EITT hundrað ára skólahaldi í Hrísey verður fagnað með skólahátíð í eyjunni á morgun, sunnudag, kl. 16 og verður þá fjöldi gamalla bóka og annarra muna til sýnis.
Meira
Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is RÍKISSJÓÐUR hefur greitt rúma eitt hundrað milljarða króna aukalega vegna lífeyrisskuldbindinga ríkisstarfsmanna uppreiknað undanfarin sjö ár.
Meira
Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is Ríkissjóður hefur greitt rúmar eitt hundrað milljarða króna aukalega vegna lífeyrisskuldbindinga ríkisstarfsmanna uppreiknað undanfarin sjö ár.
Meira
Taipei. AFP, AP. | Saksóknarar á Taívan hafa lagt fram ákæru á hendur eiginkonu Chen Shui-bian, forseta Taívans, en hún er sökuð um spillingu ásamt þremur aðstoðarmönnum forsetans.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest gæsluvarhald yfir manni sem grunaður er um stórfellt kókaínsmygl til landsins í sumar. Sætir hann því gæsluvarðhaldi til 20. desember en smyglið komst upp 9. ágúst.
Meira
BENEDIKT Hjartarson bókmenntafræðingur skrifar ritdóm um fjórða og fimmta bindi Íslenskrar bókmenntasögu í Lesbók og segir meðal annars: "Útgáfan á fjórða og fimmta bindi bókmenntasögunnar er síður til marks um að ritun þeirrar sögu sé nú á...
Meira
Falskt öryggi fatlaðra í hjólastólum í bílum þykir gefa tilefni til að hagsmunaaðilar setjist nú niður og komi þessum brýnu öryggismálum á hreint.
Meira
Á MORGUN, sunnudag, heldur fjáröflunarnefnd Bandalags kvenna í Reykjavík bingó á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, kl. 16. Glæsilegir vinningar, matarkörfur, ferðavinningur, leikhúsmiðar og gjafavörur.
Meira
Napólí. AFP. | Ríkisstjórn Romanos Prodis, forsætisráðherra Ítalíu, er nú undir vaxandi þrýstingi vegna glæpaöldu í Napólíborg sem hefur þegar kostað 12 manns lífið og alls 75 mannslíf á árinu.
Meira
BLÓMABÚÐIN 18 rauðar rósir var nýlega opnuð í Hamraborg 3 í Kópavogi. Verslunin er í eigu hjónanna Sigríðar Gunnarsdóttur og Vignis Inga Garðarssonar. Boðið er upp á blóm og blómaskreytingar í miklu úrvali.
Meira
Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti ferðaðist um miðvesturríkin í gær og studdi þannig við bakið á frambjóðendum repúblikana á lokaspretti kosningabaráttunnar fyrir þingkosningarnar sem fram fara á þriðjudag.
Meira
ORKUSETUR hefur veitt EGO-sjálfsafgreiðslustöðvunum viðurkenningu fyrir frumkvæði að því að draga úr eldsneytisnotkun. Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs, afhenti Jóhanni P. Jónssyni, framkvæmdastjóra EGO, viðurkenninguna í gær.
Meira
Óhætt er að segja að þingmannabekkurinn hafi verið fáliðaður í vikunni. Skýringin er fyrst og fremst þessi: prófkjör fara fram víða um land þessar vikurnar og þingmenn sem sækjast eftir áframhaldandi þingsetu eru með hugann við prófkjörsbaráttuna.
Meira
HEILDARÚTGJÖLD bifreiða-, ferða og risnukostnaðar ríkisins lækkuðu um 39,4 milljónir kr. milli áranna 2004 og 2005, eða um 1%. Þetta kemur fram í skriflegu svari fjármálaráðherra, Árna M.
Meira
FRYSTITOGARINN Kleifaberg frá Ólafsfirði fékk heillegt tundurdufl í trollið þar sem skipið var að veiðum á Þverálshorni, um 40 sjómílur norður af Straumnesi.
Meira
Blönduós | Folaldasýningin verður í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi í dag, laugardag, klukkan 13.30. Sýningin er haldin í samvinnu hrossaræktenda í Húnavatnssýslum.
Meira
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, seldi í gær fyrsta "neyðarkall" Slysavarnafélagsins Landsbjargar og hóf þar með fjáröflunarátak félagsins um land allt.
Meira
YFIRMAÐUR öryggis- og varnarmáladeildar Carnfield-háskóla, prófessor Richard Holmes, flytur fyrirlestur á sameiginlegum fundi Samtaka um vestræna samvinnu (SVS) og Varðbergs mánudaginn 6. nóvember nk.
Meira
JAFNINGJAFRÆÐSLAN stendur fyrir miðnæturgöngu niður Laugaveginn í kvöld og er hún liður í átakinu nóvember gegn nauðgunum. Þar munu m.a. Sniglarnir verða með í för samkvæmt upplýsingum aðstandenda göngunnar.
Meira
Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | "Við ætlum að safna peningum fyrir Krabbameinsfélagið á Suðurlandi, til verkefnis sem er tengt sjúkrahúsi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi og gengur út á að innrétta þar líknardeild með tækjabúnaði.
Meira
EMIL Hjörvar Petersen gefur kost á sér í 3.-4. sæti í sameiginlegu prófkjöri Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmunum og Suðvesturkjördæmi, sem fram fer 2. desember næstkomandi. Emil hefur starfað mikið fyrir VG síðastliðin ár.
Meira
PÉTUR Árni Jónsson gefur kost á sér í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi í prófkjöri sem fram fer 11. nóvember. Pétur Árni er Seltirningur, stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og starfar sem skattaráðgjafi með laganámi við HÍ.
Meira
VALGERÐUR Sverrisdóttir utanríkisráðherra heldur á morgun, sunnudag, í fjögurra daga opinbera heimsókn til Úkraínu, í boði Borys Tarasjúk, utanríkisráðherra Úkraínu. Skv.
Meira
HUNDAEIGN í höfuðborginni eykst stöðugt og til að vekja athygli á málefnum ábyrgra hundaeiganda verður hin árlega Laugavegarganga Hundaræktarfélags Íslands farin í dag, laugardag.
Meira
Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is "ÉG hélt að ég hefði ekki skrokk í þessa vinnu og væri búinn að gleyma skurðinum en það er með hvalskurðinn eins og að hjóla - kunnáttan gleymist ekki og kemur aftur.
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is "Okkar fyrstu viðbrögð eru að það sé varasamt að vera með alhæfingar af þessu tagi, því auðvitað er ástand fiskstofna í heiminum jafnmisjafnt og stofnarnir eru margir.
Meira
Genf. AFP. | Koltvísýringur (CO 2 ) í andrúmsloftinu jókst um hálft prósent árið 2005 í samanburði við árið áður og hefur aldrei mælst meiri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðaveðurstofnunarinnar (WMO).
Meira
ÞAÐ er lagt í hendur skipstjóra að meta hvort óhætt sé að sigla ferjunni Herjólfi milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja þegar veður er slæmt, að sögn Guðmundar Pedersen, rekstrarstjóra Herjólfs.
Meira
FERÐAMÁLARÁÐ telur brýnt að fram fari fagleg og hlutlaus könnun á því hvaða áhrif hvalveiðar hafa á ímynd Íslands í augum umheimsins, að því er samþykkt var á fundi ráðsins í gær.
Meira
RUNÓLFUR Ágústsson, rektor Háskólans á Bifröst, sagði í ræðu á málþingi háskólans og félagsmálaráðuneytisins um launajafnrétti á vinnumarkaði á Bifröst í gær að með sömu þróun og verið hefði undanfarin ár myndi það taka 581 ár að ná fram jöfnum rétti...
Meira
Siglufjörður | Leikfélag Siglufjarðar sýnir um þessar mundir gamanleikinn "Láttu ekki deigan síga" í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Frumsýnt var í Bíó Café síðastliðinn mánudag.
Meira
Hljómeyki Í sérblaði um jólahlaðborð, sem kom út í gær með Morgunblaðinu, var rangt farið með nafn kórstjóra sönghópsins Hljómeykis. Þar var sagt að hann héti Ragnar Sigurðsson en rétt nafn er Magnús Ragnarsson.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir 23 ára manni, Kristófer Erni Sigurðarsyni, sem er til heimilis í Logafold 141 í Reykjavík. Kristófer er um 185 cm á hæð með stutt, skollitað hár.
Meira
Reykjanesbær | Söngleikurinn Öskubuska sem sýndur er Frumleikhúsinu virðist hafa slegið í gegn. Sýnt hefur verið fyrir fullu húsi fimm sinnum og meira og minna er uppselt á næstu sýningar.
Meira
UNGIR jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, hvetja stjórnvöld til þess að láta af hvalveiðum í atvinnuskyni þar sem slíkar veiðar muni að öllum líkindum skaða verulega ímynd Íslands á alþjóðavettvangi.
Meira
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Keflavík | "Við notum veturinn í undirbúning og fræðslustarf og svo förum við á fullt í hreinsunina með vorinu," segir Tómas J. Knútsson, herforingi í umhverfissamtökunum Bláa hernum.
Meira
ÓSKAR Dýrmundur Ólafsson, framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, segir mikla fræðslu liggja fyrir til barna og unglinga varðandi skaðsemi vímuefna.
Meira
BANDARÍSKA líftæknifyrirtækið BioStratum á í erfiðleikum með að fjármagna þriðju fasa tilraunir á lyfinu Pyridorin eftir að í ljós kom að hægt er að kaupa virka efnið í lyfinu á Netinu.
Meira
FULLTRÚAR tveggja flokkanna í minnihluta bæjarstjórnar Akureyrar gagnrýna þá ákvörðun meirihlutans að selja hlut bæjarins í Landsvirkjun. Akureyrarbær og Reykjavíkurborg seldu ríkinu hluti sína í fyrirtækinu í vikunni.
Meira
STJÓRN Snæfells, félags smábátaeigenda á Snæfellsnesi, mótmælir harðlega ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins um að heimila flottrollsveiðar á grunnslóð við Snæfellsnes.
Meira
VERKNÁMSKENNARAR Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hafa sent þingmönnum kjördæmisins bréf þar sem því er mótmælt að dregið sé úr fjárframlögum, í fjárlagafrumvarpi næsta árs, til verknáms í framhaldsskólum. Þeir segja í bréfinu að skerðingin eigi sér...
Meira
Beit Hanoun. AFP. | Nítján Palestínumenn féllu í árásum Ísraelsmanna í Beit Hanoun á Gaza-svæðinu í gær og er þetta mesta mannfall þar á einum degi í marga mánuði.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík lokaði vínbúð sem Ungir frjálshyggjumenn höfðu opnað á Lækjartorgi kl. 14 í gær, en með því að selja bjór vildu frjálshyggjumennirnir mótmæla einokun ríkisins á sölu áfengis.
Meira
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur og Steinþór Guðbjartsson REGLUR varðandi handfarangur verða hertar í öllum löndum EFTA og Evrópusambandsins á mánudag. Jóhann R.
Meira
TVÆR rjúpnaskyttur, sem leitað hafði verið frá því klukkan 16 í gær, fundust heilar á húfi í gærkvöldi, að sögn lögreglunnar á Blönduósi. Fundust mennirnir í Sauðadal, sem er milli Svínadals og Vatnsdals, klukkan 21.20.
Meira
FÁLIÐAÐ hefur verið í þingsalnum þessa vikuna m.a. vegna prófkjara flokkanna og þings Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn. Einstakir þingmenn hafa þó notað tækifærið og mælt fyrir þingmálum sínum.
Meira
FERMINGARBÖRN úr 66 sóknum í öllum landshlutum ganga í hús mánudaginn 6. nóvember kl. 17.30-21 og safna peningum til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í þremur löndum Afríku: Mósambík, Malaví og Úganda.
Meira
KÓPAVOGSDEILD Rauða kross Íslands og Mæðrastyrksnefnd Kópavogs munu starfa saman að neyðaraðstoð við bágstadda einstaklinga og fjölskyldur fyrir jólin.
Meira
Washington. AFP. | Bandarísk stjórnvöld eru sögð hafa sett á netið írösk gögn sem útskýra hvernig eigi að búa til kjarnorkusprengju. The New York Times sagði frá þessu í gær.
Meira
SIGFÚS Jörundur Árnason Johnsen, fyrrverandi kennari og félagsmálastjóri, lést á Landspítalanum sl. fimmtudag, 76 ára að aldri. Sigfús fæddist í Vestmannaeyjum 25. nóvember 1930.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt síbrotamann á sextugsaldri í 7 mánaða fangelsi fyrir þjófnaði í vor. Játaði hann að hafa stolið ýmsum hlutum sem honum var gefið að sök, s.s. seðlaveskjum, úrum, fartölvu og fleira.
Meira
HRAFN Jökulsson hóf þriðja skákmaraþon sitt í Kringlunni kl. 9 í gærmorgun. Ætlun hans er að tefla 250 skákir á 40 klukkustundum og lýkur skákmaraþoninu væntanlega síðdegis í dag. Tilgangurinn er að safna fyrir starfi Hróksins á Grænlandi.
Meira
ÍSLANDSPÓSTUR hefur gefið út þrjár frímerkjaraðir. Myndefnin á þeirri fyrstu tengjast skordýrum á Íslandi en villtum ætisveppum á annarri. Í þriðju röðinni eru jólafrímerki Íslandspósts 2006.
Meira
Í dag verður Sólvangsdagurinn haldinn hátíðlegur. Að undanförnu hefur verið unnið að endurbótum á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði. Þessar breytingar verða kynntar fyrir almenningi í dag.
Meira
MÓTMÆLANDI býr sig undir að kasta Molotov-kokkteil þar sem bifreið öryggisfyrirtækis stendur í ljósum logum fyrir utan tækniháskóla í Aþenu í gær. Óeirðalögregla beitti táragasi á óeirðaseggi, á sama tíma og fram fór friðsöm mótmælaganga 9.
Meira
MÖRGU ungu fólki finnst það jafnvel normið að prófa örvandi vímuefni. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir lífseiga þá goðsögn að örvandi efni séu skaðlaus og ranghugmyndir ungs fólks um efnin miklar.
Meira
Bagdad. AFP. | Lögregluyfirvöld í Bagdad tilkynntu í gær að þau hefðu fundið lík 56 manna á víð og dreif um borgina en hinir látnu voru allir karlar á aldrinum 20 til 45 ára.
Meira
DRÖG að frumvarpi samgönguráðherra til breytinga á umferðarlögum, sem fela í sér m.a. harðari viðurlög vegna hraðakstursbrota, þrepaskipt ökuleyfisréttindi og mögulega upptöku ökutækja við ítrekuð brot, eru kynnt á vef samgönguráðuneytisins.
Meira
ATLANTSOLÍA afhenti nýlega Umsjónarfélagi einhverfra fjárstyrk sem fyrirtækið hét á þátttakendur í Betra Breiðholtsskokkinu á Breiðholtsdaginn sem haldinn var fyrir nokkrum vikum.
Meira
TVÖ nýleg dæmi eru um atvik þar sem saklaust fólk hefur verið fengið til þess að taka þátt í peningaþvætti þegar það taldi sig vera að sinna nýfengnu starfi fyrir erlent fyrirtæki í gegnum netið.
Meira
VEÐURSTOFAN ráðleggur fólki vestanlands að ganga vel frá lausamunum utan dyra, t.d. á byggingarsvæðum, í dag, og þeim sem eiga báta í höfnum er bent á að festa þá vel, en gefin hefur verið út stormviðvörum vestan til á landinu í kvöld.
Meira
Indlandi. AP. | Lögreglumaður í Bihar í norðausturhluta Indlands var vægast sagt undrandi þegar hann fann út að þriggja mánaða drengur var ákærður vegna ráns í strætisvagni.
Meira
NAUÐSYNLEGT er að æfa björgunaraðgerðir af öllu tagi stíft og reglulega svo allir sem koma að slíkum málum séu tilbúnir þegar að alvörunni kemur, og var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar því við æfingar við Viðey í gær.
Meira
Kjartan Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans, tjáði sig um peningana frá Moskvu í Morgunblaðinu í gær í grein sem hann nefnir: Hvað varð um peningana frá Moskvu?
Meira
Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri vék að framtíðaruppbyggingu Þjóðleikhússins í viðtali við Morgunblaðið sl. miðvikudag og sagði m.a.: "Það er búið að vera vitað og viðurkennt í áratugi, að það þurfi að byggja við leikhúsið...
Meira
Dagurinn í dag er tileinkaður tónskáldinu Johanni Seabstian Bach í Akraneskirkju. Friðrik Vignir Stefánsson, orgelleikari og tónlistarkennari, leikur nokkur þekkt verk eftir Bach á orgel og spjallar við áheyrendur um orgelið og möguleika þess.
Meira
Víkingur Heiðar Ólafsson er 22 ára píanóleikari. Hann er enn í námi, en langt er síðan gagnrýnendur fóru að tala um hann sem fullburða listamann. Hann hefur verið óvenjubráðþroska í listinni.
Meira
Útvarpsstöðin X-ið 97,7 mun standa fyrir fyrsta Íslandsmótinu í skyrglímu og fer það fram á skemmtistaðnum Pravda við Austurstræti í dag. Af þessu tilefni mun hljómsveitin Brain Police troða upp.
Meira
Bandaríski Óskarsverðlaunaleikarinn Robert De Niro hvetur New York-búa til þess að styðja Hillary Clinton í þingkosningunum þann 7. nóvember næstkomandi.
Meira
Leikritið Fýsn eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann varð hlutskarpast í leikritunarsamkeppni Borgarleikhússins og Spron sem bar yfirskriftina Sakamál á svið.
Meira
Klukkan 16 í dag verður sænska myndin Sven Klangs Kvintett (1976) í leikstjórn Stellan Olson sýnd í Kvikmyndasafninu. Sögusviðið er sænskur smábær árið 1958.
Meira
ÞEIM Baggalútum nægir ekki að halda úti vinsælli heimasíðu né gefa út metsöluplötu heldur ætla þeir félagar einnig að flytja fréttir með sínu nefi á Rás 2 á laugardögum í vetur.
Meira
Tónlist eftir Beethoven og Brahms. Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson. Sinfóníuhljómsveit Íslands lék undir stjórn Rumon Gamba. Fimmtudagur 2. nóvember.
Meira
Listaháskóli Íslands hefur verið í umræðunni undanfarna daga og sýnist sitt hverjum. Málið snýst um verkefni í leiklistardeild skólans, þar sem nemendur áttu að draga upp mynd af ljótleika í samfélaginu.
Meira
KAMMERSVEIT Reykjavíkur heldur þrenna tónleika í Stykkishólmi, á Ísafirði og Húsavík. Leikin verða verk eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Franz Schubert. Fyrstu tónleikarnir verða í dag kl. 17 í Stykkishólmskirkju.
Meira
UNGLIST hófst með pomp og prakt í gær þegar myndlistarmaraþoninu var hleypt af stokkunum í Hinu húsinu og fjöllistakvöldið Heyr, heyr hamfarir hófst í Tjarnarbíói.
Meira
GESTIR þáttarins Orð skulu standa í dag eru Anna Kristjánsdóttir vélfræðingur og Lísa Pálsdóttir dagskrárgerðarkona. Þær ásamt liðsstjórunum Hlín Agnarsdóttur og Davíð Þór Jónssyni fást við þennan fyrripart: Næðingssamur nóvember nístir inn að beini.
Meira
BARÍTÓNSÖNGVARINN Keith Reed hefur undanfarinn áratug verið iðinn við að miðla af reynslu sinni á söngsviðinu til nemenda sinna. Í dag ætlar hann hins vegar að syngja sjálfur og ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur.
Meira
Kristinn Pétursson fjallar um hvalveiðar: "Stærsta vandamálið virðist fæðuskortur, en sérfræðingar nefndra Alþjóðasamtaka fást ekki til að viðurkenna fæðuskort sem vandamál."
Meira
Ásta Birgisdóttir fjallar um skipulagsmál á Akureyri og Sundfélagið Óðin: "Það er með öllu óskiljanlegt hvernig bæjarstjórn og nefndir innan bæjarins komast að þeirri niðurstöðu að einkaaðili geti fengið að byggja á heimavelli eins félags og þvert á hagsmuni þess..."
Meira
Oddný Sturludóttir fjallar um málefni innflytjenda: "Ég hvet alla sem áhuga hafa á mannlegum tilfinningum, landi og þjóð að drífa sig í Iðnó og sjá leikritið "Best í heimi"."
Meira
Hjalti Sæmundsson viðbúnað Landhelgisgæslunnar og annars björgunarliðs vegna tilkynningar um nauðlendingu bandarískrar flugvélar: "Fréttaflutningur þar sem gefið er í skyn að samskipti flugstjórnarmiðstöðvarinnar og flugstjórans hafi verið ófagleg á ekki við rök að styðjast."
Meira
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir skrifar um hagsmunamál fjölskyldunnar: "Tíminn er dýrmætur og nútímahraði samfélagsins býður ekki öllum foreldrum val þegar að því kemur að eyða nægilega miklum tíma með börnum sínum."
Meira
Lovísa Einarsdóttir fjallar um endurhæfingu vegna brjóstakrabbameins: "Úrbóta er þörf og það sem allra fyrst. Betri heilsa er góð fjárfesting fyrir samfélagið. Þörf er á alhliða endurhæfingarstöð..."
Meira
Rannveig Guðmundsdóttir skrifar um prófkjör Samfylkingarinnar: "...þingflokkur okkar hefur haft þá sérstöðu á Alþingi að helmingur þingflokks er konur og helmingur karlar. Ég vona að Samfylkingin haldi áfram að vera þannig merkisberi jafnréttis..."
Meira
Ösp Árnadóttir fjallar um ofbeldishneigð: "Niðurstaðan hlýtur því alltaf að vera sú að það er ekki hægt að skýra nauðganir með einhverju sem kemur frá fórnarlambinu."
Meira
Margrét Jónsdóttir skrifar um orðnotkun: "...tel ég bara meira viðeigandi að nota orðið "list" yfir allt sem flokkast undir list og "afþreying" yfir allt sem fólk notar til að drepa tímann..."
Meira
Frá Andreu Ólafsdóttur, Arnari Steini Friðbjarnarsyni, Birgittu Jónsdóttur, Bjarka Bragasyni, Helenu Stefánsdóttur, Jason Slade og Maríu Kristínu Jónsdóttur: "LAUGARDAGURINN 4. nóvember er dagur alþjóðlegrar loftslagsherferðar sem 48 lönd taka þátt í í ár. Á Lækjartorgi frá kl. 13 og fram eftir degi munu Íslandsvinir standa fyrir myndasýningu sem varpar ljósi á þátt Íslendinga í þessu vandamáli."
Meira
Þórhildur Þorleifsdóttir fjallar um réttindabaráttu kvenna: "Rannsóknir, upplýsingar, þekking og tillögur til úrbóta og lausna eru sterkt tæki í réttindabaráttu kvenna."
Meira
Jón Ólafsson svarar grein Kjartans Ólafssonar: "Það kann aldrei góðri lukku að stýra að stjórnvöld veiti fé til ákveðinna fyrirskipaðra rannsókna, síst af öllu þegar um er að ræða jafn rammpólitískt efni og tengsl við stórveldi kalda stríðsins..."
Meira
Margrét Jónsdóttir skrifar um nám í fótaaðgerðafræðum: "Fótaaðgerð er heilbrigðisþjónusta og ég treysti því að menntamála- og heilbrigðisyfirvöld láti það slys ekki henda að námið verði tekið upp í snyrtiskólum hér á landi."
Meira
Kristín Atladóttir fjallar um ótta og tortryggni: "Ekki ætla ég að mæla gegn því að fólk fái sér hin og þessi tæki til að auka persónulegt öryggi, en ég vara við óttavæðingunni."
Meira
Frá Kristjáni Guðmundssyni: "NÝLEGA birtist fréttagrein í dagblaði með fréttum frá ríkisskattstjóra þar sem hann er ósáttur við skil fyrirtækja til stofnunarinnar á ársuppgjöri fyrirtækja sem sagt var að væri opinber gögn til birtingar og notkunar af hverjum sem hafa vill."
Meira
Frá Sigurði Hólm Gunnarssyni: "NOKKUÐ hefur borið á því að lesendur Morgunblaðsins misskilji andstöðu Siðmenntar, félags siðrænna húmanisma, við Vinaleið Þjóðkirkjunnar í opinberum skólum. Sem dæmi ritaði G. Heiðar Guðnason grein í Morgunblaðið sunnudaginn 29."
Meira
Samúel Örn Erlingsson fjallar um þjóðmál: "Hinn mikli vöxtur byggðar í Suðvesturkjördæmi kallar á framsýni í samgöngumálum. Menn hafa ekki haft undan, umferðin silast um svæðið kvölds og morgna."
Meira
Einar Þór Gunnlaugsson fjallar um lista- og menningarmál: "...verður það að teljast freistandi og spennandi verkefni að færa alla starfsemi sem tengist þessum málaflokki úr menntamálaráðuneyti til listaráðs, eða lista- og menningarmiðstöðvar."
Meira
Eftir Valgerði Bjarnadóttur: "Það er nákvæmlega sama hvaða samanburður er tekinn, alls staðar blasir við að eftirlaunalögin eru ekkert annað en hneyksli."
Meira
Anna Elísabet Ólafsdóttir fjallar um áfengis- og vímuefnavanda ungmenna: "Fyrir þá sem ánetjast vímuefnum þarf að vera til staðar öflugt meðferðarúrræði og stuðningur, svo þeir nái að komast aftur á braut eðlilegs lífs."
Meira
Frá Guðmundi Bergssyni: "ÉG VIL lýsa yfir ánægju minni með þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra að hefja hvalveiðar en ekki með tímasetninguna, þ.e. að hafin sé veiði um vetur. Þetta hefði átt að gerast í júlí eða ágúst."
Meira
Hvar er jólamyndin? ÉG VIL auglýsa eftir gömlu jólamyndinni minni sem ég hafði átt næstum alla mína ævi. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var hún orðin alllasleg, svo ég tók mig til eitt árið og lét ramma hana inn í rauðan ramma, með grænum...
Meira
Eftir Einar K. Guðfinnsson: "Vitaskuld ber okkur Íslendingum að hlusta þegar ágætar vinaþjóðir okkar gagnrýna athafnir okkar og ákvarðanir. Það þýðir ekki á hinn bóginn að við verðum skilmálalaust að hlíta athugasemdum þeirra."
Meira
Svanhvít Aradóttir fjallar um mannlíf og atvinnumál á Austurlandi og nýtingu auðlinda landsins: "Með fjölbreytni í atvinnulífi og mannlífi og virðingu fyrir náttúrunni blómstrar Austurland sem aldrei fyrr."
Meira
Arnold Björnsson svarar grein Helgu Bragadóttur um Vinaleið: "Vinaleið gengur út á að fulltrúar þjóðkirkjunnar fái forgang að skólum landsins umfram önnur trúarbrögð eða lífsskoðunarfélög."
Meira
Elías Davíðsson gerir athugasemd við grein Skúla Skúlasonar um múslímska hryðjuverkamenn: "Þjóðin á rétt á sannleikanum um þessa atburði og um þá hættu sem þjóðum heims stafar frá þeim sem nota hryðjuverkaógnina til að réttlæta árásir sínar á önnur ríki..."
Meira
Anton Kristinn Jósson fæddist í Bolungarvík 8. september 1924. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri hinn 23. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akureyrarkirkju 30. október.
MeiraKaupa minningabók
Áslaug Þorgeirsdóttir fæddist á Húsavík 29. nóvember 1940. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 29. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þorgeir Kristjánsson, f. 27. mars 1909, d. 12. apríl 1986, og Rebekka Pálsdóttir, f. 17.
MeiraKaupa minningabók
Ásta Jóhanna Kristinsdóttir fæddist að Eystri-Löndum í Vestmannaeyjum 8. ágúst 1916. Hún andaðist á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum 29. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Oktavía Þórunn Jóhannsdóttir á Efri-Hömrum í Holtum, f. 1884, d.
MeiraKaupa minningabók
Gróa Jónína Kristinsdóttir fæddist á Hrollaugsstöðum í Hjaltastaðaþinghá í Norðurmúlasýslu 7. apríl 1918. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands 26. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Kristinn Magnússon, f. á Hrollaugsstöðum 24.6.
MeiraKaupa minningabók
Gunvor Langvad fæddist á Friðriksbergi í Danmörku 15. maí 1930. Hún lést í Lyngby 27. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru William Lænkholm dýralæknir á Sjálandi og kona hans Halldóra Margrét Þórðardóttir Guðjohnsen frá Húsavík. Hinn 15.
MeiraKaupa minningabók
Jóhanna Guðríður Guðmundsdóttir bóndi frá Höfða í Dýrafirði fæddist í Fremstuhúsum í Dýrafirði 16. ágúst 1911. Hún lést á Dvalar og Hjúkrunarheimilinu Tjörn á Þingeyri 27. september síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Jón Gunnar Jónsson fæddist 11. október 1923. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu að Skarði á Skarðsströnd 26. október síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Kristinn Jóhannes Guðjónsson fæddist á Hjallatúni í Tálknafirði 1. janúar 1946. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut hinn 7. október síðastliðinn og var útför hans gerð föstudaginn 13. október.
MeiraKaupa minningabók
Kristján Jóhannsson fæddist í Reykjavík 25. ágúst 1932. Hann andaðist á blóðlækningadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss við Hringbraut 10. september síðastliðinn og var útför hans gerð frá Áskirkju 15. september.
MeiraKaupa minningabók
Ragnar Valdimar Jóhannesson fæddist í Þverdal í Saurbæjarhreppi í Dalasýslu 23. desember 1936. Hann andaðist á líknardeild LSH Kópavogi 8. október síðastliðinn og var jarðsunginn frá Lágafellskirkju 13. október.
MeiraKaupa minningabók
Sólveig Pálsdóttir fæddist á Keldunúpi á Síðu 20. ágúst 1897. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands 28. október síðastliðinn. Sólveig var dóttir hjónanna Páls Þorlákssonar, f. 23. 9. 1873, d. 21. 1. 1906, og Guðrúnar Halldórsdóttur, f. 27. 10.
MeiraKaupa minningabók
Unnur Bettý Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 5. september 1987. Hún lést af slysförum 28. ágúst síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hofsósskirkju 9. september.
MeiraKaupa minningabók
Valgerður Jóna Pálsdóttir fæddist í Nesi í Selvogi 5. maí 1926. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 26. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Páll Grímsson frá Nesi í Selvogi, f. 18. ágúst 1869, d. 22.
MeiraKaupa minningabók
HAGNAÐUR fjárfestingarfélagsins Eyris Invest ehf., sem er stærsti hluthafinn í Marel, nam 1.534 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins eftir skatta.
Meira
ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði um 0,41% í gær og er lokagildi hennar 6.343,66 stig. Straumur Burðarás hækkaði um 2,96% en Avion Group lækkaði um 1,69% og Össur um 1,68%. Krónan veiktist um 0,72% í gær samkvæmt upplýsingum frá Glitni.
Meira
HALDINN hefur verið hluthafafundur í Icelandair Group og ný stjórn félagsins kjörin. Stjórnina skipa: Finnur Ingólfsson formaður, Ómar Benediksson varaformaður, Einar Sveinsson, Hermann Guðmundsson, Helgi S.
Meira
STOFNANDI suður-kóreska stórfyrirtækisins Daewoo, Kim Woo-choong, sem var fyrr á þessu ári dæmdur fyrir fjárdrátt og svik, hefur tapað áfrýjun á máli sínu.
Meira
EFTIR að bandaríska líftæknifyrirtækið BioStratum hefur varið um 100 milljónum Bandaríkjadollara í þróun á lyfinu Pyridorin, hefur komið í ljóst að hægt er að kaupa virka efnið í lyfinu á netinu.
Meira
Þegar skammdegið færist yfir og kuldinn byrjar að bíta í kinnar er tilhneiging manna oftar en ekki að krunka sig saman rétt eins og háttur farfuglanna er á haustin áður en þeir taka flugið langa.
Meira
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Á Tunnuverkstæðinu, sem er vinsæll matsölustaður í hjarta Qaqortoq, öðru nafni Julianehaab, á Grænlandi, ræður ríkjum Íslendingurinn Edda Lyberth, en staðinn opnaði hún árið 2000.
Meira
Friðrik Steingrímsson frétti af nýrri ljóðabók Jóa í Stapa og orti að bragði: Nú mér engin halda höft hinir mega gapa, eignast vil ég Axarsköft eftir Jóa í Stapa. Góða bókin gefur mér gæfu að njóta mestrar, Jói í Stapa alltaf er ágætur til lestrar.
Meira
FJÖLVÍTAMÍN virðast draga úr líkum á ófrjósemi tengdri egglosi kvenna samkvæmt nýrri bandarískri rannsókn, að því er greint var frá í breska dagblaðinu Daily Telegraph nýlega. Sýndi rannsóknin, sem m.a. var unnin af dr.
Meira
Vökvakennd efni í handfarangri mega ekki vera í umbúðum sem taka meira en 100 millilítra í flugi milli landa Evrópska efnahagssvæðisins frá og með næsta mánudegi.
Meira
Það eru ekki bara börn sem klæða sig upp í búning á hrekkjavöku, sem haldin var hátíðleg víða um heim í kringum síðustu helgi. Haldin var sérstök búningakeppni fyrir hunda í Kaliforníu en þar er hefð fyrir því að klæða dýrin á slíkan hátt.
Meira
SÚ var tíðin að raftæki og slíkar græjur voru litnar hornauga af maraþonhlaupurum, sem fyrir ekki svo löngu litu á slíka tæknihluti sem truflun sem á vissan hátt "vanhelgaði" hlaupin.
Meira
Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Fjögurra kvölda tvímenningskeppni hjá Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins lauk sunnudaginn 29/10. með öruggum sigri þeirra Ingibjargar Halldórsdóttur og Sigríðar Pálsdóttur. Lokastaðan varð þessi. Ingibj. Halldórsd.
Meira
Guðjón Guðmundsson fæddist á Ísafirði 1951. Hann lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands 1973, cand. oecon gráðu frá Háskóla Íslands 1977 og cand. merc. frá Verslunarháskólanum í Kaupmannahöfn 1984.
Meira
Fjölskyldur eru sérstaklega velkomnar á sýninguna Handritin til að kynnast skrifaraiðn miðalda af eigin raun. Safnkennari Árnastofnunar verður í skrifarastofu sýningarinnar og veitir aðstoð og fræðslu.
Meira
jonf@rhi.hi.is: "Málvöndun í Þýskalandi Í fertugasta tölublaði þýska tímaritsins Spiegel (2.10.2006) er fjallað rækilega um málrækt og stöðu þýskrar tungu. Á forsíðu stendur Bjargið þýskri tungu (Rettet dem Deutsch (í stað... das Deutsch )) og á bls."
Meira
1 Víkingur Heiðar Ólafsson þótt leika á heimsmælikvarða á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar. Hvaða verk lék hann? 2 Málverk eftir bandaríska málarann Jackson Pollock seldist fyrir metfé á dögunum.Árið 2000 var gerð kvikmynd um málarann.
Meira
Tónlistardagskrá í Fossvogskirkju Í Fossvogskirkju er að vanda boðið til tónlistardagskrár á Allra heilagra messu, 5. nóv. Stendur dagskráin yfir frá kl. 14-16.45.
Meira
Það er ástæða til að óska Halldóri Ásgrímssyni, fyrrum forsætisráðherra, til hamingju með kjör hans til að verða framkvæmdastjóri norrænu ráðherranefndarinnar.
Meira
ALÞJÓÐA Ólympíunefndin hefur tilkynnt að mun fleiri lyfjapróf verði tekin af keppendum á Ólympíuleikunum í Peking í Kína árið 2008 heldur en voru tekin á leikunum í Aþenu í Grikklandi fyrir tveimur árum.
Meira
ARON Kristjánsson, þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Skjern, hefur ákveðið að draga fram skóna og vera tilbúinn að leika með lærisveinum sínum þegar þeir mæta belgíska liðinu Sasja í EHF-keppninni í handknattleik.
Meira
TVEIR Lundúnaslagir verða á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á morgun. Flautað verður til leiks klukkan hálf tvö í þeim fyrri þegar leikmenn West Ham og Arsenal hafa gengið út á iðjagrænan Upton Park-leikvanginn.
Meira
HERMANN Hreiðarsson og félagar hans hjá Charlton freista þess í daga að lyfta sér upp úr botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar þegar þeir taka þá móti Manchester City á The Valley. Gert er ráð fyrir að Hermann verði að vanda í byrjunarliðinu í leiknum.
Meira
PETER Crouch, miðherji Liverpool og enska landsliðsins, segir að það sé of snemmt að afskrifa Liverpoolliðið í baráttunni um Englandsmeistaratitlinn.
Meira
SAMUEL Eto'o, landsliðsmaður Kamerún og miðherji Barcelona, deilir á leik Eiðs Smára Guðjohnsen í viðtali við ítalska blaðið Gazzetta dello Sport, þar sem hann segir að Eiður Smári þurfi að ná tökum á að leika sem miðherji og hann sé ekki nægilega...
Meira
Valsmenn fengu góðan liðsstyrk í knattspyrnu í gær þegar Gunnar Einarsson, KR, Jóhann Helgason, Grindavík, Hafþór Ægir Vilhjálmsson, ÍA og Daníel Hjaltason, Víkingi, gengu til liðs við úrvalsdeildarliðið.
Meira
Milan Mandaric , fyrrverandi aðaleigandi Portsmouth , mun hitta forráðamenn Leicester á næstunni. Mandaric hefur áhuga á að kaupa verulegan hlut í félaginu.
Meira
Forráðamenn Bayern München hafa ítrekað að ekki komi til álita að selja enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves . Sir Alex Ferguson , knattspyrnustjóri Manchester United , reyndi ákaft í sumar að fá Hargreaves keyptan en án árangurs.
Meira
SVEIT Gerplu varð í öðru sæti í undankeppni á Evrópumóti kvenna í hópfimleikum í gær en mótið fer fram í Ostrava í Tékklandi. Gerpla fékk 25,55 í einkunn fyrir æfingar sínar. Keppir sveitin þar með til úrslita í dag.
Meira
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í handknattleik gerði sér lítið fyrir og lagði Portúgala 33:26 í þriðja leik sínum á æfingamótinu í Hollandi og hefur því sigrað í tveimur leikjum og tapað einum.
Meira
Leikir helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Laugardagur: Fulham - Everton 12.45 Bolton - Wigan 15 Charlton - Manchester City 15 Liverpool - Reading Manchester United - Portsmouth Watford - Middlesbrough 15 Newcastle - Sheffield United 17.
Meira
STEPHON Marbury, leikmaður NBA-liðsins New York Knicks, hefur vakið athygli vestanhafs að undanförnu en hann á nú í harðri samkeppni við íþróttavöruframleiðendur á borð við Nike, Adidas og Puma.
Meira
HAMAR/SELFOSS krækti sér í fyrstu stigin í Iceland Express deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi þegar liði tók á móti Tindastóli frá Sauðárkróki. Vel studdir af áhorfendum í Hveragerði tókst heimamönnum að snúa leiknum sér í vil á loksprettinum og sigra 82:78 eftir að hafa verið undir lengst af.
Meira
STUART Pearce, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Manchester City, segir að breyta þurfi reglum um ráðningar knattspyrnustjóra í þá átt að aðeins verði hægt að skipta um knattspyrnustjóra á ákveðnum tímabili á hverju ári, líkt og gengur og...
Meira
SKALLAGRÍMUR úr Borgarnesi hreinlega drekkti Fjölnismönnum með þriggja stiga skotum þegar liðin mættust í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi.
Meira
SIR Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, fagnar á mánudaginn 20 ára starfsafmæli sínu hjá félaginu. Undir hans stjórn hefur Manchester United unnið 18 stóra titla.
Meira
Frægð og æska samtímis - það er of mikið fyrir dauðlegan mann, sagði þýski heimspekingurinn Arthur Schopenhauer. Þekki Arsène Wenger, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal, þetta spakmæli lætur hann það sem vind um eyru þjóta.
Meira
DAG einn í Steggjabæ var Addi önd 8 ára patti, byrjaður að spila með landsliði Andantínu, hann var yngsti leikmaður landsliðs frá upphafi, öll lið í heiminum vildu fá hann til þess að skora mörk, hann gat spilað allar stöður vörn, miðju og sókn.
Meira
- Mamma, mér er svo illt í tánum. Nýju skórnir meiða mig. - Það er ekki að undra, þú hefur sett skóna á vitlausa fætur. - Já, en ég er bara með þessa...
Meira
1. Kol. 2. Klukkur sem ganga ekki. 3. 87 4. Kirkjubæjarklaustur. 5. Tengdamamma. 6. Ekkert. 7. Matarlystar. 8. Sólargeislinn. 9. Með því að fara úr skónum. 10. Fíll sem heldur niðri í sér...
Meira
1. Hvað er það sem er fyrst svart á litinn, síðan rautt og að lokum grátt? 2. Hvaða klukkur eru bara réttar tvisvar á sólarhring? 3. Hvað er það sem byrjar með átta og endar á sjö? 4. Hvaða klaustur er ekki heimili nunna og munka? 5.
Meira
Hún María fór út í göngutúr með nýja dúkkuvagninn sinn. Henni fannst svo gaman að vera úti að ganga í góða veðrinu að hún gleymdi sér alveg. Hún tók ekki eftir því hvaða leið hún gekk. Allt í einu sér hún að hún er orðin villt.
Meira
Flær geta, miðað við stærð, hoppað gífurlega hátt. Höfuðlúsin er besti hástökkvarinn meðal flóa. Hún getur hoppað 30 sentímetra langt og 20 sentímetra hátt. Ef við gætum hoppað svona hátt færum við létt með að hoppa yfir...
Meira
Kafarar eiga þess kost að skyggnast undir yfirborðið og sjá inn í undraheima sjávardjúpsins. Þar opnast þeim heimur sem landkrabbar koma aldrei til með að sjá. Þessi kafari á myndinni var aldeilis hlessa þegar hann sá fljúgandi háhyrning.
Meira
Strákar frá Sri Lanka leita að pennavinum á Íslandi, bæði stelpum og strákum. Ramith Thulitha Idamegama 493/8-C, Sirimedura Estate, Meegoda, Sri Lanka Ramith er 16 ára og hefur áhuga á tungumálum og talar ensku.
Meira
Þessi mynd færir okkur aftur í tímann þegar riddarar riðu um héruð og hetjur voru í hávegum hafðar. Hersir, sem er níu ára Eyjapeyi, sendi okkur þessa...
Meira
Senn líður að jólum. Snjórinn er kominn í fjallstoppana og sum staðar teygir hann sig niður hlíðar. Í sumum búðum er farið að selja jólavörur. Barnablaðið efnir til samkeppni um: bestu jólasöguna, bestu jólamyndina og besta jólaljóðið.
Meira
Þórólfur var svo heppinn að vinna í happdrætti. Hann var himinlifandi og réð sér vart fyrir kæti. Þegar hann fór að sækja vinninginn runnu á hann tvær grímur. Hann átti að velja eina skjóðu af peningum.
Meira
Allir eiga sér einhver áhugamál. Ýmsir eru í tómstundum eftir skólann og sumir eru í mörgu í einu. Sigurveig Steinunn Helgadóttir er níu ára og er í Borgarskóla. Hún á sér mörg áhugamál. Hún er í djassballett, píanónámi og tónfræði.
Meira
Í þessari viku þurfið þið að átta ykkur á því hvaða teiknimyndapersónur eru á myndunum. Ef þið þekkið þær eða getið komist að því hvað þær heita skuluð þið skrifa svörin niður og senda Barnablaðinu.
Meira
Það var á 18. öld sem franska skáldið og diplómatinn Chateaubriand hafði orð á áhrifum skynsemi og siðmenningar á heiminn, en þrátt fyrir ríkidæmi ímyndunaraflsins varð hann kaldur og tómur. Við lestur á nýju bókmenntasögu 20.
Meira
Ingvar E. Sigurðsson leikari hefur bætt enn einni rós í hnappagatið með túlkun sinni á rannsóknarlögreglumanninum Erlendi í kvikmyndinni Mýrinni .
Meira
Öðru sinni á þessu ári, nú í október, flutti Þjóðleikhúsið okkur í formi leiksýninga, upplestra og málþings breiða kynningu á merku erlendu leikskáldi. Í vor var það Harold Pinter, í haust norska skáldið Jon Fosse.
Meira
Biblían á hundrað mínútum nefnist bók sem bókafélagið Uglan hefur gefið út. Eins og nafnið gefur til kynna fer bókin yfir efni Biblíunnar í texta sem tekur ekki nema rúman einn og hálfan tíma í lestri.
Meira
Kaliforníubúinn Beck er einn af allra frjóustu dægurtónlistarmönnum samtímans og ný plata frá honum fær tónlistaráhugamenn til að súpa hveljur. Nýjasta verk meistarans heitir The Information , og verða lesendur hér með "upplýstir" um vinnslu hennar.
Meira
Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson hjalmarstefan@gmail.com Borið saman við fyrri plötur Þursaflokksins varð sú fjórða, Gæti eins verið..., eins frábrugðin þeim og hún hreinlega gat orðið.
Meira
Á Íslandi er losun gróðurhúsalofttegunda á mann orðin meiri en í Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í grein Vésteins Lúðvíkssonar í Lesbók í dag og hann bætir við: "Þessum "árangri" höfum við ekki síst náð með mengandi stóriðju.
Meira
Í vikunni kom út nýjasta skáldsaga Arnaldar Indriðasonar, Konungsbók . Bækur hans hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál en þær hafa selst meira en bækur nokkurs annars íslensks höfundar fyrr og síðar.
Meira
Kvikmyndin Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit the Glorious Nation of Kazakhstan eftir breska grínistann Sacha Baron Cohen hefur vakið hörð viðbrögð í Kasakstan en þarlendir telja að kolröng mynd sé dregin upp af...
Meira
Lag: Guðs kirkja er byggð á bjargi Sjá, - hæst rís Hallgrímskirkja með helgan boðskapinn. Hér vilja Guðs að virkja að verði oss hjartfólginn, sem öllum opinberar, að elskar Guð hvern mann í Krist' er krossdeyð umbar með kærleik. Uppreis hann.
Meira
Hlustarinn Hér er listi yfir tíu nýjar plötur sem ég hef keypt. Glöggir sjá að ég hef fengið mér nokkrar hressandi frá Lex-útgáfufyrirtækinu. Þetta er ekki listi yfir það sem ég fíla best heldur er þetta listi yfir þær plötur sem ég er nýbúinn að kaupa.
Meira
IV. bindi eftir Árna Sigurjónsson, Dagnýju Kristjánsdóttur, Halldór Guðmundsson, Jón Yngva Jóhannsson, Magnús Hauksson, Silju Aðalsteinsdóttur og Guðmund Andra Thorsson. V.Meira
að ég yrði ekki langlífur í lífi hinna það var það sem ég lærði í skólanum hvorki ellidauður í æsku né bernskur í elli þegar kennarinn hafði spurt hversu margar vestmannaeyjarnar hefðu verið fyrir gos og væru eftir það og þegar hann hafði fengið þau...
Meira
Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Sífellt fleiri umdeildar heimildarmyndir um ríkjandi stjórnendur skjóta upp kollinum vestanhafs og ein þeirra nýjustu fjallar um ríkisstjóra Kaliforníu, Arnold Schwarzenegger.
Meira
I Er búið að skrifa íslenska bókmenntasögu? Nei, sem betur fer! Það hefur verið gefið út fimm binda verk um íslenska bókmenntasögu. Þar með er ekki búið að segja þá sögu í eitt skipti fyrir öll.
Meira
Eftir Véstein Lúðvíksson vesteinnl@hotmail.com Í nýlegu hefti af tímaritinu Hugur (17/2005) er athyglisverð grein eftir Jón Á. Kalmansson heimspeking, "Nytsemi og skilningur".
Meira
Eftir Gunnar Theodór Eggertsson gunnaregg@gmail.com ! Ég fór í lestarferð frá Hollandi til Belgíu og N-Þýskalands og það kom mér á óvart að landslagið breyttist ekkert allan tímann. Til hvers þarf landamæri þegar landið liggur allt á sama veg?
Meira
Intolerance , sem bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn D.W. Griffith gerði árið 1916, er með stórbrotnustu verkum kvikmyndasögunnar. Hún verður sýnd í Háskólabíói á fimmtudaginn kemur við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Meira
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Í Bolshoj í Moskvu geisar nú stríð, sem snýst um túlkun á óperunni Évgení Ónegín eftir Tsjajkovskí, eftir ljóði og sögu höfuðskáldsins Púshkins. Og það er ekkert "nóboddí" sem hæst lætur.
Meira
Breska skáldkonan Diane Setterfield vakti mikla athygli fyrir fyrstu skáldsögu sína, The Thirteenth Tale / Þrettándu söguna , hádramatíska sögu um hórbarn, sifjaspell, hrörlegt afskekkt glæsihús, óttalegt...
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.