RÁÐHERRA olíumála í Noregi, Einar Steensnæs, vill að Evrópusambandið taki þátt í að fjármagna tilraunir með að dæla koldíoxíði niður í tómarými undir hafsbotni, að sögn Aftenposten .
Meira
RÍKISSTJÓRN Ísraels samþykkti í gær með miklum mun, 14 atkvæðum gegn sjö, málamiðlunartillögu vegna áætlunar Ariel Sharons forsætisráðherra um brottflutning Ísraela frá Gaza-svæðinu og hlutum Vesturbakkans.
Meira
RONALD Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, lést á laugardag, 93 ára gamall. Hann þjáðist um árabil af Alzheimer-sjúkdómnum. Reagans er minnst sem mannsins sem átti stærstan þátt í að ljúka kalda stríðinu.
Meira
RÉTT rúmlega eitt hundrað fyrirtæki höfðu á föstudag veitt félagsmálaráðuneytinu upplýsingar um jafnréttisáætlun sína, af tæplega 800 sem óskað var eftir upplýsingum frá fyrir 1. júní síðastliðinn.
Meira
ÞÚSUNDIR manna tóku þátt í minningarhátíð í Frakklandi í gær í tilefni þess að 60 ár eru liðin frá innrás bandamanna í Normandí. Leiðtogum Þjóðverja og Rússa var nú í fyrsta sinn boðið að taka þátt í athöfninni.
Meira
ANDRÉS Önd verður 70 ára 9. júní næstkomandi og ætlar hann að heimsækja Ísland helgina 12.-13. júní og hitta íslenska aðdáendur sína á öllum aldri í Kringlunni. "Við ætlum að standa fyrir alveg rosalegri afmælishátíð um næstu helgi.
Meira
SKÍÐABRETTAMAÐUR slasaðist á baki á Snæfellsjökli í gær og var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LIF á Landspítalann í Fossvogi. Hann var þó ekki alvarlega slasaður að sögn læknis, en lagður inn á...
Meira
MIKILL björgunarviðbúnaður var settur af stað hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á laugardag þegar páfagaukurinn Alex slapp út um glugga á Holtsgötunni og flaug milli trjáa og húsa.
Meira
ÞAÐ eru oft skrítnir staðir sem þrestir velja til hreiðurgerðar eins og sannast á þrastarhjónum einum vestur í Önundarfirði sem ákváðu að besti staður í heimi til að koma ungum á legg væri í kjafti löngu sem eitt sinn synti sæl í sjónum við...
Meira
Fréttir
7. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 122 orð
| 1 mynd
Merkilegur atburður átti sér stað á útskriftardegi ML þegar 50 ára júbelantar mættu á staðinn. Kom þá í ljós að þeir voru allir mættir aftur tíu talsins sem árið 1954 höfðu verið í fyrsta brautskráningarhópi ML.
Meira
ÖKUMAÐUR, sem velti bíl sínum á Skeiðavegi í fyrrinótt, liggur á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hann var þó ekki mjög illa haldinn að sögn vakthafandi læknis í gær. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum um kl.
Meira
Í FRÉTT Stöðvar 2 í gærkvöldi af lokum skattrannsóknar á Baugi er greint frá því að samkomulag hafi verið gert á sínum tíma milli Jóns Geralds Sullenbergers og Baugs. Orðrétt segir: "[...
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að vísa frá dómi kröfu íbúa við Skrúðás og Lindarberg í Garðabæ um að felld verði úr gildi staðfesting umhverfisráðherra á breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 1995-2015 varðandi strandhverfi...
Meira
ÁRNI Bjarnason, formaður Félags skipstjórnarmanna og Farmanna- og fiskimannasambandsins, sagði í hátíðarræðu sjómannadagsins á Akureyri í gær að að slagurinn um kaup og kjör íslenskra sjómanna ætti sér enga hliðstæðu í atvinnulífinu og kvaðst vilja vilja...
Meira
"Okkur finnst óábyrgt og undarlegt vinnulag að nema úr gildi reglur þegar engar tillögur liggja fyrir um hvað skuli taka við," sagði Gísli Marteinn Baldursson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á fundi borgarstjórnar fyrir helgi.
Meira
7. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 175 orð
| 1 mynd
FIMM ökumenn voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis í fyrrinótt í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík. Að sögn varðstjóra var eitthvað um minni háttar pústra í miðbænum en ekkert af því taldist stórvægilegt.
Meira
FYRSTA hrefnan samkvæmt rannsóknaráætlun Hafrannsóknastofnunar fyrir árið 2004 veiddist á föstudag. Hún veiddist í utanverðum Faxaflóa um borð í Nirði KÓ, en hann er einn þriggja hrefnuveiðibáta sem Hafrannsóknastofnun hefur til umráða.
Meira
AÐALFUNDUR Mjólkurfélags Reykjavíkur hefur samþykkt samhljóða að breyta félaginu úr samvinnufélagi yfir í hlutafélag. Félagsmenn fá ekki greitt úr stofnsjóði, heldur verður þeim mögulegt að selja eign sína á almennum markaði.
Meira
7. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 238 orð
| 1 mynd
GUÐFRÍÐUR Lilja Grétarsdóttir var um helgina kosin forseti Skáksambands Íslands, en hún tekur við af Stefáni Baldurssyni. Hún er fyrsta konan í nær 80 ára sögu Skáksambandsins til að gegna þessu embætti.
Meira
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir Ronald Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafa verið stórkostlegan forseta Bandaríkjanna, og sett mikinn svip á þau meðan hann var við völd.
Meira
7. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 523 orð
| 2 myndir
FORSETI evrópsku einkaleyfastofnunarinnar - EPO, Ingo Kober, kom til Íslands á dögunum í tengslum við væntanlega aðild Íslands að evrópska einkaleyfasamningnum.
Meira
FUNDUR friðarsinna á Ísafirði samþykkti ályktun þar sem mótmælt er harðlega að íslenska þjóðin skuli hafa verið dregin inn í hernaðarbrölt, sem þjónar fyrst og fremst hagsmunum olíufursta og vopnasala í Bandaríkjunum.
Meira
7. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 296 orð
| 2 myndir
ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra gerði baráttu gegn mengun hafsins að umtalsefni í ræðu sinni á sjómannadeginum í gær en hátíðarhöld fóru fram á Reykjavíkurhöfn að viðstöddum fjölda gesta.
Meira
7. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 343 orð
| 3 myndir
"ÞETTA var ótrúlega erfitt, en gaman," sagði Kristrún Jenný Alfonsdóttir, 11 ára stelpa, sem stóð sig eins og hetja háloftanna á laugardag þegar hún bjargaði stórum páfagauk niður af þaki á Vesturgötunni eftir margra klukkustunda eltingarleik.
Meira
7. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 88 orð
| 1 mynd
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir áform um endurskoðun stjórnarskrárinnar ekki vera tilkomin vegna atburða síðustu daga, heldur hafi endurskoðunarferlið þegar verið hafið.
Meira
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sendi í gær George Bush, forseta Bandaríkjanna, og Nancy Reagan og fjölskyldu hennar, samúðarkveðjur vegna andláts Ronalds Reagan, fyrrum forseta Bandaríkjanna.
Meira
STEINGRÍMUR Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, segir að Ronald Reagan hafi sett stór spor í bandaríska þróun. Hann og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, kynntust Reagan og minnast hans með hlýju.
Meira
MARGRÉT Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, segir að hugmyndir dómsmálaráðherra um 75% lágmarksþátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslu, gangi ekki upp.
Meira
Borgarnes | Helga Björk Arnardóttir hefur haft í nógu að snúast í vor en hún kláraði 2. árið í stærðfræði við Háskóla Íslands jafnframt því að ljúka 8. stigi í söng frá Tónlistarskóla Borgarfjarðar.
Meira
7. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 52 orð
| 1 mynd
ÖKUMAÐUR bifreiðar slasaðist töluvert í bílveltu við Bústaðabrú á fimmta tímanum í gær. Hann hlaut beinbrot og skurði og fór í aðgerð á Landspítalanum en var ekki lífshættulega slasaður að sögn læknis.
Meira
Stykkishólmur | Sumartónleikar verða í Stykkishólmskirkju í sumar og er það níunda árið sem slík tónleikaröð er haldin í kirkjunni. Haldnir verða 6 tónleikar, þeir fyrstu 10. júní og þeir síðustu 5. september.
Meira
Þorsteinn Sæmundsson fæddist árið 1935. Hann lauk stúdentsprófi frá MR árið 1954 og BSc. Hons. prófi frá háskólanum í St. Andrews í Skotlandi árið 1958 með stjörnufræði sem aðalgrein. Að því búnu stundaði hann rannsóknir við stjörnuturn Lundúnaháskóla og lauk doktorsprófi þaðan árið 1962. Þorsteinn hefur starfað við Raunvísindastofnun frá árinu 1963. Þá hefur hann m.a. verið í stjórn Norræna stjörnusjónaukans frá því að Íslendingar gerðust aðilar að rekstri hans árið 1997.
Meira
AÐFERÐIR til að auka verðmæti sjávarfangs var aðalumræðuefni sjávarútvegsráðherra landanna við Norður-Atlantshaf í Stykkishólmi sem lauk á laugardag.
Meira
7. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 103 orð
| 1 mynd
SAMTÖKIN Ísland-Palestína stóðu fyrir útifundi á Ingólfstorgi á laugardaginn til að minnast þess að 37 ár eru frá upphafi sex daga stríðsins og hernámi Rafah. Mótmælafundir gegn hernáminu voru haldnir víðsvegar um heim á laugardaginn.
Meira
Borgarnes | Skólaslit voru ekki með hefðbundnum hætti í Grunnskólanum í Borgarnesi nú í vor. Venjulega fara skólaslitin fram í Íþróttahúsinu en þar sem verið er að skipta um gólf í íþróttasalnum var það ekki hægt. Nemendur í 1.-9. bekk mættu í skólann...
Meira
7. júní 2004
| Erlendar fréttir
| 705 orð
| 5 myndir
Fjöldi stjórnmálaleiðtoga, uppgjafahermanna og annarra tók þátt í hátíðarhöldunum í Arromanches í Frakklandi í gær er þess var minnst að 60 ár voru liðin frá innrásinni í Normandí á norðurströnd landsins 1944, D-deginum svonefnda.
Meira
Bandaríkjamenn hafa í nokkur síðustu ár unnið að endurmati á hernaðaruppbyggingu sinni í ljósi breyttra aðstæðna. Það er skiljanlegt. Seinni hluta 20.
Meira
Það er varasamt, að fullyrða, að einhver tiltekinn einstaklingur sé sá merkasti í sögunni eða á einhverju tilteknu tímabili út frá sjónarmiðum samtímans. Sagan leikur slíkar söguskýringar og slíkt mat stundum grátt, þegar frá líður.
Meira
Morgunblaðið birti sl. laugardag stutta grein eftir Hróbjart Jónatansson hæstaréttarlögmann þar sem hann víkur að grein eftir starfsbróður sinn, Svein Andra Sveinsson, sem birtist hér í blaðinu fyrir skömmu.
Meira
EINS og kunnugt er mun tónlistarmaðurinn Van Morrison halda tónleika í Laugardalshöll 2. október. Að sögn Einars Bárðarsonar, tónleikahaldara hjá Concert ehf., mun miðasala á tónleikana hefjast 15. ágúst nk. Einungis verður selt í númeruð sæti og verða...
Meira
Leikstjórn: Alfonso Cuarón. Handrit: Steven Kloves eftir skáldsögu J. K Rowling. Kvikmyndataka: Michael Seresin. Tónlist: John Williams. Aðalhlutverk: Daniel Radcliffe, Rupert Grint, Emma Watson, Robbie Coltrane, Gary Oldman, Michael Gambon, Alan Rickman, Maggie Smith, Davis Thewlis, Emma Thompson og Timothy Spall. 142 mín. BNA. Warner Bros. 2004.
Meira
SYSTIR Ruth, 63 ára gömul kaþólsk nunna, er nú stödd á Íslandi en hún hefur ferðast um heiminn í sautján ár. Hún hefur nú þegar komið til 202 landa og segist eiga eftir að heimsækja 30 lönd.
Meira
TWISTED Minds hafa gefið út lög frá árunum 2001 til 2004 á hljóðsnældu sem ber heitið Crossroads. Af því tilefni var haldinn gleðskapur á skemmtistaðnum Pravda sl. fimmtudagskvöld þar sem fram komu m.a. Twisted Minds, Grænir Fingur krú, Maximum, F.L.
Meira
SÆNSKA þungarokksveitin Dozer lék á Gauki á Stöng á laugardagskvöldið ásamt íslensku rokksveitinni Brain Police. Hamagangurinn var mikill og héldu liðsmenn sveitanna hvergi aftur af sér á sviðinu áhorfendum til ómældrar...
Meira
KVIKMYNDALEIKKONAN og söngkonan Jennifer Lopez giftist söngvaranum Marc Anthony í látlausri athöfn á heimili hennar í Beverly Hills í Kalíforníu í fyrradag.
Meira
Fyrstu áþreifanlegu kynni mín af brúðuleikhúsi fólust í litríkum ævintýralegum og skrítnum sköpunarverkum sem rekast mátti á í hirslum Handíða- og myndlistarskólans. Eða héngu einhvers staðar tímabundið uppi í húsakynnum hans.
Meira
Í KVÖLD verður sýndur fjórði og síðasti þáttur í heimildarmyndaflokknum Leiknum ljúfa. Aldrei fyrr hafa verið eins miklir peningar í spilinu í alþjóðlegum fótbolta en um leið hafa aldrei jafnmörg félög rambað á barmi gjaldþrots.
Meira
Sólóplata með Jóni Ólafssyni sem á öll lögin og textann við "Glóð", stjórnar upptökum, tekur upp, syngur, leikur á píanó, orgel og hljómborð. Auk hans leika; á gítara: Stefán Már Magnússon, Guðmundur Pétursson, Stefán Hjörleifsson; á bassa: Friðrik Sturluson, Haraldur Þorsteinsson; á kontrabassa: Róbert Þórhallsson; á trommur og slagverk: Jóhann Hjörleifsson, Ólafur Hólm. Upptökur fóru fram í Eyranum í mars og apríl 2004. Addi 800 hljóðblandaði, Bjarni Bragi Kjartansson tónjafnaði.
Meira
FYRSTA Sumarmót Bylgjunnar var haldið á Tjarnargötutorgi í Reykjanesbæ á laugardaginn. Idol stjarnan Kalli Bjarni var kynnir hátíðarinnar, en hann stjórnaði Idol-keppni barna og tók auk þess lagið.
Meira
TVÆR skáldsögur eftir dönsk skáld af yngstu kynslóð með sögusvið á Íslandi komu út hjá danska forlaginu Gyldendal í vor. Fiskenes Vindue (Gluggi fiskanna) heitir önnur eftir Kristian Bang Foss sem fæddur er 1977.
Meira
7. júní 2004
| Fólk í fréttum
| 272 orð
| 3 myndir
MTV-kvikmyndahátíðin fór fram í Culver í Kaliforníu á laugardagskvöldið, en þar eru veitt verðlaun í hinum ýmsu flokkum sem margir hverjir eru óhefðbundnir.
Meira
STUTTMYNDAHÁTÍÐ Grand Rokks fór fram á laugardaginn og var þetta í þriðja sinn sem hátíðin er haldin. Sex myndir voru sýndar á hátíðinni að þessu sinni og sigurvegarar urðu þeir Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson með mynd sína Vín hússins.
Meira
NÝR þáttur hefur göngu sína á Skjá einum í kvöld og nefnist hann Þjálfarinn (The Handler). Í þáttunum fylgjumst við með hinum hugumprúða Joe Renato, amerískum alríkislögreglumanni, sem berst gegn illþýði Los Angelesborgar.
Meira
Mörður Árnason skrifar um hugmyndir dómsmálaráðherra: "Dönsku reglurnar falla best að okkar aðstæðum. Þar er talin þörf á tilteknum lágmarksfjölda til að ganga gegn lögum, fjöldi kjósenda ræður ekki úrslitum nema í undantekningartilvikum."
Meira
Hjálpsamir Íslendingar að deyja út? ÍSLENDINGAR hjálpuðu eitt sinn hver öðrum án þess að fá eitthvað í staðinn og voru afslappaðir og stóðu saman. Mér finnst þessi samheldni vera að deyja út og fólk hætt að hjálpast að (nema það fái þóknun).
Meira
Hafliði Kristinsson skrifar um Hvítasunnusöfnuðinn: "...við viljum ekki sitja undir þeirri niðurlægingu að vera merkt ,,sértrúarsöfnuður" í tíma og ótíma..."
Meira
FORSÆTISRÁÐHERRA, Davíð Oddsson, hefur látið þá skoðun sína í ljós að forsetinn gangi erinda auðhrings í fjölmiðlamálinu, en ekki fólksins í landinu.
Meira
Eftir Kristin E. Hrafnsson: "Það eru ekki allar hugmyndir jafn góðar og þess vegna skrifaði ég gegn sverðinu og þess vegna stend ég við gagnrýni mína."
Meira
Eftir Steingrím J. Sigfússon: "Framundan eru vandasöm verkefni á sviði hagstjórnar og efnahagsmála. Sama er hvar að málinu er komið, skattalækkunarpólitíkin er glórulaus."
Meira
7. júní 2004
| Bréf til blaðsins
| 21 orð
| 1 mynd
Einar Árnason fæddist í Neshjáleigu í Loðmundarfirði 30. nóvember 1924. Hann lést á fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað 21. maí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Heydalakirkju 29. maí.
MeiraKaupa minningabók
7. júní 2004
| Minningargreinar
| 1758 orð
| 1 mynd
Gunnar Björnsson, sjómaður í Ólafsfirði, fæddist 22. október 1919. Hann lést hinn 18. maí síðastliðinn á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og var útför hans gerð frá Ólafsfjarðarkirkju 29. maí.
MeiraKaupa minningabók
Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt lit og blöð niður lagði líf mannlegt endar skjótt. (Hallgrímur Pétursson.) Elsku afi, hvíl þú í friði.
MeiraKaupa minningabók
7. júní 2004
| Minningargreinar
| 649 orð
| 1 mynd
Héðinn Jónsson fæddist í Sægrund á Dalvík 20. október 1932. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík hinn 25. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Júlíana Sigurveig Jónsdóttir, f. 8. febrúar 1892 á Kóngsstöðum í Skíðadal, d. 15.
MeiraKaupa minningabók
7. júní 2004
| Minningargreinar
| 2184 orð
| 1 mynd
Jón Eyþór Guðmundsson fæddist á Patreksfirði 5. janúar 1915. Hann lést 28. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson smiður, f. 6. september 1872, d. 11. febrúar 1937 og Valgerður Kristín Jónsdóttir húsmóðir, f. 23. júlí 1876, d. 20.
MeiraKaupa minningabók
7. júní 2004
| Minningargreinar
| 1114 orð
| 1 mynd
Katrín Marín Valdimarsdóttir fæddist í Bolungarvík 17. ágúst 1912. Hún lést á Sjúkraskýlinu í Bolungarvík 20. maí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hólskirkju í Bolungarvík 29. maí.
MeiraKaupa minningabók
7. júní 2004
| Minningargreinar
| 765 orð
| 1 mynd
Kristjón Ómar Pálsson, fyrrverandi bóndi á Geldingaá í Leirársveit, fæddist 13. október 1944. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 1. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigrún Hallvarðsdóttir, f. 8.8. 1924, d. 11.7.
MeiraKaupa minningabók
7. júní 2004
| Minningargreinar
| 924 orð
| 1 mynd
Páll Sigurjónsson fæddist á Nautabúi í Hjaltadal 16. febrúar 1917. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 10. maí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hóladómkirkju 22. maí.
MeiraKaupa minningabók
Nærvera ömmu einkenndist af birtu og kærleik. Ást hennar á lífinu speglaðist í geislandi augunum og stelpulegu brosinu og gerðu alla samveru með henni að stórri stund.
MeiraKaupa minningabók
7. júní 2004
| Minningargreinar
| 2810 orð
| 1 mynd
Stefanía Gísladóttir fæddist í Reykjavík 22. ágúst 1926. Hún lést að kvöldi 23. maí á Landspítalanum við Hringbraut og var útför hennar gerð frá Dómkirkjunni 1. júní.
MeiraKaupa minningabók
ÁÆTLAÐ er "veikindi" starfsmanna í bresku atvinnulífi muni kosta fyrirtækin í landinu allt að 81 milljón sterlingspunda, tæplega 11 milljarða íslenskra króna, ef enska landsliðið í knattspyrnu kemst alla leið í úrslitin í Evrópukeppni landsliða...
Meira
7. júní 2004
| Viðskiptafréttir
| 381 orð
| 1 mynd
ÁFORMUÐ bygging rafskautaverksmiðju á Katanesi í Hvalfirði mun hafa jákvæð efnahagsleg áhrif hér á landi, jafnt á sjálfum framkvæmdatímanum sem og þegar framleiðslan hefst.
Meira
7. júní 2004
| Viðskiptafréttir
| 766 orð
| 1 mynd
Pascal Guignard, aðstoðarforstjóri American Express, undirritaði fyrir helgi samning við Kreditkort hf. um samstarf. Hann sagði Bjarna Ólafssyni frá AmEx og nýjungum í rekstri fyrirtækisins.
Meira
SKÝRR hf. hefur keypt meirihluta hlutafjár í hugbúnaðarhúsinu Elementi hf. af Kaupfélagi Skagfirðinga. Í kjölfarið mun Skýrr gera yfirtökutilboð til annarra eigenda hlutafjár í félaginu.
Meira
HALLI á viðskiptum við útlönd nam 13 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands. Á sama tíma í fyrra var viðskiptahallinn 2,7 milljarðar króna.
Meira
Hálshnykkssjúklingar geta nú eygt von um bata eftir að Eyþór Kristjánsson, nýútskrifaður doktor í heilbrigðisvísindum, hefur tekið þátt í að þróa nýjar greiningaraðferðir við að meta ástand þessara einstaklinga. Jóhanna Ingvarsdóttir spjallaði við hann.
Meira
Áskirkja. Hreyfi- og bænastund kl. 12 í neðri safnaðarsal. Laugarneskirkja. Opinn 12 sporafundur kl. 18 í safnaðarheimilinu. Allt fólk velkomið. Vinir í bata. Árbæjarkirkja. Mánudagar: Kl.
Meira
Græðgi er ein af höfuðsyndunum og ekki að ástæðulausu. Hversu gráðugur er lesandinn hér? Norður &spade;ÁD62 &heart;8 ⋄KG1065 &klubs;876 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 lauf 3 spaðar Pass Pass Dobl Pass ? Það eru allir á hættu.
Meira
Gullbrúðkaup. Í dag, mánudaginn 7. júní, eiga 50 ára brúðkaupsafmæli hjónin Jóna Einarsdóttir og Jón Helgi Hálfdánarson, Heiðarbrún 16, Hveragerði . Þau verða að heiman í...
Meira
Hæsta hryssa sem komið hefur til dóms var sýnd á Gaddstaðaflötum á dögunum og mældist hún 149 sentimetrar á stöng sem þýðir 157 sentimetrar á bandmál. Taldi Ágúst Sigurðsson hrossaræktarráðunautur nokkuð víst að aldrei hafi hærri hryssa mætt til dóms.
Meira
Í dag er mánudagur 7. júní, 159. dagur ársins 2004. Orð dagsins: En vér höfum ekki hlotið anda heimsins, heldur andann, sem er frá Guði, til þess að vér skulum vita, hvað oss er af Guði gefið.
Meira
Einn þáttur í úrslitakeppni barna er að hleypa á hratt stökk. Er það framkvæmt þannig að hver keppandi fer einn síns liðs meðan hinir bíða á mótum skammhliðar og langhliðar þar sem sá er hleypir endar sprettinn.
Meira
Vinur Víkverja er konungssinni og hann er allur uppveðraður þessa dagana. Bæði vegna sælunnar sem hann upplifði við að fylgjast með hinu konunglega brúðkaupi Friðriks Danaprins og Maríu Elísabetar í beinni útsendingu um daginn.
Meira
ALLIR íslensku leikmennirnir, 14 að tölu, fengu að spreyta sig í leiknum við Ítali í Kaplakrika í gær. Roland Eradze kom inná í nokkur sekúndubrot til að freista þess að verja vítakast en Eradze tók stöðu Björgvins Gústavssonar.
Meira
ERNIE Els, kylfingur frá Suður-Afríku, sigraði á Memorial-mótinu í Bandaríkjunum um helgina, lék Murifiel-völlinn á 18 höggum undir pari, síðasta daginn á fimm undir pari.
Meira
BÁRÐUR Eyþórsson hefur ákveðið að halda áfram þjálfun körfuknattleikslið Snæfell úr Stykkishólmi, en hann hafði tekið sér nokkurn tíma til að íhuga málið og var að hugsa um að hætta og hafði gefið það sterklega í skyn.
Meira
DANIR töpuðu sínum síðasta æfingaleik fyrir EM sem hefst í Portúgal á laugardag. Þeir biðu lægri hlut fyrir Króötum í Kaupmannahöfn, 1:2. Þetta var þriðji sigur Króata í röð og koma þeir vel undirbúnir fyrir átökin í Portúgal.
Meira
DAVID James, aðalmarkvörður enska landsliðsins, lék ekki gegn Íslendingum á laugardag en verður að öllum líkindum í byrjunarliði Englands gegn Frökkum næsta sunnudag á Evrópumótinu í Portúgal.
Meira
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í handknattleik tapaði 18:24 fyrir Tékkum í gærmorgun, en leikið var í Tékklandi. Þar með er draumur íslensku kvennanna um að komast í lokakeppni Evrópumótsins úti að þessu sinni, en Tékkar unnu fyrri leikinn hér heima 27:26.
Meira
England - Ísland 6:1 City of Manchester Stadium, Englandi, Manchestermótið, laugardaginn 5. júní 2004. Mörk Englands : Frank Lampard 24., Wayne Rooney 27., 38., Darius Vassell 56., 77., Wayne Bridge 67. Mark Íslands : Heiðar Helguson 41.
Meira
SVEN-GÖRAN Eriksson var hæstánægður með leik sinna manna í leiknum gegn Íslendingum og hrósaði sínum mönnum sérstaklega fyrir agaðan leik. "Þetta voru góð úrslit og góð frammistaða. Við spiluðum agað í 90 mínútur og vorum vel vakandi í vörninni.
Meira
HARRY Harris, íþróttafréttamaður á Sunday Express, segir í grein sinni í blaðinu í gær að Sven-Göran Eriksson landsliðsþjálfari Englands sé nú þegar með áætlun B í huga fari allt á versta veg hjá enska liðinu á EM í Portúgal.
Meira
ÍSLENSKA karlalandsliðið í handknattleik hélt uppi heiðri Íslands á íþróttasviðinu þegar það lagði Ítali með tólf marka mun, 37:25, í síðari leik þjóðanna í undankeppni HM í Kaplakrika í gærkvöld. Þar með verða Íslendingar þátttakendur á heimsmeistaramótinu í Túnis á næsta ári sem verður sjöunda stórmótið í röð sem Ísland leikur á.
Meira
STUÐNINGSMENN úr röðum stuðningsmanna Englands, Official England Supporters Club, stóðu fyrir skemmtilegu framtaki fyrir leik Íslands gegn Englandi á laugardag.
Meira
ÓLAFUR Stefánsson, sem hefur skorað 911 mörk í landsleikjum fyrir Ísland, skoraði 13 mörk í leiknum gegn Ítalíu í Teramo á dögunum, en það eru flest mörk sem hann hefur skorað í landsleik.
Meira
ÞAÐ var sannkölluð sjómannadagsstemning á Akureyrarvelli þegar Þór/KA/KS tók á móti Fjölni í Landsbankadeild kvenna. Nokkuð margir Austfirðingar voru þar mættir með harðfisk í nesti til að fylgjast með stúlkunum sínum en þrír leikmenn liðsins koma af Austfjörðunum. Að auki mátti sjá Sauðkrækinga, Siglfirðinga og að sjálfsögðu heimamenn og allir voru í sólskinsskapi í leikslok þar sem liðið þeirra hafði marið 1:0 sigur.
Meira
FJÖLNIR vann sinn fyrsta sigur í fyrstu deildinni í knattspyrnu á laugardaginn þegar liðið tók á móti Völsungi í Grafarvoginum. Davíð Rúnarsson skoraði tvívegis fyrir heimamenn sem unnu 2:1 og var sigur þeirra sanngjarn.
Meira
HJÖRTUR Már Reynisson, sundmaður úr KR, sett Íslandsmet í undanrásum í 100 m flugsundi í 50 m laug á móti í Frakklandi um helgina. Hjörtur Már synti á 55,46 sek., og bætti eigið met sem var 55,63.
Meira
GUÐMUNDUR Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, var ekki ánægður með leik íslenska liðsins í fyrri hálfleik en var almennt sáttur við leikinn. "Við töluðum mjög vel saman í hálfleik.
Meira
JOHN Terry, varnarmaður enska landsliðsins, gat ekki leikið gegn Íslendingum vegna smávægilegra meiðsla á aftanverðu læri en verður klár í slaginn gegn Frökkum næsta sunnudag er Evrópumót landsliða hefst.
Meira
Íslenska landsliðið í handknattleik karla vann í gær öruggan sigur á Ítölum, 37:25, í síðari leik liðanna um keppnisrétt á HM í Túnis á næsta ári.
Meira
FRANK Lampard, félagi Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Chelsea, segir við enska fjölmiðla að enska liðið hafi burði til þess að ná alla leið á EM í Portúgal sem hefst um næstu helgi.
Meira
"ÞAÐ voru engin stig í boði í þessum leik en við getum dregið þann lærdóm af viðureign okkar við Englendinga að við eigum margt ólært í leikjum gegn sterkum liðum á útivelli.
Meira
Opna velska mótið Celtic Manor völlurinn, par 72: Simon Khan, Englandi -21 (69-61-70-67) Paul Casey, Englandi -21 (69-63-65-70) *Khan hafði betur í bráðabana, vann á annarri holu.
Meira
BRESKI kylfingurinn Simon Khan kom öllum á óvart á Opna Velska golfmótinu, sem er í evrópsku mótaröðinni, og sigraði, lék hringina fjóra á 21 höggi undir pari.
Meira
DAGUR Sigurðsson landsliðsfyrirliði var ánægður með sigurinn á Ítölum í gærkvöldi og þá staðreynd að íslenska landsliðið hefði þar með tryggt sér keppnisrétt á heimsmeistaramótinu í Túnis á næsta ári.
Meira
SIGURSTEINN Arndal handknattleiksmaður, sem áður lék með FH, hefur skrifað undir eins árs samning við hið kunna þýska handknattleiksfélag Bad Schwartau.
Meira
*STUÐNINGSMENN enska landsliðsins á City of Manchester Stadium virtu tilmæli þular vallarins er þjóðsöngur Íslands var leikinn fyrir landsleik Íslands og Englands .
Meira
GASTON Gaudio frá Argentínu og Anastasia Myskina frá Rússlandi sigruðu í einliðaleik á opna franska meistaramótinu í tennis um helgina. Myskina mætti löndu sinni frá Rússlandi, Elenu Dementievu, í úrslitaleiknum og vann fremur auðveldan sigur í tveimur settum 6:1 og 6:2.
Meira
* VICTO R K. Victorsson , knattspyrnumaður úr Víkingi , er genginn til liðs við HK . Hann fékk ekki tækifæri með Víkingum í fyrstu umferðum úrvalsdeildarinnar en lék sinn fyrsta leik með HK gegn Haukum á föstudagskvöldið.
Meira
"MÉR líður ekki vel eftir að hafa fengið sex mörk á mig. Þetta er sama tilfinning og ég hafði eftir 5:0 tap okkar gegn Dönum á Parken í Kaupmannahöfn.
Meira
*ÞAÐ var stutt gaman hjá línumanninum Vigni Svarssyni í landsleik Íslands og Ítalíu í Kaplakrika í gærkvöld. Vignir kom ekkert við sögu í fyrri hálfleik en hann hóf síðari hálfleikinn í vörn íslenska liðsins.
Meira
HEIÐAR Helguson, framherji íslenska landsliðsins, skoraði þriðja mark sitt á þriggja landa mótinu gegn Englendingum á laugardag. Watford-framherjinn frá Dalvík skoraði tvívegis gegn Japan með skalla, og gegn Englendingum skoraði Heiðar enn og aftur með skalla af stuttu færi frá markteig.
Meira
ÓVÍÐA á höfuðborgarsvæðinu má vinna fegurri garða en við hraunið í Hafnarfirði. Við Heiðvang 7 býr Jóhanna Tryggvadóttir ásamt Ferdinand Hansen eiginmanni sínum og syni þeirra Óla Össuri, en þau keyptu húsið fyrir rúmu ári síðan.
Meira
Ölfushreppur - Fasteignasölurnar Xhús og Gimli eru nú með til sölu 190 ferm. fokhelt hús, sem stendur á 1,3 hekturum lands úr landi Reykja í Ölfusi. "Húsið er 190 ferm. og á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Meira
Reykjavík - DP Fasteignir eru með í sölu 280 fm einbýlishús ásamt u.þ.b. 40 fm. bílskúr við Blönduhlíð 8 í Reykjavík. Andri Sigurðsson, sölustjóri DP Fasteigna, segir að um sé að ræða afar glæsilegt hús á þrem hæðum með séríbúð í kjallara og bílskúr.
Meira
7. júní 2004
| Fasteignablað
| 1028 orð
| 6 myndir
Tvær önnum kafnar vinkonur ákváðu að flísaleggja vegg. Þær höfðu aldrei lagt flísar áður. Þær sögðu Guðlaugu Sigurðardóttur að erfiðasti hlutinn hefði verið að finna tíma til að vinna verkið.
Meira
GLAUMBÆR er fornt höfuðból og þar hafa búið miklir og ríkir höfðingjar. Sá nafntogaðasti þeirra er líklega Teitur Þorleifsson lögmaður (d. 1537). Prestar hafa setið í Glaumbæ frá árinu 1550. Í Glaumbæ er stór torfbær af norðlenskri gerð.
Meira
Mosfellsbær - Hjá fasteignasölunni Berg er nú til sölu einbýlishús við Hjarðarland 6 í Mosfellsbæ. Húsið er steinsteypt og 219 ferm. að stærð, þar af er tvöfaldur, innbyggður og vel útbúinn bílskúr, sem er 44 ferm. Húsið stendur á 870 ferm. eignarlóð.
Meira
Hér getur að líta brauðform úr sílikoni. Þau hafa til að bera flest það sem prýða má góð kökuform: Þau þola hita frá -8°C til 200°C, það er auðvelt að losa kökuna úr því formin eru úr viðloðunarfríu efni, þau eru orðin snertiköld u.þ.b.
Meira
Sumarið er tími framkvæmda við hús og mannvirki og gott tíðarfar skiptir þar að sjálfsögðu miklu máli. Engin vinna er þó háðari þurru og góðu veðri en málningarvinnan, þegar hús eru máluð að utan.
Meira
Mikil uppbygging á atvinnuhúsnæði hefur átt sér stað á undanförnum árum í Hellnahrauni fyrir sunnan Hafnarfjörð. Deiliskipulag fyrir svæðið var samþykkt 1986 og endurskoðað árið 2.000. Mörg fyrirtæki hafa haslað sér völl á þessu svæði.
Meira
7. júní 2004
| Fasteignablað
| 1134 orð
| 3 myndir
Alaskareiturinn í Breiðholti hefur breytt um svip, en þar er að rísa falleg íbúðarbyggð í grónu umhverfi. Magnús Sigurðsson kynnti sér þessar íbúðir, en óseldum íbúðum á þessum einstaka reit fer nú fækkandi.
Meira
ORGEL þetta mun keypt hafa til landsins Snæbjörn Arnljótsson (1867-1940), verzlunarmaður á Þórshöfn á Langanesi og síðar eftirlitsmaður með útibúum Landsbanka Íslands.
Meira
Er það furða þótt menn hafi dýrkað sólina á norðurhveli jarðar. Það hefur oft verið erfitt að þreyja þorrann og góuna fyrr á öldum, þarf tæplega að fara aftur um aldir, áratugir nægja.
Meira
7. júní 2004
| Fasteignablað
| 1011 orð
| 5 myndir
ÞAÐ ER ekki oft að eiginmaðurinn verður arfavitlaus, jafnvel ekki þótt ég sé algjör kálhaus og það verð ég með reglubundnu millibili, a.m.k. síðustu vikuna í maí og fyrstu vikuna í júní. Á þessu tímabili er ég alveg með kál á heilanum, spái og spekúlera.
Meira
Kópavogur - Hjá Fasteignasölu Brynjólfs Jónssonar er nú til sölu sérlega bjart, vandað og stílhreint 152 ferm. raðhús ásamt 30 ferm. innbyggðum bílskúr. Heildarstærð hússins er því samtals 182 ferm.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.