Úrelding orða ÞAÐ er sjálfsagt eins og hver annar bardagi við vindmyllur, að reyna að eiga orðastað um rétta málnotkun við höfund sem hefur mál sitt á útlenskuslettunni "kollega", en þannig upphefur Þórður Örn Sigurðsson andsvar sitt í...
Meira
17 milljónir í mokstur | Kostnaður við snjómokstur á Akureyri nam um 17 milljónum króna í liðnum janúarmánuði. Það er svipuð upphæð og varið var til snjómoksturs á götum bæjarins í janúar í fyrra.
Meira
LANDSPÍTALINN var rekinn með 273 milljóna króna halla á síðasta ári að því er fram kemur í bráðabirgðauppgjöri frá spítalanum. Þetta er um 1% af útgjöldum en þau námu um 27,9 milljörðum í fyrra.
Meira
Hólmavík | Bergur Thorberg myndlistarmaður kemur við á menningarhátíð á Hólmavík, á leið sinni til Flórens á Ítalíu, þar sem honum hefur verið boðið að taka þátt í alþjóða Flórens-tvíæringnum.
Meira
UMHVERFISRÁÐHERRA, Sigríður Anna Þórðardóttir, opnaði í gær aðgengi almennings að bráðaviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands um jarðvá. Markmið kerfisins er að gera eftirlit með jörðinni virkara þannig að draga megi úr tjóni vegna jarðskjálfta og eldgosa.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær rúmlega fertugan karlmann í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni auk fleiri brota. Var hann dæmdur til að greiða stúlkunni 1,2 milljónir kr. í bætur.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands hefur dæmt tæplega 19 ára pilt í hálfs árs fangelsi fyrir líkamsárás á Akureyri í fyrravor og innbrot og þjófnað í verslun á Laugum í Reykjadal í desember 2003.
Meira
Vitni ekki kölluð fyrir þótt byggt sé á vitnisburði Hæstiréttur kvað upp dóm í kynferðisbrotamáli á fimmtudag. Meirihluti réttarins hnekkti tveggja ára fangelsisdómi yfir manni, sem héraðsdómur hafði sakfellt fyrir að hafa haft samræði við 13 ára...
Meira
KONA nokkur í Flórída, sem sagðist hafa séð er nýfæddu barni var kastað út úr bíl á ferð, er sjálf móðir þess. Laug hún upp sögunni til að fela það fyrir fjölskyldunni, að hún hefði átt barn.
Meira
Á MÖRGUM sviðum er réttarstaða fatlaðra þokkalega tryggð á ýmsum sviðum í íslenskum rétti og þeim alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að þó enn sé verk að vinna við að tryggja réttindi er snerta persónufrelsi og réttaröryggi fatlaðra.
Meira
FRIÐJÓN Guðmundsson, bóndi á Sandi í Aðaldal, lét nýlega af störfum sem veðurathugunarmaður fyrir Veðurstofu Íslands, en hann hefur gegnt því starfi samfellt í 65 ár eða frá ársbyrjun 1940.
Meira
Þórshöfn | Fólksfækkun hefur víða staðið landsbyggðinni fyrir þrifum en Þórshöfn á Langanesi er þar undantekning því 3% fjölgun var nú á milli ára.
Meira
"FERÐAFÉLAG Íslands stendur á gömlum merg og meðal félagsmanna er kjarni reyndra ferðamanna en á seinni árum hefur yngra fólk í auknum mæli gengið til liðs við félagið.
Meira
Borgarnes | Kjöri íþróttamanns Borgarfjarðar var lýst á íþróttahátíð UMSB á dögunum. Gauti Jóhannesson hlaut þá titilinn íþróttamaður Borgarfjarðar fyrir árið 2004. Gauti er talinn vera einn af bestu hlaupurum landsins í 800, 1.500 og 3.
Meira
GUÐNI Bergsson, héraðsdómslögmaður og fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu, hefur hafið störf hjá Landsbankanum Luxembourg SA. Guðni mun starfa að þróunarverkefnum sem lúta að einkabankaþjónustu og alþjóðlegum viðskiptum Landsbankans.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur framlengt gæsluvarðhald í þrjár vikur yfir Íslendingi sem handtekinn var vegna smygls á fjórum kílóum af amfetamíni til landsins. Einnig er Þjóðverji í gæsluvarðhaldi vegna málsins.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt franskri konu, búsettri hér á landi, forsjá dóttur sinnar sem hún á með frönskum manni. Hann var nýlega dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að taka stúlkuna með sér til Frakklands árið 2001 og halda henni þar hjá sér.
Meira
KARLMAÐUR var handtekinn í íbúð í miðborg Gautaborgar í gærmorgun grunaður um ránið á sænska auðmanninum Fabian Bengtsson. Maðurinn er rúmlega fertugur og á vef Svenska Dagbladet kemur m.a.
Meira
KRAKKARNIR á Leikskólann Lyngholt á Reyðarfirði ráku upp stór augu þegar skipverjar á Bjarti NK121 frá Neskaupstað komu með hákarl til að sýna þeim.
Meira
ARSENALKLÚBBURINN á Íslandi hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er fjölbreyttu framboði af ókeypis útsendingum Skjás eins á ensku knattspyrnunni.
Meira
KARLMAÐUR sem handtekinn var í fyrradag vegna gruns um margítrekuð rán í Reykjavík að undanförnu var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 18. febrúar í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Meira
SAMTÖK afurðastöðva í mjólkuriðnaði hefur samþykkt að beina því til mjólkursamlaganna að kaupa af bændum prótein úr samanlagt allt að 4,5 milljónum lítra mjólkur umfram greiðslumark á yfirstandandi verðlagsári.
Meira
Davíð Hjálmar Haraldsson las Morgunblaðið vel og vandlega og orti síðan þetta: Miklar fréttir Mogginn ber en mjólkurkýr og huðna saman myndað hafa her ef Halldór styður Guðna.
Meira
Landsbanki Íslands og KB banki hafa undirritað samning um alþjóðlegt sambankalán til Norðuráls að upphæð 365 milljónir Bandaríkjadala eða um 23 milljarða íslenskra króna. Er um að ræða hæsta lán sem íslenskir bankar hafa veitt hérlendis.
Meira
Nafnaruglingur Undir minningargrein um Birgi Viktor Hannesson á blaðsíðu 38 í Morgunblaðinu í gær, föstudag, eftir tengdadóttur hans, Guðrúnu Eiríksdóttur, stóð fyrir mistök nafn sendanda greinarinnar, Guðbjargar, en ekki höfundar, Guðrúnar.
Meira
LÖGREGLAN á Ísafirði leitar manns sem sýndi dónaskap á almannafæri þegar hann beraði sig fyrir framan konu sem stödd var í bíl fyrir utan Grunnskólann á Ísafirði í fyrradag. Hann var flúinn þegar lögreglan kom á staðinn. Er hann talinn vera 25-30...
Meira
SKIPVERJARNIR fimm sem komust lífs af þegar Jökulfellið fórst gátu litlar upplýsingar gefið við sjópróf í Færeyjum í gær um orsakir þess að skipið sökk aðfaranótt sl. þriðjudags. Sjóprófum vegna slyssins lauk síðdegis í gær.
Meira
SAMKVÆMT nýju deiliskipulagi er heimilað að rífa 25 hús sem byggð voru fyrir 1918 við Laugaveg í Reykjavík. Hefur steinbærinn Laugavegur 22A frá árinu 1892 þegar verið rifinn.
Meira
ÍSLENSK kona lést í bílslysi á Kanaríeyjum í fyrradag. Ekið var á hana þegar hún var að fara yfir götu. Hún hét Sigurbjörg Bjarnadóttir, til heimilis að Bakkabakka 4a í Neskaupstað. Sigurbjörg var á 69. aldursári, fædd 12. ágúst 1937.
Meira
FÓLK virðir fyrir sér skemmdir af völdum gríðarlegra rigninga í Pakistan en talið er, að þær hafi kostað 112 manns, hið minnsta, lífið á undanförnum dögum.
Meira
Fréttaskýring | Líklegt þykir að ráðamenn í Kína freisti þess að fá Norður-Kóreumenn aftur að samningaborðinu enda hafa þeir iðulega tekið að sér að túlka sýn Kim Jong-il, leiðtoga Norður-Kóreu, og undirsáta hans til veruleikans.
Meira
ÞESSI mynd indverska ljósmyndarans Arko Datta, er sýnir indverska konu í Cuddalore á Indlandi syrgja ættingja sinn sem lést í flóðbylgjunni annan dag jóla, hefur verið valin Fréttamynd ársins 2004 (World Press Photo 2004), að því er tilkynnt var í gær.
Meira
"Forgangsverkefni" er yfirskrift námskeiða og fyrirlestra sem Húsið, menningar- og upplýsingamiðstöð ungs fólks á Akureyri, efnir til og hefst á morgun, laugardaginn 12. febrúar, en dagskrá stendur fram yfir páska.
Meira
VEGNA tilmæla Samkeppnisstofnunar hefur Umferðarstofa tímabundið afturkallað þrjár af fjórum sjónvarpsauglýsingum þar sem börn hafa komið fram við glannalegar aðstæður.
Meira
Nýja bújörðin - búskaparskógrækt, beitarstjórnun og nýting lands. Þetta er yfirskrift ráðstefnu sem verður haldin dagana 16.-17. mars á Núpi í Dýrafirði.
Meira
Opnar sýningu | Joris Rademaker opnar sýningu á Bókasafni Háskólans á Akureyri á morgun, laugardaginn 12. febrúar. Hann er fæddur í Hollandi 1958 en hefur verið búsettur á Akureyri frá árinu 1991.
Meira
LÁTINN er í Reykjavík á 87. aldursári Óli B. Jónsson íþróttakennari, fyrrum knattspyrnumaður og þjálfari. Óli fæddist að Grandavegi í Reykjavík 15. nóvember árið 1918 en foreldrar hans voru Jón Jónsson og Þórunn Eyjólfsdóttir. Óli B.
Meira
Vatnsleysuströnd | Sauðburður er hafinn í Halakoti á Vatnsleysuströnd. Í gærmorgun voru sex ær bornar og tíu lömb fædd. Talið er að ærnar í Halakoti hafi það gott, kannski of gott.
Meira
ANTON Gylfi Pálsson var valinn skyndihjálparmaður ársins í gær af Rauða krossi Íslands fyrir að bjarga lífi Ásgeirs Sigurðssonar með hetjulegri framgöngu ásamt tveim félögum sínum í fyrra.
Meira
Amin Kamete segir heimaland sitt, Simbabve, vera notað sem afsökun annarra þjóða fyrir því að dregið hafi verið úr þróunarsamvinnu við mörg Afríkuríki. Jón Pétur Jónsson ræddi við hann um stöðu mála í Afríku.
Meira
FRAMTÍÐIN liggur ekki í því að efla ríkjandi afstöðu til náttúrunnar sem öll er lituð af þeirri hugmynd að þjóðfélagið þurfi fyrst og fremst sífellt meiri orku.
Meira
ARTHUR Miller lést í gær, 89 ára að aldri. Var hann eitt af kunnustu leikskáldum Bandaríkjamanna á síðustu öld og höfundur verka á borð við "Sölumaður deyr" og "Í deiglunni".
Meira
Akranes | Stjórn Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi hefur samþykkt að taka upp viðræður við stofnaðila heimilisins um hvort sækja eigi um fjárveitingu til ríkisins til byggingar nýrrar sjúkradeildar, að hluta til lokaðrar deildar fyrir heilabilaða.
Meira
FÓLK slasaðist í hörðum árekstri tveggja fólksbíla sem varð við bæinn Fiskilæk í Leirársveit í umdæmi Borgarfjarðarlögreglunnar í gærkvöldi. Tvennt var í hvorum bíl en upplýsingar lágu ekki fyrir um það hversu alvarleg meiðslin voru.
Meira
Selfoss | Smáratorg ehf. hefur fengið vilyrði fyrir lóð fyrir um 20 þúsund fermetra verslanamiðstöð á Selfossi, vestan Ölfusár. Þar hyggst fyrirtækið byggja hús fyrir Rúmfatalagerinn og fleiri verslanir og aðra þjónustustarfsemi.
Meira
Nýi gervigrasvöllurinn á Flúðum er mikið notaður. Börnin fara þangað í frímínútum og eftir skóla til að sparka bolta. Völlurinn er upphitaður og er því hægt að nota hann allan veturinn.
Meira
ALÞJÓÐAHÚS og Íslandsbanki hafa undirritað samstarfssamning sem felur í sér að Íslandsbanki verður aðalstyrktaraðili Þjóðahátíðar Alþjóðahúss sem haldin verður í Perlunni 19. febrúar n.k. Þetta er í annað sinn sem Þjóðahátíð fer fram í Reykjavík.
Meira
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, gagnrýndi harðlega stóriðju- og skattastefnu ríkisstjórnarinnar í umræðu utan dagskrár á Alþingi á fimmtudag.
Meira
SAMBAND ungra framsóknarmanna, SUF, hefur sent frá sér ályktun, þar sem þeir fagna framtíðarsýn forsætisráðherra um alþjóðlega fjármálamiðstöð á Íslandi.
Meira
GYLFI Þór Þorsteinsson hefur verið ráðinn sölustjóri auglýsinga á sölu- og markaðssviði Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins. Gylfi Þór hefur að undanförnu starfað sem markaðsstjóri Viðskiptablaðsins.
Meira
Hið árlega þorrablót Djúpavogshrepps var haldið síðustu helgina í janúar. Að venju var margt um manninn og kom fólk víða af landinu til að njóta dagskrár heimamanna.
Meira
YFIRVÖLD í Kína hafa varað ríka þegna sína við og segja, að hættan á að þeim verði rænt hafi stóraukist. Nærri 4.000 manns hafi verið rænt á síðasta ári og ættingjarnir neyddir til að kaupa fólkið laust.
Meira
KRAFTMIKLUM strákum finnst fátt skemmtilegra en að leika sér að bolta þar sem plássið er mikið og engin hætta á að styttur fjúki úr hillum. Nota þeir öll tækifæri til að hlaupa eins og þeir geta - oft í kappi við félaga sína.
Meira
Hveragerði | Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar frestaði því á fundi í fyrradag að taka afstöðu til umsóknar ÁTVR um rekstrarleyfi fyrir vínbúðina sem á að fara að opna í ESSO-skálanum í Hveragerði.
Meira
Reykjavík | Þörf er á varanlegri merkingu katta vegna mikils fjölda óskilakatta sem finnast í borginni á ári hverju, að mati starfshóps um endurskoðun á samþykkt um kattahald.
Meira
HJÁ andfætlingum okkar í Ástralíu er sumar en ekki jafnmikil sól og venjan er á þeim árstíma. Raunar hefur sumarið verið ákaflega votviðrasamt sums staðar og með þeim afleiðingum, að eitraðar kóngulær hafa flúið inn í hús undan vatnsveðrinu.
Meira
HÁSKÓLALISTINN er í oddastöðu eftir að Vaka tapaði meirihluta í kosningum til stúdentaráðs Háskóla Íslands og háskólafundar sem fram fóru á miðvikudag og fimmtudag. Kjörsókn var dræm, 37,6% stúdenta kusu, sem var þó 2% meira en í kosningunum í fyrra.
Meira
VEIÐIFÉLAG Víðidalsár hefur ákveðið að óska eftir tilboðum í leigu á stangaveiði í Víðidalsá, Fitjá og Hópi, ásamt veiðihúsinu Tjarnarbrekku, frá og með 2006. Útboðið er opið og er miðað við að leigusamningur verði að lágmarki til þriggja ára.
Meira
RÚMLEGA 20 manns voru drepnir í þremur sprengjutilræðum í Írak í gær. Bílsprengja sprakk fyrir utan mosku sjíta í bænum Balad Ruz, norðaustur af höfuðborginni, Bagdad. 14 fórust og minnst 22 særðust.
Meira
Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Haraldi Sturlaugssyni, stjórnarmanni í HB Granda. "Vegna ónákvæmra frétta í kjölfar tilkynningar HB Granda hf.
Meira
SÍMINN hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna heilsíðuauglýsingar um grunnnet Símans frá fjarskiptafyrirtækinu Og Vodafone sem birtist í dagblöðum í gær. "Í auglýsingunni eru birtar staðhæfingar sem ekki standast.
Meira
"ÉG vonast til að hægt verði að hefja framkvæmdir á seinni hluta þessa árs og að verkinu verði að fullu lokið á 3-4 árum," sagði Sigurður Sigurðsson framkvæmdastjóri SS Byggis.
Meira
JUNICHIRO Koizumi, forsætisráðherra Japans, skoraði í gær á stjórnvöld í Norður-Kóreu að snúa aftur að samningaborðinu og varaði jafnframt við efnahagslegum refsiaðgerðum annarra ríkja gegn þeim í bráð.
Meira
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna halda áfram að tala um Íraksmálið. Þeir virðast telja, að þeir sjálfir séu menn til að segja öðrum til í utanríkismálum.
Meira
SÖNGKONAN Beyoncé mun koma fram á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fer í Kodak-höllinni 27. febrúar og syngja nokkur laganna sem tilnefnd hafa verið sem bestu frumsömdu sönglögin.
Meira
HÓPUR frá barnastöð breska ríkissjónvarpsins, CBBC , er staddur hér á landi við tökur á barnaþættinum Blue Peter , sem er einn vinsælasti og rótgrónasti barnaþáttur Bretlands.
Meira
"JIMMY Smith hafði gríðarleg áhrif. Hann var hornsteinn í Hammondorgelsögunni og álíka mikill áhrifavaldur og Bill Evans og Art Tatum meðal píanóleikara," segir Þórir Baldursson, tónlistarmaður og Hammondorgelleikari.
Meira
Eftir Marinu Carr í þýðingu Árna Ibsen. Höfundur tónlistar: Atli Heimir Sveinsson. Leikstjóri: Edda Heiðrún Backman, Leikstjóri sviðshreyfinga, radda og gríma: Giorgios Zamboulatis, leikmynd: Jón Axel Björnsson. Lýsing: Björn Bergsteinn Björnsson.
Meira
FYRRIPARTUR síðustu viku í Orð skulu standa var ortur af augljósu tilefni: Framsóknarkonum í Freyju fjölgar nú ógnarhratt Ásdís Thoroddsen botnaði tvisvar í þættinum: Móður, konu og meyju Magnúsarkynið fær glatt Þær bugta sig í beygju bræðraveldið er...
Meira
JIMMY Smith, áhrifamesti stórmeistari orgeldjassins og fyrirmynd Hammondorgelleikara um allan heim, er fallinn frá. Smith lést á heimili sínu sl. þriðjudag, 76 ára að aldri.
Meira
Orðið er einstakt. En hvað væri dagblað án ljósmynda? Hlutirnir gerast hratt á 21. öldinni, fólk er upp til hópa að flýta sér og gefur sér ekki alltaf tíma til að staldra við hið ritaða orð. Öðru máli gegnir um ljósmyndina.
Meira
*Zöe ólst upp í Bangor á Norður-Írlandi. *Hún var í skólakórnum, hokkíliðinu og vann skriftarkeppni í skóla. *Zöe er menntaður lögfræðingur og hefur málflutningsleyfi. *Hún gekk til liðs við Bláa Pétur fimmtudaginn 23. desember 2004.
Meira
GRUFF Rhys, söngvari hinnar þekktu velsku hljómsveitar Super Furry Animals, hefur staðfest komu sína á Aldrei fór ég suður, rokkhátíð alþýðunnar, sem haldin verður í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 26. mars.
Meira
Runólfur Ágústsson fjallar um rekstur fyrirtækja: "Hagnaður fyrirtækja þarf að vera í samræmi við það samfélag sem þau starfa í og framlag þeirra til þess samfélags."
Meira
Þórsteinn Ragnarsson fjallar um breytingar á lögum um kirkjugarða: "Nýja fyrirkomulagið mun minnka verulega þá mismunun sem hefur verið á tekjum kirkjugarða eftir íbúatölu..."
Meira
Eftir Pál Ólafsson: "Íslensku verkalýðsfélögin standa sig vel í að tryggja Íslendingum vinnu við framkvæmdir hér á landi og barátta þeirra til verndar erlendu vinnuafli er góðra gjalda verð. Sú barátta má þó ekki koma niður á hagsmunum íslenska þjóðarbúsins."
Meira
Sigurður G. Guðjónsson fjallar um fjarskiptamarkað: "Ég leyfi mér að fullyrða að Og fjarskipti vilja ekki samkeppni í fjarskiptum. Félagið og eigendur þess vilja aðeins tvíkeppni, duopoly. Duopoly útilokar óvænt og óþægileg útspil samkeppnisaðila varðandi verð og þjónustu."
Meira
Guðmundur Arnar Guðmundsson svarar Theodóri Gunnarssyni: "Það kemur hreinlega öðru fólki ekki við hvort það er reykt í minni fasteign, hvort sem ég bý þar, rek verslun eða veitingastað."
Meira
Frá Þórunni Lúðvíksdóttur og Ásgeiri Gunnlaugssyni: "FYRIR nokkrum mánuðum barst okkur fyrst til eyrna orðrómur um að ákveðnir aðilar væru að vinna að því að koma sóknarpresti okkar Garðbæinga frá, orðrómur þessi varð æ þrálátari svo að lokum ákváðum við að kynna okkur málið og viti menn formaður..."
Meira
Ólafur Ólafsson fjallar um kaupmáttaraukningu aldraðra: "Um er að ræða grófa blekkingu eða vankunnáttu. Við óskum eftir leiðréttingu á þessari framsetningu."
Meira
Gunnhildur Gísladóttir fjallar um iðjuþjálfun: "Sú þróun sem orðið hefur í verkjameðferð hér á landi og erlendis samræmist mjög hugmyndafræði iðjuþjálfunar."
Meira
Eftir Steingrím J. Sigfússon: "Það er sorglega niðurlægjandi fyrir íslenska þjóð að standa nú frammi fyrir upplýsingum um að nafn og orðstír Íslands var meðhöndlað með þessum hætti."
Meira
Jónína Sigurðardóttir fjallar um samstarf lögreglunnar og 112: "Viðbragðstími í neyðartilfellum styttist til muna með svokallaðri ferilvöktun ..."
Meira
Páll Sigurðsson fjallar um málefni Þjóðarbókhlöðunnar: "Hérmeð er skorað á almenna starfsmenn safnsins, er búa nú við tilteknar þvinganir, að láta í ljósi skoðanir sínar á þessum málum á opinberum vettvangi..."
Meira
Björgvin Guðmundsson fjallar um ríkisstjórnina og misgjörðir hennar: "Það er nýtt í stjórnmálum að stjórnarherrar miklist af óorðnum hlutum, sem óvíst er að verði að veruleika."
Meira
Kristján Jónsson svarar Staksteinum: "Áhyggjur Staksteina af því að ungir sjálfstæðismenn séu að "fjarlægjast uppruna flokksins" eru því óþarfar..."
Meira
Orri Hauksson fjallar um fjarskipti: "Það getur vart verið sjálfstætt keppikefli að leggja tvö dýr fjarskiptakerfi hlið við hlið, þegar neytandinn nýtir aldrei nema annað þeirra."
Meira
Aðalheiður Kristín Jónsdóttir fæddist í Brúnárvallakoti á Skeiðum 22. ágúst 1913. Hún lést á Ljósheimum, öldrunardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, aðfaranótt 6. febrúar síðastliðins.
MeiraKaupa minningabók
Björg Ebeneserdóttir fæddist á Rauðbarðarholti í Hvammssveit í Dalasýslu 1. maí 1904. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 2. febrúar síðastliðinn. Foeldrar hennar voru Ebeneser Kristjánsson, f. 23. september 1882, d. 13.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Ármann Böðvarsson vélstjóri, eða Mannsi í Ásum eins og hann var alltaf kallaður, fæddist 19. júlí 1926 í Vestmannaeyjum. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum 5. febrúar síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Ingimar Ingimundarson var fæddur að Garðstöðum í Garði 15. júli 1926. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi 2. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jónína Guðmundsdóttir og Ingimundur Guðjónsson.
MeiraKaupa minningabók
Elsku besta langamma. Það var svo gaman að vera hjá þér alltaf, ég fékk alltaf svo gott að borða. Það var líka svo gaman að fylgjast með þér gera kapal. Það verður voða skrýtið að koma á Djúpavog og þú ert ekki þar. Ég sakna þín rosalega mikið.
MeiraKaupa minningabók
Kristbjörg Guðmundsdóttir fæddist á Steinsstöðum á Djúpavogi 7. september 1924. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 6. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmundur Þorsteinsson, f. 26.7. 1895, d. 23.5.
MeiraKaupa minningabók
Loftur Eiríksson fæddist í Steinsholti í Gnúpverjahreppi 16. september 1921. Hann lést 5. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Eiríkur Loftsson bóndi í Steinsholti, f. 1884, d. 1968 og Sigþrúður Sveinsdóttir, f. 1885, d. 1977.
MeiraKaupa minningabók
Páll Pálsson fæddist á Siglufirði 3. nóvember 1927. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 6. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigríður Kristín Gunnarsdóttir og Páll Pétursson. Páll átti fimm bræður, Gunnar, f. 1925, Pétur, f. 1926,...
MeiraKaupa minningabók
Rakel Steinvör Kristjánsdóttir fæddist í Kirkjubæ í Hróarstungu 9. júlí 1919. Hún lést á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 6. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigríður Bjarnadóttir frá Hallfreðarsstöðum og Kristján Gíslason frá Svínárnesi.
MeiraKaupa minningabók
Veronika Hermannsdóttir fæddist í Miðhúsum á Hellissandi 23. júní 1918. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 5. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Hermann Hermannsson, f. í Svefneyjum á Breiða, f. 29.7. 1893, d. 7.11.
MeiraKaupa minningabók
Frystitogarinn Venus HF 519 kom til hafnar í Reykjavík upp úr hádeginu í gær með góðan afla, rúm 750 tonn af þorski upp úr sjó og er aflaverðmætið í þessari veiðiferð rúmar 140 milljónir kr. Skipið var við veiðar í Barentshafi og tók veiðiferðin 40...
Meira
NÝSTOFNAÐ félag hefur keypt auglýsingastofurnar Gott fólk og Máttinn og dýrðina og hyggst sameina þær. Aðaleigendur hins nýja félags eru auglýsingastofan Fíton og Gunnlaugur Þráinsson, framkvæmdastjóri Góðs fólks.
Meira
HANNES Guðmundsson hefur verið ráðinn útibússtjóri Íslandsbanka í Lækjargötu. Hannes var framkvæmdastjóri Frumafls hf. frá 2001 til 2004, framkvæmdastjóri Securitas hf. frá 1987 til 2001, framkvæmdastjóri Pennans hf.
Meira
ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnr lækkaði um 0,2% í gær og er lokagildi hennar 3.868 stig . Bréf Össurar hækkuðu mest af félögum í úrvalsvísitölunni, um 1,8%. Bréf Samherja lækkuðu mest, um...
Meira
GENGIÐ hefur verið frá heildarsamningi milli Samherja hf. og Eimskipafélags Íslands ehf. um alla flutninga fyrir Samherja og þjónustu tengda þeim.
Meira
SAMTÖK banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) fagna ummælum forsætisráðherra á Viðskiptaþingi Verslunarráðs fyrr í vikunni, meðal annars um Ísland sem alþjóðlega fjármálamiðstöð.
Meira
Í dag, 12. febrúar 2005, verður dr. Erwin Koeppen félagi okkar og vinur áttræður. Erfitt er að ímynda sér að svo unglegur maður, beinn í baki og snar í snúningum eigi átta tugi ára að baki.
Meira
Erla H. Helgadóttir og gönguhópur sem hún er félagi í og stofnaður var árið 1996, fóru til Þýskalands og Ítalíu sumarið 2003 og gengu um Alpana. Hópurinn gisti hjá vinkonu Erlu, Helgu Þóru Eder, sem rekur gistiheimili í Þýsku ölpunum.
Meira
Fjóla María Ágústsdóttir tók þátt í ritgerðarsamkeppni á vegum sendiráðs Íslands í Japan og bar sigur úr býtum. Í kjölfarið bauð utanríkisráðuneytið í Tókýó henni til Japans í tvær vikur ásamt 29 öðrum Evrópubúum.
Meira
Nýlega voru stofnuð samtök ungs fólks með þunglyndi og þar að baki standa þau Ragnheiður Svavarsdóttir, Dagný Þórmarsdóttir og Valgeir Pálsson, en þau þekkja öll þunglyndi af eigin raun.
Meira
Anna Þóra Gylfadóttir viðurkennir fúslega að hún sé rómantísk og því skal engan undra að hún stofnaði nýlega fyrirtæki sem heldur utan um framleiðslu og sölu á vöru sem tengist ástinni. Fyrirtækið heitir Punkturinn yfir i-ið.
Meira
Það munaði allt að 117% á hæsta og lægsta verði á skötusel og söltuðum og ferskum kinnum þegar Samkeppnisstofnun gerði verðkönnun á fiski í síðustu viku. Skötuselurinn kostaði 1.150 kr. þar sem hann var ódýrastur en kostaði 2.495 krónur þar sem hann var dýrastur.
Meira
90 ÁRA afmæli . Á morgun, 13. febrúar, verður Stefan Stefanson, fyrrverandi fógeti í Gimli , 90 ára. Fjölskylda hans heldur honum samsæti í Minerva samkomuhúsinu í Gimli kl.
Meira
90 ÁRA afmæli . Í dag, laugardaginn 12. febrúar, er níræð Sigríður Jónsdóttir, Sólvangsvegi 1, áður Hringbraut 35, Hafnarfirði. Hún tekur á móti gestum í Skútunni, Hólshrauni 3, milli kl. 15 og 18. Gjafir eru vinsamlegast...
Meira
Bæjarlistamaður 2005 leikur einleik í Seltjarnarneskirkju AUÐUR Hafsteinsdóttir, sem valin hefur verið bæjarlistamaður Seltjarnarness fyrir árið 2005, leikur einleik í sunnudagsmessu kl. 11 í Seltjarnarneskirkju 13. febrúar næstkomandi.
Meira
ÍSLENSK-Kínverska menningarfélagið og félag Kínverja á Íslandi standa fyrir skrúðgöngu í dag í tilefni af nýliðnum áramótum Kínverja. Drekadansarar leggja af stað frá Hlemmi með litríkan 15 metra langan dreka sem eltir perlu í fylgd slagverksleikara kl.
Meira
tónleikasyrpan 15:15 tekur upp þráðinn að nýju í Borgarleikhúsinu í dag kl. 15.15, en slagverkshópurinn Benda heldur fyrstu tónleika sína á þessu ári sem eru jafnframt 40.
Meira
"HEITIR reitir" er yfirskrift sýningar á ljósmyndum Báru K. Kristinsdóttur ljósmyndara sem verður opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag kl. 16. Bára er að góðu kunn sem auglýsinga- og iðnaðarljósmyndari hér á landi.
Meira
Hlutavelta | Á dögunum héldu tvær ungar stúlkur hlutaveltu á Garðatorgi í Garðabæ til styrktar Regnbogabörnum, samtökum gegn einelti. Þær söfnuðu 2.217 krónum.
Meira
jonf@hi.is: "Miðaldabókmenntir okkar verða ekki metnar til fjár enda telja margir íslenskan menningararf það dýrmætasta sem við eigum. Því fylgir mikil ábyrgð að taka við slíkum verðmætum, gersemum sem hver kynslóð eftir aðra hefur notið og skilað niðjum sínum."
Meira
PENINGAR eru viðfangsefni fyrirlestratvennu sem Listasafnið á Akureyri efnir til í samstarfi við Gilfélagið. Fyrri fyrirlesturinn fer einmitt fram í dag kl.
Meira
Lýður Björnsson er fæddur árið 1933. Hann útskrifaðist cand. mag. í sögu frá HÍ 1965. Lýður starfaði sem kennari á gagnfræðastigi 1957-1965 og kenndi við Verslunarskóla Íslands árin 1965-1976.
Meira
SENDIHERRA Rússneska sambandsríkisins á Íslandi, Alexander Rannikh, opnar í dag, í sal MÍR, sýningu á sovéskum veggspjöldum og ljósmyndum frá stríðsárunum 1941-1945, plakötum um sovéskar kvikmyndir sem fjalla um styrjöldina o.fl.
Meira
Víkverji hefur komist í álnir. Eða réttara sagt eiginkona Víkverja. Henni hefur nefnilega áskotnast, sér og öðrum nástöddum til undrunar, stór arfur utan úr heimi frá fjarskyldum ættingja sem hún vissi ekki að hefði verið til. Þ.e.a.s.
Meira
Bridshátíð verður haldin dagana 18.-21. febrúar á Hótel Loftleiðum. Keppt verður bæði í tvímenningi og sveitakeppni. Skráningarfrestur rennur út klukkan 17 á þriðjudag. Hægt er að skrá sig á heimasíðu Bridssambands Íslands, www.bridge.is.
Meira
ÞÓRSARAR tefla fram mörgum ungum leikmönnum í meistaraflokksliði sínu í handknattleik. Sá yngsti kom fram í sviðsljósið í óvæntum sigurleik Þórs gegn Val á fimmtudagskvöldið. Það er hinn 15 ára Aron Einar Gunnarsson, sem er enn leikmaður í 4. flokki.
Meira
HERMANN Hreiðarsson og félagar í Charlton eiga frí um helgina. Leik þeirra gegn Tottenham var frestað þar sem Tottenham þarf að leika bikarleik sinn úr 4. umferð við WBA í dag.
Meira
MILAN Baros, framherji Liverpool, segir að félagið eigi að setja markið hærra fyrir næstu leiktíð og vonast til að þurfa ekki að vera í baráttunni um fjórða sætið í deildinni líkt og núna.
Meira
ÞAÐ verður öruggleg vel tekið á því á Reebok-velli Bolton þegar Middlesbrough kemur í heimsókn í dag. Þetta verður 100. leikur félaganna í deild og eru þau hlið við hlið í töflunni, Boro í 6.
Meira
Chelsea 26205149:865 Man. Utd 26168243:1656 Arsenal 26166458:3054 Everton 26146631:2748 Liverpool 26134941:2743 Middlesbro 26117841:3540 Bolton 26116935:3239 Charlton 261151030:3638 Tottenham 261061033:3036 Man.
Meira
EIÐUR Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu og íþróttamaður ársins 2004 á Íslandi, sagði á samkomu í London á miðvikudag að Chelsea myndi spjara sig án hollenska landsliðsmannsins Arjen Robben sem er fótbrotinn en Eiður Smári...
Meira
LIÐIN sem leika til úrslita í bikarkeppninni í körfuknattleik á morgun geta ekkert æft í Laugardalshöllinni. Ástæðan er að annað körfuboltaspjaldið í Höllinni brotnaði um síðustu helgi og því til lítils að æfa þar.
Meira
BENEDIKT Guðmundsson, þjálfari Fjölnis, og Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkinga, þekkjast vel og hafa unnið talsvert saman enda voru þeir báðir til skamms tíma þjálfarar yngri flokka og hafa því oft mæst með lið sín.
Meira
LIVERPOOL heimsækir Birmingham í dag og mætir til leiks með Antonio Nunez, sem er kominn úr banni, og líklegast Vladimir Smicer. Luis Garcia verður hins vegar fjarri góðu gamni enda piltur í banni vegna fimm gulra spjalda.
Meira
FJÓRAR íslenskar landsliðskonur í knattspyrnu, allar úr Val, eru í Gautaborg í Svíþjóð, til reynslu hjá úrvalsdeildarliðinu Kopparbergs/Göteborg.
Meira
FJÓRIR leikir verða á boðstólum beint á Skjá einum um helgina. Boðið verður upp á þrjá leiki í dag og einn á morgun. Leikur Arsenal og Crystal Palace á mánudagskvöld verður sýndur síðar um kvöldið. Laugardagur 12. febrúar 12.
Meira
FJÖLNIR og Njarðvík leika til úrslita í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í körfuknattleik í Laugardalshöllinni á morgun. Nýliðarnir úr Grafarvoginum á móti hinu gamalgróna stórveldi Njarðvíkinga. Ójafnt?
Meira
JANICA Kostelic frá Króatíu vann í gær sinn þriðja sigur á heimsmeistaramótinu í alpagreinum í Santa Catarina á Ítalíu þegar hún vann svigkeppnina á glæsilegan hátt. Kostelic var þriðja eftir fyrri ferðina en skákaði keppinautum sínum í þeirri síðari.
Meira
* MALCOLM Christie leikur ekki meira með Middlesboro á þessari leiktíð. Ástæðan er fótbrot sem hann hlaut á 69. mínútu leiks Middlesboro og Blackburn um síðustu helgi.
Meira
TRÚLEGA verður viðureign nágrannaliðanna í Manchester, City og United, nágrannaslagur af bestu gerð - þegar fylkingarnar mætast á morgun á hinum glæsilega heimavelli City.
Meira
DAMIEN Duff, leikmaður Chelsea, segist frekar vilja vinna enska meistaratitilinn í vor en Meistaradeild Evrópu, ef hann þyrfti að velja á milli þessara kosta.
Meira
* RANNVER Sigurjónsson lagði upp tvö mörk fyrir varalið tékkneska knattspyrnufélagsins Slavia Prag sem sigraði 2. deildarliðið Strakonice , 4:2, í vikunni. Rannver hefur æft með Slavia Prag undanfarnar vikur og er væntanlegur heim í næstu viku.
Meira
JOSE Antonio Reyes, sóknarmaður Arsenal, viðurkenndi í viðtali við spænskan útvarpsmann að hann væri ekki ánægður í herbúðum Arsenal og myndi ekki slá hendinni á móti því að flytjast á ný til Spánar og leika með Real Madrid.
Meira
ENSKA ríkisstjórnin ákvað í gær að hún myndi ekkert aðhafast varðandi yfirtökutilboð bandaríska auðjöfursins Malcolm Glazers í Manchester United. Glazer hefur gert nýtt tilboð í félagið en fyrra tilboði hans var hafnað.
Meira
* ROY Keane , fyrirliði Manchester United , tilkynnti í gær að hann ætlaði að leggja knattspyrnuskóna á hilluna þegar núverandi samningur hans við félagið rennur út um mitt næsta ár.
Meira
"ÉG spái því að ÍR og HK mætist í úrslitaleik," segir Jóhannes Bjarnason, þjálfari KA, sem leiddi liðið til sigurs í bikarkeppninni í handknattleik á síðasta ári er Morgunblaðið leitaði eftir skoðunum hans á viðureignum undanúrslita...
Meira
STJÓRN Knattspyrnusambands Íslands verður öll endurkjörin á ársþingi sambandsins sem haldið er á Hótel Loftleiðum í dag. Engin framboð komu fram, hvorki í aðalstjórn né varastjórn, og allir stjórnarmenn sambandsins gefa kost á sér áfram.
Meira
ÞAÐ eru Haukar og Grindavík sem mætast í úrslitum bikarkeppni kvenna í körfuknattleik, Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, á morgun í Laugardalshöllinni.
Meira
Helgi Sæmundsson er 4 og ½ árs gamall Reykjavíkurkappi. Hann teiknaði þessa mynd og nefndi hana Dúlli Túlli. Kannski það sé enn einn meðlimur ótrúlegu...
Meira
Hér eru vinirnir að leika sér við nýja vininn sinn frílinn. En af hverju eru tvær myndir? Já, þær eru ekki alveg eins! Finnið sex atriði sem gera myndirnar tvær...
Meira
"Þetta er mynd af Spiderman. Ég vona að ykkur finnist þessi mynd flott. Kristín Axelsdóttir 8 ára." Já, Kristín, okkur finnst myndin þín rosalega...
Meira
Hafþór Bjarki Guðmundsson er 3 og ½ árs gamall og gengur í leikskólann Vesturborg. Hann hefur nokkrum sinnum á ævinni farið í bíó og á öskudaginn skellti hann sér á forsýningu á Bangsímon og frílnum með mömmu sinni.
Meira
Það er mjög skemmtileg netsíða fyrir krakka sem heitir Merkilegi klúbburinn og er á www.postur.is. Þangað senda krakkar m.a. brandara. Ó. D. Egilsson, 9 ára, sendi þessa: Fjörgamall maður á elliheimili, keypti sér yngingarmeðal og dreypti strax á.
Meira
Hver er að koma? Nær hann/hún/þau Ívrosi og Inga? Eða tekst þeim að leysa krakkana úr haldi? Sendið ykkar framhald fyrir miðvikudaginn 16. febrúar á barn@mbl.is merkt "Keðjusagan 7".
Meira
Hér kemur 6. hluti keðjusögunnar um Ívros prins og nú færist fjör í leikinn. Við þökkum öllum sem sendu frásagnir og bendum á að þótt frásögnin ykkar birtist ekki nú verður hún kannski valin næst.
Meira
Ég heiti María Rún og er 9 ára. Ég óska eftir pennavini á aldrinum 9-11 ára, strák eða stelpu. Áhugamál mín eru dýr og tónlist. Ég safna líka límmiðum. Bless, bless. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Meira
Grípið þau... Til að grípa snjókornin og skoða þau þarftu: Svart flauel eða föndurpappír Stækkunargler Snjókomu Þar sem snjókorn eru svo fljót að bráðna, þarftu að setja flauelið eða föndurpappírinn í frysti og hafa til taks næst þegar snjóar.
Meira
Sumir segja að það megi alls ekki borða snjó, þá fái maður orma í magann. En svo lengi sem maður notar nýfallinn hreinan snjó getur hann verið upplagður í matargerð. Krapstrýta Djúsþykkni Snjór Taktu nokkur plastglös og fylltu þau af snjó.
Meira
Margir verða glaðir þegar byrjar að snjóa, ná strax í þotuna sína út í bílskúr eða fara að kasta snjóboltum. En hvað er snjór? Hvaðan kemur hann?
Meira
BANGSÍMON og Gríslingurinn eru að fara í útilegu. Hjálpið þeim að finna hlutina níu sem sjá má fyrir neðan myndina: kúrekahatt, býflugu, býflugnabú, gítar, kíki, lukt, hálsklút, tjald og kaffikönnu, svo þeir geti nú loksins lagt af...
Meira
Í dag eigið þið að lita þessa fínu mynd af Bangsímon og félögum hans og senda okkur inn fyrir 19. febrúar. Muna þó að vanda sig því verðlaunin eru sko ekki af verri endanum. Tíu krakkar fá Bangsímon-tösku og tvo miða á Bangsímon og frílinn.
Meira
Ég átti von á því að við hittumst einhvern tíma öll á einum stað. Ég var á leiðinni þangað. Að vísu kortlaus, en það var sama. Ég fann alltaf til þess hvert leiðin lá. Hélt mig finna það á mér. Og að sama gilti um ykkur.
Meira
Ellen Gunnarsdóttir sagnfræðingur hefur skrifað sögu mexíkóskrar nunnu, Franciscu de los Angeles, sem uppi var fyrir þrem öldum og byggir verkið á bréfasafni hennar.
Meira
Guðfaðir sálartónlistarinnar, James Brown, hefur ritað nýja endurminningarbók er nefnist I Feel Good: A Memoir of a Life of Soul eða Mér líður vel: Ævisaga sálarlífs.
Meira
Paul Giamatti leikur á móti Edward Norton í væntanlegri mynd frá Bull's Eye Entertainment, sem ber nafnið The Illusionist . Giamatti tekur þá á ný þátt í mynd með framleiðanda Sideways , Michael London. Áætlað er að tökur hefjist í Prag í apríl.
Meira
Æringjarnir í Madness snúa aftur með nýtt efni næsta aprílmánuð. Platan, sem ekki hefur fengið nafn, verður þó ekki gefin út undir nafni Madness heldur undir merkjum The Dangermen.
Meira
Uppgjörinu við marxismann lýkur ekki fyrr en við áttum okkur á því að í röngum höndum er atlætishyggjan, í sinni ýtrustu mynd, jafnhættuleg og öfgafull erfðahyggja, segir í þessari grein.
Meira
Í hitabyr og hafsjó öldufárs himnavængir opnast í dýrð af veikum mætti í trúarvissu vonargleði elsku opinberast. Án sannleikselda sérhvert bál sorgir brennir í döprum anda því frelsisneistar í eldsfuna ylja í fögnuði roðaslegins mánaloga.
Meira
Kanadíska leikkonan Deborah Kara Unger nýtur þess að vinna með ungum kvikmyndagerðarmönnum á borð við Martein Þórsson. "Ég væri sannarlega til í að vinna með honum aftur," segir hún í samtali við Lesbókina .
Meira
I Það góða við strúktúralismann er að hann fellir sjálfsagða hluti í kerfi. Það góða við póststrúktúralismann er að hann rífur niður öll kerfi um sjálfsagða hluti.
Meira
Það rann upp fyrir mér þegar ég las um andlát Ossie Davis að það er ekki alltaf stjörnuskari, peningabruðl, verðlaunafár né eitthvað annað slíkt veraldlegt prjál sem gerir kvikmynd minnisstæða og merkilega.
Meira
Helstu tónlistartímaritin hafa nú birt fréttir af þeim plötum sem popp- og rokkheimurinn bíður hvað spenntastur eftir þetta árið. Um er að ræða bæði virta og vinsæla listamenn (og jafnvel hvort tveggja) og margir hverjir undir töluverðri pressu að fylgja eftir einhverri snilldinni.
Meira
! Aha, The Sunday Times, sagði dökkleiti blaðasalinn í kaupfélaginu á George IV Bridge í Edinborg um daginn, þegar ég rogaðist að afgreiðsluborðinu með mikinn bunka; sunnudagsútgáfu The Times með öllum fylgiblöðum dagsins, sérritum og fríum geisladiski.
Meira
Bandaríska leikritaskáldið Arthur Miller lést í fyrradag, 89 ára að aldri. Fyrir ríflega hálfri öld, í október 1954, átti Matthías Johannessen samtal við hann ytra og birtist það í Morgunblaðinu. Það fer hér á eftir.
Meira
Leikskáldið Arthur Miller lést á fimmtudag 89 ára að aldri. Hér eru reifuð áhrif þessa jöfurs leikskáldskaparins á síðustu öld og raktar helstu vörður á merkum ferli sem spannaði á sjöunda tug ára.
Meira
Ránið á milljónamæringnum Fabian Bengtsson hefur verið aðalumfjöllunarefni sænskra fjölmiðla undanfarnar vikur. Bengtsson er erfingi fjölskyldufyrirtækisins Siba sem verslar með raftæki en honum var rænt að því er talið er 17.
Meira
Hér verður því haldið fram að altaristaflan á Krossi í Austur-Landeyjum sé trúarleg túlkun á voðaverkum sem unnin voru 23 árum fyrr en taflan var sett upp í kirkjunni, Tyrkjaráninu í Vestmannaeyjum árið 1627.
Meira
Við erum það upplýst samfélag að hér tekst að halda úti athyglisverðu menningarlífi og virkri umræðu um hitt og þetta sem allir geta tekið þátt í ef áhugi er fyrir hendi.
Meira
"Framtíðin liggur ekki í því að efla ríkjandi afstöðu til náttúrunnar sem öll er lituð af þeirri hugmynd að þjóðfélagið þurfi fyrst og fremst sífellt meiri orku.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.