Í Brain Police eru Gunnlaugur Lárusson (gítar, píanó, hljóðgervlar, bakraddir, "vélin"), Hörður Stefánsson (bassi), Jón Björn Ríkarðsson (trommur) og Jens Ólafsson (söngur). Öll lög eru eftir Brain Police, Upptökustjóri var Alex "Flex" Árnason ásamt Brain Police og á hann einnig hlut í einu lagi. Hrafn Thoroddsen; The Flexmeister og Arnar Sigurðsson aðstoðuðu í sínu laginu hver. Platan kemur einnig út í takmörkuðu upplagi ásamt mynddiski.
Meira