HEGNINGARLAGABROTUM fækkaði um tæplega 10% og umferðarlagabrotum um 12% á milli áranna 2002 og 2003. Á sama tíma fjölgaði brotum gegn öðrum sérrefsilögum en umferðarlögum um rúmlega 16% og varð fjölgunin mest í fíkniefnabrotum.
Meira
MARWAN Barghuti er hættur við framboð í forsetakosningunum sem halda á í Palestínu 9. janúar. Nánir samstarfsmenn Barghutis greindu frá þessu í gær en hann afplánar nú margfaldan lífstíðardóm í ísraelsku fangelsi.
Meira
Kristín Ólafsdóttir á Giljum í Mýrdal er ein fjölmargra barna sem bíða spennt eftir jólasveinunum sem tínast nú til byggða einn af öðrum. Í nótt kom Giljagaur til byggða og og næstu nótt er von á Stúf.
Meira
BIÐLISTAR eftir skurðaðgerðum hafa styst um tæp 20% á Landspítalanum frá nóvember í fyrra. Nú bíða 233 einstaklingar eftir almennri skurðaðgerð en í fyrra biðu 706.
Meira
Í TENGSLUM við bílveltu sem varð við bæinn Kross í Ölfusi rétt fyrir klukkan 14 í gær, lýsir lögreglan á Selfossi eftir ökumanni nýlegrar rauðrar Nisson Patrol jeppabifreiðar sem tók fram úr annarri bifreið við bæinn í sama mund.
Meira
BAKKAVÖR Group verður einn af stærstu matvælaframleiðendum Bretlands og leiðandi í framleiðslu ferskrar tilbúinnar matvöru, ef af yfirtöku þess verður á breska matvælaframleiðandanum Geest.
Meira
PÁLL Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME), segir hert eftirlit með fjármálafyrirtækjum, sem Fjármálaeftirlitið hefur boðað, ekki eiga að þjóna hlutverki hagstjórnartækis, líkt og margir virðast telja.
Meira
EIÐUR Smári Guðjohnsen tryggði Chelsea annað stigið gegn Englandsmeisturum Arsenal þegar Lundúnarisarnir skildu jafnir, 2:2, í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Highbury, heimavelli Arsenal, í gær.
Meira
PILTUR var bitinn í fingurinn og stúlka skarst á eyra í slagsmálum sem brutust út á Seyðisfirði í fyrrinótt, að loknu jólahlaðborði. Að sögn lögreglu tókust um fimm piltar á og nokkur hópur var í kring.
Meira
FJÓRIR einsöngvarar á þrennum tónleikum sem haldnir voru til styrktar krabbameinssjúkum börnum í Hallgrímskirkju fengu samtals rúmlega 3,1 milljón í greiðslur vegna þeirra.
Meira
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Hlíf telur sig á engan hátt hafa lýst því yfir né samþykkt að fullnægjandi samráð hafi verið haft við félagið varðandi hópuppsagnir þær sem Sólar ehf. boðaði til í ágústmánuði sl. og hefur nú þegar hafið í tengslum við yfirtöku Sólar...
Meira
Borgarfjörður | Lagt er til að komið verði upp einföldu og skilvirku stjórnkerfi í nýju sveitarfélagi sem verður til í Borgarfirði, norðan Skarðsheiðar, ef sameining verður samþykkt.
Meira
STARFSFÓLK Nóatúns, tryggingafélagsins Sjóvár-Almennra og fleiri hafa um helgina unnið að því að rýma verslun Nóatúns við Hringbraut sem stórskemmdist í eldsvoða aðfaranótt laugardags.
Meira
EKKI er heimilt að takmarka rétt erlendra happdrætta til þess að starfa hér á landi að mati Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), en í íslenskum lögum er fólki búsettu hér á landi óheimilt að taka að sér hvers konar störf fyrir erlend happdrætti.
Meira
RÉTTINDI og skyldur fólks af erlendum uppruna á vinnumarkaði verða til umræðu á fræðslufundum sem verða haldnir á vegum Einingar-Iðju og Alþjóðastofunnar. Þeir fara fram á mismunandi tungumálum, sá fyrsti á pólsku og filippínsku á mánudag, 13.
Meira
SÆNSKA lögreglan greindi frá því í gær að búið væri að finna lík eiganda íbúðarinnar í miðbæ Stokkhólms sem eyðilagðist í bruna á miðvikudag. Maðurinn er grunaður um stórfelldan bókaþjófnað í Konunglega bókasafninu en þar vann hann.
Meira
FYRSTU mál Samtaka eigenda sjávarjarða gegn íslenska ríkinu, þar sem krafist verður viðurkenningar á eignar- og útræðisrétti sjávarbænda á aðliggjandi sjávarsvæði, verða höfðuð á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Það er Ragnar Aðalsteinsson hrl.
Meira
RECEP Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, fordæmdi í gær afstöðu forystumanna þýsku stjórnarandstöðunnar sem hafa látið hafa eftir sér að þeir muni beita sér gegn því að Tyrklandi verði veitt aðild að Evrópusambandinu.
Meira
Öðrum megin er ætt sem hefur ráðið ríkjum á Indlandi í nær hálfa öld. Hinum megin er fjölskylda vinsælasta leikara Indlands, manns sem er svo dáður að dæmi eru um að aðdáendur hans hafi fyrirfarið sér af hollustu við hann.
Meira
ÞVÍ var fagnað í Hafnarfirði í gær að 100 ár eru liðin frá því rafvæðing Íslands hófst, en upphafið er rakið til þess þegar Jóhannes J. Reykdal keypti rafal og virkjaði Lækinn í Hafnarfirði upp á sitt eindæmi.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir einum sakborninga í umfangsmiklu fíkniefnamáli um sex vikur. Fimm karlmenn sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins en aðrir sakborningar ganga lausir.
Meira
BANDARÍSK stjórnvöld vilja losna við Mohammed ElBaradei úr starfi framkvæmdastjóra Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA). Hafa yfirvöld látið hlera símtöl ElBaradeis og íranskra embættismanna í því skyni að finna vopn sem nýta mætti í þessu skyni.
Meira
REGLUM um verðmæti þess varnings sem ferðamenn mega taka með sér til landsins án þess að greiða af þeim toll var síðast breytt í byrjun árs 2002.
Meira
JÓLASTEMNINGIN verður í fyrirrúmi á Mangógrilli á aðfangadagskvöld. Eigendur þessa matsölustaðar í Brekkuhúsum í Grafarvogi, Ingibjörg Guðmundsdóttir og Magnús Garðarsson, ætla að efna til jólaveislu þar sem ekkert verður til sparað og öllum er boðið.
Meira
Ungir og gamlir skáru út laufabrauð á Árbæjarsafni í gær. Það var Páll Pálsson, frá Borg í Miklaholtshreppi, sem leiðbeindi þeim sem yngri eru um hvernig ætti að bera sig að.
Meira
LENKA Ptacnikova, fyrsti kvenstórmeistari Íslendinga í skák, sigraði Friðrik Ólafsson, fyrsta karlstórmeistara þjóðarinnar, í opnunarskák á Friðriksmóti Landsbankans og Skáksambands Íslands í gær.
Meira
Maðurinn sem lést eftir árásina hét Ragnar Björnsson. Hann var 55 ára, fæddur 3. janúar 1949, til heimilis að Efri-Reykjum í Mosfellsbæ. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjá...
Meira
LÚSÍUHÁTÍÐ verður í Brimborg að Bíldshöfða 6, þriðjudaginn 14. desember kl. 17-18. Hátíðin er haldin í tilefni af því að undanfarið hefur Volvo hlotið lof fyrir gæði, öryggi og fallega hönnun. Boðið verður upp á...
Meira
Okkur þykir ómaklega að Tryggingastofnun ríkisins vegið þegar stofnunin er vænd um að vilja ekki greiða fyrir viðhaldsmeðferð ópíumfíkla og að stofnunin sé þar með að mismuna sjúklingum, því þannig er málum ekki háttað," segir Inga J.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úrskurðaði í gærkvöldi 25 ára gamlan karlmann í gæsluvarðhald til 16. desember vegna árásar á veitingastaðnum Ásláki í Mosfellsbæ í fyrrinótt sem leiddi til dauða 55 ára gamals karlmanns.
Meira
Í KJÖLFAR fundar samninganefnda launanefndar sveitarfélaga (LN) og Félags leikskólakennara (FL) á föstudag ákvað FL að vísa deilunni til ríkissáttasemjara.
Meira
ÞÉTTNI mangans í heyi hefur hugsanlega áhrif á riðuveiki í sauðfé. Þetta kemur fram í rannsókn sem var gerð á rannsóknardeild yfirdýralæknis í dýrasjúkdómum á Keldum. Heysýni voru tekin á 47 bæjum og magn málmanna kopars, selens og mangans rannsakað.
Meira
FORSETAKOSNINGAR fóru fram í Rúmeníu í gær og bentu útgönguspár til þess að mjótt væri á munum með Adrian Nastase, forsætisráðherra landsins, og Traian Basescu, borgarstjóra í Búkarest.
Meira
UM þrjú hundruð manns tóku þátt í mótmælum í Kaíró í gær gegn því að forsetaembættið í Egyptalandi fengi að "ganga í erfðir" en grunur leikur á að Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hafi hug á því að láta son sinn, Gamal, taka við af sér,...
Meira
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra segir ánægjulegt að hefðbundin skattsvik, svört atvinnustarfsemi og vantaldar tekjur séu á undanhaldi, en bendir á að þess konar skattsvik séu enn langstærsti hlutinn af skattsvikum hér á landi.
Meira
NORÐSNJÁLDRA, sem er svínhveli, rak á fjörur Fjalla í Kelduhverfi, rétt vestan við Lónsós, á dögunum. Að sögn Gísla Víkingssonar, hvalasérfræðings hjá Hafrannsóknastofnun, álitu þeir sem fundu dýrið að um höfrungategund væri að ræða.
Meira
PALLBÍL var ekið á fjögur hreindýr, tvo tarfa og tvo kálfa, á Kárahnjúkavegi á Fljótsdalsheiði í gærmorgun. Tvö dýranna drápust við áreksturinn en hin tvö varð að aflífa. Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum var þoka og myrkur þegar slysið varð.
Meira
FUNDUR í Norðurlandsdeild FAS, Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er útkominni skýrslu nefndar um réttarstöðu samkynhneigðra, sem birt var á haustdögum, en forsætisráðherra skipaði nefndina 8.
Meira
SAKSÓKNARAR í Úkraínu hafa ákveðið að taka upp lögreglurannsókn að nýju á grunsamlegum veikindum stjórnarandstöðuleiðtogans Viktors Jústsjenkó að því er BBC greindi frá í gær.
Meira
JÓN Kristjánsson, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra, og Auður Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur, hafa undirritað samkomulag um forkönnun upplýsinga um meðferð mænuskaða.
Meira
SKÁTAHREYFINGIN hefur nú dreift til allra 6 ára barna í landinu endurskinsborða með frönskum lás og er ætlaður á upphandlegg, ásamt sérstöku riti um öryggi barna í umferðinni.
Meira
ÁKVEÐIÐ hefur verið að framlengja skilafrest í samkeppni um námsefni til kennslu í neytendafræðslu í grunn- eða framhaldsskólum til 20. febrúar 2005. Samkeppnin er haldin að frumkvæði norrænu ráðherranefndarinnar.
Meira
Í STAÐ þess að senda viðskiptavinum SORPU jólakort er góðu málefni lagt lið með fjárstyrk. Í ár var það Konukot, næturathvarf fyrir heimilislausar konur, sem hlaut styrk að upphæð 200.000 kr.
Meira
Á þessu ári hafa margir sparkvellir verið teknir í notkun hér á landi en um er að ræða afrakstur samstarfsverkefnis Knattspyrnusambands Íslands og UEFA, auk þess sem fyrirtæki leggja verkefninu til fjármagn.
Meira
Stekkjarstaur kom til byggða í gær og lét verða sitt fyrsta verk, eftir að hafa gefið í skóinn, að heimsækja Þjóðminjasafnið. Hann spjallaði við gesti safnsins og sagði sögur af ferðum sínum.
Meira
TÆPLEGA 200 nemendur frumgreinadeildar Tækniháskóla Íslands munu þurfa að greiða verulega hærri skólagjöld en nú ef sameining Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík verður að veruleika.
Meira
ÁTTA dögum fyrir innrásina í Írak felldi utanríkismálanefnd Alþingis þingsályktunartillögu frá Vinstrihreyfingunni - grænu framboði um að Ísland legðist gegn öllum hernaðaraðgerðum í Írak.
Meira
Borgarbyggð | Við sameiningu sveitarfélaga þarf að taka tillit til margra þátta. Ekki síst þegar sameinuð eru þéttbýli og dreifbýli, enda oft um ólíkar þarfir varðandi þjónustu að ræða.
Meira
TVEIR bílar eru taldir ónýtir eftir veltur á Vestfjörðum á laugardag en þá var mikil hálka á vegum. Ökumenn voru í bílbeltum og sluppu þeir ómeiddir. Önnur veltan varð á Hnífsdalsvegi, milli Ísafjarðar og Hnífsdals en hin varð í Dýrafirði.
Meira
AUKNING á skattsvikum í gegnum erlend samskipti er mjög alvarleg þróun, að mati Geirs H. Haarde fjármálaráðherra, en í skýrslu um skattsvik á Íslandi, sem lögð var fram á Alþingi á föstudag, eru m.a.
Meira
UMFERÐARRÁÐ vill minna ökumenn á að á hverju ári er mikill fjöldi ökumanna staðinn að því að aka undir áhrifum áfengis. Þetta sé vítavert athæfi.
Meira
FYRSTU tölur úr skýrslum fjárræktarfélaganna haustið 2004 hafa verið birtar, þegar uppgjöri fyrir ríflega 60 þúsund ær er lokið. Sýna tölurnar að vænleiki dilka er breytilegri en dæmi eru um áður. Frá þessu er greint á vef Bændasamtakanna, bondi.is.
Meira
Breyta þarf reglum, bæta aðgengi skattayfirvalda, auka ábyrgð eigenda og stjórnenda og auka skattaeftirlit og rannsóknir til að minnka skattsvik hér á landi, að mati nefndar sem kannaði umfang skattsvika á Íslandi.
Meira
Þegar spænska veikin geisaði 1918 og 1919 létu milli 40 og 50 milljónir manna lífið. Á Íslandi létust 500 manns. 10 þúsund af 15 þúsund íbúum Reykjavíkur sýktust.
Meira
Innan Atlantshafsbandalagsins er nú deilt um það hvort senda eigi nokkra tugi manna til Íraks til að hjálpa til við þjálfun íraska hersins. Í dagblaðinu The New York Times í gær velti dálkahöfundurinn Thomas L.
Meira
Samkvæmt niðurstöðum skýrslu nefndar, sem rannsakaði umfang skattsvika á Íslandi, má áætla að ríki og sveitarfélög hafi tapað 25,5 til 34,5 milljörðum króna árið 2003 vegna skattsvika. Þetta eru um 8,5 til 11,5% af heildartekjum ríkis og sveitarfélaga.
Meira
ALLAR bækurnar, sem tilnefndar eru til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, eru prentaðar hjá prentsmiðjunni Odda. "Saga Odda spannar rúma sex áratugi og allan þann tíma hefur bókaprentun verið einn af hornsteinum fyrirtækisins.
Meira
ÞRIÐJI mynddiskur strákanna úr þættinum vinsæla 70 mínútum á Popptíví hefur náð gullsölu. Af því tilefni mættu kapparnir í Smáralind á dögunum og tóku við gullmynddiskum og árituðu um leið diska fyrir aðdáendur.
Meira
FINGRAFÖR Michaels Jacksons og drengsins sem sakar hann um kynferðislegt ofbeldi fundust á klámblaði sem lagt var hald á við húsleit á Neverland-búgarði Jacksons á síðasta ári. Þetta segir Santa Barbara News-Press .
Meira
FYRSTA fegurðarsamkeppni kvenna sem gengist hafa undir fegrunar- eða lýtaaðgerðir fer fram í Kína 18. desember. Nítján konur keppa til úrslita, þ.a.m. Liu Yulan, sem er 62 ára en hún er elst keppenda.
Meira
ÞÝSKA kvikmyndin Gegen die Wand var valin besta mynd Evrópu árið 2004 á evrópsku kvikmyndaverðlaunahátíðinni sem fram fór í Barcelona á laugardag. Hún fjallar um tyrkneskt par í Þýskalandi en henni leikstýrði Fatih Akin.
Meira
Graduale Nobili söng ásamt Elísabetu Waage hörpuleikara verk eftir Rutter og Britten. Jón Stefánsson stjórnaði. Laugardaginn 11. desember, kl. 21.00.
Meira
J.S. Bach: Jólaóratórían (fyrri helmingur). Ellen Margrét Ingvadóttir S, Guðrún Edda Gunnarsdóttir A, Eyjólfur Eyjólfsson T, Benedikt Ingólfsson B ásamt Scholae Cantorum og Alþjóðlegu barokkhljómsveitinni í Haag. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Laugardaginn 11. desember kl. 17.
Meira
FJÖLDI manns mætti á Heimsmeistaramótið í Popppunkti sem var haldið á efri hæðinni á Grand Rokki á laugardaginn. Dr. Gunni stjórnaði mótinu af sinni einskæru röggsemi en 20 manns höfðu skráð sig til leiks.
Meira
MAÐURINN sem myrti Darrell "Dimebag" Abbott, fyrrum gítarleikara þungarokksveitarinnar Pantera, var með hljómsveitina á heilanum og sakaði sveitarmeðlimi um ýmsar furðulegar gjörðir.
Meira
Halldór Þorsteinsson fjallar um stríðið í Írak: "Á meðan forseti Bandaríkjanna hagar sér nú eins og hann gerir ferst honum naumast að kalla önnur þjóðríki "öxulveldi hins illa"."
Meira
Baldur Pálsson svarar Ólafi G. Sæmundssyni: "Þessi skaðvænu áhrif eru ekki komin fram enn, þótt milljónir manna hafi stundað þennan kúr langtímum saman."
Meira
Helgi Seljan fjallar um fátækt og vímuefnaneyslu: "Við viljum mega treysta dómgreind fólks að það leiki sér ekki að því að vanhelga hátíð ljóss og friðar..."
Meira
Hjalti Þór Björnsson NCAC, formaður FÁR, félags áfengisráðgjafa, skrifar um áfengisauglýsingar: "Menn reyndu boð og bannleiðina en hún gekk sem kunnugt er ekki, hvorki á Íslandi né annars staðar."
Meira
Vilhjálmur Egilsson fjallar um efnahagsmál: "Íslenska krónan er því ekki lengur raunverulegur starfrækslugjaldmiðill þessara banka heldur má reikna með því að það sé evran eða annar erlendur gjaldmiðill."
Meira
(Lúkas, 23,18.): "Hið ljósa man, eftir Halldór Kiljan Laxness kom út 1944. Skoðanir manna á verkum skáldsins og á skáldinu sjálfu voru mjög skiptar; sumum þóttu verk hans vond."
Meira
Ragnar Thorarensen fjallar um val íþróttamanns ársins: "Hingað til hefur verið gengið framhjá fötluðu íþróttafólki við kjör íþróttamanns ársins."
Meira
Árni Ólafsson fjallar um nafngiftir sveitarfélaga: "Við þurfum að gæta þess að viðhalda örnefnum og heitum á svæðum og héruðum og að ný og klaufaleg nöfn á stjórnsýslukerfum eyðileggi þau ekki."
Meira
Garðar H. Björgvinsson fjallar um friðun landgrunnsins: "Þökk sé Hafró fyrir hugrekkið sl. sumar að þora að hefja myndatökur á skemmdum þeim sem LÍÚ hefur stundað áratugum saman."
Meira
Jón Valur Jensson fjallar um Tíbet: "Heildarfjöldi fallinna Palestínumanna á Vesturbakkanum og Gaza kemst sem betur fer ekki nema örlítið í áttina til þeirra skelfilegu talna sem hér mátti lesa."
Meira
Helga Rúna Gústafsdóttir og Ingibjörg M. Ísaksdóttir fjalla um málefni fatlaðra: "Það er von okkar að fleiri atvinnurekendur átti sig á að fólk með fötlun er tilbúið að leggja fram starfskrafta sína og að ávinningurinn er allra."
Meira
Jóhanna Sigurðardóttir fjallar um skattsvik: "Í húfi eru tugir milljarða króna sem skattgreiðendur hljóta að gera kröfu til að skili sér til að bæta lífskjör og velferð í landinu."
Meira
Margrét Guðmundsdóttir skrifar um meint samráð olíufélaganna: "Þessi aukna markaðshlutdeild Skeljungs skiptir miklu máli í umræðunni um meint samráð olíufélaganna."
Meira
Hreiðar Eiríksson fjallar um stjórnarskrármálið: "Fulltrúalýðræði hefur nú þann kost helstan að það dregur úr líkum á að ákvarðanir séu teknar í einhverskonar múgæsingu í samfélaginu."
Meira
Jóhann Elíasson skrifar um skattalækkanir: "Kemur það þeim til góða sem verst eru staddir að fella niður hátekjuskattinn, lækka skattprósentuna, fella niður eignaskattinn og hækka persónuafsláttinn lítillega?"
Meira
Kveikjum ljósin og merkjum póstkassana ÉG tók að mér það aukastarf að bera út póst fyrir jólin í einu hverfi á höfuðborgarsvæðinu. Hugsaði ég mér gott til glóðarinnar, bæði að ná mér í aukatekjur og svo taldi ég að útivera og hreyfing mundi gera mér...
Meira
Frá Vilhjálmi Eyþórssyni:: ""Margur heldur mig sig," segir gamalt máltæki og sú hugsun, eða öllu heldur þráhyggja, að allir aðrir hljóti að vera á sömu skoðun og maður sjálfur er einkennandi fyrir hugsjónamenn, lýðskrumara og einfeldninga allra alda."
Meira
Ágúst Guðmundsson Breiðdal fæddist á Krossi á Skarðsströnd í Dalasýslu 24. október 1926. Hann lést í Landspítalanum að morgni 1. desember síðastliðins.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Eðvarð Pálsson fæddist í Reykjavík 19. ágúst 1933. Hann lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi 4. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Páll Hallbjörnsson, kaupmaður í Reykjavík, f. 10.9. 1898, d. 15.10.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Ásgrímur Geirdal Gíslason fæddist í Grímsey 4. júlí 1939. Hann lést á Landspítalanum 28. nóvember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hallgrímskirkju 7. desember.
MeiraKaupa minningabók
Sveinn Ólafur Tryggvason fæddist í Reykjavík 1. júní 1931. Hann lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi við Hringbraut 1. desember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Bústaðakirkju 9. desember.
MeiraKaupa minningabók
ACTAVIS hefur gert tæplega tveggja milljarða króna lánasamning við Norræna fjárfestingabankann (NIB), eða sem nemur 24 milljónum evra. Samningurinn er gerður vegna byggingar nýs þróunarseturs samstæðunnar í Hafnarfirði.
Meira
AFL fjárfestingarfélag hf. sem er í 99% eigu Fjárfestingarfélagsins Atorku hf. hefur keypt 220 þúsund hluti, 0,22% hlutafjár, til viðbótar í breska fyrirtækinu Low & Bonar plc. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu kauphallarinnar í London.
Meira
EITT stærsta olíumengunarhreinsifyrirtæki í heimi, OSRL, prófar nú og reynslukeyrir í höfuðstöðvum sínum í Bretlandi frumeintak þróunarfélagsins Elí ehf. af ELI 2000 sem er fjölnota björgunar- og hreinsitæki.
Meira
Forsvarsmenn Baugs hyggjast selja Woodwards matvælabúðirnar keppinautnum 3663, nái yfirtaka félagsins á Big Food Group- samsteypunni (BFG) fram að ganga. Baugur hefur frest til föstudags til að gera formlegt 326 milljóna punda boð í BFG.
Meira
Í stuttu erindi á aðalfundi Landsnefndar Alþjóða verslunarráðsins á föstudag lýsti Jóhannes Jónsson útrás Baugs Group allt frá því að starfsemi Bónuss hófst í Færeyjum árið 1993. Jóhannes lýsti því sem hann kallar Bónushugsunarháttinn.
Meira
Í dag ganga margar stelpur með ljósakórónu á höfðinu í tilefni af Lúsíudeginum 13. desember. Flestar eru þær í Svíþjóð þar sem þessi hefð er orðin sterk þótt hún hafi ekki verið almenn nema í tæp áttatíu ár.
Meira
"Ég er fæddur og uppalinn Reykvíkingur og Framari í húð og hár. Ég fæddist á Baldursgötunni og bjó lengi á Njálsgötunni og hef haldið með Fram síðan ég man eftir mér," segir Kristján Kristjánsson, eða Danni eins og hann er oftast kallaður.
Meira
Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 6. des. var haldin jólarúberta með glæsilegum konfektverðlaunum. Fyrirkomulagið mæltist misjafnlega fyrir, en það þýðir ekki að vera óheppinn í spilagjöfinni þegar rúbertan er annars vegar. Lokastaðan Friðþjófur...
Meira
Bridsfélag Reykjavíkur Anton og Sigurbjörn Haraldssynir leiða enn eftir tvö kvöld af þremur í Cavendish - tvímenningi BR. Símon Símonarson og Hermann Friðriksson eru enn í öðru sæti, en nú munar ekki nema 39 impum á þeim.
Meira
Árleg keppni um Einarsbikarinn undir Eyjafjöllum Síðastliðið þriðudagskvöld fór fram árleg bridskeppni á milli Bridsfélags Rangæinga og Bridsfélags Hreppamanna að Seljalandi undir Eyjafjöllum.
Meira
Fullnæging er eftir Katerina Janouch í þýðingu Ernu Árnadóttur. Manneskjunni er hollast að hugsa ekki með höfðinu einu saman. Vinkonugjöfin verður sænska bókin Fullnæging, falleg, lítil, rauð bók, sem veitir lengri unun en konfekt og blómvendir.
Meira
Ásthildur E. Bernharðsdóttir er fædd á Ísafirði árið 1960. Hún lauk BSc í viðskiptafræði frá HÍ 1984 og MA í stjórnmálafræði frá HÍ árið 2000. Ásthildur hefur starfað fyrir Crismart rannsóknarsetrið í Stokkhólmi á sviði áfallastjórnunar og leiðbeint við rannsóknir á áfallastjórnun hjá Global Affairs Institute við Háskólann í Syracuse. Ásthildur er nú forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar HÍ og Rannsóknarseturs um smáríki. Hún á einn son.
Meira
Sjá því gæsku Guðs og strangleika, strangleika við þá, sem fallnir eru, en gæsku Guðs við þig, ef þú stendur stöðugur í gæskunni; annars verður þú einnig af höggvinn. (Róm. 11, 22.)
Meira
Fyrirmæli (Käsky) er eftir Leena Lander í þýðingu Sigurðar Karlssonar. Sagan gerist í finnsku borgarastyrjöldinni 1918, en hún braust út í kjölfar rússnesku byltingarinnar. Jagarahermaður kemur með rauðan kvenfanga í fangabúðir, eftir sjóvolk í rúma...
Meira
Jólatónleikar voru haldnir í Grafarvogskirkju í gær. Um 120 manna kór söng í kirkjunni en hann var myndaður úr barnakór, unglingakór og kór Grafarvogskirkju. Flutt voru jóla- og aðventulög undir stjórn Harðar Bragasonar og Oddnýjar J. Þorsteinsdóttur.
Meira
Víkverji er fréttafíkill. Hann hefur fyrir vikið verið áskrifandi að Fjölvarpinu um langt skeið, í þeim tilgangi að sjá fréttastöðvarnar Sky og CNN. Hann hefur þó líka horft nokkuð á aðrar stöðvar sem Fjölvarpið bauð upp á, þ.e.
Meira
* ANDRIY Shevchenko og Clarence Seedorf skoruðu báðir tvívegis er lið þeirra AC Milan vann Fiorentina 6:0. Giorgio Chiellini skoraði sjálfsmark í leiknum og Hernan Crespo skoraði eitt marka liðsins. AC Milan er með 34 stig að loknum 15 leikjum.
Meira
ARSENE Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur aldrei tapað fyrir Chelsea í deildarleik en leikurinn í gær var sá 16. í röðinni sem hann stjórnar Arsenal gegn þeim bláklæddu.
Meira
SÆNSKA dagblaðið Aftonbladet birti um helgina frétt þar sem laun knattspyrnumanna í efstu deild í Svíþjóð voru tíunduð og listi yfir tekjuhæstu leikmenn birtur. Miðað er við síðasta skattár, eða árið 2003, og vantar því upplýsingar um leikmenn á borð við Tryggva Guðmundsson og Jóhann B. Guðmundsson sem leika með Örgryte en þeir komu til liðsins s.l. sumar frá liðum í Noregi.
Meira
STEVE Bruce, knattspyrnustjóri Birmingham, brosti breitt eftir sigur sinna manna gegn Aston Villa í borgarslag Birminghamliðanna sem háður var á Villa Park í gær.
Meira
TANJA Poutiainen frá Finnlandi sigraði í svigkeppni sem fram fór í Altenmarkt í Austurríki í gær en um var að ræða heimsbikarmót í kvennaflokki. Marlies Schild frá Austurríki varð önnur en hún varð aðeins 3/100 á eftir Poutiainen.
Meira
ÍSLENDINGALIÐIN Ciudad Real og Lemgo tryggðu sér bæði sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik um helgina. Logi Geirsson og félagar hans í þýska liðinu Lemgo sóttu rússnesku meistarana í Medvedi heim til Moskvu. Lemgo tapaði, 23:22, en það kom ekki að sök því Lemgo vann heimaleikinn, 45:32.
Meira
EIÐUR Smári Guðjohnsen fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína með Chelsea gegn Arsenal á Highbury. Hann fékk til að mynda 7 í einkunn á fréttavef BBC.
Meira
HERMANN Hreiðarsson átti fínan leik í liði Charlton sem lagði botnlið WBA að velli á útivelli, 1:0. Sigurmarkið skoraði Írinn Matt Holland, fyrirliði liðsins, á 30. mínútu og var þetta fyrsta mark hans á leiktíðinni. Hermann Hreiðarsson lék sinn 50.
Meira
* FRANSKI landsliðsmaðurinn Thierry Henry hjá Arsenal skoraði tvö mörk gegn Chelsea og er hann orðinn langmarkahæstur í ensku úrvalsdeildinni með 15 skoruð mörk.
Meira
HEIÐAR Helguson og Ívar Ingimarsson skoruðu fyrir sín lið í ensku 1. deildinni í knattspyrnu um helgina. Heiðar skoraði sitt 11. mark á tímabilinu þegar hann kom Watford yfir gegn lærisveinum Glen Hoddle í Wolves strax á fjórðu mínútu.
Meira
FRAMARAR eru í erfiðum málum í baráttunni um sæti í úrvalsdeild Íslandsmóts karla í handknattleik, DHL-deildinni, eftir stórt tap gegn HK í Digranesi á laugardaginn, 35:29. Þegar einungis ein umferð er eftir af fyrri hluta mótsins eru Framarar í 5. sæti norðurriðilsins, tveimur stigum á eftir Þór sem óvænt sigraði Hauka á sama tíma. Fram getur þó tryggt sæti sitt með sigri gegn FH eftir viku, þar sem þeir höfðu betur í innbyrðisviðureignum gegn Þór.
Meira
JAKOB Jóhann Sveinsson, Ægi, hafnaði í 13. sæti af 31 keppanda í 200 metra bringusundi á Evrópumótinu í sundi í 25 metra laug sem lauk í Vínaborg í gær. Jakob synti á 2.11,56 mínútum. Anja Ríkey Jakobsdóttir var í 25.
Meira
* JALIESKY Garcia skoraði 3 mörk fyrir Göppingen sem tapaði fyrir Wetzlar , 31;24, í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Andrius Stelmokas, fyrrum leikmaður KA, skoraði einnig 3 mörk fyrir Göppingen .
Meira
FREDERIC Kanoute tryggði Tottenham þriðja sigurinn í röð en Frakkinn, sem leysti Jarmaine Dafoe af hólmi, skoraði eina mark leiksins gegn Manchester City í byrjun seinni hálfleik með þrumufleyg sem David James, markvörður City, réð ekki við.
Meira
AGANEFND Körfuknattleikssambands Íslands ákvað að taka kærumál Páls Axels frá síðasta fundi nefndarinnar upp að nýju þar sem nýjar upplýsingar hefðu komið fram.
Meira
BAYERN Munchen er vetrarmeistari í Þýskalandi en síðasta umferð fyrir vetrarhlé var um helgina. Bayern og Schalke eru efst og jöfn með 34 stig en Bæjarar skipa efsta sætið á betri markatölu.
Meira
* LEIKMENN San Antonio Spurs settu félagsmet gegn Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni á laugardag en þar hittu þeir 66% af skotum sínum í 116:97 sigri liðsins.
Meira
DARREL Lewis, sem leikið hefur með úrvalsdeildarliði Grindavíkur í körfuknattleik, hefur fengið íslenskan ríkisborgararétt en Lewis er fæddur í Bandaríkjunum.
Meira
ARI Gunnarsson tryggði úrvalsdeildarliði Skallagríms nauman sigur gegn 2. deildarliði Ljónanna í 16-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ og Lýsingar. Ari skoraði 3-stiga körfu er skammt var til leiksloka en Skallagrímur vann leikinn 90:88.
Meira
ÞÓR frá Akureyri vann gríðarlega mikilvægan sigur, 29:28, á Haukum þegar liðin mættust á laugardaginn að Ásvöllum á Íslandsmótinu í handknattleik, DHL-deildinni. Sigurmarkið skoraði Árni Þór Sigtryggsson, nítján ára stórskytta Þórsara, úr vítakasti þegar þrjár sekúndur voru eftir á leikklukkunni - hans tólfta mark í leiknum.
Meira
BJÖRNINN tók á móti Narfa frá Hrísey um helgina á Íslandsmótinu í ísknattleik og áttust liðin við í tvígang. Narfi sem tekur þátt í deildarkeppninni í fyrsta sinn gerði sér lítið fyrir og sigraði í báðum viðureignum liðanna.
Meira
EIÐUR Smári Guðjohnsen skoraði sitt 9. mark á leiktíðinni í gær þegar Chelsea og Arsenal skildu jöfn, 2:2, á Highbury. Eiður hefur skorað 7 mörk í úrvalsdeildinni, þrjú gegn Blackburn, og eitt mark gegn Manchester United, WBA, Charlton og Arsenal.
Meira
EVRÓPUMEISTARAR Porto unnu í gær heimsmeistaratitil félagsliða í knattspyrnu þegar liðið sigraði S-Ameríkumeistarana í Once Caldas frá Kólumbíu í leik sem háður var Tokyo í Japan.
Meira
EIÐUR Smári Guðjohnsen tryggði Chelsea eitt stig úr stórleik ensku úrvalsdeildarinnar á Highbury þar sem Englandsmeistararnir úr Arsenal voru mótherjar Chelsea. Thierry Henry skoraði tvívegis fyrir Arsenal en John Terry skoraði fyrir Chelsea í fyrri hálfleik. Eiður Smári skoraði jöfnunarmarkið úr fyrstu sókn Chelsea í síðari hálfleik en liðið er nú með 4 stiga forskot í efsta sæti deildarinnar með 40 stig, Everton er með 36 stig og Arsenal í því þriðja með 35 stig.
Meira
BÚIÐ er að skipa niður í riðla í Deildabikarkeppni KSÍ sem hefst á nýju ári. Sú breyting hefur verið gerð að nú verður keppt í þremur deildum karla og kvenna. FH-ingar eiga titil að verja í karlaflokki en ÍBV í kvennaflokki.
Meira
CHARL Schwartzel tryggði sér sigur á Dunhill-mótinu í golfi í gær í S-Afríku er hann fékk fugl á fyrstu holu í umspili gegn Englendingnum Neil Cheetham.
Meira
ÍTALSKIR fjölmiðlar og þá einkum og sér í lagi íþróttablaðið La Gazzetta dello Sport segir að Úkraínumanninum Andriy Shevchenko, framherja AC Milan, verði afhentur gullknötturinn í París í kvöld en þá útnefnir franska knattspyrnutímaritið France Football...
Meira
RÚMLEGA 70.000 áhorfendur yfirgáfu heimavöll spænska liðsins Real Madrid í skyndi í gær eftir að óþekktur maður hafði hringt í dagblaðið Gara og sagt að sprengja væri á vellinum. Þar áttust við Real Madrid og Real Sociedad og átti sprengjan að springa...
Meira
"VIÐ vorum svekktir að markið, sem Henry skoraði, skyldi standa. Dómarinn var að færa vegg okkar til þegar Henry skaut en svona er fótboltinn bara," sagði Eiður Smári Guðjohnsen við fréttamenn eftir leikinn gegn Arsenal í gær. Leikmenn Chelsea mótmæltu mjög þegar Graham Poll dæmdi markið gott og gilt en Henry var fljótur að átta sig og skaut í autt mark Chelsea á meðan markvörðurinn Petr Cech var að stilla varnarvegg sinna manna upp.
Meira
* VAL á knattspyrnumanni og knattspyrnukonu verður kunngjört á Hótel Nordica í kvöld. Það er Knattspyrnusamband Íslands sem stendur að valinu en á 2000.
Meira
EVERTON vann fyrsta sigur sinn á Liverpool á Goodison Park frá árinu 1997 en mark miðjumannsins Lee Carsley á 68. mínútu skildi Mersey-liðin að. Þar með tapaði Liverpool í fyrsta sinn í níu leikjum fyrir grönnum sínum og skilja nú tólf stig liðin. Everton er áfram í hörkutoppbaráttu og hefur komið liða mest á óvart á tímabilinu en Liverpool siglir lygnan sjó um miðja deild.
Meira
Rafsól ehf. Skipholti 33 hefur hafið innflutning á dyrasímakerfum frá spánska fyrirtækinu Fermax. Í fréttatilkynningu frá Rafsól segir að kerfin séu framleidd í stöðluðum einingum svo auðvelt er að raða saman kerfum, hvort sem er fyrir eina eða 99...
Meira
Dyrabjallan er biluð. Bankið vingjarnlega á hurðina, en þó af festu," stendur á handskrifuðum miða á útidyrahurð hússins Skáholts í Reykjavík. Þessi fyrirmæli til gestkomandi segja meira um þann sem skrifar þau en þann sem knýr dyra.
Meira
Það er afar þægilegt að hafa alla hluti á réttum stað svo hægt sé að grípa til þeirra þegar á að nota þá. Það á að sjálfsögðu við um skart sem aðra hluti.
Meira
Habitat 67, Montreal í Kanada Arkitekt: Moshe Safdie, 1967 Það reka flestir upp stór augu þegar þeir sjá Habitat 67 í fyrsta skipti. Það er heldur ekki að undra því byggingin á ekki sinn líka. Er þetta blokk? Varla. Klasahús? Má vera.
Meira
Kristín Sigfúsdóttir skáldkona átti efri hæð hússins á Framnesvegi 54 á árunum frá 1952 til 1974, segir Freyja Jónsdóttir. Kristín var þekkt fyrir greinaskrif sín um menn og málefni og fór þá oft ekki troðnar slóðir.
Meira
Dr. med. Þorkell Jóhannesson, prófessor úr embætti, skrifaði fróðlega grein um Skuggahverfið í blaðið Skjöld , 1. tbl. og 2. tbl. 2004 (útg. Sleipnir ehf). Þorkell ólst upp í Skuggahverfinu og bjó þar allar götur fram yfir stúdentspróf 1950.
Meira
J óhann Hjálmarsson skáld hefur haft í nógu að snúast síðustu mánuðina, en hann var valinn "Skáld mánaðarins" í október síðastliðnum og ber þann titil fram í janúar.
Meira
Almenningi standa til boða margskonar íbúðarlán á hagstæðum kjörum. Hærra lánshlutfall, lengri lánstími og ekkert hámark á lánspphæð. Það er ljóst að hin mikla samkeppni á lánamarkaði hefur reynst almenningi mikil kjarabót.
Meira
Skorradalur - Fasteign.is er nú með í einkasölu 60 fm heilsárshús ásamt 12 fm gestahúsi í landi Indriðastaða í Skorradal. Húsið er á steyptum grunni, með hita í plötu og skilast fullbúið að utan.
Meira
Eyrarbakki varð ein af höfnum einokunarverslunarinnar árið 1602 og varð verslunin þar mjög umsvifamikil á síðari hluta 19. aldar og fram á þá tuttugustu.
Meira
Vart er sá staður á landi hér að hann fagni ekki jólunum með blikandi ljósum og hvers konar skreytingum, jafnt utandyra sem innan. Þetta á jafnt við um þorp og bæi sem einstaka sveitabæi þó afskekktir séu.
Meira
Reykjavík - Fasteignasalan Draumahús er nú með til sölu parhús við Kögursel 38. "Þetta er hlýlegt og fallegt fimm herb. parhús á tveimur hæðum auk baðstofulofts, alls 135,3 ferm. og með bílskúr, sem er 23 ferm.
Meira
Mosfellsbær - Hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar er nú til sölu einbýlishús á Leirutanga 15 í Mosfellsbæ. "Þetta er mjög fallegt hús á einni hæð, 216,6 ferm.
Meira
Táknmyndir og litir hafa mismunandi merkingu í Austurlöndum, allt eftir trúarbrögðum og landshlutum, og segja oft heila sögu um uppruna, atburði og umhverfi. Þessi tákn eru gjarna í austurlenskum vefnaði, svo sem teppum.
Meira
HVÍTAR borðskreytingar geta verið mjög hátíðlegar. Hér má sjá hvít kerti í smíðajárnsstjaka sem skreyttur hefur verið með hvítglitrandi jólagreinum. Skreytingin fæst í Forn Ný í...
Meira
Reykjavík - Fasteignasalan Hof er nú með í sölu einbýlishús við Lyngrima 11. Húsið er steinsteypt, 191,6 ferm. að stærð og með innbyggðum bílskúr. "Þetta er glæsilegt hús á tveimur hæðum og með fallegri lóð," segir Jón Guðmundsson hjá Hofi.
Meira
Gert er ráð fyrir 13 nemendagörðum á tveimur til fimm hæðum með um 200 íbúðum alls. Magnús Sigurðsson kynnti sér deiliskipulag að námsmannaþorpinu, en þar verða leiguíbúðir fyrir einstaklinga og pör. Meira
Á Netinu má finna ýmsan fróðleik sem nýtist manni við dagleg störf. Eftirfarandi upplýsingar um meðhöldun á ýmsum gerðum af óhreinindum má t.d. finna á vefsíðu Godda ehf., Auðbrekku 9, Kópavogi.
Meira
HIN NÝJU 100% lán bankanna auðvelda ungu fólki til muna fyrstu kaup. Nú er svo komið að margir hugsa sig tvisvar um áður en þeir festa sér íbúð á leigu, þar sem lítið dýrara er - eða jafnvel ódýrara - að kaupa litla íbúð.
Meira
"Ný meiriháttar bygging á hafnarbakka Reykjavíkur getur haft feikilegt aðdráttarafl," segir Morten Schmidt arkitekt í samtali við Gunnar Hersvein, "ef miðbærinn verður þróaður með slíkri byggingu mun hann laða til sín fólk hvaðanæva að úr heiminum."
Meira
Það er að mörgu að hyggja þegar hengja skal upp jólaseríur, bæði innan húss og utan. Guðlaug Sigurðardóttir fékk hagnýt ráð hjá Baldri Hannessyni hjá Rafsól um frágang og uppsetningu jólasería.
Meira
Hveragerðisbær auglýsir nú lausar til úthlutunar 65 lóðir fyrir raðhús, parhús og einbýlishús í nýju hverfi, sem er að rísa í suðvesturhluta bæjarins.
Meira
Í lestrarsal Þjóðskjalasafns Íslands við Laugaveg er hljótt eins og í bókasafni. Þar er setið við hvert borð og fólk grúfir sig niður í skriftir með tölvuskjá fyrir framan sig. Það virðist augljóst að í þessum sal vinna miklir andans menn.
Meira
Reykjavík - Hjá Fasteignamiðstöðinni er nú til sölu 351,8 ferm. einbýlishús ásamt 23,8 ferm. bílskúr, samtals 375,60 ferm. Húsið stendur á eftirsóttum stað við Smáragötu 10.
Meira
MEÐ ÞVÍ að tileinka sér ákveðnar umgengnisvenjur er er hægt að spara umtalsverðar fjárhæðir með því að minnka rafmagnsnotkun. Hér eru nokkur atriði sem nota má til hliðsjónar.
Meira
IESS járngallerí var stofnað haustið 1996. Fyrirtækið sérhæfir sig í að hanna og smíða úr járni/stáli, svo sem stiga, handrið, borð, spegla og ýmis konar sérsmíði svo sem fatahengi og skógrindur. Iess er til húsa á Dalvegi 24, Kópavogi. www.iess.
Meira
ÞEIR sem ætla að standa í stórræðum yfir hátíðirnar og baka glæsilegar tertur þurfa ekki nauðsynlega að fjárfesta í dýrum tertufötum. Í járnagalleríinu Forn Ný í Garðabæ er hægt að leigja fimm arma tertuföt úr smíðajárni.
Meira
LKÍ hefur fengið leyfi stjórnvalda til þess að gera úttekt á lokafrágangi lagnakerfa. Kristján Ottósson, framkvæmdastjóri LKÍ, fjallar hér um hvað í úttektinni felst.
Meira
Umframgreiðslur Íbúðalánasjóðs 41 milljarður ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR greiðir lánveitendum sínum um 41 milljarð króna umfram venjubundnar afborganir, vexti og verðbætur að mestu á síðustu mánuðum þessa árs og í upphafi næsta árs.
Meira
Blönduós - Hjá Lögmannsstofu Stefáns Ólafssonar á Blönduósi er nú til sölu efri hæð hússins Ægisbraut 11 þar í bæ. "Þetta er hús með sál við ósa Blöndu," segir Magnús Ólafsson sölumaður.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.