ALLS voru 65 nemendur brautskráðir frá Verkmenntaskólanum á Akureyri á laugardag, af hinum ýmsu námssviðum og brautum, þar af 39 stúdentar, 12 af félagsfræðibraut, 5 af listnámsbraut, 1 af málabraut, 9 af náttúrufræðibraut og loks 11 að loknu starfsnámi...
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is "Ég hef verið í þessu starfi í ellefu ár og ég man ekki eftir jafnslæmu ástandi," segir Gerður Guðmundsdóttir, leikskólaráðgjafi hjá Kópavogsbæ, um þá gríðarlegu manneklu sem er á leikskólum bæjarins.
Meira
Á Kaffivagninum má lesa ljóð með ítölsku kúnstneraletri og undir einkennisstafina J.S.: Kaffivagninn er hér enn eigendum til sóma Allra þjóða þyrstir menn þennan staðinn róma. Hungraðir hér hafa um nóg að velja sem held ég verði of langt upp að telja.
Meira
HARÐUR árekstur varð við gatnamót Glerárgötu og Hörgárbrautar á Akureyri í gærkvöldi. Tveir bílar skullu saman og slasaðist ökumaður annars bílsins nokkuð og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið. Ökumaður hins bílsins og farþegi hlutu minniháttar meiðsl.
Meira
STJÓRN Ungra vinstri grænna telur að félagsmálaráðherra eigi að segja af sér vegna dóms Hæstaréttar í máli Valgerðar H. Bjarnadóttur. Stjórnin bendir á að félagsmálaráðherra knúði, samkvæmt dómi Hæstaréttar, Valgerði til þess að segja af sér.
Meira
LÍKAN af Bakkafjöru var kynnt í gærmorgun fyrir Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra en það hefur verið sett upp í rannsóknarhúsi Siglingastofnunar.
Meira
Teheran. AP, AFP. | Lög með George Michael, Eric Clapton, The Eagles og Kenny G. hafa verið vinsæl í írönskum ljósvakamiðlum en verða framvegis bönnuð, að sögn ríkisdagblaðsins IRAN í gær.
Meira
ÞÝSKA knattspyrnukonan Birgit Prinz var í gær kjörin knattspyrnukona ársins í kjöri Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, og er þetta þriðja árið í röð sem framherjinn fær þessa viðurkenningu.
Meira
Djúpivogur | Það hefur verið snjólétt á undanförnum vikum á Djúpavogi, en um leið og snjórinn fellur fara börnin á stjá og eru þá sleðarnir oft teknir fram. Bjartur Elí Egilsson sleðastjóri og Guðjón Rafn Steinsson sjást hér á góðu...
Meira
Washington. AFP, AP. | George W. Bush Bandaríkjaforseti varði enn á ný í gær þá ákvörðun sína að heimila njósnir um fjölda Bandaríkjamanna og útlendinga í Bandaríkjunum án þess að fyrir lægju lögformlegar heimildir dómstóla.
Meira
UNDANFARIN ár hafa nemendur í Álftanesskóla keypt jólapakka fyrir um 250-300 kr. og skipt þeim sín á milli en í ár var þeirri hefð breytt og gáfu nemendur andvirði gjafanna til hjálparstarfs Rauða krossins í Pakistan.
Meira
Dalvíkurbyggð | Bæjarráð Dalvíkurbyggðar fjallaði á fundi sínum um erindi frá foreldrum tveggja barna í 8. bekk Dalvíkurskóla, en þar kemur fram að þau geti ekki lengur unað við að börnunum þeirra sé ekki búin sú aðstaða sem þau eiga rétt á í skólanum.
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is FULLTRÚAR Launanefndar sveitarfélaga (LN) í samstarfsnefnd höfnuðu því í gær að hefja nú þegar viðræður við Félag leikskólakennara (FL) um breytingu á launum félagsmanna, að sögn Bjargar Bjarnadóttur, formanns FL.
Meira
Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is ÁRLEG sólstöðuhátíð Ásatrúarfélagsins verður haldin í Öskjuhlíð á morgun, en hátíð á vetrarsólstöðum hefur líklega verið haldin allt frá landnámi.
Meira
STEFÁN J. Hafstein borgarfulltrúi kveðst fagna því að Dagur B. Eggertsson skuli vera genginn í Samfylkinguna. "Ég efast ekki um að hann nái góðum árangri og að hann verði í einu af efstu sætunum.
Meira
TVÖ umferðaróhöpp urðu með skömmu millibili á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gærdag, að því er virðist bæði vegna ógætilegs ökulags, að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði.
Meira
Fiskur og ferðaþjónusta | Ellefu manns voru fyrir helgi útskrifaðir úr námi sem staðið hefur yfir síðastliðið ár á vegum Verkalýðsfélags Húsavíkur og samstarfsaðila. Námsleiðin heitir Fiskur og ferðaþjónusta.
Meira
Eftir Rúnar Pálmason rúnarp@mbl.is LÖGREGLA og tollgæsla á Íslandi hefur lagt hald á minna af fíkniefnum það sem af er þessu ári en á því síðasta en þó hefur skráðum fíkniefnabrotum fjölgað um 8,5%. Lagt hefur verið hald á um 3.
Meira
Fíkniefnavandinn | Á fundi áfengis- og vímuvarnanefndar fóru fram umræður um stöðuna í fíkniefnamálum meðal barna og ungmenna á Akureyri. Nefndin þakkar KEA og Sparisjóði Norðlendinga fyrir stuðning við lögregluna með kaupum á fíkniefnaleitarhundi.
Meira
TVEIR menn eru í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík á smygli á töluverðu magni af fíkniefnum. Efnin voru falin í í bíl sem kom með ferjunni Norrænu frá Danmörku, skv. upplýsingum frá lögreglu.
Meira
Fjarðabyggð | Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2006 var samþykkt í vikunni og ber hún þess merki að uppbygging álvers á Reyðarfirði hefur aukið umsvif í sveitarfélaginu til muna. Tekjur sveitarfélagsins aukast mjög verulega á milli ára.
Meira
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Það sem af er þessu ári hefur lögregla og tollgæsla á Íslandi lagt hald á minna af fíkniefnum en á árinu 2004 en á hinn bóginn hefur skráðum fíkniefnabrotum fjölgað um 8,5%.
Meira
ELSTU börn allra leikskóla í Seljahverfi voru saman komin í Seljakirkju í gærmorgun þar sem börnin á Jöklaborg fluttu helgileik og börn á leikskólunum Hálsaborg, Hálsakoti, Seljaborg og Seljakoti sungu saman í...
Meira
Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Fráleitt er að hægt sé að lækka matvælaverð hér á landi um 30% með því að afnema tolla á innfluttum matvælum eins og ákveðnir hagfræðingar hafa bent á, segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands (BÍ).
Meira
FULLTRÚAR á nýju þingi Afganistan komu saman í fyrsta skipti í Kabúl í gær en meira en þrjátíu ár eru nú liðin síðan kjörið þing sat síðast í landinu.
Meira
Grundarfjörður | Þeir voru fjórir nemendurnir sem urðu fyrstir til að útskrifast með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði við athöfn sem fram fór í sal skólans um helgina.
Meira
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni um tvítugt sem grunaður er um kynferðisbrot gegn fimm stúlkum á aldrinum 14-15 ára. Mun hann sitja í varðhaldi til 22. desember nk.
Meira
Skagaströnd | Fyrsti hraðbankinn á Skagaströnd var opnaður á dögunum. Er hraðbankinn í anddyri Landsbankaútibúsins en með opnun hans batnar þjónustan við íbúa og ferðafólk til muna á staðnum.
Meira
Akureyri | Þrír akureyrskir matreiðslumenn sem allir starfa á þekktum veitingastöðum í Reykjavík, lífguðu heldur betur upp á jólastemmninguna á sínum heimaslóðum á laugardag. Þeir mættu með um 20 skúlptúra á Ráðhústorg, sem þeir höfðu unnið úr...
Meira
ÞETTA er í fyrsta sinn í sögu flokksins, er mér óhætt að fullyrða, sem algjört jafnræði er milli kynjanna," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur
Meira
TVÆR íshokkí-landsliðsstelpur gengu til liðs við Fjölskylduhjálp Íslands og tóku að sér að úthluta þrjú hundruð jólapökkum til skjólstæðinga Fjölskylduhjálparinnar sl. miðvikudag.
Meira
Slökkvilið Akureyrar var kallað út um kl. 6 í gærmorgun, en tilkynnt var um reyk í húsi við Hamarstíg. Húsráðandi hafði vaknað við að reykur var kominn út um allt hús.
Meira
Mývatnssveit | Um mikilvægi eggja í jólabaksturinn verður ekki deilt. Það er því mikið ábyrgðarstarf að stjórna varpi í einu hænsnabúi fyrir jólin. Hann er glæsilegur haninn sem ræður ríkjum í hænsnahúsinu á Skútustöðum.
Meira
Fréttaskýring | Víst má telja að Evo Morales verði næsti forseti Bólivíu. Ásgeir Sverrisson segir frá þessum sögulegu umskiptum, sem kunna að hafa áhrif á stjórnmálin víða í Rómönsku-Ameríku.
Meira
Helguvík | Atvinnu- og hafnaráð Reykjanesbæjar hefur ákveðið að afturkalla úthlutun á lóð til IPT sem ætluð var til byggingar stálröraverksmiðju. Lóðina mun höfnin nýta sem geymslusvæði vegna inn- og útflutnings, meðal annars vegna fyrirhugaðs álvers.
Meira
Keflavík | Ný viðbygging við hús Fjölbrautaskóla Suðurnesja var formlega afhent skólanum við skólaslit haustannar um helgina. Hjálmar Árnason, formaður byggingarnefndar, afhenti Oddnýju Harðardóttur skólameistara lykla að byggingunni.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist yfirlýsing frá Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði, en í henni hafna samtökin algjörlega fullyrðingum forsvarsmanna Mjólku.
Meira
HITAVEITA Suðurnesja (HS) undirritaði síðastliðinn fimmtudag samning við Fuji Electric í Japan um kaup á 30 MW túrbínu sem sett verður upp í Svartsengi. Nýja túrbínan verður svipaðrar gerðar og 30 MW túrbína sem gangsett var í Svartsengi í nóvember...
Meira
ÞÝSKA fornleifafræðingnum Susanne Osthoff var sleppt á sunnudagskvöld eftir að hafa verið í gíslingu mannræningja í Írak í rúmar þrjár vikur. Hún er sögð við tiltölulega góða heilsu. Osthoff, sem er 43 ára, hefur búið í Írak í 10 ár.
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is Bleikstjörnótt merfolald er nú í góðu yfirlæti inni í hesthúsi ásamt móður sinni en það fyrrnefnda kom í heiminn sl. laugardag, sem er harla óvenjulegur árstími.
Meira
MÁLEFNI Árna Magnússonar félagsmálaráðherra og Valgerðar H. Bjarnadóttur, fyrrverandi stýru Jafnréttisstofu, voru rædd á þingflokksfundi Framsóknarflokksins í gær. Ríkislögmaður sat einnig fundinn, að sögn Hjálmars Árnasonar þingflokksformanns.
Meira
"ÞETTA hefur tekist afskaplega vel og ekki verið neitt vesen í kringum þetta," segir Svanhvít Júlíusdóttir, ritari Skólafélags Menntaskólans í Reykjavík, um þá ákvörðun félagsins í upphafi skólaárs að allir viðburðir félagslífsins skyldu vera...
Meira
GOLFKLÚBBURINN Kjölur í Mosfellsbæ hefur efnt til samkeppni um nýjan golfskála í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Nýja golfskálanum hefur verið mörkuð lóð í jaðri nýrrar íbúðabyggðar við suðausturhluta Blikastaðaness í Mosfellsbæ.
Meira
Danski þingmaðurinn Kamal Qureshi segir að ríkisstjórnin verði að setja ofan í við Lögþing Færeyja fyrir að setja jafnréttislög þar sem réttindi samkynhneigðra séu hunsuð, að því er segir á fréttavef danska ríkisútvarpsins.
Meira
Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is ÍRASKUR lögfræðingur, Badee Izzat Aref, fullyrti í gær að 24 eða 25 fyrrverandi embættismenn úr Baath-flokki Saddams Husseins, sem sátu í fangelsum Bandaríkjamanna, hefðu verið látnir lausir án ákæru.
Meira
MAÐURINN sem var handtekinn fyrir umfangsmikla ræktun á kannabisplöntum í Biskupstungunum í liðinni viku var sleppt úr haldi um helgina eftir langar yfirheyrslur hjá lögreglunni á Selfossi.
Meira
SNJÓVÉLARNAR í Böggvisstaðarfjalli við Dalvík voru gangsettar sl. föstudag og keyrðar í um 30 klst., eða fram á laugardag. Að sögn Óskars Óskarssonar, formanns Skíðafélags Dalvíkur, virkaði búnaðurinn mjög vel og var framleiðslan á þessum 30 klst.
Meira
Eftir Örnu Schram arna@mbl.is DAGUR B. Eggertsson, borgarfulltrúi R-listans, lýsti því yfir á blaðamannafundi í Iðu í gær að hann gæfi kost á sér í efsta sætið á framboðslista Samfylkingarinnar í komandi prófkjöri vegna borgarstjórnarkosninganna í vor.
Meira
STEINUNN V. Óskarsdóttir borgarstjóri segir að framboð Dags B. Eggertssonar hafi legið í loftinu í nokkurn tíma og að hún fagni því að hann sé nú búinn að taka af skarið. Steinunn sækist einnig eftir fyrsta sætinu.
Meira
MÆÐRASTYRKSNEFND Kópavogs fékk styrk frá Sparisjóði Kópavogs nýlega en það var Unnur Guðríður Indriðadóttir markaðsfulltrúi sem afhenti Birnu Árnadóttur, starfsmanni hjá Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, styrkinn.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá ritstjórn Vefþjóðviljans. Athugasemdin er vegna athugasemdar frá forseta Íslands sem birt var í Morgunblaðinu í gær.
Meira
Ómissandi liður í jólastemningunni í Borgarnesi er Jólaútvarp Óðals sem hljómar hér árlega síðla í desember, á tíðninni fm 101,3. Það eru unglingar í félagsmiðstöðinni Óðali sem sjá um útvarpið.
Meira
Vatnskápa mjakast | Lokið er við að steypa yfir 25.000 fermetra af svokallaðri vatnskápu Kárahnjúkastíflu, sem svarar til ríflega 27% af verkinu í heild. Töluvert hefur verið hægt að steypa þrátt fyrir vetrarríkið á hálendinu.
Meira
Sandgerði | Meirihluti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar leggur til að tekið verði upp samstarf við Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf. um stækkun íþróttamiðstöðvarinnar í Sandgerði.
Meira
Grundarfjörður | Bæjarstjórarnir í Stykkishólmi, Grundarfirði og Snæfellsbæ og fulltrúi Landverndar hafa gert samning um verkefnið Vistvernd í verki. Samningurinn er til eins árs og kveður á um að stofnaðir verði visthópar í sveitarfélögunum.
Meira
ICELANDAIR hyggst láta setja svonefnda vænglinga (winglet) á vængenda sjö Boeing 757-þotna sinna í vetur. Fyrsta þota félagsins er komin úr breytingu og hóf áætlunarflug í gær.
Meira
Hjónin Bera Þórisdóttir og Njörður P. Njarðvík hafa unnið stórmerkilegt starf í þágu munaðarlausra barna í Afríkuríkinu Tógó. Samtök, sem þau hafa stofnað og nefnast SPES, reka barnaþorp í höfuðborg landsins.
Meira
Íslensk tunga heitir verk, sem komið er út í þremur bindum hjá forlaginu Eddu. Þar er íslensku máli lýst á 1.700 síðum og hefur því verið haldið fram að þetta sé viðamesta lýsing á tungunni, sem skrifuð hafi verið.
Meira
Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi hefur lýst yfir framboði sínu til fyrsta sætis á framboðlista Samfylkingarinnar vegna borgarstjórnarkosninganna næsta vor. Tvennt vekur athygli við yfirlýsingar borgarfulltrúans á blaðamannafundi í gær.
Meira
50. Skáldaspírukvöldið verður haldið í kvöld kl. 20.00 í Iðu. Að þessu sinna lesa upp skáldin: Kristján Þórður Hrafnsson og Sigríður Jónsdóttir. Kristján les upp úr nýrri skáldsögu, Hinir sterku.
Meira
ÉG hef aðgang að óteljandi sjónvarpsstöðvum. Fyrir vikið horfi ég sjaldan lengi í einu á sömu stöðina. Held alltaf að grasið sé grænna á næstu stöð. Val er heldur ekki val nema það sé iðkað.
Meira
Tónlist eftir Anderson, Stamitz, Tchaikovsky, Stravinsky, o.fl. Einleikari: Arngunnur Árnadóttir. Stjórnandi: Bernharður Wilkinson. Kynnir: Halldór Gylfason. Fram komu dansarar úr Listdansskóla Íslands og barnakórar frá Flúðum og Selfossi. Laugardagur 17. desember.
Meira
STÓRSÖNGVARINN Páll Rósinkranz sendi á dögunum frá sér sína fyrstu eiginlegu jólaplötu, Christmas Songs, en á henni gerir Páll að sínum mörg af ástsælustu jólalögum allra tíma, svo sem "O Holy Night", "Have Yourself a Merry Little...
Meira
HIN sívinsæla ópera Wolfgangs Amadeusar Mozarts, Don Giovanni, var sett upp í Hátíðarhöllinni í Santander á Spáni á dögunum. Hljómsveitarstjóri var Ítalinn Marco Armiliato og leikstjóri Francisco Lopez frá Spáni.
Meira
Karlakór Reykjavíkur og Drengjakór Reykjavíkur fluttu ýmis lög. Hljóðfæraleikarar: Lenka Mateova, Guðrún Birgisdóttir, Gísli Páll Karlsson, Ásgeir Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson.
Meira
Innbrotsþjófar létu greipar sópa um heimili fyrirsætunnar Claudiu Schiffer í Notting Hill í London. Þeir tóku verðmæti fyrir hundruð þúsunda á meðan fjölskyldan svaf vært á efri hæðinni.
Meira
Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur. Verk eftir Leopold Mozart. Einleikarar: Una Sveinbjarnardóttir fiðla; Eiríkur Örn Pálsson trompet; Stefán Jón Bernharðsson, Jósef Ognibene, Emil Friðfinnsson & Þorkell Jóelsson horn. Mánudaginn 18. desember kl. 17.
Meira
John A. Speight: Jólaóratorían Barn er oss fætt. Elín Ósk Óskarsdóttir S, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir MS, Garðar Thór Cortes B og Benedikt Ingólfsson B.
Meira
LEIKGERÐ á hinni nafnkunnu sögu Franz Kafka, Hamskiptunum, er um þessar mundir á fjölum leikhússins Fura dels Baus í Almeria á Suður-Spáni. Á myndinni sést aðalleikarinn í hlutverki...
Meira
GLÆNÝIR þættir með Jack Osbourne, hinum ráðvillta syni Ozzy Osbourne. Í þremur þáttum er fylgst með Jack þar sem hann reynir að ögra sjálfum sér á allan mögulegan máta og ræðir um líf sitt á opinskáan...
Meira
ARDÍS Ólöf Víkingsdóttir, Rósalind Gísladóttir og Valgerður Guðnadóttir halda tónleika í Neskirkju kl. 20 í kvöld. Á dagskránni eru jólalög. Verð 1.500...
Meira
Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar, Camerarctica, heldur sína árlegu kertaljósatónleika á síðustu dögum aðventunnar. Enn sem fyrr leikur Camerarctica ljúfa tónlist eftir W. A.
Meira
STÓRMYND leikstjórans Peters Jackson King Kong var aðsóknarmesta mynd helgarinnar í íslenskum kvikmyndahúsum. "Við erum með um 10.000 manns þessa frumsýningarhelgi.
Meira
LEIKSTJÓRINN Steven Spielberg hefur ráðið einn helsta ráðgjafa Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels, til að kynna nýjustu mynd sína Munich þar í landi en kvikmyndin sem fjallar um morð á ellefu ísraelskum íþróttamönnum á Ólympíuleikunum árið 1972...
Meira
HALLVEIG Rúnarsdóttir sópransöngkona og Steingrímur Þórhallsson orgelleikari mun halda kyrrðar- og íhugunartónleika kl. 21.00 á fimmtudaginn í Neskirkju, Hagatorgi munu þar sem flutt verður íslensk aðventutónlist og maríuljóð, ásamt verkum eftir J.
Meira
My Delusions, þriðja geislaplata Ampop. Meðlimir eru Birgir Hilmarsson, Kjartan F. Ólafsson og Jón Geir Jóhannsson. Lög og textar eru eftir Ampop. Sena gefur út og dreifir.
Meira
Leikkonan Lindsay Lohan tekur við sem andlit tískuhússins Chanel af fyrirsætunni Kate Moss . Chanel sagði upp samningnum við Kate Moss þegar hún var mynduð við kókaínneyslu í upptökustúdíói í London.
Meira
Öll lög eru eftir Deep Jimi and the Zep Creams. Júlíus Guðmundsson annaðist upptökur í stúdíó Geimsteini og Þór Sigurðsson í TC Electronics, Danmörku. Júlíus Guðmundsson hljóðblandaði og Thomas Keller Hansen masteraði. Geimsteinn gefur út.
Meira
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is LJÓS í myrkri er yfirskrift tónleika sem haldnir verða í Hallgrímskirkju á vetrarsólstöðum, annað kvöld kl. 20.
Meira
SANDSKÚLPTÚRAR eru kannski ekki það fyrsta sem við Íslendingar tengjum við jólin en um helgina var alþjóðleg hátíð með verkum af því tagi opnuð í Hainan-héraði í Kína. Meira en eitt hundrað listamenn leggja hátíðinni til um fimm hundruð verk, m.a.
Meira
Sérstök miðnætursýning á Typpatali með Audda verður á NASA annan í jólum og er forsala hafin í verslunum Skífunnar og á midi.is. Auddi ætlar síðan að skreppa með Typpatalið á Sauðárkrók, sína heimabyggð, milli jóla og nýárs.
Meira
Silvía Nótt átti einhverja eftirminnilegustu innkomu í íslenskt sjónvarp á árinu. Birta Björnsdóttir ræddi við Gauk Úlfarsson, annan skapara Silvíu Nætur, um hugmyndina að baki persónunni sem allir elska að hata.
Meira
París | Hluti Speglasalarins í Versalahöll var opnaður í gær eftir tuttugu mánaða endurbætur og streymdu gestir að til að berja dýrðina augum. Seinni hluti framkvæmdanna við salinn hefst í...
Meira
LEIKARINN Kiefer Sutherland er á leið til landsins en hann heldur tónleika með hljómsveit sinni og Rocco DeLuca á NASA fimmtudaginn 22. desember.
Meira
Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is Í GÆR voru gerð kunnug úrslit jólalagakeppni Rásar 2. Lag Magnúsar Inga Sveinbjörnssonar "Jólanótt" sigraði með miklum yfirburðum en lagið hlaut rösk 6.300 atkvæði eða rúm 55% greiddra atkvæða.
Meira
Reglubundnar útsendingar Ríkisútvarpsins hófust 20. desember 1930. Í þessari dagskrá er fjallað um fjölþætta starfsemi Útvarpsins. Meðal annars er fylgst með störfum í Útvarpshúsinu og svæðisstöðvunum á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi.
Meira
NÝJASTA kvikmynd Íslandsvinarins Elis Roth, Hostel , var forsýnd með pomp og prakt fyrir tveimur vikum í Los Angeles en eins og frægt er orðið var myndin forsýnd hér á landi um miðjan nóvember.
Meira
Það hefur frekar hljótt farið um þá staðreynd að einn fremsti endurreisnarkór heims, The Tallis Scholars kemur hingað til lands í ársbyrjun og heldur tvenna tónleika í Langholtskirkju 7. og 8. janúar.
Meira
Jóhann Elíasson fjallar um kostnað vegna viðgerða á varðskipinu Ægi: "Ekki fæ ég með nokkru móti séð að hagkvæmara hafi verið að senda skipið til viðgerða til Póllands og fæ ég ekki betur séð en að þeir aðilar sem tóku um þetta ákvarðanir hafi verið eitthvað annað að hugsa."
Meira
Margrét Jónsdóttir fjallar um landbúnaðarmál: "Það eru milljón staðir í heiminum bæði jafn fallegir og miklu fallegri og með þúsundfalt meiri og fallegri gróðri."
Meira
Erna Bjarnadóttir svarar leiðara Morgunblaðsins: "Sem fjölmiðill hlýtur blaðið að hafa þeim skyldum að gegna að gefa lesendum sínum sem breiðasta sýn á mál hverju sinni."
Meira
Sigurjón Þórðarson fjallar um þjóðfélagsmál: "Það er lenska stjórnvalda að þegar þau eru lent í vandræðum á að kalla til svokallaða "óháða" erlenda sérfræðinga."
Meira
ÞÁ LÍÐUR senn að jólum. Nú fyrir þessi jól hefur verið kynnt bókin "Hin mörgu andlit trúarbragðanna" sem ég undirritaður hef samið. Bókinni er meðal annars ætlað að eyða fordómum milli trúfélaga og menningarhópa hér á landi.
Meira
Frá Friðriki Þórðarsyni: "Jörðin mín og Jörðin þín Hví skyldu í heiminum milljónir þjást?Hví er á Jörðinni skortur af ást? Hví skyldu' ekki mennirnir meir um það fást?"
Meira
Eftir Hannes G. Sigurðsson: "Niðurstaðan er því sú að launatekjur forstjóra og stjórnenda almennt hafa á undanförnum árum þróast í takt við laun almennt samkvæmt fyrirliggjandi heimildum."
Meira
Torfi Jóhannesson fjallar um matvöruverð: "Það er vissulega dýrt að tryggja sér matvælaöryggi sérstaklega í landi eins og okkar og við verðum stöðugt að leita leiða til að ná niður þessum kostnaði."
Meira
Hjörleifur Guttormsson fjallar um gerð rafrænna sjúkraskráa: "Undirritaður telur að ósvarað sé mörgum veigamiklum atriðum er varða rafrænar sjúkraskrár."
Meira
Þorsteinn Þorsteinsson fjallar um menntamál: "Segja má að þær breytingar, sem fyrirhugaðar eru nú, séu áfangar á langri leið. Fyrr en seinna muni menn einnig stytta tímann í grunnskólanum og lengja skólaárið á báðum skólastigum."
Meira
Hermann Guðmundsson, fyrrverandi stöðvarstjóri Pósts og síma, fæddist í Botni í Súgandafirði 12. júní 1917. Hann lést mánudaginn 12. desember síðastliðinn, 88 ára að aldri.
MeiraKaupa minningabók
Jón Magnús Kolbeinsson fæddist á Þorvaldsstöðum í Hvítársíðu 14. júlí 1921. Hann lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi 5. desember síðastliðinn og var jarðsunginn frá Reykholtskirkju 17. desember.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Arnar Róbertsson fæddist í Reykjavík 20. maí 1967. Hann lést af slysförum mánudaginn 12. desember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Róbert Róbertsson, f. 27. maí 1943, og Bergþóra Sigurðardóttir, f. 2. mars 1944, d. 19. desember 2002.
MeiraKaupa minningabók
Stefán Reynir Kristinsson fæddist í Reykjavík 20. september 1945. Hann lést á Landspítalanum 10. desember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni 16. desember.
MeiraKaupa minningabók
EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur lagt fram áætlun sem felst í því að sníða af agnúa og bæta löggjöfina um sjávarútveginn á árunum 2006 til 2008. Áætlunin er hluti stærri heildar um að bæta fiskveiðistjórnunina.
Meira
Factum fyrirtækjamiðlun og ráðgjöf hefur tekið yfir rekstur Kvótanetsins af Útvegshúsinu ehf. Kvótanet er rótgróið fyrirtæki í miðlun aflaheimilda og aflahlutdeilda og hefur verið starfandi í Reykjavík undanfarin ár.
Meira
Þeir félagar Einar Knútsson og Margeir Lárusson vinna hörðum höndum í Klumbu í Ólafsvík við að raða þorskhryggjum á bretti sem fer svo í þurrkun. Er varan síðan send á markað á Nígeríu.
Meira
ANTONIO Fazio sagði af sér sem bankastjóri ítalska Seðlabankans í gær. Afsögnin á rætur sínar að rekja til hneykslismáls sem afhjúpað var í sumar og hefur leitt til handtöku virtra fjármálamanna og ásakana um fjárdrátt upp á hundruð milljóna evra.
Meira
"KAUP á Berlingske Tidende eru ekki útilokuð. En engar ákvarðanir hafa verið teknar um þau enn og ekki hefur verið haft samband við Orkla Media þess vegna.
Meira
NOVATOR Telecom Poland, félag undir forystu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur eignast meira en 10% í pólska símafélaginu Netia og stefnt er að því að eignast fjórðungshlut í félaginu.
Meira
STJÓRN sænska netspilafyrirtækisins Cherryföretagen hefur lagt til að félaginu verði skipt upp í þrjár sjálfstæðar einingar og stefnt er að því að þær verði skráðar á hlutabréfamarkað hver fyrir sig.
Meira
SAMKEPPNISYFIRVÖLD hafa samþykkt kaup Actavis Group á samheitalyfjahluta bandaríska lyfjafyrirtækisins Alpharma. Þar með er öllum skilyrðum fyrir kaupunum lokið og Actavis formlega orðið eitt af fimm stærstu samheitalyfjafyrirtækjum heims.
Meira
HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær námu rúmlega 10,1 milljarði króna , þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir um 2,3 milljarða. Mest hækkun varð á bréfum Landsbankans, 2,1%, en mest lækkun varð á bréfum Atlantic Petroleum, 1,5%.
Meira
ALMAR Örn Hilmarsson, forstjóri Sterling-flugfélagsins, segir að frétt danska blaðsins Børsen , þess efnis að félagið hafi hótað að segja upp 400 starfsmönnum, sé á misskilningi byggð.
Meira
"Við gerum mikið af því að syngja jólalög með krökkunum," segir Andrea Magnúsdóttir, dagmamma í Kópavogi. "Útgangspunkturinn hjá okkur er samt að hafa sem rólegast, vera ekkert að stressa okkur við undirbúninginn.
Meira
Jú, þeir hafa villst hérna inn síðla nætur sumir karlarnir með peninga á sér og haldið að hér væri ákveðin þjónusta í gangi," segir Jónas Lilliendahl um jólaskreyttan svefngang hans og Hákonar Erlendssonar í vinnubúðum þeirra inni í Fljótsdal, en...
Meira
Það á ekki að nota ketil, sem er vanalega bara notaður til að sjóða vatn, til að hita upp jólaglögg. Ef það er gert getur jólakvöldið endað með kopareitrun, segir á norska vefnum www.forskning.no.
Meira
Dimmasti tími ársins er um þessar mundir og rannsóknir sýna að vetrarmyrkur og skammdegi hefur áhrif á fólk. Á vef Berlingske Tidende kemur fram að lýsing skiptir miklu fyrir lundarfarið og dagsljós er best.
Meira
Eftir Sigrúnu Ásmundar sia@mbl.is "Jólahátíðin hjá mér hefst fyrsta sunnudag í aðventu," segir Sunna Ólafsdóttir, sem með réttu má titla sem jólastelpu.
Meira
75 ÁRA afmæli . Í dag, 20. desember, er 75 ára Jón Sigurðsson, vélstjóri, Lækjargötu 4, Hvammstanga . Hann mun í dag taka á móti gestum eftir kl. 20 á heimili dóttur sinnar, Suðurhúsum 7, Grafarvogi,...
Meira
Vandvirkni. Norður &spade;ÁK65 &heart;1043 ⋄ÁDG72 &klubs;6 Suður &spade;D83 &heart;Á6 ⋄65 &klubs;ÁKG874 Suður spilar þrjú grönd. Út kemur hjartafimma (fjórða hæsta), nían frá austri, sem er dúkkuð.
Meira
Sveit Eðvarðs Hallgrímssonar efst í Kópavogi Þá er aðalsveitakeppninni lokið hjá Bridsfélagi Kópavogs með öruggum sigri sveitar Eðvarðs Hallgrímssonar. Með honum spiluðu Björn Friðriksson, Júíus Snorrason, Eiður M.
Meira
Brúðkaup | Garðar Agnarsson og Sigríður Pétursdóttir voru gefin saman af séra Jónu Hrönn Bolladóttur 16. júlí síðastliðinn. Heimili brúðhjónanna er í...
Meira
Brúðkaup | Gefin voru saman 10. september sl. á Akranesi af sýslumanni þau Ingunn María Þorbergsdóttir og Arnar Hjartarson . Heimili þeirra er á Skarðsbraut 3,...
Meira
Brúðkaup | Gefin voru saman 2. júlí sl. í Ingjaldskirkju af sr. Óskari Hafsteinssyni þau Kolbrún Ívarsdóttir og Jóhann Anton Ragnarsson. Heimili þeirra er í Hraunási 13,...
Meira
Dr. Hólmfríður Garðarsdóttir fæddist á austur á fjörðum 1957. Hún lauk stúdentsprófi frá VÍ 1977. Eftir heimshornaflakk settist hún aftur á skólabekk og lauk B.A.-prófi frá HÍ 1988. Kennsluréttindanámi lauk Hólmfríður 1992, M.A.
Meira
Orð dagsins: Gleðjist samt ekki af því, að andarnir eru yður undirgefnir, gleðjist öllu heldur af hinu, að nöfn yðar eru skráð í himnunum. (Lk. 10. 20.
Meira
Víkverji hefur lítið yndi af búðarápi og fer aldrei ótilneyddur í leiðangra af því tagi. Um helgina var hann hins vegar gerður út af örkinni til að finna jólaföt á yngstu börnin sín. Sem hann gerði vitaskuld með glöðu geði.
Meira
ANNA María Sveinsdóttir körfuknattleikskona úr Keflavík hefur ákveðið að hætta að leika með Keflavíkurliðinu vegna meiðsla og hefur Anna María því leikið sinn síðasta leik fyrir félagið.
Meira
* BIRKIR Kristinsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, verður Eyjólfi Sverrissyni, nýráðnum þjálfara íslenska A-landsliðsins í knattspyrnu, innan handar með þjálfun markvarðar landsliðsins.
Meira
RETIEF Goosen átti glæsilegan endasprett á Opna Suður-Afríkumótinu í golfi um helgina, fékk fugl (-1) á tveimur síðustu holum vallarins og tryggði sér þar með sigur. Hann lék á einu höggi minna en félagi hans og landi, Ernie Els.
Meira
ÍSLENDINGAR eru í 94. sæti á nýjum styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, sem gefinn var út í gær. Íslendingar falla um eitt sæti frá síðasta mánuði og hafa lækkað um fimm sæti frá áramótum.
Meira
"HÖLLIN gefur frjálsíþróttafélögunum í Reykjavík stórkostlega möguleika til að fjölga iðkendum og gefa ungum sem öldnum tækifæri til að njóta þess að stunda frjálsíþróttir.
Meira
BRASILÍUMAÐURINN Ronaldinho hafði mikla yfirburði í kjörinu á knattspyrnumanni ársins hjá FIFA í gær, annað árið í röð, en það eru landsliðsþjálfarar og fyrirliðar sem standa að kjörinu.
Meira
BRYNJAR Gunnarsson, 16 ára spretthlaupari úr ÍR, notaði tækifærið strax á fyrsta mótinu í nýju íþróttahöllinni í Laugardal laugardaginn 10. desember og bætti eigið met í 60 m grindahlaupi. Brynjar hljóp á 8,42 sek.
Meira
ROY Keane, fyrrum fyrirliði Manchester United sem gekk í raðir Celtic í síðustu viku, segist standa við ummæli sín um fyrrum félaga sína hjá Manchester United eftir leik þeirra á móti Middlesbrough í október þar sem United steinlá, 4:1.
Meira
Rissa litla býr á mjórri syllu í stóru fuglabjargi og er staðráðin í að halda sig þar og hvergi annars staðar, jafn vel þó það kosti að hún læri aldrei að fljúga.
Meira
Íslandsatlas Eddu er viðamesta kortabók yfir Ísland sem nokkru sinni hefur komið fyrir almenningssjónir og markar þáttaskil í íslenskri kortasögu.
Meira
Mál og menning hefur gefið út Reykjavíkurþríleik Einars Más Guðmundssonar , Riddara hringstigans, Vængjaslátt í þakrennum og Eftirmála regndropanna í einni bók undir heitinu Goðheimar bernskunnar .
Meira
Sjálfssögur. Minni minningar og saga er ellefta bókin í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar og er höfundur hennar Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur.
Meira
Það finnst nú ekki öllum gaman að fá mataruppskriftina með matnum þegar þeir eru sestir til borðs og ætla að njóta ljúffengra rétta," segir Sjón þegar nokkuð er liðið á samtal okkar og spurningarnar farnar að snúast um hvernig hann hagi sér við...
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.