ÁVÖXTUN hjá Lífeyrissjóði Vestfirðinga var góð fyrstu sex mánuði ársins og samsvaraði 17,3% raunávöxtun á ársgrundvelli. Hrein eign sjóðsins til greiðslu lífeyris hækkaði um 1.
Meira
FJÖLGUN í árgöngum, sem lokið hafa grunnskólanámi síðustu misserin, er farin að hafa áhrif á aðsókn í framhaldsskólana. Samkvæmt upplýsingum úr menntamálaráðuneytinu hafa 4.566 nýnemar skráð sig í framhaldsskóla.
Meira
BANDARÍSKIR hermenn gerðu árás á heimili herskáa sjíta-klerksins Moqtada al-Sadr í Írak í gær sem reyndist yfirgefið. Sögðu bandarískir embættismenn engar áætlanir hafa verið uppi undanfarna daga um að handtaka klerkinn.
Meira
Danskir dagar verða haldnir í Stykkishólmi um helgina og er von á fjölda gesta. Hátíðin er nú haldin í tólfta sinn og hafa vinsældir hennar farið sívaxandi.
Meira
HELGA Árnadóttir tölvunarfræðingur býður sig fram til formennsku í Heimdalli á morgun. Innt eftir því hvers vegna hún bjóði sig fram, segir hún: "Ég vil gera gott félag betra.
Meira
FORMLEGT tilboð til kaupa á Prentsmiðjunni Odda, Gutenberg og tengdum félögum var lagt fyrir hluthafafund fyrirtækisins fyrr í sumar og var því hafnað af hluthöfum.
Meira
VALNEFND í Setbergsprestakalli í Snæfells- og Dalaprófastsdæmi leggur til að séra Elínborg Sturludóttir verði skipuð sóknarprestur í prestakallinu frá og með 1. september nk. til næstu fimm ára.
Meira
Golfkempan (Tin Cup) er rómantísk gamanmynd frá 1996. Roy McAvoy er misheppnaður golfari sem býr í hjólhýsi við þriðja flokks golfæfingavöll í Texas.
Meira
DAVID Blunkett, innanríkisráðherra Breta, segist ætla að setja lög sem komi í veg fyrir að dæmdir glæpamenn geti auðgast ótæpilega á meðan þeir eru að afplána fangelsisdóma.
Meira
LÖGREGLAN í Hafnarfirði biður þann sem hugsanlega ók Ólöfu A. Breiðfjörð Guðjónsdóttur frá Þrastalundi að Gullfossi að kvöldi föstudagsins 6. ágúst um að hafa samband við lögreglu í síma 525 3300.
Meira
FJÖLDI innritaðra nemenda í grunnskólum Reykjavíkur að þessu sinni er áætlaður 15.643, samkvæmt upplýsingum frá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Það er eilítil fjölgun frá síðasta skólaári en í október sl. voru 15.551 grunnskólanemi í borginni.
Meira
Þjóðarfjallið Herðubreið laðar, lokkar og seiðir stöðugt til sín þá sem útiveru unna. Á sunnudaginn gekk sextán manna hópur á fjallið í frábæru veðri. Gestabókin á fjallinu segir m.
Meira
Gíslaskáli í Svartárbotnum | Skáli í minningu Gísla Einarssonar, fyrrverandi oddvita Biskupstungnahrepps, verður tekinn formlega í notkun á laugardaginn klukkan 14 við mikla athöfn inni í Svartárbotnum.
Meira
28. Ólympíuleikarnir verða settir í Aþenu í Grikklandi í kvöld með tilkomumikilli opnunarhátíð ef að líkum lætur. Sigurður Elvar Þórólfsson rekur hér sögu þessa mesta íþróttaviðburðar heimsins sem á rætur sínar að rekja til hinnar fornu Ólympíu, helgistaðar Grikkja til forna, á 8. öld fyrir Krist og var endurvakinn seint á 19. öld, einmitt í Aþenu.
Meira
Í byrjun september verður engum heimilt að fara um Reykjavíkurflugvöll nema hafa aðgangskort, fjarstýringu að hliðum eða lykla. Flugmálastjórn Íslands hefur unnið að innleiðingu aðgangsstjórnunarkerfis í áföngum allt þetta ár.
Meira
TOYOTA Prius var ekið á einum bensíntanki hringinn í kringum landið í gær og fyrradag. Bensíntankurinn er 45 lítrar og voru eknir 1.279 km sem þýðir 4,0 lítra eyðslu að sögn Björns Víglundssonar, markaðsstjóra Toyota-umboðsins, P. Samúelssonar.
Meira
Jólatákn Jólagarðsins | Jólagarðurinn í Eyjafjarðarsveit hefur látið útbúa jólatáknið 2004, en þetta er í níunda sinn sem Jólagarðurinn leitar til hagleiksfólks um gerð hlutar er kallast getur jólatáknið og gert er í 110 tölusettum eintökum.
Meira
SJÓMAÐURINN sem bjargaðist þegar eldur gaus upp í bát hans vestur af Garðskaga í fyrradag var aðeins kominn í skálmarnar á flotgalla sínum þegar hann neyddist til að stökkva í sjóinn. Um klukkustund síðar var honum bjargað.
Meira
Hafnarfjörður | Nokkrir áhugamenn um krikket hittust á Víðistaðatúni í Hafnarfirði í fyrrakvöld og skiptu í lið sér til skemmtunar. Spilararnir eru afar einbeittir við leikinn.
Meira
Reykjavík | Borgarráð hefur falið kjaraþróunarsviði, samkvæmt tillögu borgarráðsfulltrúa sjálfstæðismanna, að kanna áhuga Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Eflingar og annarra viðsemjenda Reykjavíkurborgar, á því að flytja til staka frídaga...
Meira
LÆKNAR á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Darfur-héraði í Suður-Súdan óttast útbreiðslu lifrarbólgu E á svæðinu og að faraldur sé á næsta leiti, að því er greint var frá í frétt á vef breska ríkisútvarpsins BBC í gær .
Meira
JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað Magnús Skúlason deildarstjóra framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands frá 1. september, en þá verður að veruleika sameining heilbrigðisstofnana á Suðurlandi.
Meira
LÍNUBÁTURINN Hrungnir mokfiskar þessa dagana, enda leggja skipverjar 60 km langa línu með 45.500 krókum. Frá verzlunarmannahelgi er aflinn 175 tonn. Hrungnir er búinn línubeitningavél, sem beitir línuna um leið og hún er lögð.
Meira
BRESK ungmenni sem eru á námskeiði í því að komast af í óbyggðum þáðu ekki aðstoð frá ökumanni jeppa sem ók fram á hópinn skammt frá Hrafntinnuskeri í gær þó að einn þeirra væri meiddur á fæti.
Meira
SKÓLASTJÓRAR grunnskólanna í Reykjavík hittust í gær á árlegum samráðsfundi við byrjun skólaárs. Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslustjóri Reykjavíkur, flutti erindi á fundinum ásamt Stefáni Jóni Hafstein, formanni fræðsluráðs. Gerður segist m.a.
Meira
Húsavík | Kristján Þór Magnússon er einn þeirra ungu Húsvíkinga sem útskrifast hafa sem stúdentar frá Framhaldsskólanum á Húsavík og síðar lokið háskólanámi. Hann hélt vestur um haf, til Maine í Bandaríkjunum, og lauk þar B.S.
Meira
VATNAVEXTIRNIR í Jökulsá á Dal, Jöklu, eru í rénun og talið að þeir hafi náð hámarki í fyrrinótt þegar rennslið mældist 830 rúmmetrar á sekúndu og vatnsborðið náði um 478,5 metrum yfir sjávarmáli.
Meira
JOSÉ Manuel Durão Barroso, fyrrum forsætisráðherra Portúgals, tilkynnti í gær skipan nýrrar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins en hann verður sjálfur í forsæti. Margot Wallström frá Svíþjóð verður fyrsti varaforseti og staðgengill Barrosos.
Meira
Nýir knattspyrnuvellir | Starfsmenn Jarðkrafts eru þessa dagana að leggja lokahönd á framkvæmdir við nýja knattspyrnuvelli við Ásgarð í Garðabæ og er áætlað að taka svæðið í notkun í næstu viku.
Meira
Major-General Trond Furuhovde, sem stýrir norrænni friðareftirlitssveit á Sri Lanka, er staddur hér á landi til að upplýsa stjórnvöld um friðarferlið og starfið. Síðar í mánuðinum verða tvö ár frá því vopnahléssamningur var undirritaður. Hann sagði Nínu Björk Jónsdóttur að þótt enn ríkti stríðsástand í landinu væri ekki lengur barist og það væri stórt skref.
Meira
NOKKRIR stórlaxar hafa verið að veiðast í sumar, einn og einn í Vatnsdalsá, einn og einn í Laxá í Aðaldal og frægur lax veiddist og var sleppt í Norðurá svo eitthvað sé nefnt.
Meira
GERHARD Schröder, kanslari Þýskalands, heilsar íbúum þorpsins Ceanu Mare í Rúmeníu í gær en Ceanu Mare er um 450 km norðvestur af höfuðborginni Búkarest.
Meira
DONALD Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að kjarnorkuáætlun Írana væri mikið áhyggjuefni fyrir heimsbyggðina sem stæði frammi fyrir þeirri hættu að hryðjuverkasamtök gætu orðið sér úti um gereyðingarvopn.
Meira
BÆJARRÁÐ Kópavogs gagnrýndi á fundi sínum í gær ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur á þriðjudag að hafna ósk Kópavogsbæjar um að leggja vatnsleiðslu frá Vatnsendakrikum á Heiðmerkursvæðinu um land Reykjavíkur til Kópavogs.
Meira
Reykjanes | Ben Bradshaw, sjávarútvegsráðherra Bretlands, lauk tveggja daga Íslandsdvöl sinni með viðkomu í Reykjanesbæ í gær og heimsótti meðal annars fiskvinnslu og bátasafn í bænum.
Meira
UM þrjátíu skjálftar mældust við Grímsey í gær og í fyrradag, að sögn Sigurlaugar Hjaltadóttur, jarðeðlisfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Flestir þeirra urðu þó í gær. Stærsti skjálftinn varð um kl. 14.17 og reyndist hann vera um 2,9 stig á Richter.
Meira
TVEGGJA daga fundi fulltrúa frá heilbrigðis-, félagsmála- og dómsmálaráðuneytum Norðurlandanna lauk á Ísafirði á miðvikudag. Þetta var árlegur fundur ráðherra og fulltrúa í nefnd þar sem barátta landanna gegn fíkniefnaneyslu er samræmd.
Meira
UNNIÐ var hörðum höndum við að steypa botn Kárahnjúkastíflunnar, á milli þverhníptra hamranna sem mynda Hafrahvammagljúfur, í gærkvöld þegar þessi mynd var tekin.
Meira
SUMARHÁTÍÐIN Lykill að betri framtíð verður á Ingólfstorgi kl. 15-18 í dag. Hátíðin er haldin á vegum 13. hópsins en hann skipa geðfatlaðir, sem hafa ákveðið að koma úr felum með fötlun sína og velunnarar þeirra.
Meira
BRESKA stjórnin kynnti í gær tillögur um að stórauka vald lögreglunnar til að handtaka fólk og virðist staðráðin í að efna kosningaloforð Tonys Blairs forsætisráðherra um að "taka hart á glæpum og orsökum glæpa".
Meira
LÖGREGLAN á Seyðisfirði handtók í gær tvo farþega sem komu til landsins með Norrænu. Annar framvísaði fölsuðu frönsku vegabréfi og var hann umsvifalaust sendur til baka með ferjunni. Ekki var ljóst hvert raunverulegt þjóðerni hans var.
Meira
Var líka í ÍR Í frétt um kveðjugjöf til Valbjörns Þorlákssonar frjálsíþróttamanns láðist að geta þess að hann var um árabil í ÍR auk hinna félaganna sem nefnd voru. Beðist er velvirðingar á þessu...
Meira
Ritstjórar bandaríska stórblaðsins Washington Post viðurkenna nú, að í aðdraganda Íraksinnrásarinnar hafi þeir gert of lítið úr fréttum, sem drógu í efa yfirlýsingar George W.
Meira
Hornafjörður | Eigendur Þjónustumiðstöðvarinnar SKG á Hornafirði hafa óskað eftir því við bæjarráð að settar verði reglur um hvar megi tjalda og leggja húsbílum innan bæjarins.
Meira
FÓLKSBÍLL valt út af og hafnaði á hvolfi ofan í læk eftir árekstur við jeppa á veginum að Kvíabryggju á Snæfellsnesi um kaffileytið í gær. Að sögn lögreglunnar í Stykkishólmi voru báðir bílarnir á lítilli ferð þegar þeir rákust saman.
Meira
REIÐHJÓLIÐ kastaðist marga metra, dæld kom í vélarhlífina og hola myndaðist í framrúðuna undan reiðhjólahjálminum þegar Gunnar Bjarki Jóhannsson, níu ára, varð fyrir bíl við Heiðarsel í Reykjavík á miðvikudagskvöld.
Meira
BORIST hefur eftirfarandi yfirlýsing frá Bæring Guðvarðssyni: "Ég vil koma því á framfæri að forsíðufrétt DV þann 10.8.04, um að ég sé mótfallinn því að börn Svanhildar Bjarnadóttur fái bætur frá Tryggingamiðstöðinni, er tilhæfulaus með öllu.
Meira
BRESKA sendiráðið og KB banki styrktu í gær þrjá námsmenn til náms í Bretlandi í vetur. Það eru þau Nína Björk Jónsdóttir, Sigurður Hannesson og Ólöf Jónsdóttir. Nemur styrkurinn, sem skiptist milli þeirra þriggja, samtals 2,6 milljónum króna.
Meira
Sumarólympíuleikarnir sem nú eru að hefjast eru jafnan mestur viðburður í íþróttaheiminum hverju sinni. Margt kemur til, saga þeirra, umgjörðin og afrekin sem unnin eru á hinum ýmsu leikvöngum.
Meira
Ummæli Ben Bradshaws, sjávarútvegsráðherra Breta sem hingað kom til viðræðna við Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra, á blaðamannafundi í fyrradag, voru oftúlkuð í forystugrein Morgunblaðsins í gær og byggðist sú oftúlkun á frétt á fréttavef blaðsins.
Meira
SÖNGSKEMMTUNIN Harlem Sophisticate verður frumsýnd í kvöld í Loftkastalanum. Flutt verður blanda af svartri djass-, rokk- og soul-tónlist en hún er sótt í smiðju Duke Ellington, Cy Coleman, Leiber & Stoller og fleiri.
Meira
Teiknimyndin Gauragangur í sveitinni ( Home on the Range ) verður frumsýnd í dag. Þegar stendur til að hætta starfsemi mjólkurbúsins Skiki himnaríkis fara þrjár kýr á stúfana til að reyna að bjarga heimili sínu.
Meira
BJÖRK Guðmundsdóttir mun flytja lag sitt, "Oceania" á setningarathöfn Ólympíuleikanna í Aþenu. Útsending frá viðburðinum hefst klukkan 17.45 í Ríkissjónvarpinu.
Meira
ÚTLIT er fyrir að leikskáldinu Marie Jones, sem skrifaði Með fulla vasa af grjóti sem naut gríðarlegra vinsælda hérlendis, hafi tekist að semja nýjan smell.
Meira
Söngkonurnar Mary J Blige , Missy Elliott og Eve hafa tekið upp lag þar sem bandarískir kjósendur eru hvattir til þess að greiða George W. Bush , forseta ekki atkvæði sitt í komandi forsetakosningum.
Meira
Danski djasspíanistinn og rithöfundurinn Arne Forchhammer er staddur hér á landi og heldur tónleika á Hótel Borg í kvöld á vegum Jazzvakningar ásamt Birni Thoroddsen, Jóni Rafnssyni og Óskari Guðjónssyni.
Meira
Hveragerðisbær efnir til ljóða- og söngdagskrár á morgun laugardag, í Hveragerðiskirkju kl. 14 í tilefni af því að út er komin bókin Hveragerðisskáldin 1933-1974. Ritstjóri er Pétur Hafstein Lárusson.
Meira
HÓPUR bókasafnsfræðinga og ritstjóra bókagagnrýni hefur tekið saman lista yfir þær bækur, sem oftast eru endurlesnar í Bandaríkjunum, að beiðni fréttastofunnar AP .
Meira
Það eru eflaust margir sem bíða þess með óþreyju að Ólympíuleikarnir í Aþenu hefjist enda heil fjögur ár síðan sumarólympíuleikar áttu sér stað síðast.
Meira
Vefsíðan ljóð.is og Edda-útgáfa efna til svokallaðrar stórsóknar í ljóðabransanum á Menningarnótt. Í anda hins alræmda og ameríska Idols verður haldin stórkeppnin Skáldat 2004 í Tjarnarbíói á Menningarnótt, 21. ágúst stundvíslega kl. 20.
Meira
50 Cent og G Unit í Laugardalshöll, 11. ágúst, 2004. Einnig komu fram Huxun, O.N.E. og Robbi, Geno Sydal, XXX Rottweiler, Hæsta höndin og Quarashi.
Meira
Nú er í bígerð önnur þáttaröðin í Idol - Stjörnuleitinni sem sló í gegn svo um munaði á Stöð 2 síðastliðinn vetur, er meira að segja vinsælasta sjónvarpsefnið sem Stöð 2 hefur sýnt frá upphafi.
Meira
Birgir Örn Brynjólfsson, Tómas Hafliðason og Sesselja Dagbjört Gunnarsdóttir skrifa um stjórnmál: "Framboð Bolla Thoroddsen vill virkja ungt fólk til þátttöku í málefnum Reykjavíkur, ná til ungs fólks í skólum og atvinnulífi."
Meira
Magni Hjálmarsson skrifar um uppbyggingarstefnu: "Uppbyggingaraðferðin er einum þræði samtalsmeðferð við að hjálpa þeim sem gerir rangt að leiðrétta mistökin."
Meira
Margur heldur mig sig ÞETTA er ljótan að ætla dönsku kongungsfjölskyldunni slíka lágkúru að hún sé að hefna sín á íslensku þjóðinni fyrir það eitt að Ólafur Ragnar forseti gat ekki verið viðstaddur brúðkaup Mary Elisabeth og Fredriks.
Meira
Agnar Tómas Möller, Sóley Kaldal og Steingrímur Arnar Finnsson skrifa um stjórnmál: "Við hljótum fyrst og fremst að líta til framtíðar og fjalla um áherslur okkar og þau verkefni sem við viljum hrinda í framkvæmd."
Meira
Björgvin Laugdal Árnason fæddist í Reykjavík 12. júní 1937. Hann lézt á Landspítalanum v/Hringbraut 1. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Helgadóttir húsmóðir, f. 14.7. 1917, d. 21.3. 1994, og Árni Stefánsson bifreiðastjóri, f. 18.6.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Sigurjónsdóttir fæddist í Brekku í Þingi í Austur-Húnavatnssýslu 3. júní 1937. Hún lést á heimili sínu að morgni 5. ágúst síðastliðins. Foreldrar hennar voru Eva Karlsdóttir, síðar gift Þóri Magnússyni, og Sigurjón Jónasson.
MeiraKaupa minningabók
Ingimar Þórðarson fæddist á Ysta-Gili í Langadal í Húnavatnssýslu 14. september 1923. Hann lést á Dvalarheimilinu Garðvangi 9. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Þórður Jósefsson og Kristín Gróa Þorfinnsdóttir.
MeiraKaupa minningabók
Ingólfur Guðmundsson fæddist í Reykjavík 28. júlí 1927. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 5. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Júlíusson bryti, sem fórst með togaranum Sviða 1941 og Guðrún Guðjónsdóttir húsmóðir sem lést 1958.
MeiraKaupa minningabók
Meðan einn bognar brotnar annar við blakka rót. Þau brotna þvert þroskamestu blómin og falla þyngst til jarðar. Þau sem eftir standa geyma stolta fegurð þess fallna. (Guðrún Guðlaugsdóttir.) Guð geymi ástkæra tengdamóður mína. Lilja B. Jónsdóttir.
MeiraKaupa minningabók
María Haukdal fæddist 9. mars 1941. Hún lést í Landspítalanum 7. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Sigríður Ósk Theódórsdóttir, f. í Reykjavík 2.10. 1922, d. 27.1. 1965, og Ólafur Guðmundsson, f. 17.8. 1916.
MeiraKaupa minningabók
Sigurjóna Friðjónsdóttir fæddist í Langhúsum í Fljótum 6. nóvember 1917. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 5. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Sigurjónu voru Ólína Margrét Jónsdóttir, f. 1891, d. 1967, og Friðjón Vigfússon, f. 1892, d. 1981.
MeiraKaupa minningabók
Stefán Stefánsson fæddist á Brenniborg í Lýtingsstaðahreppi 14. október 1908. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 1. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Margrét Sigurðardóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Svavar Karlsson fæddist á Bæ á Selsströnd í Strandasýslu 30. mars 1935. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 4. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Karl Guðmundsson, f. 11. september 1911, d. 5. nóvember 2001 og Sigrún Vigdís Áskelsdóttir, f. 10.
MeiraKaupa minningabók
Þórir Guðmundsson fæddist í Ámundakoti í Fljótshlíð 1. október 1936. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 22. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð 5. ágúst. Djassvakning efnir til minningartónleika um Þóri í kvöld á Hótel Borg.
MeiraKaupa minningabók
LÍNUSKIPIÐ Hrungnir GK í eigu Vísis er komið á veiðar eftir sumarstopp. Það er að mokfiska og hefur landað þrisvar sinnum á einni viku á Húsavík eftir veiðar úti fyrir Norðurlandi.
Meira
SENDIHERRA Íslands í Noregi afhenti norskum stjórnvöldum í gær orðsendingu þar sem ítrekuð voru mótmæli íslenskra stjórnvalda við setningu reglugerðar frá 11.
Meira
SAMKVÆMT tilkynningu Medcare Flögu til Kauphallar Íslands segir að afkoma fyrirtækisins sé í samræmi við væntingar stjórnenda, en þar sem engin af greiningardeildum bankanna birti afkomuspá fyrir fyrirtækið er erfitt að meta hvort afkoman er betri eða...
Meira
VIÐSKIPTI voru með rólegasta móti framan af degi í Kauphöllinni í gær en þegar leið á daginn rættist úr . Af einstökum félögum hækkaði Samherji mest, um 8,1% í um 130 milljóna króna viðskiptum.
Meira
ÍSLANDSBANKI hefur ákveðið að gera hluthöfum norska bankans Kredittbanken AS tilboð í hlutabréf hans, að því er segir í tilkynningu frá Íslandsbanka.
Meira
HAGNAÐUR Jarðborana á fyrri helmingi þessa árs nam 178 milljónum króna eftir skatta en var 75 milljónir á sama tímabili í fyrra. Hagnaður fyrir fjármagnsliði, nam 320 milljónum en var 87 milljónir í fyrra.
Meira
KALDBAKUR hefur keypt ríflega 26% eignarhlut í fjárfestingarsjóðnum BG Capital og mun greiða fyrir um 650 milljónir króna. Baugur er stærsti hluthafi BG Capital og Kaldbakur er næstur, en enginn á meirihluta.
Meira
VÍSITALA neysluverðs í ágúst 2004 er óbreytt frá fyrra mánuði, samkvæmt frétt Hagstofunnar. Vísitalan án húsnæðis lækkaði hins vegar um 0,18% milli mánaða. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,7% en án húsnæðis um 2,9%.
Meira
TAP Á rekstri Medcare Flögu hf. á fyrri helmingi ársins nam rúmum 1,5 milljónum bandaríkjadala, eða tæpum 110 milljónum íslenskra króna á núverandi gengi. Tap fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam 1,3 milljónum dala.
Meira
Það verður líf og fjör í Laugardalnum á morgun þar sem íbúar í aðliggjandi hverfum ætla í fyrsta sinn að halda útimarkað. Marta Sævarsdóttir er í undirbúningshópnum.
Meira
RJÓMABLÍÐA undanfarinna daga hefur sett svip á mannlífið. Allir sem nokkur tök hafa átt á fríi og útiveru hafa nýtt dagana vel og jafnvel dæmi um að fyrirtæki hafi gefið starfsfólki sínu frí.
Meira
50 ÁRA afmæli. Huldís Ásgeirsdóttir er fimmtug mánudaginn 16. ágúst. Af því tilefni býður hún og eiginmaður hennar, Geir Þórðarson, ættingjum og vinum að fagna þessum tímamótum með sér á heimili þeirra að Fagrahjalla 40 laugardaginn 14. ágúst frá kl....
Meira
60 ÁRA afmæli . Í dag, föstudaginn 13. ágúst, er sextugur Sigurjón Bergsson rafeindavirki, Stekkholti 5, Selfossi. Mannsi og Palla verða að heiman í...
Meira
80 ÁRA afmæli . Í dag, 13. ágúst, verður áttræð Guðríður Lilja Guðmundsdóttir . Þann dag tekur hún á móti gestum frá kl. 20 í Kiwanishúsinu, Smiðjuvegi 13,...
Meira
Lára Vilbergsdóttir fæddist árið 1963 á Egilsstöðum og ólst þar upp. Hún útskrifaðist frá Menntaskólanum á Egilsstöðum 1983 en hélt eftir það til náms við Skals håndarbejdsskole og Semenarium í Skals á Jótlandi. Lára kennir textílhönnun í Menntaskólanum á Egilsstöðum auk þess að reka handverkshúsið Hús handanna á Egilsstöðum. Þar eru framleiddir hlutir úr hreindýraleðri, pappír og pappírskvoðu. Lára er framkvæmdastjóri Ormsteitis 2004. Hún er gift Valgeiri Skúlasyni og eiga þau tvær dætur.
Meira
Tónlist | Hér má sjá þá félaga Agnar Má Magnússon, Thommy Andersson og Benjamin Koppel bregða á leik en myndin er tekin fyrir utan heimili Agnars. Þar hafa þeir verið við æfingar fyrir komandi tónleikaröð sína, sem lýkur nú á laugardaginn.
Meira
Víkverji las í Morgunblaðinu í síðustu viku að vel gengi hjá Jarðböðunum í Mývatnssveit og þar hefðu um 15.000 manns baðað sig frá því böðin voru opnuð fyrir rúmum mánuði.
Meira
ÓLYMPÍULEIKARNIR í Aþenu í Grikklandi eru þeir 28. í röðinni en fyrstu nútíma Ólympíuleikarnir fóru fram í Aþenu í apríl 1896. Íslendingar tóku fyrst þátt í Ólympíuleikunum í London 1908.
Meira
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson er mættur á enn eitt stórmótið. Hann tekur nú þátt í sínum þriðju Ólympíuleikum og Ólympíumótið er 13. stórkeppnin sem Guðmundur tekur þátt í fyrir Íslands hönd.
Meira
ÍSLENSKA handknattleiksdómaraparið á Ólympíuleikunum, Gunnar Viðarsson og Stefán Arnaldsson, mun dæma sinn fyrsta leik á Ólympíuleikum, en þar hafa þeir aldrei dæmt áður, á morgun en þá hefst handknattleikskeppni leikanna.
Meira
HAFSTEINN Ægir Geirsson, 24 ára Reykvíkingur, tekur þátt í siglingakeppni Ólympíuleikanna í Aþenu, nánar tiltekið keppir hann á Laserbát. Þetta er í annað sinn sem Hafsteinn tekur þátt í Ólympíuleikum en hann var með í Sydney fyrir fjórum árum, þá sem viðbótarkeppandi frá smáþjóð. Að þessu sinni vann hann sér hins vegar þátttökurétt með frammistöðu sinni á mótum og slapp inn þegar ákveðið var að fjölga keppendum í Laserflokki fyrr í sumar.
Meira
HEIMILT verður að vera með 14 leikmenn á skýrslu í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna sem þýðir að einn leikmaður þarf að sitja í áhorfendastúkunni í hverjum leik.
Meira
* FYRSTA heimsmetið á Ólympíuleikunum í Aþenu féll í gær þótt leikarnir verði ekki settir formlega fyrr en í kvöld. Það var suður-kóreska konan Park Sung-hyun sem setti metið þegar hún fékk 682 stig í undankeppni kvenna fyrir bogfimikeppni leikanna.
Meira
RÚNAR Alexandersson fimleikamaður úr Gerplu sýnir listir sínar í fimleikahöllinni glæsilegu í Aþenu á laugardaginn en þá hefst forkeppni í fjölþraut og á einstökum áhöldum.
Meira
JAMES O'Callaghan frá Írlandi, þjálfari siglingamannsins Hafsteins Geirs Ægissonar, fékk í gær leyft til að fara inn á svæði siglingamanna á Ólympíusvæðinu og verður hann Hafsteini Geir til halds og traust út keppnina á ÓL.
Meira
"VIÐ ætlum að hafa heljarmikla fjölskylduhátíð í Laugardalnum, hátíð sem enginn má missa af," segir Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambands Íslands, um miðvikudaginn 18.
Meira
* HEIMIR Karlsson, þjálfari 1. deildarliðs ÍR, og stjórn meistaraflokksráðs ÍR hafa gert starfslokasamning. Heimir er hættur að þjálfa ÍR-liðið og við starfi hans tekur Magnús Þ. Jónsson, sem var aðstoðarmaður hans, og Magnús Einarsson, þjálfari 2.
Meira
BANDARÍSKA hlaupakonan Torri Edwards, heimsmeistari í 100 metra hlaupi, var í fyrrakvöld sett í tveggja ára keppnisbann fyrir lyfjanotkun og fær ekki að taka þátt í Ólympíuleikunum.
Meira
CRAIG Brewster, annar markaskorari Dunfermline, sagði við Morgunblaðið að heppnin hefði verið á bandi Dunfermline gegn FH og að Skotarnir þyrftu að leika miklu betur í síðari leiknum ef þeir ætluðu sér að komast áfram í næstu umferð.
Meira
VEÐRIÐ í Aþenu veldur mörgum áhyggjum en meðalhitinn í ágústmánuði er 32 gráður. Sé miðað við veðrið sem var í Atlanta árið 1996 og Barcelona 1992 er ástandið í Grikklandi þó ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera.
Meira
TÓLF lið taka þátt í handknattleikskeppni Ólympíuleika og eru þau í tveimur riðlum. Í A-riðli leika: Ísland, Króatía, Rússland, Spánn, Slóvenía og Kórea. Í B-riðli leika: Ungverjaland, Egyptaland, Grikkland, Þýskaland, Frakkland og Brasilía.
Meira
KOLBRÚN Ýr Kristjánsdóttir verður fyrsti Íslendingurinn sem tekur þátt í keppni á Ólympíuleikunum í Aþenu - er hún keppir í 100 m flugsundi í fyrramálið kl. 7.31 að íslenskum tíma. Síðan keppir Jakob Jóhann Sveinsson í 100 m bringusundi kl. 9.15.
Meira
ÁSGEIR Sigurvinsson og Logi Ólafsson, landsliðsþjálfarar í knattspyrnu, völdu í gær þá tuttugu leikmenn sem taka munu þátt í vináttuleiknum gegn Ítalíu á miðvikudaginn kemur á Laugardalsvellinum.
Meira
ÓVÆNT úrslit urðu í knattspyrnukeppninni á Ólympíuleikunum í gær. Sænska kvennalandsliðið varð til dæmis að játa sig sigrað, 1:0, gegn Japan sem skoraði markið á 25. mínútu.
Meira
ÞEGAR Ólympíuleikarnir 2004 verða settir í Aþenu í kvöld eru Grikkir í tvöföldu hlutverki. Sem upphafsþjóð Ólympíuleika gengur þeirra keppnislið ávallt fyrst inn á leikvanginn, en jafnframt er hefðin sú að gestgjafarnir ganga inn síðastir. Grikkir verða því bæði fyrstir og síðastir að þessu sinni, ganga inn fyrstir og síðan þegar fulltrúar hinna 200 þjóðanna sem taka þátt í leikunum hafa marserað inn á leikvanginn kemur seinni hluti gríska keppnisliðsins.
Meira
BARCELONA hefur keypt Samuel Eto´o frá Real Madrid og Real Mallorca en hvort lið átti helmingshlut í leikmanninum. Eto´o sem spilað hefur fyrir Mallorca var kosinn knattspyrnumaður Afríku í fyrra en hann er 23 ára framherji frá Kamerún.
Meira
ÞAÐ fóru hvorki meira né minna en sex tímar í æfingaleik íslenska handknattleikslandsliðsins gegn Frökkum í gær og þótti leikmönnum og aðstandendum liðsins nóg um.
Meira
ÍSLENSKI sundhópurinn lenti í seinkun á leið sinni á æfingu í gærmorgun. Langferðabifreiðin sem Íslendingarnir voru í var skyndilega stöðvuð af lögreglu á miðri leið og var bifreiðin rýmd farþegum og farangri þeirra vegna sprengjuleitar.
Meira
SJALDAN eða aldrei hafa eins margar sterkar sveitir mætt til leiks í sveitakeppni Golfsambands Íslands sem hefst í dag. Leikið er í fjórum deildum karla og tveimur kvenna.
Meira
ÍSLENDINGAR töpuðu fyrir Frökkum, 25:23, í æfingaleik í Aþenu í gær. Leikurinn fór fram fyrir luktum dyrum og var generalprufa beggja liða fyrir átökin í handknattleikskeppni Ólympíuleikana sem hefst á morgun.
Meira
SKAGAMENN töpuðu fyrir Hammarby, Pétri Hafliða Marteinssyni og félögum, 2:0 í fyrri leik liðanna í UEFA-bikarnum í gærkvöld en leikið var í Svíþjóð.
Meira
* VARAFORSETI rússnesku ólympíunefndarinnar hefur staðfest, að þrír ónafngreindir íþróttamenn í ólympíuliði Rússa hafi fallið á lyfjaprófi í Rússlandi og séu ekki komnir til Aþenu vegna þess.
Meira
ANDREI Lavrov, hinn 42 ára gamli markvörður og fyrirliði rússneska landsliðsins í handknattleik, stefnir að sínum fjórðu gullverðlaunum á Ólympíuleikunum. Lavrov er að taka þátt í sínum fimmtu Ólympíuleikum en þrisvar sinnum hefur hann hampað gulli með þremur þjóðum og engum handboltamanni hefur tekist það.
Meira
ZINEDINE Zidane er hættur að leika með franska landsliðinu, 32 ára gamall. Zidane, sem leikur með Real Madrid á Spáni, leiddi Frakkland til sigurs á HM árið 1998 og á EM 2000.
Meira
HEIMIR Guðjónsson, fyrirliði FH, var gríðarlega svekktur þegar Morgunblaðið talaði við hann í leikslok en hann vildi ekki kenna óheppni um að FH-ingar hefðu misst niður tveggja marka forskot.
Meira
ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, og eiginmaður hennar, Kristján Arason, komu til Aþenu í gær. Þau munu dvelja í Aþenu í nokkra daga og fylgjast með íslensku keppendunum á Ólympíuleikunum.
Meira
Stefán Örn Stefánsson skrifar um skipulagsmál: "Ég hvet alla Seltirninga til kynna sér ítarlega fyrirliggjandi skipulagstillögu bæjaryfirvalda og öll þau gögn sem Áhugahópur um betri byggð á Nesinu hefur lagt fram, en þau eru gott og vel rökstutt framlag til þessarar umræðu."
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.