ÞAÐ er nauðsynlegt að vinna Rússana, bæði fyrir okkur, handboltann á Íslandi og áhorfendur heima, nú verður allt lagt í sölurnar, það er að duga eða drepast," segir Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, um viðureignina við Rússa í dag, en það er fjórði leikur Íslands á mótinu. Eftir sigur Rússa á Tékkum í fyrradag sagði þjálfari þeirra, Anatoli Dratchev, að hann ætti aðeins einn erfiðan leik eftir, gegn Slóvenum á laugardag.
Meira