"REKSTRARAFKOMA sveitarfélaga var betri á síðasta ári en mörg undanfarin ár. Mörg sveitarfélög, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, hafa notið þenslunnar og uppsveiflunnar í hagkerfinu en önnur ekki.
Meira
BERTIE Ahern, forsætisráðherra Írlands, hefur viðurkennt að hann þáði sem samsvarar 50.000 evrum, ríflega fjórar milljónir ísl. króna, sem gjöf frá vinum sínum 1993 og 1994 en hann var þá fjármálaráðherra á Írlandi.
Meira
Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is RATSJÁRSTOFNUN mun taka við eftirliti með óþekktum flugvélum í íslenskri lofthelgi á næstunni. Varnarliðið hafði það verkefni áður með höndum en hætti eftirlitinu í byrjun sumars.
Meira
Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Reykjavík | Miklar endurbætur hafa verið gerðar á Bústaðakirkju og segir sr. Pálmi Matthíasson sóknarprestur að kirkjan sé allt önnur og betri eftir breytingarnar.
Meira
"HÉR er um nýtt úrræði að ræða og ég er mjög bjartsýn á árangur enda hefur reynslan verið afar góð í öðrum löndum," segir Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra um sérhæfða sjúkrahústengda heimaþjónustu fyrir aldraða sem formlega var sett af...
Meira
FRUMVARP til laga um breytingar á ákvæðum skattalaga um vaxtabætur verður lagt fram í upphafi þings í næstu viku, samkvæmt upplýsingum Árna Mathiesen fjármálaráðherra.
Meira
Egilsstaðir | Starfshópur á vegum Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) hefur undanfarið unnið að stöðumati á málefnum íbúa af erlendum uppruna í fjórðungnum. Hópurinn rannsakar hvar má bæta um betur og skilar niðurstöðum í vetrarbyrjun.
Meira
HJÁVEITUGÖNGUM Kárahnjúkastíflu verður lokað nú í morgunsárið og vatni safnað í Hálslón. Tveimur stálhlerum verður rennt fyrir opið og mun hækka nokkuð hratt í lóninu næst stíflunni.
Meira
DR. JAKOB Sigurðsson efnafræðingur lést í gær, 90 ára að aldri, en hann var fæddur á bænum Veðramóti í Skarðshreppi í Skagafjarðarsýslu, er nefnist nú Skagafjörður, hinn 15. febrúar 1916.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hefur dæmt karlmann á fertugsaldri til greiðslu 170 þúsund króna fyrir fíkniefnabrot auk 34 þúsund króna í sakarkostnað. Lögregla gerði húsleit á heimili mannsins í janúar sl.
Meira
KARLMAÐUR á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa haft í fórum sínum metamfetamín, sem hann ætlaði til sölu og dreifingar og jafnframt að hafa selt talsvert magn af metamfetamíni.
Meira
Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is Talsmenn Sameinuðu þjóðanna hvetja alþjóðasamfélagið til að þrýsta á Ísraela um að aflétta þeirri einangrun sem Palestínumenn á Gaza og Vesturbakkanum búa við.
Meira
VIÐRÆÐUR Hitaveitu Suðurnesja (HS) við fulltrúa bandarískra stjórnvalda, sem staðið hafa undanfarna daga, héldu áfram í gær, en ekki náðist samkomulag um kröfur HS til varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Fundum verður fram haldið í dag.
Meira
Brotthvarf varnarliðsins hefur á ný beint kastljósinu að umhverfismálum á varnarsvæðunum. Íslendingar taka við svæðunum um mánaðamót. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur vitneskju um sextíu mengaða staði á þeim.
Meira
SAMTÖK ferðaþjónustunnar fallast að óbreyttu ekki á tvær nýjar jarðgufuvirkjanir á Hellisheiði og segja að viðhorfskannanir sem stuðst sé við og eigi að liggja til grundvallar mati á umhverfisáhrifum gagnvart ferðaþjónustu og útivist séu alls...
Meira
SLÁTRAÐ var 17.776 nautgripum, sem vigtuðu alls 3.206 tonn á tímabilinu 1. september árið 2005 og til 31. ágúst í ár. Jafnvægi í framleiðslu og sölu er gott, þannig að birgðasöfnun á tímabilinu er engin, segir í frétt á vef Landssambands kúabænda.
Meira
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Raufarhöfn | Hafin er hleðsla grjóts í Heimskautsgerðið við Raufarhöfn. Hófst vinnan við hátíðlega athöfn á Raufarhöfn á jafndægrum á hausti.
Meira
KRISTJÁN Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar Álftaness, gefur kost á sér í eitt af efstu sætum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Kristján hefur starfað lengi að sveitarstjórnarmálum á Álftanesi en áður í Kópavogi.
Meira
Manuela Reimus vinnur í bakaríi í Fellabæ og flutti til landsins frá Póllandi í júní sl. Hún er gift og á fjögur börn. Hún lýsti því á málþingi SSA um málefni innflytjenda hversu erfiðlega hefði gengið að fá dvalarleyfi, kennitölu og atvinnuleyfi.
Meira
NÝR vikulegur skemmtiþáttur Hemma Gunn hefur göngu sína í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld, en þátturinn er sendur út frá skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll.
Meira
"ÉG ER himinlifandi, þetta er glæsilegt, fallega gert og mikil hvatning," segir Árni Johnsen en honum hafa borist á tólfta hundrað undirskriftir þar sem skorað er á hann að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir...
Meira
Niðurstöður málþings SSA eru m.a. að unnið er að málefnum innflytjenda á mörgum vígstöðvum og þarf að koma þeirri vinnu í einn skilvirkan farveg. Stefnumótun er langt komin og framkvæmd í augsýn.
Meira
JESUS Sainz, einn þeirra fimm manna sem Íslensk erfðagreining (ÍE) hefur kært fyrir að stela og senda til keppinautar viðskipta- og rannsóknaupplýsingar, ætlar í meiðyrðamál gegn ÍE - bæði hér á landi og vestanhafs.
Meira
JÖKLAR landsins virðast ekki hafa hopað jafnmikið í ár og þeir gerðu árin 2003 og 2004, en þá hopuðu jöklarnir sérstaklega mikið, að sögn Odds Sigurðssonar, jarðfræðings Orkustofnunar.
Meira
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is KAUPÞING banki gaf í gær út skuldabréf í Bandaríkjunum fyrir samtals þrjá milljarða Bandaríkjadala, eða um 210 milljarða króna.
Meira
Haag. AFP. | Einn af leiðtogum Bosníu-Serba í stríðinu í Bosníu-Herzegóvínu 1992-1995, Momcilo Krajisnik, hlaut í gær 27 ára fangelsisdóm í Haag fyrir þátt sinn í svonefndri "þjóðarhreinsun".
Meira
Sydney. AFP. | Vatnslindir í Ástralíu eru að þorna upp og verði ekki veruleg breyting á veðurfarinu á næstunni má búast við alvarlegum og vaxandi áföllum í efnahagslífinu. Vegna þessa hefur verið komið á sérstöku ráðuneyti vatnsmála í landinu.
Meira
SAMNINGANEFNDIR Félags leikskólakennara (FL) og Launanefnda sveitarfélaganna undirrituðu aðfaranótt þriðjudagsins síðasta nýjan kjarasamning til tveggja ára, en hann gildir frá 1. október nk. til 30. nóvember 2008.
Meira
Fangelsisgarðurinn í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg er bjargvættur hins aldagamla fangelsis vegna lélegrar loftræstingar innan veggja hússins.
Meira
OPNUM spjallvef á www.press.is vef Blaðamannafélagsins hefur verið lokað tímabundið. Að sögn Birgis Guðmundssonar, ritstjóra Blaðamannsins og umsjónarmanns press.
Meira
RANNSÓKNIR íslenskra háskólanema sem unnar voru í Malaví verða kynntar og ræddar á málstofu sem fram fer í Þjóðminjasafninu í dag, fimmtudag, kl. 13-17.
Meira
Á ÁRI hverju deyja um 10,5 milljónir barna undir fimm ára aldri og skortur á óspilltu vatni og lágmarkshreinlætisaðstöðu stuðlar að flestum dauðsfallanna. Þetta kemur fram í skýrslu sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) birtir í dag.
Meira
SKÓLABÖRN í fimmtíu löndum héldu alþjóðlega mjólkurdaginn hátíðlegan í gær, en tilgangur dagsins er að minna á hollustu mjólkur. Fjörugur ratleikur var kynntur í grunnskólum á Íslandi í tilefni dagsins.
Meira
París. AP. | Hafa vísindamenn fundið stæðuna fyrir leyndardómsfullu brosi Mónu Lísu? Sérfræðingar hafa rannsakað hátæknimyndir af Mónu Lísu og telja að fyrirsæta Leonardos da Vinci hafi verið barnshafandi eða alið barn nýlega þegar hún sat fyrir.
Meira
NÆSTA námskeið FOCAL skólans í gerð verklagsreglna verður haldið í sal Læknafélagsins, Hlíðasmára 8, 29. september n.k. kl. 9.00 - 13.00. Námskeiðið er miðað að þörfum allra sem koma að gæðastjórnun þ.e.
Meira
FÖSTUDAGINN 29. september nk. mun Foreldrafélag ættleiddra barna gangast fyrir námstefnu um tengslaröskun og meðferð hennar sem sérstaklega er ætluð foreldrum ættleiddra barna og fagfólki á sviði uppeldismála.
Meira
FYRSTU tónleikar Jazzhátíðar Reykjavíkur fóru fram á Nasa í gærkvöldi. Stórsveit Reykjavíkur lék undir stjórn bandaríska stjórnandans Bill Holmans í byrjun tónlistarveislunnar sem standa mun til 1....
Meira
Varsjá. AFP. | Ekki sér fyrir endann á stjórnarkreppunni í Póllandi og það nýjasta er, að einn þingmanna stjórnarflokksins Laga og réttar hefur verið staðinn að því að reyna að kaupa til fylgilags við stjórnina einn þingmann úr Samoobrona-flokknum.
Meira
Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is RATSJÁRSTOFNUN mun taka við eftirliti með óþekktum flugvélum í íslenskri lofthelgi, en slíkt eftirlit á vegum varnarliðsins lagðist niður í lok maí sl.
Meira
PROMENS hf., dótturfélag Atorku Group, hefur ákveðið að reisa nýja hverfisteypuverksmiðju í Póllandi til framleiðslu á vörum úr plasti. Framkvæmdir hefjast innan fárra vikna og fyrirhugað er að hún taki til starfa á miðju næsta ári.
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is KONUKOT verður rekið áfram til vors og mun Reykjavíkurborg greiða rekstrarkostnað á þeim tíma, en hingað til hefur Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands (RKÍ) staðið straum af kostnaðinum að langmestum hluta.
Meira
Búdapest. AFP. | Ferenc Gyurcsany, forsætisráðherra Ungverjalands, reyndi í gær að skýra það út og réttlæta fyrir löndum sínum, að hann hefði logið að þeim um ástandið í efnahagsmálum.
Meira
SIV Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra átti sl. mánudag fund með heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, Michael Leavitt, í Washington. Fundinn sátu einnig Davíð Á.
Meira
THOMAS F. Hall, einn af aðstoðarvarnarmálaráðherrum Bandaríkjanna, segir að samkomulag íslenskra og bandarískra stjórnvalda í varnarmálum sé til hagsbóta fyrir bæði ríkin.
Meira
"FYRST og fremst fagna ég því að það skuli vera orðið svo friðvænlegt að Ísland skuli geta verið herlaust land að jafnaði. Þetta er gleðidagur í sögu þjóðarinnar.
Meira
SEX rjúpur gerðu sig heimakomnar á þakskyggni húss við Arnarsíðu á Akureyri í gærdag. Sveinn Hjálmarsson, sem býr steinsnar frá, tók meðfylgjandi mynd af rjúpunum sem voru hinar rólegustu að hans sögn.
Meira
Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna á Akureyri, sem í daglegu tali verður kallað AkureyrarAkademían, verður með almennan félagsfund í gamla Húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti í kvöld kl. 19.30.
Meira
Ísafjörður | Byggðasafn Vestfjarða varar við stækkun frystigeymslu Hraðfrystihússins Gunnvarar en fyrirtækið hefur sótt um stækkun húss síns við Árnagötu 1 á Ísafirði.
Meira
London. AFP. | Bretar sem einstaklingar skulda mest allra í Evrópusambandinu og eiga raunar þriðjunginn af öllum skuldum, sem ekki eru tryggðar með veði í fasteign.
Meira
ÖKUMAÐUR fólksbifreiðar var fluttur á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í gær eftir bílveltu á Grafningsvegi en skv. upplýsingum frá lækni á slysadeild er hann ekki alvarlega slasaður. Auk ökumanns var lítið barn í bílnum en það sakaði ekki.
Meira
Mannréttindasamtök í Túnis saka nú stjórnvöld um að ofsækja konur sem nota hefðbundnar slæður eða höfuðklúta múslímakvenna, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC . Séu nemendur í framhalds- og háskólum þvingaðir til að taka klútana af sér.
Meira
SIGRÍÐUR Jóhannesdóttir, kennari og fyrrverandi alþingismaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem fram á að fara 4. nóvember nk.
Meira
ÁRMANN Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar.
Meira
GUNNAR Axel Axelsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi hinn 4. nóvember næstkomandi. Í prófkjörinu sækist hann eftir stuðningi í 4.-5. sæti. Gunnar Axel fæddist í Hafnarfirði 3.
Meira
REYKJAVÍK verður myrkvuð í kvöld, fimmtudaginn 28. september, kl. 22. Minjasafn Orkuveitunnar hefur síðustu misseri staðið fyrir stjörnuskoðun í Elliðaárdal, undir leiðsögn fróðra manna.
Meira
TAFIR á framleiðsluferli bóluefnis við árstíðabundinni flensu valda því að innflutningi á bóluefninu hingað til lands seinkar, að sögn Haraldar Briem, sóttvarnarlæknis hjá landlæknisembættinu.
Meira
TVEIR karlmenn á þrítugsaldri voru færðir á lögreglustöðina við Hverfisgötu vegna fíkniefnamála í fyrrinótt. Þeir voru báðir teknir í austurbæ Reykjavíkur en þó ekki á sama tíma. Í fórum beggja fundust ætluð fíkniefni en mál þeirra eru óskyld.
Meira
SAMKVÆMT veðurspá Veðurstofu Íslands er ekki útlit fyrir að hægt verði að skoða stjörnurnar á himninum þegar ljósin verða slökkt í höfuðborginni á milli kl. 22 og 22.30 í kvöld.
Meira
BJARNI Ásmundsson og Magnús G. Magnússon keyptu sér eitt stykki teiknistofu á Akureyri í janúar 2004, fullir bjartsýni enda voru mörg spennandi verkefni fram undan, en um það bil þremur vikum síðar stóðu þeir uppi verkefnalausir og útlitið ekki bjart.
Meira
Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is UM þessar mundir er verið að reisa um 670 m hljóðvegg úr stáli við Kleppsveg til að minnka umferðarhávaða þaðan í íbúðarhúsnæði við götuna. Verkfræðistofan Hnit er með gatnahönnunina á sínum snærum.
Meira
Ræða Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í fyrradag bar þess öll merki að Ísland er í framboði til öryggisráðs samtakanna.
Meira
Gríðarlegir möguleikar felast augljóslega í nýtingu þess landsvæðis og mannvirkja, sem Bandaríkjamenn hafa nú afhent Íslendingum á varnarsvæðinu á Miðnesheiði.
Meira
Í síðasta tölublaði tímaritsins Economist er umfjöllun um úrslit kosninganna í Svíþjóð sem getur verið gagnlegt umhugsunarefni fyrir þá sem nú stjórna Íslandi.
Meira
Sú ákvörðun forsvarsmanna Þýsku Óperunnar að hætta við uppfærslu Mozart-óperunnar Idomeneo hefur vakið athygli margra og ekki eru allir á eitt sáttir um ákvörðunina.
Meira
Í tilefni af 150 ára afmæli Bríetar Bjarnhéðinsdóttur bjóða Rannsóknarstofa í kvenna- og kynjafræðum, Kvennasögusafn Íslands og Kvenréttindafélag Íslands til málþings um Bríeti og arf hennar á morgun, í hátíðarsal Háskóla Íslands. Dagskráin hefst kl....
Meira
Rokkhljómsveitin Brainpolice heldur tónleika á Paddy's í kvöld, en hljómsveitin gaf nýverið út breiðskífuna Beoynd the Wasteland sem hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Brainpolice fær til liðs við sig heimabæjarhetjurnar í hljómsveitinni Tommygun.
Meira
Teiknimynd. Leikstjóri: Steve "Spaz" Williams. Enskar aðalraddir: Kiefer Sutherland, Eddie Izzard, James Belushi, Janeane Garofalo, William Shatner. Íslenskar: Ólafur Darri Ólafsson, Hjálmar Hjálmarsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Guðmundur Ólafsson, o.fl. 94 mín. Bandaríkin 2006.
Meira
HUGMYNDIN að byggingu Safns umburðarlyndisins varð til hjá Simon Wiesenthal-stofnuninni og átti tilgangur safnsins að vera sá að stuðla að sátt og samlyndi milli múslíma, gyðinga og kristinna manna í hinni helgu borg. Byrjunin lofaði góðu.
Meira
Leikstjórar: Mark Neveldine og Brian Taylor. Aðalleikarar: Jason Statham, Amy Smart, Jose Pablo Cantillo, Efren Ramirez, Dwight Yoakam. 85 mín. Bandaríkin 2006.
Meira
HLJÓMSVEITIN Laser kemur fram á Jazzhátíð Reykjavíkur á Q-bar í kvöld. Hljómsveitin er skipuð fjórum Norðurlandabúum, gítar, saxófónn, kontrabassi og trommur, á aldrinum 20-25 ára sem kynntust við tónlistarnám í Gautaborg fyrir ári.
Meira
ÞAÐ hefur svo sannarlega teygst úr litla sæta *NSYNC stráknum honum Justin Timberlake ef eitthvað er að marka þá mynd sem birtist af honum í fjölmiðlum um þessar mundir.
Meira
LJÓSVAKI dagsins er afar ánægður með þá þróun að hægt sé að nálgast sífellt fleiri þætti ljósvakamiðlanna; s.s. fréttir og aðra umfjöllun, á Netinu.
Meira
Kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í dag. Sýndar verða myndir frá öllum heimshornum er eiga það sameiginlegt að vekja áhuga þeirra sem þyrstir í "frumlegheit og ómengaða listræna sýn", eins og dagskrárstjórinn, Dimitri Eipides, orðar það.
Meira
SAGAN AF undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar eftir Margréti Tryggvadóttur og Halldór Baldursson og Háski og hundakjöt eftir Héðin Svarfdal Björnsson hlutu Íslensku barnabókaverðlaunin sem afhent voru í gærmorgun.
Meira
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í kvöld. Flóki Guðmundsson tók Atom Egoyan tali en hann er handhafi verðlauna sem veitt eru í nafni hátíðarinnar fyrir framúrskarandi listræna kvikmyndasýn árið 2006.
Meira
Eftir Guðjón Guðmundsson gugu@mbl.is FÉLAG í eigu Ingunnar Wernersdóttur hefur fest kaup á Stradivarius-fiðlu. Fiðlan var smíðuð í Cremona á Ítalíu af Antonio Stradivari.
Meira
Schubert: Píanótríó í B Op. 99. Sjostakovitsj: Píanótríó í e Op. 67. Trio Nordica (Auður Hafsteinsdóttir fiðla, Bryndís Halla Gylfadóttir selló og Mona Sandström píanó). Sunnudaginn 17. september kl. 20.
Meira
NEW York sveitin Scissor Sisters vakti gríðarlega athygli þegar hún sendi frá sér sína fyrstu plötu árið 2004. Að vísu barst hróður hennar hraðar um Evrópu en Bandaríkin og í Bretlandi sópaði hún að sér verðlaunum á hverri hátíðinni á fætur annarri.
Meira
Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Tenórinn Finnur Bjarnason fer með hlutverk Belmonte í Mozartóperunni Brottnámið úr kvennabúrinu sem Íslenska Óperan frumsýnir á morgun.
Meira
Frá Jónasi Bjarnasyni: "Í leiðara Morgunblaðsins í gær um botnvörpubann og vísindi er sagt: "Æ fleiri komast á þá skoðun, að botnvörpuveiðar séu ekki forsvaranlegar, vegna þess að þær valdi svo miklum skemmdum á sjávarbotninum að þær eyðileggi kóralmyndanir og..."
Meira
Bragi Guðbrandsson svarar grein Helga I. Jónssonar um Barnahús: "Getur ekki verið að "regluleg upphlaup" forstjóra Barnaverndarstofu séu einfaldlega einlægar tilraunir til að tryggja börnum í Reykjavík jafn góða þjónustu og öðrum börnum á Íslandi?"
Meira
ÞAÐ er ekki örgrannt um að undirritaður hafi þurft að nugga sér um augun við lestur Staksteina síðasta misserið - og komið fyrir ekki. Enda skilja fæstir þann pólitíska vínarkruss sem þar er stiginn.
Meira
Eftir Tryggva Harðarson: "RÍKISSTJÓRNINNI hefur farist stjórn efnahagsmála einstaklega illa úr hendi. Þrátt fyrir að tekjur ríkissjóðs hafi aldrei verið meiri en á umliðnum árum sitja alltof margir eftir með sárt ennið vegna aðgerða eða aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar."
Meira
Ólöf H. Bjarnadóttir og Smári Pálsson fjalla um heilaskaða í tilefni af málþingi: "Það er sjaldan sem fólk með heilaskaða hefur frumkvæði að því að leita sér hjálpar. Ástæðan er yfirleitt sú að heilaskaðinn sviptir þessa einstaklinga innsæi, þannig að þeir sjá ekki vandamálin..."
Meira
Einu sinni var kona sem vildi eiga hvítan brúðarkjól en þá kom til hennar norn sem sagði að hún gæti ekki eignast hvíta brúðarkjólinn nema hún hefði líka svarta míkrófóninn.
Meira
Eftir Benedikt Sigurðarson: "STÆRSTI vandinn í menntamálum okkar Íslendinga virðist ótvírætt vera skortur á árangri og námsframvindu fjölmennra hópa - einkum drengja sem ekki fóta sig í framhaldsskóla."
Meira
Valdimar Leó Friðriksson fjallar um umhverfismál í Mosfellsbæ og svarar greinum Karls Tómassonar og Ólafs Gunnarssonar: "Varmá hefur nefnilega verið á náttúruminjaskrá í 28 ár, síðan 21. apríl 1978. Ósarnir voru síðan gerðir að friðlandi árið 1980."
Meira
Gyða Haraldsdóttir skrifar um þjónustu við sérstök börn: "Tillögur ráðherra um að efla sérhæft starf á MHB fela vonandi í sér að ráðrúm skapist til að bæta úr þessu og ráða fleira sérmenntað starfsfólk..."
Meira
ÓSKÖP voru sorgleg viðbrögð Jóns Sigurðssonar formanns Framsóknarflokksins við þeirri hugmynd Ómars Ragnarssonar að fullgera Kárahnjúkavirkjun en nota hana síðan eingöngu sem minnismerki um "hugrekki þjóðar sem leitaði sátta við kynslóðir...
Meira
Eftir Árna Pál Árnason: "EFTIR efnahagslegan óstöðugleika undanfarinna missera er ljóst að eitt brýnasta verkefni stjórnmálanna á næstu árum er að skapa stöðugt efnahagsumhverfi."
Meira
Tryggvi Jónsson svarar grein Valdimars Leós Friðrikssonar um tengibraut í Mosfellsbæ: "Mér hefur fundist Valdimar og aðrir þeir sem mest hafa haft sig í frammi varðandi umræðuna um tengibrautina að Helgafellslandi hafi skautað létt framhjá staðreyndum málsins."
Meira
Skjár sport og enski boltinn ÉG er áskrifandi af Skjá sport og horfi talsvert á enska boltann þar. Laugardaginn 23. september er ég að lesa Morgunblaðið og sé þá á íþróttasíðunni að "Ekki verði sýnt frá leikjunum sem byrja kl.
Meira
Ásthildur Eyjólfsdóttir Finlay fæddist í Brautarholti á Kjalarnesi 28. september 1917, en ólst upp í Reykjavík. Hún lést á heimili sínu í Bushey í Hertfordskíri á Englandi 22. júlí síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Helgi Hallgrímsson fæddist á Húsavík 5. maí 1950. Hann lést 18. september síðastliðinn. Foreldrar hans eru Hallgrímur Steingrímsson, f. 21.2. 1908, d. 27.2. 1997 og Sigríður Jónína Helgadóttir sem dvelur að Hvammi á Húsavík, f. 26.11. 1922.
MeiraKaupa minningabók
Ólöf Britha J. Huseby fæddist í Reykjavík 16. apríl 1931. Hún lést á heimili sínu, Gunnarssundi 6 í Hafnarfirði, 19. september síðastliðinn. Kjörforeldrar hennar voru hjónin Kristian M. Huseby, koparsmiður í Vélsmiðjunni Hamri í Reykjavík, f.
MeiraKaupa minningabók
Rakel Björg Ragnarsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 6. febrúar 1936. Hún lést á heimili sínu 17. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Júlíana S. Erlendsdóttir, f. 3. september 1912, d. 24. júlí 1982, og Ragnar V. Jónsson veitingamaður, f. 30.
MeiraKaupa minningabók
Örlaugur Björnsson (Muggur) fæddist í Reykjavík hinn 24 júní 1933. Hann andaðist á Landspítalanum Fossvogi hinn 17. september síðastliðinn. Foreldrar hans voru þau Björn Leví Þorsteinsson húsgagnasmíðasérfræðingur frá Geithömrum Svínadal, f. 27.6.
MeiraKaupa minningabók
VIÐSKIPTAHÚSIÐ hefur undirritað sölusamning á Hafnarey SF 36 til Rússlands. Skipið verður gert út frá Murmansk. Hafnarey SF 36 er í eigu Krosseyjar ehf. en það fyrirtæki var fyrr á þessu ári selt til Ingimundar hf.
Meira
Eftir Kristin Benediktsson krben@internet.is VEIÐIEFTIRLIT Hafrannsóknastofnunar lokaði stóru svæði á Halamiðum á mánudag eftir að í ljós kom við skoðun á afla að um 49% af óskilgreindum fisktegundum í sýnum reyndust undir viðmiðunarmörkum.
Meira
Ólafur Auðunsson orti vísu til Ómars í tilefni mótmæla gærdagsins: Förgum ekki fögrum stað, forðumst sögu Rómar. Græðum Ísland, geymum það. Göngum fyrir Ómar.
Meira
Handboltamenn á Akureyri mæta sameinaðir til leiks í haust; KA og Þór sömdu um það í sumar að koma á fót sameiginlegu liði í eigu félaganna, liði sem ber nafn bæjarins. Í kvöld verður kynningarfundur í Vélsmiðjunni kl. 20.30 þar sem m.a.
Meira
Afríka hafði lengi heillað Elísabetu Magnúsdóttur, sem vildi þó ekki heimsækja álfuna sem hefðbundinn ferðamaður heldur vera hluti af samfélaginu. Ingveldur Geirsdóttir ræddi við Elísabetu sem kennir nú í grunnskóla í Gana.
Meira
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Bandarísku skíðabæirnir Aspen og Vail tilheyra báðir Colorado-fylki og státa þeir báðir af einum bestu skíðabrekkum, sem skíðaunnendur komast í tæri við.
Meira
Skordýraeyðirinn dímetóat fannst tífalt yfir leyfilegum mörkum í argentínskum eplum í Noregi sem sögð voru lífrænt ræktuð. Telur neytandi að eitrið hafi valdið ofnæmi og veikindum hjá ungbarni sínu. Unnur H. Jóhannsdóttir kannaði hvernig eftirliti væri háttað hér á landi.
Meira
Bónus Gildir 27. sept. - 30. sept verð nú verð áður mælie. verð Bónus fersk kjúklingablanda 979 1259 979 kr. kg Ferskt ungnautahakk 8-12 % feitt 899 1259 899 kr. kg Sjófryst ýsuflök, roðlaus 599 799 599 kr. kg Steinbítur, roð- og beinlaus 599 799 599...
Meira
Leikhúsferð til Lundúna Borgarleikhúsið og Express-ferðir efna til leikhúsferðar til London og gefst farþegum kostur á að sjá Hamskiptin eftir Kafka í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar og Queen-sýninguna frægu "We will Rock you".
Meira
Þetta var ekki leiðinlegt. Ég er enn skælbrosandi. Það er engu líkt að sitja í bíl með 500 hestöfl í skottinu og vitandi það að græjan kostar litlar 30 milljónir.
Meira
Fullyrt er í dagblaðinu The Australian sl. laugardag að það hafi verið Katar sem greiddi Ban ki-Moon "letjandi" atkvæði, sem túlka má þannig, að allar líkur séu á því að Ban verði næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Meira
Auður Styrkársdóttir fæddist í Reykjavík 1951. Hún lauk stúdentsprófi frá KHÍ 1971, BA-prófi í almennri þjóðfélagsfræði frá HÍ, mastersnámi í stjórnmálafræði frá Sussex-háskóla og doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Umeå-háskóla 1999.
Meira
80 ára afmæli. Benedikt Helgason, tónlistarkennari og verslunarstjóri, Álfhól 7, Húsavík verður áttræður laugardaginn 30. september. Benedikt var verslunarstjóri hjá KÞ í 25 ár og tónlistarkennari í 15 ár.
Meira
Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði stendur fyrir opinberu erindi dr. Þóru Berglindar Hafsteinsdóttur. Erindið nefnist: "Endurhæfingarhjúkrun - gagnreynd hjúkrun" og fer fram 28. september kl. 15.30-16.
Meira
Í sal íslenskrar grafíkur sýnir Elva Hreiðarsdóttir grafíkverk unnin með collagraph tækni. Sýningin er opin fimmtudag til sunnudags frá kl. 14-18 og stendur til 8. október.
Meira
Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur, Bertha Sóley, Lilja Hrund og Svanhildur Silja, héldu tombólu og söfnuðu þær kr. 2.389 til styrktar Rauða kross...
Meira
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Pólsk-íslenska vináttufélagið bjóða til ráðstefnu í Háskólabíói 29. sept. kl. 12.30 um tengsl Íslands og Póllands. Saga Póllands, Pólland, Ísland og Evrópusambandið, leiklist, bókmenntir og kvikmyndir verða kynnt.
Meira
1 "Ertu kominn, landsins forni fjandi?" Þannig spyr Matthías Jochumsson í einu kvæða sinna en hvern er hann þá að ávarpa? 2 Síðasti Suðurlandsskjálftinn varð 17. júní árið 2000 en hvenær reið hann yfir þar áður?
Meira
Víkverji hefur átt við kaffifíkn að stríða í nokkur ár og hefur stundum reynt að slíta af sér hlekki hins ilmandi, kolsvarta bedúínadrykkjar - en án lítils árangurs.
Meira
ENSKU liðin Chelsea og Liverpool fögnuðu sigri í 2. umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gær en Evrópumeistaralið Barcelona frá Spáni var langt frá sínu besta gegn Werder Bremen í Þýskalandi.
Meira
ÞAÐ eru fimm íslenskir kylfingar skráðir til leiks á úrtökumótið fyrir sænsku mótaröðina í haust en úrtökumótin eru leikin á fjórum völlum í Svíþjóð.
Meira
Guðjón Valur Sigurðsson átti stórleik og skoraði 12 mörk, þar af eitt úr vítakasti, þegar Gummersbach vann stórsigur, 32:42, á Melsungen á útivelli í 2. umferð þýsku bikarkeppninnar í fyrrakvöld.
Meira
Anton G. Pálsson og Hlynur Leifsson, alþjóðadómarar í handknattleik, eru á leiðinni til Barcelona á Spáni þar sem þeir dæma leik Barcelona og sænska liðsins Hammarby í Meistaradeild Evrópu 7. október.
Meira
SNERPA og seigla Frampilta reyndist Stjörnunni of stór biti þegar liðin mættust í Garðabæ í gærkvöldi í 1. umferð Íslandsmótsins, DHL-úrvalsdeildarinnar.
Meira
HEIÐAR Davíð Bragason, kylfingur úr Kili í Mosfellsbæ, lék á þremur höggum yfir pari vallar á öðrum keppnisdegi á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi í gær. Hann lék á 75 höggum og fékk hann 5 skolla (+1) á hringnum og 2 fugla (-1).
Meira
ÍSLAND og íslenskir golfvellir fá lofsamlega umfjöllun í nýjasta hefti golftímaritsins Golf International. Ferðamálastofa var meðal þeirra sem unnu að ferð blaðamannsins Paul Severn hingað til lands. Á vefnum kylfingur.is er greint frá heimsókn Paul Severn.
Meira
KVENNALIÐ Haukanna í körfuknattleik, sem fagnaði Íslandsmeistaratitlinum á síðustu leiktíð í fyrsta skipti í sögu félagsins, hefur fengið bandarískan leikmann til liðs við sig fyrir baráttuna í vetur.
Meira
SIGMUNDUR Einar Másson, Íslandsmeistari í höggleik karla í golfi, sigraði á háskólamóti í NCAA-deildinni í Bandaríkjunum en hann lék 54 holur á 9 höggum undir pari.
Meira
BANDARÍSKI kylfingurinn Tom Watson, sem var fyrirliði Ryder-liðs Bandaríkjanna árið 1993, segir að breyta þurfi reglum um stigagjöf fyrir valið á bandaríska liðinu.
Meira
Björgvin Þór Hólmgeirsson og Davíð Georgsson, báðir 19 ára gamlir, fóru fyrir frísku og baráttuglöðu ÍR-liði sem kom geysilega á óvart með því að leggja hið leikreynda lið Hauka að velli, 36:30, í Austurbergi.
Meira
HEILDARVIÐSKIPTI Í Kauphöll Íslands í gær námu 27,8 milljörðum króna. Þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir 12,4 milljarða. Úrvalsvísitala Aðallista Kauphallarinnar hækkaði um 0,6% og er lokagildi hennar 6.315 stig.
Meira
Auglýsingastofan Fíton hefur vaxið hratt á liðnum árum ásamt því að áherslurnar hafa breyst töluvert. Sigurhanna Kristinsdóttir ræddi við framkvæmdastjóra stofunnar og kynnti sér starfsemina í tilefni útgáfu Fítonblaðsins.
Meira
Frosti Ólafsson er nýráðinn hagfræðingur Viðskiptaráðs, en hann er einn fárra Íslendinga, enn sem komið er, sem lagt hafa stund á nám við ástralskan háskóla. Bjarni Ólafsson varpar upp svipmynd af Frosta, sem segir fjölbreytilegt starfið hjá Viðskiptaráði eiga vel við sig.
Meira
Fons eignarhaldsfélag í eigu þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, hefur selt allan sinn hlut í sænska lággjaldaflugfélaginu Fly Me. Þetta staðfesti Pálmi Haraldsson í samtali við Morgunblaðið í gær.
Meira
Velta Promens hefur ríflega sexfaldast eftir tvær stórar yfirtökur í Bandaríkjunum og Evrópu á síðastliðnu ári. Kristján Torfi Einarsson leit inn í nýjar höfuðstöðvar félagsins þar sem framkvæmdastjórar helstu framleiðslusvæða þess funduðu í fyrsta sinn.
Meira
EINS OG í mörgum öðrum löndum Evrópu er umtalsverður halli á rekstri gríska ríkisins. En eins og kunnugt er gerir Evrópusambandið þá kröfu til evru-ríkjanna að hallinn sé ekki meiri en sem nemur 3% af vergri þjóðarframleiðslu.
Meira
HRAÐLESTRARSKÓLINN býður upp á ný þriggja vikna dagnámskeið sem sérstaklega eru sett upp fyrir atvinnulífið og þá starfsmenn sem eiga auðvelt með að nýta sér hraðlestrarnámskeið að deginum.
Meira
Eftir tvær vikur koma Íslendingar til með að sækja eina vinsælustu verslun þjóðarinnar heim í Kauptún í Garðabæ en þar byggir IKEA nú nýtt verslunarhúsnæði. Sigurhanna Kristinsdóttir kíkti í heimsókn á dögunum þegar lokaspretturinn var að hefjast.
Meira
Impra nýsköpunarmiðstöð er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og lítil fyrirtæki á Íslandi. Grétar Júníus Guðmundsson kynnti sér starfsemi Impru nýsköpunarmiðstöðvar og niðurstöður könnunar á árangri af verkefninu Átak til atvinnusköpunar.
Meira
ÍSLAND vakti mikla athygli á ráðstefnunni SNW Europe 2006 sem haldin var nýlega í Frankfurt og Data Íslandi sótti. Í tilkynningu frá Data Íslandi segir að samkeppnishæfni íslenskrar upplýsingatækni á alþjóðlegum markaði hafi m.a.
Meira
Karlmenn taka áhættu, fjárfesta meira og líta svo á að þeir viti langmest um hlutabréf. Engu að síður skila hlutabréfafestingar kvenna meiri arðsemi en karla.
Meira
KFW BANKENGRUPPE bætti tveimur milljörðum við útgáfu sína á krónubréfum í vikunni og er heildarútgáfa Kfw komin í 78 milljarða króna sem er litlu minna en stærð ríkisbréfaflokka Lánasýslu Íslands.
Meira
FYRIRTÆKIÐ Nordic eMarketing stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu og fagsýningu, RIMC 2006, dagana 2. og 3. nóvember nk., í samvinnu við Leit.is, Viðskiptablaðið, Útflutningsráð Íslands og Chris Sherman, aðalritstjóri SearchEngineWatch.com.
Meira
GENGI hlutabréfa Avion Group er nú um 35% lægra en það var í lok fyrsta viðskiptadags félagsins í Kauphöll Íslands hinn 20. janúar síðastliðinn. Stór hluti af þessari lækkun varð síðastliðinn mánudag.
Meira
MEIRIHLUTI íslenskra fyrirtækja metur ekki frammistöðu starfsfólks eða stjórnenda með formlegum hætti. Útbreiðsla slíks mats er mun minni hér á landi en í samanburðarlöndum.
Meira
LÖGMÁLIÐ um eftirspurn er eitt af grundvallarlögmálum hagfræðinnar. Það segir að eftir því sem verð á gæðum, þ.e. vöru eða þjónustu, hækkar því meira dregst eftirspurn eftir þeim saman og eftir því sem verð lækkar eykst eftirspurn.
Meira
Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is RITZAU-FRÉTTASTOFAN í Danmörku ætlar ekki að selja Nyhedsavisen aðgang að fréttum sínum en fréttastofan er í sameiginlegri eigu danskra áskriftarblaða sem einnig gefa út fríblöðin Dato og 24timer.
Meira
GUÐMUNDUR A. Guðmundsson hefur verið ráðinn markaðs- og sölustjóri Icelandair yfir Bretlands- og Írlandsmarkaði. Guðmundur hefur starfað hjá 365 sem markaðsstjóri yfir ungmiðlum sem heyra undir Sirkus.
Meira
SALA nýs húsnæðis í Bandaríkjunum jókst um 4,1% í ágúst samkvæmt opinberum tölum og kom hækkunin sérfræðingum í opna skjöldu, að því er fréttavefur BBC greinir frá.
Meira
Promens hf., dótturfélag Atorku Group, hefur ákveðið að reisa nýja hverfisteypuverksmiðju í Póllandi til framleiðslu á vörum úr plasti. Framkvæmdir hefjast innan fárra vikna og fyrirhugað er að hún taki til starfa á miðju næsta ári.
Meira
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti sína fyrir nokkru um 50 punkta og eru vextirnir nú 14,0%. Með þessum hætti hljómuðu víða fréttir af síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans.
Meira
HÆGT hefur meira á í bandaríska hagkerfinu en menn áttu von á og nýjar hagtölur sýna að kaup Bandaríkjamanna á varanlegum neysluvörum hafi dregist saman.
Meira
Skýrslutæknifélag Íslands stendur fyrir vefráðstefnu í dag, fimmtudag, frá kl. 13 til 16, á Grand hóteli í Reykjavík, undir yfirskriftinni Sátt og samstarf.
Meira
EF AF VERÐUR myndi sérstakur heildsölubanki á vegum Íbúðalánsjóðs (ÍLS) vera fjármagnaður með útgáfu sérvarinna skuldabréfa. Þannig yrði fjármögnunin án ríkisábyrgðar en rætt hefur verið um að hún kynni að stríða gegn reglum EES-samningsins.
Meira
SAMTÖK verslunar og þjónustu (SVÞ) vara að gefnu tilefni við fulltrúum erlendra fyrirtækjaskráa, sem sett hafa sig í samband við íslensk fyrirtæki og leita eftir staðfestingu á upplýsingum um viðkomandi fyrirtæki.
Meira
VERÐLAUNA- og útgáfuhátíð CoolBrands verður haldin í Borgarleikhúsinu í dag. Þá verða verðlaunuð þau vörumerki sem hlutu flest atkvæði sem svölustu vörumerkin á Íslandi í kosningu sem fór fram á Netinu, en alls tóku um 2.
Meira
TAP bresku verslanakeðjunnar House of Fraser nam 9,3 milljónum punda fyrir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins, samkvæmt tilkynningu sem keðjan sendi Kauphöllinni í London í gær. Þetta samsvarar rúmum 1,2 milljörðum króna.
Meira
BÚIST er við því að Universal Music, stærsta tónlistarfyrirtæki heims, og WPP, einn stærsti auglýsingarisinn í heiminum, muni á næstunni tilkynna um stofnun sameiginlegs fyrirtækis.
Meira
Árlega hefur verið úthlutað á bilinu 40-60 milljónum króna á vegum verkefnisins Átak til atvinnusköpunar, sem rekið er á Impru nýsköpunarmiðstöð.
Meira
Eftir Svönu Helenu Björnsdóttur svana@stiki.is Eflum hátæknimenntun, styðjum við nýsköpun, flytjum út íslenskt hugvit. Allt eru þetta setningar sem við höfum heyrt, jafnt frá stjórnmálamönnum, skólamönnum og einkafyrirtækjum.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.