Greinar föstudaginn 27. ágúst 2004

Forsíða

27. ágúst 2004 | Forsíða | 150 orð

"Þögult neyðarástand"

Í NÝRRI skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) kemur fram að 2,6 milljarðar manna, um 40% jarðarbúa, búa við óviðunandi hreinlætisaðstöðu og um milljarður er án ómengaðs drykkjarvatns. Meira

Fréttir

27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 121 orð | 1 mynd

Áhorfsmet í Bandaríkjunum

Sjónvarpsþættirnir um Latabæ, Lazytown , voru frumsýndir í Bandaríkjunum í síðustu viku og áttu mest áhorf alls barnaefnis fyrir börn á aldrinum 2 til 11 ára fyrstu daga sína í sýningu. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 249 orð

Ákveðnir möguleikar á lausn

HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra telur ákveðna möguleika á að leysa deilur Íslendinga og Norðmanna um síldveiðimál eftir viðræður við Jan Petersen, utanríkisráðherra Noregs, í gær, og ætla ráðherrarnir að vera í sambandi næstu daga til að koma... Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 317 orð

Ánægður með fund framsóknarkvenna

HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, segist ánægður með fund framsóknarkvenna á miðvikudag, og þá ályktun sem samþykkt var á fundinum, en á honum var staða kvenna innan flokksins rædd í kjölfar ákvörðunar um að Siv Friðleifsdóttir gengi úr... Meira
27. ágúst 2004 | Miðopna | 441 orð

Bankar byrjaðir að afgreiða íbúðalánin

KB-BANKI, Landsbanki og SPRON eru byrjaðir að afgreiða nýju íbýðalánin. Stutt er í að Íslandsbanki geti byrjað að afgreiða lánsumsóknir. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 190 orð | 1 mynd

Báturinn var orðinn hálffullur af sjó

"VIÐ erum úti að vinna og verðum ekkert varir við þetta fyrr en það fer að draga niður í vélinni og þá er allt orðið of seint," sagði Halldór J. Egilsson, skipstjóri á Björgvin ÍS 468, sem sökk um 17 sjómílur undan Dýrafirði í gærmorgun. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 155 orð | 1 mynd

Bjargað eftir að bátur sökk í Húnaflóa

MANNBJÖRG varð þegar báturinn Fjarki ÍS 44 sökk um 8 sjómílur suðaustur af Gjögri, skammt frá Veiðileysufirði í Húnaflóa, um fjögurleytið í gærdag. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 32 orð | 1 mynd

Breytt götumynd við Skúlagötu

Unnið er að niðurrifi gamla Landsímahússins, sem stóð á milli Skúlagötu og Sölvhólsgötu. Götumyndin breytist og í baksýn blasa nú við Þjóðleikhúsið og íþróttahús Jóns Þorsteinssonar, sem nú má sjá af... Meira
27. ágúst 2004 | Miðopna | 1002 orð | 1 mynd

Bylting á möguleikum til íbúðalána hérlendis

Aðstæður á íbúðalánamarkaði hafa gjörbreyst síðustu dagana í kjölfar aukinnar samkeppni á þessu sviði. Í samantekt Hjálmars Jónssonar kemur fram að segja megi að bylting hafi orðið í þessum efnum á skömmum tíma Meira
27. ágúst 2004 | Erlendar fréttir | 358 orð | 1 mynd

Ekki ástæða til afsagnar Rumsfelds

YFIRMENN Bandaríkjahers í Írak eru gagnrýndir í tveimur skýrslum sem birtar voru í vikunni um rannsóknir á pyntingum bandarískra hermanna á föngum í Írak. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 117 orð

Ekki fok

Tilkynningar um lokun vegarins um Mýrdalssand vegna sandfoks heyra nú að mestu sögunni til. Meira
27. ágúst 2004 | Erlendar fréttir | 268 orð

Embættismenn segja lítið á flugritum að græða

VLADÍMÍR Yakovlev, erindreki Rússlandsforseta í suðurhluta Rússlands, sagði í gær að upplýsingar úr flugritum farþegaflugvélanna tveggja, sem fórust á þriðjudag, hefðu ekki varpað ljósi á orsakir þess að vélarnar fórust og með þeim 89 manns. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 125 orð

Endurfjármögnun breytir ekki vaxtabótum

ENDURFJÁRMÖGNUN eldri íbúðarlána á ekki ein og sér að leiða til hækkunar á vaxtabótum þar sem eingöngu höfuðstóll þeirra lána sem tekin voru til öflunar eigin húsnæðis og greiðslur af þeim eru stofn til útreiknings vaxtabóta, samkvæmt upplýsingum Indriða... Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 55 orð

Enginn yfirheyrður vegna nauðgunar

EKKI hefur tekist að hafa hendur í hári tveggja manna sem réðust að stúlku í Reykjavík aðfaranótt sunnudags, skömmu eftir að formlegri dagskrá menningarnætur lauk. Talið er að annar þeirra hafi komið fram vilja sínum við stúlkuna. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 81 orð

FH komið í þriðju umferðina

FH vann í gær frækinn sigur á skoska liðinu Dunfermline 2:1 í Skotlandi í Evrópukeppni félagsliða. Skotarnir komust yfir á 72. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 47 orð

Fresturinn rennur út á miðnætti

UMSÓKNARFRESTUR um stöðu hæstaréttardómara rennur út á miðnætti í dag, 27. ágúst. Hjá dómsmálaráðuneytinu fengust ekki upplýsingar um nöfn eða fjölda umsækjenda en það væri alvanalegt að umsóknir bærust ekki fyrr en á síðustu stundu. Meira
27. ágúst 2004 | Erlendar fréttir | 213 orð | 1 mynd

Friður í Najaf

HELSTI ráðgjafi Ali al-Sistanis, andlegs leiðtoga íraskra sjíta, skýrði frá því í gærkvöld, að uppreisnarklerkurinn Moqtada al-Sadr hefði fallist á tillögu Sistanis um að binda enda á meira en þriggja vikna bardaga í hinni helgu borg Najaf. Meira
27. ágúst 2004 | Minn staður | 194 orð

Fyrsta hringtorgið á Austurlandi

Reyðarfjörður | Búið er að hleypa umferð á nýtt hringtorg innan við þéttbýlið á Reyðarfirði, skammt innan við Kollaleiru og mun þetta vera fyrsta hringtorgið sem byggt er á Austurlandi. Meira
27. ágúst 2004 | Minn staður | 294 orð | 2 myndir

Gamla góða kjötsúpan vinsæl

Hrunamannahreppur | Húsakynni við Gullfosskaffi hafa nýlega verið stækkuð verulega. Tekinn hefur verið í notkun 300 fermetra veitingasalur. Öll aðstaða til veitingareksturs við Gullfoss er því orðin mjög góð. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 268 orð | 1 mynd

Gáfu BUGL rúmlega 72 þúsund krónur

ÞRJÁR ungar stúlkur gáfu Barna- og unglingageðdeild Landspítalans leikföng, tölvuleiki og spil að verðmæti 72.231 krónur í gær. Meira
27. ágúst 2004 | Minn staður | 367 orð | 1 mynd

Girt beitarhólf fyrir fé Grindvíkinga

Grindavík | Beitarhólf fyrir fé Grindvíkinga verður girt af í nágrenni Krýsuvíkur og jafnframt verður sett bann við lausagöngu búfjár í landi Grindavíkur. Með því verður lausaganga búfjár bönnuð á öllum Reykjanesskaganum og í meginhluta Landnáms... Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 142 orð

Hafa áfram auga með Sellafield

UMHVERFISRÁÐHERRAR Norðurlandanna funduðu hér á landi í gær. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra segir að þar hafi m.a. verið rædd sú ákvörðun breskra stjórnvalda að minnka verulega losun á geislavirka efninu teknisíum 99 í hafið við Sellafield. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 528 orð | 1 mynd

Harðar deilur um afgreiðslu málsins

FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur sniðgengu stjórnarfund í gærmorgun þar sem samþykkt var viljayfirlýsing um að Og Vodafone taki yfir hlutabréf OR í Línu.neti. Á móti tekur Orkuveitan ljósleiðaralagnir Og Vodafone yfir. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 87 orð | 1 mynd

Hefja Evrópuferð á Íslandi

BRESKA danshljómsveitin Prodigy er væntanleg til landsins og mun hún halda tónleika í Laugardalshöll 15. október næstkomandi. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 160 orð

Hópur nema í erfiðleikum

ÓVISSA ríkir um það hvort ríkið eða sveitarfélög eigi að greiða fyrir tónlistarnám nemenda á framhaldsstigi sem sækja tónlistarskóla utan síns sveitarfélags í vetur. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 239 orð | 2 myndir

Höfðu ekki ráðrúm til að kalla á hjálp

TVEIR menn björguðust þegar eikarbáturinn Björgvin ÍS 468 sökk um 17 sjómílur undan Dýrafirði í gærmorgun. Báturinn var á dragnótarveiðum og var mjög gott veður á veiðislóðinni. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 106 orð

Jafnrétti Framsóknar

Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd fylgdist með fréttum af fundi framsóknarkvenna í fyrrakvöld og orti að bragði: Framsóknarkonurnar flokkinn sinn prísa en fárast þó ögn yfir strákhvolpi þeim, sem kaus þeim á flugöldum ljósvaka að lýsa, en lýsingin kemur... Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 144 orð | 1 mynd

Jarðeðlisfræðingar mjög spenntir

ENDANLEGAR niðurstöður mælinga á grunnstöðvaneti Íslands munu liggja fyrir í mars. Mælingum lauk þann 14. ágúst og segir Þórarinn Sigurðsson forstöðumaður mælingasviðs Landmælinga Íslands að gæði mælinganna lofi mjög góðu um niðurstöðurnar. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 60 orð

Kynning á flugmódelsportinu | Flugmódelfélag Suðurnesja...

Kynning á flugmódelsportinu | Flugmódelfélag Suðurnesja stendur fyrir kynningu á flugmódelsportinu sunnudaginn 29. ágúst nk., frá kl.10 til 12, á flugvelli félagsins í Grófinni í Keflavík. Kynningin er háð því að veður sé hagstætt. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 54 orð | 1 mynd

Kýr í Ölfushöll | Kúasýningin Kýr...

Kýr í Ölfushöll | Kúasýningin Kýr 2004 verður haldin í Ölfushöll á Ingólfshvoli nk. laugardag. Húsið verður opnað kl. 12.30 og mun Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, setja sýninguna, sem hefst svo með sýningu barna á kálfum. Meira
27. ágúst 2004 | Minn staður | 253 orð | 1 mynd

Leikskóladeild í Varmárskóla

Mosfellsbær | Varmárskóli mun í vetur starfrækja leikskóladeild frá leikskólanum Reykjakoti. Alls verða þar 16 leikskólabörn í umsjá og kennslu hjá leikskólakennurum. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 55 orð | 1 mynd

Lítill snjór á Heklu

ÓVENJU lítill snjór er nú á Heklu, eins og hún blasir við frá dyrapalli ljósmyndara á Stokkseyri og hefur þessi fjalladrottning ekki farið varhluta af hlýindunum í sumar. Elstu menn muna vart jafn lítinn snjó á fjallinu. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 224 orð

Lýsisleki stöðvar farþegaþotu

ÞOTA Icelandair, sem fara átti frá London um hádegi á miðvikudag, tafðist um níu klukkustundir eftir að hlaðmaður, sem var að afferma vélina, taldi sig hafa brennst á höndum við að handfjatla hættulegt efni sem lekið hafði úr farmi vélarinnar. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 555 orð | 2 myndir

Neysluvara eða spilliefni?

Á samráðsfundi heilbrigðis- og félagsmálaráðherra Norðurlandanna á Egilsstöðum á dögunum og fundi forsætisráðherra skömmu áður kom fram eindreginn vilji til að samræma stefnu í áfengismálum landanna og var ákveðið að taka upp þráðinn á aukafundi í... Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 64 orð

Ný bensínstöð opnuð í Stekkjabakka

OLÍUFÉLAGIÐ opnar fimmtu sjálfsafgreiðslustöðina á höfuðborgarsvæðinu undir vörumerkinu EGO. Nýja stöðin er í Stekkjabakka í Breiðholti og stendur við Staldrið. Félagið opnaði fjórar sjálfsafgreiðslubensínstöðvar í apríl sl. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 145 orð

Nýr leikskóli á Laugarvatni

ÁKVEÐIÐ hefur verið að byggja nýjan leikskóla á Laugarvatni. Skólinn verður byggður við grunnskólann sem er við húsnæði íþróttaskorar Kennaraháskólans. Meira
27. ágúst 2004 | Minn staður | 108 orð

Óvissa um reksturinn

ERFIÐLEIKAR hafa verið í rekstri Vélaverkstæðis Dalvíkur og ríkir nokkur óvissa með framtíð fyrirtækisins. Að sögn Ólafs Sverrissonar framkvæmdastjóra er framtíð fyrirtækisins til skoðunar "en þetta leiðindastaða sem uppi er". Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 349 orð

Óvissu um dagvistun í Öskjuhlíðarskóla hefur verið eytt

DAGVISTUN barna í Öskjuhlíðarskóla er tryggð fyrir þetta skólaár, en Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur ákveðið í samráði við fjármálaráðherra að greiða helming af kostnaði vegna dagvistunarinnar á móti Reykjavíkurborg. Meira
27. ágúst 2004 | Erlendar fréttir | 251 orð | 1 mynd

Pinochet sviptur friðhelgi af hæstarétti Chile

HÆSTIRÉTTUR Chile felldi þann dóm í gær að fyrrum einræðisherra landsins, Augusto Pinochet, skyldi sviptur friðhelgi og er því nú hægt að sækja hann til saka fyrir mannréttindabrot. Meira
27. ágúst 2004 | Erlendar fréttir | 247 orð | 1 mynd

Pólitísk rétthugsun "að gera fólk brjálað"

LEIÐTOGI breska Íhaldsflokksins, Michael Howard, sagði í gær, að pólitísk rétthugsun á öllum sviðum daglegs lífs í Bretlandi væri að gera venjulegt fólk brjálað. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 252 orð | 1 mynd

"Auðvitað á maður ekki að þurfa að skipta um lögheimili"

"NÚNA stend ég frammi fyrir því að verða að skipta um lögheimili til að verða ekki vikið úr skóla, því Söngskólinn vill í rauninni ekki hafa mig í skólanum ef það fæst ekki styrkur fyrir mig," segir Þórunn Vala Valdimarsdóttir, nemi á 8. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 194 orð | 1 mynd

Ragnhildur Arnljótsdóttir skipuð ráðuneytisstjóri

FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefur skipað Ragnhildi Arnljótsdóttur, lögfræðing, í embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins til fimm ára frá og með 15. september. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 469 orð

Ráðningu sparisjóðsstjóra mótmælt

TVEIR stjórnarmenn í Sparisjóði Hólahrepps mótmæla ráðningu Vilhjálms Baldurssonar, núverandi forstöðumanns fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar, í stöðu sparisjóðsstjóra. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 145 orð

Ræða áhrif fækkunar heraflans

HANS-Ulrich Klose, þingmaður þýska Jafnaðarmannaflokksins (SPD) flytur erindi á sameiginlegum fundi Samtaka um vestræna samvinnu (SVS) og Varðbergs, miðvikudaginn 1. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 237 orð | 1 mynd

Ræðir um jafnvægið milli einkalífs og vinnu

CHERIE Booth Blair, lögmaður og eiginkona Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands, kom hingað til lands í gær, en hún er sérstakur gestur málþingsins Konur, völd og lögin, sem fram fer í Háskólabíói í dag. Meira
27. ágúst 2004 | Erlendar fréttir | 104 orð

Sauðfé róað niður

BRESKIR vísindamenn hafa fundið heldur ótrúlega leið til þess að róa niður taugaóstyrkar kindur, að því er greint var frá í breska dagblaðinu The Daily Telegraph í fyrradag. Mun leiðin sú að sýna þeim ljósmynd af kind. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 265 orð

Semja við banka rétt eins og önnur fyrirtæki

VÉLAMIÐSTÖÐIN ehf. hefur eins og mörg önnur fyrirtæki leitað tilboða hjá bönkunum um lánaviðskipti en þau kjör eru, líkt og hjá öðrum fyrirtækjum í landinu, trúnaðarmál milli bankans og fyrirtækisins. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 76 orð

SS sér um máltíðirnar | Ákveðið...

SS sér um máltíðirnar | Ákveðið hefur verið að SS annist skólamáltíðir í fjórum af sjö grunnskólum Hafnarfjarðar. Skrifað verður undir saming þess efnis í dag, að því er fram kemur á vef vf.is. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 98 orð | 1 mynd

Stafaganga nýtur aukinna vinsælda

Fagridalur | Stafaganga er sífellt að ryðja sér meira til rúms hér á landi, eins og víðar í Evrópu og Norður-Ameríku. Milljónir manna stunda nú þessa íþrótt enda fær fólk viðbótarþjálfun með því að nota stafina í gönguferðum. Meira
27. ágúst 2004 | Minn staður | 605 orð

Stenst fyllilega samanburð varðandi gæði og afköst

Ríkisendurskoðun telur að Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri standist fyllilega samanburð við Landspítala - háskólasjúkrahús og hliðstæð bresk sjúkrahús, þegar metin séu afköst og gæði þeirrar þjónustu sem veitt sé. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 83 orð | 1 mynd

Styrkur úr Blikastaðastjóði

Skorradalur | Úthlutað hefur verið úr Blikastaðasjóði í fjórða sinn. Þórey Bjarnadóttir hlaut styrk að fjárhæð kr. 350.000. Þórey er í meistaranámi í fóðurfræði við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og tekur hluta af námi sínu við University of Guelph. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 123 orð | 1 mynd

Sýnir úrvalið í Funaborg

Eyjafjarðarsveit | Óttar Björnsson á Garðsá í Eyjafjarðarsveit opnar málverkasýningu í Funaborg, félagsheimili hestamanna á Melgerðismelum, næstkomandi laugardag kl. 13.30. Á sýningunni eru 33 myndir og verður hún opin þennan dag. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 828 orð

Tónlistarnám nemenda utan Reykjavíkur í uppnámi

"ÞETTA er mjög erfitt því margir af þessum nemendum eru búnir að stunda lengi tónlistarnám og eru komnir alveg á lokasprettinn. Það er alveg svakalegt að fara svona með þau. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 248 orð | 1 mynd

Tveggja metra tunglfiskur í höfninni

FREMUR furðulegur fiskur var á svamli í höfninni í Þorlákshöfn í gærmorgun. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 58 orð

Úrgangur rækjuverksmiðju | Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps hefur...

Úrgangur rækjuverksmiðju | Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps hefur samþykkt ósk rækjuverksmiðjunnar Hólmadrangs hf. um lagningu nýrrar fráveitulagnar frá verksmiðjunni og út í Norðurfjöru. Meira
27. ágúst 2004 | Minn staður | 246 orð | 1 mynd

Vatn í Sigurðarskála

Kverkfjöll | Ferðafélög Fljótsdalshéraðs og Húsavíkur hafa látið bora neysluvatnsholu í Kverkfjöllum. Boraðar voru tvær holur. Meira
27. ágúst 2004 | Miðopna | 993 orð | 1 mynd

Verður Víetnam en ekki Írak stóra málið í kosningunum?

Líklegt er, að deilurnar, sem sprottið hafa upp í kosningabaráttunni vestra um hermennskuferil John Kerrys, hafi skaðað hann en sumir repúblikanar eru þó hræddir við, að með umræðunni um Víetnamstríðið sé verið að vekja upp draug, sem geti komið í bakið á þeim sjálfum Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 307 orð | 1 mynd

Vextir á útlánum Íbúðalánasjóðs verða 4,35%

VEXTIR á peningalánum Íbúðalánasjóðs verða 4,35% í septembermánuði, sem er 0,05 prósentustigum lægri en vextir á nýjum íbúðalánum bankanna og 0,15 prósentustigum lægri en vextir á útlánum Íbúðalánasjóðs eru nú. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 339 orð | 2 myndir

Þaralegnir í Álftá og víðar

VEIÐIMENN sem voru nýverið í Álftá á Mýrum fengu m.a. fjögurra punda sjóbirting sem við fyrstu sýn virtist vera grútleginn. En við nánari skoðun var hann einnig grálúsugur. Meira
27. ágúst 2004 | Innlendar fréttir | 149 orð

Öryggisgæsla ávallt í fyrirrúmi

BORIST hefur eftirfarandi yfirlýsing frá Bláa lóninu: "Bláa Lónið hf vísar með öllu á bug lýsingu starfsmanns, sem sagt var upp störfum hjá fyrirtækinu þann 12. ágúst sl., á atviki og viðbrögðum starfsfólks, er sá hörmulegi atburður varð þann 6. Meira

Ritstjórnargreinar

27. ágúst 2004 | Leiðarar | 780 orð

Gylfi Þ. Gíslason

Gylfi Þ. Gíslason, sem jarðsettur verður í dag, naut á margan hátt sérstöðu í forystusveit jafnaðarmanna á Íslandi um og upp úr miðri 20. öldinni. Meira
27. ágúst 2004 | Staksteinar | 272 orð | 1 mynd

Spurt út í hött

Stundum spyrja menn út í hött. Það gerir Ólafur Þ. Meira

Menning

27. ágúst 2004 | Kvikmyndir | 622 orð | 2 myndir

Á sér ekki stað í raunveruleikanum

KVIKMYNDIN Super Size Me var frumsýnd í Háskólabíói á miðvikudagskvöld og var höfundurinn, Morgan Spurlock, viðstaddur. Í myndinni rannsakar Morgan skyndibitamenningu í Bandaríkjunum og veltir fyrir sér orsökum offitu. Meira
27. ágúst 2004 | Menningarlíf | 165 orð | 1 mynd

Ást í meinum

Kvikmyndin Minnisbókin ( The Notebook ) er frumsýnd í Smárabíói og Regnboganum í dag. Eldri maður les sögu fyrir vinkonu sína en þau eru sambýlingar á elliheimili. Meira
27. ágúst 2004 | Leiklist | 414 orð

Á ævintýramiðum

Leikgerð á ævintýrinu um Líneik og Laufeyju. Leikstjóri: Ólöf Ingólfsdóttir. Útlit: Elma B. Guðmundsdóttir, Katrín Þorvaldsdóttir og Kolbrún Anna Björnsdóttir. Leikendur: Aino Freyja Järvelä, Höskuldur Sæmundsson, Ingibjörg Reynisdóttir, Kolbrún Anna Björnsdóttir og Ólafur Guðmundsson. Tjarnarbíói 21. ágúst 2004 Meira
27. ágúst 2004 | Menningarlíf | 142 orð | 1 mynd

Baráttan um geimstöðina

Þrumufuglarnir eru nýkomnir heim á leynilegan samastað sinn, TB5, þegar geimstöð þeirra eyðileggst í spengingu sem talin er stafa af stjörnuhrapi. Meira
27. ágúst 2004 | Menningarlíf | 185 orð | 1 mynd

Bourne á kreik á nýjan leik

Þá er hann mættur aftur, launmorðinginn snjalli, Jason Bourne í The Bourne Supremacy . Hér er á ferðinni önnur kvikmyndin um hinn sjalla Bourne en hann er hugarfóstur rithöfundarins Roberts heitins Ludlums. Meira
27. ágúst 2004 | Tónlist | 459 orð | 1 mynd

Einlæg og tilraunakennd

ÞÓTT Medúlla , ný plata Bjarkar Guðmundsdóttur, komi ekki út fyrr í næstu viku eru þegar farnir að birtast dómar um hana í erlendum fjölmiðlum. Meira
27. ágúst 2004 | Tónlist | 205 orð | 1 mynd

Einn plús einn er fimm

EF hann var það ekki fyrir þá er hann orðinn það núna, frambærilegasta núlifandi söngvaskáld Breta. David Gough er sannarlega ekki allra, gerir stundum í því að vera erfiður og viðskotsillur, t.d. á tónleikum þar sem hann á til að vera alveg grútlélegur. Meira
27. ágúst 2004 | Fólk í fréttum | 187 orð | 2 myndir

Fólk folk@mbl.is

Bandaríski kvikmyndaleikarinn Danny Glover var handtekinn í vikunni utan við sendiráð Súdans í Washington í Bandaríkjunum en þar mótmælti hópur fólks ástandinu í Súdan. Meira
27. ágúst 2004 | Menningarlíf | 903 orð | 1 mynd

Haldin knýjandi þörf fyrir að láta hendur standa fram úr ermum

CHERIE Blair, eiginkona Tony Blair forsætisráðherra Bretlands, opnar ásamt Alp Mehmet, sendiherra Bretlands á Íslandi, sýningu á verkum Boyle-fjölskyldunnar í Listasafninu á Akureyri á laugardag, 28. Meira
27. ágúst 2004 | Menningarlíf | 442 orð

Haustin eru hátíð

Haustin eru orðin ein löng hátíð fyrir íslenska kvikmyndaunnendur. Í bókstaflegri merkingu því haustið er tími kvikmyndahátíðanna þegar sett er upp hver kvikmyndahátíðin á eftir annarri, hver annarri áhugaverðari og fjölbreyttari. Meira
27. ágúst 2004 | Tónlist | 220 orð | 1 mynd

Hvatning til að standa sig betur

Víkingur H. Ólafsson píanóleikari er styrkþegi ársins 2004 úr Minningarsjóði Jean Pierre Jacquillat en afhending fór fram í gær í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Styrkupphæðin nemur 600 þúsund krónum. Meira
27. ágúst 2004 | Menningarlíf | 69 orð | 1 mynd

Í toppformi!

Paparnir halda uppteknum hætti og hafa nú hreiðrað vel um sig á toppi Tónlistans, fimmtu vikuna í röð. Plata þeirra, Leyndarmál frægðarinnar , ætlar samkvæmt því að leggjast jafn vel í landsmenn og fyrri plötur sveitarinnar, Ri ggarobb og Þjóðsaga. Meira
27. ágúst 2004 | Bókmenntir | 653 orð

Land líf orð

Inngangur eftir Njörð P. Njarðvík. 2. útgáfa. Mál og menning. 2004 - 671 tölusett bls. Meira
27. ágúst 2004 | Kvikmyndir | 246 orð

Mjahá

Leikstjóri: Pitof. Aðalleikendur: Halle Berry, Benjamin Bratt, Sharon Stone. 90 mínútur. Bandaríkin. 2004 Meira
27. ágúst 2004 | Menningarlíf | 64 orð | 1 mynd

Nýr Nói!

Tvímenningarnir Orri Jónsson og Dagur Kári Pétursson semja og spila tónlist undir nafninu Slowblow. Þeir félagar gera sér lítið fyrir og eiga tvær vinsælustu plötur á Íslandi þessa vikuna. Meira
27. ágúst 2004 | Menningarlíf | 74 orð | 1 mynd

Pottþétt pottþétt!

Laukarnir í Pottþétt garðinum verða sífellt fleiri og dafna með eindæmum vel á Tónlistanum. Pottþétt 35 er nú í öðru sæti listans eftir sjö vikna dvöl þar. Plötuna prýða 37 lög, innlend og erlend. Meira
27. ágúst 2004 | Menningarlíf | 195 orð | 1 mynd

Skúlptúrar Kristínar Eyfells í New York

SÝNINGU á nokkrum skúlptúrum Kristínar heitinnar Eyfells er nýlokið í galleríinu First Street í Chelsea í New York. Meira
27. ágúst 2004 | Menningarlíf | 196 orð | 1 mynd

... Svínasúpunni

ÖNNUR þáttaröð gamanþáttanna Svínasúpunnar hefur nýhafið göngu sína á Stöð 2. Liðsmönnum Svínasúpunnar er fátt heilagt og þeir fara ekki í manngreinarálit þegar grínið er annars vegar. Meira
27. ágúst 2004 | Menningarlíf | 63 orð | 1 mynd

Tónlistar-Dís!

Nói Albínói er ekki eini fulltrúi íslenskra kvikmynda á Tónlistanum þessa vikuna því Dís hoppar beint í 25. sæti listans. Meira
27. ágúst 2004 | Tónlist | 185 orð

TÓNLIST - Listasafn Sigurjóns Ólafssonar

Þorbjörn Björnsson baríton og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari fluttu lög eftir Vaughan Williams og Schubert auk 9íslenskra þjóðlaga. Þriðjudagur 24. ágúst. Meira
27. ágúst 2004 | Menningarlíf | 627 orð | 1 mynd

Vel heppnað verkefni

ALLT útlit er fyrir að samningur Landsbankans við Kling og Bang gallerí um starfsemi og rekstur listasmiðjunnar Klink og Bank í gamla Hampiðjuhúsinu við Brautarholt verði framlengdur um allt að ár. Meira
27. ágúst 2004 | Kvikmyndir | 436 orð

Við erum það sem við ...

Bandarísk heimildarmynd. Leikstjóri: Morgan Spurlock. 95 mínútur. Bandaríkin. 2004. Meira
27. ágúst 2004 | Menningarlíf | 103 orð | 1 mynd

Voðaverk og hefnd

ÍRSKI leikstjórinn góðkunni, Neil Jordan, gerði bíómyndina Voðaverk ( The Butcher Boy ) árið 1997 en myndin er á dagskrá Sjónvarpsins í kvöld. Þar segir frá hremmingum Francies sem elst upp hjá þunglyndri móður sinni og drykkfelldum föður. Meira

Umræðan

27. ágúst 2004 | Aðsent efni | 563 orð | 1 mynd

Að sjá ekki skóginn fyrir trjánum

Sólveig Pálsdóttir fjallar um skipulagsmál á Seltjarnarnesi: "Ég veit að margir fagna uppbyggingu á Hrólfsskálamel..." Meira
27. ágúst 2004 | Aðsent efni | 306 orð | 1 mynd

Foreldrar - sýnum áhuga á því sem börnin okkar eru að gera!

Friðrik Einarsson fjallar um þjálfun barna og unglinga í skíðaíþróttinni: "Á sama hátt sækjast börnin eftir viðurkenningu foreldra sinna." Meira
27. ágúst 2004 | Aðsent efni | 378 orð

Opið bréf til Árna Magnússonar ráðherra jafnréttismála

Frá Þorgerði Einarsdóttur:: "Umræðan um jafnréttismál hefur að undanförnu einkennst af hugtakaruglingi og grundvallarmisskilningi á fyrirbærinu jákvæð mismunun. Þennan misskilning er nauðsynlegt að leiðrétta og hef ég gert a.m.k." Meira
27. ágúst 2004 | Aðsent efni | 794 orð | 1 mynd

Velkominn heim, Jón Baldvin, í íslenska "módelið"!

Jónína Benediktsdóttir skrifar um samfélagsmál: "Stjórnmálamenn eiga ekki að þjóna sérhagsmunum nema slíkt auki hagsæld fjöldans." Meira
27. ágúst 2004 | Bréf til blaðsins | 226 orð | 2 myndir

Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og 13-15 | velvakandi@mbl.is

Týndur bangsi í Heiðmörk KRISTÍN týndi bangsanum sínum þegar hún fór í skátaútilegu í Heiðmörk 12.-13. ágúst. Hún saknar hans afar mikið og biður þann sem hefur fundið hann að hafa samband við mömmu hennar eða pabba í síma 5613398 eða 5625020. Meira

Minningargreinar

27. ágúst 2004 | Minningargreinar | 5659 orð | 1 mynd

DÝRLEIF YNGVADÓTTIR

Dýrleif Yngvadóttir fæddist á Egilsstöðum 23. nóvember 1982. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 19. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Dýrleifar eru Svanhvít Þórhallsdóttir, f. 27. ágúst 1960 og Yngvi Þór Kjartansson, f. 5. desember 1958. Meira  Kaupa minningabók
27. ágúst 2004 | Minningargreinar | 1438 orð | 1 mynd

EIRÍKUR ÞORVALDSSON

Eiríkur Þorvaldsson, fyrrverandi símamaður, fæddist í Kárabæ á Akranesi 22. febrúar 1918. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 19. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þorvaldur Ólafsson, f. á Bræðraparti á Akranesi 18.9. 1872, d. 16.5. Meira  Kaupa minningabók
27. ágúst 2004 | Minningargreinar | 968 orð | 1 mynd

FRIÐFINNUR JÚLÍUS GUÐJÓNSSON

Friðfinnur Júlíus Guðjónsson fæddist í Byggðarholti á Búðum í Fáskrúðsfirði 7. maí 1929. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 19. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðjón Bjarnason, f. 15. mars 1892, d. 25. Meira  Kaupa minningabók
27. ágúst 2004 | Minningargreinar | 473 orð | 1 mynd

GEIR MAGNÚSSON

Geir Magnússon fæddist á Kárastíg 6 í Reykjavík 23. nóvember 1910. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 20. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Margrét Geirsdóttir, f. 16.9. 1873, d. 21.9. 1951 og Magnús Einarsson, f. 30.9. 1874, d. 26.3. Meira  Kaupa minningabók
27. ágúst 2004 | Minningargreinar | 17018 orð | 12 myndir

GYLFI Þ. GÍSLASON

Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi prófessor, alþingismaður og ráðherra, fæddist í Reykjavík 7. febrúar 1917. Hann andaðist að heimili sínu Aragötu 11 í Reykjavík 18. ágúst síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
27. ágúst 2004 | Minningargreinar | 1510 orð | 1 mynd

HARALDUR KRISTJÁNSSON

Haraldur Kristjánsson fæddist í Reykjavík 23. janúar 1912. Hann andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 16. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Kristján Hansson trésmiður, f. á Gautastöðum í Hörðudalshreppi í Dalasýslu 4. október 1876, d. 6. Meira  Kaupa minningabók
27. ágúst 2004 | Minningargreinar | 1212 orð | 1 mynd

HÖRÐUR BJARNASON

Hörður Bjarnason fæddist í Stóru-Mástungu í Gnúpverjahreppi 18. febrúar 1920. Hann lést á heimili sínu Stóru-Mástungu II sunnudaginn 22. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Bjarni Kolbeinsson í Stóru-Mástungu, f. 18.6. 1886, d. 27.10. Meira  Kaupa minningabók
27. ágúst 2004 | Minningargreinar | 5055 orð | 1 mynd

JÓHANN HALLDÓRSSON

Jóhann Halldórsson fæddist á Fáskrúðsfirði 24. okt. 1942. Hann lést að kvöldi miðvikudagsins 18. ágúst síðastliðins. Meira  Kaupa minningabók
27. ágúst 2004 | Minningargreinar | 543 orð | 1 mynd

KRISTJÁN ÁSGEIRSSON

Kristján Ásgeirsson fæddist á Fagranesi á Langanesi 5. febrúar 1926. Hann lést á heimili sínu að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn 20. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Svanhvít Halldórsdóttir, f. á Syðri-Brekkum 9. maí 1893, d. 15. Meira  Kaupa minningabók
27. ágúst 2004 | Minningargreinar | 1271 orð | 1 mynd

RÚNAR BÚI JÖKULSSON

Rúnar Búi Jökulsson fæddist í Reykjavík 6. mars 2004. Hann lést 12. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Rúnars Búa eru Vala Ósk Ólafsdóttir, f. 31.10. 1982 og Jökull Viðar Harðarson, f. 10.10. 1978. Bróðir Rúnars Búa er Viktor Ingi, f. 21.5. 2002. Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

27. ágúst 2004 | Sjávarútvegur | 181 orð

Áróðri mótmælt

Utanríkisráðuneytið hefur sent bandarísku samtökunum Monteray Bay Aquarium bréf, þar sem brugðist er við áróðursherferð samtakanna gegn neyslu íslenska þorsksins í Bandaríkjunum og í Kanada. Meira
27. ágúst 2004 | Sjávarútvegur | 272 orð | 1 mynd

Getum margt lært af Íslendingum

"BRETAR íhuguðu fyrir nokkrum árum að taka upp veiðistjórnun með framseljanlegum kvótum, en útvegurinn mótmælti því hástöfum. Meira
27. ágúst 2004 | Sjávarútvegur | 126 orð

Loft gegn marglyttu hjá Sæsilfri

Nýr búnaður til að verjast marglyttu í laxakvíum Sæsilfurs í Mjóafirði hefur reynst mjög vel. Það hefur verið mikið af marglyttu í Mjóafirði að undanförnu og marglytta hefur oft gert mikinn usla í eldisstöðvum síðari hluta sumars. Meira

Viðskipti

27. ágúst 2004 | Viðskiptafréttir | 486 orð

Ávöxtunarkrafa lækkar í útboði á íbúðabréfum

ÖÐRU útboði Íbúðalánasjóðs á íbúðabréfum er lokið. Voru bréfin seld erlendum fjárfestum í lokuðu útboði eins og gert var í fyrsta útboði sjóðsins fyrir réttum mánuði. Meira
27. ágúst 2004 | Viðskiptafréttir | 66 orð

Burðarás með 9,44% í Singer & Friedlander

BURÐARÁS hefur aukið við hlut sinn í breska bankanum Singer & Friedlander og á nú 9,44% hlutafjár en átti fyrir 8,03%. Í tilkynningu til kauphallarinnar í London segir að Burðarás hafi tilkynnt bankanum þetta í gær, að félagið eigi 16.282. Meira
27. ágúst 2004 | Viðskiptafréttir | 293 orð | 1 mynd

HB Grandi tapar 107 milljónum

TAP á rekstri HB Granda hf. á fyrri helmingi ársins nam 107 milljónum króna. Á sama tíma í fyrra var 750 milljóna króna hagnaður af rekstri Granda hf., en HB Grandi varð til úr samruna Granda og Haraldar Böðvarssonar hf. fyrr á árinu. Meira
27. ágúst 2004 | Viðskiptafréttir | 131 orð

Lítil viðskipti á Nasdaq

LITLAR breytingar urðu á bandarískum hlutabréfamarkaði í gær, þó lækkaði Dow Jones-vísitalan, eftir talsverða hækkun fyrr í vikunni vegna lækkunar á olíuverði, og Nasdaq-vísitalan lækkaði lítillega en viðskipti dagsins á Nasdaq í gær voru þau minnstu... Meira
27. ágúst 2004 | Viðskiptafréttir | 247 orð | 1 mynd

Mjög slæmt ef lánin ýta undir einkaneyslu

BIRGIR Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri segir mjög slæmt ef hin nýju fasteignalán sem bankar og sparisjóðir eru farnir að bjóða í samkeppni við Íbúðalánasjóð, ýti undir einkaneyslu og þenslu. Meira
27. ágúst 2004 | Viðskiptafréttir | 141 orð

Óhagstæðar ytri aðstæður

AFKOMA HB Granda á fyrri hluta ársins var undir væntingum greiningardeilda bankanna, sem allar höfðu spáð jákvæðri afkomu fyrirtækisins á tímabilinu. Meira

Daglegt líf

27. ágúst 2004 | Daglegt líf | 773 orð | 2 myndir

Eldað af ástríðu

Hjónin Friðrik V. Karlsson og Arnrún Magnúsdóttir hafa rekið veitingastaðinn Friðrik V á Akureyri sl. þrjú ár og hefur staðurinn verið í sókn frá þeim tíma. Friðrik V var opnaður 25. júlí 2001 á 31. Meira
27. ágúst 2004 | Daglegt líf | 185 orð | 1 mynd

Kínakál í nýjum umbúðum

Nú býðst kínakál í nýjum pakkningum í verslunum. Kínakálið er skorið í tvennt og helmingunum sérpakkað. Í hverri pakkningu verða 400 gr. og yfir og þannig verður kínakálið selt í stykkjatali á föstu verði, hálfur haus í hverri pakkningu. Meira
27. ágúst 2004 | Daglegt líf | 95 orð | 1 mynd

Meira um gúrkukrydd

Í gær fjölluðum við um gúrkukrydd sem hefur reynst erfitt að henda reiður á hvað sé. Þá fengum við vísbendingu um að líklega væri það dillfræ sem átt væri við. Coletta Bürling hafði samband í framhaldi en hún telur afar ólíklegt að gúrkukrydd sé dillfræ. Meira
27. ágúst 2004 | Daglegt líf | 833 orð | 4 myndir

Spænskir sælkeraréttir

Sumar, sveitasæla og gómsætur matur. Kristínu Heiðu Kristinsdóttur var boðið til kvöldverðar skammt frá Krummaklettum. Meira

Fastir þættir

27. ágúst 2004 | Árnað heilla | 61 orð | 1 mynd

40 ÁRA afmæli.

40 ÁRA afmæli. Í dag, 27. ágúst, verður fertugur Ólafur M. Magnússon, tenór og fv. sölustjóri Osta-og smjörsölunnar sf., Fífulind 2, Kópavogi. Eiginkona Ólafs er Sigrún Bjarnadóttir, skólastjóri Hjallaskóla . Meira
27. ágúst 2004 | Árnað heilla | 31 orð | 1 mynd

50 ÁRA afmæli .

50 ÁRA afmæli . Í dag, 27. ágúst, verður fimmtugur Kristján E. Gunnarsson, forstjóri Gunnars Eggertssonar hf. Hann verður að heiman í dag en mun bjóða til afmælisfagnaðar síðar í tilefni... Meira
27. ágúst 2004 | Fastir þættir | 292 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is

Nickell vinnur Spingold í New York. Meira
27. ágúst 2004 | Viðhorf | 832 orð

Enn eitt verkfallið?

Hvernig stendur á því að kennarar þurfa ítrekað að grípa til ráða á borð við verkföll til þess að reyna að knýja á um mannsæmandi laun? Þegar laun grunnskólakennara eins og þau eru í dag eru skoðuð virðist í það minnsta ljóst að það er ekki græðgi sem rekur þá áfram. Meira
27. ágúst 2004 | Dagbók | 14 orð | 1 mynd

Hlutavelta | Þær Júlía, Freydís og...

Hlutavelta | Þær Júlía, Freydís og Edda söfnuðu kr. 2.062 til styrktar Krabbameinsfélagi... Meira
27. ágúst 2004 | Dagbók | 142 orð | 1 mynd

Olíumyndir í nýjum sýningarsal

NÝR sýningarsalur hefur verið opnaður í Rammamiðstöðinni, Síðumúla 34. Fyrsti listamaðurinn opnar sýningu í salnum kl. 16 í dag. Það er Birna Smith sem sýnir ný olíuverk frá þessu ári og er þetta hennar fjórða einkasýning. Meira
27. ágúst 2004 | Dagbók | 44 orð

Orð dagsins: Þá er Jesús sér...

Orð dagsins: Þá er Jesús sér trú þeirra, segir hann við lama manninn: "Barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar." (Mk.. 2, 5.) Meira
27. ágúst 2004 | Dagbók | 68 orð | 1 mynd

Persónulegir skartgripir

Hafnarborg | Ljósmyndir og skartgripir eru viðfangsefni þriggja sýninga sem opnaðar verða í listamiðstöðinni Hafnarborg á morgun, laugardag. Meira
27. ágúst 2004 | Fastir þættir | 160 orð | 1 mynd

SKÁK - Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is

1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 e6 4. d4 cxd4 5. Rxd4 a6 6. Rxc6 bxc6 7. Bd3 d5 8. O-O Rf6 9. De2 Be7 10. Ra4 O-O 11. Hd1 Dc7 12. e5 Rd7 13. Bf4 c5 14. c4 d4 15. Be4 Hb8 16. Hd3 g6 17. He1 He8 18. b3 Bf8 19. Hh3 Bg7 20. Rb2 a5 21. Dg4 Rf8 22. a4 Bb7 23. Meira
27. ágúst 2004 | Fastir þættir | 314 orð | 1 mynd

Víkverji skrifar...

Víkverji dvaldist á dögunum austur á Héraði í því frábæra veðri, sem heimamenn sögðu honum að væri oftast þar, sól og 20 stiga hita upp á hvern dag. Ekki amalegt sumarleyfisveður. Meira
27. ágúst 2004 | Dagbók | 377 orð | 1 mynd

Þetta er toppurinn

Samúel Jón Samúelsson er fæddur í Reykjavík 11. nóvember 1974. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund vorið 1994, kennaraprófi frá Tónlistarskóla FÍH árið 1999 og einleikaraprófi frá sama skóla árið 2000. Hann hefur starfað sem atvinnutónlistarmaður frá 1995, bæði sem básúnuleikari og útsetjari. Samúel hefur unnið með helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar, svo sem Sigur Rós, Tómasi R. Einarssyni og Sálinni hans Jóns míns. Samúel hefur verið meðlimur í hljómsveitinni Jagúar frá 1998. Meira

Íþróttir

27. ágúst 2004 | Íþróttir | 158 orð

Áhorfendur töfðu upphaf 200 m hlaupsins

Um tíu mínútna seinkun varð á því að hægt var að hefja keppni í úrslitum 200 m hlaups karla á Ólympíuleikvanginum í Aþenu í gærkvöld. Fjölmennur og hávær hópur áhorfenda neitaði með öllu að gefa hljóð til þess að hægt væri að hefja hlaupið. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 257 orð | 1 mynd

Frábær sigur FH-inga í Skotlandi

FH-ingar eru komnir í þriðju umferð Evrópukeppni félagsliða eftir frábæran sigur á skoska úrvalsdeildarliðinu Dunfermline, 2:1. Fyrri leikur liðanna endaði 2:2 og það var því ljóst að FH varð að vinna leikinn til að komast áfram. Tvö mörk á síðustu sjö mínútunum gerðu útslagið og það var Tommy Nielsen sem skoraði sigurmarkið á síðustu mínútu leiksins. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 120 orð

Fyrsti gervigraskeppnisvöllur landsins

NÝTT knattspyrnumannvirki í Garðabæ var vígt í gær en þar er að finna fyrsta keppnisvöll á landinu sem lagður er gervigrasi. Einnig er þar að finna æfingavöll og tvo sparkvelli auk hefðbundins grasvallar, áhorfendastúku og vallarhúss. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 554 orð | 1 mynd

Guðjón Valur fór aldrei af velli

GUÐJÓN Valur Sigurðsson fór aldrei af velli hjá íslenska handknattleiksliðinu í leikjunum sex á Ólympíuleikunum í Aþenu. Hann spilaði sem sagt í allar 360 mínútur Íslands á leikunum. Kristján Andrésson spilaði minnst, í sex mínútu. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 304 orð

Hammarby of stór biti

STUÐNINGSMENN sænska knattspyrnuliðsins Hammarby stálu senunni á Akranesi í gær er lið þeirra lék gegn ÍA í síðari leik liðanna í UEFA-keppninni. Svíarnir voru glaðir í bragði eftir 2:0 sigur liðsins í fyrri leiknum í Stokkhólmi og voru mættir á Skagann til þess að skemmta sér. Svíarnir luku verkefninu með 2:1 sigri í leik sem fer seint í sögubækurnar sem spennandi og eftirminnileg rimma. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 13 orð

í Kvöld

KNATTSPYRNA 1. deild karla: Hlíðarendi: Valur - Breiðablik 18.30 Kópavogur: HK - Þróttur R. 18.30 Fjölnisvöllur: Fjölnir - Stjarnan 18. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 621 orð

KNATTSPYRNA ÍA - Hammarby 1:2 UEFA-bikarinn,...

KNATTSPYRNA ÍA - Hammarby 1:2 UEFA-bikarinn, síðari leikur liðanna í forkeppni: Mark ÍA : Guðjón Heiðar Sveinsson 37. Mark Hammarby : Mikkel Jensen 18., Petter Andersson 45. ÍA : Þórður Þórðarson - Hjálmur Dór Hjálmsson (Arnar Már Guðjónsson 75. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 177 orð | 1 mynd

Marbury hetjan

BANDARÍSKA karlalandsliðið í körfubolta sigraði Spán, 102:94, í 8-liða úrslitum á Ólympíuleikunum í gær. Bandaríska liðið getur þakkað Stephon Marbury, leikstjórnanda New York Knicks, sigurinn en hann átti stórleik. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 363 orð | 1 mynd

* MIÐHERJINN Erick Dampier var í...

* MIÐHERJINN Erick Dampier var í fyrradag sendur frá Golden State Warriors til Dallas Mavericks en liðin leika í NBA-atvinnumannadeildinni í körfuknattleik. Að auki fóru þeir Evan Eschmeyer , Dan Dickau og Steve Logan frá Golden Stat e til Dallas . Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 212 orð

Mourinho fer til Porto

JOSE Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, mætir sínum gömlu félögum í Porto í riðlakeppninni í Meistaradeildinni í knattspyrnu en dregið var í riðlana í gær. Paris Saint-Germain og CSKA Moskvu eru með Chelsea og Porto í H-riðli. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 248 orð

Mættum einfaldlega betra liði

VIÐ áttum bara ekki möguleika í þetta lið. Svo einfalt er það," sagði Ólafur Þórðarson eftir að ÍA hafði tapað öðru sinni gegn sænska liðinu Hammarby í forkeppni UEFA-keppninnar í knattspyrnu. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 368 orð | 1 mynd

Sanchez brást ekki bogalistin

FELIX Sanchez frá Dóminíska lýðveldinu vann gullverðlaun í 400 m grindahlaupi karla á Ólympíuleikvanginum í Aþenu í gær. Sigur hans kom fáum á óvart þar sem Sanchez hefur verið fremsti grindahlaupari heims á þessari vegalengd undanfarin ár og bætti nú ólympíugulli í safn sitt þar sem einnig er að finna gull frá heimsmeistaramóti og Ameríkuleikum. Sanchez skráði nafn sitt á spjöld sögunnar með sigrinum því hann varð fyrsti íþróttamaður frá Dóminíska lýðveldinu sem vinnur gull á Ólympíuleikum. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 229 orð | 1 mynd

Stórkostlegur áfangi fyrir Hafnfirðinga

FH vann glæsilegan sigur á skoska liðinu Dunfermline í gærkvöld með tveimur mörkum gegn einu og er liðið komið í þriðju umferð Evrópukeppni félagsliða, á samanlagðri markatölu, 4:2, þar sem liðin gerðu jafntefli á Laugardalsvellinum í fyrri leiknum, 2:2. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 806 orð

Tímamót og kynslóðaskipti

FYRIR Evrópukeppni landsliða í Slóveníu fyrr á árinu voru ákveðin teikn á lofti um að ekki væri allt með felldu hjá íslenska landsliðinu í handknattleik. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 83 orð

Tromsö hefur áhuga á Emil

EMIL Hallfreðsson, 20 ára miðjumaður hjá FH, er undir smásjánni njá norska 1. deildarliðinu Tromsö. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 146 orð

UEFA rannsakar Chelsea

KNATTSPYRNUSAMBAND Evrópu, UEFA, ætlar að kanna hugsanleg eignatengsl milli Chelsea og CSKA Moskvu eftir að liðin drógust saman í riðil í Meistaradeild Evrópu í gær. Svo gæti farið að annað hvort liðið þyrfti að draga sig út úr Evrópukeppninni. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 583 orð

Varnarmenn ekki fullskapaðir um tvítugt

"ÉG skil ekki hvernig Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari getur ætlast til þess að tvítugur strákur, jafn hæfileikaríkur og Arnór er, komi sem fullskapaður varnarmaður inn í alþjóðlegan handknattleik ekki eldri en hann er. Meira
27. ágúst 2004 | Íþróttir | 99 orð | 1 mynd

Örn Arnarson aftur í SH

SUNDMAÐURINN Örn Arnarson hefur ákveðið að ganga á ný til liðs við sitt gamla félag, Sundfélag Hafnarfjarðar, eftir að hafa æft og keppt undir merkjum Íþróttabandalags Reykjanesbæjar undanfarin tvö ár en hafði áður verið í herbúðum SH frá blautu... Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.