FRANK Moody, 101 árs gamall Ástrali, varð í gær elsti fallhlífarstökkvari heims. Vinir hans mönuðu hann til stökksins, þar sem þeir sátu að sumbli í ruðningsklúbbi í borginni Cairns í austurhluta Ástralíu.
Meira
FÁNARNIR sem Bandalag íslenskra skáta gaf öllum leikskólabörnum nú í vor fengu svo sannarlega verðugt hlutverk í gær þegar börnin á Hálsaborg tóku forskot á sæluna og skelltu sér í skrúðgöngu. Þau tóku m.a.
Meira
HINN heimsþekkti arkitekt Norman Foster er meðal þeirra sem hafa lýst yfir áhuga á að hanna ráðstefnu- og tónlistarhús á Austurbakka Reykjavíkurhafnar.
Meira
BAKKAVÖR Group er við það að eignast fimmtungshlut í breska matvælaframleiðandanum Geest eftir að hafa aukið við eign sína í fyrirtækinu um 3,11% í gær og á samstæðan nú 19,26% hlutafjár í Geest.
Meira
MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út laugardaginn 19. júní. Fréttaþjónusta verður á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, í dag og á morgun. Hægt er að koma ábendingum um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is eða í síma...
Meira
GAT kom á skrokk skemmtiferðaskipsins Albatros á leið þess hingað frá Færeyjum og tefst áætlun þess um 3-4 daga á meðan viðgerð fer fram í Straumsvíkurhöfn.
Meira
KVIKMYNDINNI Næsland hefur verið boðin þátttaka í aðalkeppninni á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary í Tékklandi sem fram fer fyrstu dagana í júlí. Friðrik Þór Friðriksson, leikstjóri myndarinnar, er ánægður með þennan heiður.
Meira
Á uppskeruhátíð íslensku leiklistarverðlaunanna í gærkvöldi afhenti forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, Sigríði Ármann, frumherja á sviði listdans á Íslandi og fyrsta íslenska balletthöfundinum, sérstök heiðursverðlaun Grímunnar, fyrir einstakt...
Meira
BÆNDUR sem hafa byggt upp æðarvarp í Dyrhólaey og annast umhirðu landsins hafa kært ákvörðun Umhverfisstofnunar, um að opna eyna 10. júní ár hvert, til umhverfisráðherra. Áður var eyjan alltaf lokuð allri umferð frá 1. maí og fram til 25.
Meira
KRABBAMEINSFÉLAG Íslands efndi í mars og apríl í annað sinn til söfnunarátaksins "Hækkaðu upp í næsta hundrað - til styrktar Krabbameinsfélaginu". Áhersla var lögð á aukna þjónustu við sjúklinga.
Meira
Reyðarfjörður | Sautjánda júní hátíðarhöld fara fram í Fjarðabyggð í dag, svo sem víðar gerist í landinu. Þetta er annað árið í röð þar sem hátíðin er einskorðuð við Reyðarfjörð og allir Fjarðabyggðarbúar boðnir velkomnir þangað.
Meira
TVÖHUNDRUÐ og sextíu nemendur skráðu sig í inntökupróf í læknadeild sem haldið verður 21. og 22. júní næstkomandi. Er þetta talsverð aukning síðan í fyrra þegar 203 nemendur skráðu sig í prófið, samkvæmt upplýsingum frá læknadeild.
Meira
17. júní 2004
| Höfuðborgarsvæðið
| 126 orð
| 1 mynd
Hafnarfjörður | Sýningin "Horfumst í augu við að enginn getur gert allt, en allir geta gert eitthvað" er nú í anddyri Bókasafns Hafnarfjarðar. Þetta er farandsýning á vegum Landverndar og Vistverndar í verki um sjálfbæran lífsstíl.
Meira
Alþjóðlegi jarðvegsverndardagurinn Í tilefni af alþjóðlega jarðvegsverndardeginum sem er 17. júní ár hvert hafa Landgræðsla ríkisins og Landvernd haft forgöngu um hádegisfyrirlestur þar sem landeyðing verður til umfjöllunar.
Meira
BÚIST er við því að borgarráð ákveði í næstu viku hvort samþykkja eigi aðra aukafjárveitingu til þess að koma á móts við þá námsmenn sem eru enn án sumarvinnu í Reykjavík.
Meira
Þorsteinn Sæmundsson er fæddur árið 1963 í Reykjavík. Hann lauk BS-námi í jarðfræði frá Háskóla Íslands árið 1988 og fjórðaársverkefni við HÍ 1988. Síðan hóf hann doktorsnám í Svíþjóð árið 1989, lauk Fil. lic.-prófi í ísaldarjarðfræði árið 1992 og Fil.dr -prófi í ísaldarjarðfræði árið 1995. Þorsteinn er forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Hann er giftur Berglindi Ásgeirsdóttur iðjuþjálfa og eiga þau þrjú börn, Elínu Maríu, Söndru Dögg og Trausta Rafn.
Meira
YFIRMAÐUR öryggismála á olíusvæðunum í Norður-Írak var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í borginni Kirkuk í gær. Hefur árásum á olíumannvirki fjölgað mikið að undanförnu og má nú heita, að lítil sem engin olía berist frá landinu.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær lyfjafyrirtækin GlaxoSmithKline ehf. og Líf hf. til að bera óskipta bótaábyrgð á tjóni tæplega fimmtugrar konu vegna afleiðinga af inntöku lyfja.
Meira
Borgarnes | Vímuvarnarnefnd Borgarbyggðar afhenti reyklausum nemendum í 7.-10. bekk í Grunnskólanum í Borgarnesi og Varmalandi forvarnarboli með slagorðum.
Meira
17. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 473 orð
| 1 mynd
Stöðvarfjörður | Þeir Jóhannes Jónsson vélamaður og Sigurður Guðmundsson áfengisráðgjafi, báðir úr Vogunum, ákváðu að verja sumarleyfinu sínu í kajaksiglingu milli Djúpavogs og Stöðvarfjarðar þetta árið.
Meira
17. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 257 orð
| 1 mynd
BARNA- og fjölskylduskemmtunin á Arnarhóli hefst klukkan 14, og verða þau Birta og Bárður úr Stundinni okkar kynnar skemmtunarinnar. Fyrst stígur kór leikskólabarna í Reykjavík á svið, og syngur Öxar við ána í tilefni dagsins.
Meira
Að venju verður mikið um að vera frá morgni til kvölds á Akureyri í dag, 17. júní. MA-stúdentar setja svip sinn á bæinn og dagskráin, sem Skátafélagið Klakkur hefur veg og vanda af, er þéttskipuð. Ýmsir fastir liðir eru á dagskránni eins og venjulega.
Meira
Velktur miði fannst í bók sem keypt var á fornbókasölu með ágætum vísum og yrði undirritaður þakklátur ef einhver þekkti höfundana. Tilefnið er "veðmál unnið að vori, loks goldið eftir sumarlanga, stranga bið." Undir fyrri vísurnar er letrað S.
Meira
17. júní 2004
| Akureyri og nágrenni
| 322 orð
| 1 mynd
"VIÐ erum stoltir af því að hafa fengið þetta verkefni," sagði Sigurjón Magnússon, framkvæmdastjóri MT bíla í Ólafsfirði, en hann og Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri skrifuðu í gær undir samning um smíði fyrirtækisins á...
Meira
EJS gaf nýlega Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna allan tölvubúnað í skrifstofu sína að Skaftahlíð 24 í Reykjavík, en árlega velur EJS eitt gott málefni og veitir því rausnarlegan styrk.
Meira
FJÖLDI ferðamanna var við Skógafoss í vikunni enda hefur fossinn mikið aðdráttarafl og þar stoppa margar rútur fullar af ferðamönnum á degi hverjum. Fossinn skartaði sínu fegursta þennan dag og voru myndavélar hvarvetna á lofti til að mynda dýrðina.
Meira
FJÖLSKYLDA Paul Marshall Johnson, bandaríska flugvélaverkfræðingsins, sem er í haldi samtaka sem tengjast al-Qaeda hryðjuverkanetinu, grátbað honum griða í gær.
Meira
17. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 154 orð
| 1 mynd
FJÖLBRAUTASKÓLI Norðurlands vestra (FNV) og Háskólinn á Hólum hafa undirritað samkomulag um víðtækt samstarf. Meginmarkmið samkomulagsins er að efla skólahald á framhalds- og háskólastigi á Norðurlandi.
Meira
BALDUR Ágústsson forsetaframbjóðandi hélt tvo framboðsfundi í gær en hann heimsótti starfsfólk Íslandspósts í hádeginu og ræddi framboð sitt og fyrirhugaðar forsetakosningar.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að sýslumanninum í Kópavogi beri að setja lögbann við því að fyrirtæki þar í bæ selji og dreifi No Name-snyrtivörum á Íslandi og í íslenskum fríhöfnum eða íslenskum flugvélum.
Meira
17. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 144 orð
| 1 mynd
INGIBERGUR Sigurðsson, kosningastjóri Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda, hefur sent Leiklistarsambandi Íslands bréf þar sem hann gagnrýnir harðlega þá ákvörðun Leiklistarsambandsins að bjóða forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, að vera...
Meira
LEIKSKÓLANUM Garðaseli á Akranesi hefur verið veitt viðurkenning frá Lýðheilsustöð og Landlæknisembættinu fyrir störf að bættu heilbrigði, íþróttum og hreyfingu meðal barnanna.
Meira
Vestmannaeyjar | Til margra ára hefur það verið siður, að aðstandendur heimilisfólksins og starfsfólkið á Hraunbúðum leggi til kökur og annað meðlæti einhvern heppilegan sunnudag á hverju vori og standi fyrir sölu á kaffi ásamt góðgætinu.
Meira
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN 17. júní verður hátíðarguðsþjónusta í Þingvallakirkju á 60 ára afmæli lýðveldisins. Dóms- og kirkjumálaráðherra, Björn Bjarnason, prédikar og séra Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari. Guðsþjónustan hefst kl. 14.
Meira
Hefðbundin dagskrá | Hátíðarhöldin á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, fara fram með hefðbundnum hætti í sveitarfélögunum á Suðurnesjum. Í Reykjanesbæ verður hátíðarmessa í Keflavíkurkirkju klukkan 13 og að henni lokinni skrúðganga undir stjórn skáta.
Meira
17. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 263 orð
| 2 myndir
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA hefur undirritað reglugerð um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2004-5 sem hefst 1. september nk. og er hann í öllum aðalatriðum í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.
Meira
HVAMMSVÍK ehf. hefur gefið Siglingaklúbbnum Sæfara á Ísafirði tíu vaðbuxur til að nota á barna- og unglinganámskeiði í siglingum sem nú stendur yfir. Hjá Hvammsvík í Hvalfirði eru m.
Meira
Í þjóðbúningi á Árbæjarsafn | Gestir Árbæjarsafns eru hvattir til að mæta í þjóðbúningi í dag, þjóðhátíðardaginn, og njóta fjölbreyttrar dagskrár safnsins.
Meira
GRÉTAR Sigurðarson, einn sakborninga í líkfundarmálinu, játaði fyrir dómi í gær að hafa stungið lík Vaidasar Juceviciusar þrisvar sinnum með hnífi, en neitaði sök þess efnis að hafa stungið líkið fimm sinnum, eins og honum er gefið að sök.
Meira
Kaffisala | Hin árlega 17. júní kaffisala kvenfélagsins Baldursbrár verður í safnaðarsal Glerárkirkju og hefst kl 15. og stendur til kl 17. Kynnt verður nýútkomin bók um 80 ára sögu félagsins, kvenfélagið átti 85 ára afmæli 9 júni síðastliðinn.
Meira
LALU Prasad Yavad, ráðherra járnbrautamála á Indlandi, sagði tuttugu látna og hundrað særða eftir lestarslys sem varð í gærmorgun, um 200 km frá Bombay.
Meira
Forseti Írans sagði í gær, að samþykkti Alþjóðakjarnorkumálastofnunin, IAEA, harðorða ályktun frá Evrópuríkjunum, kynni Íransstjórn að hætta öllu samstarfi við hana.
Meira
17. júní 2004
| Akureyri og nágrenni
| 457 orð
| 1 mynd
SYSTKININ Haukur og Anna Berglind Pálmabörn brautskráðust frá Háskólanum á Akureyri um liðna helgi en þau gerðu sér lítið fyrir og hlutu hæstu og næsthæstu meðaleinkunn sem gefin hefur verið í fyrri hluta námi við háskólann.
Meira
17. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 107 orð
| 1 mynd
PHIL Craven, forseti alþjóðaólympíuhreyfingar fatlaðra (IPC) og Bob Price, forseti Evrópudeildar ólympíuhreyfingar fatlaðra voru í heimsókn á Íslandi í byrjun júní. Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) skipulagði dagskrá fyrir þá hér á landi og m.a.
Meira
17. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 365 orð
| 2 myndir
ÞRJÁR afbragðs laxveiðiár, Langá á Mýrum, Miðfjarðará og Laxá á Ásum voru opnaðar seinnipartinn á þriðjudaginn. Líflegt var í Langánni og fengust fimm laxar á eftirmiðdagsvaktinni á opnunardaginn að sögn Ingva Hrafns, leigutaka árinnar.
Meira
Lokun Lækjargötu í Hafnarfirði | Framkvæmdir eru hafnar við Lækjargötu í Hafnarfirði, og hefur af þeim sökum þurft að loka hluta götunnar fyrir umferð. Framkvæmdir við Lækjargötu eru hluti af útboðnu verki Hafnarfjarðarbæjar og Vegagerðarinnar.
Meira
17. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 248 orð
| 1 mynd
ÚTSKRIFTARÁRGANGUR Menntaskólans í Reykjavík frá 1944 kom saman síðastliðið þriðjudagskvöld til að fagna 60 ára útskriftarafmæli sínu. Hópurinn útskrifaðist 17. júní 1944 og hafa stúdentarnir allar götur síðan þá verið kallaðir lýðveldisstúdentarnir.
Meira
17. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 281 orð
| 1 mynd
SENDIHERRA Norður-Kóreu, með aðsetur í Stokkhólmi, Jeon In Chan, er staddur hér á landi og hyggst taka þátt í 17. júní hátíðahöldunum í dag. In Chan afhenti forseta Íslands trúnaðarbréf sitt á þriðjudaginn en í gær átti hann m.a.
Meira
Málfundur Jafnréttisdeildar Heimdallar Jafnréttisdeild Heimdallar heldur fund um jafnréttismál föstudaginn 18. júní á skemmtistaðnum Felix klukkan 21.30. Atli Harðarson heimspekingur mun halda inngangserindi um jafnrétti í sögulegu og heimspekilegu...
Meira
Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt nýjar reglur um fjárhagsaðstoð í sveitarfélaginu. Helstu breytingar sem fram koma með nýjum reglum eru m.a. þær, að fjárþörf tekur mið af fullorðnum, en ekki af börnum líka eins og áður var.
Meira
ÓLAFUR Ragnar Grímsson fengi 89,4% atkvæða, væri kosið nú til embættis forseta Íslands, samkvæmt nýrri könnun IMG Gallup og er þá miðað við svör þeirra þátttakenda í könnuninni, sem afstöðu tóku til frambjóðendanna.
Meira
NÆR 300 manns eru í söfnuði Votta Jehóva á Íslandi. Talsmaður þeirra, Svanberg K. Jakobsson, segir að menn hafi fylgst vel með réttarhöldunum í Moskvu. "Ofsóknir á hendur minnihlutahópum vegna trúar eða annars hljóta að vera áhyggjuefni.
Meira
FRÖNSK yfirvöld hófu í gær herferð gegn ruslpósti með því að senda landsmönnum límmiða sem á stendur að viðkomandi vilji engan auglýsinga- eða markpóst. Límmiðarnir eru ætlaðir póstkössum og bréfalúgum.
Meira
17. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 273 orð
| 2 myndir
NÝR samningur Leikfélags Reykjavíkur (LR) og Reykjavíkurborgar var undirritaður í gær en hann mun gilda til ársloka 2012. Að sögn Ingu Jónu Þórðardóttur, formanns LR, felur nýi samningurinn í sér tvo meginþætti.
Meira
Rúmlega 460 þjóðaratkvæðagreiðslur hafa verið haldnar í Evrópu frá 1940 og 330 þeirra hafa farið fram í Sviss. Árni Helgason kynnti sér reglur um þátttökuskilyrði og vægi atkvæða í ýmsum Evrópulöndum og ræddi við Björgu Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti, um hugsanleg skilyrði fyrir þjóðaratkvæðagreiðslunni í sumar.
Meira
RÉTTARHÖLD í máli Míkhaíls Khodorkovskís, fyrrverandi forstjóra rússneska olíufélagsins Yukos, hófust í Moskvu í gær en var frestað jafnharðan þar sem einn verjendanna þurfti að jafna sig eftir augnaðgerð.
Meira
SIGURÐI L. Sigurðssyni, fyrrverandi varðstjóra, sem tilkynnt var þegar hann mætti til vinnu hjá Slökkviliði Akureyrar fyrir skemmstu eftir vaktafrí, að hann væri ekki lengur í liðinu, hefur verið boðið starf þar á ný skv. heimildum Morgunblaðsins.
Meira
17. júní 2004
| Höfuðborgarsvæðið
| 396 orð
| 1 mynd
FJÖLBREYTT dagskrá verður víða á höfuðborgarsvæðinu í dag, 17. júní, á sextíu ára afmæli lýðveldisins. Fyrir þá sem vilja kynna sér ítarlega dagskrá síns bæjarfélags er best að líta á heimasíðu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Meira
YFIRVÖLD í Indónesíu hvöttu í gær skæruliða aðskilnaðarsinna í Aceh til að leggja niður vopn en þá höfðu þrír útlægir leiðtogar þeirra verið handteknir í Svíþjóð.
Meira
17. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 276 orð
| 1 mynd
Stækka golfvöllinn | Vinna er hafin við golfvöllinn á Silfurnesi á Höfn en byrjað var að stækka völlinn í fyrra. Núna er verið að fullmóta flatirnar, grínin eins og það heitir á golfmáli, og gera þau tilbúin undir sáningu og búa til teiga.
Meira
17. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 107 orð
| 1 mynd
Fagridalur | Á dögunum fór fram sumarhátíðin Vík 2004 og er þetta fyrsta hátíð sinnar tegundar en áætlað er að þetta verði árviss viðburður.Mikið var lagt upp úr því að hátíðin væri fjölskylduvæn með ýmiskonar afþreyingu fyrir börn.
Meira
Tívolísyrpa Hróksins og Húsdýragarðsins Lokamótið í Tívolísyrpu Hróksins og Húsdýragarðsins fer fram í dag. Mótið fer fram í Vísindatjaldinu í Húsdýragarðinum. Mæting á lokamótið er kl. 12.30 og byrjað verður að tefla kl. 13. Tefldar verða 7.
Meira
ÞEIM Jennu og Barböru, tvíburadætrum forsetahjónanna bandarísku, George W. Bush og Lauru Bush, hefur ekki verið hampað í pólitísku lífi forsetans.
Meira
17. júní 2004
| Innlendar fréttir
| 154 orð
| 2 myndir
TVÆR konur hafa verið skipaðar sendiherrar í utanríkisþjónustu Íslands. Berglind Ásgeirsdóttir og Bergdís Ellertsdóttir munu feta í fótspor Sigríðar Á. Snævarr, fyrstu konunnar sem skipuð var sendiherra í íslenskri utanríkisþjónustu, árið 1991.
Meira
ÍTALSKA sjónvarpskonan Lilli Gruber eða "Rauða Lilli", eins og hún er gjarnan kölluð vegna háralitarins, þykir hafa niðurlægt illilega sjálfan forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, í kosningunum til Evrópuþingsins um helgina.
Meira
Kiwanismenn | Kiwanismenn úr Kiwanisklúbbnum Setbergi í Garðabæ heimsóttu grunnskólana í Garðabæ við útskrift nemenda. Tilefni heimsóknanna var að afhenda viðurkenningar til þeirra nemenda sem skarað hafa fram úr í íslenskunámi.
Meira
Mikil stemmning var á verðlaunaafhendingu Grímunnar í gærkvöld. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru afhent og hafa þau skipað sér mikilvægan sess í íslensku leikhúslífi.
Meira
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI fékk þrjá erlenda menn, sem búið er að vísa úr landi, úrskurðaða í vikulangt gæsluvarðhald í gær, en mennirnir hafa sætt gæsluvarðhaldi frá handtöku þeirra 25. maí. Þeir komu hingað til lands 6.
Meira
LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp eru um þessar mundir að koma sér fyrir í nýju húsnæði að Háaleitisbraut 11-13. Húsnæðið hýsti áður Samband íslenskra sveitarfélaga og fjármagnar Þroskahjálp kaupin að hluta til með því að selja Lýsingu hf.
Meira
Í dag eru 60 ár liðin frá stofnun lýðveldis á Íslandi, atburðar sem olli straumhvörfum í lífi íslenzku þjóðarinnar. Þá vorum við tiltölulega fátæk þjóð og ekki einsýnt að lýðveldisstofnun mundi takast.
Meira
Í frétt í Morgunblaðinu í gær, þar sem sagt var frá samtali blaðsins við Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands vegna fréttar á Stöð 2 í fyrrakvöld sagði m.a.
Meira
ÍSLENDINGAR nær og fjær ætla að halda þjóðhátíðardaginn hátíðlegan í dag. Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn stendur fyrir hátíðadagskrá í Jónshúsi í dag auk þess sem boðið verður upp á þjóðhátíðahöld alla helgina í Kaupmannahöfn.
Meira
SNATTARINN er spennutryllir af harðari gerðinni en handritshöfundur og framleiðandi er hinn kunni franski leikstjóri Luc Besson. Hér segir af Frank Martin, fyrrum sérsveitarliða, sem lifir einangruðu lífi við frönsku Rívíeruna.
Meira
FEÐGARNIR Ingvar E. Sigurðsson og Áslákur Ingvarsson unnu til verðlauna á nýafstaðinni Festroia kvikmyndahátíðfyrir leik sinn í kvikmyndinni Kaldaljós.
Meira
KVIKMYNDINNI Næsland í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar hefur hlotnast sá heiður að vera valin í aðalkeppni alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Karlovy Vary í Tékklandi, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Zik Zak.
Meira
EDDA útgáfa og KB banki hafa gert með sér samstarfssamning um ljósmyndasýninguna Íslendingar sem sett verður upp á Austurvelli í dag og mun standa til 1. september. Páll Bragi Kristjónsson, forstjóri Eddu útgáfu, og Sólon R.
Meira
SÝNINGIN ,,Jóhann Jónsson - sögubrot úr ævi skálds" verður opnuð í Pakkhúsinu í Ólafsvík í dag. Jóhann Jónsson fæddist árið 1896 á Staðastað en fluttist ungur til Ólafsvíkur og var þar uppalinn.
Meira
LEIKVERKIÐ Landsmótið , sem leikdeild Ungmennafélagsins Eflingar í Reykjadal setti upp í vetur, er áhugaverðasta leiksýning áhugaleikhúss á leikárinu að mati Þjóðleikhússins og verður sýnt þar um næstu helgi.
Meira
Listasafn Íslands er opið á þjóðhátíðardaginn 17. júní frá kl. 11-17 . Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi kl. 16 Svanborg Matthíasdóttir opnar sýningu sína sem ber yfirskriftina Tónar. Svanborg sýnir olíumálverk unnin á árunum 1999-2004.
Meira
Listmunahorn Árbæjarsafns Helga Birgisdóttir/Gegga sýnir ljósmyndir úr postulíni. Sýningin stendur til 23. júní. Askja, náttúrufræðihús Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni, kl.
Meira
Klúbbakvöld á vegum MTV, Hed Kandi og Gillette, verður haldið á Nasa á laugardaginn. Plötusnúðar frá London, Mark Doyle, John Jones og söngsnillingurinn Peyton frá Hed Kandi verða stjörnur kvöldsins og halda uppi stemningunni.
Meira
HEIMSPEKIDEILD Háskóla Íslands og Fróðskaparsetur Føroya halda tveggja daga ráðstefnu um helgina sem varðar Færeyjar og Ísland. Fyrri daginn hefst ráðstefnan kl. 10 á laugardagsmorgni í Norræna húsinu.
Meira
HÓPUR Íslendinga, skipaður nokkrum leikurum Þjóðleikhússins og stórmeisturum í skák, er um þessar mundir staddur í Kanada í tilefni af 60 ára afmæli íslenska lýðveldisins og 100 ára afmæli heimastjórnarinnar.
Meira
Kórar Reykjahlíðar- og Skútustaðakirkju, Kór Húsavíkurkirkju og Karlakórinn Hreimur. Einsöngvarar: Aðalsteinn Júlíusson tenór, Hildur Tryggvadóttir sópran og Kristján Halldórsson baritón.
Meira
LEIKRITIÐ INEZ P. sem frumsýnt verður í vikunni á vegum Theatergruppen í Kaupmannahöfn, er einleikur þar sem leitast er við að kalla fram tilfinningar áhorfenda með því að beina athyglinni að írónísku mótsvari ástarinnar.
Meira
NÚ mæðir aldeilis á íþróttafréttamönnum. Á hverjum degi blaðra þeir út í eitt í góðar 90 mínútur og það blaðalaust, í beinni útsendingu frammi fyrir alþjóð.
Meira
SÆNSKI stúdentakórinn Chalmers sångkör hefur verið á tónleikaferð um Ísland og annað kvöld verður kórinn með lokatónleika ferðarinnar í Hallgrímskirkju kl 20.
Meira
SUNNA Einarsdóttir er ein þeirra heppnu einstaklinga sem nú í sumar munu vinna við draumadjobbið sitt. Hún er nýtt andlit á PoppTíví og mun í sumar sinna hinum ýmsu verkefnum fyrir stöðina.
Meira
Bönnum hundahald REIÐ kona hafði samband við Velvakanda og var henni mikið niðri fyrir vegna hundahalds í Reykjavík. Henni þykir tímabært að banna alfarið hundahald sökum óþrifnaðar sem af hundunum hlýst.
Meira
Eftir Leif Sveinsson: "I. Hrauntaglskofi er almennt kallaður Péturskirkja eftir Pétri Jónssyni (1898-1972), bónda, vegaverkstjóra og hóteleiganda í Reynihlíð."
Meira
Gunnar Jónatansson skrifar um byggingamarkaðinn: "Flest fyrirtækin eru stofnuð utan um hverja framkvæmd fyrir sig og fæst lifa það að klára húsin."
Meira
MESTA böl þjóðanna og þá ekki síst Íslands, landsins okkar góða eins og Jónas Hallgrímsson orðaði það, er án vafa áfengisbölið. Við erum í hverri viku að heyra og sjá árangur þess í hinu daglega lífi. Þetta fer ekki framhjá neinum.
Meira
Dr. Dietrich Fischer skrifar um RÚV: "Ég vonast til að útgáfa viðtalsins við mig verði birt í fullri lengd og óritskoðuð fyrir kosningarnar 26. júní..."
Meira
AÐ gefnu tilefni er nú mjög rætt um vald forseta og sýnist sitt hverjum og oft vitnað til fyrrverandi prófessoranna Ólafs Jóhannessonar og Sigurðar Líndal í umræðunni.
Meira
Einar Sveinbjarnarson, bóndi á Ysta-Skála, fæddist að Ysta-Skála undir Eyjafjöllum 11. nóvember 1928. Hann lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á Hellu 11. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Anna Einarsdóttir húsmóðir, f. 29.6.
MeiraKaupa minningabók
17. júní 2004
| Minningargreinar
| 3103 orð
| 1 mynd
Gunnlaugur Viðar Guðmundsson fæddist á Akureyri 10. maí 1941. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 8. júní. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson, f. 1. september 1914, d. 21. júlí 1993, og Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir, f. 3.
MeiraKaupa minningabók
17. júní 2004
| Minningargreinar
| 1349 orð
| 1 mynd
Halldór Kristjánsson fæddist á Skerðingsstöðum í Reykhólasveit í Austur-Barðastrandarsýslu 10. desember 1913. Hann lést á elliheimilinu Barmahlíð á Reykhólum 8. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Kristján Jónsson, f. á Hjöllum í Þorskafirði 4.
MeiraKaupa minningabók
17. júní 2004
| Minningargreinar
| 1955 orð
| 1 mynd
Ingibjörg Sturludóttir fæddist á Görðum í Aðalvík í N-Ísafjarðarsýslu 21. nóvember 1913. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 9. júní. Foreldrar hennar voru Jóhanna Guðrún Sigurðardóttir, f. 13.6. 1885, d. 2.5. 1970, og Sturla Benediktsson, f. 8.6. 1889, d.
MeiraKaupa minningabók
17. júní 2004
| Minningargreinar
| 2526 orð
| 1 mynd
Jón Sigurður Guðmundsson, forstjóri og ræðismaður Íslands í Louisville í Kentucky, fæddist á Þingeyrum í Austur Húnavatnssýslu 27. júní 1921. Hann lést 12. júní síðastliðinn. Jón var sonur hjónanna Guðmundar Andréssonar og Jórunnar Loftsdóttur.
MeiraKaupa minningabók
Petra Fanney Þórlindsdóttir fæddist á bænum Hvammi við Fáskrúðsfjörð 2. nóvember 1930. Hún andaðist á Landspítalanum 3. júní síðastliðinn og var jarðsungin frá Háteigskirkju 14. júní.
MeiraKaupa minningabók
17. júní 2004
| Minningargreinar
| 1561 orð
| 1 mynd
Sigríður Jóna Ingólfsdóttir fæddist á Prestbakka í Hrútafirði 22. október 1922. Hún andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi 5. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ingólfur Kristinn Jónsson frá Hlaðhamri, f. 26. júlí 1893, d. 11.
MeiraKaupa minningabók
Torfi Guðbjörnsson fæddist í Bjarnarnesi í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu 29. október 1929. Hann lést á Landspítalanum 6. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Kópavogskirkju 15. júní.
MeiraKaupa minningabók
17. júní 2004
| Minningargreinar
| 3442 orð
| 1 mynd
Vilberg Skarphéðinsson fæddist í Reykjavík 11. desember 1921. Hann lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi 8. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Skarphéðinn Ármann Njálsson, verkamaður í Reykjavík, f. 23.9. 1889, d. 14.7.
MeiraKaupa minningabók
17. júní 2004
| Minningargreinar
| 1885 orð
| 1 mynd
Þórunn Jónsdóttir fæddist á Keisbakka í Skógarstrandarhreppi á Snæfellsnesi 8. desember 1918. Hún lést á Landspítala við Hringbraut fimmtudaginn 27. maí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Grensáskirkju 4. júní.
MeiraKaupa minningabók
Karon ehf. hefur hafið innflutning og sölu á kolvetnasnauðum matvörum. Vörur þessar fást nú þegar í verslunum Hagkaupa en munu einnig fást í Low Carb sérverslun að Lyngási 14 í Garðabæ og í netverslun á slóðinni www.lowcarb.is.
Meira
Óhætt er að segja að alþjóðlegur blær svífi yfir vötnum á veitingastaðnum Vegamótum Bistró & Bar því í eldhúsinu á þeim bæ starfa m.a. sex kokkar, sem allir eru af erlendu bergi brotnir.
Meira
BÓNUS Gildir 18.-20. júní nú kr. áður kr. mælie.verð Holta kjúklingaleggir 299 449 299 kr. kg Holta kjúklingalæri 299 449 299 kr. kg Kók kippa 2 ltr * 6 999 1.099 83 kr. ltr KF hrásalat/kartöflusalat, 350 g 98 159 280 kr. kg.
Meira
Verslunarkeðjan Europris hefur opnað nýja verslun við Fiskislóð 3, Grandagarði sem býður upp á annars konar vöruúrval en í hefðbundnum matvörumörkuðum hér á landi.
Meira
40 ÁRA afmæli. Laugardaginn 19. júní verður fertug Sigríður Ósk Jónsdóttir, til heimilis í Blikaási 1, Hafnarfirði . Af því tilefni tekur hún á móti gestum í Kiwanishúsinu í Kópavogi, Smiðjuvegi 13a, á...
Meira
60 ÁRA afmæli. Á morgun, föstudaginn 18. júní, er sextugur Ólafur Snævar Ögmundsson, yfirvélstjóri og hönnuður Elí-plóga, Öldugranda 9, Reykjavík. Eiginkona hans er Gunnhildur Inga Höskuldsdóttir.
Meira
75 ÁRA afmæli. Á morgun, föstudaginn 18. júní, verður 75 ára Bragi V. Björnsson, fyrrverandi skipstjóri úr Hafnarfirði. Hann tekur á móti gestum að Ásbúð 96, Garðabæ, milli kl. 17 og 20 á...
Meira
80 ÁRA afmæli. Í dag, fimmtudaginn 17. júní, er áttræður Jón Björnsson frá Bólstaðarhlíð í Vestmannaeyjum, Ægisíðu 92. Hann og eiginkona hans, Bryndís Jónsdóttir, verða ásamt fjölskyldu sinni á Þingvöllum í tilefni...
Meira
85 ÁRA afmæli. Á morgun, föstudaginn 18. júní, verður 85 ára Sigurborg Ágústa Þorleifsdóttir, fyrrum garðyrkjubóndi, Björk, Reykholtsdal, Aflagranda 40. Hún er að heiman á...
Meira
Í dag er fimmtudagur 17. júní, 169. dagur ársins 2004, Lýðveldisdagurinn. Orð dagsins: Svo segir Drottinn: Hinn vitri hrósi sér ekki af visku sinni og hinn sterki hrósi sér ekki af styrkleika sínum og hinn auðugi hrósi sér ekki af auði sínum.
Meira
Alvöruleysi Þorvaldar kemur greinilegast fram í glottinu sem birtist í heitinu á sýningu hans, "Ég gerði þetta ekki". Það hefði aldrei hvarflað að Kjarval að hafa svona fyrirvara á verkum sínum.
Meira
EINS og undanfarin ár verður hátíðarguðsþjónusta í Kópavogskirkju á þjóðhátíðardaginn og hefst hún kl. 12.30. Messutíminn er við það miðaður að kirkjugestir geti tekið þátt í skrúðgöngu dagsins.
Meira
Rís þú, unga Íslands merki, upp með þúsund radda brag. Tengdu í oss að einu verki anda, kraft og hjartalag. Rís þú, Íslands stóri, sterki stofn með nýjan frægðardag. Skín, þú, fáni, eynni yfir eins og mjöll í fjallahlíð.
Meira
Víkverji smíðaði nokkuð stóran sólpall fyrir utan stofuna hjá sér fyrir nokkrum árum. Allt gekk það vel fyrir sig þar sem Víkverji á að heita nokkuð vanur smíðum.
Meira
FJÓRTÁN ára bið Detroit Pistons eftir NBA-meistaratitlinum í körfuknattleik lauk í fyrranótt þegar Detroit bar sigurorð af Los Angeles Lakers, 100:87, í fimmta úrslitaleik liðanna um titilinn.
Meira
Fram 0:1 KA Leikskipulag: 3-5-2 Landsbankadeild karla, 6. umferð Laugardalsvöllur Miðvikudaginn 16. júní 2004 Aðstæður: Sól, gola, völlurinn góður.
Meira
SKAGAMENN og FH-ingar gerðu 2:2 jafntefli á Skipaskaga í gær og virðist komin hefð fyrir því að liðin geri jafntefli á Akranesi því síðustu ár hafa leikir liðanna endað þannig, síðustu tvö árin markalaust en að þessu sinni fengu áhorfendur fjögur mörk, líkt og árið 2001. Fyrirliðinn Gunnlaugur Jónsson jafnaði síðara sinnið fyrir ÍA með glæsilegu marki með hjólhestaspyrnu.
Meira
GRIKKLAND og Spánn gerðu jafntefli, 1:1, og Portúgal sigraði Rússland, 2:0, í A-riðli Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu. Grikkland og Spánn eru með fjögur stig í efstu tveimur sætunum en Grikkir eru með betra markahlutfall. Portúgal er með þrjú stig og Rússar eru án stiga og eiga ekki möguleika á að komast í fjórðungsúrslitin. Á sunnudag mætast Grikkland og Rússland og Spánn spilar við Portúgal í lokaleikjum riðilsins.
Meira
OPNA bandaríska meistaramótið í golfi, það 104. í röðinni, hefst á Shinnecock Hills vellinum í New York ríki í dag. Þar munu 156 kylfingar reyna með sér í einu af fjórum stóru mótunum svonefndu. Bandaríkjamaðuirnn Jim Furyk sigraði í fyrra, Tiger Woods þar áður en sagan sýnir að erlendir kylfingar hafa 27 sinnum unnið og aðeins fimm sinnum síðustu 33 árin. Bandaríkjamenn því líklegri til afreka en erlendir gestir þeirra á mótinu.
Meira
* ÍSLANDSMEISTARAR KR í knattspyrnu kvenna drógust í 4. riðil með Ter Leede frá Hollandi , Malmin Palloseura frá Finnlandi og ŽNK Krka Novo Mesto frá Slóveníu í UEFA-bikar kvenna. Riðillinn verður leikinn í Slóveníu 19. -25. júlí. Í 1.
Meira
ÓLAFUR Þórðarson, fyrirliði Skagamanna, var ekki sáttur við jafnteflið. "Nei, ég er ekki sáttur við jafntefli. En engu að síður var þetta hörkuleikur, mjög opinn og að mörgu leyti skemmtilegur.
Meira
"ÞETTA gekk allt eftir, eins og við lögðum leikinn upp. Reyndar áttu Framarar nokkur færi sem við gáfum þeim í fyrri hálfleik, en við fengum besta færið til að skora í hálfleiknum.
Meira
* STEPHANE Henchoz , varnarmaður Sviss , hefur varað liðsmenn sína í landsliðinu við félaga sínum frá Liverpool , Michael Owen . " Owen er frábær leikmaður og hann er fljótur að refsa mótherjum sínum ," sagði Henchoz .
Meira
VARKÁRNI var lykilatriði þegar KR sótti Grindavík heim í gærkvöldi. Varnir beggja liða voru vel vakandi og fátt um færi. Fram að 75. mínútu hafði boltinn einu sinni hitt á markið - þegar hann fór í slá KR og ekkert spjald farið á loft en 15 rangstöður. Þá var spýtt í lófana og meira fjör en það tókst ekki að skora og sitthvort stigið ríkulegt uppgjör. Liðið er því eftir sem áður í 6. og 7. sæti deildarinnar.
Meira
VEIÐAR á karfa í úthafinu hafa gengið afar treglega það sem af er vertíðinni en veiðarnar hófust um miðjan aprílmánuð. Aflinn er nú orðinn tæp 10 þúsund tonn, 15 þúsund tonnum minni en á sama tíma í fyrra.
Meira
ALLS veiddust 918 selir við Ísland árið 2003, þar af 416 landselir og 502 útselir. Heildarveiðin 2002 var 725 dýr. Samkvæmt talningum í ágúst 2003 var stofnstærð landsels metin um 10 þús. dýr, en var 15 þús. dýr árið 1998.
Meira
BRESK stjórnvöld hafa lýst yfir stríði á hendur drukknum sjómönnum. Ný lög kveða á um að breskir atvinnusjómenn verði að ganga jafn hægt um gleðinnar dyr og breskir ökumenn.
Meira
ÞAÐ hefur komið fremur lítið í netin hjá þeim grásleppukörlunum í Breiðafirði á vertíðinni. Þó hefur aðeins glæðst veiðin á allra síðustu dögum. Veiðarnar hófust þann 10. maí sl. og gerði ótíð körlunum lífið leitt framan af.
Meira
Fiskvinnslufyrirtækið Godthaab í Nöf hlaut fyrstu hvatningarverðlaun Nýsköpunarstofu Vestmannaeyja þegar hún var formlega opnuð á dögunum. Valgerður Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhenti verðlaunin.
Meira
SAMKVÆMT niðurstöðum rannsóknar sem nýverið voru birtar í bandaríska tímaritinu Proceedings of the National Academy of Sciences, geta verndarsvæði í hafinu skilað mun betri árangri við verndun fiskistofna en þær aðferðir sem beitt er í dag.
Meira
VENNI GK frá Grindavík er líklega minnsta skip íslenska fiskveiðiflotans sem hefur aðgang að INmobil samskiptakerfinu. Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri, segir kerfið ekki síður gagnlegt smærri skipum en þeim stærri.
Meira
MIKLITÁLMI, Great Barrier Reef við Queensland í Átralíu, er stærsti "sjávargarður" í veröldinni, meira en 2.000 kílómetra langur. Garðurinn er afmarkað hafsvæði sem nær yfir kóralrif, djúpsævi og grunnsævi og ýmsar botngerðir.
Meira
SAMSKIPTI við fiskiskip fara stöðugt batnandi og nú geta sjómenn sent vinum og vandamönnum tölvupóst og fengið upplýsingar af vefnum um borð í skip sín.
Meira
ALLS fóru um 250.000 þorskseiði og rúmlega 130.000 sandhverfuseiði í áframeldi frá tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunar að Stað við Grindavík í fyrra.
Meira
NÝ SIGLINGALÖG taka gildi hér á landi hinn 1. júlí næstkomandi en lögin byggja á fyrirmælum frá Alþjóðasiglingastofnuninni IMO. Hér er á ferðinni mikilvægt mál fyrir útflytjendur, þar sem breytingar þessar hafa mikil áhrif á útflutningsferlið.
Meira
Á vordögum gaf Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands út nýtt rit, Hættumörk, en deildin hefur á undanförnum mánuðum verið ötul við útgáfur.
Meira
Flestir hafa einhvern tímann gengið í fyrirtækjamerktum stuttermabol, með merkta derhúfu á höfðinu, merkta lyklakippu í vasanum eða skrifað undir þátttökuseðil í fyrirtækjaleik með merktum kúlupenna. Töluverður uppgangur hefur verið á auglýsingavörumarkaðnum undanfarið. Bjarni Ólafsson skoðar stöðu markaðarins og þróun.
Meira
Fyrirlestur um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn Varaframkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Anne O. Krueger mun halda fyrirlestur í Seðlabankanum klukkan 15.00 fimmtudaginn 24. júní næstkomandi.
Meira
BAKKAVÖR Group hefur aukið hlut sinn í breska matvælaframleiðandanum Geest um 3,11% og á nú 19,26% í fyrirtækinu, eða tæplega 14,4 milljón hluti.
Meira
Birna Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri markaðs- og sölumála Íslandsbanka. Hún hefur undanfarin sex ár starfað að markaðsmálum hjá Royal Bank of Scotland. Birna var markaðsstjóri Íslandsbanka á árunum 1994-1997.
Meira
Creditinfo Group hf . hefur keypt Fjölmiðlavaktina ehf. af IMG hf. FMV með öllu starfsfólki flyst í höfuðstöðvar Creditinfo í Brautarholti. "Við teljum að starfsemi Fjölmiðlavaktarinnar og dótturfélags okkar á Íslandi, Lánstrausts hf.
Meira
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið SimDex samdi á árinu við olíufélagið Hydro Texaco um nýja þjónustu á sviði sölu og dreifingar forgreiddrar símaþjónustu allra helstu farsímafélaga í Danmörku s.s. Sonofon, Orange, Tele Denmark, Telia o.fl.
Meira
EIMSKIPAFÉLAG Íslands ehf. hefur stofnað sjálfstætt fyrirtæki, Eimskip Reefer Logistics BV, sem mun annast flutningsmiðlun á frystum og kældum sjávarafurðum um heim allan. Fyrirtækið mun hafa aðalstöðvar í Hollandi.
Meira
EYRIR fjárfestingarfélag, sem er að stærstum hluta í eigu feðganna Þórðar Magnússonar og Árna Odds Þórðarsonar, hefur aukið við hlut sinn í Össuri og Marel á síðustu dögum. Eyrir á nú um 6% hlutafjár í Össuri og rúmlega 9% hlutafjár í Marel.
Meira
KÍNVERSKA fyrirtækið Global Bio-Chem Technology Group Company Limited (GBTL) áætlar að verja um 2,17 milljörðum kínverskra yuan, sem svarar til um 19 milljarða íslenskra króna, til framleiðslu á polyol úr sykri í stað olíu á næstu þremur árum.
Meira
Þórunn Guðmundsdóttir hæstaréttarlögmaður tók sæti í stjórn Burðaráss hf. á aðalfundi félagsins fyrr á þessu ári. Grétar Júníus Guðmundsson bregður upp svipmynd af Þórunni.
Meira
Unnið hefur verið að stofnun verksmiðju Límtrés í Rúmeníu frá árinu 1995. Guðmundur Ósvaldsson, framkvæmdastjóri Límtrés hf., sagði Grétari Júníusi Guðmundssyni að verksmiðja fyrirtækisins á Flúðum myndi styrkjast með tilkomu nýju verksmiðjunnar.
Meira
Landsbanki Íslands hefur samið við Nýherja um kaup á margmiðlunarlausn sem gerir bankanum kleift að miðla upplýsingum til viðskiptavina á stórum kristalsskjám, svokölluðum LCD-skjám, í um 20 útibúum bankans með betri hætti en áður. Lausnin byggist m.a.
Meira
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR þýddi umfjöllun matsfyrirtækisins Standard & Poor's um skuldaraáhættu sem hættu á einkavæðingu í tilkynningu sem sjóðurinn sendi til Kauphallar Íslands síðastliðinn mánudag.
Meira
Vátryggingafélag Íslands (VÍS) og Reykjavíkurborg hafa undirritað samning um vátryggingar fyrir stofnanir og fyrirtæki Reykjavíkurborgar , Orkuveitu Reykjavíkur, Félagsbústaði hf., Vélamiðstöð ehf.
Meira
FLEIRI bankar en Íslandsbanki tengjast listastefnunni Art Basel í Sviss. Svissneski bankinn UBS, sem er með höfuðstöðvar í Basel og Zürich, er aðalstyrktaraðili Art Basel. UBS er eitt stærsta fjármálafyrirtæki í heimi og sinnir m.a.
Meira
FJÓRAR matvöruverslanakeðjur eru komnar með þrjá fjórðu hluta matvörumarkaðar í Bretlandi í kjölfar hagræðingar í geiranum og sums staðar í landinu má kalla að einokunarástand ríki, að því er segir í úttekt The Guardian .
Meira
Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, var viðstaddur opnun sýningar i8 gallerís á verkum Gjörningaklúbbsins á Art Statements í Basel í Sviss fyrr í vikunni en menningarsjóður Íslandsbanka og Sjóvár kostar verkefnið.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.