.
Meira
26. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 726 orð
| 2 myndir
SAMNINGANEFNDIR sjómanna og útvegsmanna komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara á miðvikudag og nýr fundur hefur verið boðaður nk. mánudag. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að viðræðurnar við sjómenn séu í eðlilegum farvegi.
Meira
26. mars 2004
| Innlendar fréttir
| 671 orð
| 1 mynd
Heimir Sindrason er fæddur í Reykjavík á aðfangadag jóla 1944. Tannlæknir frá tannlæknadeild HÍ árið 1973. Heimir hefur rekið eigin tannlæknastofu frá árinu 1973. Hann var kosinn formaður Tannlæknafélags Íslands í nóvember árið 2003. Maki Heimis er Anna L. Tryggvadóttir meinatæknir og börn þeirra eru Kristín tannlæknir, Sigríður iðnhönnuður, Frosti nemi og Guðrún, viðskiptafræðingur og blaðamaður.
Meira
EIGANDI skammbyssunnar, sem voðaskot hljóp úr mánudaginn 15. mars síðastliðinn og varð Ásgeiri Jónsteinssyni 12 ára að bana, hefur gefið skýrslu hjá lögreglunni á Selfossi og kannast við að eiga umrædda byssu.
Meira
STJÓRN Verkalýðsfélags Akraness hefur sent frá sér ályktun þar sem er skorað á ríkisstjórn Íslands að fella niður virðisaukaskatt af veggjaldi í Hvalfjarðargöngum, en það gæti leitt strax til 14% lækkunar á veggjaldi.
Meira
Alnæmisbörn er heiti nýs félags sem stofnað hefur verið, en tilgangur þess er að stuðla að bættum hag barna sem eiga undir högg að sækja vegna alnæmis. Á hverjum degi smitast sex þúsund ungmenni og tvö þúsund börn af alnæmi í heiminum.
Meira
KLAUS Kjøller, rithöfundur og lektor við Kaupmannahafnarháskóla, vill að Svíar afhendi Dönum á ný glæsilegan síðkjól sem eitt sinn var í eigu Margrétar fyrstu drottningar.
Meira
Sigurður Jónsson tannlæknir og píanóleikari orti þegar kona í tannlæknastólnum sagði að munnvatn sitt hefði lekið niður fyrir nafla: Víða þarf ég atvinnu að afla, einhvers staðar verð ég hana að fá.
Meira
26. mars 2004
| Höfuðborgarsvæðið
| 238 orð
| 2 myndir
Reykjavík | Reykjavíkurráð ungmenna fundaði með fulltrúum borgarstjórnar í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær og ræddu fulltrúar ungmenna ýmis mál sem á þeim brunnu við borgarfulltrúana.
Meira
Mikil gerjun er í kvikmyndagerð á Norðurlöndum og norrænir kvikmyndagerðarmenn hafa margir vakið heimsathygli. Kvikmyndagerð hefur hins vegar hingað til ekki skipað sama sess í samstarfi Norðurlanda og aðrar listgreinar.
Meira
Ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að sekta hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft og setja því skorður á Evrópumarkaðnum - þ.ám. á Íslandi, eins og fram kemur í Morgunblaðinu í dag - markar talsverð tímamót.
Meira
Borgar Þór Einarsson fjallar á Deiglunni um sölu á eignarhlut ríkisins í Símanum. "Fyrir nokkrum misserum fóru fyrirætlanir um sölu Símans út um þúfur.
Meira
Á morgun verða þrjár sýningar opnaðar í Listasafni Kópavogs-Gerðarsafni. Í vestursal sýnir Sigtryggur Bjarni Baldvinsson nýjar olíu- og vatnslitamyndir.
Meira
FAÐMLÖG, kampavín og ljóðalestur settu mark sitt á upptökurnar á síðasta þætti Frasier , sem rennur sitt skeið á enda í vor eftir ellefu ár í sjónvarpi. Þátturinn verður klukkutíma langur og verður sýndur í bandarísku sjónvarpi á NBC hinn 13. maí.
Meira
Á TÓNLEIKUM Caput-hópsins kl. 15:15 á Nýja sviði Borgarleikhússins á morgun, laugardag, verða fluttar fimm Egófóníur eftir Svein Lúðvík Björnsson.
Meira
KVIKMYNDIN Nói albínói eftir Dag Kára Pétursson var frumsýnd í Bandaríkjunum um þarsíðustu helgi. Nú þegar hafa birst dómar í fjölmörgum blöðum þar vestra og eru þeir flestir jákvæðir. Á kvikmyndavefnum RottenTomatoes.
Meira
Bandaríkin 2001. Skífan VHS. Bönnuð innan 16 ára. (95 mín.) Leikstjórn og handrit Rowdy Herrington. Aðalhlutverk James Spader, Leslie Stefanson, David Keith.
Meira
KARLAKÓRINN Stefnir úr Mosfellsbæ heldur tónleika í Njálsbúð á morgun, laugardag, kl. 14 og um kvöldið í Félagsheimilinu á Flúðum kl. 20.30. Þá mun kórinn halda tvenna tónleika á höfuðborgarsvæðinu, í Langholtskirkju fimmtudaginn 1. apríl kl.
Meira
AÐALTÓNLEIKAR starfsársins hjá Söngsveitinni Fílharmóníu verða í Langholtskirkju á morgun, laugardag, kl. 17.00 og nk. þriðjudagskvöld kl. 20.00. Flutt verða tvö stór kórverk, Dixit Dominus eftir G. F. Handel og hin svonefnda Pákumessa eftir J.
Meira
Samkór Mýramanna. Einsöngvarar: Steinunn Pálsdóttir sópran og Kristján Magnússon tenór. Hljóðfæraleikarar Dóra Erna Ásbjörnsdóttir á píanó og Steinunn Pálsdóttir á harmonikku. Stjórnandi Jónína Erna Arnardóttir. Laugardagurinn 13. mars 2004, kl. 15.
Meira
TÓNLEIKAR Hljómsveitar Tónlistarskólans í Reykjavík verða haldnir í Neskirkju kl. 14 á morgun, laugardag. Á efnisskrá eru Stúlkan frá Arlés, Svíta nr. 2 í útsetningu Fritz Hoffmann eftir Georges Bizet, Konsert fyrir fagott og hljómsveit í F-dúr op.
Meira
Í NÝJASTA hefti Wire er birtur jákvæður dómur um Stiklur , plötu Jóels Pálssonar og Sigurðar Flosasonar, sem var gefin út hjá Smekkleysu á síðasta ári. Gagnrýnandinn stenst ekki freistinguna að líkja tónlistinni við þekkta íslenska tónlistarmenn.
Meira
Snorri Wium tenórsöngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari halda tónleika í Salnum á morgun, laugardag kl. 16. Þeir flytja lagaflokkinn "Dichterliebe", Ástir skáldsins, eftir Robert Schumann við ljóð Heine.
Meira
Fjórða keppniskvöld Músíktilrauna 2004, hljómsveitakeppni Tónabæjar og Hins hússins, haldið í Tjarnarbíói sl. þriðjudagskvöld. Þátt tóku Efnahvörf, Lada Sport, Hljóðlæti, Hydrus, Mania, Djósúa, Eden, Svitabandið, Of Stars We Are og Innovation.
Meira
Penninn-Eymundsson, Austurstræti, kl. 17 Gunnar Dal áritar nýútkomna bók sína um starfsár Krists: Frelsarinn hinn lifandi Jesús Kristur. Verslunarráð Íslands, Kringlunni 7 Opnuð verður sýning á verkum Soffíu Sæmundsdóttur.
Meira
ROKKSVEITIN Mínus er í miklu uppáhaldi hjá breska vikuritinu Kerrang! sem er helsta þungarokksritið í dag. Í byrjun þessa mánaðar hélt Mínus tónleika á Gauk á Stöng ásamt velsku sveitinni Jarcrew og íslensku sveitinni Jan Mayen. Í nýjasta hefti Kerrang!
Meira
RAGNAR Kjartansson opnar sýningu á verki sínu í GUK+ á morgun kl. 14 í Ártúni 3 á Selfossi, en kl. 15 í Udhus - Kirkebakken 1, 4320 Lejre, Danmörku og Küche - Schönhausenstrasse 64, 28203 Bremen í Þýskalandi.
Meira
ÁRLEG barnabókaráðstefna hefst í Gerðubergi kl. 10.15 á morgun. Yfirskriftin að þessu sinni er börn og leikhús en fyrirlesarar eru Silja Aðalsteinsdóttir, Harpa Arnardóttir og María Reyndal.
Meira
Sagan af Paikeu (Whale Rider) Stórkostlegt kvikmyndaverk, óendanlega fallegt í einfaldleika sínum og látleysi við að segja margslungna sögu. (H.L.) **** Háskólabíó.
Meira
Síðasta undanúrslitakvöld Músíktilrauna 2004. Kapp öttu saman Melmi, Tvítóla, Hinir eðalbornu, Rýrð, Form áttanna, FeedBack, Haraldur, Driver Dave, Betúel, X-Faktor. Haldið í Tjarnarbíói sl. miðvikudag.
Meira
Listasafn Reykjavíkur Fjórum sýningum lýkur í Listasafni Reykjavíkur á sunnudag. Í Ásmundarsafni lýkur sýningu Erlings Klingenberg í Píramídanum. Sýningin er annar hluti af þremur í sýningaröðinni Píramídarnir.
Meira
SÍÐASTI þátturinn í Af fingrum fram - í bili a.m.k. - er á dagskrá Ríkissjónvarpsins í kvöld. Jón Ólafsson, umsjónarmaður, hefur undanfarið verið að fá til sín tónlistarmenn sem eiga rætur sínar í nýbylgjurokki því sem kom fram um og upp úr 1992.
Meira
DJASSHÁTÍÐIN Ung-Jazz í Reykjavík verður haldin fyrsta sinni um þessa helgi á Hótel Borg. Fram koma sex hljómsveitir frá þremur Norðurlöndum en um samnorrænt verkefni er að ræða og er Nordisk Kulturfund helsti bakhjarlinn.
Meira
AÐRIR tónleikar í tónleikaröðinni "Með ungu tónlistarfólki" sem stendur yfir í Seljakirkju verður í dag kl. 18. Það er organisti kirkjunnar, Jón Bjarnason, sem stendur fyrir þessari tónleikaröð.
Meira
SIGURÐUR Örlygsson myndlistarmaður opnar sýningu í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5, kl. 15 á morgun, laugardag. Á sýningunni verða 25-30 nýjar myndir en í verkum sínum beitir listamaðurinn samblandi af ljósmynd, frjálslega unnu málverki og skúlptúr.
Meira
HIPPAFLOKKURINN í Vestmannaeyjum ætlar að halda þriðju hippahátíð sína í Vestmannaeyjum dagana 26. og 27. mars undir yfirskriftinni Ást, friður og tónlist út í Eyjum. Þetta er þriðja hátíðin sem þessi ágæti söngflokkur heldur í Eyjum.
Meira
Hvort er Blindrafélagið undir stjórn núverandi formanns hagsmunafélag blindra og sjónskertra eða fimmta herdeild stjórnvalda sem margsvíkja gefin loforð?
Meira
Ef satt skal segja eru fáar byggðir við Faxaflóann opnari fyrir ágangi sjávar í hamfaraflóðum en norðurströnd Reykjavíkur frá Laugarnesi vestur að Eiði á Seltjarnarnesi.
Meira
ÉG er haldin leikhúsbakteríu á háu stigi. Ég fæ fráhvarfseinkenni ef ég kemst ekki reglulega í leikhús. Ég ætla ekki að lýsa fyrir ykkur einkennum en ég er viss um að ég er ekki sú eina sem haldin er þessum "kvilla".
Meira
ÉG brá mér á sýningu Árna Johnsen sem haldin var í Keflavík og er skemmst frá að segja að sýningin kom skemmtilega á óvart. Endurtekningar að vísu nokkuð miklar, en virkilega skemmtileg tök á einstökum verkum. Svo er um nr. 31, "Valkosti".
Meira
Elí Rósinkar Jóhannesson húsasmíðameistari fæddist á Hlíð í Álftafirði við Ísafjarðardjúp 19. október 1925. Hann andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 18. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Málfríður Sigríður Sigurðardóttir, f. 15.
MeiraKaupa minningabók
26. mars 2004
| Minningargreinar
| 5625 orð
| 1 mynd
Garðar Sigurðsson fæddist í Reykjavík 20. nóvember 1933. Hann andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík þann 19. mars síðastliðinn. Foreldrar Garðars voru hjónin Klara Tryggvadóttir húsfreyja, f. 1.10.
MeiraKaupa minningabók
Hannes Ágúst Hjartarson fæddist á Stóru-Þúfu í Miklaholtshreppi hinn 8. júní 1924. Hann andaðist á Sjúkrahúsi Akraness 2. mars síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akraneskirkju 9. mars. Í formála minningargreina um Hannes Ágúst, sem birtust í Morgunblaðinu 9. mars var rangt farið með fæðingarár Þorgerðar Bergsdóttur, eiginkonu hans, sem fæddist 24. maí 1928, og föðurnafn föður hans, Hjartar Líndals, sem var Hannesson.
MeiraKaupa minningabók
26. mars 2004
| Minningargreinar
| 1559 orð
| 1 mynd
Holger Peter Gíslason fæddist í Reykjavík 15. júní 1912. Hann lést í Holtsbúð í Garðabæ 16. mars síðastliðinn. Foreldrar Holgers voru Gísli Gíslason, f. 31.5. 1884, d. 29.5. 1963, og Ragnheiður Clausen, f. 24.8. 1879, d. 20.9. 1966.
MeiraKaupa minningabók
26. mars 2004
| Minningargreinar
| 1313 orð
| 1 mynd
Laufey Sigurrós Ásgeirsdóttir fæddist í Reykjavík 10. apríl 1918. Hún lést á Landakotsspítala 20. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Þórunn Þorsteinsdóttir úr Hafnarfirði, f. 20.8. 1882, d. 20.10.
MeiraKaupa minningabók
26. mars 2004
| Minningargreinar
| 2099 orð
| 1 mynd
Magnús Þórisson fæddist á Akureyri 9. febrúar 1932. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 20. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Þórir Jónsson málarameistari og Þórey Júlíana Steinþórsdóttir klæðskeri.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Sigurjón Guðjónsson fæddist 1. október 1940 á Gaul í Staðarsveit. Hann lést á sjúkrahúsinu í Malmö í Svíþjóð 5. febrúar síðastliðinn. Foreldrar Sigurjóns voru Una Jóhannesdóttir, f. 17. nóvember 1878, d. 21. janúar 1996, og Guðjón Pétursson, f. 6.
MeiraKaupa minningabók
Margt ég vildi þakka þér og þess er gott að minnast að þú ert ein af þeim sem mér þótti gott að kynnast. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Hún var ætíð til staðar með sínar góðu ráðleggingar og elskulegheit, frá okkar fyrstu kynnum.
MeiraKaupa minningabók
26. mars 2004
| Minningargreinar
| 5424 orð
| 1 mynd
Sveinborg Helga Sveinsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 13. júní 1948. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 13. mars síðastliðinn. Faðir Sveinborgar er Sveinn Sverrir Sveinsson, lengst af verkamaður hjá Rafveitunni í Vestmannaeyjum, f.
MeiraKaupa minningabók
SVEITARSTJÓRN Súðavíkurhrepps hefur samþykkt samhljóða viljayfirlýsingu um stofnun fyrirtækis um rækjuveiðar- og vinnslu í Súðavík. Nafn hins nýja fyrirtækis verður Frosti hf. og verða hluthafarnir tveir, Súðavíkurhreppur og Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf.
Meira
VERÐMÆTI Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hefur lækkað að undanförnu og er nú 8,2 milljarðar króna að mati Greiningardeildar Íslandsbanka. Miðað við útistandandi hluti í SH er verðmatsgengi SH 5,5.
Meira
STJÓRNARMENN Og fjarskipta hf. hafa fengið greidd stjórnarlaun í formi hlutabréfa í félaginu. Í hlut stjórnarmannanna fimm koma samtals 1.707.687 hlutir á genginu 3,38, en lokagengi félagsins í Kauphöll Íslands í gær var 3,32.
Meira
JÓN KARL Ólafsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, sagði á aðalfundi samtakanna í gær að tryggja yrði betri arðsemi fyrirtækja í ferðaþjónustu þannig að greinin yrði talin áhugaverður fjárfestingarkostur hjá innlendum sem erlendum fjárfestum.
Meira
ÍSLENSK fyrirtæki munu verða meðal fyrirtækja sem mynda svonefnda heimsvísitölu FTSE Group (e. FTSE Global Index Series). Frá þessu er greint í frétt á vef Bloomberg fréttamiðilsins.
Meira
Málþing um skatta mál í Viðskiptaháskólanum á Bifröst í dag kl. 13.15. Rætt um mörk óleyfilegrar sniðgöngu og eðlilegrar skattaráðgjafar, ábyrgð skattaráðgjafa, áhrif skattlagningar milli landa og samskipti við skattyfirvöld.
Meira
ÚRSKURÐUR samkeppnisyfirvalda Evrópusambandsins, ESB, varðandi viðskiptahætti bandaríska hugbúnaðarfyrirtækisins Microsoft, gildir á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og þar með einnig hér á landi.
Meira
MEÐALVELTA með markflokka skuldabréfa hefur verið 6,7 milljarðar króna á dag það sem af er marzmánuði. Þetta er mesta velta, sem verið hefur á markaðnum frá upphafi, að því er fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka.
Meira
SVÞ, Samtök verslunar og þjónustu, hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem segir að MasterCard-Kreditkort hafi á sl. 6 mánuðum nærri tvöfaldað þjónustugjöld sín á verslanir og þjónustuaðila sem taka við debetkortagreiðslum.
Meira
Thejani Lankathilaka í Austurbæjarskóla tók þátt í sýningu móðurskóla í Reykjavík - sem kynna frumkvöðlastarf sitt fyrir áhugasömum í Borgarleikhúsinu.
Meira
LINE Christiansen, kennari og dómari í blómaskreytingum, kynnti nýlega eigendum blómaverslana nýjar línur í blómaskreytingum á vegum blómaheildsölunnar Samasem en Line var yfirdómari í Íslandsmeistarakeppni í blómaskreytingum, sem haldin var í tengslum...
Meira
EVA Sigrún Guðjónsdóttir valdi sér mjög líflega yfirhöfn fyrir fermingardaginn og segir að sér hafi einfaldlega fundist þessi kápa svo falleg. "Ég féll alveg flöt fyrir gleðinni og litadýrðinni í henni um leið og ég sá hana.
Meira
MÉR líður illa þegar þú grætur eða ert eitthvað ómöguleg. Þegar magakveisuköstin stóðu yfir fannst mér erfiðast að heyra þig gráta og geta þig ekki huggað.
Meira
ARNA Vígdögg Einarsdóttir hefur takmarkaðan áhuga á fötum sem eru í tísku, hvort sem það er hversdags eða á fermingardaginn. "Ég var ákveðin í að vera í síðkjól og hann átti að vera mjög fínn og mjög sérstakur.
Meira
V orilmur í lofti og fermingar. Þetta tvennt fer svo vel saman. Lömbin fæðast, grasið sprettur og fullorðinsárin bíða fermingarbarnanna handan við hornið með allri þeirri tilhlökkun sem því fylgir að eiga allt lífið framundan.
Meira
60 ÁRA afmæli. Guðrún H. Ólafsdóttir sjúkraliði, Strýtuseli 22, Reykjavík verður sextug 29. mars nk. og ætla hún og eiginmaður hennar, Hersir Oddsson , af því tilefni að taka á móti ættingjum og vinum á morgun, laugardaginn 27.
Meira
70 ÁRA afmæli. Í dag, föstudaginn 26. mars, er sjötugur Sigurbjörn H. Ólafsson, Ásbraut 13, Kópavogi. Hann er á Peneguia hótelinu á Kanaríeyjum á afmælisdaginn ásamt konu sinni, Sigurlaugu...
Meira
80 ÁRA afmæli . 5. apríl nk. verður áttræð Jóna Þ. Guðmundsdóttir frá Bakka, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi. Af því tilefni tekur hún á móti gestum á morgun, laugardaginn 27. mars, kl. 15-18, í samkomusalnum á Skólabraut...
Meira
Þótt tíur og níur njóti ekki þeirrar virðingar að vera taldar til punkta, munar mikið um millispilin í grandsamningum. Hér sjást engar tíur og níur: Suður gefur; allir á hættu.
Meira
Ensk messsa í Hallgrímskirkju SUNNUDAGINN 28. mars nk. kl. 14:00 verður haldin ensk messa í Hallgrímskirkju. Prestur verður sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti verður Björn Steinar Sólbergsson.
Meira
Sanngjarnt og eðlilegt virðist að túlka framgöngu forsetans á þann veg að hún feli sér viðleitni til að fá embættinu tilgang og merkingu í nútímanum.
Meira
Hallgrímskirkja. Eldri borgara starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Háteigskirkja. Eldri borgara starf. Brids aðstoð kl. 13. Kaffi kl. 15. Langholtskirkja. Lestur Passíusálma k. 18 í Guðbrandsstofu í anddyri Langholtskirkju. Allir velkomnir.
Meira
Hví skyldi ég yrkja um önnur fljóð, en ekkert um þig, ó, móðir góð? - Upp, þú minn hjartans óður! Því hvað er ástar og hróðrar dís, og hvað er engill úr paradís hjá góðri og göfugri móður?
Meira
Í dag er föstudagur 26. mars, 86. dagur ársins 2004. Orð dagsins: "Ef þú ert sonur Guðs, þá kasta þér ofan, því að ritað er: Hann mun fela þig englum sínum, og þeir munu bera þig á höndum sér, að þú steytir ekki fót þinn við steini."
Meira
Laugardaginn 20. mars var haldið Framhaldsskólamótið í brids eftir nokkurra ára hlé. 6 sveitir frá fjórum skólum tóku þátt í mótinu. Spiluð var sveitakeppni, 8 spila leikir, allir við alla.
Meira
Víkverji er oft að þvælast á vefjum fyrirtækja starfs sín vegna og rekst á margt skrýtið og skemmtilegt. Á dögunum hafði hann orð á því að á vef Lyfja og heilsu er heiti fyrirtækisins beygt vitlaust - Lyf og heilsa myndu sjálf segja á vef Lyf og heilsu.
Meira
MARCUS Allbäck, sænski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu sem leikur með Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni, hefur fjárfest í íslensku leikmönnunum Jóhanni B. Guðmundssyni og Tryggva Guðmundssyni, sem leika með Örgryte í Svíþjóð.
Meira
CLAUDIO Ranieri, knattspyrnustjóri Chelsea, er bjartsýnn um að lið sitt geti komist í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir jafnteflið, 1:1, gegn Arsenal á heimavelli í fyrri leik liðanna í fyrrakvöld.
Meira
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur ákveðið breytingar á UEFA-keppninni í knattspyrnu á næstu leiktíð en FH-ingar og Skagamenn verða fulltrúar Íslendinga í keppninni í ár.
Meira
FJÖGUR íslensk knattspyrnulið taka þátt í Canela-bikarnum, æfingamóti sem Úrval-Útsýn stendur fyrir á La Manga á Spáni í næstu viku. Það eru FH, Valur, Fylkir og Fram sem eru með að þessu sinni og er leikið dagana 29. mars, 31. mars og 2. apríl.
Meira
JALIESKY Garcia Padron, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður þýska liðsins Göppingen, er tognaður í baki og gat því ekki gefið kost á sér í íslenska landsliðið sem mætir Frökkum í byrjun næstu viku í Frakklandi.
Meira
Gylfi Gylfason, landsliðsmaður í handknattleik, hefur leikið vel með þýska liðinu Wilhelms havener í vetur. Hér skorar hann annað marka sinna í leik gegn meistaraliði Lemgo á miðvikudagskvöldið, þegar Lemgo fagnaði sigri 38:27.
Meira
REIKNA má með að leikmenn Bayern München verði að taka á sig 15 til 20% launalækkun þegar þeir framlengja samninga sína við félagið, en tekjur félagsins standa ekki undir útgjöldum.
Meira
LIVERPOOL er úr leik í UEFA bikarnum í knattspyrnu eftir 2:1 tap í Marseille í gærkvöldi. Newcastle var hins vegar ekki í vandræðum þegar liðið heimsótti Real Mallorca og vann 3:0. Celtic gerði sér lítið fyrir og náði markalausu jafntefli við Barcelona á Nou Camp í Barcelona og kemst skoska liðið áfram þar sem leikmenn þess fögnuðu sigri í Glasgow í fyrri leiknum.
Meira
EFTIR að Magdeburg tapaði fyrir Stralsunder í þýsku 1. deildinni í handknattleik í fyrrakvöld er ljóst að möguleikar lærisveina Alfreðs Gíslasonar eru nánast úr sögunni í keppninni um þýska meistaratitilinn þetta árið.
Meira
* NÜRNBERG , mótherji ÍBV í undanúrslitum Áskorendabikars Evrópu í handknattleik kvenna, sigraði Leverkusen , 27:24, í þýsku 1. deildinni í fyrrakvöld.
Meira
*ROMAN Abramovich eigandi enska knattspyrnusliðsins Chelsea þarf að greiða Claudio Ranieri allt að milljarði ísl. kr. verði samningi knattspyrnustjórans sagt upp í sumar en Ranieri er með samning við félagið til ársins 2007.
Meira
* RÓBERT Gunnarsson, landsliðsmaður í handknattleik, skoraði 5 mörk fyrir Århus GF og Þorvarður Tjörvi Ólafsson 3 þegar lið þeirra lagði Snejberg , 31:25, í sjöttu umferð dönsku bikarkeppninnar í handknattleik í fyrrakvöld.
Meira
BERNHARD Langer, fyrirliði Ryder-liðs Evrópu í golfi, hefur valið tvo aðstoðarmenn fyrir keppni liðsins gegn Bandaríkjunum í Michigan 17.-19. september.
Meira
GUÐMUNDUR Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, varð að gera eina breytingu á landsliðshópi sínum sem heldur í dag til Frakklands þar sem liðið mætir heimamönnum í tvígang í næstu viku.
Meira
ÍSLENSKA landsliðinu í handknattleik stendur til boða að leika vináttuleiki m.a. við Evrópumeistara Þjóðverja og Spánverja þegar það býr sig undir þátttöku á Ólympíuleikunum í sumar. Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, segir að ekkert verði farið í að negla niður landsleiki á undirbúningstímanum fyrr en dregið hefur verið í riðla fyrir Ólympíuleikana. Dregið verður í Aþenu árdegis á morgun.
Meira
FIMM ungir íþróttamenn frá Íslandi voru viðstaddir tendrun ólympíueldsins í Ólympíu í Grikklandi í gærmorgun - ásamt ungmennum frá 24 öðrum Evrópuþjóðum. Ungmennin taka einnig þátt í keppni við fulltrúa hinna þjóðanna í frjálsíþróttum og sundi.
Meira
ARSENE Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að mark Eiðs Smára Guðjohnsens fyrir Chelsea í leik liðanna í meistaradeildinni í fyrrakvöld hafi verið mjög vel gert.
Meira
ELLEFU af átján leikmönnum enska drengjalandsliðsins í knattspyrnu sem mætir því íslenska í Doncaster í kvöld koma frá félögum í ensku úrvalsdeildinni. Hinir sjö eru allir frá félögum í 1. deild.
Meira
Margrét Róbertsdóttir, nemi í Iðnskólanum í Reykjavík Áttu þér uppáhaldsflík? Já, þessa peysu sem er reyndar galli. Hvað finnst þér flott í gangi núna? Allt "old school" eins og Adidas-gallar og Puma-skór. Skeitaratíska er líka mjög kúl.
Meira
Pétur Pan ('03), er nýjasta kvikmyndagerð ævintýrsins um titilpersónuna frægu sem aldrei verður fullorðin. Pétur Pan heimsækir þrjú ung systkin og heldur með þau til Hvergilands, þar sem styrjöld við skúrkinn Krók sjóræningjakaptein er í uppsiglingu.
Meira
Margrét Ósk Vilbergsdóttir, nemi í FÁ Hvað er í tísku núna? Stuttermabolir með áletrunum úr Dogma, gallabuxur og fléttur. Fylgirðu tískunni? Svona aðeins. Áttu þér uppáhaldsflík? Já, Stussy-bolinn minn og eyrnalokkana sem ég er með. Þá fékk ég í Spútnik.
Meira
Gabriel Alexander Joensen Fylgirðu tískunni? Nei, sérðu það ekki. Hver er uppáhaldsflíkin þín? Jakkafötin mín og þessar hermannabuxur sem ég er í. Hvar kaupirðu helst föt? Þar sem þau eru ódýrust. Hvað eyðirðu miklu í föt?
Meira
"Farið í tvöfalda röð," sagði einkennisklæddur maður skipandi og það hvarflaði ekki að mér annað en að hlýða. Við hlið mér var ókunnug stelpa og það mátti ráða af svip hennar að henni fannst þetta jafn undarlegt og mér.
Meira
Hildur Björgvinsdóttir vinnur á Súfistanum Fylgirðu tískunni? Í og með. Reyni að gera það ekki of mikið en geri það líklega ómeðvitað. Hvar kaupirðu helst föt? Ég kaupi aðallega notuð föt og þá helst í útlöndum því það eru ekki margar slíkar búðir hér.
Meira
From: Jorgen Sorensen <rodstewart_fanclub@hotmail.com> To: clerk@[sveitarfélag í Kanada].com Subject: Hallo people of [sveitarfélag í Kanada] My name is Jorgen Sorensen and I am chairman of the Rod Stewart club in Scandinavia.
Meira
Bjarni Helgason er enginn venjulegur listamaður. Bjadddni Hell, eins og hann kallar sig, lætur til sín taka á mörgum sviðum. Hann hefur gert myndbönd sem hafa vakið athygli, þeirra á meðal eru "Brighter" með Ensími, "Homo Sapiens" með Dr. Gunna og "Má ég sparka" með Bent og 7Berg. Hann er líka í hljómsveit, tekur LOMO-myndir, hannar lógó, málar málverk og ótalmarga hluti til viðbótar eins og sjá má á vef hans this.is/herrahelviti.
Meira
Queer Eye for the Straight Guy: Eiginlega ætti enginn að þurfa að gifta sig án þess að fá aðstoð frá hommum. Ekki þarf að horfa lengi á Queer Eye for the Straight Guy til að átta sig á því.
Meira
Hvað er Jónsi að segja við félaga sína í Sigur Rós, Kjartan og Orra, á þessari mynd? Tillögur er hægt að senda á Fólkinu á mbl.is, með því að smella á "Besti myndatextinn".
Meira
Lausleg þýðing: Halló fólk hjá [kanadísku sveitarfélagi] Ég heiti Jörgen Sörensen og ég er formaður aðdáendaklúbbs Rods Stewarts á Norðurlöndum. Ég verð á ferðinni í Kanada í kjölfar goðsagnarinnar minnar hr. Stewarts á tónleikaför hans um Kanada 2004.
Meira
María Ástudóttir, nemi í Kvennaskólanum Hvar kaupirðu helst föt? Í Retró. Hvað eyðirðu miklu í föt á mánuði? Svona 20 þúsund krónum. Hvað finnst þér flott sem er í gangi núna? Gamla kvenlega tískan í anda Audrey Hepburn og Jackie Kennedy. En hvað ljótt?
Meira
Magnús Guðberg Sigurðsson, nemi í FB Fylgirðu tískunni? Nei, meira bara mínum eigin stíl. Hvað er í tísku? Converse-skór og leðurjakkar. Fólk er byrjað að blanda miklu meira saman stílum nú en áður. Hver er uppáhaldsflíkin þín? Lopapeysa.
Meira
Fyrsti hluti | eftir Knút Hafsteinsson Í svefnrofunum skaut því upp í huga hennar að hún hefði gleymt einhverju. Hún spratt upp úr fletinu, teygði sig í sígarettuna og reyndi að róa taugarnar.
Meira
Við Íslendingar eigum besta vatnið. Sterkustu karlmennirnir eru okkar, ekki má gleyma besta jarðhitanum, grænasta grasinu og fallegustu fjörðunum. Við erum best í flestu, eigum flest af öllu, hvort sem það er gott eða slæmt, og allir kunna að lesa.
Meira
Það fer fátt jafnmikið í taugarnar á mér og þegar fólk slengir þeirri firru í andlitið á mér að nám sé ekki vinna. Nám er ekki aðeins vinna heldur er það tvöföld, ef ekki þreföld vinna.
Meira
Í glæpatryllinum Líflát - Taking Lives, leikur Angelina Jolie alríkislögreglukonu sem er send til Kanada til að aðstoða við rannsókn á raðmorðingjamáli.
Meira
Unnur Karlsdóttir, nemi í MR Fylgirðu tískunni? Ég hef minn persónulega stíl en auðvitað fer ég líka eftir því hvað er í búðunum. Hver er uppáhaldsflíkin þín? Svörtu rúskinnsstígvélin mín. Hvar kaupirðu helst föt?
Meira
Þegar kemur að tísku núna er næstum allt í gangi. Svör viðmælenda okkar á góðviðrisdegi í miðbæ Reykjavíkur voru nánast eins misjöfn og þau voru mörg.
Meira
Allir þekkja útskriftarsýningar Listaháskóla Íslands, sem hafa getið sér gott orð hvort sem um er að ræða myndlistar- og hönnunarnema eða leiklistardeildina.
Meira
Plötur Bonnie Prince Billy - Greatest Palace Music Will Oldham, sem notar helst listamannsnafnið Bonnie Prince Billy, bindur bagga sína ekki sömu hnútum og samferðamennirnir.
Meira
Ég fór að sjá Píslarsögu Krists á dögunum. Myndin nær að vera nokkuð raunsæ og að fylgja frásögn guðspjallanna. Að vísu fattaði ég ekki endalausan gervihlátur rómversku hermannanna sem hlógu samfellt og án tilefnis. Það minnti mig á Dr.
Meira
... að þessi ungi maður myndi fá sér hamborgara hjá nýjustu skyndibitakeðjunni í Perú, Bembos Burger Grill, sem er sívaxandi og hyggur á innrás í önnur lönd Suður-Ameríku, Mið-Ameríku og...
Meira
... að bananar gætu borið svip eins og þennan, en þetta er listaverk Brasilíumannsins Tonicos Lemos Auads. Hann er einn 10 listamanna sem keppa um "Beck's Futures"-verðlaunin í...
Meira
... að kínverski jurtasérfræðingurinn Chen Jianmin myndi reyna að slá met Davids Blaine og fasta í 49 daga í þessum glerturni. Blaine fastaði í 44 daga á síðasta...
Meira
... að Mikhail gamli Gorbachev, fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna, væri jafn glaðvær og vel á sig kominn og raun ber vitni, en hann var myndaður á góðgerðarsamkomu í Las Vegas á...
Meira
... að þessi grís myndi leggja þetta hart að sér í kapphlaupi í Moskvu, en þar var fyrsta keppni þeirrar tegundar í yfir 100 ár haldin á sunnudaginn. Sigurvegarinn hlaut að launum gulrætur með rjóma, auk...
Meira
Bjarney Anna Bjarnadóttir, nemi í MR Hvað er í tísku núna? Eiginlega bara allt. Gallabuxur eru náttúrulega alltaf í tísku, núna eru það Levi's strákabuxur fyrir stelpur en þröngu buxurnar eru aðeins að víkja. Svo eru íþróttaskór alltaf í tísku.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.