AF ÞEIM tuttugu og sjö sendiherrum sem hafa verið skipaðir frá árinu 1995 störfuðu fimmtán innan utanríkisþjónustunnar og hlutu framgang í embætti sendiherra. Þetta kemur fram í skriflegu svari Geirs H.
Meira
STURLA Böðvarsson samgönguráðherra sagði á Alþingi í gær að hann teldi svokallaða skuggagjaldaleið betri kost við lagningu Sundabrautar en svokallaða notendagjaldaleið, en síðarnefnda leiðin var farin við gerð Hvalfjarðarganganna.
Meira
Í Speglinum er jafnan skemmtilegur fróðleikur. Í nýjasta hefti er vísa eftir Hannes Hafstein í Konunglega bókasafninu: Fjörugt vín og lofnar logar lífga jafnan huga minn sjóna skeyti, brúna bogar, bála mig að sálu inn.
Meira
AÐSÓKN hefur að líkindum aldrei verið meiri að Samkomuhúsinu á Akureyri en nú, útlit er fyrir að um 3.000 gestir sæki leiksýningar og tónleika í húsinu nú næstu daga.
Meira
ÓLAFUR Jóhann Ólafsson sendi frá sér yfirlýsingu í gær í kjölfar kaupa á hlutabréfum í Árvakri. "Undanfarna áratugi hef ég verið þátttakandi í margvíslegum breytingum á alþjóðlegu fjölmiðlaumhverfi.
Meira
ÞÓRÐUR Már Jóhannesson, forstjóri Straums-Burðaráss, segir að bankinn líti á Árvakur sem áhugavert fyrirtæki og að hann komi að Árvakri sem umbreytingafjárfestir.
Meira
Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur víða um land í gær. Skólastarf í mörgum grunnskólum og leikskólum um allt land tók mið af deginum þar sem fjallað var um móðurmálið með fjölbreyttum hætti.
Meira
KASMÍRBÚAR bera hjálpargögn út úr þyrlu á vegum Sameinuðu þjóðanna í pakistanska hluta Kasmír þar sem óttast er að tugir þúsunda manna deyi úr kulda og vosbúð í vetur verði þeim ekki komið til hjálpar.
Meira
MAÐUR slasaðist nokkuð þegar bifhjól sem hann ók lenti í árekstri við vöruflutningabíl á Gagnheiði á Selfossi um hálffimmleytið í gær. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er ekki vitað um tildrög slyssins.
Meira
STEINUNN Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, sendi í gær flokkssystur sinni og verðandi starfssystur Ritt Bjerregaard heillaóskaskeyti í tilefni úrslita borgarstjórnarkosninganna sem fram fóru í Kaupmannahöfn.
Meira
Kaíró. AFP. | Bræðralag múslíma, helsti flokkur stjórnarandstæðinga Egyptalandi, kvaðst í gær hafa unnið 34 sæti í fyrstu umferð þingkosninganna í landinu. Bræðarlagið, sem berst fyrir íslömsku ríki, er bannað og teljast frambjóðendur þess því óháðir.
Meira
Bæjarstjórn | Þóra Ákadóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og forseti bæjarstjórnar Akureyrar, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs í bæjarstjórnarkosningunum í vor.
Meira
HÉR á eftir eru rakin nokkur dæmi um skrif Björns Bjarnasonar sem Gestur Jónsson hrl. nefndi sérstaklega við þinghald í málinu í gær. Orðum Davíðs má treysta Í aðsendri grein í Morgunblaðinu 8. mars 2003 fjallaði Björn um viðtal við Davíð Oddsson hinn...
Meira
EIN þeirra flugvéla sem nefndar hafa verið í tengslum við fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, lenti á Reykjavíkurflugvelli í gær. Vélin hefur margoft haft viðkomu hér á landi og lenti m.a. þrisvar á Reykjavíkurflugvelli árið 2004, skv.
Meira
Addis Ababa. AP. | Talsmaður Alþjóðabankans varaði í gær Eþíópíustjórn við því að alþjóðlegri fjárhagsaðstoð við landið yrði hætt ef ekki yrðu gerðar umbætur á stjórnarháttum í landinu. "Dregið verður úr aðstoðinni.
Meira
Hressandi blær frjórrar hugsunar blæs um gættir á Refsstað. Steinunn Ásmundsdóttir hitti Ágústu Þorkelsdóttur og ræddi við hana um búnaðarmál, jafnrétti og búsældina í Vopnafirði.
Meira
Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur@mbl.is Gautaborg. Morgunblaðið. | Sænskir fjölmiðlar hafa í vikunni fjallað um meint fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA í sænskri lofthelgi.
Meira
Tríóið Rússneskir virtuósar hélt tónleika á Flúðum á laugardaginn við mikla hrifningu viðstaddra. Tríóið er skipað þeim Dimitry A. Tsarenko sem leikur á balalæku og á jafnframt heiðurinn af útsetningum allra laga tríósins, Veru A.
Meira
FJÖLSKYLDUHJÁLP Íslands er nú að fara í gang með söfnun svo hægt verði að kaupa jólakjöt fyrir skjólstæðinga félagsins. Að sögn Ásgerðar Jónu Flosadóttur formanns Fjölskylduhjálparinnar var 16.000 einstaklingum hjálpað árið 2004.
Meira
Fiske-afmælishátíð | Minning Grímseyjarvinarins mesta og besta, dr. Daníels Willards Fiske, sem fæddur var 11.11. 1831 í New York, lifir sannarlega. Grímseyingar fögnuðu Fiske-afmælisdeginum vel sem endranær.
Meira
ÞRÍR aðilar hafa óskað eftir viðræðum við Reykjavíkurborg um kaup á lóðinni Borgartún 41, svokallaðri strætólóð, en áður hafði borgarráð samþykkt að fela borgarstjóra að ganga til viðræðna við Fasteignafélagið Klasa hf.
Meira
Peking. AFP. | Heilbrigðisyfirvöld í Kína staðfestu í fyrsta skipti í gær að fuglaflensa hefði borist í menn þar í landi. Vitað er að kínversk kona dó af völdum fuglaflensuveirunnar H5N1 og líklegt þykir að veiran hafi einnig orðið stúlku að aldurtila.
Meira
ÓLAFUR Jóhann Ólafsson, rithöfundur og aðstoðarforstjóri Time-Warner-fjölmiðlasamsteypunnar, hefur keypt 16,7% hlut í Árvakri. Hann segist vera spenntur fyrir því að nýta reynslu sína með þessum hætti og segir Morgunblaðið hafa grunn sem byggja megi á.
Meira
Túnisborg. AFP, AP. | Samkomulag hefur náðst um að Bandaríkin haldi áfram að fara með stjórn og skipulag netsins þrátt fyrir andstöðu margra ríkja.
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is FORMAÐUR Samiðnar sem átti sæti í endurskoðunarnefnd ASÍ vegna kjarasamninganna, hafnaði samkomulagi um breytingar á kjarasamningum sem fulltrúar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins undirrituðu á þriðjudag.
Meira
ALÞJÓÐLEG samtök hljómplötuframleiðenda (IFPI) hafa boðað hertar aðgerðir gegn því að fólk skiptist á tónlist á netinu með ólöglegum hætti. Alls verða um 2.200 manns lögsóttir, meðal annars í Evrópu, Asíu og í Suður-Ameríku.
Meira
Húsavík | Húsvísk fjölskylda hefur haft ungan fálka í fóstri undanfarna daga eða allt frá því börnin á heimilinu náðu að fanga hann eftir svolítinn eltingarleik.
Meira
RÁÐSTEFNA um forvarnir verður haldin laugardaginn 19. nóvember kl. 13-17 Í Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101. Að henni standa FSS (félag samkynhneigðra- og tvíkynhneigðra stúdenta) og AIESEC (alþjóðlegt félag háskólanema).
Meira
Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is ÖLL fréttaþjónusta 365 ljósvakamiðla mun sameinast í nýrri fréttastöð sem fengið hefur nafnið NFS og hefjast útsendingar stöðvarinnar kl. 7:00 í fyrramálið.
Meira
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | "Bókin er betri en myndin", var meðal niðurstaðna á bókmenntaþingi ungra lesenda sem Fræðslusvið Reykjanesbæjar hélt í gær, á degi íslenskrar tungu.
Meira
GLÆPASAGAN Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur kemur að líkindum út í um eitt hundrað löndum en bókaforlagið Veröld hefur gengið frá samningum við Hodder Headline, næststærstu bókaútgáfu Bretlands, um útgáfu á bókinni og næstu bók Yrsu í öllu breska...
Meira
Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is Íslamski flokkurinn, helsti flokkur súnníta í Írak, krafðist þess í gær að fram færi alþjóðleg og óháð rannsókn á misþyrmingum þeim, sem fullyrt er að íraskir fangar hafi sætt í fangelsi einu í höfuðborginni, Bagdad.
Meira
KOMIN er út hjá Námsmatsstofnun íslensk þýðing á bandarísku greindarprófi Wechslers fyrir fullorðna (WAIS-III). Greindarpróf Wechslers eru þrjú talsins og eru til útgáfur fyrir leikskólabörn, börn og unglinga og fyrir fullorðna.
Meira
HINN 9. nóvember síðastliðinn afhenti Hinrik Morthens framkvæmdastjóri Mjallar Friggjar, eina og hálfa milljón króna að gjöf til Barnaspítala Hringsins.
Meira
Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur@mbl.is Gautaborg. Morgunblaðið. | Sænska ríkisstjórnin boðar nú atvinnuumsóknir með nafnleynd til að koma í veg fyrir mismunun á vinnumarkaði.
Meira
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is ALLAR skemmtanir á vegum Menntaskólans á Akureyri, MA, hafa um árabil verið áfengis- og tóbakslausar. Þannig er til að mynda árshátíð skólans, sem jafnan er haldin í kringum fullveldisdaginn 1.
Meira
FORSÍÐA ehf., félag í eigu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, rithöfundar og aðstoðarforstjóra Time-Warner-fjölmiðlasamsteypunnar, hefur keypt 16,7% hlut í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins. Félagið kaupir hlutinn af Valtý ehf.
Meira
BREYTING hefur orðið á hluthafahópi Árvakurs hf. sem gefur út Morgunblaðið. Í fréttatilkynningu frá Hallgrími B. Geirssyni, framkvæmdastjóra Árvakurs, kemur fram að breytingar verði á stjórn félagsins á hluthafafundi sem boðaður hefur verið.
Meira
GUÐMUNDUR Magnússon, leikari og þriðji varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi suður, tók sæti á Alþingi í gær í fjarveru Ögmundar Jónassonar.
Meira
SUNDFÉLAGIÐ Óðinn hefur ráðið til sín nýjan yfirþjálfara, Vladislav Manikhin að nafni. Hann er rússneskur en kemur hingað frá Malasíu þar sem hann var landsliðsþjálfari og því hefur sundfélaginu bæst öflugur liðsauki.
Meira
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is EKKI er mikil hreyfing á varnarviðræðunum við Bandaríkjamenn og íslensk stjórnvöld bíða eftir því að heyra frá Bandaríkjamönnum frekar um málið.
Meira
"ÞAÐ hefði verið óhugsandi að vinna þessa bók fyrir daga tölvunnar," segir Jón Hilmar Jónsson íslenskufræðingur um nýtt ritverk sitt, Stóru orðabókina um íslenska málnotkun.
Meira
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur og Silju Björk Huldudóttur "ÞAÐ ríkir hrein og tær gleði," segir Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður Samtakanna '78, um nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar um réttindi samkynhneigðra sem kynnt var í gær.
Meira
Reykjanesbær | "Við sáum ekki einungis málefnalegan grunn heldur að með þessu samstarfi væri tækifæri til að vinna meirihluta," sagði Eyjólfur Eysteinsson, formaður Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, þegar hann sagði frá samkomulagi...
Meira
FLUGMÁLASTJÓRN hefur, að sögn samgönguráðherra, stofnað vinnuhóp til að endurskoða verklagsreglur um lendingar erlendra þotna á Reykjavíkurflugvelli. Vinnuhópurinn eigi m.a. að skoða hvort takmarka eigi slíkar lendingar við algjör undantekningartilvik.
Meira
RÍKISTARFSMENN í stéttarfélögum innan Bandalags háskólamanna fá sambærilegar hækkanir og samdist um við endurskoðun kjarasamninga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins og sama gildir um kennara í framhaldsskólum.
Meira
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is RÍKISSTJÓRNIN mun beita sér fyrir því að frumvarp um atvinnuleysistryggingar verði flutt á Alþingi nú á vetrarmánuðum.
Meira
FYRR á þessu ári gerði Póst- og fjarskiptastofnun úttekt á því hversu fljótt Síminn tengir ný símanúmer, flytur talsímanúmer milli símafyrirtækja og tengir ADSL við símanúmer viðskiptavina sinna og annarra fjarskiptafyrirtækja.
Meira
Í FRAMHALDI af neyðarkalli frá heimshreyfingu kvenskáta, WAGGGS, þar sem segir að kvenskátar í Pakistan kalli eftir liðsinni skáta í heiminum og þá sérstaklega eftir tjöldum fyrir fólk til að búa í, ákvað stjórn Bandalags íslenskra skáta að gefa...
Meira
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra er "bullandi hlutdrægur" gagnvart sakborningum í Baugsmálinu og vanhæfur í öllu því sem lýtur að málinu. Þetta sagði Gestur Jónsson hrl.
Meira
Reykjanes | Burkney ehf. í Mosfellsbæ átti lægsta tilboð í lagningu Nesvegar á Reykjanesi og nýs vegar í Höfnum. Kaflinn á Reykjanesvegi er um 8,6 km og liggur frá Stað í Grindavík. Vegagerðin áætlaði að tilboð myndu hljóða upp á 76 milljónir kr.
Meira
Unnið í Norðfjarðarhöfn | Tvö sanddæluskip hafa undanfarið verið samtímis að störfum í Norðfjarðarhöfn. Annað er Skandía, skip Gáma- og tækjaleigunnar ehf. sem fyllir með uppdældu efni á bak við stálþil undir þekju. Hitt er Perla, skip Björgunar hf.
Meira
Uppgjör á Króknum | Nemendur í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki æfa nú nýjan söngleik er nefnist Uppgjörið. Verkið, sem er frumsamið, verður sýnt í fyrsta skipti á morgun, föstudag.
Meira
Vatnsdalur | Sveitarstjórn Áshrepps í Austur-Húnavatnssýslu hefur samþykkt að óska eftir viðræðum um sameiningu við Torfalækjar-, Sveinsstaða-, Svínavatns- og Bólstaðarhlíðarhrepps.
Meira
VETRARBORGIN, glæpasaga Arnaldar Indriðasonar, var söluhæsta bókin á Íslandi dagana 31. október til 14. nóvember, samkvæmt samantekt Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið. Í öðru sæti listans er Harry Potter og Blendingsprinsinn eftir J.K.
Meira
TALSMAÐUR bandaríska varnarmálaráðuneytisins staðfesti í gær, að hvítar fosfórsprengjur hefðu verið notaðar gegn skæruliðum í Írak á síðasta ári en neitaði því, að þeim hefði verið beitt gegn óbreyttum borgurum.
Meira
BANKARÆNINGI var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í tveggja ára fangelsi vegna vopnaðs ráns sem framið var í útibúi Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis við Hátún í janúar 2004 í félagi við annan mann.
Meira
VÍNSÝNINGIN 2005 verður haldin í Vetrargarðinum í Smáralind dagana 19. og 20. nóvember. Vínþjónasamtök Íslands og ÁTVR standa fyrir sýningunni. Allir helstu vínbirgjar landsins koma þar saman og kynna vín með hátíðarmatnum ásamt fleiru.
Meira
HLUTABRÉF í Kaupþingi banka að andvirði yfir 20 milljarða króna skiptu um eigendur í gær. Gengi bréfanna hækkaði um 8,3% í viðskiptum gærdagsins, sem voru óvenju lífleg í Kauphöll Íslands.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Davíð Oddssyni, seðlabankastjóra og fyrrverandi forsætisráðherra. "Í Morgunblaðinu 16. nóvember er eftirfarandi frásögn vegna útgáfu bókar Einars Kárasonar um Jón Ólafsson.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is Grunnbætur hækka og tekjutenging tekin upp Meðal þess sem ríkisstjórnin lagði til í samningaviðræðum ASÍ og SA eru umtalsverðar breytingar á atvinnuleysisbótakerfinu.
Meira
ÖRYRKJABANDALAG Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem Öryrkjabandalag Íslands óskar aðilum vinnumarkaðarins til hamingju með samkomulag við ríkisstjórn Íslands sem staðfest var 15. þessa mánaðar og bæta mun kjör launþega og atvinnulausra.
Meira
Fyrir skömmu birti brezka tímaritið The Economist athyglisvert línurit yfir þau lönd, sem sköpuðu bezta efnahagslega umhverfi fyrir frumkvöðla og athafnamenn. Línuritið byggir á upplýsingum frá The Milken Institute, sem er stofnun staðsett í Kaliforníu.
Meira
Í íslensku þjóðfélagi blasir hvarvetna við velmegun, en það getur verið stutt í skuggann og eymdina. Undirheimar Íslands hafa verið til umræðu vegna útkomu bókarinnar Skuggabarna eftir Reyni Traustason.
Meira
Í marga áratugi hefur verið hægt að halda því fram með fullum rökum, að háskólamenntun væri forsenda þess, að ungt fólk gæti fengið vinnu við sitt hæfi.
Meira
EIN vinsælasta söngkona landsins, Ragnheiður Gröndal, heldur útgáfutónleika í Íslensku óperunni í kvöld en Ragnheiður sendi á dögunum frá sér plötuna After the Rain .
Meira
Beethoven: Sónata í F Op. 17 fyrir horn og píanó; Vorsónatan í F Op. 24 fyrir fiðlu og píanó. Brahms: Tríó fyrir píanó, fiðlu og horn í Es Op. 40. Guðný Guðmundsdóttir fiðla, Peter Máté píanó og Joseph Ognibene horn. Sunnudaginn 13. nóvember kl. 20.
Meira
DAGSKRÁ verður á Súfistanum Laugavegi 18 í kvöld klukkan 20. Höfundar Eddu útgáfu lesa úr nýjum bókum. Reynir Traustason - Skuggabörn, Guðrún Eva Mínervudóttir - Yosoy - Af líkamslistum og hugarvíli í hryllingsleikhúsinu við Álafoss, Óttar M.
Meira
BÓKAÚTGÁFAN Hólar mun í dag kl. 17.15 kynna sérstaklega sex af útgáfubókum sínum þetta árið, sem fjalla um eyfirsk málefni og/eða eru eftir eyfirska höfunda á Amtsbókasafninu.
Meira
Tónlist | Stórsveit Benna Hemm Hemm ætlar að halda tónleika í kvöld í Þjóðleikhúskjallaranum. Nýútkomin plata sveitarinnar verður til sölu á sérstöku tilboðsverði, en hún hefur fengið góða dóma víða í dagblöðum og á netmiðlum.
Meira
FÆREYSKI söngfuglinn Eivör Pálsdóttir kemur fram á tónleikum Tónlistarfélags Mosfellsbæjar á föstudagskvöldið í Hlégarði. Eivör er öllum íslenskum tónlistaraðdáendum kunn og hér á landi á hún nú þegar fjölmarga aðdáendur, sem og á hinum Norðurlöndunum.
Meira
Þau tíðindi hafa borist frá Bretaveldi að sumum þarlendum finnist orðið nóg um uppgang erlendra glæpasagnahöfunda og vilji hefta framgang þeirra með öllum tiltækum ráðum.
Meira
Breska drengjabandið Take That kom saman til að horfa á heimildarmynd um söngsveitina í vikunni. Athygli vakti að frægasti fyrrum meðlimur sveitarinnar, Robbie Williams , kaus að vera fjarri góðu gamni en hann býr í Los Angeles í Bandaríkjunum.
Meira
Leikarinn George Takei sem er þekktastur fyrir túlkun sína á Mr. Sulu í Star Trek sjónvarpsþáttunum, lýsir því yfir í nýjasta tölublaði Frontiers að hann sé kominn út úr skápnum.
Meira
HUGVÍSINDADEILD, Hugvísindastofnun og Guðfræðideild og Guðfræðistofnun standa fyrir Hugvísindaþingi í Aðalbyggingu Háskóla Íslands á morgun. Dagskráin, sem verður í gangi frá kl. 8.30-17.30, samanstendur af um 80 erindum sem flutt verða í 22 málstofum.
Meira
KVIKMYNDAKLÚBBUR Alliance Française og Filmundur standa fyrir sýningu á kvikmyndinni Allir heimsins morgnar ( Tous les matins du monde ) eftir Alain Corneau.
Meira
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is JAKOBÍNARÍNA hitar upp fyrir The White Stripes í Laugardalshöll á sunnudaginn. Að beiðni aðstandenda og meðlima The White Stripes sendi Hr.
Meira
LISTAKOKKURINN Jói Fel kitlar bragðlauka þeirra sem heima sitja svo um munar í þættinum Eldsnöggt með Jóa Fel sem sýndur er á fimmtudagskvöldum á Stöð...
Meira
SÝNINGIN Kaffiboð verður opnuð á föstudaginn í Kaffitári í Bankastræti. Milli 17 og 19 verður boðið upp á veitingar í anda Kaffitárs. Sýnd verða ljósmyndaverk eftir hópinn.
Meira
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Það má segja að ég sé búinn að vinna að þessari bók meira og minna í sautján ár," segir Jón Hilmar Jónsson íslenskufræðingur um Stóru orðabókina um íslenska málnotkun, en hún er höfundarverk hans.
Meira
BÓKAFORLAGIÐ Veröld hefur gengið frá samningum við Hodder Headline, næststærstu bókaútgáfu Bretlands, um útgáfu á spennusögunni Þriðja tákninu eftir Yrsu Sigurðardóttur og næstu bók hennar í öllu breska samveldinu, alls um sjötíu löndum.
Meira
SKJÁR einn hefur verið duglegur undanfarið við að kaupa pláss í dagblöðum landsins undir hamingjuóskir til handa Silvíu Nótt sem eins og frægt er orðið stal senunni á nýliðinni Eddu-hátíð.
Meira
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Allar viðurkenningar gleðja mann, ósköp einfaldlega vegna þess að þær eru hvatning til þess að reyna að gera betur.
Meira
SJÓNVARPSSTÖÐIN Sýn fagnar um þessar mundir 10 ára afmæli sínu. Í þættinum Sýn 10 ára verður litið yfir sögu þessarar einu íslensku sjónvarpsstöðvar sem hefur helgað sig íþróttum.
Meira
ÁRAMÓTASKAUP Sjónvarpsins er orðið jafn órjúfanlegur þáttur jólahátíðar landsmanna og kerti og spil. Jafnan hvílir mikil leynd yfir efnistökum Skaupsins en nú er komið í ljós hverjir, eða réttara sagt hverjar, skrifa og leikstýra verkinu í ár.
Meira
Með þessari samþykkt verður að líta svo á að ekki gefist lengur svigrúm til að berjast fyrir því sjónarmiði innan flokksins, að þessi grein stjórnarskrárinnar fái að halda sér.
Meira
Helgi Seljan skrifar í tilefni af 120 ára afmæli Einingarinnar og vekur fólk til umhugsunar: "Einingin hefur allt frá stofnun staðið í fylkingarbrjósti fremst og svo er enn í dag, þó að víðar sé vel unnið."
Meira
Gísli Þór Sigurþórsson fjallar um eflingu náms á framhaldsskólastigi: "Okkar herskylda er langt og metnaðarfullt almennt framhaldsnám að loknum grunnskóla."
Meira
Hreggviður Jónsson fjallar um dómsmál: "Það er ekkert réttlæti, að dómarar skuli hengja sig á aukaatriði til að þurfa ekki að fjalla efnislega um brýn álitamál..."
Meira
Anna Kristinsdóttir fjallar um skipulagsbreytingar í Reykjavík: "Ef hægt er að leysa þau mál ásamt tengingu við miðborgina er ekkert því til fyrirstöðu að hefja undirbúning að framkvæmdinni."
Meira
Frá Guðrúnu Steinþórsdóttur og Hallgrími Sveinssyni: "Minnisblað um búferlaflutninga 1. Hinn 1. júní sl. fluttum við hjónin frá Hrafnseyri í Arnarfirði að Brekku í Dýrafirði, sem er lögbýli, 24 hundruð að fornu mati. 1. ágúst tilkynntum við svo formlega lögheimilisflutning að Brekku til Ísafjarðarbæjar."
Meira
Ólafur Ólafsson, Einar Árnason og Pétur Guðmundsson gera athugasemd við grein þingmanns um efnahag eldri borgara: "Frá upptöku staðgreiðslukerfis skatta hefur skattbyrðin þyngst verulega, sérstaklega fyrir þá sem lægri tekjur hafa."
Meira
Birgir Davíð Kornelíusson fæddist í Reykjavík 18. desember 1947. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 10. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans eru hjónin Sigríður Pétursdóttir, f. 10. nóvember 1929, og Kornelíus Jónsson, f. 8. apríl 1915.
MeiraKaupa minningabók
Edda Eiríksdóttir fæddist á Akureyri 25. september 1936. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að morgni 11. nóvember síðastliðins. Foreldrar hennar voru Eiríkur Gísli Brynjólfsson, forstöðumaður Kristnesspítala, f. 3. ágúst 1905, d. 19.
MeiraKaupa minningabók
HEILDARAFLI íslenskra skipa í nýliðnum októbermánuði var tæplega 86.100 tonn og er það 50.100 tonna minni afli en í októbermánuði 2004 en þá veiddust tæp 136.200 tonn.
Meira
NÝTT skip, Franca Morte, sem hannað var af Ráðgarði Skiparáðgjöf ehf. og smíðað af José Valina-skipasmíðastöðinni á Spáni fyrir Sociade de Pesca Miradouro í Aveiro hefur nú verið afhent í Portúgal. Skipið er frystitogari með tvö þilför.
Meira
Matvælaumbúðir sem auðvelda neytendum að velja hollan mat koma e.t.v. á markað í Bandaríkjunum á næsta ári. Bandaríska fæðueftirlitið ráðfærði sig við yfir 2.
Meira
Séra Bolli Gústavsson vígslubiskup er sjötugur í dag, 17. nóvember. Ég vil í nafni þjóðkirkjunnar árna honum og ástvinum hans heilla í tilefni dagsins og þakka trúmennsku hans í þjónustu við kirkju og þjóð.
Meira
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Fólk verslar í auknum mæli á netinu, enda hefur sá viðskiptaháttur orðið öruggari með hverju árinu.
Meira
Krónan Gildir 16. nóv.-22. nóv. verð nú verð áður mælie. verð SS Grand Orange lambalæri 1.259 1.798 1.259 kr. kg Kalkúnn frosinn 598 798 598 kr. kg Goða hamborgarhryggur 899 1.498 899 kr. kg Móðir Náttúra tortillur m/fyllingu 498 669 996 kr.
Meira
Flestir horfa meira á sjónvarpið í skammdeginu en á öðrum árstímum. Sala á sjónvarpstækjum nær hámarki fyrir jólin. Orð eins og plasma, LCD og háskerpa er nokkuð sem sjónvarpskaupendur þurfa að kunna skil á.
Meira
60 ÁRA afmæli. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra verður sextugur 23. nóvember nk. Af því tilefni bjóða þau Sturla og Hallgerður kona hans og börn til móttöku laugardaginn 19. nóvember í Hótel Stykkishólmi kl. 17-19. Þau vonast til að sjá sem...
Meira
Bridsfélag Selfoss og nágrennis Fimmtudaginn 10. nóv. var haldið áfram keppni í Málarabutlernum Þessi pör skoruðu mest síðasta spilakvöld: Runólfur Þ. Jónsson - Stefán Short 64 Gunnar B.
Meira
Brúðkaup | Gefin voru saman 2. júlí sl. í Hafnarfjarðarkirkju af sr. Gunnþóri Ingasyni þau Gunnur Sveinsdóttir og Brynjar Eldon Geirsson. Heimili þeirra er á Tjarnarbraut 11,...
Meira
Demantsbrúðkaup | Í dag, 17. nóvember, eiga 60 ára brúðkaupsafmæli hjónin Guðrún Bjarnadóttir og Jóhann Sveinsson, Hjallabraut 33 í Hafnarfirði. Þau eyða þessum merkisdegi í faðmi...
Meira
Hrafnkell Tjörvi Stefánsson fæddist 29. janúar 1975 og ólst upp í Garðabæ. Hann lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og MA-prófi í stjórnmálafræði frá Universiteit van Amsterdam árið 2003.
Meira
Vösk sveit kvikmyndagerðarmanna, með Baltasar Kormák í broddi fylkingar, undirbýr þessa dagana tökur á Mýrinni, hinni ástsælu glæpasögu Arnaldar Indriðasonar. Þær ku hefjast í febrúar á næsta ári.
Meira
DREGIÐ var til 8 liða úrslitanna í bikarkeppni HSÍ í gær. Í karlaflokki verða nýir meistarar krýndir en ÍR-ingar, sem hömpuðu bikarnum á síðustu leiktíð, féllu úr leik í 16 liða úrslitunum fyrir Fylki.
Meira
ALFREÐ Gíslason og lærisveinar hans fóru illa að ráði sínu í þýsku deildinni í gær þegar þeir gerðu 26:26-jafntefli við Pfullingen, liðið í næstneðsta sæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik.
Meira
ÞAÐ var sannkallaður baráttuleikur þegar ÍBV og KA skildu jöfn, 32:32, í DHL-deildinni í handknattleik karla í Vestmannaeyjum í gærkvöldi og mikið gekk á undir lok leiksins en Magnús Stefánsson jafnaði fyrir KA með þrumuskoti þegar 30 sekúndur voru eftir.
Meira
* HRAFNHILDUR Skúladóttir stóð sig vel þegar lið hennar, SK Aarhus , lagði Tvis Holstebro í slag tveggja efstu liða 1. deildarinnar í Danmörku í gær. Hrafnhildur gerði sjö af 42 mörkum SK Aarhus sem hafði mikla yfirburði og sigraði 42:17.
Meira
HAUKAR og Stjarnan skildu jöfn, 28:28, í æsispennandi hörkuleik á Ásvöllum þar sem ekkert var gefið eftir. Líklegast sanngjörn úrslit þegar öllu er á botninn hvolft.
Meira
* INGIMUNDUR Ingimundarson , handknattleiksmaður hjá Pfadi Winterthur í Sviss , fór í speglun á hné í fyrradag vegna meiðsla sem hann varð fyrir á dögunum. Reiknað er með að hann verði frá keppni í hálfan mánuð hið minnsta vegna þessa.
Meira
KEFLAVÍK vann ÍS 74:66 í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik í Keflavík í gærkvöldi. Heimastúlkur gerðu út um leikinn strax í fyrsta leikhluta því þá gerðu þær 29 stig á móti 16 stigum Stúdína.
Meira
ÍSLANDSMEISTARALIÐ Keflavíkur í körfuknattleik karla tekur á móti BK Riga frá Lettlandi í bikarkeppni Evrópu í kvöld á heimavelli sínum í Keflavík.
Meira
RAFAEL Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði í gær að hann myndi tefla fram sínu sterkasta liði í keppninni um heimsmeistaratitil félagsliða sem fram fer í Japan dagana 11.-18. desember.
Meira
MARKÚS Máni Michaelsson, landsliðsmaður í handknattleik, var borinn af velli, meiddur á hné, þegar lið hans mætti Lemgo í þýsku 1. deildinni í gærkvöldi. Hnéskelin hrökk til en læknir liðsins náði að koma henni aftur á sinn stað.
Meira
RAGNHILDUR Sigurðardóttir, Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni í golfi kvenna, byrjaði ekki vel á fyrsta keppnisdegi á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í gær. Ragnhildur lék á sjö höggum yfir pari eða 80 höggum og lék ekki vel.
Meira
MARK Schwarzer, markvörður ástralska landsliðsins í knattspyrnu og enska úrvalsdeildarliðsins Middlesbrough, er orðin þjóðhetja í heimalandi sínu eftir að Ástralar tryggðu sér sæti í úrslitakeppni HM í knattspyrnu í gær.
Meira
ÍSLENDINGALIÐIÐ Skjern, undir stjórn Arons Kristjánssonar, tók í gærkvöld forystuna í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla með því að sigra Fredericia örugglega á heimavelli, 32:22.
Meira
ÞAÐ var sannkallaður hörkuslagur í Laugardalshöll í gærkvöldi þegar erkifjendurnir Valur og Fram tókust á í DHL-deild karla í handknattleik. Eftir mikla baráttu, svita og læti, höfðu Valsmenn betur, skoruðu 27 mörk gegn 24 gestanna.
Meira
EFTIR leiki gærkvöldsins liggur það endanlega fyrir hvaða 32 þjóðir taka þátt í úrslitakeppni HM í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar. Þær eru: Afríka: Angóla, Fílabeinsströndin, Togo, Ghana, Túnis.
Meira
UPPGJÖR SÍF hf. fyrir 1. ársfjórðung 2005/2006 var birt í gær og nam tap félagsins á tímabilinu (júní til september) rúmum 3,3 milljónum evra sem er afkomubati um 12 milljónir miðað við síðasta ár þegar afkoma var neikvæð um 15,3 milljónir evra.
Meira
AIR Berlin var stofnað árið 1978 og var þá amerískt félag, Air Berlin USA, og flaug frá Vestur-Berlín. Eftir sameiningu Austur- og Vestur-Þýskalands komst félagið í eigu þýskra aðila og var skráð í Þýskalandi.
Meira
STJÓRN Kaupþings banka hf. hefur ákveðið á grundvelli kaupréttaráætlunar bankans að gefa út kauprétti að hlutafé í bankanum til 2.300 starfsmanna samstæðunnar.
Meira
BRESK stjórnvöld reyna að hvetja stjórnvöld á Indlandi til að opna landið fyrir stórum alþjóðlegum verslanakeðjum. Telja þau að það gæti orðið liður í því að flýta fyrir auknu frjálsræði í efnahagslífinu á Indlandi.
Meira
EASYJET fagnaði tíu ára afmæli í nóvember og sannaði um leið að mjór er mikils vísir: starfsemi þess hófst með rekstri tveggja leiguvéla, einni tölvu og þremur símum.
Meira
Eftir Guðmund Sverri Þór í Álasundi sverrirth@mbl.is EIMSKIP fékk síðdegis í gær afhentan Svartfoss, nýtt og glæsilegt frystiskip, í Álasundi í Noregi.
Meira
Í GÆR skiptu um 4,6% af hlutabréfum Kaupþings banka um eigendur. Mest munar þar um kaup Exista B.V., sem keypti liðlega 28 milljón hluti, eða 4,22% af heildarhlutafé bankans, á meðalverðinu 648,5 krónur á hlut.
Meira
FINNSKA orkufyrirtækið Fortum hefur samið við borgaryfirvöld í pólsku borginni Plock, sem er skammt vestan við Varsjá, um kaup á hitaveitufyrirtæki borgarinnar, Plocka Energetyka Cieplna (PEC). Eftir kaupin mun Fortum eiga fjórar hitaveitur í Póllandi.
Meira
METHAGNAÐUR varð af rekstri Finnair, stærsta flugfélags Finnlands, á þriðja fjórðungi ársins. Hagnaður eftir skatta nam um 1,9 milljörðum króna en var aðeins um 650 milljónir á sama tímabili í fyrra.
Meira
HAGNAÐUR Kögunar hf. á fyrstu níu mánuðum ársins nam 434 milljónum króna, samanborið við 227 milljóna króna hagnað á síðasta ári. Er um að ræða aukningu upp á 91% milli ára.
Meira
EKKI er ein báran stök hjá General Motors (GM), tap félagsins á þriðja ársfjórðingi nam um 99 milljörðum íslenskra króna og tapið það sem af er árinu nemur um 185 milljörðum króna.
Meira
Eftir Kristján Torfa Einarsson kte@mbl.is METHAGNAÐUR bandarísku olíufélaganna á síðasta ársfjórðungi hefur ekki einungis vakið reiði almennings og stjórnmálamanna. Hagnaðurinn hefur ekki freistað fjárfesta og hlutabréf félaganna halda áfram að falla.
Meira
HAGNAÐUR Orkuveitu Reykjavíkur á fyrstu níu mánuðum þessa árs nam 3.560 milljónir króna. Á sama tímabili á síðasta ári var hagnaðurinn 546 milljónir. Rekstrartekjur Orkuveitu Reykjavíkur í ár námu 10.302 milljónum króna en voru 9.061 milljón árið áður.
Meira
Mikil viðskipti, alla vega á íslenzkan mælikvarða voru með hlutabréf í Kaupþingi banka í gær og hækkuðu hlutabréf bankans mjög í verði. Tilkynningar til Kauphallarinnar benda ótvírætt til þess að stórir hluthafar í bankanum séu að kaupa meira.
Meira
VIÐBRÖGÐ við kaupum Landsbankans á verðbréfafyrirtækinu Merrion Group hafa almennt verið jákvæð, jafnt á markaðnum sem í fjölmiðlum, þar sem umfjöllunin er mjög ítarleg. Í írskum blöðum í gær er m.a.
Meira
KAUPÞING banki er orðaður við kaup á ferðaveitingaþjónustueiningu breska veitingaþjónustufyrirtækisins Compass Group, sem er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum.
Meira
Verðtrygging lánsfjár hefur verið í umræðunni að undanförnu og sýnist sitt hverjum. Bjarni Ólafsson og Guðmundur Sverrir Þór ræddu við sérfræðinga á fjármála- og vinnumarkaði um áhrif verðtryggingar á virkni stýrivaxta.
Meira
Í vísindagarði háskólans í Skövde í Svíþjóð starfar lítið hugbúnaðarfyrirtæki sem stofnað var fyrir þremur árum af Íslendingi og Svía. Síðan þá hefur starfsemin vaxið jafnt og þétt og nú eru starfsmennirnir orðnir níu, þar af þrír Íslendingar.
Meira
Þorgils Óttar Mathiesen er að láta af störfum sem forstjóri Sjóvár Almennra tryggingafélagsins og snúa sér að rekstri fasteignafélagsins Klasa, sem hann keypti stóran hlut í. Bjarni Ólafsson bregður upp svipmynd af Þorgils og ræðir við forstjórann.
Meira
HEILDARTEKJUR Spalar, sem sér um rekstur Hvalfjarðarganganna, voru 580 milljónir króna á tímabilinu frá apríl til október á þessu ári, sem er 2,6% lækkun frá sama tímabili í fyrra. Veggjald í göngunum lækkaði með gjaldskrá sem tók gildi 1.
Meira
LÁGGJALDAFLUGFÉLÖG í Bandaríkjunum eiga sér umtalsvert lengri sögu en þau evrópsku og segja má að Southwest Airlines sé eins konar forfaðir lággjaldafélaganna.
Meira
Eftir Kristján Torfa Einarsson kte@mbl.is STAÐA EFTA hefur styrkst eftir að Sviss lauk tvíhliða viðræðum sínum við Evrópusambandið og norska ríkistjórnin ákvað að taka viðræður um hugsanlega aðild út af dagskrá næsta kjörtímabil.
Meira
Ástralinn Rupert Murdoch þykir harður í horn að taka. Hann hefur enda á tæpri hálfri öld gert fjölmiðlasamsteypu sína, New Corporation, að réttnefndu heimsveldi. Og hann er enn að, komin á áttræðisaldurinn. Helgi Mar Árnason rekur sögu og umsvif þessa umdeilda fjölmiðlabaróns.
Meira
HUGSANLEGA verður Albertahéraðið í Kanada eitt stærsta olíuframleiðslusvæði heims í framtíðinni, en það ræðst af ákvörðunum sem teknar verða á næstu vikum og mánuðum.
Meira
GUNNAR Þór Pétursson hefur verið ráðinn lögmaður Actavis Group frá 1. nóvember að telja. Í fréttatilkynningu segir að í lögmannsstörfum sínum hafi Gunnar Þór sérhæft sig í Evrópurétti, lyfjalöggjöf, samkeppnisrétti og stjórnsýslurétti.
Meira
Eftir Helga Mar Árnason hema@mbl.is Kennslu í rekstrarfræðum fyrir eigendur snyrtistofa er jafnan áfátt og þess vegna eru þær langflestar reknar með tapi.
Meira
SJÓVÁ-Almennar hafa samið við Anza um rekstur og hýsingu miðlægra tölvukerfa sinna. ANZA mun hýsa öll miðlæg tölvukerfi Sjóvár og annast daglegan rekstur þeirra.
Meira
Fréttaskýring | Mikill vöxtur hefur verið í umsvifum lágfargjaldaflugfélaga í Evrópu og sér ekki fyrir endann á honum og ný félög eru enn að spretta fram.
Meira
STERLING Airlines var stofnað í Danmörku árið 1994 en félög á vegum hins norska Fred Olsen eignuðust félagið árið 1996. Sterling hóf að fljúga til Suður-Evrópu árið 2000 og árið 2002 var breytt um stefnu og félagið auglýst sem lággjaldaflugfélag.
Meira
*Sameiginleg þjóðarframleiðsla EFTA-ríkjanna nam 622 milljörðum Bandaríkjadollara á síðasta ári, eða 1,5% af heimsframleiðslunni, og er EFTA 10. stærsta framleiðslusvæði í heimi.
Meira
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Íslands sló enn einu sinni met í gær þegar hún hækkaði um 3,83% í viðskiptum dagsins. Þetta er sjötta mesta hækkun úrvalsvísitölunnar á einum degi frá upphafi.
Meira
HLUTABRÉF í breska símafélaginu Vodafone lækkuðu um 10,9% í kauphöllinni í London á þriðjudag eftir að fyrirtækið gaf út viðvörun um að hægja myndi á vexti félagsins og minnkandi hagnaðarhlutfall á næstu árum.
Meira
VIÐAR Már Matthíasson, formaður yfirtökunefndar, segir að nefndin fylgist náið með breytingum á eignarhaldi í FL Group og hvort yfirtökuskylda muni skapast í félaginu.
Meira
Flestir ættu að kannast við kvikmyndina The Exorcist (1973) sem fjallar um andsetna stúlku og tilraunir presta við að losa hana við djöfulganginn.
Meira
Gabríela er ein af þeim sem hafa ótrúlega þægilega nærveru. Hún tekur á móti mér í íbúðinni sinni á Þórsgötu, sest niður og fær sér sígarettu og kók.
Meira
Á fimmtudaginn var brunuðu þrjú af helstu rokkböndum Hafnarfjarðar norður til Reykjavíkur, nánar tiltekið á öldurhúsið Grand rokk. Það voru sveitirnar Úlpa, Jakobínarína og Lada Sport sem spiluðu þar fyrir tónleikaþyrstar miðbæjarrotturnar.
Meira
Hönnunardagar verða formlega settir í höfuðborginni í dag. Þá munu gullsmiðir, grafískir hönnuðir, iðnhönnuðir, innanhúsarkitektar, leirlistahönnuðir og fatahönnuðir svipta hulunni af verkum sínum víðsvegar um bæinn.
Meira
Hér er gúmmítékki. Nú verður skrifað fyrir allan peninginn, án nokkurrar innstæðu. Engin hugmynd, engin pæling, engin meining, ekkert nýtt undir sólinni hvort eð er. Ætli það sé hægt að rita orð á blað án þess að nokkuð standi þar?
Meira
Íslenski dansflokkurinn hefur verið að slá í gegn með hverri sýningunni á fætur annarri. Á dögunum frumsýndi flokkurinn þrjú ný verk við mikinn fögnuð viðstaddra. Eitt þeirra var Critic´s Choice? eftir Peter Anderson.
Meira
Þegar hljómsveitin Jan Mayen hóf opinbera spilamennsku seinnipart ársins 2003 settu meðlimir hennar sér tvö markmið; að komast á samning hjá Smekkleysu og taka þátt í Popppunkti.
Meira
Stór hluti af helstu og áhrifamestu poppurum tónlistarsögunnar er annaðhvort listaháskólagenginn eða er á einhvern hátt sprottinn af listskapandi umhverfi.
Meira
Hvernig hefurðu það í dag, Megas minn? "Hvað get ég annað sagt en allt huggulegt þegar sá spyr sem spyr." Hvað ertu að yrkja? "Ekkert, en fái ég flugu í kollinn festi ég hana - sé hún ekki of stór.
Meira
Silvía Nótt kom sá og sigraði á Edduverðlaunahátíðinni sem haldin var um helgina. Hún hlaut sigur í flokknum sjónvarpsmaður ársins og auk þess var þátturinn hennar kosinn skemmtiþáttur ársins.
Meira
Skartgripir og aðrir fylgihlutir geta skipt miklu máli fyrir heildarútlitið. Eins og vanalega er margt í gangi í tískunni og það er bara spurning hversu langt þú ert tilbúin að ganga.
Meira
Þegar fjallað er um dægurmál og menningu er úr nógu að taka. Í þetta skiptið langaði okkur til að tileinka blaðinu myndlist og þótti okkur myndlistarkonan Gabríela Friðriksdóttir prýðilegur kandídat í það verkefni.
Meira
Viðbjóðslegir leikir eru alltaf vinsælir. Því meiri viðbjóður því meiri gleði. Resident Evil 4 er viðbjóðslegur leikur sem gaman er að líkt og fyrirrennarar hans. Í þessum leik er leikmaðurinn kominn til Evrópu í leit að dóttur forsetans.
Meira
ÞAÐ er alltaf gaman að koma fólki á óvart. Sérstaklega ef það hefur eitthvað jákvætt í för með sér. Það er oft sem ég heyri setningu eins og þessa eftir jógatíma - "rosalega kom þetta á óvart".
Meira
"Svo kem ég aftur svona löngu síðar til að líta á staðinn minn, og finn að ég er enn í eðli mínu sami gamli þorparinn." Svona heyrist í þorparanum við endurkomu hans í gamla bæinn sinn eftir langa fjarveru í borginni.
Meira
Sólveig Haraldsdóttir styður Harald Þór Ólason í 1.sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði: "Í PRÓFKJÖRI Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði laugardaginn 19. nóvember nk. gefst kjörið tækifæri til að hafa áhrif á skipan lista Sjálfstæðisflokksins í komandi sveitastjórnarkosningum."
Meira
Elísabet Valgeirsdóttir styður Valgerði Sigurðardóttur í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði: "ÁGÆTI Hafnfirðingur. Laugardaginn 19. nóvember fer fram prófkjör Sjálfstæðisflokksins. Þar býður sig fram hópur úrvals einstaklinga."
Meira
Guðlaug H. Konráðsdóttir mælir með Valgerður Sigurðardóttir í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði: "NÚ UM helgina ganga sjálfstæðismenn í Hafnarfirði, til kosninga um framboðslista sinn til bæjarstjórnakosninganna í vor. Magnús Gunnarsson oddviti flokksins gefur ekki kost á sér til áframhaldandi forystu og hefur ákveðið að draga sig í hlé."
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.