TÆPLEGA 370 þúsund erlendir ferðamenn komu til landsins í fyrra og er það nýtt met. Ferðamönnum fjölgaði um 9.000 frá árinu 2004, en þá voru þeir rúmlega 360.000. Á síðustu þremur árum hefur fjöldi ferðamanna aukist um 30%.
Meira
MUNURINN á umfjöllun fjölmiðla í nokkrum löndum Evrópu um íþróttir karla og kvenna er mjög mikill. Einungis 9% íþróttaumfjöllunar eru um kvennaíþróttir en karlaíþróttir fá um 78% umfjöllun.
Meira
Í Ólafsvík er tekinn til starfa nýr sálnahirðir, séra Magnús Magnússon. Helgi Kristjánsson býður hann velkominn og hvetur hann til að hornamarka strax alla sína nýju sauði að góðum bændasið Séra Magnús sauði á, sálir allra lita.
Meira
Ankara. AFP. | Áfrýjunardómstóll í Tyrklandi hefur úrskurðað að Mehmet Ali Agca, manninum sem reyndi að ráða Jóhannes Pál II. páfa af dögum árið 1981, beri að fara aftur í fangelsi. Snýr dómstóllinn með ákvörðun sinni við úrskurði dómstóls í Ankara 12.
Meira
Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is Tóbak var selt fyrir 7,5 milljarða á síðasta ári Vínbúðirnar seldu tóbak fyrir 7,5 milljarða árið 2005 sem er 9,22% aukning frá fyrra ári.
Meira
Bagdad. AP, AFP. | Bandalag trúarlegra stjórnmálaflokka sjíta, Íraska bandalagið, fékk flest þingsæti í kosningunum í Írak 15. desember en þó ekki nógu mörg til að geta myndað stjórn án stuðnings annarra flokka, samkvæmt kjörtölum sem birtar voru í gær.
Meira
FIMMTÁN manns gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor, en prófkjörið fer fram í dag. Prófkjörið er opið öllum flokksbundnum sjálfstæðismönnum í Kópavogi. Prófkjörið fer fram frá kl.
Meira
Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is VAXANDI líkur voru í gær taldar á að Anibal Cavaco Silva nái ekki tilskildum meirihluta atkvæða í forsetakosningunum, sem fram fara í Portúgal á sunnudag.
Meira
MARKAÐSVIRÐI Avion Group hækkaði um tæpa 13 milljarða króna á fyrsta viðskiptadagi með hlutabréf félagsins í Kauphöllina. Skráning félagsins mun vera stærsta nýskráning í Kauphöllina.
Meira
Reykjanesbær | Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur (VSFK) og nágrennis hafa gengið frá þjónustusamningi fyrir árið 2006.
Meira
ENSK tunga verður sífellt fyrirferðarmeiri í starfsemi svokallaðra útrásarfyrirtækja. Stjórnarfundir, hluthafafundir og samskipti með tölvupósti fara að stórum hluta fram á ensku.
Meira
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is ALÞÝÐUSAMBAND Íslands (ASÍ) fagnar því að Alþingi felldi úrskurð Kjaradóms frá 19. desember sl. úr gildi í gær, að sögn Gylfa Arnbjörnssonar, framkvæmdastjóra ASÍ.
Meira
Fréttaskýring | Það er ekkert sem bendir til að Hillary Clinton muni lenda í erfiðleikum með að verja þingsæti sitt í haust. Davíð Logi Sigurðsson segir spurninguna þá hvort Clinton eigi útnefningu demókrata vegna forsetakosninga 2008 vísa.
Meira
LÖGREGLAN í Kópavogi og Hafnarfirði stóðu fyrir sameiginlegu fíkniefnaeftirliti á svæðinu í fyrrakvöldi og í fyrrinótt. Upp komu sex fíkniefnamál auk vopnalagabrota. Framkvæmdar voru tvær húsleitir og var lagt hald á amfetamín, kókaín, hass og...
Meira
Eftir Örnu Schram arna@mbl.is FRUMVARP ríkisstjórnarinnar um Kjaradóm og kjaranefnd var samþykkt sem lög frá Alþingi síðdegis í gær. Frumvarpið var samþykkt með 26 atkvæðum stjórnarþingmanna en stjórnarandstaðan sat hjá.
Meira
Egilsstaðir | Boðið var upp á hefðbundinn þorramat á leikskólanum Skógarlöndum á Egilsstöðum í gær, föstudag. Eldri deildirnar, Rjóður og Kjarr, snæddu saman í borðsal, en minnstu krílin sem vitanlega tilheyra þá deildinni Lyngi, voru sér með sitt.
Meira
PÉTUR Sigurðsson, vagnstjóri sem lést í umferðarslysi 13. janúar sl., var borinn til grafar frá Bústaðakirkju í gær. Sr. Pálmi Matthíasson sóknarprestur jarðsöng og Strætókórinn söng við athöfnina.
Meira
Grindavík | Sett hefur verið upp skilti í Grindavík sem sýnir gönguleiðir á hluta Reykjanesskagans. Er þetta fyrsta skiltið af nokkrum sem Ferðamálasamtök Suðurnesja eru að koma upp á Suðurnesjum.
Meira
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ segir í nýjasta vefriti sínu að skattar hafi lækkað. Segir að frá því að núgildandi skattkerfi var tekið upp með staðgreiðslunni 1988 hafi verið gerðar margs konar breytingar á því, en því hafi ekki verið breytt í meginatriðum.
Meira
Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson siggip@mbl.is SAMKVÆMT samanburði Hagstofunnar á Íslandi og öðrum löndum Evrópu í upplýsingasamfélaginu, er Ísland í fararbroddi Evrópuþjóða í tölvunotkun, tölvueign og tengingu við netið.
Meira
Jerúsalem. AFP. | Stjórnvöld í Ísrael kenndu í gær Írönum og Sýrlendingum um sjálfsmorðsárás Palestínumanns í Tel Aviv í fyrradag. Að minnsta kosti nítján Ísraelar særðust í tilræðinu.
Meira
KJARTAN Valgarðsson, sem stefnir á 3. sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, opnar kosningamiðstöð á Laugavegi 170, gamla Hekluhúsinu, í dag, laugardag kl. 11. Boðið verður upp á veitingar og Hallgrímur Helgason rithöfundur leggur orð í...
Meira
Þrjú félög í Snæfellsbæ, Lionsklúbbur Nesþinga á Hellissandi, Leikfélag Ólafsvíkur og Slysavarnadeildin Helga Bárðardóttir á Hellissandi, standa sameiginlega að því að bjóða félögum sínum og eldri borgurum bæjarfélagsins til veglegrar fiskréttaveislu í...
Meira
Kvika | Arna Valsdóttir sýnir verkið - Kvika - í Galleríi Boxi, Kaupvangsstræti 10 á Akureyri. Sýningin verður opnuð í dag, laugardaginn 21. janúar kl. 16 og stendur til 11. febrúar. Gallerí Box er opið fimmtudaga og laugardaga frá kl....
Meira
ÁRLEGUR Alþjóðadagur Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins verður haldinn í Háskólabíói fimmtudaginn 26. janúar nk. frá kl. 13-17. Kynningarbásar verða opnir kl. 13-16 og kl. 16-17 verða erindi um stúdentaskipti og starfsþjálfun.
Meira
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is LÆGSTU laun starfsmanna sveitarfélaganna verða hækkuð, að því er fram kom að lokinni launamálaráðstefnu sveitarfélaga í gær.
Meira
KIRKJUGARÐAR Reykjavíkurprófastsdæmis hafa í hyggju að flytja líkbrennslu úr Fossvogi yfir í Gufuneskirkjugarð á næstu 15 árum, en sú líkbrennsla mun þjóna öllu landinu.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir vitnum að árekstri við Síðumúla 25 16. janúar um kl. 8 fyrir hádegi. Þar var bíll með númerinu DP-546 kyrrstæður þegar svörtum Mercedes Benz, trúlega leigubíl, var ekið aftan á hinn bílinn.
Meira
Eftir Guðna Einarsson og Jón Aðalstein Bergsveinsson LÆGSTU laun verða hækkuð og mun launanefnd sveitarfélaga kynna niðurstöður sínar fyrir sveitarstjórnum ekki síðar en 10. febrúar nk.
Meira
GUNNAR I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, sagðist vona að launamálaráðstefnan leiddi til lausnar á kjaramálum starfsmanna sveitarfélaganna. Hann lagði fram ákveðnar tillögur til lausnar á vandanum.
Meira
DÓMSMÁL tónlistarmannsins Bubba Morthens gegn 365 prentmiðlum og Garðari Erni Úlfarssyni, fyrrverandi ritstjóra tímaritsins Hér og nú, vegna umfjöllunar og myndbirtingar í blaðinu sl. sumar, var tekið fyrir í héraðsdómi í gær.
Meira
VGR, Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Reykjavík heldur borgarmálaráðstefnu í dag, laugardag, að Vesturgötu 7. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Málefnadeigla Vinstri grænna og hefst hún kl. 10 og lýkur kl. 17. Fundarstjóri er Gísli Hrafn Atlason. M.a.
Meira
HEIMDALLUR félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík efnir til opinnar ráðstefnu um nokkur álitamál í íslenskum grunn- og framhaldsskólum. Ráðstefnan sem er öllum opin fer fram í dag, laugardaginn 21. janúar, og hefst kl. 14. og stendur til kl. 16.
Meira
"ÞETTA var hræðilega erfitt, en það veitti okkur mikinn styrk að minnast hennar með þessum hætti," segir Helga Margrét Marzellíusardóttir, sem var ein þeirra sem stóð að minningarathöfn síðdegis í gær á Hnífsdalsvegi um Þóreyju Guðmundsdóttur,...
Meira
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur skipað nefnd sem falið er að skoða leiðir til eflingar starfsnámi. Nefndinni er ætlað að kanna hvernig stuðla megi að aukinni aðsókn í starfsnám, einfalda skipulag þess og tryggja fjölbreytt framboð náms.
Meira
SAMFLOTI bæjarstarfsmannafélaga eru mikil vonbrigði að launamálaráðstefna sveitarfélaga hafi ekki gefið skýr skilaboð um hvernig eigi að leysa þann hnút sem launamál sveitarfélaganna eru í, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Samflotinu í gær.
Meira
Hella | "Féló" á Hellu er komin í gagnið á ný eftir tvöföldun á stærð í á þriðja hundrað fermetra gólfflöt ásamt gagngerum breytingum og endurbótum.
Meira
NÝ heilsugæslustöð fyrir Voga- og Heimahverfi í Reykjavík tekur til starfa á mánudag en hún var formlega opnuð á fimmtudag. Stöðin er til húsa á nýrri hæð í Glæsibæ við Álfheima 74. Yfirlæknir stöðvarinnar er Kristján G.
Meira
GLATT var á hjalla þegar þeir Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, og hinn þekkti sjónvarpsmaður Magnús Magnússon opnuðu sýninguna "Pure Iceland" í Vísindasafninu í Lundúnum í fyrrakvöld með aðstoð raftækninnar.
Meira
Eftir Arnheiði Guðlaugsdóttur Strandir | "Tilgangur Atvinnuþróunarfélagsins er að efla atvinnulíf á Vestfjörðum og styrkja forsendur byggðar með það að markmiði að stuðla að fjölgun atvinnutækifæra," segir Viktoría Rán Ólafsdóttir sem ráðin...
Meira
Eyrarbakki | Meirihluti bæjarstjórnar Árborgar samþykkti við lokaafgreiðslu aðalskipulags sveitarfélagsins að láta fara fram frekari rannsóknir á flóðahættu á svæðinu mili núverandi byggðar á Eyrarbakka og þjóðvegarins með tilliti til til þess að skoða...
Meira
NÝTT skipafélag, Byr, mun á næstunni hefja reglubundnar siglingar milli Akureyrar og hafna í Evrópu. Skipafélagið er í eigu Norðmanna og kynnti stjórnarformaður þess, Tommy Bönsnæs áformin á fundi í vikunni.
Meira
AÐALMEÐFERÐ í fjársvikamáli, sem ríkislögreglustjóri höfðar gegn nokkrum fyrirtækjum sem tengdust rekstri Frjálsrar fjölmiðlunar ehf., á einum tíma eða öðrum, hefur verið ákveðin dagana 27. febrúar til 2. mars.
Meira
"OKKUR finnst málflutningurinn að undanförnu ósanngjarn í okkar garð. Það hefur verið talað um það hástöfum að laun þeirra hópa sem heyri undir kjaranefnd og Kjaradóm hafi hækkað umtalsvert umfram launavísitölu.
Meira
UNDIRBÚNINGUR var í algleymingi fyrir undankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva þegar ljósmyndari Morgunblaðsins leit við í sérstöku myndveri keppninnar á Granda í gær.
Meira
UM helgina verða skíðadagar í Kringlunni. Á skíðadögum kynna skíðafélögin á höfuðborgarsvæðinu sig og starfsemi sína. Að auki munu skíðasvæðin á höfuðborgarsvæðinu auk skíðasvæðanna á Siglufirði, Sauðárkróki og Akureyri kynna sig.
Meira
Starfshópur | Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að skipa þriggja manna starfshóp til að meta þörf fyrir dagvistarrými leikskólabarna á Akranesi. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili niðurstöðum sínum til bæjarráðs fyrir 1. júlí 2006.
Meira
UM 150 farþegar Icelandair urðu strandaglópar þegar Kastrupflugvelli í Kaupmannahöfn var lokað í gærkvöldi vegna vonskuveðurs. Biðu þeir í nokkurn tíma eftir tilkynningu um flug, en um kl. 20.
Meira
Vestfirðir | Stjórn Lögreglufélags Vestfjarða hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við tillögur dómsmálaráðherra um að gera Vestfirði að einu lögregluumdæmi.
Meira
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur samþykkt að styrkja kaup á kornmyllu sem fyrirhugað er að gefa til þorpsins El Kere í Eþíópíu. Erindi þessa efnis barst frá Ómari Þ. Ragnarssyni í vikunni.
Meira
Sunnuból | Skólanefnd Akureyrar hefur falið deildarstjóra að leita samninga við eigendur húsnæðis þar sem leikskólinn Sunnuból hefur verið til húsa á liðnum árum, í Móasíðu 1.
Meira
Garður | Forystumenn F-listans sem hefur meirihluta í bæjarstjórn Garðs leggjast á móti tilraunum Sjálfstæðisfélagsins Garðs til að sameina sjálfstæðismenn í Garði undir merkjum D-listans í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Meira
Eftir Örnu Schram og Silju Björk Huldudóttur TRÚNAÐI var í gær létt af gögnum um samskipti Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og fjármálaráðuneytisins og menntamálaráðuneytisins varðandi frumvarp menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið sf.
Meira
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is TÆPLEGA 59% íbúa á Akureyri segjast ánægð ef svæðið þar sem Akureyrarvöllur er nú yrði skipulagt að nýju, en 26% bæjarbúa vilja halda íþróttavellinum í óbreyttri mynd.
Meira
HAGNAÐUR Baugs Group á árinu 2005 nam 28 milljörðum króna. Þar af eru 15 milljarðar innleystur hagnaður. Heildareignir Baugs voru bókfærðar á 145 milljarða í lok desember 2005. Eigið fé var 62,9 milljarðar og arðsemi eigin fjár nam 78,7% á árinu 2005.
Meira
Ekki hefur af því frést að nokkurs staðar á landinu sé lengur í heiðri höfð sú gamla venja, sem sagt er frá í Sögu daganna, að fagna þorra á þann hátt að húsbændur færu út í dagrenningu á bóndadagsmorgni léttklæddir um sig neðanverða og fremdu sérstakan...
Meira
Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is RANNSÓKNIN á umfangsmiklum fölsunum norska læknisins Jon Sudbøs er að fara af stað en stefnt er að því, að henni verði lokið 1. apríl næstkomandi.
Meira
Vetraríþróttir | Vetraríþróttamiðstöð Íslands (VMÍ) boðar til ráðstefnu um vetraríþróttir 26. og 27. janúar 2006 á Hótel KEA á Akureyri. Fjölmargir fyrirlestrar verða í boði, m.a.
Meira
EKKI hefur náðst samkomulag um kaup ríkisins á hlutum Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun og hafa aðilar orðið sammála um að ekki séu forsendur fyrir frekari viðræðum að svo stöddu.
Meira
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um að sett verði ákvæði um opinber hlutafélag í lög um hlutafélög. Meðflutningsmenn eru sjö aðrir þingmenn Samfylkingarinnar.
Meira
ÞAÐ kom Lundúnabúum algerlega í opna skjöldu þegar hvalur, líklega stökkull af höfrungaætt, sást skyndilega á ferð um Thames-á þar sem hún rennur um miðborg Lundúna.
Meira
FRAMKVÆMDIR standa nú yfir við Laugardalsvöll, en að þeim loknum mun eldri stúka vallarins rúma um 6.500 manns. Keypt verða ný sæti í stúkuna fyrir gömlu bláu sætin, sem eru alls um 3.000 talsins.
Meira
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra kynnti á Alþingi í fyrradag áform um að styrkja heimildir Fjármálaeftirlitsins (FME) til eftirlits með fjármálamarkaðnum. Ráðherra boðaði frumvarp um þetta efni á vorþinginu.
Meira
Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, fjallar á heimasíðu sinni um Kyoto-samkomulagið og stóriðjumál á Íslandi, eins og sagt var frá hér í blaðinu í gær. Helgi skrifar m.a.
Meira
SJÓNVARPIÐ tekur í ár þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í nítjánda sinn en þá eru jafnframt liðin 20 ár frá því að "Gleðibankinn" tók þátt í keppninni.
Meira
ÚTVARPSÞÁTTURINN Party Zone heldur sitt árlega árslistakvöld á NASA við Austurvöll í kvöld, en árslistinn verður kynntur á Rás 2 á milli kl. 19.30 og miðnættis.
Meira
MARGIR hafa allt að því pervertískan áhuga á öllu sem viðkemur Evróvisjón. Hinir sömu verða áreiðanlega ánægðir með að geta spreytt sig heima í stofu á nýrri spurningakeppni...
Meira
Bandaríski sálarsöngvarinn Wilson Pickett , sem er þekktur fyrir að hafa sungið slagara eins og "Mustang Sally", lést úr hjartaáfalli í Virginíu 64 ára að aldri.
Meira
HLUSTENDUR Rásar 2 völdu Garðar Thór Cortes óperusöngvara kynþokkafyllsta karlmann Íslands í gær en slík kosning hefur um árabil farið fram á bóndadaginn í upphafi þorra. Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóss Sjónvarpsins varð í öðru sæti í...
Meira
Í KVÖLD verða haldnir tónleikar á NASA við Austurvöll til styrktar Maritafræðslunni, sem er samstarfsverkefni Samhjálpar, Lögreglunnar í Reykjavík og Reykjavíkurborgar og miðar að því að fræða unglinga um skaðsemi fíkniefna.
Meira
GESTIR þáttarins Orð skulu standa í dag eru Ragnar Arnalds rithöfundur og Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur. Þau fást við þennan fyrripart, ortan með kveðju til Steingríms Joð: Megi hressast hratt og vel hraustur Þingeyingur.
Meira
Tónlistarnemar hafa nú stofnað með sér hagsmunafélag, Félag tónlistarnema (FTN), og í kynningu félagsins á undirskriftarlista sem gekk á netinu í vikunni kemur fram að fyrsta verk félagsins verði að undirbúa kæru til umboðsmanns alþingis vegna þess sem...
Meira
BANDARÍSKA rokkabillí-bandið Kings of Hell spilar á vegum Bar 11 á Gauki á Stöng í kvöld en á morgun færa þeir sig upp holtið og leika á barnum sjálfum sem kenndur er við Laugaveg 11.
Meira
ÞÁTTURINN Það var lagið er fyrir alla fjölskylduna þar sem söngurinn er í aðalhlutverki. Kynnir þáttarins, Hermann Gunnarsson, fær til sín þjóðþekkta einstaklinga sem fá að spreyta sig í söngkeppni.
Meira
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is DAGSKRÁ verður haldin í Þjóðmenningarhúsinu í dag, þar sem fjallað verður um þá rithöfunda sem voru samferða Halldóri Laxness upp á Nóbelsverðlaunapall á sjötta áratug síðustu aldar.
Meira
KVIKMYNDIN Voksne mennesker eftir Dag Kára Pétursson er tilnefnd til sex verðlauna á dönsku Robert-verðlaunahátíðinni, sem kalla mætti hin dönsku Eddu-verðlaun.
Meira
Til móður og systur, Önnu Maríu og Nannerl. Óperan sem Mozart, nefnir, er La finta giardiniera, eða Garðyrkjustúlkan dulbúna. München, 14. janúar 1775 Guði sé lof! Óperan mín var flutt í gær, 13. þ.m.
Meira
FJÖLDI spænskunema hér á landi hefur þrefaldast á undanförnum árum en ekki er til orðabók sem stenst nútímakröfur, að sögn Margrétar Jónsdóttur, dósents við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og vararæðismanns Spánar á Íslandi.
Meira
Sigurður G. Guðjónsson skrifar um fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur og Helga Hjörvars til viðskiptaráðherra: "...hollast væri fyrir þessa ágætu þingmenn að byrja á því að kynna sér til hlítar lögin um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998, sem Jóhanna Sigurðardóttir tók þátt í að setja..."
Meira
Eftir Ragnheiði Kristínu Guðmundsdóttur: "Ég óska eftir stuðningi þínum, ágæti sjálfstæðismaður, í 4.-5. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kópavogi..."
Meira
Sverrir Hermannsson fjallar um stóriðju og orkuverð: "Hvernig má það vera, að Íslendingar skuli ekki njóta þess í lækkandi orkuverði að álfurstar heims hafa samið um stórkostleg kaup á íslenzkri orku?"
Meira
Þorsteinn Sch. Thorsteinsson fjallar um bók Þórhalls Heimissonar um trúarbrögð: "Áhugasamt fólk í trúmálum hefur nú komið sér saman um að safna undirskriftum til að mótmæla þessari umdeildu bók séra Þórhalls því bókin er alls ekki boðleg til kennslu í skólum."
Meira
Ólafur Sigurgeirsson fjallar um kjör íþróttamanns ársins: "Fittnessið er í miklum uppgangi hér, en enginn úr þeirri íþrótt var í hófi íþróttafréttamanna."
Meira
Eftir Martein Karlsson: "Ég sat uppi með nýjan bát í dauðadæmdu kerfi en aflareynslan á mínar tvær hendur kom á bátinn sem ég seldi. Verðmæti hans fór úr 6 milljónum í 40 milljónir við kvótasetninguna."
Meira
Sigríður Halldórsdóttir segir frá bókum Lizu Marklund: "Bækurnar lýsa heimilisofbeldi í hnotskurn, hvernig það byrjar, hvernig það þróast og hverjar afleiðingarnar eru fyrir konuna sem í því lendir og börnin hennar."
Meira
Steinunn B. Jóhannesdóttir fjallar um frumvarp um réttarstöðu samkynhneigðra: "Hjónabandið er hinn ævaforni rammi utan um æxlunarhlutverk mannsins."
Meira
Eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur: "Frumvarpið kveður á um að heimili sveitarfélag rekstur einkaskóla eigi sá skóli jafnframt rétt á ákveðnum lágmarksframlögum."
Meira
Nagladekk - eða ekki? ÞAÐ er í athugun hjá borginni, að setja skatt á bíla sem aka á nagladekkjum. Það eru samt allir á sama máli um það, að naglar eru bestir, svona alhliða.
Meira
Eftir Steingrím J. Sigfússon: "Sjálfsagt dreymir flestar þjóðir um að hafa hlutina þannig að launin væru eins og í Noregi en matvælaverðið eins og í Grikklandi en slíkt fer einfaldlega ekki saman."
Meira
Ásta Andersen fæddist í Reykjavík 30. mars 1939. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 15. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jens N.K. Andersen, f. 3.2. 1906, d. 1.10. 1975, og Ágústa K. Ingimundardóttir, f. 22.7. 1906, d. 17.10. 1975.
MeiraKaupa minningabók
Bjarni Halldórsson fæddist í Króki í Gaulverjabæjarhreppi í Árnessýslu 14. ágúst 1918. Hann lést á Landspítalanum í Reykjavík 11. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Lilja Ólafsdóttir, f. 1892, d. 1974 og Halldór Bjarnason, f. 1888, d.
MeiraKaupa minningabók
Gísli Aðalsteinn Hjartarson fæddist á Ísafirði 27. október 1947. Hann lést þriðjudaginn 10. janúar síðastliðinn. Foreldrar Gísla voru Hjörtur Bjarnason frá Stapadal, f. 1913, d. 1998, og Svanfríður Sigrún Gísladóttir á Ísafirði, f. 1917, d. 2003.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Þorsteinsson fæddist á Ketilsstöðum í Mýrdal 17. mars 1923. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 13. janúar síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Margrétar Grímsdóttur, f. 1895, d. 1971 og Þorsteins Gunnarssonar, f. 1893, d. 1934.
MeiraKaupa minningabók
María Kristjánsdóttir fæddist á Björgum í Ljósavatnshreppi í S-Þing. 26. október 1917. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 15. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kristján Jónsson, f. 1883, d. 1961, og Þuríður Halldóra Kristjánsdóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Sigþóra Sigurðardóttir fæddist á Lambastöðum í Hraungerðishreppi 23. ágúst 1926. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi 10. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Þórunn Ingimundardóttir húsfreyja, f. 13.4. 1890, d. 27.1.
MeiraKaupa minningabók
Stefán Benediktsson fæddist í Hvammi í Fljótum hinn 18. ágúst 1941. Hann lést á heimili sínu, Minni-brekku í Fljótum, hinn 9. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Benedikt Stefánsson bóndi í Minni-brekku, f. 27.4. 1915, d. 5.1.
MeiraKaupa minningabók
Þóranna Finnbogadóttir fæddist að Neðri-Presthúsum í Mýrdal 18. júní 1927. Hún lést á líknardeild Landakotsspítala hinn 14. janúar síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is LAXELDISFYRIRTÆKIÐ Salar Islandica er með töluvert af laxi í kvíum sínum í Berufirði og er gert ráð fyrir að þar verði slátrað 2.000 tonnum af laxi á þessu ári. Eggert B.
Meira
Björg Jónsdóttir ÞH 321 kom í morgun með fyrstu loðnu ársins til Neskaupstaðar í frystingu. Loðnan fékkst á loðnumiðunum norður af Langanesi, en góð veiði hefur verið hjá þeim skipum sem hafa verið á miðunum síðustu daga.
Meira
HAGNAÐUR Baugs Group á árinu 2005 nam 28 milljörðum króna eftir skatta. Þar af eru 15 milljarðar innleystur hagnaður. Heildareignir í lok ársins voru bókfærðar á 145 milljarða króna. Eigið fé var 62,9 milljarðar og eiginfjárhlutfall félagsins 43%.
Meira
Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is PROPERTY GROUP A/S heitir nýtt fjárfestingafyrirtæki fasteigna fyrir danska einkafjárfesta og stofnanafjárfesta. Það er í eigu Straums-Burðaráss sem á 50,1% hlut, B2B Holding ehf.
Meira
STRAUMUR-Burðarás Fjárfestingarbanki fær lánshæfiseinkunnina BBB- á langtímalánum hjá alþjóðlega matsfyrirtækinu Fitch Ratings. Ennfremur fær bankinn skammtímaeinkunnina F3, óháða einkunn C/D og stuðningseinkunn 3. Horfur lánshæfismatsins eru stöðugar.
Meira
ÚRVALSVÍSITALA aðallista Kauphallar Íslands lækkaði í gær um 0,49% og var hún í lok dags 6.086 stig. Heildarviðskipti í Kauphöllinni námu 8.967 milljónum króna og voru mest viðskipti með hlutabréf fyrir um 6.296 milljónir króna.
Meira
Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur@telia.com Frost og stilla, grenitré í vetrarbúningi og upplýstar skíðabrekkur taka á móti ferðalöngum í Högfjället í Sälen í sænsku Dölunum í byrjun janúar.
Meira
Í ferð til London gæti verið gaman að skella sér á söngleik. Á ferðavef Svenska Dagbladet er bent á fimm söngleiki sem verða á fjölunum í höfuðborg Bretlands í vor og eru taldir líklegir til að njóta vinsælda.
Meira
Fugla- og náttúruskoðun í Búlgaríu og Rúmeníu Fuglaáhugamennirnir Jóhann Óli Hilmarsson og Jón Örn Kristleifsson standa fyrir tveggja vikna fugla- og náttúruskoðunarferð með menningarlegu ívafi til Búlgaríu og óshólma Dónár í Rúmeníu í vor í samstarfi...
Meira
Járnsmiðurinn Bjarni Þór Kristjánsson var nokkuð ánægður með að hafa innt af hendi alla þá heimavinnu sem honum hafði verið uppálagt að skila af sér fyrir þennan tíma. "Þetta er mun meiri vinna en ég hélt. Ég er líka svo óvanur svona fínni vinnu.
Meira
Einkenni hans eru: Treyja tvíhneppt og innanundir einnig tvíhneppt vesti. Buxur eru svokallaðar lokubuxur hnésíðar eða síðar. Efnin í búningnum eru ullarefni; svört, dökkblá, dökkgræn eða brún, svonefnt klæði. Skyrtan er ljós úr lérefti eða hör.
Meira
PRAG er heimaborg rithöfundarins Franz Kafka og næstu tíu árin verður hægt að skoða sýningu helgaða skáldinu í gamla bænum í Prag. Samband Kafka við Prag var nokkurs konar ástar-haturssamband, eins og fram kemur í grein í Dagens Nyheter fyrir skömmu.
Meira
Kryddtegundir Rajah Mild Madras Curry Powder og Rajah Hot Madras Curry Powder í 100 g dósum hafa verið innkallaðar úr öllum verslunum samkvæmt ábendingu matvælaeftirlits Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar.
Meira
Valur Arnarson er maður handverksins og segist fyrst og fremst hafa farið á námskeiðið vegna almenns áhuga á handverki og hefur hann víða komið við í þeim efnum.
Meira
SAS-flugfélagið tekur brátt í notkun kerfi sem les fingraför farþega. Tilgangurinn er að hraða öllu ferli og einnig að ganga úr skugga um að farþeginn sem tékkar sig inn sé sá sami og flýgur með vélinni.
Meira
"Ég er búinn að ganga með þetta í maganum í tvö ár, að sauma mér svona föt, og var því heldur betur glaður þegar þetta námskeið fór af stað," sagði Ebeneser Bárðarson sem var mjög einbeittur við saumaskapinn.
Meira
40 ÁRA afmæli. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands og bóndi á Vestra-Reyni , verður fertugur mánudaginn 23. janúar. Fjölskylda Haraldar býður til kaffisamsætis sunnudaginn 22. janúar í Sunnusal Hótel Sögu kl....
Meira
Brúðkaup | Gefin voru saman 6. nóvember 2004 í Hvítasunnukirkjunni í Kirkjubæjarkirkju í Fljótshlíð af Heiðari Guðnasyni þau Auður Kristjánsdóttir og Roger...
Meira
Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Þriðjudaginn 17. jan. Var spilað á 12 borðum og úrslit urðu þessi í N/S: Sæmundur Björnss. - Knútur Björnss. 249 Magnús Halldórss. - Oliver Kristóferss. 248 Kristófer Magnúss. - Albert Þorsteinss. 241 Ólafur Ingvars.
Meira
Í 46. kafla Gylfaginningar (Snorra-Eddu) segir frá þrautum þeim fjórum er Þór þreytti í höll Útgarða-Loka. Ein þeirra fólst í því að drekka úr horni nokkru.
Meira
Háskóli Íslands | Sendiráð Japans og svið japanskra fræða við hugvísindadeild Háskóla Íslands standa að Japanshátíð í dag, frá kl.14 til 18, í hátíðarsal aðalbyggingar Háskóla Íslands.
Meira
Ólafur Hannibalsson fæddist árið 1935 á Ísafirði. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni og fór þaðan í háskólanám í Bandaríkjunum og Tékkóslóvakíu.
Meira
Orð dagsins: Þess vegna, mínir elskuðu bræður, verið staðfastir, óbifanlegir, síauðugir í verki Drottins. Þér vitið að erfiði yðar er ekki árangurslaust í Drottni. (1. Kor. 15, 58.
Meira
Samkirkjuleg bænavika 2006 ALÞJÓÐLEG, samkirkjuleg bænavika verður haldin dagana 22.-29. janúar. Bænavikan hefst með guðsþjónustu í Árbæjarkirkju 22. janúar.
Meira
Víkverji er sólginn í þorramat, einkum súrmetið. Það jafnast fátt á við væna hangikjötsflís, súran hrútspung og sviðasultu. Með þessu er svo ekki verra að hafa blauta rófustöppu eða kartöflumús.
Meira
READING náði í gærkvöldi tíu stiga forskoti á toppi ensku 1. deildarinnar í knattspyrnu þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Crystal Palace á Selhurst Park, heimavelli Palace í Lundúnum.
Meira
STEVE Coppell, fyrrverandi leikmaður Manchester United og nú knattspyrnustjóri Reading, hefur verið mjög ánægður með íslensku landsliðsmennina Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson í leikjum með liðinu í vetur og það er fátt sem getur komið í veg...
Meira
VARNARMAÐURINN Stephen Carr hefur gengist undir aðgerð á nára í annað skiptið á tveimur mánuðum og verður ekki með Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu næstu vikurnar.
Meira
ENGLANDSMEISTARAR Chelsea í knattspyrnu hafa lánað vinstri bakvörðinn Wayne Bridge til Fulham út þetta tímabil. Bridge hefur átt erfitt uppdráttar eftir að Asier del Horno kom til Chelsea síðasta sumar og ekki náð að vinna sér fast sæti í liðinu.
Meira
GUÐMUNDUR Benediktsson, framherji bikarmeistara Vals í knattspyrnu, ætlar að spila með Hlíðarendaliðinu á komandi leiktíð en óvissa hefur ríkt hvort þessi snjalli knattspyrnumaður myndi jafnvel leggja knattspyrnuskóna á hilluna.
Meira
DÓMSTÓLL Körfuknattleikssambandsins hefur dæmt Hamar/Selfoss 20:0 sigur í leik liðsins við Keflavík sem fram fór 12. janúar, en þar hafði Keflavík betur, 88:77.
Meira
* JÓHANNES Karl Guðjónsson tekur út síðari leik sinn í banni þegar Leicester tekur á móti Cardiff í ensku 1. deildinni í dag. Jóhannes hefur verið duglegur að safna gulu spjöldunum og þegar hann fyllti tuginn var hann úrskurðaður í tveggja leikja bann.
Meira
MÉR sýnist nú að þetta sé allt nokkuð sjálfgefið nema leikur KR og Keflavíkur, það er stórleikur umferðarinnar og ég held að KR slái Keflavík út," segir Jón Örn Guðmundsson, þjáflari ÍR-inga, um átta liða úrslit bikarkeppni...
Meira
Leikirnir í úrvalsdeildinni um helgina, eru: Laugardagur: Everton - Arsenal 12.45 Birmingham - Portsmouth 15 Bolton - Man City 15 Middlesbrough - Wigan 15 Newcastle - Blackburn 15 Tottenham - Aston Villa 15 WBA - Sunderland 17.
Meira
ÍSLENSKA karlalandsliðið í handknattleik mætir Frökkum öðru sinni á Ásvöllum í dag og með þeim leik lýkur íslenska liðið undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið sem hefst í Sviss á fimmtudag.
Meira
FRÖNSKU meistararnir í Lyon hafa sett stefnuna á þrennuna, það er að vinna deildina og bikarinn heima fyrir í Frakklandi og hampa Evrópumeistaratitlinum sem aðeins einu frönsku liði hefur tekist - Marseille árið 1993.
Meira
FORRÁÐAMENN Manchester United vísa því á bug að músafaraldur geisi á heimavelli félagsins, Old Trafford, en eftir leik Manchester United og utandeildarliðsins Burton Albion í bikarnum á miðvikudag greindu nokkrir leikmenn Burton frá því að þeir hefðu...
Meira
BANDARÍSKI kylfingurinn Phil Mickelson tekur þátt á sínu fyrsta móti á þessu ári en hann er skráður til leiks á Bob Hope Classic-mótinu en sérkenni mótsins er að leiknar eru 90 holur, á fimm mismunandi völlum, en venjulega eru leiknir fjórir hringir á...
Meira
LOGI Ólafsson, íþróttakennari í Menntaskólanum í Hamrahlíð og fyrrverandi landsliðsþjálfari í knattspyrnu, er dyggur stuðningsmaður Manchester United og hefur haldið tryggð við liðið í hartnær fjóra áratugi. Hann kveðst þó stilla stuðningi sínum í hóf.
Meira
ÞEIR leikm,enn sem hafa skorað mest í ensku úrvalsdeildinni, eru: Ruud Van Nistelrooy, Man.Ud 16 Thierry Henry, Arsenal 13 Frank Lampard, Chelsea 13 Darren Bent, Charlton 11 Yakubu, Middlesbrough 11 Wayne Rooney, Man.
Meira
Chelsea 22201148:1161 Man. Utd 22136341:2045 Liverpool 20135229:1144 Tottenham 22117431:1940 Arsenal 21114634:1537 Wigan 221111025:2734 Bolton 2096525:2033 Man.
Meira
NOKKRIR hörkuleikir verða í ensku deildinni um helgina og ber þar trúlega hæst viðureign Manchester United og Liverpool á morgun, liðanna sem eru í öðru og þriðja sæti í deildinni.
Meira
SVEN-Göran Eriksson, landsliðseinvaldur Englandi í knattspyrnu, hefur ákveðið að höfða mál gegn breska dagblaðinu News of the World fyrir trúnaðarbrot. Blaðamaður News of the World í dulargervi arabísks milljarðarmærings náði að blekkja Eriksson.
Meira
LOGI Ólafsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, hefði viljað sjá Eið Smára Guðjohnsen í búningi Manchester United og upplýsti við Morgunblaðið að hann hefði fyrir nokkrum árum fengið fyrirspurn um hann frá umboðsmanni sem er mikið tengdur enska félaginu.
Meira
ARSENAL gekk frá kaupum á hinum sextán ára Theo Walcott frá Southampton í gær - greiddi Southampton 5 milljónir pund, um 540 milljónir króna, við undirskrift, en Southampton fær meira eftir því sem hann spilar meira fyrir Arsenal og gæti fengið allt að...
Meira
UNGVERJAR, sem leika í riðli með Íslendingum á Evrópumótinu í Sviss, töpuðu í gærkvöldi fyrir Þjóðverjum, 33:32, í vináttuleik sem háður var í Offenburg í Þýskalandi.
Meira
Sigríður Alma, 7 ára, teiknaði þessa ótrúlega fínu mynd af Ólafi Ragnari Grímssyni forseta þar sem hann er að flytja áramótaávarp. Hér er greinilega upprennandi listamaður á ferð.
Meira
Bjarki Rúnar, 6 ára, teiknaði þessa mynd af því óskemmtilega óhappi sem átti sér stað í Hveragerði á gamlársdag, en þá kviknaði í húsi Hjálparsveitarinnar á staðnum og flugeldunum sem voru inni í...
Meira
Í Fellaskóla eru 97 nemendur, þannig að hann er ekki fjölmennur skóli. Fellaskóli er í Fellabæ á Fljótsdalshéraði, gegnt Egilsstöðum. Bekkirnir eru frekar fámennir og sums staðar eru 2 bekkir saman í stofu og með sama umsjónarkennara.
Meira
Áður en þú byrjar að leysa þessa þraut er gott að hafa sex mismunandi liti við hönd. Á myndinni má finna sex ólík munstur sem mynda sex ólíka hluti. Getur þú fundið út hvað það er sem leynist á þessari mynd. Lausn...
Meira
Einu sinni þegar ég var lengst útí dalnum, þá gerðust mjög skrítnir hlutir. Sólin var hátt á himni og gott veður. Mér leið mjög undarlega. Allt í einu sá ég hrafn á flugi, þetta var enginn venjulegur hrafn, þetta var hvítur hrafn og hann var mjög stór.
Meira
Maður nokkur snaraðist inn á lögfræðiskrifstofu og spurði hvað það kostaði að tala við lögfræðing. "Það kostar fimmtán þúsund fyrir þrjár spurningar," var svarið. "Er það ekki fjári dýrt?" spurði maðurinn þá.
Meira
Ég heiti Gabríel og þessi saga fjallar um mig. Núna er ég sex ára, en ég var fimm ára þegar þessi saga átti sér stað. Þetta byrjaði allt þannig að hann elsku pabbi minn dó í hræðilegu bílslysi.
Meira
Tröllamamma er orðin svo þreytt á prakkarastrikunum í litlu tröllabörnunum. Nú hafa þau hlaupið út úr hellinum og falið sig fyrir mömmu sinni. Getur þú hjálpað tröllamömmu að finna börnin sín 10 á síðum...
Meira
Tröllasögur eru einn flokkur þjóðsagna sem hafa lifað í munnmælum á Íslandi í mörg hundruð ár. Sögurnar vilja gjarnan breytast mann fram af manni eins og eðlilegt er að gerist þegar saga er sögð. Tröll eru líka þekkt sem skessur, risar, jötnar og...
Meira
Afklippta myndin er eins og myndir 1, 4, 6 og 7. Á felumyndinni má finna: Byssu, töluna 4, öngul, bolla, boga og gítar. Folaldið þarf að velja leið b.
Meira
Halló! Ég heiti Hitomi Yagi og er 13 ára japönsk skólastelpa sem hef mikinn áhuga á Íslandi. Mig langar til að eignast pennavini, bæði stelpu og stráka á mínum aldri. Áhugamál mín eru frímerkjasöfnun, að skrifa og karate.
Meira
Í þessari viku þurfið þið að finna út hvað krakkarnir á myndinni heita. Á peysu hvers og eins þeirra eru stafirnir sem mynda nöfn þeirra. Lausnina skrifið þið svo á blað og sendið okkur fyrir 28. janúar.
Meira
!Laugardaginn 14. janúar sl. birti sá mæti bókmenntafræðingur og bókasafnsstarfsmaður, Úlfhildur Dagsdóttir, grein í Lesbók undir yfirskriftinni "Menningarvitinn logar ekki" og átti að vera yfirlit yfir bókaútgáfuna hérlendis á síðasta ári.
Meira
Í rúm 40 ár hefur þótt erfitt að henda reiður á hvað raunverulega gerðist þegar John F. Kennedy Bandaríkjaforseti var myrtur í Dallas í Textas 1963.
Meira
Sá orðrómur er kominn á kreik í Hollywood að fyrrum X-Files stjarnan David Duchovny sé við það að skrifa undir samning þess efnis að hann muni taka að sér að leika Bruce Banner, manninn sem breytist í grænan risa í hvert skipti sem hann reiðist.
Meira
Fólk fær að heyra tónlistina á þessu ári," var haft eftir Axl Rose í veislu sem hljómsveitin Korn hélt í Los Angeles á dögunum til að kynna hljómleikaferðalag sveitarinnar.
Meira
Umræða um stöðu fræðirita heldur áfram enda fjölmörgum spurningum enn ósvarað: "Og hvernig væri að fella niður umboðssölu bóka og búa til venjulega vöru úr skruddunum? Og hvernig væri að taka að líta á fræðibækur sem mikilvægan þátt menningar?
Meira
Lokaþáttur Rock Star - INXS verður sýndur á Skjá einum annað kvöld. Þrír karlkeppendur eru eftir og nú er það heimsins að velja næsta söngvara INXS.
Meira
Í Tarot er dauðaspilið ekki slæmt. Það merkir breytingar. Og breytingar eru alltaf góðar. Ef þú lítur á þær þannig. Hjá DV hefur þetta verið vika breytinga. Þær höfðu svosem legið í loftinu lengi.
Meira
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Útrás er nýyrði í íslensku enda lýsir það nýjum veruleika. Íslensk fyrirtæki stunda nú viðskipti sín á erlendum mörkuðum meira en nokkru sinni fyrr, þau fjárfesta í erlendum fyrirtækjum eða stofna sín eigin á erlendri grund.
Meira
Suður-afríski rithöfundurinn J. M. Coetzee hefur sent frá sér sína fyrstu skáldsögu eftir að hann hreppti Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2003. Hún ber heitið Slow Man og þar heldur hann áfram ævilangri rannsókn sinni á eðliseiginleikum skáldskaparins og tengslum hans við veruleikann.
Meira
The Lost Painting eftir bandaríska rithöfundinn Jonathan Harr fjallar um fund málverksins Kristur tekinn höndum eftir ítalska málarann Caravaggio, árið 1990. Verkið hafði þá verið týnt í meira en tvær aldir.
Meira
fór í geðveikt óldskúl lönsj í dag með bigga og danna í maus og lenu viderö. eiginlega alveg óvart. við danni erum að vinna næstum hlið við hlið og fórum og þá voru biggi og lena á veitingahúsinu. gebba ríjúníon. allavega öll saman...
Meira
I Níutíu og fimm prósent af kvikmyndum sem sýndar eru í íslenskum bíóhúsum eru frá Hollywood. Áttatíu prósent alls efnis á netinu er á ensku. Rúmlega fjörutíu prósent alls efnis í íslensku sjónvarpi er á ensku.
Meira
Tungan er aldrei gefið mál. Þvert á móti er hún í stöðugri endurnýjun eins og allt sem lifir. En sú þróun er ekki sjálfkrafa eða til einnar áttar heldur geta skipst á afturkippir og gróska.
Meira
21. janúar 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 3580 orð
| 2 myndir
Hver er staða málsins? Sumir segja að við getum ekki lengur lesið fornsögurnar án útskýringa. Háskólarnir kenna æ meir á ensku. Í útrásarfyrirtækjunum svokölluðu er enskan jafnrétthá eða rétthærri en íslenskan.
Meira
Steinn Steinarr hélt því fram í ritdómi í lok fimmta áratugarins að bækur væru fyrst og fremst skrifaðar fyrir skáld og rithöfunda: "að þær væru nokkurs konar sendibréf frá einu skáldi til annars, trúnaðarmál, sem er í eðli sínu öðrum óskiljanlegt...
Meira
Eftir Sigríði Halldórsdóttur: "Bækurnar lýsa heimilisofbeldi í hnotskurn, hvernig það byrjar, hvernig það þróast og hverjar afleiðingarnar eru fyrir konuna sem í því lendir og börnin hennar."
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.