SAMANALAGT birtust um 170 þúsund innlendar fréttir og greinar í helstu fréttamiðlum landsins, bæði prent- og ljósvakamiðlum, á síðasta ári eða 14-15 þúsund á mánuði, auk þess sem birtist í tímaritum og sérhæfðum útgáfum, að því er fram kemur í samantekt...
Meira
HÆTTA!-hópurinn hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem mótmælt er yfirlýsingum iðnaðarráðherra um stækkun álversins í Straumsvík og byggingu álvera á Suðurnesjum og á Norðurlandi án nokkurs samráðs við fólkið í landinu.
Meira
HUGGARÐSFÉLÖGIN þrjú sem nýverið felldu samningana við Reykjavíkurborg koma aftur að samningaborðinu eftir hádegið í dag. Félögin eru Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Stéttarfélag lögfræðinga og Útgarður.
Meira
Það spretta blöð með vísum og þjóðlegum fróðleik í hverjum kima og krók á heimilinu; þau vaxa á hillum, borðum, stólum og gólfum. Oft hefur þeim verið komið fyrir eins og pottaplöntum í möppum eða kössum - og stöðugt er hlúð að þeim.
Meira
ÞAÐ ER ekki algeng sjón að sjá fólk á hjóli í Reykjavík í lok janúar. Veðrið undanfarna daga hefur þó orðið til þess að þeim fjölgar sem velja hjólhestinn sem farartæki í umferðinni. Enda er það hagkvæmt á margan hátt; bæði fyrir budduna og...
Meira
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is ÁST til maka og öryggi er aðalástæða þess að pör af sama kyni velja að ganga í staðfesta samvist, fremur en þau réttindi sem fylgja staðfestingunni.
Meira
ÁTTA ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í fyrrinótt. Að sögn lögreglunnar eru þetta óvenjumargir sem teknir eru á einni nóttu í borginni. Rólegt var hins vegar á vaktinni hjá lögreglunni í Kópavogi og Hafnarfirði í...
Meira
Gaza, Washington. AP, AFP. | Vaxandi spenna er á milli stuðningsmanna Fatah- og Hamas-hreyfingarinnar eftir sigur þeirrar síðarnefndu í kosningunum í Palestínu.
Meira
BÍLL eyðilagðist í eldsvoða í Ártúnsbrekku á föstudagskvöld en ökumann og einn farþega sem var með honum í bílnum sakaði ekki. Eldurinn kom upp í vélarhúsi bílsins og var slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað út.
Meira
Mjófirðingum er verulega brugðið vegna óvæntra frétta um að hætta eigi laxeldi á vegum Sæsilfurs í firðinum. Steinunn Ásmundsdóttir tók hús á fjölskyldunni á Brekku og fór yfir stöðu mála.
Meira
VONIR standa til að hægt verði að taka fyrstu skóflustungu að menningar- og fræðasetri á Hólum í ágúst á þessu ári og er það hugsað sem þjóðargjöf í tilefni af 900 ára afmæli staðarins. Er það einn af fjölmörgum viðburðum á afmælisárinu.
Meira
ÞRÁTT fyrir erfiðan vetur og sífellda erfiðleika við að komast til Muzaffarabad í Pakistan, eru um þessar mundir 129 börn ein síns liðs í umsjá SOS-barnaþorpanna, þar sem 35 börn voru færð í barnaþorpið í Lahore.
Meira
Mikið verður um dýrðir á 900 ára afmæli Hóla, sem haldið verður á þessu ári, og nær afmælisdagskráin yfir allt árið með ráðstefnum, sýningum, tónleikum og fjölskrúðugu helgihaldi.
Meira
*ÁGÚSTA Pálsdóttir , lektor við bókasafns- og upplýsingafræðiskor Háskóla Íslands, varði doktorsritgerð sína í bókasafns- og upplýsingafræði við Åbo Akademi University í Åbo í Finnlandi 9. desember sl.
Meira
Einar Garðarsson er í 2. bekk. Þegar hann lauk 1. bekk komst hann á svokallaðan heiðurslista fyrir framfarir, dugnað og iðjusemi í heimilisfræði. "Það er rosalega gaman í heimilisfræði. Við bökuðum til dæmis kökur og buðum stundum gestum til okkar.
Meira
ÁRNI Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, segir að það sé einfaldlega ekki frétt að þorri Íslendinga telji að hægt sé að ná sátt um stóriðju- eða virkjanamál og vísar þar til könnunar sem IMG Gallup vann fyrir Samtök atvinnulífsins.
Meira
STJÓRN Landverndar fagnar þeirri viðtæku samstöðu sem er að myndast um hugmyndir um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum og þeirri ákvörðun Landsvirkjunar að leggja til hliðar áform um framkvæmdir á svæðinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórninni.
Meira
Hvar eru tónlistarnám og frístundir fléttaðar inn í heildstæðan skóladag yngstu grunnskólabarnanna? Og hvar ætli þriðjungur uppalenda hafi sótt sérstök námskeið í uppeldistækni?
Meira
NÝSIR og Fjölsmiðjan hafa gert með sér samkomulag um stofnun sjávarútvegsdeildar við Fjölsmiðjuna í Kópavogi. Stefnt er að útgerð 150 tonna báts þegar á þessu ári. Áhöfnin verður skipuð unglingum sem ekki hefur tekist að fóta sig á almennum...
Meira
FULLTRÚAR Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga fóru nýlega á fund rektors Háskóla Íslands til að lýsa áhyggjum sínum af kjörum félagsmanna sinna á stofnuninni, en þeir hafa dregist langt aftur úr fólki í sambærilegum störfum hjá ríkinu.
Meira
Hverfulleiki tímans er sínálægur í starfi Hólaskóla, háskólans á Hólum. Á meðan verið er að grafa upp menjar um gamalt skólastarf handan vegarins fer starfsemin fram í gömlum húsum, sem þannig hefur verið gefið nýtt hlutverk.
Meira
Kúveit. AP, AFP. | Bandarískum hermönnum í Írak hefur fækkað um allt að 20% á síðustu tveimur mánuðum og búist er við, að haldið verði áfram að fækka þeim smám saman.
Meira
ÞAÐ ER oftast mikið fjör á skólalóðum grunnskólanna. Um leið og bjallan hringir út í frímínútur þyrpast börnin á stéttar og tún við skólana og fara í skemmtilega leiki. Sumir velja fótbolta, aðrir snú snú.
Meira
UMFERÐARÞUNGINN í höfuðborginni Reykjavík er mestur á þeim tíma sem fólk er að fara í og úr vinnu. Með færslu Hringbrautar vonuðust margir til þess að létta myndi á umferðinni til og frá Vesturbæ borgarinnar.
Meira
EITT af lykilatriðunum í heilbrigðisáætlunum bresku stjórnarinnar er, að öllum breskum þegnum verði boðin víðtæk og ókeypis læknisskoðun fimm sinnum um ævina.
Meira
HREINDÝR eiga það til að festa horn sín í girðingum og þá getur stundum farið illa. Líklega mun þó þessi fallegi tarfur, sem var á ferð með þjóðveginum í sunnanverðum Hamarsfirði, losna við víraflækjuna um leið og hann fellir hornin.
Meira
Íslendingur, segirðu? Þið voruð fyrst til að viðurkenna sjálfstæði okkar," segir leigubílstjóri í Vilníus og lítur kampakátur á mig í baksýnisspeglinum. Hann skiptir eldsnöggt um akrein og segir að ég verði að skella mér í Íslandsgötu.
Meira
Óvíða á Íslandi verður saga þjóðarinnar jafnljóslifandi og á Hólum í Hjaltadal. Og sagan gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu og endurreisn staðarins eins og í ljós kemur á afmælisárinu.Meira
Eftir Kristin Benediktsson um borð í Árna Friðrikssyni RE 200 RANNSÓKNASKIPIÐ Árni Friðriksson RE 200 hefur orðið vart við peðrur, litlar torfur, af loðnu austan við Hvalbakssvæðið og er mikið af þorski og öðru lífi undir torfunum.
Meira
SAMNINGUR milli ÞSSÍ, Háskóla Íslands og læknadeildar Háskóla Íslands hefur verið undirritaður um að tveir læknanemar á þriðja ári fari til Malaví næsta vor að vinna rannsóknarverkefni í tengslum við nám sitt.
Meira
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur austurland@mbl.is "Ég hef alltaf haft þá trú á Samherja að þetta væri fyrirtæki sem gæfist ekki upp fyrr en öll sund væru lokuð," segir Sigfús Vilhjálmsson oddviti, bóndi og útgerðarmaður á Brekku í Mjóafirði.
Meira
Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur sigridurv@mbl.is "Þótt það sé ekki algildur mælikvarði á menntun höfðu meðaleinkunnir á samræmdum prófum á Suðurlandi verið slakar.
Meira
Þeir eiga að halda áfram, það er það eina sem gildir" segir Ingólfur Sigfússon fiskeldisfræðingur, sem starfað hefur við laxeldi Sæsilfurs í Mjóafirði frá upphafi.
Meira
BHM mun ásamt öðrum heildarsamtökum aðila vinnumarkaðarins, Landssambandi eldri borgara, sveitarfélögum og Öldrunarráði Íslands standa að ráðstefnu um sveigjanleg starfslok 9. febrúar næstkomandi.
Meira
UNGIR nemendur í Skákskóla Íslands hlýddu á Friðrik Ólafsson stórmeistara fara yfir nokkrar skákir sínar frá því snemma á ferli hans á föstudagskvöldið.
Meira
LANDSVIRKJUN hefur nú sent öllum grunnskólum í landinu frekari upplýsingar um samkeppni um verkefni unnin um orku og orkumál. Samkeppnin stendur til 7. apríl nk.
Meira
LAGT var til á ríkisstjórnarfundi á föstudag að ríkisstjórnin verði 1,7 milljónum króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til Samtakanna 78 til fræðslu og ráðgjafar á vegum samtakanna í ár.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Bauhaus AG, í tilefni orða Steins Loga Björnssonar, forstjóra Húsasmiðjunnar, í Morgunblaðinu í fyrradag, um afkomu Bauhaus á Norðurlöndum.
Meira
STEFÁN Jón Hafstein, formaður menntaráðs Reykjavíkur, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hann segir að miklar rangfærslur hafi komið fram í umræðunni um tónlistarnám í Reykjavík.
Meira
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN fær 44,7% fylgi og Samfylkingin 23,6% þeirra sem afstöðu taka í þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið sem unnin var 18.-25. janúar.
Meira
SAMKVÆMT samantekt Stefáns Agnars Finnssonar, yfirverkfræðings hjá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar, hefur slysum á fólki á svokölluðum 30 km svæðum fækkað töluvert á síðustu tíu árum.
Meira
ÞEIR sem harðast ganga fram í svokallaðri málvernd gætu í reynd orðið hættulegustu fjandmenn tungunnar og íslenskunni er enginn greiði gerður með því að loka hana innan rimla í menningarlegu safni eða fangelsi.
Meira
Vonir standa til að hægt verði að taka fyrstu skóflustunguna að menningar- og fræðasetri á Hólum á afmælisárinu. Með því er ætlunin að nýta sérstöðu staðarins; stefna saman lærdómi sögunnar og því frumkvæði sem býr í fólkinu.
Meira
JAPÖNSK stjórnvöld bjóða íslenskum námsmönnum styrki til háskólanáms í japanskri tungu eða japönskum fræðum við háskóla í Japan til eins árs frá og með október 2006 (MEXT-styrkur).
Meira
Hvaða tala ætti að koma næst í talnarununni hér á eftir? 1,000 ; 0,500 ; 0,333 ; 0,250 ; 0,200 ; 0,167 . . . . Skrifaðu svarið með þremur aukastöfum. Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er kl. 12 mánudaginn 9. febrúar nk.
Meira
Johnny Cash (1932-2003) var einn fremsti alþýðusöngvari síðustu aldar, goðsögn með kraftmikinn og persónulegan stíl. Það fór aldrei á milli mála hver var á ferð þegar Cash brýndi raustina.
Meira
ANNARRI umræðu um frumvarp iðnaðarráðherra um breytingu á lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, lauk á Alþingi, rúmlega þrjú aðfararnótt föstudagsins. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, talaði samfellt í nær fimm klukkustundir.
Meira
ATLANTSSKIP og Hafnarfjarðarbær hafa undirritað samning um aðstöðu fyrir fyrirtækið á tæplega fjörutíu þúsund fermetra svæði í Hafnarfjarðarhöfn.
Meira
ÞRÍR átján ára piltar voru teknir með hálft kíló af kókaíni í Leifsstöð á fimmtudag og voru úrskurðaðir í viku gæsluvarðhald á föstudag að kröfu sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli, sem rannsakar málið.
Meira
Ég er bestur þegar ég spila vel. Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, eftir sigur á Serbum í fyrsta leik liðsins á Evrópumeistaramótinu.
Meira
NÝ FRIÐLÝSING fyrir friðlandið Surtsey leggst ekki illa í útvegsbændur í Vestmannaeyjum, en ábendingar þeirra voru teknar til greina í mótun þess.
Meira
AÐILAR vinnumarkaðarins og menntamálaráðuneytið hafa gert þjónustusamning við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins um sérstakt átak til að efla starfs- og endurmenntun ófaglærðra og einstaklinga með litla menntun og bætta stöðu erlends vinnuafls í íslensku...
Meira
Hvernig á að bregðast við á tímum hnattvæðingar þegar fyrirtæki eru orðin það voldug að þau geta grafið undan grunnréttindum fólks í ríkjunum, sem þau starfa í? Er kominn tími til að alþjóðavæða réttarríkið? Dr. Herdís Þorgeirsdóttir fjallar um togstreituna milli markaðarins og réttarríkisins.
Meira
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is SAMKYNHNEIGÐ og kirkjuleg hjónavígsla hefur mikið verið rædd hér á landi undanfarið, ekki síst eftir að lagt var fram á Alþingi frumvarp um breytingar á lagaákvæðum um réttarstöðu samkynhneigðra.
Meira
Siðferði hefndarinnar er viðfangsefni nýjustu kvikmyndar bandaríska leikstjórans Stevens Spielbergs. Myndin ber nafnið München og vísar til þess þegar palestínskir hryðjuverkamenn réðust inn í Ólympíuþorpið í München á Ólympíuleikunum að morgni 5.
Meira
Ísraelsstjórn tilkynnti í gær, að hún hefði útilokað viðræður við Hamas-samtökin í Palestínu og skoraði á erlend ríki að viðurkenna ekki stjórn "hryðjuverkasamtaka".
Meira
VINAFÉLAG Íslensku óperunnar stendur fyrir DVD-sýningu á Aidu í Norræna húsinu sunnudaginn 29. janúar kl. 14.00. Sýnd verður upptaka frá The Royal Opera í London og í aðalhlutverkum eru Cheryl Studer, Dennis O'Neill, Alexandru Agache og Robert Lloyd.
Meira
ALLT má finna á netinu. Nýjasta uppgötvunin er teiknuð útgáfa af meistaraverki Leos Tolstoys, Önnu Karenínu . Sagan um Önnu er með mínum uppáhaldsverkum enda Tolstoy óviðjafnanlegur.
Meira
RÚMLEGA 56% þeirrar samtímamyndlistar sem seld er á Bretlandseyjum er keypt af konum. Dagblaðið The Scotsman hefur það eftir tölum Listaráðs Englands (e. Arts Council of England).
Meira
Bandaríska söngkonan Rosanne Cash hefur fetað í fótspor föður síns en þó farið eigin leiðir. Hún sendir frá sér nýja plötu á morgun þar sem hún minnist látinna foreldra.
Meira
Leikarinn Tom Cruise var sá leikari í heiminum sem halaði inn mesta peninga fyrir kvikmyndaframleiðendur árið 2005, samkvæmt árlegri könnun fyrirtækisins Quigley Publishing Co., en þetta er í sjöunda sinn sem Cruise er í efsta sæti listans.
Meira
Leikarinn Colin Farrell hefur nýlega viðurkennt að koma alltaf í sömu nærbuxunum fyrsta daginn sem tökur eru að hefjast á nýrri kvikmynd. Farrell, sem nýverið lék í kvikmyndinni Miami Vice , vill alls ekki henda nærbuxunum þótt þær séu orðnar gamlar.
Meira
Tónlistarmaðurinn góðkunni Bruce Springsteen og hljómsveitin Coldplay verða á meðal þeirra sem koma fram á 48. Grammy verðlaunahátíðinni sem fer fram í Los Angeles í febrúar.
Meira
Hekkenfeld er skipuð þeim Jóni, Bigga, Unnsteini, Stebba og Óskari. Hljómsveitin semur lögin utan tvö ("Stórir strákar" og "Jón var kræfur karl og hraustur"). Upptökur og hljóðblöndun var í höndum meðlima og Poul Steinbeck. Hljómsveitin gefur sjálf út.
Meira
FYRSTI þátturinn í fimmtu þáttaröð hinna geysilega vinsælu þátta 24 verður sýndur í kvöld. Sýningar á þáttunum hófust í byrjun árs í Bandaríkjunum og eru þeir því alveg nýir af nálinni.
Meira
HLJÓMSVEITIN Jakobínarína hefur vakið töluverða athygli á erlendri grundu að undanförnu og erlend plötufyrirtæki hafa verið áhugasöm um að fá hljómsveitina til liðs við sig.
Meira
Kryddpían Victoria Beckham segist ekki vera að undirbúa endurkomu Kryddpíanna, eða Spice Girls, en orðrómur þess efnis komst á kreik eftir að Victoria sást með Geri Halliwell í Los Angeles fyrir skömmu.
Meira
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is TVÖ verk eru á efnisskránni á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem verða í Glerárkirkju á morgun, sunnudaginn 29. janúar kl. 16. Þetta eru fyrstu tónleikar sveitarinnar á nýbyrjuðu ári.
Meira
Í LISTASAFNI ASÍ stendur yfir sýning listamannanna Ragnheiðar Ágústsdóttur, Sigríðar Ólafsdóttur, Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar og Tinnu Gunnarsdóttur er nefnist Verk-Hlutur-Hlutverk.
Meira
ROKKARARNIR í Mötley Crüe, leiðtogar glysrokks níunda áratugarins, fengu stjörnu í frægðargangstétt Hollywood Boulevard í vikunni. Þetta er 2.301. stjarnan sem sett er í stéttina. "Við erum beint á móti Erótíska-safninu og Frederick's of Hollywood.
Meira
ICELANDAIR bauð á dögunum rúmlega 300 ferðaþjónustuaðilum, fjölmiðlum og umboðsmönnum til Íslandskynningar í Manchester, en félagið mun hefja beint flug til borgarinnar hinn 7. apríl í vor.
Meira
ISNORD-tónlistarhátíðin verður haldin í annað sinn 2.-4. júní nk. Hátíðin tekur mið af opnun Landnámsseturs í Borgarnesi og verður helguð tónlist sem byggist á sagnaarfi Íslands.
Meira
STÓRSVEIT Reykjavíkur stendur fyrir tónleikum á NASA við Austurvöll, miðvikudaginn 1. Febrúar. Stjórnandi og höfundur allrar tónlistar á þessum tónleikum er Samúel Jón Samúelsson sem er ef til vill betur þekktur sem Sammi úr Jagúar.
Meira
BANDARÍSKI töframaðurinn Curtis Adams er væntanlegur hingað til lands í byrjun apríl en hann hefur stýrt einni vinsælustu töfrasýningu í Las Vegas undanfarin misseri og verið líkt við sjálfan David Copperfield. Ísleifur Þórhallsson hjá Event Ehf.
Meira
Sauðárkrókur | Nýverið dvaldi tíu manna hópur frá Þjóðleikhúsinu á Hofsósi við æfingar vegna nýrrar uppfærslu á leikritinu Pétri Gaut eftir Ibsen, en hún verður frumsýnd á nýja sviði Þjóðleikhússins um miðjan febrúar næstkomandi.
Meira
ÞRIÐJI og síðasti þátturinn í íslensku sakamálaþáttaröðinni Allir litir hafsins eru kaldir verður sýndur í kvöld. Þá mun væntanlega koma í ljós hver myrti Júlíus listaverkasafnara, og hvort Ari og Milla verða...
Meira
Ólöf Ýrr Atladóttir fjallar um ójafnræði varðandi barneignir Íslendinga: "...ég sætti mig ekki við það að mín barneign njóti ekki jafnræðis á við aðrar barneignir Íslendinga og því síður við það að með því að þetta ójafnræði ríkir, sé gefið í skyn að dóttir mín sé ekki jafnvelkomin í hóp Íslendinga og önnur börn."
Meira
Auður Leifsdóttir fjallar um styttingu náms til stúdentsprófs: "Til þessa hefur íslenskum stúdentum ekki verið hafnað fyrir of litla tungumálakunnáttu fyrir danska háskóla en þetta er að gerast núna."
Meira
KRISTINDÓMURINN snýst ekki um hvað ég kalla kristindóm, heldur um það sem Jesús segir. Hann sagði meðal annars: "Þér hafið heyrt..., en ég segi yður. Sannlega segi ég yður.
Meira
Eftir Svein Aðalsteinsson: "F-listinn er eina aflið í borgarstjórn, sem beitir sér fyrir því að Reykjavíkurflugvelli verði tryggð staðsetning í Vatnsmýrinni."
Meira
Frá Halldóri Sigurðssyni: "HR. STURLA Böðvarsson. Á málaskrá Alþingis liggja fyrir drög að frumvarpi frá yðar ráðuneyti. Það fjallar um að veita Vegagerðinni aukið vald til að stöðva og rannsaka bíla á þjóðvegum landsins."
Meira
Hrefna Sigurjónsdóttir fjallar um Reykjanesfólkvang.: "Ég skora á forystumenn sveitarfélaganna og þingmenn svæðisins að hittast til að ræða mál fólkvangsins og einnig framtíðarsýn þeirra hvað varðar Reykjanesið."
Meira
I Í Morgunblaðinu föstudaginn 25. nóvember 2005 er á bls. 8 grein eftir Sigursvein Þórðarson: "Húsið Lukka í Eyjum fer með hlutverk í "Erninum". Er hér átt við hinn danska framhaldsþátt í sjónvarpi RÚV, sem miklar vinsældir hefur hlotið.
Meira
Svandís Svavarsdóttir fjallar um verð á skólamáltíðum: "Er ekki sennilegast að sumir foreldrar treysti sér einfaldlega ekki til þess að kaupa mataráskrift vegna kostnaðarins?"
Meira
Hverjar eru hinar miklu rangfærslur um málefni tónlistarnema í borginni? MÉR FINNST merkilegt að lesa grein á mbl.is í dag þar sem Stefán Jón Hafstein heldur því fram að engir reykvískir tónlistanemar séu að hrekjast frá námi.
Meira
Elinborg Jóhanna Björnsdóttir fæddist í Reykjavík 26. febrúar 1954. Hún lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi við Hringbraut 11. janúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Dómkirkjunni 18. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Gísli Aðalsteinn Hjartarson fæddist á Ísafirði 27. október 1947. Hann lést þriðjudaginn 10. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Ísafjarðarkirkju 21. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Jóna Jakobína Jónsdóttir fæddist á Litluströnd í Mývatnssveit 31. desember 1923. Hún lést á heimili sínu á Langholtsvegi 139 hinn 11. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Reykjahlíðarkirkju 20. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Jón Ingi Tómasson fæddist í Reykjavík 12. desember 1960. Hann lést þar 25. desember síðastliðinn og var útför hans gerð í kyrrþey 6. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Már Lárusson fæddist í Kaupmannahöfn 2. september 1917. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 15. janúar síðastliðinn og var jarðsunginn í kyrrþey 24. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Ólafur Sigurðsson fæddist í Hafnarfirði 15. júní 1918. Hann andaðist á Vífilsstöðum föstudaginn 20. janúar síðastliðinn. Ólafur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Fjóla Hermannsdóttir, d. 1952. Þau eignuðust þrjú börn, þau eru: Guðrún Ólafsdóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Snorri Skaptason fæddist í Reykjavík 29. janúar árið 1950. Hann lést á heimili sínu í Kaupmannahöfn 3. desember síðastliðinn. Minningarathöfn um hann var í Kaupmannahöfn 16. desember en útför Snorra fór fram frá Kópavogskirkju 6. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Svanberg Kristófer Þórðarson fæddist á Akureyri 26. ágúst 1934. Hann lést á Landspítalanum Landakoti hinn 25. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Birna Sæmundsdóttir, f. 1913, d. 1970, og Þórður Sveinbjörn Davíðsson, f. 1912, d.
MeiraKaupa minningabók
Alan Greenspan hefur verið formaður stjórnar bandaríska seðlabankans, Federal Reserve frá árinu 1987 en nú er komið að því að hann láti af störfum.
Meira
Auður Björk Guðmundsdóttir er nýr forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Vátryggingafélags Íslands hf. og situr jafnframt í framkvæmdastjórn félagsins.
Meira
5. janúar sl. var Björn Ingi Sveinsson, verkfræðingur, ráðinn framkvæmdastjóri Saxbygg ehf., sem er fjárfestingarfélag í sameiginlegri eigu Saxhóls ehf og Byggingarfélags Gylfa og Gunnars (BYGG) ehf.
Meira
SAMTÖK sjálfstæðra skóla hafa undirritað sinn fyrsta kjarasamning fyrir hönd aðildarskóla sinna. Samningurinn er við stéttarfélagið Eflingu og nær til aðstoðarfólks í leik- og grunnskólum samtakanna í Reykjavík.
Meira
85 ÁRA afmæli . Á morgun, 30. janúar, verður 85 ára Jóhann Hjartarson trésmiður. Hann er staddur ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Jónsdóttur, á hótel Las Camelias á Kanaríeyjum, sími 00 34 92 87 61 062, herbergi...
Meira
Brúðkaup | Gefin voru saman 12. nóvember í Selfosskirkju af sr. Gunnari Björnssyni þau Jónína Hulda Gunnlaugsdóttir og Steinn Þórarinsson . Heimili þeirra er á Rauðholti 11,...
Meira
Á Netinu er margt að finna, þótt ekki sé nú allt til fyrirmyndar hvað efni eða gæði varðar. En Sigurður Ægisson rakst á dögunum á sögu eina þar, og langaði að koma henni áfram til sem flestra. Höfundur og þýðandi eru óþekktir.
Meira
Ibrahim Rugova, leið-togi Kosovo-Albana, lést sl. laugar-dag. Rugova var stór-reykingamaður, og lést úr lungna-krabbameini sem hann greindist með í haust. Hann var 61 árs.
Meira
Hamas-hreyfingin, flokkur íslamskra harðlínu-manna, vann stór-sigur í kosningunum meðal Palestínu-manna á miðviku-daginn og hefur mikinn meiri-hluta á þingi. Hamas fékk 76 menn kjörna af 132 þing-mönnum, en Fatah-hreyfingin fékk 43.
Meira
Hulda Jónasdóttir, 17 ára stúlka úr Hafnar-firði, hleypur á morgun með Ólympíu-kyndilinn í gegnum borgina Como á Ítalíu. Vetrar-ólympíu-leikarnir, sem haldnir verða í borginni Tórínó, hefjast 10. febrúar.
Meira
Lúðvík Geirsson fæddist 21. apríl árið 1959. Hann varð stúdent frá Flensborgarskóla árið 1978 og lauk BA-prófi í íslensku og bókmenntum frá Háskóla Íslands árið 1984.
Meira
Íslensku tónlistar-verðlaunin voru veitt á miðvikudags-kvöld. Emilíana Torrini og Sigur Rós fengu hvor þrenn verð-laun. Plata Emilíönu, Fisherman's Woman, var valin popp-plata ársins. Emilíana var söng-kona ársins og átti besta mynd-bandið.
Meira
Ólafur Stefánsson slasaðist illa á fimmtu-daginn í sigur-leik íslenska lands-liðsins gegn Serbíu/Svartfjallalandi á Evrópu-meistaramótinu í hand-knattleik sem nú er í gangi.
Meira
Sigurður Elvar Þórólfsson Handknattleikur er eins og aðrar íþróttir óútreiknanlegur og óvænt úrslit líta dagsins ljós á hverjum degi. Líklega hafa margir haft gaman af því að segja fyrir um...
Meira
Þessa dagana mætti ætla að stór hluti þjóðarinnar læsi Biblíuna spjaldanna á milli til að hafa alls konar tilvitnanir úr henni á hraðbergi í eldheitum umræðum í kjölfar nýársávarps biskups þar sem hann gerði málefni samkynhneigðra að umtalsefni.
Meira
Við lögðum land undir fót fyrir skemmstu og flugum til Kansas City í Missouri. Ég stóð í þeirri meiningu hálfa leiðina að við værum á leið til Minnesota.
Meira
Áströlsk vín ódýrari? Áströlsk vín festu sig rækilega í sessi á heimsmarkaði á sínum tíma ekki síst fyrir það hversu verð þeirra var hagstætt miðað við gæði. Nú benda spár til að áströlsk vín eigi eftir að verða enn ódýrari á næstu árum.
Meira
Á eftir vatni drekka jarðarbúar mest af tei. Te, tea, tay, thé, thee. Þessi orð og fleiri, t.d. ch'a á kínversku, eru notuð um þennan vinsæla drykk, sem Kínverjar hafa drukkið í tæplega fimm þúsund ár sér til ánægju og heilsubótar.
Meira
29. janúar 2006
| Tímarit Morgunblaðsins
| 184 orð
| 2 myndir
Frelsi og kjarkur er þemað hjá Dior vorið 2006, en í bland við munað og birtu. Vorlínan dregur svolítið dám af "tomboy"; stelputryppi eða -gopa eins og það heitir á íslensku.
Meira
Grillið á Hótel Sögu við Hagatorg er ein af fáum gamalgrónum stofnunum í íslensku veitingahúsalífi. Hér á árum áður var efsta hæð Bændahallarinnar einn af örfáum stöðum á landinu þar sem hægt var að ganga að góðum mat vísum.
Meira
29. janúar 2006
| Tímarit Morgunblaðsins
| 490 orð
| 14 myndir
Flugan horfði bókstaflega í hundsaugu íslenskrar kvikmyndagerðar þegar hún mætti á opnun Dráttarbrautarinnar í gamla Slippnum á Mýrargötu en þar var henni fagnað fjörlega af ferfætlingi af kyni íslenska fjárhundsins.
Meira
29. janúar 2006
| Tímarit Morgunblaðsins
| 4878 orð
| 6 myndir
Fyrstu skórnir og ungbarnareyfið eru unnin úr ull og eru hugsuð fyrir ófædd börn landsins, en íbúar landsins urðu 300 þúsund talsins um síðustu áramót. Engir skór og ekkert reyfi er nákvæmlega eins og saumað í ýmsum litum.
Meira
29. janúar 2006
| Tímarit Morgunblaðsins
| 181 orð
| 8 myndir
Margir foreldrar hafa fundið hversu ungbarnanudd fær áorkað í aukinni vellíðan, bæði barnsins og þeirra sjálfra. Í Afríkuríkinu Burkina Faso er ungbarnanudd með jurtafeiti ævaforn hefð og hefur þótt besta leiðin til að styrkja tengsl móður og barns.
Meira
Grein þín í Morgunblaðinu nýlega "Jól á Landspítala - háskólasjúkrahúsi", sem fjallaði um mannlegu hliðina á lífi og starfi á spítalanum og fjarlæga stjórnendur hans, vakti töluverða athygli. Hvað rak þig til að skrifa hana?
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.