Mývatnssveit | Baðfélag Mývatnssveitar fagnaði í gær 60 þúsundasta gestinum á árinu, sem var Ólafur H. Jónsson formaður Landeigendafélags Reykjahlíðar.
Meira
BÆJARRÁÐ Hveragerðisbæjar hefur þungar áhyggjur af stöðu og framtíð garðyrkjumenntunar að Reykjum í Ölfusi, að því er fram kemur í samþykkt ráðsins.
Meira
PÉTUR H. Blöndal alþingismaður sagði að listinn sem hefði komið fram í prófkjörinu væri sterkur en því væri á hinn bóginn ekki að neita að hann hefði orðið fyrir ákveðnum vonbrigðum með að hafa lent í 6. sæti en hann stefndi á það þriðja.
Meira
GRAZYNA María Okuniewska hjúkrunarfræðingur lenti í 12. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík og sagðist hún vera afar ánægð með þá niðurstöðu.
Meira
EINN slasaðist alvarlega og tvennt minniháttar eftir bílslys nærri Kirkjubæjarklaustri í gærkvöldi. Voru þau flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Reykjavík.
Meira
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is BJÖRN Bjarnason, dómsmálaráðherra, telur sig hafa unnið varnarsigur eftir harða sókn að sér utan flokks og innan.
Meira
NOKKUÐ er komið af bóluefni við inflúensu hingað til lands. Treglega hefur gengið að rækta þá stofna veirunnar sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur mælt með að ræktaðir séu og því er magn bóluefnisins ekki mikið.
Meira
STÓRUM malarflutningabíl, svokallaðari búkollu, var stolið í nágrenni IKEA í Garðabæ í fyrrinótt og fannst hún yfirgefin fyrir austan Heiðmörk um miðjan dag í gær.
Meira
MAÐUR drukknaði í sundlaug Selfoss á fimmtudagskvöld í síðustu viku. Ekki er á þessari stundu ljóst hverjar orsakir slyssins voru en málið er í rannsókn hjá lögreglunni á Selfossi, sem varðist allra frétta af málinu að öðru...
Meira
HVALVEIÐISKIPIÐ Hvalur 9 veiddi fimmtu langreyðina, sem veiðst hefur frá því hvalveiðar hófust að nýju, um klukkan eitt í gærdag. Dýrið, sem er tarfur, veiddist á svipuðum stað vestur af Snæfellsnesi og síðasta dýr.
Meira
GESTUR Svavarsson gefur kost á sér í 2.-3. sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í sameiginlegu forvali flokksins í Suðvesturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmunum tveimur.
Meira
GLITNIR gekk nýlega frá samningi um að gerast aðalstyrktaraðili Kaupmannahafnarmaraþonsins og því munu hlauparar þreyta Glitnismaraþon í þremur af fimm höfuðborgum Norðurlanda á næsta ári.
Meira
GEIR H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir listann sem valinn var í prófkjöri sjálfstæðismanna sterkan og sigurstranglegan. Hann telur ekki að kosningabaráttan hafi verið harðari en venja er til.
Meira
GRÁHEGRI er sérstakur fugl sem mörgum finnst skrýtið að sjá í íslenskri fuglafánu. Þessi sást nærri Akranesi í gær og átti hann í nokkrum útistöðum við fimm hrafna.
Meira
Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is GUÐBJARTUR Hannesson, skólastjóri á Akranesi, sigraði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi vegna þingkosninganna næsta vor, sem haldið var um helgina en hann hlaut 477 atkvæði í fyrsta sæti listans.
Meira
ÁSTA Möller alþingismaður sagði listann sterkan og Sjálfstæðisflokkurinn væri svo sannarlega fullsæmdur af því að bjóða hann fram við næstu kosningar. Hún hefði þó viljað að konur næðu betri árangri í prófkjörinu. Ásta bauð sig fram í 3.
Meira
HLYNUR Hallsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns - framboðs í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar vorið 2007.
Meira
SIGRÍÐUR Ásthildur Andersen er ánægð með 10. sætið þó hún hefði raunar stefnt á 5.-7. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hún benti á að flestir hefðu stefnt á sæti ofar á listanum en þeir síðan náðu.
Meira
JÓHANN Björnsson gefur kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu vegna komandi alþingiskosninga og stefnir á 2. sæti.
Meira
Jerúsalem. AFP. | Moshe Katsav, forseti Ísraels, ætti að láta af embætti um stundarsakir vegna þess, að hann verður hugsanlega dæmdur fyrir nauðgun. Kom þetta fram í gær hjá ríkissaksóknara Ísraels.
Meira
Þau mistök urðu í hnotskurn sem fylgdi frétt Morgunblaðsins á laugardag um gerð kjarasamninga hjá smábátaeigendum, að Landssamband smábátaeigenda var ranglega sagt heita Landssamtök sjómanna. Þetta leiðréttist hér...
Meira
Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur gve@ismennt.is ÁSA Hlín Svavarsdóttir leikkona söðlaði um í lífinu, flutti úr 101 Reykjavík þar sem hún hafði búið frá tvítugsaldri, og upp í Borgarnes fyrr á þessu ári.
Meira
Brasilíu. AFP. | Þegar talin höfðu verið um 80% atkvæða í síðari umferð forsetakosninganna í Brasilíu í gær var ljóst, að Luiz Inacio Lula da Silva, núverandi forseti, hafði unnið stórsigur.
Meira
Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is MAÐUR á fertugsaldri lést í gærmorgun þegar eldur kom upp í raðhúsi við Heiðarhraun í Grindavík en tvær fimmtán ára stúlkur sem voru í húsinu komust út. Tilkynning um eldsvoðann barst á áttunda tímanum í...
Meira
Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is TÖLUVERT var um umferðaróhöpp um helgina sem rekja má til hálku á vegum landsins og urðu að minnsta kosti sjö bílveltur auk annarra minniháttar óhappa.
Meira
SVO miklar breytingar hafa orðið á veðurfari í Afríku, að líklegt er, að þær muni gera að engu tilraunir til að draga úr fátækt þar. Kemur þetta fram í nýrri skýrslu nokkurra umhverfis- og hjálparsamtaka.
Meira
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is RÚMLEGA helmingur eða 50,88% þeirra sem eru á kjörskrá Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík greiddu atkvæði í prófkjöri flokksins á föstudag og laugardag.
Meira
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is SKÝRAR reglur og markmið skortir hér á landi um ávísun sýklalyfja, sér í lagi hjá börnum. Þetta er mat Vilhjálms Ara Arasonar, doktors í heimilislæknisfræði.
Meira
SIGURÐUR Kári Kristjánsson, alþingismaður, hafnaði í 8. sæti sem er talsvert lakari árangur en hann stefndi að en hann sóttist eftir 4. sætinu. Í prófkjörinu fyrir fjórum árum náði hann 7. sæti.
Meira
FÉLAG forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða við Háskóla Íslands standa fyrir morgunmálþingi á Grand hóteli í Reykjavík á morgun kl. 8.15-10.15.
Meira
Sofíu. AP, AFP. | Georgy Parvanov, forseti Búlgaríu, vann stórsigur í síðari umferð forsetakosninganna í landinu í gær. Í þeim atti hann kappi við Volen Siderov, öfgafullan þjóðernissinna.
Meira
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is SUMARIÐ var töluvert erfitt heyskaparsumar og hefði verið kallað óþurrkasumar í gamla daga, að sögn Ólafs R. Dýrmundssonar, ráðunautar hjá Bændasamtökum Íslands.
Meira
ANNA Kristín Gunnarsdóttir, þingmaður, lenti í þriðja sæti í prófkjörinu og segir hún að niðurstaðan sé vonbrigði fyrir sig, enda hafi hún sóst eftir 1.-2. sæti. "Þetta eru ákveðin vonbrigði fyrir mig, það er ekki hægt að neita því," segir...
Meira
KÍNVERJAR eru staðráðnir í að standa vel að Sumarólympíuleikunum, sem haldnir verða í Peking 2008, og auglýstu í því skyni eftir sjálfboðaliðum til að vinna að undirbúningi þeirra. Stóð ekki á viðbrögðunum því að tugþúsundir manna gáfu sig fram.
Meira
Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is MARÍA Ellingsen, stjórnarmaður í samtökunum Framtíðarlandið, segir að samtökin muni bjóða fram til Alþingis í vor, losi stjórnvöld sig ekki úr hjólförum stóriðjustefnunnar.
Meira
KARL V. Matthíasson, prestur og fyrrverandi þingmaður, hafnaði í öðru sæti listans og segist hann vera glaður og þakklátur fyrir þann stuðning sem hann hlaut.
Meira
DAVID Miliband, umhverfisráðherra Bretlands, staðfesti í gær, að ríkisstjórnin hefði til athugunar að setja á svokallaða "græna skatta" til að berjast gegn mengun og alvarlegum loftslagsbreytingum af hennar völdum.
Meira
GUÐBJARTUR Hannesson skólastjóri sigraði í prófkjörinu og var að vonum kátur með niðurstöðuna. "Ég er mjög ánægður enda voru það fimm sem sóttust eftir fyrsta sætinu og allt úrvalsfólk þannig að ég get ekki verið annað en sáttur," segir hann.
Meira
Samgönguráðherra hefur skipað Pétur K. Maack í embætti flugmálastjóra frá 1. janúar 2007. Í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu kemur fram að Pétur hefur í tæpan áratug starfað sem framkvæmdastjóri flugöryggissviðs Flugmálastjórnar Íslands.
Meira
Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is ELDUR kom upp í þvottarými á fjölveiðiskipinu Beiti NK á sjötta tímanum á laugardaginn en skipverjar náðu að ráða niðurlögum eldsins og varð engum meint af.
Meira
Þórshöfn | Mikil stakkaskipti hafa orðið í verslunarmálum á Þórshöfn síðan verslunarkeðjan Samkaup opnaði hér matvöruverslun fyrir rúmum mánuði, eftir gjaldþrot verslunarinnar Lónsins.
Meira
DÖGG Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður sagðist hafa verið undir það búin að hún gæti lent í 10. sæti eða þar um bil og hún væri því ágætlega sátt við 11. sætið í prófkjörinu. Dögg benti á að níu manns hefðu stefnt að sætunum fyrir ofan hana á listanum.
Meira
STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands fagnar þeirri tillögu ríkisstjórnarinnar að virðisaukaskattur verði lækkaður á bókum, blöðum og tímaritum úr 14% niður í 7%.
Meira
STEFÁN Karl Stefánsson leikari og Nýherji bjóða upp á fyrirlestur í grunnskólum landsins 7. nóvember nk. Þetta er óvenjulegur fyrirlestur, en sent er beint út frá Los Angeles þar sem Stefán Karl er búsettur.
Meira
"HVAÐ sjálfan mig varðar þá hækka ég mig frá síðasta prófkjöri og bæti við mig í atkvæðafjölda og prósentum. Ég stefndi auðvitað hærra og hefði viljað fara ofar á listann.
Meira
Abuja. AP, AFP. | Óttast var, að um 100 manns hefðu farist er nígerísk farþegaþota hrapaði til jarðar í vondu veðri rétt eftir flugtak í Abuja, höfuðborg Nígeríu, í gær.
Meira
TAMMY Simone Axelsson hafði mikla yfirburði í bæjarstjórakosningu í "Íslendingabænum" Gimli í Kanada fyrir helgi og auk fráfarandi bæjarstjóra var bæjarstjórn undanfarið kjörtímabil hafnað.
Meira
TILRAUN var gerð til nauðgunar á veitingastað í Reykjavík aðfaranótt sunnudagsins. Um var að ræða hóp útlendinga sem gerði sig líklegan til nauðgunar inni á veitingastaðnum.
Meira
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra telur sig hafa unnið góðan varnarsigur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, eftir harða sókn gegn sér innan og utan flokksins.
Meira
VATNSLEKI kom upp á Smáratorgi í gærmorgun og lak inn í þrjár verslanir í húsinu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði Reykjavíkur stafaði lekinn af því að vatnslögn í lofti gaf sig.
Meira
ILLUGI Gunnarsson, hagfræðingur og fyrrverandi aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar, náði 5. sætinu í prófkjörinu sem hlýtur að teljast afar góður árangur í ljósi þess að hann hefur ekki áður tekið þátt í prófkjöri. Þó hann hafi stefnt á 5.
Meira
Einn hógværasti en jafnframt einn vandaðasti listamaður þjóðarinnar er Halldór Haraldsson, píanóleikari. Það var skemmtilegt að hlusta á hann lýsa því í samtali við Jónas Sen í sjónvarpinu í gærkvöldi hvers vegna hann fór að læra á píanó.
Meira
Um þessar mundir eru 125 ár síðan Nýja Ísland sameinaðist formlega Manitobafylki í Kanada og af því tilefni var viðamikil menningardagskrá í Nýja Íslandi um liðna helgi. Steinþór Guðbjartsson fylgdist með viðburðum.
Meira
Höfundur: David Gieselmann, þýðandi Bjarni Jónsson. Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson, leikmynd og búningar: Íris Eggertsdóttir, lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson, tónlist og hljóðmynd: Hallur Ingólfsson, gervi: Ragna Fossberg.
Meira
Leikstjórinn Hrafn Gunnlaugsson var sérstakur heiðursgestur Internacional de Cine Independiente de Mar del Plata-kvikmyndahátíðarinnar sem fram fór í Argentínu dagana 20.-29. október.
Meira
Gamla kempan Pete Townshend , gítarleikari hljómsveitarinnar Who, strunsaði út úr viðtali við bandaríska útvarpsmanninn Howard Stern á dögunum þegar aðstoðarmaður Sterns, Robin Quivers , minntist á barnaklám, en árið 2003 var Townshend yfirheyrður af...
Meira
Starfsfólk hins gerðarlega Hollywood-stórleikara Brad Pitt heldur því fram að sjónvarpsþáttastjórnandi nokkur og upptökumaður á hans vegum hafi vanvirt friðhelgi heimilis leikarans í leyfisleysi þegar Pitt og fjölskylda hans voru fjarverandi.
Meira
Mexíkóski leikarinn Gael Garcia Bernal hefur gagnrýnt fyrirætlanir um landamæratálma á mótum Bandaríkjanna og Mexíkó og segir ráðstafanirnar fáránlegar.
Meira
Samkvæmt kvikmyndatímaritinu Variety er gamanleikarinn Sacha Baron Cohen , maðurinn á bak við hinn borubratta Ali G og kasakska sjónvarpsmann Borat, þegar farinn að huga að nýrri mynd.
Meira
Það er greinilegt að Bubbi Morthens á marga trygga aðdáendur hérlendis. Tónleikamynddiskur Bubba, 06.06.06 , seldist í næstum 1.000 eintökum fyrstu viku í sölu auk þess sem geislaplata með sama nafni fór strax í fyrsta sæti Tónlistans.
Meira
Einn af ritstjórum tónlistartímaritsins Rolling Stone , David Fricke , heimsótti Iceland Airwaves-tónlistarhátíðina í ár og segist vera hæstánægður með þá listamenn sem hann nefnir í grein sinni "Rolling Stone Goes Native at Airwaves Music...
Meira
NBC-sjónvarpsstöðin hefur tekið ákvörðun um að sýna ekki auglýsingar fyrir heimildamynd sem fjallar um fjaðrafokið í Bandaríkjunum sem varð í kjölfar þess að stúlkurnar í sveitalagapoppsveitinni Dixie Chicks gagnrýndu Georg W. Bush Bandaríkjaforseta.
Meira
ÞAÐ bókstaflega neistaði og rúmlega það af Bill Kaulitz, söngvara þýsku popphljómsveitarinnar Tokio Hotel , á hátíð sem haldin var í Hamburg í síðustu viku í tilefni þess að fimmtíu ár eru liðin frá því að byrjað var að gefa út unglingatímaritið...
Meira
Á MORGUN kl. 12.10 verður boðið upp á leiðsögn Ágústs Georgssonar, þjóðháttafræðings og fyrrverandi forstöðumanns Sjóminjasanfs Íslands, um grunnsýningu Þjóðminjasafns Íslands, þar sem skoðaðir verða gripir í eigu safnsins sem tengjast sjávarháttum.
Meira
eftir Hávar Sigurjónsson, Maríu Reyndal og leikhópinn. Leikstjóri: María Reyndal. Danshöfundur: Lára Stefánsdóttir. Leikmyndar- og ljósahönnun: Egill Ingibergsson og Móeiður Helgadóttir. Búningar: Dýrleif Ýr Örlygsdóttir og Margrét Einarsdóttir.
Meira
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag var gullsmíðasýningin GOLD 2006 opnuð í átjánda sinn Berlín í Þýskalandi. Alla jafna sýna þar einungis gullsmiðir frá Berlín og Norður-Þýskalandi en í ár var Íslandi boðið að vera með sem gestalandi.
Meira
Í TILEFNI þess að bókin Fyrirgefningin: Heimsins fremsta lækning eftir Gerald Jampolsky hefur verið endurútgefin af Eddu útgáfu, mun þýðandi hennar, Guðjón Bergmann, halda fyrirlestur með sama nafni á Grandhótel í Reykjavík á miðvikudaginn klukkan...
Meira
SAMKVÆMT upplýsingum frá framleiðendum heimildamyndarinnar Ekkert mál hafa hátt í 12.000 manns séð myndina í kvikmyndahúsum það sem af er, sem þýðir að hún er orðin langvinsælasta íslenska heimildamyndin frá upphafi.
Meira
Gamanleikurinn Stórfengleg eftir Peter Quilter var frumsýndur á föstudagskvöldið í Þjóðleikhúsinu þar sem Ólafía Hrönn Jónsdóttir er Florence Foster Jenkins ; ein versta söngkona allra tíma.
Meira
UPPFÆRLSA á leikritinu Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen var sýnd við Giza-píramíðana í Egyptalandi síðastliðinn föstudag. Um er að ræða stærsta samstarfsverkefni Norðmanna og Egypta á sviði menningar og voru m.a.
Meira
RAGNHEIÐUR Gröndal, söngkona, gerði góða ferð til Manitoba á dögunum, vakti mikla athygli og tilheyrendur klöppuðu henni lof í lófa fyrir sönginn og píanóleikinn.
Meira
Gagnrýni sem birtist um nýja plötu tónlistarkonunnar Fabúlu í blaðinu á sunnudaginn var eignuð röngum gagnrýnanda. Hið rétta er að Atli Bollason gagnrýndi...
Meira
ÞAU mistök áttu sér stað á dagskrársíðum Morgunblaðsins í gær að þessi mynd af Soffíu Karlsdóttur, kynningarstjóra Listasafns Reykjavíkur, birtist með tilkynningu þar sem fram kom að Soffía Karlsdóttir söngkona væri að gefa úr sinn fyrsta geisladisk.
Meira
GOETHE-stofnunin stendur fyrir sýningu þýsku myndarinnar Sophie Scholl - Die lezten Tage í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns á morgun klukkan 20.00.
Meira
GENGIÐ hefur verið frá samningi um franska útgáfu bókarinnar Tröllakirkju eftir Ólaf Gunnarsson milli JPV útgáfu og franska bókaforlagsins Gaïa édition.
Meira
ÞESSI óvenjulega mynd er tekin á tónleikum sem haldnir voru í Oviedo á Norður-Spáni. Tónleikarnir eru liður í átaki í að gefa börnum innsýn í heim klassískrar...
Meira
Lög og textar eru eftir Togga sem syngur, leikur á kassagítar og stöku rafmagnsgítar. Bjarki leikur á hljómborð, annast forritun og tekur í bassa, rafmagnsgítar og ukulele í nokkrum lögum. Don Pedro hjálpar til við bassa- og rafmagnsgítarleik.
Meira
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir skrifar um sameiningu sjúkrahúsanna: "Ríkisstjórnir eiga að stýra en ekki að róa, og þar eru möguleikar notenda til að velja virkjaðir en ekki vanmetnir."
Meira
Enn um tilvísanakerfi hjartasjúklinga NÚ ER ég búinn að prófa tilvísanakerfið og það virkar bara skolli vel. Héraðslæknirinn minn gaf mér umyrðalaust tilvísun, svo að ég þarf ekki að kvarta til landlæknis. Ég borgaði bara 700 kr.
Meira
Árni Bjarnason skrifar um hvalveiðar: "Það er með hreinum ólíkindum hvernig ýmsir fjölmiðlar, ekki síst þeir opinberu, hafa undanfarna daga ausið gegndarlausum hvalverndunaráróðri yfir þjóðina"
Meira
Glúmur Baldvinsson skrifar um fjölmiðla á Íslandi: "Fjölmiðlar eru fjórða valdið og því er bráðnauðsynlegt að hægt sé að treysta þeim til að fjalla um menn og málefni af hlutleysi og fagmennsku."
Meira
Frá Magnúsi Jónssyni: "NÚ Í aðdraganda að Alþingiskosningum fara fram prófkjör hjá flestum stjórnmálaflokkum, af því tilefni langar mig að benda á nokkra valkosti sem hinn almenni borgari hefur með þátttöku í prófkjöri."
Meira
Baldur Kristjánsson skrifar um innflytjendur á Íslandi og vilja stjórnvalda til að koma til móts við þá: "Sex til átta prósent Íslendinga eru af erlendu bergi brotin."
Meira
Jóhann S. Bogason fjallar um hvalveiðar: "Það er ekki ásættanlegt að ein ríkasta þjóð heims gangi í berhögg við alþjóðasamfélagið, bara til að sanna sjálfstæði sitt."
Meira
Kristjón Kolbeins skrifar um símhleranir á tímum handvirka símans: "Meðan handvirki síminn var allsráðandi voru símhleranir eitt helsta tómstundagaman fólks í dreifbýlinu."
Meira
Jón Atli Kristjánsson fjallar um sjávarútveg og hlutabréfamarkað: "Sjávarútvegurinn þarf að vinna fyrir opnum tjöldum. Þessi grein hefur enn þann sess í íslensku atvinnulífi að hún þarf að ganga upprétt og sækja fram í almennt harðnandi samkeppni."
Meira
Svanur Sigurbjörnsson fjallar um Vinaleið í grunnskólum: "... trúarleg starfsemi, hvort sem hún kallast þjónusta eða trúboð, á ekki rétt á sér innan veggja ríkisrekinna skóla landsins."
Meira
Sigurður Hólm Gunnarsson svarar grein Halldórs Reynissonar um Vinaleið þjóðkirkjunnar: "Siðmennt er einfaldlega þeirrar skoðunar að áróður eigi ekki heima í opinberum skólum, óháð því hvort sá áróður er af pólitískum, trúarlegum eða öðrum toga."
Meira
Anton Kristinn Jósson fæddist í Bolungarvík 8. september 1924. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri hinn 23. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Kristín Margrét Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 7. febrúar 1891, d. 15.
MeiraKaupa minningabók
Gísli Gíslason fæddist á Haugi í Gaulverjabæjarhreppi 30. nóv. 1916. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 23. október síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Margrét Á. Jónsdóttir fæddist á Ísafirði 11. ágúst 1919. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 24. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Albert Þórólfsson kaupmaður á Ísafirði, f. 1. september 1872, d. 18.
MeiraKaupa minningabók
Matthías Jónsson fæddist á Lækjarbotnum í Landsveit 21. september 1918. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 20. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jón Árnason, f. 20.7. 1881, d. 27.12. 1968, og Steinunn Loftsdóttir, f. 16.10. 1879, d. 20.4.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Sigurðardóttir, húsmóðir, fæddist í Reykjavík 25. júlí 1927. Hún lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Hafnarfirði 22. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurður Ólafsson, f. 3. maí 1885, rakarameistari, d. 18.
MeiraKaupa minningabók
Bleikjan er hánorrænn fiskur sagði Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, á ráðstefnu um bleikjueldi fyrir helgina. Hann bætti við að í bleikjunni værum við beztir í heimi, ættum sterkasta mann í heimi, fallegustu konuna og bezta gæðinginn.
Meira
VERÐ sjávarafurða hækkaði mikið í september, eða um 2,4% mælt í erlendri mynt (SDR). Afurðaverðið hefur ekki áður mælst jafn hátt og nú og hefur það hækkað um 7,9% síðustu þrjá mánuði og um 10,1% síðustu tólf mánuði.
Meira
Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is Samkvæmt samkomulagi um veiðar á kolmunna verður íslenskum skipum heimilað að veiða 299.710 tonn árið 2007, sem er 15% lækkun, eða ríflega 50.000 tonnum minna en þau 352.600 tonn sem heimilt er að veiðar í ár.
Meira
Úthlutað heildaraflamark í norsk-íslenskri síld á árinu 2006 er 153.817 lestir. Það er tæplega 4 þúsund lestum minna en leyfilegur heildarafli ársins 2005 sem var 157.700 lestir. Nú hafa íslensk skip veitt rúmlega 155.
Meira
EIMSKIP mun um næstu mánaðamót skipta um heimahöfn í Kanada og fara frá Shelburne til Halifax. Þarna á milli er um fimm klukkustunda akstur á bíl.
Meira
BRESKI kaupsýslumaðurinn Philip Green fær ekki greiddan arð frá tískuvörukeðjunni Arcadia, sem hann á 92% hlut í, vegna rekstrarársins sem lauk í lok ágúst síðastliðinn. Ástæðan er sú að hagnaður keðjunnar var um fimmtungi minni en árið áður.
Meira
EKSTRA BLADET segir í fyrstu grein sinni af fleiri boðuðum um íslenska kaupsýslumenn og íslenskt viðskiptalíf að Kaupþing banki hafi komið sér upp flóknu alþjóðlegu og leynilegu kerfi sem að hluta sé notað til að færa stórar fjárhæðir fram og til baka...
Meira
STJÓRNVÖLD í Suður-Afríku hafa ákveðið að verja sem svarar til um tveggja milljarða Bandaríkjadollara, jafnvirði um 135 milljarða íslenskra króna, vegna undirbúnings heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu sem haldin verður í landinu árið 2010.
Meira
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Það varð vakning varðandi agamál barna og unglinga á tíunda áratugnum á Bandaríkjunum, sem náði hámarki í kjölfar hræðilegra skotárása á samnemendur í nokkrum skólum landsins," segir dr. Jeffrey R.
Meira
Chicago. AP. | Ný rannsókn bendir til þess að grænmeti stuðli að því að heilinn haldist lengur ungur og hægi á andlegri hrörnun sem stundum er rakin til öldrunar.
Meira
HAMINGJA barnanna stendur efst á óskalista foreldra samkvæmt nýrri norskri rannsókn. Öryggi og samvera eru mikilvægir þættir eigi sú ósk að ganga eftir.
Meira
Ekki er til einhlít regla um það hvernig beri að standa að viðhaldi fasteigna því bæði verk og aðstæður eru afar mismunandi. Jóhanna Ingvarsdóttir kynnti sér viðhald húseigna.
Meira
Hrekkjavaka var haldin hátíðleg víða um heim um helgina. Þessi hundur tók þátt í skrúðgöngu í Tókíó og var auðvitað uppáklæddur í graskersbúning til að vera í stíl við...
Meira
Konur sem drekka kóladrykki að staðaldri gætu með því verið að auka hættu á beinþynningu, en samkvæmt niðurstöðu nýlegrar breskrar rannsóknar eru þær konur sem neyta kóladrykkja með minni beinþéttni en aðrar.
Meira
Sævar Ingi litli var skírður á dögunum. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir það að við athöfnina var hann í skínandi fallegum skírnarkjól sem langalangafi hans skrýddist 120 árum áður.
Meira
Yfir vetrarmánuðina, frá september til maí, er gestum boðið upp á fasta leiðsögn um Árbæjarsafn á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum klukkan 13-14.
Meira
Einfalt er best. Á74 Á1053 KD8 Á82 Vestur Austur &spade;8 &spade;10965 &heart;D842 &heart;KG76 ⋄9532 ⋄ÁG10 &klubs;D1054 &klubs;G7 Suður &spade;KDG32 &heart;9 ⋄764 &klubs;K963 Suður spilar 4ª &spade;og fær út hjarta.
Meira
Linda Björk Ólafsdóttir fæddist í Reykjavík 1961. Hún stundaði nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, lauk leikskólakennaragráðu frá Fósturskóla Íslands 1983 og framhaldsnámi í listgreinum frá Kennaraháskóla Íslands 1996.
Meira
1 Arthur Bogason er formaður fjölmennra samtaka í sjávarútvegi. Hvaða samtök eru það? 2 Viktor Bjarki leikmaður ársins í íslensku knattspyrnunni er á leið í atvinnumennskuna. Hver er hann að fara?
Meira
Í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju er sýning í forkirkjunni um tilurð og sögu kirkjunnar sem Borgarskjalasafn hefur sett saman með sóknarnefnd og Listvinafélagi Hallgrímskirkju.
Meira
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir sýning á verkum Þórdísar Aðalsteinsdóttur, ungrar íslenskrar listakonu sem búið hefur og starfað í New York. Málverk Þórdísar eru frásagnarkennd og vekja spurningar um tilfinningar sem lúta að samskiptum fólks.
Meira
Þá eru hvalveiðar hafnar aftur eftir 17 ára hlé og eins og við var að búast, eru skoðanir á þeim dálítið skiptar. Víkverji er gamall hvalveiðimaður, var háseti eitt sumar á Hval 8, og minnist þess með mikilli ánægju.
Meira
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik karla tapaði báðum leikjum sínum í Ungverjalandi - fyrst 39:31 á föstudag og síðan 32:28 í Miskolc á laugardaginn. Eins og í fyrri leiknum var Logi Geirsson markahæstur - skoraði átta mörk.
Meira
TEDDY Sheringham framherji West Ham sýndi og sannaði að allt er fertugum fært en hann skoraði fyrra mark liðsins þegar það lagði Blackburn, 2:1, á Upton Park í gær. Sheringham, sem er 40 ára gamall, skoraði markið með glæsilegri kollspyrnu á 21.
Meira
ÁSTHILDI Helgadóttur, fyrirliða íslenska landsliðsins í knattspyrnu, tókst ekki að að verða markadrottning sænsku úrvalsdeildarinnar en lokaumferðin var leikin í gær.
Meira
HERMANN Hreiðarsson og félagar hans í Charlton innbyrtu sitt fyrsta stig á útivelli á tímabilinu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Newcastle á St.James Park. Þrátt fyrir það situr Charlton í botnsæti deildarinnar með 5 stig en Newcastle er ekki langt undan með 8 stig.
Meira
England Newcastle - Charlton 0:0 - 48,642. Arsenal - Everton 1:1 Robert Van Persie 71. - Tim Cahill 11. - 60,047. Bolton - Man. Utd 0:4 Wayne Rooney 10., 16., Cristiano Ronaldo 82., Wayne Rooney 89. Fulham - Wigan 0:1 Henri Camara 83.
Meira
Eiður Smári Guðjohnsen fékk ágæta dóma í spænskum fjölmiðlum fyrir frammistöðu sína í leiknum við Recreatvio Huelva í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu á laugardagskvöldið.
Meira
Ragna Ingólfsdóttir, Íslandsmeistari í badminton, varð í öðru sæti í einliðaleik kvenna á alþjóðlega ungverska meistaramótinu í Búdapest í gær - tapaði úrslitaviðureigninni fyrir Chie Umezu frá Japan 21:9 og 21:15.
Meira
GRÓTTA vann góðan sigur á Haukum, 27:22, í DHL-deild kvenna í handknattleik á Seltjarnarnesi. Leikurinn var í járnum framan fyrri hálfleik, staðan var jöfn, 8:8, eftir 20 mínútna leik en Gróttukonur sigu fram úr og höfðu 11:8 yfir í leikhléi.
Meira
Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is HALLDÓR Hilmisson, knattspyrnumaður, sem leikið hefur með Þrótti Reykjavík undanfarin ár hefur ákveðið að ganga til liðs við Fylkismenn. Halldór er 29 ára gamall miðjumaður sem lék 17 leiki með Þrótturum í 1.
Meira
ÞAÐ var mikið skorað í stórleik ítölsku knattspyrnunnar um helgina þar sem Inter og AC Milan áttust við í borgarslagnum í Mílanó. Alls voru sjö mörk skoruð í leiknum sem endaði, 4:3, en leikmenn Inter misstu dampinn eftir að hafa komist yfir, 4:1, í baráttuleik á San Síró.
Meira
EINS kröftuglega og KR byrjaði voru Fjölnismenn jafn mikið á hælunum enda skoruðu þeir aðeins 9 stig í fyrsta leikhluta á móti 26 stigum Vesturbæinga þegar liðin mættust í DHL-höll KR-inga í gærkvöldi.
Meira
Fjórða umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik, Iceland Express-deildin, hófst í gær með fjórum leikjum og Íslandsmeistaralið Njarðvíkur heldur áfram sigurför sinni með því að leggja Tindastól að velli, 91:82.
Meira
"ÉG hef sett mér háleit markmið og eitt af þeim er að verða Evrópumeistari á bogahesti," segir fimleikamaðurinn Bjarki Ásgeirsson úr Ármanni sem varð um helgina Norðurlandameistari í æfingum á bogahesti í flokki 13-16 ára.
Meira
ROSENBORG varð Noregsmeistari í 20. sinn í gærkvöldi þegar liðið sigraði Viking, 4:1, í næst síðustu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.
Meira
VIKTOR Bjarki Arnarson, leikmaður ársins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, hefur samið við norska úrvalsdeildarliðið Lilleström. Viktor lék með Víkingum í sumar en samningurinn sem hann gerði við Lilleström er til þriggja ára.
Meira
WAYNE Rooney stal senunni í ensku úrvalsdeildinni um helgina en eftir 10 leika markaþurrð skoraði Rooney þrennu í stórsigri Manchester United á Bolton, 4:0. Chelsea lagði nýliða Sheffield United, 2:0, og hafa United og Chelsea náð fimm stiga forskoti á toppi deildarinnar.
Meira
Belgíska 1. deildarfélagið Lokeren rak í gær þjálfara liðsins, Ariel Jacobs, en félagið hefur byrjað tímabilið illa og er aðeinsmeð 10 stig eftir jafn marga leiki og er í 15 sæti. Á laugardagskvöld tapaði liðið fyrir Westerlo, 4:1.
Meira
52 lóðir í Garðahrauni og 40 lóðir í Hraunsholti eystra eru nú til úthlutunar. Kristján Guðlaugsson leit inn á bæjarskrifstofur Garðabæjar og kynnti sér málið nánar.
Meira
Leist ekki á lóðina og vildi ekki byggja á henni, - þetta voru skýringar lóðarhafa Álfhólsvegar 102 á níunda áratugnum. Mörgum fannst þetta skiljanlegt, annað eins og gengið hafði á þegar reynt var að sprengja burt hólinn eða bora í hann.
Meira
Þegar fjárfest er í fasteign þarf eins og með allar aðrar fjárfestingar að meta arðsemi þeirra. Fasteignafélög eru besta dæmið um aðila sem leigja og reka atvinnuhúsnæði og íbúðir.
Meira
Grænkál er harðgerð tegund sem vex vel í görðum á Íslandi og er vafalaust fagurgrænt víða í görðum ennþá, þótt allt annað grænmeti sér löngu fallið í næturfrostum sem voru talsverð fyrir nokkru.
Meira
Það er bráðnauðsynlegt nú þegar vetur gengur í garð með allar sínar pestir að vera duglegur að þvo sér um hendurnar, þannig getur maður víst komið í veg fyrir margvíslegt smit.
Meira
Hafnarfjörður - Gimli fasteignasala er með í sölu 90 fm 3ja herb. íbúð á 1. hæð í fallegu og nýlega endurnýjuðu fjölbýli í norðurbæ Hafnarfjarðar. Komið er inn í anddyri/hol með skáp, þaðan er opið í bjarta og rúmgóða stofu.
Meira
Reykjavík - Fasteignamiðlun er með í einkasölu 234,60 fm endaraðhús, sem er kjallari og tvær hæðir ásamt 20 fm bílskúr, samtals 254,60 fm. Á 1. hæð er gengið inn í anddyri með fataskápum. Inn af anddyri er snyrting með glugga og innréttingu.
Meira
Það er kominn vetur, nú er alveg vonlaust að halda öðru fram. Þegar þetta er skrifað, í fyrstu viku vetrar, er fjallið mitt grátt niður á láglendi. Fjallið mitt er engin hundaþúfa heldur 1.666 metra hátt glæsifjall, sem ég dáist að úr fjarlægð.
Meira
Lýsing er mikilvæg hér á norðurslóðum, bæði úti sem inni. Æ fleirum er ljós nauðsyn þess að lýsa vel upp garða sína og hafa birtu við útidyrnar á dimmum vetrarkvöldum.
Meira
Hafnarfjörður - Höfði fasteignasala var að fá í einkasölu sérlega glæsilegt og mikið endurnýjað einbýlishús á einum besta stað í miðbæ Hafnarfjarðar. Húsið er 178,9 fermetrar, byggt árið 1906 og stendur á 623,9 fm lóð við Lækinn - mjög góð staðsetning.
Meira
Í síðasta fasteignablaði var mynd af veggteppi sem íslensk kona saumaði í húsmæðraskólanum á Staðarfelli skólaárið 1942-1943 í ullarefni með ullargarni. Elsa E.
Meira
UM þessar mundir er verið að lokahönd á frágang utanhúss hjá fjölnota íþróttahúsi á Akranesi, sem hefur fengið nafnið Akraneshöllin. "Húsið er fullbúið að innan en verið er að ljúka við að ganga frá svæðinu utanhúss, svo sem lýsingu og bílastæðum.
Meira
Þann 12. október opnaði IKEA nýtt 20.600 fermetra húsnæði á verslunarsvæði - Kauptúni - og staðsett er í Garðabæ við nýju Reykjanesbrautina. Kristján Guðlaugsson leit inn í nýju verslunina og talaði við Þórarin Ævarsson framkvæmdastjóra.
Meira
Rókókó-stíllinn er eftirsóttur í dag um alla álfuna og þó víðar væri leitað. Kristján Guðlaugsson talaði við Berglindi Sigurðardóttur í Antik-Húsinu á Skólavörðustíg um þennan skemmtilega stíl
Meira
Reykjavík - Eignamiðlun er með í sölu núna Skógarhlíð 22 (Þóroddsstaði) í Reykjavík. Þetta hús hefur lengi verið áberandi í borginni, það var byggt árið 1927, það er upphaflega gamalt býli.
Meira
Garðabær - Húsakaup eru með í sölu núna vel einbýlishús neðst á Flötunum í Garðabæ. Húsið er einstaklega vel staðsett á mjög stórri lóð rétt við hraunið. Umhverfis húsið er fallegur og skjólsæll garður í mikilli rækt með fjölbreyttum trjágróðri.
Meira
Hleðslur úr stórum steinum eru mjög vinsælar núna, bæði í einkagörðum og líka á opnum svæðum. Holta- og sprengigrjót eru vinsælust í þessar hleðslur sem unnar eru með stórtækum...
Meira
Reykjavík - Hof fasteignasala er með í sölu núna íbúð að Þorláksgeisla 17, hún er með 21,5 millj. áhv. í lánum frá Íbúðalánasjóði og Spron með 4,15% vöxtum og er laus við kaupsamning. Um er að ræða glæsilega 4ra herbergja íbúð á 4.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.