KONUR voru 4,5% af heildarfangafjölda landsins á síðasta ári, að því er fram hefur komið í skriflegu svari dómsmálaráðherra, Björns Bjarnasonar, við fyrirspurn fjögurra þingmanna Samfylkingarinnar.
Meira
Alls bárust 65 umsóknir um störf framkvæmdastjóra þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar, en auglýst var eftir framkvæmdastjórum á þjónustumiðstöðvar Breiðholts og Árbæjar, Laugardals og Háaleitis, Miðborgar og Hlíða og Vesturbæjar og rann umsóknarfrestur...
Meira
KONRÁÐSHÚS hefur hún verið nefnd, byggingin í miðborg Reykjavíkur, nánar tiltekið við Ingólfsstræti, þar sem tólf ungar athafnakonur hafa atvinnuvettvang sinn.
Meira
STERKT vín og tóbak hafa hækkað um 7%. Þetta var samþykkt á Alþingi fyrr í vikunni. T.d. hækkaði Bombay Sapphire-gin úr 5.690 krónum í 6.000 kr. Pakki af sígarettum hækkaði um u.þ.b. 20 kr. Léttvín og bjór verða ennþá á sama verði.
Meira
Gallup gerði árið 2001 könnun fyrir Íslenska spilakassa, fyrirtæki sem nú heitir Íslandsspil og rekur alls um 550 spilakassa fyrir Rauða krossinn, SÁÁ, og Slysavarnafélagið Landsbjörg. Úrtakið var fólk af öllu landinu 16-75 ára, upphaflegt úrtak var 1.
Meira
Bókarkafli | Elín Torfadóttir er flestum kunn sem kona verkalýðsleiðtogans Guðmundar jaka og var kjarabarátta á síðari hluta liðinnar aldar enda samofin lífi Elínar. Sjálf kaus hún sér hins vegar annan vettvang og átti þátt í að skjóta stoðum undir dagvistarmál í Reykjavík í starfi sínu sem fóstra og forstöðukona, en færa má rök fyrir því að sú þjónusta hafi átt sinn þátt í jafnréttisbaráttu kvenna, sem og bæta námsmöguleika þeirra og atvinnuþátttöku.
Meira
PÉTUR H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, greiddi einn þingmanna atkvæði gegn tillögu meirihluta menntamálanefndar þingsins, í gærmorgun, um að 27 listamenn hljóti heiðurslaun listamanna á næsta ári, samtals 43,2 milljónir króna.
Meira
UM 100 spilafíklar hafa á þessu ári verið í viðtalsmeðferð á göngudeild SÁÁ og annar eins fjöldi í stuðningshópi vegna fíknarinnar, en ráðgjafi hjá SÁÁ segist sannfærður um að spilafíklar séu mun fleiri hérlendis.
Meira
RÚMLEGA þrítugur litháskur karlmaður sem fyrir skömmu var handtekinn á Keflavíkurflugvelli með falsað vegabréf og ökuskírteini hefur verið dæmdur í 30 daga óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness.
Meira
Dæmi eru um að spilafíklar á Íslandi eyði meira en einni milljón króna á mánuði í peningaspil af einhverju tagi, að sögn ráðgjafa á göngudeild SÁÁ.
Meira
Þónokkur fjölgun starfa virðist fram undan á vinnumarkaði, samkvæmt niðurstöðum könnunar Samtaka atvinnulífsins á ráðningaráformum fyrirtækja sem gerð var í nóvember. Könnunin var gerð í nóvember.
Meira
SÉRSVEITARMAÐUR úr taílenska flughernum gætir poka með tugum milljóna af pappírsfuglum er tákna eiga óskir um frið. Fuglarnir, sem fólk um landið allt hefur búið til að ósk stjórnvalda, eru geymdir í flugskýli í Hat Yai-héraði í sunnanverðu landinu.
Meira
KRABBAMEINSFÉLAG Hafnarfjarðar afhenti nýlega tvö rúm, náttborð, rúmteppi og aðra fylgihluti í svefnherbergi í eina af íbúðunum sem Krabbameinsfélag Íslands á ásamt öðrum að Rauðarárstíg 33 í Reykjavík og notaðar eru fyrir krabbameinssjúklinga utan af...
Meira
Gera má ráð fyrir að gefa þurfi út milli 1.300 og 1.800 atvinnuleyfi næstu 3 ár vegna þeirra framkvæmda sem þegar eru hafnar við uppbyggingu virkjana og stóriðju, flest strax á næsta ári.
Meira
TIL stendur að fjölga dýrategundunum jafnt og þétt í nýju sjávardýrasafni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík og verður nokkrum háfategundum sem finnast hér við land bætt við snemma á næsta ári.
Meira
Ólafur Jósepsson hefur náð þeim góða árangri tónlistarmanns að þrjár plötur hans hafa verið gefnar út erlendis þótt nafn hans sé ekki á allra vörum hér heima. Árni Matthíasson ræddi við Ólaf sem notar listamannsnafnið Stafrænn Hákon og sendir frá sér fjórðu breiðskífuna um þessar mundir.
Meira
Bókarkafli | Pontus-Grikkjar eru þjóðarbrot sem bjó í ævafornum þorpum við Svartahaf og reknir voru í dauðagöngu um fjallahéruð Norður-Tyrklands og eyðimörk Sýrlands vorið 1920. Þar á meðal var stúlkan Themía sem missti systkini sín, foreldra, vini og nágranna, en lifði af fyrir ótrúlega seiglu og lífsvilja.
Meira
HLUTUR kvenna í stjórnum stórra fyrir-tækja á Íslandi er aðeins 11%. Þetta er lægsta hlut-fall á Norður-löndunum. Hins vegar kemur Ísland vel út þegar fjöldi kvenna í æðstu stjórnunar-stöðum er skoðaður. Svíþjóð er best á heildina litið.
Meira
Allir foreldrar kannast án efa við þá tilfinningu að vilja allt fyrir börnin sín gera, þannig að þau líði engan skort. Aðeins það besta er nógu gott. Það er nú langoftast svo að börn, sem eru ofdekruð, eru það af góðu frekar en illu.
Meira
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra (AVR) er að ljúka endurskoðun hættumats vegna eldgoss í Kötlu. Útvíkkuð viðbragðsáætlun og rýmingaráætlun fylgir í kjölfarið. Guðni Einarsson ræddi við Víði Reynisson, verkefnafulltrúa AVR, um áætlanirnar.
Meira
HAPPDRÆTTI Krabbameinsfélagsins hefur allt frá árinu 1955 verið ein helsta fjáröflunarleið krabbameinssamtakanna hér á landi og stuðlað að uppbyggingu þeirra og þróun.
Meira
FRAM að áramótum verður opinn jólakortavefur á Menntagátt. Allir nemendur í leik-, grunn- og framhaldsskólum geta sent inn myndir og verða þær sjálfkrafa að jólakortum.
Meira
SKÓGRÆKTARFÉLAG Íslands, landsamband skógræktarfélaganna, gefur út kort fyrir þessi jól. Kortið er prýtt mynd af málverkinu "Nafnlaus" eftir Eggert Pétursson, sem er einnig birt á kápu 2. heftis Skógræktarritsins sem er nýútkomið.
Meira
LÍKLEGA verða aðrar forseta-kosningar í Úkraínu. Í Úkraínu eru venju-lega 2 umferðir í forseta-kosningum. Nú er deilt um hvort það þurfi 1 eða 2 umferðir. Ef þær yrðu 2 væri kosið aftur á milli Viktors Janúkóvítsj og Viktors Jústsjenkó .
Meira
Það virðist að mestu hafa farið framhjá Íslendingum að allt árið hefur Konunglegi fagurlistaskólinn í Kaupmannahöfn verið að halda upp á 250 ára afmæli sitt. Kannski réttara formlega stofnun hans á Charlottenborg, fyrrum krónprinssetri Friðriks V.
Meira
"SUMUM nemendum mínum fannst þetta svolítið skondið í byrjun, en svo venst þetta enda fylgi ég sjaldan normunum," segir Ýmir Vigfússon um þá staðreynd að hann er yngri en flestir nemendur hans í dæmatímum í tölvunarfræði við Háskóla Íslands.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt tvo unga menn í skilorðsbundið fangelsi fyrir innbrot í tölvuverslun við Stórhöfða í upphafi ársins. Annar neitaði sök en DNA-rannsókn á húfu sem fannst skammt frá vettvangi var meðal þess sem felldi á hann sök.
Meira
BISKUP Íslands Karl Sigurbjörnsson sendi alþingismönnum bréf fyrir helgina þar sem hann hvetur Alþingi til að veita Mannréttindaskrifstofu Íslands rekstrarfé af fjárlögum.
Meira
ÓLAFUR Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands, boðar til málþings um stjórnun háskóla, miðvikudaginn 8. desember kl. 13, í Skriðu, fyrirlestrasal KHÍ í Hamri (gengið inn frá Háteigsvegi). Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra ávarpar...
Meira
SIR John Stevens, yfirmaður lögreglunnar í London, segir að húsráðendur ættu að hafa heimild til að beita valdi til að verja heimili sín fyrir innbrotsþjófum. Kom þetta fram í viðtali við dagblaðið The Daily Telegraph í gær.
Meira
STJÓRNLEYSI einkennir oft spilafíkla og þeir þjást gjarnan af spennu og kvíða og mjög oft af þunglyndi, að sögn Sveinbjörns Kr. Þorkelssonar, ráðgjafa á göngudeild Vogs.
Meira
Bókarkafli | Jóhann Sigurjónsson var mikill tímamótamaður í íslenskri menningarsögu, enda fyrstur íslenskra listamanna til að geta sér alþjóðafrægð eftir daga fornskáldanna og Snorra Sturlusonar. Með sigri leikrits hans, Fjalla-Eyvindar, á dönsku sviði árið 1912 komast íslenskar samtímabókmenntir í fyrsta skipti fyrir alvöru á blað hjá frændþjóðum okkar og á næstu árum barst hróður leiksins víða um lönd. Jóns Viðar Jónsson hefur ritað sögu Jóhanns.
Meira
Thea Halo, höfundur bókarinnar "Þeir tóku allt meira að segja nafnið mitt", þar sem hún skráir minningar móður sinnar, segir að tengsl sín við upprunann verði ávallt eins konar verðlaun eða viðbót fremur en algjört grundvallaratriði.
Meira
ÞING Flugmálafélags Íslands var haldið fyrir skemmstu og sóttu þingið um 25 fulltrúar úr öllum greinum flugsins. Eitt af aðalmálum þingsins voru skipulagsbreytingar á félaginu og voru þær samþykktar samhljóða.
Meira
STOFNAÐ hefur verið Félag sjálfstætt starfandi geðlækna (FSSG), en í fréttatilkynningu frá félaginu kemur fram að stjórn þess skipa læknarnir Ólafur Þór Ævarsson, Ingólfur Sveinsson, Sigurður Örn Hektorsson, Helgi Garðar Garðarsson og Tómas Zoëga.
Meira
Bókarkafli | Fáir vita hve litlu munaði að 21 Íslendingur færist með varðskipinu Tý á Hvalbaksmiðum þegar freigátunni Falmouth var tvisvar siglt á skipið að kvöldi 6. maí 1976, undir lok átakanna um útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 sjómílur. En atburðurinn átti sér stað þegar Týr ætlaði að klippa á vörpu breska togarans Carlisle. Óttar Sveinsson rifjar upp söguna með aðstoð áhafna skipanna þriggja.
Meira
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rússlands, gagnrýndi Bandaríkjamenn harkalega í ræðu í Nýju-Delhí á föstudagskvöld en hann er staddur í Indlandi í opinberri heimsókn. Sakaði Pútín Bandaríkin óbeint um hræsni og sagði ríkið taka sér einræðisvald í alþjóðamálum.
Meira
Hann var fæddur árið 1905, tók við búi foreldra sinna 1932, hóf sér til yndisauka og gleði að planta þar trjám árið 1936, fékk síðar viðurkenningarskjal frá Danakonungi fyrir það starf, og glímdi auk þess með búskapnum allt frá 1950 við allar...
Meira
Páll Guðmundsson hefur verið ráðinn til starfa sem framkvæmdastjóri hjá Ferðafélagi Íslands. Páll starfaði áður sem kynningarstjóri hjá Ungmennafélagi Íslands.
Meira
Stefán Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Jarðbaðanna við Mývatn og tekur hann við starfinu 1. janúar næstkomandi. Stefán mun stýra öllum daglegum rekstri baðanna og markaðssetningu en m.a. er unnið um þessar mundir að markaðsstarfi erlendis.
Meira
ROBERTINO hélt tónleika í Austurbæ síðasta miðvikudag. Hann er ítalskur söngvari. Árið 1961 hélt hann tónleika í Austurbæjarbíói. Þá var hann ungur drengur og kallaður drengurinn með gull-röddina.
Meira
STARFSHÓPUR á vegum forstjóra Landspítala - háskólasjúkrahúss sem skipaður var til að leggja fram tillögur um sameiningu Rannsóknarstofnunar LSH, Blóðbankans og Rannsóknarstofu í meinafræði í eitt rannsóknarsvið telur sameininguna vera grunn að faglegum...
Meira
SAMSTARF þeirra fjölmörgu aðila sem lögðu fram aðstoð sína vegna brunans í Hringrás í síðasta mánuði tókst ótrúlega vel og þarf að fara langt aftur í tíma til þess að finna dæmi um viðlíka umfang þar sem slökkvilið, lögregla, hjálparstarfsmenn, fyrirtæki...
Meira
TILNEFNINGAR til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2004 í flokknum um björtustu vonina eru sex en ekki fimm eins og misritaðist í blaðinu í gær vegna rangra upplýsinga. Tilnefningarnar eru þessar: Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari.
Meira
Bókarkafli | Póstþjónusta á árunum 1873-1935 er að mörgu leyti tengd hérlendri samgönguþróun, enda þróunin frá póstlestum til póstvagna og frá þeim til bifreiða og flugvéla sem fluttu fólk og varning auk bréfa og böggla. Örust var þó þróunin í póstflutningum milli Íslands og útlanda og með ströndum landsins enda kepptu þar útlend félög við íslensk og hálfíslensk um hylli farþega.
Meira
SKATTAHÆKKANIRNAR sem boðaðar eru í frumvarpi R-listans að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2005, munu kosta reykvískar fjölskyldur tugi þúsunda á næsta ári en það er sú jólagjöf sem R-listinn er að færa borgarbúum með þessu frumvarpi,"...
Meira
NOKKRIR menn vopnaðir a.m.k. einni haglabyssu skutu sér leið inn í íbúðarhús í Fossvogi í Reykjavík um klukkan 2 í fyrrinótt, misþyrmdu þar húsráðanda og hleyptu af skoti innandyra.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í 30 daga fangelsi fyrir að stela jakka af snúru við hús á Akureyri. Í jakkanum var debetkort og notaði maðurinn það til að stela 7.
Meira
Mannskæð flóð á Filipps-eyjum Mikil flóð voru á Filipps-eyjum fyrr í vikunni. Óttast er að 900 manns hafi dáið. Flóðin byrjuðu út af óveðri. Þeim fylgdu miklar aurskriður. 500 lík hafa fundist og enn er verið að leita að a.m.k. 350 manns.
Meira
SUBWAY á Íslandi hefur afhent Hjartaheill ávísun upp á ríflega 800 þúsund krónur. Þessir peningar söfnuðust á alþjóðlega hjartadaginn og eru árangur af samstarfi Subway og Hjartaheilla.
Meira
Ólafur M. Ólafsson, sem búsettur er á Kjalarnesi, leitar nú að lögfræðingi sem reiðubúinn er til þess að reka mál fyrir Mannréttindadómstól Evrópu á hans vegum.
Meira
EKKERT liggur fyrir um hvað verður um tæki og húsnæði Kísiliðjunnar, nú þegar starfsemi hennar hefur verið hætt, að sögn Kristjáns Björns Garðarssonar, framkvæmdastjóra Kísiliðjunnar hf.
Meira
Tæplega 24 þúsund lífeyrisþegar fá eingreiðslu frá Tryggingastofnun fyrir jólin, eða rúmlega helmingur allra lífeyrisþega. Þetta kemur fram í frétt á vef Tryggingastofnunar. Fram kemur að við endurreikning bótaréttar ársins 2003 hafi komið í ljós að 23.
Meira
LÖGREGLAN í Kópavogi hefur yfirheyrt um 40 menn vegna brottnáms níu ára stúlku. Hún var ginnt upp í bíl mannsins með lygum á Álfhólsvegi og síðan skilin eftir á Þingvallavegi í afleitu veðri.
Meira
Ef maður les skýrslur sem ritaðar hafa verið síðustu mánuði er rauði þráðurinn sá að á stríðstímum skuli menn ekki hefta athafnafrelsi forsetans, æðsta manns heraflans, með alþjóðlegum eða innlendum lögum.
Meira
ALVARLEGUR eldsvoði varð á Sauðárkróki í gær þegar eldur kom upp í einbýlishúsi við Bárustíg. Fjögur ungmenni voru flutt á sjúkrahús vegna brunasára og reykeitrunar og eru tvö þeirra alvarlega slösuð en hin minna.
Meira
VALA Flosadóttir ætlar að flytja til Árósa í Danmörku. Maðurinn hennar ætlar með henni. Hann heitir Magnús Aron Hallgrímsson og er kringlu-kastari. Þau hafa búið í Gauta-borg undan-farin ár. Vala er einn ást-sælasti íþrótta-maður Íslendinga.
Meira
MARGRÉT Sverrisdóttir, borgarfulltrúi F-lista, segir meginmarkmið fjárhagsáætlunar um hagræðingu í rekstri vera jákvætt og hæst beri sameiningu stjórnunarsviða borgarinnar sem einfaldi stjórnkerfið og leiði vonandi til hagræðingar.
Meira
ÞJÓÐAR-HREYFINGIN ætlar að birta yfir-lýsingu í New York Times . Það er bandarískt dagblað. Í þjóðar-hreyfingunni er fólk sem hefur áhuga á lýðræði. Í yfir-lýsingunni á að kynna afstöðu Íslendinga til inn-rásarinnar í Írak.
Meira
Ísland 20. aldarinnar var ekki bara pólitík og fiskur. Menningarlífið var fjölskrúðugt og frjótt og þótt miklir kallar og sterkir persónuleikar hafi sett svip á stjórnmálabaráttuna og uppbyggingu sjávarútvegsins átti það ekki síður við um menningarlífið.
Meira
Stemningin í miðborg Kíev, höfuðborgar Úkraínu, í fyrradag minnti á fagnaðarlætin sem brutust út í Berlín, Prag, Búdapest, Varsjá eða Vilníus eftir að ljóst var að gömlu valdaklíkurnar þar höfðu gefizt upp og afsalað sér völdum.
Meira
6. desember 1994: "Það kom berlega í ljós á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkjanna í Brussel í síðustu viku að mikill ágreiningur er uppi um hvert eigi að vera hlutverk bandalagsins og hvernig það beri að þróa í framtíðinni. [...
Meira
Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður kvartaði sáran yfir því í fyrrakvöld að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra væru ekki í þingsalnum á föstudagskvöldi til að hlusta á hann.
Meira
HEIMILDARMYNDIN Baróninn og Þórarinn eftir Dúa J. Landmark er á dagskrá Sjónvarpsins í kvöld. Myndin segir sögu Hvítárvallabarónsins, eins dulúðugasta persónuleika Íslandssögunnar á fyrri hluta 20. aldar.
Meira
Aðventutónleikar. Tónlist eftir Haydn, Mozart, Schubert og fleiri. Jón Karl Einarsson stjórnaði Selkórnum og kammersveit. Konsertmeistari: Szymon Kuran. Orgel: Dagný Björgvinsdóttir. Einsöngur: Ingibjörg Guðjónsdóttir.
Meira
JÓLADAGATAL Stöðvar 2 þetta árið er dönsk þáttaröð, framleitt af TV2, sem ber heitið Jesús og Jósefína . Þátturinn fjallar um unga stúlku sem efast um jólin en finnur svo tímavél og hittir fyrir Jesúm sjálfan, tólf ára gamlan.
Meira
Anna Nicole Smith reyndi að sýna á sér brjóstin við verðlaunaafhendingu fyrir stuttu. Anna var að taka við verðlaunum sínum fyrir bestu útlitsbreytingu ársins á hátíð sjónvarpsstöðvarinnar VH1 .
Meira
ÞÁTTURINN Jesús og Jósefína er nýr myndaflokkur á Stöð 2, sem segir frá 12 ára stúlku í Danmörku og efasemdum hennar um jólahaldið. Jósefína fæddist á aðfangadag en finnst jólin skyggja á afmælisdaginn sinn.
Meira
101 vísnaþáttur úr DV er tekin saman af Ragnari Inga Aðalsteinssyni frá Vaðbrekku. Bókin inniheldur fyrri hluta af þáttasafni hans úr DV, alls um 400 ljóð eftir fjölmarga höfunda, og hefur hún þann eina tilgang að koma fólki í gott skap.
Meira
Búdrýgindi er orðin langlíf sveit þótt meðlimir séu enn allir á táningsaldri. Arnar Eggert Thoroddsen talaði við Axel Haraldsson um aðra plötu sveitarinnar, Juxtapos, sem kemur í kjölfar hinnar lofuðu Kúbakóla, sem út kom fyrir réttum tveimur árum.
Meira
Frá Önnu Pálsdóttur: "Á aðventu er sérstaklega vandað til dagskrár fyrir dvalargesti Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði. Fram eftir desembermánuði er m.a boðið upp á tónleika og helgileiki auk venjulegrar meðferðar."
Meira
Helgi Seljan fjallar um Mannréttindaskrifstofu Íslands: "Ég neita að trúa því að sú ósvinna sem nú blasir við verði skjalfest í fjárlögum komandi árs."
Meira
Sigrún Árnadóttir fjallar um kynbundið ofbeldi: "Samt er eins og karlar sem beita ofbeldi gegn konum komist oftar upp með þann glæp en aðra glæpi."
Meira
Steingrímur J. Sigfússon skrifar um stóriðjustefnu stjórnvalda: "Áfram skal haldið þótt Ísland nálgist óðfluga heimsmetið í losun gróðurhúsalofttegunda á mann."
Meira
Garðar H. Guðjónsson fjallar um sjálfboðið starf á alþjóðadegi sjálfboðaliða: "Þúsund Íslendinga vinna sjálfboðið starf að staðaldri og gegna mikilvægu hlutverki á ýmsum sviðum samfélagsins."
Meira
Eftir Pétur Pétursson: "Það virðist þjóðsaga ein og ekki eiga við nein rök að styðjast, að vinátta frú Vigdísar, fyrrum forseta, og Margrétar Þórhildar Danadrottningar sé svo einlæg, að um gagnkvæma virðingu sé að ræða."
Meira
Kristjón Kolbeins fjallar um verðtryggingu og svarar Kristófer Má Kristinssyni: "Frá því þeim tengslum lauk hefir gildi jóðsins rýrnað svo um munar þannig að vart er eftir meira en einn þúsundasti þess sem áður var."
Meira
Þekkir þú fólkið á myndunum? FÓLKIÐ á þessum myndum er líklega ættað úr Dalasýslu eða af Snæfellsnesi, e.t.v. er það af Ormsætt. Þeir sem kunna að þekkja fólkið eru beðnir um að hafa samband við Björgu Gunnarsdóttur í síma 5574302. Tillitssemi nágranna?
Meira
Ágústa Gústafsdóttir, húsfreyja á Seyðisfirði, Djúpavogi og síðar á Akranesi og í Kópavogi, fæddist á Núpi á Berufjarðarströnd 11. ágúst 1913. Hún lést 19. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jónína Rebekka Hjörleifsdóttir, f. 11. nóv.
MeiraKaupa minningabók
Guðbjörg Kristjánsdóttir Milner fæddist á Bíldudal 2. júlí 1910. Hún lést í Washingtonfylki í Bandaríkjunum 13. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kristján Sigurður Magnússon, skipstjóri í Bíldudal, og síðar fisksali í Reykjavík, f.
MeiraKaupa minningabók
Helga Sigurleif Óladóttir fæddist í Stórulág 1. september 1941. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans 25. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jónína Margrét Filippusdóttir, f. 24. október 1908, d. 20. janúar 1991, og Marteinn Óli Larsen, f.
MeiraKaupa minningabók
Valgarð J. Ólafsson fæddist 24. september 1919 á Geirseyri við Patreksfjörð. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 17. nóvember síðastliðinn og var jarðsunginn frá Kópavogskirkju 26. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Þóra Guðrún Valtýsdóttir fæddist í Reykjavík 5. febrúar 1943. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni þriðjudagsins 9. nóvember síðastliðins og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 19. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
70 ÁRA afmæli. Þriðjudaginn 7. desember nk. verður Guðrún Magdalena Birnir sjötug. Þann dag munu Guðrún Magdalena og maður hennar, Elí Auðunsson , taka á móti gestum í safnaðarheimili Áskirkju við Vesturbrún frá kl....
Meira
Litaríferð. Norður &spade;ÁK7 &heart;K84 S/Allir ⋄765 &klubs;D1076 Suður &spade;D65 &heart;Á32 ⋄ÁK4 &klubs;K543 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 grand Pass 3 grönd Pass Pass Pass Hvernig er best að spila þrjú grönd með spaðagosa út?
Meira
Félag eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði, Glæsibæ, mánud. 22.11. 2004. Spilað var á 11 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N - S Júlíus Guðmss. - Rafn Kristjánss. 253 Hilmar Valdimarss. - Magnús Jósefss.
Meira
SJÓNVARPSAUGLÝSINGIN Hægðu á þér vann gullverðlaun í helstu auglýsingasamkeppni Evrópu, Eurobest Awards, fyrir árið 2004, en þetta er í fyrsta sinn sem íslensk auglýsing vinnur þessi verðlaun.
Meira
Borgarleikhúsið | Leikhópurinn Perlan verður með jólaskemmtun á Litla sviði Borgarleikhússins í dag klukkan tvö, en þar er á ferðinni sýningin Jóla-Perlur.
Meira
PÁLL Óskar Hjálmtýsson söngvari og Monika Abentroth hörpuleikari halda jólatónleika í Háteigskirkju kl. 20.30 í kvöld og njóta fulltingis strengjakvartetts og kórsins Hljómeykis.
Meira
Sigurður Svavarsson fæddist í Reykjavík árið 1954. Hann lauk BA-prófi í íslensku og almennri bókmenntafræði frá HÍ. Sigurður stundaði um árabil kennslu við MH.
Meira
Fótspor kirkjunnar liggja víðar en margan grunar. Eftirfarandi pistill ætti m.a. að sýna það. Sigurður Ægisson lítur í dag austur á bóginn, því hinn alþjóðlegi jólasveinn er að stórum hluta minning og gervi biskups nokkurs í Litlu-Asíu.
Meira
Víkverji fagnar fyrirspurn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur þingmanns til heilbrigðisráðherra um afsláttarkort og bleika miða á Alþingi. Ráðherrann ætlar að beita sér í málinu.
Meira
"Lífið er endanlegur tími sem þarf að ráðstafa vel." Þetta eru orð Ýmis Vigfússonar, ungs stærðfræðisnillings sem ekki einasta er að klára háskólapróf tvítugur, heldur er að læra á píanó, læra að dansa og læra að fljúga flugvélum.
Meira
Þegar vinnulúnum foreldrum finnst þeir vera að fara yfir um á jólastressinu getur verið ráð að láta heitt vatn renna í bað, blanda það með svolítilli lavenderolíu, kveikja á kertum, setja góða hugleiðslutónlist í tækið, leggjast ofaní baðið og finna...
Meira
Þeim, sem er umhugað um umhverfið, gæti fundist þessi margnota bökunarpappír spennandi, nú þegar smákökubaksturinn stendur sem hæst. Pappírinn er 60x40 sentímetrar að stærð og úr sérstöku ofnu efni sem er sílíkonhúðað svo matvæli loða ekki við það.
Meira
Þ egar ég lauma mér bakdyramegin inn í Borgarleikhúsið úr svörtum rigningarsudda á fimmtudagseftirmiðdegi situr Jóhanna Vigdís Arnardóttir pollróleg hjá skiptiborðinu í anddyrinu og bíður.
Meira
Þ að eru engar tafir á lestum þessa stundina," tilkynnir vélræn kvenmannsrödd mér og nokkrum hundruðum annarra sem geta sig hvergi hreyft á heitum brautarpalli í neðanjarðarlestakerfi Lundúna.
Meira
Endilega... * Hafðu hollt jólasnarl í handtöskunni - t.d. mandarínur, epli eða hnetur. * Gefðu þér tíma fyrir daglega hreyfingu. * Reyndu að slaka á. * Fáðu þér hænublund. * Njóttu sem flestra samverustunda með þeim sem þér þykir vænt um.
Meira
H eimsfrægðin er ekki alltaf tekin út með sældinni því fræga fólkið sætir oft miskunnarlausri gagnrýni fyrir allt annað en það hefur getið sér frægð fyrir. Til dæmis Björk fyrir klæðaburðinn.
Meira
Jæja, þá eru jólagjafirnar farnar að hrannast upp hjá vinsælum konum hér í bæ. Flugan er þar engin undantekning og handlék hún fyrstu jólagjöf ársins í Hafnarhúsinu á föstudagskvöld.
Meira
Það er óvenjumikið af estrógeni í Ingólfsstræti 1a í Reykjavík. Í þessu húsi, sem nýlega fékk nafnið Konráðshús, starfa 12 ungar konur, sem nær allar eru í sjálfstæðum rekstri.
Meira
J ohn Galliano aðalhönnuður Dior setti upp listræna sýningu þegar hann kynnti vetrarlínu fyrirtækisins sem minnti helst á litfagra draumaveröld. Öll umgjörð sýningarinnar var áhrifamikil og ýkt, þar sem m.a.
Meira
Háleitar hugsjónir um að efla hlut kvenna í íslenskum leikhúsheimi urðu meðal annars til þess að leikkonurnar Arndís Hrönn Egilsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og Þrúður Vilhjálmsdóttir tóku höndum saman og stofnuðu Sokkabandið, sem er sjálfstætt...
Meira
Þ að er annar í aðventu. Sem þýðir að nú þarf að bretta upp ermarnar og hefjast handa ef allt sem er á stefnuskrá desembermánaðar á að vera tilbúið í tæka tíð fyrir sjálft aðfangadagskvöld.
Meira
VÍN Hræringar í vínheiminum halda áfram og svo virðist sem ekkert lát sé á vinsældum Nýjaheimsvína, hvort sem litið er til Íslands eða annarra markaða.
Meira
VÍN Hræringar í vínheiminum halda áfram og svo virðist sem ekkert lát sé á vinsældum Nýjaheimsvína, hvort sem litið er til Íslands eða annarra markaða.
Meira
Hinn tvítugi Ýmir Vigfússon var aðeins fjórtán ára þegar hann settis á skólabekk í Menntaskólanum í Hamrahlíð eftir að hafa leiðst nokkuð þófið í grunnskólanum.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.