HARÐUR árekstur varð um hádegi í gær á milli jeppa og fólksbíls á mótum Glerárgötu og Gránufélagsgötu á Akureyri. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar var fluttur á slysadeild til skoðunar en hann er þó ekki talinn hafa slasast alvarlega.
Meira
KONA um tvítugt lést er bifreið sem hún ók fór út af Breiðholtsbraut við undirgöng skammt frá Víðidal og valt í fyrrinótt. Engin vitni urðu að slysinu. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík barst tilkynning um slysið á níunda tímanum í...
Meira
Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is UM tveggja ára gamalt barn varð fyrir skömmu fyrir lífshættulegri eitrun er það náði í lyf sem geymd voru í skáp á heimili og borðaði lífshættulegan skammt.
Meira
HAFSTEINN Þór Hauksson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, hefur sent útvarpsráði erindi og boðist til þess að ungir sjálfstæðismenn taki að sér stjórn fréttaskýringaþáttarins Spegilsins.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 133 orð
| 1 mynd
Í KRINGUM tuttugu álftir fundust dauðar í Norður-Skotlandi á dögunum en talið er að þær hafi verið á leið til sumardvalar á Íslandi. Álftirnar virðast hafa dáið úr blýeitrun og er talið að þær hafi étið högl.
Meira
ÁRLEGUR bókamarkaður Lionsklúbbs Seltjarnarness verður nú haldinn í 16. sinn á Eiðstorgi, Seltjarnarnesi á morgun, laugardaginn 7. maí, kl. 10-16.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 113 orð
| 1 mynd
UM 60 manns tóku þátt í kosningavöku í breska sendiráðinu í gærkvöldi í boði sendiherrans, Alp Mehmets. Áður en fyrstu tölur birtust flutti dr. Torun Dewan, kennari í stjórnmálafræði við London School of Economics, erindi um kosningarnar.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 85 orð
| 2 myndir
EINBÚINN sem vakti yfir Jöklu er fallinn. Hann stóð á vesturbakka árinnar og horfði til austurs yfir ána neðan við Lindur í Hálsi, eins og hann vekti yfir ánni og landinu í kring.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 208 orð
| 1 mynd
EFNAHAGSLÍFIÐ á Íslandi mun ekki hafa hag af aðild að Evrópusambandinu og það er engin pólitísk ástæða fyrir aðild Íslands að sambandinu, að því er fram kom hjá Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í ræðu í Lundúnum og sagt er frá í dagblaðinu...
Meira
VEGNA þeirra innbyrðis sveiflna sem verið hafa á heimsmarkaðsverði á díselolíu og bensíni undanfarna mánuði er engin leið að segja til um það með vissu hver munurinn verði á endanlegu útsöluverði á dísilolíu og bensíni þegar olíugjald verður tekið upp.
Meira
KÓPAVOGSDEILD Rauða krossins heldur fatamarkað á morgun, laugardaginn 7. maí kl. 11-16, í sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg 11. Allur ágóði rennur til styrktar börnum í neyð vegna alnæmisvandans í Malaví.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 308 orð
| 2 myndir
FYRIR dyrum stendur að einkavæða litháska ríkisflugfélagið, Lithuanian Airlines. Þegar tilboðsfrestur einkavæðingarnefndar Litháens rann út kl. 10.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 331 orð
| 1 mynd
FJÖLMARGIR listamenn koma fram á listahátíð sem haldin verður í Háteigskirkju á morgun undir yfirskriftinni Opin kirkja. Tilefni þessa viðburðar er fjársöfnun fyrir nýju orgeli í kirkjuna.
Meira
HRÓKURINN og Bónus bjóða börnum og fullorðnum í opið og ókeypis fjöltefli við Henrik Danielsen, stórmeistara og skólastjóra Hróksins, í dag og á morgun, laugardag, við verslun Bónuss í Kringlunni. Fjölteflið verður kl. 15-18 á föstudag og kl.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 759 orð
| 1 mynd
Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is Stóraukin áfengisneysla heilsufarsvandi Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra lýsti yfir áhyggjum sínum vegna vaxandi áfengisneyslu á Norðurlöndunum á Norðurlandaráðsþingi í Svíþjóð sl. haust.
Meira
EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt á stjórnarfundi SUF 4. maí sl.: "Samband ungra framsóknarmanna (SUF) fagnar þeirri þjóðarvakningu sem hefur átt sér stað í samfélaginu um alvarleika kynferðisglæpa gegn börnum.
Meira
HEIMSSÝN efnir til opins fundur um stjórnarskrá ESB og stöðu Norðmanna og Íslendinga gagnvart ESB og EES á morgun, laugardag 7. maí kl. 15, á Grand Hótel, Sigtúni 38 í Reykjavík, í Háteigssalnum á 4. hæð.
Meira
Seyðisfjörður | Ólafur M. Ólafsson útgerðarmaður á Seyðisfirði varð áttræður 30.apríl sl. Var haldin vegleg veisla til heiðurs honum þann sama dag í Félagsheimilinu Herðubreið þar sem vinir, fjölskylda og velunnarar fjölmenntu.
Meira
HUGMYNDIR um fækkun löggæsluumdæma hafa mælst vel fyrir á fundum sem Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur átt með sýslumönnum og forvarsmönnum lögreglumanna um land allt.
Meira
SAMKEPPNISSTOFNUN telur ekki ástæðu til þess að aðhafast neitt vegna auglýsinga Og Vodafone á Og1, nýrri símaþjónustu fyrir heimili, en Landssími Íslands hafði kvartað til Samkeppnisstofnunar vegna Og1 auglýsingana og talið þær ólögmætar.
Meira
Í TILEFNI af 50 ára afmæli Kópavogskaupstaðar verða félagar í Íþróttafélaginu Glóð í íþróttamiðstöðinni Smáranum á morgun, laugardaginn 7. maí. Dagskráin hefst með "innmarsi" kl. 14.
Meira
HAUKAR urðu Íslandsmeistarar í handknattleik karla þriðja árið í röð og í fimmta sinn á sex árum í gærkveldi þegar þeir báru sigurorð af Vestmannaeyingum 28-24 og unnu þar með viðureignina við þá 3-0.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 297 orð
| 1 mynd
Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, hefði helst kosið að þurfa ekki að bjóða Össuri Skarphéðinssyni, formanni flokksins, byrginn í formannskjöri.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 993 orð
| 1 mynd
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Guðnýju Gerði Gunnarsdóttur borgarminjaverði, millifyrirsagnir eru blaðsins. "Í Morgunblaðin hinn 5.
Meira
Hlutafélag | Stofnað hefur verið hlutafélag um nýtt hlutafé í Smyril-Line, sem gerir út farþegaferjuna Norrönu. Stjórn Smyril-Line ákvað fyrir skemmstu að auka þyrfti hlutafé félagsins um 60 milljónir danskra króna.
Meira
Húsbyggingar | Lokið er úthlutun 10 einbýlishúsalóða við Vallartún og Vörðutún í Naustahverfi. Alls bárust 66 umsóknir, þar af 61 gild. Lóðirnar voru dregnar út að umsækjendum viðstöddum á fundi í ráðhúsinu. Einbýlishúsalóðirnar 10 eru í 1.
Meira
Bretar gengu til kosninga í gær og flokkarnir héldu kosningabaráttunni áfram til síðustu mínútu. Ólafur Þ. Stephensen slóst í för með frambjóðendum í Solihull, útborg Birmingham, í gær.
Meira
Egilsstaðir | Óskar Björgvinsson sinnir hér vorverkunum í garðinum við hús sitt sem stendur við Selásinn á Egilsstöðum. Hann snyrti trén sem uxu út yfir gangstéttina, langleiðina út á götu, þannig að gangandi og hjólandi fólki stafaði nokkur hætta af.
Meira
RANNSÓKNIR, sem gerðar hafa verið í Bretlandi á börnum, sem standa sig illa í skóla, eru óróleg og einbeitingarlaus, sýna, að frammistaða þeirra og hegðun stórbatna ef þeim eru gefnar náttúrulegar fitusýrur, blanda af lýsi og næturljóssolíu.
Meira
Akranesdeild Rauða krossins afhenti lögreglunni á Akranesi nýlega fullkomið hjartastuðtæki að gjöf. Ólafur Þór Hauksson sýslumaður tók við tækinu úr hendi Lárusar Guðjónssonar formanns deildarinnar.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 475 orð
| 3 myndir
Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is VEL á þriðja hundrað hjólreiðamenn á öllum aldri hjóluðu um höfuðborgarsvæðið í köldu en sólríku veðri í gær, í tilefni af fyrirtækjakeppninni Hjólað í vinnuna sem nú er í gangi.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 508 orð
| 1 mynd
Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is TÖNN sem dettur úr munni vegna andlitsáverka má koma aftur fyrir þannig að hún grói eðlilega ef brugðist er við á réttan hátt.
Meira
Clearfield. AP. | Veitingahús í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, sem fyrr á árinu missti heiðurinn af því að bjóða upp á stærstu hamborgara í heimi, hefur nú endurheimt hann.
Meira
UNGT fólk mun í dag kl. 17 sýna samstöðu gegn ofbeldi á Ingólfstorgi með því að gefa ofbeldi rauða spjaldið, en skammt er síðan svipuð athöfn var haldin á Akureyri.
Meira
FÓRNARLAMBA Helfararinnar var minnst í gær, 60 árum eftir ósigur þýskra nasista, með "Göngu hinna lifandi" við útrýmingarbúðirnar í Auschwitz-Birkenau í Póllandi. Er þessi ganga gengin árlega en að þessu sinni tóku þátt í henni um 20.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 357 orð
| 2 myndir
MIKIL ánægja var meðal gesta á tónleikum hljómsveitarinnar Shadows í Kaplakrika í gærkvöldi. Þótti hljómsveitin leika gríðarvel og á örlítið ólíkum forsendum frá því fyrir 20 árum þegar hún hélt ferna tónleika á Broadway.
Meira
BORGARSTJÓRI og bæjarstjórar allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu hafa sent samgöngunefnd Alþingis sameiginleg mótmæli, vegna skiptingar fjármagns til vegaframkvæmda, í umsögn um tillögu til samgönguáætlunar fyrir árin 2005-2008.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 421 orð
| 1 mynd
KENNINGIN um ratvísi laxa segir að gönguseiði snúi ávallt aftur sem kynþroska laxar til hrygningar í sömu á og þau klöktust út í. Við það er yfirleitt miðað þegar sett eru upp líkön um ferðir villtra stofna Atlantshafslaxins.
Meira
Á SUNNUDAG verður síðasta kvikmyndasýningin í bíósal MÍR við Vatnsstíg (Menningartengsl Íslands og Rússlands) en félagið hefur selt húsnæðið. Þar hefur MÍR verið til húsa í 20 ár. Að sögn Ívars H.
Meira
New York. AP, AFP. | Tvær sprengjur sprungu í gærmorgun við byggingu á Manhattan í New York en í henni er meðal annars ræðismannsskrifstofa Breta í borginni. Ollu þær litlu tjóni og enginn slasaðist.
Meira
HÓPUR kvikmyndatökumanna og dagskrárgerðarmanna frá BBC 2 er staddur hér á landi til að taka upp efni í þáttaröðina Top Gear, sem fjallar um bíla og bílamálefni.
Meira
Komið hefur í ljós að í mörgum Asíulöndum er beitt eitri til að útrýma skordýrum í gámum og geta efnin valdið sjúkdómum í mönnum, að sögn vefsíðu sænska blaðsins Dagens Nyheter . Sum efnanna voru m.a.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 486 orð
| 1 mynd
Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is FRAMLÖG Íslands til Matvælahjálpar Sameinuðu þjóðana hafa aukist mikið það sem af er þessu ári samanborið við síðasta ár.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 272 orð
| 1 mynd
Neskaupstaður | Á aðalfundi Markaðsstofu Austurlands sem haldinn var í Neskaupstað á dögunum voru afhentar viðurkenningar til ferðaþjónustuaðila á Austurlandi.
Meira
SAUTJÁN ára piltur hefur viðurkennt ránið í söluturni á Bústaðavegi í Reykjavík á mánudagskvöld. Hann vísaði lögreglu á ránsfenginn sem var óverulegur.
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 815 orð
| 1 mynd
Þjónustustöð Össurar | Þjónusta stoðtækjafyrirtækisins Össurar á Akureyri hefur verið flutt í húsnæði Apótekarans í Hafnarstræti, en þar býðst Norðlendingum greiðari aðgangur að göngugreiningu, þjónustu stoðtækjafræðings og annarri sérfræðiþjónustu...
Meira
6. maí 2005
| Innlendar fréttir
| 346 orð
| 1 mynd
Eftir Ólaf Þ. Stephensen olafur@mbl.is London. | Verkamannaflokkurinn sigrar í þingkosningunum í Bretlandi samkvæmt þeim tölum sem lágu fyrir klukkan eitt í nótt að íslenzkum tíma.
Meira
Forsvarsmenn sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa af vaxandi þunga mótmælt þeim hugmyndum, sem nú liggja fyrir í vegaáætlun, og gera kröfu til þess að meira fé verði lagt til framkvæmda á höfuðborgarsvæðinu en þar er gert ráð fyrir. Gunnar I.
Meira
BÓK Douglas Adams, The Hitchhiker's Guide to the Galaxy , er ein helsta "költ"-bók samtímans og það var bara tímaspursmál hvenær ráðist yrði í það að kvikmynda hana.
Meira
VÍKINGAHRINGURINN opnar formlega Gallerý Galdur og rúnir á laugardaginn að Síðumúla 10 í Reykjavík. Þar verður boðið upp á list og fræðslu sem tengist fornri norrænni menningu.
Meira
FÆRA má fyrir því sterk rök að það sé vegna breska leikstjórans Ridleys Scotts og Óskarsverðlaunamyndar hans Gladiator , sem sögulegar stórmyndir hafa tröllriðið kvikmyndaheiminum síðustu ár.
Meira
ÍSLENDINGAR búsettir í Kaupmannahöfn eiga von á ágætis kvöldskemmtan, því hljómsveitin Í svörtum fötum mun leika og syngja fyrir samlanda sína þar í borg á sveitaballi annað kvöld.
Meira
LEIKFÉLAG Ólafsvíkur frumsýnir Klerka í klípu í Félagsheimilinu á Klifi í kvöld. Leikritið, sem er eftir Philip King, er farsi af gamla skólanum og hefur það verið sett upp víða hér á landi.
Meira
Nýlistasafnið | Listahátíð í Reykjavík er á næstu grösum. Rík áhersla verður á samtímamyndlist að þessu sinni og stendur undirbúningur nú yfir í söfnum og galleríum á höfuðborgarsvæðinu og raunar víðar um land.
Meira
LISTAHÁTÍÐIN List án landamæra var sett í Iðnó í gær af Þorvaldi Þorsteinssyni, forseta Bandalags íslenskra listamanna. Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt að vanda og er sérstök áhersla lögð á samvinnu fatlaðra og ófatlaðra listamanna.
Meira
SUNGIN verða ljóðalög og flutt raftónlist í Borgarneskirkju á laugardag. Kallast tónleikarnir Ljóð og hljóð. Þeir voru áður fluttir á Kirkjubæjarklaustri um páskahelgina.
Meira
TÓNLEIKARÖÐIN Kvöld í Hveró hefur vakið nokkra athygli undanfarið, en þar koma fram margir af helstu dægursöngvurum þjóðarinnar og syngja í Hveragerðiskirkju.
Meira
GÍTARLEIKARINN Símon H. Ívarsson mun halda tónleika í Þrúðvangi, Álafossvegi 20 í Mosfellsbæ á sunnudaginn kl. 16:00. Yfirskrift tónleikanna er "Glíman við Glám" sem er samheiti á geisladiski sem Símon gaf út nýlega í samvinnu við Smekkleysu.
Meira
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND Vestmannaeyja hefur samið við hljómsveitina Skítamóral um að leika á Þjóðhátíð í sumar. Skítamórall hefur á sínum fimmtán ára ferli leikið á ófáum þjóðhátíðum og tekið þátt í hljóðritun nokkurra þjóðhátíðarlaga.
Meira
HINN mánaðarlegi umræðufundur Félags kvikmyndagerðarmanna verður haldinn í dag kl. 12 á Sólon. Á fundinum verða sýnd brot úr tveimur heimildamyndum og sagt frá vinnslu þeirra.
Meira
SÖNGFLOKKURINN Nylon fagnar árs afmæli sínu með afmælistónleikum sem fram fara í Loftkastalanum annað kvöld kl. 18. Frítt er inn fyrir aðdáendur sveitarinnar á meðan húsrúm leyfir.
Meira
FÖSTUDAG og laugardag verður haldin kántríhátíð á Grand Rokk þar sem fram koma alls ellefu tónlistarmenn og hljómsveitir. Á föstudaginn eru það Helgi Valur, 5ta herdeildin, Sviðin jörð, Hanoi Jane, Campfire Backtracks og Slow Train.
Meira
Vortónleikar Karlakórs Reykjavíkur. Stjórnandi: Friðrik S. Kristinsson. Píanóundirleikur: Anna Guðný Guðmundsdóttir. Miðvikudaginn 4. maí kl. 20.
Meira
Ómar Torfason skrifar í tilefni af grein sr. Bjarna Karlssonar: "Skilyrði til frelsunar hafi verið þau sömu allt frá upphafi mannsins þótt útfærslan hafi tekið breytingum."
Meira
Pétur Bjarnason fjallar um flugvallarmál: "Ef borgin er svona strjálbýl miðað við aðrar borgir sem ég ber ekki brigður á - er auðvelt að þétta byggð í öðrum íbúðahverfum án þess að nýta flugvallarsvæðið?"
Meira
Guðmundur Örn Jónsson fjallar um samkeppnishæfni þjóða: "Áhersla á samkeppnishæfni getur einnig leitt til rangrar ákvarðanatöku meðal ráðamanna því þjóðir keppa ekki á sama hátt og fyrirtæki."
Meira
6. maí 2005
| Bréf til blaðsins
| 333 orð
| 1 mynd
Frá Halldóri Þorsteinssyni: "AÐ GEFNU tilefni langar undirritaðan til að birta hér bréf sem hann sendi Tryggingastofnun Ríkisins þ. 10.12. 2004. "Ég undirritaður er alls ekki sáttur við þann bakreikning, sem við hjónin fengum frá T.R."
Meira
Björn Erlendsson, Björn Ómarsson og Gunnar Hrafn Hall fjalla um frumgreinadeild THÍ - frumgreinasvið HR: "Frumgreinadeild Tækniháskóla Íslands hefur opnað mörgu fólki úr atvinnulífinu óteljandi dyr inn í framtíðina."
Meira
Selma Júlíusdóttir fjallar um börn og olíur við eyrnaverk: "Sú blanda sem í upphafi er minnst á er án efa mjög áhrifarík fyrir stálpuð börn og fullorðna en það þarf mikla rannsókn á henni áður en hún er notuð fyrir ungbörn."
Meira
Matthías Freyr Matthíasson fjallar um formannskjörið í Samfylkingunni: "Þetta er aðeins eitt dæmi um elju og þá hugsjón sem Össur hefur sem pólitíkus."
Meira
Birgir Guðjónsson fjallar um skýrslu ríkisendurskoðunar um Háskóla Íslands: "Greint er frá því að stöðuveitingar hafi valdið ágreiningi og er það mildilega orðað því deilur hafa oft orðið miklar og ekki allar náð til fjölmiðla."
Meira
Frá Jóni Kr. Óskarssyni: "NÚ ÞEGAR yfir stendur söluferli á Símanum koma upp í huga manns ýmsar minningar frá liðnum starfsdögum, en undirritaður starfaði hjá Landssíma Íslands í yfir fjörutíu ár. Hver á Símann? Hvernig varð Síminn að því mikla verðmæti sem hann er í dag?"
Meira
Björgvin Þorsteinsson fjallar um Írak og söguna: "Vonandi tekst Írökum að byggja upp farsælt framtíðarríki. Íslendingar mega vera stoltir yfir því að styðja þau áform."
Meira
Þórarinn Eyfjörð fjallar um formannskjör í Samfylkingunni: "Ingibjörg Sólrún er fremst meðal jafningja í sterkri liðsheild - gefum boltann á hana."
Meira
Frá Sveinbirni Ottesen: "NÝLEGA flutti landbúnaðarráðherra frumvarp á Alþingi um svokallaða Landbúnaðarstofnun, sem tekur yfir hlutverk ýmissa smærri embætta sem tengd eru landbúnaði. Gert er fyrir að allt að 50 starfsmenn verði við hina nýju stofnun."
Meira
Frá Ragnheiði K. Jóhannesdóttur: "SEM áskrifendur að ADSL-þjónustu Og Vodafone í nokkur ár kynntumst við hjónin þeirri lélegu nettengingu sem fyrirtækið býður, slöku þjónustu og metnaðarleysi starfsmanna."
Meira
Elísabet Brekkan fjallar um Námsflokka Reykjavíkur: "Námsflokkar Reykjavíkur er sú stofnun sem lagði fyrst grunninn að fullorðinsfræðslu hér á landi."
Meira
Margrét Steinarsdóttir fjallar um nýjar reglur um atvinnuréttindi útlendinga: "Reglugerðin heimilar að atvinnurekanda sé veitt leyfi til að ráða útlending sem komið hefur til landsins til starfa hjá öðrum atvinnurekanda."
Meira
Frá Árnýju Birnu Hilmarsdóttur: "TIL AÐ ná í skottið á prestinum svokallaða, sem talaði í útvarpinu á sunnudaginn, sendi ég hér með opið bréf til Fríkirkjusafnaðarins, þar sem ég geng út frá, að hann sé ábyrgur fyrir prestinum, sem er svo andlit fríkirkjunnar út á við."
Meira
Baldur Ágústsson fjallar um sölu Símans: "Ef raunveruleg ástæða er til að taka t.d. Símann úr ríkisrekstri, væri þá ekki eðlilegra að senda hverjum Íslendingi hlutabréf sem nemur hlutfallslegri eign hans, frekar en að falbjóða hana "utanaðkomandi" aðilum?"
Meira
Kjartan Ragnarsson svarar leikgagnrýni Maríu Kristjánsdóttur á verkið Dínamít: "...sá sem skrifar svona þjónar hvorki leiklistinni né lesendum, hann þjónar engu nema eigin ólund."
Meira
Hugrún Sigurjónsdóttir fjallar um vinnubrögð ráðningarstofa: "Það sem undrar mig hins vegar er hversu lítið virðist gerast eftir að maður skráir sig."
Meira
Marjatta Ísberg fjallar um íslenska menntastefnu: "Með atvinnuþátttöku sinni læra þeir kannski margfalt meira en jafnaldrar þeirra í Evrópu, sem sitja bara á skólabekk og útskrifast úr háskóla hálfþrítugir..."
Meira
Hjörtur J. Guðmundsson fjallar um Evrópumál: "Um þetta og fleira verður fjallað á opnum fundi sem Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, efnir til laugardaginn 7. maí nk. á Grand hóteli undir yfirskriftinni "Hvað er að gerast í Evrópusambandinu?""
Meira
Vífill Karlsson fjallar um vegaframkvæmdir: "Vanbúið samgöngukerfi á landsbyggðinni myndi draga úr staðbundnum hagvexti á höfuðborgarsvæðinu með ýmsum hætti."
Meira
Verslunin Krónan TIL hamingju með að vera með lægra verð en Bónus, skv. könnun í Morgunblaðinu laugardaginn 30. apríl. Nú versla ég bara í Krónunni og segi skilið við Bónus, svo lengi sem þið keppið við lægra verðið.
Meira
Anna Sigríður Björnsdóttir fæddist á Ytri-Másstöðum í Skíðadal 14. janúar 1919. Hún lést í Hlíð á Akureyri 17. apríl síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Akureyrarkirkju 3. maí.
MeiraKaupa minningabók
Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H. J. H.) Ég vil þakka henni ömmu minni allt sem hún var mér. Hennar verður sárt saknað.
MeiraKaupa minningabók
6. maí 2005
| Minningargreinar
| 3350 orð
| 1 mynd
Gils Halldór Guðmundsson fæddist í Hjarðardal innri í Önundarfirði 31. desember 1914. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 29. apríl. Foreldrar hans voru Guðmundur Gilsson og Sigríður Hagalínsdóttir.
MeiraKaupa minningabók
6. maí 2005
| Minningargreinar
| 3944 orð
| 1 mynd
Helgi Bergs fæddist í Reykjavík 9. júní 1920. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík aðfaranótt 28. apríl síðastliðinn. Foreldrar Helga voru hjónin Elín Jónsdóttir Bergs, fædd Thorstensen, húsmóðir, f. 9. desember 1895 á Þingvöllum, d. 27.
MeiraKaupa minningabók
6. maí 2005
| Minningargreinar
| 1119 orð
| 1 mynd
Jón Baldur Kristinsson fæddist í Reykjavík 15. júlí 1923. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík 28. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ragnhildur Stefánsdóttir, f. 4.6. 1896, d. 3.3. 1975, og Guðmundur Kristinn Jónsson, f. 2.3.
MeiraKaupa minningabók
6. maí 2005
| Minningargreinar
| 1097 orð
| 1 mynd
Jósefína Ástrós Guðmundsdóttir fæddist á Sólvangi á Akranesi 7. maí 1910. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 28. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðmundur Sigurðsson, f. 8. maí 1868, d. 8. apríl 1930, og Ólafína Hannesdóttir, f. 31.
MeiraKaupa minningabók
Kristín Þórarinsdóttir fæddist 15. september 1961. Hún lést af slysförum 21. febrúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Garðakirkju 16. mars.
MeiraKaupa minningabók
Lovísa Bjargmundsdóttir fæddist á Ísafirði 28. ágúst 1898. Hún lést í Reykjavík 2. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Anna Guðrún Thorlacia Einarsdóttir, f. í Hvassahrauni 13. febrúar 1866, d. 17. maí 1900, og Bjargmundur Sigurðsson, f.
MeiraKaupa minningabók
Patricia Isabella Hand fæddist í Warracknabeal í Viktoríufylki í Ástralíu 2. janúar 1939 og var útför hennar gerð frá Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd 4. maí.
MeiraKaupa minningabók
6. maí 2005
| Minningargreinar
| 1773 orð
| 1 mynd
Sigrún Hólmkelsdóttir fæddist á Siglufirði 21. júní 1918. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 27. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jósefína H. Björnsdóttir, f. 18.10. 1894, d. 18.3. 1981 og Hólmkell Jónasson, f. 25.5. 1893, d.
MeiraKaupa minningabók
6. maí 2005
| Minningargreinar
| 2472 orð
| 1 mynd
Unnur Guðmundsdóttir, húsfreyja á Stað í Reykhólasveit, fæddist á Haukabergi á Barðaströnd 7. júlí 1914. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 26. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Friðgerður Marteinsdóttir, f. 18.
MeiraKaupa minningabók
ENSKA knattspyrnufélagið Chelsea vonast til þess að enski meistaratitillinn, sem félagið tryggði sér á dögunum, muni bæta samkeppnisstöðu þess gagnvart Manchester United.
Meira
TEKJUR þýsku fjölmiðlasamsteypunnar Bertelsmann, fjórða stærsta fjölmiðlafyrirtækis heims, námu alls 2,6 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins sem er 6% aukning frá sama tíma síðasta árs.
Meira
NORSKI kaupsýslumaðurinn Kjell Inge Røkke var ánægður þegar yfirheyrslum yfir honum fyrir undirrétti í Ósló lauk seinnipartinn síðastliðinn miðvikudag.
Meira
BANDARÍSKI tölvuframleiðandinn IBM ætlar að taka starfsemina í Evrópu til endurskoðunar, að því er fram kemur í frétt á vefmiðli New York Times. Áætlað er að allt að 10-13 þúsund starfsmönnum IBM um allan heim verði sagt upp en þó aðallega í Evrópu.
Meira
Með hækkandi sól vilja margir gæða sér á einhverju léttu og sumarlegu og hér koma nokkrar uppskriftir að sumarsalati sem sómir sér vel á kvöldverðarborðinu núna einhvern daginn þegar veðrið leikur við okkur.
Meira
Hin rétta röð. Norður &spade;943 &heart;KD ⋄ÁKG10 &klubs;Á942 Suður &spade;ÁDG &heart;Á7 ⋄D842 &klubs;KG73 Suður spilar sex grönd og fær út hjartatíu. Hvernig er best að spila?
Meira
Konur eiga seint eftir að sigra karla í lyftingum eða þungaviktarboxi en þegar andlegu eiginleikarnir eru það sem fyrst og fremst skiptir máli standa þær jafnfætis okkur ef ekki eru fyrir hendi hindranir í höfðinu á okkur.
Meira
Amal Tamimi fæddist hinn 7. janúar árið 1960 í Palestínu. Hún fluttist til Íslands árið 1995. Amal lauk BA-gráðu í félagsfræði frá félagsvísindadeild Háskóla Íslands í vor. Hún er fræðslufulltrúi hjá Alþjóðahúsi. Amal á sex börn og eitt barnabarn.
Meira
Kreddur er eftir Peter Foote. Fyrir skömmu gaf Hið íslenska bókmenntafélag út ritið Kreddur, sem er safn tólf ritgerða Peters Foote, út gefið í tilefni af áttræðisafmæli höfundarins árið 2004.
Meira
OPNAÐAR verða í dag í Landsbókasafni Íslands - háskólabókasafni tvær sögusýningar um Jóhann Jónsson, skáld frá Ólafsvík og Sigríði Jónsdóttur frá Vogum sem var móðir Nonna (Jóns Sveinssonar rithöfundar).
Meira
Víkverji hefur áður bent á að starf skiltagerðarmannsins væri svipað starfi blaðamannsins að því leyti að vitleysur, sem báðir gera í vinnunni, blasa við allra augum.
Meira
Þessir nemendur heimsóttu Morgunblaðið í tengslum við verkefnið Dagblöð í skólum. Dagblöð í skólum er samstarfsverkefni á vegum Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur sem Morgunblaðið tekur þátt í á hverju ári.
Meira
Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is "JÁ, nú er partíið búið og talsvert fyrr en við ætluðum. Það er alveg agalegt að vinna ekki leik í þessari úrslitaviðureign. Ég vil óska Haukum til hamingju með sigurinn.
Meira
EYJAMENN gerðu í gær munnlegt samkomulag við enska knattspyrnumanninn Andrew Sam um að leika með þeim í sumar. Sam hefur stundað háskólanám í Bandaríkjunum undanfarin ár.
Meira
GILBERT Arenas tryggði í fyrrinótt Washington Wizards 112:110 sigur á Chicago Bulls með því að skora tveggja stiga körfu um leið og flautan gall. Washington er þar með komið með vænlega stöðu, er 3-2 yfir og næsti leikur er á þeirra heimavelli.
Meira
FH-ingar hafa náð samkomulagi við Atla Hilmarsson um að hann taki við þjálfun karlaliðs félagsins í handknattleik. Atli skrifar undir samning við FH-inga í dag og gildir samningurinn til næstu þriggja ára.
Meira
BIRGIR Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, lék á einu höggi yfir pari vallarins á sínu fyrsta móti á evrópsku mótaröðinni í gær, en keppt er á Ítalíu.
Meira
KR-INGAR verða án þeirra Bjarna Þorsteinssonar og Garðar Jóhannssonar þegar Íslandsmótið í knattspyrnu hefst annan mánudag. Bjarni hefur verið frá vegna meiðsla síðan í janúar en er á góðum batavegi, að sögn Magnúsar Gylfasonar þjálfara.
Meira
* GUÐJÓN L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson , handknattleiksdómarar, dæmdu sinn síðasta leik hér á landi í gærkvöldi. Þeir hafa ákveðið að hætta dómgæslu en eiga einn leik í Evrópukeppninni eftir.
Meira
GUNNAR Heiðar Þorvaldsson var bjargvættur Halmstad sem lenti í miklum vandræðum með 1. deildarliðið Boden í sænsku bikarkeppninni í knattspyrnu í gær. Boden, sem hefur ekki unnið leik í fyrstu þremur umferðum 1.
Meira
KEFLVÍKINGURINN Haraldur Freyr Guðmundsson skoraði sitt fyrsta mark í norsku úrvalsdeildinni í gær. Nýliðar Aalesund fengu óskabyrjun gegn hinu sterka liði Vålerenga í Ósló þegar Haraldur skoraði beint úr aukaspyrnu strax á 2. mínútu leiksins.
Meira
SKAGAMENN hafa komist að samkomulagi við serbneska knattspyrnumanninn Igor Pesic um að hann leiki með þeim í sumar. Pesic er 24 ára miðjumaður og lék síðast með Borac Cacak í serbnesku úrvalsdeildinni.
Meira
KR-INGAR geta eytt peningunum í annað en leikmenn næstu árin, ef marka má lið þeirra sem tryggði sér sigur í deildabikarnum í gær - með því að sigra Þrótt, 3:2, í fjörugum úrslitaleik í Egilshöllinni.
Meira
LÁRUS Jónsson, körfuknattleiksmaður, sem lék með KR í vetur, er genginn til liðs við Fjölni. Frá þessu var greint á vef KR í gær. Lárus er frá Hveragerði og lék með Hamri um árabil þar til hann fór yfir til KR-inga fyrir síðasta tímabil.
Meira
NORÐURLANDAMÓTIÐ í júdó verður haldið í TBR-húsinu í Reykjavík á morgun, laugardag. Keppendur eru 115 frá öllum Norðurlöndunum og þar af eru um 40 Íslendingar. Keppni fullorðinna hefst klukkan 10 að morgni og úrslit hefjast klukkan 16.
Meira
ÓLAFUR Ingi Skúlason, fyrirliði 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, hóf í gær æfingar með skoska úrvalsdeildarliðinu Hearts en hann verður þar til reynslu fram á þriðjudag.
Meira
ÓLAFUR Víðir Ólafsson, landsliðsmaður í handknattleik úr HK, ætlar að breyta til og leika með Kópavogsfélaginu í 1. deildinni í knattspyrnu í sumar.
Meira
LÍKURNAR á að argentínsku knattspyrnumennirnir Hernán Gabriel Peréz og Carlos Raúl Sciucatti frá Independiente leiki með Fylkismönnum í sumar hafa dvínað verulega.
Meira
"MENN mættu gríðarlega einbeittir til leiks og ég fann bara um leið og við komum inn í klefa fyrir leik að menn voru ákveðnir í að fagna Íslandsmeistaratitlinum.
Meira
ÅRHUS GF sigraði GOG, 38:35, í öðrum leik liðanna í undanúrslitunum um danska meistaratitilinn í handknattleik karla í gær og vann þar með einvígið gegn fráfarandi meisturunum, 2:0.
Meira
JÓHANN B. Guðmundsson, knattspyrnumaður hjá Örgryte, fór snemma í sturtu þegar lið hans sótti 2. deildarliðið Syrianska heim í sænsku bikarkeppninni í fyrrakvöld.
Meira
ÞAÐ er vart hægt að hugsa sér betri loka- og kveðjuleik," sagði Áseir Örn Hallgrímssson skytta í liði Hauka sem heldur í atvinnumennsku í sumar og kvaddi því félagið í gær - í bili altént.
Meira
ANTAL Lörinc, ungverskur knattspyrnumaður, er kominn til KA-manna og verður þar til reynslu næstu dagana. Lörinc er 33 ára varnarmaður með mikla reynslu, samkvæmt vef KA hefur hann leikið 278 leiki í efstu deild í heimalandi sínu.
Meira
ÞRÍR leikir unnust hjá íslensku liðinum á Norðurlandamóti unglinga í körfuknattleik í Svíþjóð í gær. Eldra stúlknaliðið lagði Dani að velli 82:65. Pálína Gunnlaugsdóttir fór á kostum í leiknum og setti 24 stig.
Meira
RÚMLEGA 50% aukning er í sölu á nýjum fólksbílum fyrstu fjóra mánuði ársins. Sem fyrr er Toyota mest seldi fólksbíllinn hérlendis með 22,7% markaðshlutdeild, sem engu að síður er talsverður samdráttur í markaðshlutdeild þar á bæ.
Meira
Í HUGA spænska ökuþórsins Fernando Alonso hjá Renault er heimakappakstur hans í Barcelona um helgina mikilvægasta mót ársins. Aðeins heimsmeistaratitill ökuþóra í vertíðarlok getur toppað það að vinna sigur í Katalóníuhringnum á sunnudag.
Meira
BAR-liðið fær hvorki að keppa í Spánarkappakstrinum um helgina né í Mónakókappakstrinum eftir rúman hálfan mánuð. Það hefur einnig verið svipt stigum sem það vann í síðasta móti, í Imola.
Meira
ÞAÐ eru 30 ár síðan 3-lína BMW kom fyrst á markað. Hún vakti strax athygli fyrir hönnun, kraftmiklar vélar og góða aksturseiginleika. Núna um helgina, á 30 ára afmælisárinu, verður frumsýnd fimmta kynslóð 3-línunnar hjá B&L.
Meira
Félagar í Fornbílaklúbbi Íslands, FBÍ, fara á stjá í byrjun maí á hverju ári með bíla sína. Fyrsta skipulagða ferð sumars hefst ætíð á svokölluðum Skoðunardegi, en þá mæta félagar með bíla sína til skoðunar.
Meira
VOLKSWAGEN Golf af fjórðu kynslóð, sem áður var í eigu núverandi páfa, Josef Ratzinger, sem tók upp nafnið Benedikt XVI, er til sölu á eBay í Þýskalandi. Þetta er grár Golf 2.0, með 115 hestafla vél, árgerð 1999 sem hefur verið ekið 75.000 km.
Meira
MAZDA 6 er öruggasti bíllinn í rekstri í flokki meðalstórra bíla, ef marka má niðurstöður ADAC, systurfélags FÍB í Þýskalandi. Hlutfallslega flestir biluðu bílanna reyndust vera Fiat.
Meira
BBC Top Gear er líklega sá bílaþáttur sem hefur mest áhorf í Evrópu. Þáttarstjórnendurnir þrír, Jeromy Clarkson, Richard Hammond og James May, eru allir staddir hér á landi við prófanir á Audi TT, Chrysler Crossfire og Nissan 350Z; allt saman...
Meira
JUAN Pablo Montoya mun snúa aftur til keppni með McLaren í spænska kappakstrinum um helgina. Hann missti af tveimur síðustu mótum - í Barein og Imola - vegna axlarmeiðsla sem hann varð fyrir við tennisleik.
Meira
CHEVROLET er á leiðinni bakdyramegin inn í Evrópu í gegnum Asíu. Eða þannig gæti það virst þegar málið er skoðað. Eftir að GM keypti Daewoo hafa bílarnir fengið Chevrolet-merkið og eru markaðssettir sem slíkir í Evrópu.
Meira
Á HEIMASÍÐU Samtaka iðnaðarins, si.is, er að finna reiknivél sem gefur samanburð á kostnaði bíleigenda eftir því hvort greiddur er þungaskattur eða olíugjald. Lög um olíugjald og afnám þungaskatts tekur gildi 1. júlí nk.
Meira
Í UPPHAFI, árið 1895, störfuðu einungis fimm manns hjá fyrirtækinu sem seinna varð Skoda, þar af tveir af stofnendunum, V. Laurin, (1865-1930), og V. Klement (1868-1938). Í fyrstu fékkst fyrirtækið við reiðhjólaviðgerðir og reiðhjólasmíði.
Meira
SKODA á um þessar mundir 100 ára afmæli og er því með elstu bílaframleiðendum í heimi. Í tilefni afmælisins verður Skoda-dagurinn haldinn í Heklu á morgun. Þar verður boðið upp á afmælistertu og ís og er öllum Skoda-eigendum boðinn ókeypis bílaþvottur.
Meira
Saga bílaframleiðslu Skoda í 100 ár er samtvinnuð sögu tékkóslóvakísku þjóðarinnar og seinna þeirrar tékknesku. Þar skiptust á skin og skúrir en ávallt hefur Skoda verið stór partur af útflutningsverðmætum landsins.
Meira
Engin önnur dæmi sýna það jafn glöggt og stóraukinn innflutningur á bandarískum pallbílum, að vörugjöld hins opinbera stýra kaupum almennings á bílum að miklu leyti.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.