ÞEIR eru ekki margir sem hafa þýtt tuttugu bækur þegar þeir eru aðeins þrettán ára, en svo er um Peter Streich, 13 ára gamlan strák frá Wisconsin í Bandaríkjunum. Hann hefur slíkan áhuga á Íslandi og íslenskri menningu að undrum sætir.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands vestra dæmdi í gær karlmann í sjö mánaða fangelsi fyrir að bíta lögreglumann á Sauðárkróki til blóðs á lögreglustöð þar í bæ fyrir þremur árum.
Meira
Eftir Lilju Björk Hauksdóttur, meistaranema í blaða- og fréttamennsku AÐGENGI að salernum fyrir fatlaða er víða slæmt á veitingahúsum. Einnig hefur borið á því að salernin séu læst og þau notuð sem geymslur.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 145 orð
| 1 mynd
Gert hefur verið samkomulag um aðgerðaáætlun fyrir leitar- og björgunarstarf á Langjökli. Skrifað var undir samkomulagið í skálanum Jaka í Þjófakrókum, við rætur Langjökuls.
Meira
AHMED Akkari, róttækur múslímaklerkur í Danmörku, er ekki lengur talsmaður samtaka danskra múslíma, að því er fram kom á fréttavef danska ríkisútvarpsins í gærkvöldi.
Meira
Reykjavík | Hafin var smíði á 1.257 íbúðum í Reykjavík á árinu 2005 og hefur sú tala aldrei verið hærri. Lokið var við smíði 782 íbúða á síðasta ári, samkvæmt skýrslu byggingafulltrúa sem lögð var fram í borgarráði síðastliðinn fimmtudag.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 1061 orð
| 1 mynd
Kínverskur leiðtogi glæpahrings í Bretlandi var í gær dæmdur fyrir að hafa með "glæpsamlegri vanrækslu" gerst sekur um manndráp. 21 skeljatínslumaður, fólk sem starfaði fyrir hann, fórst undan ströndum Lancashireflóa í febrúar 2004.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 556 orð
| 1 mynd
LÁNSHÆFISMAT íslensku bankanna hjá matsfyrirtækjunum Moody's og Fitch er of hátt að mati greiningardeildar alþjóðafjárfestingarbankans JP Morgan. Deildin sendi frá sér skýrslu í gær og telur m.a.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 450 orð
| 1 mynd
Geir H. Haarde utanríkisráðherra og Sergei V. Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, ræddu m.a. á fundi sínum í Moskvu í gær um nýja stöðu í varnarmálum Íslands. Geir sagði að Lavrov hefði verið sér sammála um að mikilvægt væri að stöðugleiki ríkti á N-Atlantshafi.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 213 orð
| 1 mynd
BANDALAG kvenna í Reykjavík hélt nýlega 90. ársþing samtakanna á Hótel Sögu. Á þinginu var lýst yfir áhyggjum af fækkun kvenna á Alþingi og samþykkt var áskorun til kvenna almennt um að gefa kost á sér í efstu sæti á listum fyrir næstu...
Meira
Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is GORDON Brown, fjármálaráðherra Bretlands og líklegur arftaki Tonys Blair forsætisráðherra, hefur verið bendlaður við lánahneyksli Verkamannaflokksins.
Meira
"ÉG hef enga trú á því að nokkrum manni detti í hug að gera Keflavíkurflugvöll óstarfhæfan," sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í gær er hann var spurður út í þau varnaðarorð rafiðnaðarmanna að Keflavíkurflugvöllur gæti orðið...
Meira
VEGNA yfirlýsinga Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA, í hádegisfréttum RÚV um að "stjórnvöld hafi gefið SA vilyrði fyrir því að öllum hömlum á flæði vinnuafls yrði aflétt frá 1.
Meira
STJÓRN Ungra vinstri grænna fagnar því að Bandaríkjaher skuli vera að fara burt. Stjórnin krefst þess að stjórnvöld taki forystu sem friðelskandi, herlaus þjóð.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 79 orð
| 2 myndir
Leikskólinn Laufskálar í Grafarvogi fagnar 10 ára afmæli sínu í dag og verður gestum boðið til mikillar veislu á milli kl. 11:00 og 13:00. Þar munu meðal annars kór leikskólabarna syngja vel valin lög auk þess sem nemendur munu sýna vinnu sína.
Meira
Miðbær | Fegurð í Fókus, ljósmyndasýning Fókuss, félags áhugaljósmyndara, verður opnuð í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag, laugardag, klukkan 14. Sýninguna prýða ljósmyndir eftir sautján félaga í Fókus.
Meira
Ferðaþjónusta | Málþingið Svæðisbundin áhrif ferðaþjónustu á Íslandi verður haldið í Oddfellowhúsinu við Þórunnarstræti á þriðjudag, 28. mars, á vegum Ferðamálaseturs Íslands og Ferðaþjónustuklasa VAXEY.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 427 orð
| 1 mynd
Vísa eftir Rúnar Kristjánsson misritaðist í gær. Hann orti um skaðsemi reykinga og snerist merkingin við, meinasiður varð að heilsusið. Hér er vísan rétt: Skorið getur skjótt á grið skapað dauðakynni að magna slíka meinasið móti heilsu sinni.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 542 orð
| 1 mynd
Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is KJALARNESIÐ hefur setið á hakanum hjá yfirvöldum í Reykjavíkurborg og ekki verið staðið við fögur fyrirheit sem gefin voru við sameiningu sveitarfélaganna.
Meira
FRUMVARP til laga um fimm manna kjararáð í stað Kjaradóms og kjaranefndar var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í gær. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra væntir þess að frumvarpið fari fljótt í gegnum þingið og verði afgreitt sem lög fyrir vorið.
Meira
SKIPVERJARNIR Oddur Brynjarsson, Halldór Kristmundsson, Vilhjálmur Birgisson og Þór Kristmundsson á dragnótarbátnum Steinunni SH frá Ólafsvík, réðu sér ekki fyrir kæti þegar fréttaritara Morgunblaðsins bar að garði.
Meira
GÆSLUVARÐHALD yfir tveimur útlendingum sem voru handteknir á Keflavíkurflugvelli með 100 þúsund evrur á leið úr landi síðastliðinn föstudag, hefur verið framlengt um tvær vikur.
Meira
LÖGREGLAN á Akranesi handtók í gærkvöldi mann við venjubundið eftirlit og fundust á honum 15 grömm af amfetamíni. Í framhaldi af því var gerð húsleit og fundust þar átta grömm af amfetamíni og voru tveir menn handteknir þar til viðbótar.
Meira
Minsk. AFP. | Ráðamenn í Bandaríkjunum og löndum Evrópusambandsins (ESB) fordæmdu í gær fjöldahandtökur í Hvíta-Rússlandi og kröfðust þess að stjórnarandstæðingar, sem voru fangelsaðir, yrðu látnir lausir án tafar.
Meira
Urður Gunnarsdóttir, talsmaður kosningaeftirlits Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE), sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að handtökurnar væru mikil vonbrigði.
Meira
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur skrifað heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra bréf þar sem hann vekur athygli á því að verkefnisstaða Tryggingastofnunar ríkisins (TR) sé sú að það geti tekið 6-8 mánuði fyrir hana að afgreiða erindi sem til hennar berast.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 245 orð
| 1 mynd
JÓN Kristjánsson félagsmálaráðherra sagði við fréttamenn eftir ríkisstjórnarfund í gær að nýtt álit umboðsmanns Alþingis um skipun í embætti ráðuneytisstjóra myndi ekki hafa áhrif á þá ráðningu sem þar væri fjallað um, þ.e.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 717 orð
| 1 mynd
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is Ódýrustu verslanirnar senda ekki heim vörur Öldruð kona, sem býr ein í þjónustuíbúð, kvartaði yfir því við Morgunblaðið að sérstaklega væri tekið fyrir heimsendingarþjónustu matvöruverslana.
Meira
HVÍTABANDIÐ - líknarfélag hefur veitt tveim vísindamönnum hjá Rannsóknarstofu Krabbameinsfélags Íslands í sameinda- og frumulíffræði, Helgu M. Ögmundsdóttur lækni og Jórunni Erlu Eyfjörð erfðafræðingi og samstarfsfólki þeirra, styrk að upphæð 500.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 322 orð
| 1 mynd
ÍSLENSKIR jeppamenn í Hinu mikla heimskautafélagi, sem tókust á hendur tröllaukinn leiðangur um norðurslóðir Kanada í febrúar, hafa nú lagt að baki nærri þriðjung leiðar sinnar sem nær frá Yelloknife í North West Territories, norðan við Alberta-fylki,...
Meira
PERLA Investments s.l. heldur fasteignakynningu á morgun, sunnudaginn 26. mars á Grand Hótel Reykjavík. Kynningin stendur frá kl. 13-18 og mun starfsfólk Perlu kynna fasteignir á Spáni og í Brasilíu.
Meira
Á FUNDI Geirs H. Haarde og Sergei Lavrov bar tengsl Lavrovs við Ísland á góma, en þannig er að móðir hans vann í gamla utanríkisviðskiptaráðuneytinu í Sovétríkjunum og annaðist þar Íslandsviðskipti.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 574 orð
| 1 mynd
Stangveiðifélagið Lax-á hefur gengið frá samningum um leigu á Svartá í Húnavatnssýslu til næstu fimm ára, sem og samningi um öll fjögur veiðisvæði Blöndu. Lax-á hefur haft neðstu þrjú svæðin á leigu en bætir nú við því efsta.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 714 orð
| 1 mynd
Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ASÍ leggur til að fólk frá nýjum aðildarríkjum Evrópusambandsins fái að koma til landsins til að leita sér að vinnu, en verði að leggja fram ráðningarsamninga sem staðfesti að farið sé eftir gildum kjarasamningum.
Meira
Jón varaformaður RANGHERMT var á viðskiptasíðu blaðsins í gær að Jón Kristjánsson væri stjórnarformaður Icelandic Group. Hið rétta er að hann er varaformaður og Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson er sem fyrr stjórnarformaður.
Meira
DC-10 flugvél með 275 farþega innanborðs frá flugfélaginu Northwestern lenti skömmu fyrir klukkan sjö í gærkvöldi á Keflavíkurflugvelli en viðvörunarljós í stjórnborði vélarinnar gaf til kynna að eldur væri í farangursrými.
Meira
LÝÐUR Guðmundsson mun láta af störfum sem forstjóri Bakkavarar síðar á árinu og taka við sem forstjóri Exista. Gerð var grein fyrir þessari breytingu á aðalfundi Bakkavarar í gær.
Meira
Njarðvík | Vélaleiga A.Þ. ehf. átti læsta tilboð í gatnagerð og lagnir í nýju Ásahverfi í Ytri-Njarðvík. Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að taka tilboði fyrirtækisins. Kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir að verkið myndi kosta 244 milljónir kr.
Meira
MÁLEFNAÞING og landsráðsfundur Frjálslynda flokksins verður haldið á Hallveigarstöðum við Túngötu í dag, laugardaginn 25. mars og hefst kl. 9. Umfjöllunarefni eru: Aldraðir, fatlaðir, skattkerfið, sveitarstjórnarmál og kosningar. Guðjón A.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 183 orð
| 1 mynd
ÞAÐ ríkti spenna í verkfræðideild Háskóla Íslands þegar 75 nemar í véla- og iðnaðarverkfræði efndu til keppni í brúarbroti! Þessi keppni er árlegur viðburður en að þessu sinni var þátttakan mjög góð en 42 hópar skiluðu inn tillögum.
Meira
Wellington. AFP. | Lögregluþjónn á Nýja-Sjálandi trúði ekki eigin augum þegar hann komst að því að ökumaður, sem hann stöðvaði fyrir að aka bíl á rúmlega 120 km hraða á klukkustund, var handalaus.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 271 orð
| 1 mynd
ÞAU ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, krakkarnir í kórum framhaldsskóla bæjarins, MA og VMA auk félaga í leikfélagi þess síðarnefnda. Nú í kvöld frumsýna þau, um 60 manna hópur, rokkóperuna Jesús Kristur Súperstjarna í Kvos Menntaskólans.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 298 orð
| 2 myndir
Eftir Bjarna Ólafsson og Grétar Júníus Guðmundsson LÆKKANIR einkenndu íslenskan hlutabréfamarkað í gær, auk þess sem gengi krónunnar veiktist nokkuð. Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um 4,43% og stendur nú í 5.819 stigum.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 156 orð
| 1 mynd
ÓSKAR Vigfússon, fyrrverandi formaður Sjómannasambands Íslands, lést fimmtudaginn 23. mars, 74 ára að aldri. Óskar fæddist 8. desember 1931 í Hafnarfirði, sonur hjónanna Epiphaníu Ásbjörnsdóttur, húsmóður, og Vigfúsar Vigfússonar, sjómanns.
Meira
STJÓRNARFUNDUR hjá Hitaveitu Suðurnesja var haldinn í gærdag en þar var farið yfir stöðuna sem upp er kominn í samskiptum hitaveitunnar við varnarliðið á Keflavíkurflugvelli.
Meira
"STAÐAN í dag er gjörsamlega óviðunandi fyrir aldraða og öryrkja, að vera boðið upp á þessi vinnubrögð," segir Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofnunar. Hann segist eiga von á því að heilbrigðisráðherra taki á þessu máli.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 261 orð
| 1 mynd
OPNAÐUR hefur verið vefur þar sem ungmenni fá úrlausn vandamála á einfaldan og skilvirkan hátt, www.totalradgjof.is. Viðstödd opnunina var Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri.
Meira
RÁÐSTEFNA um vöktun og viðbrögð vegna farsótta verður haldin í hátíðarsal Háskóla Íslands mánudaginn 27. mars, kl. 13 - 17. Franski sendiherrann á Íslandi, Nicole Michelangeli, setur ráðstefnuna og fundarstjóri verður Stefán B.
Meira
Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÁKVEÐIÐ hefur verið að viðræður milli Íslands og Bandaríkjanna um varnarsamstarf þjóðanna fari fram í Reykjavík nk. föstudag, 31. mars. Geir H.
Meira
Alls hafa nú liðlega 100 manns dáið úr fuglaflensu, langflestir í Austur-Asíu. Óttast er að mjög mannskæður faraldur geti komið upp ef stökkbreyting veldur því að veikin fari að smitast milli manna.
Meira
STARF rektors Skálholtsskóla sem er kirkjuleg menningar- og menntastofnun í eigu þjóðkirkjunnar er laust til umsóknar. Ráðið er í starfið frá 1. júlí 2006 til fjögurra ára. Rektor ber fyrst og fremst ábyrgð á faglegu starfi skólans.
Meira
AÐALFUNDUR SES (Samtaka eldri sjálfstæðismanna) sem haldinn var nýlega lýsir ánægju sinni yfir stefnumörkun síðasta landsfundar Sjálfstæðisflokksins í málefnum aldraðra.
Meira
GEIR H. Haarde utanríkisráðherra hitti Sergei V. Lavrov, rússneskan starfsbróður sinn, í Moskvu í gær, og ræddu þeir m.a. nýja stöðu í varnarmálum Íslands.
Meira
STANGVEIÐIFÉLAGIÐ Lax-á hefur samið um leigu á Svartá í Húnavatnssýslu til næstu fimm ára, auk þess sem samið hefur verið um leigu á öllum fjórum veiðisvæðunum í Blöndu.
Meira
Kíev. AP, AFP. | Skoðanakannanir benda til þess að Viktor Janúkóvítsj og flokkur hans, sem hlynntur er nánum tengslum við Rússland, hljóti flest atkvæði í þingkosningunum sem fara fram í Úkraínu um helgina.
Meira
Tónleikar | Styrktartónleikar fyrir minningarsjóð um Garðar Karlsson tónlistarkennara sem lést fyrir aldur fram í desember 2001 verða haldnir í Tónlistarhúsinu Laugarborg á sunnudag, 26. mars kl. 14.
Meira
Miðbær | Reiðhjól er ágætis farartæki í miðbænum, sérstaklega á annatímum í umferðinni. Fólk kemst jafnvel hraðar yfir en á bíl. Það er ekki algengt að fólk sjáist tvímenna á hjólhestunum sem þó var raunin í því tilviki sem ljósmyndarinn festi á...
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 171 orð
| 1 mynd
UNDIRBÚNINGUR að gerð nýs fjölmiðlafrumvarps er á lokastigi, að því er fram kom í máli Þorgerðar K. Gunnarsdóttur menntamálaráðherra eftir ríkisstjórnarfund í gær.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 322 orð
| 1 mynd
Skólaþing var haldið í Hafralækjarskóla í síðustu viku og gafst foreldrum og starfsfólki skólans þar möguleiki á að tala um skólastarfið og þótti mörgum þetta kærkomið tækifæri til þess að segja skoðun sína og heyra álit annarra.
Meira
ÓLAFUR Ragnar Grímsson forseti Íslands verður viðstaddur útför Lennarts Meri, fyrrum forseta Eistlands. Útför Lennarts Meri fer fram á morgun, sunnudag, og hefst kl. 12 að hádegi í Karli kirkjunni í höfuðborg Eistlands,...
Meira
GUNNAR Svavarsson (S), forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, og Magnús Gunnarsson (D) bæjarfulltrúi hafa sammæltust um að leggja fram sameiginlega ályktun í bæjarstjórn Hafnarfjarðar um að ríkisvaldið þyrfti strax að endurskoða samgönguáætlun m.t.t.
Meira
BÆJARRÁÐ Akureyri bendir í bókun sem samþykkt var á fundi ráðsins á mikilvægi þess að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar verði staðsett á Akureyri.
Meira
Garður | Bæjarráð Garðs hefur áhuga á því að kaupa eða taka á leigu Sæborgu, stórt hús í miðju bæjarins, og nota fyrir félagsstarf aldraðra. Sóknarnefnd Útskálakirkju á húsið og ákvað bæjarráð að óska eftir viðræðum við nefndina um leigu eða kaup.
Meira
Vortónleikar | Kvennakór Akureyrar heldur sína árlegu vortónleika á sunnudag, 26. mars kl. 17 í Akureyrarkirkju. Þetta eru fimmtu vortónleikar kórsins síðan hann hóf starfsemi á vordögum árið 2001.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 244 orð
| 1 mynd
ÞÓRARINN Ingi Þorseinsson lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi 23. mars síðastliðinn á 77. aldursári. Þórarinn Ingi eða Ingi eins og hann var oftast nefndur var fæddur í Reykjavík 24.
Meira
25. mars 2006
| Innlendar fréttir
| 151 orð
| 1 mynd
ÞYRLUSVEIT Landhelgisgæslu Íslands verður efld í tveimur áföngum, með nánu samstarfi við nágrannaþjóðir og leigu til bráðabirgða á þyrlum, og síðar með kaupum eða leigu á nýjum þyrlum.
Meira
VEGNA fyrirséðra breytinga á varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna skorar Vélstjórafélag Íslands á stjórnvöld að taka til sérstakrar athugunar áhrif þeirra á öryggi sjómanna.
Meira
Í bílablaði Morgunblaðsins í gær er sagt frá hópi 22 Norðmanna, sem komu hingað um liðna helgi til þess að aka á fjöll. Í umfjölluninni kemur fram að jeppamenning sé með allt öðru sniði í Noregi en hér á landi.
Meira
Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Símans, gagnrýndi Samkeppniseftirlitið fyrir að hafa samþykkt samruna fyrirtækja á fjölmiðla- og fjarskiptamarkaði með tilheyrandi skerðingu á virkri samkeppni á aðalfundi Símans fyrir nokkrum dögum.
Meira
Fjármálaeftirlitið hefur sent frá sér dreifibréf til líftryggingarfélaga þar sem segir að það sjái ekki ástæðu til að gera athugasemdir við að tryggingarfélög óski upplýsinga um heilsufar og þar á meðal fjölskyldusögu þess sem óskar eftir...
Meira
Gestir þáttarins Orð skulu standa í dag eru Halldór Guðmundsson rithöfundur og Ólafur H. Torfason kvikmyndagagnrýnandi. Þeir kljást við þennan fyrripart, ortan um vatnalög sem taka gildi á næsta ári: Dýrir verða dropar þá sem detta af himnum niður.
Meira
Hafnarfjörður | Í Kvikmyndasafninu, sem er til húsa í Bæjarbíóin í Hafnarfirði verður í dag sýnd Chaplin myndin Cirkus. Þá mynd gerði meistarinn árið 1928 og varð hún jafnframt síðasta alveg þögla kvikmyndin sem hann gerði.
Meira
Kvikmyndaleikarinn Tom Cruise er sá einstaklingur sem Bandaríkjamenn vildu síst eyða nóttinni með samkvæmt niðurstöðum könnunar tímaritsins Stuff.
Meira
Lið Verslunarskóla Íslands komst á fimmtudagskvöldið í úrslit Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, þegar það vann sigur á liði Borgarholtsskóla .
Meira
MYNDLISTAMAÐURINN Kristján Steingrímur Jónsson opnar í dag sýningu á jarðhæð Safns á Laugaveginum. Sýningin ber titilinn "Teikningar" og sýnir teikningar sem Kristján gerði á árunum 2004 til 2006.
Meira
Fjórða tilraunakvöld Músíktilrauna. Þátt tóku Doris Daze, Perla, Matz Anderson, Anxiety, Le poulet de romance, El Rodeo, Modern Day Majesty, Black Lotus, SYSTEM FAILURE 3550 ERROR ERROR og 4 Ways to Kill Pain. Haldið í Loftkastalanum 23. mars.
Meira
Nýlega hófust tökur á kvikmyndinni Mýrin eftir samnefndri metsölubók Arnaldar Indriðasonar. Það má segja að þessi bók, eða titill hennar, sé ákveðið íkon fyrir nýlegt sakamálaæði þjóðarinnar.
Meira
Á Listasafni Íslands verður boðið upp á leiðsögn um sýningu á verkum Snorra Arinbjarnar, "Máttur litarins og spegill tímans", í fylgd Ólafs Kvaran safnstjóra.
Meira
LILJA Kristjánsdóttir opnar málverkasýningu í Baksalnum í Galleríi Fold við Rauðarárstíg klukkan þrjú í dag. Sýninguna nefnir listamaðurinn Copy/Paste og er hún hluti af sýningaröð ungra myndlistarmanna í Galleríi Fold og stendur til 9. apríl.
Meira
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur i ngamaria@mbl.is STOPPLEIKHÓPURINN fagnar um þessar mundir 10 ára leikafmæli sínu. Á þessu tímabili hefur leikhópurinn frumsýnt 18 ný íslensk leikrit, sem eru sérstaklega ætluð börnum og unglingum.
Meira
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is BRYNJÓLFSMESSA eftir Gunnar Þórðarson verður frumflutt í Íþróttaakademíunni í Keflavík í dag kl. 16.
Meira
Í KVÖLD mun Karlakór Dalvíkur halda söngskemmtun að Rimum í Svarfaðardal. Karlakór Dalvíkur mun á þessari skemmtun kynna nýja söngskrá sína sem byggist eingöngu á sönglögum tengdum sjómennsku og vinnslu sjávarfangs.
Meira
TÓNLEIKAR Schola cantorum eru í Hallgrímskirkju á morgun, sunnudag, kl. 16.00 - en ekki í dag eins og misritaðist í umfjöllun blaðsins um tónleikana í...
Meira
Tvennir tónleikar verða haldnir á vegum Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar í dag. Fyrri tónleikarnir verða haldnir í Seltjarnarneskirkju kl. 14. Þar koma strengjasveitir skólans fram og leika fjölbreytta efnisskrá.
Meira
Pétur Halldórsson er menntaður við Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Middlesex University of London og School of Visual Arts í New York. Hann hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hér heima og erlendis.
Meira
Það hefur verið hljótt um Alan Moore undanfarin ár. Kvikmyndagerðarmenn halda þó uppi nafni hans með því að koma sögum hans á hvíta tjaldið. Heimir Snorrason fjallar hér um myndasögur Moores og bíómyndina sem hann afneitaði.
Meira
Rúnar Kristjánsson fjallar um innflytjendur frá múslímaheiminum í Evrópu: "...þótt kristnir menn séu margir tilbúnir til að versla með trú sína, eru múslímar það yfirleitt ekki. Fyrir þeim er trúin annað og meira og því mun Evrópa verða þeirra, ef fer sem horfir..."
Meira
Frá Pétri Péturssyni: "Í FRÉTT í Ríkisútvarpinu um daginn var talað um að Bandaríkjamenn ætluðu að arfleiða Íslendinga. Þarna er röng málnotkun. Sá sem arfleiðir er að gera ráðstafanir til að veita fjármunum að sér látnum til einhvers, sem eru á lífi."
Meira
Björgvin G. Sigurðsson fjallar um samgöngubætur: "Þreföldunin nýtist ekki þegar síðar verður farið í fjórar akreinar. Það er í raun kjarni málsins."
Meira
25. mars 2006
| Bréf til blaðsins
| 229 orð
| 1 mynd
Frá Dóru Pálsdóttur: "NÚ ER komið að því, kæru borgarbúar. Við höldum okkar eigið þing og látum rödd okkar heyrast. Þau íbúasamtök sem virk eru í Reykjavík hafa stillt saman strengi sína og efna til borgaraþings í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 1. apríl."
Meira
Eyjólfur Bjarnason svarar Baldri Þór Baldvinssyni, formanni Meistarasambands húsasmiða: "Meistarafélög og byggingaverktakar innan Samtaka iðnaðarins hafa tekið þátt í að móta skoðanir SI í því starfi."
Meira
SAMKVÆMT frásögn Fréttablaðsins 22. marz sl. lýsti forsætisráðherra yfir því, í alþingi deginum áður, að ríkisstjórnin bæri ekki ábyrgð á þeim miklu væntingum, sem ríkja um stóriðju.
Meira
Sigurður Líndal fjallar um Baugsmál og fundinn í HR: "Allt styður það eindregið sýknudóm í refsimáli. Eigi að síður er niðurstaða fyrirlesara sú að hæpið sé að dómurinn standist. Hér er langt seilst til að gera dóminn tortryggilegan."
Meira
Guðríður Arnardóttir og Flosi Eiríksson fjalla um málefni hestamanna í Kópavogi: "Meirihlutinn er aðallega að hugsa um hvernig hann getur friðað hestamenn fram yfir kosningar og sloppið lítið skaddaður frá svikum sínum í Glaðheimum."
Meira
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur: "Einhvern veginn tekst tímanum ekki að skæna yfir sárið stóra sem varð til þegar hann hvarf. Fyrst í undirheima borgarinnar og svo yfir móðuna miklu, rétt fyrir tvítugsafmælið sitt."
Meira
Victor Blær fjallar um fjármálamarkaðinn: "Flestir fjárfestar leggja frekar áherslu á nýjar og auðskildar upplýsingar sem hafa afleiðingar strax en á torskildari upplýsingar sem ráða gengi til lengri tíma litið."
Meira
Stefán Benediktsson fjallar um stjórnskipun og vald forsetans: "Þetta þýðir að forsetinn gæti strax á morgun skipt út þeim ráðherrum sem verst standa sig og fengið okkur aðra betri í staðinn."
Meira
Birgitta Jónsdóttir Klasen fjallar um líkamleg vandamál: "Það gæti líka verið gott að fræða barnið sitt um að enginn veit nákvæmlega um ástæður þess af hverju börn pissa undir þótt erfðafræðilegar vísbendingar séu hvað sterkastar."
Meira
Gljúfrin þrjú í Jangtze-fljótinu í Kína Í auglýsingu í Fréttablaðinu, hér um daginn, og í bæklingum frá ferðaskrifstofunni Heimsferðir, eru sölufærðar ýmsar ferðir vítt og breitt um heiminn.
Meira
Minningargreinar
25. mars 2006
| Minningargreinar
| 3148 orð
| 1 mynd
Aðalheiður Þorsteinsdóttir fæddist að Götu í Vetleifsholtshverfi í Ásahreppi 31. mars 1926. Hún lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi 10. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Þorsteinn Tyrfingsson, f. á Ártúnum á Rangárvöllum 28.
MeiraKaupa minningabók
Álfrún Edda Sæm Ágústsdóttir fæddist í Reykjavík 20. janúar 1942. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 20. febrúar síðastliðinn og fór útför hennar fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
MeiraKaupa minningabók
25. mars 2006
| Minningargreinar
| 1562 orð
| 1 mynd
Erlendur Guðlaugsson fæddist á Meiðastöðum í Garði 21. apríl 1929. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 12. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðlaugur Eiríksson, f. 6. sept. 1892 í Garðhúsum í Garði, d. 30. okt.
MeiraKaupa minningabók
Hermann Sigurvin Þorgilsson, bóndi á Hrísum í Fróðárhreppi í Snæfellsbæ, fæddist á Þorgilsstöðum í sömu sveit 27. febrúar 1926. Hann lést á St Franciskusspítalanum í Stykkishólmi 19. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Áslaug Kristensa Jónsdóttir f.
MeiraKaupa minningabók
Jóhann Kristinn Gunnarsson fæddist í Garðshorni í Flatey á Skjálfanda 28. apríl 1925. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík 3. mars síðastliðinn og var jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju 11. mars.
MeiraKaupa minningabók
25. mars 2006
| Minningargreinar
| 3194 orð
| 1 mynd
Jónas Helgason fæddist hinn 30. apríl 1918. Hann dó á Sjúkrahúsinu á Húsavík hinn 17 mars síðastliðinn, sonur hjónanna Helga Jónassonar náttúrufræðings og bónda á Gvendarstöðum og konu hans Halldóru Jónsdóttir frá Fornastöðum.
MeiraKaupa minningabók
25. mars 2006
| Minningargreinar
| 4609 orð
| 1 mynd
Margrét Helgadóttir fæddist í Gautsdal í Barðastrandasýslu 30. september 1915. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum 20. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Helgi Helgason, f. 1871, d. 1945 og Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 1895, d. 1918.
MeiraKaupa minningabók
Valgard Jörgensen fæddist í Reykjavík, 25. mars 1931. Hann lést á Landspítalanum 1. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Carsten Jörgensen og Sigurfljóð Jakobsdóttir. Valgard átti þrjú eldri systkini, Ólöfu sem er látin, Guðrúnu og Kai.
MeiraKaupa minningabók
Rætt var um niðurfellingu tolla og afnám útflutningsálags á ferskan óunnin fisk frá íslandi á fundi sjávarútvegsráðherra Íslands og Bretlands nú í vikunni. Einnig var fjallað um sjóræningjaveiðar og hvalveiðar. Einar K.
Meira
Verð á sjávarafurðum lækkaði mikið í febrúarmánuði, eða um 2,6% mælt í erlendri mynt (SDR). Til samanburðar hækkaði afurðaverðið um 1,8% í janúar. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar sem birtar voru í gær.
Meira
DÓTTURFÉLAG Dagsbrúnar, Daybreak, hefur gert öllum hluthöfum í breska prent- og samskiptafyrirtækinu Wyndeham yfirtökutilboð á 155 pens á hlut. Samkvæmt tilboðinu er fyrirtækið metið á um 80,6 milljónir punda eða 10,3 milljarða króna.
Meira
GREINING Glitnis spáir því að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,8% milli mars og apríl. Íbúðaverð muni áfram hafa áhrif til hækkunar ásamt matvöruverði. Eldsneytisverð hafi sömuleiðis hækkað og við þetta aukist verðbólguþrýstingurinn.
Meira
NOREX kauphallirnar í Reykjavík, Osló, Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og Helsinki munu í byrjun næsta mánaðar setja á stofn nýjar norrænar vísitölur, svonefndar VINX vísitölur.
Meira
Eftir Kristján Torfa Einarsson kte@mbl.is TILKYNNT var aðalfundi Bakkavarar Group í Íslensku óperunni í gær að Lýður Guðmundsson myndi láta af störfum sem forstjóri fyrirtækisins síðar á árinu og taka við starfi forstjóra Exista í framhaldinu.
Meira
FÉLAG í eigu Magnúsar Þorsteinssonar, Mirol Investments, hefur aukið hlut sinn í Icelandic Group úr 6,98% í 11,37%. Tilkynnt var til Kauphallar í gær um kaup á 120 milljón hlutum á genginu 8,73. Kaupverðið er því rúmur milljarður króna.
Meira
MIKLAR lækkanir einkenndu íslenskan hlutabréfamarkað í gær. Mest lækkuðu bréf í Kaupþingi eða um 7,5% en alls voru viðskipti með Kaupþing fyrir 2.998 milljónir króna. FL Group lækkaði um 6,7% og Landsbankinn lækkaði um 5%.
Meira
HIÐ öfluga íslenska hagkerfi hefur allar forsendur til þess að standa sig í alþjóðlegri samkeppni þrátt fyrir daprar spár um ofhitnun hagkerfisins og þunga skuldastöðu.
Meira
Greiningardeild Landsbankans spáir því að Seðlabanki Íslands muni hækka stýrivexti um 50 punkta, eða 0,5%, hinn 30. mars nk. Þetta er breyting frá fyrri spá greiningardeildarinnar sem spáði áður 25 punkta hækkun í mars.
Meira
Monterrey er þriðja stærsta borg Mexíkó. Ingibjörg Lilja Didriksdóttir skrapp þangað með sautján nemendum úr Háskólanum í Reykjavík í nóvember síðastliðnum.
Meira
Golfstraumurinn er ekki bara það sem hlýjar okkur í norðri heldur hefur orðið líka verið notað yfir straum ferðamanna á slóðir þar sem upplagt er að leika golf. Á ferðavef Dagens Nyheter er vöngum velt yfir golfferðum og m.a.
Meira
Hótel Glymur tekur stakkaskiptum Í dag verður Hótel Glymur í Hvalfirði formlega opnað á ný eftir gagngerar breytingar og endurnýjun á innviðum hótelsins.
Meira
IKEA biður þá viðskiptavini sem keypt hafa Tassa- eða Sniglar-barnarúm af stærðinni 55 cm x 112 cm í ágúst á síðasta ári eða síðar og sem hafa merkinguna ID No 15333 og Made in Poland á rúmbotninum að skila rúmbotninum til verslunarinnar þar sem þeir...
Meira
Samstarf um Kínaferðir Ferðaskrifstofan Langferðir og Kínversk-íslenska menningarfélagið hafa gengið til samstarfs um ferðir til Kína. Fyrsta ferðin er fyrirhuguð 1.-15.
Meira
Farsíminn er alltaf við höndina og þegar laus stund gefst er gott að nýta tímann til að læra eins og eitt nýtt tungumál í gegnum símann. Á vef Aftenposten er greint frá því að fyrirtækið A.R.M.
Meira
Svokölluð "húsasýki" kann að vera rangnefni þar sem einkenni hennar benda í rauninni fremur til vinnutengdrar streitu en heilsuspillandi vinnuumhverfis, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem gerð var í Bretlandi.
Meira
80 ÁRA afmæli . Í dag, laugardaginn 25. mars, er áttræð Björg Jóhannsdóttir frá Steinum, A-Eyjafjöllum, Fannborg 1. Björg er stödd á heimili dóttur sinnar í...
Meira
Selfosskirkja 50 ára LAUGARDAGINN 25. mars og sunnudaginn 26. mars verður það haldið hátíðlegt að 50 ár eru liðin frá vígslu Selfosskirkju. Í tilefni af afmælinu verður sungin morguntíð kl. 10 á laugardeginum og miðdagstíð kl. 11.30.
Meira
Dröfn Kristmundsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1963. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla 1985 og BS gráðu í hjúkrun við Háskóla Íslands 1991.
Meira
* BRYNJAR Björn Gunnarsson gæti misst af hinum þýðingarmikla leik Reading gegn Leicester á útivelli í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Brynjar er tæpur vegna meiðsla og ákveðið verður rétt fyrir leik hvort hann spili.
Meira
ENSKA knattspyrnusambandið hefur ákært Chelsea fyrir að hafa ekki stjórn á framkomu leikmanna liðsins í leiknum gegn Fulham í úrvalsdeildinni síðasta sunnudag, þegar William Gallas, varnarmanni Chelsea, var vísað af leikvelli fyrir að stíga ofan á...
Meira
ÞAÐ verður sannkallaður risaslagur í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu því Chelsea og Liverpool drógust saman. Þessi lið hafa háð harða hildi í hinum ýmsu mótum á síðustu misserum og eru í fyrsta og þriðja sæti úrvalsdeildarinnar.
Meira
LUIZ Felipe Scolari, hinn sigursæli brasilíski knattspyrnuþjálfari, er einn þeirra sem enska knattspyrnusambandið hefur rætt við sem mögulegan landsliðsþjálfara Englands.
Meira
EVERTON er í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar fyrir borgarslaginn gegn Liverpool á Anfield í dag. En þeir bláklæddu frá Goodison Park eru efstir á blaði ef litið er á úrslit leikja í deildinni á þessu ári, eða frá og með áramótum.
Meira
FEÐGARNIR Birgir Gunnarsson og Sævar Birgisson frá Sauðárkróki sigruðu í hefðbundinni göngu á Skíðamóti Íslands í gær og hafa þar með sett Sauðárkrók ærlega á kort skíðagöngumanna.
Meira
VÍKINGAR frá Ólafsvík hafa kært leik sinn gegn Íslandsmeisturum FH í deildabikarkeppni karla í knattspyrnu sem fram fór síðasta sunnudag. FH-ingar unnu leikinn, 2:1, en skiptu fleiri leikmönnum inn á en heimilt er samkvæmt reglum keppninnar.
Meira
GARY Neville, hinn reyndi bakvörður Manchester United og enska landsliðsins í knattspyrnu, leikur sinn 500. leik fyrir United þegar liðið mætir Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í dag á Old Trafford.
Meira
Sú var tíðin að skeleggustu skyttur þessa heims léku með Liverpool. Það hefur breyst og í vetur hafa framherjar þessa sögufræga félags lengst af gengið í eyðimörkinni. Orri Páll Ormarsson veltir ástandinu fyrir sér og fjallar um merkustu miðherjana í glæsilegri sögu Rauða hersins.
Meira
* GUÐBJÖRG Gunnarsdóttir, markvörður Vals og varamarkvörður kvennalandsliðsins í knattspyrnu, meiddist á hné í leik Hlíðarendaliðsins gegn Stjörnunni í deildabikarnum í fyrrakvöld. Ekki er ljóst enn sem komið er hversu alvarleg meiðsli hennar eru.
Meira
Mörg fleyg ummæli hafa gegnum tíðina hrotið miðherjum Liverpool af vörum eða verið látin um þá falla. Lítum á nokkur dæmi. "Bill var alveg ótrúlega sterkur. Það var ómögulegt að ná knettinum af honum.
Meira
Laugardagur: Liverpool - Everton 12.45 Aston Villa - Fulham 15 Chelsea - Manchester City 15 Sunderland - Blackburn 15 Wigan - West Ham 15 Portsmouth - Arsenal 17.15 Sunnudagur: Middlesbrough - Bolton 13.
Meira
"ÉG reikna með að þessi hópur verði sá sem að ég tefli fram í landsleikjunum við Svía í undankeppni HM í júní," sagði Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari í handknattleik karla, þegar hann tilkynnti um val á 20 leikmönnum í fyrsta landslið sitt...
Meira
LOMANA LuaLua, sóknarmaður úrvalsdeildarliðsins Portsmouth, hefur verið áminntur af enska knattspyrnusambandinu fyrir ummæli sín í garð dómara að loknum leik liðsins gegn Tottenham fyrr í þessum mánuði.
Meira
KARL Malone, fyrrum leikmaður NBA-liðsins Utah Jazz og Los Angeles Lakers, var heiðraður í Utah á dögunum þar sem að keppnistreyja hans, nr. 32, var dregin upp í rjáfur keppnishallarinnar.
Meira
NÁGRANNARNIR og erkifjendurnir í Liverpool-borg, Liverpool og Everton, takast á í 203. skipti í ensku deildakeppninni í dag. Leikið er á Anfield, heimavelli Liverpool, og þetta er fyrsti leikur dagsins en flautað er til hans klukkan 12.45.
Meira
ÞAÐ er í raun ómögulegt að spá fyrir um úrslit í undanúrslitaleikjunum. KR og Skallagrímur geta alveg eins leikið til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn eins og grannaliðin Keflavík og Njarðvík.
Meira
WIELAND Schmidt, einn fremsti handknattleiksmarkvörður sögunnar, sér um þjálfun íslensku markvarðanna í æfingabúðum landsliðsins í Magdeburg 10.-17. apríl.
Meira
SKÍÐI Skíðamót Íslands Laugardagur: Ólafsfjörður, ganga, frjáls aðferð: 5 km ganga kvenna 12.30 10 km ganga pilta, 17-19 ára 13 10 km ganga karla 13 Dalvík, stórsvig: Stórsvig karla, fyrri ferð 8.30 Stórsvig karla, seinni ferð 11.
Meira
FRAMARAR, sem leika í 1. deildinni í knattspyrnu í sumar, hafa fengið til liðs við sig þýskan varnarmann, Frank Posch að nafni. Hann er 33 ára gamall og hefur leikið með 5. deildar liðinu SV Bonlanden síðustu árin.
Meira
KEFLAVÍK sópaði liði Grindavíkur út í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöld 2-0 í einvíginu. Keflavík er þar með komið í úrslit og mætir þar Haukum eða ÍS. Sigur Keflvíkinga var aldrei í hættu.
Meira
Elísabet Ósk, 10 ára, teiknaði þessa skemmtilegu mynd af börnum í leik. Foreldrarnir fylgjast með að allt sé í lagi á meðan yngsta barnið hvílir sig í kerrunni. Það er svo gott veður að meira að segja sólin er með...
Meira
1. Hvað heyrir án eyrna, talar án munns og svarar á öllum tungumálum? 2. Hvenær getur maður borið vatn í síu? 3. Hvenær hefur maður sex fætur en gengur þó aðeins á fjórum? 4.
Meira
Hægláta hestinum Hálfdán hefur lengi dreymt um að eignast heiðgulan hatt. Nú getur þú hjálpað honum að láta drauminn rætast og vísað honum leiðina gegnum...
Meira
Hænan í allar áttir senn augunum renndi, og viti menn, hvergi bólaði Ara á. Undrandi og bitur varð hún þá. Úr stafrófsvísum Ara orms eftir Kristján Jóhann...
Meira
Við hittum tvo hressa og krúttlega og líka dálítið töffaralega karfa, þau Klett og Lukku. Klettur og Lukka eiga heima í Hafinu bláa og eiga það sameiginlegt að hafa misst fjölskyldu sína og vini í net veiðimanna.
Meira
Það vantar hring með röndum. Í hverri röð lóðrétt og lárétt er ein svört mynd og tvær með röndum, eins er í hverri röð lóðrétt og lárétt einn hringur, einn þríhyrningur og einn ferningur. Kubbar 6, 13 og 19 eru eins. Magnús múrari þarf 21...
Meira
Kuldi Ég skelf, finn kuldann læðast að mér, það er eins og kuldinn bíti en ég reyni að harka af mér. Ekkert gengur, ég bíð eftir hjálp en ekkert gerist. Ég fer að hugsa um dauðann en ég gefst ekki upp!!!
Meira
Ég óska eftir pennavinkonu á aldrinum 9-11 ára. Ég er sjálf 10 ára. Áhugamál mín eru bækur, dýr og fleira. Ég er að læra að spila á píanó og er í kór.
Meira
Eftirfarandi fiskategundir er búið að fela í orðaruglinu, lárétt eða lóðrétt, afturábak eða áfram eða á ská: Ýsa Karfi Þorskur Skata Lúða Loðna Ufsi Síld Rækja Koli Skrifið svo upp þá stafi sem eftir eru í réttri röð og þá hafið þið fengið rétt svar.
Meira
Magnús múrari hefur fengið það mikla verkefni að lagfæra gat sem myndaðist í múrvegg í lystigarðinum. Áður en hann hefst handa þarf hann að reikna út hversu marga múrsteina hann þarf að nota til að fylla upp í gatið. Getur þú hjálpað honum. Lausn...
Meira
1.Í hvaða mynd leikur Balli björn stórt hlutverk? Lísa í Undralandi Skógarlíf 101 dalmatíuhundur Fríða og dýrið Leikfangasaga 2.Hvað heitir apinn í teiknimyndinni Konungur ljónanna? Nafiki Tafiki Safiki Rafiki Pafiki 3.
Meira
Lesbók
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 1913 orð
| 1 mynd
Appelsínuguli reiturinn í Trivial Pursuit-spilinu er líklega hataðasti reiturinn í öllu spilinu í mínum huga og margra sem ég þekki - ekki síst vinkvenna.
Meira
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 2497 orð
| 2 myndir
Rússneski rithöfundurinn Ruben Gallego fæddist fyrir 37 árum í Moskvu. Hann skrifaði skáldævisöguna Hvítt á svörtu sem hefur verið þýdd á 20 tungumál. Í henni lýsir hann hörmulegri æsku sinni á mörgum stofnunum út um öll Sovétríkin og hvernig honum með járnvilja og þolinmæði tókst að lifa af.
Meira
Hvernig á að taka á því þegar út kemur bók sem er svo stútfull af réttmætum sjónarmiðum, réttlátri reiði og skrifuð af mikilli stílgáfu um efni sem snertir hvert einasta mannsbarn þjóðarinnar, ef ekki heimsbyggðarinnar; og er svo ofan í kaupið samin af...
Meira
Íslandssýningin "Pure Iceland" er með nokkrum öðrum brag en annað á safninu. Hún er í þremur sölum og þegar inn í sýningarrýmið er komið taka við stórar hreyfimyndir af íslenskri náttúru.
Meira
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 466 orð
| 2 myndir
Leikarinn Randy Quaid er sagður ætla að lögsækja framleiðendur kvikmyndarinnar Brokeback Mountain vegna launamála. Quaid segist hafa verið blekktur til þess að þiggja lægri laun en hann átti skilið fyrir leik sinn í myndinni.
Meira
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 428 orð
| 3 myndir
Þriðja plata Audioslave er væntanleg í plötubúðir í júní. Platan mun að öllum líkindum heita Revelations og verður að sögn þeirra sem til þekkja á eilítið háleitari nótum en hinar tvær.
Meira
! Mósaík hét þáttur á dagskrá Ríkissjónvarpsins um árabil, hann fjallaði um listir og menningu og var sá eini sinnar tegundar á stöðinni og þótt víðar væri leitað. Kristall hét annar, sá var á Stöð 2, um samtímalistir- og menningu.
Meira
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 870 orð
| 1 mynd
Heimildarmyndin The Ister fjallar um þýska heimspekinginn Heidegger og túlkun hans á ljóði þýska ljóðskáldsins Friedrichs Hölderlins Der Ister , en Ister er hið forngríska heiti Dónár.
Meira
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 965 orð
| 1 mynd
Ég var tíu ára gamall þegar ég festi kaup á minni fyrstu hljómplötu. Hún hét því undarlega nafni Eddie, Old Bob, Dick and Gary og var með uppáhaldshljómsveitinni minni á þessum tíma, Tenpole Tudor.
Meira
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 151 orð
| 1 mynd
Lesarinn Þorpið eftir Jón úr Vör, 1946. Undanfarið hef ég verið að rifja upp kynnin við ljóðabókina Þorpið eftir Jón úr Vör sem kom út árið 1946. Þar eru ljóð sem snerta mann á alveg sérstakan hátt.
Meira
Greinin er tekin saman í minningu Ragnars Björnssonar, fyrrverandi dómorganista og skólastjóra Nýja tónlistarskólans, en Ragnar hefði orðið 80 ára 27. mars nk. hefði honum enst aldur til.
Meira
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 2306 orð
| 5 myndir
Jón Atli Jónasson hefur á undanförnum árum haslað sér völl sem eitt af okkar fremstu leikskáldum. Frá því hann sendi frá sér smásagnasafn haustið 2001 hefur hann skrifað fimm leikrit, átt hlut í tveimur kvikmyndahandritum og framundan er frumsýning á nýju leikriti.
Meira
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 798 orð
| 1 mynd
Útgáfur Bruce Springsteen undanfarin misseri eiga það sammerkt að staldrað er við og litið yfir farinn veg, hvort heldur um er að ræða hans eigin troðnu slóð eða annarra.
Meira
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 1492 orð
| 1 mynd
Hljóðbók með tíu fyrirlestrum Einars Pálssonar fræðimanns kemur út í dag, 25.mars. Erindin voru tekin á segulband af áheyranda í Norræna húsinu árið 1970 þegar Einar fylgdi úr hlaði bók sinni Trú og landnám.
Meira
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 1787 orð
| 1 mynd
Þekktur bandarískur rithöfundur, Joan Didion, sendi í fyrra frá sér bók um tvíþættan persónulegan harmleik, alvarleg veikindi dóttur og dauða eiginmanns.
Meira
þegar mannkynið gengur á bak orða sinna í villiljósum næturinnar þá kemur sér vel að það eina sem ég hef nokkurn tímann sagt um nótt er nafn þitt og ég geng á bak og skeiða á þér inn í morguninn Ljóð dagsins á ljod.is...
Meira
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 545 orð
| 1 mynd
Leiklist Lesbók mælir að þessu sinni með sýningu Leikfélags Akureyrar á rússneska leikritinu Maríubjöllunni. Um hana sagði í gagnrýni. "Öll framvinda hverfist síðan um tilraunir persónanna til að fullnægja frumstæðum neysludraumum sínum.
Meira
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 1723 orð
| 1 mynd
Stórkostleg herkænska stríðsherrans hefur leitt tæpa hálfa milljón Þjóðverja út í opinn dauðann í blóðbaðinu við Stalingrad. Führer, við þökkum þér".
Meira
25. mars 2006
| Menningarblað/Lesbók
| 3342 orð
| 4 myndir
Eldavélahellur eru ekki bara hellur og misjafnar skoðanir eru á hvaða tækni gefist best við eldamennskuna. Ein þessara aðferða er spanhellur, sem byggjast á aldagamalli tækni og búa yfir þeim kosti að pottarnir hitna nánast samstundis.
Meira
Súkkulaði höfðar til allra og kallar oft á tíðum á svipaðar bragðlýsingar og um vín væri að ræða. Hafliði Ragnarsson hefur sérhæft sig nokkuð í súkkulaðigerð og býður nú upp á páskaegg unnin úr villtum kakóbaunum.
Meira
Sultaður rauðlaukur og plómu- og tómatkryddsultur eru meðal þeirra frumlegu sultutegunda sem finna má í dönsku Meyers línunni, sem nú er fáanleg hjá Kaffi Konditori.
Meira
gráfíkjubrauð 2-3 brauð 150 g gráfíkjur, í bitum 1½ dl hörfræ, 100 g 3½ dl vatn 3 tsk. þurrger 1 tsk. hrásykur 3 dl kalt vatn 1/3 dl matatolía 1½ tsk.
Meira
grunnuppskrift - gerbrauð 4 tsk. þurrger 5 dl mjólk 2 msk. olía 2 msk. sykur 1 tsk. salt 10 dl hveiti, 600 g 1 dl hveitiklíð, 25 g Hitið mjólk í 37°C og bætið geri út í.
Meira
Kakórunninn óx villtur á Yucatan-skaga í Mexíkó en samkvæmt elstu heimildum var kakórækt hafin í á sjöundu öld og jafnvel fyrr. Mayar voru fyrstir til að rækta kakórunna og notuðu í bragðmikinn drykk sem þeir kölluðu "xocolatl" og þaðan er orðið súkkulaði komið.
Meira
Á föstunni á fólk að láta af kjötáti og neyta fiskmetis í staðinn. En fiskurinn er þó hollur og bragðgóður matur sem vert er að njóta allan ársins hring.
Meira
Kokka hefur hafið sölu á pastagerðarvélum frá ítalska framleiðandanum Imperia, auk ýmissa handhægra fylgihluta, m.a. til gnocchigerðar. Í tilefni ítalskra daga mun Kokka síðan bjóða upp á sýnikennslu í pastagerð í búðinni í dag, laugardaginn 25. mars.
Meira
Það er mun auðveldara að baka brauð en margir halda. Það eru bara nokkur atriði sem þarf að hafa í huga og fínt að læra eina aðferð vel. Þjálfaðir gerdeigsbakarar þurfa engar uppskriftir því þeir þekkja hvernig gott deig lítur út.
Meira
Sigurvegarinn á Food & fun í ár var Tina D. Vik, kokkur á hinum virta veitingastað Bagatelle í Osló. Tina hafði rétt áður en hún kom sigrað í keppninni Kvenkokkur ársins í Noregi.
Meira
lúxus horn 32 stk. 5 dl mjólk 4 tsk. þurrger 2 egg 1 dl óhrært skyr 1 msk. salt 150 g smjör 14 dl hveiti, 840 g 2½ dl grófmalað spelt til að pensla: 1 egg 3 msk. valmúafræ Hitið mjólk í 37°C og hrærið geri út í, blandið skyri, eggjum og salti saman við.
Meira
nautasteik með súkkulaðisósu fyrir 6 1 kg nautasteik - lund salt og pipar olía til steikingar sósa: 50 g smjör ½ laukur, saxaður 2 hvítlauksgeirar, saxaðir 1 dl hvítvín 1 dl vatn ½ tsk.
Meira
soðnir kryddaðir hafrar fyrir 4 4 dl vatn 2 dl heilir hafrar 1 kanilstöng 4 heilar kardimommur salt Setjið vatnið í pott og látið suðuna koma upp, Setjið hafra, krydd og salt út í og sjóðið í 30 mínútur. Berið...
Meira
steinseljugrænar baunir fyrir 4 3 dl vatn 1 tsk. salt 400 g grænar baunir, frystar ½ knippi steinselja, smátt söxuð 1 msk. sítrónusafi Hitið vatn og salt að suðu, setjið baunir út í og sjóðið í 2 mínútur.
Meira
Chocolate Santander er sérræktað kólumbískt súkkulaði sem nú er komið í sölu í Kokku. Um er að ræða sk. "single origin" súkkulaði, sem er e.k. gæðastimpill.
Meira
Ahhhh... yndislega súkkulaði, eitt það öruggasta að bera fram þegar gesti ber að garði þar sem öllum finnst súkkulaði gott. Það er ekki að ástæðulausu sem súkkulaði var kallað fæða guðanna.
Meira
súkkulaðihrísgrjónadesert fyrir 4 60 g smjör 75 g sykur 6 dl mjólk ¼ tsk. salt 70 g grautarhrísgrjón 200 g dökkt súkkulaði Setjið smjör, sykur, mjólk, hrísgrjón og salt í pott og látið suðuna koma upp.
Meira
súkkulaðikaka með viskíi fyrir 12 150 g heslihnetur, heilar 150 g súkkulaði, 70% 75 g smjör ½ dl viskí 6 egg 2 dl sykur 1 dl hveiti 1dl kakó 1 tsk.
Meira
súkkulaði "tortino" fyrir fjóra 100g dökkt eðalsúkkulaði, t.d. Valrhona eða Lindt 4 egg 150 g sykur 100 g hveiti Þeytið saman egg og sykur og bræðið súkkulaðið á meðan yfir vatnsbaði.
Meira
sælubollur 12 stk. 2 tsk. þurrger 1½ dl volgt vatn 1 dl kotasæla 4 dl hveiti ½ dl hveitiklíð 1 tsk. sykur (má sleppa) 1 msk. matarolía Leysið gerið upp í vatni og blandið öllu öðru saman við samkvæmt grunnaðferð.
Meira
Þorsteinn Gestsson fjallar um vímuefni: "Ásamt því að auka lýðræði á Íslandi, opnast markaður fyrir þá 160 milljón manns sem neyta vímugjafans og um 80% minnkun yrði á allri umferð innan svarta markaðsins..."
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.