ÞAÐ ERU enn þá múrar í samfélagi okkar sem þarf að brjóta en engu að síður hefur víða verið unnið mjög gott starf í að jafna aðgang fatlaðra og ófatlaðra í þjóðfélaginu.
Meira
ÞRIÐJU og síðustu umræðu um fjárlagafrumvarp fyrir árið 2005 lauk á Alþingi í gærkvöld. Lokaatkvæðagreiðsla fer fram á Alþingi í dag. Í umræðunni í gær gerðu stjórnarandstæðingar m.a. nýlega spá Seðlabanka Íslands að umtalsefni.
Meira
BORGARDÆTUR, þær Andrea Gylfadóttir, Ellen Kristjánsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir halda tónleika í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit á sunnudagskvöld, 5. desember kl. 20.30.
Meira
Rithöfundarnir Sigmundur Ernir Rúnarsson, Gerður Kristný, Þráinn Bertelsson og Jóhanna Kristjónsdóttir verða gestir á Bókakonfekti í Reykjanesbæ í ár. Bókakonfektið verður laugardaginn 4. desember kl. 16 í Listasafni Reykjanesbæjar í Duus-húsum.
Meira
Árborg | Sett hefur verið upp síða um skipulagsvinnu vegna gerðar aðalskipulags fyrir Árborg árin 2005 til 2025. Síðunni er ætlað að vera samskiptavettvangur fyrir umræður og veittar verða upplýsingar um gang mála við gerð skipulagsins.
Meira
TUTTUGU og eins árs maður var í gær dæmdur í sjö mánaða fangelsi, skilorðsbundið til fimm ára, fyrir kynferðisbrot gegn fimm ára telpu á heimili hennar í Hafnarfirði í sumar. Hann var einnig dæmdur til að greiða henni 150.000 krónur í miskabætur.
Meira
Ólafsvík | Byggðastofnun hefur selt Hótel Ólafsvík til félags í eigu Sverris Hermannssonar, hótelhaldara í Reykjavík og á Egilsstöðum, og Björgvins Þorsteinssonar hæstaréttarlögmanns. Kemur þetta fram á vef Snæfellsbæjar.
Meira
NIÐURSTÖÐU Samkeppnisstofnunar um hvort heimilt sé að innheimta uppgreiðslugjald þegar lán eru greidd upp á lánstímanum fyrr en ákvæði viðkomandi skuldabréfs gera ráð fyrir er að vænta fljótlega.
Meira
FIMM sprengjur sprungu í nágrenni bensínstöðva í útjaðri Madrídborgar á Spáni síðdegis í gær en viðvörun hafði áður borist frá Aðskilnaðarsamtökum Baska (ETA). Að sögn lögreglu voru sprengingarnar ekki öflugar og engin meiðsl urðu á fólki.
Meira
KOMIÐ hefur í ljós hjá Europris í Noregi að eldhætta getur fylgt notkun á ákveðnum kertastjökum fyrir sprittkerti. Fyrirtækið innkallar þess vegna þessar vörutegundir.
Meira
MIKILL meirihluti sveitarstjórna sem sent hafa athugasemdir og umsagnir við tillögur um sameiningu sveitarfélaga eru jákvæð í garð verkefnisins. 13 sveitarfélög hafa hins vegar hafnað tillögunni og leggja nokkur þeirra fram aðrar tillögur um sameiningu.
Meira
Í tilefni af því að flygillinn, sem Tónlistarfélag Hveragerðis keypti í kirkjuna, er greiddur að fullu var ákveðið að bjóða Hvergerðingum til tónleika.
Meira
VIÐ SAMÞYKKT fjáraukalaga fékk Náttúrufræðistofnun 32 milljónir aukalega til að mæta lækkun sértekna og þar var líka tekið á húsnæðismálum stofnunarinnar í Reykjavík.
Meira
MEÐ ÞVÍ að tengja meðferðarupplýsingar krabbameinssjúklings við niðurstöður rannsókna á æxlissýnum úr viðkomandi er mögulegt að komast að því af hverju sumir svara lyfjameðferð en aðrir ekki.
Meira
ÞINGMENN ræddu hrun veiðistofna skelfisks og innfjarðarækju í utandagskrárumræðu á Alþingi í gær. Kom fram að þeir hafa áhyggjur af afkomu byggða sem byggt hafa afkomu sína á þessum veiðistofnum.
Meira
Ísafjörður | Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar lýsir furðu sinni á því að til standi að gera samkomulag um sameiningu Landsvirkjunar, RARIK og Orkubús Vestfjarða og vísar til þess að það hafi komið fram í fréttum.
Meira
Í SAMANTEKNUM reikningi Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir að heildartekjur verði 60,7 milljarðar króna 2005 samanborið við 55,9 milljarða í útkomuspá þessa árs sem er 8,6% hækkun milli ára.
Meira
LANDEIGENDUR Reykjahlíðar í Skútustaðahreppi sendu í gær iðnaðarráðherra formlegt erindi varðandi áform um að rannsaka jarðhita á svonefndu Sandabotna- og Gjástykkissvæði í landi Reykjahlíðar.
Meira
Fréttaskýring | Kofi Annan sætir vaxandi gagnrýni í Bandaríkjunum þar sem nokkrir hægrimenn hafa krafist þess að hann segi af sér. Sú krafa hefur ekki fengið hljómgrunn í öðrum löndum.
Meira
INGIBJÖRG Þ. Rafnar hæstaréttarlögmaður hefur verið skipuð af forsætisráðherra í embætti umboðsmanns barna frá 1. janúar 2005. Hún var valin úr hópi sextán umsækjenda og tekur við af Þórhildi Líndal, sem gegnt hefur embættinu frá 1. janúar 1995.
Meira
ÍSLENSKUR karlmaður um þrítugt hefur verið úrskurðaður í farbann til 10. janúar vegna rannsóknar á smygli á um 140 grömmum af kókaíni til landsins. Sá sem smyglaði því var handtekinn á Keflavíkurflugvelli 23. nóvember og var sleppt að loknum...
Meira
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, gerði viðveru ráðherra á Alþingi að umtalsefni í fjárlagaumræðu á þinginu í gærkvöldi.
Meira
Jón Ingi Kristjánsson, formaður Afls, starfsgreinafélags, segir umhverfi verkalýðsfélaga á Austurlandi hafa breyst mjög síðan hafist var handa um stóriðju- og virkjunarframkvæmdir í fjórðungnum.
Meira
Laugardalur | Haldinn verður jólamarkaður undir stúku Laugardalsvallar í dag milli kl. 11 og 16, þar sem íbúar nærliggjandi hverfa ætla að bjóða upp á ýmsan varning.
Meira
Selfoss | Hinn árlegi jólamarkaður VISS á Selfossi verður opnaður á mánudag, 6. desember kl 13, í glæsilegri viðbyggingu Vinnustofunnar að Gagnheiði 39.
Meira
HIÐ íslenska Biblíufélag hefur gefið út sín árlegu jólamerki fyrir árið 2004. Þau eru send til félaga í Biblíufélaginu og annarra stuðningsaðila, en allir sem áhuga hafa á að eignast merkin geta snúið sér til félagsins.
Meira
Höfuðborgarsvæðið | Jólaljósin verða kveikt víða á höfuðborgarsvæðinu um helgina. *Í Reykjavík verða ljósin á Óslóartrénu á Austurvelli tendruð á morgun, sunnudag, kl. 16.00.
Meira
ÞAÐ var heilmikið fjör á veitingahúsinu Bautanum í gærmorgun, en þar voru börn úr leikskólunum Holtakoti, Sunnubóli og Lundarseli að gæða sér á kakói og kleinuhringjum.
Meira
ÍSLENSK stjórnvöld styrkja í dag kennslu í íslensku við 17 erlenda háskóla. Hátt á annað þúsund nemar stunda nám í íslensku við þessa skóla ár hvert að ótöldum fjölda erlendra nema sem stunda íslenskunám við Háskóla Íslands.
Meira
Hólmavík | Handverksfélagið Strandakúnst stendur fyrir jólamarkaði sem var opnaður í húsnæði Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík fyrstu helgina í aðventu og stendur til jóla.
Meira
LJÓSIN á Óslóartrénu á Austurvelli verða tendruð á morgun kl. 16. Dagskráin hefst kl. 15.30. Er þetta í 53. sinn sem Norðmenn færa Íslendingum veglegt jólatré til að skreyta miðborg Reykjavíkur á aðventu.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir vitnum að árekstri fimmtudaginn 2. desember, sl. Áreksturinn varð um klukkan 9.00 gatnamótum Miklabrautar og Háaleitisbrautar. Þar rákust saman ljósgrár Chrysler PT Cruiser og dökkblár Volvo XC 70.
Meira
AÐ minnsta kosti 30 menn týndu lífi í árásum skæruliða í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Vígahópur Abu Musab al-Zarqawi, sem sagður er tengdur Al-Qaeda-hryðjuverkanetinu, lýsti sig ábyrgan fyrir árásunum.
Meira
LANDEIGENDUR Reykjahlíðar ehf. í Mývatnssveit gera athugasemdir við svör Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar, í blaðinu í fyrradag, varðandi umsókn um rannsóknaleyfi vegna jarðhita í Gjástykki. Formaður félagsins, Ólafur H.
Meira
VERKFÆRUM og öðrum búnaði fyrir tugi milljóna er stolið frá verktökum á hverju ári. Virðist sem þjófnaðurinn sé vandlega skipulagður og í mörgum tilfellum þykir líklegt að þjófarnir fái pantanir, þ.e. að einhver biðji þá um stela ákveðnum verkfærum.
Meira
Flóinn | "Það er alltaf opið, þegar einhver er hér heima," segir Sóley Andrésdóttir, bóndi og kaupmaður í Sveitabúðinni Sóley í Gaulverjabæjarhreppi í Flóa. "Þótt við séum ekki inni í búðinni eða íbúðarhúsinu gætum við verið í útihúsunum.
Meira
ORKUVEITA Reykjavík mun takast á hendur gríðarlegar fjárfestingar á næsta ári vegna Hellisheiðarvirkjunar og vegur OR langþyngst í samstæðureikningi Reykjavíkurborgar.
Meira
"VIÐ stefnum að því að halda jafnvægi í rekstri á næsta ári eins og okkur hefur tekist síðastliðin þrjú ár," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri um frumvarp að fjárhagsáætlun borgarinnar 2005.
Meira
VÍSINDAMENN Urðar Verðandi Skuldar (UVS) hafa hlotið styrk frá bandaríska hernum til rannsókna á erfðum krabbameins í blöðruhálskirtli. Verkefnið er samstarfsverkefni UVS og Landspítala - háskólasjúkrahúss.
Meira
ÁRNI Magnússon, félagsmálaráðherra, og Anna S. Valdemarsdóttir, framkvæmdastjóri Klúbbsins Geysis, hafa undirritað samkomulag félagsmálaráðuneytisins og klúbbsins vegna ráðningar til reynslu.
Meira
EINAR Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, sagði í umræðum um fjárlagafrumvarpið á Alþingi í gær að honum væri ómögulegt að skilja hvernig Seðlabankanum dytti í hug að hækka stýrivexti um hundrað punkta.
Meira
HÁTTSETTIR embættismenn í Washington greindu í gær frá því að George W. Bush Bandaríkjaforseti hefði formlega farið þess á leit við Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra að hann sæti áfram í embætti. Mun Rumsfeld hafa samþykkt beiðni forsetans.
Meira
RÖNG mynd birtist með frétt um Lottódansmót í blaðinu sl. laugardag. Hér birtist rétt mynd: Alex Freyr og Ragna Björk sigurvegarar í báðum greinum Lottókeppninnar í 12-13 ára og er beðist velvirðingar á mistökunum.
Meira
Selfoss | Langþráð stækkun vinnu- og hæfingarstöðvar fyrir fatlaða á Suðurlandi var formlega tekin í notkun í gær að viðstöddum Árna Magnússyni félagsmálaráðherra.
Meira
Sigrún Haraldsdóttir heyrði af því að þingmenn hefðu hækkað skatta á áfengi: Þingmanna er kveðjan köld, kvikindislegt grínið. Fóru að hækka í fyrrakvöld fjárans brennivínið.
Meira
Í HAUST hefur tvisvar verið brotist inn í vinnuskúr Eyktar ehf. við Úlfarsá og þaðan stolið verkfærum og búnaði fyrir um 1,5 milljónir króna. Höskuldur Höskuldsson verkstjóri segir að eftir fyrra innbrotið hafi læsingar verið styrktar og m.a.
Meira
Vík | Leikskólinn í Vík var opinn almenningi í tilefni af tuttugu ára afmæli Mýrdalshrepps. Boðið var upp á kaffi og vöfflur í tilefni dagsins. Anna Beta Jónínudóttir stendur á bak við stólinn sem Elfa Helgadóttir situr á.
Meira
TRYGGVI Gíslason, magister í íslenskri málfræði, heldur fyrirlestur á vegum Vísindafélags Norðlendinga í húsi Háskólans á Akureyri við Þingvallastræti á mánudag 6. desember kl. 17.15 í stofu 14.
Meira
REYKJAVÍKURBORG hyggst lækka hreinar skuldir borgarsjóðs um tæpa 1,6 milljarða króna á næsta ári samkvæmt frumvarpi að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar sem lagt var fram í borgarráði á fimmtudag.
Meira
STÓRTJÓN varð eftir að vatnslagnir sprungu og kalt vatn flæddi um M-hótel, gamla Skjaldborgarhúsið við Hafnarstræti. Húsið er þrjár hæðir og ris og hefur ekki verið í notkun um nokkurt skeið.
Meira
JÓLASVEINAÞJÓNUSTA Skyrgáms afhenti nýlega Hjálparstarfi kirkjunnar 301.040 kr. sem fara til að rétta kjör stéttlausra barna á Indlandi. Voru þeir hluti af veltu Jólasveinaþjónustunnar síðustu jól.
Meira
VIGDÍS Finnbogadóttir opnar formlega "Táknabankann", táknmálsorðasafn á netinu, í dag, laugardag, kl. 14 við athöfn í Bókasal Þjóðmenningarhússins.
Meira
RÍFLEGA 75% þjóðarinnar telja að Samkeppnisstofnun veiti fyrirtækjum of lítið aðhald og um 2% telja að stofnunin veiti fyrirtækjum of mikið aðhald, að því er kemur fram í Þjóðarpúlsi Gallup.
Meira
"HVAR ertu tónlist" er yfirskrift dags tónlistarmenningar sem haldinn verður í Ketilhúsinu í dag, laugardag. Tónlistarfélag Akureyrar og Gilfélagið leiða saman hesta sína og bjóða upp á tónlistarflutning frá kl. 13 til 18.
Meira
ÍBÚAR í litlum bæ í Svíþjóð, Ringvattnet, sem er nálægt Strömsund, rétt við norsku landamærin, óttast nú mjög einmana úlf sem heldur til í sveitinni og hagar sér furðulega.
Meira
FRAMKVÆMDIR setja svip sinn á bæjarlífið hér á Þórshöfn; viðbygging við Dvalarheimilið Naust rís ótrúlega hratt frá grunni en framkvæmdir hófust í haust.
Meira
TILKYNNT var hverjir urðu fyrir valinu sem ljósberar ársins 2004 í Alþjóðahúsinu í gær og urðu séra Toshiki Toma, stjórnmálafræðingur og prestur, og Gunnar Hersveinn, heimspekingur og blaðamaður, fyrir valinu en þeir þykja báðir hafa vakið athygli með...
Meira
Fréttaskýring | Gengi Bandaríkjadals fór vel niður fyrir 64 krónur í gær og hefur ekki verið lægra síðan 1995. Arnór Gísli Ólafsson skoðaði áhrifin af veikari dal gagnvart krónunni.
Meira
Hafnarfjörður | Atlantsolía og aðalstjórn FH hafa óskað eftir því við Hafnarfjarðarbæ að gerð verði breyting á aðal- og deiliskipulagi á svæði FH við Kaplakrika svo unnt verði að setja upp bensínsjálfsafgreiðslustöð á hluta lóðarinnar.
Meira
VERJENDUR Dragoljub Ojdanic, fyrrverandi yfirmanns júgóslavneska hersins, hafa óskað eftir því að íslensk stjórnvöld láti þeim í té allar leynilegar upplýsingar sem þau búi yfir um samskipti hershöfðingjans við aðra á tímabilinu 1. janúar til 1.
Meira
ÞÓTT álftin nærist mest á vatna- og mýrargróðri fúlsar hún ekki við brauðinu ef svo ber undir. Þessir guttar sættu lagi á meðan álftin var að maula brauðið og freistuðu þess að strjúka henni. Virtist hún ekki kippa sér upp við þessa stígvéluðu...
Meira
EYSTEINN Þorvaldsson, prófessor emeritus, segir í grein í Lesbók í dag að það sé með ólíkindum að stofnanir og starfsmenn íslenskra fræða skuli í fjóra áratugi hafa þagað þunnu hljóði um Völuspárkenningar og -skýringar Helga Hálfdanarsonar og látið sem...
Meira
Selfoss | "Þetta gefur mér mjög mikið, maður dettur út úr hinu daglega amstri og fer inn í hugarheim þar sem maður dvelur við skapandi hugsun og á eftir er maður úthvíldur.
Meira
Ástamál Davids Blunketts, innanríkisráðherra Bretlands, hafa vakið mikla athygli og hugsanlegt að þau kosti hann embættið. Og enn hefur hægritímaritið The Spectator tengst safaríku hneyksli.
Meira
Fréttaskýring | Á Spáni hafa vonir vaknað um að basknesku hryðjuverkasamtökin ETA eigi nú mjög undir högg að sækja og sprengjutilræði í Madríd síðdegis í gær virðast ekki líkleg til að breyta því mati. Ásgeir Sverrisson segir frá ETA og þjóðernishyggju í Baskalandi.
Meira
Í fréttabréfi Samtaka atvinnulífsins, Af vettvangi , er sagt frá því að forsvarsmenn breskra fyrirtækja finni fyrir vaxandi þrýstingi í þá veru að hluti starfseminnar verði færður úr landi, og þá alla jafna til svæða þar sem launakostnaður er lægri sem...
Meira
Nefnd sextán sérfræðinga, sem allir njóta mikillar virðingar á alþjóðavettvangi, hefur skilað Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, skýrslu um það hvernig megi gera samtökin betur í stakk búin að takast á við þær hættur, sem steðja að öryggi...
Meira
Mótettukór Hallgrímskirkju söng íslensk og erlend jólalög. Einsöngvari: Ísak Ríkharðsson; saxófónleikur: Sigurður Flosason; orgelleikur: Björn Steinar Sólbergsson; stjórnandi: Hörður Áskelsson. Miðvikudag kl. 20.
Meira
ENN hafa farið af stað sögusagnir um að Britney Spears sé kona eigi einsömul. Segir orðrómurinn að þau hjónin, hún og Kevin Ferline, muni tilkynna óléttu hennar í næstu viku en á hún að vera komin 11 vikur á leið.
Meira
Hugleikur Dagsson sendir frá sér sína þriðju myndasögubók um helgina. Bókin heitir Ríðið okkur og er hluti af þríleik en fyrstu bækurnar tvær heita Elskið okkur og Drepið okkur . Bækurnar eru beinskeyttar og einkennast af grófum húmor.
Meira
COLIN Firth ræður höfundum kvikmyndanna um Bridget Jones frá því að gera þriðju myndarinnar. Firth, sem hefur farið með hlutverk Marks Darcys, fullyrðir að ekkert sé ósagt af sögunni um Bridget.
Meira
"Þetta voru lög, ekki predikanir," sagði Bob Dylan um tónlist sína í fyrsta sjónvarpsviðtalinu sínu í 19 ár, sem hann veitti fréttaskýringaþættinum 60 mínútum á CBS-stöðinni í Bandaríkjunum.
Meira
Ventill / Poki, breiðskífa með Stafrænum Hákoni, en svo nefnir sig tónlistarmaðurinn Ólafur Jósepsson. Ólafur semur sjö laganna einn, en þrjú með S. Samma sem leikur á gítar í þeim lögum. S. Daníel leikur á trommur í nokkrum lögum, S. Doddi á selló og S. Töddi á básúnu. Þetta er fjórða breiðskífa hans en áður hafa komið út heimagerðar skífur í heimagerðum umslögum. Resonant gefur út. 62:04 mín.
Meira
TÓNLISTARMAÐURINN Mugison og fönksveitin Jagúar fengu alls fimm tilnefningar hvor til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2004 sem voru kunngjörðar síðdegis í gær. Mugison er tilnefndur fyrir plötu sína Mugimama, Is This Monkeymusic?
Meira
Tónlistarmaðurinn Mugison og fönksveitin Jagúar fengu fimm tilnefningar hvort til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2004, sem kunngjörðar voru síðdegis í gær. Mugison fékk tilnefningu fyrir bestu plötuna, Mugimama, Is This Monkeymusic?
Meira
GÍSLI Marteinn fær að venju til sín góða gesti á laugardagskvöldum. Sigurður G. Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Norðurljósa, mætir í létt spjall. Örn Elías Guðmundsson tónlistarmaður, betur þekktur sem Mugison, mætir og ræðir um nýju plötuna sína.
Meira
NÝJASTA tískan hjá fræga fólkinu og þá væntanlega líka okkur hinum eru stígvél sem bera nafnið Mukluk og eru gerð úr kanínuskinni. Slegist er um stígvélin í búðunum og líka slegist um þau á annan hátt.
Meira
POPP- OG ROKKFLOKKUR POPPPLATA ÁRSINS Medúlla - Björk Eivör - Eivör Pálsdóttir Meðan ég sef - Í svörtum fötum Hello Somebody - Jagúar Mugimama, Is This Monkeymusic?
Meira
BÓKIN PS: Ég elska þig er sannkölluð metsölubók. Hún hefur selst í milljónum eintaka í yfir fjörutíu löndum og verið þýdd á fjölda tungumála frá því að hún kom út fyrir tæpum tveimur árum. Nýlega bættist íslenska í þann hóp fyrir tilstilli Sigurðar A.
Meira
Frá Ólafi M. Ólafssyni:: "UM NOKKURT árabil hef ég reynt að leita réttar míns vegna þess mikla fjárhagstjóns sem ég hef orðið fyrir vegna ólöglegra fjárhættuspila, sem viðgengist hafa hér á landi á vegum "virðulegra" þjóðfélagsstofnana og í skjóli ríkisvalds."
Meira
Katrín Anna Guðmundsdóttir og Sóley Stefánsdóttir skrifa um kynbundið ofbeldi: "Til þess að útrýma kynbundnu ofbeldi þarf aðgerðir og þrýsting alls samfélagsins."
Meira
Friðrik Þór Ólason fjallar um alþjóðadag fatlaðra, sem var í gær: "Þó að Háskóli Íslands eigi að vera skóli sem allir landsmenn geta gengið í, er það því miður ekki þannig."
Meira
Jón G. Tómasson fjallar um málefni SPRON: "Bankastjórn Búnaðarbankans með blessun ríkisvaldsins og afstöðu Fjármálaeftirlitsins hratt þessari atburðarás af stað."
Meira
Hver þekkir fólkið? FÓLKIÐ á þessum myndum er líklega úr Reykjavík. Þeir sem þekkja það eru beðnir að hafa samband við Sigurð Björnsson í síma 5656752 eða á netfangið: sigbj@vortex.is Nýting orkueiningar!
Meira
Eva Magnúsdóttir fjallar um afnotagjöld: "Verð talsíma einstaklinga og fyrirtækja svo dæmi séu tekin hjá Símanum eru með því lægsta sem gerist innan OECD-landanna."
Meira
Anna Ragnheiður Ívarsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 4. desember 1986. Hún lést af slysförum aðfaranótt 11. maí 2003 og var útför hennar gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum 17. maí það ár.
MeiraKaupa minningabók
Ása Bergmundsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 2. maí 1926. Hún lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 28. nóv. síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Bergmundur Arnbjörnsson, sjómaður og verkamaður í Vestmannaeyjum, f. þar 17. okt. 1884, d. 28. nóv.
MeiraKaupa minningabók
Guðfinnur Grétar Aðalsteinsson fæddist á Siglufirði 29. september 1934. Hann lést á heimili sínu 27. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður María Gísladóttir frá Grundarkoti í Akrahreppi í Skagafirði, f. 12. apríl 1897, d. 17.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Ófeigsdóttir Hjaltested fæddist í Kolsholti í Villingaholtshreppi í Árnessýslu 4. desember 1920. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 8. nóvember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Neskirkju 18. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Haraldur Gestsson fæddist í Hróarsholti í Villingaholtshreppi 8. ágúst 1938. Hann lést á Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi 25. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Arnfríður Tryggvadóttir, f. 13.9. 1900, d. 26.08. 1988 og Gestur Jónsson, f.
MeiraKaupa minningabók
Ingibjörg Þórarinsdóttir fæddist á Bjarnastöðum í Selvogi 17. maí 1913 og ólst þar upp. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð 28. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þórarinn Snorrason, f. 27. desember 1875, d. 7.
MeiraKaupa minningabók
Kristjana Guðlaugsdóttir fæddist í Sandbrekku á Fáskrúðsfirði 16. febrúar 1952. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 25. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Aðalheiður Valdemarsdóttir, f. 15. mars 1914, d. 18.
MeiraKaupa minningabók
Ólafur Tryggvason fæddist á Seyðisfirði 24. nóvember 1910. Hann lést á Landakotsspítala 16. nóvember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni 25. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Magnússon fæddist í svonefndu Svarthúsi á Þórarinsstaðaeyjum í Seyðisfirði hinn 13. apríl árið 1909. Hann lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar 24. nóvember síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Sigurjón Pétursson sjómaður fæddist 11. apríl 1964. Hann lést 22. nóvember síðastliðinn og var jarðsunginn frá Grafarvogskirkju 30. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Þorsteina Kristjana Jónsdóttir fæddist á Birnustöðum í Ögurhreppi 16. nóvember 1914. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 27. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jón Jónasson bóndi á Birnustöðum, f. 18. maí 1882, d. 27. nóv.
MeiraKaupa minningabók
Þórður Jónsson fæddist á Brekku í Aðaldal 9. september 1927. Hann lést á Landakotsspítala 14. október síðastliðinn og var útför hans gerð í kyrrþey að ósk hins látna.
MeiraKaupa minningabók
SAMKVÆMT bráðabirgðatölum um innheimtu virðisaukaskatts nam innflutningur í nóvember um 21 milljarði króna án skipa og flugvéla. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins.
Meira
EIN af hættunum af auknu framboði af íbúðalánum á markaðnum er að verð á fasteignum hækki svo mikið í kjölfarið, að ungt fólk með meðaltekjur, sem kaupir sér íbúð á hóflegu verði, verði verðlagt út af markaðnum.
Meira
MIKIL viðskipti voru í Kauphöll Íslands í gær. Heildarviðskiptin námu liðlega 30 milljörðum króna . Þar af voru viðskipti með íbúðabréf fyrir 12,8 milljarða króna og með hlutabréf fyrir 5,4 milljarða.
Meira
SÍÐAN bankarnir hófu að bjóða upp á lán með 4,4% vöxtum í lok ágúst hafa um 85 milljarðar króna verið teknir að láni með fasteignaveðtryggðum lánum. Alls hafa um sjö þúsund lán verið afgreidd.
Meira
H vaðan ertu að koma og með hverjum fórstu? Ég og kærastinn minn, Ólafur Búi, vorum að koma frá New York í Bandaríkjunum og Toronto í Kanada. Hvert var tilefni ferðarinnar?
Meira
Jólin eru hátíð ljóssins og er þá kveikt á fleiri ljósum og þau oft látin loga lengur en aðra daga ársins. Hluti af undirbúningi jólanna á að vera að ganga úr skugga um að þau ljós sem nota á séu í góðu lagi.
Meira
Nýlega var stofnaður Trommuskóli Gunnars Waage en þar verður eftir áramót í fyrsta sinn hér á landi boðið upp á trommusettskennslu á háskólastigi.
Meira
"Antibrids." Norður &spade;D7 &heart;ÁD10 A/AV ⋄G9874 &klubs;G65 Suður &spade;Á64 &heart;KG95 ⋄KD10 &klubs;Á98 Vestur Norður Austur Suður -- -- 1 lauf 1 grand Pass 3 grönd Pass Pass Pass Útspil vesturs er spaðaþristur, fjórða hæsta.
Meira
Tólf ára stúlka skýtur gömlu brýnunum ref fyrir rass í Borgarfirðinum Mánudaginn 29. nóvember var spilað fimmta kvöldið í aðaltvímenningi félagsins. Litlar breytingar urðu á toppnum en heldur drógu Anna og Jón á efsta parið.
Meira
Bassaleikarinn Dean Ferrell mun í dag kl. 15.15 stíga á Litla svið Borgarleikhússins til þess að bregða ljósi á dularfullan persónuleika Kafteinsins, bassagömbuleikarans og tónskáldsins Tobiasar Hume sem bjó á Englandi í upphafi barokktímans.
Meira
HJÓNIN Catherine Dodd og Jónas Bragi Jónasson hafa nú opnað Glergallerí við vinnustofu sína í Auðbrekku 7, Kópavogi. Í tilefni af því opna þau sýningu á nýjum listgripum í dag kl. 14 og stendur hún til kl. 20 í kvöld.
Meira
ÞAÐ verður kátt á hjalla á morgun, sunnudag, í veitingastaðnum Gullhömrum í Grafarholti, þegar André Bachmann og vinir hans halda Jólahátíð fatlaðra, "Perlujól", en þetta er í fimmtánda sinn sem félagsskapurinn býður upp á þessa skemmtun.
Meira
Hrafnkell Sigurðsson opnar sýninguna Verkamaður/Workman í Gallerí Banananas í dag kl. 17. Hrafnkell Sigurðsson (f. 1963) hefur verið búsettur í Lundúnum undanfarin ár þar sem hann var á sínum tíma við nám. Nú er hann fluttur heim.
Meira
Getur verið að þeir standi í þeirri trú að The New York Times sé mest selda dagblaðið í Írak? Eða hafa menn fyrir því fullvissu að stór hluti írösku þjóðarinnar lesi blaðið daglega á Netinu?
Meira
NEMENDUR Listaháskóla Íslands standa þessa dagana fyrir viðamikilli röð jólatónleika, sem stendur yfir frá 3. desember til 12. desember. Tónleikarnir eru haldnir í Hráasalnum í Sölvhólsgötu 13. Í dag kl.
Meira
JÓN Reykdal listamaður opnar í dag kl. 15 sýningu á sex nýjum olíumálverkum í forkirkju Hallgrímskirkju. Sýningin er fyrsta sýning af fjórum á 23.
Meira
LISTASAFN Íslands efnir til umræðufundar kl. 11-13 í dag í tilefni sýningarinnar Ný íslensk myndlist - um veruleikann, manninn og ímyndina. Á málþinginu verður rætt um íslenska myndlist síðustu 10 ára út frá yfirstandandi sýningu Listasafns Íslands.
Meira
AÐFARANÓTT sunnudags eru 213 ár liðin síðan meistari W.A. Mozart lést, en hann var þá langt kominn með að semja síðasta verk sitt, Requiem eða Sálumessu.
Meira
Hafnarborg | Nemendur á lokaári hönnunardeildar Iðnskólans í Hafnarfirði opnuðu í gær sýningu á jólagjöfum sem þeir hafa sérhannað fyrir þjóðþekkta Íslendinga. Nemendur völdu sjálfir hverjum þeir vildu gefa gjafirnar. Þar mátti m.a.
Meira
HÖFUNDAR og þýðendur bókaforlagsins Sölku lesa upp úr bókum sínum í bókabúðinni Iðu í dag á milli kl. 11 og 12 og svo aftur á milli kl. 15 og 18.
Meira
Guðný Dóra Gestsdóttir er fædd á Fellsströnd í Dalasýslu árið 1961. Hún lauk BA í ferðamálafræði frá South Bank University í Lundúnum og hefur unnið við margvísleg störf í ferðaþjónustu. Guðný tók við starfi framkvæmdastjóra Gljúfrasteins - húss skáldsins í janúar 2004. Hún er gift Þórði Sigmundssyni geðlækni og eiga þau tvær dætur.
Meira
Vinkona Víkverja býr í gömlu húsi, þar sem ýmislegt er farið að láta á sjá og þarfnast endurnýjunar. Hún ákvað á dögunum að ráðast í að endurnýja baðherbergi sitt frá grunni.
Meira
ÞAÐ er greinilegt að Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur lært af þeim Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóra Manchester United, og Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal, að fara í sálfræðistríð í fjölmiðlum fyrir viðureignir.
Meira
* ARSENE Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að það sé mjög þýðingarmikið fyrir sína menn að sigra Birmingham á Highbury - fyrir leikinn gegn Chelsea um næstu helgi, þar eð meistararnir hafa aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum í...
Meira
DAVID O'Leary knattspyrnustjóri Aston Villa segir að félagið verði að leggja í miklar fjárfestingar ætli liðið sér að fá þá leikmenn sem hann telji að henti liðinu. O'Leary er sagður hafa áhuga á að fá miðjumanninn Andy Reid frá Nottingham Forest og framherjann James Beattie frá Southampton. En O'Leary ætlar liðinu að enda í einu af sex efstu sætum deildarinnar.
Meira
EYJAMENN gerðu góða ferð til lands þegar þeir mættu Gróttu/KR í gærkvöldi og fóru með sannfærandi sigur af hólmi í undankeppni Íslandsmótsins í handknattleik, DHL-deildinni, 31:26.
Meira
SIR Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, er ekki af baki dottinn frekar en fyrri daginn þótt hans lið sé nú níu stigum á eftir Chelsea sem er í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Meira
HOLLENSKA félagið Feyenoord hefur ekki áhuga á að semja við Emil Hallfreðsson, ef marka má fréttastofuna Press Association, sem greindi frá því í gær að Feyenoord myndi ekki bjóða honum samning.
Meira
FJÓRAR beinar útsendingar verða á Skjá einum um helgina. Laugardagur 4. desember 12.05 Upphitun *Rætt er við knattspyrnustjóra og leikmenn um leiki helgarinnar. 12.40 Chelsea - Newcastle 14.
Meira
SJALDAN hefur stærri hópur íslenskra sundmanna farið á Norðurlandamót unglinga en nú eða alls 14, en mótið fer fram í Nærum í Danmörku um helgina. Piltarnir sem keppa eru fæddir 1987-1988, en telpurnar eru fæddar 1989-1990.
Meira
HINN umdeildi landsliðsþjálfari Spánar í knattspyrnu, Luis Aragones, hefur viðurkennt að fjölskylda hans hafi hvatt hann til þess að segja starfi sínu lausu vegna ítrekaðra ásakana um kynþáttafordóma, einkum frá enskum fjölmiðlum. "Ég hef aldrei fyrr verið ásakaður um kynþáttafordóma og það hefur ekki flogið í hug minn að segja af mér vegna þessara árása, en fjölskylda mín hefur hins vegar farið þess á leit við mig að ég láti af störfum og hverfi úr sviðsljósinu," segir Aragones.
Meira
OPNUNARLEIKURINN í úrslitakeppni Evrópumóts kvenna í knattspyrnu næsta sumar verður leikinn á hinum glæsilega leikvangi City of Manchester Stadium, heimavelli Manchester City.
Meira
CHELSEA er lið nóvembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Liðið lék mjög sannfærandi í nóvember og náði tíu stigum af tólf mögulegum í leikjunum í mánuðinum.
Meira
ÞREFALDUR Ólympíumeistari í sundi, Jodie Henry frá Ástralíu, var í gær útnefndur sundmaður ársins í heimalandi sínu og velti Ian Thorpe úr sessi. En Thorpe hefur verið einráður á þessu sviði undanfarin ár.
Meira
ARJEN Robben, hinn tvítugi Hollendingur sem hefur heldur betur slegið í gegn með Chelsea í úrvalsdeildinni á síðustu vikum, er ekki smeykur við einn einasta varnarmann í deildinni. "Ég óttast engan í þessari deild.
Meira
ÞAÐ var sannkallaður stórleikur í átta liða úrslitum bikarkeppni HSÍ, SS-bikarkeppni kvenna, í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Þar áttust við Íslands- og bikarmeistarar ÍBV og hið öfluga lið Hauka. Eyjakonur höfðu betur, 33:25 eftir jafnan og skemmtilegan leik.
Meira
ÁRBÓKIN Íslensk knattspyrna 2004 er komin út en þetta er 24. bókin í þessum flokki sem hóf göngu sína árið 1981. Höfundur bókarinnar er Víðir Sigurðsson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu.
Meira
* JAKOB Sigurðarson körfuknattleiksleikmaður gerði 17 stig fyrir Birmingham Southern háskólan í Bandaríkjunum í fyrrinótt en þá tapaði skólinn fyrir Indiana State skólanum, 62:55 í efstu deild háskólaboltans í Bandaríkjunum .
Meira
BANDARÍSKA frjálsíþróttakonan Marion Jones neitar staðfastlega nýjum ásökunum Victors Conte um að hún hafi notað ólögleg lyf fyrir og á Ólympíuleikunum í Sydney. Conte á yfir höfði sér kæru í 42 liðum vegna dreifingu ólöglegra lyfja til íþróttamanna.
Meira
KA-menn tryggðu sér endanlega sæti í úrvalsdeild Íslandsmótsins í handknattleik karla, DHL-deildarinnar, með því að leggja baráttuglaða FH-inga að velli á Akureyri í gærkvöldi, 25:22. Þeir leika því í úrvalsdeildinni í febrúar 2005, en sjö efstu sætin í deildinni gefa sæti í úrslitakeppni um meistaratitil Íslands 2005.
Meira
KEVIN Keegan, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Manchester City, hefur farið þess á leit við stjórn félagsins að hann fái fjármagn til þess að kaupa leikmenn í janúar er leikmannamarkaðurinn verður opnaður á ný.
Meira
LIVERPOOL tapaði 2,7 milljörðum króna á síðasta reikningsári og hefur aldrei farið jafnilla, fjárhagslega, á einu keppnistímabili. Þetta var tilkynnt á aðalfundi félagsins í fyrrakvöld.
Meira
"ÞETTA er allt saman mömmu að þakka, hún dró mig á Evrópuleik á Laugardalsvellinum þegar ég var tæplega sex ára gamall, þar sem Keflavík lék gegn Everton. Frá þeim tíma hefur Everton verið mitt lið, í gegnum súrt og sætt," sagði Tryggvi Gunnarsson, fyrrum markaskorari með ÍR, KA og Val og formaður Evertonklúbbsins á Íslandi frá stofnun hans árið 1995. Hann skoraði 159 mörk fyrir lið sín á Íslandsmóti, sem var um árabil markamet í deildakeppninni hér á landi en var slegið í fyrrasumar.
Meira
JOSE Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hafnaði boði Sir Bobby Robsons, knattspyrnustjóra Newcastle, um að gerast aðstoðarmaður hans hjá Newcastle árið 2000. Skömmu síðar tók Mourinho við þjálfun Benfica en síðar flutti hann sig um set til Porto og stýrði liðinu m.a. til sigurs í Meistaradeild Evrópu í vor.
Meira
LEIKMENN Newcastle eru hvergi bangnir fyrir viðureign sína gegn Chelsea í úrvalsdeildinni í dag. Það er fyrsti leikur dagsins en flautað verður til leiks á Stamford Bridge klukkan 12.45. Chelsea trónar á toppi deildarinnar með 36 stig, fimm stigum á undan Arsenal, en Newcastle situr í tíunda sætinu, sextán stigum neðar.
Meira
STUÐNINGSMENN Blackburn og Tottenham hafa ekki haft yfir miklu að gleðjast það sem af er tímabilinu. Bæði lið hafa verið við botn úrvalsdeildarinnar til þessa en staða Tottenham er örlítið skárri fyrir viðureign þeirra á Ewood Park í dag.
Meira
MANCHESTER United tekur á móti Southampton á Old Trafford í dag og freistar þess að setja enn meiri pressu á þrjú efstu lið deildarinnar. Fyrir Southampton er hinsvegar hvert stig dýrmætt í fallslagnum.
Meira
ÍVAR Ingimarsson, varnarmaður Reading, segist ekki þurfa að sanna eitt eða neitt í dag þegar lið hans sækir heim Wolves í ensku 1. deildinni í knattspyrnu. Ívar lék með Wolves í 15 mánuði en fékk engin tækifæri með liðinu seinni hluta þess tímabils.
Meira
SIR Bobby Robson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Newcastle, er sagður vera á góðri leið að ná samkomulagi um starfslok sín hjá félaginu en hann hefur verið á launaskrá liðsins frá því honum var sagt upp störfum.
Meira
Chelsea 15113127:636 Arsenal 1594239:2031 Everton 1593317:1230 Man. Utd 1576219:1027 Middlesbro 1574424:1825 Aston Villa 1566320:1624 Liverpool 1472523:1623 Bolton 1565422:1923 Man.
Meira
STUÐNINGSMENN norska knattspyrnufélagsins Brann eru margir hverjir ævareiðir út í landsliðsmanninn Alexander Ödegaard, sem valdi frekar að ganga til liðs við Rosenborg en Brann í síðustu viku.
Meira
* ÞAÐ var athyglisvert að gamla handboltakempan Ingibjörg Jónsdóttir var á leikskýrslu Eyjaliðsins sem vann Hauka í gær. Ingibjörg kom þó ekkert við sögu í leiknum.
Meira
HAUKAR leika tvo leiki um helgina í 16 liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik, báða erlendis. Mótherjarnir eru Medvescak Infosistem Zagreb frá Króatíu og verður fyrri leikurinn í dag en sá síðari á morgun.
Meira
Við fengum kveðju frá Sigríði Ástu í Borgarnesi sem bæði samdi fallegu söguna Rósaprinsessan og svo var hún höfundur eins hluta keðjusögunnar okkar. Komið þið sæl.
Meira
Bæjarstjóranum er margt til lista lagt. Fáir vita að hann er ákaflega fær bakari - svo lengi sem Stína Símalína aðstoðar hann. Reyndar sagði lítill fugl mér að yfirleitt bakaði Stína á meðan bæjarstjórinn leggur sig í hægindastólnum.
Meira
Jólasveinar þurfa margt að bralla fyrir jólin og eru meira og minna út og suður um allar trissur. Nú þarf Grýla gamla á Stúfi sínum að halda, en finnur hann hvergi. Getur þú fundið hann með hjálp þessara þriggja vísbendinga? 1) Hann er í klossum.
Meira
Þekkið þið öll Ella eldflugu og vini hans á Undraeyjunni? Og vitið kannski líka að þau eru á netinu á slóðinni www.eldflugan.is eða hafið þið séð þau í sjónvarpinu? Þau kenna krökkum umferðarreglurnar á mjög skemmtilegan og lifandi hátt. Vei fyrir þeim!
Meira
Um daginn kíkti Barnablaðið upp í myndver Sjónvarpsins og hafði skyndilega á tilfinningunni að vera komið aftur í aldir. Þar var verið að taka upp Jólastundina okkar sem verður á dagskrá Sjónvarpsins á jóladag kl.
Meira
Hér kemur 4. hluti hinnar stórkostlega spennandi keðjusögu um Dísu og Óla. Við þökkum öllum sem sendu inn frásagnir og endilega að halda áfram að taka þátt.
Meira
Þessi stelpa er að hengja upp mynd. Hún á mús og músin á búr, svo kettinum takist ekki að ná henni. Þetta listaverk er eftir Dagbjörtu Lilju Svavarsdóttur 6 ára úr...
Meira
Kæra barnablað! Ég er að skrifa ykkur til að spyrja hvort þið getið útvegað mér pennavin á Íslandi, en ég fékk heimilisfangið ykkar hjá íslenska sendiráðinu. Þar var mér sagt að þið gætuð kannski hjálpað mér. Ég er 9 ára og ensk, en bý í Skotlandi.
Meira
Halló! Ég heiti Fríða og óska eftir pennavinum, bæði stelpum og strákum, á aldrinum 9-11 ára. Ég er sjálf 9 ára. Helstu áhugamál mín eru bækur, dýr, útreiðar og fleira. P.S: Mynd fylgi fyrsta bréfi (ljósmynd!).
Meira
Íþróttaálfur, áttu kannski uppskriftir að smákökum íbúa Latabæjar? "Eins og flestir vita eru mínar uppskriftir nokkuð einfaldar. Ég fæ mér bara epli eða appelsínu!
Meira
Jóhanna María Skarphéðinsdóttir er 12 ára lestrarhestur sem veit fátt betra en að lesa góða bók. Um daginn las hún nýju bókina Konung þjófanna, og hafði eftirfarandi um hana að segja: "Konungur þjófanna er skemmtileg bók og full af ævintýrum.
Meira
Skoppu og Skrítlu langar að þakka frábærar viðtökur við myndinni þeirra, Skoppu og Skrítlu í Húsdýragarðinum, og þakka öll frábæru símtölin og bréfin frá þakklátum börnum og foreldrum. Í tilefni af því langar þær að stofna vinahóp, Vini Skoppu og...
Meira
Eldfærin, Ljóti andarunginn, Litla stúlkan með eldspýturnar, Nýju fötin keisarans og Næturgalinn eru eftir H.C. Andersen . Böðvar Guðmundsson endursegir, en Þórarinn Leifsson myndskreytir. Hér er að finna bækur eftir sígildum ævintýrum H.C.
Meira
Grautardalls saga er gömul íslensk þjóðsaga. Sigurborg Stefánsdóttir hefur myndskreytt. Hér segir frá karli og kerlingu sem áttu ekkert nema einn son og dall sem aldrei þraut grautinn í.
Meira
Djassbiblía Tómasar R. er eftir Tómas R. Einarsson . Bókin hefur að geyma 80 lög eftir kontrabassaleikarann og djasstónskáldið Tómas R. Einarsson. Þar er auk þess að finna 11 lög eftir hann í píanóútsetningu Gunnars Gunnarssonar.
Meira
Edduverðlaunin voru afhent á dögunum í sjötta sinn. Enginn þarf að velta vöngum yfir þeim jákvæðu og hvetjandi áhrifum sem þau hafa á fagmenn í greininni og óska ég öllum sigurvegurunum til hamingju sem unnið hafa til þeirra í ár sem endranær.
Meira
Gamla Black Sabbath-gítarhetjan Tony Iommi ætlar að gefa út plötu á næsta ári í félagi við fyrrverandi söngvara og bassaleikara Deep Purple, Glenn Hughes. Iommi hefur gefið út sólóplötur áður í eigin nafni en aldrei farið í tónleikaferð.
Meira
Vikuna 12.-19. nóvember var alþjóðleg einleikjahátíð haldin í Kiel í Þýskalandi. Þetta er eina alþjóðlega hátíðin af því tagi í Þýskalandi og ein sú mikilvægasta í Evrópu. Hér er sagt frá nokkrum af helstu verkunum sem sýnd voru og umræðum um þau.
Meira
Goðamenning. Staða og áhrif goðorðsmanna í þjóðveldi Íslendinga er eftir Gunnar Karlsson. Goðmenning er fjölhliða könnun á hlutverkum og áhrifum goða í íslenska þjóðveldissamfélaginu.
Meira
Svartur á leik nefnist skáldsaga eftir Stefán Mána, þar sem hann fjallar um íslenzka glæpamenn og umhverfi þeirra. Lesturinn er sannkölluð rússíbanareið gegnum íslenzka glæpasögu síðustu áratuga, segir í bókarkynningu.
Meira
Hagamúsin og húsamúsin er eftir Alan Benjamin , með myndum eftir Jeffrey Severn . Þýðandi er Björgvin E. Björgvinsson. Í bókinni heimsækja vinkonur hvor aðra og kynnast kostum og göllum þess að búa við ólíkar aðstæður.
Meira
Í 3. bindi Byggðasögu Skagafjarðar, sem fjallar um Lýtingsstaðahrepp, er forvitnilegur kafli um hina fornu Þjóðveldisaldarbyggð í Vesturdal. Hjalti Pálsson hefur staðsett öll býli dalsins sem áður voru týnd og áætlar að byggð hafi staðið frá ca 950-1200.
Meira
Haukur Tómasson tók við Tónlistarverðlaunum Norðurlandaráðs í nóvember fyrir óperu sína Fjórði söngur Guðrúnar. Í þessu viðtali er fjallað um feril hans, rýnt í einstök verk og helstu einkenni tónlistarinnar, en um þau segir höfundur meðal annars: "Það er eitthvað lífrænt við tónlist Hauks, eitthvað sem sameinar náttúru okkar og menningu, eðlisávísun og rökhugsun, allt rennur þetta saman í einn kvikan og glitrandi farveg."
Meira
Í nýjustu bók franska heimspekingsins Bernard-Henri Lévy er, líkt og í mörgum fyrri verkum höfundarins, blandað saman heimspeki, bókmenntum og þeim samfélagsmálum sem nú eru í deiglunni.
Meira
Jólasveinarnir í Hamrahlíð & Jólabaðið er eftir Bryndísi Víglundsdóttur . Kristín Arngrímsdóttir myndskreytti. Í bókinni eru tvær sögur af jólasveinunum, Grýlu og Leppalúða.
Meira
Kvikmyndin Lord of War er væntanleg í kvikmyndahús næsta haust og er með áhugaverðum leikurum í aðalhlutverki. Myndin skartar Nicolas Cage, Ethan Hawke, Jared Leto og Bridget Moynahan í helstu hlutverkum.
Meira
Heimsstyrjaldartvenna Spielbergs - Schindler's List og Saving Private Ryan - komu nýverið út í viðhafnarútgáfu á mynddiskum, ríkulega bætt vönduðu ítarefni.
Meira
Mary Poppins er eftir PL.Travers í endurskoðaðri þýðingu Halls Hermannssonar. Í nútímasamfélagi þar sem allir eru uppteknir af því að skilgreina sjálfa sig minnir ungfrú Poppins okkur á, að það sem mestu máli skiptir er að vera maður sjálfur.
Meira
Jamie Oliver - Kokkur án klæða, Jamie Oliver - Kokkur án klæða snýr aftur og Jamie Oliver - Sæludagar með kokki án klæða eru eftir Jamie Oliver . Þýðendur eru Lóa Aldísardóttir, Helga Guðmundsdóttir og Sigrún Davíðsdóttir .
Meira
"Það er með ólíkindum að stofnanir og starfsmenn íslenskra fræða skuli í fjóra áratugi hafa þagað þunnu hljóði um Völuspárkenningar og -skýringar Helga Hálfdanarsonar og látið sem verk hans sé ekki til," segir í þessari grein sem fjallar um bók Helga Maddaman með kýrhausinn sem kom fyrst út fyrir fjörutíu árum en var endurútgefin árið 2002. Höfundur telur bókina athyglisverðasta rit sem birst hefur um Völuspá.
Meira
Musterisriddarinn er eftir Jan Guillou . Sigurður Þór Salvarsson þýddi. Kveikjan að bókinni er áhugi höfundarins á þeim vandamálum sem steðja að þjóðunum við botn Miðjarðarhafs nú um stundir.
Meira
I Það er sögð merkileg saga í grein Eysteins Þorvaldssonar í Lesbók í dag. Eysteinn segir frá bók Helga Hálfdanarsonar um Völuspá sem ber það skrýtna nafn Maddaman með kýrhausinn .
Meira
Rauðhetta er í þýðingu Jóns Orra. Hér er eitt þekktasta ævintýri allra tíma komið út sem harðspjaldabók með skýrum texta og litríkum teikningum. Ævintýrið um Rauðhettu og Úlfinn er hér endursagt, skreytt glitrandi myndum. Útgefandi er Setberg.
Meira
Bestu knattspyrnulið Evrópu er eftir Agnar Frey Helgason og Guðjón Inga Eiríksson . Í bókinni er rakin saga tólf knattspyrnuliða í máli og myndum og margt athyglisvert dregið fram í dagsljósið varðandi liðin sjálf, framkvæmdastjóra, þjálfara og leikmenn.
Meira
Buna brunabíll er eftir Catherine Kenwortky með myndum eftir Nína Barbaresi . Þýðandi er Björgvin E. Björgvinsson. Öll samfélög byggja á samábyrgð og samheldni. Allt sem unnið er af heilindum og með góðum huga er samfélaginu til hagsbóta.
Meira
! Það felst mikil áskorun í því að eignast barn. Kaldhæðnislegri manneskja en ég myndi segja að það vera einhvers konar happdrætti sem við tækjum þátt í, þó að flest okkar séum með hugann annarsstaðar á örlaganstundinni sjálfri.
Meira
Á fréttamynd sem fylgdi grein í New York Times um fangabúðir Bandarískra stjórnvalda við Guantanamo-flóa á Kúbu fyrir rúmu ári, mátti sjá inngangshlið vírgirtra búðanna.
Meira
Prinsessubókin - Prinsessusögur er eftir Nicola Baxter . Þýðandi er Þóra Bryndís Þórisdóttir . Prinsessurnar sem lesendur kynnast í þessari bók lifa viðburðaríku lífi. Þær heita Pálína, Perla, Elísabet, Emilía, Kristín, Sara, Berglind og Rósa.
Meira
J.S. Bach: Hljómsveitarsvíta nr. 3, Kantata nr. 172 "Erschallet ihr Lieder" og Magnificat. Telemann: Vatnamúsík. Gillian Keith S, Diana Moore MS, Gunnar Guðbjörnsson T og Stephen Richardson B, Hamrahlíðarkórarnir (kórstjóri: Þorgerður Ingólfsdóttir) og Sinfóníuhljómsveit Íslands u. stj. Roberts King. Fimmtudaginn 2. desember kl. 19:30.
Meira
Rósalind prinsessa er eftir Burkhard Nuppenay. Þýðandi er Rúna Gísladóttir. Rósalind prinsessu þykir vænt um dýrin. Þau leika sér saman allan daginn og þess vegna hafði hún næstum gleymt boðinu á fyrsta dísaballið.
Meira
Búið er að endurútgefa allar hljóðversskífur The Pogues, alls sjö talsins. Pogues var lýst sem sambræðingi af Sex Pistols og Chieftains er hún kom fyrst fram á sjónarsviðið og var lengst af undir forystu Shane McGowans, sem var sambræðingur snillings og fyllibyttu.
Meira
Segðu mér sögu er eftir Nicola Baxter . Þýðandi er Hlynur Örn Þórisson . Hvern langar ekki að heyra um skynsamar mýs, kátar kanínur, leikföng sem strjúka, nefsugur og páfagauka. Ævintýri um bangsa og bláa fíla, brúður og bíla.
Meira
Jóhann Sigurjónsson ólst upp í sálfræðilegu "tráma" sem hann tekst á við í skáldskap sínum síðar á ævinni, segir Jón Viðar Jónsson sem hefur skrifað ævisögu skáldsins sem sigraði danskan bókmenntaheim í byrjun síðustu aldar en féll svo í gleymsku. Bókin nefnist Kaktusblómið og nóttin og er ýtarlegasta umfjöllun um ævi og verk Jóhanns sem birst hefur.
Meira
Hér er eftir Kristínu Ómarsdóttur. Stúlkan Billie verður skyndilega miðdepill á hernumdu svæði og hversdagsleg kyrrstaða umturnast á augabragði í válega veröld þar sem allt getur gerst.
Meira
Pöbbaband, pönkband, poppband, rokkband? Hljómsveitin The Stranglers á sér mörg andlit. Saga sveitarinnar er skrautleg og geymir meðal annars 72 tíma heimsókn til Íslands árið 1978 sem hafði kannski meiri áhrif á landann en margur hyggur. Hér er sagan rakin án þess að neitt sé dregið undan.
Meira
Jafnvel þótt sakamálasögur og reyfarar, innlendir sem erlendir, virðist nú orðnir svo gjaldgeng í innlendri bókmenntaumræðu að varla komast aðrar bókmenntagreinar þar að, og listamenn njóti jafnvel heiðurslauna frá Alþingi til að setja saman þess konar...
Meira
Listahátíð stóð fyrir tvennum eftirminnilegum stórtónleikum í Laugardalshöll í júní 1986. Þar var stærsta númerið bresku skaspaugararnir í Madness en auk þeirra léku þrjár efnilegar breskar sveitir, sem annars áttu ekkert sameiginlegt.
Meira
Veiðisögur er eftir Sigurð Boga Sævarsson og Gunnar Bender . Í bókarkynningu segir að það að draga fisk að landi sé líka spurning um að fanga góða veiðisögu. Og bestar verða sögurnar af þeim fiskum sem bitu á agnið en sluppu.
Meira
1. verðlaun : Grete eftir Claudia Wiedemer (leikkona) og Anja Gronau (leikstjóri), Þýskaland. 2. verðlaun: Ecce Homo eftir Friedrich Nietzsche, leikgerð/leikstjórn/leikur Janusz Stolarski, Pólland.
Meira
Sönglög eftir Atla Heimi Sveinsson, þ.ám. flokkurinn Til Söru (frumfl.). Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, Bergþór Pálsson barýton og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanó. Miðvikudaginn 1. desember kl. 20.
Meira
Blaðamaður hefur komið í mörg samkvæmi að undanförnu þar sem nýjasta skáldsaga Braga Ólafssonar, Samkvæmisleikir , hefur verið til umræðu en lítið hefur fengist upp úr lesendum um það hvað gerist í henni.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.