HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær Írana á fimmtugsaldri í 30 daga fangelsi fyrir að framvísa fölsuðu vegabréfi hér á landi þegar lögregla var með hefðbundið eftirlit á dvalarstað hælisleitenda í Reykjanesbæ. Maðurinn játaði sök.
Meira
Á ÁRUNUM 1996-2004 voru ættleiðingar hér á landi 411 talsins. Í 174 tilvikum var um að ræða stjúpættleiðingu en frumættleiðingar voru 237. Þetta kemur fram í hefti, sem mannfjöldadeild Hagstofu Íslands hefur sent frá sér.
Meira
Í TILEFNI kvennafrídagsins, 24. október, hefur Actavis ákveðið að styrkja verkefnið Blátt áfram um eina milljón króna. Blátt áfram er forvarnaverkefni Ungmennafélags Íslands og felst í að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi.
Meira
ÖSSUR Skarphéðinsson, þingmaður og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir í pistli á heimasíðu sinni í gær að sér virðist sem viðræður Íslendinga við Bandaríkjamenn um varnir landsins hafi siglt í strand og að samningsstaða Íslendinga fari...
Meira
LEIT úr lofti og sjó var hafin eftir að merki frá neyðarsendi bárust til Landhelgisgæslunnar um gervitungl í gegnum jarðstöð í Bodø í Noregi í gærmorgun. Samkvæmt upplýsingum Gæslunnar virtist sem neyðarsendirinn væri um 5 mílur suðvestur af Grindavík.
Meira
Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is STJÓRN fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík samþykkti á fundi sínum þann 7. október sl. áskorun til þátttakenda í prófkjöri um að auglýsa ekki í ljósvakamiðlum.
Meira
STUÐNINGSMENN Gísla Marteins Baldurssonar efna til skemmtunar í Stóra salnum í Háskólabíói kl. 14 á morgun, sunnudaginn 30. október undir nafninu Baráttu-gleði.
Meira
Bláa lónið | Opið hús verður í Bláa lóninu - lækningalind í dag, laugardag, frá klukkan 10 til 15 í tilefni af alheimsdegi fólks með psoriasis. Gestum mun gefast kostur á að baða sig í lóni lækningalindarinnar og kynna sér starfsemina.
Meira
VERSLUNIN Blómaval kveður í dag heimkynni sín til þrjátíu og fimm ára við Sigtún, en verslunin verður opnuð í 4.000 fermetra húsnæði við hliðina á Húsasmiðjunni í Skútuvogi í dag kl. 9. Hið nýja húsnæði er að sögn eigenda Blómavals hátæknilegt og er...
Meira
Grímsnes | Gistiheimilið Brekkukot á Sólheimum í Grímsnesi hlaut umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs 2005 en í ár bárust sjö tilnefningar. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra afhenti verðlaunin á ferðamálaráðstefnu á Hótel Sögu.
Meira
Djúpivogur | Sveitarstjórn Djúpavogshrepps telur að brýnt sé að samgönguyfirvöld hefji nú þegar nauðsynlega rannsókna- og undirbúningsvinnu vegna jarðganga milli Álftafjarðar og Lóns, með það að markmiði að slíkri lausn verði fundinn staður sem fyrst í...
Meira
Akureyri | Ekkert lát er á leiðindum í veðrinu norðan heiða og nú hafa íbúar annarra landshluta einnig fengið sinn skammt af óveðri, með tilheyrandi ófærð og seinagangi í umferðinni.
Meira
FRANZ Árnason forstjóri Norðurorku sagðist ánægður með að kaup fyrirtækisins á Hitaveitu Ólafsfjarðar skuli hafa verið samþykkt í bæjarstjórn Ólafsfjarðar.
Meira
Ragnar Ingi Aðalsteinsson orti í flugvél Ómars Ragnarssonar á leið á hagyrðingakvöld: Upp skal klífa enn á ný og ekki mun ég leyna því að magafiðring fæ ég oft er Frúin er komin upp í loft. Sigurjón V.
Meira
Þúsundir íbúa við strandlengjuna á suðausturhluta Indlandsskaga hafa verið fluttir á brott en fellibylur stefndi í gær á svæðið frá Bengalflóa. Hér sést fólk í gær í borginni Chennai með eigur sínar í vatnselg á götunni.
Meira
ARNA Sif Þórsdóttir í Menntaskólanum við Sund fékk verðlaun í skólaleik Pennans í samvinnu við Heklu og VÍS. Verðlaunin voru Volkswagen Fox bílar sem Arna Sif fær til afnota fram á næsta haust.
Meira
Neskaupstaður | Þær Sesselja Rán Hjartardóttir og Hrönn Hjálmarsdóttir fengu lítið frí á kvennafrídaginn. Þann dag völdu dætur þeirra sér að koma sér í heiminn á fæðingardeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað.
Meira
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is VEL hefur verið tekið á málefnum fatlaðra í samfélaginu undanfarin ár en geðsjúkir hafa setið eftir. Þetta segir Auður Styrkársdóttir, en hún stendur ásamt fleira fólki að stofnun aðstandendahóps Geðhjálpar.
Meira
UM áramót mun göngudeild psoriasis-sjúklinga á Akureyri verða lokað. Deildin hefur verið rekin af Sjálfsbjörg en nú er svo komið að flestöll tæki eru úrelt og því ekki stætt á að hafa deildina áfram opna.
Meira
Eftir Bjarna Ólafsson Bjarni@mbl.is AFKOMA viðskiptabankanna þriggja hefur aldrei verið betri en á fyrstu níu mánuðum þessa árs, ef hún er borin saman við sama tímabil fyrri ára.
Meira
SVOKALLAÐIR mjaltaþjónar eru núna í notkun í 39 fjósum á Íslandi, en þetta er 5,1% af öllum fjósum á landinu. Í yfirliti frá Landssambandi kúabænda kemur fram að þetta sé með því hæsta sem gerist í heiminum.
Meira
MIKIÐ er gott að geta setið í hlýjunni innandyra og notið þess að horfa á bæjarlífið fyrir utan gluggann meðan verið er að dúlla í hárinu á manni.
Meira
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur sigurhanna@mbl.is LÆKNANEMARNIR Ásbjörg Geirsdóttir og Þóra Kristín Haraldsdóttir dvöldu á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar í Úganda í 7 vikur síðastliðið sumar.
Meira
SKÁTAFÉLAGIÐ Garðbúar stendur fyrir Íslandsmeistaramóti skáta í keilu sunnudaginn 6. nóvember í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og hefst mótið kl. 9. Keppt er í þremur flokkum: ylfingar (8-11 ára) mæta kl. 9, skátar (12-14 ára) mæta kl.
Meira
KROSSGÁTUBLAÐIÐ Frístund hefur gefið út sérstakt Su Doku-blað. Su Doku-þrautin er talin upprunnin í Japan, en hefur verið á ferð um heiminn í nokkur ár og er nú nýlega komin á íslenskan markað.
Meira
KIA Rio verður frumsýndur hjá Kia-umboðinu við Laugaveg 172 um helgina. Sýndar verða tvær gerðir, fjögurra dyra stallbakur og fimm dyra hlaðbakur. Báðar gerðir eru með bensínvélum en í lok nóvember eru bílar með díselvél væntanlegir.
Meira
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Keflavíkurflugvöllur | "Þessi viðbót setur okkur í röð fremstu afgreiðslufyrirtækja á vellinum," segir Davíð Jóhannsson, framkvæmdastjóri Suðurflugs ehf.
Meira
MÁL Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar gegn Jóni Ólafssyni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem krafist er endurupptöku meiðyrðamáls Jóns gegn Hannesi sem dæmt var í Bretlandi í haust, var tekið fyrir í héraðsdómi í gær.
Meira
Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is I. LEWIS Libby, skrifstofustjóri varaforseta Bandaríkjanna, sagði af sér í gær eftir að hann var ákærður fyrir meinsæri og fleiri lögbrot í tengslum við rannsókn á upplýsingaleka úr Hvíta húsinu.
Meira
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL Evrópu í Strassborg hefur gengið mun lengra en upphaflega stóð til þegar dómstóllinn var settur á laggirnar og teygir nú anga sína til flestra sviða þjóðlífsins.
Meira
SAMTÖK sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Svæðisráð Svæðisvinnumiðlunar Norðurlands vestra standa fyrir málþingi um atvinnumál á Norðurlandi vestra. Yfirskrift málþingsins er Norðurland vestra 2020 og verður það haldið föstudaginn 4.
Meira
Átján ára Svíi, sem handtekinn var í Bosníu, er talinn tengjast fjórum ungum mönnum, sem í gær voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Danmörku, grunaðir um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverkaárás. Auk Svíans voru tveir menn handteknir í Sarajevo.
Meira
ARNAR H. Gestsson, athafnamaður í Reykjavík, hefur fest kaup á Miðdalslandi ofan við Reykjavík og Mosfellsbæ. Landareignin nær frá Selvatni að mörkum Árnessýslu. Það er á þriðja þúsund hektara að stærð, er í 150-250 metra hæð yfir sjó og sléttlent.
Meira
Teheran. AP, AFP. | Rúm milljón manna tók þátt í mótmælum gegn Ísrael á götum Teheran og fleiri borga í Íran í gær og fólkið lét í ljósi stuðning við þau ummæli forseta landsins að þurrka bæri Ísrael út.
Meira
FIMM mótmælendur, þar af einn Íslendingur, hindruðu aðgang að álveri Alcan, eiganda álversins í Straumsvík, í Fort William í Skotlandi á þriðjudag og voru þeir handteknir eftir fjögurra tíma mótmæli.
Meira
UNA María Óskarsdóttir sem gefur kost á sér 1. sæti í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi hefur opnað kosningaskrifstofu í Bæjarlind 2, á 3. hæð (lyfta), Löðurshúsinu. Boðið verður upp á léttar veitingar og tónlist. Skrifstofan verður opin frá kl.
Meira
Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | "Þetta var frábær upplifun, að syngja á Íslendingadeginum í Gimli. Þarna eru Íslendingar þekktir að góðu einu og greinilegt að þeir setja svip sinn á umhverfið.
Meira
PRESTSVÍGSLA verður í Dómkirkjunni, á morgun, sunnudaginn 30. október, kl. 16. Þá vígir biskup Íslands cand. theol. Hólmgrím Elís Bragason, sem ráðinn hefur verið héraðsprestur í Austfjarðaprófastsdæmi.
Meira
PRÓFKJÖR sjálfstæðismanna í Reykjavík, vegna borgarstjórnarkosninganna í vor, fer fram 4. og 5. nóvember nk. Tuttugu og fjórir frambjóðendur hafa gefið kost á sér.
Meira
Skipuleggjendur fyrstu alþjóðaráðstefnu femínista í íslömskum ríkjum hvetja til heilags stríðs, jihad, fyrir jafnrétti kvenna gagnvart körlum, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC . Ráðstefnan er haldin í Barcelona á Spáni.
Meira
"Inni" | Björg Eiríksdóttir opnar sýninguna "Inni" í sal Svartfugls og Hvítspóa laugardaginn 29. október klukkan 14. Sýningin stendur til og með 13. nóvember og verður opin alla daga frá 13-17.
Meira
RÁÐHERRAFUNDUR BASREC-ríkjanna var haldinn í Reykjavík í vikunni, en BASREC er heiti á orkumálasamtarfi ríkja í Eystrasaltsráðinu. Andris Piebalgs, orkumálastjóri Evrópusambandsins, ávarpaði fundinn.
Meira
Húsavík | Bæjarstjórn Húsavíkurbæjar fjallaði á fundi sínum í vikunni um þá stöðu sem uppi er í sameiningarmálum sjö sveitarfélaga í sýslunni og þá sérstaklega það atriði hvernig takast skyldi á við stöðuna ef sameining yrði samþykkt í a.m.k.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt Mikael Torfason, ritstjóra DV, og Illuga Jökulsson, fyrrum ritstjóra, í 50 þúsund króna sekt hvorn fyrir ummæli sem birtust á forsíðu blaðsins í október 2004 um tiltekinn mann. Ummælin þóttu meiðandi.
Meira
Moskvu, París. AP. | Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði í gær að nokkur þeirra skjala sem lögð hefðu verið fram í tengslum við rannsókn á ólöglegum greiðslum fyrirtækja til Íraka væru fölsuð.
Meira
GARÐAR Baldvinsson hefur látið af formennsku í Félagi ábyrgra feðra vegna samskiptaörðugleika í stjórn félagsins. Stefán Guðmundsson hefur tekið við formennskunni af Garðari. Á stjórnarfundi 24.
Meira
Fáskrúðsfjörður | Sveitarstjórn Austurbyggðar hefur ákveðið að ganga til samninga við Tré og steypu ehf. um byggingu nýrrar skólamiðstöðvar á Fáskrúðsfirði.
Meira
MÝFLUG og Landsflug munu sjá um sjúkraflug næstu fimm árin, en ákveðið var að taka tilboðum félaganna í flugið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is Skólinn á að aðlaga sig nemendum en ekki öfugt Foreldrar barna sem glíma við fötlun eða aðrar sérþarfir þurfa oft að berjast fyrir því að rétturinn til náms í almennum grunnskóla sé virtur.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um smygl á verulegu magni af fíkniefnum til landsins með póstsendingum. Sætir hann gæsluvarðhaldi til 4. nóvember.
Meira
FYRIRTÆKIÐ Þormóður rammi - Sæberg hf hefur sent níu starfsmönnum í Siglufirði uppsagnarbréf vegna hagræðingar í rækjuvinnslu fyrirtækisins í Siglufirði. Verður framvegis unnið á einni vakt í vinnslunni.
Meira
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að gerð skuli jarðgöng framhjá einum hættulegasta kafla vegarins um Óshlíð hefur vakið mikla umræðu meðal bæjarbúa í Bolungarvík. Göngin sem ákveðið er að gerð verði á næsta ári verða um 1.
Meira
UNDIRRITAÐUR hefur verið útgáfusamningur við þýska útgáfufyrirtækið Lübbe um útgáfu skáldsögunnar Aftureldingar eftir Viktor Arnar Ingólfsson í Þýskalandi. Bókin kemur út hér á landi hjá Máli og menningu í dag.
Meira
DJÁKNUNUM Unni Halldórsdóttur og Ragnheiði Sverrisdóttur hafa verið veitt verðlaun fyrir að stuðla að eflingu kærleiksþjónustu í íslensku þjóðkirkjunni.
Meira
FERÐAMÁLASETUR Íslands veitir nú í fyrsta sinn 100.000 króna verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni um ferðamál sem unnið er af nemanda við háskóla hér á landi.
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is BÆJARSTJÓRINN á Ísafirði hefur óskað eftir fundi með forsvarsmönnum fyrirtækisins Já, dótturfyrirtæki Símans, um hugsanleg kaup fjársterkra aðila á Ísafirði á fyrirtækinu.
Meira
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur austurland@mbl.is Bæjarráð Fljótsdalshéraðs telur að rétt sé að leysa úr þeim ágreiningi sem verið hefur um samning vegna sölu Eiða til Sigurjóns Sighvatssonar og Sigurðar Gísla Pálmasonar, sem stofnuðu Eiða ehf.
Meira
ÁLFTARUNGI sem sat eftir á Bakkatjörn þegar foreldrar hans og systkin flugu suður á bóginn bar sig aumlega þegar vegfarendur og starfsmenn Seltjarnarnesbæjar urðu varir við hann á dögunum.
Meira
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist frá Húsasmiðjunni: "Húsasmiðjan hf. tilkynnti sl. mánudag 24. október, fyrst íslenskra fyrirtækja, VERÐVERND á heimilis- og byggingarvörum.
Meira
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist frá Höfuðborgarsamtökunum: "Höfuðborgarsamtökin undrast ótrúlegt og óskammfeilið uppátæki hagsmunasamtakanna Áfram í Dalvíkurbyggð að hrinda af stað undirskriftasöfnun til að negla niður flugvöll í Vatnsmýrinni...
Meira
Eyjafjarðarsveit | Forsvarsmenn flestra verkalýðsfélaga á Akureyri heimsóttu endurhæfingardeild FSA í Kristnesi og afhentu veglega peningaupphæð fyrir hönd sjúkrasjóða félaganna.
Meira
ÞÓRÐUR Guðjónsson, skipstjóri og útgerðarmaður á Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn 27. október, 82 ára að aldri. Þórður fæddist að Ökrum á Akranesi 10. október 1923. Foreldar hans voru hjónin Ingiríður Bergþórsdóttir og Guðjón Þórðarson.
Meira
Bagdad. Los Angeles Times. | Mohammed Khalaf, 13 ára, og yngri bróðir hans, Ahmed, höfðu gert hlé á fótboltaleiknum til að þiggja sælgæti af bandarískum hermönnum þegar jeppa var ekið inn í þrönga götuna.
Meira
Í nýjasta hefti af The Economist er repúblikönum í Bandaríkjunum ráðlagt að hugsa sig um tvisvar áður en þeir hefji árásir á Patrick Fitzgerald, sérstakan saksóknara í Plame-málinu.
Meira
Fyrirtæki í 66 löndum eru bendluð við mútur í Írak í tengslum við olíusöluáætlun Sameinuðu þjóðanna á árunum 1996 til 2003 samkvæmt skýrslu óháðrar nefndar, sem rannsakaði málið. Í skýrslunni kemur fram að um 2.
Meira
Síðustu daga hafa birtzt misvísandi fréttir um stöðu mála í viðræðum við Bandaríkjamenn um framkvæmd varnarsamningsins á milli þessara tveggja þjóða.
Meira
AFMÆLISSÝNING Torfa Jónssonar, myndlistar- og leturgerðarmanns, verður opnuð í Listasal Mosfellsbæjar í dag kl. 15.00. Torfi hefur starfað sem bókahönnuður bæði hér heima og í Noregi. Sl.
Meira
NÝ sýning verður opnuð í dag í Minjasafninu á Akureyri: Af norskum rótum. Sýningin fjallar um gömul timburhús í Noregi og á Íslandi. Dagurinn hefst með gönguferð kl. 14 undir leiðsögn Finns Birgissonar arkitekts.
Meira
ÞAÐ BÍÐA eflaust margir Íslendingar í ofvæni eftir að fá að lesa nýjustu bók Arnaldar Indriðasonar, Vetrarborgina . Biðin er senn á enda en á miðnætti mánudaginn 1.
Meira
BJÖRG Eiríksdóttir opnar sýninguna "Inni" í sal Svartfugls og hvítspóa í dag klukkan 14. Sýningin stendur til og með 13. nóvember og verður opin alla daga frá 13-17.
Meira
Tveir menn saka Dan Brown , höfund skáldsögunnar Da Vinci lykillinn , um að hafa stolið hugmyndinni að bókinni frá sér. Mennirnir skrifuðu bókina The Holy Blood and the Holy Grail árið 1982. Þar koma m.a.
Meira
Ofurfyrirsætan Kate Moss hefur lokið dvöl sinni á meðferðarstöð í Arizona þar sem hún fór í meðferð vegna kókaínfíknar, að því er umboðsskrifstofa hennar, Storm, greindi frá.
Meira
Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is HANN snarast inn úr dyrunum, léttur á fæti. Grettir sig þó lítillega um leið og hann fær sér sæti og segist vera orðinn "of gamall fyrir þennan kulda". Þú ert orðinn áttræður, segi ég.
Meira
Turnage: Scherzoid; Mendelssohn: Fiðlukonsert; Brahms: Sinfónía nr. 4. Sinfóníuhljómsveit Íslands lék undir stjórn Rumon Gamba. Einleikari: Tasmin Little. Fimmtudagur 27. október.
Meira
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is LANDSMÓT karlakóra verður haldið í Hafnarfirði í dag og er það elsti karlakór landsins, Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði, sem er gestgjafi að þessu sinni.
Meira
Hemmi Gunn tekur á móti söngglöðum gestum í sjónvarpssal í viku hverri. Gestir kvöldsins eru ungir og upprennandi leikarar, þau Hallgrímur Ólafsson, Gói, Bryndís Ásmundsdóttir og Esther...
Meira
Textíllist | Hrafnhildur Sigurðardóttir veitti í fyrradag viðtöku norrænu textíllistaverðlaununum við hátíðlega athöfn í Borås í Svíþjóð, fyrst Íslendinga.
Meira
Á vinnustofunni er Helgi Þorgils að vaska upp og að því búnu liggur leiðin til Akureyrar, að hengja upp í Listasafninu á Akureyri en sýning á verkum hans hefst þar í dag.
Meira
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN Októberbíófest var sett með pomp og prakt síðastliðið miðvikudagskvöld. Hátíðin hófst með sýningu á dönsku kvikmyndinni Drabet , en leikstjóri myndarinnar, Per Fly, var viðstaddur sýninguna.
Meira
Leikari/leikkona ársins í aðalhlutverki Björn Hlynur Haraldsson - Reykjavíkurnætur Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir - Stelpurnar Ilmur Kristjánsdóttir - Stelpurnar Nicolas Bro - Voksne Mennesker Þórunn Clausen - Reykjavíkurnætur Leikari/leikkona ársins í...
Meira
NÓI, Jóhann Ingimarsson, opnar sýningu í húsgagnaversluninni Mublu við Nýbýlaveg 17 í Kópavogi í dag kl. 14. Þar sýnir hann ný málverk og mun sýningin standa fram í nóvembermánuð. Hún er opin á sama tíma og...
Meira
VOVKA Stefán Ashkenazy og Vassilis Tsabropoulos leika rússneska tónlist fyrir tvö píanó í Tíbrárröð Salarins í dag kl. 16. Salurinn í Kópavogi státar af því að eiga tvo konsertflygla af bestu gerð og munu þessir tveir píanistar taka þá til kostanna.
Meira
SIGRÍÐUR Ágústsdóttir opnar í dag sýningu í Jónas Viðar Gallery, Listagilinu, Akureyri. Sigríður stundaði nám í leirlist í listaskólum í Frakklandi og Englandi á áttunda áratugnum.
Meira
STUÐTÓNLEIKAR er yfirskrift kvöldsins í kvöld á Grand Rokk en þar stíga á svið hljómsveitirnar Skátar, Æla og Retron. Það er fyrirtækið Grandmother's Records sem stendur fyrir uppátækinu.
Meira
ÞAÐ HEFUR trúlega farið fram hjá fáum kvikmyndaunnendum að nú stendur yfir kvikmyndahátíðin Októberfest í Reykjavík. Fjöldi mynda verður sýndur á hátíðinni, sem stendur til 14. nóvember næstkomandi.
Meira
Guðrún Jónína Magnúsdóttir svarar grein Snjólfs Ólafssonar um launamun kynjanna: "Hjá ríkinu var þetta gert þannig að titillinn yfir-eitthvað eða deildar-eitthvað var notaður til að hífa karla upp yfir konur við nákvæmlega sömu störf."
Meira
Sigurjón Þórðarson svarar Einari Júlíussyni um nýliðun fiskstofna: "Er ekki kominn tími til að tengja og líta upp úr línuritum sem byggð eru meira og minna á ágiskuðum og óvissum gögnum ..."
Meira
Hildur Friðriksdóttir skrifar í tilefni af nýafstöðnum kvennafrídegi: "Að mínu mati er tímabært að hefja jafnréttisbaráttuna upp á nýtt plan og nýta sér það afl í þjóðfélaginu sem verður þegar umræðan nær að snúa viðhorfi meirihlutans."
Meira
Eftir Gísla Martein Baldursson: "Það er mjög þýðingarmikið fyrir Reykjavík að Sjálfstæðisflokkurinn beri sigur úr býtum í vor eftir tólf ára valdatíð R-listans, sem nú er allur."
Meira
Hörður Zóphaníasson fjallar um málefni Sólvangs í Hafnarfirði: "Það er stundum sagt að verkin tali, en líka verkleysið getur verið sárbeitt tunga sem svíður undan."
Meira
jonf@hi.is: "Orðatiltækið reka upp ramakvein vísar til mótmælaóps og á það alllanga sögu í íslensku. Það á rætur í Biblíunni (Matt 2, 18) og er sniðið eftir heiti á borg (Rama) sem kunn er úr ritningunni."
Meira
Frá Geir A. Guðsteinssyni: "SAMBAND íslenskra karlakóra, SÍK, var stofnað 10. mars 1928 að frumkvæði Karlakórs Reykjavíkur, Karlakórs KFUM og Söngfélags stúdenta. Það var svo tveimur árum síðar sem fyrsta söngmót SÍK var haldið eða 2. júlí árið 1930 með þátttöku sex karlakóra."
Meira
Lúðvík Geirsson skrifar um aðgerðir til að uppræta launamun kynjanna hjá starfsfólki Hafnarfjarðarbæjar: "Það er von mín að með þessum aðgerðum náum við að vinna endanlega bug á kynbundnum launamun hjá Hafnarfjarðarbæ."
Meira
Íslenskt kvennafrí í Mósambík ÞRJÁR konur sem starfa hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) í Mósambík tóku sér frí á mánudaginn í tilefni af kvennafrídeginum líkt og konur á Íslandi gerðu. Þær lögðu niður vinnu upp úr 14.
Meira
Elín G. Ólafsdóttir svarar grein Snjólfs Ólafssonar um launamun kynjanna: "Sjónarmið eins og þau sem borin eru á borð í téðri grein ganga þvert á áratugalanga, þrotlausa baráttu fyrir launajafnrétti og samábyrgð á heimilishaldi, starfsframa og jöfnum tækifærum beggja kynja."
Meira
Friðrik Ásgeir Hermannsson fæddist á Ísafirði 28. september 1971. Hann lést í sjóslysi 10. september síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hallgrímskirkju 23. september.
MeiraKaupa minningabók
Fríða Dagmar Snorradóttir fæddist í Bolungarvík 22. mars 1944. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsi Ísafjarðar miðvikudaginn 19. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Snorri H. Jónsson, f. í Skálavík 8. apríl 1911, d. 9. nóvember 1990, og Þorbjörg J.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Baldvinsdóttir fæddist í Hrísey 8.10. 1925. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 18.10. síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Elín Ágústa Valdimarsdóttir og Baldvin Bergsson. Guðrún átti einn bróður, Valdimar. Hinn 17.11.
MeiraKaupa minningabók
Helga Katrín Gísladóttir fæddist á Hamraendum í Hraunhreppi í Mýrasýslu, 7. júlí 1938. Hún andaðist á Háskólasjúkrahúsi, Fossvogi, 28. september síðastliðinn og var jarðsungin frá Bústaðakirkju 14. október.
MeiraKaupa minningabók
Jóhann Guðmundsson fæddist á Ísafirði 9. júní 1942. Hann lést á heimili sínu Hlíf 2 á Ísafirði 18. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Lára Hulda Veturliðadóttir, f. 26. mars 1921, d. 14. febrúar 1991, og Guðmundur Markús Ólafsson, f. 26.
MeiraKaupa minningabók
Konkordía Sigurbjörg Þorgrímsdóttir fæddist í Syðra-Tungukoti (nú Brúarhlíð) í Blöndudal 2. júní 1922. Hún lést á líknardeild Landspítala - Háskólasjúkrahúss hinn 21. október síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Kristján Einarsson fæddist á Hrjóti í Hjaltastaðaþinghá 29. október 1921. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut aðfaranótt laugardagsins 8. október síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Ólafur Erlendsson fæddist á Jörfa í Kolbeinsstaðahreppi í Hnappadalssýslu 24. apríl 1926. Hann lést á sjúkrahúsi í Tallinn í Eistlandi hinn 17. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Erlendur Ólafsson, f. 1897, d. 1994, og Anna Jónsdóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Sigrún Ágústsdóttir fæddist á Núpi undir Eyjafjöllum 14. nóvember 1910. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 23. október síðastliðinn. Sigrún var dóttir Guðrúnar Jónsdóttur og Ágústs Guðmundssonar.
MeiraKaupa minningabók
Sigurvin Guðmundsson fæddist á Sæbóli á Ingjaldssandi 24. desember 1917. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 25. október. Foreldrar hans voru Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 15.12. 1890 á Hellnum á Snæfellsnesi, d. 22.9.
MeiraKaupa minningabók
Þóra Steinunn Stefánsdóttir fæddist á Arnarstöðum í Núpasveit í Norður-Þingeyjarsýslu 12. maí 1920. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 19. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Oktavía Stefanía Ólafsdóttir, f. 30. september 1891, d. 4.
MeiraKaupa minningabók
Örn Einarsson fæddist í Reykjavík 31. desember 1947. Hann lést af slysförum hinn 20. október síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Kristínar Þ. Ottesen og Einars Sigurðssonar.
MeiraKaupa minningabók
Aðalbjörg sf. hlaut Umhverfisverðlaun LÍÚ árið 2005. Þetta er í sjöunda sinn sem LÍÚ efnir til umhverfisverðlauna meðal aðila innan samtakanna sem þykja hafa skarað fram úr á því sviði. Hlaut Aðalbjörg sf.
Meira
AÐALFUNDUR LÍÚ vill að stjórnvöld varði stefnu aðhalds og festu í stjórn efnahagsmála í samhentu átaki með Seðlabankanum. Hann leggur til að söluandvirði Símans verði varið til kaupa á gjaldeyri til að sporna við háu gengi krónunnar.
Meira
"Við í Samfylkingunni viljum leggja okkar af mörkum til að sátt náist í greininni, það á að vera hlutverk stjórnmálamanna og útgerðarmanna að skapa forsendurnar fyrir henni.
Meira
HEILDARVELTA í Kauphöll Íslands í gær nam tæplega 26,1 milljarði króna, þar af var velta með hlutabréf fyrir um 5 milljarða. Mest hækkun varð á bréfum Flögu, 9,7%, en mest lækkun varð á bréfum Kögunar, 1,3%.
Meira
METHALLI var á vöruviðskiptum við útlönd á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Hallinn nam 71,7 milljörðum króna og jókst um 47,3 milljarða króna miðað við sama tímabil í fyrra en þá var hann 24,4 milljarðar.
Meira
HAGNAÐUR KB banka á fyrstu níu mánuðum þessa árs nam 35,6 milljörðum króna. Þetta er ríflega 22 milljarða aukning miðað við sama tímabili á síðasta ári.
Meira
VERÐTRYGGÐIR útlánsvextir Íbúðalánasjóðs (ÍLS) til 20 ára eru nú lægri en vextir á útgefnum skuldbréfum sjóðsins til um það bil sama tíma, að því er fram kemur í hálf fimm fréttum greiningardeildar KB banka.
Meira
JARÐBORANIR voru reknar með 510 milljóna króna hagnaði eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins og jókst hagnaðurinn um 189 milljónir miðað við sama tímabil í fyrra.
Meira
EF draumurinn er að synda innan um hákarla, að vísu með gler á milli, sjá Hollywood-stjörnur í bikiníi eða gista á dýrasta hótelherbergi í heimi er The Atlantis Resort hótelið á Bahama-eyjum í Karíbahafinu staðurinn.
Meira
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Meðlimir saumaklúbbsins P-pillunnar og makar þeirra voru mikið búnir að hlakka til utanlandsferðar, sem farin var í september síðastliðnum til Ungverjalands.
Meira
Þeir sem eru svo heppnir að búa yfir því sem kallað er samskynjun, finna til dæmis bragð af orðum eða sjá myndir þegar þeir hlusta á tónlist. Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti tvær systur sem sjá orð í litum. Fyrir þeim er Rut hvít á litinn en Jón er dökkblár.
Meira
Madríd er staðurinn fyrir óperuunnendur um þessar mundir. Verkefninu Madrid Opera In (MOI) er beint að óperuáhugafólki sem vill komast á sýningar í el Teatro Real í Madríd.
Meira
90 ÁRA afmæli . 1.nóvember nk. er níræður Albert Jónasson, fv. bifreiðastjóri, Nökkvavogi 44 . Albert og fjölskylda taka á móti gestum sunnudaginn 30. október í Gyllta salnum, Hótel Borg klukkan 15-19. Blóm og gjafir...
Meira
Nýliðinn sunnudag varð Magnus Olafson frá Norður-Dakóta í Bandaríkjunum 85 ára og hélt hann upp á afmæli sitt á Íslandi í fyrsta sinn. Hann var jafnframt útnefndur heiðursfélagi Þjóðræknisfélags Íslendinga í fyrri viku. Steinþór Guðbjartsson fylgdi bónda eftir og spjallaði við hann.
Meira
UM helgina voru 130 ár liðin frá því Íslendingar tóku land sunnan við Gimli í Manitoba og byggðu það sem kallað hefur verið Nýja Ísland. Tímamótanna var minnst á ýmsan hátt vestra. Hópur Íslendinga kom til Winnipeg 11.
Meira
LANGT er síðan jafnlítið hefur gerst yfir sumarmánuðina í NBA deildinni og nú í ár. Að vísu hefur verið jafnmikið um leikmannaskipti og áður, en þau hafa ekki breytt styrkleika liðanna eins mikið og mörg undanfarin ár.
Meira
STJÓRN körfuknattleiksdeildar Grindavíkur hefur ákveðið að leysa bandaríska leikmanninn Damon Bailey undan samningi sínum við félagið og mun nýr bandarískur leikmaður koma til liðsins og leika sem leikstjórnandi en hann heitir Jeremiah Johnson.
Meira
HERMANN Hreiðarsson og félagar í Charlton, sem eru í öðru sæti deildarinnar, taka á móti Bolton á The Valley í dag, en Bolton er í sjöunda sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Charlton.
Meira
Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is ÚRSLITALEIKURINN í sænsku bikarkeppninni í knattspyrnu verður háður á Råsunda leikvangnum í Stokkhólmi í dag en þar leiða saman hesta sína nýkrýndir meistarar Djurgården og Åtvidaberg sem leikur í 1.
Meira
GUNNAR Sigurðsson fyrrum formaður rekstrarfélags mfl. og 2. fl. karla hjá Knattspyrnufélagi Akraness segir að hann hafi óskað eftir því að Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United myndi taka þátt í vígsluhátíð á fjölnota íþróttahúsi næsta vor.
Meira
MANCHESTER United hefur ekki lengur tök á að keppa við Chelsea um kaup á knattspyrnumönnum. Í staðinn hyggst félagið efla þjálfun ungra knattspyrnumanna og freista þess þannig að ala upp öfluga knattspyrnumenn og þannig reyna að halda í við Chelsea.
Meira
GARY Neville, hægri bakvörður Manchester United og enska landsliðsins, er á góðum batavegi. Neville hefur ekkert leikið með United síðan hann varð fyrir nárameiðslum í Evrópuleiknum gegn ungverska liðinu Debrecen í ágúst.
Meira
* GUNNLAUGUR Erlendsson körfuknattleiksmaður úr KR er með rifinn liðþófa í hné og verður hann frá keppni til áramóta. Á heimasíðu KR-inga er greint frá þessu og þar er sagt að mikil meiðsli herji á leikmannahóp liðsins.
Meira
ÚRSLITIN ráðast í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og ljóst er að Íslendingur verður Noregsmeistari þetta árið og Skagamaður að auki. Árni Gautur Arason, markvörður Vålerenga, getur orðið norskur meistari í sjöunda sinn en Jóhannes Þór Harðarson, miðjumaður í Start, í fyrsta sinn.
Meira
JÓHANN Helgason, 21 árs gamall miðjumaður sem leikið hefur með KA-mönnum, hefur ákveðið að ganga í raðir Grindvíkinga og gera þriggja ára samning við Suðurnesjaliðið. Jóhann lék 15 leiki með KA-mönnum í 1.
Meira
MIDDLESBROUGH á í nokkrum vanda fyrir leikinn í dag við Manchester United því talsvert vantar í miðju varnarinnar hjá liðinu. Ugo Ehiogu yfirgaf Goodison Park á miðvikudaginn á hækjum, meiddist á hné og verður ekki með í dag.
Meira
GUNNAR Heiðar Þorvaldsson markakóngur sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu skoraði annað fallegasta mark í deildinni að mati þeirra sem tóku þátt í vali á marki ársins hjá sænska dagblaðinu Aftonbladet.
Meira
MEISTARARNIR í Chelsea fá Blackburn í heimsókn í dag á Stamford Bridge en þar hafa Eiður Smári Guðjohnsen og félagar ekki tapað leik síðan Jose Mourinho tók við liðinu.
Meira
COLIN Montgomerie lék vel á öðrum keppnisdegi á Volvo meistaramótinu á Valderama vellinum á Spáni í gær og stefnir óðfluga á að verða tekjuhæsti kylfingur Evrópumótaraðarinnar í áttunda skipti á sínum ferli.
Meira
ALAN Pardew knattspyrnustjóri West Ham er búinn að samþykkja að rita nafn sitt undir nýjan fimm ára samning við félagið og er reiknað með gengið verði endanlega frá samningi þess efnis eftir leik West Ham og Liverpool á Anfield í dag.
Meira
HERMANN Hreiðarsson og félagar í Charlton fengu óvænta heimsókn á æfingasvæði félagsins í gær þegar Vilhjálmur Bretaprins mætti á svæðið og tók létta æfingu með leikmönnum.
Meira
"ÞAÐ er spurning hvort ég haldi með Manchester United eða Alex Ferguson knattspyrnustjóra liðsins, enda fór ég að halda með liðinu um leið og hann tók við starfi sínu sem hann gegnir í dag.
Meira
MARTIN Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur sent Arsenal aðvörun - að leikmenn liðsins geta ekki mætt og bókað sigur fyrirfram á White Hart Lane, en í dag fer fram Norður-Lundúna orrusta á vellinum.
Meira
BRASILÍSKI miðjumaðurinn Gilberto sagði í samtali við spænska íþróttablaðið Don Balon í vikunni að það væri ljóst að lið Arsenal saknaði fyrrum fyrirliða síns, Patricks Vieira, sárlega.
Meira
ELLEFU úrvalsdeildarlið verða í hattinum þegar dregið verður í 16 liða úrslit í ensku deildarbikarkeppninni í dag kl. 11.10 í beinni útsendingu á Sky sport. Liðin fimm sem eftir eru og leika ekki í úrvalsdeildinni, eru 1.
Meira
READING, lið Ívars Ingimarssonar og Brynjars Björns Gunnarssonar, getur í dag slegið met í 134 ára sögu félagsins þegar það mætir Leeds United í ensku 1. deildinni á heimavelli sínum, Madejski Stadium.
Meira
LEIKMENN og stjórn bikarmeistara Vals í knattspyrnu verða á meðal áhorfenda á Stamford Bridge í Lundúnum í dag þegar Englandsmeistarar Chelsea taka á móti Blackburn í ensku úrvalsdeildinni.
Meira
ARSENE Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að Arsenal geti veitt Chelsea harða keppni um enska meistaratitilinn, en Arsenal er 12 stigum á eftir Chelsea í deildinni, en á leik til góða.
Meira
Á UNDANFÖRNUM árum hefur Highbury, heimavöllur Arsenal, fengið fjölmargar viðurkenningar og verið hvað eftir annað útnefndur besti völlur Englands. Maðurinn sem á heiðurinn af því er Paul Burgess, vallarhirðir ársins á Englandi.
Meira
* WIGAN hefur aðeins einn sóknarmann tiltækan í dag þegar liðið mætir Fulham. Henri Camara er til í slaginn en þeir David Connolly og Jason Roberts eru báðir meiddir. Camara verður því að öllum líkindum í liðinu og það verður þá 50.
Meira
LEIKMENN og stuðningsmenn Tottenham Hotspur vonast eftir að 13 sé happatala þeirra í dag, þegar tekið verður á móti erki fjendunum úr Arsenal á White Hart Lane í Norður-London.
Meira
Fyrri hluti: Þetta gerðist í júlí, eða 15. júlí á afmælisdegi litlu systur minnar. Hún var að verða 5 ára og við vorum að undirbúa veisluna. Mamma og pabbi höfðu ákveðið að halda veisluna úti. Í fyrra rústuðu nefnilega allir gestirnir húsinu.
Meira
Hver var uppáhaldstónlistin þín þegar þú varst 10 ára? Ég var alltaf á þessum tíma að hlusta á Rokklingana. Ég átti plötuna þeirra og horfði tímunum saman á umslagið og öfundaði krakkana og lét mig dreyma um að vera á umslaginu með þeim.
Meira
Hver var uppáhaldstónlistin þín þegar þú varst 10 ára? Ég var voðalega hrifin af Stjórninni og Siggu Beinteins. Mér fannst líka Michael Jackson mjög skemmtilegur. Hvað ertu að hlusta á í dag?
Meira
Hæ, hæ! Við heitum Bergrún og Bergsteinn og erum í 6.Á.Ó í Gerðaskóla í Garði. Í Gerðaskóla er mikið um samvinnu og félagslíf er mjög gott. Í honum eru 230 krakkar. Gerðarskóli er þriðji elsti skólinn á Íslandi og varð 133 ára 7. október síðastliðinn.
Meira
Hvort sem ykkur langar til að verða söngvarar, atvinnumenn í íþróttum, skáksnillingar, líffræðingar eða eitthvað annað, er um að gera að fylgja áhuga sínum eftir og stefna hátt.
Meira
Hver var uppáhaldstónlistin þín þegar þú varst 10 ára? Barnabrosplöturnar voru í miklu uppáhaldi, ég söng með þeim öllum stundum og kunni öll lögin. Svo var auðvitað Stjórnin líka í uppáhaldi.
Meira
Kína Eitt sinn ég fór til Kína það var eins og bein lína Ég ætlaði að fá mér grjón en því miður átti ég bara einn prjón Þetta er þeirra siður því þýðir ekki að vera með neitt kliður Þeir eru alltaf að spara svona er þetta bara.
Meira
Af um 200 stelpum sem sóttust eftir að fá að taka þátt í þessu mikla Nylon-ævintýri voru aðeins 4 valdar. Ástæðan fyrir því að einmitt Alma, Emilía, Klara og Steinunn urðu fyrir valinu voru ekki eingöngu sönghæfileikar þeirra.
Meira
Hæ, hæ! Ég heiti Sigríður Halla og óska eftir pennavinkonum eða vinum á aldrinum 10-12 ára. Sjálf er ég 11 ára. Áhugamálin mín eru: vinir, öll dýr, fótbolti, tónlist og að teikna. Vinsamlegast látið ljósmynd fylgja með fyrsta bréfi.
Meira
Á Íslandi fáum við að kynnast alls konar veðri sem þið ættuð að þekkja ansi vel. Getið þið fundið þessi orð sem eru tengd veðri. Orðin eru falin ýmist lóðrétt, lárétt eða á ská.
Meira
Söngskóli Maríu Bjarkar hóf starfsemi sína úti á landi í fyrsta sinn á þessu ári. Skólinn starfaði í sumar í Neskaupstað, á Egilsstöðum, Akureyri og Húsavík.
Meira
Hver var uppáhaldstónlistin þín þegar þú varst 10 ára? Ég á tvær eldri systur og mér fannst mjög flott að hlusta á allt sem þær voru að hlusta á og var það m.a. Michael Jackson.
Meira
Í þessari viku þurfið þið að ráða stærðfræðidulmál. Þegar þið hafið farið í spæjaraleik og fundið lausnina sendið þið okkur hana fyrir 5. nóvember. Munið eftir að láta fylgja með upplýsingar um nafn, heimilisfang og aldur.
Meira
Í dag klukkan 14 flytur Kristinn R. Þórisson fimmta fyrirlesturinn í fyrirlestraröðinni "Veit efnið af andanum? Af manni og meðvitund" sem nefnist ,,Vélvitund, meðvitund og sjálfsvitund í kjötvélum og vélmennum".
Meira
! Þessum pistli beini ég til allra barnanna sem lesa sig í gegnum fyrstu opnur Lesbókarinnar á laugardagsmorgnum af tómri slysni áður en þau átta sig á því að þetta er ekki Barnablaðið .
Meira
#3 Bróðir minn tók ekki annað í mál en að vernda mig. Hann keypti handa systur sinni kjól, sokkabuxur og kápu. Handa sjálfum sér hníf. Þú er litla systir mín. Ef einhver nauðgar þér mun ég opna líkama nauðgarans og hræra í kviðnum með þessum hér.
Meira
JPV ÚTGÁFA hefur gefið út sögulega skáldsögu eftir Ragnar Arnalds sem heitir Eldhuginn - Sagan um Jörund hundadagakonung og byltingu hans á Íslandi. Hann var stríðsfangi Breta. Danirnir hötuðu hann og litu á hann sem svikara.
Meira
Það þykir jafnan fréttnæmt innan bókmenntaheimsins þegar Gabriel García Márquez sendir frá sér nýja bók, en nú fyrir skemmstu kom út á ensku fyrsta skáldsaga höfundarins í tíu ár.
Meira
KVIKMYNDIN Goodfellas var valin besta kvikmynd allra tíma í skoðanakönnun sem kvikmyndatímaritið Total Film stóð fyrir á dögunum. Talsmaður blaðsins sagði niðurstöðuna ekki koma sér á óvart.
Meira
New York-rapparinn DMX á yfir höfði sér sextíu daga fangelsisvist eftir að hann gerðist sekur um að rjúfa skilorð sem hann var dæmdur í eftir umferðaróhapp á John F. Kennedy-flugvelli í júní á síðasta ári.
Meira
Tilraunir nítjándu aldar manna til að nota líffræðilegar þróunarkenningar til að rökstyðja stjórnmálaskoðanir eða hugmyndir um mannlífið og mannlegt samfélag eru stundum kallaðar einu nafni félagslegur darwinismi.
Meira
Þorbjörn Broddason, prófessor í félagsfræði, hefur sent frá sér bók um fjölmiðla frá upphafi ritlistar til samtímans, Ritlist, prentlist, nýmiðlar . Í bókinni er meðal annars komið inn á deilur um fjölmiðlafrumvarpið sem staðið hafa undanfarin misseri hérlendis.
Meira
Hver er staða listamanna gagnvart útboðsaðilum? Og er stórfyrirtækjum í almannaeigu í raun stætt á því að hefta listrænt frelsi listamanna og leggja þeim lífsreglurnar í samkeppnum? Þessar og fleiri spurningar hafa vaknað í umræðum um samkeppni Landsvirkjunar um listaverk við Kárahnjúkavirkjun.
Meira
Haustið brast óvænt á tók völdin umsvifalaust sumarið fékk ekki rönd við reist haustið hrifsaði skrúða þess með ísköldum hryðjum nú drúpa aspir lauflausum greinum og sakna. Guðrún Gunnarsdóttir Höfundur fæst við...
Meira
Heimur tímaritanna er gríðarlega margbrotinn. Gefin eru út tímarit um nánast alla skapaða hluti. Eitt þeirra nefnist T3 og fjallar um nýjustu tækni og vísindi. Áherslan er þó nokkuð önnur heldur en í samnefndum sjónvarpsþætti.
Meira
Hið íslenska bókmenntafélag hefur gefið út bókina Líkami og sál: Hugmyndir, þekking og aðferðir í hjúkrun eftir Kristínu Björnsdóttur . Í bókinni er fjallað um tilurð og mótun hjúkrunarstarfsins á Vesturlöndum frá miðri nítjándu öld.
Meira
Flestir ættu að þekkja þá skemmtilegu tilfinningu að koma í stórar tónlistarverslanir erlendis og láta greipar sópa um hillurnar sem eru uppfullar af stórkostlegri tónlist á dásamlega lágu verði - miðað við það sem við eigum að venjast hér á landi.
Meira
Menningin er eins konar jarðsprengjusvæði. Sumir sem hætta sér inn á það komast aftur út af því án þess að verða nokkurs varir, aðrir springa í loft upp. Þegar stigið er á jarðsprengju breytist lífið, stundum þurrkast það út.
Meira
Hamingjan felst í því að hafa góða heilsu og slæmt minni," sagði sænska leikkonan Ingrid Bergman . Þetta er eflaust gagnleg afstaða, svona í heildina tekið, ekki síst ef fólk hefur margs að iðrast og sakna.
Meira
I Bókavertíð er að hefjast eins og sjá má á Lesbók í dag. Við blaðið hefur verið bætt síðum sem fjalla sérstaklega um bækur sem eru að koma út um þessar mundir.
Meira
JPV ÚTGÁFA hefur sent frá sér barnabókina Ríkey ráðagóða eftir Eyrúnu Ingadóttur . Ríkey er ellefu ára og tekur að sér að passa Dódó litlusystur yfir sumarið þótt hana langi meira til að komast á sjóinn með afa.
Meira
JPV ÚTGÁFA hefur sent frá sér skáldsöguna Lífið er annars staðar eftir Milan Kundera í þýðingu Friðriks Rafnssonar. Jaromil er afburðabarn að mati móður sinnar, fæddur ljóðskáld og fimur teiknari.
Meira
JPV Útgáfa hefur gefið út Flugdrekahlauparann eftir afganska rithöfundinn Khaled Hosseini í þýðingu Önnu Maríu Hilmarsdóttur. Flugdrekahlauparinn er heillandi skáldsaga um vináttu og svik, ástir og örlög, sakleysi og sekt.
Meira
Ólafur Gunnarsson hefur sent frá sér skáldsöguna Höfuðlausn sem JPV útgáfa gefur út. Ólafur hefur m.a. skrifað Öxina og jörðina sem hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir 2003. Af öðrum skáldsögum Ólafs má nefna þríleikinn Blóðakur, Vetrarferðina og Tröllakirkju.
Meira
Hanne-Vibeke Holst er þekktur rithöfundur í Danmörku. Krónprinsessan nefnist skáldsaga hennar sem er komin út í íslenskri þýðingu. Holst var gestur á Bókmenntahátíð í Reykjavík og þar náðist tal af henni um verkið og nýja skáldsögu hennar Konungsmorðið .
Meira
Barbara Ehrenreich skrifaði bók um láglaunastétt bandarískrar alþýðu og þau hörmulegu kjör sem hún býr við árið 2001 eftir að hafa bókstaflega sett sig í spor þess fólks í tvö ár.
Meira
Það er með stolti og gleði sem ég tek við bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs í dag. Og ég er sérlega ánægður með að það skuli vera Skugga-Baldur sem færir mér þau.
Meira
Alþjóðlegi psoriasis-dagurinn er í dag. Þetta er í annað sinn sem heimsdagurinn er haldinn, en hann þótti takast mjög vel á síðasta ári, segir á vefsíðu Bláa Lónsins. Í tilefni dagsins verður opið hús í lækningalind Bláa lónsins milli kl. 10 og 15.
Meira
Stóra svið, Woyzeck Eftir Georg Büchner. Woyzeck er undirgefinn þræll yfirmanns síns, tilraunadýr læknis og kokkálaður ástmaður. Tónlist: Nick Cave og Warren Ellis. Leikmynd Börkur Jónsson. Leikstjóri: Gísli Örn Garðarsson.
Meira
Það eru ekki bara vetrardekkin sem þarf að huga að þegar veturinn gengur í garð. Gott er að fara yfir allan öryggisbúnað og sjá til þess að engu sé ábótavant.
Meira
Ólafur Benediktsson hefur séð Íslendingum fyrir dúnsængum og dúnkoddum í yfir 30 ár. Enda hafa margir landsmanna sofið vært á köldum vetrum undir góðum dúnsængum frá Dún og Fiður.
Meira
Veturinn þarf ekki að koma í veg fyrir að fólk noti reiðhjólið, það er að segja ef ekki er stórhríð og algerlega ófært. Íslenski fjallahjólaklúbburinn (IFHK) veitir ráðleggingar varðandi notkun reiðhjóla á vetrum á vefsíðu sinni.
Meira
Þegar vetrar og skammdegið verður alls ráðandi er kannski ekki úr vegi að bæta á þekkingu sína og færni á einhverju sviði. Námskeið eru í boði á mörgum stöðum og margt hagnýtt er hægt að taka sér fyrir hendur, eins og til dæmis tölvunám.
Meira
Proderm er skjótvirk hjálp við ýmsum húðvandamálum. Anna Björg Hjartardóttir hjá Celsus ehf. heildsölunni sem flytur Proderm inn benti Vetri á þessa vöru sem góða hjálp gegn húðvandamálum sem fylgja oft miklum kuldum.
Meira
Á veturna þarf maður kjarnmikið og gott fæði, á því leikur enginn vafi. Hún Sigríður Vilhjálmsdóttir sem er matreiðslumeistari á Kringlukránni kann ekki að meta kuldann og kannski er það þess vegna sem gúllassúpan hennar er svona dúndurgóð.
Meira
Snjór er víða kominn og margir farnir að huga að því að skipta yfir á vetrardekk. Á dekkjaverkstæðunum stendur vertíðin fyrir dyrum og eins og ævinlega er búist við að biðraðir myndist þegar fyrstu snjóar falla. En hvaða dekk á maður að kaupa?
Meira
Guðrún Axelsdóttir og maðurinn hennar Einar Eiðsson skiptu út sportvörum fyrir kvenkápur þegar þau söðluðu um í rekstrinum og keyptu hina vel þekktu verslun Bernharð Laxdal.
Meira
Með vetrinum koma kvefpestirnar og flensurnar. Þá þarf að vera vel undirbúinn og passa heilsuna. Dæla í sig vítamínum og borða heilsusamlegt fæði svo að líkaminn geti komið sínum vörnum við.
Meira
Fátt er betra en að bregða sér í sjóðheitt bað þegar vetur konungur herjar af miskunnarleysi. Og þá er auðvitað upplagt að notfæra sér þá aðstöðu sem utandyra er, til þess að storka bæði kulda og frosti.
Meira
Í huga margra er leikhús tengt vetrinum. Veturinn er framar öðrum árstíðum tími menningar og lista. Því þótti blaðinu kjörið að grípa einn af ástsælustu leikurum þjóðarinnar og spjalla við hann um lífið, leiklistina og veturinn.
Meira
Elísabet Arnardóttir er snyrtifræðingur hjá Artica heildsölu sem sérhæfir sig í snyrtivörum fyrir konur jafnt sem karla. Vetur rakst á hana í Kringlunni þar sem hún veitti okkur ráðgjöf fyrir veturinn.
Meira
Hanna Stefánsdóttir rekur verslunina Húfur sem hlæja. Hún hefur stundað reksturinn í tíu ár og hefur sent hlæjandi húfur út um allan heim. Undarlegt nokk þá er mest sala á þessum skrautlegu húfum á sumrin.
Meira
Veturinn getur boðið upp á margs konar gleði, gönguferðir, fjallatúra og skemmtun á skíðum eða snjóbrettum, en til þess að njóta þessa verða menn að hyggja að samgöngum og á Íslandi þýða samgöngur oftast nær bíll.
Meira
Það er engin ástæða til annars en að njóta þess sem veturinn hefur upp á að bjóða. Þó að kalt og dimmt sé úti er einatt hlýtt og bjart innan dyra.
Meira
Hér á Íslandi þekkjum við kannski ekki þann suðræna sið sem tíðkast sunnar á hnettinum en þar skipta menn víst út öllum fataskápnum eftir árstíðum. Þá er sumarfatnaðinum pakkað niður og vetrarplöggin dregin fram í dagsbirtuna.
Meira
Þau eru ófá skiptin sem höfuðborgarbúinn brunar í gegnum Mosfellsbæ og um öll hringtorgin sem þar er að finna á leið sinni annað hvort á Þingvöll eða norður í land.
Meira
Það veit hvert mannsbarn að lýsi er hollt. Það er nokkuð sem Íslendingar eru aldir upp við. Því segir Árni Geir Jónsson sölu- og markaðsstjóri hjá Lýsi hf. að hann sé í ákaflega þakklátu starfi.
Meira
Í flestum löndum þar sem vetur eru kaldir er ákveðin hefð fyrir heitum drykkjum jafnt áfengum sem óáfengum. Það er mikil stemmning að fara á jólamarkaði í jólaföstunni og dreypa á glöggi, púnsi eða rommtoddý.
Meira
Bókaútgáfan Salka hefur nýverið gefið út fallega bók sem myndvefarinn, rithöfundurinn og grasnytjungurinn Hildur Hákonardóttir hefur skrifað. Ætigarðurinn er bók sem erfitt verður fyrir bókasafnsfræðinga að flokka því hún spannar mörg svið.
Meira
Að þessu sinni er menningarumfjöllun Veturs tileinkuð leiklistinni. Enda blómstrar leiklistarflóran á veturna og jafnvel íslensk leiklist er í mikilli útrás á erlenda markaði.
Meira
Í gömlu rími um mánuði ársins fyrr á tímum kom þetta stef fyrir: "Mörsugur á miðjum vetri, markar spor í gljúfrasetri" en nafngiftin ein sýnir hvern ótta og virðingu menn báru fyrir vetrinum til forna.
Meira
Prjónablaðið Ýr hefur komið út í sautján ár og það er Auður Kristinsdóttir sem hefur staðið að því frá upphafi. Auður brást vel við þegar Vetur sníkti hjá henni prjónauppskrift að einni góðri vetrarpeysu.
Meira
Vetrinum fylgir kalsasamt veður og veðrabrigði sem ýta undir farpestir, kvef og ýmis heilsufarsleiðindi sem flest okkar viljum forðast eftir bestu getu.
Meira
Snjóleysi stafar annaðhvort af hlýindum eða þurrkum, samkvæmt Vísindavef Háskólans. Þar stendur ennfremur að hlýindi valdi því að sjaldnar snjói en ella og sá snjór sem á annað borð falli hverfi fljótt aftur.
Meira
Í kjallara í Garðastræti hefur Hafþór Edmond Byrd smíðað og gert við skó í 39 ár. Ef það er einhver sem getur frætt íslenska skóböðla um rétta meðferð á skófatnaði fyrir veturinn þá er það Hafþór.
Meira
Rauða húsið á Eyrarbakka er opið allt árið og þegar veturinn gengur í garð er lögð áhersla á notalegheit og ljúfa stemningu í bland við hressilegar kvöldstundir. Ferðafólk getur gengið að því vísu að opið er alla daga og boðið er upp á mat allan daginn.
Meira
Öllum sem hefur verið ískalt á blautum fótum á frostdegi í skammdeginu er ljóst að vanda þarf val á vetrarskónum. Tryggvi Freyr Elínarson, verslunarstjóri hjá Ecco í Kringlunni getur gefið góð ráð um þetta.
Meira
Það er engin ástæða til að hætta við góða gönguferð þótt úti sé kalt og snjór liggi yfir kalinni jörð. Norðan garri er heldur engin afsökun fyrir að halda sig inni, bara þú sért rétt klæddur. Og svo er náttúrulega gaman ef sést til fjalla.
Meira
Fyrir þá sem gjarnan vilja út í guðs hvíta náttúruna er Göngugleði Ferðafélagsins (FÍ) góður valkostur. Gengið verður alla sunnudagsmorgna í vetur kl. 10.30. Mæting er við Mörkina 6 kl. 10.15.
Meira
Kuldi og frost getur verið skaðlegt á ýmsan hátt, meðal annars fá margir ofnæmisútbrot af þessum sökum. Örsjaldan getur kuldi valdið ofnæmislosti. Það orsakast annars vegar af beinni losun mastfrumna en einnig getur verið um IgE-miðlað svar að ræða.
Meira
Jón Páll Eyjólfsson leikstjóri frumsýndi í gærkvöldi verkið Frelsi eftir Hrund Ólafsdóttur á smíðaverkstæði Þjóðleikhússins og Vetur tók hús á honum og fræddist um hvatirnar á bak við þessa sýningu.
Meira
Á stóra sviðinu Halldór í Hollywood eftir Ólaf Hauk Símon arson Leikritið byggist á Ameríkuárum Halldórs Kiljans Laxness 1927 - 1929 þegar Halldór var ungur ofurhugi.
Meira
Það eru engin tíðindi að við ættum að borða heilsusamlegan mat. Það gefur augaleið að við ættum öll að fylgjast vandlega með því sem við setjum ofan í okkur.
Meira
Heimili manna eru heilög vé og mörgum finnst að innbrot séu eins og hálfgerð nauðgun. Að koma heim á köldum vetrardegi eftir að innbrot hefur átt sér stað er nöturlegt og veldur fólki oft langvinnu öryggisleysi og ótta.
Meira
Gísli Freyr Valdorsson fjallar um bílastæðaklukkur: "Bílastæðaklukkur með hóflega löngu fríu bílastæði er það sem þarf til þess að koma til móts við bæði verslunareigendur og þá sem sækja þjónustu í miðbæinn."
Meira
Frá Leifi Helgasyni og Viðari Halldórssyni: "ÁSTÆÐUR þess að við viljum Jón Kr. í eitt af efstu sætum á lista Samfylkingar Hafnarfirði í prófkjörinu 5. nóvember nk. eru þær að við höfum kynnst krafti, heiðarleika og víðsýni í öllum hans störfum fyrir hafnfirska jafnaðarmenn á umliðnum árum."
Meira
Sturlaugur Þorsteinsson styður Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í Prófkjöri í Reykjavík: "Ég vil því hvetja alla til að taka þátt í prófkjörinu þann 5. nóvember n.k. og fylkja sér um Vilhjálm í fyrsta sætið."
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.