Í Alþjóðahúsinu eru útlendingar aðstoðaðir við að komast inn í íslenzkt samfélag. Framkvæmdastjóri þess, Einar Skúlason, segir alltof mörg mál í tengslum við innflytjendur í ólestri hjá okkur. Freysteinn Jóhannsson talaði við hann.
Meira
Ballaðan um Bubba Morthens eftir Jón Atla Jónasson er saga drengs sem er að verða maður, manni með nefið fullt af kóki að meika það í útlöndum, hljómsveit sem langar að brjótast úr úr bílskúrnum og skjótast upp til stjarnanna.
Meira
BÍLAUMBOÐIÐ Brimborg er byrjað að blogga og telur Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, að það sé fyrst íslenskra fyrirtækja til að nota bloggið sem samskiptaleið.
Meira
REYKJAVÍKURBORG hefur verið dæmd til að greiða 2/3 hluta kostnaðar vegna slyss sem níu ára gömul stúlka, nemandi við Rimaskóla, varð fyrir þegar hún rann í möl við steinsteyptar tröppur við aðalinngang skólans og skall með andlitið á tröppurnar með þeim...
Meira
Íslenskur læknir, Kristján Skúli Ásgeirsson brjóstaskurðlæknir, starfar við eina elstu og virtustu brjóstamiðstöð í Nottingham í Bretlandi. Hvert er hans álit á stofnun sérstakrar brjóstamiðstöðvar á Íslandi?
Meira
Washington. AP, AFP. | Nýjar deilur um pyntingar eru komnar upp í Bandaríkjunum eftir að Dick Cheney varaforseti lét svo ummælt, að það væri "ekki tiltökumál" þótt manni, sem grunaður væri um hryðjuverk, væri dýft í vatn.
Meira
Í TILEFNI af 120 ára afmæli Landsbankans og 100 ára afmæli Færeyjabanka hafa verið opnaðar skiptisýningar í Færeyjabanka í Þórshöfn og í Landsbankanum í Austurstræti á myndlistarverkum í eigu bankanna.
Meira
ÁRNI Johnsen, fyrrverandi þingmaður og prófkjörsframbjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi telur stjórnvöld ekki hafa gert nóg til að liðsinna þeim nemendum sem hætta námi í framhaldsskólum landsins.
Meira
ÞING Norðurlandaráðs verður að þessu sinni haldið í Kaupmannahöfn og hefst á mánudag með norrænum leiðtogafundi um velferðarsamfélagið og hvernig Norðurlöndin geta þróað það til þess að halda forystu sinni í alþjóðlegri samkeppni.
Meira
MANNFJÖLDI fylgdist með því í Hvalstöðinni í Hvalfirði í gær þegar fjórðu langreyðinni, sem veiðst hefur frá því hvalveiðar hófust að nýju, var landað. Langreyðurin er sú lengsta sem veiðst hefur núna en þykir heldur...
Meira
Innflytjendur á Íslandi | Innflytjendum hefur fjölgað hratt hér á landi á undanförnum árum og dæmi eru um að nemendur af erlendum uppruna séu fjórðungur nemenda í fjölmennum skólum.
Meira
Eftir Guðrúnu Eddu Einarsdóttur gee2@hi.is Háhælaðir skór hafa fylgt mannkyninu í aldir og ekkert lát virðast vera á vinsældum þeirra. Aragrúi af hinum ýmsu tegundum af skóm með háum hælum eru á markaðnum, yfirleitt kvenskóm.
Meira
ÞEIR sem hafa átt leið um Fagradalinn í október hafa eflaust rekið augun í um 120 hreindýr sem þar hafa dvalið í að minnsta kosti mánuð. Skarphéðinn G.
Meira
VINSÆLASTI sjónvarpsþátturinn í Írak um þessar mundir er raunveruleikaþáttur eða kannski öllu heldur sá mesti óraunveruleikaþáttur, sem hugsast getur í þessu stríðshrjáða landi.
Meira
Eftir Helgu Kristínu Einarsdóttur helga@mbl.is Kynbundinn launamunur hefur haldist stöðugur í 16% frá árinu 1994, samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir félagsmálaráðuneytið.
Meira
KONAN sem lést í bílslysinu á Vopnafirði á miðvikudag hét Stefanía A. Sigurjónsdóttir, til heimilis að Kolbeinsgötu 5, Vopnafirði. Hún var fædd 21. júní 1941 og lætur eftir sig fimm...
Meira
NEMENDUM, kennurum og foreldrum barna í Vesturbæjarskóla er nóg boðið vegna ástands skólalóðarinnar sem er orðin eins og slysagildra og hefur borgaryfirvöldum nú verið afhent bréf frá nemendum þar sem farið er fram á úrbætur.
Meira
Eftir Ragnhildi Sverrisdóttur Í FELLASKÓLA í Breiðholti er um fjórðungur nemenda af erlendum ættum og um 60% þeirra hafa verið hér á landi innan við fjögur ár.
Meira
Linh Thuy Vu Duong er 13 ára. Hún kom til Íslands frá Víetnam þegar hún var sjö ára og hóf þá nám í Háteigsskóla. Hún söðlaði síðar um og hóf nám í Fellaskóla í 4. bekk.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík stöðvaði fimm ökumenn í fyrrinótt vegna ölvunaraksturs. Tveir þeirra voru ekki tilbúnir að axla ábyrgð á gerðum sínum gagnvart lögreglunni og reyndu að komast undan.
Meira
STARFSGREINASAMBAND Íslands (SGS) telur óeðlilegt að starfsmenntasjóðir atvinnulífsins, sem ætlaðir séu lægst launaða fólki landsins til menntunar, séu notaðir í jafnríkum mæli og raun ber vitni til styrktar íslenskukennslu útlendinga.
Meira
ENN er auð jörð sunnanlands þótt snjóað hafi fyrir norðan. Í lífi skógarþrastarins, eins og væntanlega margra annarra dýra, gengur allt út á að byggja sig upp og fita fyrir komandi vetur svo hann geti lifað af harðari daga sem vafalaust munu koma.
Meira
Tatjana Latinovic er Serbi frá Króatíu og Íslendingur til tólf ára. Hún situr í nýskipuðu innflytjendaráði og í stjórnum Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, Alþjóðahússins og Kvennaathvarfsins. Freysteinn Jóhannsson hitti hana að máli og auðvitað í Alþjóðahúsinu.
Meira
Þetta er stund sem ég hef beðið eftir. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra þegar fyrsti hvalurinn hafði verið dreginn á land í Hvalfirði eftir 20 ára hlé. Mér líður vel hér.
Meira
Beirut. AFP. | Því var haldið fram í gær í breska blaðinu Independent , að mikil geislun væri á þeim svæðum í Líbanon, sem orðið hefðu fyrir sprengjuárásum Ísraela.
Meira
TEKIST hefur samkomulag með Evrópusambandinu, ESB, Norðmönnum, Íslendingum og Færeyingum um kolmunnakvótann á næsta ári, að því er sagði í yfirlýsingu frá framkvæmdastjórn ESB. Heildarkvótinn á næsta ári verður 1,7 millj. tonn en hann var tvær millj.
Meira
Svipmynd | Þegar allt lék í lyndi kallaði Paul McCartney Heather Mills hjartadrottninguna sína, en nú blasir við hatrammur skilnaður. Erlent | Hosni Mubarak hefur verið við völd í Egyptalandi í aldarfjórðung.
Meira
ÞÓRARINN Egill Sveinsson, Lyngbrekku 4, Kópavogi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi. Prófkjörið fer fram laugardaginn 4. nóv.
Meira
31. október 1976 : "Vera má að starf verðbólgunefndarinnar, sem nú er að taka til höndum verði til þess að gefa nokkra vísbendingu um í hvaða farveg unnt er að beina kjarasamningum á næsta ári. Það á eftir að koma í ljós.
Meira
Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar Group, hefur byggt upp ásamt Lýði bróður sínum eitt athyglisverðasta matvælafyrirtækið í íslenzkri eigu. Í ræðu, sem hann flutti á aðalfundi Landsambands smábátaeigenda vakti hann m.a.
Meira
Við lok kalda stríðsins voru skiptar skoðanir á meðal þeirra hér á Íslandi sem skipað höfðu sér í fylkingu með Vesturlandaþjóðum í þeirri baráttu hvort efna ætti til allsherjar uppgjörs við kommúnista, sósíalista og aðra þá sem gengið höfðu erinda...
Meira
Það er erfitt fyrir lýðræðisríki að standa í stríðsrekstri. Bandaríkin eru glöggt dæmi um það. Nýjar skoðanakannanir benda til að Bush forseti og flokkur hans muni tapa þingkosningunum í nóvember. Þegar Lyndon B.
Meira
BRESKI leikarinn Sacha Baron Cohen, í gervi kasakska sjónvarpsmannsins Borats, var viðstaddur frumsýningu myndar sinnar Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit the Glorious Nation of Kazakhstan í heimalandi þess fyrrnefnda á miðvikudaginn.
Meira
Stórleikkonan Dame Elizabeth Taylor hefur neitað orðrómi þess efnis að hún hyggist ganga í hnapphelduna í níunda skiptið. Hin 74 ára gamla Hollywood-stjarna, sem giftist m.a.
Meira
Hollywood-leikarinn og leikarasonurinn Emilio Estevez var staddur í London á dögunum til að kynna nýjustu mynd sína, en hún fjallar um morðið á þingmanninum Robert Kennedy og skartar Demi Moore , Martin Sheen , Christian Slater og Anthony Hopkins .
Meira
Í viðtali við Reuters-fréttastofuna sagði spænska þokkagyðjan Penelope Cruz að hlutverk sitt í nýjustu mynd spænska leikstjórans Pedros Almodovars , Volver , væri það erfiðasta sem hún hefði tekist á við til þessa.
Meira
Hvernig yrði þér við það, lesandi góður, að vakna við það á afmælisdaginn þinn að flokkur bleikra flamingófugla hefði tekið sér bólfestu í garðinum þínum? Það upplifði kona nokkur í Brook Park í Ohio á 49 ára afmælisdaginn sinn, 16.
Meira
Hjónakornunum Britney Spears og Kevin Federline hefur hingað til tekist að halda nafni hins nýfædda sonar síns leyndu fyrir fjölmiðlum og hafa margir velt því fyrir sér hvort sá nýfæddi heiti yfirhöfuð nokkuð.
Meira
Lög eru ýmist eftir Margréti Kristínu Sigurðardóttur, Birki Rafn Gíslason eða Jökul Jörgensen, saman eða í sitt hverju lagi. Margrét syngur, leikur á píanó, harmoníum og shruti box. Birkir leikur á gítara og hljóð og syngur.
Meira
eftir Peter Quilter í þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Leikmynd: Frosti Friðriksson. Búningar: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir. Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson. Tónlistarstjórn: Jóhann G. Jóhannsson.
Meira
Því var fjarri að ég hafi botnað umræðuefnið í síðasta pistli sem ég lauk með því að minna á arfinn dýra frá Forn-Grikkjum, að málfræðin væri byggingarmeistari tungumálsins.
Meira
Í DAG ræðir rithöfundurinn Pétur Gunnarsson við gesti á Gljúfrasteini um Brekkukotsannál Halldórs Laxness, en um er að ræða annað stofuspjall haustsins í tengslum við opna leshringinn Verk mánaðarins.
Meira
Söngkonan og mjaðmahristarinn Shakira og Antonio de la Rua , sonur fyrrverandi forseta Argentínu, hafa rætt um að ganga í hjónaband en ætla þó að bíða um sinn.
Meira
ÞÆR Ingunn Ósk Sturludóttir mezzósópran og Guðrún Anna Tómasdóttir píanóleikari hafa starfað saman um árabil og haldið tónleika saman hér heima og erlendis.
Meira
Gunnlaugur Björnsson fjallar um rannsóknir á áhrifum háspennulína, spennistöðva og fjarskiptamastra á mannslíkamann: "Engar vísbendingar eru um að rafsegulgeislun sem fylgir notkun venjulegra heimilistækja og farsíma, þar með talin fjarskiptamöstur, hafi skaðleg áhrif á mannslíkamann af nokkru tagi."
Meira
Jakob Frímann Magnússon bendir á nýstárlegar leiðir til tekjuöflunar fyrir ríkissjóð varðandi höfundarverk: "Það er þó tækifærið til að laða hingað tekjuhæstu alþjóðlegu höfunda samtímans sem gerir þennan kost að því stóra sóknarfæri til nýrrar tekjuöflunar..."
Meira
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir frá tilraunaverkefni um rekstur framhaldsskóladeildar fyrir Tálknafjarðarhrepp og Vesturbyggð: "Athuganir meðal ungmenna á svæðinu sýna að hlutfallslega fleiri þeirra sem gátu hafið nám i heimbyggð ljúka framhaldsnámi en hinna sem ekki áttu kost á því."
Meira
Jóhanna Sigurðardóttir fjallar um stefnu Samfylkingarinnar í náttúruverndarmálum: "Skapaðar eru nýjar leikreglur í samræmi við verðmæti náttúrunnar."
Meira
Frá Bjarna Þór Bjarnasyni,: "27. JÚNÍ sl. birtist viðtal í Blaðinu við Örlyg Hálfdánarson, bókaútgefanda. Yfirskrift þessa viðtals er: "Nýtt andlit á Lækjartorg." í viðtalinu segir m.a. að ákveðið hafi verið að rífa Hafnarstræti 20, hús Strætisvagna Reykjavíkur."
Meira
Frá Einari Þorbergssyni: "ÞAÐ ER aumt til þess að vita að þegar menn eru orðnir rökþrota þá taka þeir upp á þeim leiða sið að "sakbenda", hæðast að, gera lítið úr verkum annarra, já og/eða láta rökleysu sína bitna á aðstandendum þeirra sem koma skal höggi á (sbr."
Meira
Gerður Aagot Árnadóttir og Friðrik Sigurðsson fjalla um málefni fólks með þroskahömlun: "Landssamtökin Þroskahjálp skora á Alþingi Íslendinga að endurskoða fyrirliggjandi frumvarp til fjárlaga næsta árs og tryggja það að fólk með þroskahömlun njóti sambærilegra lífsgæða og tækifæra og annað fólk."
Meira
Frá Guðríði B. Helgadóttur: "TALSMAÐUR Kárahnjúkavirkjunar sagði menn þar eystra sára og niðurlægða! Og enginn varð hissa. Einhver hefði kannski aumkast yfir þessa vesalinga, ef um leið hefði mátt merkja iðrun og eftirsjá."
Meira
Ásta R. Jóhannesdóttir skrifar um heilbrigðismál: "Er ríkisstjórnin að senda þau skilaboð að forgangsraða eigi sjúklingum eftir þeim sjúkdómum sem þeir eru haldnir eða jafnvel eftir aldri?"
Meira
Flókagata NÚ FYRIR nokkrum árum, þegar Hringbrautin var flutt, var umferð að gamla Austurbænum beint um Flókagötu. Var þá um nokkurra mánaða skeið mikil umferð hér um götuna og oft hálfgert öngþveiti.
Meira
Sonja B. Jónsdóttir fjallar um þjóðmál: "Ójöfnuður og misskipting hefur aukist svo mikið hér á landi í tíð núverandi ríkisstjórnar að engin dæmi eru um annað eins."
Meira
G. Heiðar Guðnason fjallar um trúmál, Siðmennt og Vinaleið þjóðkirkjunnar: "Veitum og kennum börnunum okkar fagnaðarerindið um Krist, kennum þeim að Kristur vilji vera vinur þeirra og veita von og styrk í gegnum súrt og sætt."
Meira
Linda Björk Ólafsdóttir fjallar um mikilvægi listsköpunar fyrir börn og málþing þar að lútandi: "Skapandi starf í leikskóla felst í að leika með efnivið sem hentar börnum og vinna með þeirra hugmyndir og áhuga."
Meira
Anna Jakobína Guðjónsdóttir fæddist í Skjaldarbjarnarvík á Ströndum hinn 6. október 1913. Hún lést á dvalarheimilinu Höfða 4. október síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Akraneskirkju 13. október.
MeiraKaupa minningabók
Ásgeir Magnússon fæddist að Innri-Fagradal í Saurbæ í Dalasýslu 1. maí 1919. Hann andaðist á líknardeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss hinn 20. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Magnús Halldórsson, f. 5. september 1869, d. 15.
MeiraKaupa minningabók
Katrín Jóna Róbertsdóttir fæddist 4. ágúst 1951. Hún lést á líknardeild Landspítalans 2. október síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Alda Bjarnheiður Jónsdóttir, f. 1. júlí 1931, d. 22. desember 2004, og Róbert Lárusson, f. 1. nóvember 1924.
MeiraKaupa minningabók
Hildur Jónsdóttir er bókbindari, en hún bindur ekki í vélum heldur á gamla mátann með höndunum. Kristján Guðlaugsson heimsótti hana á bókbandsstofuna á Klapparstíg.
Meira
Grétar Þorsteinsson var sjálfkjörinn í embætti forseta ASÍ til næstu tveggja ára. Þá var sjálfkjörið í miðstjórn til tveggja ára. Miðstjórn Björn Snæbjörnsson, Einingu-Iðju (SGS), Finnbjörn A.
Meira
Hagspá Hagdeildar ASÍ fyrir árin 2007 og 2008 gerir ráð fyrir að við lok núverandi stóriðjuframkvæmda nái hagkerfið mjúkri lendingu sem felur í sér að ekki verður harkalegur samdráttur þó verulega hægi á, segir á vefsíðu ASÍ.
Meira
Fjallað er um stöðuna á dönskum vinnumarkaði í nýlegu riti DI sem ber heitið Fuld styrke. Dönum er hugleikið að fjölga fólki á vinnumarkaði og að fá fólk til að vinna meira, svo koma megi Danmörku á fulla ferð.
Meira
Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 22,3 milljarða króna og inn fyrir 29,9 milljarða króna fob (32,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 7,6 milljarða króna.
Meira
"SA sjá enga ástæðu til þess að takmarka aðgang rúmenskra og búlgarskra ríkisborgara að íslenskum vinnumarkaði í kjölfar þess að umrædd ríki gerast aðilar að ESB og EES um næstu áramót." Þetta kemur fram á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins, www.
Meira
Atvinnuleysishlutfall mælist nú 1,0 prósent og hefur ekki mælst svo lágt síðan í september 2001. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi reiknast nú 1,2 prósent og hefur lækkað um 0,1 prósent frá fyrra mánuði.
Meira
Hér á landi er um þessar mundir staddur frumkvöðull á sviði brjóstakrabbameinslækninga, breski prófessorinn Roger Blamey, sem er varaforseti EUSOMA (European Society of Mastology). Hann hélt fyrirlestur sl.
Meira
Þrátt fyrir ungan aldur er leiklistarferill Heru Hilmarsdóttur kominn á góðan rekspöl. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við leikkonuna ungu sem um þessar mundir leikur eitt af aðalhlutverkunum í næstu mynd Guðnýjar Halldórsdóttur.
Meira
Árlega greinast um 180 konur á Íslandi með brjóstakrabbamein og mun fleiri konur leita læknis vegna annarra brjóstameina. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við hjúkrunarfræðingana Herdísi Jónasdóttur og Ingibjörgu Hreiðarsdóttur um hugmyndir þeirra að íslenskri brjóstmeinamiðstöð.
Meira
Lífið er tarantella segir á einum stað og víst er að allt er þar á hverfanda hveli. Viðmið sem áður þóttu góð og gild breytast, tímans tönn nagar þau og í þeirra stað koma upp önnur sem líka eru strax í stórhættu fyrir umræddri tönn.
Meira
Kormákur Geirharðsson og Skjöldur Sigurjónsson reka eina fjölsóttustu krá höfuðborgarinnar en færa nú út kvíarnar og opna á næstunni nýjan veitinga- og skemmtistað og enska herrafataverslun að auki.
Meira
Þegar jafn kalt er í veðri og undanfarna morgna er gott að orna sér við sumarvolgar minningar. Til dæmis þegar maður er að paufast um í myrkrinu sem ólaunaður aðstoðarmaður sonar síns við blaðburð mili klukkan sex og sjö.
Meira
Á þjóðdeildinni á Þjóðarbókhlöðunni eru læstar dyr. Töskur eru skildar eftir fyrir utan. Inni sitja fræðimenn niðursokknir í hugsanir Íslendinga fyrr á öldum. Þeir lifa innan um löngu horfið fólk; hugsanir á blaði eini vottur um tilvist þess.
Meira
George W. Bush Bandaríkja-forseti sagði á miðvikudaginn að hann væri ekki sáttur við á-standið í Írak. Hann sagðist hafa á-hyggjur eins og aðrir Bandaríkja-menn út af því að of-beldið vex í landinu.
Meira
Undanfarin ár hafa nemendur Söngskólans í Reykjavík vakið athygli borgarbúa og nágranna á því fjölbreytta sönglífi sem á sér rætur í tónlistarskólum landsins.
Meira
sigurdur.aegisson@kirkjan.is: "Um 70 árum eftir út komu Aldamótabiblíunnar leit ný útgáfa Heilagrar ritningar dagsins ljós. Sigurður Ægisson fjallar um hana í þessum pistli og lýkur með því, í bili a.m.k., umfjöllun sinni um útgáfusögu íslensku Biblíunnar."
Meira
SINN er siður í landi hverju. Ég hef tekið eftir því að fjölmiðlar vilja tileinka sér ákveðið sérkenni, sem er eins konar vörumerki, og því rótgrónari sem fyrirtækin eru, því meira áberandi er siðurinn, sem í sumum tilvikum mætti hreinlega kalla ósið.
Meira
Sagt var: Eitt þeirra raka sem til er gripið. RÉTT VÆRI: Ein þeirra raka sem... (Orðið rök í merkingunni röksemdir er ekki til í eintölu.) BETUR HEFÐI FARIÐ: Meðal þeirra raka... Eða : Ein þeirra...
Meira
Hvalur 9 heldur sig á miðunum út af Reykja-nesi og veiðir hverja lang-reyðina á fætur annari. Mót-mæli halda áfram að streyma inn til í-slenskra stjórn-valda vegna þeirrar á-kvörðunar að hefja hval-veiðar í atvinnu-skyni.
Meira
Þjóð-skjala-safn Íslands hefur birt skjöl á vef sínum um sím-hleranir á árunum 1949-1968, vegna "hins mikla á-huga al-mennings á að-gangi að skjölunum". Persónu-greinanlegar upp-lýsingar um þá sem hlerað var hjá hafa verið af-máðar. Guðni Th.
Meira
Eiður Smári Guðjohnsen skoraði bæði mörk Evrópu- og Spánar-meistara Barcelona í leik þeirra á móti 3. deildar-liðinu Badalona á miðviku-daginn. Barcelona vann leikinn 1:2, en hann er sá fyrri af tveimur í 32-liða úr-slitum spænsku bikar-keppninnar.
Meira
1 Barna- og unglingageðdeildin (BUGL) hefur fengið góðan stuðning eða 20 milljónir næstu 4 árin. Annar styrktaraðilinn er FL Group en hver er hinn? 2 Ben Bradshaw kallaði sendiherra Íslands í London fyrir sig út af hvalveiðimálum. Hver er sendiherrann?
Meira
Jörundur til Breika-bliks Breiða-blik samdi til 3 ára við Jörund Áka Sveinsson um þjálfun meistara-flokks kvenna í knatt-spyrnu. Þær urðu Íslands-meistarar með Jörundi árin 2000 og 2001 og hann varð einnig bikar-meistari með sama liði árin 1998 og 2000.
Meira
Um 30% nem-enda í 10. bekkjum grunn-skóla landsins vinna meira en hálfan vinnu-dag á viku í laun-uðu starfi. Hlut-fall þeirra sem vinna 15 klukku-stundir á viku eða meira hefur hækkað.
Meira
Atvinnubílstjórar hafa vakið athygli Víkverja á þjóðvegum landsins. Það eru ótrúlega margir sem eru með "aðra hönd" stýri og með símann við eyrað í hinni hendinni.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.